Podcasts about birta

  • 43PODCASTS
  • 243EPISODES
  • 57mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jun 14, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about birta

Latest podcast episodes about birta

Heimskviður
225 - 80 ár frá komu Esju hingað til lands

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jun 14, 2025 40:54

Í sumar verða 80 ár liðin frá komu farþegaskipsins Esju hingað til lands, fyrstu ferð skipsins hingað með farþega eftir síðari heimsstyrjöld. 300 manns voru um borð í skipinu og sjaldan hafa fleiri beðið á hafnarbakkanum eftir komu eins skips eins og 9.júlí árið 1945. Þarna um borð voru fjölmargar sögur. Jóhann Svarfdælingur sneri þarna heim eftir starfsferil í sirkusum víða um Evrópu, rúmir tveir metrar og þrjátíu sentimetrar á hæð. Svo var líka um borð líkið af Guðmundi Kamban rithöfundi sem var skotinn til bana af dönskum andspyrnusveitum tveimur mánuðum fyrr. Og tónskáldið Jón Leifs sem er svelti sig í sólarhing um borð í skipinu í mótmælaskyni svo fáir einir séu nefndir. Þá eru ótaldir þeir sem komust ekki á áfangastað. Fimm manns voru handteknir og fluttir frá borði af Bretum sem voru á höttunum eftir öllum sem höfðu veitt Nasistum liðveislu með einum eða öðrum hætti. Birta og Brynja Björnsdætur fjalla um Esjuferðina.

Podcast með Sölva Tryggva
Brot af því besta: Steindi Jr., Ingó Veðurguð og María Birta

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later May 2, 2025 86:58

https://solvitryggva.is/ Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/ Biofit - https://biofit.is/

Teboðið
#285 - Kris Jenner skólastjóri?

Teboðið

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025 49:09

ef stjörnurnar væru ekki stjörnur... hvað væru þau þá að gera?  Sjáið þið ekki fyrir ykkur.. Birta prestur og Sunneva hárhundasnyrtir!  Þátturinn er í boði:  Bestís & MINI Bestís

Teboðið
#284 - Keeping up with us

Teboðið

Play Episode Listen Later Apr 2, 2025 69:10

R Yitzchak Shifman Torah Classes
Taanit 24a- RY D'min Yukrat and Elazar Ish Birta (KH)

R Yitzchak Shifman Torah Classes

Play Episode Listen Later Mar 18, 2025 17:39

Greatness of RYdMY as evidenced in Hashem protecting via even his donkey, Elazar Ish Birta's exreme generosity and disinterest in benefitting from "ma'aseh nissim"

Teboðið
#280 - Birta b-day bestie

Teboðið

Play Episode Listen Later Mar 3, 2025 70:27

Húúún á afmælií DAAAAG!

Mannlegi þátturinn
Nýtt merki fyrir kynhlutlaust rými, fjárhagslegt uppeldi og Birta lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 3, 2025 52:13

Samtökin '78, Félag íslenskra teiknara og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs standa nú fyrir samkeppni um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa, sturtuaðstöðu o.fl. Fimm ár eru liðin frá því að lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt og Ísland er fremst í flokki hvað varðar lög sem þessi. Hins vegar er vandað og skýrt tákn fyrir kynhlutlaus rými enn ekki til. Samtökin '78 fá margar fyrirspurnir frá fyrirtækjum og stofnunum varðandi táknnotkun, bæði hérlendis og erlendis frá. Anton Jónas Illugason, formaður Félags íslenskra teiknara og Magnús Bjarni Gröndal rekstrarstjóri samtakanna 78 komu í þáttinn í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, var hjá okkur í dag eins og undanfarna mánudaga með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn ætlar hann að velta fyrir sér fjárhagslegu uppeldi og koma með einhver góð ráð í þeim málum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Birta Björnsdóttir fréttakona, hún setti sér markmið fyrir nokkrum árum að lesa visst margar bækur á ári, en þurfti svo aðeins að endurskoða þau markmið. Við heyrðum betur af því og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birta talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Líkami okkar, þeirra vígvöllur e. Christinu Lamb Sjö fermetrar með lás e. Jussi Adler Olsen Bókasafn föður míns e. Ragnar Helga Ólafsson Isabel Allende, og Hús andanna Einar Kárason, Óvinafögnuður, Killiansfólkið, Djöflaeyjan og Gulleyjan. Tónlist í þættinum í dag: Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Andrea Gylfadóttir) Svarthvíta hetjan mín / Dúkkulísur (Gréta Jóna Sigurjónsdóttir) Hún ógnar mér / Flott (Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn
Birta Líf um skógareldana í Los Angeles, raforkuverð til garðyrkjubænda og strandveiðar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 10, 2025 20:00

Í Los Angeles eru heilu hverfin rjúkandi rústir og önnur standa enn í björtu báli í ógnarmiklum skógar- og gróðureldum sem færast enn í aukana. Minnst tíu hafa látið lífið í eldunum, tugir þúsunda hafa misst heimili sín, hátt í tvö hundruð þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín og hundruð þúsunda hafa fengið tilmæli um að búa sig undir að þurfa að flýja með litlum fyrirvara. Ævar Örn Jósepsson tekur við og ræðir við Birtu Líf Kristinsdóttur veðurfræðing. Talsvert hefur verið fjallað um raforkuverð til garðyrkjubænda, það hækkaði um fjórðung um áramótin og Axel Sæland, formaður þeirra , spáði því í nóvember að verð á íslensku grænmeti gæti hækkað um 12 prósent í framhaldinu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við sveitarstjóra Bláskógabyggðar og framkvæmdastjóra Friðheima. Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda telur að í ljósi reynslunnar gæti þurft um 14.000 tonn til að uppfylla þörfina í 48 daga strandveiðivertíð. Þau ár sem sá dagafjöldi var leyfður hafi sjósóknin verið um 26 dagar að meðaltali. Líta ætti á breytt strandveiðkerfi sem tilraun til næstu fimm ára og meta að því loknu áhrif þess á þorskstofninn.

Teboðið
#270 - Aðfangadagur '24 ❄⛄

Teboðið

Play Episode Listen Later Dec 24, 2024 49:13

Gleðileg jól kæru Teboðs besties!

Heimskviður
204 - Fjaðrastelandi flautuleikarinn

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 21, 2024 46:00

Tvítugur flautuleikari braust inn í náttúruminjasafn í Bretlandi og stal þaðan fjöðrum og fuglshömum af útdauðum fuglum. Þeir voru úr 150 ára gömlu safni manns sem nefndur er faðir lífeðlisfræðinnar. Ránsfenginn ætlaði flautuleikarinn að selja fluguhnýtingarmönnum um heim allan. Úr varð ein undarlegasta glæpasaga síðari tíma. Birta skoðaði málið og ræddi við Kirk Wallace Johnson, bandarískan rithöfund sem skrifaði bók um þessa merkilegu sögu. Þá er einnig rætt við Sigþór Stein Ólafsson, laxveiðileiðsögumann og umsjónarmann hlaðvarpsins Hylurinn.

Víðsjá
Reykjavík Dance Festival /Ólöf Ingólfsdóttir, Birta Ásmundsdóttir, Listdans á Íslandi/Ingibjörg Björnsdóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 12, 2024 51:50

Reykjavík Dans Festival hefst með pompi og prakt á morgun, miðvikudag, og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin var stofnuð árið 2002 og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af hápunktum menningarársins. Síðastliðin ár hefur reykjavík dance festival tengt sig við Lókal svo úr hefur orðið ein allsherjar sviðlistahátíð. Við tökum forsmekk á sæluna í þætti dagsins sem verður undirlagður undir dans. Listdans á sér rúmlega hundrað ára sögu á Íslandi, og nú gefst unnendum og áhugasömum tækifæri til að lesa um sögu danslistarinnar í glænýrri og veglegri bók sem ber titilinn Listdans á Íslandi. Þar rekur Ingibjörg Björnsdóttir, dansari, danshöfundur og sagnfræðingur, sögu þeirra sem ruddu braut listdansins hér á landi á síðustu öld og segir frá stofnun og starfsemi Listdansskóla Þjóðleikhússins. Saga Íslenska dansflokksins, barátta hans, andstreymi og sigrar, er síðan meginefni bókarinnar. Ingibjörg segir söguna af innsæi og þekkingu, enda sjálf þátttakandi í sögu danslistar á Íslandi í sjötíu ár, og hún lítur við í hljóðstofu í lok þáttar. Við hugum líka að tveimur nýjum dansverkum sem frumsýnd verða á hátíðinni, When a duck turns 18 a boy will eat her, eftir Birtu Ásmundsdóttur og Eitthvað um skýin, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Birta rannsakar mörk kvenleikans með hjálp anda. Hugmyndin kviknaði í París, þar sem Birta, á ferð sinni ein um götur borgarinnar, upplifði hvernig karlmenn horfðu á hana á annan hátt en á Íslandi, og hvað það gat verið þreytandi. Í verkinu Eitthvað um skýin veltir Ólöf Ingólfsdóttir fyrir sér eðli og fjölbreytileika tilfinninga, sem svífa um vitundina og eins og ský yfir himininn. Verkið fléttar saman barokksöng og samtímadansi og markmiðið er að sögn höfundar að heiðra tilfinningar í öllum sínum myndum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Petőfi Rádió Podcast
Kultúrfitnesz - Birta Miklós • Jazz zenész, gitáros • 2024/10/21

Petőfi Rádió Podcast

Play Episode Listen Later Oct 28, 2024 27:39

Facebook: www.facebook.com/petofiradio/ Instagram: www.instagram.com/petofiradio/

Teboðið
#258 - Celebs Spotted in London

Teboðið

Play Episode Listen Later Oct 2, 2024 68:49

LONDON BABY!  smá ferðasögu þáttur með því góða mómenti þegar Birta hitti her celeb bday twin!  Þátturinn er í boði:  Nettó  Coca - Cola Gina Tricot  Happy Hydrate  Blush - Kóðinn okkar: tebodid gefur ykkur 15% af jóladagatalinu!  Eleven & K18 Netgíró Bestís

Heimskviður
191 - Konurnar í Afganistan og þrítugir Vinir

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 21, 2024 46:27

Það er sem betur fer ekki víða í heiminum sem konum er bannað með lögum að tala og syngja á almannfæri. En þannig er staðan í Afganistan, nú rétt rúmum þremur árum eftir valdatöku talibana. Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um stöðu kvenna í Afganistan sem versnar með hverjum deginum. Hún ræðir meðal annars við Írisi Björgu Kristjánsdóttur sem nýverið sat fund með konum frá Afganistan, konum sem nú hefur verið bannað að tala á almannafæri en berjast fyrir betri framtíð fyrir sig og dætur sínar. Á morgun, 22. september, eru 30 ár síðan fyrsti þátturinn af gamanþáttaröðinni Friends var sendur úr á NBC sjónvarpsstöðinni. Í vor voru 20 ár síðan lokaþátturinn fór í loftið, nánar tiltekið þann 6.maí. Friends eru enn þann dag í dag einir vinsælustu sjónvarpsþættir sögunnar og áhorfið á þá á streymisveitum mikið og stöðugt enn þann dag í dag. Þrátt fyrir vinsældirnar er deilt um það hvort þeir standist tímans tönn. Þá er það aðallega hvernig fjallað var um transfólk og samkynhneigð í þáttunum, en einnig hversu skjannahvít ásjóna þáttanna var. Birta segir okkur nú sögu Friends.

Bundáskenyér - ÉrdFM 101.3
2024.09.06. - Bundáskenyér - Birta Mikivel igenis lehet beszélgetni a zenéről.

Bundáskenyér - ÉrdFM 101.3

Play Episode Listen Later Sep 6, 2024 49:19

Birta Miki volt a vendégünk.

Heimskviður
188 - Sumar stórtíðinda í Bandaríkjunum og umhverfisáhrif Ólympíuleikanna

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 31, 2024 40:40

Sjötta þáttaröðin af Heimskviðum hefst með samantekt á afar viðburðaríku sumri í Bandarískum stjórnmálum. Á einungis tæpum tveimur mánuðum hefur einum forsetaframbjóðanda verið sýnt banatilræði og tveir hafa dregið framboð sín til baka. Birta og Bjarni Pétur fara yfir atburðarásina og spá í framhaldið. Þá skoðar Arnar Björnsson umhverfisáhrif Ólympíuleikanna, kostnaðinn við að halda slíka leika og hvernig frágangi er háttað eftir stórmót sem þessi.

sj sumar bandar inda birta bjarni p heimskvi
Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Glæpagengi í Mexíkó og meint þjóðarmorð á Grænlandi

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 24, 2024 39:11

Við ætlum að byrja í Mexíkó. Þú ræddir í vetur Birta við Azam Ahmed, blaðamann á New York Times, í vetur um bók sem hann skrifaði um sögu Miriam Rodríguez. Hún er frá Mexíkó og dóttur hennar var rænt og hún drepin af mönnum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum. Hún ákvað að taka málin í sínar hendur og við fjölluðum um sögu hennar en einnig miklum áhrifum glæpagengja í Mexíkó. Þó einhver árangur hafi náðst í að draga úr áhrifum þeirra eru skipulögð glæpasamtök fimmti stærsti atvinnurekandinn í Mexíkó. Um 175 þúsund eru talin starfa innan þeirra vébanda. Dönsk stjórnvöld komu getnaðarvarnarlykkjunni fyrir í líkömum kvenna og stúlkna á Grænlandi, án vitundar þeirra, til að hægja á fólksfjölgun og var tilrauninni lýst sem vel heppnaðri. Formaður mannréttindaráðs Grænlands segir mikilvægt að rannsaka málið ofan í kjölinn og skera úr um hvort þessi mannréttindabrot beri að skilgreina sem þjóðarmorð. Sumar stúlknanna hafi aðeins verið ellefu ára gamlar. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallaði um eitt umdeildasta mál sem hefur komið þar upp í langan tíma.

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Týndu börnin í tónlistarmyndbandinu og örlög Duffy

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 10, 2024 45:21

Árið 1993 kom út tónlistarmyndband við lagið Runaway Train með bandarísku hljómsveitinni Soul Asylum. Í myndbandinu voru sýndar myndir af börnum sem lýst hafði verið eftir. Mörg þeirra gáfu sig fram í kjölfar sýningar myndbandsins auk þess sem vinsældir myndbandsins skiluðu því að vitað varð um afdrif margra barnanna til viðbótar. Birta fjallaði um þetta áhrifaríka tónlistarmyndband og tók viðtal við söngvara Soul Asylum, Dave Pirner. Við rifjuðum líka upp örlög söngkonunnar Duffy í vetur. Duffy, sem þekktust er fyrir lag sitt Mercy, virtist hafa horfið nær alveg úr sviðsljósinu aðeins örfáum árum eftir að ferill hennar sprakk út fyrir um fimmtán árum. Það sem enginn vissi, og hún opinberaði mörgum árum síðar, var að hún varð fyrir grimmilegri frelsisviptingu og kynferðisofbeldi um nokkurra vikna skeið af. Þessi ömurlega lífsreynsla hafði þau áhrif á Duffy að hún lokaði sig af og það tók hana um áratug að ná bata. Oddur Þórðarson fjallaði um málið.

Heimskviður
Sumar-Heimskviður / Stríð vegna vatns og Óperudraugurinn

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jun 15, 2024 41:08

Í Sumar-Heimskviðum rifjum við upp efni út þáttum vetrarins og búum til nýja þætti úr áður fluttu efni okkar. Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatns. Gæti það gerst í náinni framtíð? Ólöf Ragnarsdóttir leitaði svara við því. Þegar ellefu hljóðfæraleikarar tóku að sér hlutverk í hljómsveitinni fyrir söngleikinn um óperudrauginn á Broadway árið 1988 grunaði þá líklega fæsta að þarna væri ævistarfið komið. Þrjátíu og fimm árum, og hátt í fjórtán þúsund sýningum síðar, var komið að lokasýningunni. Þetta var í apríl í fyrra. Vinsældir söngleikja eru stundum samofnar því sem er að gerast í samfélaginu. Til dæmis þótti söngleikurinn Mamma Mia kærkominn þegar hann var frumsýndur í New York stuttu eftir hryðjuverkaár ásirnar þar í borg. Birta skoðaði sögu söngleikja, ástæður vinsælda þeirra og framtíðarhorfur.

Teboðið
#241 - Ofurkonur!

Teboðið

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 66:22

WHO RUN THE WORLD?  Let's goooo með þessa bestu girl power orku sem er í gangi!!    Þátturinn er í boði:  Beautyklúbburinn Netgíró Blush Eleven Austraila & K18 Reykjavík Foto Serrano

birta who run the world
Segðu mér
Elli Egilsson Fox myndlistarmaður og María Birta Bjarnardóttir Fox leikkona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jun 4, 2024 38:51

Podcast með Sölva Tryggva
María Birta með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jun 2, 2024 140:56

Nálgast má þáttinn án auglýsinga í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ María Birta Bjarnadóttir leikkona hefur gert ótrúlega margt þó að hún sé rétt rúmlega þrítug. 16 ára gömul var hún byrjuð með netverslun og 19 ára velti hún 10 milljónum á mánuði í versluninni Maniu á Laugavegi. Skömmu síðar var hún búin að vinna Edduverðlaunin sem leikkona og þá var ekki aftur snúð og hún flutti til Bandaríkjanna, þar sem hún vinnur nú að fjölmörgum verkefnum. Hér ræða María og Sölvi um lygilegan feril Maríu, sálufélaga, sorgina eftir dauðsföll í fallhlífarstökk og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/ Holistic - https://holistic.is/

Samfélagið
Ný umferðarmerki, líffræðinemar á Madagaskar, málfar, upptaka úr safni útvarpsins

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 27, 2024 59:10

Við ætlum að ræða umferðarmerki, í vor tók gildi ný reglugerð um slík merki- þetta eru tímamót enda hefur reglugerðinni ekki verið breytt í tæp 30 ár. Merkin eru nú flokkuð með nýjum hætti, sjötíu merki hverfa á braut og á fimmta tug nýrra bætist við - t.d. merki um að kanínur geti verið á ferli við veginn. Einar Pálsson, forstöðumaður Vegaþjónustudeildar vegagerðarinnar, ræðir við okkur um nýju reglugerðina. Svo símum við alla leið til Madagaskar sem er eins og margir hlustendur vita, eyja við austurströnd Afríku. Þar er Ingi Agnarsson prófessor dýrafræði við Háskóla Íslands í umfangsmikilli námsferð og rannsóknarleiðangri með um 30 líffræðinemum sem eru að kynna sér fjölbreytt lífríki eyjunnar, sem er einstakt. Við sláum á þráðinn til hans á eftir. Við heyrum líka eina málfarsmínútu og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV til okkar í lok þáttar með upptöku úr safni útvarpsins. Tónlist: Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta. THE HOUSEMARTINS - Build. Hjálmar - Skýjaborgin.

Teboðið
#239 Birta á tene, væri klamedía fallegt nafn?

Teboðið

Play Episode Listen Later May 22, 2024 56:21

Birta tenefari segir okkur ferðasöguna! & svo fórum við að ræða nöfn, eða hvaða orð gætu verið falleg nöfn?   Þátturinn er í boði: Beautyklúbburinn Netgíró Blush Eleven Austraila & K18 Reykjavík Foto Serrano

Heimskviður
184 - Gleymda stríðið og fegurðarsamkeppnir

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 18, 2024 45:22

Stríðið í Súdan er stundum kallað gleymda stríðið en áralöng átök hafa valdið því að stór hluti súdönsku þjóðarinnar er á barmi hungursneyðar. Ógnarmargir íbúar þessa þriðja stærsta lands Afríku er á flótta en það hafa aldrei áður verið jafn margir á flótta innan eigin lands á heimsvísu. Það eru alls um 75,9 milljónir jarðarbúa og talsvert hefur fjölgað í þessum hópi undanfarið ár. Aukningin skrifast fyrst og fremst á tvennt, stórauknar árásir Ísraelshers á Gaza-ströndina síðan síðasta haust og svo borgarastríð í Súdan sem staðið hefur yfir í heilt ár. Birta kynnti sér átökin og talaði við Adjaratou Fatou Ndiaye, sem er sendifulltrúi UN Women í Súdan. Svo fjöllum við um fegurðarsamkeppnir. Það kom á óvart og vakti mikla athygli þegar sigurvegarar tveggja fegurðarsamkeppna í Bandaríkjunum sögðu sig frá hlutverkinu með aðeins nokkurra daga millibili. Þessar afsagnir hafa leitt af stað umræðu um vinnuumhverfið sem stúlkunum er boðið upp á á vegum fyrirtækisins Miss Universe, sem rekur báðar keppnirnar. Ásakanir hafa komið fram um að konunum sé bannað að tala um ákveðna hluti, stjórnun innan fyrirtækisins sem reki fegurðarsamkeppninnar sé afar ábótavant og að þar séu jafnvel sýndir eineltistilburðir. Hallgrímur Indriðason fer yfir þetta allt með góðri aðstoð konu með reynslu úr þessum heimi, Elísu Gróu Steinþórsdóttur.

Teboðið
#227 - BIRTA B-DAY BESTIE

Teboðið

Play Episode Listen Later Mar 3, 2024 74:48

Heimskviður
174 - Stríð vegna vatns og hvarf flugvélar Malaysian Airlines

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 2, 2024 44:28

Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatns. Gæti það gerst í náinni framtíð? Ólöf Ragnarsdóttir reynir að svara því. Í næstu viku verða tíu ár liðin frá því að flugvél Malaysian Airlines hvarf af ratsjám á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking. Og hún hvarf ekki bara af ratsjám, lítið sem ekkert hefur fundist af vélinni síðan og ófáar kenningar um hvað þarna gerðist. Birta kafaði ofan í þessa dularfullu sögu.

Heimskviður
165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023

Ein helsta sérstaða fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn er gatan Pusherstræti, þar sem lengi fór fram sala á hassi fyrir opnum tjöldum án verulegra afskipta yfirvalda. Undanfarin ár hafa yfirvöld haft sífellt meiri afskipti af Pusherstræti og nú bendir allt til þess að þessi kannbissala hætti alfarið. Hallgrímur Indriðason skoðar hvað skýrir þessa breytingu og hvaða áhrif hún hefur á þróun og tilvist fríríkisins. Eins og staðan er núna er líklegast að tvö afar kunnugleg nöfn standi á kjörseðli Bandaríkjamanna á næsta ári þegar velja á nýjan forseta.En nýr verður forsetinn kannski ekki því flest bendir til þess að þeir Joe Biden og Donald Trump berjist aftur um búsetu í Hvíta húsinu næstu fjögur árin. En hvernig má það vera að í þessu fjölmenna og stóra landi standi valið aftur á milli núverandi forsetans, sem er nú þegar orðinn sá elsti til að gegna embættinu og þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum vilja ekki að bjóði sig aftur fram. Hinn valkosturinn er svo fyrrum forsetinn sem hefur verið í fullri vinnu síðan hann lét af embætti að svara fyrir ýmsar sakir í dómssölum. Eða eru þeir tveir kannski bara best til þess fallnir að stýra landinu? Birta og Bjarni Pétur spá í spilin nú þegar ár er til kosninga þar vestra. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum

Heimskviður

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023 40:00

#211 - Step Brothers

Teboðið

Play Episode Listen Later Oct 31, 2023 57:14

Happy Halloween besties!! Þátturinn í dag er í stjórn Brennan & Dale.. Birta og Sunneva eru í fríi..    Þátturinn er í boði: Real Techniques   Laugar Spa - https://worldclass.is/organic-skincare/ Beautyklúbburinn Blush - www.blush.is

Heimskviður
156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 30, 2023

Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Robert Fico sem hrökklaðist úr embætti fyrir fimm árum, geti núna komist aftur til valda, og jafnvel tekið með sér öfgahægriflokka í samsteypustjórn. Í kosningabaráttunni hefur Fico ítrekað tekið upp málstað Rússa gagnvart Úkraínu og margt bendir til þess að utanríkisstefna Slóvaíku gæti tekið afdrifaríkum breytingum og jafnvel rofið skarð í samstöðu aðildarríkja Evrópusambandsins gagnvart innrás Rússa í Úkraínu. Kosningabaráttan í Slóvakíu hefur einnig markast af því sem kallað hefur verið upplýsingaóreiða - hundruð netmiðla í landinu pumpa út fölskum upplýsingum, og upplognum sögum og samsæriskenningum sem til dæmis styðja málstað Rússa. Margir leiðtogar stjórnmálaflokka hafa gripið þessar sögur á lofti og blásið þær upp - ekki síst vegna þess að stór hluti kjósenda er móttækilegur. Björn Malmquist hefur verið að fylgjast með kosningabaráttunni í Slóvakíu. Í vikunni voru frumsýndir í Bretlandi nýjir þættir sem fjalla um leit af raðmorðingja á áttunda áratugnum, leit sem er ein sú tímafrekasta og dýrasta í sögu lögreglunnar í Bretlandi. Þrátt fyrir ómælda vinnu lögreglunnar hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í þessu máli, að hafa ekki tekið raðmorðingjann úr umferð fyrr. Hann var kallaður til yfirheyrslu níu sinnum á þeim fimm árum sem rannsóknin stóð yfir. Og það er ekki það eina sem lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir í þessu máli eins og við heyrum hér á eftir og rannsóknaraðferðum í Bretlandi var breytt eftir niðurstöðu skýrslu sem rannsakaði vinnubrögð lögreglu í þessu máli. Birta kynnti sér málið. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 30, 2023 40:00

María Birta (brot af því besta)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Sep 21, 2023 28:47

Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ María Birta Bjarnadóttir leikkona hefur gert ótrúlega margt þó að hún sé rétt rúmlega þrítug. 16 ára gömul var hún byrjuð með netverslun og 19 ára velti hún 10 milljónum á mánuði í versluninni Maniu á Laugavegi. Skömmu síðar var hún búin að vinna Edduverðlaunin sem leikkona og þá var ekki aftur snúð og hún flutti til Bandaríkjanna, þar sem hún vinnur nú að fjölmörgum verkefnum. Hér ræða María og Sölvi um lygilegan feril Maríu, sálufélaga, sorgina eftir dauðsföll í fallhlífarstökk og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/

Being and Doing
Being Human and Doing Psychotherapy| Episode 32: Aleksandra Birta Ilić o roditeljstvu i preduzetništvu

Being and Doing

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023 102:22

Being Human and Doing Psychotherapy je podkast koji otkriva ljude u psihoterapeutima i psihoterapeute u ljudima. Kojom god da se profesijom bavimo mi u nju najpre ulazimo sa našom ljudskošću i punoćom celog bića. Kroz ovaj podkast sa radoznalošću istražujem koji su to “tajni sastojci” raznih psihoterapeutskih pravaca i kako se oni integrišu kroz specificne zivotne i ljudske priče terapeuta koji ih praktikuju i žive. Za sve linkove ka ovom podkastu: Linktr.ee: https://linktr.ee/being_and_doing Jednokratne donacije kanalu: ⁠ https://paypal.me/beinganddoing Za informacije o radu sa mnom posetite https://www.instagram.com/aleksandra.... Ovaj podkast predstavlja lične stavove i mišljenja mojih gostiju i mene. Sadržaj ovde ne treba shvatiti kao medicinski ili psihološki savet. Sadržaj je namenjen u informativne svrhe, a kako je svaka osoba jedinstvena, konsultujte odgovarajućeg stručnjaka za sva konkretna pitanja koja imate. Hvala što ste mi se pridružili na ovom putovanju. S'ljubavlju, Aleks

Heimskviður
154| Náttúruhamfarir í Afríku, kosningar í Póllandi og Novo Nordisk

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 16, 2023 40:00

Í Heimskviðum í dag förum við víða eins og venjulega, náttúruhamfarir í Afríku, pólitík í Póllandi og fjöllum svo um verðmætasta fyrirtæki Evrópu. Íbúar Norður-Afríku máttu þola tvenns konar náttúruhamfarir á þremur dögum um síðustu helgi. Mikið manntjón varð eftir jarðskjálfta í Marokkó og flóð í Líbíu og íbúar kvarta undan því að neyðaraðstoð berist ekki nógu hratt. Bjarni Pétur ræddi við Jóhann Thoroddsen sálfræðing sem fór á vettvang jarðskjálftanna í Bam í Íran í byrjun aldarinnar og svo aftur á Haítí. Og hann þekkir vel þessa vinnu sem fer af stað þegar svona hamfarir verða, hvernig unnið er úr áföllunum og hvernig líðan fólks við þessar aðstæður. Við fjöllum um verðmætasta fyrirtækið í Evrópu. Það er danskt en er þó hvorki LEGO né Carlsberg. Það heitir Novo Nordisk og hagvöxtur danska ríkisins var á fyrri helmingi ársins keyrður áfram á þessu eina fyrirtæki. Fyrirtæki sem er metið með hærra markaðsvirði en heildarvirði danska hagkerfisins. Birta kynnti sér sögu Novo Nordisk. Svo förum við til Póllands. Vaxandi skautun og óvægin umræða um pólitíska andstæðinga einkennir kosningabaráttuna í Póllandi, þar sem þingkosningar verða haldnar fimmtánda október. Stjórnarflokkurinn, sem á pólsku kallast Lög og réttlæti, hefur verið við völd frá 2015. Nái flokkurinn aftur meirihluta, yrði það í fyrsta skipti síðan 1989, þegar kommúnistar létu af völdum í Póllandi, að sami flokkur haldi um stjórnartaumana þrjú kjörtímabil í röð. Það verður spennandi að sjá hvort það takist því skoðanakannanir benda til þess að stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Borgaravettvangur - gæti unnið nauman sigur og mögulega púslað saman meirihlutastjórn með smærri flokkum. Björn Malmquist, fréttaritari RÚV í Brussel, var í Póllandi á dögunum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
154| Náttúruhamfarir í Afríku, kosningar í Póllandi og Novo Nordisk

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 16, 2023

151| Áhrif kjarnorkusprengjunnar og arfleifð Megan Rapinoe

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 26, 2023 40:00

Bíóaðsókn fór fram úr björtustu vonum í sumar þegar fólk víða um heim flykktist í kvikmyndahús til að sjá bæði Barbie, sem við heyrðum í áðan og svo myndina um ævi og uppfinningar Oppenheimers, föður kjarnorkusprengjunnar. Myndin hverfist um eðlisfræðinginn J. Robert Oppenheimer, sem fór fyrir Manhattan-verkefni Bandaríkjastjórnar. Myndinni verður ekki spillt þó að hér sé sagt, að ætlunarverkið tókst ? kjarnorkusprengjan leit dagsins ljós. Og við erum ekki að skemma fyrir neinum þó rakinn sé sá hryllingur sem beið íbúa Hiroshima og Nagasaki, skömmu síðar. Það er vegna þess, að það er alls ekkert rakið í myndinni. Sennilega er það ástæðan fyrir því að stórmyndin Oppenheimer hefur ekki enn verið frumsýnd í Japan og verður það mögulega aldrei. Japanar eru margir óánægðir með hve lítið myndin fjallar um þær hörmungar sem Bandaríkjamenn ollu með kjarnorkuvopnum sínum. Það fór líka fyrir brjóstið á þeim þegar Oppenheimer var auglýst samhliða Barbie, þá af miklum gáska og húmor. Frásagnir eftirlifenda frá Hiroshima og Nagasaki, þeirra einu sem þekkja áhrif kjarnavopna á eigin skinni, eru enda ekkert til að hlæja að eins og við heyrum í þessari umfjöllun Odds Þórðarsonar. Heimsmeistaramótið í knattspyrnu kláraðist síðastliðinn sunnudag þegar Spánverjar unnu Englendinga. Þær spænsku tóku við keflinu af bandaríska liðinu sem vann mótið í síðustu tvö skipti þar á undan. Þótt bandaríska liðið hafi ekki riðið eins feitum hesti frá þessu heimsmeistaramóti var athyglin, eðli málsins samkvæmt, á þeim framan af móti, bæði vegna gengis á síðustu tveimur heimsmeistaramótum og vegna þess að þeirra skærasta stjarna undanfarin ár, Megan Rapinoe, boðaði fyrir mótið að það yrði hennar síðasta. Birta kynnti sér afrek og arfleifð Megan Rapinoe. Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
151| Áhrif kjarnorkusprengjunnar og arfleifð Megan Rapinoe

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 26, 2023

#200 - Bullshitcracken

Teboðið

Play Episode Listen Later Aug 16, 2023 74:15

ÞÁTTUR 200!!  HVAÐA RUGL ER ÞAÐ!!  Bullshitcracken er viðeigandi fyrir þennan þátt því hann er algjör vitleysa í kjölfar af stórum mistökum sem Birta gerði...  Þátturinn er í boði: Real Techniques Laugar Spa - https://organicskincare.is/ Beautyklúbburinn

Helgaspjallið
Þáttur 147 - Birta Björnsdóttir varafréttastjóri RÚV um Úkraínustríðið og fleira á mannamáli

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jul 3, 2023 79:15

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1 Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Birta Björnsdóttir á nokkra mjög flotta titla innan RÚV, hún er varafréttastjóri, yfirmaður erlendra frétta og þið þekkið hana eflaust mörg frá hlaðvarpinu Heimskviður. Hún er fyrst og fremst klár en einnig með þæginlegustu rödd til að hlusta á. Við ákváðum að fara yfir mál sem við þekkjum öll og teygjum okkur í ýmsar trjágreinar tengdar Úkraínustríðinu. Það er erfitt að gera sér hugarlund að þetta sé í gangi en Birta brýtur málið örlítið niður ásamt nýjum tíðindum í tengslum við Wagner hópinn. Við förum einnig yfir starf hennar sem fréttakona og gefur okkur innsýn inní ábyrgðarfullt hlutverk hennar. Við tölum líka örlítið um hvað Josh Harnett var sætur, en til að ná því samhengi þá býð ég ykkur bara að njóta þáttarins. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Heimskviður
150 | Mansal og söngleikir

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jun 3, 2023 40:00

Mansal og söngleikir eiga fátt ef nokkuð sameiginlegt, kannski annað en það en að vera umfjöllunarefni þáttarins í dag. Evrópulögreglan, Europol, greindi frá því í fyrradag að rúmlega 200 hafi verið handtekin í aðgerð gegn skipulögðum glæpahópum sem tengjast mansali. Um 13 þúsund lögreglumenn leituðu í fjörutíu og fjórum löndum, í íbúðarhúsum, lestarstöðvum, flugvöllum og víðar. Rúmlega 14 hundruð mögulegum fórnarlömbum mansals var bjargað. Flest þeirra voru börn. Ólögráða börn eru þolendur mansals. Þau eru seld mansali til kynlífsmisnotkunar og neydd til að betla eða fremja margskonar glæpi. Arnar Björnsson fjallar um málið. Þegar ellefu hljóðfæraleikarar tóku að sér hlutverk í hljómsveitinni fyrir söngleikinn um óperudrauginn á Broadway árið 1988 grunaði þá líklega fæsta að þarna væri ævistarfið komið. Þrjátíu og fimm árum, og hátt í fjórtán þúsund sýningum síðar, var komið að lokasýningunni. Þetta var í apríl. Vinsældir söngleikja eru stundum samofnar því sem er að gerast í samfélaginu. Til dæmis þótti söngleikurinn Mamma Mia kærkominn þegar hann var frumsýndur í New York stuttu eftir hryðjuverkaárásirnar þar í borg. Birta skoðaði sögu söngleikja, ástæður vinsælda þeirra og framtíðarhorfur. Umsjónarmenn þáttarins eru: Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Heimskviður
150 | Mansal og söngleikir

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jun 3, 2023

#188 - Where is Britney?

Teboðið

Play Episode Listen Later May 24, 2023 47:26

Ræðum aðeins það sem allir eru að pæla í!!  HVAR ER BRITNEY SPEARS????? HVAÐ ER Í GANGI ??  Við erum sjálfar mjög confused með þetta og þess vegna þurftum við að ræða allar þær sögur sem við höfum heyrt og hvað við höfum tekið eftir!    Þátturinn er í boði: Real Techniques Laugar Spa - https://organicskincare.is/ Natracare

Teboðið
#185 - Coachella x Björn Boði

Teboðið

Play Episode Listen Later May 3, 2023 82:20

Coachella!! What is the fuss about???  Þurftum að fá okkar allra besta Björn Boða í að segja okkur frá Coachella og hvort það sé worth the hype! Björn Boði er eini íslendingurinn sem við þekkjum sem hefur verið virkilega duglegur að heimsækja eyðimörkina og skella sér á Coachella þannig við þurftum að fá hann til okkar til að fá að vita ALLT um reynsluna, hvað það kostar, hvernig þetta virkar, hvort þetta sé þess virði og allt þar á milli! Þátturinn er í boði: Real Techniques Laugar Spa

Teboðið
x Miðlacastið part 1 [áskrift]

Teboðið

Play Episode Listen Later May 1, 2023 5:01

Brot úr nýjasta áskriftarþættinum okkar! Fyrir aðeins 990kr á mánuði getur þú orðið heiðurs Teboðsgestur! Áskriftar besties fá 2-3 auka þætti í mánuði, the inside scoop og allskonar skemmtilegt aukaefni bara fyrir ykkur!   WWW.TEBODID.IS

FM957
GELLU - VEISLAN (Sunneva Einars, Jóhanna og Birta Líf)

FM957

Play Episode Listen Later Apr 6, 2023 86:45

Landslið gella á Íslandi mætir í Veisluna...

Teboðið
#179 - Mean Girls of Hollywood

Teboðið

Play Episode Listen Later Mar 22, 2023 58:19

Í ljósi umræðunar um Selena vs. Hailey drama þá fórum við að pæla hverjar eru í raun og veru mean girls of Hollywood?  Tune in to find out  Þátturinn er í boði: Real Techniques Laugar Spa - https://organicskincare.is/

Teboðið
#176 - Birta Líf 27 ára

Teboðið

Play Episode Listen Later Mar 3, 2023 79:57

Það er 3.mars sem þýðir að Birta er older, wiser and hotter than ever í dag!  Tune in í afmælisveisluna hennar í Teboðinu þar sem við förum yfir allskonar skemmtilegt í tilefni dagsins!  HAPPY BIRTHDAY TO OUR SPICY LITTLE PISCES

Teboðið
#173 - Love Island spjall! (þáttur 1 - 21)

Teboðið

Play Episode Listen Later Feb 8, 2023 62:57

IT'S LOVE ISLAND TIME!