Viðtöl um ýmis málefni um heilbrigðismál, heilsu, vísindi og nýjungar á Landspítala
“Ljósmæður líta um öxl” er syrpa sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta eftir starfslok.Gestur þáttarins er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar brennandi áhuga á faginu en Anna hefur alltaf tekið nýjungum í starfi fagnandi, enda heyrum við sögur af bókaútgáfu og ráðgjafa-símalínu (sem stundum var misskilin um helgar) Það má með sanni segja að Anna, sem er iðulega kölluð Anna Ljósa, sé ljósmóðir fram í fingurgóma og þykir ekkert sjálfsagðara en að hafa aðstöðu til mæðraverndar á eigin heimili eða að stökkva yfir til nágrannakonu til þess að taka á móti barni í sparikjól milli rétta Anna hefur staðið vaktina á Landspítala frá 1994 ásamt því að sinna fjölskyldum á þeirra heimili (oftar en ekki í Hafnarfirði) og geta samstarfskonur sem og skjólstæðingar staðfest að það er aldrei lognmolla þegar Anna Ljósa er á vakt.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer vel yfir fæðingarsöguna þar sem tvíburi A var í sitjandi stöðu. Við heyrum skemmtilegar sögur að hætti Evu af hennar reynslu og bjargráðum til þess að komast í gegnum daginn með litla tvíbura. Rifinn árshátíðarkjóll, áhrifamikið trúnó í Vesturbæjarlaug, samningaviðræður við iðnaðarmenn í miðri gangsetningu, handsterk afreksíþróttakona og bananakippur á rúmgaflinum. Komiði með!
Í þessum þætti fræða lungnalæknarnir Sif Hansdóttir og Gunnar Guðmundsson hlustendur um lungnaháþrýsting. Þau Sif og Gunnar leiða okkur í sannleikann um mismunandi orsakir lungnaháþrýstings og lífeðlisfræðina þar að baki. Hvernig er best að greina sjúkdóminn og hvaða meðferð er í boði? Allt þetta og margt fleira í þætti dagsins.Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Í þessum þætti munu Hrönn Harðardóttir lungnalæknir og Örvar Gunnarsson krabbameinslæknir fræða okkur um lungnakrabbamein. Lungnakrabbamein er með algengustu krabbameinum á Íslandi og það krabbamein sem veldur flestum dauðsföllum. Hrönn og Örvar fara yfir mismunandi gerðir lungnakrabbameins, helstu áhættuþætti, greiningaraðferðir, meðferðarmöguleika og þær hröðu framfarir sem hafa orðið á síðustu árum. Leggið við hlustir!Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Það er komið að öðrum þætti af klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Í þessum þætti mun Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir, en nú sérfræðingur, kynna tilfelli sem við reynum að leysa í rauntíma. Leggið við hlustir!Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Í þessum þætti er ofvirkum skjaldkirtli (e. hyperhyrosis) gerð einkar góð skil. Hvenær á að gruna sjúkdóminn? Hvað er að finna við skoðun og hvernig er uppvinnslu háttað? Þá er farið bæði yfir fyrstu meðferð sem og langtímameðferð sjúkdómsins.Arna Guðmundsdóttir innkirtlalæknir og Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir en nú sérfræðingur í almennum lyflækningum, leiða hlustendur leikandi í gegnum þetta viðfangsefni. Þetta er þáttur sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara! Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Hvað er lungnatrefjun og af hverju verður hún? Í þessum þætti svarar Gunnar Guðmundsson sérfræðilæknir í lungnalækningum þessum spurningum leikandi ásamt fjölmörgum öðrum. Ef millivefslungnasjúkdómar hafa vafist fyrir þér hingað til ættir þú klárlega að leggja við hlustir. Umsjón þáttar: Teitur Ari Theodórsson og Sólveig Bjarnadóttir.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir, baráttukona og kvenskörungur með meiru. Áslaug segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. Áslaug hefur sinnt ljósmæðrastörfum erlendis og í flestum landshornum hérlendis, þar með talið á Landspítala þar sem Áslaug tók til dæmis þátt í uppbyggingu og starfsemi glasafrjóvgunardeildar. Segja má að Áslaug sé mikill brautryðjandi á sviði ljósmóðurfræða á Íslandi og tók hún stóran þátt í að innleiða og festa í sessi vatnsfæðingar sem og heimafæðingar hér á landi. Komið með inn í skemmtilegar sögur allt frá símhringingu í útvarpsþátt yfir í fundi við Landlækna, þar sem réttlætiskennd og baráttuandi fyrir kvennamálum skín í gegn.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda báðar sveitastúlkur að vestan. Þær segja frá námsárum þar sem þær rétt náðu í skottið á heimavistinni með tilheyrandi sjarma, útivistarreglum og stífuðum köppum. Magga og Gunna hafa í gegnum tíðina upplifað allskyns strauma og stefnur í fræðum og starfsháttum og lýsa á skemmtilegan hátt þeim tækniframförum og breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi fæðingarþjónustunnar. Komið með inní fjölmargar skemmtilegar sögur af ævintýrum þessara einstöku vinkvenna innan vinnu sem utan, en þeir heimar hafa aldeilis skarast þegar þær tóku á mótu börnum hvor annarrar og aðstoðuðu við fæðingu barnabarnanna.
Legvörpur hefja árið á nýrri syrpu í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem talað verður við reynslubolta landsins Fyrst á svið er brosmilda hestakonan og Suðurnesjadrottningin Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dagsins. Ljósmæðraáhuginn, námsárin, samblandan við einkalífið, uppáhalds ljósubarnið, sorgir og sigrar. Það er áhugavert að heyra frá breytingum og þróun á starfsháttum og menningu í kringum fæðingar á þessum tíma, og ekki síður magnað að heyra frá því sem ekki breytist í aldanna rás þegar ljósmæðralistin er annars vegar.
Sem upphitun fyrir Læknadaga 2024 sem fara fram dagana 15. - 19. janúar, deilum við með ykkur upptöku af tilfellaráðgátu sem fram fór á Læknadögum í fyrra. Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, kynnir tilfellið í bútum og pallborð sérfræðinga greinir tilfellið. Pallborðið skipa þau; Hildur Jónsdóttir, sérfræðingur í almennum lyflækningum, Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir í almennum lyflækningum (nú sérfræðingur!), Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og Stella Rún Guðmundsdóttir, sérnámslæknir í almennum lyflækningum.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óvart? Hvenær var ljósmæðraþekkingin gagnleg.. eða þvældist hún einhverntíman fyrir? Komið með í þetta magnaða ferðalag, allt frá tilfinningarússíbananum sem fylgir óráðgerðri þungun yfir í kraftmikla heimafæðingu með nágrannana á vorhreingerningardegi fyrir utan gluggann.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” eða sitjandi fæðingum í uppréttri stöðu, útkomur, upplifun, fræðslu til foreldra og kennslu starfsfólks. Spjallið fer á flug um sögu, menningu, tölfræði og tilfinningar þegar sitjandi fæðingar eru annars vegar, sem einkennist af bæði trú og auðmýkt.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með Amish fólki í Lancaster sýslu í Pennsylvania fylki Bandaríkjanna. Kristbjörg dregur upp mynd af lífi Amish fólksins sem einkennist af einfaldleika, sjálfbærni og nægjusemi, allt frá klæðarburði til farartækja. Einnig talar hún um viðhorfi kvennanna til barneigna og menninguna í kringum fæðingar, þar sem hin mikla trú á kvenlíkamanum og móður náttúru ræður ríkjum.
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína sem eru þær Steinunn Ingvarsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir. Steinunn Ingvarsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2009. Árin eftir útskrift starfaði Steinunn m.a. á bráðamóttöku, hjartagátt og á krabbameinslækningadeild Landspítala. Steinunn fékk í starfi sínu sem aðstoðardeildarstjóri á Krabbameinslækningadeild mikinn áhuga á gæða- og umbótastarfi og það leidda hana í meistaranám í verkefnastjórnum (MPM) við Háskólann í Reykjavík. Steinunn starfaði sem verkefnastjóri á Landspítala næstu árin eftir útskrift úr meistaranáminu og kom að fjölbreyttum verkefnum. Hún hóf svo störf í geðþjónustu Landspítala s.l. haust (2022) sem hjúkrunarfræðingur í Geðhvarfateymi. Steinunn er einnig menntaður Jóga Nidra kennari. Hrönn er hjúkrunarfræðingur, útskrifaðist frá hjúkrunardeild HÍ árið 2003 en með námi vann hún á bæklunarskurðdeild . Vann á Hrafnistu og bráðamóttöku barna þegar nýji barnaspítalinn opnaði árið 2003. Flutti til Bandaríkjanna og fór að vinna á slysa- og bráðadeild í Kaliforníu eftir að hafa tekið bandaríska hjúkrunarprófið. Í Metropolitan University í Minnesota fór Hrönn í diplomanám í sára- og stómahjúkrun. Flutti heim aftur 2011 og vann á bráðamóttöku, neyðarmottökuhjúkrunarfræðingur frá 2013 og verkefnastjóri neyðarmóttökunnar árið 2016. Frá 2022 hefur Hrönn unnið á göngudeild geðsviðs. Helga Sif lauk BSc. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999. Hún lauk meistaranámi í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004, hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007 og lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hlaut riddarakross árið 2021 fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma og hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu.
Engilbert Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í geðlækningum, fer yfir þunglyndi í víðum skilningi. Hvað er þunglyndi, hvaða boðefni í heilanum koma við sögu og hverjir eru megin þættir í meðferð. Við ræðum helstu flokka þunglyndislyfja sem eru notuð í dag og einnig nýjungar á borð við segulörvun og psilocybin.Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári og geðlækningum á 5. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt gestaspyrill í þættinum.
Eric Contant, sérfræðingur í bráðalækningum, ræðir við okkur um bráða öndunarbilun (e. Respiratory failure). Hvernig er bráðveikur sjúklingur metinn? Hvaða súrefnisgjafaleiðir standa til boða og hvenær skal grípa til ytri öndunarvélar (e. Bipap, cpap)? Þá ræðir Eric við okkur um grunnstillingar ytri öndunarvéla og hvernig hægt sé að breyta þeim svari sjúklingur vélinni illa. "Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína um sögu og þróun geðhjúkrunar ásamt geðhjúkrun á Landspítala. Gestir þáttarins eru þær dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir og Manda Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri. Eydís er dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Hún var lektor við deildina 1991-1994 og klínískur lektor 2011-2016. Hún er gestadósent við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri þar sem hún var sviðsforseti og dósent 2016-2021. Eydís var stjórnandi í hjúkrun á Landspítala í næstum tuttugu ár þ.e. á árunum 1997-2016. Þegar Ísland var með formennsku í Norðurskautsráðinu 2019-2021 var Eydís formaður sérfræðingahóps um heilbrigðismál á Norðurslóðum. Nýjustu birtingar Eydísar eru tveir ritrýndir bókarkafla í kennslubók um geðhjúkrun fyrir nemendur í meistaranámi í geðhjúkrun sem var að koma út á haustmisserinu 2022.Margrét Manda Jónsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur og starfaði eftir útskrift á legudeild BUGL og svo í geðþjónustunni. Þar starfaði hún fyrstu árin sem aðstoðardeildarstjóri á sérhæfðri endurhæfingargeðdeild og fékk mikinn áhuga á stjórnun. Manda kláraði MBA nám í HR 2016 og hefur starfað síðan þá sem deildarstjóri. Í dag er Manda í miðju breytingarstjórnunarferli þar sem hún stýrir nýrri deild sem kallast meðferðargeðdeild geðrofssjúkdóma – deild sem sérhæfir sig í greiningu, meðferð og endurhæfingu sjúklinga með geðrofseinkenni. Deildin var stofnuð í janúar 2022 og er því öll umbóta og þróunarvinna í fullum gangi.Helga Sif lauk BSc. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999. Hún lauk meistaranámi í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004, hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007 og lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hlaut riddarakross árið 2021 fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma og hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.
Gunnar Guðmundsson sérfræðingur í lungnalækningum ræðir innúðalyf við astma og langvinnri lungnateppu. Grípið andann á lofti því mörgu er svarað - Hvaða eru berkjuvíkkandi lyf? Hvernig gagnast innúðasterar? Hvernig á að innleiða meðferð og hver er tröppugangurinn þegar kemur að því að auka meðferð?Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt gestaspyrill í þættinum.
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er 4. og síðasti þátturinn í sérstakri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins.Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 3 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn.Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins.Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 2 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn.Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins.Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti ræða þær við Edythe Mangindin ljósmóður um upplifun erlendra kvenna sem fæða börn hér á landi. Edythe er fædd og uppalin í San Francisco í Kaliforníu en foreldrar hennar komu upphaflega frá Filippseyjum. Hún flutti til Íslands árið 2009. Hún fékk áhuga á að læra ljósmóðurfræðina í kjölfar þess þegar hún gekk sjálf í gegnum fæðingu fyrsta barns hennar. Hún byrjaði í hjúkrunarfræðinámi á íslensku strax á öðru ári sínu á landinu og lærði um leið íslenskuna. Eftir að hafa lokið hjúkrunarfræðinámi bætti hún við tveim árum til að verða ljósmóðir. Undanfarin fjögur ár hefur hún unnið á deildum sem sinna konum fyrir og eftir fæðingu. Hún er meðal annars alþjóðlegur IBCLC brjóstagjafaráðgjafi og er núna í doktornámi þar sem viðfangsefnið er upplifun erlendra mæðra af mæðravernd og fæðingum á Íslandi. Edythe fjallar um niðurstöður rannsókna og fer meðal annars yfir fæðingar-útkomu og upplifun kvenna af fæðingum og barneignarferlinu. Hverjar eru helstu hindranir tengdar aðstæðum og kerfinu og hvernig tryggjum við jafna, örugga og einstaklingsmiðaða þjónustu? Túlkaþjónusta, réttindamál, félagsleg tengsl, menningarhæfni og margt fleira með Edythe. The midwives Stefanía Ósk and Sunna María are back and for the first time in English, a language they aren't that great in but thankfully Edythe M. Mangindin, did most of the talking. In this episode, Edythe, a woman of many titles but first and foremost a Filipino-American-Icelandic wife, mother, nurse and midwife, talks about the outcomes and experience offoreign women who receive maternity care in Iceland. How do we ensure respectful, safe and equal care for women of foreign origin? This and other important questions will be discussed in today's episode.
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er sá fyrsti í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins.Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum fer yfir æðavirk lyf. Hvað eru æðavirk lyf, hvernig virka þau og hvernig beitum við þeim? Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári og svæfinga- og gjörgæslulækningum á 6. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt gestaspyrill í þættinum.
Nína Eck er Jafningi á Geðsviði. Hún hóf störf á Laugarásnum í desember 2021 en hefur unnið á Kleppi og Hringbraut í sumar. Nína hefur reynslu af geðrænum áskorunum og mörgu sem þeim fylgdi en var útskrifuð úr DAM-teyminu árið 2020. Nú er hún í starfsréttindanámi í félagsráðgjöf og vinnur hart að því að þróa jafningjastarfið og kynna það fyrir öllum sem vilja hlusta.
Arndís Vilhjálmsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur og lauk B.Sc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 2009 og meistaragráðu frá Háskólanum á Akureyri 2020. Arndís starfaði lengi á geðþjónustu Landspítala, fyrst á fíknigeðdeild og síðan í samfélagsteymi. Núna starfar Arndís í geðheilsuteymi fangelsa og situr í stjórn Fagdeilda geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún hefur fyrst og fremst unnið við geðhjúkrun frá útskrift og þá aðallega með einstaklingum sem glíma við vímuefnavanda og/eða annan geðvanda. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við hana um málefni á sviði geðhjúkrunar.
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Að þessu sinni er gestur þáttarins Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunarlækningum og formaður Læknafélags Íslands. Steinunn ræðir heilabilun með áherslu á Alzheimer sjúkdóm. Hvermig metum við vitræna getu og hvernig greinum við heilabilun? Hver er meingerð Alzheimer sjúkdóms? Hvaða meðferðarmöguleikar eru í boði og hvað ber framtíðin í skauti sér?
Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirdóttir ræða við Huldu Þórey Garðarsdóttur um ljósmæðrastörf hennar í Hong Kong en þar búa yfir 7 milljónir á svæði sem er á stærð við höfuðborgarsvæðið.
„Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum áttunda þætti fá gestaspyrlar þær Sandra Sif Gunnarsdóttir, starfandi deildarstjóri á Laugarás og Rannveig Þöll Þórsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun til sín Margréti Eiríksdóttur sérfræðing í geðhjúkrun. Margrét hefur yfir fjörutíu ára starfsreynslu við geðhjúkrun. Margrét hefur upplifað miklar breytingar á þjónustu og meðferð geðsjúkra á löngum starfsferli. Þegar litið er til hjúkrunar fólks sem tekst á við alvarlega geðsjúkdóma ber þar hæst aukna þekkingu á mikilvægi þess að uppfylla þjónustuþarfir og veita þjónustu og stuðning samkvæmt þörfum í nærumhverfi sjúklinga og fjölskyldna þeirra.Rætt er við Margréti um bakgrunn hennar, áherslur, ástríðu og reynslu í geðhjúkrun.
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning).Þetta er annar þátturinn í undirsyrpu Dagáls læknanemans um klíníska rökleiðslu. Hildur kynnir í nokkrum bútum tilfelli sem hún kynntist í sínu sérnámi í Bandaríkjunum og eftir hvern bút eru umræður. Sólveig, Teitur og Berglind eru blinduð á tilfellið og hjálpast að við að leysa það í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins.Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
"Geðvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Að þessu sinni er Guðfinna Betty Hilmarsdóttir þáttarstjórnandi með Helgu Sif. Viðmælendur þeirra eru þær Rósa Björg Ómarsdóttir í transteymi BUGL, Magnea Herborg Magnúsardóttir á Laugarási meðferðargeðdeild og Ólöf Jóna Ævarsdóttir á móttökugeðdeild fíknimeðferðar. Umræðuefnið er geðhjúkrun í sinni víðustu mynd með starfsferil og reynslu þessara þriggja hjúkrunarfræðinga í brennidepli. Geðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Rósa Björg Ómarsdóttir útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2008. Starfaði fyrstu árin á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. Fór þaðan í heimahjúkrun og var oft í tímavinnu, til dæmis við öldrunarhjúkrun. Vann einnig á bráðamóttöku og á krabbameinsdeild í Danmörku. Hefur lengi haft sterkar taugar til geðhjúkrunar síðan hún hóf störf á BUGL sem ráðgjafi á legudeild árið 2002 og alltaf langað að vinna þar aftur. Haustið 2020 hóf hún diplómanám í fjölskyldumeðferð og útskrifast þar vorið 2022. Stefni svo á að klára diplómanám í kynfræði eftir það. Hóf aftur störf á göngudeild BUGL í desember 2020 sem hjúkrunarfræðingur og er í dag teymisstjóri yfir transteymi BUGL. Magnea Herborg Magnúsardóttir útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2020. Hóf störf á Laugarási meðferðargeðdeild sumarið 2020 og starfar þar sem hjúkrunarfræðingur og málastjóri. Heillaðist af starfseminni þegar hún var þar í verknámi á þriðja ári. Ólöf Jóna Ævarsdóttir útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2019. Hóf störf á móttökugeðdeild fíknimeðferðar í mars 2018 sem hjúkrunarnemi og hefur unnið þar síðan. Aðstoðardeildarstjóri á afeitrunardeild ólögráða ungmenna í afleysingu frá 2021-2022. Frá mars 2020 verið hjúkrunarfræðingur og þátttakandi í þróun þjónustu fyrir jaðarsetta einstaklinga sem dvelja í farsóttarhúsi. Sinnt kennslu á miðlægu starfsþróunarári spítalans, meðal annars um fráhvarfsmeðferð. Guðfinna Betty Hilmarsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri á bráðageðdeild 32C. Útskrifaðist úr hjúkrunarfræði við HÍ 2012 og kláraði diplóma í kynfræði 2014. Útskrifaðist sem leiðbeinandi í viðbrögðum og varnarleiðum við ofbeldi árið 2013, og tók þátt í kennslu og uppbyggingu á varnarteymi frá 2013-2019. Starfaði á fíknigeðdeild frá 2012-2017 og síðan á bráðageðdeild frá 2017 til dagsins í dag. Hefur starfað sem aðstoðardeildarstjóri frá árinu 2016, fyrst á fíknigeðdeild og svo á bráðageðdeild. Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur hjá geðþjónustu Landspítala. Hún lauk BSc.-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999 og meistaragráðu í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004 og hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007. Helga lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hefur tekið virkan þátt í fræðslu og þjálfun starfsfólks vítt og breytt á Landspítala. Hún hefur verið lektor við hjúkunarfræðideild Háskóla Íslands, stundakennari við læknadeild HÍ og einnig kennt á á heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri.
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti leiða þær Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum hlustendur gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Berglind kynnir tilfelli í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Sólveig, Teitur og Hildur eru blinduð á tilfellið og hjálpast að við að leysa það í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu. Áhersla er lögð á að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins. Þátturinn er sá fyrsti í syrpu af klínískri rökleiðslu og byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar. Fengið var leyfi sjúklings fyrir því að nota tilfellið við gerð þáttarins.Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-24
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er Kristín Rut Haraldsdóttir, sérfræðiljósmóðir á fósturgreiningardeild Landspítala. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningarþjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðferðislegar vangaveltur í tengslum við fósturskimanir og framtíðardrauma. Það er erfitt að hrífast ekki með ástríðu þessarar ótrúlegu hugsjónarkonu. Hverjar eru þessar konur sem sitja dagana langa á kollum í myrkvuðum sónarherbergjum og rýna á skjáinn? Komiði með!Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-07
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum ræða þeir Ragnar Freyr Ingvarsson gigtarlæknir og Ólafur Orri Sturluson sérnámslæknir í almennum lyflækningum um þvagsýrugigt. Af hverju fáum við þvagsýrugigt? Hvernig er hún greind? Hvaða meðferðarmöguleikar eru í boði? Ennfremur er rætt um þvagsýrugigt í sögulegu samhengi, gildi smásjáskoðunar og hvernig hægt er að beita ómun við mismunagreiningu bólgins liðar. Að lokum uppljóstra viðmælendur þáttarins hver jólagjöfin í ár er (var)!Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-23
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Viðmælandi Helgu Sifjar að þessu sinni er Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun og hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðs Reykjalundar.Að loknu stúdentsprófi fór Rósa María í Hjúkrunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan í janúar 1982. Það árið starfaði hún á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut, en færði sig svo á deild 32C sem þá var bráða- og móttökugeðdeild. Samhliða tók hún vaktir á hinum ýmsu deildum sem tilheyrðu geðsviði Landspítala og kynntist því vel starfseminni á þeim árum. Haustið 1990 hóf Rósa María síðan störf á Reykjalundi þar sem hún hefur starfað að mestu óslitið síðan. Fyrstu árin vann Rósa María á blandaðri deild, en lengst af frá þeim tíma á geðheilsusviði Reykjalundar. Undanfarin tólf ár hefur hún verið hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðsins.Samhliða vinnu sinni hjá Reykjalundi lauk Rósa María BS-prófi við Háskóla Íslands árið 2001 og meistaraprófi í geðhjúkrun árið 2007. Gegnum tíðina hefur hún lært og tileinkað sér ýmis sálræn meðferðarform og má þar nefna hugræna atferlismeðferð (HAM) og klíníka dáleiðslu. Rósa María hefur skrifað greinar, leiðbeint og meðal annars verið með fræðslu um endurhæfingarhjúkrun, HAM og meðferðarform sem stuðla að von. Einnig hefur hún setið í ýmsum nefndum og ráðum.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans. SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-06
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir, betur þekkt sem Ósk. Ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur hlustendur með inn í draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar sem ljósmæðralistin fær að leika lausum hala. Viltu vita hver ávinningur vatnsbaða er á ólíkum stigum fæðinga, hvernig þetta allt saman virkar og hvers vegna í ósköpunum sumar konur kjósa að fæða börnin sín ofan í baðkörum? Þá ertu á réttum stað!Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-06
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um hjartaþelsbólgu eða endocarditis og viðmælandinn er Bryndís Sigurðardóttir, sérfræðingur í smitsjúkdómalækningum. Þarf alltaf að vélindaóma? Hversu oft á að blóðrækta? Þessum spurningum ásamt fleirum er svarað í þætti dagsins. Enn fremur deilir Bryndís fjölmörgum klínískum perlum sem hlustendur mega ekki fyrir nokkra muni missa af!Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-22
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um nýjungar í krabbameinslyfjameðferð og viðmælandinn er Sigurdís Haraldsdóttir, dósent og sérfræðingur í krabbameinslækningum. Hver er munurinn á marksæknum lyfjum og frumudrepandi lyfjum? Hvernig er ónæmiskerfinu beitt í nútíma krabbameinslyfjameðferð? Framtíð krabbameinslækninga er rædd og svo segir Sigurdís læknanemum af hverju þeir eiga að velja krabbameinslækningar!Þessi þáttur er síðasti þátturinn í þríleik sem unninn er í samstarfi við Læknadeild. Þættirnir þrír eru meðal annars ætlaðir til kennslu í lyfjafræði á 3. ári við Háskóla Íslands. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt viðmælandi í þáttunum þremur. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-21
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um blóðþynningu og viðmælendur eru Davíð O. Arnar sérfræðingur í hjartalyflækningum og Páll Torfi Önundarson sérfræðingur í blóðlækningum. Ræddir eru kostir og gallar blóðþynningar með nýju lyfjunum (DOAC) í samanburði við warfarín bæði með tilliti til virkni og aukaverkana. Þá deila viðmælendur þáttarins sinni framtíðarsýn og hvort nýju lyfin munu algerlega taka yfir eða hvort að warfarín muni áfram gegna mikilvægu hlutverki í blóðþynningarmeðferð sjúklinga.Þessi þáttur er annar í röðinni af þremur sem unnir eru í samstarfi við læknadeild. Munu þeir nýtast í kennslu í lyfjafræði á 3. ári við Háskóla Íslands. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum, heldur utan um verkefnið og er jafnframt viðmælandi í þáttunum þremur.Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-20
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum fimmta þætti fær Helga Sif til sín geðhjúkrunarfræðinginn Guðbjörgu Sveinsdóttur, sem hefur fjögurra áratuga reynslu af faginu með sérstaka áherslu á samfélagstengda geðhjúkrun af ýmsu tagi. Helga Sif ræðir við Guðbjörgu um bakgrunn hennar og víðtæku reynslu af störfum, hér heima og víða erlendis.Guðbjörg Sveinsdóttir hefur starfað við geðhjúkrun í liðlega 40 ár, en hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1978 og hóf störf í geðhjúkrun ári síðar. Sérhæfinguna kláraði Guðbjörg svo með formlegum hætti úti í Noregi fyrir 30 árum. Hún á að baki afskaplega fjölbreyttan og gifturíkan feril í faginu. Byrjaði reyndar í skurðhjúkrun á Borgarspítala, en skipti fljótlega um takt og starfaði meðal annars hjá flestum forverum Landspítala og spítalanum eftir stofnun hans um aldamótin. Einnig hefur hún tekið drjúga spretti í faginu í Noregi, hjá Heilsugæslunni, Rauða krossinum og víðar. Í dag starfar hún að verkefni fyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við framþróun geðhjúkrunar á sviði heimahjúkrunar.Víðfeðm sérþekking Guðbjargar á geðhjúkrun hefur leitt hana víða, en hún hefur meðal annars verið ráðgjafi í geðhjúkrun í Banglades, Hvíta-Rússlandi, Rúmeníu, Palestínu, Indónesíu, Íran, Írak, Kósovó og Makedóníu. Jafnframt hefur Guðbjörg verið þátttakandi og fyrirlesari á alþjóðlegum fundum, námskeiðum og ráðstefnum svo áratugum skiptir. Hún hefur frá upphafi ferilsins verið virkur þátttakandi í fræðslu, menntun og þjálfun á sviði geðhjúkrunar, hér heima sem erlendis.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans. SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-05
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fimmta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala er komið að mjög áhugaverðu spjalli við hina léttu, ljúfu og kátu ljósmóður Önnu Rut Sverrisdóttur. Hún deilir reynslu sinni af ljósmæðrastörfum í Bethlehem og segir ótrúlegar sögur af aðbúnaði palestínskra ljósmæðra og fæðandi kvenna. Anna Rut dregur upp magnaða mynd af ljósmæðralífinu, allt frá ferð sinni til vinnu frá Jerúsalem í gegnum varðstöðvar Ísraelshers, að frumlegum aðferðum við að laga rótsterkt arabískt kaffið sem var ómissandi á kaffistofu ljósmæðranna. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er einn af nokkrum, sem Legvarpið vinnur í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.Krosssaumuð píka: Birta Rún SævarsdóttirSIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-05
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um lyfjameðferð við sykursýki 2. Mörgum lyfjum er hægt að beita og sífellt bætast fleiri lyf við. Arna Guðmundsdóttir, sérfræðingur í innkirtlalækningum, segir frá hvernig lyfin verka og hvernig hægt er að velja rétta lyfið fyrir hvern og einn sjúkling. Þessi þáttur er sá fyrsti af þremur sem unnir eru í samstarfi við læknadeild. Munu þeir nýtast í kennslu í lyfjafræði á 3. ári við Háskóla Íslands. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum, heldur utan um verkefnið og er jafnframt viðmælandi í þáttunum þremur. Hér má finna meðferðarskemað sem vísað er í í þættinum:https://drive.google.com/file/d/1w82td61yO6GvW-dnqn_on0CxAow8IaPR/view?usp=sharing Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-19
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Magnús Karl Magnússon prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum fjallar í þessum þætti um klínískar lyfjaprófanir. Í þættinum er ferill COVID bóluefna rakin frá tilraunastofunni að upphandleggjum landsmanna. Hvenær telst efni nógu öruggt til þess að hefja klínískar lyfjatilraunir í mönnum? Eru niðurstöður klínískra lyfjatilrauna yfirfæranlegar á viðkvæma hópa sem ekki tóku þátt í rannsókninni? Eru hægt að bera saman árangur bóluefna á milli rannsókna? Að lokum reiðir Magnús Karl fram glænýja tilgátu um tilurð blóðtappa af völdum adenóferjubóluefna, svo sem Janssen og Astra Zeneca. Allt þetta og meira til í þætti dagsins.Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-18
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum fjórða þætti fær Helga Sif til sín Vilborgu G., en hún er geðhjúkrunarfræðingur, fjölskyldufræðingur og handleiðari. Helga Sif og Vilborg ræða bakgrunn hennar og víðtæka reynslu og velta vöngum yfir því hvað gerir okkur að góðum meðferðaraðila, innihaldi og áhrifum meðferðarsambandsins sem og nauðsyn ígrundunar á eigin sjálfi til að geta veitt öðrum meðferð að réttum gæðum. Vilborg útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur 1972 og vann á bæklunarskurðdeild Landspítala til 1984. Síðan lá leiðin í skólahjúkrun á vegum heilsugæslunnar og þar kviknaði óbilandi áhugi hennar á að vinna með börnum og ungmennum og fjölskyldum þeirra. Vilborg fór því í uppeldis og kennslufærði við KHÍ og útskrifaðist þaðan 1991. Samhliða vinnu við skólaheilsugæslu tók Vilborg meðal annars þátt í þróun stuðningsúrræðis á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur fyrir unglinga sem stóðu höllum fæti.Árið 1994 var Vilborg ráðin framkvæmdastjóri Kvennaathvarfsins og starfaði þar í 4 ár. Á þeim tíma lauk hún einnig diplómanámi í geðhjúkrun og var leiðandi í því að innleiða í Kvennaathvarfið heildræna nálgun geðhjúkrunar í vinnu með konum og börnum sem voru þolendur heimilisofbeldis. Árið 1999 tók Vilborg við sem deildarstjóri unglingageðdeildarinnnar á Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) . Samhliða þeirri vinnu lauk hún námi í handleiðslu við Endurmenntun Háskóla Íslands. Vilborg var deildarstjóri á BUGL til 2017 og tók virkan þátt í miklum breytingum bæði á starfseminni og þjónustunni. Samhliða deildarstjórastarfinu starfaði hún sem handleiðari í Stuðnings- og ráðgjafateymi Landspítala og kynntist þá nokkuð vel bæði starfsemi annarra deilda sem og spítalans í heild. Vilborg hefur einnig tekið að sér handleiðslu bæði á stofu og í hinum ýmsu fyrirtækjum bæði innan og utan heilbrigðiskerfisins. Árið 2017 hóf hún störf á göngudeild BUGL samhliða því að hafa nýlokið námi í fjölskyldumeðferð. Á göngudeildinni starfaði Vilborg við áfalla- og tengslamiðaða fjölskyldumeðferð bæði samkvæmt hugmyndafræði ABFT (Attachment-Based-Family-Therapy) en þjálfun í því líkani stóð til boða á BUGL á tímabili. Auk þess hefur Vilborg markvisst hlotið þjálfun í öðru nokkuð sambærilegu líkani ARC (Attachment-Recilience and Compitence) sem er ætlað fjölskyldum þegar um er að ræða flókinn áfalla- og tengslavanda. Vilborg lauk störfum á Landspítala vegna aldurs í júní 2020. Hún starfar áfram sem handleiðari á stofu og einnig við að handleiða ýmsa fagaðila innan barnaverndarkerfa í tengslamiðuðum stuðningi við fjölskyldur fósturbarna. Hún kemur einnig að handleiðslu fagteyma í einkarekinni þjónustu við börn/unglinga í flóknum og samsettum vanda. Þá hefur Vilborg í vaxandi mæli verið að handleiða lykilstjórnendur í ýmsum stofnunum/fyrirtækjum sem ekki tengjast heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Síðastliðinn áratug hefur Vilborg samhliða öðrum störfum handleitt ýmsa fjölfaglega hópa og einstaklinga sem vilja markvisst styrkja og efla faglega og persónulega þróun sína sem meðferðaraðilar með sérstakri áherslu á gæði meðferðarsambandsins. Sá áhugi vaknaði hjá Vilborgu fyrir 15 árum eftir kynni við hugmyndafræði Dr. Scott D. Miller þar sem áherslan er á breytur sem stýra gæðum samtalsmeðferða óháð meðferðarlíkönum. Áhuginn varð að “brennandi áhuga” sem hefur fylgt henni síðan.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-04
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Í þessum þætti fer Agnar Bjarnason, smitsjúkdómalæknir á Landspítala, gaumgæfilega yfir lungnabólgu. Hvernig er lungnabólga unnin upp? Hvað er gott hrákasýni? Hver eru næstu skref ef sjúklingur svarar ekki meðferð? Allt þetta og meira til í þessum tilfellamiðaða þætti.Stjórnendur Dagáls læknanemans eru læknanemarnir Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)SIMPLECAST:https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/dagall-17
Valgerður Lísa Sigurðardóttir sérfræðiljósmóðir er gestur Mörtu Jóns Hjördísardóttur í þáttasyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni, en þátturinn var tekinn upp í tilefni af Viku hjúkrunar 10.-12. maí 2021. Valgerður Lísa lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1982, BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1988, embættisprófi í ljósmóðurfræði frá Háskóla Íslands 1998 og MS-prófi í ljósmóðurfræði frá Háskóla Íslands árið 2008. Valgerður hlaut sérfræðileyfi í ljósmóðurfræðum árið 2013 og er starfandi sérfræðiljósmóðir á kvennadeild Landspítala. Sérsvið hennar er meðgönguvernd með áherslu á geðheilsu. Einnig sinnir Valgerður kennslu og er meðal annars aðjúnkt við námsbraut í ljósmóðurfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Hún varði doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði árið 2020 og bar ritgerðin heitið "Neikvæð upplifun fæðingar og ljósmóðurmeðferð".Í tilefni af afmælisdegi upphafskonu nútíma hjúkrunar, Florence Nightingale, hinn 12. maí er haldið upp á alþjóðadag hjúkrunar ár hvert. Vika hjúkrunar á Landspítala 2021 var lituð af samkomutakmörkunum og álagi heimsfaraldurs Covid-19 og var dagskrá hennar því að mestu bundin við stafræna umfjöllun um hjúkrun og viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á spítalanum."Brautryðjendur í hjúkrun" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn Marta Jóns Hjördísardóttir, verkefnastjóri hjá verkefnastofu Landspítala. Marta var áður formaður hjúkrunarráðs Landspítala og er í dag formaður nýstofnaðs þverfaglegs fagráðs Landspítala.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/braut-06
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí til að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Þessi fjórði þáttur Umbótavarpsins fjallar um tvö umbótaverkefni. Guðbjörg Pálsdóttir sérfræðingur í hjúkrun segir frá þrýstingssáraverkefninu HAMUR og Amelia Samuel greinir frá vitundarvakningu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar WHO sem hefur yfirskriftina "Lyf án skaða" eða "Medication Without Harm".Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/umbotavarp-04
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí undir yfirskriftinni "Byggjum brýr". Markmiðið er að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Af þessu tilefni ýttum við úr vör sérstakri þáttasyrpu undir yfirskriftinni "Umbótavarpið".Þessi þriðji þáttur Umbótavarpsins fjallar um tvö umbótaverkefni. María Barbara Árnadóttir sjúkraþjálfari segir frá umbótaverkefni í hjartaendurhæfingu og þær Bryndís Halldórsdóttir sérfræðingur í hjúkrun og Sólrún Björk Rúnarsdóttir lungnalæknir ræða heimaöndunarvélateymi.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/umbotavarp-03
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí undir yfirskriftinni "Byggjum brýr". Markmiðið er að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Af þessu tilefni ýttum við úr vör sérstakri þáttasyrpu undir yfirskriftinni "Umbótavarpið".Þessi annar þáttur Umbótavarpsins fjallar um þrjú umbótaverkefni. Guðrún Dóra Guðmannsdóttir greinir frá námskeiði fyrir ófaglært starfsfólk á öldrunardeildum, Ingibjörg Hjaltadóttir segir frá umfangsmiklu verkefni í fræðslu og menntun til að gera heilbrigðisþjónustuna á landsvísu öldrunarvænni og Konstantín Shcherbak segir frá GLASS BONES-gæðaverkefninu.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/umbotavarp-02
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí undir yfirskriftinni "Byggjum brýr". Markmiðið er að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Af þessu tilefni ýttum við úr vör sérstakri þáttasyrpu undir yfirskriftinni "Umbótavarpið". Þessi fyrsti þáttur Umbótavarpsins fjallar um þrjú umbótaverkefni. Auður Ketilsdóttir greinir frá átaki í fræðslu til sjúklinga og starfsfólks, Berglind Ósk Birgisdóttir fjallar um endurhæfingu á meðferðardeildum og Brynja Ingadóttir segir frá Miðstöð sjúklingafræðslu.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans. SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/umbotavarp-01