Podcast appearances and mentions of vera illugad

  • 17PODCASTS
  • 865EPISODES
  • 1h 48mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Dec 13, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about vera illugad

Latest podcast episodes about vera illugad

Samfélagið
Uppskeruhátíð Snjallræðis, Jólaóþarfi og Albatrosinn viska

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 13, 2024 57:59

Við ætlum að kynna okkur nýjabrumið í nýsköpun, nú fer fram uppskeruhátíð Snjallræðis í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar kynna nokkur teymi hugmyndir sem vonandi eiga eftir að bæta og breyta heiminum til góðs. Við ræðum við fulltrúa nokkurra teyma og verkefnastjóra snjallræðis, Odd Sturluson. Við fáum svo jólapistil frá Stefáni Gíslasyni, hann fjallar um óþarfa, hvaða kerti og neysluspil eigi að varast fyrir jólin. Vera Illugadóttir kemur til okkar í dýraspjall til að ræða albatrosa sem hún og fleiri hafa fylgst með um árabil, hana visku. Tónlist og stef í þættinum: JONI MITCHELL - Chelsea Morning. ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO, ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO, ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO - Microon III (spilar á Sónar 2013).

Samfélagið
Dýr, menn og Díegó - Pallborðsumræður, vísindaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 5, 2024 58:48

Samfélagið efnir til pallborðsumræðna um dýr og viðhorf mannfólks til þeirra, hver er staða dýra í dag? Hvernig eiga réttindi þeirra eftir að þróast í framtíðinni - Og hvers vegna flykkist fólk um og leggur jafnvel allt í sölurnar fyrir ákveðin dýr - dýr eins og háhyrninginn Keikó eða köttinn Díegó. Þátttakendur: Kristinn Schram þjóðfræðingur sem hefur meðal annars skrifað um samskipti mannskepnunnar og annarra dýra. Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og áhugamanneskja um ketti, lemúra, flóðsvín, pöndur og fleiri dýr. Anna Margrét Áslaugardóttir, dýrahjúkrunarfræðinemi, ráðgjafi hjá Dýrfinnu og í stjórn kattavinafélagsins. Henry Alexander Henrysson, siðfræðingur og meðlimur í fagráði stjórnvalda um velferð dýra. Í lok þáttar ætlar Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins, svo að fjalla um nýjar stofnfrumurannsóknir. Tónlist í þættinum: CURE - The Love Cats. Bubbi Morthens, Eyþór Gunnarsson - Maður og hvalur.

Heimsglugginn
Bretar kjósa nýtt þing

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 4, 2024 22:37

Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson um bresku þingkosningarnar sem eru í dag. Við heyrðum í sir John Curtice, helsta kosningaskýranda BBC. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum. Þá var Ólöf með, beint frá Lundúnum, og sagði frá andrúmsloftinu í höfuðborg Bretlands þar sem allir búast við stórsigri Verkamannaflokksins.

Samfélagið
Brúarvinnuflokkar sameina krafta sýna í Elliðaárdal, Baskasetur og hátíð á Djúpavík, dýraspjall um sæotur

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 7, 2024 58:02

Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar eru tveir, annar í Vík í Mýrdal og hinn á Hvammstanga og þessa dagana sameina þeir krafta sína í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Brúin yfir Elliðaár, neðan við Árbæjarstíflu, þurfti allsherjar yfirhalningu - vegriðið orðið slappt, steypan léleg, það þarf að skipta um legur og þensluraufar og hvaðeina. Við kíktum á framkvæmdina á dögunum og ræddum við VIlhjálm Arnórsson, yfirverkstjóra flokksins frá Hvammstanga og matráðinn Hrefnu Magnúsdóttur sem tilheyrir flokknum frá Vík - bæði hafa verið í brúarvinnuflokki í átján ár. Við heyrum svo í Ólafi J. Engilbertssyni, hann er formaður Baskavinafélagsins og er staddur á Djúpavík á ströndum. Þar á að setja á fót sérstakt Baskasetur og þessa dagana er þar hátíð þar sem menningu Baska og tengslum þeirra við Ísland er fagnað með sýningu, vinnustofum, málþingi og tónleikum. Vera Illugadóttir kemur svo til okkar í lok þáttar í dýraspjall - til umræðu er hinn frægi sæotur 841. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Tónlist: Lónlí blú bojs - Heim í Búðardal. THE KINKS - Sunny Afternoon. Olga Guðrún Árnadóttir - Kötturinn Sem Gufaði Upp.

dj arn og h reykjav upp vilhj umsj otur vera illugad hvammstanga vegager
Samfélagið
Kosningar á Akureyri, strandveiðar, málfar og dýr á flótta

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 31, 2024 55:55

Við fræðumst um utankjörfundaratkvæðagreiðslur, fyrirkomulag þeirra og tilgang, heimsækjum utankjörfundarstað sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra á Akureyri og ræðum við sýslumanninn Svavar Pálsson og fleiri viðstadda. Við forvitnumst um strandveiðar en strandveiðitímabilið hófst í byrjun mánaðar. Við ætlum að slá á þráðinn til formanns strandveiðifélags Íslands, Kjartans Páls Sveinssonar sem rær frá Grundarfirði í sumar. Við heyrum málfarsmínútu eins og lög gera ráð fyrir og í lok þáttar ætlar Vera Illugadóttir að setjast hjá okkur og spjalla við okkur um dýr eins og svo oft.

akureyri vera illugad sveinssonar
Samfélagið
Er lýsi gagnlegt? Kynjaþing 2024, málfar og dýraspjall - langlífur albatrosi

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 24, 2024 57:37

Það brá mörgum í brún í gær þegar fréttir voru sagðar af rannsóknum á fiskiolíum á borð við lýsi og omega 3 fitusýrum þar sem sterkar vísbendingar virðast koma fram um að fiskiolía eða lýsi geti beinlínis verið óhollt. Þvert á það sem okkur hefur verið kennt um - kannski ekki aldir - en býsna lengi. Samkvæmt þessum rannsóknum eykur neysla á bætiefnum á borð við lýsi sem innihalda omega 3, líkurnar á gáttatifi og heilablóðföllum hjá vissum hópi fólks. Við ræðum þetta við Þórhall Inga Halldórsson, prófessor í matvæla- og næringarfræði við HÍ. Á morgun stendur Kvenréttindafélag Íslands fyrir Kynjaþingi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Þetta er lýðræðislegur og feminískur vettvangur sem félagið skapar fyrir almenning, félagasamtök og hópa sem vinna að jafnréttismálum í víðum skilningi - og það er í mörg horn að líta. Við ræðum áherslur í jafnréttisbaráttunni og dagskrá þingsins við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands. Við heyrum eina málfarsmínútu og svo kemur Vera Illugadóttir til okkar í dýraspjall - um albatrosaömmuna Visku. Tónlist: FLEETWOOD MAC - Dreams. ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG ÞORSTEINN EINARSSON - Hluthafi í heiminum.

Samfélagið
Staðartengsl, einmitt og spellvirkjar úr dýraríkinu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 19, 2024 55:37

Hvernig tengjumst við stöðum og hvaða tök hafa þeir á okkur? Þetta hafa þjóðfræðingar við Háskóla Íslands rannsakað í nokkur ár í rannsóknarverkefni sem kallast aðdráttarafl arfleifðar og staðartengsl í borgarlandslagi, (ágætis tungubrjótur það). Þátttakendur í rannsókninni hafa spásserað um miðborg Reykjavíkur með upptökugleraugu á nefinu og talað um þær minningar og tilfinningar sem umhverfið, hvort sem það er hús, köttur eða gangstéttarhella vekur hjá þeim.Við ræðum við þau Ólaf Rastrick, prófessor í þjóðfræði og Snjólaugu Guðrúnu Jóhannesdóttur, doktorsnema. Við heyrum líka málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunauti, hún fjallar um einmitt, nákvæmlega og nefnilega. Svo ætlar Vera Illugadóttir að heiðra okkur með nærveru sinni. Umfjöllunarefni hennar er, sem fyrr, dýr og sérstaklega dýr sem hafa valdið spellvirkjum og jafnvel þurft að svara til saka fyrir óknytti.

gu reykjav hvernig svo sigr kinu snj umfj vera illugad rastrick einmitt
Morgunvaktin
Öldrunarráð, Meyvant Sigurðsson og Camorra mafían

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 3, 2024 130:00

Öldrunarráð Íslands eru regnhlífasamtök þeirra sem starfa að hagsmunum aldraðra. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða, er formaður ráðsins, hún sagði frá hlutverki þess og spjallaði vítt og breitt um málefni aldraðra. Lesið var brot úr viðtali við Meyvant Sigurðsson á Eiði sem birtist í Morgunblaðinu í apríl 1969, fáeinum dögum áður en Meyvant varð 75 ára. Þá var leikið brot út viðtali sem Jónas Jónasson átti við Meyvant í þættinum Um litla stund haustið 1970. Vera Illugadóttir sagði frá Camorra mafínunni á Ítalíu. Einn harðsvíraðasti liðsmaður hennar á árum áður, sem setið hefur bak við lás og slá í 26 ár, hyggst vitna gegn fyrrum félögum sínum. Wish you were gay - Billie Eilish, Green - Stórsveit danska ríkisútvarpsins, Click song - Miriam Makeba, Kung Erik - Walton Grönroos, Little things mean a lot, Il mio amico camorrista - Lisa Castaldi.

Morgunvaktin
Hjúkrunarheimili, hamingja og fjársjóður á hafsbotni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 20, 2024 130:00

Fyrsti gestur þáttarins var Sigurður Ágúst Sigurðsson, nýkjörinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Einkum var rætt um vöntun á hjúkrunarheimilum en um 250 eru á biðlista. Félagið segir neyðarástand ríkja. Heilbrigðisráðherra hefur lofað uppbyggingu en ljóst er að hún tekur mörg ár. Alþjóðlegi hamingjudagurinn er í dag. Af því tilefni kom Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, í þáttinn og sagði frá nýjum mælingum á hamingju landsmanna. Fjölgað hefur í hópi hamingjusamra unglinga en minnst er hamingjan meðal fólks á aldrinum 18-24 ára. Yfirvöld í Kólumbíu áforma að hífa af hafsbotni skip sem sökk í byrjun átjándu aldar. Lestir þess voru fullar af gulli, silfri og eðalsteinum. Deilt er um eignarhald á góssinu. Vera Illugadóttir sagði frá. Suður um höfin - Diddi og Reynir, Woman - John Lennon, Højdesyge - Tina Dickow.

Morgunvaktin
Sniðganga, fjölgun læknanema og tíu ár frá hvarfi malasísku farþegarþotunnar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 6, 2024 130:00

Sniðganga hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið, sérstaklega þegar viðkemur málefnum Ísraels og Palestínu. En sniðgönguhreyfingin er ekki ný af nálinni, um sniðgöngu eru þónokkur dæmi í sögunni. Jón Þór Sturluson hagfræðingur var gestur okkar og ræddi um þessi mál. Sextíu læknar útskrifast árlega hér á landi en þyrftu að vera fleiri. Læknadeild Háskóla Íslands hefur samþykkt að fjölga nemum í 75 í haust, en setur nokkra fyrirvara svo sem um nægt fjármagn og aðstöðu. Þórarinn Guðjónsson deildarforseti læknadeildar settist hjá okkur ræddi um hvað þarf svo hægt sé að fjölga læknanemum, og þar með læknum. Á föstudaginn verða tíu ár síðan malasísk farþegaþota hvarf á flugi frá Kuala Lumpur til Beijing með 239 manns innanborðs. Það var 8. mars 2014. Hvarf MH 370 er í dag ein mesta ráðgáta flugsögunnar. Umfangsmikil leit að braki þotunnar á hafi úti skilaði litlu - en nú er útlit fyrir að efnt verði til nýrrar leitar á árinu. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari ráðgátu í þættinum. They only talk about the weather - Árný Margrét. A Case Of You - Mitchell, Joni. My Old Man - Mitchell, Joni.

Samfélagið
Dúfur, áhrif COVID-19 á Vestfjörðum, útför Navalnís

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 1, 2024 58:59

Við ætlum að tala um COVID-19 en fyrr í vikunni voru 4 ár liðin frá fyrsta covid 19 smitinu hér á landi. Lára Jóhannsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum fór fyrir rannsókn á samfélagslegum áhrifum og lýðheilsuaðgerðum vegna COVID-19 á Vestfjörðum. Hún segir okkur frá rannsókninni og helstu niðurstöðum. Útför rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalnís fór fram í Moskvu í dag. Hann lést í öryggisfangelsi í Síberíu 16. febrúar síðastliðinn, þar sem hann afplánaði langan dóm, var gefið að sök að hafa stofnað og rekið öfgasamtök. Oddur Þórðarson, fréttamaður, hefur fylgst grannt með og ræðir við okkur. Dýraspjall. Vera Illugadóttir ræðir um meinta njósnadúfu í Mumbai. Tónlist: Hljómar - Við saman. JOHN MAYER - Carry Me Away.

Morgunvaktin
Úkraína og Rússland, útlendingamál og Páskaeyja

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 21, 2024 130:00

Fyrsti gestur þáttarins í dag var Rósa Magnúsdóttir, sagnfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Á laugardag eru tvö ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Langur aðdragandi var að innrásinni; 2014 innlimaði Pútín forseti Krímskaga í Rússland. Ekkert lát er á átökum og margir liggja í valnum. Rósa fó yfir atburðarásina með okkur. Við fjölluðum líka um þær breytingar sem ríkisstjórnin hyggst gera í útlendingamálum. Áformin voru kynnt í gær. Herða á löggjöfina frá því sem nú er, í því augnamiði að fækka því fólki sem hingað kemur og óskar verndar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra var gestur okkar eftir Morgunfréttirnar. Netverjar í Chile hafa undanfarnar vikur herjað stíft á samfélagsmiðla British Museum, með kröfur um að safnið skili tveimur steinhöfðum frá Páskaeyju, en eyjan tilheyrir Chile. Þessi gríðarstóru dularfullu steinlíkneski eru þekktasta tákn Páskeyju, og voru sköpuð löngu áður en Chile lagði eyjuna undir sig. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari afskekktu eyju Páskaeyju, sögu hennar og styttunum frægu. Tónlist: Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 1 a 1 Clav.. Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 30 Quodlibet. a 1 Clav.. Þokkabót - Miðvikudagur. Hooker, John Lee - Wednesday evenin' blues. Nunes, Clara - Ilû ayê (Terra da vida).

Samfélagið
https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5283796D0.mp3Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Ak

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 16, 2024 58:36

Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Akureyri - þar er Arnhildur Hálfdánardóttir. Og efni þáttarins kemur líka úr þremur áttum. Við byrjum á Akureyri, þar er skýjað, kalt og frekar stillt, vettlingaveður og við ætlum að tala um tré. Akureyri er stundum kölluð bærinn í skóginum og það eru mörg gömul og tignarleg tré sem setja mark sitt á bæinn. Sniðgötubirkið, Þríforkslerkið við Bjarmastíg, Asparrisinn við Oddeyrargötu svona svo dæmi séu nefnd. Við förum í gönguferð um Akureyri með Bergsveini Þórssyni, garðyrkju- og skógfræðingi, ræðum um einstök tré, eðli trjáa og framtíðina - en tré verða víst ekki eilíf - og við spyrjum: Verður enn gróðursælt á Akureyri eftir 30 ár? Og á Flateyri er heiðskírt og logn og 3-4 stiga frost. Afskaplega fallegt veður. Og það er snjór yfir öllu. En það sem umsjónarmönnum Samfélagsins finnst umtalsverður snjór þykir Ívari gröfukalli, sem sinnir snjómokstri á Flateyri varla vera neitt neitt. Hann er stöðugt á ferðinni að halda götunum hreinum og við reynum að grípa hann. Svo eru það íþróttir í lok þáttar. Vera Illugadóttir ætlar að segja okkur frá nýafstaðinni keppni í Japan. Keppni sem margir hlustendur hafa eflaust beðið spenntir eftir að fá fréttir af. Það er keppni í þaulsetu flóðsvína í heitri laug.

Morgunvaktin
Ungverjaland, tónlistarskólar og Amelia Earhart

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 7, 2024 130:00

Í dag ætlum við meðal annars að fjalla um Ungverjaland; um lífið í landinu og stöðu þess í samfélagi þjóðanna. Miklar breytingar hafa orðið undir stjórn Viktors Orban forsætisráðherra sem stöðugt og markvisst hefur aukið völd embættis síns. Raunar er sagt að Ungverjaland geti vart lengur talist lýðræðisríki. Gunnsteinn Ólafsson tónskáld þekkir vel til mála; hann var við nám í Búdapest á níunda áratug síðustu aldar - á kommúnistatímanum - og hefur dvalið í Ungverjalandi um skemmri eða lengri tíma margoft síðan, síðast nú í vetur. Við spjölluðum um stöðu mála við Gunnstein. Frábær árangur íslensks tónlistarfólks, nú síðast Laufeyjar Lín Jónsdóttur, vekur iðulega mikla athygli og stolt hér á landi. Á bak við árangur af þessu tagi er gríðarleg vinna, sem yfirleitt hefst í löngu tónlistarnámi í íslenskum tónlistarskólum. Við ræddum við Sigrúnu Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, um tónlistarnám á Íslandi. Í síðustu viku var sagt frá því að bandarískir djúpsjávarkönnuðir telji sig hafa fundið flak flugvélar Ameliu Earhart, flughetjunnar frægu. Hún hvarf á flugi yfir Kyrrahafi 1937 og hefur verið leitað æ síðar, ýmsar kenningar settar fram um afdrif hennar í áranna rás- en ekkert vitað með vissu. Ef þessar nýjustu fréttir reynast réttar, liggur flak vélarinnar á miklu dýpi á afskekktu hafsvæði í Kyrrahafi. En eins og flest annað tengt þessari lífseigu ráðgátu eru ekki allir sannfærðir og erfitt gæti orðið að sannreyna kenninguna. Vera Illugadóttir sagði frá þessu. Tónlist: Fitzgerald, Ella and her Famous Orchestra - Stairway to the stars. Beatles, The - All my loving. Turtles, The - Happy together.

Morgunvaktin
Ýmislegt spennandi varðandi rannsóknir og meðferð við Alzheimer

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 24, 2024 130:00

Í gær bárust fréttir af því að mögulegt sé að notast við algengar blóðprufur til þess að greina Alzheimer sjúkdóminn, sem er algengasta orsök heilabilunar. Þetta gæti skipt sköpum og kannski hægt að skima fólk yfir fimmtugu fyrir sjúkdómnum. Við ræddum við Jón Snædal öldrunarlækni. Pósturinn er hættur að dreifa svokölluðum fjölpósti og þykir sumum það miður. Mjög hefur dregið úr bréfasendingum og póstþjónustan orðin allt önnur en hún var um árabil. Pósthúsum hefur til dæmis snar fækkað. Forstjóri Póstsins, Þórhildur Helga Ólafsdóttir, ræddi um starfsemina í dag en póstþjónusta hófst í landinu nokkuð fyrir átján hundruð. Og svo er það Vladimir Lenín. Öld var á sunnudag frá dauða rússneska harðstjórans. Af því tilefni fjölluðum við um hann; ekki þó um manninn og sögu hans heldur um jarðneskar leifar hans sem hýstar eru í grafhýsi við Rauða torgið í Moskvu. Vera Illugadóttir sagði frá. Tónlist: Warwick, Dionne - Do you know the way to San José. Jones, Norah - Wake me up. Víkingur Heiðar Ólafsson - Piano sonata no.47 in B minor : Menuetto - Trio (Minore). Wainwright, Rufus - Going to a Town (feat. Anohni). Macias, Enrico - La France de mon enfance.

Morgunvaktin
Kjarasamningar, tímamót í Danmörku og orð ársins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024

Stóra málið fram undan í þjóðlífinu eru kjarasamningarnir sem vonir standa til, að um náist þjóðarsátt og til verði þjóðarsáttarsamningarnir hinir seinni. Ágætt hljóð er í forystufólki atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar og ríkisstjórnin ætlar að leggja sitt af mörkum. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari fylgist grannt með gangi mála - hann hefur ekki þurft að beita sér að ráði og þarf vonandi ekki; en hann var gestur Morgunvaktarinnar í dag. Tímamót verða í Danmörku um miðjan mánuðinn - aldeilis - þegar 52 ára drottningartíð Margrétar Þórhildar lýkur. Um fátt annað hafa Danir rætt síðan á gamlársdag þegar drottning upplýsti að hún ætli að a sala sér krúnunni. Borgþór Arngrímsson fjallaði um Margréti Þórhildi og Friðrik son hennar, verðandi konung. Vera Illugadóttir vdr svo með okkur í síðasta hluta þáttarins og sagði okkur frá orði ársins hér og þar í heiminum. Þau gefa - eða geta gefið - einhverja hugmynd um hvað helst gekk á í viðkomandi ríki á nýliðnu ári. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Kom igen - Kim Larsen Seeger, Pete - Turn! turn! turn! (to everything there is a season). Franklin, Aretha - I say a little prayer. Kalde dem for du - Malte Ebert GDRN - Parísarhjól.

Morgunvaktin
Kjarasamningar, tímamót í Danmörku og orð ársins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024 130:00

Aðventuganga, loftslagsráðstefna og Elgin-styttur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023

Það líður að aðventu; hana nota margir til að undirbúa jólahaldið; sækja aðföng, baka smákökur og þar fram eftir götum. Einar Skúlason er ekki í þeim hópi. Hann ætlar á aðventunni að ganga frá Seyðisfirði til Akureyri. Einar sagði okkur frá þessum fyrirhugaða 280 kílómetra göngutúr. Ásgeir Brynjar Torfason ræddi alþjóðleg efnahagsmál, meðal annars viðskiptaþvinganir, umfangsmikil batterísframleiðsla í Svíþjóð og svolítið um Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst í Dúbæ á morgun. Tvö þúsund og fimm hundruð ára gamlar marmarastyttur eru orðnar að hitamáli í alþjóðapólitík - og reyndar ekki í fyrsta sinn. Forsætisráðherra Bretlands afboðaði í gær fyrirhugaðan fund með grískum starfsbróður sínum, vegna ósættis um eignarhald yfir svokölluðum Elgin-styttum. Þær áttu eitt sinn heima á Akrópólis-hæð í Aþenu en hafa verið á British Museum í Lundúnum undanfarnar tvær aldir. Grikkir hafa um árabil þrýst á Breta að skila verkunum heim - en Bretar þverneita. Vera Illugadóttir fór yfir þetta. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: King, Carole - Bitter with the sweet. Paul, Les, Ford, Mary - Vaya con dios. Tígulkvartettinn, Moravek, Jan - Ég bið að heilsa. Lira Tropical - Combinación de Tonadas, (punto fijo).

Morgunvaktin
Aðventuganga, loftslagsráðstefna og Elgin-styttur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 29, 2023 130:00

Málefni öryrkja, dönsk tíðindi og John F. Kennedy

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 22, 2023

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, var gestur Morgunvaktarinnar. Hún ræddi um nýja herferð bandalagsins, Blanki, þar sem sjónum er beint að kjörum þeirra verst settu í samfélaginu. Við ræddum líka um stöðu fatlaðs fólks og öryrkja í Grindavík. Borgþór Arngrímsson sagði frá helstu tíðindum frá Danmörku. Ýmislegt er um að vera í dönskum stjórnmálum. Í síðasta hluta þáttarins rifjuðum við upp æsku og uppvöxt Johns F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, en í dag eru 60 ár frá því að hann var myrtur. Vera Illugadóttir gerði þætti um Kennedy fyrir sex árum síðan, og við lékum brot úr þeim. Tónlist: Beatles, The - I am so tired. Beatles, The - Blackbird. Beatles, The - Julia. Beatles, The - While my guitar gently weeps. Ingmann, Jørgen, Ingmann, Grethe - Dansevise.

Morgunvaktin
Málefni öryrkja, dönsk tíðindi og John F. Kennedy

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 22, 2023 130:00

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, var gestur Morgunvaktarinnar. Hún ræddi um nýja herferð bandalagsins, Blanki, þar sem sjónum er beint að kjörum þeirra verst settu í samfélaginu. Við ræddum líka um stöðu fatlaðs fólks og öryrkja í Grindavík. Borgþór Arngrímsson sagði frá helstu tíðindum frá Danmörku. Ýmislegt er um að vera í dönskum stjórnmálum. Í síðasta hluta þáttarins rifjuðum við upp æsku og uppvöxt Johns F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, en í dag eru 60 ár frá því að hann var myrtur. Vera Illugadóttir gerði þætti um Kennedy fyrir sex árum síðan, og við lékum brot úr þeim. Tónlist: Beatles, The - I am so tired. Beatles, The - Blackbird. Beatles, The - Julia. Beatles, The - While my guitar gently weeps. Ingmann, Jørgen, Ingmann, Grethe - Dansevise.

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023

Jarðfallið í Gjerdrum í Noregi er mörgum minnisstætt, þetta var í lok desember 2020, mörg hús gjöreyðilögðust og tíu létust. Þessar hamfarir eru um margt ólíkar þeim sem nú standa yfir í Grindavík - en í báðum tilfellum hafa yfirvöld þurft að bregðast við - tryggja öryggi og afkomu íbúa. Við ræðum viðbrögð yfirvalda hér og í Noregi við náttúruhamförum við Herdísi Sigurgrímsdóttur, stjórnmálafræðing, hún er nýflutt heim frá Noregi og starfaði þar sem sviðsstjóri umhverfis- og loftslagsmálahjá héraðs yfirvöldum í Stafangri. Flestir smitsjúkdómar sem hrjá okkur mannfólkið berast úr dýrum, þannig sjúkdómar eru kallaðir súnur og meðal þeirra er sláturbóla, hvimleið veirusýking sem borist getur úr sauðfé í menn. Þóra Sverrisdóttir, sjúkraliði, rekstrarfræðingur og sauðfjárbóndi á Stóru Giljá í Húnavatnssýslu, sýktist af sláturbólu á dögunum og batinn dróst á langinn vegna þess að læknir sem hún leitaði til skar í bóluna. Fleiri bændur hafa fengið þetta nýverið og deilt myndum af bólum, ýmist á höndum eða andliti. Við ræðum við Þóru um reynslu hennar, en líka við Pétur Skarphéðinsson lækni á eftirlaunum sem oft fékkst við svona sýkingar í gamla daga og Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalækni. Fugl aldarinnar var á dögunum kosinn á Nýja-Sjálandi og úrslitin óvænt. Vera Illugadóttir segir frá.

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023 55:00

Lífið verður aldrei samt aftur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023 130:00

Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavíkurkirkju, var gestur Morgunvaktarinnar í dag. Það hefur mætt mikið á henni eins og öðru forystufólki í samfélaginu í Grindavík og Grindvíkingum öllum síðustu daga. Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, kom til okkar. Hann ræddi ýmis efnahagsmál, verðbólgu, samspil einkageirans og hins opinbera á óvissutímum og fleira. Vera Illugadóttir sagði frá eyríkinu Túvalú í Kyrrahafinu, sem komst í heimsfréttirnar í síðustu viku. Ástæðan er sú að ríkið gerði samkomulag við Ástralíu um að íbúarnir geti flutt til Ástralíu, en talið er að Túvalú geti orðið fyrsta eyríkið sem verður alveg óbyggilegt vegna hækkunar sjávarmáls. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: KK band - Á venjulegum degi. GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson - Morgunsól. GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson - Ég veit þú kemur. Levina - Funafuti Tuvalu

Morgunvaktin
Lífið verður aldrei samt aftur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2023

Dómsmál Trump, verðbólga og frumbyggjahneyksli

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 1, 2023

Samkvæmt skoðanakönnunum eru töluverðar líkur á því að Donald Trump gæti orðið forseti Bandaríkjanna á ný. En í millitíðinni berst hann í dómsölum víða um landið - fjögur mál gætu leitt til fangelsisdóma, eitt ógnar viðskiptaveldi hans og nokkur mál miða að því að fá hann fjarlægðan af kjörseðlum. Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, ræddi þessi mál. Við fjöllum um efnahagsmál í útlöndum - einkum í Evrópu. Verðbólgan hér fór örlítið niður í síðustu mælingu en staðan er allt önnur og betri í viðmiðunarlöndunum, líkt og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, fór yfir með okkur. Við töluðum líka um eitt og annað fleira er varðar efnahag og peninga. Ein af þekktustu tónlistarkonum Kanada undanfarna áratugi, Buffy Sainte-Marie, var sökuð um það í fréttaþætti á dögunum að hafa villt á sér heimildir allan sinn feril. Hún sé ekki af kanadískum frumbyggjaættum eins og hún hefur haldið fram, heldur fædd og uppalin af hvítu fólki í Bandaríkjunum. Uppljóstranirnar hafa vakið mikla athygli og umræðu í Kanada. Tónlistarkonan sjálf, sem er komin yfir áttrætt og settist nýlega í helgan stein, neitar öllum sökum. Vera Illugadóttir sagði frá þessu máli. Tónlist: Benny Quartet - Stompin' at the Savoy. Cocker, Joe, Warnes, Jennifer - Up where we belong. Buffy Sainte-Marie - Bury My Heart At Wounded Knee Buffy Sainte-Marie - Universal Soldier

Morgunvaktin
Dómsmál Trump, verðbólga og frumbyggjahneyksli

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 1, 2023 130:00

Grenndargralið, hamfarir í jarðsögunni, málfar og svín á golfvelli

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 27, 2023 55:00

Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar hafðist fjöldi breskra og bandarískra hermanna við í Eyjafirði. Þar voru skotæfingasvæði, braggabyggð, flugvöllur og spítali svo dæmi séu nefnd og ótal munir og minjar frá þessum tíma grafnir í jörðu. Brynjar Karl Óttarsson, sagnfræðingur, kennari og grúskari tilheyrir hópi fólks sem grefur þessa hluti upp, gúgglar þá og skoðar og heldur úti vefsíðunni grenndargral.is. Sævar Helgi Bragason, rithöfundur með meiru, ræðir um tunglið, árekstra loftsteina við jörðina og ýmsar hamfarir. Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Vera Illugadóttir ræðir um svín sem valda vandræðum á golfvelli í Arizona.

arizona sigr gunni og sv vera illugad helgi bragason eyjafir
Samfélagið
Grenndargralið, hamfarir í jarðsögunni, málfar og svín á golfvelli

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 27, 2023

Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar hafðist fjöldi breskra og bandarískra hermanna við í Eyjafirði. Þar voru skotæfingasvæði, braggabyggð, flugvöllur og spítali svo dæmi séu nefnd og ótal munir og minjar frá þessum tíma grafnir í jörðu. Brynjar Karl Óttarsson, sagnfræðingur, kennari og grúskari tilheyrir hópi fólks sem grefur þessa hluti upp, gúgglar þá og skoðar og heldur úti vefsíðunni grenndargral.is. Sævar Helgi Bragason, rithöfundur með meiru, ræðir um tunglið, árekstra loftsteina við jörðina og ýmsar hamfarir. Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Vera Illugadóttir ræðir um svín sem valda vandræðum á golfvelli í Arizona.

arizona sigr gunni og sv vera illugad helgi bragason eyjafir
Samfélagið
Sæsnigillinn svartserkur, refsilaus dómur og Ig nóbelsverðlaunin

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 29, 2023 55:00

Við fræðumst um nýjan landnema, sæsnigil sem nýlega fannst í fjöru við innanverðan Breiðafjörð og hefur ekki fundist áður í Norður-Atlantshafi. Snigillinn er um margt sérstakur og ýmsar spurningar sem brenna á þeim Svanhildi Egilsdóttur, sérfræðingi hjá Hafrannsóknastofnun sem fyrst uppgötvaði kvikindið og Áka Jarli Lárussyni, stofnerfðafræðingi hjá sömu stofnun. Dómur yfir manni sem mun ekki sæta neinni refsingu fyrir heimilisofbeldi vakti athygli í vikunni. Maðurinn játaði brot sín en er talinn ósakhæfur þegar hann framdi þau. Hann var þó ekki dæmdur í neins konar geðræna meðferð og þolandinn gengur um með öryggishnapp. María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra kemur til okkar til að ræða þennan málaflokk í aðeins víðara samhengi. Vera Illugadóttir kemur svo til okkar, eins og oft á föstudögum að vísu ekki að ræða um dýr, heldur rannsóknir sem unnið hafa til verðlauna.

hann brei bjarnad vera illugad atlantshafi hafranns
Samfélagið
Sæsnigillinn svartserkur, refsilaus dómur og Ig nóbelsverðlaunin

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 29, 2023

Við fræðumst um nýjan landnema, sæsnigil sem nýlega fannst í fjöru við innanverðan Breiðafjörð og hefur ekki fundist áður í Norður-Atlantshafi. Snigillinn er um margt sérstakur og ýmsar spurningar sem brenna á þeim Svanhildi Egilsdóttur, sérfræðingi hjá Hafrannsóknastofnun sem fyrst uppgötvaði kvikindið og Áka Jarli Lárussyni, stofnerfðafræðingi hjá sömu stofnun. Dómur yfir manni sem mun ekki sæta neinni refsingu fyrir heimilisofbeldi vakti athygli í vikunni. Maðurinn játaði brot sín en er talinn ósakhæfur þegar hann framdi þau. Hann var þó ekki dæmdur í neins konar geðræna meðferð og þolandinn gengur um með öryggishnapp. María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra kemur til okkar til að ræða þennan málaflokk í aðeins víðara samhengi. Vera Illugadóttir kemur svo til okkar, eins og oft á föstudögum að vísu ekki að ræða um dýr, heldur rannsóknir sem unnið hafa til verðlauna.

hann brei bjarnad vera illugad atlantshafi hafranns
Samfélagið
Óvinur birkiþélu, orkuskipti í dreifbýli, málfar og dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 8, 2023 55:00

Náttúrulegur óvinur birkiþélunnar er kominn til landsins - Brynja Hrafnkelsdóttir, skógfræðingur, var í skoðunarferð í skógi við Rauðavatn í fyrradag þegar hún varð vör við glænýja tegund sem enn er ekki ljóst hvað heitir, sníkjudýr sem lifir á birkiþélunni sem plagar birkið síðsumars. Framtíð birkisins virðist töluvert bjartari með tilkomu þessara nýju landnema. Hvernig er best að takast á við orkuskipti á landsbyggðinni, hverjar eru áskoranirnar og sóknarfærin og hvernig geta dreifbýl svæði í Evrópu unnið saman? Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi,hefur velt þessu mikið fyrir sér en nýlega fengu hann og fleiri stóran Evrópustyrk til að vinna orkuskiptaáætlanir fyrir fimm dreifbýl svæði í Evrópu. Við ræðum við Ottó. Málfarsmínútan verður á sínum stað. Vera Illugadóttir kemur svo til okkar í lok þáttar með dýraspjall. Fjölbreytt fána dýra sem þar verður rædd eða allavega hljóðin sem þau gefa frá sér.

Heimsglugginn
Fótbolti, hlaðvörp og ákærur gegn Trump

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 3, 2023

Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir ræddu ýmis mál við Boga Ágústsson í Heimsgluggaspjalli vikunnar á Morgunvakt Rásar 1. Á dagskrá voru norrænn fótbolti, ekki síst það afrek Færeyjarmeistara KÍ Klakksvíkur að slá BF Häcken Svíþjóðarmeistarana út úr forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Áður höfðu Klakksvíkingar lagt ungversku meistarana í hinu fornfræga liði Ferencváros. Þá ræddu þau formannskjör í grænlenska jafnaðarmannaflokknum Siumut en Erik Jensen var endurkjörinn. Aki-Matilda Høegh-Dam og Kim Kielsen buðu sig fram gegn Jensen en hann vann afgerandi sigur, fékk 39 atkvæði, Høegh-Dam 16 og Kielsen 13. Þá ræddu þau áhugaverða hlaðvarpsþætti en meginumræðan var um ákærur gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.

donald trump bj sv dam boga bandar erik jensen sigbj aki matilda h vera illugad siumut kim kielsen
Heimsglugginn
Fótbolti, hlaðvörp og ákærur gegn Trump

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 3, 2023 23:51

Af erlendum hlaðvörpum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 27, 2023 22:29

Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir ræddu aftur við Boga Ágústsson um erlend hlaðvörp sem fjalla um fréttir og alþjóðamál. Rætt var um The rest is politics sem fjallar mikið um breska pólitík en líka um alþjóðamál. Umsjónarmenn The Rest is Politics eru Alastair Campbell og Rory Stewart. Þeir eru báðir vel þekktir úr breskum stjórnmálum og umræðum. https://alastaircampbell.org/podcast/ Þeir félagar eru einnig með ítarleg viðtöl í hliðarhlaðvarpi sem heitir Leading. Bogi minntist sérstaklega á viðtal þeirra við Mary McAleese, fyrrverandi forseta Írlands. Það hefði verið átakanlegt en jafnframt bráðfyndið og mannlegt og sýndi þá hlið á átökunum á Norður-Írlandi. https://podcasts.apple.com/gb/podcast/mary-mcaleese-building-bridges-as-the-president-of-ireland/id1665265193?i=1000615646233 Eitt þekktasta hlaðvarpið er The Daily sem New York Times er með fimm sinnum í viku. This is how the news should sound. Twenty minutes a day, five days a week, hosted by Michael Barbaro and Sabrina Tavernise https://www.nytimes.com/column/the-daily Af norrænum hlaðvörpum mælti Bogi með Verden ifølge Gram, sem væri eins konar Heimsgluggi DR í umsjón Steffen Grams, sem er gamalreyndur erlendur fréttamaður Danmarks Radio. https://www.dr.dk/lyd/p1/verden-ifoelge-gram Genstart sem er einnig frá Danmarks Radio fjallar oft um alþjóðleg málefni, https://www.dr.dk/lyd/special-radio/genstart Stjerner og striber er líka um alþjóðamál og sérstaklega bandarísk málefni. https://www.dr.dk/lyd/p1/stjerner-og-striber-podcast NRK er með Urix, sem er jafnframt fréttaskýringarþáttur í sjónvarpi. https://radio.nrk.no/podkast/verden_paa_loerdag Sænska ríkisútvarpið SR er til dæmis með Studio Ett, þar sem mikið er fjallað um erlend málefni https://sverigesradio.se/studioett SR er líka með fína umfjöllun um erlend málefni á sunnudagsmorgnum í Godmorgon världen https://sverigesradio.se/godmorgon-varlden Þá nefndi Bogi vikulegt hlaðvarp, Norsken Svensken og Dansken þar sem rætt er um ýmis málefni sem eru ofarlega á baugi í norrænu ríkjunum. Umsjónarmenn eru Hilde Sandvik (N), Åsa Linderborg (S) og Hassan Preisler (DK). https://radio.nrk.no/serie/norsken-svensken-og-dansken

Heimsglugginn
Af erlendum hlaðvörpum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 27, 2023

Bóluefni gegn malaríu, hlaðvörp um alþjóðamál

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 20, 2023

Í lok árs verður tekið í notkun nýtt bóluefni gegn malaríu, Mosquirix. Búist er við að bólusetning geti bjargað tugþúsundum barna í Afríku þó að Mosquirix verji aðeins um 30 prósent. Vonir standa til að annað bóluefni, R21/Matrix-M, verði tilbúið innan fárra missera en tilraunir benda til þess að það verji í 77 prósentum tilfella. Malaría verður allt að hálfri milljón barna undir fimm ára aldri að aldurtila árlega í Afríku. Illa hefur gengið að þróa bóluefni gegn malaríu en engu að síður hefur náðst verulegur árangur á undanförnum árum í baráttunni við sjúkdóminn, ekki síst með því að fækka moskító-flugum sem dreifa smitinu. Þannig hefur Kínverjum tekist að útrýma malaríu og dauðsföllum í heiminum fækkaði um 60 af hundraði frá árinu 2000 til 2015. Þetta var meðal þess sem Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar. Þau ræddu einnig aukakosningar í Bretlandi í þremur kjördæmum. Hart er sótt að Íhaldsflokknum í þeim öllum, Verkamannaflokkurinn gæti unnið í tveimur og líklegt er að Frjálslyndir demókratar vinni í því þriðja. Þá ræddu þau að Rússar vildu ekki endurnýja samning um kornútflutning og hafa byrjað að ráðast á Odesa, helstu hafnarborg Úkraínu, og hafa eyðilagt hafnarmannvirki og 60 þúsund tonn af korni sem biðu útflutnings. Pútín hefur sagt að Rússar áskilji sér rétt til að ráðast á öll fragtskip sem eru á leiðinni til Úkraínu, því Rússar telji þau styðja Úkraínustjórn og hugsanlega vera að flytja vopn til Úkraínu. Í lokin var rætt um hlaðvarpsþætti sem fjalla um erlend málefni. Bogi nefndi The Intelligence sem er daglegt hlaðvarp um þrennt sem er efst á baugi í heiminum. Þá nefndi hann Newscast og Americast frá BBC og the News Agents frá bresku útvarpssamsteypunni Global.

Heimsglugginn
Bóluefni gegn malaríu, hlaðvörp um alþjóðamál

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 20, 2023 21:28

NATO, Skotland og Orkneyjar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 6, 2023

Jens Stoltenberg verður áfram framkvæmdastjóri NATO í ár í viðbót og ljóst að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tekur ekki við því embætti fyrr en í fyrsta lagi eftir rúmt ár. Raunar herma fréttir að Bandaríkjastjórn vilji að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, verði þá eftirmaður Stoltenbergs. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir ræddu þetta við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu einnig stöðu mála í Skotlandi. Karl konungur III tók í gær formlega við skosku krúnudjásnunum við hátíðlega athöfn í St. Giles-dómkirkjunni í Edinborg. Talsverður hópur lýðveldissinna mótmælti í grennd við kirkjuna. Kannanir benda til þess að um þriðjungur Skota sé andvígur konungdæminu en tæpur helmingur styður það. Þá vill um helmingur Skota að landið verði sjálfstætt ríki og það hefur ekki breyst þó að Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, eigi í margvíslegum vandræðum um þessar mundir. Nýjasta áfallið er að Mhairi Black, ein helsta vonarstjarna flokksins, tilkynnti í gær að hún ætlaði að hætta þingmennsku, hún hefði fengið sig fullsadda af stjórnmálum. Black lenti í orðaskaki við Oliver Dowden varaforsætisráðherra í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í neðri málstofu breska þingsins. Dowden minnti á að þau hefðu bæði verið kjörin á þing 2015 og hann væri viss um að hún tæki undir árnaðaróskir til konungs. Dowden vildi með þessu stríða Black sem er lýðveldissinni. Hún svaraði með því að þakka Dowden fyrir að minnast þess að þau hefðu komið á þing á sama tíma og hún væri þess fullviss að þau hættu á sama tíma. Þingheimur hló hátt og lengi. Undir lok Heimsgluggans var rætt um óskir Orkneyinga um aukið sjálfræði og breytingar á tengslum þeirra við Bretland. Ýmsir hafa rætt um möguleika á að endurvekja tengsl eyjanna við Noreg og Norðurlönd.

Heimsglugginn
NATO, Skotland og Orkneyjar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 6, 2023 23:47

Pútín og Prigozhin

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 29, 2023 22:22

Heimsgluggi vikunnar fjallaði um Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Yevgeny Prigozhin foringja Wagner-málaliðasveitanna. Prigozhin gerði uppreisn um síðustu helgi sem mistókst. Báðir standa veikari eftir. Þetta var aðalumræðuefnið er Þórunn Elísabet Bogadóttir, Vera Illugadóttir og Bogi Ágústsson ræddu erlend málefni í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar-1. Þau ræddu þó í upphafi um kóran-brennu í Stokkhólmi og afleiðingar fyrir NATO-umsókn Svía.

Heimsglugginn
Pútín og Prigozhin

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 29, 2023

Heimsgluggi vikunnar fjallaði um Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Yevgeny Prigozhin foringja Wagner-málaliðasveitanna. Prigozhin gerði uppreisn um síðustu helgi sem mistókst. Báðir standa veikari eftir. Þetta var aðalumræðuefnið er Þórunn Elísabet Bogadóttir, Vera Illugadóttir og Bogi Ágústsson ræddu erlend málefni í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar-1. Þau ræddu þó í upphafi um kóran-brennu í Stokkhólmi og afleiðingar fyrir NATO-umsókn Svía.

Heimsglugginn
Verðbólga, bílar og Bangladess

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 22, 2023

Í Heimsglugga vikunnar var hugað að verðbólgu sem víðast er á undanhaldi, þó ekki í Bretlandi og á Íslandi. Efnahagsmál og vextir í Svíþjóð bar á góma sem og vandræði þýskra og evrópskra bílaframleiðenda sem eiga í harðri samkeppni við kínverska bíla. Kínverjar þykja hafa náð góðum tökum á framleiðslu rafmagnsbíla. Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir við Boga Ágústsson um Indland og Bangladess. Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, er í heimsókn í Bandaríkjunum en gagnkvæmur áhugi virðist á að efla samskipti þjóðanna. Modi nýtur mikilla vinsælda heima fyrir, 77% landsmanna kveðast ánægð með störf hans. Í grannríkinu Bangladess hefur forsætisráðherrann Sheikh Hasina Wazed setið lengur að völdum en nokkur kona sem er núverandi valdhafi. Bangladess var annað fátækasta ríki heims er landið varð til 1971 eftir blóðug átök. Á undanförnum árum hafa orðið stórstígar efnahagslegar framfarir og hagvöxtur meiri en í nokkru ríki í Suður-Asíu en á öðrum sviðum er ýmislegt að. Bangladess er sagt spilltasta land í suður-Asíu og lýðræði á undir högg að sækja, aðrir stjórnmálaflokkar en stjórnarflokkurinn Awami-bandalagið eiga erfitt uppdráttar og að þeim er sótt, lögregla og dómstólar eru undir áhrifum eða jafnvel beinni stjórn yfirvalda. Í lokin heyrðum við George Harrison flytja lag sitt Bangla Desh, en Harrison og vinur hans indverski sítarleikarinn Ravi Shankar efndu til tvennra tónleika sama daginn, 1. ágúst 1971, til að safna fé fyrir fórnarlömb borgarastyrjaldar og blóðugra átaka í Bangladess. Tónleikarnir voru í Madison Square Garden í New York og þá sóttu 40 þúsund manns og upptökur af tónleikunum voru gefnar út á þremur breiðskífum og gerð var heimildarmynd. Allur ágóði fór til UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, til björgunarstarfs í Bangladess.

Heimsglugginn
Verðbólga, bílar og Bangladess

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 22, 2023 22:35

Góðkunningjar Heimsgluggans

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 15, 2023

Óðinn Jónsson nefndi þá "góðkunningja Heimsgluggans", Donald Trump, Boris Johnson og Silvio Berlusconi sem allir hafa verið í fréttum í vikunni. Þeir voru til umræðu í Heimsglugga dagsins er Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson um erlend málefni. Trump hefur verið ákærður fyrir brot á lögum um njósnir og meðferð trúnaðargagna. Ákæran er í 37 liðum. Hann er sakaður um að hafa tekið hundruð trúnaðargagna með sér úr Hvíta húsinu og geymt á heimili sínu í Mar-a-Lago í Flórída. William Barr, sem var dómsmálaráðherra í stjórn Trumps, telur ekki leika vafa á sekt Trumps. Bogi telur samt ólíklegt að hann verði sakfelldur. Bresk þingnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi blekkt breska þingið vísvitandi þegar hann neitaði því að reglur um samkomutakmarkanir hefðu verið brotnar í veisluhöldum í Downing-stræti. Skýrslan hafði ekki verið birt þegar Vera, Þórunn og Bogi ræddu málið. Johnson sagði af sér þingmennsku eftir að hann fékk að sjá skýrsluna. Yfirlýsingar hans þá voru mikill reiðilestur og hann sakaði þingnefndina um óheiðarleika og kallaði hana ,,kangaroo court". Vandræði SNP, Skoska þjóðarflokksins, voru einnig til umræðu. Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra, var handtekin og yfirheyrð vegna rannsóknar á fjármálum flokksins. Að lokum var Silvio Berlusconi til umræðu. Hann var borinn til grafar í Mílanó í gær. Við heyrðum Meno male che Silvio c'è, lofsöng frá 2010 um Berlusconi sem var kosningastef hans í þingkosningunum. Í textanum segir meðal annars: "Lifi Ítalía sem hefur kosið að trúa á þennan draum, forseti við stöndum með þér, guði sé lof fyrir Silvio".

Heimsglugginn
Góðkunningjar Heimsgluggans

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 15, 2023 24:39

Danska ríkissambandið, 500 ára afmæli Svíþjóðar og dönsk íþróttalýsing

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 8, 2023

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir ræddu að venju erlend málefni á fimmtudegi við Boga Ágústsson. Athyglin beindist að þessu sinni að danska ríkissambandinu, Rigsfællesskabet. Það er talsverð spenna á milli Grænlendinga og Dana. Grænlendingar eru óánægðir með að Dani var skipaður sendiherra norðurslóða, segja að grænlenskur diplómat eigi að gegna embættinu, Grænland sé norðurslóðasvæðið í ríkissambandinu. Þau ræddu einnig að Svíar minnast þess að 500 ár eru liðin frá stofnun núverandi ríkis í Svíþjóð og formlegum lokum Kalmar-sambandsins. Það var þegar Gústaf Eiríksson Vasa var kjörinn konungur 6. júní 1523. Afkomendur hans sátu einvaldir á valdastóli þangað til 1809 er Svíar fengu nýja stjórnarskrá sem takmarkaði vald konungs. Gustav IV Adolf var settur af við sama tækifæri og föðurbróðir hans Karl XIII tók við. Sá átti ekki börn og Svíar buðu því frönskum hershöfðingja, Jean Bernadotte, að verða ríkisarfi og hann varð svo Karl XIV Johan. Afkomendur hans hafa verið konungar Svíþjóðar síðan. Í lokin heyrðum við er Mads Thyrsted, íþróttafréttamaður Danmarks Radio, lýsti jöfnunarmarki Árósaliðsins AGF gegn Brøndy í lokaumferð dönsku knattspyrnunnar. AGF þurfti að ná jafntefli til að fá bronsverðlaun í efstu deild og komast í Evrópukeppni. Thyrsted fór með himinskautum í lýsingu sinni.

Heimsglugginn
Danska ríkissambandið, 500 ára afmæli Svíþjóðar og dönsk íþróttalýsing

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 8, 2023 22:50

Rannsóknir á norðurslóðum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 1, 2023

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, lýsti áhyggjum af framhaldi rannsóknasamstarfs á norðurslóðum á málþingi sem haldið var í Háskóla Íslands fyrr í vikunni. Málþingið var um mikilvægi samstarfsins. Ólafur Ragnar benti á að það hefði lengst af verið laust við afskipti alþjóðastjórnmála, vísindamenn hefðu lengi starfað í þeim anda að vísindin skipti öllu, stjórnmál ættu ekki að flækjast fyrir. En nú væri staðan önnur og Ólafur Ragnar velti fyrir sér hver áhrif innrásarinnar í Úkraínu yrðu, hvort samstarfið geti haldið áfram án Rússa og aðgangs að rannsóknarniðurstöðum þeirra í til dæmis í loftslagsmálum. Öllu samstarfi við Rússa var rift eftir innrásina í Úkraínu og engar horfur á að vísindasamstarf við þá verði tekið upp að nýju í bráð. Bogi Ágústsson ræddi þessi mál við Gunnar Stefánsson, prófessor í verkfræði við Háskóla Íslands, sem er að taka við stöðu aðstoðarrektors vísinda hjá Háskóla norðurslóða, sem hefur verið vettvangur vísindarannsókna á norðurslóðum. Að auki ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir við Boga um loftárásir í Úkraínu og hvort líklegt væri að Erdogan léti af andstöðu við inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið eftir að hann var endurkjörinn forseti Tyrklands.

Heimsglugginn
Rannsóknir á norðurslóðum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 1, 2023 24:19