POPULARITY
Karlmaður á fertugsaldri skaut minnst níu til bana í skóla í Örebro í Svíþjóð í dag. Ódæðismaðurinn er sá tíundi sem dó, en það hefur ekki verið staðfest hvernig hann lést. Guðmundur Arnarsson hefur verið bústtur í borginni frá 2014 og er frændi Svanfríðar Birgisdóttur sem er einn skólastjóranna í Risbergska skólanum, sem er nokkurs konar símenntunarmiðstöð fyrir fullorðna. Spegillinn ræddi við Guðmund undir kvöld. Íslensk iðnfyrirtæki flytja langmest út til Evrópu en tollastríð milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins og allar hindranir í alþjóðaviðskiptum eru Sigurði Hannessyni framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins áhyggjuefni. Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur nauðsynlegt að halda dómsmáli um breytingar á búvörulögunum til streitu. Frumvarp atvinnuvegaráðherra breyti engu um það sem þegar hafi gerst en það geti dómur Hæstaréttar gert.
Í Slökkvistöðinni í Gufunesi opnar á morgun ljósmyndasýning á verkum Helga Vignis Bragasonar sem kallast Ábati: hugleiðing um efni. Ljósmyndun kom seint inn í líf Helga sem starfaði frá 10 ára aldri við byggingarframkvæmdir. Nú beinir hann fyrst og fremst linsunni að þeim iðnaði og með nokkuð gagnrýnu auga, sé vel að gáð. Síðustu ár hefur Helgi einbeitt sér að stærstu byggingarframkvæmd Íslandssögunnar, nýja Landsspítalanum. VIð ræðum við Helga og Birtu Fróðadóttur sýningarstjóra í þætti dagsins. Í dag er hrekkjavaka, upphaf hins gamla veturs, dagur hinna dauðu, - og við höldum af því tilefni á myrkari mið og minnumst þeirra skálda og menningarvita sem tekin voru af lífi í fjöldaaftökum í Sovétríkjunum á tímum stalínismans. Sölvi Halldórsson verður einnig með okkur í dag, og rýnir að þessu sinni í bók Rúnars Helga Vignissonar, Þú ringlaði karlmaður: tilraun til kerfisuppfærslu. En við hefjum þáttinn á því að heyra í fiðluleikaranum Elfu Rún Kristinsdóttur sem heldur tónleika í Fríkirkjunni á morgun.
Appelsínugul veðurviðvörun vegna rigningar á Austfjörðum og rýming á Seyðisfirði er enn í gildi. Hringveginum hefur verið lokað frá Skaftafelli að Jökulsárlóni vegna veðurs. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra segir að áform um sameiningu framhaldsskóla á Akureyri breytist fáist meira fé. Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, segir að skýra þurfi betur skilgreininguna á nánu sambandi í hegningarlögum, sem var breytt 2016 til að undirstrika hve alvarlegt heimilisofbeldi væri. Skýrsla Ríkisendurskoðunar leiðir í ljós að veikindadögum hefur fjölgað verulega á síðustu árum innan Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsfólk hefur upplifað vanvirðingu, ofbeldi og kynþáttafordóma; þá hefur hljóðfæraleikari stefnt hljómsveitinni fyrir brottrekstur. Borgarfulltrúar eru ekki á einu máli um hvort setja allsherjar símabann í grunnskólum Reykjavíkur. Belgíski söngvarinn Lou Deprijck sem er hvað þekktastur fyrir að hafa samið pönk smellinn Ça plane pour moi er látinn ------- Það kólnar mjög milli Indlands og Kanada. Viðræður um fríverslunarsamning þeirra á milli eru í uppnámi eftir að Justin Trudeau sagði að hugsanleg tengsl væru milli útsendara indversku stjórnarinnar og morðs á kanadískum ríkisborgara, Hardeep Singh Nijjar. Rektor Háskóla Íslands telur að boðaðar breytingar á fjármögnun háskólanna hafi talsverð áhrif á skólastarfið. Horft sé til fleiri þátta en áður og veigamesta breytingin sú að fé fylgi einingum sem nemendur ljúka og skólinn verði að hlú að þeim. Meira en 150 þjóðarleiðtogar eru komnir til New York-borgar vegna ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, með tilheyrandi röskun fyrir borgarbúa. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Enn er mótmælt í möstrum hvalveiðibáta við Reykjavíkurhöfn. Lögmaður reyndi síðdegis að koma mat og drykk til mótmælenda. Karlmaður hlaut í dag einn þyngsta dóm sem kveðinn hefur verið upp í heimilisofbeldismáli. Hann var dæmdur í átta ára fangelsisvist í héraðsdómi Reykjaness. Börn með erlendan bakgrunn eru miklu líklegri til að vera lögð í einelti en börn af íslenskum uppruna. Rússlandsforseti segir rússneskt korn á leið til sex Afríkuríkja á næstu vikum. Kornútflutningur um Svartahaf hefur legið niðri frá því samkomulag rann út í júlí. Héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á meintu mútubroti í sveitarfélaginu Árborg. *** Um 10-20% barna glímir við alls kyns vanda, vanlíðan, hafa orðið fyrir áfalli eða búa við erfiðar aðstæður. Þetta eru í grófum dráttum niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem kynnt var í dag. Rætt var við Ragnýju Þóru Guðjohnsen lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún er faglegur stjórnandi íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Hluti af áratugalöngum deilum um sjávarútveg og stjórn fiskveiða hefur snúist um ráðstafanir sem er ætlað að efla sjávarþorp. Í nýlegri skýrslu um Auðlindina okkar sem starfshópur matvælaráðherra kynnti í síðustu viku er vísað til þess að byggðakerfin, eða 5,3% leiðin, hafi verið bitbein í samfélagslegri umræðu um sjávarútveg og á Alþingi. Á ári hverju hleypur verðmæti aflaheimilida sem settar eru í í þessar ráðstafanir á milljörðum. Segir í skýrslunni að það sé talið um fimm og hálfur til sjö og hálfur milljarður á fiskveiðiárinu 2019 til 20. Erfitt hefur verið að meta árangurinn, markmiðin ekki vel skilgreind og áhrifin á byggðafestu frekar rýr. Meðal annars er lagt til að gerð verði tilraun og hluti af almenna byggðakvótanum, sem hvað mest ósætti hefur verið um, verði leigður út, afraksturinn renni beint til sveitarfélaga og línuívilnun verði aflögð. Ráðherra hefur boðað lagasetningu um sjávarútveg á komandi þingi. Rætt var við Þórodd Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Fréttaútsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.

Spegillinn 22. júní 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir Brak fannst í dag úr kafbátnum Titan, sem leitað hefur verið síðan á sunnudag. Hallgrímur Indriðason greinir leitinni. Fimmtungur félaga í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga missir vinnuna eftir uppsagnir í rækjuvinnslunni Hólmadrangi á Hólmavík. Urður Örlygsdóttir ræddi við Finnboga Sveinbjörnsson, formann félagsins, sem segir þetta mikið högg fyrir samfélagið. Birta Flókadóttir, talsmaður samtakanna Hvalavina segir dýravelferðarsinna á Íslandi fagna löngu tímabæru banni við hvalveiðum í samtali við Ólöfu Rún Erlendsdóttur. Karlmaður um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til nítjánda júlí, vegna rannsóknar lögreglu á andláti karlmanns í Hafnarfirði um helgina. Kortavelta erlendra ferðamanna innanlands fyrstu fimm mánuði ársins hefur aukist töluvert miðað við síðasta ár. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason í viðtali við Rebekku Líf Ingadóttur. Forsvarsmenn Dalvíkurbyggðar ætla ekki að greiða lausnargjald fyrir gögn sem óprúttnir aðilar segjast hafa undir höndum eftir að netárás var gerð á sveitarfélagið í maí. Ólöf Rún Erlendsdóttir segir frá. ---- Í uppgjöri Loftslagsráðs kveður við kunnuglegan tón: Stefna stjórnvalda í loftslagsmálum er ómarkviss og óljóst hvernig Ísland hyggst ná skuldbindingum sínum um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda, um leið og allt stefnir í metár í notkun jarðefnaeldsneytis. Þetta hefur komið fram í öllum fyrri ársyfirlitum ráðsins, og nú er bætt í frekar en hitt og sagt að færa þurfi stjórnsýslustig loftslagsmála upp á neyðarstig. Ævar Örn Jósepsson spurði Halldór Þorgeirsson, formann Loftslagsráðs, hvort þessi kunnuglegi tónn í uppgjörinu þýddi að stjórnvöld hefðu ekki farið að ráðgjöf þess hingað til. Á fjórða tug hælisleitenda drukknuðu suður af Kanaríeyjum í vikunni. Spænskir strandgæslumenn voru nálægir en aðhöfðust ekkert. Ásgeir Tómasson segir frá. Íbúar Óslóar stefna á vikulanga gleðidaga með gleðigöngu 1. júlí. Í fyrra lauk þessari hátíð með hryðjuverkaárás og morðum. Núna óttast borgarbúar að sagan endurtaki sig. Samt er undirbúningur í fullum gangi í skugga hótana og áberandi andstöðu í samfélaginu. Gísli Kristjánsson segir frá.

Hættustig almannavarna vegna snjóflóða er í gildi í þremur bæjum á Austfjörðum. Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað snemma í morgun. Ólíkar tilfinningar vakna hjá Norðfirðingum í kjölfar flóðsins. Sum muna Norðfirðingar muna sumir eftir mannskæðum snjóflóðum þar í bænum fyrir tæpum 50 árum. Snjóflóðin í Neskaupstað féllu utan við varnargarða bæjarins. Viðbætur eru á teikniborðinu en stranda á fjármagni. Karlmaður frá Rúmeníu hefur stefnt íslenska ríkinu og krefst fimm milljóna í bætur. Hann kom til Íslands til að vinna við þakviðgerðir með tengdaföður sínum en var eftirlýstur af lögreglu og bendlaður við glæpagengi. Stúlka á táningsaldri vopnuð tveimur rifflum og skammbyssu varð sex að bana í grunnskóla í Nashville í Bandaríkjunum í dag. Nærri níutíu árásir hafa verið gerðar í bandarískum grunnskólum það sem af er ári. Umdeildu frumvarpi Ísraelsstjórnar var mótmælt harkalega í dag. Allsherjarverkfall hófst í landinu og sendiráðum var lokað. Frumvarpið átti að færa stjórnvöldum aukin völd yfir dómstólum. Afgreiðslu þess var frestað síðdegis. ---- Í morgun féllu snjóflóð í Neskaupstað. Blessunarlega varð ekki manntjón í flóðunum en nokkrir hlutu minni háttar áverka þegar flóð lenti á fjölbýlishúsi í Starmýri. Mikil ofankoma og vindur er fyrir austan og mikil snjóflóðahætta víða á Austfjörðum, til að mynda á Seyðisfirði, Eskifirði og víðar. Hús voru rýmd í Neskaupstað og Eskifirði. Flóðin sem lentu í byggð féllu úr Nesgili og Bakkagili en stór flóð hafa áður fallið úr þessum giljum. Norðfirðingar hafa áður þurft að takast á við náttúruöflin. Alls hafa 17 manns látist í snjóflóðum í Neskaupstað í þremur flóðum, árin 1885, 1974 og 1978. Árið 1974 varð mannskæðasta flóðið í bænum þar sem 12 manns fórust og fjórtán var bjargað, ýmist af eigin rammleik eða voru grafin upp. Slík sár gróa seint og sambýlið við náttúruna er samofið í huga Norðfirðinga. Í hádegisfréttum var sagt frá því að í fjöldahjálparstöð sem opnuð var í Egilsbúð sé meðal annars fólk sem man eftir flóðunum 1974 og það ýfi upp gömul sár að vera komin aftur á þann stað við svona aðstæður. "Atvinnurekendur og launþegar um gjörvallt Ísraelsríki. Komum í veg fyrir breytingar á lögum um dómstóla. Stöðvum þetta brjálæði," sagði Arnon Bar-David, formaður Histadrut, landsambands verkalýðsfélaga, þegar hann tilkynnti í morgun að allsherjarverkfall væri brostið á í landinu. Fljótlega tilkynntu fleiri stéttarfélög um að þau hefðu lagt niður störf, þar á meðal landssamband ísraelskra hjúkrunarfræðinga. Frá deginum í dag ætla þeir einungis að sinna neyðartilvik

Spegillinn 20.des 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Markús Hjaltason Hátt í hundrað og sjötíu manns hafa dvalið í hjálparmiðstöð Rauða krossins á Suðurnesjum vegna veðurs og ófærðar. Það dregur úr veðurhæð á landinu í kvöld og í nótt. Millilandaflug er að komast í gang. Pútín Rússlandsforseti fer yfir hernaðaráætlanir Rússa í Úkraínu með háttsettum herforingjum á morgun. Karlmaður á fertugsaldri sem gekk á hönd hryðjuverkasamtakanna íslamska ríkisins var í Danmörku í dag dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að leggja á ráðin um sprengjuárás í Danmörku. Lengri umfjöllun: Ferðir fjölmargrar farþega um Keflavíkurflugvöll hafa fallið niður eða raskast undanfarna daga og flugi innanlands hefur líka verið aflýst. Veðrinu fær enginn ráðið en hver er réttur farþega þegar svona kemur upp á? Breki Karlsson formaður neytendasamtakanna segir að kvaðir á flugfélög og réttindi farþega séu vel skilgreind. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Breka. Rannsóknarnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, 6. janúar nefndin svonefnda, mælti í gær með því við dómsmálaráðuneyti landsins að það gefi út fjórar ákærur á hendur Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir saknæmt athæfi í eftirmálum forsetakosninganna í nóvember 2020. Nefndarmenn voru einhuga í afstöðu sinni. Ásgeir Tómasson segir frá. Eliza Reid flutti til Íslands árið 2003 ásamt verðandi eiginmanni sínum Guðna Th. Jóhannessyni. Eliza er kanadísk, en hún og Guðni kynntust í sagnfræðinámi í Oxford á Englandi. Eliza vann sem sjálfstætt starfandi blaðamaður, ritstjóri og rithöfundur eftir að hún kom til Íslands og hefur látið vel að sér kveða meðal annars í umræðu um jafnréttis- og innflytjendamál. Árið 2016 var Guðni kjörinn forseti íslands og svo endurkjörinn 2020. Eliza komst þá í þá stöðu að vera orðinn maki þjóðhöfðingja, hlutverk sem er kannski ekki ýkja vel skilgreint á Íslandi. Spegillinn ræddi við Elizu Reid um 19 ára dvöl hennar hér á landi. Hún segir að viðbrigðin við að flytja til Íslands hafi verið töluverð. Kristján Sigurjónsson talar við Elizu.

Spegillinn 8. desember 2022 Formaður Flokks fólksins segir að neyðarástand ríki á leigumarkaði. Hún segir að þær hækkanir sem nú eru boðaðar vera til marks um gegndarlausa græðgi leigufyrirtækja. Formaður leigjendasamtakanna segir hækkanir leigufélagsins Ölmu með því versta sem gerist á markaðnum. Nýr dómur Evrópudómstólsins um fyrningu orlofs er fordæmisgefandi. Atvinnurekendur eru ábyrgir fyrir því að starfsfólk fái svigrúm til að fara í frí. Þetta er mat forseta ASÍ Dæmi eru um að sjúklingar þurfi að greiða um 200 þúsund krónur í komugjöld á ári hjá sérfræðilæknum. Margt smátt gerir eitt stórt. Einn alræmdasti vopnasali heims var sendur til Rússlands í skiptum fyrir körfuboltastjörnuna Brittney Griner. Hann var dæmdur í 25 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að selja vopn sem átti að nota gegn Bandaríkjamönnum. ----- Karlmaður á þrítugsaldri var tekinn af lífi í Íran í dag fyrir að hafa tekið þátt í víðtækum mótmælum sem staðið hafa víða um landið síðan í september. Hann var sakfelldur og dæmdur til dauða fyrir að hafa truflað umferð á götu í höfuðborginni Teheran og sært öryggisvörð með sveðju fljótlega eftir að mótmælaaldan skall yfir. Yfirvöld segja það jafngilda því að hafa lýst yfir stríði gegn almættinu. Dómurinn féll fyrir mánuði. Aftökunni hefur víða verið mótmælt. Mannréttindasamtök segja að réttarhöldin hafi verið sviðsett. Þau segja að enn fleiri mótmælendur eigi á hættu að verða teknir af lífi. Fleiri en tíu hafa verið dæmdir til dauða að undanförnu fyrir ýmsar sakir. Kristján Sigurjónsson fjallar um Íran. Holger Münch, yfirmaður í þýsku lögreglunni greindi frá því í dag að tveir hefðu bæst í hóp fólks sem er grunað um að hafa ætlað að ráðast að þinghúsinu og steypa stjórnvöldum, nú lægju 54 undir grun en líklegt væri að enn bættist í þann hóp. Aðgerðir lögreglu hafa verið þær viðamestu um áratuga skeið, þúsundir lögreglumanna tók þátt í þeim, húsleit var gerð á meira en 150 stöðum víðs vegar í sambandslýðveldinu og vopn fundust á að minnsta kosti fimmtíu af þeim, 25 hafa þegar verið handteknir. Münch sagði að hópur sem í væru tugir jafnvel hundruð hefðu ekki bolmagn til að bylta þýska ríkinu en engu að síður væri þarna varhugaverð blanda fólks sem aðhylltist hættulegar og órökréttar skoðanir og skirrðist ekki við að grípa til ofbeldis, sumir byggju yfir miklu fjármagni, aðrir vopnum og kunnáttu í að beita þeim. Því hefði verið fyllsta ástæða til að grípa inn í. Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands tekur undir að erfitt sé að hugsa ekki til fyrri hluta síðustu a

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa slegið vinnufélaga sinn þremur höggum með klaufhamri í höfuðið í sumar. Mildi þótti að félaginn lifði árásina af. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vísar á bug fullyrðingu stjórnar Strætó um að stjórnvöld hafi ekki staðið við vilyrði um verulegan fjárstuðning við fyrirtækið. Kristín Guðmundsdóttir ræddi við hann. Penny Mordaunt, leiðtogi Íhaldsflokksins í breska þinginu, ætlar að gefa kost á sér í embætti leiðtoga flokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hún er fyrst til að gefa kost á sér í embættið eftir að Liz Truss sagði af sér í gær eftir 45 daga í embætti. Giorgia Meloni var í dag skipuð forsætisráðherra Ítalíu, fyrst kvenna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Steve Bannon, sem stýrði kosningabaráttu Donalds Trumps hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að vanvirða bandaríska þingið. Pétur Magnússon sagði frá. Áætlaður fjöldi laxa í sjókví Arnarlax í Arnarfirði var umtalsvert meiri en sá fjöldi sem kom í ljós þegar slátrað var úr kvínni í október 2022. Hrönn Jöru ndsdóttir. forstjóri Matvælastofnunar, segir ekki tímabært að upplýsa um fjöldann og mismuninn, en segir stofnunina líta málið alvarlegum augum. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hana. Mönnunarvandi á flugvöllum víða um heim hafði afar neikvæð áhrif á flugáætlanir Icelandair í sumar. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá. Einbreiðum brúm landsins fækkaði um eina í dag. Ný brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi var tekin í notkun í dag . Engin einbreið brú er lengur á hringveginum frá Reykjavík og austur fyrir Kirkjubæjarklaustur. Nýtt frumvarp um útlendinga var birt á vef Alþingis í dag. Þingmennirnir Jóhann Friðrik Friðriksson og Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttir, ræddu um það við Bjarna Rúnarsson. Í Noregi er komið í ljós að gamlir dómar í morðmálum hafa reynst rangir. Morðingjar gengið lausir en saklausir menn sakfelldir. Í einu tilviki hefur maður setið inni í 21 ár án þess að haldbærar sannanir væru fyrir hendi. Gísli Kristjánsson sagði frá,.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Stórbruni varð á Egilsstöðum í dag þegar kviknaði í þvottahúsinu Vaski, lítið varð ráðið við eldinn fyrr en liðsauki barst frá flugvallarslökkviliðinu. Íbúar eru beðnir að loka gluggum og kynda til að varna því að reyk leggi inn. Rúnar Snær Reynisson fréttamaður var á vettvangi og ræddi við Harald Geir Eðvarðsson slökkviliðsstjóra Múlaþings. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræðir á föstudag um skemmdir á rússneskum gasleiðslum í Eystrasalti. Rússar bera af sér sök um skemmdarverk og óskuðu eftir fundinum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir að grannt verði fylgst með framvindu mála. Það væri fínt að geta fengið að vera í almennilegum skóla segir Arna Sif Jóhannssdóttir, nemandi í níunda bekk Hagaskóla. Bæta þarf við útistigum og breyta gluggum til að tryggja brunavarnir í húsi skólans í Ármúla segir Björn Kjartansson, sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Fjárhagsstaða sveitarfélaga hefur aldrei verið jafn bág og nú að mati nýkjörins Heiðu Bjargar Hilmisdóttur formanns sambands þeirra. Erfitt sé að gera áætlanir fyrir næsta ár þegar óvíst sé um tekjustofna. Ágúst Ólafsson ræddi við hana. Saksóknari fer fram á fimm ára dóm yfir þremur einstaklingum fyrir aðild að morði í Rauðagerði í febrúar í fyrra. Karlmaður var dæmdur í sextán ára fangelsi í héraðsdómi fyrir að hafa játað á sig manndrápið, en þremenningarnir voru sýknaðir. Alexander Kristjánsson sagði frá málflutningi í Landsrétti. ------------- Eyjarskeggjum á dönsku eyjunum Borgundarhólmi og Kristjánsey er órótt yfir að vera allt í einu í miðjum hráskinnaleik á heimssviðinu. Flestum að Danmörk að hún sé ekki svo fjarri og stríð og átök hafi færst nær við fréttir af sprengingum og skemmdarverkum í Eystrasalti. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra um viðbragð Íslands og NATO. Næstu tveir sólarhringar verða andstyggilegir, segir Ron DeSantis, ríkisstjóri í Flórída í Bandaríkjunum. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í ríkinu vegna fellibylsins Ians sem nær landi í kvöld eða nótt. Ásgeir Tómasson tók saman. Hvaða máli skiptir hamingjan? Embætti landlæknis hefur mælt og skráð hamingju Íslendinga staðfastlega í nær tvo áratugi. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur sviðsstjóra lýðheilsu hjá Landlækni um hamingjumælingar og versnandi líðan íslenskra ungmenna eftir C

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Feðgar sluppu ómeiddir þegar skotið var á bíl sem þeir voru í við leikskóla í Hafnarfirði í morgun. Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa skotið þar á tvo bíla. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman, rætt við íbúa; Berglindi Bjarneyju Ásgeirsdóttur og Sigurlaugu Jakobínu Vilhjálmsdóttur. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra furðar sig á að aðeins þrjár umsóknir hafi borist um stöðu dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Hún vonar að fleiri umsóknir berist um stöðuna nú þegar auglýst er að nýju. Urður Örlygsdóttir ræddi við Katrínu. Hátt í nítján hundrað flóttamenn hafa komið til landsins það sem af er ári og hafa aldrei verið fleiri. Nærri tveir þriðju þeirra eru frá Úkraínu. Rebekka Líf Ingadóttir tók saman og talaði við Gylfa Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóra vegna komu flóttamanna frá Úkraínu. Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Emmanuels Macron hafa verið sakaðir um kynferðisbrot. Ráðherra þróunaraðstoðar er sakaður um að hafa beitt tvo skjólstæðinga ofbeldi þegar hann starfaði sem læknir. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Laun áheyrnarfulltrúa í nefndum og ráðum Akureyrarbæjar voru hundrað milljónir á síðasta kjörtímabili, það finnst Hlyni Jóhannssyni (M) bæjarfulltrúa meirihlutans of mikið. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við Hlyn og Sunnu Hlín Jóhannsdóttur, bæjarfulltrúa (B). -------- Stýrivextir voru enn hækkaðir í morgun í sjöunda sinn á rúmu ári til að reyna að hemja verðbólgu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Þór Sturluson, hagfræðing og deildarstjóra Viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Þórunn Wolfram, doktor í umhverfisfræðum segir að beita þurfi aðferðum móður jarðar til að hjálpa íslenskri náttúru að græða sig sjálf. Lúpínan sé komin til að vera en of mikill asi hafi einkennt sáningu hennar til að byrja með. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Þórunni um áhrif lúpínu á náttúruna.

Karlmaður á fertugsaldri lést þegar hann rak frá landi eftir að hafa verið að synda í heitu útfalli frá Reykjanesvirkjun ásamt þremur öðrum á sunnudag. Lögregla ítrekar að sjóböð við Reykjanesvirkjun séu stranglega bönnuð. Sóttvarnalæknir leggur til að samkomutakmarkanir verði viðhafðar á meðan heimsfaraldur geisar. Undanþágu verður hægt að fá frá 200 manna samkomutakmörkunum. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort farið verði eftir tillögum hans. Svartsýnasta spá Landspítalans gerir ráð fyrir að fleiri en tíu liggi á gjörgæslu með covid í einu undir lok mánaðarins. Landspítali hefur leitað til starfsmannaleiga í Evrópu til að leysa mönnunarvanda spítalans. Dæmi eru um að fólk sem fékk covid í fyrri bylgjum faraldursins hérlendis hafi veikst aftur í þessari bylgju. Það er þó jafnan með væg einkenni. Formaður Landssambands veiðimanna segir hita, þurrka og lélega endurheimt úr sjó vera aðalástæður þess að veiðisumarið hefur verið heldur dapurt víðast hvar. Það hafi þó ekki haft áhrif á sölu veiðileyfa. Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, var harðlega gagnrýndur í breska þinginu í dag. Margir þingmenn eru ósáttir við að Bretar hafi farið með herlið sitt frá Afganistan. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá. Eftir 20 ára veru Bandaríkjamanna og annarra í Afganistan, mikinn fjáraustur og þjálfun öryggissveita völtuðu Talíbanar yfir stjórnarherinn. Fjölmargar ástæður eru týndar til, ein er sú að flækjustig við að þjálfa erlenda heri með ólíkan bakgrunn sé einfaldlega afar hátt. Ragnhildur Thorlacius sagði frá. Í fjórtán ár þjálfuðu Norðmenn sérsveitir afgönsku lögreglunnar ? úrvalsliðið sem átti að halda liðsmönnum Talibana í skefjum á komandi árum. Þjálfun var lokið en þetta lið lét sig hverfa þegar á hólminn kom og veitti enga mótspyrnu. Norðmenn undrast nú hvað kom eiginlega fyrir. Gísli Kristjánsson segir frá.

Heilbrigðisráðherra segir að reglugerð um að skylda farþega frá áhættusvæðum í sóttkví á sóttkvíarhótel hafi verið sett í góðri trú. Staðfesti landsréttur niðurstöðu hérðasdóms um að lagastoð skorti verði brugðist við því. Sárafáir þeirra sem komu til landsins með flugi í dag fóru á sóttkvíarhótel, segir yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli. Karlmaður sem ákvað að fara heim til sín og kona sem ákvað að fara á sóttkvíarhótel gefa sömu skýringuna, það hafi verið þægilegast. Lögfræðinga greinir á um hvort úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur sýni brotalamir í sóttvarnarlögum. Reglugerð heilbrigðisráðherra hafi hins vegar skort lagastoð. Eldfjallafræðingur segir líklegt að nýtt gosskeið sé hafið á Reykjanesskaga. Gosið nú muni að líkindum standa í langan tíma en ekki sé þó líklegt að hraun renni yfir Suðurstrandarveg fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. Nemendur í Fossvogsskóla geta snúið aftur til náms í Korpuskóla á morgun. Viðgerðir hafa staðið yfir í Korpuskóla um páskana eftir að rakaskemmdir komu þar í ljós. Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum segir að sýkingarmáttur breska veiruafbrigðisins sem gangi hér nú sé meiri en eldri afbrigða og því þurfi hertar aðgerðir til að sporna við ástandinu. Ef það sé ekki gert aukist líkur á hópsmiti hér á landi. Hann vonar að stjórnmálamenn byggi traustari lagastoð undir aðgerðirnar. Bergljót Baldursdóttir talaði við Magnús. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að ef hraun nái að flæða yfir Suðurstrandarveg verði það ekki fyrr en í fyrsla lagi á næsta ári. Hann segir líklegt að hafið sé nýtt gosskeið á Reykjanesskaga. Horfur sé á að gosið nú mun standa yfir í langan tíma. Hann segir að nýja gosið sé meira og minna hrein viðbót við gosið í Geldinadölum. Því megi segja að það sé verið að tvöfalda framleiðnina. Arnar Páll Hauksson talaði við Þorvald Þórðarson. Boris Johnson forsætisráðherra Breta kynnti í gær 2. stig í afléttingu Covid-19 takmarkana, sem verður 12. apríl. Ferðamöguleikar Breta utanlands í sumar eru þó enn óljósir og stærsta spurningin er, eftir sem áður, hvort og þá hvernig bólusetningarvottorð verði gerð að skyldu. Sigrún Davíðsdóttir sagi frá.

Albanskur karlmaður hefur játað á sig morðið við Rauðagerði í Reykjavík um miðjan febrúar. Morðvopnið,skammbyssa með hljóðdeyfi, fannst í sjó nærri höfuðborgarsvæðinu fyrir hálfum mánuði. Mögulegt er að hraun flæði út úr Geldingadölum eftir tvær vikur. Ekki eru merki um að það sé að draga úr gosinu. Kári Stefánsson hafnar því að hann hafi með ummælum sínum í Kastljósi fyrr í vikunni, gert innflytjendur hér að blórabögglum. Hann var bólusettur í dag. Sóttvarnalæknir vill að fólk bíði með að fara að gosstöðunum til að koma í veg fyrir að smit breiðist út. Hann segir fullkomlega skýrt að fólk í sóttkví megi alls ekki fara að gosstöðvunum. Lyfjaeftirlitið í Ungverjalandi hefur gefið út leyfi fyrir sjö tegundum bóluefna við COVID-19. Þriðja bylgja farsóttarinnar er í örum vexti. Svandís Svarsdóttir,heilbrigðisráðherra, flutti þingheimi enn einu sinni munnlega skýrslu í dag um stöðuna í baráttunni við kórúnuveiruna. Yfirskrift hennar var - hertar aðgerðir. Heyist í Svandísi Svavarsdóttur, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, Sigríði Andersen, Helgu Völu Helgadóttur, Ólafi Þír Gunnarssyni, Olgu Margréti Cilia, Höllu Signýu Kristjánsdóttur og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur. Skólar og bættar samgöngur eru íbúum ofarlega í huga á þeim svæðum þar sem kjósa á um sameiningar á árinu. Einfaldari stjórnsýsla og sterkari sveitarfélög eru markmið þeirra sem stýra sameiningarviðræðunum. Ragnhildur Thorlacius talaði við Anton Kára Halldórsson. Helga Héðinsson og Jón Gíslason.

Karlmaður vikunnar er Jökull Sólberg, ráðgjafi og sérfræðingur í hinu og þessu. Hér tölum við um radíkalíseringu hans sem sósíalista, tímann á stafrænni auglýsingastofu í London, sprotafyrirtæki, QuizUp, rafflæði, samband hans við Hreiðar Má fyrrverandi bankastjóra, hvernig hagfræði í HÍ er fullkomlega úrelt og allskonar annað. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
Karlmaður vikunnar hefur skoðanir á karlmönnum - skoðanir sem flestir ættu að heyra. Hér er ekki verið að tala um skoðanir í þeirri skilgreiningu að þær séu lægsta form þekkingar, heldur erum við að tala um að hér sé verið að facta hluti - íslensk föct eins og þau gerast best. Hér er talað um: þróun femínismans, aktívisma, stjórnmál, réttlætiskennd, Miðflokksógnina miklu og Sigmund Davíð, hvernig umræðan færist hægt og rólega til hægri, misskilninginn um að strákar séu sérstaklega illa staddir í skólakerfinu, þunglyndi og kvíði stelpna í skólakerfinu, Moggabloggið, Holland, jafnréttisfræði ofl ofl ofl ofl! Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur
Spegillinn 6. janúar 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Líkur eru á að Demókratar hafi unnið bæði öldungardeildarsætin á Bandaríkjaþingi sem kosið var um í Georgiu í gær og að Repúblikanar hafi misst meirihluta sinn í deildinni. Þúsundir stuðningsmanna Trumps eru á útifundi fyrir utan Hvíta húsið. Sameiginlegur fundur þingdeildanna fer nú yfir atkvæði kjörmanna í forsetakosningunum. Bannað verður að endurbyggja hús á tíu lóðum á Seyðisfirði, sem urðu fyrir skriðuföllum í desember, fyrr en byggðin hefur verið varin fyrir ofanflóðum. Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti tillögu þess efnis í dag. Forgangsröð vegna bólusetningar við COVID-19 hefur verið breytt. Nú verður lögð áhersla á að bólusetja fólk sem er sjötíu ára og eldra með þeim bóluefnum sem Íslendingar fá á næstunni. Nær allir íbúar hjúkrunarheimila landsins voru bólusettir við Covid-19 í lok desember, yfir 3.200 manns. Karlmaður var í dag dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að nauðga fjórum konum. Dómnum hefur þegar verið áfrýjað. Mygla hefur greinst í leikskólanum Leikholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Flytja þarf 35 börn úr leikskólanum. Ísland mætir Portúgal í Evrópumóti karla í handbolta á útivelli klukkan hálf átta í kvöld. Lengri umfjöllun: Líkur eru á að Demókrakatar hafi unnið bæði öldungardeildarsæti Georgíu í kosningum þar í gær og þar með jafnað stöðuna í öldungadeildinni. Sé þetta raunin þá eru Demókratar með 50 þingmenn eins og Repúblikanar. Varaforsetinn Camilla Harris er hins vegar oddamaðurinn í deildinni og demókratar því í raun komnir í meirihluta í öldungadeildinni og þar með í báðum deildum bandaríska þingsins. Kristján Sigurjónsson ræðir við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmaálfræðiprófessor um pólitíska gerjun í Bandaríkjunum. Talsvert færri komast að í íslenskunám fyrir útlendinga en áhugi er á. Í Fjölbraut í Breiðholti er nú boðið upp á sérstaka íslenskubraut fyrir útlendinga í fyrsta sinn. Tækniskólinn hefur í nokkur ár verið með íslenskukennslu fyrir útlendinga. Þar er langur biðlisti. Arnar Páll Hauksson talar Brynju Stefánsdóttir sviðsstjóra bóknáms í FB Núna þegar byrjað er að bólusetja víða um lönd gegn Covid-19 og von til að það gangi þokkalega hratt, er ástæða til að spá aðeins í hvernig þessi nýja framtíð að baki faraldrinum muni þá líta út. Annars vegar eru það pólitísku línurnar, hins vegar hvað hvert og eitt okkar er að hugleiða um eigið líf.Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Karlmaður vikunnar! Benedikt Erlingsson... leikari og kvikmyndaleikstjóri, þekktur fyrir Fóstbræður, hin og þessi leikrit, kvikmyndirnar Hross í oss & Kona fer í stríð. Hér rekur hann sögu Íslands og setur mikla virðingu á nöfn þrælanna Karls og Vífils, leggur til lausnir við loftslagsvánni, hvetur ríkisstjórnina til þess að selja kynlíf, rassskellir Ríkisútvarpið, kallar Auði, GDRN og Herra Hnetusmjör Fjölnismenn og opnar sig loks um þá hræðilegu upplifun að lenda í ærskýringu.
Það er þak, en ekki gólf, í húsi lífsins... Karlmaður vikunnar er rithöfundur og pistlahöfundur, Halldór Armand. Epískt spjall um það sem skiptir máli... fyrri hluti: pólitík, þunglyndið og samantekin ráð um að almenningur eigi ekki að hafa gaman. Seinni hluti: bókmenntir og ómældar þjáningar rithöfundarins, ekki kannski Halldórs, en svona, almennt þess sem skrifar. Útvarp 101. www.patreon.com/skodanabraedur
Karlmaður vikunnar! Björg Magnúsdóttir. Langþráð, langíhugað, nú framkvæmt, á meðan plága ríður yfir þjóðirnar. Það á ekki að stoppa lestina. Björg er fjölmiðlakona par excellance og skýtur uppi kollinum hvarvetna þessa stundina, í Ráðherranum, í Málfari eða hvað sem sá ágæti þáttur heitir... Orðspori? Kappsmáli! Svona er tungumálið dyntóttur djöfull en alltaf ratar merkingin á sinn stað. Þetta allt sem sagt og fjöldi annarra aðskiljanlegra atriða, sem hér eru sérstaklega tekin til umræðu. Síst er þó stefnan að taka aðeins augljós atriði til umræðu og menn leiðast í miðjum klíðum út á ýmsar slóðir.. Versló upp úr aldamótum.. Anórexían.. Samfélagsmiðlalaust menntaskólalíf (abstrakt safngripur, raunar).. og loks útvarpið sem steindauður miðill – allt um það, í því sem er auðvitað ekkert annað í grunninn en útvarpsþáttur. Samanber Útvarp 101! Og farið inn á www.patreon.com/skodanabraedur og takið þátt í veislunni.
www.patreon.com/skodanabraedur Talandi um leikinn, hér er máttarstólpi. Karlmaður vikunnar er Benedikt Andrason, Benni Andra semsagt. Jafnvígur á þónokkra veruleika og hliðarveruleika, graff, tattú, dópshit og á þeim nótum, laxveiðar. Nokkrar ár sem renna að sama ósi, eins og maðurinn sagði. Hér, veitt innsýn inn í þessa leiki og við sögu koma dauða- og lífsreynslur sem eiga sér jafnt stað á vettvangi íslenskra laxveiðisvæða sem í lestarskemmum að næturlagi í Berlín. Maðurinn á alltaf í hættu að týna lífi, þannig að það er um að gera að kveikja á þættinum áður en svo fer Viðtalið hefst á mínútu 22.30. Samhengislaust quote: „Jakob Frímann, þegar hann var í borgarstjórn, þá fór hann í hardcore stríð gegn veggjakroti.“
Karlmaður á sjötugsaldri er grunaður um að hafa orðið valdur að brunanum á Bræðraborgarstíg í gær, þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglu nú rétt fyrir fréttir. Sóttvarnalæknir segir til skoðunar að senda Íslendinga sem koma frá áhættusvæðum í sóttkví, þrátt fyrir að sýni úr þeim reynist neikvætt við landamæraskimun. Formaður stéttarfélagsins Framsýnar í Þingeyjarsýslu segir brýnt að tryggja hópnum sem í gær missti vinnuna í kísilveri PCC á Bakka atvinnu sem fyrst. Staðan sé grafalvarleg. Björk Guðmundsdóttir ætlar að halda tónleika á Íslandi í sumar. Með því vill hún bregðast við breyttum aðstæðum tónlistarfólks. Það ræðst á næstu klukkustundum hvort félagsmenn írsku stjórnmálaflokkanna þriggja sem hafa komið sér saman um að mynda ríkisstjórn fallast á stjórnarmyndunina. Lengri umfjallanir: Samtaka ferðaþjónustunnar telja áhyggjuefni ef lokað verður á bandaríska ferðamenn lengi eftir 1. júlí. Félagsfræðingur segir að meirihlutahópurinn í samfélaginu þurfi að taka afstöðu gegn rasisma. Ungar konur af erlendum og blönduðum uppruna hafa undanfarið látið í sér heyra á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Ýmsir telja að kórónuveiruváin sé brýn áminning um hættuna sem heiminum stafi af loftslagsbreytingum. Spegillinn er nú farinn í sumarfrí en verður aftur á dagskrá um miðjan júlí.

Karlmaður á sjötugsaldri og kona um sextugt eru á sjúkrahúsi vegna COVID-19 smits. Hvorugt er á gjörgæslu. Stjórnvöld í Noregi og í Danmörku hafa látið loka öllum skólum næsta hálfa mánuðinn. Norsku konungshjónin eru í sóttkví. Fjármálaráðherra sagði á Alþingi í dag að þó að skellurinn vegna veirunnar verði tímabundið ástand geti enginn sagt hvað sá tími verði langur. Bóndi í Svarfaðardal sem fær ekki að hafa bleikjueldi heima hjá sér án rekstrarleyfis ætlar að kæra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Veðurstofan varar við suðaustan hríðarveðri á Suðurlandi í kvöld og fram undir miðnætti, með talsverðri snjókomu. Efasemdir um kosti hnattvæðingarinnar og hvort hún hafi hugsanlega gengið of langt hafa fengið byr undir báða vængi með útbreiðslu COVID-19 veirunnar. *** Í síðari hluta Spegilsins var rætt við Má Kristjánsson, smitsjúkdómalækni og Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar um heimsfaraldurinn. Þá fjallaði Sigrún Davíðsdóttir um þá sem hafa efasemdir um kosti hnattvæðingarinnar og hafa fengið byr undir báða vængi með útbreiðslu veirunnar.

„Skækjan – það er eiginkonan; eiginkonan – það er skækjan. Aðra kaupi ég til samneytis við mig ævilángt … Hina kaupi ég til samneytis við mig eina nótt.“ Skoðanabræður gerast svo djarfir að mótmæla þessari tvígreiningu kvenna sem má lesa um í skáldsögu frá því snemma á 20. öld. Í hvaða bók? spyr sig sá sem gengur svo langt að lesa þetta klór. Upplýsingar þar um finnast inni í miðjum þættinum, sem þýðir að orðin sem þú ert að lesa eru smellibeita. Þú ert ormétinn og úrkynjaður lax úr eldiskví sem silast niður eftir lækjarsprænu og bítur loks á agnið, sem sé hlustar á þáttinn. Svona flýturðu sofandi undan ævistraumi og þinn feigðarós er hjákátlegur hlaðvarpsþáttur; hafðu fyrir alla muni hugfast í millitíðinni það sem góðskáldinu rataðist forðum á munn, að lasta því síður laxinn, sem „leitar móti straumi sterklega og stiklar fossa.“ Straumurinn stendur ekki í vegi fyrir Skoðanabræðrum sem eru umræddur heilbrigður lax svo myndmálið fái hér áfram að njóta sín; þeir eru villtur lax. Þess vegna segja þeir það sem They – kapítalið – vill ekki að sagt verði. Meiriháttar uppljóstranir gerðar í þættinum, sem lúta að fjölmiðlavaldi, tæknivaldi og kaupmannavaldi. Þeim mun mikilvægara er að Skoðanabræður geti haldið áfram vegferð sinni; AUR eða KASS í síma 661-4648. Karlmaður vikunnar er engin önnur en Guðrún Ýr Eyfjörð, GDRN, söngkonan sem þið hafið að líkindum haft á fóninum allar götur síðan ykkur barst sá fögnuður til eyrna, að út væri komin ný plata. GDRN veitir hér fyrsta viðtal eftir að hún hreppti verðlaun sem söngkona ársins á einhverjum hlustendaverðlaunum í gær; og hvað ber framtíðin í skauti sér, er spurt. Óvíst – líklega ekki eiturlyfjafíkn. Og þó. Annað vitaskuld rætt: metafóran í meme-inu, hin héðan af forboðna gredda hlaðvarpsformsins og ekki óskylt henni, hin karnivalíska mennska margfætla sem skíðayfirstéttin myndaði í Austurríki, upp á vesturíslensku eitt loftþétt Human Centipede sem liðaðist um íburðarmikil salarkynni skíðaskálans endilöng, grandalaust um vá þá er vofði yfir mönnunum; þegar ljósin voru kveikt voru almannavarnir ekki lengi að lýsa yfir neyðarástandi. Skoðanabræður eru frjálst og sjálfstætt hlaðvarp á vegum Útvarps 101.
Spegillinn 21.01.2020 Karlmaður er í öndunarvél á spítala með stórhættulega matareitrun. Veiran greindist síðast á Íslandi fyrir næstum fjörutíu árum. Karlmaður sem lögregla grunar um að hafa banað manni í Úlfarsárdal í byrjun desember er laus úr gæsluvarðhaldi. Landsréttur telur lögreglu ekki hafa stutt grun sinn nægjanlega vel með gögnum. Réttarhöld eru hafin í öldungadeild Bandaríkjaþings yfir Donald Trump forseta. Demókratar saka Repúblikana um að ætla að leyna sönnunargögnum gegn honum. Formaður Eflingar segir að félagið sé ekki tilbúið að fórna sjálfstæðum samningsrétti fólksins. Inntak krafna félagsins sé byggt á lífskjarasamningnum. Jafnframt sé farið fram á leiðréttingu á stöðu félagsmanna hjá borginni sem séu á föstum töxtum. Í mörgum tilfellum sé verið að bjóða fólki upp á líf í fátækt. Arnar Páll Hauksson talaði við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar Versta vetrarveður sem um getur í meira en 40 ár geisar nú á Norðuraustur-Spáni. Að minnsta kosti fjórir eru látnir. Samkvæmt nýrri rannsókn er hægt að draga úr loftslagsvá, offitu og vannæringu með réttu mataræði. Niðurstöðurnar sýna að best er að vera grænkeri eða vistkeri. Hópur vísindamanna hefur reiknað út hvernig mataræði hefur áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þeir sýna fram á að með réttu mataræði er hægt að draga úr loftslagsvá, offitu og vannæringu sem eru þrír faraldrar sem nú geisa í heiminum. Hópurinn hefur birt niðurstöður sínar í vísindatímaritinu Lancet. Thor Aspelund líftölfræðingur er í rannsóknarhópnum og hann heldur erindi á málþingi á morgun um samspil næringar, heilsu og umhverfis ásamt Jóhönnu Torfadóttur, næringarfræðingi. Bergljót Baldursdóttir talaði við Thor Aspelund.

Landvarðarbrundið! Það er hinn heiðni helgi safi sem grundvallaði þessa þjóð í öndverðu – og heldur áfram að gera það á kojufylleríum í hinum ýmsu þjóðgörðum landsins. Þetta er fólkið sem er ekki á Instagram, en tryggir í gegnum aðrar göfugri boðleiðir framgöngu kynstofns okkar. Að vera ekki á Instagram er svo sem eitthvað fyrir aðra en bara skinhelgar síðhærðar skeggjaðar lopapeysur: Skoðanabræður hoppa um borð í þann vagn, alltént Bergþór. Hann ætlar að hætta á Instagram í febrúar, bylting, segir hann, febrúarbylting, bætir Snorri um betur, orðhagur og sagnfræðilega meðvitaður höfundur þessa texta hér. Verið velkomin í aðra seríu af Skoðanabræðrum, helsta hlaðvarpi landsins, sem smeygir sér nú inn í eyru ykkar í fullkomlega tærri og óbreyttri mynd, að breyttu reyndar breytanda, sem var fjárhagsmódelið og fáein önnur atriði. Héðan í frá er þetta gersamlega ókeypis fyrir ykkur hlustendur, og á sama tíma erum við farnir í farsælt samstarf við framúrskarandi fyrirtæki: Forlagið, AUR og 101 Sambandið. Kóðinn til þess að kaupa Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson sem hljóðbók á afsláttarkjörum (ný skáldsaga á 990kr) á forlagid.is er SKODUN. Kóðinn til þess að fá 60 GB frí þegar þú gengur í Sambandið á sambandid.is er SKODUN. Í þessum fyrsta þætti er allur andskotinn ræddur, eins og einmitt verðmætir kynstofnar, eins og þeir sem koma við sögu fyrr í þessari lýsingu. Snorri er staddur í Berlín þar sem hann rannsakar ásamt kraftmiklum krökkum yfirburði og eiginleika norræna kynstofnsins, á vegum félags sem heitir því viðeigandi nafni Norðurvígi. Hann segir okkur frá ýmsu spennandi af þeim frjóa vettvangi. Bergþór lýsir síðan áhyggjum sínum af Instagram, samfélagsmiðlum, en trúir að Skoðanabræður geti komið góðu til leiðar með því að halda áfram að bera út boðskapinn. Femínískan boðskap segir hann, enda hans hagsmunir, kvenkyns sjálfur. Og þetta grín er smellibeita og aðeins skrifað svo að þú sperrir eyrun og setjir Skoðanabræður í gang. Hér er ráða auðvitað jafnréttisviðhorf ríkjum. Karlmaður vikunnar að þessu sinni er ekki neinn, heldur er baneitruð karlmennska Snorra látin tala sínu máli. Á næstu vikum verða þó gestir í þáttunum, og þar er hvaðeina spennandi framundan. Það breytir því ekki að smávægileg stefnubreyting hefur orðið, sem felst í að þættirnir bera ekki nafn viðmælanda, heldur njóta efnislega sannmælis útaf fyrir sig, enda annað andrósentrismi, sem Skoðanabræður láta seint kenna sig við. Þið fáið sem sé fyrirsagnir, bitastærð við ykkar hæfi, smánautnaseggir. Skoðanabræður eru eins og ævinlega afurð Útvarps 101. Þeir eru framleiddir í samstarfi við Forlagið, AUR og 101 Sambandið.
Spegillinn 9.desember 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Gefin hefur verið út rauð viðvörun, sem er hæst viðvörun, vegna veðurs á Norðurlandi vestra og Ströndum síðdegis á morgun. Veður byrjar að versna í stífri norðanátt um allt land strax í fyrramálið. Útlit er fyrir að samgöngur, og skólahald raskist verulega víða um land á morgun. Lögregla á Nýja-Sjálandi telur litlar líkur á að nokkur finnist á lífi á lítilli eyju þar sem eldgos hófst óvænt í gær. Talið er að þar hafi 24 til 30 ferðamenn orðið innlyksa. Karlmaður um fimmtugt var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. desember vegna rannsóknar á dauðsfalli í Úlfarsárdal í Reykjavík í gær. Fjórum öðrum mönnum var asleppt úr haldi. Rússnesk yfirvöld geta áfrýjað til Alþjóðaíþróttadómstólsins ákvörðun stjórnar Alþjóðalyfjaeftirlitsins um að útiloka rússneskt íþróttafólk frá keppni næstu fjögur ár. Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13. desember vegna gruns um líkamsárás, nauðgun, hótanir, milligöngu um vændi, kaup á vændi og mansal. Samkvæmt úrskurðinum beindust öll brotin gegn sömu konunni. Verjandi Margeirs Péturs Jóhannssonar, sem dæmdur var í sex ára fangelsi í dag fyrir amfetamínframleiðslu, segir dóminn hafa komið sér verulega á óvart. Ásamt Margeiri var Alvar Óskarsson dæmdur í sjö ára fangelsi í málinu og Einar Einarsson í sex ára fangelsi. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra þykir miður að orð hennar í gær hafi misskilist. Hún sagði þá að hún teldi Landsréttamálið ekki hafa fordæmisgildi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag sagðist hún hafa átt við að mál Íslands hafi ekki fordæmisgildi fyrir stöðuna í Póllandi. Lengri umfjallanir: Síðustu fylgiskannanir fyrir þingkosningarnar í Bretlandi 12. desember benda eindregið til sigurs Íhaldsflokksins en óvíst hvor hann hreppir sterkan meirihluta eins og hann stefnir á. Óvissuþættirnir eru margir í einmenningskjördæmakerfinu, til dæmis hvort ungir kjósendur skili sér á kjörstað, sem væru góðar fréttir fyrir Verkamannaflokkinn. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Umræður um kosningarnar í Bretlandi í berinni útsendingu. Kristján Sigurjónsson ræðir við Dagmar Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra HBH byggis hf og formann bresk íslenska viðskiptaráðsins og Einar Kristin Guðfinnsson formann Landssambands fiskeldisstöðva og fyrrverandi alþingismann og ráðherra. Stjórn Alþjóðalyfjaeftirlitsins samþykkti einróma í dag að útiloka rússneskt íþróttafólk frá keppni næstu fjögur ár. Ákvörðunin kemur ekki á óvart í

Spegillinn 8. okóber 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Karlmaður sem ítrekað níddist kynferðislega á barnungum syni sínum var í dag dæmdur í Hérðasdómi Reytkjavíkur í sjö ára fangelsi. Afstaða Íslands til yfirvofandi hernaðaraðgerða Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi er óbreytt segir utanríkisráðherra. Fyllilega komi til greina að gangrýna aðgerðir Tyrkja, líkt og íslensk stjórnvöld hafi gert áður. Endurskoðunarfyrirtækið Grand Thornton hefur verið fengið til að fara yfir rekstur fasteignafélagsins Upphafs og fagfjárfestasjóðsins Gamma Novus. Sendiherra Bandaríkjanna hjá Evrópusambandinu hefur verið stefnt til að mæta til yfirheyrslu hjá fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Trump forseti hafði áður bannað honum að bera þar vitni. Þegar hafa fundist leirbrot í fornleifauppgreftri fyrir aftan Stjórnarráðshúsið sem hófst fyrir hálfum mánuði. Hugsanlega er þar að finna minjar frá elstu tíð, segir fornleifafræðingur. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi tvo karla og eina konu í dag til skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kannabisræktun og og vörslu marijúna sem ætlað var til sölu og dreifingar. Dómurinn er hluti af enn stærra máli sem snýr að kannabisrækt og amfetamínframleiðslu Sex jarðskjálftar hafa mælst í Heklu síðan í nótt. Veðurstofan lét Almannavarnir og Isavia vita í morgun um að þar væri aukin virkni. Skjálftarnir voru allir litlir, flestir innan við 1 að stærð, en óvenjulegt er að svo margir skjálftar mælist þar á svo skömmum tíma. Lengri umfjallanir. Og þá að snúinni stöðu við landamæri Tyrklands og Sýrlands. Tyrkir hóta að ráðast yfir landamærin og inn í Sýrland og mynda þar svokallað öryggissvæði. Svæðið Sýrlandsmegin er yfirráðasvæði Kúrda sem berjast gegn Assad Sýrlandsforseta ásamt öðrum stjórnarandstæðingum og hafa verið leiðandi í stríðinu gegn hryðjaverkasamtökunum sem kalla sig íslamskt ríki, eða ISIS, og hafa þar verið bandamenn Bandaríkjamanna og annarra vestrænna þjóða. Á sama tíma þá tortryggja Tyrkir, bandalagsþjóð NATÓ, Kúrda, vilja sem minnst hafa saman við þá að sælda og líta á hersveitir þeirra sem hryðjuverkamenn. . Á þessu svæði eru borgir og bæir sem Kúrdar búa í, einnig flóttamannabúðir þar sem fólk sem flúið hefur óöldina í Sýrlandi heldur til og fangabúðir þar sem herteknir ISIS liðar og fjölskyldur þeirra eru í haldi. Arnar Þórisson dagskrárgerðarmaður í fréttaskýringaþættinum Kveik hjá RúV þekkir vel til þessa svæðis. Kristján Sigurjónsson talar við hann. Ég var aldrei pólitísk, fyrr en eftir að ég komst á lífeyrisaldur. Þetta seg
Spegillinn 17. september 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Flugslys varð á Skálafelli við Mosfellsheiði í dag. Eins hreyfils flugvél flaug á fjallshlíð. Flugmaðurinn var einn um borð og fluttur með þyrlu á Landspítalann til aðhlynningar. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er á leið til Sádi-Arabíu. Þar ræðir hann við ráðamenn um viðbrögð við árásum á tvær olíuvinnslustöðvar um síðustu helgi. Bandaríkjamenn fullyrða að Íranar hafi verið að verki. Sjávarútvegsfyrirtækið West Seafood á Flateyri er gjaldþrota. Fyrirtækið skuldar yfir þrjátíu fyrrum starfsmönnum laun allt að átján mánuði aftur í tímann. Maðurinn sem grunaður er um að hafa hrint konu fram af svölum í Efra-Breiðholti í gærkvöld, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. október. Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna og fyrsti varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, vill hvorugan Miðflokksmannanna, Bergþór Ólason eða Karl Gauta Hjaltason, sem formann nefndarinnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setti í dag alþjóðlega ráðstefnu um áhrif #metoo-bylgjunnar. Ráðstefnan er haldin í Hörpu í Reykjavík næstu þrjá daga og er liður í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. OECD telur að ríkið eigi að einblína á grænan hagvöxt. Í skýrslu stofnunarinnar sem var kynnt í gær er lagt til að kolefnisskattar verði hækkaðir og skattstofn breikkaður með því að skattleggja losun iðnaðar og landbúnaðar. Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðarráðherra segir ekki standa til að hækka kolefnisgjaldið frekar en gert hefur verið nú þegar. Karlmaður áreitti og veittist að nemendum og starfsfólki í húsnæði menntavísindasviðs Háskóla Íslands á hádegi í dag. Menntamálaráðherrar Íslands og Danmerkur hittust í dag og ræddu um hugsanlegan flutning íslenskra handrita heim. Formannskjör í Félagi framhaldsskólakennara hófst á hádegi í dag. Lögreglan á Norðurlandi vestra sektaði ökumenn um rúmlega 322 milljónir króna vegna umferðarlagabrota á fyrstu átta mánuðum ársins. Lengri umfjallanir: Sérfræðingur í eldsneytismálum segir erfitt að spá fyrir um hver áhrif olíuverðshækkana verða vegna drónaárásarinnar í Sádi-Arabíu. Vari ástandið áfram geti það haft talsverð efnahagsleg áhrif. Það er ekki ljóst hvaða áhrif drónaárásin á olíuframleiðslustöð ríkisfyrirtækisins Saudi Armaco mun hafa. Verð á hráolíu rauk strax úr um 60 dollurum í 72 fyrir tunnuna sem er um 20 prósenta hækkun. Eftir að markaðir fóru að ná áttum hefur verðið farið niður aftur en er nú um 69 dollarar. Hækkunin um helgina var sú mesta á
Spegillinn mánudaginn 26. ágúst 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í sex ára fangelsi fyrir mjög grófa líkamsárás á konu í Vestmannaeyjum fyrir þremur árum. Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims styðja sjálfstjórn Hong Kong sem Bretar og Kínverjar sömdu um fyrir 35 árum. Hörð mótmæli hafa verið í borginni síðustu vikur. Stefnt er að því að kjósa um þriðja orkupakkinn á Alþingi á mánudag eftir viku. Landsréttur hefur hafnað kröfu ákæruvaldsins um framlengt gæsluvarðhald yfir manni sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir árás á dyravörð á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Strandveiðum lýkur um næstu mánaðamót. Útlit er fyrir að tæp 2000 tonn verði óveidd af veiðiheimildum. Stofnaður hefur verið viðbragðshópur Matvælastofnunar, björgunarsveita og fleiri til að bjarga hvölum í neyð. Grindhvalur sem rak á land við Seltjarnarnes í dag var aflífaður nú skömmu fyrir fréttir. Lengi umfjallanir: Þingkosningar verða í Færeyjum á laugardag 31. ágúst. 33 þingmenn eru á færeyska lögþinginu. Rikisstjórn Þjóðveldisflokksins og Jafnaðarflokksins undir forystu Aksels V. Johannessen lögmanns úr síðarnefnda flokknum hefur nauman meirihluta og benda skoðanakannanir til að hún missi meirihluta sinn. Stærstu stjórnarandstöðuflokkarniir eru Sambandsflokkurinn og Fólkaflokkurinn, en það er þó óvíst að þeir nái saman í stjórnarmyndun verði kosningarnar þeim í hag. Færeysk stjórnmál eru um margt flókin og snúast ekki aðeins um hægri og vinstri, heldur einnig um afstöðuna til sambandsins við Dani og íhaldssememi eða frjálsyndi í afstöðu til jafnréttis- og trúmála. Norræna félagið á Íslandi hélt opinn fund í Norræna húsinu í Reykjavík í dag þar sem fjallað var um væntanlegar kosningar. Petur Petersen sendiherra Færeyinga á Íslandi sagði frá helstu málum sem þar ber á góma og nokkrir Íslendingar sem vel þekkja til í Færeyjum tóku þátt í pallborðsumræðum. Þar á meðal voru Sif Gunnarsdóttir skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg og fyrrverandi forstjóri Norræna hússins í Færeyjum og Gísli Gíslason varaformaður færeysk- íslenska viðskiptaráðsins og hafnarstjóri Faxaflóahafna. Kristján Sigurjónsson talar við þau í beinni útsendingu. Pólverjar á Íslandi eru orðnir fleiri en tuttugu þúsund. Fæstir þeirra hafa áhuga á að setjast að hér á landi, heldur koma hingað í tímabundin uppgrip. Ný doktorsrannsókn Önnu Mariu Vojtynska leiðir í ljós að íslenskur vinnumarkaður verður sífellt stéttskiptari eftir þjóðerni, og tilhneigingin s
Hlustaðu til að heyra hvort Katrín Jakobsdóttir drekki fimm eða tíu vínglös á viku! –Karlmaður vikunnar. Þetta finnst feminískum forsætisráðherra gott grín. Og hann, hún, reynir að standa undir nafni! –Sú tilraun ber árangur. –They sitja eftir með sárt ennið. Ein valdamesta persóna á Íslandi í viðtali hjá Skoðanabræðrum. Hver hefði haldið. Hún var nörruð í þennan þátt... á fölskum forsendum, segir hún… ekki satt! Forsætisráðherra var öllu heldur ljúft og skylt að koma til skyldmenna sinna, Skoðanabræðra. Þau eru öll afkomendur Jóns Thoroddsen. –Í því samhengi: óhjákvæmilega rædd hin meinta fyrsta íslenska skáldsaga, sem nákvæmlega helmingur ritstjórnar Skoðanabræðra hefur gefið sér tíma í að lesa. Hinn ekki. –Katrín Jakobsdóttir prófaði golf í fyrsta skipti í sumar. Hér segja Skoðanabræður þá frétt, fyrstir miðla. –Hún vann líka sem póstburðarmaður á sínum tíma og lærði þar að líta einkasamskipti fólks öðrum augum en hversdagslegum. Skilaboð á Facebook eru ekki eldhúsborð, þau eru bréf. –Og samfélagsmiðlakvíðinn sá arna. Er pólitískur leiðtogi Íslendinga haldinn honum? Svo virðist ekki vera. Hlustaðu til að komast að því! –Það hefur aldrei riðið meira á að styrkja frjálsa fjölmiðlun. Skoðanabræður – þeir veita valdhöfum aðhald. Og þiggja styrki fyrir í síma 661-4648 á Aur eða Kass. Það er á vettvangi Útvarps 101 sem Skoðanabræður töfra gæðaefni þetta fram af sinni alkunnu list.
–Free The Nipple? Feit pæling sem gekk ekki upp. –Og ert þú að horfa á midget shemale klám? Þetta er þátturinn fyrir þig. –Hér fáið þið Gamla-Mola! Aron Mola endurfæddist eitthvað í kringum 2016, minnir þann sem hér veldur fjöður. Það var stór breyting. He Changed. A Lot. He’s A Nice Guy. I Like Him. Enskan er óræð vísun sem verður ræð við hlustun þáttar. –Karlmaður vikunnar er beinlínis móðurriðill. –Þetta er Verslunarmannahelgarþátturinn, með greini. Þess vegna er hann extra langur, rétt eins og limurinn á Aroni Mola var extra langur þegar hann tók hálfa töflu af rislyfjum niðri í miðbæ Reykjavíkur. Hver gerir það nema shitty fíkill, alkóhólikker. Moli er það samt ekki, þó hann sé hættur að drekka. Það rætt, það rætt. –Fyrir langan þátt á fólk skilið langa poka af peningum. Alltént lágmarkslaun. Það má Aura í númerið 661-4648. Og það má Kassa. Styrkið frjálsa fjölmiðlun. –Hver myndi ekki styrkja þátt sem þennan, þar sem rædd eru helstu vandamál samtímans: ungir karlmenn sem koma heim eftir skóla, mamma þeirra er ekki heima, þannig að þeir vippa út lóknum og taka að flekka sjálfan sig. Fá sér svo stóra lummu og fara á handboltaæfingu. Lífið er bölvun. –Einmitt. Skoðanabræður, hinir einu sönnu talsmenn sannleikans líkt og haft var á orði forðum, þeir starfa í umboði Útvarps 101.
–Lífið er erfið veisla! Eða lífið er veisla en það mæta nokkrir óboðnir gestir. –Eins og til dæmis eiturlyfjafíkn. Karlmaður vikunnar hefur kynnst því. Og hann virðist jafnframt hafa sigrast á því. Af hverju ertu að spyrja mig, af hverju, á hverju ertu, eða hvað sem í fjandanum er sagt í þessu lagi. En Birnir er ekki á neinu, það er punkturinn. –(Skoðanabræður má og á að styrkja í síma 661-4648 á Kass eða Aur) –Birnir gekk í öndverðu með drauma í eistunum, hann tjáði þá við karlmenn í portinu á Prikinu, hann ætlaði að verða stór, hann ætlaði að sigra leikinn, og hvað gerðist. Draumarnir rættust. Þeir sem sé gera það, en til þess að skýra það nánar þarf að spóla nokkur ár til baka. Hver er Birnir! er því spurt og því svarað skilmerkilega. –Þátturinn er með óhefðbundnu sniði: Birnir fylgist ekki með bullshittinu sem Skoðanabræður hafa lifibrauð sitt af. Skoðunum. Hann er meira að líta inn á við, að mæta sínum innri manni og kanna aðeins hvert stefnir. Hann er nýkominn úr meðferð við áfengis- og eiturlyfjafíkn. Hann dvaldist í Svíþjóð um hríð. –Þetta virðist vera fyrsta opinskáa mannlífsviðtal sem hann fer í eftir það og um leið afsveinar hann Skoðanabræður í að framleiða slíkt efni fyrir útvarp. Útkoman er alvöru opinskár lasleiki í beinni. Nema vitaskuld ekki í beinni, enda öldur ljósvakans teknar nýstárlegum tökum af Skoðanabræðrum, hlaðvarpið er aðgengilegt hvenær sem er. –Og „ég held að ég þurfi að fara að kveikja aðeins á perunni, fullt af wack motherfuckers hérna í senunni.“ Hverjir eru þessir ræfilslegu móðurriðlar, Birnir, hverjir eru þeir? –Safinn er á lofti, hann er heilandi í eðli sínu og hann er á vegum Útvarps 101, eins og kveðið var á um í öndverðu.
•„Þetta er svo viðbjóðslegt og rótgróið stéttahatur,“ segir Snorri. „Svona Facebook-hópar á Íslandi eru bara viðbjóðslegir,“ segir Bergþór. „Þetta er ekki fyndinn hópur,“ segir Þóra. Þetta eru ekki góðar umsagnir. Hlustið áfram til að vita hvaða hóp ræðir um. •Þóra Tómasdóttir blaðamaður og almennur kóngur er Karlmaður vikunnar í vikunni, sá elsti til þessa. Og sennilega sá greindasti, yfirvegaðasti og áhugaverðasti að öllum öðrum ekkert það mikið löstuðum. Þóra þekkir Skoðanabræður persónulega og af opinberum vettvangi, enda þeir opinberar og mikilsvirtar persónur, en telur ekki æskilegt að annar þeirra fái of mikil völd. Það er spurning um hvorn það á við. Sá vægir þar sem vitið hefur meira, eins og eilíft gildir. •(Skoðanabræður er frjálst hlaðvarp, framleitt með hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti. Það má styðja þá vegferð með því að leggja henni fé í s. 661-4648 á Aur eða Kass.) •LungA er haldin hátíðleg um þessar mundir og í þættinum er kastað kveðju á þá hlustendur sem taka upp á því að stunda kynlíf í tjöldum. En þess þarf auðvitað ekki að geta hér í kynningu þáttarins. •Og Þóra tæki aldrei þátt í eins óviðurkvæmilegum kveðjuköstum enda komin vel á fertugsaldur. Hún hefur önnur lög að mæla, eins og ígrundaðar vangaveltur um aukna pólaríseringu í viðhorfum fólks, það er hin umrædda síbreikkandi gjá á milli stjórnmálaskoðana ólíkra hópa og víðsjárverða sundurlyndið sem hlýst af henni. Á þeim nótum kom gaurinn sem kom Donald Trump í embætti til Íslands á sínum tíma. Þóra segir frá því. •Ekki bara pólitík heldur öllu mikilvægara: lífið og hvernig er hægt að lifa af í þessu viðbjóðslega þjóðfélagi. Þóra er reynslunni ríkari og þekkir leiðina út, því eins og skáldið spurði, og margir hafa velt fyrir sér síðan, hvert fer maður, ef það er engin leið út úr heiminum. Svarið leynist í þessum þætti af Skoðanabræðrum. •Þetta einstaka efni er á vegum Útvarps 101 og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
„Var bara einhver sem reið 16 ára gellu og því var bara leyft að slæda?“ er spurt. Hverjum tvítið glymur, er spurt. YFN Lucci er með 7 árum yngri gellu. Og það er dóttir Lil Wayne. •Upplýsingaóreiða, þetta er þekkt vandamál. Karlmaður vikunnar skrifaði BS-ritgerð um FAKE NEWS. Og niðurstaðan var þessi: *****. Það kemur fram í þættinum. Karlmaður umræddur er enginn annar en Siffi G. •Siffi G. keypti ekki baðvatn af asískri cosplay gellu á Instagram. En hann fylgdist með. Hann kannaði. •Hann er enda samfélagsrýnir, vaknar dag hvern, setur á sig samfélagsgleraugun, ælir öllu út úr sér á Twitter þegar honum hugnast svo en er þess á milli bara heima að hlusta á hlaðvörp um stríð. •Hér er beðist afsökunar fyrir hönd allra gaura á þrítugsaldri sem hlusta á hlaðvörp um stríð. Og um leið spurt áleitinna spurninga sem vakna við þá íhugun, eins og hve lengi Vera Illugadóttir er að skrifa einn Í ljósi sögunnar. Af hverju getur hún ekki heimilda? •Siffi G. skrifaði aðdáendapóst til Veru en fékk engin svör. •Hann fékk fleiri svör þegar hann lá inni á spjallborðum á netinu um hryðjuverkamenn. Þar öðlaðist hann dýrmæta reynslu og af henni miðlar hann af miklu örlæti í þættinum í dag. •Styrkið Skoðanabræður á Aur eða Kass. •Þátturinn er vitaskuld á vegum Útvarps 101.
„Ég held að það séu bara gaurar sem hlusta og þeir eru að fara að skippa yfir nafnið mitt,“ segir Lóa Björk Björnsdóttir, sviðshöfundur og femínisti, áhyggjufull í viðtali við Skoðanabræður. Hún er fyrsti kvenkyns karlmaður vikunnar. Og ber þann titil hróðug. – Karlmaður vikunnar! Hálfbakað konsept, smá eins og léleg list, sem er til þess eins fallin að triggera PC gellur á Twitter. (Það virkar.) Þetta er þó á endanum eitthvað sem Skoðanabræður axla enga ábyrgð á. Þeir vísa þessu til áhorfanda. Það er undir honum komið að túlka listina. Þeirri túlkun kann að stýra afstaða túlkanda til Jordan Peterson. – Lóa öskraði þegar hún hlustaði á síðasta þátt af Skoðanabræðrum. „Þegar þú segir að ‘umræðan sé á villigötum’ er það mjög hrokafullt,“ segir hún við Snorra. Niðurstaða Lóu er einfaldlega sú að hann sé karlmaður í tilvistarkreppu. – Ljóst er að árásirnar á málfrelsi Skoðanabræðra eru hafnar. Um sinn eru það fáeinar gagnrýnisraddir sem jarma af veikum mætti á Twitter. Það er þó engu minni ástæða til þess að grípa til vopna, því umræðan kann að verða óvægin. – Hér er ekki vel talað um Skoðanabræður á þeirra eigin vettvangi. Spurt er hvernig það megi vera. Þeir styðja nýja þungunarrofsfrumvarpið. Þeir vilja banna áfengi. En þeir eru reyndar sammála um eina óvinsæla skoðun: að kynlíf eigi ekki að ræða á opinberum vettvangi. „Þið viljið horfa á klám í skömm,“ segir Lóa. Það eru dylgjur. – Eurovision. Nauðgunarbrandarar. Menn með yngri konum. Náttúran segir til sín – án tölvísi, sagði Laxness. – Og fyrstur til að leiðrétta rammskakka tilvísun Snorra í Hávamál fær shoutout í næsta þætti. – Djúsinn er á vegum Útvarps 101.
Dóri DNA er búinn að mæta í hvert einasta shitty hlaðvarp á landinu. Hann náði klukkutíma með Skoðanabræðrum áður en hann þurfti að þjóta í það næsta. Hann lofaði samt að það sem kæmi fram í þessum þætti væri exklúsíft einkaefni Skoðanabræðra. Það er viðbúið að Skoðanabræðralagið sperri eyrun… í suðupotti vikunnar malla nokkrar vel sjúkar hugmyndir. Eins og hverjar? Fróður spyr ófróðan: þegar gellur á Twitter segja að einhver gaur hafi hrútskýrt eitthvað fyrir þeim, er það bara til að minna heiminn á sig? Eða eru þær raunverulega að gagnrýna eitthvað? Og ef þú sæir nágranna þinn myrða mann, myndirðu fara á Twitter að myndirðu hringja á lögregluna? Það stendur á svörum hjá Domino's-vinstrinu. Þar er bara eitt svar. Svart. Eða hvítt. Eða að niðurstöðu á þá lund komust Skoðanabræður í þættinum. Karlmaður vikunnar var sem segir enginn annar en Halldór Laxness Halldórsson eða jú einhver annar en hann, meinum við: hann vill ekki láta kalla sig Laxness. Hann er Dóri DNA. Undir því nafni hyggst hann að minnsta kosti gefa út Kokkál, nýju skáldsöguna sína, sem fjallar um mann sem horfir upp á konuna sína ríða öðrum manni. Og skáldsögur, hver í fjandanum skrifar enn þá skáldsögur, er spurt. Hver veit nema Kokkáll toppi Brekkukotsannál. Og hver hefði haldið, pólitískan rétttrúnað bar loks á góma. Það er það eina sem karla langar að tala um eða það eina sem körlum langar að tala um, eins og hinn sjúki segði. Karlarnir fóru að tala um fóstureyðingar eða þungunarrof, eftir því hvernig á það er litið, það er, hvort er verið að myrða barn eða hlífa því. Best að drepa það tal. Djúsinn er á vegum Útvarps 101.
Grár köttur ræðir við listakonuna Völu Höskuldardóttur um karlmennsku, heyrir söguna af því þegar Dóri DNA varð skotinn í strák og hugmyndir Gunnars Nelson um ástina. Þá spáir kötturinn í vönunarótta í kvikmyndinni Fight Club, sem á tvítugsafmæli um þessar mundir, og fer í herraklippingu með fimm barna föður.
Forystumenn verkalýðsfélaga segja að ferðaþjónustufyrirtæki hafi framið verkfallsbrot - en rúmlega tvö þúsund manns lögðu niður störf í dag. Formaður VR segir að þessu verði mætt af fullri hörku. Sérfræðingar í vinnumarkaðsfræðum og ferðaþjónustu búast ekki við að verkföll í greininni eigi eftir að dragast á langinn og þau muni ekki kasta eða að þau kasti rýrð á Ísland sem áfangastað. Ástandið í flugmálum sé öllu alvarlegra. Það er vonskuveður um nær allt land, í gildi bæði gular og appelsínugular viðvaranir og vegir víða ófærir. Formenn stjórnarflokkanna segja engar ákvarðanir hafa verið teknar um fjárhagslega aðkomu ríkisins vegna viðræðna um kaup Icelandair á WOW. Stjórn Icelandair hefur samþykkt að hefja viðræður við WOW air um aðkomu að rekstri félagsins. Karlmaður á fertugsaldri, sem hollenska lögreglan hefur haft í haldi grunaðan um skotárás í Utrecht á mánudag, játaði verknaðinn í dag. Hann kvaðst hafa verið einn að verki. Íslensk stjórnvöld eru bæði með belti og axlarbönd, gagnvart helstu álitamálum sem hafa verið viðruð vegna Þriðja orkupakkans, svokallaða, þetta segir utanríkisráðherra. Bretar munu vart ganga úr Evrópusambandinu eftir viku, eins og til stóð - en fátt annað er ljóst í Brexit-efnum. Fækkað hefur í hópi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi en samsetning hópsins hefur breyst. Færst hefur í aukana að hingað komi fólk sem þegar hefur sótt um eða fengið vernd í öðru Evrópuríki.
Styttri fréttir: Heilbrigðisráðherra hafnar því að hafa brotið lög með því að neita að gera rammasamning við taugalækni. Hún segist ekki vera að ýta undir tvöfalt heilbrigðiskerfi með ákvörðun sinni. Setja þarf siðareglur fyrir aðstoðamenn ráðherra, og skýrari reglur um hagsmunaskráningu ráðherra og æðstu embættismanna, samkvæmt tillögum starfshóps forsætisráðherra um eflingu á tausti í stjórnmálum. Þeir sem tala fyrir hönd hagsmunaaðila, þurfa að skrá sig sem slíka, verði tillögur hópsins að veruleika. Karlmaður sem ákærður er fyrir árás á konu í Vestmannaeyjum fyrir tveimur árum er ekki ákærður fyrir nauðgun, heldur sérlega hættulega líkamsárás samkvæmt upplýsingum frá Héraðsdómi Suðurlands. Sterkustu orkudrykkirnir hér á landi innhalda mun meira koffein nú - en fyrir áratug. Verkefnisstjóri næringar hjá embætti landlæknis segir að mikil neysla meðal ungmenna sé áhyggjuefni. Lengri umfjallanir: Traust á stjórnmálum og stjórnmálamönnum snarminnkaði eftir hrunið fyrir áratug. Stjórnvöld vilja bregðast við þessu og skipuðu í ársbyrjun starfshóp um eflingu trausts í stjórnmálum og stjórnsýslu. Í dag voru tillögurnar kynntar. Hópurinn, sem Jón Ólafsson heimspekiprófessor fer fyrir, telur að það hafi ekki verið hugað nægilega vel að stefnumótun í þessum efnum hérlendis, af því stafi þetta litla traust að hluta. Stjórnvöld séu ekki nægilega vel búin til að bregðast við gagnrýni, taka henni og læra. Stjórnvöld þurfi því að móta heildarstefnu um heilindi í stjórnmálum og stjórnsýslu og fylgja eftir með aðgerðaáætlun. Ragnhildur Thorlacius fjallaði um tillögur nefndarinnar og ræddi við Jón Ólafsson. Útgerðarfyrirtæki verja hundruðum milljóna, ef ekki milljörðum, í styrki til samfélagsmála á ári hverju. Erfitt er að segja til um nákvæmar upphæðir. Án framlaga fyrirtækjanna væri menningar- og íþróttalíf í sjávarþorpum líklega fátæklegra og heilbrigðisstofnanir verr tækjum búnar. Vopnfirðingar færu ekki frítt í ræktina og flugvöllurinn á Norðfirði væri kannski ekki með spánnýtt slitlag. Sums staðar gleðja styrkirnir, annars staðar veldur meintur skortur á þeim gremju. Arnhildur Hálfdánardóttir kannaði styrkveitingar nokkurra útgerðarfyrirtækja. Umsjónaðarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason.
Fréttir: Erlend kona lést í slysi í Þórsmörk í dag. Tvennt var í bíl og reyndi að þvera Steinsholtsá, þegar bílinn rak niður ána. Karlmaðurinn komst á þurrt en konan fannst meðvitundarlaus á grynningum. 55 slösuðust vegna falls á byggingarsvæðum í fyrra. Vinnueftirlitið telur að það sé vanmat, sennilega hafi fimmfalt fleiri slasast, en ekki hafi verið tilkynnt um slysin. Leiðtogi aðskilnaðarsinna í Austur-Úkraínu var myrtur í dag í sprengjutilræði á kaffihúsi í Donetsk. Þó svo að aukinn kaupmáttur skili sér í fleiri nýjum bílum og fleiri utanlandsferðum hefur byrði láglaunaðra hópa þyngst, segir sérfræðingur hjá Eflingu. Kaupmáttur launa hefur aukist um 25 prósent á síðustu fjórum árum. Tilgangslaust er að kvótasetja hlýra að mati formanns Félags smábátaeigenda á Norðurlandi. Heimilt verður að veiða 1000 tonn af hlýra á fiskveiðiárinu, nú þegar hlýri er kvótasettur í fyrsta sinn. Norðmenn ætla að byggja meira en hundrað þúsund fermetra af menningarhúsum í Ósló innan tveggja ára. Við fjöllum um málið síðar í Speglinum. Lengri umfjallanir: Í fyrra var tilkynnt um 251 fallslys til Vinnueftirlitsins, þau hafa ekki verið fleiri síðan árið 2008. Þau eru algengust í byggingariðnaði. Í sumar hefur Vinnueftirlitið ítrekað stöðvað vinnu á byggingarsvæðum vegna skorts á fallvörnum - starfsmenn þess segja líf starfsfólks hafa verið í húfi. En hvers vegna fjölgar þessum slysum? Guðmundur Kjerúlf, aðstoðardeildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu sat fyrir svörum hjá Arnhildi Hálfdánardóttur. Innflytjendur og aðlögun þeirra að þýsku þjóðfélagi er eitt helsta deilumálið í samfélaginu þar. Nokkrar nýútkomnar bækur fjalla um þetta eldfima málefni og hvað það segir um sjálfsmynd þýsku þjóðarinnar. Pálmi Jónasson fjallaði um málið. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius Tæknimaður var Ragnar Gunnarsson
Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun á heimili sínu í Hafnarfirði. Framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda á Íslandi segir skorta eftirlit með leigustarfsemi á Íslandi. Staða leigjenda sé mjög slæm. Ísland fellur um fjögur sæti milli ára í úttekt IMD viðskiptaháskólans á samkeppnishæfni ríkja. Það sem helst dregur Ísland niður er efnahagsleg frammistaða. Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun á heimili sínu í Hafnarfirði. Sveitarfélögin geta gert betur í að auðvelda kosningaþátttöku fatlaðra. Þetta segir Áki Friðriksson formaður Átaks, samtaka fólks með þroskahömlun. Fimm flokkar fengju mann kjörinn í Árborg í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag, samkvæmt skoðanakönnun Gallups. Gangi könnunin eftir nær framkvæmdastjóri sveitarfélagsins ekki kjöri. Ár er í dag liðið frá opnun verslunar Costco. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Þjóðskrá hefur fellt úr gildi skráningar 12 af þeim 18 sem fluttu lögheimi sitt í Árneshrepp. Að auki hefur einn tilkynnt að hann hafi skráð flutning fyrir mistök. Þjóðskrá hefur ekki lokið rannsókn á sex tilkynningum um lögheimilsflutninga í hreppinn. Í það minnsta tíu eru látin eftir skotárás í skóla í Santa Fe í Texas í Bandaríkjunum. Karlmaður var í dag dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot og brot gegn nálgunarbanni gagvart ungum dreng. Verjandi mannsins segir að dómnum verði áfrýjað. Ný þróunarmiðstöð heilsugæslu tekur til starfa á næstunni. Hún á að leiða faglega þróun allrar heilsugæslu í landinu. Í Speglinum var sagt ítarlega frá hinu konunglega brúðkaupi sem verður í Bretlandi á morgun. Ópólitískir bæjarstjórar á undanhaldi. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Evu Marin Hlynsdóttur stjórnmálafræðing. Arabaguðinn Mohamed Salah. Pálmi Jónasson segir frá Salah leikmanni Liverpool sem á miklu gengi að fagna um þessar mundir.
Reimar Pétursson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir það fátítt í nágrannalöndunum að ráðamenn fari ekki að tillögu hæfnisnefndar við skipan dómara. Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í morgun þegar fólksbíll og flutningabíll rákust saman. Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni segir að umferðarþungi sé kominn langt fram úr hófi. Í fyrra jókst umferð um tæp ellefu prósent frá árinu 2016. Heilbrigðisráðherra og umhverfisráðherra úr flokki Vinstri grænna vilja bregðast við svifryksmenguninni sem varð um áramótin. Dómsmálaráðherra úr Sjálfstæðisflokki segir að veðurskilyrði á nýársnótt hafi verið sérstök, horfa verði til þess. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Sigríði Á Andersen, Guðmund Inga Guðbrandsson og Svandísi Svavarsdóttur. Að minnsta kosti 10 flokkar stefna að því að bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í maí. Arnar Páll Hauksson. Manchester City stefnir á heimsyfirráð með olíupeningum úr einræðisríkinu Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Eigendurnir kaupa leikmenn og heilu fótboltafélögin um heim allan og breyta þeim í bláklædd City. Manchester City hefur ekki tapað leik í vetur, er langefst í deildinni og hefur sýnt fádæma yfirburði. Pálmi Jónasson. Spegillinn 3. Janúar 2018. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.