Podcasts about njar

  • 45PODCASTS
  • 297EPISODES
  • 1h 16mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • Jun 15, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about njar

Latest podcast episodes about njar

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Nú stöndum við upp og klöppum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 15, 2026


Farið var yfir áttundu umferð Bestu deildar kvenna í Uppbótartímanum í kvöld. Stjarnan gerði sér lítið fyrir og skellti Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli. Við stöndum og klöppum fyrir Stjörnunni sem er á góðu róli í Bestu deild kvenna. FH er komið á toppinn og Grindavík/Njarðvík vann mjög sanngjarnan sigur. Þá voru tvö 0-0 jafntefli. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört fóru yfir þetta allt saman í Uppbótartímanum. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 21, 2026


Fimmta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í kvöld. Breiðablik er áfram með fullt hús stiga og Þór/KA er í vandræðum, FH var fyrsta liðið til að taka stig af ÍBV, Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik, Þróttur vann útisigur í Víkinni og jafntefli var niðurstaðan í Njarðvík. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört fóru yfir þessa leiki og allt það helsta í kringum Bestu deild kvenna ásamt því að snerta á Mjólkurbikarnum og landsliðsvali.

Karfan
Aukasendingin: Grindavík og Njarðvík fagna, Pargo sturlaður og Baldur í Forsetahöllina

Karfan

Play Episode Listen Later May 19, 2026 73:01


Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið og er óhætt að segja að nóg sé um að vera. Stjórnandi þáttarins Davíð Eldur fékk góða gesti í stúdíóið að þessu sinni, þá Jónfrí og Strikerinn Árna Jó. Helstu umræðuefni þáttarins eru nýkrýndir Íslandsmeistaratitlar Njarðvíkur og Grindavíkur, ásamt því að farið er yfir helstu fréttir vikunnar og rýnt í önnur hlaðvörp sem tengjast íþróttinni. Þá var einnig vikið að sveitastjórnarkosningunum og áhrifum þeirra, sem og ráðningu Baldurs sem nýs þjálfara á Álftanesi, sem hefur vakið mikla athygli. Þá er einnig spáð í spilin með hver muni taka við af honum sem þjálfari Stjörnunnar.Sérstök athygli er vakin á sturlaðri frammistöðu Jeremy Pargo fyrir Grindavík, en leikmaðurinn hefur verið stórkostlegur að undanförnu og heillað alla upp úr skónum. Gestirnir létu sig heldur ekki vanta í að kryfja nýjasta slúðrið úr boltanum og margt fleira sem er að gerast á bak við tjöldin.Aukasendingin er aðgengileg á rás Körfunnar á öllum hlaðvarpsveitum.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Mín skoðun
1085.þáttur.Mín skoðun. 19052026

Mín skoðun

Play Episode Listen Later May 19, 2026 102:24


Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera og það eru fjórir viðmælendur. Einar Jónsson, Benedikt Guðmundsson, Kristinn Kærnested og Svanhvít Valtýs. Við ræðum um handboltalandsliðið, þýska boltann og meistaradeildina í handbolta. Úrslitakeppnina í körfubolta þar sem Grindavík og Njarðvík fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum. Enski boltinn er á sínum stað og Besta deildin og svo fréttir og slúður og Lengjudeildin í fótbolta. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta. 

Endalínan
325. Þáttur - ÍSLANDSMEISTARAR!

Endalínan

Play Episode Listen Later May 18, 2026 55:18


Þá er það komið á hreint, Njarðvík og Grindavík eru íslandsmeistarar!Til hamingju með titlana bæði samfélög!Allt í boði Comfyballs, Hótel Kef, Marion Herrafataverslun, Brons og Viking Lite!

Karfan
Aukasendingin: Kane, slúður, vanstilling og Grindavík í þremur

Karfan

Play Episode Listen Later May 14, 2026 89:37


Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar, hlaðvarps Körfunnar, kafa þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó ofan í sviðsmyndina sem gæti blasið við í úrslitakeppni Bónus deildarinnar strax í kvöld og á morgun. Spennan er á suðupunkti þar sem tímabilið gæti hreinlega klárast ef Njarðvík nær að knésetja Hauka og Grindavík fylgir því eftir með sigri á Tindastól á morgun. Sérstök athygli er vakin á ótrúlegu gengi Grindavíkur og rýnt í það hvaða lykilþættir liggja að baki frammistöðu þeirra, ásamt því að farið er yfir þau mál sem mikið hefur verið rætt um í eftirmálum síðasta leiks liðsins í Síkinu.Umræðan er ítarleg og hreinskilin eins og þeim Jónfrí og Strikernum er einum lagið, þar sem ekkert er dregið undan þegar kemur að greiningu á stærstu augnablikum tímabilsins fram að þessu.Aukasendingin er aðgengileg á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

umr grindav njar hauka
Fotbolti.net
Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Njarðvík vs Fótbolti.net

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 6, 2026


Seinni undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni

Karfan
Aukasendingin: Allt logar í úrslitakeppninni – Oddaleikir, slagsmál og djúpfalsað efni

Karfan

Play Episode Listen Later May 5, 2026 112:45


Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó mæta til leiks í hljóðverið. Það er af nógu að taka enda úrslitakeppni Bónus-deildanna í hámarki. Farið er yfir ótrúlegan viðsnúning í undanúrslitum karla og kvenna þar sem Stjarnan og Grindavík hafa bæði misst niður 2-0 forystu í 2-2 gegn Tindastóli og Njarðvík. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi oddaleiki, en þrír af fjórum undanúrslitum deildanna ráðast í hreinum úrslitaleikjum sem undirstrikar þá gífurlegu spennu sem ríkir þessa dagana.Auk ítarlegrar yfirferðar um gang mála á vellinum er rýnt í málin utan hans. Strákarnir gagnrýna aðgang blaðamanna að leikjum, taka góða dýfu í dómaraumræðuna og fara yfir skuggahliðar stemningsinnar, þar á meðal átök stuðningsmanna á bílastæðinu í Garðabæ. Þátturinn er þó ekki eingöngu helgaður íþróttum því sveitastjórnarkosningar ber á góma, Jónfrí kynnir nýja lagið sitt „Djúpfalsað efni“ og slúðurhornið er á sínum stað þar sem farið er yfir það sem er að gerast bak við tjöldin í boltanum.Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Sögulegur sigur og viðvörunarbjöllur hringja í Hafnarfirði

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 1, 2026


Önnur umferð Bestu deildar kvenna er að baki og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Það eru tvö lið með fullt hús stiga, Grindavík/Njarðvík vann heldur betur sögulegan sigur en í Hafnarfirðinum eru viðvörunarbjöllur farnar að hringja. Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir allt það helsta. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Fotbolti.net
Uppbótartíminn - Féllu á eigið sverð og umræðu svarað

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 28, 2026


Besta deild kvenna er farin af stað og var mikið að ræða eftir fyrstu umferðina. Nýliðar í Grindavík/Njarðvík voru betri aðilinn gegn Val á Hlíðarenda en fóru tómhentar heim, leikmenn svöruðu umræðu úr upphitunarþættinum, Breiðablik með meistarasigur, nöfnurnar byrjuðu vel í ÍBV og jafntefli var niðurstaðan fyrir norðan. Þá mættu Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson með áhugaverða heimavinnu í lok þáttar. Guðmundur Aðalsteinn stýrir umræðunni.

Karfan
Aukasendingin: Stórveldið í sumarfrí, yfirburðir á Króknum og spenna á Hlíðarenda

Karfan

Play Episode Listen Later Apr 16, 2026 80:25


Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla. Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn KR, sem sendi Vesturbæinga beint í sumarfrí ásamt liðum ÍR og Njarðvíkur. Farið er yfir hvernig Garðbæingar sýndu mikla seiglu á meðan vonbrigðin í Vesturbænum eru rædd í þaula.Sjónum er einnig beint að öðrum einvígum þar sem yfirburðir Tindastóls vöktu verðskuldaða athygli og lýst er yfir ákveðinni vantrú á gengi Grindvíkinga. Þá er spennan í hámarki fyrir oddaleik Vals og Keflavíkur, en gestirnir rýna í það hvað muni skilja á milli liðanna í lokaleiknum um sæti í undanúrslitum.Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fotbolti.net
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 15, 2026


Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð níunda sæti, Grindavík/Njarðvík. Natasha Anasi, leikmaður liðsins, og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, komu í hljóðver og fóru yfir allt það helsta hjá þessu áhugaverða liði.

bestu grindav njar spila
Fotbolti.net
Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 15, 2026


Fjórði þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Damir Muminovic fyrir Grindavík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni

Karfan
Aukasendingin: Töfrar Kára Jónssonar, Stólarnir í stuði og skipbrotið í Garðabæ

Karfan

Play Episode Listen Later Apr 12, 2026 61:23


Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fékk góðkunningja þáttarins Jónfrí í heimsókn. Í þættinum er kafað djúpt í nýjustu vendingar í úrslitakeppni Bónus deildarinnar, þar sem skipbrot KR í Garðabæ er tekið fyrir og rýnt í hvað fór úrskeiðis hjá Vesturbæingum gegn Stjörnunni. Þá er farið yfir hvernig Tindastóll kláraði einvígið gegn ÍR og sendi Breiðhyltinga í snemmbúið sumarfrí með sannfærandi hætti.Seiðkarlinn Kári Jónsson fær verðskuldað pláss í umræðunni eftir ótrúlega sigurkörfu sína fyrir Val, sem minnti á hvers vegna hann er besti leikmaður deildarinnar þegar mikið liggur við. Að lokum er staðan tekin á Njarðvík, en þríeykið veltir því fyrir sér hvort tímabilið sé hreinlega búið hjá þeim miðað við hvernig spilin hafa spilast að undanförnu.Þá er einnig farið yfir nokkur af skemmtilegustu augnablikum úrslitakeppninnar til þessa.Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

sei stj dav brei tactica njar vesturb kristalls
Karfan
Aukasendingin: Óstöðvandi Stólar, villusæknir Stjörnumenn og og hin geggjaða Dinkins

Karfan

Play Episode Listen Later Apr 8, 2026 74:07


Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fær góðkunningjana Árna ,,Striker" Jó og Jónfrí í heimsókn. Farið er yfir sviðna jörð í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem rætt er um hve villusækið lið Stjörnunnar er og af hverju Tindastóll virkar líklegasta liðið til stórræða þessa stundina. Spennan í kvennaboltanum er sömuleiðis á borðinu, sérstaklega rosalegur endir á leik Njarðvíkur og Tindastóls þar sem Brittany Dinkins sýndi enn og aftur að hún er hreinlega geggjuð á vellinum. Þá velur þríeykið fimm bestu íslensku og fimm bestu erlendu leikmenn úrslitakeppninnar hingað til á tveimur ólíkum listum. Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fotbolti.net
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 9, 2026


Áttundi og loka þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Oddur Hafliðason fyrir Dómarastéttina og Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Endalínan
296. Þáttur - Jólin eru blá

Endalínan

Play Episode Listen Later Dec 20, 2025 113:09


Endalínan sótti liðsstyrk yfir lækinn til að tækla síðustu umferð ársins, Ólafur Helgi Jónsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkur kvenna kíkti til okkar á Brons og fór yfir stöðuna.Allt í boði Brons, Viking Lite (Léttöl), Comfyballs, Marion herrafataverslun og Hótel Kef!

allt brons kef njar helgi j
Endalínan
295. Þáttur - Sauðkrækingar sestir í forsetastólinn?

Endalínan

Play Episode Listen Later Dec 13, 2025 97:37


Aldrei hefur Endalínan mætt eins snemma í upptökur, en þetta var hressandi.Mörg svör og margar spurningar sem kvikna eftir þessa 10. umferð.Er Tindastóll óstöðvandi?Er Valur að verða Valur? En hvar var Valur?Hvað þarf Njarðvík að gera?Hvað ætla Þórsarar að vera?Allt þetta og fleira í boði Comfyballs, Marion herrafataverslun, Hótel Kef, Viking Lite (Léttöl) og Brons!

Karfan
Aukasendingin: Katar 2027, frí Bónus ráðgjöf og hvaða leikmenn þarf Njarðvík að semja við?

Karfan

Play Episode Listen Later Nov 25, 2025 67:16


Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Mumma Jones í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, leiki Íslands í undankeppni HM 2027, Bónus deild karla og gefa öllum liðum Bónus deildar karla ráðgjöf um hvað þau eigi að gera í landsleikjahléinu.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Davíð Smári, kapallinn og ensk verðlaun

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 8, 2025


Davíð Smári Lamude er sérstakur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Davíð, sem gerði Vestra að bikarmeisturum í ár, var á dögunum kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Farið er yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Benedikt Bóas er í beinni frá Glasgow og Daníel Geir Moritz velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni hingað til.

Bylgjan
Bítið - fimmtudagur 23. október 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 23, 2025 82:11


Bítið með Lilju, Simma og Ómari.   Stefán Ás Ingvarsson, stofnandi og forstjóri Njarðar, sem vill byggja magnesíumverksmiðju á Grundartanga í Hvalfirði, var á línunni. María Ericsdóttir, móðir barns sem er í meðferð í Suður-Afríku, settist niður með okkur og fór yfir úrræðið og úrræðaleysi á Íslandi.   Ingvar Örn Ingvarsson, stjórnarmaður Íslandsspila sf. fyrir hönd Rauða krossins á Íslandi, ræddi við okkur um veðmálastarfsemi á Íslandi og erlendis. Davíð Þór Arnarsson, stofnandi Leiðarljóss, nýrrar þjónustu sem hjálpar fólki á Íslandi að finna réttu meðferðarúrræði erlendis, var á línunni. Við opnuðum símann. Rakel Adolphsdóttir, sagnfræðingur og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, ræddu Kvennaár og Kvennaverkfall.   Græjuhornið

lei stef dav afr rau ingvar simma ingvarsson njar arnarsson bsrb fimmtudagur
Eerie Iceland
Episode 86: The Man Who Faced Monsters in Njarðvík

Eerie Iceland

Play Episode Listen Later Sep 22, 2025 13:58


Discover the legend of Jón Ásmundsson of Njarðvík.  Who was a drifter who battled monsters from sea and shadow, and lived to outwit the Devil himself! Like what you hear?  Give us 5 Stars!  And follow for more... Checkout our website: Eerie Iceland  Follow us on: Instagram  Find our page on: Facebook  Email us: hello@eerieiceland.com Sources & Extras: Source 1 Source 2 Episode & Editing By: Ann Irene Peters (Iceland Wedding Planner)

Fotbolti.net
Leiðin úr Lengjunni: Tvöfalt hrun, umdeilt víti og viljandi rautt?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 19, 2025


Fyrri leikirnir í undanúrslitum umspilsins eru loknir og HK og Njarðvík eru bæði með eins marks forskot fyrir seinni leikinn. Stefán Marteinn, Sverrir Örn og Haraldur Örn mættu að vana til að fara yfir leikina og sérstakur gestur var Kári Snorrason.

stef hk falt fyrri haraldur viljandi sverrir njar snorrason
Fotbolti.net
Innkastið - Rafmögnuð lokaumferð í Lengjunni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 7, 2025


Hér er sérstakur aukaþáttur af Innkastinu, þar sem Lengjudeildin er í aðalhlutverki. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir málin. Taugarnar voru þandar í 21. umferðinni og í lokaumferðinni verður hreinn úrslitaleikur þegar Þróttur mætir Þór og bæði lið þurfa að sækja til sigurs því Njarðvíkingar eru tilbúnir að stela toppsætinu. Fjölnismenn eru fallnir en lífsbaráttulaugardagur framundan í fallbaráttunni.

fj njar rafm
Fotbolti.net
Leiðin úr Lengjunni: Njarðvíkingar fara á toppinn og falldraugurinn svífur yfir Árbænum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 10, 2025


Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Fotbolti.net
Leiðin úr Lengjunni - Njarðvíkingar brjóta blað og Árbæingar að vakna?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 2, 2025


Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Karfan
Fyrstu fimm: Elvar Már Friðriksson

Karfan

Play Episode Listen Later Jun 30, 2025 45:46


Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer leikmaður íslenska landsliðsins og Maroussi í Grikklandi Elvar Már Friðriksson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur spilað með á ferlinum.Elvar er 30 ára gamall og að upplagi úr Njarðvík. Eftir að hafa leikið upp yngri flokka félagsins hóf hann að leika með meistaraflokki þeirra árið 2011. Þar var hann allar götur til 2014, en þá fór hann til LIU í bandaríska háskólaboltanum. Eftir fyrsta árið þar skipti hann um skóla og lauk feril sínum í háskólaboltanum með Barry árið 2018.Síðan þá hefur hann leikið á fjölmörgum stöðum í Evrópu, Svíþjóð, Frakklandi, Litháen, Ítalíu, Belgíu og nú síðast í sterkri efstu deild Grikklands. Þá hefur hann einnig verið í Evrópukeppnum með nokkrum þeirra liða sem hann hefur leikið fyrir.Á flestum stöðum lætur Elvar Már duglega að sér kveða, en einstaklingsverðlaun hans eru nokkur og frá ólíkum stöðum. Árið 2020 var hann valinn bakvörður ársins í Svíþjóð, 2021 verðmætasti leikmaðurinn í Litháen og í þrígang hefur hann verið valinn körfuboltamaður ársins á Íslandi, 2021, 2022 og 2023. Þá var hann valinn leikmaður deildar sinnar síðustu tvö árin í bandaríska háskólaboltanum.Síst merkileg eru met hans og titla er varða stoðsendingar, en hann virðist nánast alltaf vera meðal stoðsendingahæstu leikmanna sem hann spilar með/gegn hvort sem það er með landsliði eða í deild. Hann á t.a.m. stoðsendingamet grísku deildarinnar, en hann gaf 17 stykki í einum og sama leiknum á nýafstöðnu tímabili.Elvar Már hefur einnig gert vel með íslenska landsliðinu, en hann mun nú í haust fara í annað skiptið með liðinu á lokamót EuroBasket.Stjórnandi: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Sigur á Hampden, Besta liðið og Gunnar Heiðar

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 7, 2025


Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 7. júní. Í fyrri hluta þáttarins er 3-1 sigur Íslands gegn Skotlandi gerður upp og valið úrvalslið Bestu deildarinnar hingað til á skemmtilegan hátt. Í seinni hlutanum kemur Gunnar Heiðar Þorvaldsson í heimsókn en hann er að gera mjög áhugaverða hluti sem þjálfari Njarðvíkur.

Proti etru
Ana Jerman in Janja Sušnjar

Proti etru

Play Episode Listen Later May 29, 2025 21:07


Nina tokrat gosti mladi arhitektki Ano Jermen in Janjo Šušnjar, prejemnici Plečnikove medalje 2025 za projekt VRTEC BOHINJ, ki sta ga zasnovali skupaj z arhitekti iz madridskega studia KAL A.

90 mínútur
Íþróttavikan: Rúnar Ingi - Karfan, Besta og enski

90 mínútur

Play Episode Listen Later May 23, 2025 77:02


Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari körfuboltaliðs Njarðvíkur er gestur þáttarins.

Mín skoðun
1010.þáttur. Mín skoðun. 12052025

Mín skoðun

Play Episode Listen Later May 12, 2025 85:20


Í þætti dagsins heyri ég í Snorra Steini Guðjónssyni landsliðsþjálfara í handknattleik. Við tölum um stöðu liðsins, veltum upp mögulegum mótherjum í úrslitakeppninni og ég fékk Snorra Stein til að spá hvaða lið hann vill fá í riðilinn ásamt fleiru. Kristinn Kærnested er á línunni um Bestu deildina þar sem Vestri heldur áfram að koma á óvart. Hvaða lið hafa valdið vonbrigðum? Enski boltinn og meistaradeildarbaráttan ásamt því að við spáum í spilin í Mjólkurbikarnum. Svanhvít er svo í spjalli um úrslitakeppnina í körfubolta. Þar ber hæst viðureign Stjörnunnar og Tindastóls en það varð allt vitlaust í leik liðanna í gær. Hauka og Njarðvík mætast í hreinum úrslitaleik kvenna í kvöld. Ýmislegt fleira er til umræðu. Njótið og takk fyrir að hlusta. 

Endalínan
270. Þáttur - Uppgjör og allt hitt

Endalínan

Play Episode Listen Later Mar 29, 2025 177:57


Jæja!Endalínan kom saman og fékk þjálfarateymi Njarðvík kvenna til að koma og renna yfir þetta.Byrjuðum á umferðinni sem var að líða.Eftir 1:38 fórum við í úrslitakeppnina.Eftir 2:21 fórum við í þá sem hafa skarað fram úr í vetur.Allt þetta í boði Viking Lite (léttöl), Brons, KEF spa, Soho og Comfyballs!

Samfélagið
Líðan íslenskra ungmenna, óæskilegir kælimiðlar, eiturefni

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 27, 2025 59:16


Í dag fjöllum við um líðan íslenskra ungmenna, eitt af stóru málunum í samfélagsumræðunni þessi misseri. Því er stundum haldið fram að geðheilsu íslenskra ungmenna fari hrakandi, lyfjanotkun sé of mikil – og að staða þessara mála sé mjög slæm. Á morgun verður haldinn fundur undir yfirskriftinni Heilsan okkar – þar sem geðheilsa og líðan ungmenna verður til umfjöllunar. Og í dag fáum við til okkar tvo fræðimenn sem verða með erindi á þessum fundi: Urði Njarðvík prófessor við sálfræðideild HÍ og Bertrand Lót, dósent við læknadeild Háskóla Íslands, til að varpa ljósi á þessi mál. Við ætlum að fjalla um F-gös. Fyrir nokkrum árum voru ísskápar og kælikerfi full af freoni og öðrum óæskilegum kælimiðlum. Þetta eru gróðurhúsalofttegundir sem eru mörg þúsund sinnum öflugri en koldíoxíð. Alþjóðlegir samningar sem tóku á ósoneyðandi kælimiðlum skiluðu miklum árangri - og seinna var ákveðið að ráðast líka á þessa sem geta með hnatthlýnunarmætti sínum haft skelfileg áhrif á loftslagið. Hér á landi var ráðist í skattlagningu og kvóta á innflutning og segja má að ástandið í kælibransanum hafi í kjölfarið gjörbreyst. Við rifjum upp ástandið árið 2019, þegar fyrst var reynt að koma böndum á innflutninginn, leitum svara frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og kíkjum upp á Járnháls og ræðum stöðuna í dag við Elís H. Sigurjónsson, tæknistjóri fyrirtækisins Kælitækni. Við fáum svo, eitraðan pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.

Karfan
Aukasendingin: Mummi og Máté ræða lokaumferðina í Bónus, VÍS bikarvikuna og hverjir græða mest á hertum reglum

Karfan

Play Episode Listen Later Mar 25, 2025 72:13


Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Máté Dalmay og Mumma Jones í heimsókn til að fara yfir sviðið. Ræddar eru fréttir vikunnar, lokaumferðin í Bónus deild karla, VÍS bikarvikan, hræðilegt ástand Keflavíkur og Þorlákshafnar, brotthvarf Evans úr Njarðvík, styrk Vals og margt fleira. Þá fer Mummi yfir hvaða fimm íslensku leikmenn eiga eftir að græða mest á hertum reglum um erlenda leikmenn í deildinniAukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Karfan
Sjötti maðurinn: Óvænt úrslit, ótrúleg óheppni Álftnesinga og skotsýning í Njarðvík

Karfan

Play Episode Listen Later Jan 19, 2025 54:06


Sjötti maðurinn er mættur þessa vikuna og fullmannaður í þetta skiptið. Farið var yfir liðna umferð í Bónus deild karla, fréttir vikunnar og fasta liði. Þá er í þættinum opinber afsökunarbeiðni frá dyggum hlustanda sem gæti komið einhverjum á óvart og margt, margt fleira.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

Karfan
Sjötti maðurinn: Ólseigir Njarðvíkingar, fallfnykur fyrir austan og stöðug topplið

Karfan

Play Episode Listen Later Jan 13, 2025 61:57


Sjötti maðurinn er mættur aftur eftir gott jólafrí. Í þetta skiptið var Ögmundur erlendis en Eyþór og Mikael stóðu vaktina í þetta. Farið var yfir Bónus deild karla í bland við skemmtilega hefðbundna liði.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

Karfan
Fyrstu fimm: Brenton Birmingham

Karfan

Play Episode Listen Later Dec 29, 2024 73:29


Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn Brenton Birmingham yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Brenton er 52 ára gamall í dag, en skóna lagði hann á hilluna sem leikmaður b liðs Njarðvíkur árið 2016, þá 43 ára gamall. Eiginlegum feril hans með aðalliði í meistaraflokki var þó lokið nokkrum árum áður, árið 2011, en þá var hann leikmaður Njarðvíkur.Brenton kom fyrst til Íslands árið 1998 og lék sem atvinnumaður í 12 tímabil á Íslandi með liðum Njarðvíkur og Grindavíkur. Í þrígang varð hann Íslandsmeistari, vann bikarinn í fjögur skipti og þá var hann valinn leikmaður ársins í þrígang, körfuboltamaður ársins 2006, innlendur leikmaður ársins 2007 og besti erlendi leikmaður ársins árið 2000. Eftir að hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt lék hann einnig fyrir íslenska landsliðið, 19 leiki á árunum 2002 til 2007. Fyrir utan Njarðvík og Grindavík á Íslandi lék hann einnig sem atvinnumaður fyrir Honka í Finnlandi, London Towers í Bretlandi og Rueil í Frakklandi á 16 ára feril sínum sem atvinnumaður.Stjórnandi: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.

Karfan
Sjötti maðurinn X Frikkibeast: Langþráður sigur Álftnesinga, Valsarar komnir á skrið, ólseigir Njarðvíkingar og gestagangur

Karfan

Play Episode Listen Later Oct 27, 2024 60:17


Það var gestagangur hjá Sjötta manninum í dag en þeir fengu í heimsókn hinn eina sanna Friðrik Heiðar betur þekktan sem Frikka Beast. Farið er vel yfir Bónus deild karla í bland við fasta liði. Einnig er bikarkeppnin rædd stuttlega og margt, margt, margt fleira.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

Karfan
Sjötti maðurinn: Háspenna á Nesinu, Njarðvík þvert gegn spám og símaviðtal til Hornafjarðar

Karfan

Play Episode Listen Later Oct 20, 2024 69:33


Sjötti maðurinn fór að vanda yfir Bónus deild karla. Rætt var Hauka projectið og El Clasico í bland við marga skemmtilega og nýja liði. Sjötti maðurinn tók einnig upp á nýjung er hringt var út á land í fyrsta skipti í sögu þáttarins.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

Karfan
Sjötti maðurinn: Kraftröðun fyrir Bónus, ströggl í Njarðvík og gírun í Skagafirðinum

Karfan

Play Episode Listen Later Sep 24, 2024 88:29


Sjötti maðurinn tók upp frumraun sína í hlaðvarpsheiminum þar sem þeir tóku spá sjötta mannsins fyrir komandi bónus deildar tímabil, einnig fóru þeir yfir hverjir áttu slæma/góða viku í íslenska körfubolta samfélaginu. Undir lokin fóru þeir síðan yfir kraftröðun þeirra á könum deildarinnar.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

sj b nus fyrir tactica undir njar kraftr skagafir kristalls
Fotbolti.net
Innkastið - Landsliðið og Lengjudeildin

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 10, 2024


Sérstakur aukaþáttur af Innkastinu á meðan Besta deildin er í landsleikjafríi. Umsjón: Elvar Geir. Farið er yfir landsleikinn í Tyrklandi og þá er fjallað vel um Lengjudeildina en síðasta umferðin verður leikin á laugardag. Fréttamenn .Net þeir Sölvi Haralds stuðningsmaður ÍR og Stefán Marteinn stuðningsmaður Njarðvíkur eru með Elvari í hljóðveri. Einnig Hilmar Jökull sem býður sig fram í formannsstól Tólfunnar. Einnig er rætt um 2. deild og næstu leikir í þeirri Bestu skoðaðir.

Karfan
Fyrstu fimm: Logi Gunnarsson

Karfan

Play Episode Listen Later Aug 6, 2024 62:29


Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Logi Gunnarsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Logi er Njarðvíkingur að upplagi og eftir að hafa leikið upp yngri flokka félagsins hóf hann að leika með meistaraflokki þeirra 16 ára gamall árið 1997. Í þrigang varð hann svo Íslandsmeistari með félaginu á þessum fyrstu árum sínum í meistaraflokki og var hann valinn besti leikmaður deildarinnar árið 2001. Árið 2002 hélt hann í atvinnumennskuna á meginlandi Evrópu þar sem hann í yfir 10 ár lék fyrir félög í Finnlandi, Svíþjóð, Frakklandi, Þýskalandi og á Spáni. Árið 2013 kom hann svo aftur heim til Njarðvíkur og lék þar í 10 ár áður en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Meðfram þessum glæsilega feril með félagsliðum lék Logi 147 leiki með landsliði Íslands.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.

sv gunnarsson tactica evr logi fyrstu fimm frakklandi njar finnlandi kristalls
Endalínan
243. Þáttur - End of an Era (Uppgjörsþáttur 23/24) Benedikt Guðmundsson, Kristinn Pálsson og Ingibergur Þór Jónasson

Endalínan

Play Episode Listen Later Jun 9, 2024 138:23


Kæru hlustendur, Takk fyrir tímabilið! Nýafstaðið tímabil er eitthvað sem gleymist aldrei, stórar sögulínur bæði innan vallar og utan. Dramatík og frábær körfubolti, skemmtilegir leikmenn og mikil dramtík. Endalínan valdi fimm stærstu sögulínur tímabilsins og þær eru: 5. Sveiflur. Sjaldan eða aldrei höfum við séð jafn mikinn mun á milli spá sérfræðinga og loka niðurstöðu í deildinni. 4. Umgjörðin. Umgjörðin í úrslitakeppninni var rosaleg! En hvernig teygjum við þessa gleði og þessa stemmingu inn í tímabilið. 3. Þjálfarar/Njarðvík. Það voru ótrúlega margar frábærir þjálfarar á þessu tímabili, þar má segja að sveiflurnar á milli spá sérfræðinga og að loka niðurstöðu hafi Benedikt Guðmundsson troðið sokkum og náði frábærum árangri í Njarðvík. 2. Kiddi Páls og Valur. Kristinn Pálsson kom heim fyrir tímabilið og sýndi svo sannarlega hvað hann er góður. Frábært tímabil hjá Kidda og Val! 1. GRINDAVÍK! Númer eitt kom ekkert annað til greina Grindavík. Það er ekki nokkur leið fyrir utanaðkomandi að setja sig í spor þessa fólks. Byrjuðu snemma að setja saman frábært lið, koma Kane til landsins, erfið byrjun, rýming, Smárinn, frábært run og svo ein stærsta úrslitakeppni sem maður hefur orðið vitni af. Ingibergur formaður Grindavíkur kom til okkar og fór aðeins yfir hugarheim Grindvíkinga og framtíðar áform.

Endalínan
236.Þáttur - Svar eða sumarfrí ( Undanúrslit Leikir 3 )

Endalínan

Play Episode Listen Later May 9, 2024 90:06


Kæru hlustendur , Undanúrslitin eru ennþá í fullum gangi og við gerum upp leiki 3 í einvígunum. Það var varnarglíma í N1 Höllinni á meðan það var aðeins meira fjör í Smáranum , allavega hjá Grindvíkingum. Eru seríurnar búnar að geta Njarðvík og Keflavík svarað ? Geta liðin fundið betri lausnir sóknarlega ? Geta Keflvíkingar náð kröfum aftur eftir niðurlægingu í Smáranum ? Ná Grindavík að einbeita sér aftur bara að körfubolta ? ... Allt þetta og miklu meira á Endalínunni.

Endalínan
226. Þáttur - STAÐAN ?!?

Endalínan

Play Episode Listen Later Mar 29, 2024 55:59


Kæru hlustendur , Jú 21.umferðin er að baki og við erum klárlega engu nær um hvernig þetta mun líta út allt saman eftir lokaumferðina í næstu viku. Hattarmenn tryggðu sig inní úrslitakeppnina í fyrsta skipti í sögu félagsins með glæsilegum endurkomusigri á Stólunum fyrir Austan , Stjarnan hélt sér á lífi með því að enda sigurgöngu Grindvíkinga og El Clasico var algjör sóknarveisla sem var kórónuð með frammistöðu Remy Martin í 4.leikhlutanum þar sem gæjinn lék sér að vörn Njarðvíkurliðsins og innsiglaði Keflavíkursigur. Endalínan í boði Viking Lite, Brons , Cintamani, Soho, Fiskbúð Reykjaness , Macland , Miðherja , Just Wing´in It og OneBetson

Librairie Majalis
Irwaa-u Nadîm : Leçon 14 - Nekkug Sëriñ bi NJARÉEM (résidence surveillé du Cheikh à Diourbel P2)

Librairie Majalis

Play Episode Listen Later Feb 13, 2024 27:31


Cette biographie du Cheikh Ahmadou BAMBA (1853-1927), dont le manuscrit arabe est rédigé en 1963 dans un arabe très classique mais clair, comprend 285 pages (Version Rabita AL-KHADÎMIYYAH) et est divisée en 10 chapitres. Son auteur lui a donné le titre de IRWÂ-U- NADÎM MIN' AZHBI HUBB AL- KHADÎM (L'Abreuvement du Commensal dans la Douce Source d'amour du Serviteur) titre assez révélateur du caractère un peu laudatif de son ouvrage qu'il a écrit dans le but de faire connaître le Saint de ce XIVème siècle de l'Hégire (XXème siècle) et de le faire revivre, autrement dit, de contribuer à la diffusion de son œuvre. Commentaire et traduction en wolof : Abdou Khadre BA Majalis __________________________ Irwâ-u Nadîm, di téere bu Sëriñ Muhamadul Amiin Joob Dagana bind ci araab, ci jaar-jaari Seexul Xadiim RLA. Mu tënk ko ci 10i bunt ci 285 xët, ci yaxub Raabita Al-Xadiimiyah. Aji tekki ji ci wolof : Abdul Xaadir BA Majalis --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/librairie-majalis/message

Librairie Majalis
#Irwaa_u_Nadîm : Leçon 13 - Nekkug Sëriñ bi NJARÉEM (résidence surveillé du Cheikh à Diourbel) Partie 1

Librairie Majalis

Play Episode Listen Later Feb 13, 2024 27:31


Cette biographie du Cheikh Ahmadou BAMBA (1853-1927), dont le manuscrit arabe est rédigé en 1963 dans un arabe très classique mais clair, comprend 285 pages (Version Rabita AL-KHADÎMIYYAH) et est divisée en 10 chapitres. Son auteur lui a donné le titre de IRWÂ-U- NADÎM MIN' AZHBI HUBB AL- KHADÎM (L'Abreuvement du Commensal dans la Douce Source d'amour du Serviteur) titre assez révélateur du caractère un peu laudatif de son ouvrage qu'il a écrit dans le but de faire connaître le Saint de ce XIVème siècle de l'Hégire (XXème siècle) et de le faire revivre, autrement dit, de contribuer à la diffusion de son œuvre. Commentaire et traduction en wolof : Abdou Khadre BA Majalis __________________________ Irwâ-u Nadîm, di téere bu Sëriñ Muhamadul Amiin Joob Dagana bind ci araab, ci jaar-jaari Seexul Xadiim RLA. Mu tënk ko ci 10i bunt ci 285 xët, ci yaxub Raabita Al-Xadiimiyah. Aji tekki ji ci wolof : Abdul Xaadir BA Majalis --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/librairie-majalis/message

Fotbolti.net
Tiltalið: Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jan 28, 2024


Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Njarðvíkur, Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Librairie Majalis
Irwaa-u Nadîm : Leçon 15 Nekkug Sëriñ Tuubaa ci NJARÉEM (Le départ du Cheikh de Thiéyéne Diolof et Son l'installation à Diourbel 2)

Librairie Majalis

Play Episode Listen Later Jan 9, 2024 27:31


Irwaa-u Nadiim, di teere bu Sëriñ Muhammadul Amiin Joob Dagana bind ci dundug Xaadim Rasuul, Abdu Xaadir Ba Majalis, tekki ko ci wolof --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/librairie-majalis/message

cheikh njar
Librairie Majalis
Irwaa-u Nadîm : Leçon 14 Nekkug Sëriñ Tuubaa ci NJARÉEM (Le départ du Cheikh de Thiéyéne Diolof et Son l'installation à Diourbel 1)

Librairie Majalis

Play Episode Listen Later Jan 2, 2024 27:31


Irwaa-u Nadiim, di teere bu Sëriñ Muhammadul Amiin Joob Dagana bind ci dundug Xaadim Rasuul, Abdu Xaadir Ba Majalis, tekki ko ci wolof --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/librairie-majalis/message

cheikh njar