Podcasts about sviss

  • 30PODCASTS
  • 107EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Apr 29, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about sviss

Latest podcast episodes about sviss

Mannlegi þátturinn
VÆB á leið til Basel, Léttsveit Reykjavíkur og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 29, 2025 50:00


VÆB bræður, Matthías og Hálfdán, stíga á svið í Basel fyrir Íslands hönd á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision 13.maí. Hópurinn fer til Sviss síðar í vikunni og það er skiljanlega mikil spenna fyrir því sem koma skal. Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins og VÆB var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það sem er framundan og stemninguna í hópnum. Léttsveit Reykjavíkur er stærsti kvennakór landsins, en hann samanstendur af 100 konum á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn. Léttsveitin á þrjátíu ára afmæli í ár og verður því með ýmsa viðburði tengda afmælinu víða um landið. Við fengum þær Ingibjörgu Margréti Gunnlaugsdóttur, formann kórsins og Helgu Björk Jónsdóttur, kórfélaga, til að segja okkur frá kórnum, starfseminni og afmælisárinu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ræddi hann við okkur um rafmagnsleysið á Spáni og í Portúgal undanfarinn sólarhring og tengsl þess við veður. Hann talaði svo um þessa góðu tíð sem hefur verið undanfarið og bar hana saman við sama tíma í fyrra og svo skoðuðum við aðeins horfurnar framundan. Kemur hret? Einar fór með okkur yfir það í veðurspjallinu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Vorið kemur / Diddú (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) Róa / VÆB (Ingi Bauer, Gunnar Björn Gunnarsson, Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir, enskur texti Peter Fenner) Langferð (Aften) / Léttsveit Reykjavíkur (Matti Borg, texti Eygló Eyjólfsdóttir) Þá mun vorið vaxa / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fotbolti.net
Frábær þrenna, tvö stig og einn rosalega skrítinn leikur

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025


Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði. Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti.

Spegillinn
Sviss tekur líka afstöðu til ESB og samsæriskenningar um skógarelda

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 17, 2025 20:00


Ísland er ekki eina ríkið í Evrópu þar sem ætlunin er að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um tengsl við Evrópusambandið á næstu árum . Það sama mun gerast í Sviss - mögulega um svipað leyti og hér á landi - eftir að stjórnvöld þar samþykktu nýjan heildarsamning um samskipti og viðskipti Sviss og Evrópusambandsins. Ekki eru allar kenningar um upptök eldana í Los Angeles jafn vel rökstuddar og á samfélagsmiðlum hefur fjöldi samsæriskenninga þar að lútandi litið dagsins ljós. Ein sú útbreiddasta, er kenningin um að eldarnir hafi verið kveiktir vísvitandi, ekki af einhverjum brennuvörgum úti í bæ, heldur nafnlausum aðilum á vegum hersins, leyniþjónustustofnana eða annarra leynilegra stofnana ríkisvaldsins eða djúpríkisins svonefnda. Og það eru fleiri umdeildar framkvæmdir sem koma til kasta dómstóla en Hvammsvirkjun - til að mynda Suðurnesjalína 2, hið eilífa þrætuepli.

Mannlegi þátturinn
Þorleifur Örn föstudagsgestur og matarspjall um bók Nigellu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 13, 2024 54:01


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri. Eftir að hann útskrifaðist úr leikstjóranámi frá einum virtasta leiklistarháskóla Evrópu hefur hann sett upp fjölda leiksýninga og ópera hér á landi, víða í Þýskalandi og í fleiri löndum. Hann var um hríð yfirmaður leiklistarmála hjá hinu fræga Volksbühne í Berlín. Hann hefur hlotið þýsku leiklistarverðlaunin fyrir leikstjórn og Grímuverðlaunin hér á landi fyrir leikstjórn. Hann hefur leikstýrt hverri stórsýningunni á fætur annarri og hans nýjasta sýning er Köttur á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu 28.desember. Við spjölluðum við Þorleif Örn um lífið, tilveruna, leikhúsið, leikstjórnina, fórum til Þýskalands, Sviss og víðar í þættinum. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var á sínum stað og í dag kom hún með matreiðslubók að heiman sem er Jólamatreiðslubók Nigellu Lawson. Í byrjun ræddum við líka aðeins matreiðslubók sem gefin var út af Íslandsbanka á sínum tíma. Tónlistin í þættinum Jólin koma / GDRN og Magnús Jóhann (Eiríkur Guðmundsson) Everything in Its Right Place / Radiohead (Colin Greenwood, Ed O'Brien, Jonny Greenwood, Philip Selway & Thom Yorke) Life on Mars / David Bowie (David Bowie) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR

Fotbolti.net
Tveggja Turna Tal - Teitur Þórðarson

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 9, 2024


Gestur vikunnar er Teitur Þórðarson. Teitur breytti þjálfunaraðferðum í knattspyrnu í Noregi, á Íslandi og í Eistlandi. Hann þjálfaði líka í Kanada og spilaði í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss. Teitur hefur flutt 27 sinnum! Teitur var frábær leikmaður. Stór, sterkur og fljótur með ríkt dugnaðargen í skrokknum. Við fórum yfir fullt af hlutum. Árin í Noregi, hvernig það var að spila undir Arsene Wenger og hvað skiptir máli til að ná árangri og margt fleira. Við Turnarnir þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Fitnessport, Visitor og Budvar fyrir að vera með okkur í liði. Njótið!

Víðsjá
Á okkar máli, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, Reykjavík Dance Festival/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 21, 2024 52:04


Fyrir nokkrum árum síðan varð myndlistarkonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vör við fjölgun flóttamanna í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Hún tók líka eftir því að þar var fátt sem greip fólkið og ákvað að hafa frumkvæði að því að búa til vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn hefði tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í samfélaginu. Úr varð fjölbreytt starf með reglulegum listasmiðjum, viðburðum og samverustundum og stofnun hjálparsamtakanna GETU, sem styður við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Hafnarfirði, Kópavogi og nágrenni. Hafnarborg er meðal samstarfsaðila GETU og þar verður á laugardag boðið upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem arabísk leturtákn verða innblástur fyrir listræna sköpun, undir leiðsögn listamannanna Yöru Zein og Ingunnar Fjólu. Við lítum við á vinnustofu þeirra í hafnarfirði og heyrum af viðburðinum og samstarfinu. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð fyrir 20 árum og heldur upp á það með tvennum tónleikum í Langholtskirkju um helgina. Sveitin var stofnuð um það leyti sem sett var tónlistardeild við Listaháskóla Íslands því það vantaði vettvang fyrir nemendur Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri er einn stofnenda hljómsveitarinnar og verður gestur okkar í þætti dagsins. Reykjavík Dance Festival lauk eftir nokkurra daga veislu síðastliðinn sunnudag. Katla Ársælsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir fóru á nokkrar sýningar sem þær munu rýna í, í þætti dagsins og í næsta þætti. Katla ríður á vaðið í dag með umfjöllun um Konukroppa og When a duck turns 18 a boy will eat her. En við hefjum þáttinn á símtali við semballeikarann Halldór Bjarka Arnarson, sem búsettur er í Sviss, en heldur tónleika undir yfirskriftinni Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, í Breiðholtskirkju á laugardag. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Mannlegi þátturinn
Málþing um dánaraðstoð, Gigtarfélag Íslands og póstkort frá Möltu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 9, 2024 53:28


Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð, stendur fyrir málþingi í næstu viku undir yfirskriftinni: Dánaraðstoð - reynsla annarra landa. Á málþinginu munu fulltrúar, Sviss, Hollands og Kanada, landa sem hafa lögleitt dánaraðstoð deila reynslu sinni. Bjarni Jónsson, stofnandi, gjaldkeri og stjórnarmaður í félaginu kom í þáttinn og sagði okkur frá málþinginu og stöðu mála í þessum málaflokki hér á landi. Gigtarsjúkdómar hafa áhrif á um fjórðung Íslendinga á lífsleiðinni. Margir þjást í hljóði þar sem sjúkdómurinn getur verið ósýnilegur almenningi. Um 200 mismunandi gigtarsjúkdómar eru þekktir, þar á meðal sumir sem geta verið lífshættulegir. Þrátt fyrir algengi og alvarleika sjúkdómana hefur stuðningur oft verið ófullnægjandi innan heilbrigðiskerfisins. Hér gegnir Gigtarfélag Íslands lykilhlutverki en félagið á einmitt afmæli í dag 9. október. Opið hús verður í nýju húsnæði Gigtarfélags Íslands, í Brekkuhúsum 1, og nýjungar í þjónustu verða kynntar í tilefni af alþjóðlega gigtardeginum 12. október. Hrönn Stefánsdóttir varaformaður Gigtarfélagsins kom í þáttinn og sagði okkur meðal annars sýna sögu, en hún greindist með lupus eftir langa og erfiða vegferð. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Eyjan Malta er í Miðjarðarhafinu milli Sikileyjar og Túnis. Magnús er nýkominn frá Möltu og varð hrifinn af landi og þjóð. Hann segir frá umsátrinu mikla árið 1565, hann sagði frá höfuðborginni og þjóðlagahátíð þar sem hann marseraði með sikileyskri lúðrasveit. Undir lokin talaði hann aðeins um síma sem eru minnst notaðir sem símar. Tónlist í þættinum: Láttu þér líða vel / Stjórnin (Grétar Örvarsson, texti Aðalsteinn Ásberg) Hvernig líður þér í dag / Stefán Hilmarsson (Rafn Jónsson) Serendipity / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Svissneskur fíknigeðlæknir, skjöl frá fyrstu árum bílaaldar og heilbrigt mataræði

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 30, 2024 55:00


Í dag ræðir Samfélagið við einn fremsta fíknigeðlækni Sviss. Dr. Thilo Beck yfirlæknir hjá Arud, samtökum sem reka stærstu fíknigöngudeild Sviss, ræðir við okkur um lyfjameðferðir við ópíóíðafíkn, skaðaminnkun, og hvað Íslendingar geti gert til að bæta meðferðarúrræðin sem standa til boða hér á landi. Við kíkjum í leynilega skjalageymslu Þjóðskjalasafnsins í ónefndu iðnaðarhverfi í Reykjavík. Þar eru einkum geymd trúnaðarskjöl frá lögreglunni - en við ætlum að rýna í brúna og nokkuð lúna bók frá upphafi bílaaldar á Íslandi með Indriða Svavari Sigurðssyni, skjalaverði. Við kynnumst meðal annars Katrínu Fjeldsted sem var önnur konan á Íslandi til þess að taka bílpróf. Við fjöllum um mataræði og fjölskyldulíf. Hvernig á að halda góðum matarvenjum að börnum - þegar foreldrar eiga kannski nógu erfitt með sjálfa sig? Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur og heilsuráðgjafi ræðir þetta við okkur. Tónlist: boygenius - Cool About It. TRACY CHAPMAN - Fast car. Bergþóra Árnadóttir - Blátt, svo blátt.

Heimsglugginn
Lichtman spáir Harris sigri, hlutleysi Sviss og Farage í þinginu

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Sep 12, 2024 25:30


Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu margt í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar-1. Nefna má hlutleysi Sviss, norrænan sjónvarpsþátt um öryggismál á Norðurlöndum eftir innrás Rússa í Úkraínu og inngöngu Finna og Svía í NATO. Við heyrðum í nýjum sænskum utanríkisráðherra, Nigel Farage í breska þinginu og Allan Lichtman, sem hefur reynst sannspár um úrslit forsetakosninga í Bandaríkjunum síðastliðin 40 ár. Lichtman er sagnfræðingur og prófessor við American University í Washington DC og spádómar hans vekja alltaf mikla athygli vestan hafs. Hann spáir Kamölu Harris sigri í kosningunum í nóvember. Í lokin heyrðum við Erlu Þorsteinsdóttur syngja ,,Draum fangans“ eftir Tólfta september, Freymóð Jóhannesson.

Fotbolti.net
Einn stærsti sigur í fótboltasögu Íslands og leiðin liggur til Sviss

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 18, 2024


Íslenska kvennalandsliðið er komið á EM eftir frábæran landsliðsglugga. Stelpurnar unnu magnaðan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli og unnu í kjölfarið 0-1 sigur gegn Póllandi. Þær lentu í öðru sæti sínum og fara beint á EM. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, komu við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um stöðu kvennalandsliðsins og Evrópumótið sem er framundan.

Spegillinn
Grindavík, Evrópuþingkosningar, Úkraína og Rússland

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 20:00


5. júní 2024 Það eru um sjö mánuðir síðan Grindavík var rýmd, jarðhræringarnar halda áfram og verkefnin sem við blasa eru mörg og krefjandi. Atvinnu- og húsnæðismálin kannski mest aðkallandi segir Árni Þór Sigurðsson, formaður nýrrar framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur, í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Um þrjú hundruð og sjötíu milljónir eru á kjörskrá fyrir kosningar til Evrópuþingsins sem hefjast á morgun og standa fram á sunnudag. Þingið var í upphafi valda- og áhrifalítið en hefur í seinni tíð fengið aukið vægi innan Evrópusambandsins. Búist er við að harðlínu-hægriflokkar auki fylgi sitt í kosningunum, þótt líklegt sé talið að hófsamir miðjuflokkar haldi meirihluta. Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel, segir frá. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, gefur lítið fyrir leiðtoga- og friðarráðstefnu vegna stríðsins í Úkraínu, sem sem haldin verður í Sviss um miðjan mánuð, og varar Frakka við því, að sendi þeir franska hernaðarsérfræðinga til Úkraínu til að þjálfa þarlenda hermenn í notkun franskra og vestrænna vopna, þá teljist þeir lögmæt skotmörk rússneska hersins. Ævar Örn Jósepsson fjallar um ráðstefnuna og afstöðu Rússa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Podcast með Sölva Tryggva
#227 Rannveig Borg með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Mar 29, 2024 80:27


Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Rannveig Borg er lögfræðingur og rithöfundur sem er búsett og starfar í Sviss. Í þættinum ræða Sölvi og Rannveig um sögu Rannveigar, ástríðu, fíknir, ADHD, samfélagsmál og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/  

Rauða borðið
Helgi-spjall: Björn Oddsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 2, 2024 171:07


Laugardagurinn 2. mars Helgi-spjall: Björn Oddsson Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Björn Oddsson jarðfræðingur okkur frá bókinni sem hann kemur með til landsins, eftir langdvalir í Sviss í meira en hálfa öld, frá muninum á samfélaginu á Íslandi og í Sviss, frá sprungunum í Grindavík, samfélaginu sem hann kom frá og mörgu öðru.

Fram og til baka
Kári Kristján Kristjánsson

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jan 20, 2024 114:00


Handboltahetjan Kári Kristján Kristjánsson hefur vakið mikla athygli í Stofunni þar sem fjallað er um leiki Íslands á EM 2024. Kári Kristján var gestur Felix og fjallaði um fimm handboltaleiki sem breyttu lífi hans. Kári ólst upp í Vestmannaeyjum og varð snemma ákveðinn í að verða handknattleiksmaður. Hann átti feril með ÍBV, Haukum, Val og liðum í Sviss, Þýskalandi og Danmörku. Hann lenti líka í erfiðum veikindum sem hafa haft áhrif á ferilinn.

Samfélagið
Litið um öxl með Jóni Björgvinssyni, nýárspistill um umhverfismál.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024 58:20


Hann hefur flutt okkur fréttir frá víglínunni í Úkraínu, frá hamfarasvæðum í Marokkó og Tyrklandi og þegar hann byrjar að lýsa aðstæðum á íslensku, vopnaður hljóðnema merktum RÚV færast fjarlægir atburðir nær okkur. Við lítum í dag yfir farinn veg með Jóni Björgvinssyni, hann er frétta- og kvikmyndagerðarmaður, hefur lengi verið búsettur í Sviss og flytur okkur oft fréttir frá stríðs- og hamfarasvæðum. Á síðasta ári dvaldi hann meðal annars langdvölum í Úkraínu og flutti fréttir þaðan. Við heyrum svo nýárspistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi. Hann veltir því upp hvort tilefni sé til bjartsýni eða svartsýni í umhverfismálum í upphafi árs og fjallar sérstaklega um hræringar tengdar réttindum dýra og lífríkis.

Samfélagið
Litið um öxl með Jóni Björgvinssyni, nýárspistill um umhverfismál.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024


Hann hefur flutt okkur fréttir frá víglínunni í Úkraínu, frá hamfarasvæðum í Marokkó og Tyrklandi og þegar hann byrjar að lýsa aðstæðum á íslensku, vopnaður hljóðnema merktum RÚV færast fjarlægir atburðir nær okkur. Við lítum í dag yfir farinn veg með Jóni Björgvinssyni, hann er frétta- og kvikmyndagerðarmaður, hefur lengi verið búsettur í Sviss og flytur okkur oft fréttir frá stríðs- og hamfarasvæðum. Á síðasta ári dvaldi hann meðal annars langdvölum í Úkraínu og flutti fréttir þaðan. Við heyrum svo nýárspistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi. Hann veltir því upp hvort tilefni sé til bjartsýni eða svartsýni í umhverfismálum í upphafi árs og fjallar sérstaklega um hræringar tengdar réttindum dýra og lífríkis.

Podcast með Sölva Tryggva
#227 Rannveig Borg með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023 20:01


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Rannveig Borg er lögfræðingur og rithöfundur sem er búsett og starfar í Sviss. Í þættinum ræða Sölvi og Rannveig um sögu Rannveigar, ástríðu, fíknir, ADHD, samfélagsmál og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/

Fram og til baka
Eva Marín Hlynsdóttir

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Oct 28, 2023


Felix Bergsson heldur áfram að fá góða gesti í fimmuna í þættinum Fram og til baka og gestur hans þennan laugardaginn var Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Hún talaði um fimm staði sem hafa haft áhrif á líf hennar og við sveifluðumst úr afskekktum dal í Skagafirði yfir til Sviss og Kína. Svo hringdi Felix í Katrínu Halldóru Sigurðardóttur söng og leikkonu en nýja platan hennar, Ást fyrir tvo, var að koma út.

fram sigur halld svo eva mar sviss skagafir felix bergsson
Fram og til baka
Eva Marín Hlynsdóttir

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Oct 28, 2023 114:00


Felix Bergsson heldur áfram að fá góða gesti í fimmuna í þættinum Fram og til baka og gestur hans þennan laugardaginn var Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Hún talaði um fimm staði sem hafa haft áhrif á líf hennar og við sveifluðumst úr afskekktum dal í Skagafirði yfir til Sviss og Kína. Svo hringdi Felix í Katrínu Halldóru Sigurðardóttur söng og leikkonu en nýja platan hennar, Ást fyrir tvo, var að koma út.

fram sigur halld svo eva mar sviss skagafir felix bergsson
Mannlegi þátturinn
Kristjana Arngrímsdóttir tónlistarkona og póstkort frá Magnúsi Einars

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 11, 2023


Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og tónlistarkona sem búsett er í Svarfaðardal er búin að gefa út glænýjan geisladisk með 10 frumsömdum lögum, flest samin við ljóð skáldkvenna. Við hittum Kristjönu á kaffihúsi í miðvænum á Akureyri og spjölluðum við hana um tónlistina og heima og geima. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og hann kemur víða við í póstkortinu að þessu sinni. Hann byrjar á að tala um veðrið og veðrametin í Eyjum. Því næst talar hann um samgöngur og leggur leið sína til Sviss en þar þykja samgöngur til fyrirmyndar. Svo liggur leiðin til Svalbarða en þar hefur stríðið í Úkraínu haft versandi áhrif á sambúð rússa og norðmanna. Rússar reka þarna kolanámu og eru farnir að sýna norskum yfirvöldum hroka og vanvirðingu. Tónlist: Á sjó/Hljómsveit Ingimars Eydal,Þorvaldur Halldórsson syngur(erl-Ólaf Ragnarsson) Máninn/Kristjana Arngrímsdóttir(Kristjana Arngrímsdóttir-Halla Eyjólfsdóttir) Útþrá/Kristjana Arngrímsdóttir( Kristjana Arngrímsdóttir-Elísabet Geirmundsdóttir?Listakonan í fjörunni?)

Mannlegi þátturinn
Kristjana Arngrímsdóttir tónlistarkona og póstkort frá Magnúsi Einars

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 11, 2023 50:00


Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og tónlistarkona sem búsett er í Svarfaðardal er búin að gefa út glænýjan geisladisk með 10 frumsömdum lögum, flest samin við ljóð skáldkvenna. Við hittum Kristjönu á kaffihúsi í miðvænum á Akureyri og spjölluðum við hana um tónlistina og heima og geima. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og hann kemur víða við í póstkortinu að þessu sinni. Hann byrjar á að tala um veðrið og veðrametin í Eyjum. Því næst talar hann um samgöngur og leggur leið sína til Sviss en þar þykja samgöngur til fyrirmyndar. Svo liggur leiðin til Svalbarða en þar hefur stríðið í Úkraínu haft versandi áhrif á sambúð rússa og norðmanna. Rússar reka þarna kolanámu og eru farnir að sýna norskum yfirvöldum hroka og vanvirðingu. Tónlist: Á sjó/Hljómsveit Ingimars Eydal,Þorvaldur Halldórsson syngur(erl-Ólaf Ragnarsson) Máninn/Kristjana Arngrímsdóttir(Kristjana Arngrímsdóttir-Halla Eyjólfsdóttir) Útþrá/Kristjana Arngrímsdóttir( Kristjana Arngrímsdóttir-Elísabet Geirmundsdóttir?Listakonan í fjörunni?)

Spegillinn
Ríkissjóður, hamfarir, málefni barna, sorphirða og ferðaþjónusta

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 10, 2023 9:30


Spegillinn 10.08. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Yfir fjögur þúsund manns hafa verið flutt brott frá flóðasvæðunum í Noregi. Miklar rýmingar standa yfir í bænum Hönefoss þar sem yfirborð árinnar Storelva hækkar hratt. Rætt er við Huldu Björk Jóhannsdóttur kennara í Hönefoss Havaí-eyjar hafa verið lýstar hamfarasvæði eftir að miklir gróðureldar blossuðu þar upp í gær. Tugir eru látnir og margra er saknað. Fjármálaráðherra segir að á komandi vetri eigi eftir að reyna á framlengingu kjarasamninga og á samtal við vinnumarkaðinn um hversu mikið menn eru tilbúnir að leggja á sig til að halda aftur af verðbólgunni. Rætt við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra. Viðbragðstími lögreglu á Norðurlandi vestra styttist verulega með tilkomu fyrstu mönnuðu lögreglustöðvarinnar á Hvammstanga. Rætt við Unni Valborgu Hilmarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings. Sterkar vísbendingar eru um að staða barna með taugaþroskaraskanir sé víða alvarleg í íslenskum grunnskólum og dæmi um að skólarnir vísi börnum frá eða sinni ekki menntun þeirra. Rætt við Salvöru Nordal. Sorphirða á höfuðborgarsvæðinu hefur tafist og óánægja ríkir meðal íbúa. Deildarstjóri sorphirðu segir tafirnar vera vegna sumarleyfa og búnaðar sem ekki henti nýju flokkunarkerfi. Rætt við Atla Ómarsson, deildarstjóra sorphirðu hjá Reykjavíkurborg. ------- Að minnsta kosti 36 íbúar bæjarins Lahaina á eyjunni Maui á Havaíeyjum eru látnir vegna mikilla gróðurelda. Þeir kviknuðu á þriðjudag, en efldust til muna í gær vegna hvassviðris af völdum fellibylsins Dóru sem myndaðist á Kyrrahafi um mánaðamótin. Ásgeir Tómasson tók saman. Sterkar vísbendingar eru um að staða barna með taugaþroskaraskanir sé víða alvarleg í íslenskum grunnskólum og dæmi um að skólarnir vísi börnum frá eða sinni ekki menntun þeirra sem skyldi. Þetta er á meðal þess sem tilraunaverkefni um réttindagæslu barna hefur leitt í ljós. Ævar Örn Jósepsson ræddi þetta og ráðstefnu um loftslagsréttlæti og réttindi barna við Salvöru Nordal, umboðsmann barna, Í vetur er stefnt að beinu millilandaflugi til Akureyrar og í sumar hefur verið flogið til Sviss og Hollands frá Akureyri. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta og þolmörk og dreifingu ferðamennskunnar við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista, og Önnu Dóru Sæþórsdóttur, prófessor í ferðamálafræði.

Spegillinn
Ríkissjóður, hamfarir, málefni barna, sorphirða og ferðaþjónusta

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 10, 2023


Spegillinn 10.08. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Yfir fjögur þúsund manns hafa verið flutt brott frá flóðasvæðunum í Noregi. Miklar rýmingar standa yfir í bænum Hönefoss þar sem yfirborð árinnar Storelva hækkar hratt. Rætt er við Huldu Björk Jóhannsdóttur kennara í Hönefoss Havaí-eyjar hafa verið lýstar hamfarasvæði eftir að miklir gróðureldar blossuðu þar upp í gær. Tugir eru látnir og margra er saknað. Fjármálaráðherra segir að á komandi vetri eigi eftir að reyna á framlengingu kjarasamninga og á samtal við vinnumarkaðinn um hversu mikið menn eru tilbúnir að leggja á sig til að halda aftur af verðbólgunni. Rætt við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra. Viðbragðstími lögreglu á Norðurlandi vestra styttist verulega með tilkomu fyrstu mönnuðu lögreglustöðvarinnar á Hvammstanga. Rætt við Unni Valborgu Hilmarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings. Sterkar vísbendingar eru um að staða barna með taugaþroskaraskanir sé víða alvarleg í íslenskum grunnskólum og dæmi um að skólarnir vísi börnum frá eða sinni ekki menntun þeirra. Rætt við Salvöru Nordal. Sorphirða á höfuðborgarsvæðinu hefur tafist og óánægja ríkir meðal íbúa. Deildarstjóri sorphirðu segir tafirnar vera vegna sumarleyfa og búnaðar sem ekki henti nýju flokkunarkerfi. Rætt við Atla Ómarsson, deildarstjóra sorphirðu hjá Reykjavíkurborg. ------- Að minnsta kosti 36 íbúar bæjarins Lahaina á eyjunni Maui á Havaíeyjum eru látnir vegna mikilla gróðurelda. Þeir kviknuðu á þriðjudag, en efldust til muna í gær vegna hvassviðris af völdum fellibylsins Dóru sem myndaðist á Kyrrahafi um mánaðamótin. Ásgeir Tómasson tók saman. Sterkar vísbendingar eru um að staða barna með taugaþroskaraskanir sé víða alvarleg í íslenskum grunnskólum og dæmi um að skólarnir vísi börnum frá eða sinni ekki menntun þeirra sem skyldi. Þetta er á meðal þess sem tilraunaverkefni um réttindagæslu barna hefur leitt í ljós. Ævar Örn Jósepsson ræddi þetta og ráðstefnu um loftslagsréttlæti og réttindi barna við Salvöru Nordal, umboðsmann barna, Í vetur er stefnt að beinu millilandaflugi til Akureyrar og í sumar hefur verið flogið til Sviss og Hollands frá Akureyri. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta og þolmörk og dreifingu ferðamennskunnar við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista, og Önnu Dóru Sæþórsdóttur, prófessor í ferðamálafræði.

Djoon Club Podcasts
TSOS for Djoon Radio

Djoon Club Podcasts

Play Episode Listen Later May 24, 2023 65:45


TRACKLIST : 1 - Shimza - That Organ Track 2 - FNX Omar, Yass - Fomalah 3 - Rockin Moroccin, Davide Ruberto - Bayati Shiraz (Original Mix) 4 - Stefano Ranieri - It Could Happen (Original Mix) 5 - Orange Tree Edits - Litmus Groove (Jimmy Rounge Edit) 6 - Amédée O Suriam - Tension Hot-Shot (Manoo Afro-Disco Mix) 7 - L'amoroso - Yekeke 8 - TSOS & Benjy - Koodoo 9 - Fabrizio Fattore - Lyle (Vince Watson reshape) 10 - Samantha Loveridge, Treetalk - Losing My Religion (Original Mix) TSOS from 2018 it's the new aka name, TSOS began in 2012 when Roberto Reale and Fabio Giunta, both DJs came across one another and realised they shared the same musical influences. Roberto Reale started his DJ career in 2001, playing in various clubs and dipping into the world of radio. Fabio Giunta, took the same route in 2000, becoming a resident DJ in various Sicilian clubs.  During their careers, TSOS have collaborated and played with many music artists such as Boddhi Satva, Raoul K, Greg Gauthier, Djeff, Manoo, Tony Humphries, David Morales, Joey Negro, DJ Spen, Mousse T, Victor Simonelli and many record labels, such as: Moon Rocket Music, King Street Sounds, MoBlack Records, Madorasindahouse Records and Diridim Records. They are known, not only in Italy but abroad. Sets include Holland, Amsterdam (Ade, Amsterdam Dance Event); Malta,Gozo (Sunscape Festival, Shadow Lounge Club e Moulin Rouge Party - Les Chambres Secrètes) ; Spain, Alicante (VB Weekender) León (Glam Theatre) ; Sviss, Basel (Excellent Club); Sweden, Stockholm (Astoria Club) ; Italy Treviso (Urban Klub); Taormina (Lido Stockholm) Reggio Calabria (Moony Club, Turquè Beach Club, Socio Crew) ; Catania (Officine 83, Afrobar Playa e Maeva Barbara Beach, Ecs Dogana Club); Palermo (Country Club) ; Pantelleria (Altamarea Club); Agrigento (La Sesta); Mazara Del Vallo (Lido Costanza) ; Salerno (World House Festival); Trapani (Djoon Experience) etc..

Heimskviður
142| Bankar í vandræðum og spennandi kosningar í Finnlandi

Heimskviður

Play Episode Listen Later Apr 1, 2023


Það kerfishrun, sem varð á alþjóðlegum fjármálamörkuðum haustið 2008, er með því stærsta orðið hefur síðastliðna öld. Hrun bankakerfisins hér á landi í framhaldinu er síðan einn afdrifaríkasti atburður í Íslandssögunni. Það hefur löngum verið deilt um áhrif erlendis frá, á þá atburðarás sem leiddi til hruns íslenskra banka 2008, og þá hversu mikil þau voru. Það verður hins vegar ekki um það deilt að kreppan 2008 hófst í Bandaríkjunum og dreifðist síðan um heimsbyggðina. Það rann því mörgum kalt vatn milli skinns og hörunds í byrjun síðasta mánaðar, þegar tveir bankar féllu vestanhafs ? svo að segja í einu vetfangi ? og þegar krísan virtist hafa smitast nokkrum dögum síðar til Sviss og fest klærnar í 167 ára gamlan, sögufrægan banka með þeim afleiðingum að hann hrundi. En hvað er að gerast? Hversu alvarlegt er ástandið? Römbum við á barmi alþjóðlegs fjármálahruns, eins og 2008, eða er ekkert að óttast? Svo fjöllum við um þingkosningar í Finnlandi sem verða á sunnudaginn. Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands berst þar fyrir pólitísku lífi sínu. Hún varð yngsti forsætisráðherra heims eftir síðustu kosningar og nýtur enn mikilla vinsælda, en þrátt fyrir það gæti ríkisstjórnin fallið, því fylgi flokksins hennar heldur ekki í við persónufylgið. Búist er við erfiðum stjórnarmyndunarviðræðum en þrír flokkar eru hnífjafnir samkvæmt skoðanakönnunum og því er mikil spenna fyrir því hverjum þeirra tekst að tryggja sér mest fylgi og þar með umboð til að mynda nýja stjórn. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Heimskviður
142| Bankar í vandræðum og spennandi kosningar í Finnlandi

Heimskviður

Play Episode Listen Later Apr 1, 2023 40:00


Það kerfishrun, sem varð á alþjóðlegum fjármálamörkuðum haustið 2008, er með því stærsta orðið hefur síðastliðna öld. Hrun bankakerfisins hér á landi í framhaldinu er síðan einn afdrifaríkasti atburður í Íslandssögunni. Það hefur löngum verið deilt um áhrif erlendis frá, á þá atburðarás sem leiddi til hruns íslenskra banka 2008, og þá hversu mikil þau voru. Það verður hins vegar ekki um það deilt að kreppan 2008 hófst í Bandaríkjunum og dreifðist síðan um heimsbyggðina. Það rann því mörgum kalt vatn milli skinns og hörunds í byrjun síðasta mánaðar, þegar tveir bankar féllu vestanhafs ? svo að segja í einu vetfangi ? og þegar krísan virtist hafa smitast nokkrum dögum síðar til Sviss og fest klærnar í 167 ára gamlan, sögufrægan banka með þeim afleiðingum að hann hrundi. En hvað er að gerast? Hversu alvarlegt er ástandið? Römbum við á barmi alþjóðlegs fjármálahruns, eins og 2008, eða er ekkert að óttast? Svo fjöllum við um þingkosningar í Finnlandi sem verða á sunnudaginn. Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands berst þar fyrir pólitísku lífi sínu. Hún varð yngsti forsætisráðherra heims eftir síðustu kosningar og nýtur enn mikilla vinsælda, en þrátt fyrir það gæti ríkisstjórnin fallið, því fylgi flokksins hennar heldur ekki í við persónufylgið. Búist er við erfiðum stjórnarmyndunarviðræðum en þrír flokkar eru hnífjafnir samkvæmt skoðanakönnunum og því er mikil spenna fyrir því hverjum þeirra tekst að tryggja sér mest fylgi og þar með umboð til að mynda nýja stjórn. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Spegillinn
Rýmingar, vantraust og landsliðsþjálfari rekinn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023 13:18


Spegillinn 30. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Hús voru enn rýmd á Austfjörðum í dag vegna hættu á ofanflóðum. Hættustig er í gildi í Neskaupstað, á Seyðisfirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Fjöldi flóða hefur fallið í dag en ekki í byggð. Magni Hreinn Jónsson fagstjóri ofanflóða er á vakt hjá Veðurstofunni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann og Óðin Svan Óðinsson fréttamann sem er í Neskaupstað. Vantrauststillaga á hendur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra er eitt af mörgum óþægilegum málum fyrir Vinstri græn í ríkisstjórnarsamstarfinu segir Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, samþykkt hefði jafngilt stjórnarslitum. Bjarni Rúnarsson talaði við hann. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara upp störfum. Einar Örn Jónsson sagði frá og Hans Steinar Bjarnason talaði við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ. Stéttarfélög á opinbera markaðnum hafa samið við ríki og borg um launahækkanir og kjarabætur. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB segir helsta markmið 12 mánaða samnings að verja kaupmáttinn. Helstu matvörukeðjur Svíþjóðar hafa boðað verðlækkun á ýmsum nauðsynjavörum eftir harða gagnrýni. Fjármálaráðherra landsins hafði áður boðað forstjóra fyrirtækjanna á sinn fund og krafist skýringa á verðhækkunum, sem eru langt umfram nágrannalönd. Alexander Kristjánsson sagði frá. Páskaeggin eru ódýrust í Bónus og Krónunni samkvæmt verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Dýrust eru þau í Heimkaup og Iceland. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir tók saman. --------- Vantrauststillaga á hendur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra var felld á Alþingi í dag með 35 atkvæðum stjórnarliða gegn 22 atkvæðum stjórnarandstöðu. Einn greiddi ekki atkvæði. Bjarni Rúnarssorn ræddi við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing um aðdraganda og afleiðingar vantrauststillögunnar. Brot úr viðtali Höskuldar Kára Schram við Jón. Héraðsdómur í Zürich í Sviss dæmdi í dag þrjá fyrrverandi yfirmenn í útibúi rússneska Gazprombankans í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekki kannað uppruna um það bil 50 milljóna svissneskra franka sem lagðir voru inn á reikning í bankanum á árunum 2014 til '16. Rússneskur sellóleikari og hljómsveitarstjóri, Sergei Roldugin, góðvinur Vladimírs Pútíns lagði peningana inn í bankanna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Maria Nizzero, sérfræðingur í rannsókn á fjármálaglæpum við RUSI-hugveituna í Lundúnum, segir að dómurinn sæti tíðindum.

Spegillinn
Rýmingar, vantraust og landsliðsþjálfari rekinn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023


Spegillinn 30. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Hús voru enn rýmd á Austfjörðum í dag vegna hættu á ofanflóðum. Hættustig er í gildi í Neskaupstað, á Seyðisfirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Fjöldi flóða hefur fallið í dag en ekki í byggð. Magni Hreinn Jónsson fagstjóri ofanflóða er á vakt hjá Veðurstofunni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann og Óðin Svan Óðinsson fréttamann sem er í Neskaupstað. Vantrauststillaga á hendur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra er eitt af mörgum óþægilegum málum fyrir Vinstri græn í ríkisstjórnarsamstarfinu segir Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, samþykkt hefði jafngilt stjórnarslitum. Bjarni Rúnarsson talaði við hann. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara upp störfum. Einar Örn Jónsson sagði frá og Hans Steinar Bjarnason talaði við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ. Stéttarfélög á opinbera markaðnum hafa samið við ríki og borg um launahækkanir og kjarabætur. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB segir helsta markmið 12 mánaða samnings að verja kaupmáttinn. Helstu matvörukeðjur Svíþjóðar hafa boðað verðlækkun á ýmsum nauðsynjavörum eftir harða gagnrýni. Fjármálaráðherra landsins hafði áður boðað forstjóra fyrirtækjanna á sinn fund og krafist skýringa á verðhækkunum, sem eru langt umfram nágrannalönd. Alexander Kristjánsson sagði frá. Páskaeggin eru ódýrust í Bónus og Krónunni samkvæmt verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Dýrust eru þau í Heimkaup og Iceland. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir tók saman. --------- Vantrauststillaga á hendur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra var felld á Alþingi í dag með 35 atkvæðum stjórnarliða gegn 22 atkvæðum stjórnarandstöðu. Einn greiddi ekki atkvæði. Bjarni Rúnarssorn ræddi við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing um aðdraganda og afleiðingar vantrauststillögunnar. Brot úr viðtali Höskuldar Kára Schram við Jón. Héraðsdómur í Zürich í Sviss dæmdi í dag þrjá fyrrverandi yfirmenn í útibúi rússneska Gazprombankans í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekki kannað uppruna um það bil 50 milljóna svissneskra franka sem lagðir voru inn á reikning í bankanum á árunum 2014 til '16. Rússneskur sellóleikari og hljómsveitarstjóri, Sergei Roldugin, góðvinur Vladimírs Pútíns lagði peningana inn í bankanna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Maria Nizzero, sérfræðingur í rannsókn á fjármálaglæpum við RUSI-hugveituna í Lundúnum, segir að dómurinn sæti tíðindum.

Víðsjá
Urðarflétta, Þetta rauða, það er ástin, gleymd tónlist í Sviss

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 12, 2022 55:00


Ragn­heiður Harpa Leifs­dótt­ir, rithöfundur og sviðslistakona gaf nýverið ljóðabókina Urðarfléttu. Í Urðarfléttu er að finna prósaljóð sem fjalla um náttúruna í öllu sínu veldi, náttúruna innra og ytra. Í ljóðunum lesum við meðal annars um uglur og ungbörn, sár og stjörnur, rætur, mold og mæður. Ástina og óttann sem geta kannski ekki án hvors annars verið. Meira af því í þætti dagsins. Svisslendingar áttu í byrjun nítjándu aldar merkilegt tónskáld, sem þeir hirtu lítið um, Friedrich Theodor Fröhlich. Hann fyrirfór sér árið 1836, vonlaus um sínar framtíðarhorfur og féll að mestu í gleymsku. Fyrir átta árum flutti eðlisfræðingurinn og píanóleikarinn Jóhannes Vigfússon ásamt konu sinn, Barböru, til Brugg, fæðingarbæjar tónskáldsins og fóru hjónin að grafast fyrir um verk hans. Þau ráku upp stór augu, þegar kom í ljós að eftir hann lágu yfir 700 handrit af tónverkum - nær allt óþekkt, óútgefið og óflutt. Við tók ævintýraleg saga sem Jóhannes segir okkur nánar frá í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á rýni Sölva Halldórssonar í skáldsöguna Þetta rauða, það er ástin, eftir Rögnu Sigurðardóttur.

Víðsjá
Urðarflétta, Þetta rauða, það er ástin, gleymd tónlist í Sviss

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 12, 2022


Ragn­heiður Harpa Leifs­dótt­ir, rithöfundur og sviðslistakona gaf nýverið ljóðabókina Urðarfléttu. Í Urðarfléttu er að finna prósaljóð sem fjalla um náttúruna í öllu sínu veldi, náttúruna innra og ytra. Í ljóðunum lesum við meðal annars um uglur og ungbörn, sár og stjörnur, rætur, mold og mæður. Ástina og óttann sem geta kannski ekki án hvors annars verið. Meira af því í þætti dagsins. Svisslendingar áttu í byrjun nítjándu aldar merkilegt tónskáld, sem þeir hirtu lítið um, Friedrich Theodor Fröhlich. Hann fyrirfór sér árið 1836, vonlaus um sínar framtíðarhorfur og féll að mestu í gleymsku. Fyrir átta árum flutti eðlisfræðingurinn og píanóleikarinn Jóhannes Vigfússon ásamt konu sinn, Barböru, til Brugg, fæðingarbæjar tónskáldsins og fóru hjónin að grafast fyrir um verk hans. Þau ráku upp stór augu, þegar kom í ljós að eftir hann lágu yfir 700 handrit af tónverkum - nær allt óþekkt, óútgefið og óflutt. Við tók ævintýraleg saga sem Jóhannes segir okkur nánar frá í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á rýni Sölva Halldórssonar í skáldsöguna Þetta rauða, það er ástin, eftir Rögnu Sigurðardóttur.

The Snorri Björns Podcast Show
#144 - Rannveig Borg

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Nov 23, 2022 82:48


Rannveig Borg starfar sem lögfræðingur hjá Adecco Group í Sviss, er tveggja bóka rithöfundur og meistaranemi í fíknifræði. Hún hefur starfað sem lögfræðingur í Frakklandi, Lúxemborg, Bretlandi, Íslandi og Sviss þar sem hún er núna búsett. Rannveig segir okkur frá náminu og námserfiðleikunum í Frakklandi, átröskun sem hún glímdi við í æsku, hvernig hún tengir við fíknir og stjórnleysi annarra og nýlega ADHD greiningu sem setur líf hennar og fíkn í samhengi.

Fotbolti.net
Heimavöllurinn á EM: Kempur og töfrakonur í C-riðli

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 29, 2022


Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! "Svíarnir" Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku vel á móti Mist Rúnarsdóttur á Selfossi og fóru yfir C-riðil mótsins. Þar munu mætast Holland, Svíþjóð, Sviss og Portúgal.

Hlaðvarp Kjarnans
Raddir margbreytileikans – 19. þáttur: Að veiða úlfa

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Mar 16, 2022 51:16


Gestur vikunnar í mannfræðihlaðvarpinu Raddir Margbreytileikans er Stephanie Matti. Stephanie var fædd árið 1986 í Sviss en ólst upp í Nýju Suður Wales í Ástralíu. Hún kennir verkefnaáætlanir, eftirfylgni og úttektir við HÍ en hefur einnig haldið fyrirlestra um hættuástand, hörmungar og mannúðarviðbrögð. Hún er doktorsnemi við mannfræðideild HÍ þar sem hún er að rannsaka stóra sprungu fyrir ofan Svínafellsjökul og viðbrögð heimamanna við henni. Leiðbeinandi hennar er Helga Ögmundardóttir. Steph er með bachelor-gráðu í alþjóðasamskiptum frá La Trobe háskóla í Melbourne í Ástralíu. Rannsóknarefni hennar þar var námugröftur í Kongó og Kínverskar fjárfestingar. Hún er með meistaragráðu í alþjóðlegum fræðum frá Háskólanum í Genf þar sem hún rannsakaði kynferðislega hegðun starfsmanna í mannúðarviðbrögðum. Hún hefur unnið í Pakistan, Myanmar og Afghanistan. Við spjölluðum við Steph um doktorsritgerðina og lífið sem starfsmaður í Pakistan, Myanmar og Afghanistan.

Ég Elska Eurovision
S02E08 ~ Eurovision 2022

Ég Elska Eurovision

Play Episode Listen Later Mar 16, 2022 28:52


Í þessum þætti rennum við yfir og hlustum á brot úr lögunum frá Hollandi, Svartfjallalandi, Þýskalandi, Danmörku, Rúmeníu, Frakklandi, Serbíu, Sviss og Georgíu. Ég biðst innilegrar afsökunar á kisumjálmi í miðjum lögum, kisu míkrafón-nuddi, nef mæltri röddu, óvenju miklu málhelti og að hafa sagt óvart ógleymanlegt þegar ég àtti við hið gagnstæða. Ég kenni covid um þetta allt saman! Takk fyrir að hlusta

Víðsjá
Sembaltónlist, sjónvarpsgláp, konur og náttúruvernd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 4, 2022 55:00


Í dag kynnum við til leiks nýjan pistlahöfund hér í Víðsjá. Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir sagnfræðingur hefur einbeitt sér að því að horfa til baka frá sjónarhorni femínisma og skoðað meðal annars sögu kvenna sem voru á jaðri gamla bændasamfélagsins, förukonur og einsetukonur. Einnig hefur hún skrifað um kynferðisofbeldi gegn vinnukonum og um skyggnar konur sem stunduðu miðilsstörf á uppgangstíma andatrúar á Íslandi. Hér í Víðsjá á næstu vikum mun Dalrún fjalla um viðhorf íslenskra kvenna fyrr á öldum til íslenskrar náttúru. Í pistli dagsins fjallar hún um framlag tveggja fyrri alda kvenna til náttúruverndar á Íslandi og beinir sjónum að aðgerðarsinnunum Sigríði frá Brattholti og Þorbjörgu Sveinsdóttur, sem lögðu mikið í sölurnar til að vernda straumvötn og lífríki þeirra. Halldór Bjarki Arnarson spilar jöfnum höndum á sembal, orgel, píanó og horn en er þar að auki liðtækur á ýmis konar íslensk þjóðlagahljóðfæri sem liðsmaður í fjölskylduhljómsveitinni Spilmenn Ríkínís. Hann hefur einnig fengist við tónsmíðar - samið raftónlist og hljóðfæratónlist, en í dag stundar Halldór Bjarki framhaldsnám í semballeik í Sviss. Á morgun heldur hann hádegistónleika í Slanum í Kópavogi þar sem hann hyggst kanna þær andstæður sem einkenna sembaltónlist barrokktímans. VIð lítum í heimsókn til Halldórs Bjarka hér á eftir. Og við hefjum þáttinn á nýárshugleiðingum eftir sófagláp hátíðanna. Við sögu kemur sjónvarpsserían Verbúð og ameríska Netflix myndin Dont look up.

Morgunvaktin
Alþingi, ferðalög og skák

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 10, 2021 130:00


Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður fór yfir vikuna sem er að líða á Alþingi. Svo sem fjárlagafrumvarpið sem væntanlega verður ekki afgreitt fyrr en undir lok árs. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, segir að búið sé að opna skíðasvæði víða í Evrópu og miðað við sóttvarnareglur geta bólusettir skíðað í Austurríki, Sviss, Ítalíu og Frakklandi. Nauðsynlegt er að hafa grímu við hendina því það er grímuskylda á skíðasvæðum nema í brekkunum. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, fór yfir stöðuna á heimsmeistaramótinu í Dúbaí en allt bendir til þess að Norðmaðurinn Magnús Carlsen verði heimsmeistari í skák árið 2021. Ef það verður að veruleika verður það í fimmta skiptið en undanfarin tíu ár hefur hann verið stigahæsti skákmaðurinn í heiminum. Næsta skák verður telfd í dag og ef Magnús fer með sigur af hólmi þá er einvíginu lokið með sigri hans. Magnús spáir jafntefli í skák Magnúsar Carlsen og Rússans Jans Nepomniactchis í dag. Gunnar greindi frá því í þættinum að heimsmeistaramótið í Fischer-slembi­skák fari fram hér á landi haustið 2022 og er það í minningu einvígi allra tíma þegar Bobby Fischer og Boris Spasský áttust við í Laugardalshöll árið 1972. Magnus Carlsen hefur tekið vel í að koma hingað til lands og taka þátt. Fischer-slembiskák er kennt við Bobby Fischer. Fischer hafði áhyggjur af því að búið væri að rannsaka hina hefðbundnu skák um of og bjó því til nýtt afbrigði. Það virkar þannig að þungu mönnunum er raðað á tilviljanakenndan hátt fyrir aftan peðin en þegar leikar hefjast gilda almennar skákreglur. Tónlist: Heyr þú oss himnum á - Hymnodia kammerkór Akureyrarkirkju A Holly Jolly Christmas - Dolly Parton Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Óli Björn - Alltaf til hægri
Gegn eigendum lítilla fyrirtækja

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Oct 27, 2021 13:29


Aðeins fjögur lönd innan OECD leggja á stóreignaskatt / auðlegðarskatt - Noregur, Kólumbía, Spánn og Sviss. Á undanförnum áratugum hafa æ fleiri lönd horfið frá slíkri skattheimtu og horfa fremur til þess að skattleggja flæði fjármagns en stöðu. Fyrir þessu eru margar ástæður enda skatturinn óskilvirkur, erfitt er að skilgreina skattstofninn og skattheimtan skilað litlu en valdið efnahagslegum skaða. Að mati OECD eru í besta falli takmörkuð rök fyrir því að leggja auðlegðarskatt til viðbótar við erfðafjárskatta og fjármagnstekjuskatt, hvort sem horft er til skilvirkni eða jöfnuðar. Að þessu sinni verður fjallað um hugmyndir um að leggja að nýju á stóreignaskatt á hreina eign einstaklinga og því haldið fram að um efnahagslega firru sé að ræða sem mun draga úr fjárfestingum og vilja einstaklinga til efnahagslegra athafna. Skatturinn er aðför að eigendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja, refsar ungu fólki sérstaklega og ýtir undir fjármagnsflótta.   

Sunnudagssögur
Rannveig Borg Sigurðardóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Oct 3, 2021 75:00


Gestur þáttarins er Rannveig Borg Sigurðardóttir lögfræðingur og rihöfundur sem býr og starfar í Sviss en er að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Fíkn. Rannveig segir frá uppvextinum í Hafnarfirði og Reykjavík, námsárunum í Versló og síðan í Frakklandi hvar hún lauk námi í logfræði við Sorbonne háskóla. Hún ræddi, starfið og einkalífið, áhugann á fíknisjúkdómum og meðferð þeirra, áhugamálum og nýju bókinni sem er að koma út.

Sunnudagssögur
Rannveig Borg Sigurðardóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Oct 3, 2021


Gestur þáttarins er Rannveig Borg Sigurðardóttir lögfræðingur og rihöfundur sem býr og starfar í Sviss en er að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Fíkn. Rannveig segir frá uppvextinum í Hafnarfirði og Reykjavík, námsárunum í Versló og síðan í Frakklandi hvar hún lauk námi í logfræði við Sorbonne háskóla. Hún ræddi, starfið og einkalífið, áhugann á fíknisjúkdómum og meðferð þeirra, áhugamálum og nýju bókinni sem er að koma út.

Morgunútvarpið
16. ágúst - Alparnir, líftæknilyf, líkamsrækt, Afghanistan og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 16, 2021 130:00


Kolbrún Björnsdóttir fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands hefur farið nokkrar fjallgöngurnar hér á landi í sumar, m.a. þrjár Laugavegsferðir, en nú er hún stödd í Chamonix í Frakklandi, í næsta nágrenni við bæði Sviss og Ítalíu. Við hringdum í hana og heyrðum af alpaævintýrum hennar þar ytra, sem og næstu verkefnum útivistarkonunnar öflugu. Við ræddum nýsköpun í lyfjaiðnaði og horfðum sérstaklega til svokallaðra líftæknilyfja sem verða sífellt algengari. Þær Tanya Zharov og Sesselja Ómarsdóttir hjá Alvotech komu til okkar og fóru yfir þessi mál með okkur. Ekki gefast upp er heiti á líkamsræktarnámskeiðum fyrir ungmenni sem finna sig ekki í hefðbundu íþróttastarfi eða glíma við andlega vanlíðan s.s. þunglyndi, félagsfælni og kvíða. Stefán Ólafur Stefánsson, uppeldis- og menntunarfræðingur og annar stofnenda námskeiðanna, leit við hjá okkur og sagði okkur meira. Heimsbyggðin hefur horft í forundran á talíbana taka yfir alla stjórn í Afghanistan undanfarnar tvær vikur og ljóst er að líf Afgana kemur til með að breytast hratt á næstunni. Árni Arnþórsson, hefur verið búsettur í Kabúl, höfuðborg Afghanistans undanfarin þrjú ár. Við heyrðum í Árna sem staddur er á Spáni og hann sagði okkur m.a. af tilraunum sínum og annarra til að koma samstarfsfólki og vinum til bjargar og úr landinu. Við fórum svo yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar með Kristjönu Arnarsdóttur íþróttafréttamanni og spurðum hana í leiðinni út í Ólympíumót fatlaðra sem er framundan, en hún mun flytja fréttir þaðan. Tónlist: Ellen Kristjánsdóttir og John Grant - Veldu stjörnu. Draumfarir og Kristín Sesselja - Með þér. Emilíana Torrini - Sunnyroad. Coldplay - Flags. Skate - Silk sonic. Albatross - Ég sé sólina. Bjartmar Guðlaugsson - Týnda kynslóðin. Aron Can - Blindar götur. John Mayer - Paper doll. The Weeknd - Take my breath.

Spegillinn
Njósnir Dana, fjármálaáætlun, minnkandi jöklar

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 31, 2021 30:00


Spegillinn 31. maí 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir telur að hættunni sé boðið heim með fjölgun ferðamanna. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn segir að eftirlitsdeild almannavarnadeildar kanni hvort fólk virði sóttkví. Aðeins hafi þurft að vísa örfáum tilfellum til lögreglu. Leiðtogar Frakklands og Þýskalands krefjast þess að upplýst verði hvað hæft sé í fréttum um að Bandaríkjamenn hafi njósnað um evrópska samherja þeirra með hjálp Dana. Alþingi samþykkti í dag fjármálaáætlun stjórnvalda til næstu fimm ára. Forsætisráðherra hefur trú á því að atvinnulífið nái kröftugri viðspyrnu þegar Covid-faraldrinum lýkur. Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins og Halldóra Mogensen á Alþingi í dag. Íslenskir jöklar hafa minnkað um 18 prósent að flatarmáli frá lokum 19. aldar eða um tvö þúsund og tvö hundruð ferkílómetra. Rætt við Odd Sigurðsson, jarðfræðing sem er annar höfunda nýlegrar greinar um breytingar á útbreiðslu íslenskra jökla. Lengra efni: Samskipti Svisslendinga og Evrópusambandsins eru nú í uppnámi eftir að Svisslendingar slitu viðræðum við sambandið eftirt sjö ára samningaþóf. Svisslendingar kusu á sínum tíma að fara sínar eigin leiðir í samningum við Brussel en það hefur ekki gengið þrautarlaust fyrir sig. Jón Björgvinsson í Sviss sagði frá Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé mjög alvarlegt mál að Bandaríkjamenn hafi njósnað með aðstoð frá dönsku leyniþjónustunni um háttsetta stjórnmálamenn, embættismenn, fyrirtæki og stofnanir í nágrannalöndum Danmerkur. Hún hefur áhyggjur af því hvaða áhrif þetta geti haft á traust á milli Norðurlandaþjóðanna. Arnar Páll Hauksson, ræddi við hana Nokkur fyrirtæki hér á landi taka nú þátt í að þróa hugbúnað sem auðveldar þeim að reikna út og fylgjast með kolefnisspori sínu á hraðari og betri hátt en áður. Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir hagfræðingur og Stefán Kári Sveinbjörnsson verkfræðingur fengu hugmyndina að hugbúnaðinum þegar þau voru við störf hjá Landsvirkjun. Þau hafa nú stofna fyrirtækið Greenfo í kringum hana. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Stefán og Ólöfu

Morgunvaktin
Lífið á Möðrudal, jarðskjálftar á Mars og ýmislegt fleira.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 20, 2021 130:00


Í byrjun þáttar var leikið viðtal Ágústs Ólafssonar fréttamanns við Vilhjálm Vernharðsson, ferða- og sauðfjárbónda á Möðrudal en Ágúst var á ferð milli landshluta í gær. Vilhjálmur var brattur og bjartsýnn á að sumarið verði gott. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar, sagði frá aðstæðum fólks með þroskaskerðingar í kófinu. Hún gagnrýnir að skjólstæðingar samtakanna, aðstandendur þeirra og fólk sem starfar með þeim hafi verið aftarlega í bólusetningaröð stjórnvalda en loks hillir undir þessir hópar verði bólusettir. Almennt hafi fólk með þroskahamlanir og langveikt gleymst í faraldrinum og fyrir vikið hafi þeir hópar og aðstendur verið undir miklu álagi. Í Heimsglugganum fjallaði Bogi Ágústsson um Norðurskautsráðið, sögu þess, hlutverk og þýðingu en fundur utanríkisráðherra aðildarríkjanna stendur nú í Reykjavík. Þá fór hann hratt yfir sögu átaka og búsetu Palestínumanna og gyðinga og hóf leikinn á tímum Rómarveldis. Plánetan Mars er í hundrað milljón kílómetra fjarlægð frá Jörðinni en vísindamenn víða um heim sinna rannsóknum af ýmsum toga á þessum dularfulla hnetti. Jarðskjálftafræðingur í Sviss, John Clinton að nafni, fylgist sérstaklega með jarðhræringum á Mars en þar skelfur jörð líkt á Jörðinni. Sigrún Kristjánsdóttir, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, spjallaði um Mars, þekkingu okkar á staðháttum þar og jarðskjálftana en Clinton flytur fyrirlestur á vegum félagsins í kvöld. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhildur Þorkelsdóttir. Tónlist: Don?t think twice its all right - Bob Dylan, Knockin?on heaven?s door - Bob Dylan.

Ég Elska Eurovision
Þáttur 9 ~ Serbía, Slóvenía, Spánn og Sviss

Ég Elska Eurovision

Play Episode Listen Later Apr 26, 2021 13:52


Stuttur og laggóður þáttur þar sem við rennum yfir sögu fjögurra landa sem keppa í ár; Serbíu, Slóveníu, Spánar og Sviss.

Spegillinn
Spegillinn 20.janúar 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2021 30:00


Spegillinn 20.janúar 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Marteinn Marteinsson Joe Biden sór í dag embættiseið sem 46. forseti Bandaríkjanna við hátíðlega athöfn á tröppum þinghússins í Washington. COVID-19 faraldurinn og hryðjuverkaógn öfgamanna settu svip sinn á athöfnina. Hættustigi Almannavarna var lýst yfir á Siglufirði í dag vegna snjóflóðahættu og íbúðarhús rýmd í kjölfarið. Enn hefur ekki tekist að meta skemmdir á skíðasvæðinu á Siglufirði sem varð fyrir snjóflóði í morgun. Varðskipið Týr er á leið norður. Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík og annar oddvita þar ætlar ekki að taka þriðja sæti á lista flokksins í höfuðborginni fyrir næstu kosningar. Formaður flokksins segir að lýðræðislegt ferli hafi ráðið því að Ágúst komst ekki ofar á lista. Andri Snær Magnason hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins í dag. Útlendingastofnun bárust fjórðungi færri umsóknir um alþjóðlega vernd í fyrra en árið áður, en þó hafa aldrei fleiri fengið vernd. Forstjóri Útlendingastofnunar segir líklegt að umsóknum fjölgi um leið og samgöngur milli landa verði greiðari. Ísland tapaði fyrir Sviss með tveggja marka mun í milliriðli Heimsmeistaramótsins í handbolta í dag. Lengri umfjöllun: Joe Biden er nýr forseti Bandaríkjanna, settur í embætti í dag. Spegillinn settist niður með Höllu Hrund Logadóttur stjórnmálafræðingi og sviðsstjóra Miðstöðvar norðurslóða við Harvard háskóla í Boston í Bandaríkjunum og ræddi við hana um verkefnin sem bíða nýs forseta. Kristján Sigurjónsson talar við Höllu Hrund. Prófíll af Jo Biden. Joseph Robinette Biden yngri tók við sem 46. forseti Bandaríkjanna. Hann er 78 ára og elstur þeirra sem hafa tekið við því embætti. Ferð hans í Hvíta húsið hefur enda tekið nærri hálfa öld að segja má, allt frá því að hann var kjörinn öldungadeildarþingmaður fyrir Delaware árið 1972. Á kjördegi var hann aðeins 29 ára og hafði því ekki aldur til að setjast í öldungadeildina, en var orðinn þrítugur þegar hann tók sæti sitt. Biden er kaþólikki, elstur fjögurra systkina og fæddur í Scranton í Pennsylvaniu en flutti til Delaware með fjölskyldu sinni á barnsaldri. Hann lauk laganámi og hafði setið í sveitarstjórn um skamma hríð þegar hann var kosinn öldungadeildarþingmaður Demókrata. Þar sat hann svo í þrjátíu og sex ár þar til Barack Obama valdi hann sem varaforsetaefni sitt. Hann gegndi síðan embætti varaforseta bæði kjörtímabil Obama. Anna Kristín Jónsdóttir tekur saman. Kristján Sigurjónsson ræðir beint við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um ands

Spegillinn
Einn metri í stað tveggja

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 3, 2020 30:00


Sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að miðað verði við eins metra nálægðarreglu í stað tveggja metra. Þá leggur hann til að samkomur verði takmarkaðar við tvö hundruð manns í stað hundrað. Lögmaður konu sem hyggur á skaðabótamál við Krabbameinsfélagið vegna rangrar niðurstöðu úr leghálssýnatöku hefur fengið sjö fyrirspurnir vegna sambærilegra mála. Norðurlöndin hafa komið betur út úr efnahagskreppunni vegna COVID-19 og en önnur Evrópuríki, samkvæmt samantekt frönsku AFP-fréttastofunnar í dag. Landsframleiðsla hafi dregist minna saman en á evrusvæðinu. Bið er eftir því að að komast í endurhæfingu á Reykjalundi vegna eftirkasta Covid-19. Um 20 manns eru á biðlista. Gullæði virðist hafa gripið um sig meðal viðskiptavina Costco því allar gullstangirnar sem verslunin var með á tilboði seldust upp á einum degi. Samkvæmt nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra hefur stuðningur við dánaraðstoð aukist meðal heilbrigðisstarfsmanna hér á landi. Síðasta viðhorfskönnun til þessa viðkvæma málaflokks er þó orðin 10 ára gömul. Þá taldi um fimmtungur lækna og hjúkrunarfræðinga réttlætanlegt undir vissum kringumstæðum að aðstoða sjúklinga við að deyja fremur en að lifa. Á meðal almennings var hlutfallið mun hærra í könnun fyrir fimm árum. Þrír af hverjum fjórum voru því fylgjandi að fara að dæmi nokkurra nágrannaþjóða okkar sem veita dauðvona sjúklingum dánaraðstoð. Eitt þeirra landa sem vitnað er til í skýrslu heilbrigðisráðherra er Sviss. Jón Björgvinsson segir frá. Það var Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ásamt níu öðrum þingmönnum sem bað um skýrslu um dánaraðstoð. Heilbrigðisráðherra hefur lagt hana fram á Alþingi. Þar er dánaraðstoð skipt í 4 flokka eða hugtök: líknarmeðferð, óbein dánaraðstoð, læknisaðstoð við sjálfsvíg og loks beina dánaraðstoð. Farið er yfir hvernig dánaraðstoð er háttað í löndum þar sem hún er leyfð. Og ráðuneytið leggst ekki gegn því að gerð verði viðhorfskönnun meðal heilbrigðisfólks eins spurt var um en vill líka að slík könnun verði gerð meðal almennings. Bryndís Haraldsdóttir segir skýrsluna vera mikilvægt innlegg í umræðuna um þessi mál. Mál sem hún segir að þurfi talsverða þolinmæði og umræðan þurfi að þroskast. Arnar Páll Hauksson talar við Bryndísi Haraldsdóttur. Nauðganir og annað kynferðislegt ofbeldi er daglegt brauð í gallabuxnaverksmiðjum í Lesotho í Suður-Afríku. Kröfur um úrbætur urðu háværar eftir að landlæg misnotkun komst í hámæli en COVID-19 heimsfaraldurinn hefur lamað réttindabaráttu kvenna í Lesotho. Pálmi Jónasson segir frá.

Spegillinn
Snjóflóðið braut stálmastur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2020 30:00


Spegillinn 20.01.2020 Snjóflóðið braut stálmastur: Ekki er tímabært að segja til um rúmmál snjóflóðanna á Flateyri. Mest er flóðið um fimm metra djúpt. Svokallað skopplag, sem er ofan á þéttum kjarna snjóflóðsins, fór yfir varnargarðana. Fjögurra metra hátt stálmastur sem var uppi á garðinum brotnaði. Krafturinn sem þarf til þess jafngildir þyngd allt að 10 fólksbíla. Rætt við Kristínu Mörtu Hákonardóttur snjóflóðaverkfræðingur að það sé mikið áhyggjuefni. Tveir íbúafundur um snjóflóðin á Flateyri og Súðavík: Íbúafundur stendur nú yfir á Flateyri og annar verður haldinn í Súðavík í kvöld vegna vegna snjóflóðanna sem féllu í liðinni viku. Þar eru mættir fulltrúar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands, lögreglustjóranum á Vestfjörðum og velferðarsviði Ísafjarðarbæjar. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir fréttamaður er á staðnum Fjölmörg alvarleg slys: Mikið álag hefur verið á rannsóknarnefnd samgönguslysa undanfarið vegna fjölmargra alvarlegra umferðarslysa sem urðu á fyrstu dögum ársins. Rætt við Sævar Helga Lárusson, rannsóknarstjóra hjá nefndinni Norska ríkisstjórnin sprakk í dag þegar Framfaraflokkurinn fór úr stjórninni vegna andstöðu við að flytja norska móður og börn hennar til Noregs. Hún er bendluð við hryðjuverkastarfsemi í Sýrlandi. Arnar Páll Hauksson ræddi við Gísla Kristjánsson í Noregi Kínversk stjórnvöld hafa staðfest að ný veira, sem nýlega greindist í landinu, getur borist manna á milli. Sóttvarnalæknir telur ekki tilefni til sérstakra viðbragða hér. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni. Samningaviðræður um framtíðarsamband Breta og Evrópusambandsins hefjast eftir mánaðamótin. ESB hefur verið að ræða og kynna sín samningsmarkmið en markmið Breta eru enn óljós. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela tekur þátt í Davos ráðstefnunni í Sviss þrátt fyrir að vera í ferðabanni heima fyrir. Íslenskir karlar hafa fitnað mjög hratt eftir að sala bjórs var leyfð að nýju, árið 1989. Íslendingar eru nú þyngstir norrænna þjóða.

Spegillinn
Ekki gott að vera í flokki landa sem tala gegn mannréttindum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 6, 2019 30:00


Það er mikið áhyggjuefni að stjórnmálaflokkar sem tala gegn mannréttindum og sjálfstæði dómstóla telji sig vera í komna í sambærilegan flokk og Ísland á alþjóðavettvangi. Þetta segir formaður Dómarafélags Íslands um stuðning pólskra stjórnvalda við málstað Íslands í Landsréttarmálinu. Forsætisráðherra Frakklands segir stjórnvöld þar ákveðin í að hrinda í framkvæmd breytingum á eftirlaunakerfinu. Verkalýðsfélög hafa boðað auknar aðgerðir eftir helgi. ISAVIA hyggst nýta tekjur frá Keflavíkurflugvelli til uppbyggingar á Egilsstöðum. Samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra segir að við þetta losni um nokkur hundruð milljónir sem nýtist til viðhalds á öðrum flugvöllum. Lögreglan á Indlandi skaut í morgun til bana fjóra menn sem nauðguðu og myrtu 27 ára konu í síðustu viku Heilbrigðisráðherra hefur skipað nýjan skólameistara Fjölbrautarskóla Vesturlands. Menntamálaráðhetta lýsti sig vanhæfa til skipa í embættið. Stefnt er að því að framleiða allt að einni og hálfri milljón lítra af 96% spíra á Sauðárkróki. Lögreglan á Indlandi skaut í morgun til bana fjóra menn sem nauðguðu og myrtu 27 ára konu í síðustu viku. Illvirkið vakti mikla reiði og hneykslan en fjölskylda og vinir fórnarlambsins fagna nú dauða ódæðismannanna. Pálmi Jónasson sagði frá. Niðurstöður PISA-könnunarinnar sem kynntar voru í vikunni sýna að lesskilningur grunnskólabarna á Íslandi hefur heldur daprast síðustu ár. Þetta veldur nokkrum vonbrigðum segir Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Útkoman komi kannski ekki beinlínis á óvart en þó hefðu menn vænst þess að umræða og verkefni síðustu ára um lestur, lesskilning og læsi hefðu skilað einhverjum árangri. Það sé flókið verk að bæta menntakerfið; ekki áhlaup eða átak- heldur langhlaup.Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Önnu Kristínu. Það þurfti samstarf þrjátíu landa til að koma böndum yfir mútugreiðslur bresks dótturfélags frönsku Alstom samsteypunnar í tveimur víðfeðmum mútumálum. Rannsókn málsins hófst í Bretlandi fyrir tíu árum, eftir ábendingar frá svissneskum yfirvöldum sem voru að rannsaka meintar mútugreiðslur Alstom. Auk sekta og dóma í Bretlandi og Sviss hefur Alstom greitt hæstu sekt nokkru sinni í Bandaríkjunum fyrir mútur. Málið er gott dæmi um hvað mútumál eru víða litin alvarlegum augum, sama þó múturnar séu greiddar í öðrum löndum. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

Spegillinn
Spegillinn 4. mars 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2019 30:00


Fimmtán hafa þegar misst vinnuna í Fjarðabyggð vegna loðnubrests. Bæjarstjórinn segir að sveitarfélagið verði að draga saman seglin, finnist engin loðna. Fjarðabyggð verður fyrir 260 milljóna króna tekjutapi verði algjör loðnubrestur. Rúnar Snær Reynisson ræddi við Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóra. Forsvarsmenn Strætós bs segja að fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir bílstjóra bitni eingöngu á farþegum og rekstri Strætós en ekki á fyrirtækjunum sem bílstjórarnir starfa hjá. Höskuldur Kári Schram sagði frá og ræddi við Ástríði Þórðardóttur, staðgengil framkvæmdastjóra hjá Strætó. Bandarísk stjórnvöld segja að skjótt verði brugðist við ef öryggi leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela verður ógnað. Hann sneri heim í dag. Ásgeir Tómasson sagði frá. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að ástand í málefnum geðsjúkra fanga sé óviðunandi. Hún kynnir samning um úrbætur á allra næstu dögum. Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar spurði heilbrigðisráðherra um erfiða stöðu geðsjúkra fanga: Fangelsismálastofnun hafi ítrekað beint sjónum stjórnvalda að ástandinu og fengið umboðsmann Alþingis til liðs við sig. Þjónusta við fólk með heilabilun er allt of flókin. Mjög margir koma að henni og ekki stefna allir í sömu átt, segir Jón Snædal sérfræðingur í öldrunarlækningum sem tekið hefur að sér að móta heildstæða stefnu í málaflokknum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Jón. ----------- Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að fólk þurfi að hafa það í huga þegar það ferðast með ung börn að mislingafaraldur geisi sums staðar í heiminum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Þórólf. Notendastýrð persónuleg aðstoð er óðum að slíta barnsskónum á Íslandi en ekki án vaxtaverkja. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá. Íslendingar og Svisslendingar eru oft á sitt hvorum endanum þegar bornar eru saman hagtölur ríkja Efnahags- og framfarastofunarinnar OECD og það á líka við um verkföll. Á tímabili áttu Íslendingar þar metið á meðan fyrirbærið þekktist varla í Sviss. En hvers vegna fara Svisslendingar ekki í verkföll, Jón Björgvinsson leitaði svara við því.

Spegillinn
Spegillinn 19. febrúar 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2019 30:00


Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Davíð Berndsen Skattbyrði lágtekjufólks lækkar um tvö prósentustig og barnabætur hækka samkvæmt tillögum sem fjármálaráðherra kynnti í dag. Alþýðusambandið hafnar skattatillögum ríkisstjórnarinnar. Þær valdi vonbrigðum og nægi ekki til að liðka fyrir kjarasamningum. Flest bendir til þess að undirbúningur verkfalla hefjist á næstu dögum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að hún hefði viljað að vinna við heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar hefði gengið hraðar. Ný skýrsla Amnesty International um málefni intersex fólks hér á landi er gagnrýnin á stjórnvöld og heilbrigðiskerfið. Fólk mæti hindrunum í leit að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og það stofni líkamlegri og andlegri heilsu í hættu. Talið er að allt að tólf skíðamenn hafi lent í snjóflóði sem féll í Sviss í dag. Íslenskur maður sem reyndist smitaður af mislingum leitaði á heilsugæsluna í Neskaupstað í síðustu viku vegna veikinda. Maðurinn var sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur, til að tryggja að hann fengi viðeigandi meðferð, en einnig til að tryggja öryggi annarra. Hann var settur í einangrun á Landspítalanum og er nú á batavegi. Spænska ríkisstjórnin hefur veitt fjölskyldu Franciscos Francos, fyrrverandi einræðisherra Spánar, tveggja vikna frest til þess að ákveða hvar hann skuli hvíla eftir að jarðneskar hans verða fjarlægðar úr minningargrafreit um þá hermenn sem létust í spænska borgarastríðinu. Spáð er leiðindaveðri víða um land í nótt og í fyrramálið. Lengri umfjallanir: Eftir fund ríkisstjórnarinnar í dag bendir flest til þess að undirbúningur verkfalla hefjist á næstu dögum. Formenn verkalýðsfélaga innan Alþýðusambandins telja tillögur ríkisstjórnarinnar í skattamálum vonbrigði og að þær verði ekki til þess að liðka fyrir lausn kjarasamninga. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. forseti ASÍ, gekk af fundi ríkisstjórnarinnar í dag vegna þess að hann er ósáttur við framlag hennar í skattamálum. Eftir að Samtök atvinnulífsins höfnuðu gagntilboði Eflingar, VR og Verkalýðsfélaganna á Akranesi og í Grindavík voru bundnar vonir við útspil ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir samningum. Gagntilboðið hljóðaði upp á að mánaðarlaun hækkuðu um 37.500 krónur á mánuði árlega í þrjú ár og að á síðasta samningsárinu yrðu lágmarklaun eða tekjutryggingin komin í 400 þúsund krónur. Vilhjálmur segir að staðan í kjaraviðræðum hafi verið alvarleg en nú séu hún grafalvarleg. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að hún hafi ekki gert sé miklar

Spegillinn
Spegillinn 28. janúar 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 28, 2019 30:00


Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Saksóknari krafðist í héraðsdómi dag meira en fjögurra ára fangelsisvistar yfir manni sem ákærður er fyrir að hafa hrint dyraverði á skemmtistað í Reykjavík með þeim afleiðingum að hann lamaðist fyrir neðan háls. Saksóknari segir að mennirnir hafi sammælst um að ráðast á dyraverðina til að hefna sín fyrir brottrekstur af barnum fyrr um kvöldið. Því hafna sakborningar. Úrganga Bretlands úr ESB án samnings gæti leitt til þess að framboð á ýmsum matvælum minnki og verð hækki í landinu. Þetta segja stjórnendur stærstu matvöruverslanakeðja í Bretlandi. Launamunur kynjanna er mestur hjá starfsfólki í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, rúm 40 prósent. Óleiðréttur launamunur kynjanna var rúmlega 15 prósent árið 2017, samkvæmt tölum Hagstofunnar og hefur ekki verið minni. Sólardagurinn á Sigló var haldinn hátíðlegur í dag. Lengri Umfjallanir: Ákvörðun dómara í norska Lögmannsréttinum, um að hafna úrskurði kviðdóms í máli lögreglumanns sem dæmdur var í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir spillingu og aðild að smygli á tæpum 14 tonnum af hassi, hefur vakið hörð viðbrögð. Verjandi mannsins hefur áfrýjað ákvörðuninni til Hæstaréttar. Úrskurður kviðdómsins var sá síðasti í rúmlega 130 ára sögu kviðdóms í Noregi. Arnar Páll Hauksson segir frá. Mikil spenna er í Venesúela og þar ríkir upplausn. Svo virðist sem næstu dagar skipti sköpum um það hvort valdaskipti verða í landinu. Hvort Nicolas Maduro forseta tekst að standa af sér gríðarlegan pólitískan þrýsting, jafnt innanlands sem utan og halda völdum, eða hvort forseta þingsins, Juan Guaido (Húan Gvædó), tekst að hrekja hann frá völdum. Guaido, sem fyrir nokkrum dögum lýsti sig réttkjörinn forseta landsins, hvetur almenning til þess að leggja niður vinnu á miðvikudag og safnast saman á mótmælafundum á laugardag til að krefjast þess að Maduro og stjórn hans segi af sér. Kristján Sigurjónsson segir frá. Víða um heim hefur fólki verið auðveldað að kjósa sjálft hvenær og hvernig það yfirgefur þennan heim og fá til þess aðstoð heilbrigðisstarfsmanna eða annarra. Í Hollandi og Sviss hefur líknardráp verið löglegt um árabil, og líknardráp og dánaraðstoð, þar sem einhver aðstoðar annan við að fyrirfara sér, er leyfð í fleiri löndum, til dæmis Kanada, Belgíu, Viktoríufylki í Ástralíu og þó nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, þar á meðal því fjölmennasta, Kaliforníu. Í umfjöllun í Guardian nýlega eru því gerðir skórnir að þess sé kannski ekki lengi að bíða að líknardráp verði bara einn kostur af mörgum, hverjum þei