Podcasts about verzlunarsk

  • 11PODCASTS
  • 27EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Oct 9, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about verzlunarsk

Latest podcast episodes about verzlunarsk

Hjjj
71. Finnur Oddsson, forstjóri Haga

Hjjj

Play Episode Listen Later Oct 9, 2024 77:56

Viðmælandi þáttarins er Finnur Oddsson, forstjóri Haga. Hagar er samstæða fyrirtækja sem starfa á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði og starfa um 2.600 starfsmenn hjá samstæðunni. Dótturfélög í samstæðu Haga eru Hagar verslanir ehf., (Bónus, Hagkaup og Aðföng), Olís ehf., Bananar (dreifingaðili á grænmeti og ávöxtum), Noron (Zara), Eldum rétt og Stórkaup heildverslun.    Finnur er fæddur árið 1970 og ólst upp Seljahverfinu. Finnur gekk í Verzlunarskóla Íslands og lauk BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Finnur var á árunum 2013 til 2020 forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. og starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbyggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórn ýmissa dótturfélaga Haga en hefur áður setið í stjórn ýmissa dótturfélaga Origo sem og Orf líftækni, Distica og Sling Þátturinn er í boði Indó og Skaga.

Hjjj
70. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect

Hjjj

Play Episode Listen Later Sep 20, 2024 69:19

Viðmælandi þáttarins er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect, sem tengir saman starfsmenn fyrirtækja við ólíka sérfræðinga í velferð og geðheilbrigðisþjónustu. Í dag býður Kara Connect upp á nýja vöru, velferðartorg fyrirtækja, sem getur nýst stjórnendum vel til að styðja starfsfólk við ólíkar áskoranir í lífi og starfi. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og borgarstjórn en frumkvöðlastörf hafa átt hug hennar allan síðastliðin ár. Þorbjörg gekk í Verzlunarskóla Ísland og lauk síðan B.A. í uppeldis og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og síðar Master í námssálfræði frá University of Washington. Þorbjörg er fædd 1972, ólst upp í smáíbúðahverfinu í Reykjavík og gekk í Verslunarskóla Íslands og kláraði síðan BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og master í námssálfræði frá University of Washington í Seattle þar sem hún einbeitti sér að heilaþroska barna og ungmenna. Þorbjörg hefur búið í Bandaríkjunum, Frakklandi, á Spáni og í Kaupmannahöfn en líður alltaf best á Íslandi.  Þátturinn er kostaður af Skaga og Indó.

Draumaliðið
Svona var Ísland YOUTH SPECIAL: EM U17 2012 ft. Emil Ásmunds og Sindri Björns

Draumaliðið

Play Episode Listen Later Sep 18, 2024 91:30

LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald Emil og Sindri eru hluti af hinum mjög svo spennandi 1995 árgangi sem kannski náði ekki því flugi sem búist var við af þeim en djöfull voru þeir seigir sem YOUTH! Vicente úr Valencia, Sá þýski að skóla til Thomas Frank, Leon Goretzka að hægelda menn, Sindri Björnsson dansandi um ganga Verzlunarskólans að fagna meiðslum, Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna. Viðmælendur: Orri Sigurður Ómarsson Oliver Sigurjónsson Daði Bergsson Hljóðbrot: Adam Örn Arnarsson (tekið úr útvarpsþætti fótbolti.net) Oliver Sigurjónsson (viðtal við 433) Sindri Björnsson (viðtal við fótbolti.net)

Hjjj
61. Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs CRI

Hjjj

Play Episode Listen Later Feb 26, 2024 86:30

Viðmælandi þáttarins er Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Carbon Recycling International (CRI). CRI hef­ur þróað leiðandi tækni­lausn á heimsvísu sem ger­ir viðskipta­vin­um þeirra kleift að fram­leiða met­anól á um­hverf­i­s­væn­an hátt úr kolt­ví­sýr­ingi og vetni, sem síðan er hægt að nýta sem græn­an orku­gjafa eða í efna­vör­ur. Í dag starfa rúmlega þrjátíu manns hjá fyrirtækinu en nýir fjárfestar lögðu félaginu til $30m árið 2023 til að fjármagna vöxt þess. Björk er fædd árið 1983 og ólst upp í 104 Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Björk hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri og meðeigandi Reykjavík Backpackers, rekstrarstjóri Bus Hostel Reykjavík og Reykjavík Terminal og stofnandi og framkvæmdastjóri Made in Mountains. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion.

Hjjj
56. Jón Björnsson, forstjóri Origo

Hjjj

Play Episode Listen Later Dec 15, 2023 91:22

Viðmælandi þáttarins er Jón Björnsson, forstjóri Origo. Origo er samstæða þjónustufyrirtækja í upplýsingatækni með um 500 starfsmenn og býður fyrirtækið upp á þjónustu við rekstur og innviði, hugbúnað og notendabúnað. Jón er fæddur árið 1968 og ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Verzlunarskóla Íslands og er lauk síðan B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Rider University í New Jersey. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Festi og Krónunnar frá 2014 en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Magasin du Nord og Högum frá 2002. Jón situr m.a. í stjórn netverslunarinnar Boozt.com, Dropp og Brauð & Co. Þátturinn er í boði Arion, Krónunnar og Icelandair.

Hjjj
54. Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion

Hjjj

Play Episode Listen Later Dec 13, 2023 51:50

Viðmælandi þáttarins er Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion. Iða Brá er fædd 1976 og er alin upp í Vestmanneyjum, hún gekk í grunnskólann þar og stundaði síðan nám við Verzlunarskólann áður en hún útskrifaðist með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Rotterdam í Hollandi. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 og hefur gengt ýmsum ýmsum störfum innan bankans, síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða Brá hefur setið í ýmsum stjórnum m.a. hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóði, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda. Iða Brá er einnig varaformaður stjórnar Varðar, vátryggingafélags.

Hjjj
40. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju

Hjjj

Play Episode Listen Later Apr 26, 2023 72:37

Viðmælandi þáttarins er Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju. Sigríður Margrét eða Sigga Magga eins og hún er oft kölluð er fædd árið 1976 og er alin upp víða á landinu. Hún gekk í Höfðaskóla á Skagaströnd, Grunnskóla Njarðvíkur, Verslunarskóla Íslands og lauk BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri en undanfarin ár hefur hún tekið stjórnendanámskeið hjá IESE og Harvard Business School. Sigga Magga hefur starfað sem ráðgjafi, viðskiptastjóri og svæðistjóri hjá IMG (sem nú er Gallup). Hún starfaði einnig sem framkvæmdastjóri, upplýsingatæknifyrirtækisins, Já, frá stofnun og einnig framkvæmdastjóri Skjá miðla frá árinu 2007. Skjár miðlar tilheyrðu Skipta samstæðunni (Símanum) og undir hana heyrðu fyrirtæki sem sinntu upplýsinga- og fjölmiðlun innan samstæðunnar, Já og Skjárinn sem hélt utan um sjónvarpsstöðina Skjá Einn og tengda sjónvarpsþjónustu. Sigga Magga varð einn eigenda Já árið 2010 og starfaði sem forstjóri fyrirtækisins til ársins 2019.  Já keypti leitartæknifyrirtækið Spurl, upplýsingafyrirtækið Gallup og smáforritið Leggja sem var svo selt til Sýnar nú í ár, 2023. Sigga Magga tók við sem forstjóri Lyfju árið 2019 en Lyfja er leiðandi í rekstri lyfjaverslana á Íslandi og starfrækir alls 45 apótek og útibú um allt land. Innan samstæðu Lyfju eru jafnframt Heilsuhúsið og Heilsa sem er innflutnings-, framleiðslu- og heildsölufyrirtæki og starfa um 380 manns hjá samstæðunni. Sigga Magga hefur setið í ýmsum stjórnum, meðal annars stjórn Samtaka Atvinnulífisins, Samtaka Verslunar- og Þjónustu, Viðskiptaráðs Íslands, stjórn Já, skólanefnd Verzlunarskóla Íslands, stjórn Bláa lónsins og dótturfyrirtækja þess.  Þessi þáttur er í boði Icelandair og Krónunnar.

Flugur
Sigrún og Alfreð syngja syrpur

Flugur

Play Episode Listen Later Aug 29, 2022 46:06

Leikar eru nokkrar lagasyrpur sem Sigrún Ragnarsdóttir og Alfreð Clausen sungu inn á plötur í kringum 1960, með félögum úr kór Verzlunarskóla Íslands og hljómsveit Jans Morávek. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Flugur
Sigrún og Alfreð syngja syrpur

Flugur

Play Episode Listen Later Aug 29, 2022

Leikar eru nokkrar lagasyrpur sem Sigrún Ragnarsdóttir og Alfreð Clausen sungu inn á plötur í kringum 1960, með félögum úr kór Verzlunarskóla Íslands og hljómsveit Jans Morávek. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Hjjj
30. Guðjón Már Guðjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri OZ

Hjjj

Play Episode Listen Later Aug 19, 2022 77:31

Viðmælandi þáttarins er Guðjón Már Guðjónsson eða Guðjón í Oz eins og hann er alltaf kallaður en hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Oz. Guðjón er fæddur árið 1972 og ólst upp í Sundahverfinu. Hann gekk í Langholtsskóla og síðan Verzlunarskólann og stofnaði þar hugbúnaðarfyrirtækið OZ, sem þróaði þrívíddarhugbúnað og síðar samskiptahugbúnað. Það fyrirtæki var selt til Nokia árið 2008 fyrir um $300 milljónir bandaríkjadala. Guðjón hefur síðar komið að stofnun margra fyrirtækja þ.a.m. Íslandssíma sem síðar varð Vodafone, Nova, Industria, Maskína, Agora en nú einbeitir hann sér að öðru fyrirtæki sem ber líka heitið OZ og þróar vöruna OZ Sports, sem er tæknilausn til að taka upp íþróttatburði, klippa og miðla og OZ.com, sem er tæknilausn sem gerir áhorfendum kleift að taka þátt í gagnvirkum viðburðum á netinu. Þátturinn er kostaður af Icelandair.

Hjjj
28. Hekla Arnardóttir, meðstofnandi Crowberry Capital

Hjjj

Play Episode Listen Later Jul 12, 2022 62:02

Viðmælandi þáttarins er Hekla Arnardóttir. Hún er meðstofnandi Crowberry Capital, sem er vísissjóður sem fjárfestir í norrænum tækni sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum fjármögnunar. Hekla er fædd árið 1974 og alinn upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskólann og síðan lá leið hennar í véla- og iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands þar sem hún lauk verkfræðiprófi. Hekla vann sem prófunarstjóri hjá Össuri, stoðtækjaframleiðanda og síðar sem vörustjóri hjá Össuri í Kína. Árið 2010 hóf Hekla störf sem fjárfestingastjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, sem er vísissjóður í eigu íslenska ríkisins og starfaði þar í um 7 ár. Árið 2017, stofnaði Hekla vísissjóðinn Crowberry Capital ásamt meðstofnendum sínum, Helgu Valfells og Jenný Ruth Hrafnsdóttur. Síðan þá hefur Crowberry Capital, safnað í tvo fjárfestingasjóði, Crowberry I sem er fjórir milljarðar að stærð og Crowberry II sem er ellefu milljarða að stærð. Crowberry I hefur fjárfest í 16 fyrirtækjum og nýi sjóðurinn, Crowberry II hyggst fjárfesta í allt að 30 fyrirtækjum á næstu árum. Þessi þáttur er í boði Icelandair.

Flugur
Sigrún og Alfreð syngja syrpur

Flugur

Play Episode Listen Later Jul 5, 2022

Leikar eru nokkrar lagasyrpur sem Sigrún Ragnarsdóttir og Alfreð Clausen sungu inn á plötur í kringum 1960, með félögum úr kór Verzlunarskóla Íslands og hljómsveit Jans Morávek.

Morgunútvarpið
26. okt. - Matarsóun, loftslagsmál, kynjakvóti, menntun, tækni.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 26, 2021 130:00

Í dag stendur Velferðarvaktin fyrir málþingi um mataraðstoð og matarsóun á Grand Hótel. Nýlega kynnti umhverfis- og auðlindaráðherra áætlun gegn matarsóun og verða nokkrar aðgerðir í henni m.a. kynntar á þinginu, þ.á.m. tvö áhugaverð mál er varða mataraðstoð, svokallaður matarbanki og matarvagn. Þau Rakel Garðarsdóttir hjá Vakandi og Benedikt S. Benediktsson, lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, settust hjá okkur og sögðu okkur meira af þessu. Við héldum áfram loftslagsumræðunni hér í Morgunútvarpinu enda styttist óðum í 26. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst þann 31. október. Margir hópar hafa sent inn áskoranir til leiðtoga ríkjanna um að bregðast við loftslagsvánni. Þeirra á meðal eru hinir ýmsu trúarleiðtogar. Til að ræða þátt trúarbragðanna í loftslagsmálum fengum við til okkar Sigríði Guðmarsdóttir, lektor við guðfræði og trúarbragðadeild Háskóla Íslands. Verzlunarskóli Íslands hefur formlega tekið upp kynjakvóta sem ætlað er að að sporna gegn því að innritað hlutfall nemenda af einu kyni sé meira en 60 prósent. Við slógum á þráðinn til Guðrúnar Ingu Sívertssen skólastjóra Verzlunarskólans og fengum hana til að útskýra málið fyrir okkur. Hermundur Sigmundsson prófessor sem starfar bæði í Noregi og á Íslandi hefur oftar en einu sinni vakið athygli á stöðu drengja í menntakerfinu á Íslandi. Hann segir víða pott brotinn og þrátt fyrir mikið fjármagn til Menntamálastofnunar, aukna menntun kennara og ýmis konar átaksverkefni, sé staðan ekki góð. Læsi sé ábótavant, brottfall úr framhaldsskólum of mikið og skortur á góðu stöðumati. Við fengum Hermund til að fara aðeins yfir stöðuna með okkur og veltum fyrir okkur hvað þarf að gera til að bæta úr? Guðmundur Jóhannsson kom svo til okkar í sitt vikulega tæknispjall og ræddi sýndarveruleika og lykilorð. Tónlist: Bubbi Morthens - Háflóð. Gugusar - Röddin í klettunum. Eddie Vedder - Long way. Dua Lipa - Love again. Ásgeir Trausti - Öldurótið. Mono Town - Because of you. Kings of convenience - Rocky trail.

Morgunútvarpið
26. okt. - Matarsóun, loftslagsmál, kynjakvóti, menntun, tækni.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 26, 2021

Spegillinn
Spegillinn 25. október 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 25, 2021 9:03

Spegillinn 25. okt. 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Alþingi verður ekki sett fyrr en undirbúningskjörbréfanefnd hefur lokið störfum segir forsætisráðherra. Afar ólíklegt er að ný ríkisstjórn og nýr stjórnarsáttmáli verði kynnt fyrir þann tíma. Yfir helmingur Íslendinga, sextíu ára og eldri, hefur þegið örvunarskammt vegna COVID-19. Þrír féllu og tugir særðust þegar hermenn skutu á hóp fólks í höfuðborg Súdans. Þúsundir söfnuðust saman til að mótmæla valdaráni hersins. Nýtt rakningarforrit hefur verið sett upp í Háskóla Íslands sérstaklega ætlað nemendum og starfsfólki skólans. Traust Íslendinga til heilbrigðiskerfisins og getu þess til að takast á við hnattrænar heilbrigðisógnir hefur aukist eftir heimsfaraldur kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Geirs Gunnlaugssonar, fyrrverandi landlæknis. Tvö þúsund manns frá rúmlega 100 löndum deila þekkingu sinni á jarðvarma á Heimsþingi Alþjóða jarðhitasambandsins sem hófst í Hörpu í dag. Um fimmtungur þeirra erinda og greina sem kynnt eru á stórri alþjóðlegri jarðhitaráðstefnu í Reykjavík er afrakstur nemenda sem útskrifast hafa úr Jarðahitaskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Lengri umfjöllun: Hann virtist fullkomlega yfirvegaður þegar hann þurrkaði blekið af fingurgómunum - Otoniel alræmdur kólumbískur fíkniefnabarón sem nú hefur verið handtekinn. Hann fylgdi fyrirmælum lögregluljósmyndarans, tók niður grímuna, horfði beint fram, sneri sér svo á hægri hlið og næst á þá vinstri. Setti hendurnar því næst samvinnuþýður aftur fyrir bak og beið þess að vera handjárnaður. Enda sjálfsagt búist lengi við því. Otoniel sem heitir í raun Dairo Antonio Usuga, er nýorðinn fimmtugur, snoðklipptur, með há kollvik og dálitla velmegunar bumbu. Hann var klæddur svörtum stuttermabol, svörtum buxum og hnéháum svörtum gúmmístígvélum þegar tveir lögreglumenn leiddu hann út úr flugvél lögreglunnar á vellinum í Bogota, og sýndu gripinn fjölmiðlafólki og örfáum her- og lögreglumönnum. Ragnhildur Thorlacius segir frá. Verzlunarskóli Íslands ætlar að gæta að kynjahlutföllum við innritun nemenda. Þar hefur hingað til verið horft til einkunna úr grunnskóla og þær umreiknaðar í stigafjölda. Þess er nú einnig gætt að hlutfall kyns fari ekki yfir 60% innritaðra nemenda. Stúlkur hafa verið í miklum meirihluta nýnema í Verzlunarskólanum undanfarin ár og hlutfall þeirra hærra en í umsóknun þar sem skiptingin hefur verið 60% stúlkur en 40% drengir. Einkunnir stúlkna hafa verið hærri en drengjannna og þær því frekar teknar inn. Segir í umfjöllun á v

Spegillinn
Spegillinn 25. október 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 25, 2021

13. Hilmar Gunnarsson, stofnandi Arkio og Modio

Hjjj

Play Episode Listen Later Oct 25, 2021 65:13

Viðmælandi þáttarins er Hilmar Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Arkio. Hilmar er fæddur árið 1971 og ólst upp í Sundunum í Reykjavík, Danmörku og í Frakklandi. Hann gekk í Verzlunarskólann en þaðan lá leið hans í Háskóla Íslands þar sem hann lauk gráðu í viðskiptafræði. Eftir útskrift byrjaði Hilmar að vinna í markaðsmálum hjá Íslandsbanka og tók stuttu síðar við sem markaðsstjóri bankans og vann þar í fjögur ár þangað til hann gekk til liðs við OZ, sem var þá ört vaxandi sprotafyrirtæki. Hilmar leiddi síðan söluna á OZ til Nokia árið 2008, þar sem fyrirtækið var selt fyrir um $300 milljónir bandaríkjadala. Hilmar stofnaði síðan ásamt félögum sínum lítinn fjárfestingasjóð sem heitir Investa og fjárfestir á fyrstu stigum fjármögnunar sprotafyrirtækja og hefur hann fjárfest og setið í mörgum stjórnum sprotafyrirtækja síðan. Árið 2013 stofnaði Hilmar síðan fyrirtækið Modio, sem gerði notendum kleift að búa til alls kyns leikföng sem þeir gátu síðan prentað út í þrívíddarprentara. Eftir aðeins rúmlega ár seldi Hilmar síðan Modio til bandaríska stórfyrirtækisins Autodesk sem er leiðandi á sviði þrívíddarhugbúnaðar. Hilmar fylgdi sölunni eftir og hóf störf hjá Autodesk sem vörustjóri og vann þar í tvö ár þangað til hann stofnaði nýtt fyrirtæki sem heitir Arkio árið 2017. Arkio er hönnunarhugbúnaður þar sem notendur geta hannað saman mannvirki á spjaldtölvum og í sýndarveruleika og með því geta séð hönnunina betur fyrir sér áður en mannvirki eru byggð. Í dag fáum við að heyra sögu Hilmars. Þátturinn er kostaður af VÍS og Kaffitár.

Samfélagið
Tvíburar og dúxar, vistheimt, skipulagsmál

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 1, 2021 55:00

Sigurbjörg Erla Pétursdóttir Biering úr Menntaskólanum í Kópavogi, Óskar Atli Magnússon úr Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og Elísa Sverrisdóttir úr Verzlunarskóla Íslands: eru öll útskriftarnemar og dúxar í sínum árgöngum. Þau komu Samfélagið í spjall um lífið og tilveruna og komust að því að þau eru öll tvíburar! Halldóra Björk Bergþórsdóttir og Pétur Halldórsson úr stjórn Landverndar: Hvað er endurheimt vistkerfa og hvers vegna hafa SÞ sett vistheimt í forgang næsta áratuginn? Páll Líndal, umhverfissálfræðingur: um skipulagsmál á Akureyri og Djúpavogi.

Samfélagið
Tvíburar og dúxar, vistheimt, skipulagsmál

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 1, 2021

Sigurbjörg Erla Pétursdóttir Biering úr Menntaskólanum í Kópavogi, Óskar Atli Magnússon úr Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og Elísa Sverrisdóttir úr Verzlunarskóla Íslands: eru öll útskriftarnemar og dúxar í sínum árgöngum. Þau komu Samfélagið í spjall um lífið og tilveruna og komust að því að þau eru öll tvíburar! Halldóra Björk Bergþórsdóttir og Pétur Halldórsson úr stjórn Landverndar: Hvað er endurheimt vistkerfa og hvers vegna hafa SÞ sett vistheimt í forgang næsta áratuginn? Páll Líndal, umhverfissálfræðingur: um skipulagsmál á Akureyri og Djúpavogi.

Morgunvaktin
Litlar breytingar á ungmennum en miklar á skólakerfinu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 28, 2021 130:00

Ríflega helmingur sveitarstjórnarfulltrúa hefur orðið fyrir áreiti eða neikvæðu umtali vegna starfa sinna. Samfélagsmiðlar eru helsti vettvangurinn en sveitarstjórnarfólk er líka áreitt á götum úti, í verslunum og á skemmtunum. Heimili er ekki öruggur griðastaður. Eva Marín Hlynsdóttir, dósent í stjórnmálafræði, hefur rannsakað þetta, hún sagði okkur frá. Framhaldsskólar útskrifa nú nemendur sína einn af öðrum, eins og er til siðs á vorin. Á morgun verður útskrift úr Verzlunarskóla Íslands, þar sem Ingi Ólafsson, skólastjóri, útskrifar sína síðustu nemendur. Hann lætur senn af störfum eftir langan feril í skólamálum. Ingi kom til okkar á Morgunvaktina og spjallaði um ferilinn og breytingarnar í skólamálum og á ungmennum síðustu áratugina. Muna hlustendur eftir Svein Harald Øygard? Hann er norskur og var um tíma seðlabankastjóri hér á Íslandi. Nú er hann orðinn stjórnarformaður norska flugfélagsins Norwegian sem hefur barist í bökkum síðustu misseri eftir að hafa farið með himinskautum. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fjallaði um Svein og stöðu Norwegian í ferðaspjalli. Airbnb og booking.com komu einnig við sögu. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Starlight - Trúbrot My friend and I - Trúbrot To be grateful - Trúbrot

Morgunvaktin
Litlar breytingar á ungmennum en miklar á skólakerfinu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 28, 2021

Skoðanabræður
#146 Skoðanir Verzló

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later May 25, 2021 4:09

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Verzlunarskóli Íslands, þar sem valdafýsnir ungir karlmenn komast í fyrsta skipti í snertingu við hinn sjúka heim spillingar, læra að svívirða konur og aðra hópa sem minna mega sín, bæla niður allra tilfinningar, drepast á bjórkvöldum, kýla í veggi, öskra í kodda, og ganga yfir mörk? Eða hvað? Sóley Margrét Valdimarsdóttir (f. 2002) stjórnar hlaðvarpsþætti Verzlunarskólans; Verzló Podcast. Hún greinir stöðu Marmarans í dag. Aron „Mola“ Ólafsson (f. 1993) útskýrir að „PC var ekki til“ þegar hann var í Verzló. 12:00 þættir, Morfís, Gettu Betur, Nemendafélagskosningar, Leynifélög. Þetta er allt rætt!

Hjjj
5. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis

Hjjj

Play Episode Listen Later Apr 14, 2021 62:46

Viðmælandi þessa þáttar er Katrín Pétursdóttur, forstjóri Lýsis, sem framleiðir meðal annars þorskalýsið sem allir Íslendingar þekkja. Katrín er fædd árið 1962 og er alin upp miðbæ Reykjavíkur. Hún gekk í Verzlunarskólann og lauk námi í rekstrarfræði í Tækniskóla Íslands sem núna er hluti af Háskólanum í Reykjavík. Katrín kom ung að árum að fyrirtækjarekstri enda alin upp í mikilli frumkvöðlafjölskyldu. Árið 1999 keypti hún fyrirtækið Lýsi og settist í forstjórastólinn og hefur Lýsi vaxið og dafnað undir hennar stjórn. Þátturinn er kostaður af VÍS, Kaffitár og Bílaumboðinu Öskju.

Lestin
Upphafsstef, frumrannsókn og fyrsti skóladagurinn

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 1, 2020 55:00

Lestin leggur úr hlaði haustið 2020 og í dag eru lestarstjórarnir að hugsa um upphafið. Hvernig skal byrja. Við skoðum upphafsstef hinna ýmsu þátta Rásar 1, þýðingu þeirra og eðli og veltum fyrir okkur hvort Lestin eigi mögulega að finna sér nýtt forspil. Við fylgjum eftir nýnema, á nýnemakynningu við Verzlunarskóla Íslands og kynnumst því hvernig er að byrja í menntaskóla á tímum þar sem allt félagslíf er óvissu háð. Guðrún Elsa Bragadóttir lítur við. Hún var beðin um að skrifa kafla um stöðu kvenna innan íslenska kvikmyndageirans en til þess að svo mætti verða þurfti hún að leggjast í frumrannsóknir.

Sunnudagssögur
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri. Hringt norðaustur

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later May 24, 2020 135:00

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, sagði frá æskuárunum í norðurbænum í Hafnarfirði. Hann fór svo í Verzlunarskóla Íslands sem var á þeim tíma að flytja í nýtt húsnæði í Ofanleiti. Eyjólfur sagði einnig frá bílasölutímabili og þegar hann seldi síðasta Trabantinn hér á landi. Hann rifjaði svo upp fæðingu sona sinna, og þegar fjölskyldan fluttist til Bandaríkjanna og síðan til Akureyrar. Hann segir frá árunum sem kennari við Háskólann á Akureyri og þegar hann söðlaði um og fór að vinna sem aðalhagfræðingur CCP. Að lokum spjallaði hann um starf sitt sem rektor Háskólans á Akureyri og þau tækifæri sem hann sér á Norðurlandi í framtíðinni. Í seinni helmingi þáttarins var hringt á Norðausturland. Slegið var á þráðinn til Sigrúnar Vésteinsdóttur sem rekur ásamt fjölskyldunni lúxustjaldleigu á uppeldisbæ sínum Vaði við Skjálfandafljót. Einnig var heyrt í Guðmundi Ögmundssyni þjóðgarðsverði í Ásbyrgi. Hann rifjaði upp sögur úr starfinu og sagði frá hvernig þjóðgarðsverðir væru að undirbúa tjaldsvæðin svo þau uppfylli öll skilyrði Covid-takmarkana í sumar. Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir

Sunnudagssögur
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri. Hringt norðaustur

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later May 24, 2020

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, sagði frá æskuárunum í norðurbænum í Hafnarfirði. Hann fór svo í Verzlunarskóla Íslands sem var á þeim tíma að flytja í nýtt húsnæði í Ofanleiti. Eyjólfur sagði einnig frá bílasölutímabili og þegar hann seldi síðasta Trabantinn hér á landi. Hann rifjaði svo upp fæðingu sona sinna, og þegar fjölskyldan fluttist til Bandaríkjanna og síðan til Akureyrar. Hann segir frá árunum sem kennari við Háskólann á Akureyri og þegar hann söðlaði um og fór að vinna sem aðalhagfræðingur CCP. Að lokum spjallaði hann um starf sitt sem rektor Háskólans á Akureyri og þau tækifæri sem hann sér á Norðurlandi í framtíðinni. Í seinni helmingi þáttarins var hringt á Norðausturland. Slegið var á þráðinn til Sigrúnar Vésteinsdóttur sem rekur ásamt fjölskyldunni lúxustjaldleigu á uppeldisbæ sínum Vaði við Skjálfandafljót. Einnig var heyrt í Guðmundi Ögmundssyni þjóðgarðsverði í Ásbyrgi. Hann rifjaði upp sögur úr starfinu og sagði frá hvernig þjóðgarðsverðir væru að undirbúa tjaldsvæðin svo þau uppfylli öll skilyrði Covid-takmarkana í sumar. Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir

The Snorri Björns Podcast Show
#34 Bjarki Brynjarsson - Lieutenant í norska hernum

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Apr 3, 2019 130:29

Bjarki Brynjarsson, eins og svo margir aðrir, var ekki viss um hvað hann vildi taka sér fyrir hendur við útskrift úr Verzlunarskóla Íslands. Fyrir algjöra tilviljun, ævintýraþrá og hvatvísi skráir hann sig í norska herinn. 7 árum síðar er Bjarki 28 ára gamall lieutenant innan fallbyssu herdeildar hersins með 30 undirmenn. Leiðin þangað var ekki áfallalaus, inntökuprófið í herinn (hell-week) var bara forsmekkurinn af einhverskonar hell-year sem var í vændum en hann útskýrir ítarlega fyrir okkur hvernig áreiti og álagi er beitt til að byggja upp og styrkja karakter hermannannna. Vopnaþjálfun, agi, heræfingar, stríðsuppsetning, þægindaramminn, endurlífgun, skipun til að taka líf, þrekpróf, gönguskíði, basúkkur og fleiri óhversdagslegir hlutir eru ræddir í þessum þætti ásamt innsýn í aðstæður sem Bjarki gekk í gegnum til að hljóta vinnuheitið Platoon commander.