Bruggvarpið

Follow Bruggvarpið
Share on
Copy link to clipboard

BruggVarpið er hlaðvarpsþáttur í umsjón Stefáns Pálssonar og Höskuldar Sæmundssonar. Báðir eru þeir áhugamenn um bjór, hafa skrifað bók um bjór, drukkið bjór í meira magni en þeir kjósa að viðurkenna og hafa talað um bjór í áratug að minnsta kosti, hvor um sig.

Bruggvarpið Bruggvarp


    • Dec 31, 2022 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 1h 7m AVG DURATION
    • 59 EPISODES


    Search for episodes from Bruggvarpið with a specific topic:

    Latest episodes from Bruggvarpið

    S5E02 - Áramótaþynkan

    Play Episode Listen Later Dec 31, 2022 81:13


    Strákarnir hrærðu í einn svona aukaþátt, rétt fyrir áramótin. Ýmislegt skeggrætt og skrafað. Hér er smakkaður Bóndalager frá Ægisgarði Frelsislager frá Dokkunni SkyrjarmurSkyrjarmur Ketkrókur Sour jólaglögg - Borg brugghús Röðull rauðöl - RVK Brugg Huginn - RVK Brugg SteðjaKveðja - Collab milli Borgar og Steðja

    S05E01 - Bruggvarpið byrjar á nýjan leik

    Play Episode Listen Later Oct 28, 2022 89:39


    Enn og aftur telja piltarnir í Bruggvarpsþátt. Vissulega er langt um liðið síðan síðast og fögur fyrirheit ávalt brostin, en hér er talið í nýtt tímabil fyrir Bruggvarpið. FArið er yfir víðan völl, enda langt síðan síðast. Lagabreytingar, nýjir bjórar, breytingar á Brugghúsamarkaði og allskonar sem er rætt. Smakkað hér er: Gæðingur Octopus Segull 67 Tindur Október öl Ölverk Hrekkur Festbier Októfer Bock Daniel nr. 97 Pastry Double Bock

    S04E09 - Loksins rumskar Bruggvarpið

    Play Episode Listen Later Mar 15, 2022 55:52


    Eftir logn, lágdeyðu, lægðir, storma, COVID og rauðar viðvaranir rumskar þetta Bruggvarp loksins. Hér er farið svona létt yfir stöðu mála, hvað hefur gerst síðan síðast og þetta smakkað: Skúli nr. 70 Pale Ale frá Borg Brugghúsi Hver? nr. 10 frá Ölverk Brugghúsi Einstök Arctic Lager frá Einstök/Víking Skvetta berjakóla frá Ægisgarði (Óáfengur) Borghildur Lager og Steinbúi Pale Ale frá KHB Brugghúsi

    S04E08 - Fyrsti þáttur ársins

    Play Episode Listen Later Jan 14, 2022 61:05


    Í þessum fyrsta þætti ársins 2022 er farið yfir helstu áramótahluti hjá strákunum. Áramótaskaupið er skoðað, toppar og lægðir ársins á undan, í bjór og rennt er yfir sölutölur í Vínbúðinni örlítið.

    S04E07 - Síðasti jólaþátturinn þetta árið

    Play Episode Listen Later Dec 23, 2021 56:18


    Senn líður að tíðum og núna er síðasti jólaþátturinn kominn í hús. Amk þetta árið. Hér er farið yfir ýmislegt, jólin rædd, nýjar sóttvarnaraðgerðir ræddar, og bara allskonar. Fátt mannlegt óviðkomandi þessum strákum. Hér er smakkað Akasleikir frá Borg Drunken Monkey frá RVK brewing Choc HoHo frá Smiðjunni í Vík Cosmos 2022 frá RVK brewing Gáttaþefur frá Borg Brugghúsi

    S4E06 - Annar í jólum

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2021 69:51


    Hér er dottinn annar þátturinn sem gengur meira og minna útá jólabjór. Strákarnir fara í „djúpa“ greiningu á jólabjóramarkaðinum og kasta fram sleggjudómum eins og þeim einum er lagið. Staðsetningar nýrra Vínbúða og þróun stór-Hlemmsvæðisins rædd. Í þessum þætti var smakkað: Hátíð í bæ frá Múla Litla Brugghúsið jóla hvað? Haltá jólaketti frá Smiðjunni Vík Vetrarævintýri IPA frá OG natura Anchor Merry Christmas

    S04E05 - Fyrsti í jólabjórum og hungangsflugan.

    Play Episode Listen Later Nov 12, 2021 74:05


    Í ár ætla strákarnir nú ekki alveg að missa sig í jólabjórunum eins og síðast en ætla að smakka allskonar sem þeim finnst skemmtilegt. Hér er farið aðeins yfir jólabjóramarkaðinn, Ora Jólabjórinn smakkaður ásamt HóHóHó tunnuþroskuðum stout frá Ægisgarði. Þá er Hampbjór frá Svaneke brugghúsinu í Borgundarhólmi. En strákarnir kíktu líka í heimsókn í Öldur Mjaðargerð og rifja upp viðtalið sem þeir tóku þar. Þar opnaði Sigurjón Friðrik Garðarsson augu BruggVarpsins fyrir leyndardómum mjaðarins.

    S04E04 - HEimsókn í Bjórland

    Play Episode Listen Later Oct 30, 2021 63:19


    Strákarnir fóru að heimsækja Þórgný Thoroddsen hjá Bjórlandi. Þar var ekki í kot vísað og fóru þeir yfir upphaf og mögulegan endi Bjórlands ásamt ýmsu öðru. Í þessum þætti var ýmislegt smakkað, m.a. Raföl frá A6 brugghúsinu á Akureyri, tilraunabjór frá Steðja, Samstarfsverkefni við Ægisgarð og loks einhver algjör bomba frá Omnipolo.

    S4E03 - Októberfestgrín

    Play Episode Listen Later Oct 15, 2021 69:01


    Nú er haustið mætt í allri sinni dýrð og eins og boðað hafði verið fara strákarnir yfir fyrri reynslu sína af Októberfest í Munchen. Þá er farið yfir jólabjórana aðeins, gott grín á kostnað strákanna og jólahlaðborðs strategíur. Í þessum þætti er smakkað: Paulaner Oktoberfest Bier Litla Brugghúsið Keilir IPA Veður fyrir leður Hoppy Pils nr. C30 The Brothers Brewery Dirty Julie IPA Býkúpudrottning honey soured ale

    S04E02 Lite haust

    Play Episode Listen Later Oct 8, 2021 60:32


    Þessi þáttur hefst á óvnjulegum slóðum þegar Lite markaðinum á Íslandi eru gerð smávægileg skil. Þá er farið um víða völl og allskyns smakkað meðan piltarnir velta vöngum yfir lífi og tilveru.

    S4E01 - Kosningaviti Bruggvarpsins og netverslanir með áfengi

    Play Episode Listen Later Sep 17, 2021 68:15


    Bruggvarpið snýr aftur. Strákarnir setjast aftur við míkrafóninn og röfla eins og þeim einum er lagið. Í þessum þætti er farið aðeins yfir kosningarnar framundan. Höskuldur veltir því fyrir sér með hvaða leiðtoga stjórnmálaflokkanna hann myndi vilja fá sér bjór, með dyggir aðstoð Stefáns. Þá er forystuféð aðeins dregið í dilka með hvaða bjóra þeir eru paraðir við. Svo ræða þeir piltar að sjálfsögðu daginn og veginn og snerta aðeins á netverslunum. Í þessum þætti er smakkað: Garðskagi hveitibjór frá Litla brugghúsinu Grænihver Skyr Sour frá Ölverk Summer Melon frá Gæðingi Sunnan Kaldi NEIPA collab með Borg Brugghúsi Rugl frá Böl Brewing

    S3E17 - Síðasti þáttur fyrir sumarfrí

    Play Episode Listen Later Jul 2, 2021 57:38


    Síðasti reglubundni þáttur sumarsins. Hér var farið aðeins yfir Bjórhátíðina sem að var haldin í Vestmannaeyjum, hjá Brothers Brewery. Þá var farið um víðan völl, meðal annars kíkt aðeins í Brugghús blaðið sem að fylgdi með Fréttablaðinu í loka júní. Hér var smakkað: Djúpið frá Dokkunni Sumarálfur Strawberry White frá Álfi Brugghúsi Hver? nr. 4 frá Ölverk Hveragerði Malbygg Ribbit frá... Malbygg Skjálfti tunnuþroskaður frá Ölvísholti

    S3E16 – Innlit á RVK Bruggstofu

    Play Episode Listen Later Jun 25, 2021 63:23


    Strákarnir fóru og hittu hann Sigga hjá RVK Bruggfélagi á nýja veitingastað félagsins á Snorrabrautinni. Viðeigandi að þetta var áður ein vinsælasta ÁTVR búðin, en það er önnur saga. Sigurður Pétur Snorrason eða Siggi eins hann er alltaf kallaður fór með strákunum yfir sögu RVK brewing , brugghússins og ræddi ý verkefni. Þá voru kranar og dósir vitanlega ekki langt undan: Hér var smakkað: Hnoðri SIPA Verum bara vinir Skuggi Porter Holt Brett Ale Keisarinn Tripel IPA

    S3E-Auka1 - Bjórhátíð BB

    Play Episode Listen Later Jun 18, 2021 19:37


    Bjórhátíð Brothers Brewery. Það er fjör og strákarnir fóru þangað. Það er of langt mál að telja allt upp sem var smakkað en í staðin var hatíðinni gerð stutt skil á staðnum. Óklippt gleðinu hljómar svo!

    S3E15 - Sumarið er tíminn

    Play Episode Listen Later Jun 11, 2021 51:43


    Sumarið er tíminn söng maðurinn. Og það er alveg rétt. Sumarið hefur fært okkur þónokkra sumar bjórar sem hér eru smakkaðir. Strákarnir ræða saman um norðurlandið og hvernig Stefán mun taka N1 mótið í sumar. Þá eru bjórhátíðir sumarsins ræddar lítið eitt ásamt því að baráttunni um netverslanirnar er gerð skil. Hér er smakkað: Sundsprettur frá Segli 67 Ölverk Cuexcomate sumarbjór Fá Cher til að ná sér frá Smiðjunni Vík Ferskjur á kantinum sumar hefeweizen frá Böl Brewing Bríó de Janeiro nr. 89 frá Borg Brugghúsi

    S3E14 - Snemmbúið sumar eða síðbúið Eurovision... þáttur um allskonar.

    Play Episode Listen Later May 28, 2021 50:10


    Sumarið er handan hornsins og í stað sólar virðist það koma með vefverslanir og óáfenga bjóra. Hér er farið yfir ýmislegt, byrjað á óáfengum bjórum og svo færa strákarnir sig út um allt borðið. Löng umræða um vefverslanir í áfengi, smá spjall um bjórhátíðir og sitthvað fleira. Hér er smakkað: Ylfa, Óáfengur bjór frá Borg Brugghúsi Kjartan, Kombucha frá Borg Brugghúsi Lady Brewery Dream Baby Dream NEIPA Lady Brewery Dr. Schepsky's Passion Fruit Sour frá Ægi Brugghúsi Co&Co Kókos Imperial Stout frá Reykjavík Brewing

    S3E13 - Þátturinn um allskonar

    Play Episode Listen Later May 14, 2021 73:07


    Jæja, það er komið sumar. Loksins. En það er enn COVID, þó það sjái fyrir endann á því. Strákarnir fara hér aðeins yfir stöðuna og fókusa aðeins á sumarbjórana. Smá umræða um allar þessar netverslanir. Hér er smakkað: Slipfrá Smiðjunni í Vík 10 Beers Cream Ale nr. C29 Frá Borg Brugghúsi Sólstingur– Segull 67 Hey Kanína nr. C22 IPL frá Borg Brugghúsi Er of snemmt að fá sér ? Frá Smiðjunni í Vík Sólveig nr. 25 hveitibjór Frá Borg Brugghúsi Sömmer Lövin Wheat Ale frá Reykjavík Brewing Loksins Loksins Gose frá Lady Brewery Hlíðar Passion Peach Sour Ale frá Reykjavík Brewing

    S3E12 - Ó blessuð sértu sveitin mín Ölvísholt

    Play Episode Listen Later Apr 30, 2021 71:45


    Í þessum þætti bregða strákarnir undir sig betri fætinum og fara upp fyrir Elliðaárnar. Stefnan var tekin á Ölvísholt þar sem að hún Ásta Ósk Hlöðversdóttir ræður ríkjum. Þar var ekki í kot vísað og sagði Ásta strákunum upp og ofan af starfseminni Ölvísholti, hvernig hún fór í brugg, allt á meðan hún bruggði bjór. Í þessum þætti var smakkað: Skjálfti Freyja Wit bjór Freyja Bláberja Wit Rauðvínstunnuþroskuð Jóra, imperial stout Hvítvínstunnuþroskaður Skaði Laufey – sambrugg kvenna í bjórgerð Hercule Peru og engifer skyrsúr

    Sumardagurinn þyrsti

    Play Episode Listen Later Apr 23, 2021 81:55


    Jæja, það er formlega komið sumar. Sumarbjórarnir eru að komast á kreik og um ýmislegt að spjalla. Ný brugghús skoðuð aðeins og vangaveltur um allskonar íþróttatengingar í bjórnum. Í þessum þætti var smakkað: Bergið Pilsner frá Litla Brugghúsinu Bönní Bönní Bönní Bönní White Ale Cyclopath Pale Ale frá Reykjavík Brewing Hlemmur IPA frá Reykjavík Brewing Fornar ástir Frá Reykjavík Brewing Glussi nr. T32 Double IPA frá Borg Brugghús

    S3E10 - Austurland að Glettingi

    Play Episode Listen Later Apr 16, 2021 56:48


    Þegar pósturinn bankar með töskuna fulla af góðgæti var ekki annað hægt en að taka því fagnandi. Upp úr pokanum komu 4 alveg prýðis bjórar sem að strákarnir gerðu góð skil. Austri og Múli eru tvö brugghús með miklar tengingar og flæktar rætur á Austurlandi. Um ýmislegt er spjallað í tengslum við þetta og það var meira að segja Alþjóðlegi Saison dagurinn. Smakkað: Herðubreið Skessa, wasabi infused DIPA Birtingur Saison Burning Down the House Beer

    S3E9 - Þátturinn með öllum lausnunum...

    Play Episode Listen Later Apr 11, 2021 55:02


    Loksins datt þátturinn eftir páska. Enn er COVID að stríða landanum. Strákarnir hittust á laugardagskvöldi aldrei þessu vant og fóru aðeins yfir stöðuna. Ýmislegt rætt, eins og þegar Costco bauð í listun fyrir Stellu í ÁTVR, hvernig leysa má sóttvarnarhótelsvandann, fagleg úttekt á viðrunarvanda sóttvarna og lauslega rennt yfir tengingar Belga við Skota. Sumsé, algjört blaður. Smakkað er: Stella Artois Houblon Chouffe Frýs í æðum Bjór IPA frá Ölvísholti Takk frá OG natura Upp á topp og niður Pale Ale frá RVKbrewing

    S3E8 – Páskar og aftur páskar

    Play Episode Listen Later Apr 2, 2021 81:08


    Páskaþátturinn er kominn. Hér fara piltarnir aðeins yfir bara stöðuna, ræða eldgos, páskamat og hefðir, veitingastaði og allskonar. Enda fátt mannlegt óviðkomandi. Tengjast páskar einhvernvegin bjór? Í þessum þætti er tekið í smakk en bara frá brugghúsum sem byrja á B: Ljúflingur, Session IPA frá Böl brewing Birta mango peach & apricot gose frá Böl Brewing Salka nr. 81 frá Borg Brugghús Austur nr. 2 frá Borg Brugghús Trifecta, Belgian triple frá Böl Brewing Krosslafur nr. 30.2 frá Borg Brugghús

    Saison 3 - Þáttur 7 - Komdu inn í Kófið mitt, er bylgjan skyggja fer

    Play Episode Listen Later Mar 26, 2021 34:01


    Fyrsti þáttur piltanna sem fer líka í myndbandsformi á netið! Sjá á youtube hér: https://www.youtube.com/watch?v=6-S9GQU7Mxs Þessi þáttur var tekinn upp í gegnum fjarfundarbúnað og þegar hann var komin þangað var svo tilvalið að skella honum á netið. Hér er fyrsti þáttur piltanna á netinu í bæði hljóð og mynd sumsé. Hér er farið yfir stöðuna, nýlegar vendingar í sóttvörum ræddar ásamt allskonar smakki. Bessi Vienna lager frá Múla Craft Hvítur wit frá Múla Craft Kommissar Saison frá Brothers Brewery OMG súkkulaði stout frá Ölvísholti Baltazar Baltic Porter frá Gæðingi

    S3E6 - Brothers Brewery

    Play Episode Listen Later Mar 19, 2021 78:00


    Jóhann Guðmundsson og Hlynur Vídó frá Brothers brewery kíktu í heimsókn í BruggVarpið. Eins og allir vita sem fylgst hafa með Brothers brewery er alltaf gaman þegar þessir „bræður“ koma saman, í heidl eða hluta. Í þessum þætti fóru Höskuldur og Stefán með þeim yfir upphaf, tilurð og tilgang Brothers Brewery og smakka sig í gegnum söguna. Smakklisti: Easy Brother Eldfell Krækiberja súr bjór (2017 Tunna) Hindber Skyr sour Sigla Humlafley Humlar Alheimsins

    S3E5: Bjórinn beint frá býli: Snilld eða Kjaftæði?

    Play Episode Listen Later Mar 12, 2021 83:36


    Í þessum þætti fara strákarnir yfir málefni sem tengjast nýlegu frumvarpi um heimild til sölu bjórs frá framleiðslustað. Farið er yfir trend og tölur þegar kemur að neyslu áfengis og eru ýmsar mýtur vegnar og léttvægar fundnar. Hér er hlekkur á umsögn piltanna til Allsherjar- og menntamálanefndar. Inn í þetta er piprað smakki á páskabjórum: Skíðastubbur frá Segli 67 Satan frá Borg Brugghúsi Páskabjór Milk stout frá Brothers Brewery Kjaftæði frá Böl Brewing Nema Stout frá Smiðjunni, Vík Ungi Quadrupel frá Og natura.

    S3E4- Steini Stefáns af allsstaðar!

    Play Episode Listen Later Mar 5, 2021 113:13


    Steinn Stefánsson eða Steina á Míkró, Steini á Mikkeller, Steini hjá Kex, STeini hjá KexBrewing, Steini í Ölvísholti og nú Steini í Malbygg kíki til piltanna í því sem einungis verður lýst sem afar fróðlegt spjall. Þessu spjalli var ætlað að verða styttra en þegar gleðin er við völd, er erfitt að takmarka sig og eins og í góðu partýíi vildi enginn hætta. Hér fer Steini hispurlaust yfir sín mál og dregur fátt undan. Allskonar smakkað.

    Saison trippel, þáttur 3 - Þorraþræll og Vínbúð

    Play Episode Listen Later Feb 26, 2021 46:12


    Hvað er betra en að pæla aðeins í Þorrabjórum? Drekka þá er svarið, ef einhver var í vafa. Hér er farið aðeins yfir allskonar, meðal annars farið töluvert dýpra ofan í sölutölur Vínbúðarinnar fyrir árið 2020 en gert var í þáttum áður. Þá uppljóstrast gamalt fjölskylduleyndamál frá Siglufirði og allskonar vitleysa viðhöfð. Í smakki í þessum þætti: Vetraröl frá Víking Þorra Kaldi Frýs í æðum bjór, frá Ölvísholti Súr á móti LemonIPAde frá Ægisgarði SvartaMaría frá Segli 67.

    Saison 3, þáttur 2. Árni Gæðingur

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2021 96:30


    Árni Ingólfur Halldórsson Hafstað bóndi, tal- og heyrnarmeinafræðingur, bruggari, þúsundþjalasmiður og bareigandi kíkti í heimsókn í Bruggvarpið. Árni Gæðingur eins og hann er alla jafna nefndur í daglegu tali er einn af upphafsmönnum handverksbrugg senunnar á Íslandi og óhætt að fullyrða að hann sé frumkvöðull handverksbara á landinu. Árni fer í skemmtilegu spjalli yfir víðan völl og segir strákunum frá tilurð Gæðings, Míkróbars, af hverju hann fór útí brugg og deilir með okkur leyndarmáli velgengni sinnar, sem snýr að fyrstu lögun hverrar tegundar. Ýmsir bjórar smakkaðir frá Gæðingi.

    Saison Trippel hefst.

    Play Episode Listen Later Feb 8, 2021 76:19


    Nú er komið nýtt ár og það þýðir bara nýr þáttur. Saison Trippel? VAr það of fyrirsjáanlegt? Allavega. Fram undan er ár bjórsins en hér eru strákarnir að koma sér í gang. Farið yfir málin, smánunaleg sem stórvægileg. Ekki töluð vitleysan… framan af. Hér er smakkað: Yuzu Rice Lager - RVK brewing DimSum lager – RVK brewing Loftur Lagerbjór – Ægisgarður og Mói Brugghús Skúli Pale ale – Borg Brugghús Skuggi – RVK brewing Embla – Borg Brugghús Surtur 82 – Borg Brugghús.

    Áramót 2020 - Annus Horribilis kvatt með stæl.

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2020 66:08


    Áramótaþátturinn. Hér er aðeins horft um öxl, klappað á bak og talað um hvað strákarnir hefðu gert betur við móttöku bóluefnisins. Smá tís fyrir næsta ár, en aðallega er tekið fyrir Sæmundur frá Borg, Festivus, samstarfsverkefni Borgar Brugghúss og Mono, Cosmos 20 og 21 frá RVK Brewing og Bóluefnið frá Borg Brugghúsi og Kalda.   Síðasti þáttur ársins. Takk fyrir hlustið.  Sjáumst á næsta ári.

    Saison 2, þáttur 11: Jólabjórinn lagður!

    Play Episode Listen Later Dec 23, 2020 43:04


    Það eina sem er vont við þetta hlaðvarpsform er að geta ekki sett sigurtónlist undir textalýsingar. Kæri hlustandi. Vinsamlegast taktu símann þinn og gúgglaðu “Theme from Rocky”. Þannig líður strákunum núna. Hér er hið ókleifa fjall sigrað og jólabjórinn lagður. Ó já. Hér er farið yfir: Föröja Jólabrygg Hvít Jól, Mandarínu White Ale JólaTumi frá Gæðingi Anchor Christmas ale Heims um Bjór A Red and White Christmas frá Mikkeller (eldri árgangur)

    Saison 2, Þáttur 10: Þetta er aaaaaaaaalveg að hafast

    Play Episode Listen Later Dec 22, 2020 99:07


    Jæja. Ef þetta á að nást verður að fórna öllu sagði maðurinn og tók tappann úr flöskunni. Hættumerki sagði móðir hans og konan dæsti. En við erum Hlaðvarp í almannaþágu. Áfram veginn! Þetta skal hafast... Hér er klárað: Jingle Balls frá Gæðingi Tveir vinir og annar í Jólum Frostrósir frá RVK brewing Askasleikir Frá Borg Eitthvað fallegt All that Glitters Ain‘t gold frá Lady Brewery Egils Malt Jólabjór Leppur frá Brothers Brewery Kaldi Súkkulaði Porter Giljagaur frá Borg Brugghúsi 24 frá Ölvísholti Heilög Eilífð Barrel Aged Pastry stout

    Níu bjórum fyrir jól…

    Play Episode Listen Later Dec 18, 2020 95:06


    „Að setja sér raunhæf markmið eykur líkurnar á því að þau náist” sagði markþjálfinn sem strákarnir hafa aldrei hitt. Að smakka alla jólabjórana er að reynast snúið. Er þetta markmið kannski raunhæft? Það allavega saxast á þetta. Hér er farið yfir ein 11 stykki ásamt því að Stefán kemur upp um sig að hafa aldrei pælt í mettaðri fitu. Bjórar í smakkröð: Jóla Thule frá Víking Víking Jólabjór frá Víking Okkara bjór frá Okkara í Færeyjum QAJAQ X-mas lager frá Greenland Craftworks Jóladrangi frá Dokkunni, Ísafirði Svartálfur kartöfluPorter frá Álfi Brugghúsi Romm í Jól frá Austra og JDE Einstök Doppelbock frá Einstök Bruggi Jólabjór – Reyktur Bock frá Ölvísholti Hnetubrjótur frá Malbygg Hurðaskellir frá Borg Brugghús

    Síson 2: Þessi jólabjór klárast aldrei...

    Play Episode Listen Later Dec 15, 2020 69:04


    „Þetta er nú meira verkefnið“ dæsti maðurinn og hélt áfram. Það eru orð að sönnu. Eftir smá tafir þá heldur jólasmakkið áfram ótrautt hér í þessum 8. þætti saison 2. Nú eru það Víking Lite Jóla, Jólapakki frá Segli, Jóli Bæjó frá Móa Brugghúsi, Tomorrows Dreams frá Lady Brewing, Halelúja jólabjór og Almáttugur jólaöl frá Steðja brugghúsi, Jóló frá OG natura og loks Eftir Sex frá Reykjavík Brewing. Að þessu smakki loknu er búið að fara yfir 53 bjóra auk einhverra óáfengra telst okkur til. Og ekki nema um 40 eftir. Áfram veginn!

    Saison 2 - Sjöundi þáttur í sjöunda veldi. Jólabjórasmakk af stærri gerðinni…

    Play Episode Listen Later Dec 4, 2020 136:06


    Er allt erlent vont? Heldur betur ekki. En það leynist nú allskonar misjafnt inn á milli. Í þessum þætti sem er lengri en góðu hófi gegnir gera strákarnir tilraun til að smakka alla jólabjórana sem til eru frá útlöndum. Dyggir hlustendur vita að strákarnir telja Færeyjar eins og Vestmannaeyjar til íslenskra bjóra. Þannig að núna er það restin af heiminum undir. Hér í þessum þætti er byrjað á Pripps og svo bara niður listann, kannski ekki alveg í stafrófsröð samt. Bruggvarpið GETUR EKKI MÆLT MEÐ því að þetta sé leikið eftir, enda fagdrykkjumenn á ferð. Albani Jule Bryg Blaa Lys Corsendonk Christmas Ale 1 Damm Cerveza de Navidad 2020 Delirium Christmas Gouden Carolus Christmas Harboe Jule Bryg La Corne du Bois des Pendus d'hiver vetrarbjór La Mere Noel Legendes Quintine de Noel N'ice Chouffe Norrebros Julebryg Ósló Brewing Red and Wheat Christmas Pripps Blaa Julöl Royal X-Mas blár Royal X-Mas hvítur Samuel Adams Winter Lager Shepherd Neame Christmas Ale Svaneke Crazy Christmas IPA Svaneke Julebryg Dark Lager Ugly Duck Hoppy Christmas IPA

    Saison 2: Það þarf ekki alltaf að vera vín.

    Play Episode Listen Later Nov 27, 2020 45:00


    Í þessum þætti staldra piltarnir aðeins við, enda augljós áhrif sem þetta smack hefur á heilsuna, skv. Stefáni. Þessi þáttur er smá hliðarskref þar sem að allt óáfengt sem telst til bjórs og hægt er að tengja við jólin og Stefán og Höskuldur fundu, var smakkað. Egils malt, Víking malt, Danskt hvítöl var tekið fyrir, áður en allir jóla-radlerarnir voru kannaðir. Loks var endað á JólaKalda 2,25%, Hvítum Jólum Mandarínu White Ale 2,25% og loks óáfengum Froðusleiki frá Borg. Ekki þurfti svo sem að eyða löngum stundum í allt, enda langsamlega flest Íslendingum í blóð borið. En það er ljóst að það þarf enginn að aka og ekki drekka eitthvað hátíðlegt um jólin. Örvætið þó eigi, áfenga útgáfa Bruggvarpsins snýr strax til baka í næsta þætti.

    Saeson 2: Almanna varir halda áfram að funda - Jólasmakkið heldur áfram

    Play Episode Listen Later Nov 20, 2020 70:18


    Já, þetta trukkast áfram. Reyndar er ótrúlega mikið magn af jólabjór eftir að smakka. Hér halda piltasrnir reyndar áfram og í þessari röð smakka þeir: JólaKalda frá Bruggsmiðjunni Kalda, Grýlu frá Ölverk í Hveragerði, Santas Blue Balls frá Smiðjunni, Vík í Mýrdal, Ekkert sérstaklega jólaleg jól frá Ægisgarði, JólaKisa frá Malbygg og loks Gluggagægi frá Borg Brugghúsi. Það er samt nóg eftir. Áfram veginn…

    Saison 2 - fjórði þáttur: Jólasmakk í almannaþágu!

    Play Episode Listen Later Nov 12, 2020 74:17


    Í þessum þætti hefjast piltarnir skipulega handa. Jólasmakkið er tekið skipulega og „vísindalega”. Byrjað er á Jólagulli. Svo er farið í Túborg jóla og hann í borinn saman við Jólatúborg frá því árinu áður. Þá er Jólaálfur smakkaður, sem er lager ale og svo farið yfir í HóHóHó brúnölið frá Ægisgarði. Að því loknu er ráðist í samanburðarsmakk á Skyrjarmi frá Borg Brugghúsi frá því ár og frá því í fyrra og loksins er lagt faglegt mat á það hvort Smiðjan í Vík hefði átt að breyta Choc Hó Hó bjórnum sínum í ár, frá uppskriftinni sem strákanarni voru mjög hrifnir af í fyrra. Öllu er síðan skolað niður í nostalgísku rugli með JólaJóra frá Ölvísholti. Það er sannur jóla(vín)andi sem svífur yfir vötnum í þessum þætti.  

    Síson tvö: koma samt ekki örugglega jól?

    Play Episode Listen Later Oct 30, 2020 77:56


    Eða er þetta kannski Saison Dubbel, þáttur Trippel? Í þessum þætti er aðeins farið yfir stöðuna í bjórheimum, ýmislegt smakkað, eins og Sæmundur frá Borg Brugghúsi, Polychrome frá Mono brewing auk JólaMagnúsar Frúktusar, Ris a la Sour Gose frá Smiðjunni og kolsýrðan Þriðja í jólum frá Böl.

    Síson 2: Með Ása uppí erminni

    Play Episode Listen Later Oct 23, 2020 68:52


    Það gerðist loksins að þáttur tvö sem hefur tafist af allskonar óáhugaverðum ástæðum, datt á netið. Hér fá strákarnir valinkunnan snilling með sér á þriðja hljóðnemann. Allt rætt milli himins og jarðar. Vínarvalsinn frá Gæðingi smakkaður, Paulaner Októberfest bjórinn, Ottó frá Borg Brugghús og allskonar góðgæti sem Ási kom með. Þá er vandamálin með það hvaða á að gera við tómu húsin þegar álverin hætta leyst á nóinu.

    Síson 2: Fyrsti þáttur. Böl er líka öl!

    Play Episode Listen Later Oct 2, 2020 77:04


    Jæja. Eftir töluverða sumarpásu snúa strákarnir aftur með fögur loforð um betri tíma í farteskinu. Allskonar smakkað, meðal annars Frábært tækifæri frá Lady Brewery og Weihenstephaner ásamt öllu Böl safninu með Böl strákunum. Axel og Hlynur kíktu til okkar í það sem okkur þótti stórskemmtilegt spjall. Minnum á netfang þáttarins, bruggvarpid@gmail.com ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða ábendingar.

    Sögulegur Sumarþáttur

    Play Episode Listen Later Aug 3, 2020 60:11


    Einn síðbúinn Bruggvarps þáttur sem hafði legið á tunnu og þroskast í einhvern tíma. Þessi þáttur fjallar aðeins um Lady Brewery og hvítvínstunnuþroskaða Skaða. Sögustund með Stefáni þar sem White top bjórævintýrið er rakið. Sjá nánar hér https://timarit.is/page/2520596?iabr=on. Glösin sem Stefán talar um eru Dwarfware hönnun eftir Hrafnkel Birgisson vöruhönnuð og Reyni A. Óskarsson sem starfar víst við að meta sannleiksgildi íslendingasagnanna. Heimasíða verkefnisins er https://www.dwarf-ware.com/og er Facebook síðan þeirra hér: https://www.facebook.com/dwarfware/

    Sumarþátturinn fjórði

    Play Episode Listen Later Jul 10, 2020 50:12


    Eftir samveru í sitthvoru sóttvarnarhólfinu á N1 fótboltamótinu á Akureyri söknuðu strákarnir hvors annars svo mikið að þeir ákváðu að taka einn léttan sumarþátt. Allskonar rætt, m.a. Bjórböðin hjá Kalda Brugghúsi og Iðnaðarsafnið á Akureyri svo eitthvað sé nefnt. Myndir frá Iðnaðarsafninu eru á facebook síðu Bruggvarpsins, hér: https://www.facebook.com/Bruggvarpid Þá var Krombacher, hveitibjór í dós hellt í glös, Weihenstephaner hefe hveitibjórinn, Gull Lite White Ale og svo eigin framleiðsla smökkuð. American Wheat bjórinn er hægt að skoða uppskriftina hér: https://brewdogrecipes.com/.

    Einn óvæntur sumarþáttur

    Play Episode Listen Later Jun 26, 2020 50:10


    Jæja, það er nýr sumarþáttur. Strákarnir smakka Sigla Humlafley frá Brothers Brewery, Fant, Kysstu mig frá Borg og Flamengo frá Malbygg. Svo lögðust menn í símann og hringdu út og suður. Kjartan Vídó og Simmi Vill svöruðu símanum sínum. Síðasta bjórhátíð gerð upp og aðeins rabbað um fyrirætlanir með Barion Bryggjuna brugghúsið. Allskonar. Skál!

    Sumarþáttur númer 2 - Sól í glasi

    Play Episode Listen Later Jun 9, 2020 63:15


    Nettur sumarþáttur númer 2. Allskonar skeggrætt og farið yfir. Bríói átti 10 ára afmæli, brugghátíðir sem verða og ekki verða og bjórsmakk. Hvað er meira sumar en það?

    Sumarþátturinn fyrsti

    Play Episode Listen Later May 14, 2020 81:00


    BruggVarpið í kjölfarið á Covid-19 skoðar sumarbjóra. STrákarnir fara yfir stóru myndina, fara yfir bruggið sem þeir hafa gert og smakka svo 5 sumarbjóra. Foli frá Gæðingi, Víking Sumaröl, Naggur sumar session IPA frá Segli 67, Dr. Schepskys passion fruit sour frá Agisgarði og Magnús Fructus frá Rvk. Brewing.

    Páskaþáttur Bruggvarpsins.

    Play Episode Listen Later Apr 10, 2020 83:08


    Strákarnir gera upp upphafsbruggið aðeins og ræða það næsta. Fyrsta afurðin er síðan smökkuð. Fyrsta bruggið. Og það var ekkert slor. Frábært segja jafnvel sumir. Páskapúki frá Dokkunni, Undraland frá Borg, BunnyBunnyBunnyBunny White ale frá Ægisgarði, tveir vinir og annar í Páskum, páskabjórinn frá Víking, Súkkulaðipáskabjórinn frá Segili 67. Öllu rennt í glas sem og einum gömlum Barabas.

    Ást á tímum COVID

    Play Episode Listen Later Mar 26, 2020 67:09


    Strákarnir komust aftur á bragðið við síðasta þátt en ákváðu að hvíla bruggtækin aðeins. Sest var niður og staðan tekin á okkar allra bestu í bjórheimum. Hvaða áhrif hefur núverandi ástand á bjórheima? Tveir Siggar, einn Óli og Andri til teknir tali. Fréttir af framleiðslunni hjá Kalda, hressleiki í Skipholtinu, röddin hjá Ægisgarði og forstjórinn á hálsunum. 4 snillingar leggja strákunum línurnar á tímum COVID. Og tæknin klikkar ekki. Hvurslags.

    Loksins, loksins, Bruggið hið fyrsta.

    Play Episode Listen Later Mar 20, 2020 82:06


    Eftir áþreifanlega fjarveru strákanna vegan verkfalla, veirufaraldurs og tæknilegrar vankunnáttu er gerð önnur tilraun við það að hefjast handa. Hér hefst bruggið. Hér er ágætt að koma með disclaimer: EF þú hlustandi góður ert nýr að bruggi er þetta ekki þátturinn fyrir þig. Þ.e. þátturinn til að læra nokkurn skapaðan hlut. Kannski er ágætt að hlusta á þennan þátt sem víti til varnaðar. En ýmislegt er smakkað, m.a. Linda collab RVK brewing og Víking, Páskagull og sitthvað fleira. Svona smá yfirlit fyrir þá sem vilja fletta: 00:00 – Inngangur 09:25 - Brugg Hefst – Mesking að hitastigi 20:19 - Mesking hefst 23:58 – Stress moment – Allt nánast farið til andskotans 26:32 - Smá bjórsmakk og Nostalgía – Miller smakkaður 33:07 – Skolun? 35:32 – Meskitunna hífð uppúr 39:39 – Meskitunna komin uppúr og búið að skola 43:27 – Verið að keyra upp suðu. Hvað með Humlana? 48:10 - Fyrsti skammtur kominn í. 49:05 – Suða hálfnuð eða svo 55:18 – 2/3 suðunnar lokið, skammtur 2 af humlum settur útí. 56:52 – Virtinn kældur – Smá smakk meðan beðið er. 1:03:08 – Stefán hellir eftir kælingu í gerjunarílát 1:04:12 – Strákarnir uppgötva að þeir þurftu að pitcha gerið. 1:07:35 – Uppgjör í stúdíói daginn eftir.

    BruggVarpið lifir, Hilmir snýr heim, Return of Jedi og aðrir góðir frasar…

    Play Episode Listen Later Feb 25, 2020 58:11


    Eftir smá fjarveru snýr BruggVarpið aftur. Þetta eru árdagar þessa hlaðvarps og tæknigeta strákanna eins og áfengislaus bjór, það vantar töluvert uppá. Í þessum þætti taka strákarnir kerfi Vínbúðarinnar til bæna, fara aðeins yfir sölutölur og hvernig verðmyndun bjórs fúnkerar. Þá er Vúlkanía bjórinn aðeins smakkaður.

    Alþjóðavæðing og pólitík

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2020 68:11


    Hlaðvarpið er alþjóðavætt, Ægisgarður, þýskhreinleikalög og smá umræða um pólitík. Allt sem góður bjórþáttur þarf að hafa.

    Claim Bruggvarpið

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel