Podcasts about danmerkur

  • 36PODCASTS
  • 227EPISODES
  • 1h 9mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 2, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about danmerkur

Latest podcast episodes about danmerkur

Besta platan
#0254 Kim Larsen – 231045-0637

Besta platan

Play Episode Listen Later May 2, 2025 81:15

Kim Larsen er vinsælasti tónlistarmaður Danmerkur frá upphafi, eða eins og Danir segja: „Hann er spilaður þegar þú fæðist, þegar þú giftir þig og þegar þú deyrð“. Platan 231045-0637 frá árinu 1979, eða „kennitöluplatan“ eins og hún er oft kölluð, er hans besta að mati Hauks, en hvað segja meðstjórnendur?

Mannlegi þátturinn
Þættir um Arnar og Bjarka, gengið til Rómar og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 49:32

Við forvitnuðumst í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð sem kallast A&B og er saga tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. Þeir vöktu fljótt mikla athygli fyrir mikla hæfileika á knattspyrnuvellinum á Skaganum. Þeir fóru ungir í atvinnumennskuna, léku með landsliðinu og saga þeirra þar er rakin í þáttunum. Þeim er svo fylgt eftir í gegnum viðskiptaævintýri eftir atvinnumennskuna og hvernig þeir fundu báðir aftur fótboltann og nú er til dæmis Arnar orðinn landsliðsþjálfari hjá karlalandsliðinu. Þetta er saga drengja sem upplifa drauma sína, en lenda líka í hremmingum innan sem utan vallar. Gunnlaugur Jónsson, umsjónarmaður, handritshöfundur og framleiðandi þáttanna, kom í þáttinn ásamt Arnari, öðrum bróðurnum. Steinunn Harðardóttir leiðsögukona hefur í 12 ár farið í pílagrímsgöngur áleiðis til Rómar en á miðöldum gengu fjölmargir íslenskir pílagrímar til Rómar. Einn þeirra var Nikulás ábóti á Munkaþverá í Eyjafirði en hann fór til Noregs og Danmerkur og gekk þaðan til Rómar og svo alla leið til Jerúsalem. Hann skrifaði leiðarvísi fyrir aðra pílagríma árið 1153-4, „Leiðarvísir og borgarskipan“ er sá eini sinnar tegundar frá þessum tíma sem hefur varðveist í Evrópu. Þegar Steinunn kom til Rómar síðasta haust stóðu yfir miklar viðgerðir á borginni vegna Heilags árs hátíðarhöldum sem hófust á jólum 2024 og standa út allt þetta ár. Heilög ár eru haldin af kaþólsku kirkjunni á 25 ára fresti. Steinunn kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það er hafið nýtt eldgos suðaustur af Þorbirni við Grindavík, því fór Einar aðeins yfir stöðuna, til dæmis hvað varðar gasdreifingu. Svo gerði hann aðeins upp veturinn, en með mars lauk veðurstofuvetrinum. Einar talaði svo að lokum um mikla hita sem nú geysa á fjarlægum slóðum, s.s. sunnarlega í Bandaríkjunum, í Kákasus og á Tælandi og merkilegt marsveður sem Madrídingar og Spánverjar hafa upplifað. Tónlist í þættinum í dag: Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson (Michel Legrande, texti Hjördís Morthens) April in Paris / Count Basie orchestra (Vernon Duke) Creepin' in / Dolly Parton og Norah Jones (Lee Alexander) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Stefán Ingvar föstudagsgestur og skápahreinsun í matarspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 28, 2025 52:30

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var uppistandarinn, pistlahöfundurinn, leikskáldið og grínarinn Stefán Ingvar Vigfússon. Hann byrjaði mjög ungur að skrifa og var einn þeirra sem stofnuðu sviðslistaviðburðinn Ungleik. Hann hefur framleitt og flutt sýningar, skrifað efni fyrir sjónvarp og leiksvið, skrifað pistla í fréttamiðla og er hluti af uppistandshópnum VHS. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, smá til Danmerkur og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag, en hann frumsýnir á næstunni uppistandssýninguna Stefán Ingvar sigrar atvinnulífið. Svo var það matarspjallið. Frú Sigurlaug Margrét kom auðvitað og í dag skoðuðum við alls konar skápa- búr- ískáps og frystikistuhreinsanir. Það eru að koma mánaðarmót og við veltum fyrir okkur hvað er hægt að elda úr því sem er til á heimilinu. Tónlist í þættinum í dag: Don't Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson) Miami Memory / Alex Cameron (Alex Cameron) The End / Salóme Katrín (Salóme Katrín) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Podcast með Sölva Tryggva
Nicolai Engelbrecht með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Feb 11, 2025 80:55

https://solvitryggva.is/ Nicolai Engelbrecht var í áraraðir fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, þar sem hann var á tímabili nær dauða en lífi með stórhættulega menn á eftir sér. En eftir að hafa náð botninum fann hann leiðina út. Hann ferðaðist í kjölfarið víðs vegar um heiminn og lærði öndun, bardagalistir, hugleiðslu og margt fleira af fólki í öllum heimsálfum. Í dag kennir hann bæði föngum og öðru fólki allar þær aðferðir sem hann hefur lært til að færa líf sitt í jafnvægi. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/

Heimskviður
207 - Bandaríkjaforsetarnir sem vildu kaupa Grænland og norður-kóreskir hermenn á vígvellinum

Heimskviður

Play Episode Listen Later Feb 8, 2025 43:46

Donald Trump er ekki fyrsti forseti Bandaríkjanna sem viðrar hugmyndir um kaup á Grænlandi. Harry Truman vildi kaupa Grænland í upphafi kalda stríðsins og Andrew Johnson skoðaði hugmyndina sömuleiðis á nítjándu öld. En er þá ekki hægt að ekki hægt að líta á hugmyndir Trumps um kaup á Grænlandi með tilvísun í söguna og forvera hans sem höfðu sambærilegan áhuga á þessu nágrannalandi? Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og blaðamaðurinn Árni Snævarr ræða við Birtu Björnsdóttur um sögulegan áhuga Bandaríkjamanna á Grænlandi og hið flókna samband Danmerkur og Grænlands. Undir lok síðasta árs bárust fregnir af því að Rússum hefði borist liðsauki í stríðinu gegn Úkraínu. Norðurkóreskar hersveitir voru mættar á vígvöllinn. Eins og flest allt sem viðkemur einræðisríkinu Norður-Kóreu eru hlutverk og þátttaka þessara hersveita sveipuð leynd. Ólöf Ragnarsdóttir rýndi í það sem hefur þó komið fram og ræddi við Jón Björgvinsson, sem hefur margoft farið á vígvöllinn í Úkraínu.

Spegillinn
Fjármálaráðuneytið borgaði án þess að skoða skráningu flokka og Grænland og vestnorræna ráðið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 28, 2025 20:00

Fjármálaráðuneytið kannaði ekki hvort þeir flokkar sem áttu rétt á framlagi úr ríkissjóði væru skráðir á stjórnmálaskrá ríkisskattstjóra. Ráðuneytið kallar þetta misbrest á verklagi sem bætt hafi verið úr. Ríkisendurskoðandi hvetur til þess að lögin verði tekin til endurskoðunar. Forsætisráðherra Danmerkur fór víða um Evrópu í dag til að treysta samstöðu með bandamönnum sínum og fáum duldist að það væri vegna togstreitu við Bandaríkjaforseta vegna Grænlands. Vestnorræna ráðið ályktaði nýlega um stuðning við Grænland og að Grænlendingar ráði framtíð sinni sjálfir.

Heimsglugginn
Hótanir Trumps um að beita hervaldi til að ná Grænlandi undir Bandaríkin.

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 23:37

Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna segist ekki geta útilokað að beita hervaldi eða efnahagslegum aðgerðum til að ná Grænlandi og Panama undir yfirráð Bandaríkjanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu Grænlandsmál við Boga Ágústsson í Heimsglugganum. Bandaríkjamenn hafa raunar haft herstöðvar á Grænlandi síðan 1951 samkvæmt varnarsamningi milli Bandaríkjanna og Danmerkur. Rætt var um afstöðu Grænlendinga og möguleika á sjálfstæði, einnig um viðbrögð við yfirlýsingum Trumps í Danmörku, á Grænlandi og víðar.

Spegillinn
Búseti og skemman stóra, Ísland og Úkraína, svakalega sveiflukennt rafmagnsverð á Norðurlöndum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2024 20:00

Búseti fór þess á leit við byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um miðjan nóvember að framkvæmdir við vöruhúsið sem nú rís við Álfabakka yrðu stöðvaðar. Þetta kemur fram í gögnum sem Spegillinn fékk afhent í dag. Vöruhúsið byrgir íbúum fjölbýlishúss við Árskóga sjö sýn, blokk sem Búseti byggði. Í bréfi Búseta frá í nóvember kom meðal annars fram að á lóðinni væri verið að reisa fjögurra hæða hús, tólf metra háa byggingu, sem ætti sér enga stoð í útgefnu byggingarleyfi eða svörum skipulagsfulltrúa við fyrirspurn frá áhyggjufullum hjónum sem óttuðust að birtan yrði tekin frá þeim ef svona hátt hús myndi rísa á reitnum. Verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa sefaði áhyggjur hjónanna og taldi sig nánast geta fullyrt að slíkt myndi ekki gerast. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta og ræðir við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn. Staðan í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hugmyndir um friðargæslulið verða líklega á dagskrá fundar í Brussel kvöld, þar sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hittir leiðtoga Evrópusambandsins og nokkurra Evrópuríkja, þar á meðal Íslands. Zelensky fundaði með leiðtogum tíu Evrópuríkja í gær, þeirra á meðal Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlads, sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, starfandi utanríkisráðherra, segir hafa fengið afgerandi skilaboð í veganesti. Björn Malmquist ræðir við Þórdísi Kolbrúnu. Þetta er galið raforkukerfi og Svíþjóð getur ekki búið við kerfi sem er svona háð duttlungum veðráttunnar, sagði Ebba Busch, orkumálaráðherra Svíþjóðar þegar rafmagnsverð þar rauk upp úr öllu valdi í síðustu viku. Danir supu líka hveljur þegar þeim varð litið á rafveitu-öppin sín, sem birta rafmagnsverð í rauntíma – en á fimmtudaginn var, klukkan fjögur síðdegis, kostaði kílóvattstundin ellefu danskar krónur – rúmar tvö hundruð íslenskar, sem þýðir að passlega heit fimm mínútna sturta kostaði þúsundkall. Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Mannlegi þátturinn
Maríanna í Portúgal og Ágúst Páll lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 16, 2024 52:39

Maríanna Friðjónsdóttir sjónvarpsframleiðandi og leikstjóri hefur haft vetrarsetu í Portúgal síðustu 9 ár með móður sinni Viktóríu Særúnu Gestsdóttur. Yfir sumartímann hefur Marianna farið heim til Danmerkur þar sem hún bjó í 20 ár og mamma hennar verið á Íslandi en núna hefur Marianna flutt alfarið til Portugal. Við slógum á þráðinn til Mariönnu og fengum að vita hvernig lífið gengur fyrir sig hjá þeim mæðgum í litla þorpinu þar sem þær búa. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ágúst Páll Óskarsson, hann er nemi á þriðja ári í Kvennó og vinnur á bókasafni Mosfellsbæjar. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlistin í þættinum Jólin eru hér / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Sigurður Halldór Guðmundsson, texti Bragi Valdimar Skúlason) Er líða fer að jólum / Sigríður Thorlacíus og Sigurður Guðmundsson (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson) Hin fullkomnu jól / Hildur Jónsdóttir og Einar Örn Magnússon (Hidur Jónsdóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Sterk saman
#126 Sólveig Linnet

Sterk saman

Play Episode Listen Later Dec 1, 2024 90:32

Sólveig er 26 ára stelpa úr Laugardalnum. Hún hefur verið í neyslu í 10 ár og farið í nokkrar meðferðir án árangurs. Hún er komin á endastöð, að eigin sögn og á leið til Danmerkur í meðferð í byrjun desember.

danmerkur laugardalnum
Spegillinn
Hverjir ætla að hætta á þingi? Hvernig verður kosningaveturinn? Opinber heimsókn Höllu.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 8, 2024 20:00

Það er farið að bera á kosningaskjálfta ; talað um að kjósa í vor frekar en næsta haust þegar og að áhugaverður vetur og átök séu framundan í pólitíkinn. Spegillinn ræddi við Bergþór Ólason, þingmann Miðflokks og Bryndísi Haraldsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks um veturinn framundan. Spegillinn spurði alþingismenn hvort þeir ætluðu að gefa kost á sér á fyrir næstu þinkosningar. Og það er bara einn ákveðinn í að hætta. 34 ætla sér að halda áfram. Hallgrímur Indriðason segir frá því helsta sem gerst hefur í dag í opinberri heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Danmerkur.

Podcast með Sölva Tryggva
Ásgeir Andri með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Aug 20, 2024 107:37

Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Ásgeir Andri Guðmundsson er stórmerkilegur maður sem hefur farið óhefðbundnar leiðir í lífinu. Fyrir tvítugt var hann orðinn rótari hjá stærstu sveitaballaböndum Íslands og hoppaði fulla ferð inn í lífsstílinn sem því fylgir. Síðar menntaði hann sig sem áhættuleikari á Florída, þar sem honum var kennt að kveikja í sér og hoppa fram af byggingum. Helgarferðin til Danmerkur sem varð að veitingastaðarekstri á Mallorca, leiksýningin þar sem kveikt var í honum fyrir framan Ólaf Darra og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Framtíð Kristjaníu og bruninn í Børsen

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jul 13, 2024 41:45

Við ætlum að vera í Danmörku í SumarHeimskviðum dagsins og ætlum að byrja í Kristjaníu. Þetta er umfjöllin frá því í desember þegar Hallgrímur Indriðason fór með okkur á Pusherstræti. Fyrr á þessu ári var kannabissölu hætt alfarið í fríríkinu, en þessi umfjöllun var unnin í aðdraganda þess. Annað stórt fréttamál frá Danmörku var í vor þegar við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu byggingu Børsen brenna í fréttum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu, en er nú hruninn. Oddur Þórðarson vann umfjöllun um Børsen.

Stundin
Eitt og annað: Deilan um marmarastytturnar

Stundin

Play Episode Listen Later Jul 7, 2024

Grikkir og Danir hafa árum saman deilt um grískar marmarastyttur sem voru fluttar frá Grikklandi til Danmerkur fyrir 340 árum. Grikkir vilja fá stytturnar til baka en Danir vilja ekki láta þær af hendi.

Fram og til baka
Helga Margrét Marzellíusardóttir tónlistarkona

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jul 6, 2024 114:00

Felix kynnti nýtt upphafslag þáttarins úr ranni Lieutenant Pigeon en það heitir Mouldy Old Dough og er frá 1972. Helga Margrét kórstjóri og tónlistarkona var svo gestur Felix í fimmunni og sagði af fimm kennurum sem höfðu áhrif á líf hennar. Sagan hófst á Ísafirði þar sem Helga Margrét ólst upp og barst svo til Reykjavíkur í Listaháskóla Íslands og svo til Danmerkur í mastersnám við Konunglega listaháskólann. Í millitíðinni eignaðist hún barn þá enn í menntaskóla og villtist svo ein um höfuðborgina og sótti hjálp í símaver 118. Í síðari hluta þáttarins var hamingjan þema þáttarins og lög í þeim anda leikin tónlist: Lieutenant Pigeon - Mouldy Old Dough Lónlí blú bojs - Hamingjan Úkulellur - Píkuprump Jóhanna Guðrún - Kvöldsigling The Real Group - A Minute On Your Lips Popparoft - Hamingja/Happiness Hipsumhaps - Á hnjánum Ásgeir Trausti - Sumargestur Katla Yamagata og Jói Pé - Hjáleið Rosa Linn - Snap Rúnar Júlíusson - Hamingjulagið REM - Shiny Happy People Beatles - Hamminess Is A Warm Gun Supertramp - Locical Song Paolo Nutini - New Shoes Paolo Conte - Via con me Bobby McFerrin - Don't Worry Be Happy Jónas Sig - Hamingjan er hér

Karfan
Fyrstu fimm: Arnar Guðjónsson

Karfan

Play Episode Listen Later Jun 10, 2024 76:08

Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer þjálfarinn Arnar Guðjónsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Eftir margra ára starf sem þjálfari verður Arnar í fyrsta skipti ekki með lið á næstu leiktíð, en hann yfirgaf Stjörnuna nú í lok þessa tímabils og er farinn að vinna fyrir KKÍ. Þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall má segja að Arnar hafi þjálfað ansi lengi. Fyrsta starf hans var hjá Sindra 2005, þaðan fór hann svo til FSu 2007, en 2009 lagðist hann í víking til Danmerkur þar sem hann var á mála hjá bæði Aabyhøj og Svendborg þangað til hann kom aftur heim 2018 og tók við Stjörnunni. Þá var hann lengi í þjálfarateymi íslenska landsliðsins og nú síðast 2022-2023 í þjálfarateymi danska landsliðsins.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Heimskviður
181 - Kosningar í Suður Afríku og Børsen sem brann

Heimskviður

Play Episode Listen Later Apr 27, 2024 40:00

Við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu bygginguBørsen brenna í fréttum á dögunum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu, en er nú hruninn. Oddur Þórðarson segir okkur allt um Børsen. Það verða kosningar í Suður Afríku eftir tæpan mánuð. Og það er útlit fyrir að þær verði spennandi og jafnvel sögulegar. Það gæti gerst í fyrsta sinn frá afnámi aðskilnaðarstefnunnar að afríska þjóðaráðrið missi meirihluta á þingi. Í ár verða þrjátíu ár liðin frá afnámi aðskilnaðarstefnunnar þar í landi. Og þrjátíu ár frá því að Nelson Mandela tók við völdum sem forseti landsins. En af hverju er flokkur frelsishetjunnar Nelsons Mandela ekki lengur flokkur fólksins í Suður Afríku? Það eru fyrst og fremst efnahagsmálin sem þar vega þyngst. Þrátt fyrir að Suður-afrískt efnahagslíf sé nokkuð stöðugt þá mælist atvinnuleysi hvergi hærra. Hjá ungu fólki, 25 ára yngri, er það meira en 60% og sú staðreynd vegur auðvitað þungt í huga kjósenda. Bjarni Pétur fjallar um málið.

Víðsjá
Hjartabrostnar borgir, Hjartadrottning og Möguleg æxlun

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 11, 2024 54:48

Í þættinum förum við í Gerðarsafn í Kópavogi og ræðum við Sóleyju Ragnarsdóttur um sýninguna Hjartadrottning sem verður opnuð næsta laugardag. Hún segir okkur frá servíettusafni ömmu sinnar og hvernig það hefur orðið að innblæst fyrir myndlistarverk og plastdrasli sem hún hefur týnt á ströndum Danmerkur þar sem hún er búsett. Jakub Stachowiak, rithöfundur, hefur verið að flytja okkur esseyjuseríuna hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sínu til Ítalíu til að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Í síðustu pistlum heyrðum við af sárri höfnun sem Jakub varð fyrir þegar hann reyndi að taka þráðinn upp aftur með sínum fyrrverandi í Róm. Og af því þegar hann til borgarinnar Napólí til að reyna að dreifa huganum frá sorginni. Í síðasta pistli sínum í dag heldur hann til Amsterdam en er ekki svo heppinn með veður. Einnig náum við tali af myndlistarmanninum Brák Jónsdóttur um sýninguna Möguleg æxlun eða Possible Oddkin sem hún hlaut hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir í mars. Að mati dómnefndar þóttu skúlptúrar Brákar og gjörningatengsl hennar við marga þeirra slái áhugaverðan tón í myndlistinni og að í þeim kjarnist margar af mikilvægari spurningum samtímans um tengsl manns og náttúru.

Stundin
Eitt og annað: Danski fólksfækkunarvandinn

Stundin

Play Episode Listen Later Mar 24, 2024

Ef ekki verður gripið til sérstakra aðgerða verður íbúafjöldi Danmerkur um næstu aldamót aðeins helmingur þess sem hann er í dag. Fækkar úr sex milljónum í 2,5 milljónir og fækkunin verður enn meiri sé litið lengra fram í tímann. Danski utanríkisráðherrann hvetur landa sína til barneigna.

Stundin
Eitt og annað: Danski utanríkisráðherrann í innkaupaferð

Stundin

Play Episode Listen Later Mar 3, 2024

Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur var nýlega á Indlandi og heimsótti stærsta sjúkrahús landsins. Hann kvaðst vonast til að indverskir hjúkrunarfræðingar vilji flytja til Danmerkur þar sem mikill skortur er á hjúkrunarfólki. Slíkar hugmyndir hafa vakið gagnrýni.

Podcast með Sölva Tryggva
#253 Nicolai Engelbrecht snýr aftur

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Feb 21, 2024 20:01

Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Nicolai Engelbrecht var í áraraðir fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, þar sem hann var á tímabili nær dauða en lífi með stórhættulega menn á eftir sér. En eftir að hafa náð botninum fann hann leiðina út. Hann ferðaðist í kjölfarið víðs vegar um heiminn og lærði öndun, bardagalistir, hugleiðslu og margt fleira af fólki í öllum heimsálfum. Í dag kennir hann bæði föngum og öðru fólki allar þær aðferðir sem hann hefur lært til að færa líf sitt í jafnvægi. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/

Fotbolti.net
Enski boltinn - Tryllt læti í Köben og United kveður

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023

Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og má svo sannarlega tala um ótrúlega niðurstöðu. FC Kaupmannahöfn frá Danmörku komst áfram úr riðli sem innihélt Bayern München og Manchester United, en síðarnefnda liðið endaði á botni riðilsins. Í þessari sérstöku aukaútgáfu Enski boltinn hlaðvarpinu í dag var hringt til Danmerkur og rætt við íþróttafréttamanninn Runólf Trausta Þórhallsson. Spjallað er við hann um magnaðan árangur FCK, unglingaliðið sem er einnig er að ná frábærum árangri og svo auðvitað um Manchester United. Á United einhvern möguleika gegn Liverpool núna um helgina? Þá er auðvitað minnst á niðurstöðu í öðrum riðlum og dráttinn sem er framundan. Það er spilað í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í kvöld, og þá verður enski boltinn á sínum stað um helgina.

Víðsjá
Kona, Úr sveit í borg í sveit, Rúmmálsreikningur og Kaveh Akbar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 21, 2023

Í þætti dagsins heyrum við í nýjum bókmenntarýni Víðsjár: Kristínu Maríu Kristinsdóttur, sem verður með okkur í vetur ásamt fleiri gamalkunnum rýnum. Í dag rýnir Kristín María í bókina Konu, eftir nóbelskáldið Annie Ernaux, en hún kom nýverið út í íslenskri þýðingu Þórhildar Ólafsdóttur hjá Uglu útgáfu. Sýning Þórðar Hans Baldurssonar, Úr sveit í borg í sveit, hverfist um eins konar afturhvarf í sveitina úr borginni - Áður fyrr snerist samfélag á Íslandi nánast alfarið um sveitarlífið og landbúnað en í dag viðrist sveitin vera orðin ansi framandi staður, fyrir okkur borgar og bæjarbúum allavega. Við lítum inn á vinnustofu Þórðar Hans og fáum að vita meira um þessa sýningu. Rúmmálsreikningur I er fyrsta bindi af sjö í skáldsögu hinnar dönsku Solvej Balle og hlaut höfundurinn bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra, fyrir fyrstu þrjú bindin. Fjórða bindið kom nýverið út í Danmörku og aðdáendur sögunnar bíða í eftirvæntingu eftir þremur síðustu. Í sumar kom fyrsta bókin út hjá Benedikt í þýðingu Steinunnar Stefánsdóttur svo íslenskir lesendur geta sökkt sér í þessa óvenjulegu sögu. Í þættinum sláum á þráðinn til Danmerkur og ræðum við Steinunni Stefánsdóttur þýðanda Rúmmálsreiknings. Að lokum heimsækir íransk-bandaríski höfundurinn Kaveh Akbar þáttinn og segir frá áhrifamikilli tónlist.

Víðsjá
Kona, Úr sveit í borg í sveit, Rúmmálsreikningur og Kaveh Akbar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 21, 2023 55:00

Loftslagsbreytingar ógna lýðheilsu og uppvakningadóp í Bandaríkjunum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 15, 2023

Staðan í umhverfismálum hér á landi er sótsvört og aðgerðir stjórnvalda eru grænþvottur sem fær falleinkunn. Þetta segir Hjalti Már Björnsson formaður Samtaka lækna gegn umhverfisvá sem segir að lýðheilsu sé ógnað. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann. Ekkert símasamband er við Öskju og því gæti verði erfitt að koma boðum og viðvörunum til fólks sem er þar á ferð ef byrjar að gjósa. Lilja Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra segir að lengi hafi staðið til að stofna þjóðaróperu því eigi ekki að koma á óvart að fjárframlögum til Íslensku óperunnar verði hætt. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman. Utanríkisráðherra Danmerkur segir tilefni til að taka hótanir Al-Kaída vegna kóranbrenna alvarlega, til stendur að auka öryggisgæslu við sendiráð landsins. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman. Fólk þarf að muna að það ber ábyrgð á eigin úrgangi og neyslu, segir Benedikt Sveinbjörnsson sem vinnur við að losa grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann. -------------- Ópóíðafaraldur virðist aftur í vexti í Bandaríkjunum. Í Speglinum verður rætt við Bergþór Stein Jónsson barnabráðalækni í Bandaríkjunum sem segir að fentanýl greinist hjá börnum og þess séu jafnvel dæmi að ungbörnum hafi verið gefnir ópíóíðar í mjólk. Dagný Huld Erlendsdóttir talaði við hann. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Til eru lýsingar á aðdraganda eldgosa í Öskju, annars vegar hins afdrifaríka öskugoss 1875 og hins vegar hraungossins 1961. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Lesarar Anna Sigríður Þráinsdóttir og Benedikt Sigurðsson. Brot úr lýsingu Sigurðar Þórarinsson jarðfræðings á gosinu 1961. Seðlabanki Rússlands hækkaði stýrivexti um þrjú og hálft prósentustig í dag til að hamla verðbólgu. Efnahagssérfræðingar telja að hækkunin dugi skammt. Ásgeir Tómasson sagð frá. Brot úr viðtölum fréttastofu TV2 við Ivan, byggingaverkfræðing og Ljúdmílu Blazjej ræstitækni í Moskvu.

Spegillinn
Loftslagsbreytingar ógna lýðheilsu og uppvakningadóp í Bandaríkjunum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 15, 2023 8:04

NATO, Skotland og Orkneyjar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 6, 2023

Jens Stoltenberg verður áfram framkvæmdastjóri NATO í ár í viðbót og ljóst að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tekur ekki við því embætti fyrr en í fyrsta lagi eftir rúmt ár. Raunar herma fréttir að Bandaríkjastjórn vilji að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, verði þá eftirmaður Stoltenbergs. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir ræddu þetta við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu einnig stöðu mála í Skotlandi. Karl konungur III tók í gær formlega við skosku krúnudjásnunum við hátíðlega athöfn í St. Giles-dómkirkjunni í Edinborg. Talsverður hópur lýðveldissinna mótmælti í grennd við kirkjuna. Kannanir benda til þess að um þriðjungur Skota sé andvígur konungdæminu en tæpur helmingur styður það. Þá vill um helmingur Skota að landið verði sjálfstætt ríki og það hefur ekki breyst þó að Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, eigi í margvíslegum vandræðum um þessar mundir. Nýjasta áfallið er að Mhairi Black, ein helsta vonarstjarna flokksins, tilkynnti í gær að hún ætlaði að hætta þingmennsku, hún hefði fengið sig fullsadda af stjórnmálum. Black lenti í orðaskaki við Oliver Dowden varaforsætisráðherra í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í neðri málstofu breska þingsins. Dowden minnti á að þau hefðu bæði verið kjörin á þing 2015 og hann væri viss um að hún tæki undir árnaðaróskir til konungs. Dowden vildi með þessu stríða Black sem er lýðveldissinni. Hún svaraði með því að þakka Dowden fyrir að minnast þess að þau hefðu komið á þing á sama tíma og hún væri þess fullviss að þau hættu á sama tíma. Þingheimur hló hátt og lengi. Undir lok Heimsgluggans var rætt um óskir Orkneyinga um aukið sjálfræði og breytingar á tengslum þeirra við Bretland. Ýmsir hafa rætt um möguleika á að endurvekja tengsl eyjanna við Noreg og Norðurlönd.

Heimsglugginn
NATO, Skotland og Orkneyjar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 6, 2023 23:47

Varnarmálaráðherra Danmerkur ákærður fyrir landráð

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 2, 2023

Claus Hjort Frederiksen, fyrrverandi fjármála- og varnarmálaráðherra Danmerkur og þungavigtarmaður í stjórnarflokknum Venstre, hefur verið ákærður fyrir brot á hegningarlagaákvæðinu um landráð. Saksóknarar hafa ekkert gefið upp um sakargiftir. Fréttaskýrendur telja líklegast að Frederiksen sé talinn hafa brotið lög þegar hann staðfesti í sjónvarpsviðtali að fréttir um hleranir bandarísku njósnastofnunarinnar NSA hefðu átt við rök að styðjast. Frederiksen vísar því algerlega á bug að hafa ljóstrað upp um ríkisleyndarmál eða skaðað Danmörku. Gísli Tryggvason, landsdómslögmaður, hefur jafnframt málflutningsréttindi í Danmörku, er menntaður að hluta þar í landi og fylgist mjög vel með dönskum stjórnmálum. Og þegar saman fer athyglisvert dómsmál og stjórnmál vekur það sérstaka athygli Gísla. Mál Claus Hjorts Frederiksens er slíkt mál. Gísli var gestur Morgunvaktarinnar á Rás 1 á þeim tíma sem Heimsglugginn er venjulega. Umsjónarmaður Heimsgluggans, Bogi Ágústsson og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Gísla um mál Claus Hjorts Frederiksens. Að loknu viðtalinu við Gísla þótti við hælfi að leika Du er ikke alene (Þú ert ekki einn) með danska tónlistarmanninum Sebastian.

Heimsglugginn
Varnarmálaráðherra Danmerkur ákærður fyrir landráð

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 2, 2023 21:03

Já OK
Hannes Hafstein og Alþingisferðin til Danmerkur 1906

Já OK

Play Episode Listen Later Dec 7, 2022 38:13

Villi og Fjölnir snúa aftur eftir margra mánaða fjarveru með tiltölulega léttan þátt! Hannes Hafstein var fyrsti ráðherra Íslands, ekki bara það, heldur var hann líka fyrsti Inspector Scholae MR. Við tölum aðeins, pinku pons, um Hannes Hafstein og síðan tölum við um alþingisferðina alræmdu.

Fotbolti.net
HM hringborðið - Danmörk heim með skottið á milli lappanna

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 30, 2022

Þá er fjórum riðlum á HM í Katar lokið. Tveir riðlar kláruðust í dag og vantaði ekki dramatíkina í þá fjóra leiki sem voru spilaðir. Danir eru farnir heim, Frakkar töpuðu óvænt, Messi og félagar kláruðu sitt og það gerðist næstum því að lið færi áfram á háttvísisstigum. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir leiki dagsins í HM hringborðinu ásamt því að ræða við góða gesti. Hringt er til Danmerkur þar sem er rætt við Frey Alexandersson, þjálfara Lyngby, um ófarir danska liðsins og svo var hringt til Katar þar sem spjallað er við fjölmiðlamanninn Kristin Pál Teitsson um það hvernig er að vera á mótinu sem áhorfandi.

Podcast með Sölva Tryggva
#142 Nicolai Engelbrecht: Um glæpina, dópið, viðsnúninginn og tilganginn

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Nov 16, 2022 20:15

https://solvitryggva.is/ Nicolai Engelbreght er ungur maður sem um áraraðir var fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, en fann svo leiðina út og hjálpar nú föngum og öðrum við að bæta líf sitt. Í þættinum fer hann yfir árin í undirheimunum, hvernig hann hefur reynt að bæta fyrir brot sín, karlmennsku og margt fleira.

Hlaðvarp Kjarnans
Eitt og annað: Furðulegasta Njósnamál Danmerkur - 13.03.2022

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Oct 11, 2022 8:16

Borgþór Arngrímsson les pistil frá því fyrr á árinu um njósnamál sem hefur vakið mikla athygli í Danmörku. Eitt og annað - einkum danskt eru hlaðavarpsþættir með lesnum pistlum Borgþórs úr Kjarnanum.

Heimskviður
119 | Mannréttindabrot í Katar og kosningar í Danmörku

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 8, 2022 41:18

Rúmur mánuður er í að heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefjist í Katar. Mótið er haldið í skugga ásakana um gróf mannréttindabrot þarlendra stjórnvalda gegn farandverkafólki. Opinberum tölum stjórnvalda í Katar yfir þá sem hafa látist við uppbyggingu fyrir heimsmeistaramótið ber alls ekki saman við tölur sem fjölmiðlar og mannréttindasamtök hafa. Þau síðarnefndu segja þúsundir farandverkamanna hafa látist frá áriu 2010 þegar Katar var valið sem mótshaldari árið 2022. Stjórnvöld í Katar skrá hins vegar andlát langflestra verkamanna af náttúrulegum orsökum. Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson fjalla um heimsmeistaramótið í skugga mannréttindabrota og ræða við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamann og Bryndísi Bjarnadóttur, herferðastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, boðaði til kosninga fyrr í þessari viku. Þær fara fram fyrr en áætlað var, nánar tiltekið 1. nóvember. Fjórir danskir stjórnmálaflokkar hafa skipt um forystu á kjörtímabilinu sem sömuleiðis hefur einkennst af ýmsum hneykslismálum. Hallgrímur Indriðason fer yfir pólitíkina í Danaveldi og nýtur aðstoðar Boga Ágústssonar í yfirferð sinni. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur um erlend málefni, um allt það sem gerist ekki ekki á Íslandi. Umsjón með þættinum hafa Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Heimskviður
119 | Mannréttindabrot í Katar og kosningar í Danmörku

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 8, 2022

Konu sleppt úr haldi, rafmagnsleysi í vesturhluta Reykjavíkur, óveður

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 7, 2022 9:33

Eiginkona mannsins sem var stungin til bana í Ólafsfirði á mánudag var látin laus úr haldi í dag, að því er lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynnti undir kvöld. Einn er enn í gæsluvarðhaldi Bilun í spennistöð við Barónstíg í Reykjavík varð til þess að rafmagnslaust varð í borginni vestanverðri síðdegis. Búist var við að viðgerð lyki ekki fyrr en um eða eftir miðnætti, en betur gekk en á horfðist í fyrstu. Oddur Þórðarson ræddi við Breka Logason, upplýsingafulltrúa Veitna. Jón Svanberg Hjartarson, fagstjóri hjá almannavörnum, segir að taka verði alvarlega norðanstorminn sem í aðsigi er á sunnudag. Veðurstofa hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir vegna óveðursins. Íbúar og eigendur fyrirtækja á Oddeyri á Akureyri eru hvattir til að vera vel á verði vegna flóðahættu á sunnudag. Hólmfríður Dagný Kristjánsdóttir ræddi við Jón Svanberg. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur til aðgerða svo að óstöðugleiki á fjármálamörkuðum verði ekki viðvarandi ástand. Pétur Magnússon sagði frá. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur tilkynnt forvera sinn til Persónuverndar fyrir að hafa farið inn á tölvupóstfang Sólveigar eftir að hún hætti störfum á síðasta ári. Mál af þessum toga eru algeng hjá Persónuvernd, en ekki er sama hvernig yfirmenn bera sig að við þessar aðstæður. Alexander Kristjánsson fór yfir málið með Helgu Sigríði Þórhallsdóttur, sviðsstjóra eftirlits hjá Persónuvernd. Íslendingar fóru alls um sextíu þúsund flugferðir frá landinu í september, og hafa aldrei verið á viðlíka faraldsfæti í þessum mánuði. Kristján Sigurjónsson ræddi við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Bryndísi Haraldsdóttur um kynnisför þingmanna í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis til Noregs og Danmerkur á dögunum til að glöggva sig á stefnu nágrannaþjóðanna um mótttöku flóttafólks og þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd. Fram kom m.a. að umsóknum um alþjóðlega vernd hér á landi hefur fjölgað undanfarin ár. Hlutfallslega fleiri umsóknir eru um alþjóðlega vernd á Íslandi en á annars staðar á Norðurlöndum. Friðarverðlaun Nóbels voru kynnt í Ósló í dag. Þau eru að þessu sinni þrískipt og helguð mannréttindum. Minnt er á hvernig mannréttindabrot og virðingarleysi fyrir alþjóðalögum leiðir til stríðs eins og í Úkraínu. Verðlaunin hlutu hvítrússneski lögmaðurinn og baráttumaðurinn Ales Bialitski; rússnesku mannréttindasamtökin Memorial; og úkraínsku samtökin Miðstöð borgaralegra réttinda. Gísli Kristjánsson sagði frá. Sjö ára drengur, Tariq að nafni. hefur öðlast mikla frægð á samfélagsmiðlum síðustu vikur vegna

Spegillinn
Konu sleppt úr haldi, rafmagnsleysi í vesturhluta Reykjavíkur, óveður

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 7, 2022

Skoðanabræður
#345 Góðir hálsar ég finn blóðið renna í æðunum í hvert einasta skipti er ég stend andspænis fræðunum (ásamt Jóni Kristni Einarssyni)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Sep 16, 2022 96:38

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Jón Kristinn Einarsson, sagnfræðingur bræðralagsins, var að gefa út bók um Jón Steinsgrímsson og Skaftárelda (móðuharðindin (móðurharðindin?)). Hér er bókin rædd og svo farið djúpt í undraveröld fræðanna. Samband Íslands og Danmerkur, lágpunktur íslensku þjóðarinnar, nýlenduveldi Danmerkur og sögufölsun eru meðal annars til umræðu. Njótið, kæra bræðralag. Þessi er fyrir ykkur öll.

Hjjj
31. Hermann Haraldsson, forstjóri og meðstofnandi Boozt.com

Hjjj

Play Episode Listen Later Sep 13, 2022 81:20

Viðmælandi þáttarins er Hermann Haraldsson, meðstofnandi og forstjóri Boozt.com. Boozt.com er stærsta netverslun Norðurlandanna sem selur vörur eins og tískufatnað, íþróttaföt, snyrtivörur og heimilisbúnað. Hermann er fæddur árið 1966 og ólst upp í Reykjavík og á Akureyri. Hermann flutti 14 ára til Danmerkur í heimavistaskóla, gekk í menntaskóla þar og háskóla og hefur búið í Danmörku síðan. Hermann kláraði B.Sc. próf í viðskiptahagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) og Master í viðskiptahagfræði frá sama skóla. Hermann hefur unnið sem framkvæmdastjóri OMD Nordic, birtingahúss, sem eigandi og framkvæmdastjóri Win Win aulgýsingastofunnar og framkvæmdastjóri Brøndby IF danska fótboltaklúbbsins sem listaður er í kauphöll. Hermann stofnaði síðan Boozt.com árið 2010 og veltir fyrirtækið nú um 6,5 milljarða sænskra króna eða um 85 milljarða íslenskra króna. Höfðustöðvar Boozt.com eru í Malmö og starfa um 1400 starfsmenn hjá fyrirtækinu í Kaupmannahöfn, Árásum, Vilnius og í Póllandi. Hermann hefur einnig setið í ýmsum stjórnum m.a. hjá Adform, sjónvarpsstöðinni TV 2 og fótboltaliðinu Brøndby. Þátturinn er kostaður af Icelandair.

Heimsglugginn
Kosningar á Norður-Írlandi og möguleg NATO-aðild Finna og Svía

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later May 5, 2022 20:03

Kosið er til þings Norður-Íra í dag og í fyrsta sinn í meir en aldargamalli sögu landshlutans eru möguleikar á því að lýðveldissinnar, sem vilja sameinast Írska lýðveldinu, verði stærsti flokkur á þingi. Hingað til hafa þeir flokkar sem vilja viðhalda sambandinu við Bretland verið í meirihluta á norður-írska þinginu. Sinn Fein, stærsta flokki lýðveldissinna, er spáð góðu gengi. Flokkurinn hefur þó ekki lagt neina sérstaka áherslu á stöðu Norður-Írlands, kosningabaráttan hefur meira fjallað um daglegt líf, slæmt heilbrigðiskerfi og verðbólgu. Sambandssinnar í Lýðræðislega sambandsflokknum, DUP, hafa lagt mesta áherslu á að losna verði við svokallaða Norður-Írlandsbók í Brexit-samningnum. Í henni er gert ráð fyrir að Norður-Írland verði hluti innri markaðar Evrópusambandsins en jafnframt hluti breska ríkisins, United Kingdom. Forsætisráðherrar Norðurlanda hittust í Kaupmannahöfn þar sem þeir áttu sameiginlegan fund með Narenda Modi, forsætisráðherra Indlands. Blaðamannafundur þeirra snerist þó mest um mögulega inngöngu Finna og Svía í NATO. Forsætisráðherrar NATO-ríkjanna Danmerkur, Íslands og Noregs lofuðu að styðja hraða afgreiðslu ákveði Finnar og Svíar að sækja um aðild.

Heimsglugginn
Kosningar á Norður-Írlandi og möguleg NATO-aðild Finna og Svía

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later May 5, 2022

23. Grímur Lund, stofnandi Logimatic og fyrrum framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs AVEVA

Hjjj

Play Episode Listen Later Apr 14, 2022 72:50

Viðmælandi þáttarins er Grímur Lund en hann er stofnandi danska tæknifyrirtækisins Logimatic og sat seinna í framkvæmdastjórn hjá breska tæknifyrirtækinu AVEVA. Grímur er fæddur árið 1961 og er alinn upp á Melrakkasléttunni. Hann gekk í Tækniskólann og þaðan lá leið hans til Danmerkur þar sem hann lauk mastersnámi í rafmagnsfræði við Álaborgarháskóla og hefur hann búið í Danmörku síðan. Árið 1987 stofnaði Grímur ásamt meðstofnanda sínum, Logimatic sem er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki. Ein af aðallausnum fyrirtækisins var vörustýringarkerfi fyrir skipasmíðastöðvar. Grímur starfaði sem forstjóri Logimatic þangað til hugbúnaðarkerfið var selt til breska fyrirtækisins AVEVA árið 2010. Grímur fylgdi í kjölfarið með og var í framkvæmdastjórn AVEVA sem er eitt stærsta tæknifyrirtæki á sviði hugbúnaðar i Bretlandi og skráð í kauphöllina í London. Grímur vann í tólf ár hjá AVEVA þar af síðustu ár, sem framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs með 1100 starfsmenn og velti sviðið um 20 milljarða króna. Grímur hefur nú nýlega sagt starfi sínu lausu og vinnur nú með sprotafyrirtækjum á vaxtarstigi og situr í stjórnum nokkurra fyrirtækja. Grímur hefur alla tíð haldið mikilli rækt við Ísland og dvelur jafnan á sínum bernsku slóðum, þar sem hann á jörð og hús. Þessi þáttur er í boði Icelandair.

The Snorri Björns Podcast Show
#128 - Gústi bakari

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Mar 30, 2022 157:12

Ágúst Einþórsson setti á laggirnar Brauð & Co. árið 2016 og kröfur Íslendinga til súrdeigsbrauðs og kanilsnúða breyttust til frambúðar. Margt var í gangi bakvið tjöld vinsælasta bakarís landsins enda Gústi lunkinn í að lenda upp á kant við fólk að eigin sögn. Forsaga og eftirmálar bakarísins eru hér gerðar upp af einum skrautlegasta karakter sem gengur um götur bæjarins, sem rekur nú bakaríið og veitingastaðinn Baka Baka. Í þættinum ræðir Gústi flutningana til Danmerkur til að greiða djammskuldir með gjaldeyrismismun, að komast undir kröfum annarra í Kaupmannahöfn, samningar við stofnun Brauð & Co. og eftirmálarnir við söluna, edrúvandamálin sín, fíkniefnakaup af meðlimum Hells Angels, hvernig 8 ára edrútímabil leið undir lok, í hvað peningurinn fór við sölu hlutarins í Brauð & Co. og fyrst og fremst heiðarleg frásögn af mannlegri vegferð gegnum töp og sigra lífsins.

Heimsglugginn
Danir efla varnir á norðurslóðum, kosningar í Ungverjalandi og Serbíu

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 17, 2022

Danir eru meðal þeirra NATO-þjóða sem hafa ákveðið að auka mjög útgjöld til varnarmála og boða til þjóðaratkvæðagreiðslu þann 1. júní um hvort Danir verði áfram utan sameiginlegrar stefnu Evrópusambandsins í varnarmálum. Sú undanþága felur í sér meðal annars að Danir taka ekki þátt í sameiginlegum hernaðaraðgerðum eða varnaráætlunum sambandsins á nokkurn hátt - en að standa utan þýðir líka að þeir eru ekki með í ákvarðanatöku og hafa engin áhrif. Framlög til varnarmála verða aukin um 18 milljarða danskra króna og eiga að verða orðin tvö prósent af vergri landsframleiðslu árið 2033. Stærstu flokkar Danmerkur náðu samkomulagi um þetta í síðustu viku; Jafnaðarmenn, Venstre, Radikale Venstre, Íhaldsflokkurinn og Sósíalíski þjóðarflokkinn. Þetta gekk svo hratt fyrir sig að ekki virðist sem tími hafi verið til að ráðgast við hin löndin í danska ríkissambandinu, Færeyjar og Grænland. Aukinn varnarviðbúnaður verður þó án nokkurs efa að miklu leyti á Norður-Atlantshafinu. Þetta vakti gremju, ekki síst á Grænlandi. Þetta var meginumræðuefni Heimsgluggans þar sem Guðrún Hálfdánardóttir og Sigríður Halldórsdóttir ræddu erlend málefni við Boga Ágústsson. Þau ræddu líka kosningar sem verða í Ungverjalandi og Serbíu 3. apríl en þar er útlit fyrir að engar breytingar verði, Viktor Orbán og Aleksandar Vucic verði áfram leiðtogar Ungverjalands og Serbíu.

Heimsglugginn
Danir efla varnir á norðurslóðum, kosningar í Ungverjalandi og Serbíu

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 17, 2022 20:39