Podcasts about ennfremur

  • 9PODCASTS
  • 42EPISODES
  • 51mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jan 8, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about ennfremur

Latest podcast episodes about ennfremur

Lífið með Lindu Pé
214. Sjálfsmynd, fjármál, lífsstíll

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jan 8, 2025 15:19

Þátturinn er um mikilvægi þess að vinna með sjálfsmynd, fjármál og lífsstíl sem samverkandi þætti í sjálfsvinnu. Ennfremur boð handa þér á örnámskeið með Lindu um næstu helgi! → Má bjóða þér á örnámskeiðið „Besti kafli lífsins" með Lindu Pé? Taktu þátt laugardaginn 11. janúar 2025, og þú lærir aðferð sem getur hjálpað þér að hefja besta kafla lífs þíns! Áhersla verður á 3 meginþætti: Sjálfsmynd, fjármál og lífsstíl. Ef þú vilt þiggja boðið og koma á örnámskeiðið „Besti kafli lífsins", SMELLTU ÞÁ HÉR → Nú er OPIÐ fyrir skráningar í nokkra daga í LMLP prógrammið. Ef þú vilt loks komast inn og gera spennandi breytingar á lífi þínu og ná langtíma árangri þá er þetta tækifærið þitt. Skráðu þig núna með því að SMELLA HÉR fyrir LMLP PRÓGRAMMIÐ

Lífið með Lindu Pé
205. Innsæið

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 17:25

Í þættinum fjalla ég um hugtakið innsæi sem leiðarljós í ákvarðanatöku og deili eigin reynslu af því að treysta á innsæið í krefjandi aðstæðum. Ég útskýri hvernig innsæið getur verið öflugt tól til að taka ákvarðanir, jafnvel þegar rökhugsun bendir í aðra átt. Ennfremur veiti ég hagnýt ráð um hvernig við getum styrkt tengsl okkar við innsæið og notað það til að leiða okkur í gegnum áskoranir og daglegt líf.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU Í LMLP-BIÐLISTIAðgangsglugginn fyrir LMLP Prógrammið m/Lindu Pé er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: L Í F S Þ J Á L F A S K Ó L I N N  Viltu verða lífsþjálfi? Smelltu hér fyrir upplýsingar. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  Lífsspilin Dragðu spil daglega og hannaðu draumalífið þitt meðvitað með Lífsspilunum. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Magasínið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök eru meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP Prógrammið með Lindu Pé LOKAÐ er fyrir skráningar. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!  

Lífið með Lindu Pé
204. Af bótum til velgengni

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 25:59

Í þessum podcastþætti deili ég persónulegri sögu minni um hvernig ég fór frá því að upplifa vanmátt og ótta, verandi á bótum, þar sem ég hafði misst allt veraldleg yfir í það að byggja upp arðbært fyrirtæki með vinnusemi og sjálfsvinnu. Ég fjalla um mikilvægi þess að aðskilja erfiðleika frá því hver við erum sem manneskjur og þá umbreytingu og árangur sem ég hef upplifað eftir að ég menntaði mig sem lífsþjálfi. Ennfremur segi ég ykkur hvernig þið getið lært hjá mér að gera slíkt hið sama, í gegnum nám í Lífsþjálfaskólanum.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU Í LMLP-BIÐLISTIAðgangsglugginn fyrir LMLP Prógrammið m/Lindu Pé er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: L Í F S Þ J Á L F A S K Ó L I N N  Viltu verða lífsþjálfi? Smelltu hér fyrir upplýsingar. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  Lífsspilin Dragðu spil daglega og hannaðu draumalífið þitt meðvitað með Lífsspilunum. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Magasínið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök eru meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP Prógrammið með Lindu Pé LOKAÐ er fyrir skráningar. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!  

Lífið með Lindu Pé
173. Máttur tilhlökkunar

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Apr 3, 2024 13:00

Í þættinum spjalla ég við ykkur um svokallaðan „empty nest syndrome” og hvernig ég hef meðvitað undirbúið mig (eins og hægt er) undir það að einkadóttir mín fari að heiman í nám erlendis nú í haust og hvernig ég vil að líf mitt líti út þá. Ennfremur kem ég inná mátt tilhlökkunar og mikilvægi þess að skipuleggja það fram í tímann.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í Prógrammið m/Lindu Pé er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Magasínið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök eru meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. Prógrammið með Lindu Pé Nú er lokað fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Flugur
Heiðursmenn, Björgvin og fleiri

Flugur

Play Episode Listen Later Jan 24, 2022 43:00

Leikin eru fögur lög með hljósmveitinni Heiðursmönnum sem komu út á lítilli plötu árið 1969 og nokkur lög úr Áramótaskaupi Sjónvarpsins 1971. Ennfremur þrjú lög sem komu út á fyrstu stóru plötu Björgvins Halldórssonar, sem gefin var út árið 1971. Þetta eru fyrstu lögin eftir Björgvin sem komu út á plötu. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Flugur
Heiðursmenn, Björgvin og fleiri

Flugur

Play Episode Listen Later Jan 24, 2022

Landspítali hlaðvarp
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Ragnar Freyr Ingvarsson og Ólafur Orri Sturluson: Þvagsýrugigt

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Dec 29, 2021 66:49

"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum ræða þeir Ragnar Freyr Ingvarsson gigtarlæknir og Ólafur Orri Sturluson sérnámslæknir í almennum lyflækningum um þvagsýrugigt. Af hverju fáum við þvagsýrugigt? Hvernig er hún greind? Hvaða meðferðarmöguleikar eru í boði? Ennfremur er rætt um þvagsýrugigt í sögulegu samhengi, gildi smásjáskoðunar og hvernig hægt er að beita ómun við mismunagreiningu bólgins liðar. Að lokum uppljóstra viðmælendur þáttarins hver jólagjöfin í ár er (var)!Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-23

Víðsjá
Listasafn Árnesinga, Martha Argerich og Heyrandi nær í Japan

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 7, 2021 55:00

Á laugardaginn opnuðu hvorki meira né minna en fjórar sýningar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. En það voru sýningarnar Róska, Iðustreymi, Yfirtaka og Hvítur. Í Víðsjá dagsins kíkjum við þangað í heimsókn og ræðum við sýningarstjóra og listamenn sem þar eiga verk. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær þessa vikuna veltir Arnljótur Sigurðsson fyrir sér uppgötvunum á nýrri tónlist á tækniöld og segir aðeins frá sínum tónlistarlegu ódysseifsförum, með Japan í forgrunni. Ennfremur verður píanóleikaranum Mörtu Argerich send afmæliskveðja, en hún varð áttræð um helgina. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson. Mynd: Eitt af verkum Rósku í Listasafni Árnesinga.

Víðsjá
Listasafn Árnesinga, Martha Argerich og Heyrandi nær í Japan

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 7, 2021

Á laugardaginn opnuðu hvorki meira né minna en fjórar sýningar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. En það voru sýningarnar Róska, Iðustreymi, Yfirtaka og Hvítur. Í Víðsjá dagsins kíkjum við þangað í heimsókn og ræðum við sýningarstjóra og listamenn sem þar eiga verk. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær þessa vikuna veltir Arnljótur Sigurðsson fyrir sér uppgötvunum á nýrri tónlist á tækniöld og segir aðeins frá sínum tónlistarlegu ódysseifsförum, með Japan í forgrunni. Ennfremur verður píanóleikaranum Mörtu Argerich send afmæliskveðja, en hún varð áttræð um helgina. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson. Mynd: Eitt af verkum Rósku í Listasafni Árnesinga.

Víðsjá
Vorblót, Kakóserimoníur og Sigmar Matthíasson

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 2, 2021 55:00

Í Víðsjá í dag kl. 16:05 verður rætt við Sigmar Matthíasson bassaleikara um nýja plötu hans Meridian Metaphor sem kemur út á föstudag með nýjum tónsmíðum hans sem eru oftar en ekki undir áhrifum frá tónlist Balkanskagans. Hugað verður að Vorblóti ? sameiginlegri hátíð Tjarnarbíós og Reykjavík Dance Festival sem fram fer dagana 3.-.6. júní en Pétur Ármannsson, listrænn stjórnandi hátíðarinnar og Steinunn Ketilsdóttir, deildarforseti sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands verða gestir Víðsjár. Ennfremur verður Lilja Dögg Tryggvadóttir tekin tali um Kakóseremóníur en árið 2019 rannsakaði hún fyrirbærið í ritgerð sem kallaðist Kakóserimóníur: Notkun kakós á 21. öldinni í heilunar og slökunar tilgangi. Umsjón Guðn Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson.

Víðsjá
Vorblót, Kakóserimoníur og Sigmar Matthíasson

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 2, 2021

Í Víðsjá í dag kl. 16:05 verður rætt við Sigmar Matthíasson bassaleikara um nýja plötu hans Meridian Metaphor sem kemur út á föstudag með nýjum tónsmíðum hans sem eru oftar en ekki undir áhrifum frá tónlist Balkanskagans. Hugað verður að Vorblóti ? sameiginlegri hátíð Tjarnarbíós og Reykjavík Dance Festival sem fram fer dagana 3.-.6. júní en Pétur Ármannsson, listrænn stjórnandi hátíðarinnar og Steinunn Ketilsdóttir, deildarforseti sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands verða gestir Víðsjár. Ennfremur verður Lilja Dögg Tryggvadóttir tekin tali um Kakóseremóníur en árið 2019 rannsakaði hún fyrirbærið í ritgerð sem kallaðist Kakóserimóníur: Notkun kakós á 21. öldinni í heilunar og slökunar tilgangi. Umsjón Guðn Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson.

Lífið með Lindu Pé
08. Tíu ráð til að hætta að borða of mikið

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Feb 22, 2021 19:24

Í þessum þætti fer Linda yfir ástæður þess af hverju það er erfitt að hætta að borða of mikið. Ennfremur gefur hún þér 10 ráð til að hætta ofáti. Nánari upplýsingar: Heimasíða Lindu  Prógrammið Lífið með Lindu Pé Ef þú ert með spurningu handa mér, sendu mér þá endilega skilaboð og ég svara hér í podcastinu! Instagram eða netfang info@lindape.com Kíktu endilega yfir á Instagram og láttu Lindu vita hvernig þér fannst þátturinn. @lindape P.s Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!  

pr miki lindu ennfremur
Víðsjá
Nóbelsverðlaun, deila um útilistaverk, Taipio Koivukari og gyðjur súrr

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 8, 2020 53:53

Í Víðsjá í dag verður meðal annars fjallað um bandaríska ljóðskáldið Louise Glück en tilkynnt var í Stokkhólmi í morgun að hún hlyti Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 2020. Halla Harðardóttir heldur áfram að feta krókaleiðir listasögunnar, að þessu sinni rifjar hún upp gleymdar gyðjur súrrealismans, og lítur inn á sýningu sem nú stendur yfir í Louisiana safninu við Kaupmannahöfn. Á sýningunni Fantastic Women má sjá verk eftir 34 listakonur sem kenndar hafa verið við súrrealisma en sem margar hverjar hafa fallið í gleymskunnar dá. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um ljóðabókina Innfirði eftir finnska verðlaunahöfundinn Taipio Koivukari sem fyrir löngu er orðinn landsþekktur fyrir skáldsögur sínar sem komið hafa út í þýðingum Sigurðar Karlssonar. Ennfremur verður hugað að myndlist í opinberu rými að gefnu tilefni og rætt við Ólöfu K. Sigurðardóttur, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur og Hlyn Helgason, varaformann Sambands íslenskra myndlistarmanna um þau mál.

louisiana sigur louise gl deila kaupmannah stokkh sambands ennfremur gauti kristmannsson
Víðsjá
Nóbelsverðlaun, deila um útilistaverk, Taipio Koivukari og gyðjur súrr

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 8, 2020

A! Gjörningahátíð, Bauhaus og ESB, Elín Edda og Meiri sagnfræði

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 30, 2020 55:00

Víðsjá hugar í dag að A! Gjörningahátíð sem hefst á morgun í Listasafninu á Akureyri og stendur um helgina. Sagna hins víðfræga Bauhaus skóla verður líka rifjuð upp en nýr forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, sagði fyrir skemmstu að nýr Bauhaus skóli myndi verða að veruleika á næstunni. Nýji Bauhaus skólinn er hluti af 750 miljarða evra plani sambandsins til að endurreisa hagkerfið eftir kórónaveirufaraldurinn, með menningu og sjálfbærni að leiðarljósi. Elín Edda Árnadóttir, búningahönnuður og myndlistarkona, verður heimsótt á Mokka kaffi, en þar sýnir hún verk sín þessa dagana. Ennfremur verður fjallað um kröfu bandarískra sagnfræðinga um “meiri sagnfræði“ og betri söguvitund landa sinna. Umsjón: Guðni Tómasson

Víðsjá
A! Gjörningahátíð, Bauhaus og ESB, Elín Edda og Meiri sagnfræði

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 30, 2020

Víðsjá hugar í dag að A! Gjörningahátíð sem hefst á morgun í Listasafninu á Akureyri og stendur um helgina. Sagna hins víðfræga Bauhaus skóla verður líka rifjuð upp en nýr forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, sagði fyrir skemmstu að nýr Bauhaus skóli myndi verða að veruleika á næstunni. Nýji Bauhaus skólinn er hluti af 750 miljarða evra plani sambandsins til að endurreisa hagkerfið eftir kórónaveirufaraldurinn, með menningu og sjálfbærni að leiðarljósi. Elín Edda Árnadóttir, búningahönnuður og myndlistarkona, verður heimsótt á Mokka kaffi, en þar sýnir hún verk sín þessa dagana. Ennfremur verður fjallað um kröfu bandarískra sagnfræðinga um “meiri sagnfræði“ og betri söguvitund landa sinna. Umsjón: Guðni Tómasson

Víðsjá
Einingahús, Guston, Ekkert er sorglegra og Barbarar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 29, 2020 55:00

Í Víðsjá dagsins verður rætt er við Guju Dögg Hauksdóttur arkitekt um sýninguna PREFAB / FORSMÍÐ sem opnaði um liðna helgi í Skaftelli, Menningarmiðstöð Austurlands. Á sýningunni er farið yfir fagurfræði og sögu norsku einingahúsanna sem risu við Seyðisfjörð í byrjun síðustu aldar, auk einingahúss eftir Le Corbusier og norsku arkitektana Rintala Eggertsson. Bók vikunnar að þessu sinni er skáldsagan Beðið eftir barbörunum eftir nóbelskáldið John Maxwell Coetzee. Tveir þýðendur komu að verkinu, þau Sigurlína Davíðsdóttir og Rúnar Helgi Vignisson, og segja þau frá bókinni í Víðsjá dagsins. Snæbjörn Brynjarsson segir frá upplifun sinni af samtímaóperunni Ekkert er sorglegra en manneskjan sem frumsýnd var á dögunum í Tjarnarbíói og er eftir Friðrik Margrétar Guðmundsson og Adolfs Smára Unnarssonar. Ennfremur verður fjallað um umdeilda myndlistarsýningu sem farin er að valda titringi löngu áður en hún er komin upp, en á dögunum bárust fréttir um það sýningu sem átti að fara í fjögur mikilvæg myndlistarsöfn, vestan hafs og austan, hefði verið slegið á frest vegna viðkvæms myndefnis. Við segjum frá listamanninum Philip Guston í þætti dagsins og ræðum við Hallgrím Helgason rithöfund um Guston og verk hans.

Víðsjá
Einingahús, Guston, Ekkert er sorglegra og Barbarar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 29, 2020

Bylgjan
Reykjavík síðdegis miðvikudaginn 2. september 2020

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 2, 2020 46:45

Í fjölbreyttum þætti ræddum við mögulega svefnrannsókn í Eyjum, flug sem hefur verið fellt niður þangað. Opnunartími veitinga- og skemmtistaða, sjónvarpsþátturinn Kviss og tryggingar voru til umræðu. Ennfremur heyrðum við í fyrrum forseta Íslands sem nú skrifar sögur.

reykjav eyjum ennfremur
Bylgjan
Reykjavík síðdegis mánudaginn 15. júní 2020

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020 45:43

Við heyrðum í upphafi af stafrænum ökuskírteinum og fræddumst svo um varnir gegn búðarhnupli. Víðir var á línunni, en landamærin opnuðu í dag og svo tókum við stöðuna á leigubílum og sömuleiðis bágstöddum um þessar mundir. Ennfremur ræddum við við Vilborgu Örnu sem er ein Snjódrífa sem þveruðu Vatnajökul.

Fríhöfnin
Árin 1998-2010

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Apr 6, 2020

Umfjöllunarefni annars þáttar eru fréttir áratugarins 1998 - 2010. Hugað er sérstaklega að fréttum af virkjaframkvæmdum við Kárahnjúka og hryðjuverkaárásunum á New York og Washington, 11. september 2001. Ennfremur er litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlunar frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Bergur Ebbi, Björn Malmquist, Fríða Björk Ingvarsdóttir og Þóra Arnórsdóttir. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.

Fríhöfnin
Árin 1978-1988

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Apr 6, 2020

Fjallað er um ýmis fréttamál og fréttaflutning frá fullveldistímanum með dyggri aðstoð fréttafólks og annarra málsmetandi álitsgjafa. Sjónum er beint að innlendum jafnt sem erlendum fréttum sem varpað geta ljósi á hvern og einn áratug aldarinnar 1918 - 2018, auk þess sem hugað verður að þróun fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili. Umfjöllunarefni fjórða þáttar eru fréttir áratugarins 1978 - 1988. Þar verður hugað sérstaklega að fréttum af forsetakjöri Vigdísar Finnbogadóttur árið 1980 og afdrifum Kalda stríðsins sem tók nýja stefnu með leiðtogafundi Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev árið 1986 í Höfða og lauk með táknrænum hætti árið 1989 með falli Berlínarmúrsins. Ennfremur verður litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlunar frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Elísabet Jökulsdóttir, Óðinn Jónsson, Silja Bára Ómarsdóttir og Styrmir Gunnarsson. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.

Mannlegi þátturinn
Félagsráðgjafaþing, mjaðmir ljúga ekki og póstkort frá Spáni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2020 50:00

Félagsráðgjafaþing Félagsráðgjafafélags íslands verður heldið á föstudaginn þar sem rædd verða fjölmörg áhugaverð málefni undir kjörorðinu Skiljum engan eftir: Virðing - Virkni - Velferð. Við fengum þau Steinunni Bergmann, formann félagsráðgjafafélagsins og Halldór S. Guðmundsson félagsráðgjafa, sem verður með erindið Lyklar vellíðunar - matsaðferðir og sveigjanleg þjónusta á þinginu. Þau sögðu okkur frekar frá því sem þarna fer fram. Þórdís Nadia Semichat er dansari, uppistandari og handritshöfundur dvaldist við nám og störf í New York í tvö ár, þar sem hún sótti ótal mismunandi danstíma í frítma sínum, þar sem hún lærði m.a. að kynnast mjöðmunum á sér á alveg nýjan hátt. Hún er nýlega flutt aftur til Íslands með nýtt og ferskt dansnámskeið í farteskinu, sem hún kallar Hips Don?t Lie, eða Mjaðmirnar ljúga ekki. Við fengum Þórdísi Nadiu til okkar í dag. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag og í því segir af óvenjulegri hitabylgju í febrúar og óttanum við að hitamet verði slegin á komandi sumri. Það segir líka frá eitruðum lirfum sem er verið að vara við þessa dagana. Ennfremur segir af viðvörun Bandaríska sendiráðsins í Madrid til ferðamanna vegna vaxandi tíðni kynferðisglæpa á Spáni. Og í var sagt frá auknu gæludýrahaldi Spánverja, en þeir virðast í auknum mæli kjósa að halda hund en að eignast börn. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Félagsráðgjafaþing, mjaðmir ljúga ekki og póstkort frá Spáni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2020

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
15 - Ísland í síðari heimsstyrjöld, nasistar og kommúnistar

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Feb 6, 2020 82:42

Í þessum þætti er haldið áfram þar sem frá var horfið í síðasta þætti um sagnaritun eftir endalok kommúnismans. Þeir Ólafur og Andri ræða um það hvernig sagnaritun um íslenska kommúnista hefur farið fram hér á landi frá hruni Sovétríkjanna. Ennfremur er rætt um það hvernig við Íslendingar minnumst síðari heimsstyjaldarinnar og hve sammála við höfum verið um söguskoðun stríðsins.

komm sov andri ennfremur
Mannlegi þátturinn
Áramót á Ströndum, 12 vínber á Spáni og sjálfsvirði

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 30, 2019 55:00

Við hringdum vestur á Strandir í okkar konu Kristínu Einarsdóttur og ræddum við hana um áramótin og áramótaskaupið. Kristín hefur rannsakað skaupið og efnistök í mörg ár og skrifað um húmor landans. Póstkort dagsins frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni sagði okkur frá sérkennilegu jólahaldi á Spáni fyrir gamlan Seyðfirðing þar sem fólk dansar á ströndinni á jóladag, tekur ekki upp jólagjafir fyrr en á þrettándanum. Ennfremur segir af sérkennilegum siðum um áramót þar sem aðalatriðið er að gleypa tólf vínber á miðnætti, eitt við hvert klukkuslag þegar pósthúsklukkan í Madrid slær tólf. Við rifjuðum upp áhugavert efni úr þættinum frá liðnu ári og af því að Rás 1 mun huga að andlegu heilsunni í janúar, heyrðum við viðtal við Guðrúnu Pálmadóttur ráðgjafa á Akureyri um sjálfsvirði og með henni veltum við fyrir okkur spurningunni „Hvert er þitt sjálfsvirði?“. Það er kannski erfitt fyrir marga að svara því nákvæmlega en áföll og ofbeldi í bernsku geta haft áhrif á sjálfsvirðið út lífið. Guðrún heldur úti vefsíðunni sjáfsvirði.is og heldur námskeið sem hún byggir á eigin reynslu en hún upplifði andlegt ofbeldi í æsku. (Viðtalið var í Mannlega þættinum 11.mars ?19) Hrefna Guðmundsdóttir er í hópi fólks sem ætlar að styrkja björgunarsveitirnar með beinum fjárframlögum, í stað þess að kaupa flugelda og hvetja aðra til þess sama. Við heyrðum í Hrefnu í lok þáttar. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Áramót á Ströndum, 12 vínber á Spáni og sjálfsvirði

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 30, 2019

Eilífðarnón, Ljósabasar, Vetrargulrætur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 55:00

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur ljóðskáld um nýútkomna ljóðabók hennar, Eilífðarnón. Nýlistasafnið verður heimsótt en þar er svokallaður Ljósabasar starfræktur nú á aðventu. Ennfremur verður gripið niður í viðtal frá því á síðasta ári sem tekið var við Sigurð Guðjónsson myndlistarmann í tilefni þess að hann var þá valinn myndlistarmaður ársins á Íslandi, en í gær var tilkynnt um það að Sigurður yrði næsti fulltrúi Íslands á myndlistartvíæringnum í Feneyjum árið 2021. Og Maríanna Clara Lúthersdóttir bókmenntagagnrýnandi rýnir í sagnasafnið Vetrargulrætur eftir Rögnu Sigurðardóttur. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis 21. nóvember 2019

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 22, 2019 61:09

Samgöngumálin voru til umræðu, allt frá fluglest til veggjalda. Ennfremur ræddum við frjósemi Íslendinga, loftslagsmálin, nýjan þjóðarleikvang og að auki brot RUV á samkeppnismarkaði.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis miðvikudaginn 20. nóvember 2019

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 20, 2019 47:38

Bæði græðgi og húmor voru til umræðu í þættinum í dag. Staða ferðaþjónustunnar var skoðuð og við heyrðum af kynjuðum klósettum. Ennfremur grennsluðumst við fyrir um fikniefnið spice.

sta reykjav ennfremur
Bylgjan
Reykjavík síðdegis miðvikudaginn 6. nóvember 2019

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 7, 2019 48:15

Við byrjuðum á því að heyra niðurstöður könnunar á ýmsu í fari landsmanna og ræddum svo nýja flugfélagið Play. Ljósmóðir talaði við okkur um verðandi mæður á flugi, umhverfisstjóri OR um kolefnisreikni og samgönguráðherra um landakaup. Ennfremur ræddum við um streitu á alþjóðadegi hennar.

lj reykjav ennfremur
Bylgjan
Reykjavík síðdegis fimmtudaginn 24. október 2019

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 24, 2019 49:06

Á þessum alþjóðlega baráttudegi kvenna ræddum við m.a. um nýja viðbragðsáætlun Landlæknis, sjúkraflug á landsbyggðinni og frábær en fjársvelt uppbygging ferðaþjónustu fyrir norðan. Ennfremur ræddum við við tvo lögmenn um dómara.

reykjav landl ennfremur
Mannlegi þátturinn
Ást, moskítóflugur og burstabær í Garðabæ

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 25, 2019 55:00

MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 25.SEPT 2019 UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Í síðustu viku hóf ný sjónvarpsþáttaröð, Ást, göngu sína hjá Sjónvarpi Símans. Þar er fjallað um ást, sambönd og sambandsslit frá ýmsum hliðum. Hugmyndin að þáttunum kviknað á sama tíma hjá tveimur konum sem þekktust ekkert og bjuggu í sitt hvorum landshlutanum. Í þáttunum er talað við sérfræðinga og fagfólk en einnig venjulegt fólk sem segir sögur sínar. Við fáum þær Kristborgu Bóel Steindórsdóttur og Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur, sem áttu hugmyndina að þáttaröðinni og Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafa í þáttinn til að fræða okkur um allar ástina frá öllum hliðum. Á morgun verður sérstök lýðheilsu- og minjaganga í Garðabæ. Þáttakendur verða leiddir milli minja í Garðahverfi og Garðaholti og burstabærinn Krókur verður heimsóttur. Skoðaðar verða leifar þurrabýla, bæjatóftir, grjóthlaðin gerði og varnargarðar svo fátt eitt sé nefnt. Gangan endar í Króki, litlu koti í Garðahverfi sem varðveitt er með upprunalegu innbúi síðustu ábúenda. Heildarvarðveisla alþýðubæjar eins og Króks er fágæt og óvenjulegt er jafnframt að í kringum bæinn hefur varðveist byggðaheild, Garðahverfi, sem enn er tiltölulega ósnortin sveit í miðju þéttbýli. Garðar eru forn jörð og hefur þar staðið kirkja að minnsta kosti frá því á 12. öld. Já , þetta er að finna í Garðabænum, ekki margir sem vissu af því. Við kíktum inní burstabæinn Krók í fylgd Rúnu K Tetzschner. Við fáum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni. Í póskorti dagsins segir hann okkur frá yfirvofandi moskítófaraldri á flóðasvæðinu á Costa Blanca á Spáni. Fólk er að undirbúa sig fyrir árásina sem skellur á eftir viku eða svo. Magnús ætlar svo að segja frá moskítóflugunni sem er skæðasta kvikyndi sem herjar á mannkynið og veldur meiri skaða, sjúkdómum og dauðsföllum en nokkur önnur dýraregund á jörðu. Ennfremur verður sagt frá vaxandi heimilisofbeldi sem var mótmælt nýlega með ýmsum hætti í 250 borgum Spánar en 19 konur hafa verið myrtar inn á heimilum það sem af er þessu ári.

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
02 - Um kristni og íslam

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Sep 6, 2019 79:40

Í þessum þætti er farið yfir sögu kirkjunnar og stöðu hennar í dag, siðaskiptin á Íslandi og í Noregi og samband ríkis og kirkju á síðari öldum. Ennfremur er rætt um klassíska bók Henri Pirenne, Mohammed and Charlemagne, og ýmsar kenningar um uppruna íslams. Tekið upp 28.11.2018

Morgunvaktin
Ferðamönnum fækkar á fyrsta ársþriðjungi ársins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 10, 2019 130:00

Morgunvaktin hóf leik í Feneyjum. Þar er Bergsteinn Sigurðsson, umsjónarmaður Menningar á RÚV. Hann er að fylgjast með Feneyjatvíæringnum, en sýning Hrafnhildar Arnardóttur, sem er fulltrúi Íslands í ár, hófst í gær. Bergsteinn segir að sýning Hrafnhildar hafi nú þegar vakið talsverða athygli. Frumvarp um þungunarrof og 3. orkupakkinn eru nú eins og á síðustu vikum, fyrirferðamestu málin á Alþingi, en nú eru tæpar 4 vikur þar til þingið fer í sumarfrí. Engir þingfundir hafa verið haldnir síðari hluta vikunnar, það hafa verið nefndadagar og viðbúið að eftir helgi komi mörg mál aftur til þings eftir að hafa verið til meðferðar og afgreiðslu í nefndum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður fór yfir störf þingsins. Það komu færri ferðamenn til landsins fyrstu fjóra mánuði ársins en í fyrra. Fjöldinn var þó mun meiri en 2016 og tvöfalt meiri en 2015. Og ef við viljum leika okkur að tölum: Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2019 komu til landsins fleiri ferðamenn en samanlagt á sama tíma árin 2003 til 2009. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri turisti.is fór yfir þessa tölfræði á Morgunvaktinni. Hann ræddi einnig boðuð umsvif malasíska milljarðamæringsins Vincents Tans á íslenska hótelamarkaðnum. Ennfremur varaði hann fólk við svindlurum sem bjóða íbúðir til leigu sem Airbnb-íbúðir en biður fólk um að leggja milliliðalaust á sína reikninga. Þetta eru undantekningalaust svindlarar, segir Kristján. Loks komu tvær hressar konur í kaffi á Morgunvaktina; Sólveig Unnur Ragnarsdóttir og Valentína Björnsdóttir úr kvennakórnum Vocalist. Kórinn stendur fyrir Eurovision Sing-A-Long partýi í kvöld í safnaðarheimili Laugarneskirkju þar sem konur á öllum aldri eru velkomnar. Þær sögðu okkur frá kórnum, söngskólanum Vocalist og því hvernig hægt er að kenna nánast öllum að syngja.

Víðsjá
List er okkar eina von!, Guðmundur Ingólfsson, Silungsveiði í Ameríku,

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 20, 2019 55:00

Í Víðsjá i dag verður rætt við Arndísi S. Árnadóttur um verk Sveins Kjarvals sem með sönnu telst frumkvöðull í húsgagna- og innanhússhönnun á Íslandi, en Arndís flytur fyrirlestur um verk Sveins í kvöld í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg, í boði Hönnunarsafns Íslands.   Karl Ómarsson segir frá uppáhalds listaverkinu sínu, Silungsveiði í Ameríku eftir Richard Brautigan, og myndlistarkonan Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir verður tekin tali um sýninguna List er okkar eina von sem nú er uppi í sýningarrýminu Midpunkt í Kópavogi.   Ennfremur verður ljósmyndarinn Guðmundur Ingólfsson tekin tali en hann blandar saman nýjum ljósmyndum og eldri klassík úr eigin ranni á ljósmyndasýningu í Safnaðarheimili Neskirkju.

Víðsjá
Gyrðir, Páll Haukur, Dátinn og maður á opnun.

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 19, 2018 55:00

Í Víðsjá í dag verður Gyrðir Elíasson rithöfundur heimsóttur og rætt við hann um tengslin milli einangrunar og listsköpunar í tilefni af útkomu nýrrar skáldsögu sem heitir Sorgarmarsinn og Gyrðir sendi frá sér á dögunum. Víðsjá kíkir líka á sýninguna Dauði hlutarins í Marshallhúsinu þar sem Páll Haukur Björnsson veltir fyrir sér fyrirframgefnum hugmyndum okkar um merkingu hluta. Kjartan Óskarsson klarinettuleikari verður tekinn tali um tónverkið Sagan af dátanum (L' Historie du soldat) eftir Igor Stravinsky en verkið verður flutt á fyrstu tónleikum nýs starfsárs hjá Kammersveit Reykjavíkur á sunnudag, en nú eru 100 ár liðin frá frumflutningi verksins. Ennfremur flytur Ragnar Ísleifur Bragason pistil í Víðsjá dagsins sem að fjallar að þessu sinni um mann á opnun. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Víðsjá
Jakobína, Sigurður Árni, Norræna húsið og Skálmöld.

Víðsjá

Play Episode Listen Later Aug 23, 2018 55:00

Í Víðsjá í dag segir Sigríður K. Þorgrímsdóttir frá Jakobínuvöku 2018 sem haldin verður í Iðnó á laugardag og helguð er rithöfundinum Jakobínu Sigurðardóttur, en nú er þess minnst að hundrað ár eru liðin frá því að hún fæddist vestur á Hornströndum. Rætt verður við Guju Dögg Hauksdóttur arkitekt um Alvar Aalto og Norræna húsið sem heldur upp á fimmtíu ára afmæli sitt um þessar mundir og Gunnar Ben meðlimur í rokkhljómsveitinni Skálmöld kemur með fyrsta lagið af nýrri plötu sveitarinnar í heimsókn, en Skálmöld er sérstök vinahljómsveit Víðsjár. Ennfremur verður rætt við Sigurð Árna Sigurðsson myndlistarmann um sýninguna Hreyfðir fletir sem er ein þeirra sýninga sem opnuð verður á laugardag í nýju og endurbættu Listasafni á Akureyri. Umsjón: Guðni Tómasson.