Podcasts about brynjar torfason

  • 16PODCASTS
  • 229EPISODES
  • 2h 3mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 11, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about brynjar torfason

Latest podcast episodes about brynjar torfason

Rauða borðið
Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 11, 2025 184:03

Sunnudagurinn 11. maí Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessi sinni koma þau fyrst Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og þingmennirnir Halla Hrund Logadóttir og Sigmar Guðmundsson. Síðan taka þau við Árni Helgason lögmaður og varaþingmaður, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og ræða veiðigjöld, bankasölu og fleira. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.

Rauða borðið
Rauða borðið 1. apríl - Flóttafólk, fjármálaáætlun, Breiðholt, tungumál, Kristni og Íslam

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 212:35

Þriðjudagur 1. apríl Flóttafólk, fjármálaáætlun, Breiðholt, tungumál, Kristni og Íslam Fundur stjórnmalafræðinema um málefni flóttafólks fór fram í HÍ í dag. Við María Lilja og Pétur Fjelsteð vorum þar og tókum Vilhjálm Árnason þingmann sjálfstæðisflokks tali eftir fund. Hann sagði á fundinum að helsta hindrun frjáls flæðis á landamærum væri í raun verkalýðshreyfingin og við þurftum að vita meira. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hvað breytist, ef eitthvað, frá stefnu fyrri ríkisstjórnar? Birna Gunnlaugsdóttir kennari í Breiðholtinu blandar sér í umræðu um skólamálin. Kann að vera að umræðan um grunnskólana litist af fordómum? Lítum við sama vandann ólíkum augum eftir því hvaða hverfi um ræðir? Björn Þorláks ræðir við Birnu Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, rithöfundur og íslenskukennari við Háskóla Íslands og áhugamaður um tungumálalega fjölbreytni og framgang íslenskunnar, segir okkur frá frumlegum tungumála-viðburði sem verður á bókasafninu á Ísafirði á föstudaginn; Tungumálaskipti/Tandem language sem er einhverskonar tungumála-tinder-stefnumót. Muhammed Emin Kizilkaya, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands og meðlimur í Félagi Horizon, sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju og MA í trúarbragðafræði og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju og doktor í nýjatestamentisfræðum ræða við Gunnar Smára um kristni og Islam á Íslandi, fordóma milli trúarbragða og hvernig skapa megi frið og sátt í samfélaginu.

Vikulokin
Ásgeir Brynjar Torfason, Friðjón Friðjónsson og Sigríður Á. Andersen

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 1, 2025 57:44

Gestir Vikulokanna voru þau Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins. Þau ræddu meðal annars varnarmál, stöðuna í alþjóðastjórnmálum, hagræðingu í ríkisrekstri og formannskjör í Sjálfstæðisflokknum. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Davíð Berndsen

sj andersen sigr umsj brynjar torfason dav berndsen
Fram og til baka
Athyglisverðar fimmur árið 2024

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jan 11, 2025 110:00

Að vanda tekur umsjónarmaður saman brot úr nokkrum athyglisverðum fimmum frá árinu sem var að líða og að þessu sinni eru viðmælendurnir 14 talsins. Þetta eru: Rán Flygering, Kári Kristján Kristjánsson, Júlían JK Jóhannsson, Steinunn Sigurðardóttir, Ásgeir Brynjar Torfason, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Helga Margrét Marzelíusardóttir, Andri Snær Magnason, Björn Kristjánsson, Margrét Rán, Pétur Markan, BMX brós, Bergur Þór Ingólfsson og Stella Samúelsdóttir sem öll fóru fram og til baka með hlustendum árið 2024.

Rauða borðið
Rauða borðið 8. jan - Arfleið Bjarna Benediktssonar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 8, 2025 154:49

Miðvikudagur 8. janúar Arfleið Bjarna Benediktssonar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilsson fá gesti til að ræða arfleið Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem sagði af sér þingmennsku á mánudaginn. Fyrst koma Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Marinó G. Njálsson tölvunarfræðingur og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og ræða Sjálfstæðisflokkinn undir Bjarna, hvernig flokk tók hann við og hver er flokkurinn í dag. Gunnar Smári ræðir síðan við Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóra Vísbendingar um ríkisfjármálin og efnahagsmálin undir Bjarna. Í lokin fær Sigurjón gesti til að ræða um spillingu á tíma Bjarna; Atli Þór Fanndal upplýsingafulltrúi, Þór Saari fyrrverandi þingmaður, Birgitta Jónsdóttir og Björn Þorláksson blaðamaður meta áhrif Bjarna á siðferði í stjórnmálum.

Rauða borðið
Synir Egils 1. des - Uppgjör kosninga

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 1, 2024 136:05

Sunnudagurinn 1. desember: Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi og gera upp kosningarnar og pólitíkina.

magn krist anna j sigurj egils eflingar helga vala helgad brynjar torfason
Rauða borðið
Rauða borðið 27. nóv - Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 27, 2024 313:44

Miðvikudagur 27. Nóvember. Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza Í beinni bjóðum við til borðs þeim Margréti Pétursdóttur, verkakonu, Höllu Gunnarsdóttur, varaformanni VR, Sverri Björnssyni, hönnuði og eftirlaunamanni ásamt Páli Val Björnssyni fyrrverandi alþingismanni. Þau ræða pólitík dagsins við Sigurjón M. Egilsson: Kosningarnar, hverjir sigra og hverjur tapa. Gestir með reynslu og þekkingu. Fólkið á skrifstofu sósíalista svarar spurningu dagsins. Þá ræðast við bræðurnir Egilssynir en í þetta sinn fær Gunnar Smári að sitja fyrir svörum um framboðið. Af efnahagspólitíkinni segir Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur og ritstjóri okkur frá sárlegri vöntun á því sem hann kallar einfaldlega alvöru umræðu um hagstjórn og stefnumörkun fyrir kosningar. Hann útskýrir fyrir okkur strauma og stefnur og tengsl við djúpríki, Trump, Hrunið og framtíðina. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í mengunarmálum hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um vágest á höfuðborgarsvæðinu, loftmengun; útblástur og gosmóðu. Er þetta hættulegt heilsu og hvað er til ráða? Svo heimsækir Jón Kristjánsson fiskifræðingur Rauða borðið en Jón segir skaðlegt fyrir lífríki laxa og nytjar af þeim þegar veiðimenn í ám hérlendis sleppa þeim aftur í árnar. Við kíkjum svo að lokum til Gaza með fulltrúm no borders og solaris. Ræðum brott- og frávísanir af landamærum Íslands og fleira tengt.

Rauða borðið
Rauða borðið - Kosningar, forsetakjör í USA, samgöngumál, Færeyjar, rokkstjörnur og gamalt sakamál

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 5, 2024 247:41

Þriðjudaginn 5. nóvember Kosningar, forsetakjör í USA, samgöngumál, Færeyjar, rokkstjörnur og gamalt sakamál. Við hefjum leik með hópumræðu þar sem spurt verður hvað við ættum helst að vera að ræða fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Frosti Logason, Hjálmar Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Kristín Erna Arnardóttir ræða málin. Nú þá verða samgöngumál sem kosningamál rædd frá ýmsum hliðum. Stefán Jón Hafstein, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Ólafur Arnarson blaðamaður og Hjalti Jóhannesson landfræðingur á Akureyri spjalla við Björn Þorláks. María Lilja Þrastardóttir Kemp ræðir við almenning um forsetakjörið í Bandaríkjunum. Hún spyr einnig hvað rokkstjörnur kjósi. Hljómsveitin Spacestation kemur beint úr hljóðprufu að Rauða borðinu en bandið tekur eins dags forskot á Airwaves vertíðina sem hefst á morgun með grasrótartónleikum í Hörpu í kvöld. Oddný Eir Ævarsdóttir flytur okkur fréttir frá Færeyjum í gegnum viðmælandann Carl Jóhan Jensen. Skorað verður á frambjóðendur að taka afstöðu til aukins samstarfs Íslendinga og Færeyinga. Við ljúkum svo þætti kvöldsins með umræðu um nýja bók. Magnús Ólafsson fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum segir okkur frá riti sem fjallar um síðustu aftökuna á Íslandi og varpar ljósi á réttvísi og ranglæti.

Rauða borðið
Rauða borðið: Kosningar, útlendingamál, Selenskí, lýðræði og Elísabet

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 29, 2024 278:50

Þriðjudagurinn 29. október Kosningar, útlendingamál, Selenskí, lýðræði og Elísabet Við ræðum komandi kosningar, um hvað verður kosið, hvaða flokkar eru í sókn og hverjir í vörn. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor, Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Svo kölluð útlendingamál eru eitt af kosningamálunum. Qussay Odeh íslensk-palestínskur aðgerðarsinni, Nichole Leigh Mosty leikskólastjóri, Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og Nína Helgadóttir teymisstjóri hjá Rauða krossinum ræða þetta hitamál. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði greinir hvað Selenskí Úkraínuforseti var að biðja Norðurlöndin um. Björn Þorsteinsson heimspekiprófessor ræðir um lýðræðiskrísuna og Elísabet Jökulsdóttir segir okkur frá bók sinni um Grikklandsárin sín, þegar hún var barn.

Rauða borðið
Rauða borðið: Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usli

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 257:02

Rauða borðið: Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usli. Rauða borðið heldur áfram að taka stöðuna og setja málefni á dagskrá kosninganna. Er allt mögulegt? Oddný Eir stýrir samræðu kvöldsins í beinni útsendingu sem hefst klukkan átta og er í tveimur liðum: Fyrst mæta til leiks þau Jón Ólafsson, heimspekingur og prófessor, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Auðunn Arnórsson, og Sigurjón Magnús Egilsson. Síðan mæta þau Kristín Ómarsdóttir, Árni Finnsson, Ásgeir Brynjar Torfason og Atli Ingólfsson. Björn Þorláksson ræðir svo við þau Herdísi Önnu Jónsdóttur og Þóri Jóhannsson um tónlistarlegt uppeldi í hinu bjarta norðri. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp segir okkur nýjustu hörmungarfréttir í Radíó Gaza og Oddný Eir ræðir svo við Gunnar Þorra Pétursson um andófs-uslann í Meistaranum og Margarítu eftir Bulgakov.

Rauða borðið
Rauða borðið 18. sept - Niðurskurðarstefna, borgarlína, borgaraleg óhlýðni og Ólympíuleikar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 18, 2024 194:32

Miðvikudagurinn 18. september  Niðurskurðarstefna, borgarlína, borgaraleg óhlýðni og Ólympíuleikar Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar segir okkur frá bók Clöru Mattei hagfræðiprófessor um Auðvaldsskipulagið og svelti- eða niðurskurðarstefnu. Sanna Magdalena Mörtudóttir Sósíalisti og Dóra Björt Guðjónsdóttir Pírati deila um borgarlínu. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki á Menntavísindasviði Háskóla Íslands ræða um gildi mótmæla og borgaralegrar óhlýðni. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson sagnfræðinemi og íþróttafréttamaður segir okkur frá för íslenskra keppenda og fylgdarliðs á Ólympíuleikana í London 1948.

bj gu amnesty international mattei margr anna l mannr borgarl menntav gunnar sigurbj brynjar torfason steinarsd
Rauða borðið
Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 7, 2024 247:43

Miðvikudagurinn 7. ágúst: Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást Rauða borðið snýr aftur í kvöld, eftir stutt sumarfrí. Umsjónarmenn auk Gunnars Smára Egilssonar þau Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Þorláks og Oddný Eir Ævarsdóttir. Grindvíkingarnir Jóhanna Lilja Birgisdóttir sálfræðingur og Magnús Gunnarsson trillukarl segja frá bið heimafólks eftir næstu eldsumbrotum. Magga Stína segir fréttir frá Palestínu og Ásgeir Brynjar Torfason segir okkur frá áhrifum hruns á hlutabréfamörkuðum. Í lokin ræðum við um þrjár bíómyndir um ástina.

Rauða borðið
Rauða borðið 22. júlí - Heimsendir og nýr heimur, börn og leikur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jul 22, 2024 196:33

Mánudagurinn 22. júlí Heimsendir og nýr heimur, börn og leikur Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir situr við Rauða borðið með Gunnar Smára Egilssyni og tekur á móti gestum: Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp blaðamaður koma og ræða um hvernig heimurinn leysist upp áður en nýr fæðist. Atli Harðarson prófessor segir okkur svo frá gildi leiksins, sem við erum kannski að taka frá börnunum.

Rauða borðið
Rauða borðið - Efnahagur, leigjendur, sjókvíar og Frakkland

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 13, 2024 203:25

Fimmtudagurinn 13. júní Efnahagur, leigjendur, sjókvíar og Frakkland Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar kemur til okkar og ræðir stöðu efnahagsmála. Drengur Óli Þorsteinsson, verkefnisstjóri hjá HMS, ræðir vanda leigjenda, enda ástandið ekki gott. Magnús Guðmundsson tölvunarfræðingur ræðir um sjókvíaeldi í Seyðisfirði, sem, íbúarnir vilja ekki sjá. Og Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor ræðir um pólitíska stöðu í Frakklandi, sem er viðsjárverð.

Rauða borðið
Lögregluárás, elítur, þingið og heimilisofbeldi

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 3, 2024 227:08

Mánudagurinn 3. júní Lögregluárás, elítur, þingið og heimilisofbeldi Við ræðum við fólk sem tók þátt í friðsamri mótmælastöðu við ríkisstjórnarfund en varð fyrir piparúðaárás lögreglunnar. Qussay Odeh, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Lukka Sigurðardóttir, Pétur Eggerz og Bergþóra Snæbjörnsdóttir. Við förum síðan í uppgjör á umræðunni fyrir forsetakjör. Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur, Björn B. Björnsson kvikmyndagerðarmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálaræðingur ræða deilur um elítur, valdastéttir og kvenhatur. Í ÞINGINU í umsjón Björn Þorláks kryfja þrír þingmenn þingmál komandi daga og áhrif forsetakjörs á stjórnmálin: Vilhjálmur Árnason í Sjálfstæðisflokki, Björn Leví Gunnarsson. Pírötum og Sigmar Guðmundsson í Viðreisn fara yfir málin. Loks ræðum við samspil jafnréttis og kynbundins ofbeldis við Lindu Dröfn Gunnarsdóttur framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins og Ingveldi Ragnarsdóttur ráðgjafi og vaktstýru athvarfsins.

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 21

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 24, 2024 111:55

Föstudagurinn 24. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, stríðum og átökum.

rau vika halld geirhar brynjar torfason
Bylgjan
Sprengisandur 28.04.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 28, 2024 93:33

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin, Í þessum þætti: Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar um efnahagsmál. Hjörtur J. Guðmundsson stjórnmálafræðingur um utanríkismál. Þórarinn Ingi Pétursson og Hanna Katrín Friðriksson alþingismenn um stjórnmál og lagareldisfrumvarp. Sigurður Þorsteinsson hönnuður og Arnhildur Pálmadóttir arkitekt um hönnun á tímum náttúruvár.

gu hj sigur kristj brynjar torfason
Segðu mér

Gestur þáttarins er Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur, doktor í fjármálum m.m. Rætt um efnahags- húsnæðismál og verðbólgu. Einnig rætt um þau fjármögnunarkerfi sem hér eru eða hafa verið við líði í gegnum tíðina. Umsjón: Lísa Pálsdóttir. Tónlist: Fig tree - Jelena Ciric

fig einnig gestur umsj brynjar torfason
Morgunvaktin
Stóuspeki, gervigreind og alþjóðleg efnahagsmál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 27, 2023

Endurleikin voru tvö viðtöl frá því fyrr á árinu, annað við Svavar Hrafn Svavarsson, prófessor í heimspeki, um stóuspeki og hitt við Jörgen Pind, prófessor emeritus, um gervigreind. Þá kom Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar í þáttinn og fór yfir stöðu efnahagsmála í heiminum við árslok. Enn fremur var rifjuð upp umfjöllun frá í maí þegar 50 ár voru liðin frá fundi Nixons Bandaríkjaforseta og Pompidou Frakklandsforseta á Kjarvalsstöðum. M.a. var leikið viðtal við Brynhildi Jóhannsdóttur sem lánaði Pompidou hús sitt og eiginmanns síns Alberts Guðmundssonar við Laufásveg. As time goes by - Barbra Streisand, L'amoureuse - Carla Bruni, Michelle - Bítlarnir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Morgunvaktin
Stóuspeki, gervigreind og alþjóðleg efnahagsmál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 27, 2023 130:00

Endurleikin voru tvö viðtöl frá því fyrr á árinu, annað við Svavar Hrafn Svavarsson, prófessor í heimspeki, um stóuspeki og hitt við Jörgen Pind, prófessor emeritus, um gervigreind. Þá kom Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar í þáttinn og fór yfir stöðu efnahagsmála í heiminum við árslok. Enn fremur var rifjuð upp umfjöllun frá í maí þegar 50 ár voru liðin frá fundi Nixons Bandaríkjaforseta og Pompidou Frakklandsforseta á Kjarvalsstöðum. M.a. var leikið viðtal við Brynhildi Jóhannsdóttur sem lánaði Pompidou hús sitt og eiginmanns síns Alberts Guðmundssonar við Laufásveg. As time goes by - Barbra Streisand, L'amoureuse - Carla Bruni, Michelle - Bítlarnir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Morgunvaktin
Skólamál, alþjóðleg efnahagsmál og Sameinuðu arabísku furstadæmin

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 13, 2023 130:00

Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið í síðustu viku; við héldum áfram umfjöllun um námsárangur unglinga. Ársæll Guðmundsson, sem nú er skólameistari Borgarholtsskóla, hefur unnið í skólum eða að skólamálum í tæp 40 ár. Hann spjallaði við okkur um málin vítt og breitt. Við fjölluðum líka um alþjóðleg efnahagsmál og einkum þá staðreynd að kínverskur efnahagur er nú orðinn meiri að umsvifum en bandarískur. Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, fór yfir þetta. Svo fórum í ferðalag með Veru Illugadóttur. Að þessu sinni var förinni heitið til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Dúbæ er eitt þeirra og þar er Loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna við það að ljúka. Vera sagði okkur frá furstadæmunum sjö, sögu þeirra, samfélagi og menningu. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Cole, Nat King - Embracable you. Warnes, Jennifer, Cohen, Leonard - Take this waltz. Al Mazyood Band - Hamam yeghani

Morgunvaktin
Skólamál, alþjóðleg efnahagsmál og Sameinuðu arabísku furstadæmin

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 13, 2023

Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið í síðustu viku; við héldum áfram umfjöllun um námsárangur unglinga. Ársæll Guðmundsson, sem nú er skólameistari Borgarholtsskóla, hefur unnið í skólum eða að skólamálum í tæp 40 ár. Hann spjallaði við okkur um málin vítt og breitt. Við fjölluðum líka um alþjóðleg efnahagsmál og einkum þá staðreynd að kínverskur efnahagur er nú orðinn meiri að umsvifum en bandarískur. Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, fór yfir þetta. Svo fórum í ferðalag með Veru Illugadóttur. Að þessu sinni var förinni heitið til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Dúbæ er eitt þeirra og þar er Loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna við það að ljúka. Vera sagði okkur frá furstadæmunum sjö, sögu þeirra, samfélagi og menningu. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Cole, Nat King - Embracable you. Warnes, Jennifer, Cohen, Leonard - Take this waltz. Al Mazyood Band - Hamam yeghani

Morgunvaktin
Aðventuganga, loftslagsráðstefna og Elgin-styttur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023

Það líður að aðventu; hana nota margir til að undirbúa jólahaldið; sækja aðföng, baka smákökur og þar fram eftir götum. Einar Skúlason er ekki í þeim hópi. Hann ætlar á aðventunni að ganga frá Seyðisfirði til Akureyri. Einar sagði okkur frá þessum fyrirhugaða 280 kílómetra göngutúr. Ásgeir Brynjar Torfason ræddi alþjóðleg efnahagsmál, meðal annars viðskiptaþvinganir, umfangsmikil batterísframleiðsla í Svíþjóð og svolítið um Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst í Dúbæ á morgun. Tvö þúsund og fimm hundruð ára gamlar marmarastyttur eru orðnar að hitamáli í alþjóðapólitík - og reyndar ekki í fyrsta sinn. Forsætisráðherra Bretlands afboðaði í gær fyrirhugaðan fund með grískum starfsbróður sínum, vegna ósættis um eignarhald yfir svokölluðum Elgin-styttum. Þær áttu eitt sinn heima á Akrópólis-hæð í Aþenu en hafa verið á British Museum í Lundúnum undanfarnar tvær aldir. Grikkir hafa um árabil þrýst á Breta að skila verkunum heim - en Bretar þverneita. Vera Illugadóttir fór yfir þetta. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: King, Carole - Bitter with the sweet. Paul, Les, Ford, Mary - Vaya con dios. Tígulkvartettinn, Moravek, Jan - Ég bið að heilsa. Lira Tropical - Combinación de Tonadas, (punto fijo).

Morgunvaktin
Aðventuganga, loftslagsráðstefna og Elgin-styttur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023 130:00

Lífið verður aldrei samt aftur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023 130:00

Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavíkurkirkju, var gestur Morgunvaktarinnar í dag. Það hefur mætt mikið á henni eins og öðru forystufólki í samfélaginu í Grindavík og Grindvíkingum öllum síðustu daga. Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, kom til okkar. Hann ræddi ýmis efnahagsmál, verðbólgu, samspil einkageirans og hins opinbera á óvissutímum og fleira. Vera Illugadóttir sagði frá eyríkinu Túvalú í Kyrrahafinu, sem komst í heimsfréttirnar í síðustu viku. Ástæðan er sú að ríkið gerði samkomulag við Ástralíu um að íbúarnir geti flutt til Ástralíu, en talið er að Túvalú geti orðið fyrsta eyríkið sem verður alveg óbyggilegt vegna hækkunar sjávarmáls. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: KK band - Á venjulegum degi. GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson - Morgunsól. GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson - Ég veit þú kemur. Levina - Funafuti Tuvalu

Morgunvaktin
Lífið verður aldrei samt aftur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023

Dómsmál Trump, verðbólga og frumbyggjahneyksli

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 1, 2023 130:00

Samkvæmt skoðanakönnunum eru töluverðar líkur á því að Donald Trump gæti orðið forseti Bandaríkjanna á ný. En í millitíðinni berst hann í dómsölum víða um landið - fjögur mál gætu leitt til fangelsisdóma, eitt ógnar viðskiptaveldi hans og nokkur mál miða að því að fá hann fjarlægðan af kjörseðlum. Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, ræddi þessi mál. Við fjöllum um efnahagsmál í útlöndum - einkum í Evrópu. Verðbólgan hér fór örlítið niður í síðustu mælingu en staðan er allt önnur og betri í viðmiðunarlöndunum, líkt og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, fór yfir með okkur. Við töluðum líka um eitt og annað fleira er varðar efnahag og peninga. Ein af þekktustu tónlistarkonum Kanada undanfarna áratugi, Buffy Sainte-Marie, var sökuð um það í fréttaþætti á dögunum að hafa villt á sér heimildir allan sinn feril. Hún sé ekki af kanadískum frumbyggjaættum eins og hún hefur haldið fram, heldur fædd og uppalin af hvítu fólki í Bandaríkjunum. Uppljóstranirnar hafa vakið mikla athygli og umræðu í Kanada. Tónlistarkonan sjálf, sem er komin yfir áttrætt og settist nýlega í helgan stein, neitar öllum sökum. Vera Illugadóttir sagði frá þessu máli. Tónlist: Benny Quartet - Stompin' at the Savoy. Cocker, Joe, Warnes, Jennifer - Up where we belong. Buffy Sainte-Marie - Bury My Heart At Wounded Knee Buffy Sainte-Marie - Universal Soldier

Morgunvaktin
Dómsmál Trump, verðbólga og frumbyggjahneyksli

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 1, 2023

Óbreyttir stýrivextir gleðiefni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 4, 2023 130:00

Húsnæðismál voru á dagskrá í dag. Sá mikilvægi málaflokkur er ekki í góðu horfi; það vantar húsnæði og fyrir vikið er verðið; kaupverð og húsaleiga, hærra en góðu hófi gegnir. Fyrir rúmum mánuði var efnt til árlegs húsnæðisþings; við spurðum aðstoðarforstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hvort margt hafi komið þar fram sem teljast má jákvætt fyrir málaflokkinn; hvort útlit sé fyrir að ástandið fari að lagast. Um þessar mundir eru fimmtán ár liðin frá gjaldþroti Lehman Brothers bankans bandaríska. Hann var á sínum tíma talinn svo stór og mikilvægur að hann gæti ekki farið á hausinn. Fáeinum vikum síðar voru sett neyðarlög á Íslandi og ríkið tók yfir meira eða minna allt íslenska bankakerfið. Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, rifjaði upp þrot Lehman. Ásgeir Brynjar var svo áfram hjá okkur þegar upplýst var um nýja vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Ákveðið var að halda stýrivöxtum óbreyttum í 9,25%. Í síðasta kafla þáttarins lékum við svo nýja tónlist; tvö lög af Kríu, plötu Kristínar Lárusdóttur en Kristín eða Selló-Stína eins og hún kallar sig blandar saman í verkum sínum rímnakveðskap, raftónlist og sellóleik. Kristín heldur hljómleika í Hörpu í kvöld. Tónlist: Cooke, Sam - Only sixteen. Kristín Lárusdóttir - Dreyra dýja. Kristín Lárusdóttir - Læst í klaka.

Morgunvaktin
Óbreyttir stýrivextir gleðiefni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 4, 2023

Sprengisandur 01.10.2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 1, 2023 98:17

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar um efnahagsmál. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra um innflytjendamál.   Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Björn Leví Gunnarsson alþingismaður um stjórnmál.   Fida Abu Libdeh framkvæmdastjóri GeoSilica um konur í atvinnurekstri.

bj gu katr kristj jakobsd hafsteinsd brynjar torfason lev gunnarsson
Morgunvaktin
Alþjóðleg efnahagsmál, Líbía og Snæfellsbær

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023 130:00

Ásgeir Brynjar Torfason talaði við okkur um árlegan fund seðlabankastjóra og annars starfsfólks seðlabanka í heiminum í Jackson Hole í Wyoming-ríki í Bandaríkjunum. Við töluðum líka við handhafa náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti ? hann er að þessu sinni Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Við fórum líka til Líbíu. Þar er hræðilegt ástand eftir hamfaraflóð á dögunum. Á annan tug þúsunda létust, fjölda er saknað og mikil eyðilegging varð. Líbíska þjóðin hefur mátt þola miklar hörmungar síðustu áratugi; Gaddafi stýrði þar harðri hendir í yfir fjörutíu ár og eftir hans tíð tók við borgarastyrjöld. Vera Illugadóttir fór yfir ástand mála í Líbíu og sögu lands og þjóðar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Ingibjörg Smith - Við gengum tvö. McLemore, Scott, Þorgrímur Jónsson, Sunna Gunnlaugsdóttir, Pohjola, Verneri - Wake me up before you go-go. CARPENTERS - Top of the world.

Morgunvaktin
Alþjóðleg efnahagsmál, Líbía og Snæfellsbær

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023

Þórir Guðmundsson í Eistlandi, efnahagsmál og Al Fayed

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023

Þórir Guðmundsson hefur í eitt og hálft ár starfað á vegum utanríkisráðuneytisins hjá Atlantshafsbandalaginu í Eistlandi. Hann sagði frá störfum sínum, hernaðaruppbyggingu Eista og lífinu og tilverunni í landinu. Ásgeir Brynjar Torfason fór yfir stöðu efnahagsmála í Rússlandi, Úkraínu og Eystrasaltsríkjunum. Staðan í Rússlandi er betra en ætla mætti en úkraínskur efnahagur hefur farið aftur um fimmtán ár frá því Rússar réðust inn í landið. Almennt talað eru efnahagshorfur í Eystrasaltsríkjunum ágætar. Kaupsýslumaðurinn Mohamed Al Fayed lést á dögunum í hárri elli. Hann var aðsópsmikill og litríkur og sett svip sinn á brekst þjóðlíf um árabil. Hann átti um skeið Harrods-verslunina og knattspyrnuliðið Fulham og var faðir Dodis, unnusta Díönu prinsessu. Vera Illugadóttir sagði frá Al Fayed og skrautlegu lífshlaupi hans. Tónlist: Aldrei flýgur hún aftur - Andrea Gylfadóttir, While my guitar gently weeps - Bítlarnir, Suveteed - Artur Rinne, Streets of London - Roger Whittaker. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

streets bj gu sta fulham hann harrods sigbj mohamed al fayed umsj fayed aldrei vera illugad brynjar torfason almennt eistlandi andrea gylfad
Morgunvaktin
Þórir Guðmundsson í Eistlandi, efnahagsmál og Al Fayed

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 104:07

Flókin staða í Svíþjóð vegna Kóran-brenna

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 9, 2023

Kóran-brennur valda ráðamönnum í Svíþjóð miklum vandræðum bæði innan lands og utan. Málið er snúið á alla kanta. Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, dósent við háskólann í Malmö, varpaði ljósi á málið og fjallaði um stjórnmálaástandið í Svíþjóð. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, fór yfir efnahagsástandið í ríkjunum sem hæst tróna á listum yfir helstu hagkerfi heimsins. Bandaríkin eru þar efst á blaði, næst kemur Kína en allt bendir til að ríkin hafi sætaskipti innan nokkurra ára. Í lok þáttarins var saga þvottabjarnarins á Íslandi reifuð. Þvottabirnir voru fluttir til Íslands 1932 en urðu ekki langlífir. Síðan hafa af og til borist þvottabirnir til landsins en þeirra hafa yfirleitt beðið dapurleg endalok. Tónlist: She Turns My Radio On - Jim Ford Bjarni bróðir minn - Savanna tríóið Undantag - Bo Kaspers Orkester Semester - Bo Kaspers Orkester Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

bj sv malm bandar sigbj vegna vera illugad brynjar torfason
Morgunvaktin
Flókin staða í Svíþjóð vegna Kóran-brenna

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 9, 2023 130:00

Frumkvöðullinn Mick Jagger áttræður

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 26, 2023 130:00

Tugir hektara af mosa hafa brunnið í grennd við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga. Skaðinn er mikill því mosi vex jú hægt. Magnea Magnúsdóttir landgræðslufræðingur er sérfróð um mosa og sagði frá þessari merkilegu jurt. Ásgeir Brynjar Torfason fjallaði um efnahagsmál. Hann sagði meðal annars frá þróun verðbólgu í nokkrum ríkjum, sérstaklega í Kína. Þar er verðbólga komin nálægt núllinu. Mick Jagger, forsprakki hljómsveitarinnar Rolling Stones, er áttræður í dag. Að því tilefni var Arnar Eggert Thoroddsen, doktor í tónlistarfræðum, gestur þáttarins, og við fjölluðum um Jagger, æsku hans og uppvöxt, og þátt hans í tónlistarsögunni. Tónlist: Paper Doll - Mills Brothers She's a Rainbow - Rolling Stones Out of Time - Rolling Stones Play With Fire - Rolling Stones Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

rolling stones bj ska mick jagger hann sigbj vera illugad brynjar torfason
Morgunvaktin
Frumkvöðullinn Mick Jagger áttræður

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 26, 2023

Að koma til Orkneyja eins og að koma heim

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 12, 2023 130:00

Fyrsti viðmælandi Morgunvaktarinnar var Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Eldgosið við Litla-Hrút er í rúmlega tíu kílómetra loftlínu frá bænum. Hann ræddi við okkur um gosið og síðustu gos, og áhrif þeirra á Grindavík og Grindvíkinga. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, fjallaði um verðbólgu víða um heim. Hann ræddi einnig um vatn og vatnsnotkun. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur hefur komið tíu sinnum til Orkneyja og segir eyjarnar uppáhalds stað hennar á jörðinni. Hún fór með okkur yfir sögu eyjanna, um þjóðsögur þeirra og sögulegar minjar, og tengsl eyjaskeggja við norræna menningu. Tónlist: Everywhere ? Fleetwood Mac Ku'u Poli'ahu - Kanani Pe'a Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

bj heim poli koma hann fyrsti sigbj grindav vera illugad brynjar torfason
Morgunvaktin
Að koma til Orkneyja eins og að koma heim

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 12, 2023

Fyrsti viðmælandi Morgunvaktarinnar var Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Eldgosið við Litla-Hrút er í rúmlega tíu kílómetra loftlínu frá bænum. Hann ræddi við okkur um gosið og síðustu gos, og áhrif þeirra á Grindavík og Grindvíkinga. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, fjallaði um verðbólgu víða um heim. Hann ræddi einnig um vatn og vatnsnotkun. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur hefur komið tíu sinnum til Orkneyja og segir eyjarnar uppáhalds stað hennar á jörðinni. Hún fór með okkur yfir sögu eyjanna, um þjóðsögur þeirra og sögulegar minjar, og tengsl eyjaskeggja við norræna menningu. Tónlist: Everywhere ? Fleetwood Mac Ku'u Poli'ahu - Kanani Pe'a Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Bylgjan
Sprengisandur 02.07.2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 2, 2023 92:44

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS og Orri Páll Jóhannsson, alþingismaður VG um hvalveiðar. Ásgeir Brynjar Torfason, dr. í fjármálum um fjárnálamarkaði. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Eyjólfur Ármannsson alþingismaður og Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður um Íslandsbankamálið. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus við HÍ um tungumál og völd.

hei vg eir kristj sfs eyj brynjar torfason lilja alfre
Morgunvaktin
Sáttargreiðsla Íslandsbanka í alþjóðlegum samanburði

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 28, 2023 130:00

Við veltum fyrir okkur siðferði og siðfræði í þættinum í dag, í tengslum við viðbrögð við skýrslu um söluna á Íslandsbanka. Við tölum um viðbrögðin hjá stjórnmálunum, og hjá fjármálakerfinu, og veltum því fyrir okkur hvort og þá hvað hafi breyst eftir hrun. Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki og hagnýtri siðfræði, var gestur þáttarins og við ræddum um viðbrögðin í stjórnmálum og fjármálakerfinu við málinu og veltum því fyrir okkur hvort, og þá hvað, hafi breyst eftir hrun. Íslandsbanki greiðir tæplega 1,2 milljarða króna í sektargreiðslu vegna málsins. Hvernig er það í samanburði við sektir banka í löndunum í kringum okkur? Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum setti upphæðina í samhengi. Ásgeir Brynjar ræddi líka um verðbólgu og stöðu mála eftir kosningar í Grikklandi. Á næstkomandi laugardag leggja 176 hjólreiðakappar af stað frá Bilbao á Spáni og stefna til Parísar. Þekktasta og stærsta hjólreiðakeppni heims, Tour de France, er að hefjast. Þetta er í 110. sinn sem fremstu hjólreiðamenn heims þreyta þessa miklu þolraun, og afmælisár hennar að auki, því í ár eru 120 ár frá fyrstu Tour de France-keppninni 1903. En fyrstu túrarnir í upphafi tuttugustu aldar voru nokkuð ólíkir því fjölmenna sjónarspili sem við þekkjum nú. Við fjölluðum um sögu Tour de France. Tónlist: Litla sæta ljúfan góða - Hljómsveit Ingimars Eydal Birds Go Die Out Of Sight - Peter One Tour de France - Ellen Ten Damme Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

tour de france hvernig hlj brynjar litla brynjarsd legum grikklandi vera illugad brynjar torfason
Bylgjan
Sprengisandur 05,03,2023 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 5, 2023 95:11

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti:   Bergþór Ólason alþingismaður og Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri Betri samgangna um samgöngusáttmálann. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra um sjávarútveginn og fiskeldi.   Sigmar Guðmundssson, Helga Vala Helgadóttir og Hildur Sverrisdóttir alþingismenn um stjórnmálaástandið.    Ásgeir Brynjar Torfason dr. í fjármálum um Úkraínu og áhrif innrásar á efnhag heimsins.

berg dav kristj betri svavarsd svand helga vala helgad brynjar torfason
Spegillinn
Sjóðir hersins að tæmast, hæfi fjármálaráðherra og bitlausar þvinganir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 3, 2023

Svæðisforingi Hjálpræðishersins segir að svo geti farið að hætt verði að bjóða upp á heitan mat í hádeginu. Þeim sem leita til hersins hefur fjölgað mikið undanfarna mánuði og sjóðirnir eru að tæmast. Arnar Björnsson talaði við Hjördísi Kristinsdóttur. Nauðsynlegt er að bjóða upp á sólarhringsþjónustu fyrir heimilislausar konur, til að minnka líkur á að þær verði fyrir ofbeldi. Ekkert úrræði er til fyrir heimilislausar konur sem eru í neyslu yfir daginn. Alma Ómarsdóttir talaði við Halldóru Dýrleifar- Gunnarsdóttur Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í dag dæmdur í líftíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Hann framdi ódæðisverkin þegar upp hafði komist um umfangsmikinn fjárdrátt. Alexander Kristjánsson sagði frá. Þúsundir mótmæltu vanrækslu lestarfyrirtækis í Grikklandi í dag. Að minnsta kosti fimmtíu og sjö fórust í lestarslysi á miðvikudag. ----------------------------------- Fjármálaráðherra segir ríkisendurskoðanda hafa verið skýran um að ekki væri tilefni til að draga hæfi ráðherra í efa við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Með hvaða hætti var reglum stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi fullnægt þegar félag í eigu föður fjármálaráðherra keypti hlut í Íslandsbanka? Hlut sem ríkið seldi honum. Þetta er ein þeirra spurninga sem umboðsmaður alþingis krefur fjármálaráðherra svara við í bréfi sem hann sendi Bjarna Benediktssyni í gær og væntir svara í lok mánaðar. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman. Efnahagsþvinganir hafa ekki bitið eins fast á Rússa eins og til var ætlast frá því að innrás þeirra í Úkraínu hófst. NATÓ-ríkin hafa ekki undan í vopnaframleiðslu sinni, segir sérfræðingur í fjármálum. Bjarni Rúnarsson talaði við Ásgeir Brynjar Torfason. Jónas Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs, hefur beðist afsökunar á því að mannréttindi séu brotin á hópi Sama í landinu. Vindorkuver var reist í óleyfi á beitilöndum þeirra. Þar með höfðu aðgerðasinnar úr röðum Sama betur eftir vikulöng og hávær mótmæli við ráðuneyti í Ósló. Ríkisstjórnin lofar nú bót og betrun. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Spegillinn
Sjóðir hersins að tæmast, hæfi fjármálaráðherra og bitlausar þvinganir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 3, 2023 8:30

Hlaðvarp Kjarnans
Ekon – Hálfu ári síðar: Efnahagsþvinganir sem vopn gegn Rússlandi

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Sep 7, 2022 47:43

Emil Dagsson ræðir við Dr. Ásgeir Brynjar Torfason. Fjallað er um fjármagnsflæði og hvað gerist þegar settar eru skorður á slíkt flæði, eða þá efnahagsþvinganir. Viðmælandinn Ásgeir Brynjar er doktor í fjármálum frá Gautaborgarháskóla. Áhersla þáttarins er efnahagsþvinganirnar sem Vesturlönd hafa sett á Rússland í kjölfar innrásar Pútíns í Úkraínu.

brynjar fjalla brynjar torfason efnahags
Heimskviður
107 | Neyðarástand á Sri Lanka og Transnistría

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 7, 2022 30:00

Rétt rúmur mánuður er líðinn frá því að neyðarástandi var lýst yfir á Srí Lanka í Indlandshafi vegna fjölmennrar mótmælaöldu. Þar er sögð dýpsta efnahagskreppa frá því að eyjan fékk sjálfstæði frá bretum árið 1948. Þau sem mótmæla krefjast þess að forseti landsins, Gotabaya Rajapaksa, ásamt ríkisstjórn segi af sér vegna meintrar spillingar og vanhæfni. Mótmælin hafa verið afar hörð. Lögreglan beitti í þónokkur skipti táragasi á mótmælendur sem köstuðu múrsteinum á móti og kveiktu í bílum. Forsetinn lét loka fyrir samfélagsmiðla og gaf her og lögreglu rýmri heimild til að handtaka mótmælendur og fangelsa án dóms og laga eftir að reynt hafði verið brjótast inn í forsetahöllina. Rajapaksa hefur nú samþykkt að nefnd fari fyrir því að stofna til bráðabirgðastjórnar í landinu, að allir þingflokkar taki sig saman til þess að vinna saman að því eina markmiði að halda ríkiskassanum á floti og tryggja efnahagslegt öryggi landsins til framtíðar. Jóhannes Ólafsson rýnir í stöðu Srí Lanka og ræðir við Ásgeir Brynjar Torfason og Guðbjörgu Ríkey Th. Hauksdóttur. Hefur þú heyrt um Transnistríu? Við láum þér það ekki, hafirðu aldrei um þetta litla hérað í vesturhluta Moldóvu. Moldóva er nú á milli tanna fréttafólks og stjórnmálamanna, endar hefur landið - og nánar tiltekið Transnistría, landamæri að Úkraínu í austri. Atburðir síðustu vikna í Transnistríu hafi valdið nokkrum áhyggjum, og óttast ráðamenn í Moldóvu og víðar að Rússar ætli sér ekki láta sér það nægja, að ráðast inn í Úkraínu. Guðmundur Björn fjallar um málið. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

Heimskviður
107 | Neyðarástand á Sri Lanka og Transnistría

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 7, 2022