Podcasts about austfj

  • 16PODCASTS
  • 79EPISODES
  • 58mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jun 2, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about austfj

Latest podcast episodes about austfj

Spegillinn
Snemmsumarshvellur og mótmæli gegn útlendingum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 2, 2025 20:00

Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir að þetta sé ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma. Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa að vera fljótir að stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjól og huga að gróðri sem kominn er mun lengra kominn en oftast áður. Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, hvetur bændur til að vera á tánum en vonar hretið núna verði ekki eins slæmt og fyrir ári. Á laugardag var haldinn fundur á Austurvelli á vegum hóps sem nefnist Ísland þvert á flokka á Facebook. Fundarmenn kröfðust aðgerða í útlendingamálum - og fundurinn hefur verið kallaður rasistasamkoma af sumum á samfélagsmiðlum. Nokkur af þeim atriðum sem fólkið á Austurvelli krafðist að yrði breytt eru þegar til skoðunar hjá stjórnvöldum. Einar Jóhannes Guðnason, varaformaður Freyfaxa sem er ungliðahreyfing Miðflokksins og var á fundinum er ekki sáttur við að vera stimplaður rasisti. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, beinir gagnrýni sinni að þeim sem töluðu á fundinum.

Frjálsar hendur
Þorsteinn Kjarval

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later May 25, 2025 49:59

Allir þekkja Jóhannes Kjarval og margir Ingimund fiðlu bróður hans en þriðji bróðirinn Þorsteinn er ekki eins þekktur. En hann skrifaði gagnmerka ævisögu þar sem hann segir frá uppvexti sínum í mikilli fátækt í Meðallandi og síðan vist sinni hjá vandalausum á Austfjörðum.

allir austfj kjarval
Vikulokin
Njáll Trausti Friðbertsson, Eiríkur Björn Björgvinsson og Jónína Brynjólfsdóttir,

Vikulokin

Play Episode Listen Later May 10, 2025 58:19

Gestir Vikulokanna eru Njáll Trausti Friðbertsson úr Sjálfstæðisflokknum, Eiríkur Björn Björgvinsson frá Viðreisn og Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings og varaþingmaður Framsóknarflokksins. Þau ræddu meðal annars um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar, auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sjókvíaeldi á Austfjörðum, rekstrarerfiðleika kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík og umfjöllun Kastljóss um stórfelldan gagnastuld lögreglumanna frá embætti sérstaks saksóknara. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Víðsjá
Grátur steinanna, ástarbréf og List í ljósi

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 13, 2025 55:26

Ástin mun svífa yfir vötnum í þætti dagsins. Á morgun er dagur heilags Valentínusar og af því tilefni hefur Kvennasögusafnið boðað Dag ástarbréfsins, í Landsbókasafninu á degi ástarinnar, í samstarfi við Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Þar mun fara fram fjölbreytt dagskrá, þar sem meðal annars verða sýnd ástarbréf úr safnkosti og flutt örerindi um ástarbréf. Meðal þeirra sem flytja erindi er Guðrún Friðriksdóttir, þjóðfræðingur og meðlimur í ástarsögufélaginu og hún verður gestur okkar í dag. Segir okkur frá sínum hugmyndum um ástarbréf og les eitt slíkt fyrir okkur. Einnig munu Lóa Björk Björnsdóttir og Baldur Örlygsson. starfsmenn hér í Ríkisútvarpinu segja okkur sína skoðun á þessu fyrirbæri, ástarbréfinu. Það er ekki til rómantískari byrjun á febrúarmorgni í Reykjavík en að bjóða sér í heimsókn hjá ungu pari sem sérhæfir sig í flutningi á barokktónlist frá Ítalíu. "Sólveig er ástin mín, en svo kemur lútan", sagði lútuleikarinn Sergio Coto Blanco, sem undirbýr ásamt hörpuleikaranum Sólveigu Thoroddsen og sópransöngkonunni Ievu Sumeja tónleika sem þau flytja í Einarssafni á sunnudag og nefna Grátandi steinar. Við fáum útskýringu á nafngiftinni hér síðar, en á efnisskránni eru meðal annars sönglög eftir tvær stórmerkilegar konur, þær Barböru Strozzi og Fransescu Caccini, sem voru meðal mikilvægustu barokktónskálda á Ítalíu upp úr aldamótunum 1600. En við hefjum þáttinn á fréttum frá menningarvígi Austurlands, Seyðisfirði. Víðsjá sló á þráðinn til Sesselíu Hlínar Jónasardóttur, en hún var í mörg ár ein af hvatamanneskjunum á bak við Lunga, Listahátíð ungs fólks á Austfjörðum, en stendur líka að baki annari menningarveislu sem hefst á morgun og kallast List í ljósi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Samfélagið
Loftslagsbreytingar og fráveita, samfélagslistir og tákn framtíðar, græna gímaldið

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 21, 2025 59:05

Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna. Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafa, Ágúst Þór Bragason, forstöðumann hjá þjónustumiðstöð Árborgar og Aðalstein Þórhallsson, framkvæmdastjóra HEF-veitna á fljótsdalshéraði. Svo fáum við til okkar Ásdísi Birnu Gylfadóttur og Maríönnu Dúfu Sævarsdóttur, meistaranema í listum og velferð við Listaháskóla Íslands. Þær ætla að segja okkur frá því hvernig þær nálgast samfélagslistir og velferð, framtíðina og táknin sem við notum fyrir framtíðina. Viðtalið er það fimmta í viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarýnir, í samstarfi við framtíðarfestival Borgarbókasafnsins. Og að lokum heyrum við í Páli Líndal, pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um græna gímaldið við Álfabakka, þéttingu byggðar og almenningssamgöngur. Tónlist og stef í þættinum: OTIS REDDING - Respect. MUSIC MACHINE - Talk Talk. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).

Spegillinn
Hjón í hesthúsi vegna snjóflóðahættu á Seyðsifrði og Donald Trump tekur við embætti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2025 20:00

Grípa þurfti til umfangsmikilla rýminga á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu í því óveðri og ofankomu sem gengið hefur yfir landshlutann síðasta sólarhringinn eða svo. Rafmagnsbilanir kom upp þegar loftlínur slitnuðu eftir að ís hlóðst utan á þær og rafmagnsstaurar brotnuðu. Hjón i Neskaupstað kusu frekar að sinna hrossum en gista hjá dóttur sinni. Donald Trump segir gullöld Bandaríkjanna hafna, nú þegar hann er tekinn við embætti forseta. Hann kom víða við í innsetningarávarpi sínu, ætlar að lýsa yfir neyðarástandi í orkumálum og á suðurlandamærum Bandaríkjanna.

donald trump hj hann bandar vegna sifr og donald trump neskaupsta austfj
Morgunvaktin
Norðurlönd, sterkur Stöðvarfjörður og fræðimenn utan garðs

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 21, 2023

Við drógum frá glugganum og litum út í heim með Boga Ágústssyni. Við horfðum einkum til Norðurlandanna í dag. Ofbeldisaldan í Svíþjóð, norskir stjórnmálamenn í vanda og danskur listamaður sem var á dögunum dæmdur til að skila efni sem hann fékk til að skapa listaverk; efnið var peningaseðlar. Við ræddum líka stuttlega um viðhorf Íslendinga til alþjóðasamstarfs. Við beindum líka sjónum að fræðimönnum - eða stöðu fræðimanna - sem starfa utan háskólanna eða stofnana þeirra. Það er ekki síst fólk í hug- og félagsvísindum sem er í þeirri stöðu og er aðgengi þess að opinberum styrkjum takmarkað. Lilja Hjartardóttir og Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir hjá Reykjavíkurakademíunni sögðu okkur frá fræðalífinu utan garðs, eins og þær orða það. Stöðvarfjörður kom líka við sögu í þættinum í dag. Það fallega pláss á Austfjörðum á undir högg að sækja en íbúar eru í sóknarhug. Það tekur þátt í Brothættum byggðum undir heitinu Sterkur Stöðvarfjörður og Valborg Ösp Árnadóttir Warén verkefnastjóri sagði okkur frá því. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Gardot, Melody - Moon river. Rúnar Þór Pétursson - Brotnar myndir. Steely Dan - Take the money and run.

Morgunvaktin
Norðurlönd, sterkur Stöðvarfjörður og fræðimenn utan garðs

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 21, 2023 130:00

Enn rýming á Austfjörðum og ný viðmið í fjárveitingum til háskóla

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 19, 2023 9:39

Appelsínugul veðurviðvörun vegna rigningar á Austfjörðum og rýming á Seyðisfirði er enn í gildi. Hringveginum hefur verið lokað frá Skaftafelli að Jökulsárlóni vegna veðurs. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra segir að áform um sameiningu framhaldsskóla á Akureyri breytist fáist meira fé. Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, segir að skýra þurfi betur skilgreininguna á nánu sambandi í hegningarlögum, sem var breytt 2016 til að undirstrika hve alvarlegt heimilisofbeldi væri. Skýrsla Ríkisendurskoðunar leiðir í ljós að veikindadögum hefur fjölgað verulega á síðustu árum innan Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsfólk hefur upplifað vanvirðingu, ofbeldi og kynþáttafordóma; þá hefur hljóðfæraleikari stefnt hljómsveitinni fyrir brottrekstur. Borgarfulltrúar eru ekki á einu máli um hvort setja allsherjar símabann í grunnskólum Reykjavíkur. Belgíski söngvarinn Lou Deprijck sem er hvað þekktastur fyrir að hafa samið pönk smellinn Ça plane pour moi er látinn ------- Það kólnar mjög milli Indlands og Kanada. Viðræður um fríverslunarsamning þeirra á milli eru í uppnámi eftir að Justin Trudeau sagði að hugsanleg tengsl væru milli útsendara indversku stjórnarinnar og morðs á kanadískum ríkisborgara, Hardeep Singh Nijjar. Rektor Háskóla Íslands telur að boðaðar breytingar á fjármögnun háskólanna hafi talsverð áhrif á skólastarfið. Horft sé til fleiri þátta en áður og veigamesta breytingin sú að fé fylgi einingum sem nemendur ljúka og skólinn verði að hlú að þeim. Meira en 150 þjóðarleiðtogar eru komnir til New York-borgar vegna ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, með tilheyrandi röskun fyrir borgarbúa. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Spegillinn
Enn rýming á Austfjörðum og ný viðmið í fjárveitingum til háskóla

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 19, 2023

Skriðuhætta, offittuaðgerðir, áfengið hækkar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023

Gripið hefur verið til rýmingar á Seyðisfirði vegna mikillar úrkomu á Austurlandi. Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum á miðnætti og hættustig er í gildi vegna hættu á skriðuföllum. Rætt var við Dagnýju Erlu Ómarsdóttur fulltrúi sveitarstjóra á Seyðisfirði Sífellt fleiri fara í efnaskiptaaðgerðir á eigin vegum á einkastofum hér á landi eða erlendis þar sem skilyrði til að mega gangast undir aðgerð á borð við magaermi eða hjáveitu eru færri en á Landspítalanum. Undirbúningi og eftirfylgni er oft ábótavant og afleiðingarnar geta verið alvarlegar, segir Hildur Thors, yfirlæknir offituteymis Reykjalundar. Farið sé að líta á efnaskiptaskurðaðgerðir sem útlitsaðgerð. Fjölmörg skilyrði eru sett fyrir áframhaldandi urðun sorps í Álfsnesi í nýju samkomulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar segist ætla að fylgja fast eftir að þau verði uppfyllt. Bandaríkin og Íran skiptust í dag á fimm föngum, á grundvelli samkomulags sem var gert með milligöngu Katar. 700 millilítra flaska af vodka hækkar um tvö hundruð krónur við hækkun áfengisgjalds um áramót Breski leikarinn og uppistandarinn Russel Brand hefur verið kærður vegna kynferðisbrots sem á að hafa átt sér stað í Lundúnum árið 2003. Íslendingar ávísuðu fleiri undanþágulyfjum en Svíar á árunum 2020 og 2021. Slíkar ávísanir geta valdið neytendum erfiðleikum. Úkraínska hernum tókst í gærkvöld að rjúfa varnarlínu rússneska innrásarliðsins í grennd við borgina Bakhmút í Donetsk-héraði í austurhluta landsins eftir harða bardaga undanfarna mánuði. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Spegillinn
Skriðuhætta, offittuaðgerðir, áfengið hækkar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023 9:28

Líneik Anna, Þorbjörg Sigríður og Ólafur Stephensen

Vikulokin

Play Episode Listen Later Apr 1, 2023 55:00

Hallgrímur Indriðason ræðir við Líneik Önnu Sævarsdóttir þingmann Framsóknarflokksins, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmann Viðreisnar og Ólaf Stephensen framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Rætt um snjóflóðin í Neskaupstað og víðar á Austfjörðum, endalok Fréttablaðsins, vantrauststillögu á Jón Gunnarsson, fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og efnahagsmálin almennt.

Vikulokin
Líneik Anna, Þorbjörg Sigríður og Ólafur Stephensen

Vikulokin

Play Episode Listen Later Apr 1, 2023

Hallgrímur Indriðason ræðir við Líneik Önnu Sævarsdóttir þingmann Framsóknarflokksins, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmann Viðreisnar og Ólaf Stephensen framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Rætt um snjóflóðin í Neskaupstað og víðar á Austfjörðum, endalok Fréttablaðsins, vantrauststillögu á Jón Gunnarsson, fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og efnahagsmálin almennt.

Spegillinn
Úrhelli fyrir austan, kynferðisafbrot, Trump ákærður eftir helgi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 31, 2023 10:04

Spegillinn 31. mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Um 300 manns fá ekki að fara heim til sín í nótt vegan rýminga á Austfjörðum. Á bilinu 70-80 snjóflóð hafa fallið þar síðustu daga. Mikil úrkoma hefur verið og spáð er rigningu fram yfir hádegi á morgun. Ásta Hlín Magnúsdóttir sgði frá og talaði við Minney Siguðardóttur ofanflóðasérfræðing hjá Veðurstofunni. Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Brynjari Joensen Creed, rúmlega fimmtugum karlmanni, fyrir gróf kynferðisbrot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Bæturnar til þeirra voru jafnframt hækkaðar. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Tvö tilfelli hafa komið upp í sumarbúðum fatlaðra í Reykjadal, þar sem efast er um að öryggi skjólstæðinga hafi verið tryggt. Stella Sverrisdóttir, móðir fatlaðrar stúlku, er ósátt við forsvarsmenn búðanna eftir að grunur kviknaði um að dóttir hennar hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Valur Grettisson ræddi við hana. Kjaraviðræður Kennarasambands Íslands og Samtaka íslenskra sveitarfélaga standa enn yfir. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins segir að samflot með BSRB og BHM hafi gengið vel hvað varðar sameiginlega hagsmuni opinberra starfsmanna, en nokkrir þættir standi út af. Alma Ómarsdóttir talaði við hann. Ár er í dag frá því að Rússar hörfuðu frá bænum Bucha í Úkraínu. Þeir unnu þar hrikaleg grimmdarverk gegn íbúunum. Dagný Hulda Erlendsdóttir sagði frá. Donald Trump verður birt ákæra í New York á þriðjudag, fyrstum fyrrverandi forsetum Bandaríkjanna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Síðasta tölublað Fréttablaðsins kom út í morgun eftir 22 ára útgáfu. Hátt í hundrað manns misstu vinnuna. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Valgerði A. Jóhannsdóttur lektor um stöðuna á fjölmiðlamarkaði. Tollvernd og upprunamerkingar matvæla voru efstar á baugi meðal fulltrúa bænda sem ræddu stöðu landbúnaðar og matvælaframleiðslu nýafstöðnu á Búnaðarþingi. Bjarni Rúnarsson ræddi við Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtaka Íslands.

Spegillinn
Úrhelli fyrir austan, kynferðisafbrot, Trump ákærður eftir helgi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 31, 2023

Rýmingar, vantraust og landsliðsþjálfari rekinn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023 13:18

Spegillinn 30. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Hús voru enn rýmd á Austfjörðum í dag vegna hættu á ofanflóðum. Hættustig er í gildi í Neskaupstað, á Seyðisfirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Fjöldi flóða hefur fallið í dag en ekki í byggð. Magni Hreinn Jónsson fagstjóri ofanflóða er á vakt hjá Veðurstofunni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann og Óðin Svan Óðinsson fréttamann sem er í Neskaupstað. Vantrauststillaga á hendur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra er eitt af mörgum óþægilegum málum fyrir Vinstri græn í ríkisstjórnarsamstarfinu segir Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, samþykkt hefði jafngilt stjórnarslitum. Bjarni Rúnarsson talaði við hann. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara upp störfum. Einar Örn Jónsson sagði frá og Hans Steinar Bjarnason talaði við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ. Stéttarfélög á opinbera markaðnum hafa samið við ríki og borg um launahækkanir og kjarabætur. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB segir helsta markmið 12 mánaða samnings að verja kaupmáttinn. Helstu matvörukeðjur Svíþjóðar hafa boðað verðlækkun á ýmsum nauðsynjavörum eftir harða gagnrýni. Fjármálaráðherra landsins hafði áður boðað forstjóra fyrirtækjanna á sinn fund og krafist skýringa á verðhækkunum, sem eru langt umfram nágrannalönd. Alexander Kristjánsson sagði frá. Páskaeggin eru ódýrust í Bónus og Krónunni samkvæmt verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Dýrust eru þau í Heimkaup og Iceland. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir tók saman. --------- Vantrauststillaga á hendur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra var felld á Alþingi í dag með 35 atkvæðum stjórnarliða gegn 22 atkvæðum stjórnarandstöðu. Einn greiddi ekki atkvæði. Bjarni Rúnarssorn ræddi við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing um aðdraganda og afleiðingar vantrauststillögunnar. Brot úr viðtali Höskuldar Kára Schram við Jón. Héraðsdómur í Zürich í Sviss dæmdi í dag þrjá fyrrverandi yfirmenn í útibúi rússneska Gazprombankans í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekki kannað uppruna um það bil 50 milljóna svissneskra franka sem lagðir voru inn á reikning í bankanum á árunum 2014 til '16. Rússneskur sellóleikari og hljómsveitarstjóri, Sergei Roldugin, góðvinur Vladimírs Pútíns lagði peningana inn í bankanna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Maria Nizzero, sérfræðingur í rannsókn á fjármálaglæpum við RUSI-hugveituna í Lundúnum, segir að dómurinn sæti tíðindum.

Spegillinn
Rýmingar, vantraust og landsliðsþjálfari rekinn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023

Illviðri, vantraust og fjármálaáætlun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023 29:51

Appelsínugul veðurviðvörun gengur í gildi á Austfjörðum klukkan sjö vegna mikillar snjókomu. Reitur fjórtán var rýmdur að nýju á Seyðisfirði í dag. Viðbúið er að færð spillist og hætta á snjóflóðum aukist. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Hækka á tekjuskatt á fyrirtæki, hagræða í rekstri ríkisstofnana og draga úr opinberum framkvæmdum samkvæmt fjármálaáætlun sem kynnt var í dag. Þingmenn úr nær öllum flokkum stjórnarandstöðu lögðu í dag fram vantrauststillögu gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra. Hann hafi með framgöngu sinni hindrað Alþingi í störfum sínum. Tillagan verður tekin fyrir á Alþingi á morgun. Jóhanna vigdís Hjaltadóttir segir frá. Yfirtaka svissneska bankans UBS á Credit Suisse er stærsti einstaki fjármálagerningur síðan í fjármálakrísunni 2008. Þetta segir stjórnarformaður UBS, sem hefur ráðið til baka fyrrverandi forstjóra til að leiða samrunann. Oddur Þórðarson segir frá. ------ Í dag var kynntur einn af staksteinum ríkisfjármálanna á ári hverju, fjármálaáætlun. Þar er hægt að sjá hvert stjórnvöld stefna með nokkuð ítarlegum hætti í ríkisrekstrinum. Hennar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu í þetta skiptið, því í henni sýnir ríkisstjórnin á spilin með hvaða hætti eigi að bregðast við í ríkisfjármálunum til að bregðast við verðbólgu og efnahagsvandanum sem við blasir. Markmið með fjármálaáætluninni er að útfæra markmið um tekjur og gjöld hins opinbera og þróun þeirra. Fjármálaáætlun er sett fram til næstu fimm ára hið skemmsta og skal fjármála- og efnahagsráðherra leggja hana fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar fyrir 1. apríl ár hvert. Bjarni Rúnarsson fer yfir áætlunina ásamt Alexander Kristjánssyni fréttamanni. Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, segist merkja aukinn skilning innan Evrópusambandsins á sjónarmiðum Íslands varðandi losunarheimildir í flugi og hún segir að þýsk stjórnvöld deili skoðunum Íslands hvað þetta mál varðar. Lilja var í Brussel í gær og í dag, þar sem hún átti fundi með embættismönnum í framkvæmdastjórn ESB, og tók einnig þátt í ráðstefnu flugfélaga sem haldin var í borginni. Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel fylgdist með þessari ráðstefnu og ræddi við Lilju Vladimír Pútín Rússlandsforseti kann að fá öflugan keppinaut þegar hann sækist eftir endurkjöri í mars á næsta ári. Sérfræðingar hugveitunnar Institute for the Study of War eða ISW í Washingtonborg draga þá ályktun í nýjustu uppfærslu sinni um gang innrásarinnar í Úkraínu, að Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner málaliðahópsins, hyggist bjóða sig fr

Spegillinn
Illviðri, vantraust og fjármálaáætlun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023

Áfram hættustig á Austfjörðum og fasteignamarkaður kólnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 28, 2023 10:34

Spegillinn 28. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Guðrún Sólveig Sigurðardóttir, sem vaknaði upp við að fá snjóflóð inn um svefnherbergisgluggann sinn í Neskaupstað í gærmorgun segir tilfinninguna skrítna, en stuðningur samfélagsins skipti miklu. Rúnar Snær Reynisson kom sjóleiðina til Neskaupstaðar í dag. Hann ræddi við Guðrúnu Sólveigu og Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra í Fjarðabyggð. Deilt er um það fyrir dómi hvort hoppukastali sem tókst á loft í hitteðfyrra svo börn slösuðust alvarlega var festur í samræmi við leiðbeiningar framleiðenda. Aðalsteinn Ingi Guðmundsson, varð vitni að slysinu og líkir því við martröð. Orkumálaráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins samþykktu í dag lög sem banna sölu bensín og díselbifreiðar árið 2035. Þeir féllust hins vegar á kröfu Þjóðverja um að leyfa bifreiðar sem ganga fyrir svokölluðu rafrænu eldsneyti. Björn Malmquist sagði frá, brot úr máli Ebbu Busch orkumálaráðherra Svía. Flugfélagið Condor hefur hætt við að fljúga frá Frankfurt til Akureyrar og Egilsstaða. Það er Arnheiði Jóhannsdóttur framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands vonbrigði. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við hana. Spáin fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu var opinberuð í dag, en 13 dagar eru í fyrsta leik deildarinnar. Íslandsmeisturum Breiðabliks er spáð titlinum annað árið í röð. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, segir spána þó hafa litla þýðingu. --------------- Þó að hægt hafi á fasteignamarkaði er langt frá því að þar ríki frost, segir Kári S. Friðriksson, hagfræðingur hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Hann á frekar von á því að verðið standi í stað en að það lækki. Áhrif vaxtabreytinga séu ekki komin fram að fullu. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Norður-Kóreumenn birtu í dag í fyrsta sinn myndir af kjarnaoddum sem hægt er að koma fyrir á skammdrægum eldflaugum. Með þeim er hægt að hæfa skotmörk í Suður-Kóreu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Ísland er mikilvæg varpstöð og búsvæði mófugla, eins og heiðlóu, spóa, skógarþrasta og þúfutittlinga. Um 85 prósent allra mófugla verpa á láglendi landsins og landnotkun þar ræður framtíð mófuglastofna. Vísbendingar eru um að mófuglum sé að fækka verulega. Bjarni Rúnarsson ræddi við Aldísi Ernu Pálsdóttur er nýdoktor í líffræði á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Suðurlandi

Spegillinn
Áfram hættustig á Austfjörðum og fasteignamarkaður kólnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 28, 2023

Snjóflóð í Neskaupstað og verkföll og mótmæli í Ísrael

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 27, 2023 30:00

Hættustig almannavarna vegna snjóflóða er í gildi í þremur bæjum á Austfjörðum. Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað snemma í morgun. Ólíkar tilfinningar vakna hjá Norðfirðingum í kjölfar flóðsins. Sum muna Norðfirðingar muna sumir eftir mannskæðum snjóflóðum þar í bænum fyrir tæpum 50 árum. Snjóflóðin í Neskaupstað féllu utan við varnargarða bæjarins. Viðbætur eru á teikniborðinu en stranda á fjármagni. Karlmaður frá Rúmeníu hefur stefnt íslenska ríkinu og krefst fimm milljóna í bætur. Hann kom til Íslands til að vinna við þakviðgerðir með tengdaföður sínum en var eftirlýstur af lögreglu og bendlaður við glæpagengi. Stúlka á táningsaldri vopnuð tveimur rifflum og skammbyssu varð sex að bana í grunnskóla í Nashville í Bandaríkjunum í dag. Nærri níutíu árásir hafa verið gerðar í bandarískum grunnskólum það sem af er ári. Umdeildu frumvarpi Ísraelsstjórnar var mótmælt harkalega í dag. Allsherjarverkfall hófst í landinu og sendiráðum var lokað. Frumvarpið átti að færa stjórnvöldum aukin völd yfir dómstólum. Afgreiðslu þess var frestað síðdegis. ---- Í morgun féllu snjóflóð í Neskaupstað. Blessunarlega varð ekki manntjón í flóðunum en nokkrir hlutu minni háttar áverka þegar flóð lenti á fjölbýlishúsi í Starmýri. Mikil ofankoma og vindur er fyrir austan og mikil snjóflóðahætta víða á Austfjörðum, til að mynda á Seyðisfirði, Eskifirði og víðar. Hús voru rýmd í Neskaupstað og Eskifirði. Flóðin sem lentu í byggð féllu úr Nesgili og Bakkagili en stór flóð hafa áður fallið úr þessum giljum. Norðfirðingar hafa áður þurft að takast á við náttúruöflin. Alls hafa 17 manns látist í snjóflóðum í Neskaupstað í þremur flóðum, árin 1885, 1974 og 1978. Árið 1974 varð mannskæðasta flóðið í bænum þar sem 12 manns fórust og fjórtán var bjargað, ýmist af eigin rammleik eða voru grafin upp. Slík sár gróa seint og sambýlið við náttúruna er samofið í huga Norðfirðinga. Í hádegisfréttum var sagt frá því að í fjöldahjálparstöð sem opnuð var í Egilsbúð sé meðal annars fólk sem man eftir flóðunum 1974 og það ýfi upp gömul sár að vera komin aftur á þann stað við svona aðstæður. "Atvinnurekendur og launþegar um gjörvallt Ísraelsríki. Komum í veg fyrir breytingar á lögum um dómstóla. Stöðvum þetta brjálæði," sagði Arnon Bar-David, formaður Histadrut, landsambands verkalýðsfélaga, þegar hann tilkynnti í morgun að allsherjarverkfall væri brostið á í landinu. Fljótlega tilkynntu fleiri stéttarfélög um að þau hefðu lagt niður störf, þar á meðal landssamband ísraelskra hjúkrunarfræðinga. Frá deginum í dag ætla þeir einungis að sinna neyðartilvik

sl sum hann alls sey snj flj mikil neskaupsta komum austfj karlma
Spegillinn
Snjóflóð í Neskaupstað og verkföll og mótmæli í Ísrael

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 27, 2023

Viðbúnaður við sendiráð, kjaraviðræður og kakkalakkar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 4, 2023 29:51

Talsverður viðbúnaður var við Bandaríska sendiráðið í dag vegna torkennilegs dufts sem þangað barst. Lögregla kannar hvort tengsl séu við sambærilegar sendingar í öðrum löndum. Kjaraviðræður Eflingar og SA skiluðu engri niðurstöðu í dag. Formaður Eflingar segir þó betri tón í viðræðunum en hingað til. Hún segist ósammála dómi félagsdóms um ólögmæta uppsögn starfsmanns félagsins. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir ekki þörf á að grípa til aðgerða hér heima sökum mikilla kóvidsmita í Kína. Fréttamaður Danska ríkisútvarpsins í Úkraínu fær að hefja störf í landinu á ný. Hún missti starfsleyfið síðasta sumar eftir að úkraínska öryggislögreglan sakaði hana um að sýna Rússum hluttekningu. Kolmunnaveiðin er hafin suður af Færeyjum og fyrstu íslensku skipin komin á miðin. Þangað er um sólarhrings sigling frá Austfjörðum. Amerískir kakkalakkar hafa numið land hér á landi og undanfarna mánuði hefur þeim fjölgað talsvert. ------ Samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og Eflingar settust að samningaborðinu að nýju í dag eftir að viðræðum var frestað á milli jóla og nýárs. Og óhætt er að segja að samninganefndirnar hefji nýtt ár af krafti. Tónninn var sleginn í morgun þegar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar sagði að SA væri að þröngva samningi, sem aðrir hafa skrifað undir, upp á Eflingu. Þar vísar hún til samninga sem Starfsgreinasambandið, VR og samflot iðnaðar og tæknifólks undirritaði undir lok seinasta árs. Svo var fundað eftir hádegið, og lagt fyrir tilboð Samtaka atvinnulífsins. Bjarni Rúnarsson ræddi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar og Eyjólf Árna Rafnsson, formann Samtaka atvinnulífsins. Á næstunni verður hafist handa við að koma fyrir Patriot eldflaugavarnarkerfunum sem Bandaríkjastjórn færði Úkraínumönnum að gjöf skömmu fyrir jól. Dmytro Kuleba utanríkisráðherra greindi frá þessu í Facebook-útsendingu í dag. Hann sagði að vinna væri hafin við að koma þeim fyrir. Patriot kerfin eru hin fullkomnustu sem Bandaríkjaher hefur yfir að ráða. Þeim er ætlað að granda eldflaugum og árásardrónum Rússa af enn meiri nákvæmni en með gagnflaugunum sem Úkraínuher hefur haft yfir að ráða til þessa. Hver flaug er yfir fimm metrar að lengd og fjörutíu sentimetrar í þvermál. Hægt er að skjóta Patriot flaugunum sjötíu kílómetra og þær ná meira en 24 kílómetra hæð. Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn fréttaútsetningar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Spegillinn
Viðbúnaður við sendiráð, kjaraviðræður og kakkalakkar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 4, 2023

Draugar fortíðar
#LD3 Hernámið á Austfjörðum

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Dec 7, 2022 135:13

Baldur og Flosi fóru til Reyðarfjarðar í boði Fjarðabyggðar og Menningarstofu Fjarðabyggðar og fylltu þar gamlan hermannabragga af fólki. Síðan var farið að ræða hernámið í seinni heimsstyrjöld og sérstaklega var sjónum beint að Austfjörðum. Hvaða hlutverki gegndu Reyðarfjörður og Seyðisfjörður? Hvernig voru samskipti heimamanna og þessara ungu drengja sem voru langt frá heimkynnum sínum í harðbýlu og hrjóstrugu landi? Höfðu Þjóðverjar einhvern áhuga á Íslandi? Hvað olli því að Lenín minntist sérstaklega á Ísland í ræðu árið 1920, mörgum árum áður en styrjöldin braust út? Hví sagði þýski hershöfðinginn Karl Haushofer að sá sem réði Íslandi héldi á byssu sem væri miðað beint á Evrópu? Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

Spegillinn
Stýrivaxtahækkun, hnífaárás og stjórnmál í Danmörku

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 23, 2022

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans hefur sett kjaraviðræður í uppnám. Forseti Alþýðusambands Íslands segir hækkunina vonbrigði. Hún leggist þungt á fólk og geri kjaraviðræður enn erfiðari. Formaður VR segir allt stefna í að viðræðum verði slitið og gripið verði til aðgerða. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna skriðuhættu á Austfjörðum. Mikið hefur rignt þar að undanförnu. Lunginn af starfsfólki lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu hafði aðgang að myndskeiðum sem sýna hnífaárás á Bankastræti Club og fóru í dreifingu í gær. Yfirlögregluþjónn óttast að dreifingin rýri traust almennings til lögreglunnar. Tölvukerfi Evrópuþingsins liggur niðri eftir netárás. Rússneskir hakkarar hafa lýst yfir ábyrgð. Fleira flóttafólk hefur komið hingað til lands en spáð var. Verkefnisstjóri móttöku flóttafólks segir ganga vonum framar að útvega húsnæði fyrir fólkið. ----- Kristján Þórður Snæbjarnarson forseti Alþýðusambands Íslands segir hækkun stýrivaxta í morgun mikil vonbrigði. Hækkunin leggist þyngst á þá sem síst megi við því. Hún geri kjaraviðræður erfiðari, en þar geti launafólk sótt rétt sinn. Margir eru uggandi eftir stórfellda hnífaárás á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur seinasta fimmtudag. Árásin hefur haft eftirmála þar sem sprengjum var til að mynda kastað að heimilum aðstandenda sakborninga í Reykjavík í nótt. Hnífaárásir hafa færst í aukana samkvæmt lögreglu sem hefur verið með aukinn viðbúnað eftir árásina og ætlar að gera það áfram um helgina. Bandaríska sendiráðið í Reykjavík hvetur landa sína til að vera á varðbergi í miðborg Reykjavíkur næstu helgi, forðast mannmergð og fylgjast vel með íslenskum fjölmiðlum áður en haldið er í bæinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sendiráðsins, sem jafnframt er birt á Facebook-síðu þess. Tilefni varnaðarorðanna er orðrómur um yfirvofandi hefndarárás í miðborg Reykjavíkur næstu helgi, sem svar við hnífaárás í Bankastræti í síðustu viku. Vísað er í fullyrðingar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að aukinn viðbúnaður verði í miðbænum vegna árásarinnar og að orðrómurinn sé til skoðunar. Eigendur skemmtistaða í Reykjavík segja það tilviljun að árásin hafi orðið á þessum stað, hún hefði getað orðið hvar og hvenær sem er. Þórir Jóhannsson eigandi skemmtistaðanna Sólon og Kiki queer bar segist hafa áhyggjur af að hnífaárásir séu orðnar hluti af daglegum veruleika í samfélaginu. Mette Frederiksen, starfandi forsætisráðherra í Danmörku og leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, vonast til þess að geta myndað nýja ríkisstjórn á næstu vikum. Á fréttamannafundi sem hún

Spegillinn
Stýrivaxtahækkun, hnífaárás og stjórnmál í Danmörku

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 23, 2022 30:00

Vonskuveður, náttúruhamfaratrygging og rafmagnsleysi á hálfu landinu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 26, 2022

Enn er vonskuveður á Austfjörðum og Suðausturlandi þar sem mikið tjón hefur orðið vegna lægðar sem gengur yfir landið. Við heyrum í Hólmfríði Dagnýju Friðjónsdóttur fréttamanni sem er á svæðinu. Orkumálaráðherra segir ófært ef rafmagnsöryggi er ekki tryggt í landinu. Orkuöryggi sé ekki sjálfgefið. Tryggja verði að allir búi við öruggt rafmagn. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við Guðlaug Þór Þórðarson. Rúður sprungu í tugum bíla á Möðrudalsöræfum í gær. Nokkrir ferðamenn hlutu minniháttar meiðsl en enginn slasaðist alvarlega. Talsmaður Vegagerðarinnar segir að veginum hafi verið lokað of seint. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman. Írönsk stjórnvöld verða að sæta ábyrgð á harkalegri framgöngu sinni gegn mótmælendum, segir forsætisráðherra Kanada. Hann boðaði í dag efnahafsþvinganir gegn Íran. Byssumaður sem myrti sjö börn, fjóra kennara og tvo öryggisverði í rússneskum skóla í morgun, var í bol með hakakrossi. Pútín Rússlandsforseti segir árásina vera hryðjuverk. Oddur Þórðarson sagði frá. -------------------------------------------------------------------- Ljóst er að tjón sem orðið hefur af völdum veðurofsans sem gengið hefur yfir landið austan- og norðanvert er mikið. Heilu húsin eru skemmd og fjöldinn allur af bílum ónýtur. Hversu mikið tjónið er og hver situr uppi með hvað á eftir að skýrast. Fólk hefur ekki í öllum tilfellum komist út að meta stöðuna almennilega því veðrinu er sums staðar rétt að slota núna. Eitt er þó skýrt, náttúruhamfaratrygging nær ekki yfir foktjón. Sú trygging nær samt sem áður yfir flóð eins og það sem varð vegna sömu lægðar á Akureyri. Hulda Ragnheiður Árnadóttir er forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman. Í gær brá mönnum ekki síst við rafmagnsleysið sem var á næstum hálfu landinu frá Höfn í Hornafirði allt að Blöndu um tíma. Ekki er fullljóst hvað olli en líklegast að foktjón hafi orðið til þess að lína fór út og mikið álag var á byggðalínu. Björn Ingimarsson sveitarstjóri í Múlaþingi segir að finna verði skýringar á hvað gerðist; ekki síst sé það alvarlegt ef og þegar fjarskipti bregðast og menn ná ekki tengingu. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Allar líkur eru á að Giorgia Meloni, leiðtogi Bræðralags Ítalíu og sigurvegari þingkosninganna í gær, verði næsti forsætisráðherra landsins og myndi ríkisstjórn sem stöðugt hefur verið hamrað á að verði sú hægrisinnaðasta frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Hún verður fyrst kvenna á Ítalíu til að gegna embættinu. Ásgeir Tómasson tók saman.

Play Episode Listen Later Sep 26, 2022 9:36

Uppsögn forstjóra Festar, hrun sauðfjárræktar og uppruni apabólu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 10, 2022

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn hluthafafélagsins Festar þröngvaði forstjóra fyrirækisins, Eggerti Þór Kristinssyni, til að segja upp eða hann yrði rekinn. Áður hafði stjórnin tilkynnt til Kauphallar að Eggert hefði sjálfur sagt upp. Ekki eru forsendur fyrir áframhaldandi sauðfjárbúskap hér á landi, nema til komi meiri stuðningur og breyting á starfsumhverfi bænda. Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi segir að grípa þurfi til aðgerða strax. Anna Lilja Þorvaldsdóttir talaði við Trausta. Manni sem sat ellefu mánuði í gæsluvarðhaldi á Ítalíu og Íslandi en fékk svo tveggja mánaða dóm fyrir peningaþvætti hafa verið dæmdar 19 milljónir í miskabætur. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Bragi Björnsson, lögmaður mannsins segir dóm Landsréttar marka tímamót. Allar björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna slyss í Reynisfjöru, en talið er að einstaklingur hafi farið í sjóinn. Vatnslaust varð á Seyðisfirði í dag þegar þrýstipípa Fjarðarárvirkjunar sprakk og reif í sundur vatnslögnina. Davíð Kristinsson, hótelstjóri á Öldunni segir þetta hafa gerst á erfiðum tíma, hótelið fullt og gisting annars staðar á Austurlandi vandfundin. Landsréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Marek Moszczynski fyrir að hafa orðið valdur að eldsvoða á Bræðraborgarstíg í Reykjavík sumarið 2020. Innlögnum á covid-göngudeild Landspítalans hefur fjölgað undanfarna daga. Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, segir að það sé alltaf íþyngjandi fyrir spítalann. Urður Örlygsdóttir tók framan. Niceair aflýsti í dag öllu fyrirhuguðu áætlunarflugi sínu milli Akureyrar og Bretlands í júní. Í morgun var flogið til Keflavíkur og farþegum útvegað flug þaðan til London. Mismikil ánægja var með þessa lausn. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við farþegana Heklu Rán Arnaldsdóttur, Elmar Freyr Arnaldsso og Heiðdísi Austfjörð Óladóttur. ------------- Apabóla hefur lengi fundist í Vestur- og Mið-Afríku, í að minnsta kosti hálfa öld, veiran er flókin og harðgerð segir Vilhjálmur Svansson, dýralæknir og veirufræðingur hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Tæknihalli verður þegar að tölvukerfi sem þjálfuð eru á raunverulegum málgögnum fara óumbeðin að endurspegla samfélagslegan ójöfnuð á borð við kynja- og kynþáttahalla óháð ásetningi þeirra sem búa kerfin til. Doktorsnemarnir Dagbjört Guðmundsdóttir og Lilja Börk Stefánsdóttir, ásamt Agnesi Sólmundsdóttur BA-nema og Antoni Karli Ing

Play Episode Listen Later Jun 10, 2022 30:00

Morgunútvarpið
31. maí - laxaveira, vímuefni, ójöfnuður, tölvuleikir, tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 31, 2022 130:00

Talið er líklegt að ráðist verði í tilraunabólusetningu við blóðþorra í eldislaxi á Austfjörðum. Greint hefur verið frá því í fréttum að allt laxeldi hafi nú verið stöðvað í Reyðarfirði eftir að afbrigði blóðþorra greindist í þremur eldisstöðvum þar. Við ræddum við Gísla Jónsson, sérgreinadýralækni fiskeldis hjá Matvælastofnun, um blóðþorra og bólusetningar. Formaður BSRB var gestur okkar í gær og ræddi meðal annars reynsluna af styttingu vinnuvikunnar. Styttingin hefur almennt mælst vel fyrir, sérstaklega í minni fyrirtækjum, en reynst erfiðari hjá vaktavinnufólki og þá helst í heilbrigðisgeiranum. Við ræddum þessi mál við formann Sjúkraliðafélags Íslands, Söndru B. Franks. Innlagnir á afeitrunardeild ólögráða ungmenna hafa verið færri en búist var við þegar hún var opnuð í júní 2020. Hugsanlegt þykir að vandi barna í neyslu sé einfaldlega ekki af því alvarleikastigi sem áður var talið, og ekki svo alvarlegt að hópurinn þurfi á sérstakri afeitrunardeild að halda. Að minnsta kosti er ljóst að frá aldamótum hefur dregið verulega úr þörfinni á meðferð við vímumefnavanda ungmenna. Við ræddum þessi mál við Funa Sigurðsson, framkvæmdastjóra meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu. Ójöfnuður hefur aukist á tímum heimsfaraldursins og nú hafa áhrif innrásar Rússlands í Úkraínu bæst við. Í niðurstöðum nýrrar rannsóknar Oxfam kemur fram að nýr milljarðamæringur verði nú til á 30 klukkustunda fresti og að á tímum faraldursins hafi 573 einstaklingar orðið milljarðamæringar á sama tíma og 263 milljónir hröpuðu niður að fátæktarmörkum. Við ræddum efnahagsleg áhrif faraldurs og innrásar Rússa í Úkraínu á ójöfnuð við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Sigrúnu Ólafsdóttur, prófessor í félagsfræði. Þriðjungur grunn- og framhaldsskólanema sem spila tölvuleiki telja sig eyða of miklum tíma í spilun þeirra. Strákar á öllum skólastigum eru í meirihluta þeirra sem spila tölvuleiki, en stelpur eru hlutfallslega flestar að spila í 4.-7. bekk. Þetta er hluti niðurstaðna nýrrar skýrslu Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands um börn og netmiðla. Skúli Bragi Geirdal verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd kom til okkar. Svo slógum við botninn í þetta allt saman með Sævari Helga Bragasyni stjörnusérfræðingi og vísindahyggjumanni. Tónlist: Dog Days are Over - Florence and the Machine Stars - Quarashi Maðkur í mysunni - Moses Hightower Can't Let Go - Robert Plant og Alison Krauss Seinna Meir - START Beautiful Life - Michael Kiwanuka Upp á rönd - Hjálmar og GDRN

Morgunútvarpið
31. maí - laxaveira, vímuefni, ójöfnuður, tölvuleikir, tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 31, 2022

Vinnuskúrinn
#05-01 Hringt í málara á Akureyri

Vinnuskúrinn

Play Episode Listen Later Apr 17, 2022 36:53

Við viljum byrja á að þakka eftirtöldum fyrirtækjum kærlega fyrir stuðninginn við gerð þessara þáttar: AÞ- Þrif Hreingerningar | Ræstingar | Gluggaþvottur | AÞ Þrif (ath-thrif.is) Iðnaðarmenn Íslands Iðnaðarmenn Íslands - Heim (idnadarmennislands.is) Múrbúðin Múrbúðin - Gott verð fyrir alla, alltaf (murbudin.is) Tæki.is FORSÍÐA - (taeki.is) Frábær fyrirtæki hér á ferð! Hann var auðvitað alveg til í smá spjall hann Stefán Austfjörð málari. Fyrsta símaviðtalið. Þetta var svona heiðarleg tilraun í að hringja í iðnaðarmenn á landsbyggðinni. Akureyri er samkvæmt Stefáni vel vopnuð af málurum. Og hvaða málning er best á gluggann? Til að hafa samband við okkur: vinnuskur@gmail.com Vinnuskúrinn | Facebook og auðvitað á instagram. kveðja góð Hjálmar og Svavar

Spegillinn
Spegillinn 12. janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2022

Spegillinn 12.1.2022 Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Mark Eldred. Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar gefur ekkert fyrir áform um endurbætur á kísilverksmiðjunni í Helguvík og ætlar að gera allt sem hann getur til að koma í veg fyrir að hún fari aftur í gang. Lagt er til að slakað verði á sóttvarnareglum í Danmörku um helgina , þrátt fyrir fjölgun smita að undanförnu. Borgarstjórn hefur fallið frá hugmyndum um þéttingu byggðar við Bústaðaveg vegna andstöðu íbúa. Brottfarir erlendra farþega voru 688 þúsund á árinu 2021 sem svipar til fjöldans árið 2012. Eftir dapra mánuði í upphafi árs rættist úr eftir því sem leið á árið. Mikill svartfugladauði virðist hafa orðið undan Austfjörðum nýlega en á þriðja hundrað fuglar fundust dauðir þegar fjörur voru gengnar þar í vikunni. Lengri umfjöllun: Brottfarir erlendra farþega voru 688 þúsund á árinu 2021. Þetta sýna nýjar tölur Ferðamálastofu. Það er viðlíka fjöldi og árið 2012. Þegar mest lét árið 2018 voru brottfarir erlendra ferðamanna rúmlega 2,3 milljónir. Þrátt fyrir þetta mikla hrap var árið 2021 nokkuð gott að mati Skarphéðins Bergs Steinarssonar, ferðamálastjóra. Eftir dapra mánuði í upphafi árs rættist úr eftir því sem leið á árið. Bjarni Rúnarsson ræddi við Skarphéðinn. Metfjöldi covid-tilfella greinist nú í Svíþjóð, þrátt fyrir vonir manna í haust og vetur um að það versta væri loks afstaðið. Samstaða sem ríkt hefur um sóttvarnaraðgerðir yfirvalda virðist vera fyrir bí.Kári Gylfason fjallar um ástandið í Svíþjóð. Kynjaskráning: KK:4 KVK;2

Spegillinn
Spegillinn 12. janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2022 9:42

19. október 2021 Sóttkvíarreglur endurskoðaðar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 19, 2021 10:43

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir til skoðunar að slaka á reglum um sóttkví á næstunni, en segist vera eins og hrópandinn í eyðimörkinni boðandi að baráttunni við farsóttina sé ekki lokið Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra segir að ástand á bráðamóttöku Landspítalans tengist ekki COVID-19 - hann sjái ekkert ástand á spítalanum sjálfum. Hómfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við Bjarna. Markús Þórhallsson tók saman. Fundi undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa í Borgarnesi var að ljúka. Í morgun fylgdust nefndarmenn með þegar ónotaðir kjörseðlar voru taldir á lögreglustöðinni og stemmdi sú talning við kjörgögn. Elsa María Guðlaugs- Drífudóttir fréttamaður hefur fylgst með fundinum. Stjórnvöld í Rússlandi leggja til að landsmenn verði sendir í átta daga frí til að draga úr fjölda kórónuveirusmita. Yfir eitt þúsund Rússar létust í gær af völdum COVID-19. Ásgeir Tómasson sagði frá. Samkomulag sem utanríkisráðherra gerði við bresk stjórnvöld í sumar eykur möguleika íslenskra námsmanna á að fá styrki til náms þar í landi. Markús Þórhallsson sagði frá. Heiðdís Austfjörð hárgreiðslumeistari fagnar því að grímuskyldan verði afnumin með breyttum sóttvarnareglum. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hana. ---- Hafið er kapphlaup á milli þjóða um hverjir verða fremstir í lágkolefnis- og kolefnishlutlausu hagkerfi framtíðarinnar: Það er eina hagkerfið sem er í boði, segir Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst um mánaðamótin í Skotlandi. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann. Vaxandi ógn frá Rússlandi hefur leitt til stóraukinna útgjalda til varnarmála í Noregi og Svíþjóð. Rússnesk herskip héldu sig innan tvöhundruð mílna markanna við Ísland um níu daga skeið í sumar. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók saman ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Katarzynu Zysk sérfræðing í alþjoðamálum. Margt bendir til þess að falskt öryggi felist í því að taka símtal í gegnum handfrjálsan búnað eða hljóðkerfi bílsins á meðan setið er undir stýri. Einbeitingin við aksturinn er jafnfjarri og ef símtæki er haldið upp að eyranu segir Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri hjá samgöngustofu við Kristján Sigurjónsson. Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar frétttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Spegillinn
19. október 2021 Sóttkvíarreglur endurskoðaðar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 19, 2021

Athyglisbrestur á lokastigi
Katrín Björgvins „Mjóar mömmur“

Athyglisbrestur á lokastigi

Play Episode Listen Later Sep 21, 2021 102:44

Hvað finnst okkur að íslenskum feministum í dag? Hvers vegna er Salka hætt að horfa á Love Island? Hvaða skandal gerði Lóa á Austfjörðum? Af hverju eru mæður okkar í betra formi en við? Afsakið biðina á nýjum þætti! Við þökkum þolinmæðina og viljum senda sérstaka kveðju til Péturs Marteins. Hér er droppið! Og droppið er risa stórt. Við fengum til okkar kæran gest sem hefur hlustað mikið á þáttinn. Það er alltaf gaman að fá gesti sem eru hlustendur og vilja ræða ákveðin mál við okkur. Gesturinn er stjarna í kvikmyndaheiminum, Katrín Björgvinsdóttir. Hún er nýútskrifuð úr virtu kvikmyndanámi í Den Danske Filmskole og er að skrifa handrit að sínum eigin sjónvarpsþætti fyrir TV2. Við ræddum við hana um þáttinn hennar, konur í uppistandi og konur sem vilja vera meira en bara konur. Lóa stingur upp á því að við förum aftur að segja problematic brandara, Salka tekur það ekki í mál og Katrín verður eins og brúðumeistari þáttarins.

Fimleikafélagið
Eggert Gunnþór Jónsson [Viðhafnarútgáfa]

Fimleikafélagið

Play Episode Listen Later Jun 29, 2021 89:51

Eggert Gunnþór fer yfir ferilinn allt frá upphafsárunum á Austfjörðum, út í hinn stóra heim og svo til Hafnarfjarðar.

Endalínan
87. Þáttur - Merkilegur Mánudagur - eða hvað?

Endalínan

Play Episode Listen Later May 11, 2021 70:27

Kæra körfuboltafjölskylda, þá er þessi óútreiknanlega deildarkeppni í efstu deild karla formlega lokið en það var spiluð heil umferð nú á mánudagskvöldið. Merkilegur mánudagur , eða hvað? Það var ansi mikil spenna í loftinu enda margir hlutir sem áttu eftir að skýrast. Hægt var að fylgjast með öllum leikjunum á sama tíma í svokallaðri KörfuboltaMessu til að djúsa þetta aðeins upp og má segja að í hálfleik hafi spennan verið óbærileg. En svo fór að þetta varð ekkert alltof spennandi og nokkuð öruggir sigrar á flestum stöðum. Fjörið búið á Austfjörðum í bili , Njarðvíkingar björguðu sér frá falli en fara í snemmbúið sumarfrí , ÍR-ingar spila óárángursríkan körfubolta og úrslitakeppnin verður rosaleg ! Endalínan fer létt yfir leiki kvöldsins og hvað við sjáum fyrir í framhaldinu hjá þeim liðum sem kláruðu sitt tímabil í kvöld og hjá þeim sem halda áfram í úrslitakeppninni sem auðvitað er það eina sem skiptir máli. Endalínan í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani beint af heimavellinum í WhiteFoxStofunni ! #Endalinan #Kaldi #LjosIDos #WhiteFox #Cintamani #GosGear #PodcastStodin

fj white fox njar cintamani austfj
Morgunvaktin
Bandaríkjamenn vilja til Íslands og Íslendingar til Spánar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 23, 2021 130:00

Að loknum maraþonfundi á Alþingi í vikunni samþykktu þingmenn frumvarp sem gerir stjórnvöldum kleift að skikka fólk, sem kemur frá svokölluðum hááhættusvæðum, til dvalar í sóttvarnarhúsi. Ágreiningur stjórnarflokkanna kom berlega í ljós í málinu, og þingmenn innan meirihlutans studdu ekki ráðstafanirnar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður ræddi það efsta á baugi í pólitíkinni. Það þarf kannski ekki að koma mörgum á óvart, en Íslendingar virðist þrá sólina. Að minnsta kosti erum við langduglegust við að leita að gistingu á Spáni af öllum löndum, samkvæmt Google. Ætli fólk flykkist til heitu landanna þegar búið verður að bólusetja þorra þjóðarinnar, eins og lofað er að verði í sumar? Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði frá þessu og fleiru í spjalli um ferðamál. Veturinn er að baki og sumarið komið, að forminu til að minnsta kosti. Við rifjuðum upp veðrið í vetur með Elínu Björk Jónasdóttur, veðurfræðingi og hópstjóra veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands. Hann var ekki illviðrasamur, en úrkomumikill víða og það sem kemur til með að vera minnisstæðast eru aurskriðurnar á Austfjörðum og snjóflóð víða. Tónlist: Hún er leyndarmál - Sigurður Guðmundsson og Memfismafían Vorkvöld í Reykjavík - Ragnar Bjarnason Þá mun vorið vaxa - Hjálmar Brown Sugar - Rolling Stones

Morgunvaktin
Bandaríkjamenn vilja til Íslands og Íslendingar til Spánar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 23, 2021

Réttlát umskipti, barnaverndarmál og ráðningarstyrkir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 30:00

Spegillinn 18.3.2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir. Hundrað manns, þar af fimmtíu starfsmenn Landspítala eru í sóttkví í tengslum við kórónuveirusmitið sem greindist í gær utan sóttkvíar. Rætt við Má Kristjánsson, yfirlækni smitsjúkdóma á Landspítalanum Lyfjastofnun Evrópu segir að færri hafi fengið blóðtappa eftir að hafa fengið bóluefni AstraZeneca en búast hefði mátt við. Það er sagt bæði vel virkt og öruggt. Hugsanlegt er að minni skjálftavirkni nú á Reykjanesskaga sé undanfari eldgoss. Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að áður en Kröflueldar hófust hafi dregið úr skjálftavirkni og aflögun. Dregið hefur úr líkum á stórum skjálftum næstu daga. Rætt við Kristínu Jónsdóttur, náttúruvársérfræðing á Veðurstofu Íslands. Breiðafjarðarfejan Baldur lagði að bryggju í Brjánslæk núna klukkan sex að lokinni fyrstu ferð yfir fjörðinn eftir viðgerð. Ferjan bilaði í síðustu viku í annað sinn á innan við ári og tók ferðin rúman sólarhring í stað þess að taka þrjá tíma. Rætt við Unnar Valby Gunnarsson, skipstjóra á Baldri, sem segir það vera létti að ferjan er aftur komin á siglingu. Ekkert stress hafi verið í áhöfninni áður en lagt var af stað. Óvenju hlýtt hefur verið á Austfjörðum í dag. Hiti mældist yfir tuttugu stigum bæði á Dalatanga og í Neskaupstað, og sjálfvirkir mælar Veðurstofunnar bæði í Reyðarfirði og Eskifirði sýndu 19,6 stig í dag og á Bakkagerði náði hitinn 19,3 stigum. Róbert Jóhannsson, ræddi við Díönu Ívarsdóttur aðstoðarskólastjóra gunnskólans á Reyðarfirði og Birtu Líf Kristinsdóttur, veðurfræðing á Veðurstofu Íslands. Lengri umfjöllun: Réttlát umskipti: Verkalýðshreyfingin leggur til að stofnaður verði sérstakur vinnuhópur innan Þjóðhagsráðs til að tryggja að umskipti yfir í kolefnislaust Ísland verði réttlát. Aðgerðir stjórnvalda núna séu hlutfallslega mest íþyngjandi fyrir lágtekjuhópa. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem verkalýðshreyfingar á Íslandi hafa staðið að. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, hagfræðing BSRB og einn af skýrsluhöfundum. Skýrslan heitir Réttlát umskipti: Leiðin að kolefnislausu samfélagi. Hún er unnin í samstarfi við 14 samtök launafólks í sex ríkjum á Norðurlöndunum og Þýskalandi Barnavernd: Annar pistill af þremur. Það er spennandi að sjá hvernig hægt að að efla þjónustu við börn og fækka þannig barnaverndarmálum, segir Heiða Björg Pálmadóttir forstjóri Barnaverndarstofu . Henni líst vel á kerfisbreytingar sem nú eru í deiglunni og segir þær risastórar. Ragnhildur Thorlacius talaði við han

Spegillinn
Réttlát umskipti, barnaverndarmál og ráðningarstyrkir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 18, 2021

Fjöldi tilkynninga um árásir á kennara

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 8, 2021 30:00

Um 20 tilkynningar berast Vinnueftirlitinu árlega um ofbeldi nemenda gagnvart kennurum. Formaður Félags grunnskólakennara telur að tilvikin séu talsvert fleiri. Ríkissaksóknari Namibíu segir að þótt ekki sé í gildi framsalssamningur milli Íslands og Namibíu sé verið að skoða hvort aðrar leiðir séu færar. Þrír Samherjamenn eru ákærðir í Namibíu. Vinnsla á loðnu úr norskum skipum er nú hafin á Austfjörðum eftir tvö loðnulaus ár. Um fjórðungur launafólks á erfitt eða frekar erfitt með að að ná endum saman. Þetta kemur fram í nýrri vinnumarkaðskönnun sem kynnt verður á morgun. ------------------------------------------------------------------------------- Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ef samkomulag næst við lyfjaframleiðandann Pfizer um rannsóknarverkefni á virkni bóluefnis fyrirtækisins þurfi aðgerðin að fara í gegnum allt ferli sem um það gilda, eins og fyrir Vísindasiðanefnd og Persónunefnd. Hann segir innviði hér sterka pg vel undir bólusetningaaðgerðir búna. Um fjórðungur launafólks á erfitt eða frekar erfitt með að að ná endum saman. Þetta kemur fram í nýrri vinnumarkaðskönnun sem kynnt verður á morgun. Þar kemur líka fram að um fjórðungur kvennna á vinnumarkaði býr við slæma andlega heilsu. Þetta hlutfall meða ungs fóks er nærri 42%. Tónlistarbransinn í Bretlandi er í vanda, ekki bara vegna COVID, því það er alls staðar, heldur vegna Brexit, en svo virðist sem hreinlega hafi gleymst að gera ráð fyrir ferðafrelsi tónlistarfólks um Evrópu. Eldri og ráðsettari stórstjörnur hafa brugðist ókvæða við og segja nauðsynlegt að auðvelda yngra fólki að koma sér á framfæri, því án ungra tónlistarmanna sé enginn bransi.

Spegillinn
Fjöldi tilkynninga um árásir á kennara

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 8, 2021

Spegillinn 27. Janúar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 27, 2021 30:00

Hafdís Helga Ólafsdóttir, sem kærði ráðningu ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu segir menntamálaráðherra í málsókn gegn sér á kostnað ríkisins. Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt á Austfjörðum og Norðurlandi en er enn í gildi á norðanverðum Vestfjörðum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við Óliver Hilmarsson, snjólfóðaeftirlitsmann. Nýr eigandi ætlar að biðja um flýtimeðferð á leyfi til að rífa brunarústir við Bræðraborgarstíg í Vesturbæ Reykjavíkur. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir rædd i við Runólf Ágústsson, verkefnisstjóra hjá Þorpinu-vistfélagi. Miðflokkurinn leggst gegn frumvarpi um viðurlög ef hlutfall kynja í stjórnum fyrirtækja er ójafnt. Slíkt sé yfirstéttajafnréttisnálgun. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá umræðum á Alþingi og heyrist í þingmönnunum Bergþóri Ólasyni (M) og Bryndísi Haraldsdóttur (D). Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis á von á góðu þingi, en störfum þess á að ljúka 10. júní. Hann telur gott að kjósa í haust og fá vissa fjarlægð milli þings og kosningar. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Steingrím. ------------ Til að uppfylla húsnæðisþarfir landsmanna á næstu tíu árum þarf að byggja þrjú þúsund íbúðir á ári. Þetta segja þau Ólafur Sindri Helgason yfirhagfræðingur Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar og Karlotta Halldórsdóttir sérfræðingar hjá sömu stofnun. Þau fjölluðu um þróunina á húsnæðismarkaði og íbúðaþörfina á Húsnæðisþingi. Kristján Sigurjónsson ræddi við þau. Umhverfisráðherra hefur kynnt tillögur að reglum um uppbyggingu vindorku á Íslandi. Samorka segir að tillögurnar séu skref í rétta átt en þó þurfi að breyta þeim. Eigandi vindmyllufyrirtækis segir að umsóknarferlið verði tvöfalt erfiðara. Arnar Páll Hauksson sagði frá og ræddi við Pál Erland, framkvæmdastjóra Samorku og Magnús B. Jóhannesson framkvæmdastjóri Storm-orku. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Björg Guðlaugsdóttir.

Spegillinn
Spegillinn 27. Janúar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 27, 2021

63. Þáttur - And 1 Ref !

Endalínan

Play Episode Listen Later Jan 26, 2021 90:23

Baby Baby , þrátt fyrir að veðurguðirnir séu aðeins farnir að setja strik í reikninginn þá var hægt að klára umferð í kvöld og við höldum áfram að sjá áhugaverð úrslit. Endalínan kiknar ekkert undan álaginu í WhiteFox stofunni og tekur á helstu sögulínunum úr leikjum umferðarinnar á mannamáli. Vonlausir Valsmenn , Hester er svarið , Sjóðandi Þórsarar skutu ÍR-inga í kaf , Haukarnir þurfa kana og það strax , útafakstur á Austfjörðum og ónýtur leikur í Keflavík. Það er ekki töluð vitleysan á Endalínunni sem fyrr , allt þetta og auðvitað Kalda Spurningin á sínum stað í boði Kalda Bruggsmiðju og White Fox á PodcastStöðinni. #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #Baby #And1Ref #BannadAdHanga

Spegillinn
Spegillinn 25.janúar 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 25, 2021 30:00

Spegillinn 25.janúar 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Ísland fær 13.800 skammta af bóluefni AstraZeneca í febrúar, gangi það eftir að Lyfjastofnun Evrópu afgreiði umsókn fyrirtækisins um skilyrt markaðsleyfi á föstudag. Nokkur snjóflóð hafa fallið ofan við Eskifjörð og Reyðarfjörð í dag og óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu. Litlar líkur eru þó taldar á að flóð falli í byggð. Rudy Giuliani, lögmaður fyrrverandi Bandaríkjaforseta er krafinn um einn komma þrjá milljarða dollara í skaðabætur fyrir að hafa haldið því fram að kosningavélar hefðu verið notaðar til að tryggja Joe Biden forsetaembættið. Tveir laugarverðir voru að störfum í Sundhöll Reykjavíkur þegar karlmaður lést þar á fimmtudaginn. Lögreglan rannsakar málið og er með upptökur úr öryggismyndavélum Sundhallarinnar. Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, varar við hættunni á því að sameinaða konungsríkið Bretland leysist upp haldi stjórnin í Lundúnum áfram að hundsa vilja Skota, Norður-Íra og íbúa Wales Allt er á kafi í snjó á Akureyri og sorphirða þar féll niður í dag. Lengri umfjöllun: Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hvetur Íslendinga til að ferðast ekki erlendis að nauðsynjalausu. Hann segir að talsverður fjöldi farþega greinist með smit á landamærunum. Farþegum hafi fækkað að undanförnu en hlutfall smita á meðal þeirra sé í kringum eitt prósent, en var langt undir núll komma núll einu prósenti síðastliðið haust. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræðir við Þórólf um hvað er framundan í bólusetningu, dreifingu bóluefnis og útlitið í ferðaþjónustunni. Bjarnheiði Hallsdóttur formaður Samtaka ferðaþjónustunnar bregst við orðum Þórólfs og segir frá hvernig ferðaþjónustuferðatækin standa að undirbúningi sumarsins, hvort erlendir ferðamenn séu væntanlegir og áherslu á íslenska ferðamenn. Kristján Sigurjónsson talar við Bjarnheiði. Fyrirkomulag og úthlutun þingsæta miðað við gildandi kosningalög dugir ekki til að tryggja jöfnuð milli þingflokka. Jöfnunarsætin eru of fá, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar prófessors í stjórnmálafræði. Hann telur að breytingar á kosningalögum sem lagðar voru til í vetur séu til bóta í mörgu en þar sé ekki tekið á þessum vanda. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Ólaf.

Spegillinn
Spegillinn 25.janúar 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 25, 2021

The Meet Your Herdmates Sodcast
19 - Ævar Austfjörð

The Meet Your Herdmates Sodcast

Play Episode Listen Later Jan 7, 2021 81:19

Why can't food without a label be nourishing?  We can all be an agent for change. Meet Ævar Austfjörð, butcher, cook, and soon a farmer! Ævar was born in the small town of Húsavík in northern Iceland.  He lived there until he moved away to learn to be a butcher. After 10 years or so, he switched to cooking. He worked mostly in steakhouses until he got into hospital cooking along with studying "special needs cooking." Ævar is qualified as a diet cook. Ævar got into the low carb living in 2012 following a stroke when he was only offered pills to recover but he decided to do his own research. Ævar is married to Ása Sif and they have 4 children, two grandchildren, and two dogs. Soon they will have a few cattle chickens and goats! Iceland Carnivore Tribe-Kjötætur - https://www.facebook.com/groups/149116042507997

Spegillinn
Spegillinn 16. nóvember 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 16, 2020 30:00

Spegillinn 16. nóvember 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Árangurinn við þróun bóluefnis gegn Covid hjá lyfjafyritækinu Moderna er mjög mikilvægur segir prófessor í ónæmisfræði. Íslenskur vísindamaður sem vann að þróun bóluefnisins segir að vinnan eigi eftir að hafa áhrif í framtíðinni við þróun bóluefna gegn öðrum smitsjúkdómum. Vindhraði í fellibylnum Iota er kominn yfir sjötíu metra á sekúndu. Hann nær landi í Mið-Ameríku seinna í kvöld. Íslensk yfirvöld eru komin vel áleiðis að uppfylla tilmæli GRECO samtakanna, sem berjast gegn spillingu, en það er munur á frammistöðu forsætisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins í þessum efnum. Gerður Kristný rithöfundur fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og Félag ljóðaunnenda á Austurlandi hlaut sérstaka viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu. Formaður Náttúruverndarsamtaka Austurlands telur ekkert liggja á að úthluta eldissvæðum í Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði áður en skipulag haf- og strandsvæða á Austfjörðum liggur fyrir. Lengri umfjöllun: Gerður Kristný rithöfundur fékk í dag verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu. Í þakkarræðu sinni vék Gerður Kristný meðal annars að nýyrðasmíði Jónasar, covid og jólabókaflóðinu. Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslenskri málfræði fékk Jónasarverðlaunin fyrir tveimur árum. Hann skrifar mikið um tungumálið og birti pistil í dag á netinu í tilefni dagsins. Lífvænleiki íslenskunnar. Þar segir hann að að íslenskan standi á margan hátt vel þrátt fyri að ýmsar ytri aðstæður séu henni óhagstæðar um þessar mundir. Kristján Sigurjónsson talar við Eirík. GRECO er skammstöfun fyrir samtök ríkja innan Evrópuráðsins sem berjast gegn spillingu. Fimmta úttekt samtakanna um aðgerðir á Íslandi gegn spillingu er yfirstandandi og eftirfylgniskýrsla hefur nú verið birt. Það er enn nokkuð verk að vinna, einkum í málefnum á könnu dómsmálaráðuneytisins. Íslensk yfirvöld hafa nú 18 mánuði til að uppfylla GRECO-tilmælin. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Gripið var til talsverðra sóttvarnaaðgerða þegar svokölluð svínaflensa herjaði á heimsbyggðina fyrir 11 árum. Hér á landi er talið að 50 til 60 þúsund manns hafi smitast. Tveir létust af völdum flensunnar og að öllum líkindum sá þriðji sem lést í heimahúsi. Svínainflúensan skaut upp kollinum vorið 2009 og breiddist út um heimsbyggðina. Þetta var fyrir 11 árum og sjálfsagt margir búnir að gleyma henni. Í upphafi var ljóst að þessi inflúensa lagðist á tiltölulega ungt fólk. Í byrjun maí 2009 voru staðfest smit komin í um 5 þúsund í 30 löndum. Meðala

Spegillinn
Spegillinn 16. nóvember 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 16, 2020

28. okt. - Þjóðarspegill, kjarnasamfélög, Austurland, karfa og Spánn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 28, 2020 130:00

Ásta Dís Óladóttir dósent við Háskóla Íslands ræddi við okkur um Þjóðarspegillinn, sem er ráðstefna í félagsvísindum og er haldin ár hvert við Háskóla Íslands og að þessu sinni haldin rafrænt. Meðal þess sem er á dagskrá er málstofan Leið kvenna til æðstu metorða og við forvitnuðumst líka um hana. Við kynntum okkur kjarnasamfélög, en þau eru hönnuð með það markmið að byggja upp og efla tengsl milli íbúa. Simon Joscha Flender, arkitekt og verkefnastjóri hjá Kjarnasamfélagi Reykjavíkur og Anna María Björnsdóttir, áhugamanneskja um kjarnasamfélög, komu til okkar og sögðu okkur frá. Athygli hefur vakið hversu fá kórónuveirusmit hafa greinst á Austfjörðum miðað við aðra landsfjórðunga. Við hringdum austur og heyrðum í Guðjóni Haukssyni forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Við veltum fyrir okkur hvað veldur, eru aðgerðir aðrar þar eða er smithætta minni í dreifbýlinu? Og hvað með heimsóknir skytta sem koma á svæðið til veiða, hafa heimamenn áhyggjur af því að þær geti borið smit? Við tókum stöðuna fyrir austan. Íþróttir eru flestar, ef ekki allar, á bið núna vegna hertra sóttvarnaraðgerða og þar er körfuboltafólk ekki undanskilið. Hannes Sigurbjörn Jónsson er formaður Körfuknattleikssambands Íslands. Hann fór yfir með okkur til hvaða ráðstafana hreyfingin hefur gripið, sagði frá undirbúningi fyrir landsleiki kvennalandsliðsins sem fram undan eru o.fl. Jóhann Hlíðar Harðarson var á línunni frá Spáni með nýjustu tíðindi þaðan, auk þess sem hann tók smá krók yfir til Norðurlandanna. Tónlist: Júlíus Guðmundsson - Hvernig sem fer. John Grant - Marz. Carole King - Youve got a friend. Bruce Springsteen - Ghost. Mono Town - Peacemaker. Auður og Mezzoforte - Hún veit hvað ég vil. Hildur - Ill walk with you. Robbie Williams - Love my life. Ed Sheeran - Shape of you.

Morgunútvarpið
28. okt. - Þjóðarspegill, kjarnasamfélög, Austurland, karfa og Spánn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 28, 2020

360° Heilsa
#37. Þurfum við "fjölbreytta" fæðu til að tryggja heilbrigði? Með Ævari Austfjörð

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Sep 14, 2020 115:32

Heilbrigðisstofnanir og sérfræðingar leggja gjarnan áherslu á mikilvægi þess að borða "fjölbreytt". Samanber fæðuhring landlæknisembættisins. En er það í raun og veru mikilvægt? Hvernig borðuðum við fjölbreytta fæðu hér áður fyrr þegar lítið úrval var af fjölbreyttri fæðu? Þetta og fleira spjalla ég um með Ævari Austfjörð. Til að lesa pistil hans um málefnið smelltu hér: https://bit.ly/2FyYdAA ------------------------ Samstarfsaðilar þáttarins:  www.sportvorur.is - ON hlaupaskór www.purenatura.is - 25% afsláttur af PN vörum m. kóða "360heilsa"

Virðing í uppeldi
36. Aldrei gleyma að leika - spjall við Sigrúnu Yrju Klörudóttur

Virðing í uppeldi

Play Episode Listen Later Aug 19, 2020 56:42

Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí ræddi Guðrún Inga Torfadóttir við Sigrúnu Yrju Klörudóttur, sem er konan á bak við heimasíðuna, fb-hópinn og Instagram-reikninginn Always Remember To Play. Hvernig datt henni í hug, búandi á Austfjörðum með börnin sín í fæðingarorlofi, að hefja þá vegferð að gerast áhrifavaldur um leik barna með metnaðarfullum hætti? Við mælum með að hlusta á þetta spjall við frábæra konu. M.a. ræddum við:•Hvernig hún kynntist virðingarríku uppeldi.•Að búa úti á landi í fæðingarorlofi langt frá skarkala borgarinnar.•Hvað er eðlilegt að sýna af börnunum sínum á samfélagsmiðlum?•Samskipti kynjanna í foreldrahlutverkinu.•Hvernig hún reynir að hjálpa drengnum sínum að sýna tilfinningar.•Hvaða bækur liggja á náttborðinu hennar.•Um kennslustarfið með 12-13 ára börn og hvernig reynsla hennar nýttist í því og hvað henni þykir eftir þessi fyrstu kynni af kennarastarfinu. •Gildi útiveru barna.•Að spyrja börnin sín: Hvað þarftu í dag til þess að líða vel? •Að velja búsetu eftir gæðum skólastarfs – jafnvel á milli landa.

Spegillinn
Atvinnuleysi í 20%?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 2, 2020 30:00

Karl og kona á áttræðisaldri, sem glímdu við COVID-19 sjúkdóminn, létust á Landspítalanum síðasta sólarhring. 99 ný tilfelli hafa greinst síðan í gær. Sóttvarnalæknir vill framlengja samkomubann til 4. maí. Landlæknir biðlar til hjúkrunarfræðinga og stjórnvalda að ná kjarasamningum. Forstjóri Landspítalans segir það til skoðunar hvernig umbuna megi hjúkrunarfræðingum sérstaklega vegna mikils álags síðustu vikurnar. Hráolíuverð hækkaði um tugi prósenta þegar Bandaríkjaforseti tilkynnti að það sæi fyrir endann á verðstríði Rússa og Sádi-Araba. Ef fiskeldi verður tvöfaldað á Austfjörðum, líkt og tillaga að nýju áhættumati gerir ráð fyrir, gæti orðið grundvöllur fyrir fraktflug frá Egilsstöðum með eldisfisk. Útflutningsverðmæti eldisfisks bara frá Austurlandi myndi aukast um það sem samsvarar næstum heilli loðnuvertíð. Ef fiskeldi verður tvöfaldað á Austfjörðum, líkt og tillaga að nýju áhættumati gerir ráð fyrir, gæti orðið grundvöllur fyrir fraktflug frá Egilsstöðum með eldisfisk. Útflutningsverðmæti eldisfisks bara frá Austurlandi myndi aukst um það sem samsvarar næstum heilli loðnuvertíð. Tuttugu tonna prufusending af lambakjöti fór nýlega frá Fjallalambi á Kópaskeri á markað í Kína. Framkvæmdastjóri Fjallalambs segir viðtökurnar góðar og Kínverjar séu áhugasamir um frekari viðskipti. Formaður VR segir að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni með því að hafna lífeyrissjóðsleiðinni sem felur í sér tímabundna lækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði. Rætt var Við Ragnar Þór Ingólfsson í Speglinum. Leiðtogar nýta tækifærið til að herða tökin um valdataumana. Lögregla beitir borgara ofbeldi og rétturinn til tjáningar og friðhelgi einkalífs víkur fyrir boðum og bönnum. Mannréttindabrot eru áhyggjuefni nú þegar farsótt breiðist um heiminn og fjöldi ríkja hefur lýst yfir neyðarástandi. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Undanfarinn aldarfjórðung hefur dómstóllinn því komið reglulega til Amazon fenjasvæðisins í líki gufubáts. Fimmtíu starfsmenn dómsins eru um borð í þessum fljótandi dómstól. Innanborðs eru verjendur, sækjendur, dómsritarar, lögreglumenn og svo framvegis. Fjölmargir sjálfboðaliðar koma með bátnum og leggja sitt af mörkum. Í fyrra kom báturinn einu sinni í mánuði en eftir að Jair Bolsonaro var kjörinn forseti Brasilíu var ferðunum fækkað í eina á tveggja mánaða fresti. Pálmi Jónasson segir frá.

Spegillinn
Atvinnuleysi í 20%?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 2, 2020

12. des. - Veður, old boys, TM, RARIK og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2019 130:00

Að sögn viðbragsaðila um allt land hefur það skipt miklu máli að fólk hafi farið eftir leiðbeiningum og haldið sig heima á meðan óveðrið gekk yfir. Þannig náðu björgunaraðilar að einbeita sér að mest aðkallandi verkefnum og komist greiðlega leiðar sinnar í neyðartilfellum. Gígja Hólmgeirsdóttir fór og hitti Pálma Óskarsson, forstöðulækni bráðamóttökunnar á Sjúkrahúsinu á Akureyri, og spurði hann hvernig starfsemin hafi gengið fyrir sig á spítalanum í óveðrinu og ófærðinni síðustu daga. Við hringdum norður á Bessastaði í Húnaþingi Vestra og heyrðum í Guðnýju Helgu Björnsdóttur bónda, en þar hefur verið rafmagnslaust síðan á þriðjudag. Ekki hefur verið hægt að mjólka kýrnar, um þúsund lítrum af mjólk verið hellt niður og veðurofsinn valdið tjóni. TM ætlar að skora bankana á hólm og stefnir á að fá viðskiptabankaleyfi fyrir næsta sumar. Ekki er stefnt á alhliða þjónustu til að byrja með heldur að bjóða innlán. Sigurður Viðarson, forstjóri TM, fór yfir áætlanir tryggingafélagsins í Morgunútvarpinu, en hann segir tryggingafélagið taka þetta skref þar sem mörkin á milli banka, trygginga og lífeyrissjóða séu að verða óskýr. Knattspyrnufélagið Þróttur heldur úti gríðarlega öflugu Old Boys liði. Vel á annað hundrað manns æfa þar saman og æfingar falla aldrei niður... ja eða eiginlega aldrei. Þeir æfðu meira að segja í bylnum sl. þriðjudagskvöld og þar mætti einn til leiks á hjóli. Stefán Hrafn Hagalín er einn þessara öflugu Þróttara og hann kíkti til okkar og sagði okkur meira af ævintýrum eldri Þróttara. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, kom til okkar en mikið rafmagnsleysi á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum í óveðrinu sem gekk yfir landið hefur vakið upp spurningar um hversu gott raforkukerfið er í landinu og hvort grípa þurfi til stórra aðgerða til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Rafmagnsleysið hefur haft áhrif á fjarskipti, húshitun, atvinnurekstur og dæmi eru um að heilbrigðisstofnanir hafi verið án rafmagns í einhver tíma. Við ræddum íslenskt mál að venju á fimmtudögum þegar Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar. Við sögu komu orðið afneitunarsinni, orð ársins og fleira. Tónlist: Ragnar Bjarnason - Er líða fer að jólum. Robbie Williams - Time for change. Kenny og Dolly - Ill be home for Christmas. John Mayer - Queen of California. Lay Low - Gleym mér ei.

Morgunútvarpið
12. des. - Veður, old boys, TM, RARIK og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2019

#6. Carnivore mataræði, vegan og umhverfisáhrif með Ævari Austfjörð

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Dec 2, 2019 96:04

Í þessum þætti ræddi ég við Ævar Austfjörð sem hefur tileinkað sér svokallað carnivore mataræði. En það snýr að því að neyta aðeins dýraafurða. Þetta mataræði hjálpaði honum að vinna á ýmsum heilsufarsvandamálum en á sama tíma þykir það afar umdeilt. Við ræddum um mataræðið, áhrif þess á heilsu og umhverfið,hans skoðanir á vegan mataræði, game changers myndina og margt fleira.

Landsbyggðir
#8 Laxeldi á Austfjörðum

Landsbyggðir

Play Episode Listen Later Aug 28, 2019 20:36

Laxeldi á Austfjörðum er til umræðu í þessum þætti af Landsbyggðum.

austfj
Morgunútvarpið
Stuttmyndin Ég, Brexit, Herjólfur, Landsréttarmál og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 13, 2019 130:00

Stuttmyndin ÉG vann í vikunni til verðlauna á Vancouver International Women in Film Festival. Höfundar myndarinnar og leikstjórar eru Vala Ómarsdóttir og Hallfríður Þóra Tryggvadóttir en hún byggir á sögu Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur kynjafræðings og trans-aðgerðarsinna. Við heyrðum í Völu Brexit samningurinn sem Theresa May lagði fyrir breska þingið í gær var kolfelldur. Enn er því allt í uppnámu í breskum stjórnmálum og alls óvíst hvert framhaldið verður. Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur, kom til okkar og fór yfir stöðuna. Í fyrradag birtist myndband á Facebook sem Hólmgeir Austfjörð tók af Herjólfi á leið inn til Eyja í vonskuveðri. Myndbandið ferðaðist víða um heim og vakti mikla athygli. Við heyrðum aðeins í manninum sem var við stýrið, Gísli Valur Gíslason skipstjóri var á línunni. Mál málanna er auðvitað dómur mannréttindadómsins sem kveðin var upp í gær. Íslenska ríkið var þar dæmt brotlegt í Landsréttarmálinu svokallaða. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, alþingismaður, og Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, fóru yfir þetta með okkur. Guðmundur Jóhannsson mætti í sitt vikulega tæknihorn og í dag voru Rússland, Kína og GPS kerfið til umfjöllunar. Tónlist: Ylja - Sem betur fer. Sting - Windmills of your mind. Vök - Erase you. The Smiths - There is a light that never goes out. Susanne Vega - Left of center. The Cardigans - For what its worth. Ed Sheeran - Shape of you. GDNR og Auður - Hvað ef.

Spegillinn
Spegillinn 26.02.2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2019 30:00

Spegillinn 26.02.2019 Umsjón: Pálmi Jónasson Um hundrað manns hafa leitað í dag við Ölfusá að karlmanni sem talið er að hafi ekið í ána um tíuleytið í gærkvöld. Ofsaveðrið er að mestu gengið niður. Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi, Austurlandi og Austfjörðum. Breskir þingmenn gætu fengið tækifæri til að greiða atkvæði um stuttan frest á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Þetta sagði Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, í dag. Brottrekstur Heiðveigar Maríu Einarsdóttur úr Sjómannafélagi Íslands var óheimill og félagið þarf að greiða eina og hálfa milljón króna í sekt í ríkissjóð. Þetta er niðurstaða Félagsdóms. Bankaráð Seðlabanka Íslands telur að Seðlabankanum hafi ekki tekist að sýna fram á nauðsyn þess að leggja stjórnvaldssekt á Samherja. Lengri umfjallanir: Í dag tilkynnti Theresa May forsætisráðherra hver yrðu næstu skref stjórnarinnar í útgöngu Breta úr ESB: atkvæðagreiðsla í mars um útgöngusamning úr ESB en líka möguleiki á frestun útgöngu. Pálmi Jónasson talar við Sigrúnu Davíðsdóttur um málið. Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um fjölmenningu og fjölmenningardaginn. Ræðir við Sögu Stephensen, verkefnastjóri og ráðgjafi vegna fjölmenningarlegs leikskólastarfs, hjá Reykjavíkurborg.

Spegillinn
Spegillinn 18.desember 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2018 30:00

Spegillinn þriðjudaginn 18. Des 2018 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Júlíus Vífill Ingvarsson fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms í peningaþvættismáli til Landsréttar. Hann var dæmdur í 10 mánaða skilorðisbundið fangelsi í morgun. Forstöðumaður fæðingarorlofssjóðs vonar að feður nýti sér fæðingarorlof í meira mæli í kjölfarið þess að hámarksgreiðslur fæðingarorlofs hækka um áttatíu þúsund krónur frá og með áramótum. Bandarísk stjórnvöld leggja ekki lengur áhreslu á að Bashar al-Assad Sýrlandsforseti fari frá völdum Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi rétt vestan við Selfoss rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Fólksbíll og jeppi lentu saman og endaði jeppinn á hliðinni utan vegar. Tvennt var í bílunum og þurfti að beita klippum til að ná fólkinu út. Það var flutt til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Suðurlandsvegi var lokað eftir slysið en hann var opnaður á ný upp úr klukkan hálf sex. Tillaga Minjastofnunar til friðlýsingar á Víkurgarði í Reykjavík tekur aðeins til þess svæðis sem í dag er borgartorg. Ekki er lagt til að svæðin í kring, sem hinn forni kirkjugarður teygði sig yfir, verði friðlýst. Bandaríkin eru vænlegasta svæðið til að markaðssetja Grímsey fyrir erlenda ferðamenn. Ný könnun sýnir að Bandaríkjamenn hrífast af lundanum og þykir afar merkilegt að komast norður undir heimskautsbaug. Gömlu Hringbraut í Reykjavík verður ekki lokað vegna framkvæmda við nýjan Landspítala fyrr en í byrjun febrúar. Þetta er í annað sinn sem lokun götunnar er frestað. Viðvörun frá Veðurstofu. Vegna mikillar rigningar í dag og undanfarna daga á SA-landi og Austfjörðum má búast við auknum líkum á aurskriðum. Lengri umfjallanir: Ríkisstjórn Norðurbandalagsins og Fimmstjörnuhreyfingarinnar á Ítalíu hefur komið sér saman um nýtt fjárlagafrumvarp sem flokkarnir búast við að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykki. Ef stjórnvöld á Ítalíu ná ekki sannfæra að Evrópusambandið um ágæti nýrra fjárlaga fyrir áramót á landið yfir höfði sér fordæmalausar refsiaðgerðir. Ingvar Þór Björnson sagði frá. Fjallað um ástandið í Ungverjalandi og rætt við Grím Axelsson sem búsettur er í miðborg Búdapest, þar sem nýrri vinnulöggjöf er mótmælt harðlega daglega. Kristján Sigurjónsson. Sagt verður frá hugsanlegum aðgerðum bresku stjórnarinnar og Evrópusambandsins sem af alvöru undirbúa samningslaust Brexit. Sigrún Davíðsdóttir. Samninganefnd Eflingar tekur afstöðu til þess á morgun hvort félagið myndi bandalag með VR í kjaraviðræðunum og hætti samflot

Morgunútvarpið
Ástarlásar, álagsmeiðsl, snjalltæki, leiklestur og vísindaspjall

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 4, 2018 120:00

Við töluðum fyrr á árinu um litlar vörður, eða vörtur eins og sumir kalla þær, sem ferðamenn skilja eftir sig víða um land. Nú hefur færst í aukana að ferðamenn skilji eftir annars konar minnismerki um dvöl sína, þ.e. svokallaða ástarlása. Lára Björnsdóttir landvörður á Austfjörðum þekkir til þessa og við heyrðum í henni austur á Reyðarfirði. Margir stunda hlaup sér til heilsuræktar og skemmtunar og vinsældir þess hafa farið mjög vaxandi undanfarin ár. Margvíslegur heilsufarslegur ávinningur er af því að stunda hlaup, en engu að síður er tíðni meiðsla tengdum hlaupum óæskilega há. Þórarinn Sveinsson prófessor við læknadeild HÍ rannsakar nú hvað veldur og vinnur að því að þróa aðferðir til að greina hvaða áhrif vöðvaþreyta hefur á hreyfingar fótleggja hjá hlaupurum. Þórarinn kom til okkar. Það er mikið rætt um farsíma og hvort og þá hvernig eigi að nota þá í skólum. Skólar fara mjög misjafnar leiðir í þessum efnum en við töluðum við Ingva Hrannar Ómarsson, kennara í Skagafirði, sem hefur mjög ákveðnar skoðanir á þessu. Húsfyllir var þegar klausturupptökurnar svonefndu voru leiklesnar í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Að leiklestri loknum voru pallborðsumræður og Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi alþingismaður, tók þátt í þeim og hann kom til okkar og sagði okkur frá kvöldinu. Sævar Helgi Bragason kom í sitt vikulega vísindaspjall og talaði um dularfullar jarðskjálftabylgjur, snjó og Venus. Tónlist: Dúkkulísurnar - Frostnótt (ft. Pálmi Gunnars). Helgi Björns - Þegar flóðið fellur að. The Doors - Love me two times. Bryan Adams - Run to you. Páll Rósinkrans - Hvað eru jól? Radiohead - Creep. Ian Brown - First world problems. Bananarama - Venus. U2 - I believe in Father Christmas.

bj gu hva father christmas gunnars steingr sveinsson margir radiohead creep borgarleikh helgi bj skagafir bananarama venus helgi bragason austfj bryan adams run
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 1.mars

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 1, 2018 190:00

Transbörnum á Íslandi fer fjölgandi og hafa börn allt niður í leikskólaaldur komið út sem transbörn og jafnvel breytt nafni sínu. Í dag fer fram ráðstefna um málefni transbarna sem Samtökin 78 og Trans Ísland standa fyrir. Velt verður upp spurningum á borð við hvort við vitum nóg til þess að hlúa að þessum börnum í skóla- og heilbrigðiskerfinu. Til okkar koma Óliver Elí Jónsson, sem er 17 ára transstrákur, og Guðlaugur Aðalsteinsson, faðir 6 ára transstúlku. Nýlega komu 21 írakskur flóttamaður til landsins. Fólkið kom frá Amman í Jórdaníu þar sem það hefur hafst við við slæmar aðstæður. Þetta eru fimm fjölskyldur og munu tvær setjast að á Vestfjörðum, ein á Súðavík og önnur á Ísafirði, og þrjár á Austfjörðum, tvær í Neskaupstað og ein á Reyðarfirði. Í næstu viku kemur jafnstór hópur af írökskum og sýrlenskum flóttamönnum sem sest að á Flateyri og Reyðarfirði. Í kjölfar frétta af komu fólksins spunnust umræður á samfélagsmiðlum um hvort betra væri fyrir flóttafólk að setjast að í fámennum byggðum úti á landi fremur en á höfuðborgarsvæðinu. Við fáum til okkar Lindu Rós Alfreðsdóttur, sérfræðing í Velferðarráðuneytinu, sem fylgdi fólkinu til landsins, og Nínu Helgadóttur, sérfræðing hjá Rauða krossinum, til að ræða þetta við okkur. Vopnaflutningar íslenska flugfélagsins Atlanta til Sádí Arabíu, með blessun íslenskra stjórnvalda, hefur vakið upp hörð viðbrögð en félagið hefur fengið leyfi samgöngustofu til að flytja vopnin í amk 25 skipti. Vopnin eru flutt til Jemen og Sýrlands en fullyrt er að flutningurinn stangist á við lög og alþjóðasáttmála. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Kveiks, fer yfir þetta með okkur. Guðrún Hálfdánardóttir blaðamaður skrifaði greinaflokk um fíkniefnaneyslu ungmenna og birtur var í Morgunblaðinu. Hún ræddi við fjölda sérfræðinga auk aðstandenda og mun hún koma til okkar og segja okkur frá því sem hún fékk að heyra.

Spegillinn
Spegillinn 31. janúar 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 31, 2018 30:00

Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir gögn Landsréttarmálsins styðja niðurstöðu Hæstaréttar um lögbrot ráðherra við dómaraskipan. Dómsmálaráðherra segir að hún þekki það þegar hún sjái það hvenær hún þurfi að víkja úr embætti. Framkvæmdastjóri hjá Odda segir að erlend samkeppni hafi gert það að verkum að fyrirtækið þurfti að segja næstum helmingi starfsmanna sinna upp í gær. Stjórnarformaður Persónuverndar segir að það þurfi allt að því að fjórfalda starfsmannafjöldann hjá stofnuninni til að hún geti sinnt verkefnum vegna nýrra persónuverndarlaga sem eiga að taka gildi eftir fjóra mánuði. Fiskeldisfrumvarpi sem nú er í umsagnarferli er ætlað að bæta umgjörð og skapa sátt um greinina. Kapphlaup um eldissvæði á að heyra sögunni til og útboðsferli kemur í staðinn. Breytingin mun þó ekki hafa áhrif á margar umsóknir á Vestfjörðum og Austfjörðum sem þegar liggja fyrir. Ákvörðun um að nota tákn fyrir guðinn Tý á peysur norska landsliðsins í alpagreinum, hefur vakið upp deilur því nasistar og öfgahreyfingar hafa reynt að gera það að sínu tákni. Þarf að fjórfalda starfsmannafjölda Persónuverndar. Arnar Páll Hauksson fjallar um nýja persónuverndarlöggjöf og talar við Björgu Thorarensen, Davíð Þorláksson og Sölku Sól Styrmisdóttur. Merkur mannfræðifundur í Ísrael. Kristján Sigurjónsson segir frá. Utanríkisverslun Íslendinga frá 900 til 2010. Bogi Ágústsson talar við Guðmund Jónsson sagnfræðing. Umsjón: Arnar Páll Hauksson Tæknimaður: Magnús þorsteinn Magnússon