Snorri Björns og áhugavert fólk.
The Snorri Björns Podcast Show podcast is a delightful and informative show that I thoroughly enjoy listening to. It never fails to entertain and educate, and it has become one of my favorite podcasts to listen to. Snorri Björn does an excellent job of hosting the show and always brings interesting guests to discuss a wide range of topics. Whether it's interviewing adventurers who have climbed Mount Everest or elite cross-fit athletes, every episode is filled with fascinating conversations.
One of the best aspects of The Snorri Björns Podcast Show is the variety of guests that are featured on the show. Snorri manages to bring in individuals from diverse backgrounds and industries, which keeps the content fresh and engaging. Whether it's a renowned chef or a world-class athlete, each guest has something unique to offer, and it's always exciting to hear their perspectives on various subjects. Additionally, Snorri's interviewing style is fantastic; he asks thought-provoking questions and allows his guests to share their expertise in an engaging and informative manner.
Another aspect that I appreciate about this podcast is the high production value. The sound quality is excellent, making it easy to listen for extended periods without any distractions or interruptions. The episodes are also well-structured, providing a good mix of entertaining anecdotes, insightful discussions, and valuable takeaways. Furthermore, the length of each episode is just right; they are long enough for in-depth conversations but not so long that they become overwhelming or tedious.
While I thoroughly enjoy The Snorri Björns Podcast Show, there are a few areas for improvement that could make the podcast even better. Firstly, I would love to see more consistency with the release schedule. Sometimes there can be long gaps between episodes, which can be disappointing for regular listeners eagerly awaiting new content. It would be great if the podcast could have a more regular cadence to keep fans engaged consistently.
In conclusion, The Snorri Björns Podcast Show is an outstanding podcast that offers a lot of value to its listeners. With fascinating guests, engaging conversations, and high production value, it consistently delivers entertaining and educational content. While there may be some room for improvement in terms of consistency with the release schedule, overall, this podcast is definitely worth adding to your playlist. I highly recommend giving it a listen if you're looking for an enjoyable and insightful show to tune into.
Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum seinna sást til Bjarna prútta á götumörkuðum í Tælandi sem varð til þess að honum var boðin staða í bankageiranum en hann vann sig hratt upp á þeim vígvelli og var orðinn bankastjóri Íslandsbanka fyrir þrítugt. Við köfum í þennan persónulega og þjóðfélagslega uppgang sem átti sér stað um aldamótin en Bjarni gerir vel grein fyrir aðstæðum sem Íslendingar bjuggu við í stöðnunarhagkerfinu hér á árum áður. Bjarni á sér viðburðarríkt líf utan vinnu en hann er fjögurra barna faðir, hefur m.a. klifið Everest, hlaupið maraþon undir þremur tímum margsinnis (54 ára!), klifið 100 hæstu tinda Íslands, 7 hæstu tinda hverrar heimsálfu og aldrei ýtt á snooze takkann.
Baldvin Þór er Íslandsmethafi í 1.500m, mílu, 3.000m, 5.000m og 10km - með öðrum orðum: hann á Íslandsmetið í öllum þeim greinum sem hann reynir fyrir sér í, aðeins 23 ára gamall! Fáir hafa heyrt Baldvins getið en hann flutti ungur til Bretlands og þaðan yfir til Bandaríkjanna í háskólanám á íþróttastyrk. Þrátt fyrir erfitt fyrsta ár var Baldvin valinn verðmætasti keppandinn á svæðismótum og þrefaldur svæðismeistari. Stefnan er sett á Ólympíuleikana á næsta ári og við ræðum andlegu og líkamlegu áskoranirnar sem fylgja því að keppa á efsta stigi íþrótta, æfinga- og næringahluta hlaupanna, hvað Baldvin gerir og hvað hann gerir ekki til þess að hámarka árangur og auka líkurnar á því að komast til Parísar 2024.
Einar ,,Latsi'' Sigurjónsson er sjúkraþjálfari með þráhyggju fyrir þríþraut. Þó áhugi þinn á þríþraut og þolíþróttum nái ekki jafn langt og Einars þá talar hann hér um hluti sem varða heilsu allra og hvernig er hægt að bæta þá/nýta sér þá til að bæta sig: fitubrennsla, nýting kolvetna, zone 2 æfingar, carbon skór og heimsmet í maraþoni, saunur, HRV og stórskemmtilegar sögur frá 7 ára IronMan ferlinum.
Bubbi Morthens mætir sem opin bók og ræðir áföll í æsku, uppgjör við geranda sinn áður en hann myndi falla frá, steraneyslu eftir sextugt, hversu mikil neyslan og vanlíðanin var þegar hann sprakk út í vinsældum á Íslandi, að pumpa út hundruðum laga og leyfa ekki vinsældum að stjórna sér, hvernig vinsælustu lög á Íslandi verða til, tilraunirnar til að gerast edrú og hvernig verstu dagarnir edrú eru betri en bestu dagarnir dópaður.
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: “aldrei hætta að þora” hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkrana á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af veraldlegum hlutum fann Kristján sig á efri árum í leit að einhverju þýðingarmeira en golfi og sportbílum. Kristján er nýkominn heim frá Suður-Ameríku þar sem hann hjólaði nokkra af sínum erfiðustu kílómetrum til þessa. Hér færðu sögustund af ævintýralegu ferðalagi Kristjáns og fólkinu sem varð á vegi hans.
JGG er atvinnuplöggari sem er sérlega fylginn sér. Hann hefur líklega séð og plöggað öllum bíómyndum og sjónvarpsseríum sem þú hefur heyrt af. Í þættinum ræðir hann forna tíma í útvarpi með menningarhetjum samfélagsins (Simmi, Jói, Auddi, Pétur), frasakonungs starfstitilinn og frasafræðarahlutverk hans fyrir Næturvaktina (gugga í gúmmíbát), þegar hann flutti umdeildan Jordan Belfort til landsins (“eina höggið sem ég hef tekið í mínu einyrkjabrölti”), að biðja stöðugt um hluti og hræðast ekki höfnunina (“góðar hugmyndir neita að deyja”), meistaranám í ritlist frekar en MBA, að fara frá því að horfa á sjónvarpsseríur yfir í að skrifa sjónvarpsseríur, loffaralíðan, hverju er auð-plögganlegt og hverju ekki og að missa litlu systur sína úr krabbameini.
Lárus Welding setti sér það markmið að gerast bankastjóri fyrir þrítugt eftir að hafa séð Bjarna Ármannsson gera slíkt hið sama 10 árum áður. “Það reyndust stór mistök," enda hvarflaði ekki að honum að í kjölfar 17 mánaða sem bankastjóri myndu fylgja 17 ár af málaferlum. Lárus segir á einlægan hátt frá vegferðinni í átt að bankastjóratitlinum; svarta beltinu í karate, ofsakvíðakasti eftir samningaviðræður í London, glímuna við áfengi og að gefa það upp á bátinn eftir atvik degi fyrir afmæli dóttur hans, AA samtökunum, hvað starfsfólki bankanna gekk til í hruninu, heimsóknir til sálfræðings og geðlæknis og hvernig hreyfing, nám og að biðja fyrir þeim sem sóttu að honum voru mikilvæg vopn í baráttunni við vonleysið sem herjaði á hann árin eftir hrun.
Guðmundur Fertram bjó til 500.000kr. verðmæti úr þorskroði sem áður fyrr var hent eða brætt en nýtist nú til að bæta og bjarga mannslífum. Fyrir tíma Kerecis var efnafræðingurinn og rekstrarverkfræðingurinn forstjóri 250 manna fyrirtækis í Danmörku, aðeins 26 ára gamall, þegar dot-com bólan reið yfir. Við förum yfir lærdóminn sem hann dró af þeirri vegferð, tímann hans hjá Össuri, hugmyndina að Kerecis, líffræðilegar útskýringar á því hvernig varan virkar, hvernig höfnun frá FDA varð til þess að starfsmenn Kerecis hættu og 5 barna foreldrarnir fluttu skrifstofuna heim í stofu og lexíuna um að það sé ekki nóg að vonast eftir kraftaverki.
Rannveig Borg starfar sem lögfræðingur hjá Adecco Group í Sviss, er tveggja bóka rithöfundur og meistaranemi í fíknifræði. Hún hefur starfað sem lögfræðingur í Frakklandi, Lúxemborg, Bretlandi, Íslandi og Sviss þar sem hún er núna búsett. Rannveig segir okkur frá náminu og námserfiðleikunum í Frakklandi, átröskun sem hún glímdi við í æsku, hvernig hún tengir við fíknir og stjórnleysi annarra og nýlega ADHD greiningu sem setur líf hennar og fíkn í samhengi.
Hjalti Karlsson vissi ekkert hvert hann væri að fara með líf sitt þegar hann sótti um í Listaháskólanum til þess eins að fá höfnun frá honum. Þrátt fyrir brjálæðislega feimni náði lífið að leiða Hjalta til New York þar sem hann fékk inn í listaháskólann Parsons og þaðan í læri hjá Stefan Sagmeister, virtum hönnuði í New York sem hannaði m.a. plötuumslög fyrir heitustu hljómsveitir samtímans, sem markaði upphaf af glæstum hönnunarferli Hjalta. Hönnunarstofan hans hefur unnið fyrir BMW, Bloomberg, Samsung, Adobe, Parsons og fleiri. Inntak þáttarins blandast í umræðu um rekstur, hönnun, hvernig skal verðleggja vinnu sína, að hafna kúnnunum sem borga best, áhugaverð verkefni, lífið í New York og árásirnar á Tvíburaturnana.
"The woman responsible for the year's biggest video game" eru orðin sem Fortune nota til að lýsa Sigurlínu Ingvarsdóttur, framleiðanda í afþreyingarbransanum sem er stærri en tónlist og stærri en kvikmyndir: tölvuleikir. Sigurlína er áhugasöm um flesta hluti en vélaverkfræðingur að mennt. Hún sótti fljótt í ábyrgðarstöður og starfaði í lyfja- og smásölugeiranum áður en gaf sig á tal við Hilmar, stofnanda CCP, sem leiddi til ráðningar hennar í tölvuleikjabransanum. Sigurlína er vægast sagt próaktíf og sækir hlutina sem hún vill frekar en að bíða eftir þeim. Við ræðum starfsferil hennar, hvaða þætti þarf að huga að við val á framtíðarstarfi, ráð til dætra hennar varðandi starfsvettvang, tölvuleikjaiðnaðinn, hugarheim Marvel og Star Wars, að sækjast í ábyrgð, stærstu verkefnin sem hún hefur fengist við, heillaskrefin á leið sinni þangað og suðupott tölvuleikjaframleiðslu í heiminum.
Fida flutti 16 ára gömul frá Palestínu til Íslands. Það var forgangsatriði fjölskyldunnar að þau myndu mennta sig en Fida komst stutt í námi eftir áratug af námsörðugleikum, þar til hún fékk greiningu á lesblindu. Þar eftir nældi hún sér í hverja gráðuna á fætur annarri og lauk námi í umhverfis- og orkutæknifræði. Lokaverkefnið hennar varð að fyrirtækinu sem hún stýrir nú í dag: GeoSilica. Í þættinum ræðum við raunveruleika palestínskra barna, hvernig hermenn skjóta og handtaka börn þar í landi, að búa við hræðslu sem barn og hvernig það fylgir henni til dagsins í dag, að vilja frekar tilheyra heldur en að flytja í átt að öryggi, flutningana til Íslands, áskoranirnar sem mættu fjölskyldunni og rekstur fyrirtækisins sem hún stýrir í dag.
Harry Potter hafði áhrif á heilu kynslóðirnar en ekki jafn mikil áhrif á neinn mann og Snæbjörn Arngrímsson. Snæbjörn var 25 ára, þriggja barna faðir og eigandi forlagsins Bjarts þegar endurskoðandinn hans hringdi og spurði hvort skynsamlegt væri að halda rekstrinum áfram með svona stóra fjölskyldu. Þrátt fyrir að bera sig alltaf eins og sigurvegara og koma fram í viðtölum með fyrirsögnum á borð við “Fé skortir mig ei!” og “Bjartur gengur brilliant!” - á meðan hann tók næturvaktir á geðdeild og skúraði kirkjugólf til að halda sér uppi, þá var þetta ekki símtalið sem hann vildi fá Frá þessum tímapunkti hefst ótrúleg atburðarrás forleggjara sem sneri rekstrinum upp í listform: réð til sín ímyndaðan starfsmann, veitti bókum ímynduð verðlaun, hringdi sjálfur í sig þegar það var lítið að gera, rambar á Harry Potter, seldi milljón eintök af DaVinci lyklinum í Danmörku, bjó til ímynduð viðskiptamódel sem viðskiptafræðideildin vildi fá hann til að fjalla um, fékk ævintýraleg kauptilboð, seldi forlögin sín og flytur á ólífubúgarð á Ítalíu.
Sigurjón var poppstjarna, athafnamaður og íbúðareigandi - á meðan hann var í menntaskóla. Hann lauk bókmenntafræði, lærði kvikmyndagerð í Bandaríkjunum og hóf þar ótrúlegan feril sem framleiðandi þegar hann hann hitti á gullæð við framleiðslu tónlistarmyndbanda með kúnna á borð við Michael Jackson, Madonnu, Guns and Roses og fleiri. Úr tónlistarmyndböndum yfir í auglýsingargerð (f. Nike, Pepsi, Coca Cola...) og svo kvikmyndagerð - Hollywood vildi bita af Sigurjóni Sighvatssyni. Athafnamennskunni var hvergi lokið, Sigurjón flutti Domino's til Íslands, eignaðist hlut í Joe Boxer og keypti fyrirtæki sem gerði hlífðar- og vinnufatnað fyrir sjómenn að tískumerki sem allir Íslendingar þekkja í dag: 66° Norður. Í viðtalinu er bransinn ræddur, kulnunin og 6 mánaða rúmlögn, innhverf íhugun, þegar Tarantino bauð Sigurjóni að framleiða Pulp Fiction, Nicolas Cage og tilfinningagreindin hans og drifið sem fólst í því að alast upp í skugga bróður síns.
Jón Ásgeir seldi poppkorn og leigði út rugguhesta á unglingsaldri, labbaði svo út úr menntaskóla til að opna Bónus með pabba sínum og fór þaðan til Bretlands þar sem hann kom auga á og framkvæmdi þrjár stærstu og best heppnuðustu yfirtökur á smásölumarkaði þar í landi á síðari árum. Allt með sínum skerf af drama að sjálfsögðu - maðurinn er yfirheyrðasti Íslendingur sögunnar og sat undir ákærum í 6.000 daga.
Ingvar Ómarsson tileinkar lífi sínu því að fara hraðar á hjóli. Það gengur þokkalega en Ingvar er 32x Íslandsmeistari í hjólreiðum og okkar eini atvinnumaður í sportinu. Við ræðum hvernig Novator gerði honum kleift að gerast atvinnumaður, óhefðbundið mataræði Ingvars og lífshættulegan árekstur sem hann lenti í við mótorhjól á 80 kílómetra hraða.
Steinunn Sigurðardóttir er fremsti fatahönnuður landsins. Eftir útskrift frá Parsons í New York starfaði hún náið með Ralph Lauren og Calvin Klein. Steinunn fluttist heim og eignaðist fatlaðan dreng en lét það ekki stoppa sig frá því að lifa sínu lífi, var ráðin inn til Gucci og flaug til og frá Ítalíu við störf sín þar með Tom Ford.
Baltasar Kormákur segir frá ótrúlegum tímum 18 ára gamall á búgarði í Arizona, hvernig hann tók skrefið úr leiklistinni yfir í leikstjórnina og hefur aldrei beðist afsökunar á því að ganga vel, að taka ekki fyrsta boðinu inn í Hollywood með tilheyrandi lífsstíl og neyslu, hvernig Mýrin varð farmiðinn hans til Hollywood, að leikstýra stærstu kvikmyndastjörnum heims og að leyfa þeim að komast ekki um með neina stæla, áhættuatriði og hughreystingar við tökur á Djúpinu með Ólafi Darra, að leyfa ekki bransafókinu að ráðskast með sig, sálfræðitímar til að kynnast sjálfum sér og að gefa upp áfengi til að lifa lífinu til fulls.
Ólafur Stefánsson ræðir vegferðina að því hvernig hann varð besti handboltamaður heims eftir að hafa ekki verið valinn í landsliðsúrtak og komast ekki inn í læknisfræðinám. Eftir ferilinn fór Óli í 7 ára ferðalag, kynntist sjálfum sér, upplifði það sem hann hafði lesið um og er núna kominn aftur heim.
Starfsmönnum Controlant fjölgaði úr 50 í 350 og tekjurnar úr 400 milljónum í 8 milljararða á aðeins 2 árum. Controlant varð landsþekkt á örskömmum tíma þegar samstarf þess við Pfizer og vöktun bóluefna gegn Covid-19 var handsalað. Það er freistandi að kalla þetta 'overnight success' en ef horft er til síðustu 15 ára er ljóst að árangurinn náðist ekki á einni nóttu. Rafmagnsverkfræðingarnir Gísli og Elli hönnuðu þráðlausan skynjara til að mæla þrýstinginn í jeppadekkjum en þegar svínaflensan skaut upp kollinum kom í ljós að skynjararnir gætu gegnt mikilvægara hlutverki í samfélaginu. Þar hófst mikill vöxtur og vegferð í átt að samningum við Pfizer með skrautlegum verkefnum í millitíðinni þar sem lausnir Controlant vöktuðu gítar Brian May, þörunga, matvörur fyrir Chipotle og fleiri.
Mari er ultrahlaupari sem gerði bakgarðinn frægan þegar hún hljóp 288km fyrr í vor. Hér fer hún yfir uppeldisaðstæður í Eistlandi, fíkn foreldra sinna, lífið í sveitinni án uppeldis og menntunar, að vera tekin frá foreldrum, SOS barnaþorpin, flutninga sína til Íslands, uppgjör við æskuna, all-in genið og djammið, hvernig hún safnaði/sparaði fyrir íbúð, ultrahlaupin og innkoman í hlaupasenuna hérlendis.
Óskabarn Napólí fer hér yfir stormasaman feril í stúdentapólitík og stjörnulögfræði: lögreglufylgd af fótboltaleik til að halda ræðu á Bessastöðum, ritgerðarmálið sem þurrkaði atvinnutækifærin út af borðinu og neyddu Villa til að flytja á Skagaströnd, Landsréttarmálið og stærsta málsflutningur ferilsins, dómstól götunnar, tattúin, Napólí, Ítalíu og fjölskyldulífið.
"Við eigum bara daginn í dag. Það er það eina sem við höfum og hann þarf bara að vera góður. Hver einasti dagur þarf að vera góður." Reynir seldi fyrirtæki og er í dag fjárfestir sem byggir hús, mokar skít og gróðursetur tré. Hann heldur fjarlægð frá peningum og fær aðra til að sjá um þá fyrir sig. Við ræðum hvernig hann eignaðist margar milljónir sem ungur maður og tapaði þeim öllum, útrás CreditInfo og af hverju Reynir lærði þróunarfræði, mannfræði, grísku og frönsku áður en hann hélt út með fyrirtækið, að fara í stuttbuxur en ekki jakkaföt, sögur frá Kabúl og Teheran, erfiðasta tímabil lífs hans og skömmina sem fylgdi kvíðalyfjunum.
“Eitt af mínum stærstu markmiðum var að öðlast innri ró. Þú lifir ekki lífinu fyrir aðra, þú lifir lífinu fyrir sjálfan þig. Ég átti pabba sem var alkóhólisti og það er ákveðið átak að brjótast út úr því og taka stjórn á lífinu. Þú þarft stundum að taka erfiðar ákvarðanir og erfiða slagi sem eru sársaukafullir og draga dilk á eftir sér allt þitt líf en þú verður að setja sjálfan þig í fyrsta sæti, það er enginn annar sem gerir það fyrir þig.” Andri Þór hefur stýrt Ölgerðinni síðustu 20 árin en þegar hann tók við forstjórastarfinu var markaðshlutdeild Ölgerðarinnar 30% á móti 70% samkeppnisaðila og 15% hjá Pepsi á móti 85% Coke. Við ræðum stór og áþreifanleg markmið sem Andri setur fyrirtækinu og sjálfum sér, hvað þarf til að framfylgja sterkum gildum, að leyfa sér að hugsa stórt og setja sér risa markmið, erfiðleika í fjölskyldulífinu, hvernig NOCCO kom eins og stormsveipur inn á koffínmarkaðinn, skortinn á sjálfstrausti og drifið í sköpunargleðinni.
Ágúst Einþórsson setti á laggirnar Brauð & Co. árið 2016 og kröfur Íslendinga til súrdeigsbrauðs og kanilsnúða breyttust til frambúðar. Margt var í gangi bakvið tjöld vinsælasta bakarís landsins enda Gústi lunkinn í að lenda upp á kant við fólk að eigin sögn. Forsaga og eftirmálar bakarísins eru hér gerðar upp af einum skrautlegasta karakter sem gengur um götur bæjarins, sem rekur nú bakaríið og veitingastaðinn Baka Baka. Í þættinum ræðir Gústi flutningana til Danmerkur til að greiða djammskuldir með gjaldeyrismismun, að komast undir kröfum annarra í Kaupmannahöfn, samningar við stofnun Brauð & Co. og eftirmálarnir við söluna, edrúvandamálin sín, fíkniefnakaup af meðlimum Hells Angels, hvernig 8 ára edrútímabil leið undir lok, í hvað peningurinn fór við sölu hlutarins í Brauð & Co. og fyrst og fremst heiðarleg frásögn af mannlegri vegferð gegnum töp og sigra lífsins.
"Covid niðursveiflan var miklu harðari en ég bjóst við og ég held að niðursveiflan núna sé miklu alvarlegri en nokkurn tímann Covid." Þórður Pálsson er forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og fyrrverandi yfirmaður greiningardeildar Kaupþings. Í þættinum er farið yfir breitt svið efnahagsástandsins í dag: Áhrif Covid á hlutabréfaverð Lækkun stýrivaxta og áhrif á markaði Verðbólguspá Þórðar Almenningur vs. fagfjárfestar á hlutabréfamarkaði Gírun í kerfinu Órói og kostir þess að halda á lausu fé Peningaprentun og Seðlabankinn Fasteignamarkaðurinn - getur íbúðarverð hækkað endalaust og erum við í bólu? Rafmyntir
Aníta var einungis 24 ára gömul þegar hún landaði aðalhlutverki í Hollywood stórmyndinni Journey to the Center of the Earth. Í dag er hún flutt heim og hefur aðra sýn á glansmynd Hollywood-framleiðslunnar. Aníta ræðir agann sem henni tókst að beina í átt leiklistarinnar til að láta drauma sína rætast en á yngri árum kom þessi sami agi henni í lífshættu þegar hún var vistuð á BUGL vegna anorexíu, mikilvægi þess að flytja út, hömlurnar sem hún vissi ekki að hún væri með á sjálfri sér, Werner Herzog, aðdáun samnemenda á pabba sínum og nýjustu myndina hennar: Skjálfti.
Þriggja tíma uppistand frá listamanninum Erpi Eyvindarsyni. Kennarasonurinn alinn upp á finnska mátann deilir skoðunum á Könum vs. Finnum, siðareglum mismunandi þjóða (djúpsteikt sushi, Víetnamskar stríðsgildrur og heiðnir siðir), upplestur úr Mein Kampf á afmælishátíð Laxenss (13 ára gamall), einn af þremur Íslendingum dæmdum fyrir að smána erlenda þjóð (Mólotov kokteill + áfengi + bandaríska sendiráðið), Sacha Baron Cohen vs. Johnny Naz, að hætta í skemmtanabransanum og flytja til Svíþjóðar, allt kjaftæðið sem Friðrik Dór hefur þurft að umbera, nauðsynleg edrútímabil og að fá meira út úr sundferðum heldur en Edduverðlaunum.
“You can't make a pig a race horse, but you can make a pretty fast pig” - Þetta hefur alltaf fests með mér, mér finnst svo gaman að þjálfa svín. Mér finnst svo gaman þegar svínin pakka veðhlaupahestunum saman. Brynjar Karl, stofnandi og eigandi Sideline Sports (hugbúnaður notaður af færustu þjálfarateymum heims: NBA, NFL, Bandaríski herinn ofl.), eigandi KeyHabits, meistari í kvíðanum og þjálfari íþróttafélagsins Aþenu. Brynjar hefur 35 ára starfsreynslu, unnið með herakademíum í Bandaríkjunum, Alþjóða körfuknattleikssambandinu (FIBA) og virtum þjálfurum um allan heim en ákvað að taka erfiðasta verkefni lífs síns að sér á hliðarlínunni: að þjálfa ungar stelpur í körfubolta. Vegferðin og þjálfunaraðferðir Brynjars stinga í stúf og samfélagið situr ekki á skoðunum sínum þegar kemur að börnunum. Börnin eru þá ekki vandamálið í augum Brynjars heldur foreldrarnir og íþróttafélögin - enda fengu kraftar og hugmyndafræði hans óvæntan mótbyr. Við ræðum tvískiptan feril Brynjars, sem þjálfari og frumkvöðull í ótrúlegu harki í Bandaríkjunum, Sideline Sports, vanviðring samfélagsins á börnum, mannréttindabrotin inní íþróttahúsunum, innihaldslaus hrós foreldra til kvíðna barna, slagsmál stelpna og hvar Brynjar fer á skjön við samfélagið.
“Ég hafði ekki áhuga á að vera í þessu lífi eina sekúndu í viðbót. Ég ætlaði aldrei að snerta kjuðana aftur og það var svo góð tilfinning. Það er besta tilfinning sem ég hef fengið að hætta í Quarashi.” Sölvi Blöndal einsetti sér að verða besti trommari í heimi og nýstofnuð hljómsveit hans, Quarashi, var fínasti vettvangur til þess. Quarashi sló í gegn á heimsvísu, komu Jinx á Billborad listann, hituðu upp fyrir Eminiem og Prodigy, túruðu fyrir ofuraðdáendur í Japan en hljómsveitarmeðlimir gátu ekki meir. Með sína maníu-nálgun á lífið settist Sölvi, þá 30 ára, á skólabekk með íslenskum aðdáendum sínum. Eftir útskrift er hann ráðinn inn í Kaupþing af Ásgeiri Jónssyni, þaðan yfir til Gamma og árið 2017 er hann kjörinn hagfræðingur ársins.
Rafn Franklín lifir á jaðri heilsueflingarinnar, prófar hluti á eigin skinni og safnar saman í góðan upplýsingabanka sem við flettum gegnum í þessu viðtali. Umhverfið stýrir lífsstíl okkar í vitlausa átt og það er krefjandi áskorun að vinna gegn því. Við tölum um ákvarðanir okkar og afleiðingar fyrir börnin okkar (epigenetics), kaloríur en skort á næringu, grænmetisolíur, bjagaðar rannsóknir, togstreitu mismunandi matarkúra, healthy user bias, af hverju Rafn velur hreinan sykur frekar en bakka af frönskum, innmat og fleira.
Gerður er eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, sem er bæði framúrskarandi fyrirtæki og skuldlaust. Hún er ekki hámenntuð í viðskiptum og markaðsfræði, raunar hefur hún hvorki lokið háskóla- né menntaskólagöngu, en hlaut nýverið titilinn Markaðsmanneskja ársins. Aðferðir Gerðar eru einfaldar og 'ghetto'. Hún hefur þurft að hafa fyrir hlutunum, farið í gjaldþrot, verið hrædd við peninga og fundið sig grátandi af óhamingju í nýja Benzinum sínum þegar hún loksins eignaðist þá.
“Ég mætti í viðtal og hraunaði yfir allt, nýútskrifaður pjakkur, sagði að allt væri ömurlegt og að fólk þyrfti að rífa sig í gang. Eldri stórleikarar sögðu við mig: Þú ert bara game over kallinn minn.” Björn Hlynur hefur ekki farið framhjá þér síðustu misseri með stórleik í Verbúðinni, Ófærð, Leynilöggu, The Witcher, Eurovision Song contest og fleiri kvikmyndum. Björn lætur ekki leiklistina nægja, hann skrifar, leikstýrir og rekur einn ástsælasta sportbar landsins á hliðarlínunni.
Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild, ræðir um tengslakerfið sem öflugasta vopnið gegn hugrænum þjáningum, hvernig þessar þjáningar birtast okkur í samfélaginu, stirnunarkerfið, lítil hrædd börn í líkömum fullorðinna einstaklinga, sjúkdómsvæðing sorgarinnar og flóttann frá eigin tilfinningum. Björn hefur ekki bara menntun og starfsreynslu á þessu sviði heldur fór hann í gegnum afar erfiða lífsreynslu fyrir 20 árum síðan sem leiddi til nauðungarvistunar á geðdeild.
Fáir sem ekki flokkast undir starfsstétt kennara hafa eytt jafn miklum tíma inni í skólastofum landsins og Þorgrímur Þráinsson. Eftir 13 ár af fyrirlestrum innan veggja skóla landsins deilir Þorgrímur fast mótuðum skoðunum sínum á hegðun samfélagsins gagnvart börnum, greiningu á vandamálinu sem skapast og úrræða sem þarf að grípa til. Þar að auki ræðum við rithöfunda-, blaðamanna- og knattspyrnuferilinn.
"Hvað þekkir þú marga sem eru ekki fórnarlömb? Sem eru ekki að ásaka sig eða annan, ásaka ríkisstjórnina, sem eru ekki að réttlæta sína tilvist og afsaka sig? Af hverju? Því það er einhver ávinningur af því að vera fórnarlamb í eigin sögu. Þá geturu réttlætt vanmátt þinn og útskýrt af hverju þú ferð ekki á fætur, af hverju þú drekkur eða borðar svona mikið. Það er bara eitt lögmál: orsök og afleiðing. Ef þú ert að upplifa þjáningu eða vanmátt þá ertu að stórum hluta að valda því sjálfur." Guðni Gunnarsson er lífsráðgjafi og einn af frumkvöðlum Íslands á sviði líkams- og heilsuræktar. Hann hefur starfað við fagið í tæpa fjóra áratugi og er m.a. fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi.
Fjölmiðlastjarnan sem var hafnað af LHÍ, fór að vinna í banka, hélt vinnunni í hruninu en sagði sjálfur upp til að opna veitingastað. Jói Ásbjörns hefur komið við á nánast öllum hefðbundnari miðlum og slegið í gegn í þáttum eins og Mono, 70 mínútur, Idol og Wipeout - þrátt fyrir að fjölmiðlarnir voru alltaf hans aukastarf.
Baldvin Z leikstýrði Óróa, Vonarstræti, Lof mér að falla og nú síðast sjónavarpsþáttunum Svörtu Sandar. Hann fór ungur fram úr sjálfum sér með hljómsveitinni sinni, Toy Machine, þar sem þeir voru á brún þess að meika það í Bandaríkjunum en klúðruðu málunum í örlaga ríkri ferð sem kenndi Baldvini mikilvæga lexíu út ferilinn: Nobody gives a fuck. Gríðarlega skemmtilegt spjall um kvikmyndaframleiðsu, óþægilega raunverulega handrits- og bakgrunnsvinnu verkefna Baldvins, fjármögnun í bransanum, sjónvarpserían sem listform og hvernig Baldvin gleymdi að minna sig á áðurnefnda lexíu þegar Vonarstræti sló í gegn og hætti alfarið á Facebook til að verjast hrósi og athygli.
Mikið hefur gengið á í Reykjavíkurborg og hjá borgarstjóra hennar síðustu áratugi. Líklegast það súrealískasta kjör Jóns Gnarrs sem borgarstjóra en Dagur lýsir þeirri atburðarrás frá sínu sjónarhorni í þættinum ásamt því hvernig hann ákvað að hrista upp í sjálfum sér og aflæra pólitíska framkomu eftir stórsigur Jóns, hvernig lýðheilsa borgarbúa og borgarskipulag haldast í hendur, læknisfræðimenntun Dags, álagið sem fylgir starfinu, fjölskyldulífinu, sjúkdómnum og seigluna sem þarf til að áorka hlutum í lífinu.
Núverandi þjálfari Þýska landsliðsins og einn farsælasti handboltaþjálfari sem við Íslendingar eigum. Alfreð Gíslason hefur ekki ennþá komist að því af hverju hann er eins og hann er, áhugi er léleg lýsing á dellunum sem hann fær en metnaðurinn og vinnusemin í bland leiðir hann að ótrúlegum árangri. Sem dæmi tapaði Kiel ekki stökum leik árið 2012 þegar liðið vann Evrópudeildina, urðu Þýskalandsmeistarar þýskir bikarmeistarar - Alfreð var samt ekki sáttur. Þessum metnaði finnur hann ekki bara farveg í handboltanum, hann er forfallin sagnfræðiáhugamaður (og lærður sagnfræðingur), stundar garðrækt (ræktar yfir 170 ávaxtatré og rósartegundir) og ræktar og framleiðir sitt eigið hunang. Garðyrkjuna stundaði hann að krafti með Köru, besta vini, harðasta gagnrýnanda og eiginkonu Alfreðs til rúmlega 40 ára sem féll frá í maí síðastliðnum.
Peningar, fasteignir, gull, Bitcoin og Charizard í glansi eru allt sjaldgæfir hlutir en það sjaldgæfasta, og verðmætasta, sem þú munt nokkurn tímann eiga er tíminn þinn. Er skynsamlegt að skipta tímanum þínum, sem þú munt aldrei eignast meira af, fyrir gjaldmiðil sem rýrnar í virði? Hvað ertu að borga fyrir það að kynna þér ekki þín eigin fjármál og hvers virði eru bestu ár lífs þíns? Kristján Ingi er fyrrverandi formaður rafmyntaráðs og þessi þáttur fjallar um hans sín á hagkerfið, hvaða vandamál rafmyntir leysa, hvort það sé eðlileg krafa að fólk kunni að fjárfesta, af hverju kerfið er sett þannig upp að ég vilji eyða pening og hvort eru fasteignir að hækka í virði eða peningurinn sem þú vannst þér inn að lækka í virði?
Harmageddonbróðirinn sem veður í allt og alla en er á sama tíma markþjálfi sem les sjálfshjálparbækur. Máni rekur sögu Harmageddon og vinskap sinn við Frosta sem hófst eftir neyslutímabil og meðferð um tvítugsaldurinn. Einn daginn, reykjandi kannabis, fattaði hann að það mun enginn banka upp á og bjóða honum að meika það. Við ræðum aðskilnaðarkvíðann frá Frosta, hvernig reiðin eftir hrun var eldsneyti Harmageddons, kvíðann og kvíðalyfin, hvernig drullið yfir Frikka Dór endaði með því að Máni gerðist umboðsmaðurinn hans, hvernig Mamma Frikka krafðist þess að Máni umbaði Jón líka og hvernig það er að stjórna útvarpsþætti í þunglyndiskasti.
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: “aldrei hætta að þora” hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkranna á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af veraldlegum hlutum fann Kristján sig á efri árum í leit að einhverju þýðingarmeira en golfi og sportbílum. Hér færðu á einu bretti sögustund úr ævintýralegum aðstæðum og visku sem Kristján dregur af ferðalögum sínum og fólkinu sem verður á vegi hans.
Dr. Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Fókus þáttarins eru aðstæðurnar sem Íslendingar lifa við, áhrif þessara aðstæðna á svefninn okkar og hvað við getum gert til að jafna leikinn. Gefðu þér klukkutíma til að hlusta á þáttinn áður en þú grípur næsta kaffibolla í svartasta skammdeginu. Umræðuefni eru meðal annars: Mikilvægi svefns á mismunandi æviskeiðum Koffíndrykkja (kaffi vs. orkudrykkir og hvernig skal hámarka ávinning/lágmarka skaða koffíns) Sólarljós og líkamsklukkan Testesterón og vaxtarhormónar Svefn sem varnarhlið andlegra kvilla (sérstaklega fyrir ungmenni) Af hverju það er álitið leti að vilja sofa lengur
Þrátt fyrir að hafa bæði opnað og nefnt B5 er Gunnar Karl líklega þekktastur sem eigandi Dill. Brösótt byrjun staðarins (þar sem eigendurnir lokuðu staðnum nokkur kvöldin og fóru sjálfir út að borða) benti ekki til að þetta yrði eini Michelin staður landsins í náinni framtíð. Gunnar hefur farið víða og bauðst að opna stað í New York. Hann flutti út með 4 barna fjölskyldu og var stuttu eftir opnun búinn að vinna sér in Michelin stjörnu á þeim stað líka - áður en fréttir bárust að Dill hafi misst sína stjörnu sem þýddi að okkar maður flutti heim með stjórfjölskylduna til þess eins að endurheimta stjörnuna. Hér ræðum við veitingarekstur, sögur af ferli Gunnars, að opna stað í hruninu, hvatann í því að sjá ekki eftir því að láta ekki reyna á hlutina og hvernig Gunnar er aldrei sáttur og passar að staðna ekki í starfi.
Júlían er einn af þremur kraftlyftingamönnum sem hafa hlotið titilinn Íþróttamaður ársins og er þar með settur í flokk ásamt Skúla Óskarssyni og Jóni Páli Sigmarssyni. Hann á heimsmet í réttstöðulyftu, vegur 160 kíló og hefur tvöfaldað samanlagðan árangur sinn í kraftlyftingum á síðasta áratugi. Hér finnuru góðan fróðleik um lyftingar, styrkingar, aga, markmiðasetningu og sovésk æfingakerfi.
Einar Vilhjálmsson er einn mesti íþróttamaður sem Íslendingar hafa átt. Hann var íþróttamaður ársins árið '83 '85 og '88 og árið 1985 var hann stigahæsti frjálsíþróttamaður heims þvert á allar frjálsíþróttagreinar. Keppnisferill Einars spannar um 220 mót í 22 löndum og hafnaði hann á verðlaunapalli á 200 þeirra. Við fáum góðar sögur af ferlinum og einnig heimspekilega sýn Einars á lífið um eflingu hins megnuga sjálfs, að spyrja sig og aðra af hverju, hvers vegna er ég að þessu, hvernig er hægt að bæta sig, hvernig hann byggði upp eldmóð fyrir hvert kast (undir gríðarlegri pressu) og að sjálfsöðu hvernig það er að vera eldri bróðir Simma Vill.
Leikarinn sem er búsettur í 101 og elskar latte en vill helst verða bóndi. Hilmir Snær er einn af okkar ástsælustu og ræðir hér Fóstbræður og grínið, hestamennskuna, sjómennskuna, flogaveikina og að verða of meðvitaður um sjálfan sig á sviði.
Skagatvíburarnir Arnar og Bjarki héldust í hendur gegnum fyrri hluta ævinnar: Íslandsmeistarar í badmintoni, Íslandsmeistarar í fótbolta, yngri landsliðin, A landsliðið og atvinnumennskan. Þegar meiðsli enduðu ferilinn var Arnar kominn með nóg af fótbolta og hafði engan áhuga á þjálfun. Viðskiptalífið varð þeirra næsti vígvöllur: skemmtistaður, veitingastaður, fatabúð og fasteignabrask sem gekk vel - þar til allt hrundi. Gjaldþrot var það eina í stöðunni og í leit af nýjum tækifærum bankaði fótboltinn aftur upp á.
Það var rækilega skellt á andlitið á honum þegar Snorri Magnússon, sundkennari og þroskaþjálfi, hóf að kenna ungbarnasund hér á landi fyrir 30 árum. Hann ákvað því að kenna sínum eigin börnum en forvitnir foreldrar af fæðingadeildinni fengu að fljóta með. Í dag hefur Snorri kennt rúmlega 7.000 börnum og eftirspurnin svo mikil að nýbakaðir foreldrar þurfa að mæta inntökuskilyrðum og sýna bæði metnað og áhuga til að komast að. Sundkennslan er þekkt um allan heim með milljónir flettinga á vísindarannsóknum og myndböndum af börnum standandi í lófum Snorra á samfélagsmiðlum. Allt snýst þetta um örvun hreyfiþroska barnanna og Snorri situr ekki á skoðunum sínum þegar kemur að uppeldisaðferðum sem gagnrýna ögrandi umhverfi ungbarna. “Það er ekkert nýtt undir sólinni þegar það kemur að börnum, ekki neitt. Það hefur allt verið gert áður. Það er bara meira vitað um heilann og þroska hans.”
Ragnar Jónasson labbaði inn í bókaforlag 17 ára gamall bauðst til að þýða Agöthu Christie bækurnar vinsælu. Næstu 15 ár, í gegnum lögfræðinám, störf sem fréttamaður og lögræðingur Kaupþings þýddi hann bækur á hliðarlínunni en það var ekki fyrr en í fjármálahruninu 2008 sem Ragnar, bankastarfsmaðurinn, staldraði við og ákvað að reyna á bókakskrifin. Sú ákvörðun bar ávöxt: 1. sæti í Frakklandi, 1. sæti í Bretlandi, 1. sæti í Þýskalandi, 3 bækur samtímis á top 10 listanum í Þýskalandi og 2 milljónir eintaka seld. Ekki eins og hann hafi hætt aðalstarfi sínu í Arion banka heldur gefur hann sér tíma á hverjum einasta degi til að skrifa bækur eftir vinnu. Við ræðum leiðina að skrifunum, störfin hans áður, núverandi störf og m.a. vinnu hans með Controlant, viðskiptamódelið á bakvið bókasölu og hvernig fótboltaleikur í Skotlandi kom Ragnari á kortið.