Podcasts about Gnarr

2010 film

  • 55PODCASTS
  • 258EPISODES
  • 1h 24mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 29, 2025LATEST
Gnarr

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about Gnarr

Latest podcast episodes about Gnarr

Bylgjan
Bítið - Þriðjudagur 29. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 29, 2025 111:11


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari   Unnur Arna Jónsdóttir, eigandi Hugarfrelsis og Kristín María Thoroddsen, formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar, ræddu við okkur um skaðsemi skjátíma. Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, ræddi við okkur um alvarleg kynferðisbrot og hvers vegna grunaðir eru ekki hnepptir í gæsluvarðhald. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar ræddu um fiskveiðistjórnunarkerfið.   Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og eigandi Verkvistar og Ólafur Wallevik, prófessor við Háskólann í Reykjavík, ræddu heilnæmar byggingar. Finnbogi Þorkell og Þorsteinn frá Gleðismiðjunni komu okkur í gott skap.   Sveinn Þorgeirsson, umsjónarmaður MED-námsins við íþróttafræðideild HR, ræddi við okkur um áhugavert framtak varðandi skólaíþróttir. Nöldurhornið

Bylgjan
Bítið. Fimmtudagur 6. mars 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 6, 2025 111:30


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Haraldur Guðjónsson og Þórunn Ólafsdóttir, bændur mættu til okkar í spjall. Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri, ræddi við okkur um leikskólamál og launamál. Jón Gnarr, Viðreisn og Bergþór Ólason, Miðflokki ræddu um nýja skýrslu Viðskiptaráðs um Ríkisútvarpið.   Hrefna Sigurjónsdottir, verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá, ræddi við okkur. Katrín M. Guðjónsdóttir, formaður ÍMARK, ræddi við okkur um ÍMARK daginn. Saga Garðarsdóttir og Árni Vilhjálmsson ræddu við okkur um leikritið Innkaupapokinn í Borgarleikhúsinu. Símatími.

Lestin
Kaþólskari en páfinn, Óskarsverðlaunin

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 27, 2025 54:38


Óskarsverðlaunin fara fram í Hollywood á sunnudaginn, aðfaranótt mánudagsins á íslenskum tíma. Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndafræðingur og dagskrárgerðarkona, spáir með okkur í spilin. Verður það Timothée eða Adrien? Demi eða Mikey? Ein af betri myndunum sem tilnefnd er til Óskarsins (að faglegu mati Lestarinnar) er Conclave en hún fjallar um dauðsfall páfa eða öllu heldur ferlið sem fer af stað þegar páfi deyr: dramatískt og háleynilegt val kardinálanna á nýjum arftaka á bakvið luktar dyr Páfakjörsalarinars undir himneskum loftmálverkum Michelangelos. Við fjöllum ekki beinlínis um páfan hér í þætti dagsins en við fáum til okkar mann sem segir okkur frá pólitík innan kaþólsku kirkjunnar en sjálfur segist hann vera ,,íhaldssamari en páfinn,'' eins og hann orðar það. Dagur Kári Gnarr fór ungur til Þýskalands, sótti nám hjá reglu bræðralags heilags Péturs til að verða kaþólskur prestur. Hann hætti þó við þá vegferð eftir einhvern tíma. Við heyrum nánar sögu hans hér á eftir

Vikulokin
Heiða Björg Hilmisdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Jón Gnarr

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 8, 2025 57:51


Gestir vikulokanna voru þau Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi borgarstjóri. Þau ræddu meðal annars vendingar í borgarstjórn þar sem meirihlutinn er sprunginn og viðræður um myndun nýs meirihluta standa yfir, stöðuna í kjaradeilu kennara og alþjóðamál út frá yfirlýsingum Bandaríkjaforseta í vikunni.

Podcast með Sölva Tryggva
Jón Gnarr með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Dec 19, 2024 73:26


https://solvitryggva.is/ Jón Gnarr hefur víða komið við og á stórmerkilegt lífshlaup. Utanveltu í skóla og hélt að allar dyr væru lokaðar, en svo fann hann leiklistina og grínið. Eftir fjölmörg farsæl ár skipti hann svo um takt og fór í stjórnmál og varð á endanum borgarstjóri. Nú gefur hann kost á sér á Bessastaði. Í þættinum fara Sölvi og Jón yfir magnaðan feril Jóns, grín, stjórnmál, forsetaembættið og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/

Rauða borðið
Rauða borðið 2. des - Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 2, 2024 193:24


Mánudagur 2. desember Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín nýja þingmenn og ræðir við þá um pólitíkina: Ólafur Adólfsson frá Sjálfstæðisflokki, Jón Gnarr frá Viðreisn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu og Halla Hrund Logadóttir frá Framsókn. Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra VG fer yfir stöðu vinstrisins og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata metur hvað fór úrskeiðis hjá þeim flokki. Guðrún Jónína Magnúsdóttir segir okkur svo frá því stúlkur máttu þola á ástandsárunum.

Chess After Dark
Kosningasyrpan #3 Jón Gnarr & Jóhann Páll

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Nov 23, 2024 121:40


Gestir Chess After Dark í kvöld eru Jóhann Páll Jóhannsson sem leiðir Samfylkinguna í Reykjavík Suður & Jón Gnarr sem er í 2.sæti í Reykjavík Suður fyrir Viðreisn.Þessi þáttur er í boði:Arion bankiAir BrokerBónusFrumherjiMG

FM957
ÓLAFUR JÓHANN - 16 NÓVEMBER - JÓN GNARR

FM957

Play Episode Listen Later Nov 18, 2024 67:42


Stundin
Pod blessi Ísland #1: Gnarr jarðsetur Pírata, óvinsæl spurning til Selenskí, einkaskilaboð Kristrúnar og Klaustur-endurfundir

Stundin

Play Episode Listen Later Oct 29, 2024


Í fyrsta þætti Pod blessi Ísland, í umsjá Aðalsteins Kjartanssonar og Arnars Þórs Ingólfssonar, blaðamanna Heimildarinnar, er farið yfir nýjustu vendingar í stjórnmálum og rýnt í líklegar ríkisstjórnir út frá nýrri þingsætaspá Heimildarinnar og Dr. Baldurs Héðinssonar. Var það taktísk snilld hjá Viðreisn að setja Jón Gnarr í 2. sæti? Munu Egilsstaðabúar hætta við að kjósa Samfylkinguna af því að Dagur B. er á lista í Reykjavík? Er Ragnar Þór Ingólfsson hægrimaður? Við fáum ferðasögu Aðalsteins frá Þingvöllum og frásögn af blaðamannafundi þar sem hann lagði óvænta spurningu fyrir Volodimír Selenskí um áframhaldandi viðskipti Íslendinga við Rússa eftir innrás Pútíns í Úkraínu. Í lok þáttar er svo farið stuttlega yfir nýja bók Steingríms J. Sigfússonar, sem fjalla um alla snillingana sem hann kynntist í stjórnmálum. En svo droppar hann líka nokkrum sprengjum. Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló

Rauða borðið
Rauða borðið 22. okt - Kosningar, karlar, dans og ofbeldi

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 23, 2024 291:22


Þriðjudagurinn 22. október Kosningar, karlar, dans og ofbeldi Við höldum fram að ræða komandi kosningar: Jón Gnarr frambjóðandi Viðreisnar, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Valur Gunnarsson sagnfræðingur og Frosti Sigurjónsson fyrrum þingmaður Framsóknar metra stöðuna og síðan halda þau áfram: Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræðingur, Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur og þjóðfræðingarnir Auður Viðarsdóttir og Vilborg Bjarkadóttir. Í karlaspjalli á þriðjudegi ræðum við spaka karlinn. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur leiðir samtalið og Pawel Bartoszek varaborgarfulltrúi, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður og hönnuður, Sverrir Norland rithöfundur og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri taka þátt. Svartir fuglar er dansverk sem sýnt er í Tjarnarbíói, Lára Stefánsdóttir samdi dansa við ljóð Elísabetar Jökulsdóttur og Lára Þorsteinsdóttir dansar. Við fáum þær í heimsókn. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins ræðir breytta birtingarmynd ofbeldis. Engin teikn eru á lofti um að útlendingar beiti frekar íslenskar konur ofbeldi en innfæddir karlar.

Escuta Essa
Escuta Essa Eleições: Islândia

Escuta Essa

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 37:33


Em 2007 a Islândia, rica como nunca, foi considerada o melhor país para se viver no mundo. Em 2008, o país viu o dinheiro ir embora e mergulhou na sua maior crise. Como eleições, referendos e uma nova constituição viraram a resposta para um momento inédito de um país tão pequeno e isolado? Este é o segundo episódio do Escuta Essa: Eleições, nossa série em 4 partes com histórias eleitorais. Todas as quartas-feiras até o fim de outubro, no seu agregador de podcasts favorito, você tem um dever cívico com a gente! Não deixe de enviar os episódios do Escuta Essa para aquela pessoa com quem você também gosta de compartilhar histórias e aproveite para mandar seus comentários e perguntas no Spotify, nas redes sociais , ou no e-mail escutaessa@aded.studio. A gente sempre lê mensagens no final de cada episódio! ... •⁠ ⁠Em 2009, João Moreira Salles foi até a Islândia para registrar a derrocada do país e o recente clamor popular por plebiscitos e referendos. O resultado é esse texto brilhante chamado "A grande ilusão". •⁠ ⁠João Moreira Salles voltou a falar da Islândia em 2012 na reportagem "A ilha laboratório", sobre a recuperação do país e as sucessivas recusas populares ao pagamento internacional da dívida. •⁠ ⁠Jón Ólafsson analisa as indas e vindas da Islândia na produção de sua nova constituição, concluindo que o sonho ainda não está morto. •⁠ ⁠O "Melhor Partido" foi fundado em 2009 e em 2012 acabou se tornando o partido "Futuro Luminoso". Seu fundador, Jón Gnarr, foi eleito prefeito de Reykjavik e ao fim do mandato se retirou da política. No momento da gravação do episódio não estávamos cientes, mas Gnarr resolveu se candidatar a presidente em 2024 - terminou em quarto lugar, com cerca de 10% dos votos. ... AD&D STUDIO A AD&D produz podcasts e vídeos que divertem e respeitam sua inteligência! Acompanhe todos os episódios em aded.studio para não perder nenhuma novidade.

Rauða borðið
Rauða borðið 9. okt - Viðreisn, framleiðni, pólitík, gæsla, heimsmálin, flugvöllur og kannabis

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 9, 2024 286:24


Miðvikudagurinn 9. október Viðreisn, framleiðni, pólitík, gæsla, heimsmálin, flugvöllur og kannabis Það hefur skapast örlítil ólga í Viðreisn eftir að Jón Gnarr sóttist óvænt eftir oddvitasæti í Reykjavík án þess að hafa nokkru sinni verið í flokknum. Þorbjörg Gunnlaugsdóttir þingmaður ræðir gusuganginn. Þórólfur Matthíasson prófessor greinir efnahaginn; hagvöxt, verðbólgu og vexti. Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Erna Bjarnadóttir varaþingkona Miðflokksins ræða við Sigurjón Magnús Egilsson um stjórnmál. Katrín Oddsdóttir mannréttindalögfræðingur telur að vopnaburður og öryggisgæsla í kringum ráðherra kunni að hafa gengið út í öfgar. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi ræðir heimsmálin á tímum stríðs og þjóðarmorðs. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur lýsir furðu sinni á umræðu um samgöngur og náttúruhamfarir þessa dagana. Hvassahraun er galin hugmynd. Magnús Þórsson prófessor á Rhode Island skýrir hvað cannabis science eru.

Rauða borðið
Synir Egils 29. sept - Byrlun, vinnumansal, pólitísk átök og skuldir ríkissjóðs

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 29, 2024 132:26


Sunnudagur 29. september Synir Egils: Byrlun, vinnumansal, pólitísk átök og skuldir ríkissjóðs Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill, Jón Gnarr listamaður og pólitíkus og Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður munu taka púlsinn á pólitíkinni og síðan koma þrír þingmenn til að ræða stöðu ríkisfjármála, skuldasöfnun og vaxtabyrði: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar, Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata, Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingar.

Podcast með Sölva Tryggva
Margrét Gnarr með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jul 30, 2024 88:37


Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Margrét Gnarr hefur náð lengst allra Íslendinga í fitness-heiminum. Hún er sú eina sem hefur fengid þátttökurétt í tvígang á Olympía, þar sem þeir allra bestu í heiminum keppa. Hér ræða hún og Sölvi um fitness-heiminn, átraskanir, samfélagsmiðla, skuggabönn, pabba hennar Jón Gnarr og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

Subtitle
Will Icelandic survive the invasion of English?

Subtitle

Play Episode Listen Later Jun 26, 2024 18:57


Some Icelanders are becoming unsettled by this existential question: Will their language still be spoken in the future? Comedian and former Reykjavik mayor Jón Gnarr is convinced that this uniquely archaic-yet-modern language will one day die out. He says his children express themselves beautifully in English but speak limited Icelandic. Give it a couple more generations, and who knows? For Gnarr and many others, speaking Icelandic is an essential part of being Icelandic. Without the language, Iceland's patriotic anthem "Land, Nation and Tongue" would lose its meaning. Among Iceland's multitude of avid book-readers though, the language is showing few signs of disappearing. For now at least, Icelandic authors are committed to writing in their mother tongue. This is part two of our reporting on Icelandic. Listen to the first part, Icelandic, the language that recycles everything. In addition to Jón Gnarr, we hear from novelists Auður Ava Ólafsdóttir and Sverrir Norland, as well as literary translator Larissa Kyzer, linguist Ari Páll Kristinsson, and Ethiopian-born restaurant owner Azeb Kahssay. Music in this episode by Luella Gren, Hysics, Medité, Farrell Wooten, J.S. Bach/Eric Jacobsen, Jon Björk, and Trabant 33. The photo is of a poster in Reykjavik celebrating the Icelandic language. Read a transcript of the episode here. Sign up for Subtitle's newsy, nerdy, fortnightly newsletter here.

Subtitle
Will Icelandic survive the invasion of English?

Subtitle

Play Episode Listen Later Jun 26, 2024 18:57


Some Icelanders are becoming unsettled by this existential question: Will their language still be spoken in the future? Comedian and former Reykjavik mayor Jón Gnarr is convinced that this uniquely archaic-yet-modern language will one day die out. He says his children express themselves beautifully in English but speak limited Icelandic. Give it a couple more generations, and who knows? For Gnarr and many others, speaking Icelandic is an essential part of being Icelandic. Without the language, Iceland's patriotic anthem "Land, Nation and Tongue" would lose its meaning. Among Iceland's multitude of avid book-readers though, the language is showing few signs of disappearing. For now at least, Icelandic authors are committed to writing in their mother tongue. This is part two of our reporting on Icelandic. Listen to the first part, Icelandic, the language that recycles everything. In addition to Jón Gnarr, we hear from novelists Auður Ava Ólafsdóttir and Sverrir Norland, as well as literary translator Larissa Kyzer, linguist Ari Páll Kristinsson, and Ethiopian-born restaurant owner Azeb Kahssay. Music in this episode by Luella Gren, Hysics, Medité, Farrell Wooten, J.S. Bach/Eric Jacobsen, Jon Björk, and Trabant 33. The photo is of a poster in Reykjavik celebrating the Icelandic language. Read a transcript of the episode here. Sign up for Subtitle's newsy, nerdy, fortnightly newsletter here.

Rauða borðið
Forsetakosningar og stúdentauppreisn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 21, 2024 206:14


Þriðjudagurinn 21. maí Forsetakosningar og stúdentauppreisn Forsetakosningarnar setja sitt mark á þátt kvöldsins. Fyrst koma þau Sigmundur Ernir Rúnarsson skáld og blaðamaður, Ásgeir Friðgeirsson PR-maður, Guðmundur Andri Thorsson rit- og pistlahöfundur og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og fyrrum blaðakona og ræða kosningabaráttuna frá ýmsum sjónarhólum. Jón Gnarr forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hann á við þegar hann segist vilja beita sér gegn leiðindum. Við sláum á þráðinn til Ísabellu Lenu Borgarsdóttur í Nijmegen í Hollandi þar stúdentar hafa reist tjaldbúðir á háskólalóðinni til stuðnings Palestínu. Og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hún á við þegar hún segir að forseti verði að standa gegn þeim sem eiga og ráða.

Spegillinn
Jón Gnarr býður sig fram, talskona Stígamóta um brottflutning og mótmæli í Georgíu

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 14, 2024 20:00


Flutningur fólks sem sætt hefur mansali héðan til Afríku er merki um þá hörku sem færst hefur í útlendingamál, segir talskona Stígamóta Mikill hiti var í mótmælendum í miðborg Tiblisi í morgun, þegar þingið samþykkti afar umdeild lög, sem sögð eru grafa undan lýðræði og fjölmiðlafrelsi í landinu. Framkvæmdastjóri samtaka um vestræna samvinnu segir lögin greiða götu stjórnvalda til alræðis og enn er rætt við forsetaframbjóðanda, nú er það Jón Gnarr sem tók sér matarhlé til að ræða um forsetaembættið

Helgaspjallið
Þáttur 178 - Kynnumst forsetaframbjóðendum 2024: Jón Gnarr

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Apr 24, 2024 80:33


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Næsti frambjóðandi í stólinn þekkjum við öll, Jón Gnarr. Hann hefur eflaust átt þátt í að gera dagana og kvöldin okkar skemmtilegri á skjánum, en vissulega líka þegar hann sat í stól borgarstjóra Reykjavíkur. Í þessum þætti fáum við einstaklega einlæga hlið af Jóni þar sem við kynnumst honum örlítið dýpra og var mín upplifun að ég sat með manni sem þekkir tilfinningarnar sínar, hefur vingast við þær og er óhræddur að tjá þær, sem ég tel sérstaklega góður eiginleiki einstaklings sem er að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands. Jón Gnarr hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér sem opinber persóna, en að upplifa og hlusta á þessa hlið á honum sem hann leyfir okkur að kynnast í þættinum gaf mér nýja aðdáun og virðingu fyrir honum. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Studíó-i Podcaststöðvarinnar

Ein Pæling
#306 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Jón Gnarr

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Apr 16, 2024 85:36


Þórarinn ræðir við Jón Gnarr en hann býður sig fram til forseta í kosningum sem háðar verða þann 1. júní næstkomandi.Í þessu hlaðvarpi er rætt um áherslur Jóns, hvort að grínisti geti valdið svo formlegu embætti, hvað hann vill setja á dagskrá verði hann forseti, muninn á þjóðarstolti og stærilátum, framboð Katrínar Jakobsdóttur, Bandaríkin og margt fleira.Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling

Podcast með Sölva Tryggva
#265 Jón Gnarr með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Apr 15, 2024 20:01


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Jón Gnarr hefur víða komið við og á stórmerkilegt lífshlaup. Utanveltu í skóla og hélt að allar dyr væru lokaðar, en svo fann hann leiklistina og grínið. Eftir fjölmörg farsæl ár skipti hann svo um takt og fór í stjórnmál og varð á endanum borgarstjóri. Nú gefur hann kost á sér á Bessastaði. Í þættinum fara Sölvi og Jón yfir magnaðan feril Jóns, grín, stjórnmál, forsetaembættið og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/

Chess After Dark
#167 Jón Gnarr

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Apr 13, 2024 135:02


Rauða borðið
Þingið, samkennd grunnskólabarna og forsetaframboð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 8, 2024 200:43


Þingkosningar í haust, Jón Gnarr forsetaframbjóðandi og skortur á samkennd íslenskra grunnskólabarna verður til umræðu við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld, mánudaginn 08. apríl. Brynjar Níelsson, Sjálfstæðisflokki og Jóhann Pál Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar takast á um stöðuna í ríkisstjórninni og þingmál fram undan. Auður Önnu Magnúsdóttir tekur þátt í umræðunni en hún er framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins, fyrrum Landverndarkona. Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla kemur og ræðir mælingar sem staðfesta minni samkennd meðal íslenskra nemenda í grunnskólum en hjá öðrum nemendum á hinum Norðurlöndunum. Hvað veldur? Undir lok þáttarins ræðir Gunnar Smári ítarlega við Jón Gnarr, leikara rithöfund og forsetaframbjóðanda. Jón segir framboð Katrínar Jakobsdóttur orka tvímælis.

Podcast með Sölva Tryggva
Margrét Gnarr (brot af því besta)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Mar 14, 2024 21:23


Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Margrét Gnarr hefur náð lengst allra Íslendinga í fitness-heiminum. Hún er sú eina sem hefur fengid þátttökurétt í tvígang á Olympía, þar sem þeir allra bestu í heiminum keppa. Hér ræða hún og Sölvi um fitness-heiminn, átraskanir, samfélagsmiðla, skuggabönn, pabba hennar Jón Gnarr og margt margt fleira. Brotið er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/    

Sterk saman
#90 Magga Gnarr

Sterk saman

Play Episode Listen Later Feb 25, 2024 151:30


Magga Gnarr er 34 ára móðir, eiginkona, Teakwando meistari, fyrrum fitness drottning og einkaþjálfari. Hún lenti í ljótu einelti sem barn og unglingur, þróaði með sér átraskanir og alkahólisma sem hún er í bata frá í dag, hvoru tveggja.

Beint í bílinn
Beint í bílinn - 177. Þáttur

Beint í bílinn

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023 55:43


Áreynslulaus og afslappaður bíltúr. Sveppa kalt. Jón Gnarr og Klaki. Ekkert kaffi og Graði maðurinn.

Papierstau Podcast
Interview: Jón Gnarr

Papierstau Podcast

Play Episode Listen Later May 21, 2023 38:42


JETZT FREI VERFÜGBAR: Papierstau Podcast begrüßt den unfassbaren, den großartigen, den fantastischen Jón Gnarr! Der Autor, Schauspieler, Allround-Künstler und Ex-Bürgermeister von Reykjavik spricht im Interview darüber, wie man Bücher für Leute schreibt, die nicht gerne lesen, und dabei ganz nebenbei jungen Menschen aus der toxischen Männlichkeitsfalle hilft.

Mannlegi þátturinn
Björgvin Franz föstudagsgestur og áfram um samlokusalöt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 28, 2023 50:00


Björgvin Franz Gíslason leikari var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hann hefur komið víða við í skemmtanabransanum, hann sá um Stundina okkar í mörg ár, hann hefur auðvitað leikið í fjölda leiksýninga og í kvikmyndum og sjónvarpi, hann veislustýrir, syngur lögin hans Ragga Bjarna á öldrunarheimilum og nú síðustu ár hefur hann leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru hjá Leikfélagi Akureyrar. Í vetur hefur hann farið með stærsta karlhlutverkið í söngleiknum Chicago fyrir norðan og fékk frábæra dóma fyrir. Við ræddum við Björgvin Franz um lífið og tilveruna, ADHD, Jón Gnarr, Björn Hlyn, Ragga Bjarna og fleira og fleira. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað í þættinum. Í dag tókum við aftur upp þráðinn frá því í síðustu viku og héldum áfram að tala um samlokusalöt og einnig komu við sögu kartöflur og rauðmagi. Tónlist í þættinum í dag: Ég bið þig forláts / Raggi Bjarna (J.South og Iðunn Steinsdóttir) A ban I bin /Izhar, Cohen og Alpha Beta (Eurovision lag Ísraela 1978) OK / Langi Seli og Skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Skuggi og Erik Kvick) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

chicago south adhd bj franz fram hann gnarr akureyrar leikf franz g steinsd sigurlaugu margr
Mannlegi þátturinn
Björgvin Franz föstudagsgestur og áfram um samlokusalöt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 28, 2023


Björgvin Franz Gíslason leikari var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hann hefur komið víða við í skemmtanabransanum, hann sá um Stundina okkar í mörg ár, hann hefur auðvitað leikið í fjölda leiksýninga og í kvikmyndum og sjónvarpi, hann veislustýrir, syngur lögin hans Ragga Bjarna á öldrunarheimilum og nú síðustu ár hefur hann leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru hjá Leikfélagi Akureyrar. Í vetur hefur hann farið með stærsta karlhlutverkið í söngleiknum Chicago fyrir norðan og fékk frábæra dóma fyrir. Við ræddum við Björgvin Franz um lífið og tilveruna, ADHD, Jón Gnarr, Björn Hlyn, Ragga Bjarna og fleira og fleira. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað í þættinum. Í dag tókum við aftur upp þráðinn frá því í síðustu viku og héldum áfram að tala um samlokusalöt og einnig komu við sögu kartöflur og rauðmagi. Tónlist í þættinum í dag: Ég bið þig forláts / Raggi Bjarna (J.South og Iðunn Steinsdóttir) A ban I bin /Izhar, Cohen og Alpha Beta (Eurovision lag Ísraela 1978) OK / Langi Seli og Skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Skuggi og Erik Kvick) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

chicago south adhd bj franz fram hann gnarr akureyrar leikf franz g steinsd sigurlaugu margr
Papierstau Podcast
Folge 252: Island Spezial (Jón Gnarr, Auður Ava Ólafsdóttir, Gísli Sigurðsson)

Papierstau Podcast

Play Episode Listen Later Apr 5, 2023 43:37


In dieser Folge mit Jón Gnarr, Auður Ava Ólafsdóttir, Gísli Sigurðsson, Robin Jochensson, Anika Hansdóttir und Meike Alfredsdóttir: Eine Reportage aus dem literarischen Island! Papierstau Podcast on the road, präsentiert von unserer Steady-Community! Eure liebsten Podcastgesichter haben sich in ihre dicksten Parkas eingemummelt und sind ins Land der Sagas und Surrealist*innen gereist, um herauszufinden, warum es in Island die höchste Schriftsteller*innendichte der Welt gibt!

Papierstau Podcast
Folge 250: A Song of Ice and Land („Atomstation“ - Halldór Laxness, „Miss Island“ - Auður Ava Ólafsdóttir, „Der Outlaw“ - Jón Gnarr)

Papierstau Podcast

Play Episode Listen Later Mar 22, 2023 61:30


In dieser Folge mit Meike, Anika und Robin: „Atomstation“ von Halldór Laxness, „Miss Island“ von Auður Ava Ólafsdóttir und „Der Outlaw“ von Jón Gnarr. Euer Lieblingspodcast ist in Feierlaune! Das liegt nicht nur daran, dass wir heute die 250. Folge Papierstau zelebrieren, wir haben noch weitere spannende Neuigkeiten: Wenn diese Show online geht, sind wir unterwegs nach Island – mehr verraten wir im Vorgeplänkel!

Vikulokin
Arndís Anna, Elva Hrönn og Jón Gnarr

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 18, 2023 55:00


Sunna Valgerðardóttir ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingkonu Pírata, Elvu Hrönn Hjartardóttur, stjórnmálafræðing og fyrrverandi stjórnarkonu í VG, og Jón Gnarr, listamann og fyrrverandi borgarstjóra. Þau ræða um menningarnám, umdeilt útlendingafrumvarp, stjórnmálalandslagið, leikskólamál í borginni og gervigreind ef við getum. Tæknimaður er Davíð Berndsen.

krist vg arnd gunnarsd gnarr hjartard sunna valger dav berndsen
Vikulokin
Arndís Anna, Elva Hrönn og Jón Gnarr

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 18, 2023


Sunna Valgerðardóttir ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingkonu Pírata, Elvu Hrönn Hjartardóttur, stjórnmálafræðing og fyrrverandi stjórnarkonu í VG, og Jón Gnarr, listamann og fyrrverandi borgarstjóra. Þau ræða um menningarnám, umdeilt útlendingafrumvarp, stjórnmálalandslagið, leikskólamál í borginni og gervigreind ef við getum. Tæknimaður er Davíð Berndsen.

krist vg arnd gunnarsd gnarr hjartard sunna valger dav berndsen
Kvikmyndapod: An Icelandic Cinema Podcast

Halló! This week, Rob and Ellie return to Reykjavik and to the documentary format for Gaukur Úlfarsson's 'Gnarr', a film in which famous Icelandic comedian Jón Gnarr sets up a satirical political party and runs for Mayor of Reykjavík! Over the course of four months Gnarr transforms from joke candidate to favourite, and his outlook and intentions change too... The film can be found at dafilms.com.   Please subscribe/follow, rate and review on Spotify and Apple and Follow us on Twitter @KVIKMYNDAPOD and Instagram kvikmyndapod And if you fancy supporting us, why not sling us the cost of a coffee!   Artwork designed by Sophie Watts (justahappyspace)   Music by Branches Bare ('Half-light' from the EP 'In the Origami Folds of the Night You Rip the Seam of Sleep Wide Open)

Beint í bílinn
Beint í Bílinn - 108. Þáttur

Beint í bílinn

Play Episode Listen Later Aug 24, 2022 80:55


Rosa þáttur. P undir stýri, menningarnótt, Jón Gnarr hringdi í Pétur og datt í beina, ljóðahorn og jarðaför í rugli kaffi og hvað eina! Njótið

Tvíhöfði hlaðvarp
Sérstakur Júróvisjonþáttur Tvíhöfða fyrir sumarfrí

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later May 8, 2022


8. maí 2022 Tvíhöfði Umsjón: Sigurjón Kjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson

Tvíhöfði hlaðvarp
Tvíhöfði fer í sumarfrí, draugaþáttur

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 24, 2022


Tvíhöfði 24. apríl Umsjón: Sigurjón Kjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson

Tvíhöfði hlaðvarp
Tvíhöfði 17. apríl 2022

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 17, 2022


Tvíhöfði 17. apríl 2022 Umsjón: Sigurjón Kjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson

Tvíhöfði hlaðvarp
Tvíhöfði 10. apríl 2022

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 10, 2022


10. apríl 2022 Tvíhöfði Umsjón: Sigurjón Kjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson

Tvíhöfði hlaðvarp
Tvíhöfði - 03. apríl 2022

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 3, 2022


03. apríl 2022 Tvíhöfði Umsjón: Sigurkjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson

Tvíhöfði hlaðvarp
Tvíhöfði í síld og Fiski 20. mars 2022

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later Mar 20, 2022


Tvíhöfði 20. mars 2022 Umsjón: Sigirjón Kjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson

Tvíhöfði hlaðvarp
Tvíhöfði Líf 13. mars 2022

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later Mar 13, 2022


Tvíhöfði Líf 13. mars 2022 Umsjón: Sigurjón Kjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson

Tvíhöfði hlaðvarp
Tvíhöfði 6 mars 2022

Tvíhöfði hlaðvarp

Play Episode Listen Later Mar 6, 2022


Tvíhöfði 6 mars 2022 Umsjón: Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson og Þórður Helgi Þórðarson

FantasyGandalf
#5 - Jón Gnarr grátandi í síma og sexy saumakennari í Svíþjóð

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Mar 3, 2022 68:49


Simmi sjóðheitur að sunnan og er fjölkær bara annað orð yfir greddu ? Jón Gnarr hefur bara ekki heyrt frá forseta Úkraínu, eru fleiri hliðar á þessari innrás Rússa ? Mögnuð kerra til sölu og ölvun í verslun. Þetta, meira og enski boltinn í þætti vikunar. Góða hlustun !

Lestin
Eternals, Óorð Jóns Gnarr Wes Anderson og að snerta internetið 3

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 17, 2021 54:32


Við höldum áfram í leiðangri okkar að finna sjálft internetið, reynum að skilja hvernig það virkar og reynum að snerta það. Við höfum skoðað ljósleiðaranetið innanlands, snert sæstrenginn sem tengir ísland við umheiminn og í dag heimsækjum við gagnaver. Bókin Óorð er vissulega bók en hún er líka listi, settur saman af Jóni Gnarr yfir orð sem honum finnst af ýmsum ástæðum ?léleg?. Einhver orðanna eru að hans mati fúsk, önnur finnst honum hreinlega leiðinleg, en í öðrum tilfellum er hann hreinlega að berjast gegn því sem hann kallar kynjavanda íslenskunnar, og gildishlöðnum orðum yfir fólk, sjúkdóma og jafnvel dýr. Við kíkjum á tvær nýjar kvikmyndir. The French Dispatch sem er nýjasta mynd kvikmyndaleikstjórans Wes Anderson. Og Gunnar Ragnarsson kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar brýtur odd af oflæti sínu og fer kvikmyndina Eternals, en það er aðeins önnur Marvel-ofurhetjumyndin sem hann sér.

Karlmennskan
#55 „Já, þetta er varaliturinn hennar mömmu“ - Jón Gnarr

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Oct 8, 2021


„Ég hef alla tíð verið frekar ringlaður og svo er ég bullukollur og rugludallur. Ef það er einhver hæfileiki sem ég hef þá er það þvaður. Ég get þvaðrað endalaust.“ segir Jón Gnarr meðal annars í samtali sem átti að vera 30 til 45 mínútur um kallakalla og vináttu en leiddist út í 75 mínútna spjall um allskonar. Enda er ekki auðsótt að leiða samtal við Jón Gnarr inn á eina braut. Við ræðum um kallakallinn sem hefur stundum af honum völdin, hvernig það er að vera hvítur miðaldra karlmaður, afahlutverkið, foreldrahlutverkið, karllægni íslenskunnar, karlmennsku og upphandleggsvöða, móðurmissinn, borgarstjórnartímann og vináttu svo fátt eitt sé nefnt. Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Dominos, Veganbúðarinnar og The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja). Intro: Futuregrapher Outro: Jói P. og Króli - ON (instrumental)

Karlmennskan
#55 „Já, þetta er varaliturinn hennar mömmu“ - Jón Gnarr

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Oct 8, 2021


„Ég hef alla tíð verið frekar ringlaður og svo er ég bullukollur og rugludallur. Ef það er einhver hæfileiki sem ég hef þá er það þvaður. Ég get þvaðrað endalaust.“ segir Jón Gnarr meðal annars í samtali sem átti að vera 30 til 45 mínútur um kallakalla og vináttu en leiddist út í 75 mínútna spjall um allskonar. Enda er ekki auðsótt að leiða samtal við Jón Gnarr inn á eina braut. Við ræðum um kallakallinn sem hefur stundum af honum völdin, hvernig það er að vera hvítur miðaldra karlmaður, afahlutverkið, foreldrahlutverkið, karllægni íslenskunnar, karlmennsku og upphandleggsvöða, móðurmissinn, borgarstjórnartímann og vináttu svo fátt eitt sé nefnt. Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Dominos, Veganbúðarinnar og The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja). Intro: Futuregrapher Outro: Jói P. og Króli - ON (instrumental)

24/7
Jón Gnarr

24/7

Play Episode Listen Later May 4, 2021 119:04


Jón Gnarr er listamaður, grínisti, leikari og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur. Í þættum ræðir Jón um upprisuna sína í lífinu eftir erfiða æsku, hvernig grínið er kjarni í hver hann er, harkið sem fylgir því að vera leikari, trúleysi, kærleika, muninn á að segja og gera, umhverfismál, mikilvægi íslenskunnar og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/  

Segðu mér
Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 25, 2020 40:00


Þegar það var byrjað að brytja einhvern niður gat maður ekkert sofið. En þá sagði mamma: Þetta er bara tómatsósa,“ rifjar kvikmyndagerðarmaðurinn Gunnar Björn Guðmundsson upp um sérstakt kvikmyndauppeldi móður sinnar. Hann þakkaði móður sinni uppátækið með því að tileinka henni kvikmyndina Amma Hófí sem nú er í bíó. Gunnar hefur á gert um fjögur hundruð auglýsingar á ferlinum og margar eftirminnilegar. Meðal annars á hann, ásamt Óskari Þór Axelssyni leikstjóra, heiðurinn af því að klæða Jón Gnarr í latexbúning í auglýsingu fyrir Villikattarsúkkulaði frá Freyju. Sú var einmitt grafin upp þegar Jón gegndi embætti borgarstjóra Reykjavíkur og þótti sérstaklega kómísk í því samhengi. Þeir Gunnar og Óskar stofnuðu fyrirtækið Þeir tveir og nálguðust auglýsingar, sem þeir framleiddu fyrir hin ýmsu fyrirtæki við góðan orðstír, sem stuttmyndir. Hann vissi nefnilega strax á unglingsaldri að hann stefndi að kvikmyndagerð og hann hefur líka alla tíð verið mikill spéfugl. Gunnar er yngstur í fjölskyldunni og lagði hann sig alltaf mikið fram við að skemmta foreldrum sínum og fjölskyldu sem barn. Það lá því vel fyrir honum að leikstýra áramótaskaupinu, sem hann gerði fjögur ár í röð frá 2009-2012. Þá hafði hann sannað sig með því að gera hina geysivinsælu Astrópíu með Ragnhildi Steinunni í aðalhlutverki um konu sem fær vinnu í nördabúð og lærir hlutverkaspil. Um fimmtíu þúsund manns sáu Astrópíu í bíó.

Vikulokin
Bjarki Karlsson, Eiríkur Bergmann og Margrét Kristín Blöndal

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 17, 2018 55:00


Gestir þáttarins eru Bjarki Karlsson, Eiríkur Bergmann og Margrét Kristín Blöndal. Rætt um Brexit og bresk stjórnmál, þriðja orkupakkann, stöðu íslenskunnar, húsnæðismarkað og Banksy-verk Jóns Gnarr. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson