POPULARITY
So var trúpoddurin aftur. Hesaferð hava Bjarta og Sjúrður fingið vitjan av Jóhan og Silju, sum arbeiða í Nesvík. Silja er í læru á skrivstovuni og Jóhan er barna og ungdómsráðgevi. Saman við teirra starvsfelagum syrgja tey fyri at alt koyrir, sum tað skal í Heimamissiónini. Silja og Jóhan eru ikki ofta at síggja á forsíðuni, tí størsti parturin av teirra arbeiði er í “maskinrúminum” í Nesvík. Tey taka sær av øllum fyrireikingum “behind the scenes”. Í hesum Trúpoddi tosa vit um at vera trúgvur í lítlum og lýðin í tí, sum eingin sær. Vit í trúpoddinum vilja eisini takka Silju, Jóhan og restini av starvsfólkunum í Nesvík/Heimamissiónini fyri teirra fantastiska arbeiði!
Silja Aðalsteinsdóttir er þriðji viðmælandi Steineyjar Skúladóttur í Sunnudagssögum í febrúar þar sem þemað er Rauðsokkur. Silju var boðið á stofnfund Rauðsokkuhreyfingarinnar 1970 en fannst hún ekki eiga heima þar þá. Það var svo 6 árum síðar sem hún fann að tíminn var kominn og gerðist virkur meðlimur. Í þættinum segir Silja frá uppvextinum, árunum í London, ástríðunni fyrir menningu og listum, mikilvægi réttindabaráttu, samstarfinu með Bubba Morthens og fleira og fleira.
Gestur dagsins er Silja Mist Sigurkarlsdóttir. Silja er forstöðumaður markaðssviðs N1 og hefur hún verið að gera frábæra hluti í viðskiptalífinu á undanförnum árum. Hún er gjörsamlega frábær og mögnuð. Það var gott, gaman, yndislegt, áhugavert og fræðandi að spjalla við Silju. Þú ert frábær! Ást og friður.
Hulda Geirsdóttir ræddi við Hafnfirðinginn Silju Úlfarsdóttur um krefjandi íþróttaferil sem hófst snemma, leiddi Silju til Bandaríkjanna þar sem hún vann með þjálfara í fremstu röð og gerði hana að einni fremstu frjálsíþróttakonu Íslands. Hún var gríðarlega metnaðarfull og gaf aldrei tommu eftir sem á endanum varð til þess að ferlinum lauk snögglega og fyrr en Silja hefði viljað. Silja hefur tekist á við fleiri erfið verkefni í lífinu, missi og sorg, meiðsl og málaferli svo eitthvað sé nefnt , en hún leggur áherslu á velferð barna sinna sem hafa líka þurft að takast á við sorg og missi. Fjölskyldan er þó á góðum stað í dag og Silja horfir bjartsýn til framtíðar og íþróttirnar eru aldrei langt undan.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir fyrrum formaður samtakanna 78 mætti til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall ásamt sínum betri helmingi lífeindafræðingum Silju Ýr Leifsdóttur.Þorbjörg var eins og áður sagði formaður samtakanna 78 en hefur í dag tekið að sér verkefnastjórnun innan félagsins. Hún er málfræðingur að mennt en dugleg að finna sér eitthvað auka að gera og er núna komin aðeins inn í stjórnmálin.Silja er lífeindafræðingur hjá Sameind og er verkefnastjóri yfir klínískri lífeindafræði .Það má segja að Þorbjörg og Silja hafi verið undan sinni samtíð en þær kynntust á netinu árið 2008 en lugu að öllum að þær hefði kynnst á Q-bar. Í fyrstu var Silja ekki alveg viss um að hitta einhverja stelpu á netinu en Þorbjörg var ákveðinn og sendi á hana eitt kvöld að hún væri að keyra í hverfinu hennar og bauð henni í ís, sem var að sjálfsögðu lygi og þurfti hún að keyra virkilega hratt til þess að vera trúverðug þegar Silja samþykkti rúntinn. Þær hafa verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman tvær stelpur.Í þættinum ræddum við meðal annars um samtökinn og hvernig það er að vinna innan þeirra, baráttumálin og bakslagið sem hefur átt sér stað undanfarin ár, rómantíkina, fjölskyldulífið, ferðalög og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, meðal annars þegar þær þurftu óvænt að sofa undir berum himni í eyðimörk á Indlandi.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Hið árlega Sæunnarsund er framundan þar sem sjósundfólk stingur sér í klauffar kýrinnar Sæunnar sem varð fræg fyrir að bjarga sér frá slátrun með því að steypa sér í sjóinn og leggjast til sunds. Bryndís Sigurðardóttir er manneskjan sem alltaf veit allt um þennan skemmtilega viðburð og við heyrðum í henni. Nú eru bara örfáir dagar í Reykjavíkurmaraþon og mikil stemming í kringum það. Við fengum Silju Úlfarsdóttur hjá ÍBR, sem jafnframt er sjálf hlaupaþjálfari og hlaupari, til að heimsækja okkur og fara yfir það sem framundan er og hvernig er best að haga undirbúningi þessa síðustu daga fyrir hlaup. Bretar hafa áhyggjur af því að orkuverð hækki enn frekar í vetur, um 100.000 manns hafa lýst stuðningi við áform um að hætta að borga reikninga í byrjun október, þegar næsta verðhækkun tekur gildi, og Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, ætlar í dag að leggja til að orkuverð verði fryst í haust. Við ræddum þetta og fleira sem tengist efnahagslífinu í Evrópu og Bandaríkjunum við Hafstein Hauksson, hagfræðing hjá Kviku banka í Lundúnum. Frá og með deginum í dag eru tíðavörur aðgengilegar öllum endurgjaldslaust í Skotlandi. Skotland er fyrsta landið í heiminum sem fer þessa leið, en í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að sveitarstjórnum, heilbrigðis- og menntastofnunum á öllum skólastigum sé nú skylt að gera tíðavörur aðgengilegar, ókeypis öllum þeim sem þær þurfa. Við ræddum þessa nálgun skoskra stjórnvalda, hvort fari eigi sömu leið hér á landi og bleika skattinn við Finnborgu Salome Steinþórsdóttur, doktor í kynjafræði og sérfræðing í kynjuðum fjármálum, en hún situr einnig í stjórn Femínískra fjármála. Hugmyndasmiðir er heiti á verkefni sem er ætlað að efla sköpunargleði og frumkvöðlakraft barna á skemmtilegan hátt. Umræða um nýsköpun og frumkvöðla er aldeilis ekki ný af nálinni hér á landi, en sjaldnast tengjum við hana við börn, frekar viðskiptalífið. Svava Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur í nýsköpun er ein þeirra sem standa að baki Hugmyndasmiðum og hún kom til okkar og sagði okkur af þessu forvitnilega verkefni. Svo hringdum við í Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann í Róm og heyrðum af Evrópumeistaramótum í ýmsum greinum íþrótta. Tónlist: Una Torfadóttir - En. Eagles - Best of my love. Phil Collins - Against all odds. Friðrik Dór - Bleikur og blár. Aldous Harding - The barrel. Ásgeir - Snowblind. Junior Senior - Move your feet. Grafík - Presley. U2 - Beautiful day. Stebbi og Eyfi - Helga. Lenny Kravitz - Stillness of heart.

Í gær á degi náttúrunnar kom í ljós hver hlyti Bláskelina þetta árið, en Bláskelin er viðurkenning sem veitt er fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi. Í ár var það fyrirtækið Pure North Recycling sem hlaut viðurkenninguna. Börkur Smári Kristinsson, rannsóknar- og þróunarstjóri hjá Pure North Recycling, og Gró Einarsdóttir, sérfræðingur í teymi Hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun, komu og sögðu okkur nánar frá þessari viðurkenningu. Kosningafundur barna var haldinn í gær. Þar fengu börn tækifæri til að spyrja frambjóðendur um helstu áherslur flokkanna í málefnum barna auk þess að spyrja um þau málefni sem helst brenna á þeim. Í kjölfarið verður svo efnt til krakkakosninga í fjölmörgum grunnskólum landsins. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, kom og sagði okkur meira af þessu. Leikhúsin eru að komast á fullt og við hér í Morgunútvarpinu erum áhugasöm um hvað bíður áhorfenda á komandi leikári. Í dag ætlum við að forvitnast um hvað verður á boðstólnum hjá Leikfélagi Akureyrar. Marta Nordal leikhússtjóri kom til okkar. Í fréttir vikunnar að þessu sinni fengum við þau Silju Úlfarsdóttur upplýsinga- og kynningafulltrúa ÍBR og Elfar Loga Hannesson leikara sem fóru yfir það sem þeim fannst áhugaverðast í vikunni. Hégómavísindahornið er hjá okkur annan hvern föstudag og í dag þá kom Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður, til okkar og fór yfir fréttir af fræga fólkinu. Tónlist: Sycamore tree - Bright new day Fleetwood Mac - Everywhere Post Malone - Only wanna be with you Nýdönsk - Diskó Berlín Snorri Helgason - Haustið 97 Jet black Joe ásamt Sigríði Guðnadóttur - Freedom Abba - Don't shut me down

Silja Hauksdóttir, leikstjóri, sest um borð í Lestina þennan fimmtudaginn. Silja hefur í hátt í tvo áratugi skrifað handrit, leikstýrt kvikmyndum og sjónvarpsseríum: Dís, Stelpurnar, Ríkið, Ástríður, Agnes Joy, Kópavogskrónika og nú síðast Systrabönd, sex þátta sería á Sjónvarpi Símans um þrjár miðaldra æskuvinkonur sem þurfa að takast á við gamlar syndir þegar lík unglingsstúlku finnst í námu á Snæfellsnesi nálægt bænum þar sem þær ólust upp. Við ræðum við Silju um kvenlæga leikstjórn, fjölbreytileika á skjánum og konur sem beita ofbeldi.

Lesandi vikunnar kom í þáttinn í dag á þriðjudegi, þar sem það var ekki þáttur í gær á öðrum í páskum. Lesandinn í þetta sinn var Lóa Hjálmtýsdóttir, myndasöguhöfundur, teiknari og tónlistarkona. Hún var einn höfunda Skaupsins í fyrra og hitteðfyrra og barnabókin hennar Grísafjörður hlaut tilnefningu til barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir skemmstu. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá henni, hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. Nýlega var opnaður upplýsingavefur fyrir Strandir www.strandir.is, þar geta gestir, íbúar og þeir sem hugsa sér mögulega að flytja á Strandir aflað sér upplýsinga af ýmsu tagi. Auglýsingastofan Aldeilis setti upp vefinn en Silja Ástudóttir er ritstýra og verkefnisstýra. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, settist niður með Silju og þær fóru yfir ýmislegt sem þar má finna. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

S01E45 Silja Hauksdóttir er leikstjóri og handritshöfundur með meiru. Hún er fædd í Reykjavík en hefur nokkuð dálæti á því að rífa sig upp með rótum og henda sér í hið ókunna, og hefur því búið víða erlendis og þá oft í tengslum við nám. Silja er með blæti fyrir því að segja sögur, rýna í manneskjuna og finna leiðina til að tengja áhorfandann við persónurnar á skjánum. Ný sería í leikstjórn Silju, „Systrabönd“, verður frumsýnd um páskana en þar þarf Silja að finna leiðir til að láta okkur áhorfendur kenna til með einstaklingum með myrka fortíð. Þetta sögublæti Silju hefði vissulega getað leitt hana á aðrar slóðir í lífinu en í dag er hún mjög ánægð með sitt fag og titil sem leikstjóri og höfundur. Loddaralíðanin lætur vissulega stundum á sér kræla, þótt hún eigi engan veginn rétt á sér, og þá þykir Silju mikilvægt að taka henni opnum örmum og tala opinskátt um hana – þannig verði henni haldið í skefjum. Gott spjall. – Reykjavík Roasters býður upp á STVF. Á könnunni er Dona Nenem: https://reykjavikroasters.is/en/portfolio-posts/el-libano/ Afslóttarkóðinn ‘STVF’gefur hlustendum 10% afslátt á kaffi út mars 2021 á https://www.reykjavikroasters.is/vefverslun – Bónus býður upp á STVF. Þar fáið þið til að mynda allt það góða frá Sóma. – Sómi býður upp á STVF. Í glasinu er safinn Veg – spínat, sellerí, engifer & límóna. Nammi namm. : https://somi.is/safar/ – Hljóðkirkjan býður upp á 8 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Kokkaflakk á þriðjudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum, Nei hættu nú alveg - Spurningaleikur Villa naglbíts líka á föstudögum, Listamenn á laugardögum og Alveg Dagsatt á sunnudögum.
Með tík á heiði er nýtt íslenskt útvarpsleikrit í fjórum hlutum eftir Jóhönnu Friðrikku Sæmundsdóttur, í leikstjórn Silju Hauksdóttur. Fyrsti hluti verksins verður sendur út hér á Rás 1 á aðfangadag, en verkið fléttar saman sögum tveggja kvenna á Íslandi með hundrað ára millibili. Þær Jóhanna og Silja hafa unnið saman áður, en þær skrifuðu, ásamt Göggu Jónsdóttur, kvikmyndina Agnes Joy, sem þær hlutu Edduverðlaun fyrir sem mynd ársins og fyrir besta handritið. Auk þess var kvikmyndin nýlega valin sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna. Við fengum þær Jóhönnu og Silju í þáttinn í dag í spjall um kvikmyndina, útvarpsleikritið og samstarfið. Sigvaldi Júlíusson er hlustendum Rásar 1 vel kunnugur, hann var auðvitað þulur í áratugi. Ingibjörg Fríða Helgadóttir, frá KrakkaRÚV fékk þau Vigdísi Unu Tómasdóttur, 10 ára og Kára Tuvia Ruebner Kjartansson, 9 ára, með sér í lið til að taka viðtal við Sigvalda meðal annars um jólakveðjuhefð Rásar 1, hvort það sé ekki erfitt að lesa svona mikið á einum degi, hver sé fallegasta jólakveðja sem hann hefur lesið og hver sé sú skrýtnasta? Í lokin hjálpast þau við að flytja krökkum og fjölskyldum landsins jólakveðju frá KrakkaRÚV. Við fengum að flytja viðtalið í þættinum í dag. Ragnar Torfason er alinn upp á Finnbogastöðum í Trékyllisvík, þar tóku jólasveinar hlutverk sitt alvarlega og Ragnar hefur ásamt öðrum fetað í þeirra fótspor. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Ragnar á heimili hans í Reykjavík og fékk hann til að rifja upp jólin á Ströndum. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Spegillinn 20. nóvember 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Atvinnuleysisbætur verða hækkaðar og hlutabótaleiðin verður framlengd út maí 2021. Þetta er á meðal aðgerða ríkisstjórnarinnar, sem kynntar voru í dag. Úrræði sem ríkisstjórnin kynnti í dag fyrir öryrkja eru skref í rétta átt en alls ekki nóg segir Formaður Öryrkjabandalags Íslands Sameinuðu þjóðirnar vara því að alvarlegasta hungursneyð í marga áratugi sé yfirvofandi í Jemen. Milljónir mannslífa séu í hættu. Lögreglan lagði í gær hald á fleiri kannabisplöntur en í nokkurri annarri aðgerð á síðustu árum. Einn var handtekinn vegna málsins. Stjórnvöld í Svíþjóð beina því til landsmanna að forðast þrengsli í verslunum þegar þeir gera jólainnkaupin. Ibrahim Baylan, viðskipta- og iðnaðarráðherra, minnti á í dag þegar hann fór yfir vanda vegna COVID-19 faraldursins, að um líf eða dauða væri að tefla. Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur gert aga- og úrskurðarnefnd KSÍ að taka kærur KR og Fram til efnislegrar meðferðar. Nefndin vísaði báðum kærum frá þann 16. nóvember. Vegna greinar Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra í Morgunblaðinu í dag þar sem hún segir að fréttamaður Spegilsins hafi afflutt í pistli sínum á mánudag efni í skýrslu GRECO samtakanna um íslenska stjórnsýslu, vill Spegillinn taka fram að hann stendur við efni pistilisins. Orð ráðherra um að fréttamaður hafi ekki greint rétt frá eru tilhæfulaus. Spegillinn hafnar því algerlega að í pistlinum hafi verið lýst yfir pólitískri afstöðu án tengsla við staðreyndir. Ráðherra hefur ekki sent fréttastofu RÚV formlega athugasemd vegna pistilsins. Lengri umfjöllun: Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna UNICEF gaf í dag á alþjóðadegi barna, út aðgerðaáætlun vegna kórónuveirunnar með yfirskrifitinni "Afstýrum hörmungum fyrir heila kynslóð". Þar er efst á blaði að tryggja að öll börn hafi aðgang að menntun. Steinunn Jakobsdóttir hjá UNICEF á Íslandi segir að faraldurinn hafi skapað neyðarástánd í menntun barna um allan heim og afleiðingarnar geti orðið mjög alvarlegar, ekki síst í snauðari löndum og landsvæðum. En hvað segja foreldrar hér á Íslandi? Silja Traustadóttir og Anna Björg Jónsdóttir eiga dætur í framhaldsskóla í Reykjavík . Þær eru 16 og 17 ára og því ólögráða. Silja og Anna Björg segja að þessi aldur hafi á vissan hátt gleymst í faraldrinum, krakkarnir séu hvorki börn né fullorðin og þær gagnrýna stjórnvöld fyrir úrræðaleysi við að hjálpa þeim. Kristján Sigurjónsson talar við Steinunni, Silju og Önnu Björgu. Formaður mannréttinda- nýsköpunar og lýðræðisráðs

Silja Úlfarsdóttir, fyrrum afrekskona í frjálsum er viðmælandi þessa fyrsta þáttar 2020. Silja hefur í gegnum tíðina unnið með fullt af íþróttafólki úr ýmsum greinum. Þá hefur hún þjálfað það í snerpu og hlaupastíl og þjálfar bæði atvinnumenn, unglinga og unga krakka. Á dögunum setti hún af stað verkefni sem heitir Klefinn.is og er nýr fjölmiðill fyrir íþróttafólk. Í ljósi umræðna um íþróttafólk og styrki frá fyrirtækjum síðasta haust fannst Silju hún knúin til að demba sér í þetta verkefni en hún hafði lengi gengið með hugmyndina. Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
Silja Jóhannesdóttir hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga leitar að lærimeisturum, mentorum, fyrir frumkvöðla á Norðausturlandi. Hún vill hjálpa frumkvöðlunum að fá þekkingu með hraði þegar þeir þurfa ráð til að þróa rekstur sinn eða hreinlega koma honum á laggirnar. Við heyrðum í Silju. Deutsche Bank hefur boðað hagræðingar og stefnir á að segja upp hátt í 20 þúsund manns. Hvers vegna og hvernig er staðan hér heima? Beðið er eftir skýrslu Bankasýslu ríkisins um hvort selja eigi ríkisbankana tvo. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja kom til okkar til að meta stöðuna. Jarðhitate verður meðal veitinga í glænýjum náttúrulaugum sem stefnt er að því að opna í Urriðavatni rétt utan við Egilsstaði í næstu viku. Hugmyndin að böðunum er loksins orðin að veruleika, en hún kom fyrst upp fyrir tveimur áratugum. Heiður Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri baðstaðarins Vök Baths var á línunni. Alls 7.200 manns voru án vinnu í maí og er algengt að Vinnumálastofnun grípi fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur í utanlandsferðum án leyfis. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, fór yfir málið með okkur, en þeir sem eru gripnir erlendis á bótum missa bótaréttinn í tvo mánuði. Guðmundur Jóhannsson fór yfir nýjustu fréttir úr tækniheiminum og fjallaði meðal annars um óvænta sátt Amazon og Google og sektir sem fyrirtæki hafa verið beitt vegna brota á GDPR reglugerðinni.
Í þættinum er litið yfir tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2019 sem upplýst var um fimmtudaginn 21. febrúar. Rætt er stuttlega við annan íslenska höfundinn sem tilnefndur er, Kristínu Eiríksdóttur sem tilnefnd er fyrir skáldsögu sína Elín Ýmislegt auk þess sem Kristín Ómarsdóttir er tilnefnd fyrir ljóðabók sína Kóngulær í sýningarglugga. Einnig rætt við Sofie Hermansen Eriksdatter skrifstofustjóra verðlaunanna í Norræna húsinu. Þá er í þættinum rætt við Þorvald Sigurbjörn Helgason sem í vikunni sendi frá sér ljóðabókina Gangverk. Tímarit Máls og menningar hefur nú komið út í 80 ár að því tilefni rætt við nýja ritstjóra tímaritsins Elínu Eddu Pálsdóttur og Sigþrúði Silju - og Gunnarsdóttur.

Það þarf varla að kynna Silju Báru Ómarsdóttur en hún hefur undanfarin ár verið einn helsti álitsgjafi fjölmiðla og samfélagsins um alþjóðleg stjórnmál, oft með sérstakri áherslu á Bandaríkin. Eftir áralangt starf innan Háskóla Íslands tók hún við stöðu lektors í Stjórnmálafræðideild núna í sumar en hún lauk einmitt doktorsprófi í stjórnmálafræði frá University College Cork á Írlandi nýlega. Í doktorsritgerðinni sinni fjallaði hún um öryggi og kannski sérstaklega hvort og hvernig Íslendingar upplifa sig örugga. Rannsóknir hennar eru frábrugðnar því hvernig stjórnmálafræðin skoðar oft öryggismál, en í stað þess að beina sjónum að upplifunum sérfræðinga, þá er áhugi hennar á öryggistilfinningu hins almenna borgara. Þær Sigrún ræða um helstu niðurstöður doktorsverkefnisins, en auðvitað er ekki hægt að fá Silju í hlaðvarpið án þess að ræða aðeins um Bandaríkin og feminisma. Að lokum fara þær stöllur yfir hvaða hlaðvörp—fyrir utan Samtal við Samfélagið—Silja er helst að hlusta á þessa dagana en hún er mikil áhugamanneskja um slíka þætti. Kjarninn í samstarfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.
Gestir þáttarins eru í dag eru þær Silja Ástþórsdóttir og Hafdís Einarsdóttir frá samtökum um endometríósu. Í spjalli okkar förum við yfir endómetríósis sjúkdóminn sem er talið að ein af hverjum tíu konum þjáist af. Við ræðum um sjúkdóminn vítt og breitt og einnig persónulega reynslu þeirra Silju og Hafdísar af honum.