Podcasts about hafnfir

  • 21PODCASTS
  • 43EPISODES
  • 1h 30mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Apr 4, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hafnfir

Latest podcast episodes about hafnfir

Spegillinn
Nýtt húsnæði geðdeildar ekki á fjármálaáætlun og Carbfix daðrar við Húsavík

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 19:57

við heyrum í Húsvíkingum eftir íbúafund með Carbfix, verkefni sem Hafnfirðingar vildu ekki sjá í bakgarðinum hjá sér, heyrum af atburðum í Úkraínu og á Gaza síðasta sólarhringinn en byrjum á geðheilbrigðismálum - Ekki er fyllilega ljóst hvar ný bygging undir geðþjónustu Landspítala verður og hennar er hvergi getið í þeirri fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni.. Kostnaður við að reisa bygginguna og kaupa þann búnað sem þarf er áætlaður um 24 milljarðar og framkvæmdatíminn um fimm ár og á meðan er geðdeildin með starfsemi á tveimur stöðum í húsnæði sem allir vita að er úr sér gengið og hentar hvorki sjúklingum né starfsmönnum. Formaður Geðráðs segir þörfina brýna og að nýtt hús verði að vera á næstu fjármálaáætlun

Rauða borðið
Rauða borðið: Létt spjall um heimsenda og íbúakosning um Carbfix

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jul 10, 2024 196:36

Miðvikudagurinn 10. júlí:  Létt spjall um heimsenda og íbúakosning um Carbfix Það koma gestir að Rauða borðinu, Kristinn Sigmundsson söngvari, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Heiða Eiríksdóttir heimspekingur og eiga létt spjall um endalok heimsins við þau Gunnar Smára Egilsson og Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, sem er gestastjórnandi þáttarins í kvöld. Þau fá líka Hafnfirðinga í heimsókn til að ræða Carbfix og mögulega íbúakosningu um það verkefni: Davíð Arnar Stefánsson sérfræðingur á sviði sjálfbærrar landnýtingar hjá Land og skógi og oddviti Vg, Jón Ingi Hákonarson ráðgjafi í starfsendurhæfingu bæjarfulltrúi Viðreisnar og Hólmfríður Sigurðardóttir umhverfisgyðja hjá Orkuveitunni, sem hefur fylgst með þessu verkefni frá upphafi og verið virkur þátttakandi í því.

Karfan
Fyrstu fimm: Helena Sverrisdóttir

Karfan

Play Episode Listen Later Apr 7, 2024 58:43

Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Hafnfirðingurinn Helena Sverrisdóttir yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hún spilaði með á feril sínum.Helena lagði skóna á hilluna sem leikmaður Hauka í nívember síðastliðnum. Haukar eru hennar uppeldisfélag, en þar hóf hún að leika með meistaraflokki félagsins 12 ára gömul árið 2000. Frá Haukum fór hún 2007 til TCU í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék til 2011. Eftir það tóku við nokkur góð ár í atvinnumennsku á meginlandi Evrópu, þar sem hún lék fyrir sterk lið í Ungverjalandi, Slóvakíu og Póllandi. Eftir að hún kom til baka til Íslands lék hún fyrir Hauka, Val og síðan Hauka aftur, þar sem hún var í nokkur tímabil aðstoðarþjálfari þeirra liða.Helena var í 12 skipti valin körfuknattleikskona Ísland og í 7 skipti besti leikmaður efstu deildar. Á feril sínum á Íslandi vann hún 5 Íslandsmeistaratitla og í 5 skipti bikarkeppnina. Þá varð hún tvisvar slóvaskur meistari og vann bikarkeppnina þar í þrjú skipti.Helena hóf einnig ung að leika fyrir íslenska landsliðið, aðeins 14 ára gömul árið 2002, en í heild lék hún 81 leik fyrir Ísland. Þann síðasta lék hún í nóvember gegn Tyrklandi heima í Ólafssal, en í leiknum á undan hafði hún sett nýtt landsleikjamet með sínum 80. leik.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Sunnudagssögur
Silja Úlfarsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Dec 3, 2023 75:00

Hulda Geirsdóttir ræddi við Hafnfirðinginn Silju Úlfarsdóttur um krefjandi íþróttaferil sem hófst snemma, leiddi Silju til Bandaríkjanna þar sem hún vann með þjálfara í fremstu röð og gerði hana að einni fremstu frjálsíþróttakonu Íslands. Hún var gríðarlega metnaðarfull og gaf aldrei tommu eftir sem á endanum varð til þess að ferlinum lauk snögglega og fyrr en Silja hefði viljað. Silja hefur tekist á við fleiri erfið verkefni í lífinu, missi og sorg, meiðsl og málaferli svo eitthvað sé nefnt , en hún leggur áherslu á velferð barna sinna sem hafa líka þurft að takast á við sorg og missi. Fjölskyldan er þó á góðum stað í dag og Silja horfir bjartsýn til framtíðar og íþróttirnar eru aldrei langt undan.

fj bandar silja hafnfir silju
Sunnudagssögur
Silja Úlfarsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Dec 3, 2023

Hulda Geirsdóttir ræddi við Hafnfirðinginn Silju Úlfarsdóttur um krefjandi íþróttaferil sem hófst snemma, leiddi Silju til Bandaríkjanna þar sem hún vann með þjálfara í fremstu röð og gerði hana að einni fremstu frjálsíþróttakonu Íslands. Hún var gríðarlega metnaðarfull og gaf aldrei tommu eftir sem á endanum varð til þess að ferlinum lauk snögglega og fyrr en Silja hefði viljað. Silja hefur tekist á við fleiri erfið verkefni í lífinu, missi og sorg, meiðsl og málaferli svo eitthvað sé nefnt , en hún leggur áherslu á velferð barna sinna sem hafa líka þurft að takast á við sorg og missi. Fjölskyldan er þó á góðum stað í dag og Silja horfir bjartsýn til framtíðar og íþróttirnar eru aldrei langt undan.

fj bandar silja hafnfir silju
Sterk saman
#45 Elva Júlíusdóttir

Sterk saman

Play Episode Listen Later Apr 2, 2023 66:26

Elva Júlíusdóttir er 42 ára Hafnfirðingur og tveggja barna móðir sem lýsir sér sem kvíða- og þráhyggjubolta. Hún er í bata frá vímuefnavanda og átröskun. Hún segir söguna sína í þættinum.

hafnfir
Sterk saman
#44 Ómar

Sterk saman

Play Episode Listen Later Mar 26, 2023 159:23

Ómar Guðmundsson er fertugur Hafnfirðingur sem á stóra áfalla- og batasögu. Hann hefur sterkar skoðanir á kerfinu og er í dag kominn í hlutverk aðstandanda ungs einstaklings í neyslu. Hann segir söguna sína í þættinum.

gu hann hafnfir
Sterk saman
#35 Bjarki Steinn

Sterk saman

Play Episode Listen Later Jan 22, 2023 67:03

Bjarki Steinn er 29 ára Hafnfirðingur með bros sem birtir upp öll rými sem hann gengur inn í og nærveru sem hlýjar. Líf hans hefur þó ekki alltaf verið auðvelt og segir hann okku söguna sína í þættinum.

Sterk saman
#16 Tryggvi Rafnsson - Geðveikt spjall

Sterk saman

Play Episode Listen Later Jul 17, 2022 79:46

Tryggvi Rafns er Hafnfirðingur eins og þeir gerast bestir, heimsfrægur þar og vel þekktur á öðrum stöðum. Hann er menntaður leikari frá Englandi og segir okkur söguna sína um baráttuna við andleg veikindi og hvernig hann lenti á botninum fyrir rúmu ári síðan og ákvað að biðja um aðstoð.

Rokkland
Bo og Krummi - kántrí

Rokkland

Play Episode Listen Later Jun 5, 2022 115:00

Gestir Rokklands í dag eru feðgarnir Björgvin Halldórsson og Krummi Bjorgvinsson sem hafa á síðustu árum næstum runnið saman í eitt í músíkinni. Báðir byrjuðu þeir í rokkinu en kántrímúsík og kántrírokk er staðurinn sem þeir mætast á. Þeir er báðir Hafnfirðingar og í Hafnarfirði fer fram dagana 9.-11. júní, tónlistarhátíðin Kántrí-hjarta Hafnarfjarðar og þar verður spilum kántrímúsík í 3 daga ? 3 kvöld. Þar spila hljómsveit Axels Ó og Stefanía Svavars. Milo Deering sem er mikil session hetja á heimavelli kántrítónlistarinnar í Nashville, og Sarah Hobbs sem er margverðlaunuð kántrísöngkona frá Jefferson í Texas, og svo íslenska kántríhljómsveitin Klaufar. Við ræðum um kántrímúsík út og suður og spilum lög með Krumma og Bo Halldorson, Brimkló, Eagles, The Band, Little Feat ofl.

Rokkland
Bo og Krummi - kántrí

Rokkland

Play Episode Listen Later Jun 5, 2022

Betri helmingurinn með Ása
#45 - Siggi Sigurjóns & Lísa

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Feb 23, 2022 73:21

Í þessum þætti átti ég einlægt og virkilega gott spjall við einn af okkar ástsælustu leikurum, Sigga Sigurjóns, og hans betri helming til hvorki meira né minna en 45 ára, Lísu Harðardóttur. Siggi og Lísa eru Hafnfirðingar í húð og hár en hafa þau bæði búið þar frá blautu barnsbeini og búa þau þar enn þann dag í dag. Þá hefur Lísa einmitt tekið stóran þátt í uppeldi Hafnfirðinga þar sem hún hefur starfað sem leikskólakennari á sama leikskólanum í heil 25 ár. Leiðir þeirra lágu saman í Hjálparsveit Skáta árið 1978 en þá var Siggi nýútskrifaður úr leiklistarskólanum og rétt svo farinn að stíga sín fyrstu skref á þeim vettvangi og segja þau frá því í þættinum þegar þau tóku fyrsta dansinn á þorrablótinu hjá hjálparsveitinni en Siggi segist hafa verið ansi fljótur að næla sér í hana þar sem hún fór frekar hægt yfir verandi í gifsi á þeim tíma.  Upp úr því hófst þeirra ævintýri saman með tilheyrandi bíóferðum, bónorði í Hyde Park og allt þar á milli og hafa þau verið gift í 37 ár og eiga afar stóra og samrýnda fjölskyldu. Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum við meðal annars leiklistarferilinn og fjölskyldulífið síðustu 45 árin, ferðalög & veiðimennsku, Spaugstofu-áratugina, gagnrýnisraddir og dýrmætu vináttuna sem fylgdi í kjölfarið, ömmu & afa hlutverkið, skyndi-brúðkaupið mikla, ásamt fullt af skemmtilegum sögum þar á meðal frá því þegar stolt Sigga varð sært í veiðiferð í upphafi sambandsins.Þessi þáttur er í boðiAha.is -  https://aha.isBlush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

Snæbjörn talar við fólk
#0087 Arnar Þór Gíslason

Snæbjörn talar við fólk

Play Episode Listen Later Jan 13, 2022 156:50

S01E87  – Arnar Þór Gíslason er einn af mest áberandi trymblum landsins. Bæði er hann afskaplega afkastamikill, spilar og hefur spilað með fjölda hljómsveita og tónlistarfólks, en þar á meðal eru Dr. Spock, Pollapönk, Mugison, Jónas Sig, Lára Rúnars, Írafár og miklu fleiri, en að auki hefur hann áberandi og heillandi stíl. Addi er þó ekki tónlistarmaður að aðalatvinnu því hann er framkvæmdastjóri þeirrar stórkoslegur búðar sem Hljóðfærahúsið kallast og stendur þar vaktina dags daglega. Hann er Hafnfirðingur, á konu og tvö börn, ekki maður mikilla framtíðarplana og reynir að gera það vel sem hann gerir. Morgunrútínan er gufa, kaldur pottur, hugleiðsla, endurtekning — öfga- og látlaust. Hann er ótrúlega skemmtilegur maður sem setur þarfir annarra yfirleitt framfyrir sínar eigin. Og hann er óóógeðslega góður á trommur. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Vinsælustu beyglurnar hjá Bagel'n'Co, Skeifunni 15 á aðeins 1.000 krónur! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið.  – FlyOver Iceland býður upp á STVF. The Real Wild West er nýjasta sýning FlyOver Attractions. Í henni er flogið yfir Vesturríki Bandaríkjanna, t.d. Utah, Kaliforníu, Arizona og Montana. Hægt er að bóka tíma á vefnum: www.flyovericeland.is  – Rokksafn Íslands býður upp á STVF. Rokksafn Íslands er safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Safnið er staðsett í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Á safninu er að finna tímalínu um sögu íslenskrar tónlistar á Íslandi allt frá árinu 1830 til dagsins í dag.  – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.

Hlaðvarp Kjarnans
Þjóðhættir – Að sjá hið ósýnilega og þekkja hið hversdagslega

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Nov 30, 2021 42:31

Bryndís Björgvinsdóttir er þjóðfræðingur, rithöfundur og dósent við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Á ferli sínum hefur hún komið víða við í rannsóknum og ritstörfum og hefur hið yfirnáttúrulega verið henni hugleikið. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Bryndísi um rannsóknir hennar á álfum og álfabyggðum en hún segir frá því hvernig hún fékk áhuga á álfum í tengslum við náttúruna og umhverfisvernd. Árið 2018 kom út bók hennar, og Svölu Ragnarsdóttur, Krossgötur – álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi. Þar segir frá stöðum þar sem manngert umhverfi hefur lagað sig að álfabyggðum og álagablettum og hvernig hið yfirnáttúrulega og ósýnilega getur þannig birst okkur í umhverfinu. Í þættinum tæpir Bryndís á ýmsu og segir meðal annars frá útvarpsþáttum um Grýlu, Hafnfirðingarbröndurum, sem og sjónvarpsþáttunum Reimleikum þar sem hún miðlaði sögum fólks af dulrænum atburðum og heimsótti staði þar sem sagt er reimt. Nýjasta útgáfa Bryndísar er bókin Kristín Þorkelsdóttir sem segir sögu Kristínar sem er myndlistarkona en starfaði sem grafískur hönnuður. Kristín rak lengi eina stærstu auglýsingastofu landsins og á hún stóran hlut í hversdagslegri sjónmenningu landsmanna en hún hannaði meðal annars íslensku seðlaröðina og alþekktar umbúðir fyrir mjólkurvörur. Bryndís segir frá útgáfunni og störfum Kristínar.

Morgunútvarpið
26. ágúst - Styrktarsund, málfar, fjölmiðlun, kosningar og ástin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 26, 2021 130:00

Sigurgeir Svanbergsson ætlar að synda yfir Kollafjörð um helgina, um 12 km leið frá Kjalarnesi að Bryggjuhverfi. Tilgangurinn er að safna áheitum til styrktar einstökum börnum. Við hringdum í kappann og heyrðum af þessu verkefni hans og fleiru en hann leitast við að ögra sjálfum sér og reyna á sig við ýmsar óvenjulegar aðstæður. Við spjölluðum um íslenskt mál í vikulegu málfarshorni okkar þegar Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur leit við og þar var orðið þing í brennidepli. Olga Björt Þórðardóttir hefur starfað í fjölmiðlum um árabil og undanfarin ár gefið út bæjarblaðið Hafnfirðing. Útgáfa bæjarblaða á prenti reynist hins vegar þung og sl. vor tók Olga sér hlé frá störfum og Hafnfirðingur fór í frí. Nú snýr Olga aftur á nýjum vettvangi, en þó gamalkunnum, þ.e. í fjölmiðlum, en hún setur nú í loftið hlaðvarpið Plássið. Olga Björt heimsótti okkur og ræddi m.a. konur í fjölmiðlum og það að taka pláss. Í gær var nákvæmlega mánuður í kosningar og meira líf að færast í kosningabaráttu flokkanna. Við fengum til okkar Stefaníu Óskarsdóttur, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, til þess að líta yfir pólitíska sviðið með okkur og spá aðeins í spilin. Annað kvöld fara í loftið nýir íslenskir stefnumótaþættir í sjónvarpi. Þættirnir heita Fyrsta blikið og fjalla um ástina og leitina að ástinni. Umsjónarmaður þeirra er Ása Ninna Pétursdóttir og hún kom til okkar og sagði okkur frá þessum forvitnilegu þáttum. Tónlist: Stefán Hilmarsson - Þú ferð mér svo ósköp vel. Albatross - Ég sé sólina. Travis - Flowers in the window. Jungle - Talk about it. Nýdönsk - Hversdagsprins. Dua Lipa - Love again. Joy Crookes - Feet dont fail me now. Skítamórall - Innan í mér. U2 - Angel of Harlem.

pl stef innan albatross stin fyrsta umsj hilmarsson anna sigr hafnfir tilgangurinn kjalarnesi
Morgunútvarpið
26. ágúst - Styrktarsund, málfar, fjölmiðlun, kosningar og ástin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 26, 2021

9. apríl - Baðlón, Jarðaförin mín, húmor, fréttaspjall og hégómavísind

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 9, 2021 130:00

Á Skagaströnd hefur síðastliðið ár verið unnið að uppbyggingu baðlóna við sjávarsíðuna. Vonir standa til að böðin verði mikilvæg lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Gígja Hólmgeirsdóttir heyrði í Halldóri Gunnari Ólafssyni, oddvita sveitarstjórnar á Skagaströnd, og forvitnaðist um nánar um þessa uppbyggingu. Þáttaröðin Jarðaförin mín naut mikilla vinsælda hér á landi og nú stefnir í að Evrópubúar geti tekið þátt í gleðinni því þýsk-franska sjónvarpsstöðin ARTE hefur tryggt sér sýningarrétt á þáttaröðinni ytra. Hörður Rúnarsson framkvæmdastjóri hjá framleiðslufyrirtækinu Glassriver var á línunni og sagði okkur af þessari skemmtilegu útrás. Við vitum öll að húmor er af hinu góða. En hversu víðtæk áhrif hefur hann og getur húmor haft áhrif á alla þætti lífsins? Opni háskólinn í Reykjavík býður í vor upp á námskeið fyrir þá sem vilja auka húmorinn í sínu lífi og eru húmorslausir boðnir sérstaklega velkomnir. Þau Sveinn Waage, markaðsmaður og sérfræðingur í samskiptum og Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir kenna á námskeiðinu og þau komu til okkar og sögðu okkur nánar frá. Við ætlum að fara yfir fréttir vikunnar með góðum gestum að loknum áttafréttum. Gestir okkar að þessu sinni voru þær Guðrún Óla Jónsdóttir blaðamaður á Vikunni og söngkona og Olga Björt Þórðardóttir blaðamaður og útgefandi bæjarblaðsins Hafnfirðings. Freyr Gígja Gunnarsson fór svo yfir fréttir af ríka og fræga fólki í Hégómavísindahorninu sívinsæla upp úr hálfníu. Tónlist: Stuðmenn - Bara ef það hentar mér. David Bowie - Rebel, rebel. Ellen Kristjáns og John Grant - Veldu stjörnu. Daði og Gagnamagnið - 10 years. Paul Simon - Call me Al. Bon Jovi - You give love a bad name.

Morgunútvarpið
9. apríl - Baðlón, Jarðaförin mín, húmor, fréttaspjall og hégómavísind

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 9, 2021

Dr. Football
Helgaruppgjör Dr. Football - Hafnfirðingar bestir á Íslandi og ómögulegir aðstoðarmenn Arteta

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 14, 2020 70:53

Doc, Mike og Höfðinginn á mánudegi

Jóns
FKA Olga Björt Þórðardóttir

Jóns

Play Episode Listen Later Jun 29, 2020 29:59

Olga Björt Þórðardóttir er útgefandi og ritstjóri bæjarblaðsins Hafnfirðingur. Hún er með BA gráðu í íslensku og MA í blaða- og fréttamennsku. Olga Björt segir frá því hvað varð til þess að hún valdi fjölmiðlun, eftir að hafa starfað víða á vinnumarkaði til að finna sína styrkleika og réttu fjalir. Hún kynntist fjölmiðlafræðum þegar hún kláraði „loksins“ stúdentspróf 32 ára í FB, eftir að hafa stefnt á guðfræði. Hún segir frá starfsumhverfi fjölmiðla í dag, hvernig rekstur bæjarblaðs gengur fyrir sig og hversu mikilvægt er að allir finni leiðina að skemmtilegasta starfi í heimi sem lætur okkur finnast við aldrei vera í vinnunni.

fb ardo hafnfir
Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar
Fleiri fótboltabækur

Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar

Play Episode Listen Later May 25, 2020 91:21

1:11 - Kristján Atli Ragnarsson (@kristjanatli á Twitter) Kristján Atli er Hafnfirðingur, FH-ingur, Liverpool-stuðningsmaður, rithöfundur og margt fleira. Um árabil skrifaði hann reglulega á kop.is, stuðningsmannasíður Liverpool á Íslandi, enda er hann einn af stofnendum þeirrar síðu. Hann kom með áhugaverða innkaupatillögu fyrir bókasafnið og mig langaði að spjalla aðeins við hann um innkaupatillöguna, fótboltabækur sem hafa verið skrifaðar og fótboltabækur sem enn liggja óskrifaðar en væri þó gaman að lesa. Bókameðmæli Kristjáns Atla: Forever Young eftir Oliver Kay 33:32 - Jonathan Wilson (@jonawils á Twitter) Jonathan Wilson ætti að vera flestum kunnugur sem fylgjast með enska boltanum og umfjöllun í kringum hann. Wilson skrifar pistla og fréttir í The Guardian og The Observer, ritstýrir The Blizzard og hefur skrifað 11 fótboltabækur auk þess að taka þátt í hlaðvarpsgerð og fótboltafréttamennsku á öðrum miðlum. Ég heyrði í honum og spurði út í bækurnar hans, ferlið að skrifa bækur, ferðalög og ferðalagaleysi, Ungverjaland og margt fleira. Bókameðmæli Wilson: The Ball is Round eftir David Goldblatt, All Played Out eftir Pete Davies og Football Against the Enemy eftir Simon Kuper. Athugið að þetta viðtal er aðeins á ensku og ekki þýtt yfir á íslensku. Ég vil líka vekja athygli á The Squall, verkefni sem Wilson og félagar hjá The Blizzard settu í gang til að styðja við bakið á fótboltablaðamönnum í þessu fótboltaleysi. Hér má lesa meira um það verkefni. ---------------- Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar er tekið upp í Rabbrýminu, upptökuaðstöðu safnsins. Fyrirspurnir um hlaðvarpið eða Rabbrýmið er hægt að senda í hladvarp@hafnarfjordur.is     Stef þáttarins er lagið Lemongrass eftir Samúel Reynisson.

Heilsuvarpid
#26 Unnar Helgason styrktarþjálfari - Ofþjálfun, endurheimt, Crossfit.

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Mar 9, 2020 73:27

í þessum þætti tala ég við Unnar Helgason er styrktar og þrekþjálfari fyrir MMA og Crossfit sem og sótsvartan almúgann. Hann er yfirstyrktarþjálfari hjá keppnishópum hjá Mjölni Hann þjálfar m.a Gunnar Nelson bardagakappa, Aron Einar landsliðsmann í fótbolta og Eygló Ósk sunddrottningu Unnar hefur stofnað þrjár Crossfit stöðvar: Crossfit Hamar, Crossfit Akureyri og Crossfit XY. Hann hefur jafnframt þjálfað í Crossfit Reykjavík. Unnar er Hafnfirðingur í húð og hár en stundar nú nám í osteopatíu í Gautaborg. Unnar er algjör draumur í dós, skemmtilegur, hláturmildur, hafsjór af fróðleik og með þægilega nærveru Vonandi hefur þú hlustandi góður jafn gaman að þessum þætti og ég. Þú finnur Unnar á Instagram undir @unnarh Þátturinn er í boði Lífsalt @arcticseaminerals NOW á Íslandi @nowfoodsiceland Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 15% Hverslun.is ragganagli20 = 20% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20 24iceland: ragganagli20

Samfélagið
Héraðsfréttamiðlar og bæjarblöð. Svipbrigði katta

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 6, 2020 55:00

Birgir Guðmundsson dósent við HA, Olga Björt Þórðardóttir ritstjóri og útgefandi Hafnfirðings og Magnús Magnússon ritstjóri Skessuhorns: Umræða um stöðu héraðsfréttamiðla og bæjarblaða um þessar mundir og hvaða þýðingu fjölmiðlafrumvarpið hefur fyrir útgáfu þeirra. Vera Illuadóttir: Þennan föstudaginn segir Vera frá stórri rannsókn á því hversu vel fólki tekst að ráða í svipbrigði katta.

magn katta hafnfir
Samfélagið
Héraðsfréttamiðlar og bæjarblöð. Svipbrigði katta

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 6, 2020

Birgir Guðmundsson dósent við HA, Olga Björt Þórðardóttir ritstjóri og útgefandi Hafnfirðings og Magnús Magnússon ritstjóri Skessuhorns: Umræða um stöðu héraðsfréttamiðla og bæjarblaða um þessar mundir og hvaða þýðingu fjölmiðlafrumvarpið hefur fyrir útgáfu þeirra. Vera Illuadóttir: Þennan föstudaginn segir Vera frá stórri rannsókn á því hversu vel fólki tekst að ráða í svipbrigði katta.

magn katta hafnfir
Morgunútvarpið
21. feb. - Snædrífur, Veiga, Helgi Björns, fréttaspjall og hégómavísin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 21, 2020 130:00

Þær Karen Kjartansdóttir og Kolbrún Björnsdóttir eru í hópnum Snjódrífurnar sem ætlar að þvera Vatnajökul, taka þátt í Lífskraftsgöngu og ganga á Hvannadalshnjúk. Tilgangurinn er að safna áheitum fyrir félögin Kraft og Líf. Sirrý, G. Sigríður Ágústsdóttir stendur fyrir átakinu, en hún greindist með leg­hálskrabba­mein 2010 og aft­ur 2015. Þær Karen og Kolla voru gestir Morgunútvarpsins. Veiga Grétarsdóttir kom til okkar en hún fór á kajak rangsælis kringum ísland í fyrra. Næsta verkefni hennar er líka metnaðarfullt því þá fer hún á kajaknum um strandlengju Danmerkur. Hún ætlar að sinna umhverfismálum í ferðinni með því að tína rusl og fá náttúrverndarsamtök ytra til að taka þátt. Helgi Björns, leikari og tónlistarmaður, er venjulega með mörg járn í eldinum og hann mætti til okkar í morgunkaffi. Við fórum yfir fréttir vikunnar. Hingað komu Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Hafnfirðings, og Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður á Vísi. Freyr Gígja Gunnarsson kom svo í Hégómavísindahornið.

Vitinn
Kristrún Sigurjónsdóttir, kennsluráðgjafi hjá Hafnarfjarðarbæ

Vitinn

Play Episode Listen Later Feb 21, 2020 41:39

Kristrún Sigurjónsdóttir er listakokkur og stundar sína hugleiðslu við bakstur og eldamennsku sem vinir og ættingjar sækja í. Hún er með nám á meistarastigi í fjölmenningu, hnattrænum tengslum og fólksflutningum og starfar sem kennsluráðgjafi hjá Hafnarfjarðarbæ þar sem hún sinnir ráðgefandi hlutverki á sviði fjölmenningar í öflugu samstarfi við leik- og grunnskóla sveitarfélagsins og aðra hagsmunaaðila. Kristrún er hreinræktaður Hafnfirðingur (fæddist þó ekki hér) og vill hvernig annars staðar búa. Unglingsárunum varði hún við vélritun orðtaka og málshátta og við vangaveltur um bakgrunn þeirra og sögu enda mikill áhugi á íslensku máli strax frá unga aldri. Brennur fyrir jafnrétti, mannréttindamálum og félagslegu réttlæti Kristrún er mikil hugsjónamanneskja sem hefur alla tíð þótt mikilvægt að lifa í takt við og starfa að hugsjónum sínum og brennur sjálf fyrir jafnrétti, mannréttindamálum, félagslegu réttlæti og hefur alla sína starfstíð unnið í þessu geira. Hún kenndi í Lækjarskóla í 20 ár og kom síðar að uppbyggingu og stofnun móttökudeildar fyrir nemendur af erlendum uppruna. Hún hefur upplifað í gegnum sína vinnu þann mikla vöxt sem hefur orðið í fjölda erlendra nemenda í hafnfirsku skólasamfélagi og hefur tekið virkan þátt þróun nýrra leiða, lausna og áætlana fyrir þennan hóp nemenda þannig að hægt sé að mæta þörfum þeirra. Í spjallinu segir Kristrún okkur frá því hvernig áhugi hennar á fjölmenningu kviknaði og hvernig hún fór sjálf að lesa sér til og leita leiða til að taka betur á móti vaxandi fjölda erlendra barna og ungmenna. Með auknum fjölda hefur úrræði horfið frá því að vera lítil móttökudeild í einum skóla í það að allir skólar geti tekið af öryggi á móti nýju erlendum nemendum. Eitt af stóru þróunarverkefnum sem í gangi eru hjá Hafnarfjarðarbæ er innleiðing á stöðumati fyrir nýja nemendur af erlendum uppruna og sér Kristrún um innleiðinguna fyrir hönd sveitarfélagsins.

Morgunútvarpið
21. feb. - Snædrífur, Veiga, Helgi Björns, fréttaspjall og hégómavísin

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 21, 2020

Þær Karen Kjartansdóttir og Kolbrún Björnsdóttir eru í hópnum Snjódrífurnar sem ætlar að þvera Vatnajökul, taka þátt í Lífskraftsgöngu og ganga á Hvannadalshnjúk. Tilgangurinn er að safna áheitum fyrir félögin Kraft og Líf. Sirrý, G. Sigríður Ágústsdóttir stendur fyrir átakinu, en hún greindist með leg­hálskrabba­mein 2010 og aft­ur 2015. Þær Karen og Kolla voru gestir Morgunútvarpsins. Veiga Grétarsdóttir kom til okkar en hún fór á kajak rangsælis kringum ísland í fyrra. Næsta verkefni hennar er líka metnaðarfullt því þá fer hún á kajaknum um strandlengju Danmerkur. Hún ætlar að sinna umhverfismálum í ferðinni með því að tína rusl og fá náttúrverndarsamtök ytra til að taka þátt. Helgi Björns, leikari og tónlistarmaður, er venjulega með mörg járn í eldinum og hann mætti til okkar í morgunkaffi. Við fórum yfir fréttir vikunnar. Hingað komu Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Hafnfirðings, og Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður á Vísi. Freyr Gígja Gunnarsson kom svo í Hégómavísindahornið.

Skoðanabræður
#20 Skoðanir Young Nazareth

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Jan 24, 2020 125:47

Sjálfstæðismenn sem gera lyndistákn (á vesturíslensku emoji) á undan hverju orði sem þeir gasa út úr sér á Twitter. Óheillaþróun, sem árvökult auga Skoðanabræðra fer auðvitað ekki á mis við. Hvernig endar þetta? Festur mun slitna, freki renna og að lokum verður byltingarkenndur indie-bragur yfir því að tjá vafasöm pólitísk áform án lyndistákna. Skoðanabræður taka auðvitað ekki afstöðu til einstakra mála, allra síst pólitískra, nema auðvitað þegar mikið ríður á, og einnig að vísu þegar minna ríður á, eins og til dæmis í ómerkilegum pólitískum dægurmálum, þar sem engin sjáanleg þörf er á að þeir taki afstöðu. Í þætti tvö í nýrri seríu sem er ekki ný sería er þetta gert, trekk í trekk, í félagi við Young Nazareth, öðru nafni Lil Nazareth, skírnarnafni Arnar Ingi Ingason. Og Skoðanabræður eru í farsælu samstarfi við framúrskarandi fyrirtæki: Forlagið, AUR og 101 Sambandið. Kóðinn til þess að kaupa Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson sem hljóðbók á afsláttarkjörum (ný skáldsaga á 990kr) á forlagid.is er SKODUN. Kóðinn til þess að fá 60 GB frí þegar þú gengur í Sambandið á sambandid.is er SKODUN. Arnar er einn burðarstólpanna í íslenskri rappsenu, í því hann semur taktana og framleiðir lögin. Hann er þó eiginlega búinn að færa sig frá þessu menningarlega arðráni sem Íslendingar stunda á rappmenningu svartra Bandaríkjamanna og yfir í nýlegra og blíðlegra menningarlegt arðrán sem Íslendingar stunda á R&B-menningu svartra Bandaríkjamanna. Hann hefur til dæmis, ásamt öðrum, veg og vanda af tónlistinni á plötu GDRN sem ætti að vera gefin út á næstu vikum. Til þess að geta einbeitt að slíku þjóðþrifaverki mute-aði hann Pétur Kiernan á Instagram, kallaði það adblock. Pétur Kiernan er Skoðanabróðir, þannig að af hálfu þáttastjórnenda, alltént þess sem hér veldur fjöður, verður engin vanvirðing sett á hans nafn. Þessi ungi Naza leitast við að tala hreina íslensku, eins og það heitir, sem sé hvorki rétt né rangt mál, heldur einfaldlega vandað. Það ætti að vera til eftirbreytni fyrir goonin við viðtækin, sem hverfa í auknum mæli frá góðri notkun viðtengingarháttarins, halda að maður á að segja eitthvað tiltekið, en ekki eigi að segja eitthvað. Hvort það eru ensk áhrif eða innvortis úrkynjun íslenskunnar, veit Guð einn, en ljóst er að vesturíslenskan er að sækja í sig veðrið, það er að segja slettur! sem eru þó málfræðilega ekki endilega grein af sama meiði og dalandi viðtengingarháttur. Vestur-Íslendingarnir eru hvað sem öllu líður ógn við heilbrigt málsamfélag með Íslendingum, og ekki nema von að Skoðanabræður gjaldi dassi af varhuga við. Annað er auðvitað rætt í þessum rausnarlega langa þætti, svosem leiðir til að sigrast á óvininum Instagram, styttur starfstími leikskólanna, apatía hins tvítuga karlmanns gagnvart sögum af áreiti sem konur verða fyrir af hendi einmitt manna eins og hans, síðan áhugi þessa sama karlmanns á öðrum karlmönnum sama hvað þeir gera, og loks er það stéttaofbeldismoli dagsins: Aflýsing Hafnfirðingabrandara, sem er þó að mæta svolítið sein í aflýsingapartí sniðmenningarinnar, þar sem allir eru hvort eð er hættir að segja þessa brandara. Breytar efnahagslegar forsendur kipptu stoðunum undan bröndurunum; grínið, sem þarf alltaf útrás, hefur fundið sér nýtt fórnarlamb, og hver veit nema þú sért næstur.

Segðu mér
Linda Hilmarsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 20, 2020 40:00

Gestur er Linda Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri og þolfimisþjálfi. Umsjón: Viðar Eggertsson. Linda og eiginmaður hennar, Jón Þórðarson, voru nú í ársbyrjun valin Hafnfirðingar ársins fyrir Hressleikana. Þau hafa haldið Hressleikana á hverju ári síðast liðin 12 ár og í hvert sinn eru þeir haldnir til að safna peningum til að styrkja einstakling eða fjölskyldu í Hafnarfirði sem á um sárt að binda. Í hvert sinn safnast að jafnaði um 1.5 - 3 milljónir króna.

Segðu mér
Linda Hilmarsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 20, 2020

Gestur er Linda Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri og þolfimisþjálfi. Umsjón: Viðar Eggertsson. Linda og eiginmaður hennar, Jón Þórðarson, voru nú í ársbyrjun valin Hafnfirðingar ársins fyrir Hressleikana. Þau hafa haldið Hressleikana á hverju ári síðast liðin 12 ár og í hvert sinn eru þeir haldnir til að safna peningum til að styrkja einstakling eða fjölskyldu í Hafnarfirði sem á um sárt að binda. Í hvert sinn safnast að jafnaði um 1.5 - 3 milljónir króna.

Vitinn
Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar

Vitinn

Play Episode Listen Later Jan 17, 2020 93:26

Í þessum þætti ræðir Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, líf sitt hjá bænum og með bænum síðustu áratugina. Geir er einn þeirra starfsmanna sem hafa meira og minna alla sína starfsævi starfað innan sveitarfélagsins. Þar hefur hann sinnt mörgum og mismunandi störfum sem flest eiga þau það þó sameiginlegt að snúa að börnum og ungmennum og eflingu þeirra á einn eða annan máta. Þar spila forvarnir, hreyfing og heilsa mjög stórt hlutverk og hefur Geir komið að og hrint í framkvæmd áhugaverðum forvarnarverkefnum og heilsuverkefnum sem eru til þess að auðga samfélagsandann og elfa andlega og líkamlega heilsu Hafnfirðinga heilt yfir. Geir starfar einnig sem forsvarsmaður starfshóps um heilsueflandi samfélag en síðustu árin hefur Hafnarfjörður verið að stimpla sig inn sem Heilsubærinn Hafnarfjörður og það í öflugu samstarfi við hafnfirskt samfélag, félagasamtök, íþróttafélög, einstaklinga og starfsfólk. Hafnarfjörður hefur löngum verið mikill íþróttabær og hefur árum saman alið af sér meistara á nær öllum sviðum íþróttalífsins og árið 2015 gekk Hafnarfjarðarbær til samninga við Embætti landlæknis um formlega þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag.

Morgunútvarpið
6. des. - Verkalýðsflokkur, jólaföndur, nýtt jólalag, fréttaspjall og

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 6, 2019 130:00

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR telur að komið sé að þolmörkum eftir að dómsmálaráðherra samdi um starfslok Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra. Kostnaður er metinn 56,7 milljónir með launatengdum gjöldum. Ragnar gagnrýnir samninginn og telur tíma á að skoða framboð verkalýðsflokks á þingi enda sé ljóst að ekki skipti máli hverjir sitji við stjórnvölinn af þeim flokkum sem þar sitja. Lítið sem ekkert breytist. Ragnar var á línunni. Jönu Maríu Guðmundsdóttur er margt til lista lagt og hún er sannkölluð jólaofurkona. Hún kenndi landsmönnum ýmislegt skemmtilegt tengt jólum í sjónvarpsþáttunum Jólin með Jönu Maríu og nú hefur hún gefið út bókina Töfrandi jólastundir. Jana kom til okkar í morgunkaffi og hafði jólagleði og fróðleik í fararteskinu. Hljómsveitin Eva hjálpaði okkur að hita upp fyrir Aðventugleði Rásar 2, en þær stöllur, Sigga og Vala, komu til okkar í jólaspjall og við frumfluttum glænýtt jólalag frá þeim. Á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar. Kristján Kristjánsson, stjórnandi Sprengisands á Bylgjunni, og Olga Björt Þórðardóttir, útgefandi og ritstjóri Hafnfirðings, voru gestir Morgunútvarpsins að þessu sinni. Freyr Gígja Gunnarsson og Hégómavísindahornið voru svo á sínum stað og þar kom James Bond við sögu, ásamt Justin Timberlake og bresku konungsfjölskyldunni. Tónlist: Baggalútur - Afsakið þetta smáræði. Richard Hawley - Midnight train. Mavis Staples - Christmas vacation. Valdimar og fjölskyldan - Ég þarf enga gjöf í ár. Jana María - Hugarró. Hljómsveitin Eva - Jólaleg (frumflutningur í útvarpi). Tryggvi - Allra veðra von. Hljómsveitin Gilitrutt og Ágúst Guðmundsson - Ljósin kvikna. Sváfnir Sig. - Fer sem fer. Eivör - Dansaðu vindur.

Landspítali hlaðvarp
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands: Bakgrunnurinn, baráttan, þjóðmálin og áhyggjurnar af Arsenal

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Dec 6, 2019 35:00

Sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustunni. Á Landspítala starfa yfir 600 sjúkraliðar, en á landinu öllu eru um 4.000 manns með sjúkraliðamenntun og þar af eru 2.100 manns starfandi sem slíkir. Sjúkraliðar eru næststærsta heilbrigðisstétt landsins og starfa á öllum heilbrigðisstofnunum; sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, forvarnar- og endurhæfingarstofnunum, lækna- og rannsóknarstofum og í heimahjúkrun. Viðmælandi okkar að þessu sinni er Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Sandra hefur forvitnilegan bakgrunn, en hún sat á Alþingi um skeið, er heitur aðdáandi knattspyrnuliðsins Arsenal, Hafnfirðingur að uppruna og sótti sér mannsefni norður yfir heiðar.

forma arsenal sj franks lags landsp hafnfir kjarasamningar sandra b franks
Morgunútvarpið
6. des. - Verkalýðsflokkur, jólaföndur, nýtt jólalag, fréttaspjall og

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 6, 2019

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR telur að komið sé að þolmörkum eftir að dómsmálaráðherra samdi um starfslok Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra. Kostnaður er metinn 56,7 milljónir með launatengdum gjöldum. Ragnar gagnrýnir samninginn og telur tíma á að skoða framboð verkalýðsflokks á þingi enda sé ljóst að ekki skipti máli hverjir sitji við stjórnvölinn af þeim flokkum sem þar sitja. Lítið sem ekkert breytist. Ragnar var á línunni. Jönu Maríu Guðmundsdóttur er margt til lista lagt og hún er sannkölluð jólaofurkona. Hún kenndi landsmönnum ýmislegt skemmtilegt tengt jólum í sjónvarpsþáttunum Jólin með Jönu Maríu og nú hefur hún gefið út bókina Töfrandi jólastundir. Jana kom til okkar í morgunkaffi og hafði jólagleði og fróðleik í fararteskinu. Hljómsveitin Eva hjálpaði okkur að hita upp fyrir Aðventugleði Rásar 2, en þær stöllur, Sigga og Vala, komu til okkar í jólaspjall og við frumfluttum glænýtt jólalag frá þeim. Á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar. Kristján Kristjánsson, stjórnandi Sprengisands á Bylgjunni, og Olga Björt Þórðardóttir, útgefandi og ritstjóri Hafnfirðings, voru gestir Morgunútvarpsins að þessu sinni. Freyr Gígja Gunnarsson og Hégómavísindahornið voru svo á sínum stað og þar kom James Bond við sögu, ásamt Justin Timberlake og bresku konungsfjölskyldunni. Tónlist: Baggalútur - Afsakið þetta smáræði. Richard Hawley - Midnight train. Mavis Staples - Christmas vacation. Valdimar og fjölskyldan - Ég þarf enga gjöf í ár. Jana María - Hugarró. Hljómsveitin Eva - Jólaleg (frumflutningur í útvarpi). Tryggvi - Allra veðra von. Hljómsveitin Gilitrutt og Ágúst Guðmundsson - Ljósin kvikna. Sváfnir Sig. - Fer sem fer. Eivör - Dansaðu vindur.

Vitinn
Guðrún Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri

Vitinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2019 67:53

Guðrún Þorsteinsdóttir er fæddur Gaflari en fluttist ung til Keflavíkur þar sem hún er búsett í dag. Stefnan er tekin á að flytja aftur til Hafnarfjarðar fyrr en síðar og fjölskyldan er meira að segja búin að finna sér hverfið sem hún vill búa í.Eins og allir sem Guðrúnu þekkja þá er hún hörkutól og óhrædd við að takast á við erfið verkefni. Hún byrjaði að vinna 10 ára í útgerð föður síns, er mikill jafnréttissinni og barðist hart fyrir því að komast á sjóinn.Guðrún er menntuð leikskólakennari og með meistaragráðu í mannauðsstjórnun. Tók þátt í að reka einkarekinn leikskóla um tíma í anda Hjallastefnunnar. Hún hefur víðtæka reynslu af mannauðsmálum m.a. hjá Reykjanesbæ, Isavia og núna hjá Hafnarfjarðarbæ. Eldskírnina í mannauðsmálum hlaut hún hjá Reykjanesbæ þar sem hún fór í gegnum nokkur efnahagsáföll með tilheyrandi áskorunum í atvinnumálum bæjarins. Svo tókst hún á við uppganginn hjá Isavia og gríðarlegri fjölgun starfsmanna. Hafnarfjarðarbær er heppinn að fá að njóta starfskrafta Guðrúnar hjá bænum og hennar reynslu. Í viðtalinu fer hún yfir verkefnin hjá bænum, vinnustaðinn Hafnarfjarðarbæ og starf mannauðsstjóra þar sem enginn dagur er eins. Hún finnur sterkt fyrir því hve Hafnfirðingar sækja í að starfa hjá bænum enda mikil lífsgæði að lifa og starfa í sama bæ.Í frítímanum á golfið hug hennar þar sem hún fær góða hvíld frá erilsömu starfi og er dugleg að fylgjast með tvíburadætrum sínum spila fótbolta.

Vitinn
Andri Ómarsson - verkefnastjóri viðburða

Vitinn

Play Episode Listen Later Sep 27, 2019 59:15

Í þessum þætti Vitans, hlaðvarpi Hafnarfjarðarbæjar, ræðir Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri við Andra Ómarsson, verkefnastjóra viðburða. Hafnarfjörður hefur stimplað sig rækilega inn sem menningarbærinn síðustu árin og fjöldi fjölbreyttra viðburða og skemmtana í boði í viku hverri sem hefur haft mjög jákvæð áhrif á samfélagið í heild og rekstur á svæðinu. Þannig hefur m.a. fjöldi nýrra veitingastaða og kaffihúsa sprottið upp út um allan bæ og fjöldi innlendra og erlendra gesta aukist til muna. Hingað koma gestir í margþættum tilgangi, til að upplifa fallegt umhverfi og náttúruperlur, skella sér á tónleika í hjarta Hafnarfjarðar, leiksýningar og listasýningar, á kaffihús eða út að borða eða til að upplifa list, sögu, hönnun og hvers kyns hamingju í verslunum og búðum víðs vegar um bæinn. Andri fer hér yfir þá föstu viðburði sem í boði eru yfir árið, ræðir um einstakan samhug Hafnfirðinga og mikilvægi einstaklingsframtaksins. Það styttist í jólin og er undirbúningur Jólaþorpsins í Hafnarfirði kominn á fullt enda um að ræða stóra hátíð sem stendur yfir allar helgar í desember og margar hendur koma að. Hátíð sem er flestum Íslendingum orðin að góðu kunn og orðin fastur liður og hefð á aðventunni. Upptökudagur: 13. september 2019.

Fotbolti.net
Miðjan - Emil ræðir erfitt tímabil á Ítalíu, landsliðið og framtíðina

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 6, 2019

Íslenska landsliðið leikur á laugardaginn leik gegn Albaníu í undankeppni EM 2020. Hafnfirðingurinn, Emil Hallfreðsson leikmaður Udinese í Serie A á Ítalíu er í hópnum en hann er kominn til baka eftir erfið meiðsli. Emil settist niður með Arnari Daða Arnarssyni og fór yfir landsleikinn á laugardaginn og síðustu mánuði með landsliðinu. Auk þess fóru þeir yfir nýafstaðið tímabil Emils á Ítalíu þar sem hann gekk undir aðgerð í desember og skipti um félag í miðri endurhæfingu. Einnig var rætt um uppeldisfélag Emils, næstu skref á ferlinum og hvað Emil ætlar að gera að ferlinum loknum.

Fotbolti.net
Niðurtalningin: FH - Brynjar Ásgeir og Björn Daníel

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 18, 2019

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Hafnfirðinga sem eru komnir aftur heim í FH fyrir tímabilið en FH-ingum er spáð 3. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Björn Daníel Sverrisson.

Landspítali hlaðvarp
Vellíðan í vaktavinnu - Bára Hildur Jóhannsdóttir og Berglind Helgadóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 5, 2019 38:24

Mannauðssvið Landspítala hefur núna ræst verkefnið "Vellíðan í vaktavinnu". Markmið þess er að bæta vinnuskipulag og niðurröðun vakta, styrkja gæði vaktaáætlana og auka vitund starfsfólks um þætti, sem dregið geta úr vinnutengdu álagi og eflt heilsu og vellíðan. Inn í fræðsluna koma atriði á borð við næring, hreyfing, svefn og lífsstíll almennt. Jafnframt verður kennt að gera betri vaktaáætlanir. Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru Hafnfirðingurinn Bára Hildur Jóhannsdóttir deildarstjóri hjá mannauðssviði og Kópavogsbúinn Berglind Helgadóttir starfsmannasjúkraþjálfari hjá sama sviði. Fræðsluvefur um "Vellíðan í vaktavinnu" er hérna: https://www.landspitali.is/um-landspitala/fyrir-starfsfolk/vellidan-i-vaktavinnu/ Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Báru og Berglind. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunni Spotify og hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Unnið er að tengingu við Apple iTunes.

Fram og til baka
Fram og til baka 26. ágúst 2018

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 26, 2018 115:00

Fram og til baka 26.08.2018 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins var Fast Car með Tracy Chapman frá árinu 1987. Fimman - Laufey Helga Guðmundsdóttir lögfræðingur Laufey Helga er Hafnfirðingu og lögfræðingur hjá Umhverfis og auðlindaráðuneyti. Fimman hennar voru staðir sem hafa mótað hana eða haft mikil áhrif Hafnarfjörður sem verður alltaf “heima“, sjálfbært samfélag með bókasafninu, fótbolta og handbolta í Haukum og tónlistarskólanum. Helsinki en þar var Laufey skiptinemi í lögfræði 2006-2007. Hún sagði frá frábæru menntakerfi Finna en einnig baráttunni um fyrstu Eurovision miðana og Eurovision í Helsinki vorið 2007. Vín en þar var Eurovision haldið 2015. Laufey sagði frá gleðinni þegar Eiríkur Hafdal og Flosi Jón Ófeigsson unnu söngvakeppni Eurovision klúbbanna með This is my life. Baldvin Þór Bergsson birtir frétt á rúv.is með fyrirsögninni “Ísland vann Eurovision“. Kænugarður og Eurovision 2017. Laufey fór í nokkur sjónvarpsviðtöl meðal annars í vinsælasta morgunþætti Úkraínu og uppskar að vera beðin um sjálfur með borgarbúum. Hún sagði líka af hrifaríkri skoðunarferð í Chernobyl. Nuuk en þangað fór Laufey í vinnuferð síðasta haust. Hún upplifði flugferðina frá Köben eins og að vera fleygt 20 ár aftur í tímann. Á Grænlandi var það svo náttúran, berskjaldað umhverfið og vinalegt fólk sem hafði mikil áhrif á hana. Viðtal - Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður sem sagði frá stórtónleikum í Hörpu þar sem fram koma reyndustu og hæfileikaríkustu hljómborðsleikarar landsins ásamt öðru úrvals tónlistarfólki. Tónleikarnir eru til að safna fyrir Hammond orgeli til heiðurs Bjarka Friðrikssonar sem lést 19 ára gamall, ungur og upprennandi Hammondleikari. Stofnað hefur verið félag utan um Hammondið sem mun halda utan um rekstur þess í samstarfi við Hörpu tónlistarhús sem mun sjá um að hýsa hljóðfærið. Fréttagetraun - sigurvegari Ósk Davíðsdóttir í Garðabæ

Fram og til baka
Fram og til baka 26. ágúst 2018

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 26, 2018

Svifflug, myndlist, samgönguráðherra, fréttaspjall og fræga fólkið

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 4, 2018 130:00

Þeir eru til sem vita ekkert stórkostlegra en að svífa hljóðlaust um loftin blá og gera það ýmist með svifvængjum eða svifdrekum. En hvað er það sem fær fólk í að stökkva fram af klettabrún með segldúk einan að vopni? Við heyrðum í svifflugsáhugakonunni Anitu Hafdísi Björnsdóttur. Þorgrímur Andri Einarsson er sjálfmenntaður myndlistarmaður sem slegið hefur í gegn ekki síst í gegnum samfélagsmiðla og nú er hann á leið til Toskana á Ítalíu þar sem hann mun kenna á myndlistarnámskeiði í sumar og þar komust færri að en vildu. Við slógum á þráðinn til Þorgríms Andra. Hafnfirðingar kalla eftir tafarlausum úrbótum á vegkaflanum frá Kaldárselslvegi að Krýsuvíkurvegi. Bæjarstjórinn hefur skrifað þingmönnum kjördæmisins og samgönguráðherra bréf, í framhaldi af alvarlegu umferðarslysi á dögunum, þar sem hann bendir á að þarna hafi orðið um 100 umferðarslys á árinu 2015 sem geri um 28 slys á hvern kílómetra á þessum 3,5 kílómetra vegkafla. Við spurðum Sigurð Inga Jóhannsson, samgönguráðherra, um þetta í þættinum. Hjónin Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall fóru yfir fréttir vikunnar með okkur að þessu sinni. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við okkur um fréttir úr heimi fræga fólksins eins og alltaf á föstudögum og í dag kom bandaríska kvikmyndaakademían við sögu ásamt fleiru. Tónlist: OMAM - King and Lionheart. Johnny Logan - Hold me now. Friðrik Dór - Fyrir fáeinum sumrum. The Beautiful South - You keep it all in. Simon & Garfunkel - Cecilia. Liam Gallagher - Paper crown. Nýdönsk - Uppvakningar. Lay Low - By and by. Elton John - Rocket man.

Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 13.febrúar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 13, 2018 190:00

Mikil umræða hefur verið um endurgreiðslur og álagsgreiðslur ofan á laun Alþingismanna eftir að gefið var upp að Ásmundur Friðriksson hefði fengið 4,6 milljónir endurgreiddar vegna aksturskostnaðar í fyrra. Gagnrýnt hefur verið að ekki ríki gegnsæi um þessar greiðslur. Brynhildur Pétursdóttir, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, lagði fram frumvarp á Alþingi árið 2015 þar sem setja átti í lög ákvæði um að þingmönum beri að upplýsa um allar greiðslur sem þeir fá vegna starfa sinna. Frumvarpið hlaut ekki brautargengi. Við heyrum í Brynhildi. Fréttir bárust af því á dögunum að Hafnfirðingar væru eina sveitarfélagið sem á í hlut sem hefur ekki samþykkt samningsdrög vegna fluglestar sem áformað er að fari milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Lögmaður Hafnarfjarðarbæjar telur mörgum spurningum enn ósvarað um fluglestina. Meðal annars sé ekki ljóst hvernig verkefnið tengist borgarlínunni, sem og hvaða áhrif hún hafi á framkvæmdir við Reykjanesbrautina. Við fáum Runólf Ágústsson, framkvæmdastjóra fluglestarverkefnisins, til okkar. Hægri öfgamaðurinn Tommy Robinson boðaði í gær á Twitter komu sína til Íslands í sumar. Hann hefur starfað með breskum þjóðernissamtökum sem hlotið hafa hljómgrunn meðal hægri öfgamanna, rasista og múslímahatara. Ekki er vitað hver býður honum hingað en Viðar Þorsteinsson heimspekingur er einn þeirra sem lýst hefur andstöðu sinni á þessari heimsókn og segir samtök um ofbeldi gegn minnihlutahópum ógna tilveru saklauss fólks. Við heyrum í honum. Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórarkosningum, kemur til okkar en fram að kosningum ætlum við að ræða við oddvita allra flokanna sem bjóða fram, einkum og sér í lagi um samgöngumál og húsnæðismál. Sævar Helgi Bragason kemur í sína vikulegu heimsókn og fræðir okkur um það helsta úr heimi vísindanna.