Podcasts about brynhildur gu

  • 14PODCASTS
  • 45EPISODES
  • 1h 25mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Apr 28, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about brynhildur gu

Latest podcast episodes about brynhildur gu

Bylgjan
Bítið - mánudagur 28. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 28, 2025 102:34

Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari   Gísli Ragnar Guðmundsson, sérfræðingur í gervigreind hjá KPMG, ræddi við okkur um CoPilot frá Microsoft. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, ræddi við okkur um hættulega einstaklinga sem fá að ganga lausir.   Gísli Tryggvason, lögmaður ræddi við okkur vítt og breitt um erfðarétt. Daniel Willemoes Olsen ræddi við okkur um sína vegferð en hann léttist um 108 kíló á fjórum árum.   Brynhildur Guðjónsdóttir, fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, ræddi við okkur um lyklaskipti og söngleikinn Moulin Rouge.   Kvennakórinn Katla kom í heimsókn og tók lagið.

Mannlegi þátturinn
Leikárið í Borgarleikhúsinu, vinkill og Sunneva lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 9, 2024 51:33

Við héldum áfram yfirferð okkar um hvað verður á fjölunum í leik- og sviðslistahúsum landsins. Í dag var komið að Borgarleikhúsinu og til okkar kom Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri. Hún sagði okkur allt um það sem þar mun fara fram þennan leikveturinn. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði vinkillinn um gildi þess að hugsa frekar fallega en ekki til samferðafólksins og hvernig það getur mögulega haft áhrif til hins betra á samskipti manna í millum, jafnvel heilu samfélögin. Þá var fjallað um áhrif kurteisi í samskiptum og gildi þess að segja það sem maður meinar og að meina það sem maður segir. Svo var í lokin lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Sunneva Thomsen, en hún starfar við kvikmyndagerð auk þess að vera í listnámi. Hún ætlar að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sunneva talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Dune e. Frank Herbert In the Dream House e. Carmen Maria Machado Boulder e. Eva Baltasar Ein til frásagnar e. Immaculee Ilibagiza Jane Eyre e. Charlotte Bronte Tónlist í þættinum: Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Óskaland / Moses Hightower (Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson og magnús Tryggvason Eliassen) Vængir / Hörður Torfason (Hörður Torfason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Segðu mér
Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jun 24, 2024 40:00

borgarleikh brynhildur gu
Mannlegi þátturinn
Borgarleikhúsið og Hafsteinn Pálsson í Miðkoti

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2023

Við héldum áfram yfirferð okkar um leikhúsin og leikveturinn framundan. Í dag kom til okkar Brynhildur Guðjónsdóttir og hún sagði okkur frá því hvað er á döfinni í vetur í Borgarleikhúsinu. Hafsteinn Pálsson í Miðkoti á Dalvík er einn öflugasti safnari íslenskrar tónlistar á landinu. Hann hefur ekki tölu á þeim plötum,geisladiskum og kasettum sem hann hefur safnað í gegnum tíðina en það eru flestar hirslur á heimilinu fullar af þessum dýrgripum. Heilt herbergi í húsinu hans er til dæmis alveg smekkfullt, allar hillur og skúffur og sér vart í veggina. Guðrún Gunnars fór og heimsótti Hafstein í Miðkot, fyrr í sumar. Tónlist í þætti dagsins: Kósíkvöld í kvöld / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Love for Sale / Ella Fitzgerald (Cole Porter) Sail on / Regína Ósk (Jóhann Helgason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Borgarleikhúsið og Hafsteinn Pálsson í Miðkoti

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2023 50:00

Við héldum áfram yfirferð okkar um leikhúsin og leikveturinn framundan. Í dag kom til okkar Brynhildur Guðjónsdóttir og hún sagði okkur frá því hvað er á döfinni í vetur í Borgarleikhúsinu. Hafsteinn Pálsson í Miðkoti á Dalvík er einn öflugasti safnari íslenskrar tónlistar á landinu. Hann hefur ekki tölu á þeim plötum,geisladiskum og kasettum sem hann hefur safnað í gegnum tíðina en það eru flestar hirslur á heimilinu fullar af þessum dýrgripum. Heilt herbergi í húsinu hans er til dæmis alveg smekkfullt, allar hillur og skúffur og sér vart í veggina. Guðrún Gunnars fór og heimsótti Hafstein í Miðkot, fyrr í sumar. Tónlist í þætti dagsins: Kósíkvöld í kvöld / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Love for Sale / Ella Fitzgerald (Cole Porter) Sail on / Regína Ósk (Jóhann Helgason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Arnar Jónsson föstudagsgestur og þorramatarspjall með Jóa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2023 55:07

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var einn af stórleikurum þjóðarinnar, Arnar Jónsson, en hann á einmitt áttræðisafmæli á morgun, laugardaginn 21.janúar. Hann hefur leikið vel á annað hundrað hlutverk í leikhúsum landsins, mörg af þekktustu burðarhlutverkum leikbókmenntanna. Arnar hefur auðvitað líka leikið í fjölda kvikmynda og í miklu magni sjónvarpsefnis og hefur tekið þátt í miklu grasrótarstarfi í leikhúsinu, með leikhópnum Grímu, Alþýðuleikhúsinu o.fl. meðfram því að leika í stofnanaleikhúsunum. Arnar leikur De Sade markgreifa í leikritinu Marat/Sade sem verður frumsýnt í kvöld í Borgarleikhúsinu. Það var því um nóg að ræða við Arnar í þættinum í dag, en við forvitnuðumst um hans æsku og uppvöxt og svo ferðalagið í gegnum lífið og leikhúsið til dagsins í dag. Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur í þorra. Nú fyllast trog og bakkar um allt land af þorramat, súrum og ósúrum. Við fengum af því tilefni Jóhannes Stefánsson, eða Jóa í Múlakaffi, til að koma í þorramatarspjall í dag. Þar á bæ er allt á fullu á þessum tíma enda sækir gríðarlegur fjöldi sinn þorramat þangað og þau laga allan þorramat sem þar er í boði frá grunni. Jói kom með fullt fangið af þorramat og við smökkuðum hjá honum kræsingarnar og forvitnuðumst um þær í leiðinni. Tónlist í þættinum í dag: Niðrí bæ með bónda mínum / Borgardætur (Irving Berlin og Friðriks Erlingssonar) Skáldið og bóndinn / Bogomil Font og hljómsveitin Flís (Rafael De Leon og Sigtryggur Baldursson) Non, je ne regrette rien = Nei, ég iðrast ekki neins / Brynhildur Guðjónsdóttir (Charles Dumont, Michel Vaucar og Þórarinn Eldjárn) Þorrablót / Pétur Pétursson og Sigfús Pétursson (Ögmundur Eyþór Svavarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Arnar Jónsson föstudagsgestur og þorramatarspjall með Jóa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2023

Ljósavinasöfnun og Borgarleikúsveturinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 7, 2022 50:00

Í gær hófst Ljósavinasöfnun hjá Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Markmið söfnunarinnar er að eignast fleiri mánaðarlega vini til að styðja við starfið. Þörfin er sannarlega til staðar enda húsakostur Ljóssins orðinn þétt setinn, en mikill er fjöldi fólks fær þjónustu hjá Ljósinu daglega. Með herferðinni er sjónum beint að hversdagslegu athöfnunum sem margir sakna þegar óviðráðanlegar aðstæður eins og krabbamein banka upp á. Yfirskrift herferðarinnar er Lífið í nýju Ljósi . Róbert Jóhannsson kom í þáttinn og sagði frá sinni reynslusögu og sinni reynslu af starfi Ljóssins. Með honum kom Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Ljóssins. Við hófum í gær hringferð um íslensku leikhúsin til þess að forvitnast um komandi leikvetur. Í dag var hjá okkur Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins. Brynhildur sagði okkur frá sýningunum sem verða á fjölunum í vetur, allt frá Shakespeare til glænýrra leikskálda og allt þar á milli. Tónlist í þættinum í. dag: Mannshjörtu / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) En / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) Peggy Sue / Buddy Holly (Petty og Holly) What a Life / Scarlet Pleasure UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Ljósavinasöfnun og Borgarleikúsveturinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 7, 2022

Snæbjörn talar við fólk
#0073 Brynhildur Guðjónsdóttir

Snæbjörn talar við fólk

Play Episode Listen Later Oct 7, 2021 154:42

S01E73  – Brynhildur Guðjónsdóttir er leikkona og leikstjóri með meiru, og hefur í dag sinnt starfi leikhússtjóra Borgarleikhússins í rúmt eitt og hálft ár. Því hafa vissulega fylgt ýmsar áskoranir á borð við örsmáan heimsfaraldur, fjöldatakmarkanir og leikhússlokanir, en hún er þó hvergi af baki dottin. Í dag nýtur hún að fá að taka almennilega á því stóra verkefni að setja saman leikhúsprógram fyrir listasoltna þjóð. Leiklistin á huga Brynhildar að mestu, en hún er þó einnig frönskumælandi, Aerosmith aðdáandi og andlegt ígulker í bata. Brynhildur elskar að læra nýja hluti, helst erfiða, og hefur alla sína tíð getað fundið sögur í hverju skúmaskoti, sem hún svo nærist á að segja öðrum. Hún segist ekki vita hvar sagan sín muni enda, enda sér lífið ekki áfangastaður heldur ferðalag. Gott spjall.    – Síminn Pay býður upp á STVF. Leggðu bílnum í Síminn Pay appinu á sama tíma og þú ákveður hvað verður í matinn í kvöld. Kíktu í appið og finndu þér máltíð á einungis 1.000 krónur!    – Omnom býður upp á STVF. Hefur þú prófað vegan súkkulaðiplötuna SUPERCHOCOBERRYBARLEY NIBBLYNUTTYLICIOUS, með söltuðum möndlum, byggi og berjum? Mmmm...    – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.

Mannlegi þátturinn
Brynhildur og Borgarleikhúsið og hernámsæskan

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 16, 2021 50:00

Fimmtudagar í september eru helgaðir sviðslistum og í dag var komið að Borgarleikhúsinu. Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri kom í þáttinn og við spurðum hana út í starfsemina, hvernig þau koma útúr kófinu, hvernig var að taka við rekstrinum korter í Covid og hvernig leikveturinn sem var að hefjast lítur út, smekkfullt leikár framundan. Hernámsæska í tröllahöndum er yfirskrift fléttu Borgarsögusafns sem fram fer á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í kl. 16:30. Að þessu sinni mun Leifur Reynisson sagnfræðingur fjalla um æskuna um og upp úr stríðsárunum. Íslenskt samfélag tók stakkaskiptum þegar erlendir herir námu hér land og unga fólkið fór svo sannarlega ekki varhluta af því. Leifur gerir grein fyrir því hvernig æskan varð til sem sjálfstæður þjóðfélagshópur með eigin menningareinkenni, en tímabilið sem um ræðir nær frá hernámi til rokks og hefur hann sér til fulltingis ljósmyndir úr safni Sigurhans Vignir. Við hringdum í Leif í þættinum. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Brynhildur og Borgarleikhúsið og hernámsæskan

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 16, 2021

Fimmtudagar í september eru helgaðir sviðslistum og í dag var komið að Borgarleikhúsinu. Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri kom í þáttinn og við spurðum hana út í starfsemina, hvernig þau koma útúr kófinu, hvernig var að taka við rekstrinum korter í Covid og hvernig leikveturinn sem var að hefjast lítur út, smekkfullt leikár framundan. Hernámsæska í tröllahöndum er yfirskrift fléttu Borgarsögusafns sem fram fer á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í kl. 16:30. Að þessu sinni mun Leifur Reynisson sagnfræðingur fjalla um æskuna um og upp úr stríðsárunum. Íslenskt samfélag tók stakkaskiptum þegar erlendir herir námu hér land og unga fólkið fór svo sannarlega ekki varhluta af því. Leifur gerir grein fyrir því hvernig æskan varð til sem sjálfstæður þjóðfélagshópur með eigin menningareinkenni, en tímabilið sem um ræðir nær frá hernámi til rokks og hefur hann sér til fulltingis ljósmyndir úr safni Sigurhans Vignir. Við hringdum í Leif í þættinum. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Morgunvaktin
Skýjað með köflum í alþjóðasamstarfi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 27, 2021 130:00

Gliðnun í alþjóðasamstarfi í heimsfaraldrinum hefur verið til umfjöllunar eftir nýja skýrslu sem sýndi fram á að norrænu ríkin fóru í mörgu eigin leiðir í aðgerðum gegn veirunni án samstarfs eða samráðs sem einkennt hefur sambúð Norðurlandanna í áratugi. Viðmælandi í dag um heimsmálin var Stefanía Óskarsdóttir, dósent við stjórnmáladeild HÍ. Spurð hvernig heimurinn blasi við henni svaraði hún "skýjað með köflum." Grasspretta hefur farið hægt af stað þetta vorið enda næturfrost víða um land langt fram eftir maí. Ljóst er að tún verða slegin seinna í ár en oft áður en erfitt að segja til um hvernig almennt heyjast í sumar. Bændur vilja rigningu. Eiríkur Loftsson ráðunautur í jarðrækt hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ræddi stöðu mála. Einhverju furðulegasta leikári í langri sögu Leikfélags Reykjavíkur er að ljúka. Starfsemi leikhússins hefur, eins og svo að segja allt í samfélaginu, markast af lokunum löngum tíðum vegna covid. Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússstjóri spjallaði um áskoranir leikhússins og nýtt leikár sem hefst í haust. Tónlist: Here comes the sun - Bítlarnir Sólin er komin - Mugison, Þykjustuleikur - Gréta Sigurjónsdóttir, Kisa mín - Helgi Hjörvar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhildur Þorkelsdóttir.

Morgunvaktin
Skýjað með köflum í alþjóðasamstarfi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 27, 2021

Füzz
Brynhildur Guðjóns - Aerosmith og Iron Maiden

Füzz

Play Episode Listen Later Mar 12, 2021

Gestur þáttarins að þessu sinni er Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarlekhússtjóri. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna kl. 21.00. Vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123. Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Killers, önnur plata rokkrisanna í Iron Maiden. Platan varð 40 ára núna fyrir skemmstu en hún kom út 2. febrúar árið 1981 í Bretlandi og Evrópu, en 6. Júní 1981 í Bandaríkjunum. Killers er fyrsta platan sem gítarleikarinn Adrian Smith spilar á. Hann er enn í hljómsveitinni. Og Killers er síðasta plata Iron Maiden þar sem söngvarinn Paul Di?anno syngur. Hann var rekinn fyrir óreglu, drykkju og kókaínneyslu á sínum tíma. Kraftmikill og flottur söngvari sem sannarlega setti svip sinn á tónlist Iron Maiden framanaf, en hefur farið fremur illa með líf sitt. Killers er fyrsta platan sem upptökustjórinn Martin Birch gerði með Iron Maiden, en hann vann svo með sveitinni að næstu 8 plötum, sú síðasta var Fear of the Dark 1992. Steve Harris forsprakki Iron Maiden, bassaleikarinn og West Ham áhangandinn á afmæli í dag, er fæddur 12. Mars 1956 og er þess vegna 65 ára í dag. Hann er skráður höfundur allra laganna á Killers. Harris og gítarleikarinn Dave Murray eru þeir einu í hljómsveitinni sem hafa verið með á öllum plötunum sem eru orðnar 16 talsins. Sú nýjasta er The Book of Souls sem kom út 2015. Iron Maiden hefur tvisvar spilað á Íslandi, kom fyrst í Fear of the Dark túrnum 1992 og spilaði þá fyrir hálfri Laugardalshöll en kom svo aftur í júní 2005 og spilaði þá fyrir fullri Egilshöll. Þá voru eingöngu á efnisskránni lög af fyrstu fjórum plötunum; · Iron Maiden (1980) · Killers (1981) · The Number of the Beast (1982) · Piece of Mind (1983)

Play Episode Listen Later Mar 12, 2021 155:00

Fram og til baka
Gummi Jóns í fimmunni, Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri og

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Dec 12, 2020

Fram og til baka 12.12.2020 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Kosykvöld i kvöld - Baggalutur Fimman - Guðmundur Jónsson lagahöfundur og tónlistarmaður Bruce Springsteen - Merry Christmas Baby Nat King Cole - Christmas Song The Pogues - Fairytale of New York Karlakórinn Fóstbræður - Í dag er glatt í döprum hjörtum Björgvin og Ruth Reginalds - Þú komst með jólin til mín Viðtal - Brynhildur Guðjónsdóttir Fréttagetraun - Karl Hillers Auka jólaspurning - Hafþór Reynisson / Benedikt Emilsson

Play Episode Listen Later Dec 12, 2020 114:00

Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri Borgarleikhússins

Segðu mér

Play Episode Listen Later Sep 30, 2020 40:00

Ég var 38 ára gömul og hugsaði nei, þetta er búið. Nú fer ég í leshring og stafagöngu með konum á mínum aldri,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri sem kynntist kærastanum Heimi Sverrissyni fyrir tíu árum, þá nýskilin. Nýtt leikár er loksins hafið í Borgarleikhúsinu og kveðst Brynhildur óþreyjufull að fá að bjóða áhorfendum á sýningar í stóra salnum eftir margra mánaða lokun. Brynhildur Guðjónsdóttir ákvað eftir BA-nám í frönsku að hætta við öll áform um að verða læknir og flugmaður og læra frekar leiklist úti í London enda hefur henni aldrei leiðst athyglin og hún nýtur sín jafnan best þegar hún hefur sjálf orðið. „Ég talaði út í eitt sem krakki og geri það enn. Það er mjög heppilegt fyrir leikkonuna en leikhússtjórinn þarf stundum að passa sig. Listamaðurinn hefur meira frelsi en leikhússtjórinn sem tekur ríkari ábyrgð og á að gera það,“ segir Brynhildur í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1.

borgarleikh brynhildur brynhildur gu sigurlaugu margr
Segðu mér
Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri Borgarleikhússins

Segðu mér

Play Episode Listen Later Sep 30, 2020

Spekingar Spjalla
#95 Brynhildur Guðjónsdóttir

Spekingar Spjalla

Play Episode Listen Later Sep 3, 2020 95:02

Sviðslistakonan Brynhildur Guðjónsdóttir stjórnar nú Borgarleikhúsinu eftir að hafa átt sviðið í islensku leiklistarlífi í yfir tvo áratugi. Leikkona, leikskáld og leikstýra sem hefur auðgað listina á Íslandi og stýrir skútu Borgarleikhússins á krefjandi tímum. Brynhildur er einstakur listamaður og fáum við íslendingar að njóta góðs af því. Spekingar Spjalla er tekinn upp í Nóa Siríus stúdíóinu og er í boði Áberandi.

Fríhöfnin
Völuspá 3/5

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020

Skyggnst er að tjaldabaki Völuspár og reynt að komast nær skilningi á heimsmynd kvæðsins, myndmálinu, flutningi í lifandi hefð síns tíma og þeim hugmyndum sem kvæðið kveikti hjá áheyrendum á 13. öld og til okkar daga. Umsjón hefur Gísli Sigurðsson, sérfræðingur í þjóðfræði við Árnastofnun. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, flytur kvæðið. Lesari með umsjónarmanni er Svanhildur Óskarsdóttir. Tónlist og áhrifahljóð samdi Pétur Grétarsson. Talað um orðfæri Völuspár um endalok heimsins og hvernig það gæti hafa mótast af reynslu fólks af eldgosum hér á landi í bland við hugmyndir trúarlegra texta og myndlist sem hingað barst frá meginlandinu. Lesari: Friðrik Erlingsson. Einnig heyrist í Gunnari Eyjólfssyni flytja brot úr Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen. Tónlist og hljóðmynd: Pétur Grétarsson.

Fríhöfnin
Völuspá 1/5

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020

Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, flytur kvæðið Völuspá í heild sinni. Tónlist og áhrifahljóð samdi Pétur Grétarsson.

brynhildur gu
Fríhöfnin
Völuspá 2/5

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020

Fjallað um heimsmynd Völuspár á þeim tíma þegar menn voru á jörðinni og goðin á himni þar sem hreyfingar Sólar, Mána og reikistjarna voru túlkaðar með goðsögum - áður en vísindin sögðu jörðina snúast í kringum sólina. Skyggnst er að tjaldabaki Völuspár og reynt að komast nær skilningi á heimsmynd kvæðsins, myndmálinu, flutningi í lifandi hefð síns tíma og þeim hugmyndum sem kvæðið kveikti hjá áheyrendum á 13. öld og til okkar daga. Umsjón hefur Gísli Sigurðsson, sérfræðingur í þjóðfræði við Árnastofnun. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, flytur kvæðið. Lesari með umsjónarmanni er Svanhildur Óskarsdóttir. Tónlist og áhrifahljóð samdi Pétur Grétarsson.

sigur umsj fjalla svanhildur brynhildur gu lesari
Fríhöfnin
Völuspá 4/5

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020

Skyggnst er að tjaldabaki Völuspár og reynt að komast nær skilningi á heimsmynd kvæðsins, myndmálinu, flutningi í lifandi hefð síns tíma og þeim hugmyndum sem kvæðið kveikti hjá áheyrendum á 13. öld og til okkar daga. Umsjón hefur Gísli Sigurðsson, sérfræðingur í þjóðfræði við Árnastofnun. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, flytur kvæðið. Lesari með umsjónarmanni er Svanhildur Óskarsdóttir. Tónlist og áhrifahljóð samdi Pétur Grétarsson. Komið er að útisetu völvunnar og leiðslubókmenntum miðalda þar sem mannleg vera kemst í samband við einhvern að handan, sem veitir henni sýn í annan heim eða til framtíðar - eins og Óðinn gerir þegar hann opnar völvunni spásýn til ragnaraka.

sigur komi umsj svanhildur brynhildur gu lesari

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
Þriðja plata Hálft í hvoru fékk dágóða athygli.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Feb 16, 2020

Íslenskt efni í fyrrihlutanum áður en kom að vinyl dagsins. Meðal tónlistarflytjenda í þættinum eru: Elvis Costello, Love Affair, Kristín Eysteinsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir, Go-Betweens og James.

Play Episode Listen Later Feb 16, 2020 130:00

Íslenskt efni í fyrrihlutanum áður en kom að vinyl dagsins. Meðal tónlistarflytjenda í þættinum eru: Elvis Costello, Love Affair, Kristín Eysteinsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir, Go-Betweens og James.

Segðu mér
Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og leikstjóri

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 13, 2020 40:00

Gestur þáttarins er Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og leikstjóri. Umsjón: Viðar Eggertsson. Brynhildur segir m.a. frá þremur sterkum konum sem varða feril hennar sem leikkonu, brothætti spörfuglinn franski Edith Piaf, ambáttin sem fóstraði mesta skáld Íslands Egil Skallagrímsson, Brák, og listakonuna mexikósku sem föst var í járngrind, Fridu Khalo. Einnig frá leikstjórnarferli sínum. Inní fléttast viðhorf hennar til lífsins og listarinnar.

Segðu mér
Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og leikstjóri

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 13, 2020

Gestur þáttarins er Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og leikstjóri. Umsjón: Viðar Eggertsson. Brynhildur segir m.a. frá þremur sterkum konum sem varða feril hennar sem leikkonu, brothætti spörfuglinn franski Edith Piaf, ambáttin sem fóstraði mesta skáld Íslands Egil Skallagrímsson, Brák, og listakonuna mexikósku sem föst var í járngrind, Fridu Khalo. Einnig frá leikstjórnarferli sínum. Inní fléttast viðhorf hennar til lífsins og listarinnar.

Víðsjá
Vanja frændi, Regnbogaþráðurinn, Skjáskot og Sporið.

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 3, 2019 53:30

Jólasýning Borgarleikhússins að þessu sinni er leikritið Vanja frændi eftir rússeska rithöfundinn Anton Tsjekov. Hér er á ferðinni eitt af klassísku verkum leikbókmenntanna, verk sem fjallar meðal annars um brostnar vonir, og mismunandi viðhorf til lífsins, þar sem takast á hugmyndir um að lifa í vellystingum annars vegar og hins vegar umhyggja fyrir jörðinni og náttúrunni. Leikstjóri verksins er Brynhildur Guðjónsdóttir en ný þýðing hefur nú verið gerð á verkinu, hana gerði Gunnar Þorri Pétursson, Gunnar verður gestur Víðsjár í dag og segir frá glímu sinni við Anton Tsjekov. Íris Ellenberger, Ásta Kristín Benediktsdóttir og Ynda Eldborg segja frá Regnbogaþræðinum, hinsegin viðbót við fastasýningu Þjóðminjasafns Íslands, Þjóð verður til, auk þess sem Ynda segir frá tengdri myndlistarsýningu í Neskirkju. Guðrún Sóley Gestdóttir segir fá sjónvarps-dansþáttunum Sporið sem hefjast á laugardag. Og Gauti Kristmannsson, bókmenntagagnrýnandi Víðsjár, fjallar í dag um Skjáskot, bók eftir Berg Ebba sem kom út á dögunum. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Morgunútvarpið
Kvennahlaup, nám, fuglar, fréttaspjall og hégómavísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 14, 2019 130:00

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á morgun í þrítugasta sinn en hlaupið verður á meira en 80 stöðum um allt land og erlendis. Eitt af því sem hefur einkennt hlaupið er að þar koma saman konur á öllum aldri. Við heyrðum í Hrönn Guðmundsdóttur, sviðsstjóra almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Davíð Sæmundsson lauk á dögunum undirbúningsnámi í Háskólagrunni HR en hann lauk sveinsprófi í rafeindavirkjun árið 2012 og stefnir á hátækniverkfræði og tölvunarfræði næsta haust. Hann kíkti til okkar og sagði okkur frá því hvernig það er að taka háskólanám í kjölfar iðnnáms. Við töluðum við Jóhann Óla Hilmarsson, fuglafræðing,en talsvert ber á því á fólk reyni að taka fram fyrir hendurnar á náttúrunni með því að fjarlægja og taka með sér fuglsunga sem það sér og telur vera yfirgefna. Einnig hefur vakið nokkra eftirtekt að mávar átu unga í gæsahreiðri sem gæsapar hafði búið sér til á umferðareyju í Breiðholti, en mávarnir voru þá að sækja í brauð sem fólk hafði skilið eftir við hreiðrið í því skyni að fóðra gæsirnar. Við fórum yfir fréttir vikunnar að vanda. Gestir að þessu sinni voru Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og Valgeir Magnússon, starfandi stjórnarformaður auglýsingastofunnar Pipar/TBWA. Hégómavísindahornið var á sínum stað en þar ræður ríkjum Freyr Gígja Gunnarsson.

Laugardagskvöld með Matta
Brynhildur Guðjónsdóttir

Laugardagskvöld með Matta

Play Episode Listen Later Jan 12, 2019

Gestur Matta er leikkonan Brynhildur Guðjónsdóttir.

brynhildur gu
Morgunkaffið
Morgunkaffið - Brynhildur Guðjóns, Árni Helga & Grétar Theodórs

Morgunkaffið

Play Episode Listen Later Dec 15, 2018

Jóhann Alfreð Kristinsson leysir Gísla Martein af í þætti dagsins, sem er í aðventuferðalagi. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og leikstjóri kom í fyrri hluta þáttarins og ræddi við okkur leikhúsið, Rocky Horror og nýjustu afurðina, jólasýningu Borgarleikhússins í ár sem hún leikstýrir en verkið er Ríkharður III eftir Shakespeare. Á seinni klukkutímanum komu þeir Grétar Theodórsson almannatengill og Árni Helgason lögmaður en þeir sjá um hlaðvarpsþáttinn Hismið. Frasar, raunhagkerfið, heiðarlegur matur, uppistand og fleira og fleira bar á góma.

Brynhildur Guðjónsdóttir elskar bassa og sögu í lögum.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Oct 28, 2018 130:00

Wainwright fjölskyldan fékk ágætis pláss í þættinum. Einnig allra handa íslensk tónlist og molar fróðleiks.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
Brynhildur Guðjónsdóttir elskar bassa og sögu í lögum.

Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni

Play Episode Listen Later Oct 28, 2018

Wainwright fjölskyldan fékk ágætis pláss í þættinum. Einnig allra handa íslensk tónlist og molar fróðleiks.

Víðsjá
Múlakot í Fljótshlíð, ávarp á alþjóðlegum degi leiklistar, myndlist í

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 27, 2018 55:00

Brynhildur Guðjónsdóttir flytur ávarp á alþjóðlegum degi leiklistar. Við heimsækjum Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, en þar voru á dögunum opnaðar tvær sýningar með verkum Jóns Axels Björnssonar og Jóhönnu Kristbjargar Sigurðardóttur. Jón Axel sýnir málverk á sýingunni Afstæði en Jóhanna bíður upp á margslungna innsetningu sem hún kallar Margoft við sjáum og margoft við sjáum aftur. Starkaður Sigurðarson fjallar um sýninguna Bæklingar í gallerí OPEN. Bærinn Múlakot í Fljótshlíð tengist íslenskri listasögu sterkari böndum en hingað til var vitað. Í Múlakot lögðu margir af okkar fremstu listamönnum leið sína og dvöldu um lengri eða skemmri tíma. Ásta Friðriksdóttur listfræðingur segir frá meistararitgerð sinni sem fjallar um Múlakot og listamenninga sem tengdust bænum. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.