POPULARITY
Við hittum tónlistarkonuna Fríd, sem er listamannsnafn Sigfríðar Rutar Gyrðisdóttur. Hún hefur alltaf sungið en í Lýðháskóla í Danmörku komst hún að því að hún elskaði líka að semja tónlist. Í maí gaf hún út stuttskífuna Hærra. Svo heyrum við viðtal frá því í desember, Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, hefur í hálfa öld grafið upp ótal kenningar um uppruna þessa þekktasta orðatiltækis í heimi.
Hannes Boy er geggjaður veitingastaður á Siglufirði, en hvaðan kemur nafnið? Fylgisti með í næsta þætti...nei djók í þessum þætti.
Sæunn segir frá lífi sínu, flakkinu, hvernig það gengur að gera langtímaplön. Hún býr ásamt fjölskyldu sinni á Siglufirði og var að skrifa sína fyrstu skáldsögðu, þar sem fléttast saman líf og örlög tveggja kvenna á ólíkum tímum.
Þórarinn ræðir við Róbert Guðfinsson, fjárfesti og athafnamann. Róbert hefur gert sig gildandi á Siglufirði þar sem hann hefur fjárfest mikið á síðustu árum. Í þessum þætti er rætt um áhættufjárfestingar, stjórnmál á Íslandi, ungt fólk, mistök í fjárfestingum, fiskeldi og þeirri spurningu varpað fram hvort að Reykjavík sé ljót.Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
„Ég lærði dáldið mikið seint, að ef maður er hræddur við eitthvað, þá á maður að gera það. En ég var hrædd lengi,“ segir Þórunn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona og margverðlaunaður búninga- og sviðsmyndahönnuður. Þórunn Elísabet er fædd árið 1952 á Siglufirði. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og árið 1982 hélt hún sína fyrstu einkasýningu í Nýlistasafninu í Reykjavík. Allar götur síðan hefur hún unnið að myndlist meðfram því að hanna búninga og sviðsmyndir fyrir leikhús og kvikmyndir. Þórunn hefur haldið einkasýningar og tekið þátt fjölda samsýninga en um þessar mundir sýnir hún á Listasafninu á Akureyri, verk þar sem 100 slæður blökta og gefa frá sér ólíka ilmi. Í verkum sínum vinnur Þórunn Elísabet með efniskennd hlutanna, söguna, endurvinnslu, handverkið, dagdrauma og ekki síst alltumlykjandi kvennaarfinn. Heimili Þórunnar Elísabetar er eins og eitt stórt listaverk og þar tekur hún á móti Víðsjá í Svipmynd vikunnar.
Við hittum veðurfræðing úti í góða veðrinu, eða ágæta veðrinu. Hún heitir Katrín Agla og hún leikur sér að því að finna plötur sem passa við veðrið þegar hún er á vakt á Veðurstofunni. Ókei, okay, ok, O.K. ókídókí, allt í kei. Ókei hefur verið hluti af íslenskri tungu í einhver 90 ár. Þetta slangur úr ensku á sér dularfullan og óljósan uppruna. Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, hefur í hálfa öld grafið upp ótal kenningar um uppruna þessa þekktasta orðatiltækis í heimi. Við heyrum í Sigurði og veltum fyrir okkur hvaðan ókei kemur.
Við ræðum um orkuskipti í fiskibátum. Tölum við Kolbein Óttarsson Proppé sem er framkvæmdastjóri Grænafls á Siglufirði en Grænafl vinnur nú í samstarfi við fyrirtæki í Suður Kóreu að því að útbúa strandveiðibáta þannig að þeir geti gengið fyrir rafmagni. Við kynnum okkur nýjungar í meðferð við Alzheimersjúkdóminum en ný lyf hafa vakið vonir um að hægt verði að meðhöndla sjúkdóminn með nýjum hætti. Jón Snædal öldrunarlæknir ræðir við okkur. Við fáum líka pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.

Ný ríkisstjórn var mynduð í Finnlandi fyrir nokkrum vikum síðan en nú þegar hefur einn ráðherrann sagt af sér embætti eftir hneykslismál og vantrauststillögu. Helga Hilmisdóttir bjó lengi í Finnlandi og fylgist vel með málum þar, hún var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi stöðuna. Minni fjárráð Evrópubúa virðast ekki hafa dregið úr eftirspurn eftir ferðalögum, heldur reynir fólk frekar að finna ódýrari áfangastaði og ferðast utan háannatíma. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ferðamálaráðs Evrópusambandsins. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fór yfir þetta og önnur tíðindi úr heimi ferðamála. Fjöldi tónlistarmanna, erlendir sem innlendir, koma fram á þjóðlagahátíð á Siglufirði sem nú stendur sem hæst. Mikil stemmning er í bænum og tónleikar fjölsóttir. Gunnsteinn Ólafsson, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, var á línunni frá Siglufirði. Tónlist: A Beautiful Morning - The Rascals Jolene - Congo Cowboys Óbyggðirnar kalla - KK & Maggi Eiríks Salvacion del Rey - Reynir del Norte Chokolade Pandekage - Marvara Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Við förum í heimsókn í vinnustofu í Stykkishólmi í þætti dagsins, og hittum þar Ingibjörgu H. Ágústsdóttur. Ingibjörg sker listilega út í linditré, verk innblásinn af íslenskum þjóðsagnaarfi og fugla sem standa út frá veggjum. Ingibjörg er alin upp í stórhýsinu Tang og Ris í miðbæ Stykkishólms og þar er hún með glæsilega vinnustofu sem er fyrst og fremst slík, en hægt er að heimsækja eftir samkomulagi. Guðni Tómasson ræðir við Ingibjörgu í hólminum í þættinum. Er hægt að hugsa í höfundarverki? Er hægt að vera listamaður sem pælir meðvitað í stóra boganum? Að listaverk eigi að passa inn í stærri mynd sem þarf að hanga saman. Þetta hljómar undarlega, sjálfhverf hugsun eða tilgerðarleg. En í ritgerðarsafninu Escape into meaning frá 2022 er ritgerð um einmitt þetta - Að hugsa í höfundarverki heitir hún eftir bandaríska blaðamanninn, youtuberinn og listpælarann Evan Puschak. Þar dregur hann fram tvo ólíka listamenn, bandaríska kvikmyndagerðarmanninn Quentin Tarantino og írska skáldið William Butler Yeats og sýnir hvernig þeir hugsa báðir á einhvern hátt um sína list meðvitað sem hluta af höfundarverki. Við flettum aðeins í þessari athyglisverðu ritgerð hér á eftir. Aðalheiður Eysteinsdóttir, myndlistarkona, fagnar sextíu ára afmæli í vikunni og ætlar af því tilefni að keyra hringinn í kringum landið með sextíu gjörninga. Með henni í för verður hópur listafólks sem mun taka þátt í gjörningunum sem verða fluttir á hinum ýmsu listasöfnum. Listin hefur alltaf verið samofin lífi Aðalheiðar, en margir þekkja hana sem Aðalheiði í Alþýðuhúsinu. Alþýðuhúsið á Siglufirði hefur verið heimili hennar og vinnustofa síðustu áratugi og þar hefur hún staðið fyrir allskyns viðburðum og sýningarhaldi. Gjörningarnir hafa alltaf verið hluti af hennar starfi en kannski er hún hvað þekktust fyrir tréskúlptúrana sína. Við skulum hringdum norður í morgun og spurðum Aðalheiði hvernig henni hafi dottið þetta í hug, að keyra hringinn með sextíu gjörninga. Og við förum í ferðalag með Guju Dögg arkitekt, sem heldur áfram að deila með okkur ferðasögu sinni um bretagna skagann. Að þessu sinni fer hún meðal annars á slóðir sjómannanna sem sigldu til íslands frá leirugum ströndum skagans.

Við kynnum til leiks nýja pistlaröð hér í Lestinni, Suðupottinn. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir heimsækir veitingastaði hér á landi sem sérhæfa sig í matarmenningu annara þjóða, ræðir við kokkana, heyrir sögu þeirra og smakkar matinn. Hún byrjar á Siglufirði, á Hótel Siglunesi, þar sem reiddur er fram marokkóskur matur. Davíð Roach fjallar um nýja íslenska tónlist, nýjar plötur sveitanna Virgin Orchestra og Mukka. Að lokum fáum við okkur kaffibolla með sagnfræðingnum Má Jónssyni og kynnum okkur sögu kaffidrykkju á Íslandi.

Við töluðum meðal annars um verðhrunið í Kauphöllinni á fimmtudaginn. Eldrauð Kauphöll - Blóðrauð Kauphöll - voru fyrirsagnirnar þegar virði margra fyrirtækja sem þar eru skráð snarlækkaði. Hvernig stóð á þessu og hefur virðið farið upp á ný? Þórður Snær Júlíusson blaðamaður var gestur okkar og ræddi þessi mál meðal annars. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði um hávaðann í Berlínarspjalli í dag - en það kom út bók um sögu hávaðans í Þýskalandi á dögunum, allt frá náttúruhljóðum til borgarskarkala eru þar undir, og áhrifin af hávaða á okkur. Arthúr sagði líka frá pólitísku hneyksli og fylkiskosningum í Bremen, sem eru um næstu helgi. Og svo er það lífið og listin. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Byggðastofnun, Listahátíð í Reykjavík og Icelandair standa að henni. Handhafi í ár er Alþýðuhúsið á Siglufirði. Við forvitnuðumst um starfsemina þar á eftir, við slógum á þráðinn til Aðalheiðar Eysteinsdóttur á Sigló. Tónlist: Rjúkandi ráð - Uppáhellingarnir

Árið 1948 kom út bókin Tvennir tímar eftir Elínborgu Lárusdóttur rithöfund, með endurminningum Hólmfríðar Margrétar Björnsdóttur Hjaltason. Sagan hefst norður á Siglufirði árið 1870 og lýsir ævi alþýðukonu er giftist Guðmundi Hjaltasyni kennara og alþýðufræðara. Umsjónarmaður les kafla sem fjalla um átakanleg æskuár Hólmfríðar sem ólst upp við mikla fátækt og þurfti að þola mikið harðræði og hungur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Fjallað er um Ernu Hjaltalín fyrstu flugkonu Íslands sem talin er ein merkasta kona íslenskrar flugsögu. Hún var önnur af sínum kynsystrum til að taka einliðaflugpróf, en fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf, atvinnuflugmannspróf og til að fá réttindi loftsiglingafræðings. Skyggnst er í gamlar og takmarkaðar heimildir um Ernu frá uppvaxtarárum hennar á Siglufirði og hennar baráttu lýst í stuttu máli, ásamt því að heyra viðtalsbrot við Ernu úr safni Ríkisútvarpsins. Lesari með umsjónarmanni er María Kristjánsdóttir.
Í þætti dagsins fjöllum við um Eiðabrunann 1960, skoðum merkilega ljósmynd á Síldarminjasafninu á Siglufirði og forvitnumst um starfsemi sauðfjárverndarinnar. Þátturinn var áður á dagskrá í Sögum af landi 9. apríl. 2021. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Saga hrafnsins með íslensku þjóðinni nær samkvæmt rituðum heimildum allt aftur til 9. aldar, þegar krummi leiddi Flóka Vilgerðarsonar upp að ströndum eyjunnar í norðri. Í bréfi frá 19. öld er hann sagður vera "Íslands einkennilegasti fugl, Óðins forni vin og skáldanna eftirlætisgoð, fréttafugl mikill og margkunnugur. Krummi hefur iðulega verið tengdur mykravöldum og göldrum, en hann á sér líka marga vini og það borgar sig að hafa hann með sér í liði. Í nýútkominni bók sem ber titilinn Hrafninn- þjóðin- sagan- þjóðtrúin skoðar Sigurður Ægisson, prestur á Siglufirði, krumma frá mörgum hliðum. Sigurður er gestur Víðsjár í dag Ana Mendieta og Carl André voru eitt heitasta par New York listasenunnar við upphaf áttunda áratugarins. Hún kúbanskur innflytjandi sem gerði framsækna gjörningalist, hann heimsfrægur skúlptúristi. Þau giftu sig 1984 og aðeins nokkrum mánuðum síðar hringdi André á neyðarlínuna frá heimili þeirra. Hann sagði þau hjónin hafa rifist og að konan hans hefði farið út um gluggann. Hlaðvarpið Death of an artist, eftir listfræðinginn og sýningarstjórann Helen Moleswort, fjallar um þennan atburð, afleiðingar dauða Mendieta á bandarísku listasenuna og allar þær spurningar sem dauði hennar vakti þá, og hvernig þær spurningar hafa mögulega breyst eftir Metoo. En við hefjum þáttinn á rýni í eina af bókum jólabókaflóðsins; Hamingju þessa heims eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur.

Hrafninn er merkilegur fugl og staða hans í þjóðarvitundinni er alveg sérstök. Er skemmst að minnast þess að það var fyrir tilstuðlan hrafns að Flóki Vilgerðarson rataði hingað á sínum tíma. Sigurður Ægisson prestur á Siglufirði og fuglaáhugamaður hefur skrifað mikla bók um hrafninn. Við spjölluðum um hrafna; svarta og hvíta; sitjandi og fljúgandi; krúnkandi og kroppandi. Þjóðverjar eru markvisst að afmá upphafningu sendiherra sinna í þýskum nýlendum í Afríku enda samræmast óhæfuverk þeirra gegn nýlenduþjóðunum illa nútímavitund. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá því í Berlínarspjalli í gær. Þjóðverjar voru nýlenduherrar á sínum tíma þótt ekki væru þeir jafn stórtækir og ýmsar aðrar Evrópuþjóðir. Vera Illugadóttir stiklaði á stóru í nýlendusögu Þýskalands. Fjölmargir íbúar grannsveitarfélaga Akureyrar vinna í bænum samkvæmt nýrri könnun. Fækka þarf einbreiðum brúm á Norðurlandi eystra og stytta leiðina til Reykjavíkur. Ágúst Ólafsson fjallaði um þessa nýju könnun og ræddi við Arnar Þór Jóhannesson, forstöðumann Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: You can close your eyes - James Taylor River - Joni Mitchell Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker - Helgi Björnsson

Gestur þáttarins er Hildur Valdís Guðmundsdóttir. Hildur er fædd 31. október 1959 á Siglufirði en hefur auk þess búið í Húnavantssýslu, Borgarfirði, Reykjavík, Færeyjum, Frakklandi og Fílabeinsströndinni. Hún lauk BA prófi í mannfræði árið 2005 frá Háskóla Íslands og Meistaraprófi í mannfræði 2007 og Diplómanámi í þróunarfræðum 2009 frá sama skóla. Áhugasvið Hildar snúa að mannúðarmálum og að tilheyra. Hildur hefur unnið við sveitastörf, fiskvinnslu, skrifstofustörf, hjá Sameinuðu Þjóðunum, í Franska sendiráðinu á Íslandi og vinnur í dag í Kvennaathvarfinu.
Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt er fæddur í Reykjavík árið 1934. Þegar hann kom heim úr námi í byrjun sjötta áratugarins var Reykjavík berangursleg borg sem var í þann mund að springa út. Borgin átti eftir að breiða úr sér en einnig verða grænni og skjólríkari. Reynir kom heim til að vinna í nýju aðalskipulagi og taka þátt í uppbyggingu nýrra hverfa, Árbæjar og Breiðholts, en á löngum ferli hefur Reynir komið að óteljandi verkefnum. Leiksvæðum og íbúðahverfum í borginni, grænum svæðum á borð við Elliðaárdalinn, Laugardalinn og Miklatún, sem og snjóflóðavarnargarðinum á Siglufirði. Reynir hlaut í síðustu viku heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands við hátíðlega athöfn í Grósku. Reynir verður gestur Víðsjár í dag og lítur með okkur yfir farinn veg. "Þú ferð einn þíns liðs, berfættur, inn um rauf á skúlptúr sem hefur lífræna lögun og útlit. Augun aðlagast myrkrinu þar inni, mjúk og gróf form birtast þér. Þú finnur vísbendingar um dýr og önnur fyrirbæri, loftið er þrungið krydduðum ilmi, jörðin er mjúk og hreyfanleg." Svona hljómar lýsing á innsetningu sem gestum býðst að upplifa í Hafnarhúsi og hefur titilinn Horse Inside Out, eða Hestur innanverður. Víðsjá skreið fram úr rúminu í morgun og fetaði sig í gegnum morgunmyrkrið inn í þessa dularfullu innsetningu. Við heyrum af því í síðari hluta þáttar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Sandra Sigurðardóttir, markvörður Vals og landsliðsins, var fyrsti gestur þáttarins. Keppnistímabilinu er lokið og urðu Sandra og samherjar hennar í Val bæði Íslands- og bikarmeistarar en framundan er leikur um laust sæti á heimsmeistaramótinu næsta sumar. Sandra byrjaði ung að spila fótbolta á Siglufirði og á að baki 21 tímabil í efstu deild. Efnahagsástandið í heiminum hefur gjörbreyst á skömmum tíma. Fyrir tæpum tveimur árum voru stýri- eða meginvextir víðast hvar undir einu prósenti en á undanförnum mánuðum hafa níu af hverjum tíu seðlabönkum gripið til hækkana. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, fór yfir stöðuna. Hann er ekki sannfærður um að verðbólga og vextir lækki á næsta ári eins og vonast er eftir. Við hertöku Íslands 10. maí 1940 lögðu Bretar hald á skjöl í fórum ræðismanns Þýskalands í Reykjavík. Frá Bretum komust þau í vörslu tveggja íslenskra ráðuneyta en hafa í rúm 30 ár verið varðveitt í Þjóðskjalasafninu. Í dag verða þessi skjöl afhent forseta Sambandsskjalasafns Þýskalands enda eru þau með réttu eign þýska ríkisins. Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður, sagði frá þessum skjölum og átaki í heiminum sem miðar að því að koma skjölum í réttar hendur. Tónlist: Þú og ég - Hljómar, My girl - The Temptation, Get ready - The Temptation, Vængjum þöndum - Stefán Hilmarsson, Ain?t to proud to beg - The Temptation. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Útför Elísabetar drottningar fer fram í Lundúnum í dag og hefur mikil áhrif á lífið þar. Sturla Sigurjónss, sendiherra Íslands í Bretlandi, var á línunni í upphafi þáttar og sagði frá. Skuldir ríkissjóða um allan heim hafa aukist mjög að undanförnu. Það kann að hljóma illa en þarf ekki að gera það; ekki ef lánardrottnar eru einkum innlendir seðlabankar og lífeyrissjóðir. Ásgeir Brynjar Torfason fjallaði um ríkisskuldir í spjalli um alþjóðleg efnahagsmál fór líka yfir viðbrögð Evrópusambandsins við efnahagsvandanum. Bæjar- og sveitarstjóraskipti urðu í tugum sveitarfélaga eftir kosningarnar í maí og nýtt fólk er að koma sér fyrir og setja sig inn í málin. Í þeim hópi er Sigríður Ingvarsdóttir sem í síðustu viku tók við formlega sem bæjarstjóri Fjallabyggðar. Við spjölluðum við Sigríði um lífið og tilveruna á Siglufirði og Ólafsfirði og sveitunum í kring. Börn sem dvöldu á vistheimilum á árum áður áttu ekki sjö dagana sæla. Enn ein skýrslan um hræðilegt líf barna og unglinga í umsjá opinberra stofnana kom út í síðustu viku. Hún fjallar um meðferðarheimili í Varpholti og á Laugalandi í Eyjafirði. En hvernig er staðið að málum í dag þegar börn geta ekki, af einhverjum ástæðum, dvalið heima hjá sér og kerfið þarf að grípa inn í? Eru þau í öruggum höndum? Við spurðum Ólöfu Ástu Farestveit forstjóra Barna- og fjölskyldustofu. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Over the rainbow ? Judi Garland The look of love ? Dusty Springfield The way we were ? Shirley Bassey Ást er ? Gautar

Rúmlega 2500 manns sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi á fyrstu átta mánuðum ársins. Fleiri en nokkru sinni fyrr. Ríkisstjórnin vill breyta lögum um útlendinga og hefur fjórum sinnum lagt fram frumvarp þar um án þess að breytingarnar hafi náð fram að ganga. Hart var tekist á um málið á Alþingi í vor en málinu þá frestað til hausts. Guðrún Hálfdánardóttir fjallar um málaflokkinn á Morgunvaktinni í vikunni, í dag ræddi hún við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Biblían, grundvallarrit kristinna, er sú bók sem oftast hefur verið gefin út í veraldarsögunni. Og þótt margir hafi lesið hana, að hluta eða alla og margir oft og vel, liggja eflaust Biblíur víða sem sjaldan eða aldrei hefur verið flett. Hún er ekki árennileg. Þórhallur Heimisson, prestur í Svíþjóð, þekkir Biblíuna vel og hefur skrifað um hana 500 blaðsíðna bók. ?Allt sem þú vilt vita um Biblíuna,? nefnist hún. Þórhallur spjallaði við okkur um bók bókanna og spurðum sérstaklega á hvaða orðum hennar andúð sumra kristinna á samkynhneigð er grundvölluð. Og svo er það Gústi guðsmaður sem réri til fiskjar í kompaníi við almættið og boðaði guðsorð á Ráðhústorginu á Siglufirði. Í dag eru 125 ár frá fæðingu Gústa - Guðmundar Ágústs Gíslasonar - við fjölluðum hann upp úr klukkan hálf níu. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Halló Akureyri - Lúdó og Stefán I don't wanna talk about it ? Rod Stewart Gústi guðsmaður - Gylfi Ægisson

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Snærós Sindradóttir Það hefur snjóað mikið á Siglufirði í vikunni og veðurstofan metur hættuna á snjóflóðum á Siglufjarðarvegi töluverða. Við hringdum norður og heyrðum í Diljá Auði Kolbeinsdóttur Gray sem er móttökustjóri á Hótel Sigló. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur beint því til fjármálaráðherra að skoða hvort tilefni sé til að framlengja ívilnanir vegna innflutnings tengiltvinnbíla. Við ræddum við Jóhannes Jóhannesson hjá Bílgreinasambandinu. Dýrasta framkvæmd Vopnafjarðarhrepps á næsta ári verður borun nýrrar holu eftir meira vatni fyrir bæjarbúa en sú framkvæmd kostar um fimmtán milljónir króna samkvæmt áætlun. Þetta á að tryggja meira öryggi í vatnsmálum Vopnfirðinga og við heyrðum í Baldri Kjartanssyni, fjármálastjóra hreppsins, um fyrirhugaða vatnsleit. Covid er það sem brennur á fólki þessa dagana en ríflega tólf þúsund manns eru í sóttkví eða einangrun og smittölur margfaldar á við það sem þótti mikið þegar veiran var sem skæðust. Við heyrðum í heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, um stöðuna í faraldrinum. Fréttamenn RÚV vinna nú hörðum höndum að því að klára fréttaannál ársins sem sýndur verður venju samkvæmt á gamlárskvöld. Í þetta skiptið sjá þau Guðmundur Bergkvist, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Ólöf Ragnarsdóttir um þáttinn - og Ólöf kíkti til okkar og ræddi annálsvinnuna og árið í erlendum fréttum. Alls greindust 23 starfsmenn Landspítalans með COVID-19 í fyrradag en sýnatökum var ekki lokið í gærkvöldi. Sjö inniliggjandi sjúklingar, þar af sex á hjartadeild, hafa greinst smitaðir og spítalinn var settur á neyðarstig í gær, það er í annað sinn í faraldrinum sem gripið er til þess ráðs. Við heyrðum í Ólafi Guðlaugssyni, yfirlækni sýkingavarnadeildar Landspítalans. Tónlist: Emilíana Torrini - Vertu Úlfur Justin Timberlake - Say Something GDRN & Flóni - Lætur mig Júníus Meyvant - Ástarsæla Feldberg - Dont be a stranger Prins Póló - Niðri á strönd Donna Summer - Hot Stuff Gary Jules - Mad World Silk Sonic - Smoking out the window
Í Víðsjá í dag verður m.a. rætt við Aðalheiði Sigríði Eystiensdóttur, betur þekkt sem Alla Sigga í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Alla Sigga er fyrst og fremst þekkt fyrir tréskúlptúrana sína en hún er einnig ein helsta driffjöður menningarlífsins í Eyjafirði. Í dag hefst listasmiðjan Skafl á Siglufirði, hátíð sem Alla Sigga heldur utan um auk fjölda annara viðburða í bænum. Víðsjá slær á þráðinn til Siglufjarðar í þætti dagsins. Snæbjörn Brynjarsson fjallar um Sýninguna okkar sem nú er sýnd í Þjóðleikhúsinu og fjallað verður um rússneska tónskáldið Sofiu Gubaidulinu sem varð níræð í gær. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Spegillinn 22. september 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Hátæknifyrirtæki í Garðabæ varð fyrir árás rússneskra tölvuþrjóta fyrir síðustu helgi. Þrjótarnir krefjast milljóna króna í lausnargjald fyrir gögn sem þeir lögðu hald á. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur skipað þriggja manna nefnd sem ætlað er að rannsaka atburðarásina í aðdraganda þess að formaður Knattspyrnusambands Íslands sagði af sér. Þjóðverjar eru andvígir því að talibönum verði leyft að ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, eins og þeir hafa farið fram á. Framsóknarflokkurinn er með rúmlega 14 prósenta fylgi í nýrri fylgiskönnun MMR og mælist næst stærstur. Sjálfstæðisflokkur er með tæp 22 prósent. Athafnamaðurinn Róbert Guðfinnsson hefur sett allar eignir sínar sem tengjast ferðaþjónustu á Siglufirði á sölu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú andlát karlmanns á þrítugsaldri sem missti meðvitund í Sky Lagoon í Kópavogi. Bæjarstjórinn í Fjallabyggð segir að ekki þurfi að ráðast í miklar framkvæmdir í Siglufjarðarhöfn til að útbúa þar aðstöðu fyrir nýtt varðskip. Hann telur miklu máli skipta fyrir landsbyggðina að varðskip skuli nú í fyrsta sinn hafa eignast heimahöfn úti á landi. Lengri umfjöllun: Þrír dagar eru til alþingiskosninga. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Einar K Guðfinnsson fyrrverandi þingmenn og fyrrverandi forsetar Alþings ræða kosningabaráttuna, yfirbragð hennar, samanburð við fyrri kosningar í Speglinum. Kristján Sigurjónsson talar við þau. Art Basel eða listaverkamessan í Basel er mikilvægasti sölustaður nútímalistar og stendur nú yfir, var aflýst í fyrra. Covid hefur án efa áhrif á alþjóðlegan listamarkað eins og annað, sama með stafræna tækni og aukna umhverfisvitund, en nákvæmlega hver áhrifin verða er ekki ljóst eins og tíðindamaður Spegilsins heyrði í heimsókn á Art Basel. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Við heimsækjum tvær skapandi listakonur á Siglufirði í þættinum. Það eru þær Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Brynja Baldursdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Sandra kemur nú í þriðja sinn á Þjóðlagahátíðina á SIglufirði til þess að kynna og kenna dansa og tónlist frá Gíneu ásamt manni sínum Mamady Sano.
Nú fjölgar í hópi full bólusettra dag frá degi og Hulda gerði sér ferð niður að Laugardalshöll í gær og hitti nokkra káta úr þeim hópi utan við höllina. Ummæli við viðtal Fréttablaðsins í síðustu viku við séra Sigurð Ægisson, sóknarprest á Siglufirði sem merkt hefur fugla, þar sem mælt er með því að eitrað skuli fyrir köttum með því að blanda matvælum saman við frostlög hafa verið tilkynnt til Matvælastofnunar. Dæmi eru um að eitrað hafi verið fyrir dýrum meðal annars í Hveragerði eins og þekkt er af fréttum. Sigurður gerði í viðtalinu athugasemdir við lausagöngu katta yfir varptímann. En kemur svona sterka afstaða gegn köttum kattavinum á óvart og hvernig taka þeir í bann við lausagöngu katta? Við hringdum í Jóhönnu Ásu Evensen rekstrarstjóra Kattholts. Enduro mótorsport nýtur vaxandi vinsælda og fyrir skemmstu var haldin Enduro keppni í í Syðra-Langholti þar sem metfjöldi tók þátt. En hvað er Enduro og út á hvað gengur þetta? Þeir Einar Sverrir Sigurðsson og Pétur Smárason kíktu til okkar og segja okkur allt um það. Í dag fer fram ráðstefnan Máltæknibyltingin þar sem umfjöllunarefnið er stafræn nýsköpun íslenskunnar. Vilhjálmur Þorsteinsson hjá Miðeind er einn þeirra sem flytur erindi en það ber titilinn Gervigreind eða dauði, Samkeppnisfærni á tímum tauganeta. Hljómar kannski flókið - en við fengum Vilhjálm til að útskýra. Svo kom Sævar Helgi Bragason til okkar í vísindaspjall og ræddi m.a. um pasta og rafbíla. Tónlist: Jón Ólafsson - Frétt númer þrjú. Celeste - Love is back. Valdís - Breathe. Daði og Gagnamagnið - 10 years. Lights on the highway - Leiðin heim. E.L.O. - Telephone line. The Black Mamba - Love is on my side. Band of horses - No ones gonna love you. Twenty One Pilots - Shy away.
Átakið Hjólað í vinnuna fer af stað í dag, en það er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og er heilsu og hvatningarverkefni. Árið í ár er 19. árið sem það fer fram og átakið stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 25. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta. Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, kom til okkar og fór yfir það helsta sem við þurfum að vita. Barnaþing verður haldið öðru sinni í haust, en á næstu dögum eiga 350 börn um land allt von á bréfi frá umboðsmanni barna þar sem þeim er boðið til þingsins. Þau börn sem fá boð á þingið voru valin með slembivali úr þjóðskrá til að fá sem fjölbreyttastan hóp til þátttöku en markmið þingsins er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem þau varða. Salvör Nordal umboðsmaður barna kom til okkar og sagði okkur meira af þessu verkefni. Við forvitnuðumst um þyrluskíðaferðir á Siglufirði en nóg hefur verið að gera á þeim vettvangi undanfarið. Við hringdum í Björgvin Björgvinsson hjá Viking heliskiing og fengum hann til að segja okkur frá þessum ferðum. Þá sagði Björgvin okkur frá lúxushóteli sem þeir félagar eru með í bígerð á Grenivík. Ríkisstjórn Íslands hefur fjárfest í námskeiði um gervigreind til að styrkja samkeppnishæfni Íslendinga. Forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsmálaráðuneytið fara fyrir verkefninu í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Um er að ræða finnskt vefnámskeið sem hefur verið þýtt á íslensku og er öllum opið. Við fengum þau Írisi Huld Christersdóttur, sérfræðing í fjármálaráðuneytinu og Ólaf Andra Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, til okkar til að leiða okkur í allan sannleikann um þetta námskeið. Við heyrðum svo í okkar manni á Spáni, Jóhanni Hlíðar Harðarsyni, sem lumaði á tíðindum af kosningum, málaferlum og Eurovision. Ragnar Már Vilhjálmsson frá Color Run á Íslandi kom til okkar og sagði okkur frá breytingum á hlaupinu vinsæla í sumar. Tónlist: Bubbi Morthens - Fallegur dagur. Eyjólfur Kristjánsson - Dagar. Greentea Peng - Hu Man. Steely Dan - Hey Nineteen. Krummi - Frozen teardrops. Dua Lipa - Were good. Sigurður Guðmundsson - Kappróður. Madonna - Papa dont preach.
Í þætti dagsins verður forvitnast um Sauðfjárverndina, farið í heimsókn á Síldarminjasafnið á Siglufirði og forvitnast um líf síldarstúlkna auk þess sem bruninn í alþýðuskólanum á Eiðum árið 1960 er rifjaður upp. Efni í þáttinn unnu Margrét Blöndal, Gígja Hólmgeirdsóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Í þætti dagsins eru sagðar sögur frá Fjallabyggð. Fyrst förum við í heimsókn til Óskars Þráins Finnssonar, fyrrverandi sjómanns, vitavarðar og síðar kirkjuvarðar við Ólafsfjarðarkirkju. Óskar Þráinn er fæddur á bænum Ytri-Á á Kleifum í Ólafsfirði og er yngsti sonur hjónanna Mundínu Þorláksdóttur og Finns Björnssonar. Mundína og Finnur eignuðust saman tuttugu börn á árunum 1917-1945. Óskar segir frá lífi sínu og rifjar upp örlagaríkan dag þegar hann lenti í alvarlegu slysi sem vitavörður við Bríkurvita. Í þættinum kynnumst við einnig Elíasi Péturssyni, bæjarstjóra í Fjallabyggð og Anitu Elefsen, safnstjóra Síldarminjasafnsins á Siglufirði. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Guðmundur Felix Grétarsson er farinn að geta hreyft upphandleggina. Á hann voru græddir handleggir og axlir fyrir rúmri viku og var það í fyrsta sinn sem slíkt er gert. Guðmundur segir draugaverkir sem hann var með fyrir ágræðslu hafi aukist til muna. Kristín Sigurðardóttir tók saman. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stöðu afvopnunarmála í heiminum áhyggjuefni en Ísland hefur ekki fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum. Höskuldur Kári Schram ræddi við hana. Hafrannsóknastofnun hefur lagt til rúmlega 54 þúsund tonna loðnukvóta á yfirstandandi vertíð. Réttarhöld yfir Donald Trump fyrrverandi bandaríkjaforseta hefjast í öldungadeild Bandaríkjaþings eftir helgi. Hann er sakaður um að hafa hvatt stuðningsmenn sína til að ráðast á þinghúsið í Washington. Ásgeir Tómasson sagði frá. Enn er hættustig vegna snjóflóðahættu á Siglufirði og rýmingu þar verður ekki aflétt að svo stöddu. Fjallvegir eru víða ófærir á norðanverðu landinu, Landspítali tók í dag í notkun 3.400 fermetra húsnæði að Eiríksgötu 5. Þar verður klínísk starfsemi, fjarheilbrigðisþjónusta og göngudeildarþjónusta fyrir konur með brjóstakrabbamein. Bjarni Rúnarsson sagði frá. Tónlistarmaðurinn Mugison veit ekki hvað manni sem auglýsti streymistónleika í nafni The Mugison gekk til og finnst það óþægilegt þó að ekki hafi verið krafist greiðslu. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Örn Elías Guðmundsson. ---- Í kosningum frá hruni hefur orðið mikil endurnýjun á þingi en Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði á ekki endilega von á því að svo verði í haust. Það yrði þá helst ef stórfelldar breytingar verða á fylgi flokka. Hann telur líkur á að 7-9 flokkar eigi menn á þingi eftir kosningar, nú eru þeir átta en afarbrýnt sé að breyta kosningalögum til auka á jöfnuð. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir ákvörðun flugfélagsins Bláfugls að segja upp 11 flugmönnum félagsins í miðri kjaradeilu. Það sé brot á lögum og jafnframt að ráða aðra flugmenn í staðinn á lægri kjörum. Arnar Páll Hauksson sagði frá. Náttúruauðlindir eru ekki alltaf nýttar til góðs. Mýmörg dæmi um lönd sem eru þjökuð af svokallaðir ,,auðlindabölvun.“ Nýting Norðmanna á sinni olíu gefur þó tilefni til að tala um ,,auðlindablessun“ og Norski olíusjóðurinn er ein skýring þess. Sigrún Davíðsdóttir heldur áfram að fjalla um þjóðarsjóð.
Óvissustig er enn í gildi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og hættustig er á Siglufirði. Búast má við truflunum á samgöngum á meðan þetta ástand varir og er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með tilkynningum Vegagerðarinnar. Rýming níu húsa í sunnanverðri byggðinni á Siglufirði er enn í gildi, en íbúar fengu þó að fara í stutta stund heim til sín í gærkvöldi til að sækja hluti og huga að eigum sínum. Gígja Hólmgeirsdóttir fór til Siglufjarðar í gær og heyrði hljóðið í nokkrum bæjarbúum. Í samráðsgátt stjórnvalda er nú til kynningar áform um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni um afglæpavæðingu neysluskammta. Einn af þeim sem hafa sent inn umsögn um málið er Birgir Örn Guðjónsson, kallaður Biggi lögga. Hann segist vera sammála þessum breytingum og notar sem rök reynslu sína úr lögreglunni meðal annars. Við fengum Birgi Örn til okkar til að fara yfir þá hlið mála. Stefán Pálsson sagnfræðingur hefur ritað sögu Happdrættis Háskóla Íslands í 85 ár í bókinni Gleymið ekki að endurnýja. Hann kom til okkar í spjall og sagði okkur frá eins og honum einum er lagið. Okkar hálfsmánaðarlega hégómavísindahorn var á dagskrá í dag og þar fengum við fréttir af fræga fólkinu með Frey Gígju Gunnarssyni. Þar var innsetningarathöfn Bandaríkjaforseta í brennidepli. Tónlist: Lay Low - Þorralitirnir. Sálgæslan og KK - Þú varst ástin mín. Tracy Chapman - Talkin about a revolution. Nýdönsk - Horfðu til himins. Jón Jónsson og GDRN - Ef Stjórnin - Ég fæ aldrei nóg af þér. ABBA - Gimme, gimme, gimme (A man after midnight). Jónas Sig - Baráttusöngur uppreisnarklansins á skítadreifurunum. Birnir - Spurningar (ft. Páll Óskar).
Íbúar í húsum sem rýmd voru á Siglufirði í gær fá ekki að snúa heim að svo stöddu. Hættustig vegna snjóflóðahættu á Siglufirði gildir áfram. Neysla landsmanna um jólin var meiri en verið hefur frá upphafi mælinga. Minni veikindi voru bæði í haust og í lok síðasta árs, líklega vegna sóttvarna. Þetta kemur fram í Samfélagsmælikvarða Gallups. Nýútskrifaðir talmeinafræðingar fá ekki að vinna samkvæmt rammasamningi við Sjúkratryggingar fyrr en að tveimur árum liðnum. Formaður félags þeirra segir 600 börn bíða eftir þjónustu. Það kom öllum á óvart hversu stór og mikill Covid-19 faraldurinn varð segir Geir Gunnlaugsson prófessor í hnattrænni heilsu við Háskóla Íslands og fyrrverandi landlæknir. Nú standi heimsbyggðin öll, og sérstaklega ríkari lönd, frammi fyrir siðfræðilegum spurningum um forgangsröðun í bólusetningu. Senn verður eitt ár liðið frá því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna kórónuveirunnar. Kristján Sigurjónsson talaði við Geir Gunnlaugsson. Íslenskur sálfræðingur, sem starfar í London, segir að takmarkanir sem gripið hefur verið til í Bretlandi hafi haft gríðarlega mikil áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu fólks. Þórdís Arnljótsdóttir talar við Björgu Sigríði Hermannsdóttur sálfræðing í London.
Spegillinn 20.janúar 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Marteinn Marteinsson Joe Biden sór í dag embættiseið sem 46. forseti Bandaríkjanna við hátíðlega athöfn á tröppum þinghússins í Washington. COVID-19 faraldurinn og hryðjuverkaógn öfgamanna settu svip sinn á athöfnina. Hættustigi Almannavarna var lýst yfir á Siglufirði í dag vegna snjóflóðahættu og íbúðarhús rýmd í kjölfarið. Enn hefur ekki tekist að meta skemmdir á skíðasvæðinu á Siglufirði sem varð fyrir snjóflóði í morgun. Varðskipið Týr er á leið norður. Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík og annar oddvita þar ætlar ekki að taka þriðja sæti á lista flokksins í höfuðborginni fyrir næstu kosningar. Formaður flokksins segir að lýðræðislegt ferli hafi ráðið því að Ágúst komst ekki ofar á lista. Andri Snær Magnason hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins í dag. Útlendingastofnun bárust fjórðungi færri umsóknir um alþjóðlega vernd í fyrra en árið áður, en þó hafa aldrei fleiri fengið vernd. Forstjóri Útlendingastofnunar segir líklegt að umsóknum fjölgi um leið og samgöngur milli landa verði greiðari. Ísland tapaði fyrir Sviss með tveggja marka mun í milliriðli Heimsmeistaramótsins í handbolta í dag. Lengri umfjöllun: Joe Biden er nýr forseti Bandaríkjanna, settur í embætti í dag. Spegillinn settist niður með Höllu Hrund Logadóttur stjórnmálafræðingi og sviðsstjóra Miðstöðvar norðurslóða við Harvard háskóla í Boston í Bandaríkjunum og ræddi við hana um verkefnin sem bíða nýs forseta. Kristján Sigurjónsson talar við Höllu Hrund. Prófíll af Jo Biden. Joseph Robinette Biden yngri tók við sem 46. forseti Bandaríkjanna. Hann er 78 ára og elstur þeirra sem hafa tekið við því embætti. Ferð hans í Hvíta húsið hefur enda tekið nærri hálfa öld að segja má, allt frá því að hann var kjörinn öldungadeildarþingmaður fyrir Delaware árið 1972. Á kjördegi var hann aðeins 29 ára og hafði því ekki aldur til að setjast í öldungadeildina, en var orðinn þrítugur þegar hann tók sæti sitt. Biden er kaþólikki, elstur fjögurra systkina og fæddur í Scranton í Pennsylvaniu en flutti til Delaware með fjölskyldu sinni á barnsaldri. Hann lauk laganámi og hafði setið í sveitarstjórn um skamma hríð þegar hann var kosinn öldungadeildarþingmaður Demókrata. Þar sat hann svo í þrjátíu og sex ár þar til Barack Obama valdi hann sem varaforsetaefni sitt. Hann gegndi síðan embætti varaforseta bæði kjörtímabil Obama. Anna Kristín Jónsdóttir tekur saman. Kristján Sigurjónsson ræðir beint við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um ands