Podcasts about hrafn hagal

  • 2PODCASTS
  • 25EPISODES
  • 59mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Jul 9, 2021LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about hrafn hagal

Latest podcast episodes about hrafn hagal

Morgunútvarpið
9. júl - Villimenn, Kótelettan, Patti, Fréttir, Klara

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 9, 2021


Hellubúar halda úti facebook hópi og senda þar hverjir öðrum fréttir og gamlar myndir og þess háttar sem fólk gerir á facebook. Í gær birtist þar óvænt frétt en Eskimo er að leita eftir ?fólki í sveitinni til að taka þátt sem aukaleikarar í erlendu verkefni á vegum Neflix.? Síðan segir ?Við leitum að karlmönnum á aldrinum 20-55 ára auk nokkurra annarra um sjötugt, með frekar villimannslegt útlit.? Morgunútvarpið hringdi í mann sem hefur verið þekktur fyrir villimannslegt útlit, sérstaklega á morgnana, en það er Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri í Rangárvallasýslu. Ætlar hann að bjóða sig fram og slá í gegn á Netflix? Í dag hefst bæjarhátíðin Kótilettan á Selfossi. Hátíðin er bæði tónlistarhátíð og mikil grillhátíð enda matarkista landsins á Suðurlandi. Kótilettan er síðar á ferðinni þetta árið vegna faraldursins en þetta er í ellefta sinn sem hún er haldin. Einar Björnsson var á línunni en hann hefur veg og vanda af hátíðinni. Patrekur Jóhannesson handboltamaður tók við silfurmerki Austurríkis við athöfn á Bessastöðum í vikunni en silfurmerkið hlýtur hann fyrir störf að íþróttamálum í Austurríki en þar var hann landsliðsþjálfari um árabil. Það var bróðir Patreks eða Patta eins og hann er kallaður sem vakti athygli á afhendingu silfurmerkisins en hann er auðvitað sjálfur Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands. Við hringdum í Patta og heyrðum um þessa upphefð. Umfjöllun um fréttir vikunnar verða á sínum stað og þau komu í morgunútvarpið Sunna Karen Sigurþórsdóttir fréttamaður á fréttastofu Stöðvar2, Vísis og Bylgjunnar og Stefán Hrafn Hagalín deildarstjóri samskiptadeildar hjá Landsspítalanum. Það var margt að ræða t.d. hina nýju metoo byltingu, greiðslu á hæsta lottóvinningi sögunnar, stöðuna á eldgosinu sem við vitum eiginlega ekki lengur hvort er eldgos, partý og hömluleysi eftir að samkomutakmörkunum var aflétt, brekkusöngur á Þjóðhátíð og svo auðvitað EM fyrir utan allt hitt sem kom við sögu. Tónlistarkonan Klara Elíasdóttir sem þekktust er fyrir veru sína í Nylon og síðar The Charlies var að senda frá sér nýtt lag. Nýja lagið er þjóðhátíðarlag. En ekki eiginlega fyrir Þjóðhátiðina í Eyjum. Klara segir að það sé kominn tími á að kona semji lag fyrir Þjóðhátíð í Eyjum enda aðeins ein kona samið Þjóðhátíðarlag í 84 ár. Með útgáfunni vill hún vekja athygli á kynjahallanum.

Landspítali hlaðvarp
Brautryðjendur í hjúkrun // Dr. Valgerður Lísa Sigurðardóttir sérfræðiljósmóðir ræðir við Mörtu Jóns Hjördísardóttur

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Jun 10, 2021 52:41


Valgerður Lísa Sigurðardóttir sérfræðiljósmóðir er gestur Mörtu Jóns Hjördísardóttur í þáttasyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni, en þátturinn var tekinn upp í tilefni af Viku hjúkrunar 10.-12. maí 2021. Valgerður Lísa lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1982, BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1988, embættisprófi í ljósmóðurfræði frá Háskóla Íslands 1998 og MS-prófi í ljósmóðurfræði frá Háskóla Íslands árið 2008. Valgerður hlaut sérfræðileyfi í ljósmóðurfræðum árið 2013 og er starfandi sérfræðiljósmóðir á kvennadeild Landspítala. Sérsvið hennar er meðgönguvernd með áherslu á geðheilsu. Einnig sinnir Valgerður kennslu og er meðal annars aðjúnkt við námsbraut í ljósmóðurfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Hún varði doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði árið 2020 og bar ritgerðin heitið "Neikvæð upplifun fæðingar og ljósmóðurmeðferð".Í tilefni af afmælisdegi upphafskonu nútíma hjúkrunar, Florence Nightingale, hinn 12. maí er haldið upp á alþjóðadag hjúkrunar ár hvert. Vika hjúkrunar á Landspítala 2021 var lituð af samkomutakmörkunum og álagi heimsfaraldurs Covid-19 og var dagskrá hennar því að mestu bundin við stafræna umfjöllun um hjúkrun og viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á spítalanum."Brautryðjendur í hjúkrun" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn Marta Jóns Hjördísardóttir, verkefnastjóri hjá verkefnastofu Landspítala. Marta var áður formaður hjúkrunarráðs Landspítala og er í dag formaður nýstofnaðs þverfaglegs fagráðs Landspítala.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/braut-06

Landspítali hlaðvarp
LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Hólmfríður Garðarsdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 15, 2021 105:13


"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fjórða þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um störf ljósmæðra erlendis með samtali við Hólmfríði Garðarsdóttur ljósmóður. Hún hefur ferðast vítt og breitt um veröldina undanfarinn aldarfjórðung og starfað við fagið, meðal annars í Afganistan, Írak, Íran, Mósambík, Norður-Kóreu, Papúa Nýju-Gíneu, Súdan og Tans­an­íu. Hólmfríður ræðir í viðtalinu bakgrunn sinn og helstu viðfangsefni gegnum tíðina. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er unninn í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.Krosssaumuð píka: Birta Rún SævarsdóttirSIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-04

Landspítali hlaðvarp
BRAUTRYÐJENDUR Í HJÚKRUN // Jakobína Rut Daníelsdóttir í heimsókn hjá Mörtu Jónsdóttur

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 11, 2021 36:20


Sjúkraliðinn Jakobína Rut Daníelsdóttir er gestur Mörtu Jónsdóttur í þáttasyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni, en þátturinn er tekinn upp í tilefni af Viku hjúkrunar. Jakobína Rut á að baki stórmerkan áratugaferil sem sjúkraliði og í hjúkrun, hefur unnið ötullega að langskólagöngu sinni og gegnir lykilhlutverki í réttindabaráttu og félagsmálum sjúkraliða. Í tilefni af afmælisdegi upphafskonu nútíma hjúkrunar, Florence Nightingale, hinn 12. maí er haldið upp á alþjóðadag hjúkrunar ár hvert. Vika hjúkrunar á Landspítala 2021 er lituð af samkomutakmörkunum og álagi heimsfaraldurs Covid-19 og er dagskrá hennar því að mestu bundin við stafræna umfjöllun um hjúkrun og viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á spítalanum."Brautryðjendur í hjúkrun" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn Marta Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá verkefnastofu Landspítala. Marta var áður formaður hjúkrunarráðs Landspítala og er í dag formaður nýstofnaðs þverfaglegs fagráðs Landspítala.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/braut-05 

Landspítali hlaðvarp
LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Björg Sigurðardóttir í heimsókn hjá Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 3, 2021 82:25


"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þriðja þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um störf ljósmæðra erlendis með samtali við Björgu Sigurðardóttur ljósmóður, sem hefur ferðast víða og starfað. Einnig fer Björg yfir bakgrunn sinn og helstu verkefni. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er unninn í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.Krosssaumuð píka: Birta Rún SævarsdóttirSIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-03

Landspítali hlaðvarp
LEGVARPIÐ // Steinunn K. Zophoníasdóttir ræðir breytingaskeiðið við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 30, 2021 79:22


"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum öðrum þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um breytingaskeiðið með samtali við Steinunni Kristbjörgu Zophoníasdóttur ljósmóður, sem skrifaði meistaraprófsritgerð um þetta merkilega tímabil í lífi kvenna.Um fjórðungur kvenna á breytingaskeiði upplifir veruleg einkenni sem hafa áhrif á daglegt líf og lífsgæði, svo sem hitakóf, svefntruflanir og andlega vanlíðan. Birtingarmynd einkenna er afar einstaklingsbundin og háð margþættu og flóknu samspili líffræðilegra, sálrænna og félagslegra þátta auk þess sem lífsreynsla, lífsmáti og lífsviðhorf móta upplifun kvenna.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-02 SPOTIFY ELDRI LEGVARPSÞÆTTIR:https://soundcloud.com/legvarpid

Landspítali hlaðvarp
HOW DO YOU LIKE ICELAND // Nurses Holly Gumz (co-host), Carmela Melisse Santa Maria and Aleibutch Kerwin Ocampo Ladaran

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 29, 2021 75:05


"How Do You Like Iceland?" is an independent mini-series within the Landspítali Podcast. For this episode we're having nurse Holly Gumz as co-host and her guests are fellow nurses Carmela Melisse Santa Maria and Aleibutch Kerwin Ocampo Ladaran who are both from the Philippines. The three of them discuss their background, reasons for moving to Iceland, the workplace and people at Landspítali, how they're adapting into the Icelandic society as well as answering the inevitable most perennial Icelandic question of all times: How do you like Iceland? Director of the Landspítali Podcast is Stefán Hrafn Hagalín but sound recording and editing is done by Ásvaldur Kristjánsson. Both work at the communications department of Landspítali.The Landspítali Podcast is accessible through all major social media sites of the hospital but also on Spotify and Apple iTunes along with streaming services like Simplecast, Pocket Casts and Podcast Addict. Director of the Landspítali Podcast is Stefán Hrafn Hagalín but recording and editing is done by Ásvaldur Kristjánsson, both at the communications department.Hlaðvarp Landspítala birtir hér annan þáttinn í þáttasyrpunni "How Do You Like Iceland?" Það er gestastjórnandinn og hjúkrunarfræðingurinn Holly Gumz sem leiðir syrpuna og henni til halds og trausts eru Stefán Hrafn Hagalín og Ásvaldur Kristjánsson hjá samskiptadeild Landspítala. Í þessum öðrum þætti af How Do You Like Iceland eru gestir Holly kollegar hennar Carmela Melisse Santa Maria og Aleibutch Kerwin Ocampo Ladaran. Öll þrjú starfa þau sem hjúkrunarfræðingar hjá Landspítala. Forvitnast er um bakgrunn þremenninganna, hvers vegna þau völdu hjúkrunarfræði sem nám og starfsvettvang, ástæður þess að þau fluttu til Íslands, hvernig þeim líkar vinnustaðurinn, viðtökurnar hér og íslenskt samfélag almennt. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/howdoyoulike-02

Landspítali hlaðvarp
GEÐVARPIÐ // Bráðafasinn: Guðfinna Betty Hilmarsdóttir, Ína Rós Jóhannesdóttir og Jóhanna G. Þórisdóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 20, 2021 40:56


"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Geðhjúkrunarfræðingar á Landspítala ræddu í fyrsta þætti Geðvarpsins samskipti í víðu samhengi, ásamt því að segja stuttlega frá bakgrunni sínum. Í þessum öðrum þætti er bráðafasi geðhjúkrunar hins vegar í aðalhlutverki. Í þættinum koma til liðs við Helgu Sif geðhjúkrunarfræðingarnir Ína Rós Jóhannesdóttir deildarstjóri móttökugeðdeildar, Jóhanna G. Þórisdóttir deildarstjóri bráðageðdeildar og og Guðfinna Betty Hilmarsdóttir aðstoðardeildarstjóri bráðageðdeildar. Það er Guðfinna Betty sem leiðir samtalið í þessum þætti.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-02

Landspítali hlaðvarp
LEGVARPIÐ // Rut Vestmann ræðir um barneignir einhverfra við Sunnu Maríu Helgadóttur og Stefaníu Ósk Margeirsdóttur

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 16, 2021 66:54


"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fyrsta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala ræða Sunna María og Stefanía Ósk við Rut Vestmann um barneignir einhverfra.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify. SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-01 SPOTIFY ELDRI LEGVARPSÞÆTTIRhttps://soundcloud.com/legvarpid

Landspítali hlaðvarp
GEÐVARPIÐ // Samskipti: Helga Sif Friðjónsdóttir, Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal og Halldóra Friðgerður Víðisdóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 15, 2021 34:38


Geðhjúkrunarfræðingar á Landspítala ræða í fyrsta þætti Geðvarpsins samskipti í víðu samhengi, ásamt því að segja stuttlega frá bakgrunni sínum. Gestastjórnandi er dr. Helga Sif Friðjónsdóttir, sem er deildarstjóri hjá geðþjónustu Landspítala. Í þessum fyrsta þætti eru gestir hennar Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal deildarstjóri á BUGL og Halldóra Friðgerður Víðisdóttir deildarstjóri á Laugarási sem leiðir samtalið áfram í þessum þætti."Geðvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-01

Landspítali hlaðvarp
How Do You Like Iceland: Hjúkrunarfræðingarnir Holly Gumz (co-host), Sara Cervantes og Daniel Salter

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Mar 23, 2021 83:23


Að þessu sinni fetar hlaðvarp Landspítala ótroðna slóð og ræsir nýja þáttasyrpu á ensku undir heitinu "How Do You Like Iceland?" Það er gestastjórnandinn og hjúkrunarfræðingurinn Holly Gumz sem leiðir syrpuna og í þennan fyrsta þátt fékk hún samlanda sína dr. Daniel Salter (sem er þó upphaflega frá Bretlandi) og Söru Cervantes. Öll þrjú starfa þau sem hjúkrunarfræðingar hjá Landspítala: Holly á heila-, tauga- og bæklunarskurðdeild B6 í Fossvogi, Daniel á sýkingavarnadeild við Hringbraut og Sara á öldrunarlækningadeildum Landakots.  Forvitnast er um bakgrunn þremenninganna, hvers vegna þau völdu hjúkrunarfræði sem nám og starfsvettvang, ástæður þess að þau fluttu til Íslands, hvernig þeim líkar vinnustaðurinn, viðtökurnar hér og íslenskt samfélag almennt.ENGLISH: For this episode of the Landspítali podcast we're having nurse Holly Gumz as co-host and she's going to interview her fellow Americans Daniel Salter (originally from the UK though) and Sara Cervantes. All three of them work at Landspítali as nurses. Holly on the neurosurgical and orthopedic ward B6, Daniel in the infection control department and Sara is a community health and geriatrics nurse at the Landakot geriatric rehabilitation unit. The three of them discuss their background, reasons for moving to Iceland, the workplace and people at Landspítali, how they're adapting into the Icelandic society as well as answering the inevitable most perennial Icelandic question of all times: How do you like Iceland? Host of the Landspítali Podcast is Stefán Hrafn Hagalín, sound recording and editing is done by Ásvaldur Kristjánsson. Both work at the Communications Department of Landspítali."How Do You Like Iceland?" er sem sagt sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn Holly Gumz. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/howdoyoulike-01

Landspítali hlaðvarp
Yoga Nidra með Lísu Briem

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 25, 2020 33:14


Yoga nidra er leidd djúpslökun sem losar um streitu, bætir svefn, vinnur gegn neikvæðum hugsanamynstrum og bætir jafnvægi. Nidra þýðir svefn og yoga einingu og þannig merkir "yoga nidra" í rauninni vakandi svefn þar sem vitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld og hugurinn hvílir í kyrrð. Þessi aðferð getur hjálpað til við að losa um þá spennu sem fylgir hraða og annríki nútímans. Samskiptadeild laumaði sér á dögunum í jógatíma hjá Guðnýju Elísabetu Briem Óladóttur, sem flestir á Landspítala þekkja betur sem Lísu Briem. Hún starfar á skrifstofu forstjóra í Skaftahlíð og hefur þar ýmis verkefni á sinni könnu, en brýtur upp vinnudaginn vikulega og heldur jógatíma fyrir vinnufélagana í hádeginu. Jógatíminn var haldinn í hermisetri menntadeildar í Skafathlíð og eins og glögglega má sjá var mannskapurinn í tímanum afskaplega slakur og vær. Líka æfingadúkkan í rúminu! Þess má geta að sálfræðingar geðþjónustu og mannauðsráðgjafar hjá Landspítala vinna nú að verkefninu "Saman gegnum Kófið" fyrir starfsfólk spítalans. Það felst meðal annars í því að safna saman á einn stað fræðsluefni, uppbyggilegum bjargráðum og leiðum til að vinna með það álag fyrir líkama og sál og krefjandi aðstæður sem framundan er í eftirmála Covid-19. Jógahlaðvarpið með Lísu Briem talar skemmtilega við þetta verkefni. Sjá nánar: https://www.landspitali.is/samangegnumkofid Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp
Erla Dögg Ragnarsdóttir og Steinunn Erla Thorlacius: Stjórnendur fjarheilbrigðisþjónustu og röntgendeildar segja frá fjölbreyttum verkefnum í Covid-19

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 25, 2020 58:00


Starfsemi Landspítala tók stökkbreytingum í Covid-19-faraldrinum. Erla Dögg Ragnarsdóttir er deildarstjóri á göngudeild 10-E á Landspítala og Steinunn Erla Thorlacius er deildarstjóri röntgendeildar. 10-E sér um göngudeildarþjónustu við skjólstæðinga sem tilheyra sérgreinum kviðarhols- og brjóstaskurðlækninga, brjóstholsskurðlækninga, nýrna- og meltingarlækninga og ígræðslu- og verkjateyma. Þegar hægðist um verkefni 10-E vegna faraldursins flutti Erla Dögg sig yfir til Covid-19-göngudeildar Landspítala og stýrði þar hjúkrunarhluta síma- og fjarheilbrigðisþjónustu við sjúklinga. Í verkahring röntgendeildar Steinunnar Erlu eru myndgreiningarrannsóknir og rannsóknarinngrip svo sem röntgenrannsóknir, tölvusneiðmyndir, segulómun, ísótópar, jáeindaskanni og ómskoðanir. Röntgendeild gegndi lykilhlutverki í að sinna Covid-sjúklingum í faraldrinum og þurfti að aðlagast hratt breyttum aðstæðum, öðruvísi vaktaálagi og nýjum kröfum um færanleika á tækjabúnaðar. Erla Dögg og Steinunn Erla segja hér frá viðamiklum verkefnum sínum í faraldrinum, ásamt því að gefa okkur innsýn í bakgrunn sinn, en báðar urðu stjórnendur bráðungar og hafa ólíkar áherslur. Önnur er hjúkrunarfræðingur að upplagi meðan hin er geislafræðingur með sér brennandi áhuga á markaðsmálum. Gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala, sem dælir þessar vikurnar út djúpum og löngum hlaðvörpum sem tengjast Covid-19. Verkefnið snýst um að tala við lykilfólk spítalans í faraldrinum á mismunandi sviðum og skrásetja frásagnir þess fyrir spjöld sögunnar í ítarlegu máli til gagns og lærdóms þegar fram í sækir. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp
Ásdís Elfarsdóttir Jelle, deildarstjóri og hjúkrunarfræðingur: Starfsemi sýkingavarnadeildar Landspítala á tímum COVID-19

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 4, 2020 68:53


Hjúkrunarfræðingurinn Ásdís Elfarsdóttir Jelle er deildarstjóri sýkingavarnadeildar Landspítala, sem hefur gegnt algjöru lykilhlutverki í undirbúningi og starfsemi spítalans í COVID-19-faraldrinum. Ádís er gestur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Hún hefur unnið innan heilbrigðiskerfisins frá árinu 1980 og sinnt þar fjölbreyttum störfum. Sýkingavarnadeild tilheyrir sviði framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Landspítali dælir þessar vikurnar út djúpum og löngum hlaðvörpum sem tengjast COVID-19. Verkefnið snýst um að tala við lykilfólk spítalans í faraldrinum á mismunandi sviðum og skrásetja frásagnir þess fyrir spjöld sögunnar í ítarlegu máli til gagns og lærdóms þegar fram í sækir.

Morgunútvarpið
12. des. - Veður, old boys, TM, RARIK og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2019


Að sögn viðbragsaðila um allt land hefur það skipt miklu máli að fólk hafi farið eftir leiðbeiningum og haldið sig heima á meðan óveðrið gekk yfir. Þannig náðu björgunaraðilar að einbeita sér að mest aðkallandi verkefnum og komist greiðlega leiðar sinnar í neyðartilfellum. Gígja Hólmgeirsdóttir fór og hitti Pálma Óskarsson, forstöðulækni bráðamóttökunnar á Sjúkrahúsinu á Akureyri, og spurði hann hvernig starfsemin hafi gengið fyrir sig á spítalanum í óveðrinu og ófærðinni síðustu daga. Við hringdum norður á Bessastaði í Húnaþingi Vestra og heyrðum í Guðnýju Helgu Björnsdóttur bónda, en þar hefur verið rafmagnslaust síðan á þriðjudag. Ekki hefur verið hægt að mjólka kýrnar, um þúsund lítrum af mjólk verið hellt niður og veðurofsinn valdið tjóni. TM ætlar að skora bankana á hólm og stefnir á að fá viðskiptabankaleyfi fyrir næsta sumar. Ekki er stefnt á alhliða þjónustu til að byrja með heldur að bjóða innlán. Sigurður Viðarson, forstjóri TM, fór yfir áætlanir tryggingafélagsins í Morgunútvarpinu, en hann segir tryggingafélagið taka þetta skref þar sem mörkin á milli banka, trygginga og lífeyrissjóða séu að verða óskýr. Knattspyrnufélagið Þróttur heldur úti gríðarlega öflugu Old Boys liði. Vel á annað hundrað manns æfa þar saman og æfingar falla aldrei niður... ja eða eiginlega aldrei. Þeir æfðu meira að segja í bylnum sl. þriðjudagskvöld og þar mætti einn til leiks á hjóli. Stefán Hrafn Hagalín er einn þessara öflugu Þróttara og hann kíkti til okkar og sagði okkur meira af ævintýrum eldri Þróttara. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, kom til okkar en mikið rafmagnsleysi á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum í óveðrinu sem gekk yfir landið hefur vakið upp spurningar um hversu gott raforkukerfið er í landinu og hvort grípa þurfi til stórra aðgerða til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Rafmagnsleysið hefur haft áhrif á fjarskipti, húshitun, atvinnurekstur og dæmi eru um að heilbrigðisstofnanir hafi verið án rafmagns í einhver tíma. Við ræddum íslenskt mál að venju á fimmtudögum þegar Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar. Við sögu komu orðið afneitunarsinni, orð ársins og fleira. Tónlist: Ragnar Bjarnason - Er líða fer að jólum. Robbie Williams - Time for change. Kenny og Dolly - Ill be home for Christmas. John Mayer - Queen of California. Lay Low - Gleym mér ei.

Landspítali hlaðvarp
Anna Sigríður Guðnadóttir og Inga Ágústsdóttir: Heilbrigðisvísindabókasafnið, MR, stjórnmálaþátttakan og Íslandsmetið í langstökki án atrennu

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Nov 10, 2019 58:47


Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru tveir starfsmenn Heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala og Háskóla Íslands, þær Anna Sigríður Guðnadóttir verkefnastjóri safnsins og Inga Ágústsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur. Við sögu koma safnið, bakgrunnur Önnu Sigríðar og Ingu og mikilvægi virkrar þátttöku í þjóðmálaumræðunni. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem tekur viðtalið. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Markmið Heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala og Háskóla Íslands er að veita starfsfólki spítalans sem og nemendum og kennurum við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans aðgang að þeim vísindalegu og klínísku upplýsingum og þekkingu sem það þarf í námi og starfi. Þjónusta bókasafnsins er nokkuð víðtæk og stendur ekki bara starfsfólki spítalans og Háskólans til boða, heldur einnig almenningi; sér í lagi sjúklingum og aðstandendum þeirra. Þess má geta að Heilbrigðisvísindabókasafnið er staðsett í Eirbergi í Landspítalaþorpinu við Hringbraut. Það er opið alla virka daga frá klukkan 8 til 16. Síminn er 543 1450. Smelltu hérna til að skoða vefsvæði safnsins: https://bokasafn.landspitali.is/forsida/

Landspítali hlaðvarp
Arabella Samúelsdóttir og Árný Ósk Árnadóttir: Tónlistin, blakið, fjölskyldan og og nýja móttökumiðstöðin fyrir starfsfólk Landspítala

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Oct 31, 2019 37:14


Gestir hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru þær Arabella Samúelsdóttir og Árný Ósk Árnadóttir. Tónlistarkonan Bella er úr Bökkunum, en blakarinn Árný er frá Ólafsfirði. Báðar eru verkefnastjórar hjá skrifstofu mannauðsmála og menntaðar í sálfræði með framhaldsnám í mannauðsstjórnun. Umræðuefnin eru bakgrunnur þeirra, helstu verkefni á Landspítala og splunkuný móttökumiðstöð fyrir nýtt starfsfólk spítalans, en um 1.500 manns hefja störf árlega á þessum 6.000 manna vinnustað. Föstudaginn 1. nóvember var sem sagt opnuð móttökumiðstöð fyrir nýtt starfsfólk Landspítala og er hún til að húsa að Skaftahlíð 24 í Reykjavík. Markmiðið með móttökumiðstöðinni er meðal annars að safna á einn stað miðlægri þjónustu við nýtt starfsfólk, þannig að það mæti á sínar einingar betur undirbúið til starfa en áður hefur verið. Í móttökumiðstöðinni verða ýmis praktísk mál afgreidd, svo sem myndataka, auðkenniskort og aðgangsmál, ásamt aðalatriðum sem varða upplýsingatækni og helstu kerfi, auk þess sem starfsmenn hitta starfsmannahjúkrunarfræðinga sem fara yfir bólusetningar og meta þörf fyrir frekari skimun, fá almenna nýliðafræðslu og skoða fjölmörg myndskeið um starfsemina. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Arabellu og Árnýju Ósk. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vefsvæðum og samfélagsmiðlum spítalans, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp
Bára og Berglind : Vinnuvernd, móttökumiðstöð og önnur risaverkefni hjá mannauðssviði Landspítala á haustönn 2019

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Oct 1, 2019 39:44


Stærstu verkefni mannauðssviðs Landspítala á haustönn 2019 lúta að október sem mánuði vinnuverndar, jafnlaunavottun, samskiptasáttmála, viðverustefna, vellíðan í vaktavinnu og stofnun miðlægrar móttökustöðvar í Skaftahlíð fyrir nýtt starfsfólk Landspítala, en sú tala nemur um 1.500 manns ár hvert á þessum vinnustað 6.000 manna. Einnig er núna hugað sérstaklega að þjálfun starfsfólks af erlendu bergi brotnu. Stefnukönnun, stjórnendamat, aðhaldsaðgerðir, stjórnendaþjálfun, átök á vinnumarkaði og skipuritsbreytingar eru sömuleiðis á dagskrá. Að ógleymdri inflúensunni. Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru Bára Hildur Jóhannsdóttir deildarstjóri hjá mannauðssviði og Berglind Helgadóttir starfsmannasjúkraþjálfari og verkefnastjóri hjá sama sviði. Bára Hildur og Berglind fara hérna yfir þessi risavöxnu verkefni. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við þær stöllur. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp
Keli ljósmyndari: Ekki bara fjallgöngur, peningasmygl og stríðsátök, heldur líka Mogginn, klínískar myndatökur og hugsjónastarf

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Sep 18, 2019 68:20


Þorkell Þorkelsson er ljósmyndari Landspítala. Alltaf kallaður Keli. Í hlaðvarpi Landspítala segir okkar maður frá því hvernig hann myndaði bumbur 4 ára að aldri, gekk sem táningur á Mont Blanc í strigaskóm og fékk seinna starfsfólk Moggans til að smygla fyrir sig dollurum í ársskýrslu Seðlabankans til Afríku. Keli hefur átt viðburðaríkan starfsferil með óteljandi hápunkta. Hann hefur myndað jarðarfarir glæpamanna á Írlandi og skrásett hjálparstarf og stríðsátök víða um veröld. Hin síðari ár hefur hann meðal annars flogið með myndasmiði til Indlands, Kambódíu og Madagaskar. Kappinn tilheyrir skipulagslega vísindadeild, sem er á sviði framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Helstu verkefni hans á Landspítala lúta að klínískum myndatökum, en samhliða vinnur hann talsvert með samskiptadeild við að mynda viðburði, starfsemi og mannauð spítalans með ýmsum hætti. Hann skautar hérna yfir ferilinn og segir okkur í leiðinni smávegis frá manninum bak við linsuna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Kela. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp
Tómas Þór: Framhaldsmenntun, sykursýki, neikvæðni og skrautfiskar

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Aug 30, 2019 73:42


Tómas Þór Ágústsson er sérfræðingur í lyf- og innkirtlalækningum og formaður framhaldsmenntunarráðs lækninga á Landspítala. Tómas Þór ræðir hér sérgrein sína og verkefnin hjá ráðinu, ásamt því að velta vöngum yfir neikvæðri umræðu um framúrskarandi heilbrigðiskerfi og Landspítala, sem hann segir frábæran vinnustað. Að endingu segir hann frá ástríðu sinni: skrautfiskaræktun. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Tómas Þór. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Andri Konráðsson, Gylfi Ólafsson og Kristjana Milla Snorradóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019 62:24


Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sér um alhliða heilbrigðisþjónustu í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum eða nánar tiltekið Bolungarvík, Ísafirði, Súðavík, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð. Um er að ræða sjúkrahús, heilsugæslur og öldrunarþjónustu, sem saman mynda stærsta einstaka vinnustað Vestfjarða með 250 starfsmenn. "Sjúkrahús allra landsmanna" var yfirskrift ársfundar Landspítala vorið 2019, en þar var meðal annars fjallað um aukið samstarf og vilja til meiri samþættingar í íslenska heilbrigðiskerfinu. Í þeim anda brugðu útsendarar fréttastofu Landspítala sér vestur á firði á dögunum í þeim erindagjörðum að taka upp hlaðvarp og framleiða nokkrar fréttir um starfsemi hinnar framsæknu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Þau Andri Konráðsson framkvæmdastjóri lækninga, Gylfi Ólafsson forstjóri og Kristjana Milla Snorradóttir mannauðs- og rekstrarstjóri sem segja hér frá vinnustaðnum og verkefnum hans, ásamt því að gefa smávegis innsýn í bakgrunn sinn og uppruna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Andra, Gylfa og Millu. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp
Samskiptasáttmáli Landspítala - Ásta Bjarnadóttir og Hulda Dóra Styrmisdóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 7, 2019 53:39


Mannauðssvið Landspítala hefur undanfarin misseri unnið hörðum höndum að innleiðingu samskiptasáttmála, sem 700 starfsmenn spítalans þróuðu á 50 vinnufundum. Tilgangur sáttmálans er að efla samvinnu og styrkja virðingu og öryggi í samskiptum og þjónustu innan spítalans. Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs og Hulda Dóra Styrmisdóttir verkefnastjóri hjá sviðinu segja hér frá innleiðingunni og stilla sér inn á sviðið með því að gefa smávegis innsýn í bakgrunn sinn og uppruna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Ástu og Huldu Dóru. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Vefsvæði samskiptasáttmálans með ítarlegu efni, bæklingum og veggspjöldum er að finna hérna: http://www.landspitali.is/samskiptasattmali

Landspítali hlaðvarp
Vellíðan í vaktavinnu - Bára Hildur Jóhannsdóttir og Berglind Helgadóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 5, 2019 38:24


Mannauðssvið Landspítala hefur núna ræst verkefnið "Vellíðan í vaktavinnu". Markmið þess er að bæta vinnuskipulag og niðurröðun vakta, styrkja gæði vaktaáætlana og auka vitund starfsfólks um þætti, sem dregið geta úr vinnutengdu álagi og eflt heilsu og vellíðan. Inn í fræðsluna koma atriði á borð við næring, hreyfing, svefn og lífsstíll almennt. Jafnframt verður kennt að gera betri vaktaáætlanir. Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru Hafnfirðingurinn Bára Hildur Jóhannsdóttir deildarstjóri hjá mannauðssviði og Kópavogsbúinn Berglind Helgadóttir starfsmannasjúkraþjálfari hjá sama sviði. Fræðsluvefur um "Vellíðan í vaktavinnu" er hérna: https://www.landspitali.is/um-landspitala/fyrir-starfsfolk/vellidan-i-vaktavinnu/ Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Báru og Berglind. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunni Spotify og hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Unnið er að tengingu við Apple iTunes.

Landspítali hlaðvarp
Hjúkrun - Marta Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður hjúkrunarráðs

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Mar 29, 2019 55:08


Ísfirðingurinn Marta Jónsdóttir var fyrsta konan til að keppa löglega í ólympískum hnefaleikum og starfaði áður sem dyravörður á hinum goðsagnakennda bar Sirkus við Klapparstíg í Reykjavík. Eftir hefðbundna útúrdúra æskufólks í vinnu og námi smellti hún sér hins vegar í hjúkrun og er í dag verkefnastjóri hjá menntadeild Landspítala auk þess að vera formaður hjúkrunarráðs og taka stöku vaktir í faginu. Hlutverk hjúkrunarráðs er að vera faglegur ráðgefandi og upplýsandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga, ljósmæður og stjórnendur jafnt spítalans sem annarra eininga í heilbrigðiskerfinu. Hjúkrunarráð tekur þátt sömuleiðis í fjölbreytni þróunarvinnu innan spítalans. Marta er með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) og vinnur nú að annarri meistaragráðu í stjórnun, ásamt því að hafa lagt drög að doktorsnámi í náinni framtíð. Það er trauðla hægt að finna skemmtilegri viðmælanda um hjúkrun eins og Stefán Hrafn Hagalín og Ásvaldur Kristjánsson komust að í nýjasta hlaðvarpi Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en auðvitað líka í streymisveitunni Spotify og hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Unnið er að tengingu við Apple iTunes.

Landspítali hlaðvarp
Hans Tómas Björnsson

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Jan 31, 2019 60:12


Þeir Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum og Stefán Hrafn Hagalín deildarstjóri samskiptadeildar Landspítala ræða við Hans Tómas Björnsson yfirlækni sameinda- og læknisfræðideildar Landspítala.