Viðmælandi þáttarins er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís matarverslunarinnar. Gréta er fædd árið 1980 og alin upp á Flateyri og síðar í Seljahverfinu í Reykjavík. Hún fór í Menntaskólann í Reykjavík áður en hún fór út í skiptinám til Bandaríkjanna og útskrifaðist síðan úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Gréta María er með BS og MS próf í verkfræði frá Háskóla Íslands. Gréta hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur starfað í ýmsum greinum en hefur vakið mesta athygli fyrir störf sín á smásölumarkaði. Eftir útskrift starfaði hún þó í fjármála- og upplýsingatæknigeiranum, m.a. sem forstöðumaður hagdeildar Arion áður en fór í smásölugeirann, þar sem hún starfaði sem fjármálastjóri Festi og framkvæmdastjóri Krónunnar. Þátturinn er í boði Arion, Sólar, Festu - miðstöðvar um sjálfbærnig og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Davíð Örn Símonarson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten. Smitten er vinsælasta stefnumótaforrit Íslands og stefnir að því að verða stórleikandi á markaði sem Tinder, Bumble og Hinge og önnur stefnumótaforrit hafa hafa ráðið ríkjum. Smitten býður upp á einstaka nálgun þar sem prófílar eru leikjavæddir og persónuleg tengsl eru í forgrunni. Davíð er fæddur árið 1990 og ólst upp í hlíðunum í Reykjavík. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan B.S. gráðu í iðnarðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Eftir háskólanám stofnaði hann samfélagsmiðilinn Blendin og síðar Watchbox. Davíð hefur búið í Kísildalnum í Bandaríkjunum um tíma, tryggt margar vel heppnaðar fjármagnanir fyrir fyrirtæki sín og hyggur nú á vöxt með Smitten stefnumótaforritinu. Þátturinn er í boði Festu - miðstöðvar um sjálfbærni, Arion, Sólar og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S. S4S rekur skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og S4S Premium Outlet, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. S4S rekur einnig heildverslun og á dótturfélagið S4S Tæki sem er tækjadeild Ellingsen. Það vinna um 180 manns hjá S4S ehf. og veltir fyrirtækið um 5,5 ma kr. Pétur er fæddur árið 1964 og alinn upp í Breiðholtinu og í Vesturbænum. Hann gekk í FB og Kvennó og lauk síðan MBA prófi frá HR árið 2018. Pétur kynntist skóbransanum snemma aðeins 22 ára þegar hann byrjaði að vinna hjá Axel Ó. Hann stofnaði síðan heildsölu árið 1991, fékk Ecco umboðið árið 1997 og stofnaði Ecco búðina 2003. Síðan hefur S4S keypti Steinar Waage, Toppskóinn og Eurosko sem breytt var í Kaupfélgið í Kringlunni. Árið 2014 bættist í Nike Air búðin við og árið 2017 útivistaverslunin Ellingsen. Árið 2022 kom inn Horn framtakssjóður með það fyrir augum að skrá ætti S4S innan nokkurra ára á markað. Pétur kemur einnig að sprotafyrirtækinu Leikbreytir sem er hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar rafrænar veskislausnir. Þessi þáttur er í boði Sólar, Arion og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Guðmundur Hafsteinsson oftast kallaður Gummi, frumkvöðull og stjórnarformaður Icelandair. Gummi hefur starfað hjá stærstu tæknifyrirtækjum í heimi ásamt því að koma að stofnun nokkurra sprotafyrirtækja. Gummi fæddist á Húsavík árið 1975 og er alinn upp í Breiðholtinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði BS próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og síðar MBA frá MIT í Boston í Bandaríkjunum. Eftir útskrift úr verkfræðinni stofnaði Gummi sitt fyrsta sprotafyrirtæki ásamt félögum sínum sem hét Dímon og þróaði lausnir fyrir fyrstu nettengdu farsímana upp úr aldamótum. Gummi hefur starfað sem vörustjóri hjá Google og vann þar m.a. að fyrstu farsímaútgáfunni af Google Maps og Google Voice Search sem var fyrsta raddgreiningin sem komst í almenna notkun. Hann hefur einnig starfað sem yfirvörustjóri (VP of Product) hjá fyrirtækinu Siri sem var síðan selt til Apple og er nú hluti af iPhone símunum. Árið 2012 stofnaði Gummi sprotafyrirtækið Emu sem þróaði gervigreindarþjón sem veitti notendum aðstoð í spjallþráðum. Fyrirtækið var síðan selt til Google og þróaðist að lokum í Google Assistant, sem Gummi stýrði þróun á frá upphafi. Árið 2019 flutti Gummi aftur til Íslands og starfar nú sem stjórnarformaður Icelandair og kannar heim gervigreindar þess á milli. Nú fyrir jólin 2024 kom út bókin Gummi sem fjallar um endurminningar Gumma á þessu ferðalagi um Kísildalinn. Þar má finna sýn inn í heim tækninnar síðustu áratugi og skemmtilegar sögur af því hvernig hlutirnir gerast á bak við tjöldin hjá nokkrum af stærstu og áhrifamestu fyrirtækjum heimsins. Þátturinn er kostar af Sólar, Arion og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku sem er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og byggir á grunni Hitaveitu Suðurnesja sem var stofnuð í árslok 1974. HS Orka á og rekur fjórar virkjanir, tvær jarðvarmavirkjanir og tvær vatnsaflsvirkjanir. Það starfa um 90 manns hjá fyrirtækinu og veltir fyrirtækið um 16 ma. kr. Tómas er fæddur árið 1968 og alinn upp á Seltjarnarnesi. Hann gekk í MR og kláraði BS próf í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og síðar meistaragráðu í skipulagsverkfræði frá Cornell University í Bandaríkjunum. Tómas starfaði um átta ára skeið sem framkvæmdastjóri hjá Norðuráli. En í ársbyrjun 2004 flutti hann sig til Alcoa þar sem hann starfað um sextán ára skeið, fyrst sem forstjóri Alcoa á Íslandi, svo sem forstjóri í Evrópu og Miðausturlöndum og loks aðstoðarforstjóri Alcoa á heimsvísu. Hann tók við starfi forstjóra HS Orku í ársbyrjun 2020. Tómas Már hefur einnig setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og samtaka, m.a. sem formaður Viðskiptaráðs Íslands 2009-2012, stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins 2005-2011, stjórn Íslandsbanka, Cargow Thorship, DTE og Genís. Einnig var hann stjórnarmaður í samtökum evrópskra álframleiðenda og í stjórn Business Europe. Þátturinn er kostaður af Sólar, Arion og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, stofnandi og meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi. Lindex er sænsk verslunarkeðja sem selur kven- og barnaföt og Gina Tricot er sænsk tískukeðja sem selur kvenmannsföt. Lóa er fædd árið 1979 og alin upp í Flóanum og á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og lauk síðan BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Eftir útskrift vann hún sem verkefnastjóri um tíma hjá Innovit, sem hélt m.a. utan um viðskiptaáætlanakeppnina Gulleggið. Lóa flutti síðan til Svíþjóðar ásamt manni sínum Alberti Þór og tveimur sonum og stofnaði verslunina Emil og Línu við eldhúsborðið sem seldi sænskar vörur á Íslandi. Þau fengu svo hugmyndina að fá sérleyfi fyrir Lindex á Íslandi og eru verslanirnar nú um tíu talsins. Seinna fengu þau svo um sérleyfi fyrir Gina Tricot og eru verslanirnar nú um fjórar talsins. Þau hafa nú nýverið tekið við rekstri barnafataverslunarinnar Dimmalimm á Laugavegi og samhliða því tryggt sér sérleyfi fyrir spænska barnafatamerkið Mayoral og vinnur Lóa þessa dagana í að vekja upp Lína og Emil vörumerkið og koma upp eigin framleiðslu á barnafötum. Þessi þáttur er í boði Arion, Sólar og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Benedikt Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf. Lauf er þekktast fyrir framúrstefnulega hjólagaffla sína, en framleiðir nú og selur malar-, götu- og fjallahjól um allan heim. Benedikt er fæddur árið 1984 og alinn upp í Grafarvoginum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk síðan BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í iðnaðarverkfræði frá Columbia háskóla í New York. Benedikt starfaði í eitt ár hjá Össuri við hönnun gervifóta, þar sem hann fékk hugmyndina að Lauf-gafflinum og stofnaði Lauf ásamt æskuvininum Guðbergi Björnssyni. Fyrirtækið veltir nú um 1.5 milljörðum íslenskra króna og starfa um 25 manns hjá fyrirtækinu. Lauf er þessa dagana að útvíkka vörulínu sína og stefnir þannig að því að tífalda umsvif sín á næstu árum. Þessi þáttur kostaður af Sólar og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa Siríus. Sælgætisgerðin var stofnað árið 1920 og framleiðir og selur súkkulaði og sælgæti en árið 2021 var fyrirtækið selt til norska matvæla samsteypunnar Orkla. Sigríður Hrefna er fædd árið 1977 og ólst upp í Breiðholtinu í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Reykjavík og lauk síðan embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Copenhagen Business School í Danmörku. Sigríður hefur gengt ýmsum störfum í atvinnulífinu, m.a. var hún framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka þar sem vann m.a. við að byggja upp stafræna vegerð bankans. Áður var hún framkvæmdastjóri smásölusviðs Olís, forstöðumaður hjá Arion, framkvæmdastjóri hjá Straumi og hjá SPV sparisjóði og þar áður framkvæmdastjóri Atlas Ejendomme. Sigríður Hrefna hefur setið í stjórn ýmissa fyrirtæki t.d. hjá Reginn, Áltaki, Next, Ígló og Indó, Whistle, Landsbréfum og formaður stjórnar Emessís, SMI ehf, Sjónlags hf., Björg investment fund, Billetlugen, Creatrix og í fjárfestingaráði Arev N1 og Thule vísissjóðs. Þátturinn er kostaður af KPMG og Sólar.
Viðmælandi þáttarins er Finnur Oddsson, forstjóri Haga. Hagar er samstæða fyrirtækja sem starfa á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði og starfa um 2.600 starfsmenn hjá samstæðunni. Dótturfélög í samstæðu Haga eru Hagar verslanir ehf., (Bónus, Hagkaup og Aðföng), Olís ehf., Bananar (dreifingaðili á grænmeti og ávöxtum), Noron (Zara), Eldum rétt og Stórkaup heildverslun. Finnur er fæddur árið 1970 og ólst upp Seljahverfinu. Finnur gekk í Verzlunarskóla Íslands og lauk BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Finnur var á árunum 2013 til 2020 forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. og starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbyggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórn ýmissa dótturfélaga Haga en hefur áður setið í stjórn ýmissa dótturfélaga Origo sem og Orf líftækni, Distica og Sling Þátturinn er í boði Indó og Skaga.
Viðmælandi þáttarins er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect, sem tengir saman starfsmenn fyrirtækja við ólíka sérfræðinga í velferð og geðheilbrigðisþjónustu. Í dag býður Kara Connect upp á nýja vöru, velferðartorg fyrirtækja, sem getur nýst stjórnendum vel til að styðja starfsfólk við ólíkar áskoranir í lífi og starfi. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og borgarstjórn en frumkvöðlastörf hafa átt hug hennar allan síðastliðin ár. Þorbjörg gekk í Verzlunarskóla Ísland og lauk síðan B.A. í uppeldis og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og síðar Master í námssálfræði frá University of Washington. Þorbjörg er fædd 1972, ólst upp í smáíbúðahverfinu í Reykjavík og gekk í Verslunarskóla Íslands og kláraði síðan BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og master í námssálfræði frá University of Washington í Seattle þar sem hún einbeitti sér að heilaþroska barna og ungmenna. Þorbjörg hefur búið í Bandaríkjunum, Frakklandi, á Spáni og í Kaupmannahöfn en líður alltaf best á Íslandi. Þátturinn er kostaður af Skaga og Indó.
Viðmælandi þáttarins er Finnur Pind, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Treble Technologies, sem er fyrirtæki sem framleiðir hugbúnað til hljóðhermunar (e. sound simulation). Hugbúnaður Treble er nýttur af fyrirtækjum út um allan heim í bygginga-, tækni- og bílageirum til þess að hanna betri hljóðupplifanir og draga úr hávaða, meðal annars af mörgum af stærstu tækni- og verkfræðifyrirtækjum heims. Finnur er fæddur árið 1986 og uppalinn í hlíðunum í Reykjavík. Hann er með BS gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og MS próf og doktorsgráðu í hljóðverkfræði (e. acoustics engineering) frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU). Áður en Finnur stofnaði Treble starfaði hann um árabil sem forritari og ráðgjafaverkfræðingur. Á sínum yngri árum var Finnur einnig virkur tónlistarmaður í jaðarrokkssenu Reykjavíkur. Þessi þáttur er kostaður af Indó og Skaga.
Viðmælandi þáttarins er Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate Partners (AREP) þar sem hún er yfir fjáröflun og fjárfestatengslum. Fyrirtækið stýrir framtakssjóðum sem fjárfesta í ákveðnum tækifærum í fasteignum á lægra miðstigi markaðarins (e. lower middle market) og hefur nú yfir $3,5 milljarða af fasteignum í stýringu. Margrét er alin upp í Bandaríkjunum og á Íslandi, gekk í Menntaskólann í Kópavogi en lauk síðan BS í viðskiptafræði, með aukagrein í alþjóðlegum öryggis- og ágreiningsúrlausnum (e. International Security and Conflict Resolution) frá San Diego State University. Margrét starfaði áður sem framkvæmdastjóri (e. Managing Director) hjá Lateral Investment Management framtakssjóði (e. Private equity) og bar ábyrgð á vöruþróun, stefnumótun og fjáröflun en fyrirtækið var með um $800 milljónir undir stýringu en Margrét var í stofnendateymi sjóðsins. Lateral veitir vaxtarfé til fyrirtækja á miðstigum (e. middle market) með áherslu á B2B tæknifyrirtæki. Áður en hún gekk til liðs við Lateral var Margrét yfir fjárfestatengslum hjá framtakssjóði sem fjárfesti í fasteignum og vann hjá Bainbridge Capital, ráðgjafarfyrirtæki í samruna og yfirtökum (m&a) með aðsetur í La Jolla, Kaliforníu. Þátturinn er kostaður af Indó og Skaga.
Viðmælandi þáttarins er Tryggvi Björn Davíðsson, meðstofnandi Indó sparisjóðs. Indó kom inn á fastmótaðan bankamarkað í byrjun síðasta árs og hefur hrist upp í markaðnum með því að bjóða upp á nýja einfalda bankaþjónustu á góðum kjörum. Tryggvi er fæddur árið 1973 og ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann gekk í Menntaskólann á Akureyri og lauk B.S. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.S. gráðu í fjármálum frá Université Sciences Sociales í Frakklandi og MBA gráðu frá INSEAD í París. Tryggvi á að baki áratuga reynslu á fjármálamarkaði, bæði hérlendis sem og erlendis og hefur búið og starfað í Frakklandi, Indónesíu, Singapore og Bretlandi. Þessi þáttur er í boði Skaga og Indó.
Viðmælandi þáttarins Sindri Már Finnbogason, sem er sjálflærður forritari, en hann byrjaði að forrita á Sinclair Spectrum aðeins 7 ára gamall. Hann kláraði ekki framhaldsskóla heldur fór að vinna sem forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Innn sem þróaði vefumsjónarkerfið LiSA. Árið 2003 stofnaði hann Miði.is sem seldi miða á alla viðburði á Íslandi í mörg ár en Miði.is keypti svo miðasölufyrirtækið Billetlugen í byrjun árs 2008 og flutti Sindri til Kaupmannahafnar og var þar í fimm ár þangað til hann tók sér ársfrí frá miðasölubransanum og stofnaði svo Tix.is, árið 2014, sem sérhæfir sig í miðasölulausnum fyrir viðburðarhaldara á borð við menningar- og viðburðarhús. Tix varð svo að Tixly og í dag starfa rúmlega 50 manns hjá fyrirtækinu og er miðasölukerfi Tixly komið í notkun í 14 löndum og með skrifstofur í 9 löndum. Þátturinn er í boði Indó og Skaga.
Viðmælandi þáttarins er Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Hann er fæddur árið 1979 í Reykjavík og er ættaður úr Dölunum á Vesturlandi en ólst upp í Seljahverfinu í Reykjavík. Haraldur gekk í Menntaskóla Reykjavíkur og þaðan lá leiðin í Háskólann í Reykjavík þar sem hann lauk BS prófi í viðskiptafræði. Hann lauk svo MBA-gráðu frá IESE Business School og jafnframt prófi í verðbréfaviðskiptum. Haraldur hefur langa reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Hann er einn af þremur stofnendum Fossa fjárfestingarbanka og var jafnframt forstjóri bankans árin 2015 til 2023. Á árunum 2011 til 2015 gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta Straums fjárfestingarbanka hf. og átti jafnframt sæti í framkvæmdastjórn bankans á sama tímabili. Á árunum 2007 til 2010 starfaði hann sem framkvæmdastjóri fjárstýringar Exista hf. og var forstöðumaður fjármögnunar hjá sama félagi. Þessi þáttur er í boði Indó, Skaga og Taktikal.
Viðmælandi þáttarins er Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (CCEP). CCEP er leiðandi fyrirtæki í neytendavöru á heimsvísu og er með starfsemi í 30 löndum í Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Starfsmenn fyritækisins eru 45 þúsund og þjónar fyrirtækið yfir 600 milljón neytendum. Anna Regína er fædd árið 1982 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og kláraði BS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf frá DTU í Kaupmannahöfn. Fyrstu árin eftir útskrift vann Anna við arðsemisgreiningar, kostnaðargreiningar og verkefnastjórn í erlendum jarðvarmaverkefnum. Frá árinu 2012 hefur Anna Regína unnið hjá Coca-Cola á Íslandi í hinum ýmsu störfum, m.a. forstöðumaður hagdeildar, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og framkvæmdastjóri sölusviðs áður en hún tók við sem forstjóri félagsins árið 2023. Þessi þáttur er kostaður af Skaga, Indó og Taktikal.
Viðmælandi þáttarins er Ægir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Aranja og einn stofnanda Hopp. Ægir er fæddur árið 1985 og ólst upp á Seltjarnarnesi og á Landsbyggðinni. Hann flutti að heiman eftir 10. bekk til að fara á tölvubrautina í Iðnskólanum og hélt áfram í Háskólann í Reykjavík þar sem hann kláraði B.S. í tölvunarfræði. Ægir vann að netbönkum Landsbankans eftir útskrift og síðan hjá Red Gate í Bretlandi áður en hann flutti aftur til Íslands og stofnaði Aranja árið 2014 með Eiríki Heiðari Nilssyni. Aranja er stafræn stofa og venture studio sem sérhæfir sig í stafrænum vörum og hefur Ægir verið framkvæmdastjóri þar í 10 ár. Ægir er einnig meðstofnandi Hopp, sem er samgöngulausn fyrir borgir, einna þekktust fyrir rafskúturnar og Hopp farsímalausnina, en fyrirtækið byrjaði sem verkefni innan Aranja árið 2019. Hopp hefur sótt sér fjármagn frá íslenskum og erlendum fjárfestum og eru rafskúturnar og hugbúnaðarlausnin nú í boði í nokkrum löndum. Ægir skipuleggur einnig meistaranám í framendaforritun í háskóla í Barcelona þar sem hann kennir einnig einstaka áfanga. Þátturinn er kostaður af Arion.
Viðmælandi þáttarins er Halla Tómasdóttir, forstjóri B-Team og frambjóðandi til forsetakosninga Íslands árið 2024. B-Team eru samtök alþjóðlegra leiðtoga sem vinna saman að sjálfbærni, jafnrétti, jöfnuði og aukinni ábyrgð í forystu og viðskiptum. Halla er fædd árið 1968 og ættuð af Vestfjörðum og úr Skagafirði en alin upp á Kársnesinu í Kópavogi. Hún er rekstrarhagfræðingur frá Auburn University of Montogomery og með MBA gráðu frá Thunderbird School of Global Management í Bandaríkjunum. Hún stundaði einnig um nokkurra ára skeið nám til doktorsgráðu við Cranfield University í Bretlandi þar sem hún lagði stund á rannsóknir í leiðtogafræði. Halla hóf sinn feril hjá stórfyrirtækjunum Mars og Pepsi Cola þar sem hún vann í mannauðsmálum. Eftir að hún kom aftur til Íslands tók Halla tók virkan þátt í uppbyggingu Háskólans í Reykjavík þar sem hún leiddi meðal annars fyrstu ár Opna Háskólans og verkefnið, Auður í krafti kvenna, ásamt því að vera ein af stofnendum Þjóðfundsins árið 2009. Hún gegndi fyrst kvenna framkvæmdastjórastöðu Viðskiptaráðs á árunum 2006-7, og var ein af stofnendum Auðar Capital, fyrsta fjármálafyrirtæki í forystu kvenna sem lagði áherslu á mannleg gildi og ábyrgð í fjárfestingum. Halla hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og er vinsæll fyrirlesari á alþjóðlegum vettvangi ásamt því að hafa gefið út bókina, Hugrekki til að hafa áhrif, árið 2023. Þátturinn er kostaður af Krónunni, Icelandair og Arion banka.
Viðmælandi þáttarins er Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Carbon Recycling International (CRI). CRI hefur þróað leiðandi tæknilausn á heimsvísu sem gerir viðskiptavinum þeirra kleift að framleiða metanól á umhverfisvænan hátt úr koltvísýringi og vetni, sem síðan er hægt að nýta sem grænan orkugjafa eða í efnavörur. Í dag starfa rúmlega þrjátíu manns hjá fyrirtækinu en nýir fjárfestar lögðu félaginu til $30m árið 2023 til að fjármagna vöxt þess. Björk er fædd árið 1983 og ólst upp í 104 Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Björk hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri og meðeigandi Reykjavík Backpackers, rekstrarstjóri Bus Hostel Reykjavík og Reykjavík Terminal og stofnandi og framkvæmdastjóri Made in Mountains. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion.
Viðmælandi þáttarins er Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi og framkvæmdastjóri Öldu. Alda er hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að meta og auka fjölbreytileika og inngildingu með örfræðslu, inngildingarkönnun, aðgerðaráætlun og mælaborði. Alda hugbúnaðurinn fór í loftið haustið 2023 og var í lok þess árs valinn á lista ráðgjafafyrirtækisins Gartner yfir leiðandi tæknilausnir sem bjóða upp á mælikvarða og markmiðasetningu í fjölbreytileika og inngildingu . Þórey var áður meðeigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu Capacent og vann m.a. við ráðgjöf í stjórnun og stefnumótun en þar leiddi hún mörg helstu fyrirtæki og stofnanir á Íslandi í gegnum verkefnið Jafnréttisvísi. Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar. Hún hefur tekið þátt í margs konar félagsstörfum og stofnaði m.a. V-daginn, sat í stjórn UN Women, íslenskri landsnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, í varastjórn Jafnréttissjóðs og í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Hún stofnaði einnig umboðsskrifstofuna Eskimo Models og Ólöfu ríku, fyrirtæki sem framleiddi hönnunarleikföng og barnabækur. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Garðar Stefánsson, meðstofnandi og forstjóri matvælafyrirtækisins GOOD GOOD. Fyrirtækið framleiðir m.a. sykurlausar sultur, sætuefni og súkkulaði- og hnetusmjör. GOOD GOOD hefur safnað um $25m+ frá fjárfestum og sækir nú fram á Bandaríkjamarkaði. Garðar er fæddur árið 1984 og ólst upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og Master gráðu í Upplifunarhagkerfinu (e. Experience Economy) frá Háskólanum í Árósum. Garðar var áður meðstofnandi og framkvæmdastjóri saltframleiðslufyrirtækisins Norður Salt og meðstofnandi Saltverks Reykjaness ehf. Þessi þáttur er í boði Arion, Icelandair og Krónunnar.
Viðmælandi þáttarins er Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns, fasteignafélags sem er skráð á íslenska aðalmarkaðinn. Jón er fæddur árið 1985 og ólst upp í Hafnarfirðinum. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í byggingaverkfræði frá DTU háskólanum í Danmörku. Jón hefur starfað sem verkfræðingur hjá Mannviti, sérfræðingur í eignastýringu hjá Kviku og forstöðumaður hjá GAMMA, þangað til hann tók við forstjórastarfi Kaldalóns. Þátturinn er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Domino's. Birgir er fæddur árið 1972 og ólst upp á Borgarnesi og fór síðan í Menntaskólann á Akureyri. Hann flutti til Reykjavíkur og lauk BS í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Pompeu Fabra Barcelona. Birgir starfaði í 10 ár sem forstjóri Domino's á Íslandi og 13 ár sem “Group Managing Director” hjá Strax en hann sat einnig í stjórn félagsins. Fyrirtækið framleiðir og dreifir aukahluti fyrir farsíma. Birgir hefur starfað sem framkvæmdastjóri Cintamani og fjárfest og setið í ýmsum stjórnum m.a. sem stjórnarformaður Billboard/Dengsa/BBI, auglýsingafyrirtækis, sem var selt til Símans núna í janúar 2024. Hann hefur einnig setið í stjórnum Domino's í Noregi, veitingastaðarins Joe & the Juice, afþreyingarfyrirtæksins Lava Show, tæknifyrirtækjanna Andes og Prógramm og leitarsjóðsins Leitar Capital Partners. Ásamt því að taka þátt í fasteignamarkaðnum í gegnum EB Invest. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Jón Björnsson, forstjóri Origo. Origo er samstæða þjónustufyrirtækja í upplýsingatækni með um 500 starfsmenn og býður fyrirtækið upp á þjónustu við rekstur og innviði, hugbúnað og notendabúnað. Jón er fæddur árið 1968 og ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Verzlunarskóla Íslands og er lauk síðan B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Rider University í New Jersey. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Festi og Krónunnar frá 2014 en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Magasin du Nord og Högum frá 2002. Jón situr m.a. í stjórn netverslunarinnar Boozt.com, Dropp og Brauð & Co. Þátturinn er í boði Arion, Krónunnar og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Þorsteinn Baldur Friðriksson, framkvæmdastóri og meðstofnandi leikjafyrirtækisins Rocky Road en fyrirtækið þróar nú nýjan samfélagsleikjamiðil fyrir snjallsíma. Fyrirtækið hefur nú safnað um samtals 700 milljónum kr. frá innlendum og erlendum fjárfestum, þ.á.m. íslenska vísissjóðnum Crowberry Capital, Luminar Ventures og Sisu Ventures. Þorsteinn er fæddur árið 1979 og ólst upp í Vesturbænum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og síðar MBA gráðu frá Oxford háskóla í Englandi. Þorsteinn stofnaði leikjafyrirtækið Plain Vanilla árið 2010 sem gaf m.a. út vinsæla spurningaleikinn Quizup sem fór sigurför um heiminn og safnaði í um 7 ma. kr. frá erlendum fjárfestum þ.á.m. frá Sequoia fjárfestingasjóði. Fyrirtækið var síðan selt til GluMobile árið 2016. Þorsteinn stofnaði einnig leikjafyrirtækið Teatime Games, sem bjó til farsímaleiki sem nýttu nýja tækni til að gera leiki persónulegri með myndspjalli og gáfu þá m.a. út spurningaleikinn Trivia Royal. Þorsteinn vann áður í sölu- og markaðsmálum hjá fjarskiptafyrirtækinu Hive, Industria, Vodafone, TM og BT. Þorsteinn hefur setið í stjórn Icelandic Startups (Klak) og í stjórn hugbúnaðarfyrirtækjanna Oz og Sling. Þessi þáttur er í boði Arion, Icelandair og Krónunnar.
Viðmælandi þáttarins er Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion. Iða Brá er fædd 1976 og er alin upp í Vestmanneyjum, hún gekk í grunnskólann þar og stundaði síðan nám við Verzlunarskólann áður en hún útskrifaðist með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Rotterdam í Hollandi. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 og hefur gengt ýmsum ýmsum störfum innan bankans, síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða Brá hefur setið í ýmsum stjórnum m.a. hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóði, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda. Iða Brá er einnig varaformaður stjórnar Varðar, vátryggingafélags.
Viðmælandi þáttarins er Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia. Guðbjörg er fædd árið 1989 og er alin upp í Garðabæ en síðan lá leið hennar í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hún kláraði BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Master í framleiðsluverkfræði frá Chalmers University í Svíþjóð. Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki sem er að þróa nýja og umhverfisvæna aðferð við framleiðslu á ammoníaki til notkunar í áburð og útblástursfrítt eldsneyti. Fyrirtækið er með þrjú útgefin einkaleyfi á efnahvötum og hefur safnað um 1,2 ma.kr. í styrki og 250 milljónir í fjárfestingu. Í dag telur teymið um 17 manns og stefnir með vöru á markað árið 2028. Guðbjörg hefur áður unnið hjá Promens plastfyrirtæki, í Svíþjóð, í verkefnum í verksmiðjunum þeirra vítt og breitt um Evrópu. Árið 2015 flutti hún aftur til Íslands, vann þá sjálfstætt og vann síðar sem breytingastjóri hjá Arion í Stafrænni Framtíð. Árið 2018 var Guðbjörg ráðin inn sem fyrsti starfsmaður Atmonia og tók síðan við sem forstjóri þar árið 2019. Guðbjörg er stjórnarmaður í Samtökum Sprotafyrirtækja og í stjórn Samtaka Vetnis- og rafeldisneytisfyrirtækja. Þessi þáttur er kostaður af Icelandair, Krónunni og Arion banka.
Viðmælandi þáttarins er Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarkona og fyrrverandi forstjóri Icepharma. Icepharma er um 100 manna fyrirtæki sem selur, markaðssetur heilsueflandi vörur og þjónustu t.d. eins og lyf, lækninga- og hjúkravörur ásamt því að reka umboðið fyrir Nike á Íslandi. Margrét er fædd árið 1954 og er alin upp í miðbænum og Smáíbúðahverfinu. Hún gekk í Verslunarskólann og lauk Cand. Ocean gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og síðar Master í mannauðs- og markaðsfræði frá Copenhagen Business School. Margrét hefur komið víða við og unnið einnig sem framkvæmdastjóri hjá Skeljungi, stjórnandi hjá Q8 (Kuwait Petroleum International) og starfsþróunarstjóri hjá Statoil í Danmörku. Margrét situr í stjórn Eimskipa, Festis og Heklu og hefur áður setið í stjórnum Krónunnar, N1, Isavia og Reiknistofu bankanna. Þessi þáttur er kostaður af Arion banka, Krónunni og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Tulipop. Tulipop er íslenskur ævintýraheimur fyrir börn sem hefur notið mikilla vinsælda um áraraðir. Helga er fædd árið 1979 og ólst upp í Noregi, bjó svo um nokkurra ára skeið á Selfossi og flutti svo í Háaleitishverfið í Reykjavík þar sem hún sleit barnsskónum. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk BS prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Helga vann sem viðskiptastjóri og markaðsstjóri í hugbúnaðarbransanum á Íslandi en fluttist svo búferlum til London þar sem hún lauk MBA námi frá London Business School og vann þar einnig í stefnumótun og markaðsmálum fyrir American Express. Helga flutti síðan til Íslands árið 2009 eftir að hafa lokið MBA náminu og hóf þá störf í fyrirtækjaráðgjöf hjá PwC og starfaði þar þar til hún stofnaði fyrirtækið Tulipop árið 2020. Þátturinn er kostaður af Arion, Icelandair og Krónunni.
Viðmælandi þáttarins er Styrmir Þór Bragason, stjórnarformaður Stellar Collection og fyrrum forstjóri Arctic Adventures. Stellar Collection er ný samstæða ferðaþjónustufyrirtækja í Alaska sem hann fer fyrir. Styrmir er fæddur árið 1970 og alinn upp í Seljahverfinu. Hann gekk í Menntaskóllann við Sund og fór þaðan í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og kláraði Master í fjármálahagfræði frá Stirling University í Skotlandi. Styrmir hefur komið víða við og m.a. starfað sem forstjóri MP Banka, Atorku fjárfestingafélags og Títans fjárfestingafélags og einnig sem framkvæmdasjóri eigin viðskipta hjá Straumi og forstöðumaður sjóðastýringar hjá Landsbréfum. Styrmir hefur einnig setið í hinum ýmsum stjórnum. Þátturinn er kostaður af Icelandair, Arion og Krónunni.
Viðmælandi þáttarins er Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Tómas er alinn upp í Reykjavík með stuttri viðkomu í Kiel í Þýskalandi. Hann gekk í MH og fór þaðan í iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Hann hefur einnig mastersgráðu í stjórnun aðfangakeðja með áherslu á flugfélög frá MIT í Boston ásamt MBA gráðu frá sama skóla. Tómas hefur tekið að sér ýmis störf hjá Icelandair í gegnum tíðina, allt frá forritun og verkefnastjórnun, forstöðumennsku tekjustýringar yfir í framkvæmdastjórn ýmissa sviða síðustu fimm árin á tímum mikils umróts í flugiðnaðinum. Tómas hefur einnig unnið hjá ráðgjafafyrirtækinu Bain & Company, sem forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka, framkvæmdastjóri hjá WOW air og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður. Þátturinn er kostaður af Krónunni, Arion banka og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. Ægir er fæddur árið 1973 og er alinn upp á Selfossi. Hann gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands, R.A. Long High School og kláraði síðan BA próf í sálfræði og Master í vinnusálfræði frá Háskóla Íslands. Ægir starfaði um árabil hjá Capacent, þekkingar- og ráðgjafyrirtæki, og vann þar sem ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs. Hann starfaði síðan sem mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála áður en hann tók við forstjórastólnum hjá Advania á Íslandi árið 2015. Advania er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni og tilheyrir Advania samstæðunni sem er með starfsemi víða í Evrópu. Mikill vöxtur hefur verið hjá Advania á síðustu árum og í dag starfa þar um 4500 manns, þar af um 630 manns á Íslandi en sjóður á vegum Goldman Sachs keypti meirihluta í Advania árið 2021. Ægir hefur einnig setið í stjórn Viðskiptaráðs og Festu, miðstöðvar um sjálfbærni, auk nokkurra dótturfélaga Advania. Þátturinn er kostaður af Arion, Icelandair og Krónunni.
Viðmælandi þáttarins er Einar Stefánsson, meðstofnandi Oculis og prófessor í augnlækningum frá Háskóla Íslands. Oculis er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar augnlyf en fyrirtækið var skráð á Nasdaq kauphöllina í mars árið 2023. Oculis hefur m.a. þróað lyf sem byggir á einkaleyfavarinni tækni, sem gerir mögulegt að meðhöndla sjúkdóma í afturhluta augans með augndropum. Hjá Oculis starfa um 30 starfsmenn í dag og er fyrirtækið metið á um 40 ma.kr. Einar er fæddur árið 1952 og alinn upp í Reykjavík. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði læknisfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist með Doktorsgráðu í lífeðlisfræði frá Duke háskóla í Bandaríkjunum. Einar vann einnig hjá Duke háskóla sem vísindamaður og lektor í augnlækningum í 10 ár þangað hann kom aftur til Íslands og tók við prófessorstöðu við Háskóla Íslands og stofnaði síðar Oculis árið 2003. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Björn Hólmþórsson, stofnandi og forstjóri Five Degrees. Björn er fæddur árið 1975 og er alinn upp á Suðurnesjunum og Hafnarfirði. Hann útskrifaðist á eðlisfræðibraut við Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði próf í tölvunarfræði frá HR, áður TVÍ. Hann hefur unnið við forritun hjá Fjarvangi, forritari og verkefnastjóri í hugbúnaðargerð hjá Mens Mentis en þar vann hann við gerð eignastýringakerfis og lánakerfis. Síðar fór hann til Englands og vann við hugbúnaðargerð hjá Raft International en þaðan flutti hann til Lúxemborg árið 2003 þar sem hann byrjaði í hugbúnaðargerð og varð síðar framkvæmdastjóri tæknimála (CIO) hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Björn stofnaði fjártæknifyrirtækið Five Degrees árið 2009 sem er með skrifstofur á Íslandi, Portúgal og í Hollandi og þróar hugbúnaðarlausnir í skýið fyrir banka víðsvegar um heiminn. Árið 2018 keypti Five Degrees, íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Libra og er þ.a.l. með mikil umsvif á Íslandi. Five Degrees hefur safnað um 4,5 ma. kr. frá erlendum fjárfestum til að fjármagna vöxt félagsins á síðustu árum. Five Degrees var selt til alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækisins Topicus nú í mars 2023. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Icelandair og Arion banka.
Viðmælandi þáttarins er Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu og markaðssviðs hjá Vodafone. Sesselía er fædd árið 1976 og alin upp á Egilsstöðum. Hún gekk í Menntaskólann á Egilsstöðum og kláraði BA próf í félagsfræði frá Háskóla Ísland. Hún er með tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, í alþjóða markaðsfræði og vörumerkjastjórnun og í stjórnun mannauðs með áherslu á þekkingar og breytingastjórnun. Sesselía bjó í Svíþjóð í yfir 10 ár þar sem að hún stofnaði og rak fyrirtækið Red Apple Apartments. Eftir að Sesselía flutti aftur heim til Íslands hefur hún starfað sem forstöðumaður stafrænna miðla og markaðsmála hjá Advania, framkvæmdastjóri Íslandspósts og sem forstöðumaður nýsköpunar og markaðsmála hjá Högum. Hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi og setið í hinum ýmsu stjórnum m.a. fyrir Samtök verslunar og þjónustu, hugbúnaðarfyrirtækið AGR og Sýn. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion banka.
Viðmælandi þáttarins er Ingvar Helgason, stofnandi og framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins VitroLabs Inc. Vitrolabs er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar leður úr stofnfrumum dýra. Fyrirtækið er staðsett úti í Bandaríkjunum og hefur safnað yfir $46m frá m.a. Khosla Venures og Leanordo Dicaprio. Ingvar er fæddur árið 1980 og hóf ungur störf í tískuiðnaðinum. Eftir að hann flutti til London árið 2001 hóf hann störf hjá tískuhönnuðinum Marjan Pejoski sem er frægastur fyrir svanakjól Bjarkar og stofnaði síðan tískufyrirtækið Ostwald Helgason í Bretlandi sem hannaði og framleiddi tískuföt sem seld voru víða um heim. Eftir lokun fatamerkisins stofnaði Ingvar Vitrolabs Inc. árið 2016 sem framleiðir leður úr stofnfrumum dýra á umhverfisvænan hátt sem verður m.a. selt til tísku- og bílaframleiðanda. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi og forstjóri Sensa. Valgerður er fædd árið 1963 og alin upp í Vesturbænum. Hún gekk í Melaskóla og Hagaskóla þangað til leið hennar lá í Menntaskólann í Reykjavík. Hún kláraði síðan BS próf í rafmagnsverkfræðifræði frá Háskóla íslands og MBA frá University of Miami. Valgerður hefur komið víða við og m.a. unnið sem sérfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, deildarstjóri rafmagnsdeilar hjá Jóhann Ólafsson & Co. og framkvæmdastjóri hjá Tæknivali þangað til hún stofnaði svo Sensa árið 2002. Sensa er 140 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í fjölbreyttum lausnum í upplýsingatækni, m.a. lausnir í innviðum og rekstri upplýsingatæknikerfa. Sensa var keypt af Símanum árið 2007 og tilheyrði Símanum þangað til 2020 þegar norska upplýsingafyrirækið, Crayon, keypti Sensa. Valgerður hefur setið í hinum ýmsu stjórnum t.d. eins og hjá Íslandsbanka, Símanum í Danmörku, Talenta, Samtökum iðnaðarins og atvinnulífsins, Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og hjá sprotafyrirtækinu Memento. Þessi þáttu er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical en félagið framleiðir lækningatæki sem notuð eru af heilbrigisstarfsfólki um allan heim til greiningar á svefni og svefnvandamálum. Pétur er fæddur árið 1966 og er alinn upp í Kópavoginum. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi og lauk prófi frá Kennaraháskólanum og nam síðar mastersnám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Pétur hefur komið víða við í atvinnulífinu. Hann var einn af stjórnendum Samskipa við stofunun félagsins 1991, stýrði innflutningsdeild og uppbyggingu á vöruhótel og drefingamiðstöð Samskipa. Hann var síðar framkvæmdastjóri yfir starfsemi í SÍF í Noregi (Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda) og síðar sölustjóri hjá íslenska lækningatækjaframleiðandanum Flögu. Frá Flögu fór Pétur til Fons eignarhaldsfélags og fór þar fyrir fjárfestingum Fons á breskum smásölumarkaði og í flugrekstri. Pétur tók við sem framkvæmdastjóri Nox Medical árið 2011 fjórum árum eftir stofnun þess og hefur stýrt örum vexti félagsins síðan. Fyrir þremur árum sameinaði Nox Medical starfsemi sína við starfsemi Fusion Health í Atlanta í Bandaríkunum undir merkjum Nox Health. Hjá Nox starfa nú um 350 starfsmenn og þar af tæplega 100 á Íslandi við þróun, framleiðslu og markaðssetningu lækningavara undir merkjum Nox Medical. Vöxtur félagsins hefur verið hraður en árið 2022 velti Nox Health samstæðan rúmum 8 milljörðum króna.
Viðmælandi þáttarins er Sveinn Sölvason, forstjóri Össurar. Össur er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyriræki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks. Sveinn er fæddur árið 1978 og alinn upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Menntaskólann við Sund og kláraði BS próf í alþjóðaviðskiptum og mastergráðu í fjármálum fyrirtækja frá Copenhagen Business School (CBS). Sveinn hefur starfað í fyrirtækjaráðgjöf hjá Kaupþingi, Goldman Sachs, HSH Nordbank og í viðskiptaþróun hjá Marel. Sveinn hóf störf hjá Össuri árið 2009 en tók við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs fyrirtækisins árið 2013 og varð síðan forstjóri fyrirtækisins árið 2022. Össur er skráð á hlutabréfamarkað í Danmörku og starfa um 4000 manns hjá fyrirtækinu í yfir 30 löndum. Þessi þáttur er í boði Krónunnar og Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju. Sigríður Margrét eða Sigga Magga eins og hún er oft kölluð er fædd árið 1976 og er alin upp víða á landinu. Hún gekk í Höfðaskóla á Skagaströnd, Grunnskóla Njarðvíkur, Verslunarskóla Íslands og lauk BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri en undanfarin ár hefur hún tekið stjórnendanámskeið hjá IESE og Harvard Business School. Sigga Magga hefur starfað sem ráðgjafi, viðskiptastjóri og svæðistjóri hjá IMG (sem nú er Gallup). Hún starfaði einnig sem framkvæmdastjóri, upplýsingatæknifyrirtækisins, Já, frá stofnun og einnig framkvæmdastjóri Skjá miðla frá árinu 2007. Skjár miðlar tilheyrðu Skipta samstæðunni (Símanum) og undir hana heyrðu fyrirtæki sem sinntu upplýsinga- og fjölmiðlun innan samstæðunnar, Já og Skjárinn sem hélt utan um sjónvarpsstöðina Skjá Einn og tengda sjónvarpsþjónustu. Sigga Magga varð einn eigenda Já árið 2010 og starfaði sem forstjóri fyrirtækisins til ársins 2019. Já keypti leitartæknifyrirtækið Spurl, upplýsingafyrirtækið Gallup og smáforritið Leggja sem var svo selt til Sýnar nú í ár, 2023. Sigga Magga tók við sem forstjóri Lyfju árið 2019 en Lyfja er leiðandi í rekstri lyfjaverslana á Íslandi og starfrækir alls 45 apótek og útibú um allt land. Innan samstæðu Lyfju eru jafnframt Heilsuhúsið og Heilsa sem er innflutnings-, framleiðslu- og heildsölufyrirtæki og starfa um 380 manns hjá samstæðunni. Sigga Magga hefur setið í ýmsum stjórnum, meðal annars stjórn Samtaka Atvinnulífisins, Samtaka Verslunar- og Þjónustu, Viðskiptaráðs Íslands, stjórn Já, skólanefnd Verzlunarskóla Íslands, stjórn Bláa lónsins og dótturfyrirtækja þess. Þessi þáttur er í boði Icelandair og Krónunnar.
Viðmælandi þáttarins er Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdarstýra Carbfix. Carbfix hefur allt frá árinu 2012 fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun og dælt því ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum ferlum. Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar kolefnisförgunar vakið heimsathygli og starfa nú yfir 30 manns hjá fyrirtækinu. Edda er fædd árið 1981 og er alin upp í Fossvogi, Kópavogi og Danmörku. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði B.S. og Master í efnafræði við Háskóla Íslands og Doktor í forða- og efnafræði frá sama skóla. Edda starfaði sem yfirmaður nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur samhliða því að vera verkefnastjóri Carbfix sem byrjaði sem nýsköpunarverkefni innan Orkuveitunnar, Háskóla Íslands og erlendra samstarfsaðila. Carbfix var formlega stofnað sem dótturfyrirtæki OR árið 2019 og tók hún þá við sem framkvæmdastýra fyrirtækisins. Edda hefur einnig setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, GEORG, Íslenskri NýOrku og danska orkufyrirtækinu Innargi. Þessi þáttur er í boði Icelandair og Krónunnar.
Viðmælandi þáttarins er Orri Hauksson, forstjóri Símans. Orri er fæddur árið 1971 og er alinn upp í Vesturbænum. Hann gekk í Melaskóla, Hagaskóla og Menntaskólann í Reykjavík og kláraði CS próf í vélaverkfræði frá Háskóla íslands og MBA frá Harvard Business School. Orri hefur m.a. starfað hjá Eimskipafélaginu og Maskínu, sem aðstoðarmaður forsætisráðherra, framkvæmdastjóri þróunarsvið Símans, fjárfestingastjóri Novators fjárfestingafélags og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Orri varð forstjóri Símans árið 2013 en hjá fjarskipta- og fjölmiðlasamsteypunni starfa nú um 270 manns og veltir fyrirtækið um 25 ma. kr. Samsteypan hefur nýlega selt tvö dótturfyrirtækin sín, upplýsingatæknifyrirtækið Sensa til norska upplýsingatæknifyrirtækisins Crayon og innviðafyrirtækið Mílu til franska eignastýringafyrirtækisins Ardian árið 2022. Orri hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, skráðra og óskráðra, á Íslandi og á öðrum Norðurlöndum, sem og í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þátturinn er í boði Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid. Grid þróar hugbúnað sem auðveldar vinnu með tölur, myndrit og útreikninga og skákar þannig hefðbundnum töflureiknum á borð við Excel og Google Sheets. Hjálmar er fæddur árið 1976 og er alinn upp í Borgarfirðinum. Hann byrjaði að forrita 12 ára gamall og seldi sitt fyrsta hugbúnaðarleyfi aðeins 15 ára gamall. Hann gekk í Menntaskólann á Laugarvatni og þaðan lá leið hans í tölvunarfræði í Háskóla Íslands þar sem hann staldraði stutt við þar sem hann stofnaði ásamt félögum sínum tölvuleikjafyrirtækið Lon&Don. En síðar stofnaði hann farsímalausnafyrirtækið Maskínu og bókamerkja- og leitartæknifyrirtækið Spurl, sem hélt utan um bókamerki fólks á netinu (e. social bookmarking) og þróaði leitartækni sem var seld til Símans. Hjálmar vann síðan hjá Símanum í tvö ár sem yfirmaður viðskiptaþróunar. Árið 2008 stofnaði síðan Hjálmar, Datamarket, sem var fyrirtæki sem þróaði hugbúnað sem auðveldaði viðskiptavinum að finna og birta göng á myndrænan hátt. Datamarket var síðan selt fyrir 1,6 milljarð íslenskra króna ($15m) til bandaríska tæknifyrirtækisins til Qlik. Hjálmar starfaði sem framkvæmdastjóri gagna (VP of Data) hjá Qlik í um þrjú ár þangað til hann stofnaði nýtt fyrirtæki, hugbúnaðarfyrirtækið Grid, þar sem hann starfar sem framkvæmdastjóri í dag. Hjálmar hefur einnig verið að fjárfesta í sprotafyrirtækjum í gegnum fjárfestingafélagið, Investa, og setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og hjá fjölmiðlinum Kjarnanum, Trackwell og Tal. Þátturinn er í boði Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðssviðs hjá Icelandair. Sylvía er fædd árið 1980 og er alin upp í Vesturbænum. Hún gekk í Kvennaskólinn í Reykjavík og kláraði BS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla íslands og Master í aðgerðarannsóknum frá London School of Economics. Sylvía starfaði í fimm ár hjá Amazon, fyrst sem sérfræðingur í nýfjárfestingum á fjármálasviði og seinna sem yfirmaður viðskiptagreindar og vörustjóri í Kindle deild Amazon. Sylvía hefur starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo, forstöðumaður á rekstrarsviði hjá Icelandair, forstöðumaður tekjustýringar og jarðvarmadeildar hjá Landsvirkjun og forstöðumaður viðbúnaðarsviðs Seðlabanka Íslands. Sylvía hefur einnig starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands og setið í ýmsum stjórnum t.d. eins hjá og Símanum, Íslandssjóðum, Ölgerðinni og Orkufjarskiptum. Þátturinn er í boði Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma. Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í Hafnarfirði sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki. Félagið var stofnað árið 2018 en nú starfa þar um 160 manns. Jónína er fædd árið 1972 og er alin upp í Kópavoginum þar sem hún gekk í grunnskóla. Hún fór í Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði Masterspróf í lyfjafræði frá Háskóla Íslands. Jónína starfaði í um sextán ár hjá Medis, dótturfélagi Actavis, sem síðar var selt til Teva árið 2016. Medis sérhæfir sig í sölu á lyfjahugviti og samheitalyfjum til annarra lyfjafyritækja um allan heim. Hjá Medis gengdi Jónína ýmsum stjórnendastöðum, leiddi m.a. viðskiptaþróun félagsins auk þess að vera staðgengill forstjóra. Þegar Jónína hætti hjá Medis var félagið með um 110 starfsmenn í 10 löndum, með sölu á 250 lyfjum og veltu um 500 milljóna evra. Jónína hefur einnig setið í ýmsum stjórnum eins og í stjórn Samtaka Iðnaðarins, Samtaka Atvinnulífins, Medis Pharma á Íslandi sem og í Hollandi. Þátturinn er kostaður af Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands/Motus. Greiðslumiðlun býður upp á skráningar- og greiðslulausnir fyrir fyrirtæki, félagasamtök og opinbera aðila. Brynja er fædd árið 1978 og ólst upp í Laugardalnum í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Hamrahlíð en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk BS prófi í Iðnaðarverkfræði og síðar MS gráðu í Aðgerðargreiningu frá Georgia Insitute of Technology. Brynja hefur m.a. unnið sem forstöðumaður sölumála hjá Símanum, samskipastjóri hjá OZ og lengst af sem forstjóri Creditinfo á Íslandi og forstjóri CreditInfo á Norðurlöndunum. En Creditinfo er fyrirtæki sem sérhæfir sig í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga, áhættumati og fjölmiðlavöktun fyrirtækja. Brynja hefur setið í ýmsum stjórnum t.d. hjá Fossum fjárfestingabanka, Sensa, Lífsverki og Viðskiptaráði. Þátturinn er kostaður af Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Experian, sem er breskt gagna- og tæknifyrirtæki staðsett í London. Sigríður er fædd árið 1968 og ólst upp í miðbænum og svo Smáíbúðarhverfinu. Hún gekk í Austurbæjarskóla, Breiðagerðisskóla, Réttó og síðan Menntaskólann við Sund. Sigríður er doktor í leiðtoga- og nýsköpunarfræðum frá The University of Manchester, er með MBA frá IESE Business School og er markaðsfræðingur frá Háskólanum í Suður Karólínu í Bandaríkjunum. Sigríður hefur búið og unnið víða erlendis og m.a. starfað sem stjórnandi hjá American Express um árabil, nýsköpunarstjóri hjá breska bankanum Santander og framkvæmdastjóri hjá Tesco, bresku smásölukeðjunni. Sigríður hefur einnig setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og breska félaginu AutoTrader og stjórn Frumtaks, vísissjóðs.
Viðmælandi þáttarins er Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Transition Labs. Félagið starfar með leiðandi erlendum loftslagsverkefnum, og aðstoðar þau við að byggja þau upp á Íslandi. Kjartan er fæddur árið 1972 og alinn upp í Fossvoginum. Hann gekk í Réttarholtsskóla og síðan lá leið hans í Menntaskólann við Sund. Kjartan lauk BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Genóa á Ítalíu, og síðar MBA-prófi frá Harvard Business School. Kjartan hefur stofnað og rekið eigin nýsköpunarfyrirtæki og komið að uppbyggingu fjömargra margra sprota- og tæknifyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis sem stjórnarmaður, fjárfestir og ráðgjafi. Meðal þeirra má nefna félögin Basno, Datamarket, GRID og Taktikal. Hann hefur starfað sem fjárfestingastjóri hjá vísisjóðnum Brunni Ventures, framkvæmdastjóri nýsköpunarfélagsins Volta, og stofnandi bandaríska tæknifyrirtækisins Basno. Áður starfaði Kjartan um árabil sem framkvæmdastjóri á viðskiptaþróunarsviði fjölmiðlasamsteypunnar Bertelsmann í New York og leiddi nýsköpunarverkefni fyrir ýmis dótturfyrirtæki hennar, svo sem Random House, SonyBMG Music og Fremantle Media. En fyrir það starfaði Kjartan sem markaðsstjóri bókaforlagsins Vaka-Helgafell, og framkvæmdastjóri Markaðs- og þróunarmála hjá Eddu útgáfu. Utan viðskiptalífsins hefur Kjartan setið í stjórnum fjölmargra samtaka og stofnanna t.d. eins og UNICEF á Íslandi og Hörpu, tónlistarhúss. Þessi þáttur er í boði Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Hermann Haraldsson, meðstofnandi og forstjóri Boozt.com. Boozt.com er stærsta netverslun Norðurlandanna sem selur vörur eins og tískufatnað, íþróttaföt, snyrtivörur og heimilisbúnað. Hermann er fæddur árið 1966 og ólst upp í Reykjavík og á Akureyri. Hermann flutti 14 ára til Danmerkur í heimavistaskóla, gekk í menntaskóla þar og háskóla og hefur búið í Danmörku síðan. Hermann kláraði B.Sc. próf í viðskiptahagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) og Master í viðskiptahagfræði frá sama skóla. Hermann hefur unnið sem framkvæmdastjóri OMD Nordic, birtingahúss, sem eigandi og framkvæmdastjóri Win Win aulgýsingastofunnar og framkvæmdastjóri Brøndby IF danska fótboltaklúbbsins sem listaður er í kauphöll. Hermann stofnaði síðan Boozt.com árið 2010 og veltir fyrirtækið nú um 6,5 milljarða sænskra króna eða um 85 milljarða íslenskra króna. Höfðustöðvar Boozt.com eru í Malmö og starfa um 1400 starfsmenn hjá fyrirtækinu í Kaupmannahöfn, Árásum, Vilnius og í Póllandi. Hermann hefur einnig setið í ýmsum stjórnum m.a. hjá Adform, sjónvarpsstöðinni TV 2 og fótboltaliðinu Brøndby. Þátturinn er kostaður af Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Guðjón Már Guðjónsson eða Guðjón í Oz eins og hann er alltaf kallaður en hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Oz. Guðjón er fæddur árið 1972 og ólst upp í Sundahverfinu. Hann gekk í Langholtsskóla og síðan Verzlunarskólann og stofnaði þar hugbúnaðarfyrirtækið OZ, sem þróaði þrívíddarhugbúnað og síðar samskiptahugbúnað. Það fyrirtæki var selt til Nokia árið 2008 fyrir um $300 milljónir bandaríkjadala. Guðjón hefur síðar komið að stofnun margra fyrirtækja þ.a.m. Íslandssíma sem síðar varð Vodafone, Nova, Industria, Maskína, Agora en nú einbeitir hann sér að öðru fyrirtæki sem ber líka heitið OZ og þróar vöruna OZ Sports, sem er tæknilausn til að taka upp íþróttatburði, klippa og miðla og OZ.com, sem er tæknilausn sem gerir áhorfendum kleift að taka þátt í gagnvirkum viðburðum á netinu. Þátturinn er kostaður af Icelandair.
Viðmælandi þáttarins er Bjarney Sonja Breidert eða Baddý eins og hún er alltaf kölluð. Baddý er stofnandi og framkvæmdastjóri 1xINTERNET, sem er hugbúnaðarfyrirtæki stofnað árið 2013. Um 70 starfsmenn starfa hjá 1xINTERNET og er fyrirtækið með skrifstofur í Frankfurt, Berlin, Reykjavík og á Conil de La Frontera á Spáni. Baddý er fædd árið 1980 og alin upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Verslunarskólann, lauk tölvunarfræðiprófi frá Háskólanum í Reykjavík og síðar mastersgráðu í verkfræði frá Tækniháskólanum í Vínarborg. Baddý byrjaði að starfa sem forritari en vann svo sem ráðgjafi hjá Thule Investments, fjárfestingasjóði, áður en hún stofnaði 1xINTERNET. Baddý er formaður stjórnar alþjóðlegu Drupal samtakanna, sem eru samtök sem standa á bak við opna hugbúnaðinn Drupal sem er leiðandi vefkerfi hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum í heimi. Þessi þáttur er kostaður af Icelandair.