Podcasts about styrktara

  • 17PODCASTS
  • 70EPISODES
  • 1h 4mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • May 16, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about styrktara

Latest podcast episodes about styrktara

Skoðanabræður
#372 Að bjóða hinn vangann

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later May 16, 2025 62:04


Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, World Class, Silkisvefn, Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).Snorri mætir í Sigurðarstofu Sævars og við förum yfir málin: Endurkoma sannleikans og stóru Guðanna, að bjóða hinn vangann gegn matrix árásum, Halldór og Jónas, föðurlandsást og afstæðishyggja.Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Skoðanabræður
#371 Skoðanir Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later May 9, 2025 112:51


Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Hannes Hólmsteinn Gissurarson er kominn á eftirlaun. Það þýðir frjáls hugsun og frjáls tjáning. Ekki það að hann sé nýbyrjaður á slíku. Í gegnum árin hefur Hannes verið bæði utangarðsmaður í háskólanum og svo innanbúðarmaður hjá æðsta valdinu. Mikil sérstaða hér.Í þessum þætti segir Hannes okkur frá muninum á hægri og vinstri mönnum, hvers vegna hægri menn lesa ekki bækur, Jón Ásgeir vs. Davíð Oddsson, útlendingastefna Íslands og margt annað.

Skoðanabræður
#370 Skoðanir Núma Snæs Katrínarsonar

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later May 2, 2025 104:39


Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15 á takktakk.is)www.patreon.com/skodanabraedurNúmi Snær Katrínarson er maður sem getur frelsað á þér líkamann. Ég tala af reynslu - hann gerði það við mig, eða kenndi mér að gera það við sjálfan mig. Þetta er allt heildrænt segir Númi og ef maður ætlar að ná heilsu verður maður að líta í allar áttir og taka þetta allt saman. Sól, jarðtenging, næring, öndun, líkamsrækt. Það er farið yfir þetta allt saman í þessum hérna þætti. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Skoðanabræður
#369 Skoðanir Björns Jóns Bragasonar

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Apr 25, 2025 114:50


Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Björn Jón Bragason er menntaður sagfræðingur og lögfræðingur. Þessi þáttur er ferðalag frá Forn-Grikklandi til landnáms, kristnitöku og svo nútímans. Einnig ræðum við mikilvægi menntunar, aga, hugmyndir, lestur og jákvæða samkeppni. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Skoðanabræður
#368 Skoðanir Daníels Perez

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Apr 18, 2025 91:16


Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).Daníel Perez er menntaður maður, vitsmunalega og andlega. Hann hefur stundað innhverfa íhugun í 20 ár og stúderað þau fræði vel og vandlega.Í þessum þætti ræðum við um innhverfa íhugun, Maharishi Mahesh Yogi, indverska gúrúa, indverska stéttaskiptingu, uppljómun og önnur andans mál. Njótið vel kæra bræðralag.

Handkastið
Formaður HSÍ gerir upp stormasama viku og missir HSÍ stóran styrktaraðila í Rapyd?

Handkastið

Play Episode Listen Later Apr 13, 2025 66:29


Sérfræðingurinn og Klipparinn fengu nýkjörinn formann HSÍ, Jón Halldórsson til sín og fóru yfir viðburðarríku viku sem var hans fyrsta í embættinu. Eins var Jón spurður út í framtíðina og áherslur nýrrar stjórnar. Stelpurnar okkar tryggðu sér á enn eitt stórmótið en gætu hafa kostað HSÍ stóran styrktaraðila í kjölfarið. Í lokin var hitað upp fyrir úrslitakeppnina sem er í fullum gangi.

Skoðanabræður
#367 Snorri vs. kynjafræðingar landsins

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Apr 11, 2025 67:38


Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).www.patreon.com/skodanabraedurSnorri vs. kynjafræðingar landsins og fylgifiskar þeirra. Fjölmiðlafár síðustu viku rætt hér í þessum sérstaka þætti. Ekki reynt að skilgreina hugtakið woke. Allskonar annað líka: löngun í frægð og frama, aðstæður fólks og framtíðin.

Skoðanabræður
#366 Skoðanir Þorleifs Arnar Arnarssonar

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 128:47


Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur með kóðanum SB15).www.patreon.com/skodanabraedurÞorleifur Örn Arnarsson er fremsti leikhús-leikstjóri Íslands. Hann hefur sett upp stóru bókmenntaverkin, allt frá Hómer í Njálu í Shakespeare, í bestu leikhúsum Evrópu. Árið 2018 vann hann hæstu verðlaun sem leikhús-leikstjóri getur unnið í Þýskalandi. Hérna fer hann yfir sínar pælingar um heiminn: Kraftur listarinnar, tilgangur leikhússins, Þýskaland, bókmenntir, menntun, metnað, að enduruppgötva sig, kerfi heimsins og allskonar annað.

Skoðanabræður
#365 Bók mánaðarins: Caesar, Life of a Colossus

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 24:22


Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Það er engin önnur en ævisaga hershöfðingjans mikla Júlís Sesar sem að tekur á móti okkur í apríl. Góð leið til þess að koma sér inn í Rómaveldi og tjúna sig inn í hreinan og beinan sigurvegara. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Skoðanabræður
#364 Tíu leiðir djöfulsins

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Mar 28, 2025 79:03


Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class, Silkisvefn, Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt á takktakk.is)Gervigreindin var spurð: Ef þú værir djöfullinn hvernig myndirðu rústa samfélögum? Hún svaraði skýrt. 1) prómotera unnar matvörur 2) hvetja til kyrrsetu 3) spillt vísindi 4) gera fólkið að fíklum 5) skemma fjölskyldur og samfélög 6) veikja og rugla í karlmennsku og því sem er kvenlegt - leggið við hlustir!

Skoðanabræður
#363 Skoðanir Ella Egilssonar Fox

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Mar 21, 2025 115:42


Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, Worldclass, Stjörnugrís, Silkisvefn, Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt)www.patreon.com/skodanabraedurElli Egilsson Fox er myndlistarmaður búsettur í Las Vegas. Sannur king í húð og hár. Hér tölum við um aga, fegurð, að finna sína leið, menningu, Bandaríkin, að lifa í sínum sannleika og ýmislegt annað.

Skoðanabræður
Klassík: Skoðanir Bergs Ebba

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 127:18


Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, Silkisvefn, World Class, Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15)Klassískur þáttur með Bergi Ebba tekinn upp vorið 2021. Njótið vel kæra bræðralag.

Fotbolti.net
Tveggja Turna Tal - Hermann Hreiðarsson

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 3, 2025


Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildinum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn. Njótið vel!Styrktaraðilar þáttarinns eru: Visitor FerðaskrifstofaHafið FiskverslunBudweiser BudvarWorld ClassLengjan

Skoðanabræður
#358 Skoðanir Brynjars Karls

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Feb 21, 2025 173:04


www.patreon.com/skodanabraedur - prófaðu að koma í áskrift, ókeypis.Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn. Brynjar Karl er körfuboltaþjálfari og íslenskur stríðsmaður. Hérna segir hann frá sínu ferðalagi, slagsmálum við swampið, hugsjónum og tilgangi. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Fotbolti.net
Tveggja Turna Tal - Guðjón Pétur Lýðsson

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Feb 17, 2025


Guðjón Pétur Lýðsson er einhver mestu do-er sem fyrir finnst á Íslandi. Hann er með öll járn heimsins i eldinum ásamt því að reka fjölskyldu og spila fótbolta.Guðjón Pétur hefur spilað með mörgum félögum á Íslandi, sumum oftar en tvisvar og hann nennir engu kjaftæði.Við fórum yfir víðan völl. Hver kenndi honum að sparka í bolta, afhverju varð atvinnumennskan ekki lengri, þjálfaradraumar og margt margt fleira.Njótið Vel!Styrktaraðilar þáttarins eru vinir okkar frá :Visitor Ferðaskrifstofa: www.visitor.isHafið Fiskverslun: www.hafid.isLengjan: lengjan.isBudweiser BudvarWorld Class: Worldclass.is

Skoðanabræður
#357 Skoðanir Ásgeirs Kolbeinssonar (Fyrri hluti)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Feb 14, 2025 44:58


Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur (1klst og 40mín)Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn.Hinn eini sanni Ásgeir Kolbeins er genginn í bræðralagið. Mikill heiður. Hérna er kafað ofan í hans pælingar. Mikið talað um stjörnuspeki - enda er Ásgeir djúpur í henni þessa dagana. Njótið vel kæra bræðralag.Fyrirtækið hans Ásgeirs: wwww.orkugreining.is

Skoðanabræður
#355 Bók mánaðarins: Play It As It Lays - Joan Didion (Fyrri hluti)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Feb 1, 2025 20:01


Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís og Saltverk. Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Joan Didion skrifaði skýrt og fallega. Hún kjarnaði 60s í Kaliforníu og tjúnaði sig inn í hjarta Ameríku á sínum 70 ára rithöfundaferli. Hérna er farið yfir hennar vision, pælingar og áhrif. Hún byrjaði mikið af þessu sem við þekkjum vel í dag og hefur m.a inflúensað Lana Del Rey sérstaklega. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Skoðanabræður
#354 Skoðanir Magnús Jóhanns Ragnarssonar (Fyrri hluti)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Jan 31, 2025 30:00


Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís & Saltverk. Hlustaðu í fullri lengd (2klst) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Magnús Jóhann er tónlistarmaður sem hefur byggt upp sérstakt vörumerki úr sjálfum sér. Hann nördast í sinni eigin experimental instrumental tónlist á sama tíma og hann aðstoðar poppara landsins við smellagerð. Með því að blanda þessu saman hefur hann unnið sér inn frelsi til þess að skapa, sigra og vera hann sjálfur. Þessi þáttur fjallar um hans vision. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Teboðið
#271 - Gamlárs '24

Teboðið

Play Episode Listen Later Dec 31, 2024 69:40


Elsku bestu Teboðs besties

Teboðið
#270 - Aðfangadagur '24 ❄⛄

Teboðið

Play Episode Listen Later Dec 24, 2024 49:13


Gleðileg jól kæru Teboðs besties!

Heilsuvarpid
#97 Gynamedica Harpa Lind og Sonja - Breytingaskeiðið

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Jun 7, 2024 50:01


Harpa Lind og Sonja frá Gynamedica eru hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur breytingaskeiðinu. Gynamedica er lækninga og heilsumiðstöð fyrir konur sem fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Þar starfar teymi lækna, hjúkrunarfræðing sem bjóða stuðning, fræðslu, eftirfylgni á breytingaskeiði. Leggið vel við hlustir og dragið fram glósubækurnar. Styrktaraðilar @nowiceland @netto.is

leggi harpa styrktara
Draugar fortíðar
#182 Norður-Kórea 1. þáttur: Járnhæll Japans, Kóreustríðið og Kim Il Sung

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Mar 2, 2024 118:58


Styrktaraðilar á Patreon fá í hverjum mánuði að velja á milli þriggja málefna. Að þessu sinni var stuðst við lýðræðisvísitölu breska tímaritsins The Economist. Valið stóð á milli þriggja ríkja sem reglulega verma botnsætið á þeim lista, teljast ein þau ólýðræðislegustu í heimi. Það voru Túrkmenistan, Sýrland og Norður-Kórea. Síðastnefnda ríkið varð hlutskarpast. Við beinum því nú sjónum að einu lokaðasta og ólýðræðislegasta ríki veraldar. Efnið er yfirgripsmikið og ótrúlegt svo það var ákveðið að taka þetta í tveimur þáttum. Þessi þáttur tekur fyrir stofnun Alþýðulýðveldisins Norður-Kóreu, Kóreustríðið og stjórnartíð Kim Il Sung. Söfnun Solaris: solaris.help/palestina Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

Fjölskyldan ehf.
,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 29, 2023 37:29


Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum.Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá tilfinningagreind og hvernig skjárinn yfirtekur augu og athygli okkar allra fyrirstöðulaust. Einnig vekja þær máls á annars konar nálgun á tækni í skólum og hvernig er hægt að forðast boð og bönn.Hugvíkkandi samtal í takt við ört breytandi samtíma.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Svarthvíta regnbogafjölskyldan

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Oct 8, 2023 53:21


Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi.  Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fordóma vegna uppruna, fyrirmyndir og staðalmyndir, óþægilegar athugasemdir og hvað er hægt að gera til að láta ganga betur. Mágkonuspjallið er í anda fjölskyldunnar; beint frá hjartanu, með heiðarleika og hreinskiptni að vopni með hárnákvæmu dassi af húmor.Hvað er það sem við þráum öll sama hverjir foreldrar okkar eru, hverja við elskum eða hvernig við lifum lífinu? Mikilvægt samtal nú sem endranær.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jul 9, 2023 35:06


Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis.Hljóðumhverfi barna er þeim báðum hugleikið og þær ræða hvernig hljóðstyrkur dagsins fylgir heim að  leikskóla og skóla loknum. Einnig hvernig fjölskyldum er hætt við að minnka hávaða í fjölskyldurýmum með snjalltækjum og heyrnatólum. Hvaða áhrif getur sú lausn haft?Tungumálið og talmeinafræði eru einnig tekin fyrir í spjallinu og mikilvægi þess að móðurmál barna sé þeirra fyrsta mál. Það er í raun fátt sem er þeim stöllum óviðkomandi en þær ræða einnig heyrnaleysi, táknmál og sitthvað fleira.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Björkin fæðingarheimili

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 25, 2023 54:29


Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rut Guðmundsdóttir eru ljósmæður í Björkinni fæðingarheimili og viðmælendur Möggu Pálu og Móeyar Pálu að þessu sinni. Hrafnhildur og Arney Þórarinsdóttir stofnuðu Björkina árið 2017 en þær hafa sterka og skýra sýn á ferli fæðinga.Ayon Rúnar drengur Móeyar og Davids fæddist í Björkinni og þær ræða fæðinguna sem bar mjög fljótt að. Að sjálfsögðu færist talið fram og aftur í tíma og um víðan völl en rauði þráðurinn er auðvitað þetta stórkostlega ferli sem fæðingin er og jafnréttisvinkillinn er aldrei langt undan.Hin 10 ára Katla kynnir þáttinn og á dásamleg lokaorð að vanda; þetta verkefni er auðvitað stórt og mikið í hugum allra, hvað þá í augum barna!Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Í fréttum er það helst

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Jun 11, 2023 37:36


Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin með sína ört stækkandi fjölskyldu en verkefnið sem á hug þeirra allan um þessar mundir er tilvonandi húsbygging. Þær ræða kosti þess að fjölskyldurnar búi nálægt hver annarri og hvernig það styrkir uppeldið og fjölskylduböndin sem verða svo sterk. Það reynir þó að sjálfsögðu á samskiptin þegar margir koma að uppeldi ungra barna og þær opna það samtal fyrir hlustendum. Þær ræða auðvitað það sem er efst á baugi hjá öðrum í fjölskyldunni en verkefnin eru ólík sem þau fást við, sum gleðileg og önnur afskaplega krefjandi.Snillingurinn Katla sér auðvitað um kynningu og lokaorð en gleymir ekki að segja frá sínum helstu fréttum. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later May 28, 2023 38:12


Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fara ömmgurnar um víðan völl og ræða erfið málefni sem þarf að ræða. Þungunarrof er eitt af því sem þær kafa ofan í, aðstæður, viðmót, stuttlega rætt um söguna og hvaða merkingu það hefur haft fyrir konur. Einlægt og hjartnæmt spjall að vanda.Katla er nú orðin 10 ára og sér að sjálfsögðu um kynningu og lokaorð. Nú veltir hún fyrir sér systkinastjórnun!Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.comStyrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Á mannauðsmáli
41. Inga Þórisdóttir - Via Optima

Á mannauðsmáli

Play Episode Listen Later Apr 6, 2023 47:43


Í spjallið til mín að þessu sinni kom Inga Þórisdóttir sem starfar sem stjórnendaþjálfi hjá Via Optima. Hún segir okkur frá öllum þeim verkefnum sem hún sinnir í starfi sínu en áhuginn liggur aðallega í stjórnendaþjálfun, starfsmannasamtölum ásamt streitu, kulnun og öllu sem það tengist. Inga segir okkur einnig frá sinni einlægu upplifun af því að vera sagt upp störfum og hvernig maður þarf sjálfur að bera ábyrgð á sinni vegferð og skapa þannig tækifæri. Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, YAY, Moodup og 50skills.

risd optima styrktara
Draugar fortíðar
#138 Laxdæla saga

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Apr 5, 2023 136:46


Styrktaraðilar á Patreon fengu að velja um þrjár Íslendingasögur: Gunnlaugs saga Ormstungu hlaut aðeins 18% atkvæða. Gísla saga Súrssonar fékk 37%. Það var því ljóst að flest vildu heyra okkur taka fyrir Laxdæla sögu sem fékk 45%. Hún er ein af þessum stóru. Við höfum áður fjallað um Njáls sögu, Grettis sögu og Egils sögu. Því má segja að við séum nú búnir að fullkomna þessa yfirferð. Laxdæla er alveg einstök hvað þessar miðaldabókmenntir varðar. Hún er lang dramatískasta sagan og hefur oft vakið athygli fyrir sterka og fyrirferðarmikla kvenkaraktera. Sumir telja að hún hljóti að hafa verið skrifuð af konu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

Á mannauðsmáli
40. Guðfinna Ingjaldsdóttir - Reykjavíkurborg

Á mannauðsmáli

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 71:36


Í þessum þætti spjöllum við Guðfinna saman en hún starfar sem mannauðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs hjá Reykjavíkurborg. Ótrúlegt en satt þá ræddum við eiginlega bara um vinnustaðamenningu og endurgjöf. Ekki að það sé eitthvað óáhugavert heldur náðum við svo góðri dýpt í þessari umræðu. Guðfinna talar svo sannarlega frá hjartanu og leyfir okkur að heyra hvernig hennar reynsla hefur nýst hjá Reykjavíkurborg við að byggja upp nýtt svið. Styrktaraðilar þáttarins er Akademias, Moodup, YAY og 50skills.

Heilsumál
Er leikur og gleði mikilvæg fyrir heilsuna? - Hrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfi

Heilsumál

Play Episode Listen Later Feb 20, 2023 50:53


Hrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfi á Reykjalundi er gestur okkar í þessum þætti. Í þættinum bendir Hrefna á mikilvægi þess að hafa gaman og að leika sér, rannsóknir sýna fram á það vísindalega að það hafi góð áhrif á líðan og heilsu. Hrefna bendir einnig á að of lítill tími aflögu geti haft slæm áhrif á lífsgæði okkar en vegna þess að það er mikilvægt fyrir okkur að hafa eitthvað fyrir stafni þá geti það haft jafn slæm áhrif að hafa of mikinn tíma - sérstaklega þegar okkur skortir tilgang. Að hafa tilgang, leika sér og hafa gaman er meginefni þáttarins.Styrktaraðili þáttarins er RB rúm, rbrum.is

Heilsumál
Innsæið og kraftur náttúrunnar - Heiðrún María

Heilsumál

Play Episode Listen Later Feb 13, 2023 67:24


Heiðrún María er gestur okkar í dag. Í þættinum ræða þau Bent og Heiðrún María m.a. töfra þess að njóta náttúrunnar, vatnsins, kuldans og ná stjórn á eigin hugsunum og líkama. Einnig ræða þau seiglu, viðbrögð okkar, taugakerfið og margt annað spennandi og skemmtilegt.Styrktaraðili er RB rúm, rbrum.is

rb inns bent hei einnig kraftur styrktara
Heilsumál
Leitin að innsæinu - Einar Valur Scehving

Heilsumál

Play Episode Listen Later Feb 9, 2023 33:27


Einar Valur Sceving tónlistarmaður er gestur okkar að þessu sinni. Bent Marinósson og Einar eiga hér stutt spjall milli kennslustunda hjá Einari og ræða þar m.a. upprunann, stiklað á stóru um tónlistarferilinn og ræða mikilvægi betra lífs - án áfengis, að hlusta meira á innsæið og trúa því og treysta.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is

Heilsumál
Einelti - frá sjónarhorni gerenda og þolanda - Arnór Bjarki Blomsterberg

Heilsumál

Play Episode Listen Later Feb 2, 2023 83:55


Í þessum þætti ræða Arnór Bjarki Blomsterberg, Nói, og Bent um reynslu sína af einelti. Annarsvegar segir Nói frá sinni hlið af einelti sem gerandi, þroskaferli, iðrun og leiðina að fyrirgefningu. Hinsvegar segir Bent frá sinni hlið af einelti sem þolandi og upplifun barns í slíkum aðstæðum. Og saman skiptast þeir á skoðunum og ræða þessi mál vítt og breitt.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is

Heilsumál
Taugakerfið þitt er ekki í Gettu betur!

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jan 30, 2023 17:03


Taugakerfið er magnað fyrirbæri og mætti almenn þekking á því sannarlega meiri því með því að skilja hvað taugakerfið er að segja okkur getur okkur liðið betur og fundið leiðir til betri heilsu, andlegrar og líkamlegrar. Í dag ætlum við að skoða taugakerfið og þá tvo meginhluta þess, sympatíska taugakerfið og parasympatíska taugakerfið og hvernig þau vinna saman. Við förum m.a. hvernig sympatíska taugakerfið og "flótta- og árásarviðbragð" (oft þekkt sem "fight og flight" viðbragð) virka saman og hvað við getum mögulega gert til að hafa smá áhrif á viðbrögð okkar gegn streitu og álagi.Styrktaraðili þáttarins er RB rúm, rbrum.is

rb ekki styrktara
Heilsumál
Hvað er brjósklos ? - Hrefna Sylvía kírópraktor

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023 21:01


Gestur okkar að þessu sinni er Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir kírópraktor. Hrefna Sylvía sérhæfir sig í ákveðinni tækni innan kírópraktík sem nefnis Cox tækni, en það er mýkri meðferð og er ólík þeim hnykkingum sem fólk kannast mögulega við.Í þessum þætti ræða Hrefna Sylvía og Bent um Brjósklos, hvað er brjósklos og hvað er hægt að gera við því ? Styrktaraðilli þáttarins er RB Rúm - rbrum.is

Heilsumál
Pomodoro tímaskipulagning

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jan 16, 2023 20:57


Í þessum þætti fjallar Bent Marinósson um Pomodoro tímaskipulagningatæknina. Pomodoro dregur nafn sitt af timer í formi tómats sem höfundur kerfisins, Francesco Cirillo, notaði til að hjálpa sér í námi. Hann sat við lærdóm í 25 mínútna lotum og notaði þennan timer til að fylgjast með því og tók svo tímasettar pásur inn á milli.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is

Heilsumál
Bráðamóttakan - „Nú gefst ég upp“ - Eggert Eyjólfsson bráðalæknir

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jan 12, 2023 74:17


Eggert Eyjólfsson bráðalæknir er gestur okkar að þessu sinni. Eggert sagði upp á bráðamóttöku Landspítalans í haust og lauk sinni síðustu vakt fyrir áramót. Hann hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið þar sem hann hefur lýst óboðlegum starfsaðstæðum og stjórnvöld skeyta engu um margítrekaðar beiðnir um auknar fjárveitingar. Hann telur öryggi sjúklinga og heilsu starfsfólks ógnað.Eiginkona Eggerts er hjúkrunarfræðingur og starfaði einnig á bráðamóttökunni. Hún sagði upp störfum síðastliðið vor, af sömu ástæðum og Eggert.Í þessum þætti setjast þeir Eggert og Bent niður og ræða störf bráðalæknis, hjúkrunarfræðinga, bráðamóttökuna og í raun heilbrigðiskerfið í víðu samhengi og hvað mætti betur fara.Styrktaraðilli þáttarins er RB Rúm, rbrum.is

Heilsumál
Einkaþjálfari - geturu skutlað á mig æfingaprógrammi ?

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jan 9, 2023 20:51


Nú í upphafi árs er fólk að hrúgast inn á líkamsræktarstöðvar landsins og oft veit fólk ekki hvar það á að byrja, hvernig tækin virka, hvaða lóð á að nota og þá hvernig. Sumir fara þá leið að herma eftir öðrum og það getur bókstaflega verið slæmt. Það er að mörgu að hyggja við uppbyggingu æfingaáætlana og mikilvægt að taka þau atriði með í dæmið.Ég vil mæla sterklega gegn því að nota æfingaprógram sem hefur verið útbúið fyrir annan. Það eru atriði eins og meðslasaga, stoðkerfisvandamál ofl. sem skipta hér miklu máli við gerð æfingaáætlana. Það er því gott að leita til fagfólks til að hjálpa sér að komast af stað. En í þessum þætti förum við yfir nokkur mikilvæg atriði sem ber að hafa í huga verið gerð æfingaáætlana.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm - rbrum.is

rb sumir styrktara
Heilsumál
Héðinn Unnsteinsson - Geðheilbrigðismál, betri líðan ofl.

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jan 5, 2023 76:33


Héðinn Unnsteinsson hlaut nýverið Fálkaorðuna fyrir störf í þágu geðheilbrigðismála. Héðinn er stefnumótunarsérfræðingur og rithöfundur; fyrir störf í þágu geðheilbrigðismála. Við Héðinn förum hér um víðan völl, vonandi hefur þú gagn og gaman af.Styrktaraðili þáttarins er RB rúm, rbrum.is

Heilsuvarpid
#69 Sara Sigmunds Crossfit drottning

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Jan 2, 2023 68:23


Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Crossfit drottning, sálfræðinemi, verðandi einkaflugmaður. Sara er hlý, kærleiksrík, fyndin og einlæg. Hún opnar sig um hvernig hún komst andlega í gegnum meiðslin á hnénu, hversu mikilvægt er að hrósa, og hvernig eitt hrós var þúfan sem velti þungu hlassi á hennar Crossfit ferli. Ótrúlega skemmtilegt viðtal við stórkostlega konu. Styrktaraðilar Heilsuvarpsins Nettó @netto.is Now á Íslandi @nowiceland

Þreyttar mömmur
52. Sigga Dögg kynlífsfræðingur

Þreyttar mömmur

Play Episode Listen Later Sep 21, 2022 86:44


Frábært spjall við hina einu sönnu Siggu Dögg. Hún býður hlustendum upp á afslátt af námskeiðum og bók (sjá ÞM insta). Styrktaraðilar þáttarins eru @losti.is og @subwayiceland

kynl sigga d styrktara
Heilsuvarpid
Ragga Nagli - Heilsuhegðun í sumarfríi

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Aug 9, 2022 34:19


Í þessu sólókasti tala ég um að vera kortér í kulnun, nauðsyn þess að taka frí og hvernig við viðhöldum heilsuhegðun í sumarfríinu. Heilsuvarpið fór í smá marineringu í nokkra mánuði en snýr nú aftur í vetur með hvetjandi og fræðandi þætti. Styrktaraðilar Heilsuvarpsins @netto.is @nowiceland

ragga styrktara
Þreyttar mömmur
46. Gömlu konurnar mættar í settið

Þreyttar mömmur

Play Episode Listen Later Apr 25, 2022 58:39


Sumar eru tilbúnar að verða gamlar, en aðrar eru forever young. Giskið hvor er hvað, eða hlutsið. Styrktaraðili þáttarins er @subwayiceland

sumar setti styrktara
Þreyttar mömmur
44. Gestur: Pálína Páls / ristilskolun

Þreyttar mömmur

Play Episode Listen Later Mar 20, 2022 98:54


Gjörsamlega geggjað spjall um ristilskolun og fleira. Styrktaraðilar þáttarins eru @milly.is_ & @subwayiceland

gj gestur styrktara
Þreyttar mömmur
43. Okkar reynsla af pararáðgjöf

Þreyttar mömmur

Play Episode Listen Later Mar 9, 2022 51:40


Við erum báðar sammála um að pararáðgjöf sé nauðsynleg fyrir öll pör og elskum að tala um þetta málefni! Styrktaraðilar þáttarins eru @milly.is_ & @subwayiceland

parar okkar styrktara
Þreyttar mömmur
42. WE ARE BACK

Þreyttar mömmur

Play Episode Listen Later Feb 27, 2022 46:42


Loksins mættar aftur eftir covid ves! Mjög spenntar að komast aftur í gírinn. Man flu, er það annars eitthvað? Styrktaraðili þáttarins er www.milly.is

man mj loksins styrktara
Þreyttar mömmur
40. Q&A og alls konar babbl

Þreyttar mömmur

Play Episode Listen Later Jan 18, 2022 36:34


Tinna er Nilla neikvæða og Lára beilaði á átakinu eftir dag eitt. Annars fínt Q&A og það kemur gestur í næsta þætti! :) Styrktaraðili þáttarins er Milly - www.milly.is

Heilsumál
Kírópraktík og heilsa hryggjarins - Hrefna Sylvía kírópraktor

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jan 15, 2022 28:31


Gestur okkar að þessu sinni er Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir kírópraktor. Hrefna Sylvía sérhæfir sig í ákveðinni tækni innan kírópraktík sem nefnis Cox tækni, en það er mýkri meðferð og er ólík þeim hnykkingum sem fólk kannast mögulega við.Í spjalli okkar tölum við um ýmislegt sem ber að huga að varðandi stoðkerfið og heilsu almennt, til dæmis mikilvægi þess að standa upp reglulega og hreyfa sig. Eins og Hrefna segir í spjalli okkar þá er 3x meira álag á mjóbakið þegar við sitjum en þegar við stöndum.Við tölum einnig um mikilvægi hreyfingar og þess að gera æfingar rétt. Við æfingar er mikilvægt að beita líkamanum rétt til að skapist æskilegt álag á líkamann og þannig fáum við mest út úr æfingunni og með því drögum við einnig úr líkum á meiðslum og öðrum kvillum. Við tölum einmitt um speglana í líkamsræktarsalnum, sumir halda að þetta sé bara til að skoða byssurnar eða annað, en aðaltilgangur með þeim er að við sjáum hvernig líkamsbeitingin okkar er og gerum æfingar réttar en ella.Styrktaraðilli þáttarins er RB Rúm - rbrum.is

cox gestur sylv heilsa hrefna sigurgeirsd styrktara
Heilsumál
Skólinn - með einlægni að vopni - Heimir Eyvindarson

Heilsumál

Play Episode Listen Later Nov 1, 2021 75:41


Viðmælandi þáttarins er Heimir Eyvindarson deildarstjóri og dönskukennari í grunnskólanum í Hveragerði. Heimir hefur komið víða við, að auki við kennaramenntunina er hann einnig garðyrkjufræðingur og tónlistarmaður, hann hefur gert garðinn frægann með hljómsveitinni Á móti sól og verið aðal lagasmiður þeirra hljómsveitar. Í þættinum lýsir Heimir m.a. upplifun sinni á breytingum á skólastarfi grunnskólans sem hann nam við sem barn og starfar nú hjá sem deildarstjóri unglingasviðs og dönskukennari. Einnig ræðum við virka hlustun, jákvætt hugarfar ofl. sem okkur datt í hug.Styrktaraðili þáttarins er gitarskolinn.is.

Háski
McDonalds Massacre

Háski

Play Episode Listen Later Oct 31, 2021 49:36


Háski Halloween special! Þann 18. Júlí árið 1984 gekk James Huberty inn á McDonalds í San Ysidro þungvopnaður og hóf að skjóta fólk. ATH Þátturinn er ekki fyrir viðkvæma.  Styrktaraðilar : Coca-Cola á Íslandi, Preppup & Blush.is

Bachelor Podcastið Piparinn
Hvernig í fjandanum komst Ivan inn í símann? (ep. 10) ft. Ingileif og María

Bachelor Podcastið Piparinn

Play Episode Listen Later Sep 29, 2021 86:03


Svo margar spurningar! Erum við að taka þessum þætti allt of alvarlega? mátti Ivan brjóta reglurnar??Gestir þáttarins: Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir.Styrktaraðilar þáttarins eru Salt express og Nine Kids.

Bachelor Podcastið Piparinn
Hvers vegna eru allir brjál við Chris en ekki Brendan? (ep. 7) ft. Ína María

Bachelor Podcastið Piparinn

Play Episode Listen Later Sep 9, 2021 74:37


Fullt af deitum í þessum þætti - en líka full mikið af útreiknuðum skítapokum sem koma á ströndina með plan. Það er ekki nett move.Gestur þáttarins er Ína María Norðfjörð.Styrktaraðilar þáttarins eru Nine Kids og Salt Express.

Bachelor Podcastið Piparinn
Af hverju ertu þarna, á föstu? (ep. 6) ft. Ína María

Bachelor Podcastið Piparinn

Play Episode Listen Later Sep 9, 2021 47:12


Við erum öll að spyrja okkur að því sama! Hversvegna eruði þarna? Hvers vegna eruð þið svona andstyggileg við Natöshu og HVERS VEGNA SKAMMIST ÞIÐ YKKAR EKKI?! Gestur þáttarins er Ína María NorðfjörðStyrktaraðilar Piparsins eru Nine kids og Salt Express

Hvað er málið?
Morð fyrir mömmubloggið? Lacey Spears. FYRRI HLUTI

Hvað er málið?

Play Episode Listen Later Sep 8, 2021 51:13


Lacey Elisabeth Spears afplánar nú dóm eftir að hafa verið sakfelld árið 2015 fyrir að eitra fyrir syni sínum í þau 5 ár sem hann lifði.  Hræðilegt mál í alla staði en Garnett litli má ekki gleymast.  Lacey neitar enn sök   Instagram: Hvad er malid  Styrktaraðili: Hansoggreta.is

Bachelor Podcastið Piparinn
Mun Kendall rústa Joe & Serenu? (vika 3 pt. 2) ft. Eva Ruza

Bachelor Podcastið Piparinn

Play Episode Listen Later Sep 3, 2021 46:51


Svaka cliffhanger í þessum þætti! "Hey butthead" og svo ekkert meir?!Annars bara meiri nekt og sexpositivity og við ELSKUM ÞAÐ.Smá dýfa inn í persónulega paradís Evu Ruzu og Sigga og almenn munnræpa.Styrktaraðilar Piparsins eru:Salt Express - hollir og næringarríkir réttir fyrir fólk á ferðinni.Nine Kids - barnavöruverslun með gríðarlegt úrval af öllu fyrir barnið.

Bachelor Podcastið Piparinn
Bíddu þekkjast þau ekki öll? (BIP ep. 2) ft. Camilla Rut

Bachelor Podcastið Piparinn

Play Episode Listen Later Aug 27, 2021 69:34


LOKSINS hæ!!!Yndislegt að vera komin aftur í podcastbrasið og ekki slæmt að hefja nýja seríu með Queen Camillu Rut!Styrktaraðilar Piparsins eru:Salt Express - hollir og næringarríkir réttir fyrir fólk á ferðinni.Nine Kids - barnavöruverslun með gríðarlegt úrval af öllu fyrir barnið.

ekki loksins styrktara
Handboltinn okkar
8 liða úrvalsdeild - Fyrirkomulag U liða og 2.fl. og 3.fl. - Nýr styrktaraðili kynntur til leiks

Handboltinn okkar

Play Episode Listen Later Aug 22, 2021 49:08


Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út nýjan þátt í dag en umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur, Arnar og Kristinn. Umræðuefni þáttarins var meðal annars 8 liða úrvalsdeild en þeir félagar eru á sama máli að að yrði handboltanum til tekna að breyta deildarfyrirkomu laginu í karlaboltanum. Þá vilja þeir sjá umræðu um hvort eigi að setja á fót aftur 2.fl og breyta fyrirkomulaginu í 3.fl. í leiðinni og leggja niður U liðin. Þá ræddu þeir líka um æfingarmótin en þeir komu þar með athyglsverða tillögu um breytingar á þeim í líkingu við það sem er gert í Færeyjum og að sama skapi myndu þeir vilja sá deildarbikarinn aftur á dagskrá á milli jóla og nýárs. Einnig var kynntur til leiks nýr styrktaraðili þáttarins en það er drykkurinn Klaki sem og þegar nær líður tímabili munu þeir félagar tilkynna í hverju þetta samstarf þeirra með Kaka felst.

Heilsumál
Hvað eru jurtalyf ? - Dr. Sandra Mjöll

Heilsumál

Play Episode Listen Later Jun 24, 2021 26:31


Viðmælandi þáttarins er Sandra Mjöll Jónsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Florealis sem er lyfjafyrirtæki með jurtalyf. Sandra er með doktorsgráðu í líf- og læknavísindum og umræðuefni þáttarins eru jurtalyf, við spyrjum m.a. hvað eru jurtalyf? Og hvernig rötum við um þennan lyfjafrumskóg sem er á markaðnum, þ.e.a.s. jurtalyf, náttúrulyf og fæðubótaefni.Styrktaraðili þáttarins er gitarskolinn.is.

styrktara
Heilsumál
Matjurtaræktun - Jón Þórir Guðmundsson

Heilsumál

Play Episode Listen Later May 20, 2021 58:07


Viðmælandi þáttarins er Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur, hann býr yfir mikill reynslu af ræktun matjurta og er einnig einn helsti sérfræðingur landsins um eplatré sem hann hefur ræktað með mjög góðu árangri. Í þættinum tölum við um matjurtir svo sem kál og grænmeti, gulrætur og lauka. Við ræðum einnig Jarðvegskröfur, áburðargjöf, meindýr í ræktun og ræktun ávaxtatrjáa og garðyrkju almennt.Styrktaraðili þáttarins er Blómaval. Blómaval er stórmarkaður með allt fyrir blóma- og garðáhugafólk. Hjá Blómaval eiga áhugamenn um ræktun að fá allt sem hugurinn girnist, svo sem garðaáhöld, verkfæri, fræ, lauka og plöntur. Hjá Blómaval starfa garðyrkjufræðingar sem veita faglega þjónustu og hægt að leita til þeirra með ráð. Við þökkum Blómaval fyrir stuðninginn.blomaval.is

gu jar jo n styrktara
Háski
Á toppi veraldar - mun mannslíkaminn þola álagið?

Háski

Play Episode Listen Later Mar 5, 2021 45:22


Í þætti dagsins ætlum við að heyra um fyrstu 3 leiðangra sem farnir voru á Everest á árunum 1921-1924.   Styrktaraðilar þáttanna eru Blush.is & Preppup  

Háski
The Busby Babes

Háski

Play Episode Listen Later Feb 11, 2021 55:57


The Busby Babes eins og þeir voru kallaðir voru dýrkaðir og dáðir af aðdáendum Manchester United. Þann 6. Febrúar árið 1958 var liðið á leið frá Júgóslavíu eftir leik við Red Star Belgrade. Millilenda þurfti í Munich til að fylla á eldsneyti en stoppið átti að vera eins stutt og mögulegt var.  Liðið átti framtíðina fyrir sér í boltanum en því miður höfðu örlögin önnur plön fyrir Busby Babes.   Styrktaraðilar eru Blush.is og Preppup

The HI beauty Podcast
The HI Beauty Podcast Fegrunartannlækningar Með Írisi Þórsdóttur

The HI beauty Podcast

Play Episode Listen Later Jan 11, 2021 75:14


Í þættinum tölum við um tennur. Íris Þórsdóttir tannlæknir kom í heimsókn og fræddi okkur um fegurðartannlækningar og almenna tannheilsu. Styrktaraðilar þáttarins eru: Face Halo Urban Decay RapidGlam

Hrollur's podcast
Phantom Killer - The Moonlight murders

Hrollur's podcast

Play Episode Listen Later Dec 22, 2020 40:51


Árið 1946 var íbúum Texarkana ansi erfitt því morðingi gekk laus.  Fólk tók á það ráð að negla fyrir glugga og ungmenni fengu ekki að vera á ferðinni seint á kvöldin. Um tíma var útgöngubann í bænum vegna morðingjans.    Styrktaraðili þáttarins er verslunin Hans og Gréta  www.hansoggreta.is

Háski
Endurance leiðangurinn : Háski á Suðurskautinu

Háski

Play Episode Listen Later Nov 19, 2020 41:41


Í þætti dagsins heyrum við um leiðangur Sir Ernest Shackleton á Suðurskautið. Skipið The Endurance og áhafnarmeðlimir þess þurfa að berjast við að halda lífi í aðstæðum sem fáir aðrir hafa eða munu upplifa.  Styrktaraðilar þáttanna eru : Blush.is & PreppUp   Instagram :haskipodcast

Háski
Columbine skotárásin

Háski

Play Episode Listen Later Nov 5, 2020 76:23


Þann 20. Apríl 1999 gengu Eric Harris og Dylan Klebold inn í Columbine skólann með töskur fullar sprengiefnum og byssum. Planið var að drepa samnemendur sína og valda sem mestum skaða.  Hvað gerðist inn í skólanum? Hverjir eru Eric Harris og Dylan Klebold? Hvernig var lífið eftir skotárásina? Hvernig var að vera Columbine fórnarlamb?  Í þætti dagsins förum við yfir þetta og meira til.  Endilega subscrib-ea og rate-a þáttinn og fylgja haskipodcast á Instagram og vera með í Háski Podcast grúbbunni.  Styrktaraðilar þáttarins eru Blush.is, Preppup & IceHerbs.   

The HI beauty Podcast
The HI Beauty Podcast Uppáhalds Förðunarvörur

The HI beauty Podcast

Play Episode Listen Later Oct 23, 2020 88:50


Í sjötta þætti fórum við yfir okkar uppáhalds förðunarvörur og röðina sem við notum þær í. Beauty News eru að sjálfsögðu á sínum stað ásamt skvísu vikunnar. Styrktaraðilar þáttarins: Urban Decay Face Halo

The HI beauty Podcast
The HI Beauty Podcast Frægt Fólk Sem Á Snyrtivörumerki

The HI beauty Podcast

Play Episode Listen Later Oct 16, 2020 81:41


Í þættinum ræðum við um stjörnur sem hafa átt snyrtivörumerki. Það kom margt spennandi í ljós en fastir liðir eru að sjálfsögðu á sínum stað. Styrktaraðilar þáttarins: Valentino Face Halo

Morgunútvarpið
Kári Gunnars, styrktaraðilar, Airwaves, brottvísun og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 6, 2019 130:00


Kári Gunnarsson er hársbreidd frá því að ná takmarki sínu sem er að komast á Ólympíuleika. Hann stendur nú að hópfjármögnun og safnar tveimur milljónum króna til að ná takmarkinu. Hann er 136. sæti á heimslistanum í badminton og þarf að komast ofar fyrir 1. maí. Kári hefur alla tíð búið í Danmörku og var í danska unglingalandsliðinu en ákvað að söðla um og keppa fyrir Íslands hönd. Kári var á línunni. Sólveig Bergsdóttir. landsliðskona í fimleikum, segir að eftir að svokallaðir áhrifavaldar urðu áberandi í samfélaginu og ekki síst á samfélagsmiðlum, sé erfiðara og jafnvel ómögulegt, fyrir afreksíþróttafólk að fá styrki frá fyrirtækjum. Áhrifavaldar þurrki í raun upp markaðinn á meðan keppnisfólk sem borgi jafnvel sjálft nokkur hundruð þúsund í keppnisferðum eigi fyfir vikið minni séns. Sólveig ræddi þetta við okkur. Iceland Airwaves tónlistarhátíðin hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á hátíðinni og margir spenntir að sjá hvernig mun til takast í ár. Airwaves stemmingin er þegar byrjuð að myndast og utan dagskráin, eða off venue, byrjuð, en hátíðardagskráin hefst í dag. Ísleifur Þórhallsson stýrir hátíðinni og hann kíkti til okkar í einn snöggan morgunkaffibolla áður en hann rauk út í daginn og Airwaves gleðina. Óhætt að segja að ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa albanskri konu úr landi, sem komin er rúmar 35 vikur á leið, hafi vakið upp hörð viðbrögð. Alþingismennirnir Brynjar Níelsson og Jón Steindór Valdimarsson komu til okkar og ræddu þetta en Jón Steindór hefur gagnrýnt brottvísunina harðlega og segir að ríkisstjórnarflokkarnir og ráðherra dómsmála, beri ábyrgð á henni. Við þekkjum bíómyndir eins og Robocop og Terminator þar sem vélar og menn renna saman í eitt. En gæti eitthvað slíkt gerst í raunheimum? Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið Össur greindi í gær frá nýju samvinnuverkefni við alþjóðlega rannsóknarstofnun um að þróa áfram svokallaðan IMES-nema sem gerir fólki kleift að stýra gervilimum með hugarafli. Hildur Einarsdóttir verkfræðingur og yfirmaður vöruþróunar hjá Össuri kom til okkar og sagði okkur frá þessu spennandi verkefni. Tónlist: Jóna Alla Axelsdóttir - Svo birti aftur til. Dikta - Breaking the waves. Góss - Eitt lag enn. Vök - In the dark. Auður - Enginn eins og þú. Emilíana Torrini - Tookah. Bill Withers - Lean on me. James Taylor - How sweet it is (To be loved you). Ásgeir - Bernskan. Michael Kiwanuka - One more night.