360° Heilsa

Follow 360° Heilsa
Share on
Copy link to clipboard

Hér finnur þú allt sem snýr að bættri heilsu, bættum árangri og betri líðan. Hlustaðu á viðtöl við allskyns sérfræðinga á sviði líkamsræktar og heilsu til að fá nýjustu upplýsingar og vísindi beint í æð.

Rafn Franklin Johnson


    • Feb 10, 2023 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 1h 5m AVG DURATION
    • 69 EPISODES


    Search for episodes from 360° Heilsa with a specific topic:

    Latest episodes from 360° Heilsa

    Lykillinn að því að vera OK með Andra Iceland

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2023 52:17


    Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa --------------------------- Í þessum þætti fæ ég íslenska kuldakonunginn Andra Iceland til mín í annað skiptið. Í þetta sinn víkkum við umræðuna úr kuldanum yfir í hita, öndun, hugarfar, streitu og margt fleira. Við ræðum einnig um áhugaverða ráðstefnu sem Andri stendur fyrir og verður haldin í Hörpu 18. febrúar næstkomandi.

    Asíu ævintýri, yoga, heilsa, lífsstíl, innsæi og fleira með Apríl Hörpu

    Play Episode Listen Later Jan 30, 2023 47:58


    Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir. Apríl er yoga kennari, meðeigandi fyrirtækisins cocobutts.is og framkvæmdastjóri Sólir yogastöðvar á Granda. Í þættinum ræðum við um 9 ára ferðalag Aprílar um Asíu, barneignir og uppeldi á Balí, fræðin og heimspekina á bakvið yoga, mikilvægi þess að hlusta á eigið innsæi og margt fleira.

    9 uppáhalds "biohacking" tólin mín

    Play Episode Listen Later Jan 26, 2023 26:05


    Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Í þessum þætti fer ég yfir þær svokölluðu "biohacking" græjur sem ég nota reglulega til að bæta eða viðhalda heilsunni og bæta árangur og vellíðan. Ég hef prófað mikið af allskonar mismunandi græjum en það er stór hluti af þeim sem hafa fljótlega endað ofan í skúffu. En eftirfarandi listi af 9 biohacking vörum er eitthvað sem ég sé mikið notagildi í og nota að staðaldri eða mjög reglulega til að viðhalda heilsunni, líða betur og ná betri árangri.

    Þarmaflóran, functional medicine, heildræn heilsa og fleira með Dr. Jens Guðmunds

    Play Episode Listen Later Nov 24, 2022 53:51


    Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Jens K. Guðmundsson er læknir með sérmenntun í háls, nef og eyrnalækningum. Hann hefur yfir 15 ára reynslu í læknageiranum og vann um tíma í (HNE) skurðlækningum og á bráðadeild.  Jens hefur á síðastliðnum árum fært sig meira yfir í functional medicine og sótti nám í þeim fræðum hjá Kresser Institute í bandaríkjunum. Hann lærði einnig heildræn heilsufræði hjá CHEK institute í bretlandi og hefur nýtt það samhliða functional medicine nálgun á sína skjólstæðinga. Í dag starfar hann hjá Nordic Clinic - nordicclinic.is

    9 ástæður þess að þú ert ekki að komast í þitt draumaform

    Play Episode Listen Later Nov 7, 2022 12:58


    Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Í þessum þætti fer ég yfir 9 atriði sem gætu verið ástæða þess að þú ert ekki að ná markmiðum þínum þegar kemur að fitutapi. Sumir vilja meina að þeir hafi látið á allt reyna en geti ekki losnað við aukakílóin. Oftar en ekki eru þó ákveðin atriði sem eru í blindblett eða "blindspot" hjá okkur sem koma í veg fyrir að við náum þeim árangri sem við teljum okkur eiga skilið. Þessi þáttur er unninn í samstarfi við: www.lopidraumur.is - 10% afsláttur í netverslun með kóða "360heilsa"

    Áhrif hugleiðslu á heilann, streitu, vellíðan og heilsu með Ingvari H. Ólafs og Laufey Steindórs

    Play Episode Listen Later Nov 1, 2022 44:03


    Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestir þáttarins eru hjónin Ingvar hákon Ólafsson, heila- og taugaskurðlæknir og Laufey steindórs, gjörgæsluhjúkrunafræðingur og jóga- og hugleiðslukennari. Eftir að Laufey lenti í andlegu og líkamlegu hruni árið 2013 fóru þau hjón að kynna sér betur fræði og vísindi núvitundar og hugleiðslu og áhrif þess á heilann, streitu, vellíðan og heilsu. Í þættinum ræðum við þessi mál og fleira.  Sjá www.kyrrdarjoga.is fyrir 3 fríar hugleiðslur

    #18. Lífsstíll, heilsa og meðferðir við offitu og ofþyngd með Erlu Gerði Sveins

    Play Episode Listen Later Oct 25, 2022 42:44


    Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa Gestur þessa þáttar er Erla Gerður sveinsdóttir heimilislæknir og lýðheilsufræðingur. Erla sérhæfir sig í offitumeðferð og hefur eytt síðastliðnum áratug í að aðstoða fólk í offitu og fræða fólk um þennan sjúkdóm sem fer vaxandi hér á landi og víðar í heiminum. Erla leggur áherslu á heildræna nálgun í meðferð sinni og segir ótalmarga þætti spila hlutverk þegar kemur að offitu, hlutir eins og erfðir, hormón, svefn, líkamsklukkan, þarmaflóran, uppeldisáhrif, venjur og fleira.

    Skömm, sjálfsmat, andleg heilsa o.fl. með Guðbrandi Á. Ísberg

    Play Episode Listen Later Sep 21, 2022 43:29


    Guðbrandur er sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Guðbrandur lauk embættisprófi í sálarfræði frá Árósarháskóla árið 1999 og seinna framhaldsnámi í hugrænni atferlismeðferð og ársnámi í taugavísindum mannlegra tengsla, auk fjölda námskeiða hér heima og erlendis meðal annars í handleiðslufræðum. Í Danmörku starfaði Guðbrandur á meðferðarstofnun fyrir traumatíserað flóttafólk og seinna á fjölskyldumeðferðarstofnun. Síðustu ár hefur Guðbrandur lagt aðaláherslu á vinnu með sálræn áföll, sorgarúrvinnslu, afleiðingar skilnaðar og ýmsan tilvistarlegan vanda. Vorið 2019 kom út önnur bók Guðbrandar "Skömmin - úr vanmætti í sjálfsöryggi" um skammartilfinningar, birtingarmyndir þeirra og meðferðarúrræði. Sjá nánar HÉR Fyrsta bók Guðbrandar “Í nándinni – innlifun og umhyggja” kom út árið 2013. Sjá nánar HÉR Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa

    Meðvirkni, streita, kulnun, samskipti o.fl með Gyðu Dröfn og Kristínu Sigurðar

    Play Episode Listen Later Sep 12, 2022 43:31


    Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy) sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Kristín Sigurðardóttir er slysa- og bráðalæknir. Hún kennir við læknadeild Háskóla Íslands og er formaður Fræðslustofnunar Læknafélags Íslands. Til að kynnast betur því sem Gyða og Kristín eru að gera: https://www.facebook.com/aheildinalitid https://www.facebook.com/heillheimur  Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu: www.patreon.com/360heilsa

    Mataræði, næring fyrir börn, einföld matargerð, lífsstíllinn o.fl með Indíönu Jóhanns

    Play Episode Listen Later Sep 2, 2022 51:06


    Indíana Nanna Jóhannsdóttir er einka- og hóptímaþjálfari og stofnandi GoMove Iceland. Indíana hefur mikinn áhuga á hreyfingu, næringu og matargerð og er hún dugleg að deila allskyns uppskriftum, æfingum og fleira áhugaverðu á instagram síðunni sinni @indianajohanns. Í þættinum ræddum við um allskyns hluti tengda hennar lífsstíl ásamt mataræðispælingum, einföldum matartipsum, næringu fyrir börnin, ketilbjölluþjálfun og fleira skemmtilegt. www.gomove.is Skráðu þig í áskrift á hlaðvarpinu til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu: www.patreon.com/360heilsa 

    Óhefðbundin nálgun á hreyfingu, heilsu og lífsstíl með Núma Snæ

    Play Episode Listen Later Aug 23, 2022 51:34


    Gestur þáttarins er Númi Snær Katrínarson. Númi er menntaður einkaþjálfari og nuddari ásamt því að vera fyrrum keppnismaður í CrossFit og sundi. Númi hefur stofnað og rekið crossfit stöðvar hérlendis og erlendis og er í dag einn eiganda CrossFit stöðvarinnar Grandi 101. Númi hefur síðustu ár skipt um fókus og fært sig meira frá CrossFit heiminum yfir í öðruvísi nálgun á hreyfingu og heildræna heilsu. Hann hefur þá stofnað fyrirtækið "Movement Lab" ásamt þjálfaranum Wayne Paul. www.movelab.is Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þáttinn í heild og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu. www.patreon.com/360heilsa

    Öndunaræfingar fyrir betri svefn, orku, árangur og heilsu með Björgvini Pál

    Play Episode Listen Later Aug 12, 2022 41:06


    Gestur þáttarins er handboltakappinn Björgvin Páll Gústavsson. Björgvin hefur síðastliðin ár notað ákveðnar öndunaræfingar til að vinna á sínum kvíða, ná betri árangri í handboltanum og upplifa betri vellíðan og heilsu. Í þættinum ræðum við hans vegferð og förum yfir allskyns öndunaræfingar sem fólk getur gert til að bæta þol og afköst í æfingum, vinna á kvíða, auka orku og vellíðan, bæta svefn og margt fleira.   Framhald af áskriftarþætti #9. Mouthtaping 101 ---- Skráðu þig í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu til að hlusta á alla þætti í heild: www.patreon.com/360heilsa

    Jafnvægi og heilsa með Arnóri Svein Aðalsteins

    Play Episode Listen Later Aug 2, 2022 59:25


    Gestur þáttarins er fótboltamaðurinn, kennarinn og heimspekingurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Arnór er einn af mínum uppáhalds mönnum til að ræða við. Hann hefur gaman af því að pæla í hlutunum og því langaði mig að fá hann í þáttinn til að ræða um "jafnvægi" og hvað það þýðir í tengslum við heilsu. Jafnvægi er bæði víðtækt og afstætt hugtak sem er oft notað í heilsugeiranum. En hvað þýðir það raunverulega og hvernig getum við öðlast meira jafnvægi til að öðlast betri heilsu?

    Lífrænt líf með Önnu Maríu Björns

    Play Episode Listen Later Jul 20, 2022 46:01


    Gestur þáttarins er Anna María Björnsdóttir. Anna María er alveg einstök áhugamanneskja um lífræna ræktun og áhrif hennar á heilsu fólks og umhverfisins og hefur hún s.l tæp 2 ár verið að vinna að heimildarmynd um lífræna ræktun á íslandi. Í þættinum spyr ég hana spjörunum úr og við förum yfir allt sem viðkemur lífrænni ræktun og af hverju hún ætti að skipta okkur öll máli.

    Heilsuvegferðin, mataræði á leikskólum, húðvandamál og lífsstíll o.fl með Aroni og Hildi

    Play Episode Listen Later Jul 5, 2022 42:45


    Gestir þáttarins í dag eru þau Hildur Leonardsdóttir og Aron Skúlason. Þau eru par, búsett á Akureyri og halda uppi ansi áhugaverðum instagram reikning sem heitir "Frá toppi til táar". Þar fjalla þau um allskyns verðug heilsumálefni og birta reglulega skemmtilega og áhugaverða fræðslupósta um ýmsa hluti sem tengjast heilsu, umhverfinu o.fl. Ég mæli hiklaust með að fylgja þeim á instagram undir nafninu "Frá toppi til táar"

    Áföll, EMDR meðferð, kvíði, andleg heilsa og fleira með Rósu Richter

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2022 35:50


    Gestur þáttarins hjá mér í dag er Rósa Richter. Rósa starfar sem sálfræðingur og EMDR meðferðaraðili hjá EMDR stofunni og aðstoðar þar bæði börn og fullorðna við að vinna á hlutum eins og: Áföllum og áfallastreituröskun Tenglsavanda Þunglyndi Kvíða Fíknivanda Meðvirkni Í þættinum ræðum við um margt sem viðkemur andlegri heilsu og áföllum. Hlutir eins og hvað er EMDR meðferð og hvernig virkar hún til að vinna í áföllum. Hvað eru áföll, hvernig getum við hugað betur að andlegri heilsu, unnið á kvíða og margt fleira.

    Meiri orka, betri einbeiting, aukinn styrkur og minni streita með þessum mikilvægu efnum

    Play Episode Listen Later Jun 10, 2022 25:02


    Í þessum þætti ræði ég ákveðið málefni sem ég tel hafa fengið of aðeins of litla athygli. Þá sérstaklega hjá þeim sem stunda reglulega þjálfun og hreyfingu. Þetta eru sölt og steinefni.  Í þættinum ætla ég að fara yfir hvað þetta er nákvæmlega, afhverju þetta ætti að skipta þig máli, hvort þú ættir að auka inntöku eða minnka inntöku á þessum efnum, hvernig þá og af hverju. Sömuleiðis fer ég yfir af hverju ég er ósammála hefðbundnum ráðleggingum um að við ættum að lágmarka saltneyslu fyrir bætta heilsu.

    Hlutirnir sem enginn talar um þegar kemur að föstum

    Play Episode Listen Later Jun 3, 2022 14:18


    Föstur hafa lengi verið talin allrameina bót. Á síðustu árum hafa allskyns mismunandi föstur eins og 16:8, 5:2 og fleiri vaxið gríðarlega í vinsældum. Föstur eru taldar bæði stuðla að bættri heilsu og hjálpa fólki að losna við aukakílóin og komast í betra form. Föstur hafa þó sína "skuggahlið". Hlutir sem fáir tala um en eru gríðarlega mikilvægir þegar kemur að ákvörðuninni um hver eigi að fasta yfir höfuð og hver ekki, hversu lengi og hvenær. Í þessum þætti varpa ég ljósi á þær skuggahliðar fasta sem enginn talar um.

    Besta ráðið til að léttast áreynslulaust (sem þú ert líklegast ekki að gera)

    Play Episode Listen Later Jun 1, 2022 12:02


    Frá því ég byrjaði að þjálfa fólk fyrir að verða 10 árum síðan hef ég uppgötvað ákveðið mynstur sem virðist sameiginlegt milli allra þeirra sem eiga erfitt með að koma sér í form og viðhalda því til lengri tíma.  Í þessum þætti uppljóstra ég þessu mynstri ásamt nokkrum conceptum sem munu gera þér kleift að léttast og komast í betra form svo gott sem áreynslulaust.

    #50. Áhrif hreyfingar og lífsstíls á kvíða og andlega heilsu með Þórdísi Vals

    Play Episode Listen Later May 18, 2022 124:36


    Í þessum þætti ræði ég við fjölmiðladrottninguna og lögfræðinginn Þórdísi Valsdóttur. Ég kynntist Þórdísi fyrst þegar hún kom til mín í einkaþjálfun og fékk þar innsýn í hennar áhugaverðu sögu. Í þættinum spjöllum við um hvernig fortíð hennar og æskuáföll hafa mótað hana, hvernig hún hefur lært að nota hreyfingu til að umturna andlegri heilsu sinni og vegferðin hennar með kvíða- og þunglyndislyf og fleira. Komdu í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu með því að smella hér: www.360heilsa.is/hladvarp Samstarfsaðilar þáttarins: NUUN Electrolytes - fáanlegt í helstu matvöruverslunum, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu Pure Natura (kóði "360heilsa" f. 15% afslátt) - Fáanlegt á purenatura.is, Hagkaup, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu

    #49. Leiðir að Hugarfrelsi með Unni og Hrafnhildi

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2021 78:21


    Í þessum þætti fékk ég til mín þær Hrafnhildi og Unni, stofnendur Hugarfrelsis.  Hugarfrelsi stendur fyrir ýmis konar fræðslu, námskeiðum og fyrirlestrum þar sem börnum, unglingum, foreldrum og fagfólki er kennt að nota einfaldar aðferðir til að efla sjálfsmynd og vellíðan. Í þættinum fékk ég að kynnast betur þeirra hugmyndafræði og hvernig við getum tekið meiri ábyrgð á eigin lífi og öðlast aukið hugarfrelsi. Þær vilja bjóða öllum hlustendum hlaðvarpsins 15% afslátt af nýju netnámskeiði sem þær voru að gefa út sem heitir "Veldu". Frábært námskeið fyrir ungt fólk. - Kóði: 360heilsa www.hugarfrelsi.is ------------------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Kryddhúsið - www.kryddhusid.is

    #48. Andleg heilsa, geðrækt, Andagift og fleira með Tinnu Sverris og Láru Rúnars

    Play Episode Listen Later Mar 29, 2021 112:38


    Í þættinum í dag fékk ég til mín stofnendur fyrirtækisins Andagift, Láru Rúnars og Tinnu Sverris. Andagift snýr að því að efla andlegt heilbrigði og vellíðan með viðburðum og námskeiðum eins og: – Möntrukvöld – Kakó athafnir – Retreat – Andagift festival – Innri Veröld Í þættinum förum við yfir þetta alltsaman ásamt þeirra vegferð, almennum pælingum um andlega heilsu, geðrækt og fleira.  ------------------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Kryddhúsið - www.kryddhusid.is

    #47. Hvað á að gefa börnunum að borða og almenn umræða um heilsu með Ebbu Guðnýju

    Play Episode Listen Later Mar 2, 2021 99:14


    Gestur þáttarins í dag er kennarinn, rithöfundurinn, matreiðslukonan og heilsufrumkvöðullinn Ebba Guðný eða Pure Ebba. Ebba hefur gefið út þrjár vinsælar bækur, "Eldað með Ebbu" uppskriftarbækur og síðan "Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?" Í þættinum fórum við yfir matarmál barna, heilsuvegferð Ebbu og almenna umræðu um heilbrigðan lífsstíl. ------------------------ Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Borðum betur - www.360heilsa.is/bordumbetur

    #46. KAP - Er Kundalini Activation Process fyrir þig? Með Þóru Hlín Friðriks

    Play Episode Listen Later Feb 22, 2021 56:27


    Gestur þáttarins í dag er Þóra Hlín Friðriksdóttir. Þóra er fyrrum starfandi hjúkrunafræðingur en hefur í dag snúið athyglinni alfarið að fyrirbæri sem kallast KAP eða Kundalini Activation Process. Í þættinum förum við yfir hvað KAP er, hver hugsunin er á bakvið það og af hverju fólk ætti að stunda KAP. Þóra Hlín kennir KAP tímana sína í Sólir á Granda. -------------------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Kryddhúsið - www.kryddhusid.is

    #45. Af hverju lífrænt, loftlagsáhrif, gerilsneyðing, fitusprenging o.fl með Kristjáni Oddssyni bónda

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2021 83:33


    Gestur þáttarins í dag er Kristján Oddsson, bóndi að Neðra Hálsi í Kjós. Kristján er mikill frumkvöðull í lífrænni ræktun á Íslandi og einn eiganda fyrirtækisins Bióbú sem sérhæfir sig í vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum.  ----------------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt Veristable blóðsykursmælir - www.360heilsa.is/veristable  

    #44. Taka ábyrgð, frá vegan í kjöt, barefoot og margt fleira með Arnóri Svein

    Play Episode Listen Later Feb 9, 2021 126:48


    Gestur þáttarins í dag er fótboltamaðurinn, kennarinn og heimspekingurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Við förum um víðan völl og ræðum um alls kyns mál tengd heilsu. Vegferð hans frá vegan lífsstíl í að borða aftur kjöt, hvernig hann leysti meiðslavandamál í fótum með því að vera berfættur og mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi. --------- Samstarfsaðilar þáttarins: Toppur www.canivore.is/budin Veri-Stable blóðsykursmælir (www.360heilsa.is/betriblodsykur)

    #43. Innihaldsríkara líf eða hamingjuríkara líf? Með Begga Ólafs

    Play Episode Listen Later Feb 1, 2021 109:16


    Bergsveinn ólafsson er gestur þáttarins í dag. Beggi er með MSc í Hagnýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði, fyrirlesari, fyrrum fótboltamaður og mikill spekingur.   Í þættinum spjölluðum við um nýju bókina sem hann var að gefa út, 10 skref að innihaldsríkara lífi og köfuðum ofan í hvernig við getum öðlast innihaldsríkara líf og af hverju það skiptir meira máli heldur en hamingjuríkt líf.   Bókin hans er fáanleg í öllum helstu bókaverslunum, hagkaup, nettó og fleiri stöðum og fyrir þá sem hafa áhuga býður hann einnig upp á tíma í þjálfunarsálfræði sem hægt er að finna á vefsíðunni hans beggiolafs.com ---------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.kryddhusid.is    

    #42. Allt um hómópatíu með Guðnýju Ósk hómópata

    Play Episode Listen Later Nov 25, 2020 85:01


    Gestur þáttarins er hómópatinn Guðný Ósk Diðriksdóttir. Guðný lærði hómópatíu við The College of Practical Homeopathy, í Bretlandi, 1999-2003 og er einn af stofnendum hómópatíuskóla á Íslandi, Iceland School of Homeopathy.    Ásamt því að starfa sem hómópati, rekur Guðný Ósk Heildræna heilsu ehf og heldur úti vefsíðunni www.heildraenheilsa.is þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar og fræðslu tengdri hómópatíu.   Guðný hefur síðan einnig skrifað bækurnar Meðganga og fæðing með hómópatíu og Barnið og uppvaxtarárin með hómópatíu sem voru gefnar út árið 2010 og 2011.   ------------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON skór www.purenatura.is - 15% afsláttur af PN vörum m. kóða "360heilsa" www.360heilsa.is/fyrirlestrar - Bókaðu heilsufyrirlestur fyrir þitt fyrirtæki

    #41. ADHD, áföll, andleg heilsa, vitundavíkkandi efni o.fl. með Haraldi Erlends geðlækni

    Play Episode Listen Later Nov 18, 2020 99:21


    Gestur þáttarins í dag er Haraldur Erlendsson Geðlæknir.  Fæddur í Kaupmannahöfn og uppalinn í Reykjavík. Útskrifaður úr læknadeild háskóla Íslands Tók nám í taugalækningum í London og lærði síðan geðlækningar í Bretlandi um árið 2000.   Haraldur starfaði í rúm 10 ár sem geðlæknir í bretlandi þar til hann flutti til íslands árið 2012 og tók þar við störfum sem yfirlæknir og forstjóri á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði en hefur í dag hafið sinn eigin stofurekstur í kópavogi. Hann heldur einnig uppi vefsíðunni www.télos.is   Haraldur er einstaklega áhugaverður maður að ræða við. Uppfullur af fróðleik, visku og augljósri ástríðu fyrir starfi sínu. Við könnuðum ýmsar hliðar á mismunandi málefnum og köfuðum meira að segja út í umdeilt málefni um notkun vitundavíkkandi efna eins og LSD eða sveppa sem meðferðartól í geðlækningum og sálfræði.   Haraldur hefur síðastliðin ár verið að viða að sér nýjustu fræðum þessara efna og vill meina að þetta gæti verið virkilega öflugt og jafnframt skaðlaust tól til bættrar andlegrar heilsu fólks. ----------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON skór www.360heilsa.is/fyrirlestrar - Bókaðu fyrirlestur fyrir þitt fyrirtæki

    #40. Heilsa er ekki heppni með Lukku Páls

    Play Episode Listen Later Nov 12, 2020 87:53


    Gestur þáttarins er Lukka Pálsdóttir, sjúkraþjálfari, einkaþjálfari og stofnandi heilsuveitingastaðarins Happ. Í dag hefur hún stofnað fyrirtækið www.greenfit.is sem snýr að fyrirbyggjandi lausnum til að bæta heilsu og hámarka árangur.  Við Lukka ræðum um ýmsa hluti sem þarf að huga að þegar kemur að heilsu eins og blóðsykurstjórnun, hvaða næringarefni er algengt að fólki vanti ásamt hvernig við getum bætt heilsuna okkar á einfaldan og skilvirkan máta.  ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON skór www.purenatura.is - 25% afsláttur af vörum m. kóða "360heilsa" www.360heilsa.is/fyrirlestrar - Bókaðu fyrirlestur fyrir þitt fyrirtæki

    #39. Vaktavinna og svefn

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2020 24:36


    Hvað er hægt að gera til að halda svefninum og heilsunni í standi samhliða vaktavinnu. ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON skór www.carnivore.is/budin www.purenatura.is - 25% afsláttur af vörum m. kóða "360heilsa" www.360heilsa.is/fyrirlestrar - Bókaðu fyrirlestur fyrir þitt fyrirtæki  

    #38. Vangaveltur um geðheilbrigði með Héðni Unnsteins

    Play Episode Listen Later Oct 12, 2020 83:35


    Héð­inn Unnsteinsson er stefnu­mót­un­ar­sér­fræð­ingur með meist­argráðu í alþjóð­legri stefnu­mótun og stefnu­grein­ingu frá Háskól­anum í Bath á Englandi. Hann starf­aði sem stefnu­mót­un­ar­sér­fæð­ingur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu 2010 til 2018 og var for­maður stefnu­ráðs Stjórn­ar­ráðs­ins. Héð­inn starfði áður hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni. Hann hefur und­an­farin 25 ár verið frum­kvöð­ull í geð­heil­brigð­is­mál­um og er í dag formaður Geðhjálpar.   ----------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 15% afsláttur af PN vörum m. kóða "360heilsa"  

    #37. Þurfum við "fjölbreytta" fæðu til að tryggja heilbrigði? Með Ævari Austfjörð

    Play Episode Listen Later Sep 14, 2020 115:32


    Heilbrigðisstofnanir og sérfræðingar leggja gjarnan áherslu á mikilvægi þess að borða "fjölbreytt". Samanber fæðuhring landlæknisembættisins. En er það í raun og veru mikilvægt? Hvernig borðuðum við fjölbreytta fæðu hér áður fyrr þegar lítið úrval var af fjölbreyttri fæðu? Þetta og fleira spjalla ég um með Ævari Austfjörð. Til að lesa pistil hans um málefnið smelltu hér: https://bit.ly/2FyYdAA ------------------------ Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af PN vörum m. kóða "360heilsa"

    #36. Lykillinn að langvarandi fitutapi og bættri heilsu

    Play Episode Listen Later Sep 8, 2020 34:53


    Eru kaloríutalningar og algengir matarkúrar skilvirk leið að bættu fitutapi? Ekki að mínu mati. Hér kem ég með aðrar uppástungur um hvernig þú getur náð áreynslulausu fitutapi og bættri heilsu án þess að svelta þig eða telja ofan í þig hitaeiningarnar.  ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON skór www.carnivore.is/budin www.purenatura.is - 25% afsláttur af vörum PN m. kóða "360heilsa"

    #35. Allt sem þú vilt vita um þarmaflóruna með Birnu G. Ásbjörnsdóttur

    Play Episode Listen Later Aug 30, 2020 97:00


    Gestur þáttarins er Birna G. Ásbjörnsdóttir. Birna er með meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surrey Háskóla og hefur lokið áföngum í gagnnreyndum heilbrigðisfræðum við Oxfordháskóla. Birna starfar í dag sem ráðgjafi og heldur reglulega fyrirlestra og námskeið hérlendis og erlendis. Þú getur fundið frekari upplýsingar um Birnu á www.jorth.is ----------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa"

    #34. Matarkúrar, næring, algengar mýtur o.fl með Betu Reynis

    Play Episode Listen Later Aug 24, 2020 119:43


    Gestur þáttarins er Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur og næringarþerapisti. Þú getur fundið frekari upplýsingar um Elísabetu á https://www.facebook.com/betareynis/ Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum

    #33 - Smámál: Ertu ómeðvitað að eyðileggja fyrir þér árangur?

    Play Episode Listen Later Aug 17, 2020 19:36


    Í þessum þætti fer ég yfir hugleiðingar mínar varðandi hvernig við getum, á tímum, ómeðvitað verið að eyðileggja fyrir okkur árangur í lífinu.  Ég legg síðan fram mína tilgátu um hvað gæti staðið að baki og hvernig við getum unnið á því.  ------------------ Samstafsaðilar þáttarnis: Bionette - Fáanlegt í flestum apótekum

    #32. Andleg heilsa, skuggavinna og leiðir til að betra sjálfan þig með Helgu Arnardóttur

    Play Episode Listen Later Aug 10, 2020 102:55


    Gestur þáttarins er sálfræðingurinn Helga Arnardóttir. Helga er sálfræðimenntuð frá Háskóla Íslands. Hún er með mastersgráðu í félags- og heilsusálfræði og diploma á mastersstigi í jákvæðri sálfræði. Helga starfar sjálfstætt við ráðgjöf, námskeið og fræðslu um andlega heilsu og leiðir til að hlúa að henni.   Hún heldur einnig uppi facebook síðu þar sem er bæði hægt að fylgjast með henni, bóka hana í ráðgjöf og fyrirlestra á síðunni "Andleg Heilsa". ------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - 2XU compression fatnaður www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum

    #31. Hugarfarsbreyting og litlu skrefin í átt að heilbrigðari lífsstíl

    Play Episode Listen Later Aug 4, 2020 65:09


    Þátturinn í dag er með óhefðbundnu sniði. Í þetta skiptið fékk ég frúnna, Karen Ósk Gylfadóttir, til að setjast á móti mér og spjalla um vegferðina okkar fjölskyldunnar í mataræði og lífsstíl. Hvernig hún byrjaði og hvernig hún hefur síðan þróast og mótast með tímanum.  -------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - 2XU compression fatnaður www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum

    #30. Hin raunverulega ofurfæða, x factorinn í mataræði og fleira með Hildi Magnúsdóttur

    Play Episode Listen Later Jul 20, 2020 71:59


    Gestur þáttarins í dag er Hildur Magnúsdóttir eigandi fyrirtækisins Pure Natura (www.purenatura.is) sem framleiðir innmat sem fæðubót.  ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum www.uglanheilsuvorur.is - Skinners sokkar  Þú færð 10% afslátt af vörunum hjá uglan heilsuvörur með kóðanum "360heilsa"

    #29. Biohacking, öndun, kvíði o.fl með Björgvini Pál Gústavs

    Play Episode Listen Later Jul 13, 2020 98:37


    Gestur þáttarins er Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmaður í handbolta, bakari, biohacker og fleira. Við ræddum um Biohacking græjur, leiðir til að bæta öndun fyrir heilsu og frammistöðu í íþróttum, hvernig Björgvin hefur unnið á kvíðanum sínum og margt fleira. Við skoðuðum einnig heimagymmið hans sem hægt er að horfa á hér: www.instagram.com/rafnfranklin ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" www.uglanheilsuvorur.is - Skinners sokkar Þú færð 10% afslátt af vörunum hjá uglan heilsuvörur með kóðanum "360heilsa"

    #28. Líkamsrækt, mataræði og lífsstílsbreytingar með Bjödda einkaþjálfara

    Play Episode Listen Later Jun 29, 2020 95:15


    Gestur þáttarins er Björn Þór Sigurbjörnsson einkaþjálfari. Björn er með margra ára reynslu sem þjálfari og starfar í dag í World Class. Hann heldur einnig uppi síðunni www.likami.is þar sem hægt er að finna fróðlega pistla og aðrar upplýsingar. ---------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - ON hlaupaskór www.hreyfing.is - Besta aðild www.uglanheilsuvorur.is - Skinners sokkar  Þú færð 10% afslátt af vörunum hjá uglan heilsuvörur með kóðanum "360heilsa"  

    #27. Uppeldi, umhverfi og áhrif fyrstu áranna á börnin okkar með Sæunni Kjartans

    Play Episode Listen Later Jun 23, 2020 77:08


    Sæ­unn Kjart­ans­dótt­ir er hjúkr­un­ar­fræðing­ur og sál­grein­ir frá Ar­bours Associati­on í London. Hún sér­hæf­ir sig í geðtengsl­um ungra barna og for­eldra og hef­ur að auki ritað fjöl­marg­ar bæk­ur um málefnið og fleira. ------------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - 2XU compression fatnaður www.purenatura.is - 25% afsláttur af vörum frá purenatura með kóðanum "360heilsa" www.360heilsa.is - farðu inná 360heilsa.is/vorur til að finna 4 vikna netnámskeiðið "360° Heilsa" og "masteraðu mataræðið á 5 vikum"

    #26. Af hverju genin þín þurfa alvöru næringu með Dr. Catherine Shanahan

    Play Episode Listen Later Jun 15, 2020 59:36


    Gestur þessa þáttar er Dr. Catherine Shanahan, læknir frá Robert Wood Johnson læknaháskólanum í Bandaríkjunum. Dr. Shanahan skrifaði bókina: Deep Nutrition: Why Your Genes Need Traditional Food og í framhaldi hannaði hún "PRO Nutrition Program" sem næringarráðgjafi fyrir körfuboltaliðið LA Lakers. Síðan þá hefur hún einnig hjálpað til við að setja upp samstarf milli Whole Foods keðjunnar í bandaríkjunum og fjölda NBA liða. Þú getur fundið meira um Dr. Shanahan og bækurnar hennar á www.drcate.com og www.fatburnfix.com  ------------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvörur.is - 2XU compression fatnaður www.360heilsa.is - farðu inná 360heilsa.is/vorur til að finna 4 vikna netnámskeiðið "360° Heilsa" og "masteraðu mataræðið á 5 vikum"

    #25. Spjall við Rafn Franklín um heilsu - Hlaðvarp Arnórs

    Play Episode Listen Later Jun 8, 2020 106:11


    Þessi þáttur er viðtal sem Arnór Sveinn Aðalsteinsson, þáttastjórnandi hlaðvarpsins "Hlaðvarp Arnórs, tók við Rafn Franklín.  Spjallað var um allskonar heilsutengd málefni. Vegan og carnivore mataræði, pólitík og hagsmunaárekstra í heilsugeiranum, fæðubótarefni og margt fleira. 

    #24. Hrotur, kæfisvefn, skakkar tennur, breytt andlitsfall o.fl með Hrönn Róberts

    Play Episode Listen Later May 25, 2020 69:50


    Hrönn Róbertsdóttir er tannlæknir og eigandi tannlæknastofunnar www.brosid.is. Hrönn notar áhrifaríkar aðferðir með sínum skjólstæðingum til að fyrirbyggja og vinna á hrotum og kæfisvefni og sömuleiðis lágmarka líkurnar á því að börn þrói með sér skakkar tennur. ---- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is www.purenatura.is (kóði f. purenatura vörur = "360heilsa")

    #23. Q&A - Grænmetisolíur, gervisætuefni, gerilsneyddar vörur, heilsusamlegasta íþróttin o.fl

    Play Episode Listen Later May 17, 2020 34:09


    Í þessum Q&A þætti eða "spurt og svarað" fer ég yfir spurningar varðandi:  Er ég ósanngjarn á grænmetisolíur? Hvert er þitt álit á súkralósa?   Eru gerilsneyddar mjólkurvörur óhollar?   Hver er þín skoðun á engiferskotum?    Hver er heilsusamlegasta íþróttin?   á að forðast sólgleraugun í morgungöngunni? Ef þú vilt fá þínum spurningum svarað í næsta Q&A þætti, sendu hana inn hér: www.360heilsa.is/spurningar --------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is www.hreyfing.is www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 25% afslátt

    #22. Sjálfshöfnun, fórnarlambshlutverkið og að læra að vilja sig með Guðna Gunnars

    Play Episode Listen Later May 8, 2020 67:48


    Guðni Gunnarsson er einn af frumkvöðlum Íslands á sviði líkams og heilsuræktar. Hann hefur starfað við fagið í meira en 35 ár og er m.a. fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi. Guðni stofnaði og rekur í dag Rope Yoga setrið (www.rys.is) og www.glomotion.is Hann hefur gefið út 3 bækur og í nýjustu bókinni hans "Máttur hjartans" fer hann yfir leiðir til að ná betri tökum á eigin lífi til að upplifa meiri velsæld og hamingju. ----------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is www.purenatura.is - 25% afsláttur af öllum vörum m. kóðanum "360heilsa"

    #21. Jurtir fyrir heilsu, föstur, skjaldkirtillinn, functional medicine o.fl með Ásdísi grasalækni

    Play Episode Listen Later May 3, 2020 64:19


    Í þessum þætti fékk ég til mín Ásdísi Rögnu Einarsdóttur. Við fórum um víðan völl og ræddum um heilsu, grasalækningar, heilbrigðiskerfið, föstur, heilsu kvenna, skjaldkirtilinn, functional medicine og margt fleira. Ásdís er hafsjór af þekkingu og er að mínu mati að gera flotta hluti á sviði heilsu. Þú getur kynnt þér Ásdísi betur á www.grasalaeknir.is eða facebook síðunni hennar https://www.facebook.com/grasalaeknir.is/ --------------------- Þátturinn er unninn í samstarfi við www.sportvörur.is  www.purenatura.is - 25% afsláttur af öllum vörum m. kóða "360heilsa"

    #20. Heilsuþjófarnir þrír

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2020 60:33


    Í þessum þætti fer ég yfir heilsuþjófana þrjá. Þrjá hluti sem eru allt í kringum okkur og eru virkilega að ræna frá okkur heilsunni. -------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.hreyfing.is www.purenatura.is - Kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt -------------- Þessi þáttur var unninn af Arnari Dór Ólafssyni.

    #19. Hvernig öndun getur breytt lífi þínu (og barnanna þinna) með Patrick Mckeown

    Play Episode Listen Later Apr 8, 2020 76:30


    Gestur þessa þáttar er öndunarsérfræðingurinn Patrick Mckeown.  Patrick er sérhæfður í Buteyko öndunarfræði sem hann lærði í Rússlandi árið 2002 undir Professor Konstantin Buteyko. Síðan þá hefur Patrick unnið með þúsundum fólks, allt frá börnum og fullorðnum með asmtma, svefnörðugleika og öndunarvandamál yfir í afreksíþróttafólk og ólympíufara. Hann hefur hingað til skrifað 8 bækur um öndun og nýjasta bókin hans "The Oxygen Advantage" hefur náð gríðarlegum vinsældum um allann heim og verið þýdd á 10 tungumál. -------------- Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is www.hreyfing.is www.purenatura.is - Kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt -------------- Þessi þáttur var unninn af Arnari Dór Ólafs.

    Claim 360° Heilsa

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel