POPULARITY
Í upphafi árs, á þeim tímamótum, skoðum við gjarnan stöðuna á ýmsu, það eru vörutalningar, hvernig er formið? Eftir jólin og veislurnar endurskoðum við jafnvel mataræðið. Samtök grænkera á Íslandi standa fyrir Veganúar í janúar. Það er dagskrá af því tilefni allan þennan mánuð og við fengum nýjan formann samtakanna, Aldísi Amah Hamilton til að koma og segja okkur meira frá veganúar. „Á Vestfjörðum, í afskekktri verbúð á 19. öld, þarf Eva ung ekkja, að taka erfiða ákvörðun þegar erlent seglskip strandar í firðinum,“ segir í lýsingu á myndinni The Damned, sem er sálfræðitryllir innblásin af íslenskri þjóðtrú og stórbrotinni náttúru. Myndin hefur fengið frábærar viðtökur eftir frumsýningu sína í Bandaríkjunum. Þetta er fyrsta kvikmynd Þórðar Pálssonar í fullri lengd en hann skrifaði söguna ásamt handrits höfundinum Jamie Hannigan. Þórður kom í þáttinn í dag. Veðrið leikur alltaf stórt hlutverk í lífi okkar Íslendinga og á því er engin breyting í dag. Heimsókn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings er kærkomin annan hvern þriðjudag og í dag kom hann með smá viðbót við veðuruppgjör síðasta árs þar sem hann skoðar ástæður fyrir því hvað 2024 var kalt. Svo ræddi hann um ísinn á Þingvallavatni og umskipti í veðurspánni framundan. Tónlist í þættinum: Stóð ég út í tunglsljósi / Björgvin Halldórsson (lagahöfundur ókunnur, texti Heine Heinrich, íslenskur texti Jónas Hallgrímsson) Landíbus með jökri (Nú hvaða hvaða?) / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Sjáumst aftur / Páll Óskar Hjálmtýsson (Orlande de Lassus, texti Páll Óskar Hjálmtýsson) Never Going Back / Fleetwood Mac (Lindsey Buckingham & Christine McVie) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Gestur minn þessa vikuna er Aldís Amah Hamilton. Aldís er leikkona, handritshöfundur og margt fleira. Hún er gjörsamlega frábær og mögnuð. Það var gott, gaman, yndislegt, áhugavert og fræðandi að spjalla við Aldísi. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Egils Kristall - Netgíró - Payday - Pizza Popolare
Í október hófst önnur sería af Svörtu Söndum, spennuþáttaráð úr smiðju Baldvins Z. Aldís Amah Hamilton fer aftur með hlutverk lögreglukonunnar Anítu en þættirnir gerast rúmu ári eftir atburði fyrri seríunnar. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsrýnir Lestarinnar fer í saumana á Svörtu Söndum. Harðkjarnapönksveitin I Adapt er snúin aftur. Hljómsveitin var ein aðaldriffjöður pönksenunnar í Reykjavík á fyrsta áratug aldarinnar: reið, pólitísk og ógnarþétt á tónleikum. Birkir og Ingi Þór úr I Adapt setjast niður með Kristjáni og segja frá tónleikum sem þeir halda í Iðnó um helgina. Þar verður ábyggilega moshpittur og öskursungið með slagaranum Sparks.
Annar þáttur af tveimur sem kemur út í dag! Hellblade 2 kom út í maí og við ætlum að sjálfsögðu að fjalla um hann. Saga baráttukonunnar frá Orkneyjum heldur áfram og hér er ekkert gefið eftir. Hún heldur til Íslands til að granda þrælasölum þar. Ekkert glens hér á ferð. Arnór Steinn og Gunnar taka leikinn fyrir og ræða allar hliðar. Sagan, combat kerfið, útlitið og margt fleira! Er þessi leikur þess virði? Við pælum vel í því saman. Við spillum ekki fyrir neinu alvarlegu í þættinum, þannig ykkur er óhætt að hlusta! En við segjum í hreinskilni hvað okkur finnst og það er margt. Hvað fannst þér? Er spenna hjá ykkur fyrir þessum leik? Endilega tékkið á þætti 207 þar sem við ræddum við Aldísi Amah Hamilton um hennar hlutverk í leiknum! Virkilega gott og fræðandi spjall. Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Leikkonan Aldís Amah Hamilton snýr aftur í stúdíó til strákanna og það er ekkert annað en VEISLA eins og í síðasta þætti. Eins og kunnugt er leikur hún aðalhlutverkið í íslensk-framleidda leiknum Echoes of the End, sem kemur ekki alveg strax út, EN! hún leikur í nýja Hellblade leiknum, Senua's Saga! Hún segir Arnóri Steini og Gunnari allt um hvernig það er að leika í þeim leik, tölum enn meira um Final Fantasy og hver er drauma tölvuleikjaserían til að leika í. Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Aldis Amah Hamilton is the star and co-writer of the critically acclaimed Icelandic TV series BLACK SANDS. She's making waves in her home country of Iceland, as the first person of color to star and co-write a TV series. For her work as an actress, Aldis was nominated for Actress of the Year at the Iceland Edda Awards, which is equivalent to The Emmy Awards. The 8-episodes, Black Sands drama series, features breathtaking cinematography around Iceland's iconic black sands area. The series is a dark noir crime drama, following a troubled police officer who is forced to return to her tight knit hometown, and that's when the plot really begins to thicken. Aldis recently announced that season 2 of the show will begin shooting this month. The series has received praise in publications such as The Wall Street Journal, The NY Post and others. Currently, Black Sands is available to stream on Viaplay.com, a Nordic streaming service that produces and distributes award-winning films, series, and documentaries to North America for the first time.
Leikaraparið og listafólkið Aldís Amah Hamilton og Kolbeinn Arnbjörnsson tóku sér frí frá góða veðrinu og mættu til mín í stórskemmtilegt og einlægt spjall yfir rjúkandi heitum bolla.Aldís hefur verið áberandi á skjám landsmanna undanfarin misseri en leikur hún meðal annars aðalhlutverk sjónvarpsþáttanna Svörtu sanda en skrifaði hún einnig handritið á þeirri þáttaröð. Fyrir utan það hefur hún sést á í þáttum og bíómyndum og sem dæmi má nefna Netflix þættina Kötlu.Kolbeinn er einnig leikari og hefur hann mikið unnið innan sjálfstæðu leikhússenunar en hefur líkt og Aldís sést meira á skjám landsmanna undanfarið.Aldís og Kolbeinn kynntust fyrst við gerð sjónvarpsþáttanna Svörtu sanda en léku þau einmitt bæði burðarhlutverk í þeim þáttum. Hjólin fóru þó ekki að snúast fyrr en í lokapartýinu en voru þau þó ekkert að flýta sér að hlutunum. Það flækti málin örlítið að þau bjuggu ekki í sama sveitarfélagi en búa þau í dag saman í Reykjavík með einn hund en átti Kolbeinn einnig tvær dætur úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um samskipti og áhuga þeirra beggja á sambandinu, leiklistina og hvernig áhugi þeirra kviknaði á henni, rómantíkina, húmorinn og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars ansi fallega sögu af fyrstu kynnum Aldísar við dætur Kolbeins.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Við ræðum við Hrönn Marínósdóttir, stjórnanda og stofnanda RIFF. Guðrún Elsa Bragadóttir rýnir í kvikmyndina Vera, opnunarmynd hátíðarinnar. Aldís Amah Hamilton, leikkona og Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri spjalla við okkur um hátíðina og kvikmyndabransann.

Aldís Amah Hamilton er leikkona og handritshöfundur sem meðal annars lék aðalhlutverkið og skrifaði þættina Svörtu sandar. Þá lék Aldís Amah einnig stórt hlutverk í netflix seríunum Katla og Brot eða The Valhalla Murders. Við tölum aðeins um veganisma og hvenær einhver er nógu vegan til að vera vegan, tækifæri og aldursfordóma, hvenær kona hættir að vera efnileg og verður öf gömul, tölum um líkamsímynd og fitufordóma, hvernig það er að leika í nándar og nektarsenum og hvernig samfélagsgerðin mótar hugsun manns og viðhorf. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði Dominos, Veganbúðarinnar, The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar.

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður fór yfir störf Alþingis í vikunni sem er að líða. Mjög var rætt um Útlendingastofnun og ríkisborgararétt, sóttvarnareglur, búvörusamninga og nýja ráðuneytisstjóra. Auk þess bar ýmislegt fleira á góma í vikulegu spjalli um þingstörfin enda af nógu að taka. Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista, sagði frá fjölgun flugferða á milli Íslands og Bandaríkjanna en Play kynnti nýverið að félagið myndi fljúga til New York í sumar. Alls verður flogið 42 sinnum í viku í sumar milli New York og Íslands og það eru fjögur flugfélög sem hafa boðað flug til New York í sumar. Kristján kom inn á afkomu Icelandair á síðasta ári og nýtt útlit flugþota félagsins í ferðaspjalli auk skýrslu Ferðamálastofu um stöðuna í ferðaþjónustunni hér á landi. Aldís Amah Hamilton, leikkona og handritshöfundur, er að fara til Berlínar þar sem hún tekur þátt í kvikmyndahátíðinni þar í borg. Þáttaröðin Svörtu sandar, þar sem Aldís leikur aðalhlutverkið og er einn höfunda handrits, er meðal þeirra þáttaraða sem verða sýndar á hátíðinni og er þetta í fyrsta skipti sem íslensk sjónvarpsþáttaröð er þar þátttakandi í flokknum Berlinale Series. Hún segir allar líkur á að von sé á annarri þáttaröð um Svörtu sanda. Tónlist: Dagbogen - Grethe og Jorgen Ingmann Et lille lys i mörket - Trille De Uforelskede I København - Peter Sommer Because the Night - Patti Smith. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

S01E83 – Aldís Amah Hamilton er mjög berorð manneskja. Hún liggur ekki á neinum skoðunum og tók mig svona allt að því á teppið með suma hluti. Það er gott, hún gerði það vel og var mjög til í samtalið. Og hey, hún hefur líka rétt fyrir sér. Aldís Amah er fædd í Þýskalandi, er af íslenskum og bandarískum ættum en eins framandi og það kann að hljóma er hún á flestan hátt alveg ofurvenjulegur Íslendingur, í besta skilningi. Hún fór í Verzló á röngum forsendum en lærði að lokum leiklist, okkur öllum til happs. Hún hefur fetað sig hratt upp stigann og leikur nú aðalhlutverk í sjónvarpsseríu sem hún skrifar í slagtogi við aðrar kanónur og sýnd verður á Stöð 2 um hátíðirnar. Þátturinn er glæpasería í leikstjórn Baldvins Z, nefnist Svörtu sandar og af spjallinu við Aldísi að dæma gætum við fengið að sjá eitthvað afar nýtt og ferskt. Aldís Amah er rétt að byrja, það finnst á öllu, og framtíðin hefst núna. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Brauðkaup í samstarfi við Símann Pay býður þér gómsæta vængi á aðeins 1.000 kr. í stað 1.590 kr. Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið. – Omnom býður upp á STVF. Við Aldís ræddum Omnom í þættinum, aðventugjöfina hennar og svoleiðis. Hún er vegan og sagðist ekki geta fengið súkkulaði við sitt hæfi. Það er auðvitað alrangt. Sjáið þetta til dæmis: https://omnom.is/products/superchocoberrybarleynibblynuttylicious – Bónus býður upp á STVF. Lengdur opnunartími fyrir jólin og til dæmis opið til 23:00 á Þorláksmessu í Smáratorgi, Skeifunni og Spöng — og opið í öllum búðum til 14:00 á aðfangadag. Matur og jólagjafir, strax eða á síðustu stundu. – Rokksafn Íslands býður upp á STVF. Rokksafnið er staður sem allt áhugafólk um tónlist og/eða íslenska menningu á að heimsækja. Mig langar þó sérstaklega til þess að benda á hina árlegu tónleika sem hljómsveitin Valdimar heldur í Hljómahöll þann 30. desember. Það eru enn til miðar: https://tix.is/is/event/12479/valdimar/ – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
Ríkislögreglustjóri og Neyðarlínan hafa hrint úr vör átaki þar sem karlmenn, sérstaklega á aldrinum 18-35 ára, eru hvattir til að vera ekki "þessi gaur" og er þar með vísað til þess að þessi aldurshópur karlmanna er sá sem fremur tölfræðilega flest kynferðisbrot. Herferðin á að varpa ljósi á viðhorf til kynferðisofbeldis og benda fólki á þá staðreynd að kynferðisbrot eiga sér oft stað fyrr á aldursskeiðinu en margir halda. Hún kemur til okkar, María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra og segir okkur frá átakinu. Opnunartími skemmtistaða og kráa hefur verið skertur mest allan faraldurinn og kráareigendur þurft að taka mið af sóttvarnatakmörkunum. Við ræðum við Björn Árnason, sem rekur Skúla Craft Bar og er í stjórn félags kráareigenda, um stöðu verta og skemmtanalífið um jólin - en í fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í vikunni er gert ráð fyrir að áfengisgjald hækki um 2,5 prósent á næsta ári. Rennslið í Gígjukvísl er tífalt miðað við venjulega þessa dagana, enda stendur yfir hlaup og Grímsvötnum. Svo gæti farið að gos hæfist í Grímsvötnum í kjölfarið og óvissan er mikil. Við ræðum við Björn Helga Snorrason bóndi og húsasmíðameistari á bænum Kálfafelli, skammt frá Gígjukvísl - en hann þekkir það af eigin raun hvernig hlutirnir fara úr skorðum þegar Grímsvötn gjósa. Á föstudögum ræðum við fréttir vikunnar - og í þetta skiptið mæta til okkar Árni Helgason, lögfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, og Brynja Huld Óskarsdóttir, öryggis og varnarmálafræðingur. Af nógu er að taka enda viðburðarík vika að baki þar sem ný ríkisstjórn var kynnt ásamt stjórnarsáttmála og fjárlagafrumvarpi. Það hafa eflaust margir tekið eftir auglýsingum undanfarið þar sem blóðugir stafir mynda dagsetninguna 25. desember. Auglýsingin er fyrir nýja íslenska sjónvarpsþáttaröð, Svörtu Sandar, sem sýnd verður á stöð 2 um jólin. Aldís Amah Hamilton leikur aðalhlutverk þáttanna en hún er jafnframt handritshöfundur þeirra ásamt Baldvini Z og Ragnari Jónssyni spennusagnahöfundi. Aldís ætlar að kíkja í lok þáttar og segja okkur við hverju áhorfendur mega búast í þessum æsispennandi þáttum. Rás 2 býður landsmönnum til aðventugleði í dag frá klukkan níu til fjögur þar sem mikið verður um góða gesti og fjöldi landsþekktra tónlistarmanna kemur og tekur lagið í beinni útsendingu. Við fáum útvarpskonuna Lovísu Rut Kristjánsdóttur til okkar en hún er ein þeirra sem stýrir stemningunni hérna á eftir.

Hvernig er það að leika í tölvuleik? Fara í búninginn og láta hreyfifanga (e. motion capture) allt sem þú gerir? Til að finna það út þá fengum við leikkonuna Aldísi Amah Hamilton í heimsókn, en hún leikur aðalhlutverkið í leiknum Echoes of the End frá Myrkur Games. Leikurinn er al-íslenskur og hefur verið ræddur hér áður, þegar við tókum viðtal við Halldór Snæ, framkvæmdastjóra Myrkur. Arnór Steinn og Gunnar ræða margt við Aldísi. Hún er mikill tölvuleikjaspilari og hefur margt að segja um það. Við förum einnig vel yfir upplifun hennar að leika í tölvuleik, hvernig það kom til, hvernig það er að vera í búningnum, hvað er frábrugðið við að leika í bíómynd og tölvuleik og margt, margt fleira. Við þökkum Aldísi kærlega fyrir komuna og hlökkum til að fá hana aftur í heimsókn þegar hún má segja okkur meira frá leiknum! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Aldís Amah Hamilton er leikkona og handritshöfundur sem er nýbúin að skrifa og leika í sjónvarpsseríu sem kallast Svörtu Sandar. Hafsteinn var spenntur að fá hana í heimsókn og spjalla við hana um bransann. Í þættinum ræða þau meðal annars ferlið á bakvið Svörtu Sanda, tölvuleikinn sem Aldís leikur í, leiklistartækni, hversu gaman er að skjóta úr byssum, álit annarra og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni og Subway.
Aldís Amah Hamilton leikkona ræðir við okkur um uppvöxtinn í vesturbænum, vinnunna fyrir framan myndavélina og tölvuleikinn sem er í bígerð. Hún segir okkur einnig frá Suður Kóreska Idol ævintýrinu, aktivismanum og mörgu fleiru!
The Northman nefnist nýjasta kvikmynd bandaríska leikstjórans Robert Eggers en hún gerist á tíma víkinganna á norðurhjara veraldar, Björk leikur norn og Sjón skrifar handritið. Við ræðum við Sjón um myndina. Um þessar mundir eru 30 ár frá því að ein stærsta rokkstjarna heims lést í bílslysi aðeins 28 ára gamall. Í þætti dagsins segjum við frá stærstu rokkstjörnunni sem þú hefur aldrei heyrt um. Hvenær er man of karlmannleg til að keppa við konur? Við skoðum mál frjálsíþróttakonunnar Caster Semeneya Við veltum því fyrir okkur hvort íslenskt leikhús sé allt of hvítt - eða eru leikaðir af blönduðum uppruna bara ekki nógu duglegir? Aldís Amah Hamilton kemur í heimsókn.
Aldís Amah Hamilton, who is half African American and half Icelandic, shares what it is like living in Iceland as a person of color. Aldís and her friend were the first people of color in the country to be admitted to and graduate from the country’s National Academy of Theater. She is a working actor and flight attendant in Iceland. It was fascinating to chat with her about her experience growing up with physical features that are different than what you typically associate with being Icelandic. Aldís was so pleasant to chat with. Even though this was my first time meeting her, the conversation flowed like two friends just chatting about life. At the end, she shares a few funny Icelandic idioms, so stay tuned to hear them. Here is the winter episode that I mentioned in the introduction of the podcast. The Questions I Asked Aldís Amah You are half African American and half Icelandic, what has it been like growing up as a person of mixed race in Iceland? Have you ever encountered racism in Iceland or someone treating you differently because of your skin color? As a flight attendant for an Icelandic airline, you encounter a lot of people. Are people surprised to hear that you are Icelandic? Do you feel like Icelandic society accepts people of mixed race who have grown up in the country as Icelanders or are they still considered as “other”? What do you feel is the biggest challenge for a mixed race child growing up in Iceland? What has your experience been like as an actor in Iceland? What is your favorite Icelandic word or phrase? Let’s be social! Here is where you can connect with me on social media platforms: Facebook Instagram Twitter I hope you enjoyed listening to this interview. I release a new podcast episode every week. Make sure you are subscribed to the All Things Iceland podcast so you don’t miss new episodes. If the platform you are listening to this podcast on allows you to leave a review, please do so, if you haven’t already. Þakka þér kærlega fyrir að hlusta (og að lesa) og sjáumst fljótlega Thank you kindly for listening (and reading) and see you soon!
Aldís Amah Hamilton is an actress, game character and flight attendant. An amazing conversation from my recent trip to Iceland. In her hometown of Reykjavík, Aldís was the Fjallkona for this year's National Day celebration. "The Lady of the Mountain" is a representative of the nation. She performed a poem that was written by musician Bubba Morthens specially for this event Landið flokkar ekki fólk eftir 'The country does not classify people'. Listen to her performance here: bit.ly/34TMHYO. We shared stories on the mixed-race experience, the importance of language in Icelandic culture and the power of representation in media from TV to games. Born to an Icelandic mother and African-American father. As a German-speaking, curly haired kindergartener she moved from Germany to Iceland. She joined her class as the first child with a foreign background. The first of many "first" experiences. Catch her in the first Icelandic series 'The Valhalla Murders' co-produced by Netflix — coming out this December! As well, she plays Ryn in The Darken: Echoes of the End. Myrkur Games is an Icelandic gaming company that is currently working on this fantasy story-driven computer game. Follow her: www.instagram.com/aldisamah/?hl=en Highlights: 0:47 How does it feel to be a multi-hyphenated person? 1:50 For creatives or individuals working for themselves, does it ever stop? 3:01 At the age of three, what was it like to move from Germany to Iceland? 5:05 How was growing up mixed-race in Iceland? 12:22 Migration into the country? 14:26 Do you ever see yourself moving abroad? 16:13 Did you always know you wanted to be an actress? 18:17 What roles are you interested in? 20:13 First impressions of Mixed-ish, a new American sitcom by the producers of Black-ish? 23:57 What did you gain from your experience as Fjallkona? 29:51 How has Icelandic modernized, any slang? 31:01 What are your favorite games? 36:11 What does storytelling mean to you? 38:21 Are you optimistic about the film industry? 39:29 What projects are you most excited about? Follow us: www.instagram.com/podcastmint
Síðasti júníþátturinn vetrarins fór lóðbeint í loftið klukkan 9 þennan laugardaginn. Björg og Gísli Marteinn voru í góðum gír, spiluðu skemmtilega tónlist og fóru lauflétt yfir fréttir vikunnar. Hjörvar Hafliðason fjölmiðlamaður og umsjónarmaður Dr. Football og Aldís Amah Hamilton leikkona og Fjallkona ársins kíktu í kaffi. Í spjalli við þau varið farið um víðan völl, leiklist, tölvuleikir, Rútstún, ferðalög og ýmislegt fleira bar á góma.

Veistu hvað BTS, HOT og EXO eiga sameiginlegt? Veistu hvers vegna svona mörg nöfn á K-pop hljómsveitum eru skammstafanir? Vigdís er ekki sannfærð um gæði tónlistarinnar en Gummi reynir að sannfæra hana um gæði þessarar geysivinsælu tónlistarstefnu. Aldís Amah Hamilton kíkir í heimsókn og ræðir hinar ljósu og myrku hliðar kóreska tónlistarbransans og við heyrum mjög margar útgáfur af Gangnam Style. Eiginlega allt of margar útgáfur af Gangnam Style.