POPULARITY
Lestin í dag er tileinkuð vídjóleigum. Nú um mánaðarmót lokar Aðalvídjóleigan á Klapparstíg og þar með lýkur 45 ára sögu vídjóleigunnar á Íslandi. Við heyrum í fastagestum, eigendum og fyrrum starfsfólki vídjóleiga í tilraun til þess að kortleggja söguna og heiðra minningu vídjóleigunnar, sem var í senn menningarstofnun, félagsmiðstöð og kvikmyndaskóli.

Í Berg Contemporary við Klapparstíg var opnuð um liðna helgi sýningin Kerfi þar sem ný verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur myndlistarkonu eru til sýnis. Verkin á sýningunni eru þrenns konar: þarna er vídeóverk þar sem þrír litir blandast saman á vatnsyfirborði, í öðru verki rúlla hvítir og svartir textar yfir vegginn á plastrúllum, og svo eru þarna stór pappírs verk, sem ná frá gólfi og upp í loft. Meira um það þegar við göngum um sýninguna með Heklu Dögg í þætti dagsins. Og svo ætlum við að velta fyrir okkur hugmyndinni um prinsessuna. Goðsögnin um hina hreinu og duglegu prinsessu, prúðu og iðnu stúlkuna, sem Grimmsbræður festu á blað, og sem Disney verkmsiðjan festi svo enn betur í sessi í samtíma okkar, lifir enn góðu lífi, en afhverju? Austurríska nóbelskáldið Elfriede Jelinek tekst á við þessar spurningar í Prinsessuleikunum, verki sem Borgarleikhúsið frumsýnir um næstu helgi í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Una verður gestur okkar í dag. Á fimmtudaginn síðasta var samþykkt á Alþingi að veita 21 einstaklingi ríkisborgararétt. Athygli vakti að meðal þeirra er bandaríska listakonan Roni Horn sem sannarlega má setja í flokk svokallaðra Íslandsvina eftir áralöng tengsl hennar við land og þjóð. Af þessu tilefni ætlum við að hverfa aftur til ársins 2007, og rifja upp viðtal við listakonuna, sem ræddi þá meðal annars um áhrif Íslands á list hennar, efnahagsmálin sem þá voru á blússandi siglingu og náttúruvernd svo eitthvað sé nefnt.

Almennt var búist við að aðildarumsókn Svía og Finna gengi greiðlega í gegn, en raunin er önnur sökum andstöðu Erdogans Tyrklandsforseta. 29 já mega sín lítils gegn einu nei-i frá Ankara. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, þekkir vel til Nató og varnarsamstarfs, og ræddi þessi mál. Í síðustu viku var nýtt nafn samþykkt fyrir sameinað sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. Það mun heita sveitarfélagið Stykkishólmur. Og þar er nóg um að vera, eins og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari Fjölbrautarskóla Snæfellinga og forseti bæjarstjórnar Stykkishólms, sagði okkur frá. Svo fjölluðum við um snóker. Við heyrðum um mikinn áhuga Sverris Guðjónssonar söngvara á snóker. Hann var í Lundúnum á dögunum að fylgjast með keppni þeirra bestu. Hann sagði frá ferðalaginu og rifjaði upp sögur af billanum á Klapparstíg frá í gamla daga. Gígja Hólmgeirsdóttir skyggndist á bak við tjöldin í Samkomuhúsinu á Akureyri á föstudagskvöld, rétt fyrir frumsýningu á söngleiknum Chicaco. Tónlist: Suicide is painless - MASH

Á fimmtudag bárust þær fréttir að bronsstyttu eftir einn helsta myndhöggvara íslands Ásmund sveinsson hafi verið stolið af stalli sínum á Snæfellsnesi. Styttan sem er af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra nefnist Fyrst hvíta móðirin í Ameríku. Tveimur dögum síðar kom styttan í leitirnar þegar nýtt útilistaverk var afhjúpað á bílastæði í Reykjavík, þar fannst Guðríður inni í brotajárnsgeimflaug. Við ræðum við listakonurnar Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur um Fystu hvítu móðurina í geimnum. Skemmtistaðurinn Sirkús var opnaður á nýjan leik í Reykjavík þann 1.apríl á Lækjargötu 6, um 14 árum eftir að hann lokaði á Klapparstíg 30. Við ræðum við fyrrum fastagesti staðarins í von um að skilja betur goðsögnina um þennan stað sem er og var elskaður af fastagestum. Sænski rapparinn Yung Lean gaf á dögunum út blandspólu, mixteip sem ber titilinn Stardust. Nanna Kristjánsdóttir rýnir í þetta nýjasta verk Yung Lean.

Í Víðsjá dagsins verður rætt við Einar Fal Ingólfsson ljósmyndara um sýningu hans Um tíma ? dagbók 20 mánaða sem nú er hægt að skoða í Berg Contemporary galleríinu við Klapparstíg. Tveir prófessorar við Háskóla Íslands, þau Gunnar Þór Jóhannesson og Katrín Anna Lund segja frá ritinu Áfangastaðir ? í stuttu máli sem nýlega kom út og fjallar um uppbyggingu ferðamannastaða og tengsl náttúru og menningar, ekki síst á Ströndum. Víðsjá ferðast líka í huganum aftur í tímann og lítur inn á Hótel Borg við Austurvöll sem opnað var á þessum degi, 19. Janúar, árið 1930. Umsjón: Guðni Tómasson og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.

Hjónin Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur eru gestir þáttarins í dag. Innan skamms er bók þeirra um Laugaveg í Reykjavík væntanleg og segir sögu húsanna og fólksins sem bæði bjó og rak ýmis konar fyrirtæki. Í bókinni er rakin saga húsa við Laugaveg, frá Hlemmi að Lækjargötu. Guðni og Anna Dröfn gáfu út bókina Reykjavík sem aldrei varð fyrir nokkrum árum. Rætt er við þau og tekin göngutúr niður Laugaveg frá Klapparstíg, sagt frá húsum, arkitektum, fyrirtækjum og búsetu - en Laugavegur var fyrst og fremst íbúagata í upphafi.

Í þætti dagsins hugum við að fönkaðri og kraftmikilli klúbbatónlist þýsk-rúmenska tónskáldsins, hljómsveitarstjórans og básúnuleikarans Peters Herbolzheimer. En nú á miðvikudaginn, þann 22. september stígur Stórsveit Reykjavíkur á stokk í Flóa í Hörpu undir stjórn Samúels Jóns Samúelssonar og leikur verk eftir þetta magnaða tónskáld. Samúel kíkir til okkar í hljóðstofu og segir frá kynnum sínum af Peter Herbolzheimer og komandi tónleikum. Við heimsækjum líka BERG Contemporary galleríið við Klapparstíg en þar var opnuð um helgina sýningin Upphafið er í miðjunni eða In media Res. Þar sýnir Hulda Stefánsdóttir listmálari verk sín en í hugmyndafræði sinni og leit og umfjöllun um málverkið sem miðil teyjir Hulda sig jafnt aftur í forneskju hellamálverkanna og inn í framtíð þessa heillandi listmiðils. Arnljótur Sigurðsson býður fram tónlistarhornið sitt góða Heyrandi nær og tekur að þessu sinni upp þráðinn frá því í síðustu. Við heyrum af vangaveltum og sögugrúski Arnljóts um um tengsl skákar og lista, með tilliti til samtíðarmannanna Sergeis Prokofievs og Marcels Duchamp. Og við minnumst Vilborgar Dagbjartsdóttur sem féll frá síðastliðinn fimmtudag. Við rifjum upp feril hennar og heyrum upplestur hennar á tveimur ljóðum í þætti dagsins. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars farið í heimsókn í hús númer 18 við Laugaveg í miðborg Reykjavíkur þar sem bókabúð Máls og menningar var lengi starfrækt. Ný bókabúð verður opnuð þar í apríl ef allt gengur að óskum en Ari Gísli Bragason, gjarnan kenndur við fornbókabúðina Bókina við Klapparstíg, er nú í óða önn ásamt sínu fólki að koma sér fyrir í húsinu með mikinn bókakost og raunar margt fleira, rætt verður við Ara Gísla í Víðsjá í dag. María Elísabet Bragadóttir rithöfundur færir hlustendum Sannleikskorn eins og hún hefur gert í Víðsjá undanfarna fimmtudaga. Í dag fjallar María um hugrekki, um yfirborðið undir yfirborðinu, og það að sitja föst í stórum tebolla. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um ljóðabókina Handbók um ómerktar undankomuleiðir eftir Anton Helga Jónsson. Og loks koma við sögu í Víðsjá dagsins skóari stjarnanna og verðmætustu frímerki veraldar.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Kristínu Loftsdóttur mannfræðing um forvitnilegt brjóstmyndasafn El Museo Canario á Kanaríeyjum. Kristín ritar grein um safnið í nýútkomnu Riti, sem er rafrænt tímarit Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Farið verður í heimsókn í fornbókabúðina Bókina við Klapparstíg í Reykjavík og fræðst um það hvaða rit eru vinsælust á fornbókamarkaðnum í dag. Ný kvöldsaga hefst á Rás eitt á föstudag, Egils saga og það er Torfi Tulinius sem les. Torfi mun fylgja sögunni úr hlaði og ræða um hana í Víðsjá á næstu vikum. Í dag svarar hann spurningunni: Um hvað fjallar Egils saga? Og dularfull símhringing kemur einnig við sögu í Víðsjá í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.

Útsending frá Klapparstíg 26 þar sem hluti af starfsemi Ríkisútvarpsins var um tíma. Í þættinum eru leiknar klippur úr upptökum frá hinum ýmsu tímum . Viuðmælendur: Kári Jónasson fyrrverandi fréttastjóri Páll Bergþórsson fyrrverandi veðurstofustjóri.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars komið við í Þjóðarbókhlöðunni og skoðuð sýning sem opnuð var á fimmtudag en þar má nú skoða útgáfur listahópsins Medúsu sem nú eru orðnar hluti af bókverkasafni Landsbókasafnsins. Súrrealistahópurinn Medúsa var stofnaður af nokkrum nemendum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í árslok 1979, var starfandi í sjö ár og gaf á þeim tíma út ljóðabækur, hljóðsnældur, smásögur, póstkort, veggspjöld og bæklinga svo nokkuð sé nefnt. Auk þess sem hópurinn stóð fyrir ljóðaupplestrum, tónleikum og gjörningum og rak galleríið Skruggubúð við Suðurgötu í tvö ár. Ólafur J. Engilbertsson, einn af meðlimum Medúsu og sýningarstjóri, verður tekinn tali í Víðsjá í dag. Einnig verður hugað að silfurbergi og myndlist sem er innblásin af því, en myndlistarkonurnar Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Selma Hreggviðsdóttir hafa verið með hugann við silfurberg að undanförnu og sýna nú verk sín á sýningunni Ljósvaki /Æther 1.0.1 í Berg Contemporary gallerí við Klapparstíg. Björn Þór Vilhjálmsson bókmenntagagnrýnandi rýnir í dag í bókina Stjörnur og stórveldi á leiksviðum Reykjavíkur 1925-1965 eftir Jón Viðar Jónsson, en Jón hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir þetta verk í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Í bókinni beitir Jón nýstárlegum aðferðum til að varpa ljósi á merkan kafla í íslenskri leiklistarsögu, segir sögu allra helstu leikara tímabilsins, greinir frá sigrum þeirra og ósigrum jafnframt því sem hann gerir valdabaráttunni að tjaldabaki ítarleg skil. Og Björn Þorsteinsson prófessor í heimspeki glímir á miðvikudögum í Víðsjá í febrúar, í upphafi nýs áratugar, við spurninguna: Hvað nú? Björn fjallar í pistlum sínum um heimsendi eða enda veraldarinnar, og spyr: Hvað eigum við að gera á meðan við bíðum? Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Hátalarinn heimsækir þrjár plötubúðir í miðbæ Reykjavíkur og ræðir við starfsmenn þar um hvað þeir hlusta á um jólin og hvernig þeir ráðleggja viðskiptavinum sínum í tónlistarvalinu. Tumi Árnason var í Reykjavík Records við Klapparstíg, Lárus Jóhannesson í 12 tónum við Skólavörðustíg og Ólafur Sverrir Traustason í Smekkleysu við Óðinsgötu.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Pétur Gunnarsson rithöfund sem hefur sent frá sér bókina HKL - Ástarsaga, þar sem dregin er upp mynd af Halldóri Laxness ungum, fjallað um ástir hans og lífsátök, og meðal annars birt brot úr bréfum sem fóru á milli hans og ástkvenna hans á þriðja áratugnum. Víða er leitað fanga í þessu verki, í einkabréfum, minnisbókum, tímaritum og í þeim verkum Halldórs þar sem hann fjallar um sín mótunarár. Berg Contemporary-gallerí við Klapparstíg verður heimsótt en þar sýnir Páll Haukur Björnsson verk á sýningunni Loforð um landslag. Og Snæbjörn Brynjarsson fjallar um hátíð sem nýútskrifaðir sviðslistanemar stóðu fyrir um helgina í Bankastræti 0, undir yfirskriftinni Safe fest. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
Í Víðsjá í dag heimsækir Víðsjá tvær myndlistarsýningar sem segja má að séu á andlega sviðinu, annars vegar er það einkasýning Styrmis Arnar Guðmundssonar í Berg Contemporary gallerí við Klapparstíg. Sýninguna kallar Styrmir Örn Þrettánda mánuðinn en þar gefur meðal annars að líta, fljúgandi geimverur, huglægt sjálfuprik og flennistórar teikningar innblásnar að sýnum þeirra sem nærri eru dánir. Hin sýningin heitir Fullt af litlu fólki og verður opnuð í Gerðarsafni á morgun fimmtudag. Þar gefur að líta verk fjölmargra listamanna, innlendra og erlendra, sem eiga það sameiginlegt að hafa leitað hins andlega í listum. Rætt verður við tvo sýningarstjóranna Guðrúnu Veru Hjartardóttur og Sigrúnu Halldóru Gunnarsdóttur. Og við spyrjum: Vill einhver elska 49 ára gamlan mann? Tónlistarmaðurinn Egill Ólafsson segir að gefnu tilefni söguna á bakvið samnefnt lag Þursaflokksins sem kom út á plötu árið 1982, við tölum um miðaldurskrísu í Víðsjá í dag. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson
GusGus – DavidBagettulitað hold. Frönsk retrófútúrísk hraðlest. Þunnur maður með þýska nýbylgju á VHS undir hendinni. Klapparstígurinn í íslenskum september úða. Steppur Rússlands. Kampavín. Sunnudagsskóli. Lamadýr. Strandsalt hár. Drukkið úr kaleik. Tjaldbúðir. Dulur. Slæður. Flautur. Skálabumbur. Syndir. Fjármálastjóri Airbus sýpur brimsalta ostru og askar sígauna ofan í tvíhnepptan ullarblazer. Veröldin er taflborð, svarthvít Fassbinder kameruól […]
Gestir Lestarklefans voru þau Nathalía Druzin Halldórsdóttir óperusöngkona, Hrund Ólafsdóttir bókmenntafræðingur og Curver Thoroddsen tónlistar- og myndlistarmaður. Rætt var um nýjustu plötu hljómsveitarinnar ADHD, nýtt úrval ljóða úr ljóðabókaseríunni Meðgönguljóð og myndlistarsýninguna Louder than Bombs í galleríinu Berg Contemporary við Klapparstíg. Umsjón: Guðni Tómasson

Birgir Snæbjörn Birgisson segir frá sýningunni Louder than bombs sem finna má í Berg Contemporary galleríi við Klapparstíg og hefur að geyma verk hans og tveggja finnskra listamanna Heidi Lampenius og Miikka Vaskola. Þórdís Bachmann þýðandi segir frá bókinni Fahrenheit 451 eftir Ray Bradbury sem er bók vikunnar að þessu sinni. Þetta er ein þekktasta vísindaskáldsaga 20. aldarinnar en ný íslensk þýðing kom út á dögunum. Svo koma til okkar í heimsókn Reynir Hauksson, flamengogítarleikari búsettur í Andalúsíu og Jacób de Carmen söngvari og félagi hans. Þeir ætla að syngja og leika flamengo tónlist í Salnum í Kópavogi og víðar um land næstu daga. Kristinn Már Pálmason segir frá myndlistarsýningunni Sensible Structures í Kling og Bang.
Ísfirðingurinn Marta Jónsdóttir var fyrsta konan til að keppa löglega í ólympískum hnefaleikum og starfaði áður sem dyravörður á hinum goðsagnakennda bar Sirkus við Klapparstíg í Reykjavík. Eftir hefðbundna útúrdúra æskufólks í vinnu og námi smellti hún sér hins vegar í hjúkrun og er í dag verkefnastjóri hjá menntadeild Landspítala auk þess að vera formaður hjúkrunarráðs og taka stöku vaktir í faginu. Hlutverk hjúkrunarráðs er að vera faglegur ráðgefandi og upplýsandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga, ljósmæður og stjórnendur jafnt spítalans sem annarra eininga í heilbrigðiskerfinu. Hjúkrunarráð tekur þátt sömuleiðis í fjölbreytni þróunarvinnu innan spítalans. Marta er með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) og vinnur nú að annarri meistaragráðu í stjórnun, ásamt því að hafa lagt drög að doktorsnámi í náinni framtíð. Það er trauðla hægt að finna skemmtilegri viðmælanda um hjúkrun eins og Stefán Hrafn Hagalín og Ásvaldur Kristjánsson komust að í nýjasta hlaðvarpi Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en auðvitað líka í streymisveitunni Spotify og hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Unnið er að tengingu við Apple iTunes.
Út er komið þriðja bindi af ritsafninu Smásögur heimsins, bindið hefur að geyma sögur frá Asíu og Eyjaálfu. Það eru þau Jón Karl Helgason, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Rúnar Helgi Vignisson sem hafa umsjón með útgáfunni en við ræðum við Rúnar Helga í þætti dagsins. Við heimsækjum Berg Contemporary galleríið við Klapparstíg þar sem bandaríski listmálarinn John Zurier verður tekinn tali en sýning með verkum hans var opnuð í galleríinu um síðustu helgi. Zurier dvelur nokkra mánuði á ári hér á landi og kallar sýningun sína Stundum (yfir mig fjallið). Ragnheiður Gestsdóttir myndlistarkona tekur áskorun vikunnar og velur sitt uppáhalds listaverk og Guðbjörg Jóhannesdóttir umhverfisheimspekingur flytur hlustendum sinn annan pistil. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
We visit an art exhibition held in a private home in downtown Reykjavík, and later talk with a few of the curators behind the 3 hour event. Before we end the episode, we dive into various periods of Iceland´s art history, with the help of Goddur.