POPULARITY
11. apríl 2024 Tveir sænskir sérfræðingar hafa verið fengnir til að vinna álit á krufningarskýrslu sem unnin var hér á landi vegna andláts konu á Selfossi fyrir ári síðan. Samstarf og stuðningur Evrópusambandsins við ríki þaðan sem flóttafólk og innflytjendur koma til Evrópu verður aukinn, til að draga úr þeim fjölda fólks sem sækist eftir hæli og dvalarleyfi í aðildaríkjum ESB. Félag íslenskra bókaútgefenda, FÍBÚT, fagnar þeim yfirgripsmiklu og metnaðarfullu áformum stjórnvalda sem birtast í þingályktunartillögu menningarmálaráðherra um nýja bókmenntastefnu en gjalda varhug við hugmyndum um fast verð á bókum og að halda skuli þeim frá streymisveitum í ákveðinn tíma eftir útgáfu.
Rætt er við flugmennina og feðgana Hjörvar Hans Bragason og Braga Sigþórsson sem nú reka Flugskóla Reykjavíkur (RFA.) Skólinn er nú sá eini sem kennir til atvinnuflugmannsréttinda hérlendis eftir að Flugakademía Keilis hætti rekstri. Þeir segja það alls ekki sjálfgefið að þessi rekstur gangi nema gott samstarf náist við flugfélögin, stjórnvöld og lánastofnanir. Rætt er um ýmis mál sem tengjast flugnáminu, samninginn við Keili, fjármögnun á flugnámi, cadet prógröm og fleira. Áhugavert og fræðandi spjall um stöðu flugnáms til atvinnuflugsréttinda á Íslandi í dag.
24. október 2023 Samstöðufundir vegna kvennaverkfallsins voru á dagskrá um allt land í dag. Fjölmennasti viðburðurinn var á Arnarhóli í Reykjavík, þar sem lögregla áætlar að á milli sjötíu til hundrað þúsund karlar, konur og kvár hafi komið saman. Heyrðist í Freyju Steingrímsdóttur, Ingu Straumland, Sigfríði Þorsteinsdóttur, Rögnu S. Óskarsdóttur, Örnu Sif Bjarnadóttur, Guðbjörgu Pálsdóttur, Sylwiu Zajkowsku, Gerði Steinþórsdóttur og Birni Kristjánssyni. Þingfundur var stuttur á Alþingi í dag vegna kvennaverkfallsins. Þar heyrðist í Ásmundi Friðrikssyni, varaforseta þingsins, og Guðmundi Andra Thorssyni alþingismanni. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna verða að hætta að sinna hjálparstarfi á Gaza frá og með morgundeginum vegna eldsneytisskorts. Volodomír Zelenský Úkraínuforseti hheitir því að halda áfram hernaðaraðgerðum gegn hernámsliði Rússa á Krímskaga. Yfirráð Rússa á svæðinu væru tálsýn. Stjórn sænska seðlabankans tilkynnti í dag að bankinn þurfi fjárveitingu upp á nær 80 milljarða sænskra króna, jafnvirði um 1.000 milljarða íslenskra króna, til að ná þeirri eiginfjárstöðu sem lög um bankann kveða á um. Ástæðurnar eru mikið tap bankans. Möguleikar á stjórnrmyndun á Spáni hafa aukist. New York er eitt þeirra ríkja Bandaríkjanna sem náð hefur hvað mestum árangri í baráttunni gegn launamisrétti, bæði milli kynja og eftir uppruna. Samstarf Íslands við Evrópusambandið um rannsóknir, nýsköpun, mennta og menningarstarf hefur um árabil skilað meira hingað en sem nemur framlagi íslenskra stjórnvalda, segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred.

Hey besties!! Long time, no Dilemma! Komum saman og spjöllum aðeins um vinkonu dilemma
Hefur þig ekki alltaf langað til að sjá Arnór Stein og Gunnar fíflast um með VR gleraugu? Í þætti vikunnar fengum við nefnilega PS VR 2 í láni frá vinum okkar hjá ProGamer.is og spiluðum slatta síðustu daga. Okkur fannst góð hugmynd að taka græjurnar með uppí stúdíó og taka upp hvað við lítum fáránlega út með gleraugun á smettinu. Við prófuðum leiki eins og Horizon: Call of the Mountain, Pavlov og Swordsman. Algjör gargandi snilld. Sjúklega skemmtilegur þáttur sem við hlökkum til að endurtaka einn daginn! Þátturinn er í boði Elko Gaming, Serrano og ProGamer.is
Við fræddumst um hvernig hinir ýmsu hópar, allt frá leikskólabörnum uppí háskólanema, eru fræddir um sögu og starfsemi Alþingis. Við fengum til okkar Helgu Einarsdóttur, fræðslustjóra á skrifstofu Alþingis, sem sagði okkur margt fróðlegt um fræðslustarf Alþingis. UNICEF á Íslandi og Moomin Character Ltd. í Finnlandi eru komin í samstarf, ævintýralegt samstarf er óhætt að segja því UNICEF fékk hönnunarteymi ÞYKJÓ og Ævar Þór Benediktsson, sendiherra UNICEF á Íslandi, með í lið að skapa upplifun fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Ævintýraferðalag byggt á Múmínsögu Tove Jansson, sem byggir á grunngildum um kærleika, umburðarlyndi, samkennd og ævintýri. Við fengum þau Sigríði Sunnu Reynisdóttir frá ÞYKJÓ og Friðrik Agna Árnason frá UNICEF til að segja okkur meira frá þessu verkefni í þættinum í dag. Elin Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í sitt vikulega veðurspjall í dag. Veðrið hefur alltaf spilað stórt hlutverk í lífi okkar Íslendinga, enda geta veður verið válynd hér á landi, sérstaklega á þessum árstíma og skjótt skipast veður í lofti og allt það. Eftir veðurblíðu undanfarið er að snöggkólna. Hún sagði okkur frá yfirstandandi kuldakasti í veðurspalli dagsins, því nú bregður svo við að það er kaldara sums staðar í Evrópu en á Íslandi. Tónlist í þættinum í dag: Það er svo skrýtið / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson og Vilhjálmur Vilhjálmsson) Áh kundu á tíðarhavi / Mikael Blak & Eivör Pálsdóttir (Hanus G. Johansen og Poul F. Joensen) Hope You?re Crying / Heiðrik á Heygum (Heiðrikur á Heygum og Sebastian Lundberg) Leyndarmál / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Þann 16.febrúar kemur sería 2 af sjónvarpsþáttunum #samstarf út á Stöð 2 & Stöð 2 +! En eins og þið flest vitið að þá eru það raunveruleikaþættirnir þeirra Sunnevu og Jóhönnu! Í tilefni af seríu 2 var tilvalið að fá Jóu aftur sem gest og leyfa Birtu að spyrja þær spjörunum úr um allt sem tengist þáttunum, gerðinni af þáttunum og við hverju við megum búast að sjá í þessari glænýju seríu! Þátturinn er í boði: Smitten - https://www.smitten.is/SFlt/tebodid Real Techniques Laugar Spa - https://organicskincare.is/ Natracare
Spegillinn, 17. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Ágreiningur um veiðigjald og hvernig megi hámarka hag samfélagsins af sjávarútvegi verður áfram þrætuepli, að mati Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem hefur tekið við sextíu bráðabirgðatillögum starfshópa og vonar að þær skerpi sýn. Lokatillögur þeirra koma í maí. Það kemur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar á óvart hversu víðtæk áhrif rafmagnsleysið á Suðurnesjum í gær hafði á alla innviði. Hann segir brýnt að styrkja þá. Það varði jafnvel þjóðaröryggi. Alexander Kristjánsson tók saman. Rannsókn lögreglu á hendur Skúla Tómasi Gunnlaugssyni, fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga sína í tilefnislausar lífslokameðferðir, er lokið. Mál hans verður sent til héraðssaksóknara síðar í þessum mánuði. Hann er grunaður í sex málum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá. Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann fyrir vörslu þúsunda mynda og myndbanda sem sýna barnaníð. Maðurinn hafði halað niður, skoðað eða dreift myndefninu sem meðal annars sýndi brot gegn mjög ungum börnum. Oddur Þórðarson tók saman. Hitastig gæti sveiflast um rúm tuttugu stig á næstu dögum. Tíu stiga hita og mikilli rigningu er spáð á sunnanverðu landinu á föstudaginn og Veðurstofa íhugar að gefa út viðvaranir vegna hláku segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur. Pétur Magnússon tók saman. ------------- Kvótakerfi verður enn við lýði, en meðal þess sem lagt er til í sextíu tillögum starfshópa Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um Auðlindina okkar, sem líklegt er að verði umdeilt er tillaga um hækkað veiðigjald, og breytingar á byggðakvóta og 5,3 prósenta kerfisins svokallaða sem og að auka gagnsæi í eignarhaldi og rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Bjarni Rúnarsson ræddi við Svandísi um tillögurnar. Norðurlönd - Afl til friðar er yfirskrift formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni sem hófst um áramótin. Hún er hinn opinberi samstarfsvettvangur stjórnvalda á Norðurlöndum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Guðmund Inga Guðbrandsson, samstarfsráðherra Norðurlanda og Karen Ellemann framkvæmdastjóra ráðherranefndarinnar.

Persónuvernd hefur komist að niðurstöðu í máli manns sem óskaði eftir því að fá leitarniðurstöður um sig fjarlægðar úr leitarvélum google. Niðurstaða Persónuverndar var sú að gengist væri við því að maðurinn ætti rétt á að gleymast. Eða að minnsta kosti að ákveðnar niðurstöður hyrfu. En hvernig ganga þessi mál fyrir sig og hversu sterkur er þessi réttur? Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ræðir við okkur. Ísland tók um áramótin við formennsku í norrænu ráðherranefndinni. VIð ætlum af því tilefni að ræða norrænt samstarf. Sumir vilja meina að blikur séu á lofti með það, í því sé minni slagkraftur og valdið lítið, norðurlöndin enda að halla sér í átt til annarra þjóða og alþjóðasamtaka. Er það gott eða slæmt og er tilefni hjá Íslandi til að nýta formennskuna í að snúa þessari þróun við? Ræðum við Hrannar B Arnarson formann Norræna félagsins á Íslandi Umhverfispistilll frá Bryndísi Marteinsdóttir

Ljósmyndarinn, hlaðvarpstjarnan og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall ásamt stórvinonu sinni dagskrárgerðakonunni, framleiðandanum og áhrifavaldinum Ingileif Friðriksdóttur.Helgi hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlunum en er hann meðal annars meðlimur einnar vinsælustu bloggsíðu landsins Trendnet.is ásamt því að vera vinsæll tískuljósmyndari og stjórnandi hlaðvarpsins Helgarspjallið.Ingileif hefur í nógu að snúast þessa daganna en fyrir utan að vera ólétt og að standa í framkvæmdum, rekur hún framleiðslufyrirtækið Ketchup productions og framleiða þau meðal annars sjónvarpsþættina LXS, Samstarf, Húgó og Afbrigði en er hún einmitt stjórnandi þess þáttar.Helgi og Ingileif hafa þróað með sér virkilega fallega vináttu í gegnum árin og eru þau mjög náin.Í þættinum ræddum við meðal annars um interventionið sem Ingileif og María tóku á Helga sem hann vill meina að hafi bjargað lífi sínu, brúðkaupsveislu Ingileifar sem Helgi veislustýrði með glæsibrag, hinseginleikann, vináttuna og margt fleira.Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:Brynjuís - https://brynjuis.is/Smitten - https://smittendating.com/
Ný þjóðhagsspá Íslandsbanka var til umfjöllunar í spjalli við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans. Bankinn spáir að verðbólga og vextir taki að lækka á næsta ári. Gjaldtaka af fiskeldi og eignir Íslendinga í útlöndum voru einnig til umfjöllunar. Íslendingar - eða íslenskir aðilar, eins og það er orðað í gögnum Hagstofunnar - eiga 676 milljarða króna í útlöndum og eru þá eignir lífeyissjóðanna ekki taldar með. Í Þýskalandsspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason frá nýútkominni bók þar sem fjölmiðlar fá á baukinn fyrir að gera ekki skil skoðunum og sjónarmiðum sem ekki þykja æskileg (e. main stream). Höfundar hennar átelja fjölmiðla fyrir að hleypa aðseins að skoðunum sem "fjöldinn" aðhyllist og stunda þannig skoðanakúgun. Bókin hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi. Aldarafmæli Norræna félagsins á Íslandi er fagnað um þessar mundir. Af því tilefni kom Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, varaformaður félagsins, í þáttinn og ræddi um ágæti norræns samstarfs. Tónlist: Julia - Bítlarnir, Hala ste ra ndermend per mu - Mazllum Mejzini, Nesten Hjemme - Ane Brun og Turab, Hvilelöse hjerte - Kim Larsen. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Segja má að nánast öll alþjóðleg samskipti við Rússa hafi lagst af eftir innrás þeirra í Úkraínu og vegna þeirra hörðu refsiaðgerða sem vestræn ríki hafa gripið til. Þetta gildi einnig um Norðurskautsráðið. Bogi Ágústsson ræddi við dr. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum norðurslóða. Bertelsen er danskur, prófessor við háskólann í Tromsø í Norður-Noregi en ólst upp að hluta á Íslandi. Hann er nýútnefndur Nansen gestaprófessor við Háskólann á Akureyri. Hann var fyrst spurður um áhrif innrásarinnar á samstarf á norðurslóðum og starf Norðurskautsráðsins. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi. Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, tilkynnti í byrjun seinasta árs að hefja skyldi undirbúning þess að skilja Garðyrkjuskólann frá Landbúnaðarháskóla Íslands og færa til Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Námið færist milli stofnananna frá og með næsta hausti. Í byrjun vikunnar var fjórum kennurum við skólann sagt upp störfum. Enginn fastráðinn kennari er því við garðyrkjunámið á Reykjum. Í Garðyrkjuskólanum eru um 100 nemendur, bæði í staðnámi og fjarnámi. Þeir kalla eftir því að skólinn verði sjálfstæður. En í morgun dró til tíðinda í málinu. Að loknum ríkisstjórnarfundi greindi Ásmundur Einar Daðason, mennta og barnamálaráðherra, frá því að samkomulag væri í höfn á milli hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Garðyrkjuskólinn verður áfram að Reykjum. Bjarni Rúnarsson fjallaði um málið. Um hundrað lögreglumenn eru sárir eftir alvarlegar óeirðir í fjölda sænskra borga. Yfirvöld segja glæpagengi standa að baki óeirðunum sem urðu í kjölfar kosningafunda og bókabrenna hægriöfgamannsins Rasmus Paludans. Kári Gylfason segir talar frá Gautaborg. Helstu atriði frétta: Bretar og Hollendingar ætla að taka þátt í rannsókn Alþjóða sakamála dómstólsins á meintum stríðsglæpum Rússa í Úkraínu. Aðalsaksóknari dómstólsins segir að litið sé á allt landið sem glæpavettvang. Níðstöng blasti við íbúum á Kjalarnesi í morgunb þar sem afskorið hestshöfuð var fest á girðingastaur. Íbúi lítur á stöngina sem hótun. Leikskólinn Furuskógur í Fossvogi er óstarfhæfur vegna myglusveppa. Starfsemin flyst yfir í Safarmýrarskóla, en foreldrar hafa einnig kallað eftir myglumælingum í því húsi. Garðyrkjuskólinn á Reykjum verður áfram starfræktur þar. Kennari við skólann kallar eftir því að uppsagnir kennara verði dregnar til baka. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum norðursl

Staða norræns samstarfs var til umfjöllunar á Degi Norðurlandanna. Hrannar B. Arnarsson, formaður Norræna félagsins, kom á Morgunvaktina og ræddi stöðuna. Vera Illugadóttir sagði okkur frá risavöxnum lystisnekkjum auðmanna, þá helst rússneskra. Sumar þeirra hafa verið gerðar upptækar í höfnum víða um heim eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Ágúst Ólafsson, fréttamaður RÚV á Akureyri ræddi sameiningarmál við tvo sveitarstjóra í sveitarfélögum sem brátt renna saman. Helga Héðinsson í Skútustaðahreppi og Dagbjörtu Jónsdóttur í Þingeyjarsveit. Tónlist: Dansevise - Grethe and Jørgen Ingmann Sakta Vi Gå Genom Stan ? Monika Zetterlund Islands in the stream ? Dolly Parton og Kenny Rogers Old Friends ? Tina Dico Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Sigríður Halldórsdóttir.

Vegna sóttkvíar og einangrunar stjórnenda Aukasendingarinnar var brugðið á það ráð að fresta hefðbundinni umfjöllun þáttarins um íslensku deildirnar fram í næstu vikur. Í staðinn var heyrt í formanni KKÍ Hannesi Jónssyni og hann spurður út í hin ýmsu málefni sem brenna á aðdáendum þessa dagana.Ræðir Hannes frekara samstarf Norðurlandana, frestanir tengdar kórónuveirufaraldrinum, færslu VÍS bikarkeppninnar fram í mars og hver staðan sé á nýjum þjóðarleikvang.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Starfshópur á vegum utanríkisráðuneytisins hefur lagt fram 30 tillögur um nánara samstarf Íslendinga og Færeyinga. Tillögurnar eru settar fram í skýrslu til utanríkisráðherra. Skýrslan var til umræðu á fundi Færeysk-íslenska viðskiptaráðsins. Meðal tillagna er að stofnað verði til samstarfsráðs milli Íslands og Færeyja, sem m.a. fái það hlutverk að vinna að framgangi tillagna hópsins. Bogi Ágústsson ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem skipaði starfshópinn, um skýrsluna, tillögurnar og samstarf og samvinnu þjóðanna. Um þetta var fjallað í Heimsglugga dagsins.

Fjöldatakmarkanir voru rýmkaðar á miðnætti, 500 manns mega koma saman, og 1500 ef allri framvísa hraðprófi, notast við grímur eða halda fjarlægð. Undantekning á þessu eru skólaskemmtanir, framhaldsskólaböllin, en þar mega framhaldsskólanemar loksins dansa í þvögu og jafnvel detta í góðan ballsleik. Við ræðum böll í Lest dagsins. Við rýnum í þrjár nýjar íslenskar þáttaraðir á Stöð 2. Allt léttir og hressandi mannslífsþættir með skvettu af raunveruleikasjónvarpi, gamanleik og fræðslu. Þetta eru Fyrsta blikið, Allskonar kynlíf og #Samstarf. Hvað á barnið að heita? Þetta er stór spurning í lífi verðandi foreldris og þar getur verið gott að grípa í fyrirmyndir. Í dag fáum við heimsókn frá móður ungrar stúlku með sterkt, feminískt, nígerískt nafn. Og við ræðum um klæðaburð stjarnanna á Met Gala-glamúrhátíðinni sem fór fram í vikunni

Þann 26.ágúst kemur sjónvarpsþátturinn #samstarf út á Stöð 2+! En það eru þættirnir hennar Sunnevu og Jóhönnu! Þess vegna var tilvalið að fá Jóu aftur sem gest og leyfa Birtu að spyrja þær spjörunum úr, um allt sem tengist þáttunum, gerðinni af þáttunum og við hverju við megum búast við að sjá! Þátturinn er í boði: Laugar Spa - https://organicskincare.is/ Fanta á Íslandi Við erum með skart frá myletra - https://www.myletra.is/
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var sérstakur gestur Heimsgluggans og Bogi Ágústsson ræddi við hann um grænlensk stjórnmál, námugröft á Grænlandi, sjaldgæfa málma, stórveldapólitík, sveitarstjórnarkosningar og möguleika Ingu Dóru Guðmundsdóttur Markussen að verða borgarstjóri í Nuuk. Sveitastjórnarkosningar verða í landinu í apríl. Ólga er í stjórnmálum á Grænlandi, í síðustu viku fækkaði stjórnarflokkunum úr þremur í tvo er Demakratiit hætti stjórnarþátttöku. Kim Kielsen, formaður Landsstjórnarinnar, er því nú í forystu minnihlutastjórnar. Aðeins 11 af 31 þingmanni styður nú stjórnina. Rætt hefur verið um nýjar kosningar en Össur segir að ekki sé víst að kosið verði að nýju. Össur var formaður nefndar sem gerði skýrsluna ?Samstarf Íslands og Grænlands á nýjum Norðurslóðum? að beiðni Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra. Skýrslunni var skilað í janúar. Í lokin bar afleiðingar Brexit á góma, en viðskipti með verðbréf eru nú meiri í kauphöllinni í Amsterdam en í Lundúnum sem lengi hefur verið miðstöð fjármálaviðskipta í Evrópu. Þetta er afleiðing þess að Brexit-saminngurinn nær ekki til þjónustuviðskipta. Douglas Alexander, fyrrverand Skotlandsmálaráðherra og viðskiptaráðherra í stjórn Verkamannaflokksins, segir að ensk þjóðernishyggja, Íhaldsflokkurinn og Boris Johnson hafi skaðað breska sambandið, UK, meir en skoskir þjóðernissinnar. Alexander sagði um Johnson að brunavargur væri væri jafn mikill brunavargur þó að hann heimsæki Skotland og þykist vera slökkviliðið.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Helga Þorgils Friðjónsson myndlistarmann um sýningu sem nú stendur yfir í Galleríi Göngum við Háteigskirkju í Reykjavík. Sýningin ber yfirskriftina 14 stöðvar, sjálfsmynd sem .... en þar sýnir Helgi fjórtán olíumálverk sem hann hefur unnið á síðustu sex árum og endurspegla hinar fjórtán stöðvar frá því að Kristur var dæmdur til dauða, leið hans með krossinn að Golgata, þar til hann var krossfestur, dáinn og grafinn. Í verkunum kallast Helgi á við mörg þekkt verk úr listasögunni, bæði vel þekkt og minna þekkt. Verslunin Hjarta Reykjavíkur við Laugarveg verður heimsótt og þar rætt við Ragnhildi Jóhanns myndlistarkonu um sýningu hennar Meðan blóðið er heitt sem var opnuð um nýliðna helgi. Það er ekki á hverjum degi sem fataauglýsingar fjalla um kynþáttafordóma, kyn, kyngervi og líf handan tvíhyggjunnar, en nýjasta afurð ítalska tískuhússins Gucci gerir einmitt það. Samstarf listræns stjórnanda Gucci, Alessandro Michele og bandaríska leikstjórans GUs Van Sant hefur vakið athygli. Halla Harðardóttir kynnti sér málið og við fáum að heyra betur af því í þætti dagsins. Og kvöldsagan á Rás 1 um þessar mundir er Egils saga, Víðsjá fylgist með lestrinum og skoðar söguna frá ýmsum sjónarhornum, í dag ræðir Torfi Tulinius um ráðgátuna Egil Skallagrímsson, persónueinkenni hans og fleira. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Í febrúar 2019 hitti ég Maríu Gunnarsdóttur tónmenntakennara sem þá starfaði í Hrafnagilsskóla. Hún hefur 20 ára reynslu sem tónmenntakennari. Um þessar mundir starfar María í Setbergsskóla í Hafnarfirði. Ég fylgdist með henni í tíma með nemendum þar sem María … Halda áfram að lesa →
Samstarf, bankarán, talandi glös og Skúli og margt fleira kemur fyrir í þættinum.
Viðskiptaritstjórar Fréttablaðsins og Morgunblaðsins segja að fæstir geri sér grein fyrir því hve staðan í íslensku atvinnulífi sé alvarleg. Framundan sé blóðugur tími, þar sem tugþúsundir missi vinnuna, mörg fyrirtæki verði gjaldþrota og átök verði í samfélaginu þegar fjármálastofnanir þurfi að ákveða hverjum skuli bjargað og hverjum ekki. Í Hlaðvarpi Viljans ræða þeir Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson við Björn Inga Hrafnsson um uppgjörið sem framundan er. Samstarf ríkisstjórnarflokkanna sé tekið að súrna, velta þurfi því upp hvernig Icelandair verði bjargað í samstarfi ríkisins, kröfuhafa og hluthafa og sá möguleiki verði skoðaður að setja félagið í þrot í núverandi mynd og reisa nýtt félag á nýrri kennitölu. Ekki sé hægt að reka félagið áfram með núgildandi kjarasamningum við áhafnir flugvéla fyrirtækisins. Þeir segja happ að forsvarsmönnum nýja flugfélagsins Play hafi ekki tekist að koma því í loftið áður en Kórónuveirufaraldurinn skall yfir og rústaði flugsamgöngum í heiminum. Opinberir starfsmenn þurfi að sæta einhverjum kjaraskerðingum til framtíðar eigi ekki að verða tvær þjóðir í landinu og grípa verði til niðurskurðar í opinberum rekstri.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sér um alhliða heilbrigðisþjónustu í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum eða nánar tiltekið Bolungarvík, Ísafirði, Súðavík, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð. Um er að ræða sjúkrahús, heilsugæslur og öldrunarþjónustu, sem saman mynda stærsta einstaka vinnustað Vestfjarða með 250 starfsmenn. "Sjúkrahús allra landsmanna" var yfirskrift ársfundar Landspítala vorið 2019, en þar var meðal annars fjallað um aukið samstarf og vilja til meiri samþættingar í íslenska heilbrigðiskerfinu. Í þeim anda brugðu útsendarar fréttastofu Landspítala sér vestur á firði á dögunum í þeim erindagjörðum að taka upp hlaðvarp og framleiða nokkrar fréttir um starfsemi hinnar framsæknu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Þau Andri Konráðsson framkvæmdastjóri lækninga, Gylfi Ólafsson forstjóri og Kristjana Milla Snorradóttir mannauðs- og rekstrarstjóri sem segja hér frá vinnustaðnum og verkefnum hans, ásamt því að gefa smávegis innsýn í bakgrunn sinn og uppruna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Andra, Gylfa og Millu. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Ragnheiður Gröndal er gestur þáttarins. Hún segir frá nýrri plötu sinni - Töfrabörn, og ræðir við umsjónarmann um eitt og annað sem tengist tónlistarsköpuninni. Samstarf við aðra listamenn og það að syngja á íslensku er meðal þess sem ber á góma innanum og saman við tónlist Ragheiðar.

Samstarf er grunnurinn að svo mörgu og það er þemað í þessum þætti. Fjölskyldan er hin venjulega birtingarmynd samstarfsins og í þessum þætti verður rætt við ólíkar fjölskyldur sem starfa að ólíkum verkefnum saman. Ein fjölskylda mannar sjúkrabílinn saman, önnur birtir myndlist undir sama listamannsnafninu. Einnig verður rætt við fólk sem á náið samstarf við dýrin enda er það elsta samstarf sem mannskepnan hefur átt í frá örófi alda. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Flestir körfuboltaunnendur á Íslandi kannast við að hafa skoðun á hinum eða þessum dómum í leikjum og telja sig eflaust geta staðið sig betur en margir dómarar á Íslandi. Því fer þó fjarri að þetta sé auðvelt starf og ljóst að mikla ástríðu þarf til að verða meðal fremstu og þekktustu dómara á Íslandi. Stuttu eftir áramót ræddi Karfan.is við þau Davíð Tómas Tómasson og Georgíu Olgu Kristiansen og reyndi að kafa ofan í störf þeirra. Það vita það kannski ekki allir, en þau eru systkini og hafa dæmt í rúman áratug á Íslandi (með hléum hér og þar). Við ræddum um dómarastarfið, erfiða dóma, samskipti við þjálfara og leikmenn og framtíðarhorfur dómarastéttarinnar á Íslandi ásamt öðru. Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson 0:00:00 - Kynning 0:00:45 - Hvar körfuboltaáhuginn byrjaði 0:11:40 - Hvenær færslan varð úr leikmanni yfir í dómara 0:19:30 - Munurinn á að dæma karla- og kvennakörfubolta gegnum árin 0:30:25 - Hlutverk og samskipti dómara við leikmenn og þjálfara 0:40:05 - Símenntun dómara utan leiksins 0:48:10 - Samstarf (og samkeppni) við aðra dómara 0:55:00 - Minnisstætt atvik í dómgæslu hjá Davíð 0:59:00 - Reglukunnátta leikmanna og annarra 1:03:00 - Nýja óíþróttamannslega villan og túlkun hennar 1:10:00 - Nýja skrefareglan og túlkun hennar 1:16:50 - Vinnuálag dómara (hvað eru þau að dæma mikið) 1:21:35 - Lífið og dómgæslan (og árekstrar þar á milli) 1:25:50 - Klíkuskapur dómara? Er það til? 1:30:00 - Reynsla dómara hérlendis og erlendis 1:33:20 - Hvernig má fjölga dómurum á Íslandi? 1:36:15 - Stærsta nafnið sem Davíð hefur dæmt leik hjá 1:38:45 - Ráð til verðandi dómara