POPULARITY
Húsnæði Árnastofnunnar í Árnagarði hefur verið táknmynd eða hulstur utan um efnismenningu handritasafns Árna Magnússonar í rúm 50 ár. Nú hefur stofnunin verið flutt yfir Suðurgötuna og í Eddu en um liðna helgi stóð hópur listamanna, fræðimanna, hönnuða og arkitekta að sýningu í yfirgefnu húsnæði Árnastofnunnar sem þau kölluðu Innviði. Um sýningarstjórn sáu þeir Marteinn Sindri Jónsson og Unnar Örn Auðarson. Við ræðum við Martein Sindra og fleiri þátttakendur í þætti dagsins. Hópur ungskálda bíður af sér óvenjulegan sumarstorm í sveitasetri við Genfarvatn. Þau drepa tímann með ýmsum óhugnaði en þetta kvöld er eitthvað annað og meira sem ásækir þau en bara skáldskapur. Þannig hefst lýsingin á nýjasta leikverki leikhópsins Marmarabarna, sem kallast Árið án sumars. Við lítum inn í Borgarleikhúsið og kynnum okkur verkið. Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Ferðalok eftir Arnald Indriðason.
Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í skáldsöguna Moldin heit, eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, en sú bók hefur verið tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. En við hefjum þáttinn á því að kynna okkur leikverkið Ifigenía í Ásbrú sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói í næstu viku. Verkið er einleikur og upprunalegur titill þess er Iphigenia in Splott en þær Anna María Tómasdòttir leikstjóri og Þórey Birgisdóttir leikkona þýddu og staðfærðu verkið fyrir íslenska sviðið.
Samfélagið sendir út frá Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík, kynnir sér Kvennasögusafnið og fleira á fyrstu hæð byggingarinnar en fær líka að sjá vistarverur drauga og rannsaka harðlæsta hvelfingu í kjallaranum. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður, ræðir umferðaröryggi, hraðasektir og jólin við Ásmund Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Tónlist: BOB DYLAN & THE BAND - Odds and Ends (Take 2).
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Arnar Jónsson leikari lítur við til að ræða ljóð í þætti dagsins, en hann ætlar að fara yfir ævi sína í ljóðum í Landnámssetrinu í Borgarnesi um næstu og þarnæstu helgi. Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tvenna tónleika, tríótónleika á vegum kammermúsíkklúbbsins og fyrstu tónleika grænu raðarinnar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, og Katla Ársælsdóttir rýnir í Sýslumann dauðans eftir Birni Jón Sigurðsson sem frumsýnt var nýverið. Og Víðsjá lítur einnig inn á æfingu hjá Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Fullt var út úr dyrum á foreldrafundi sem fram fór í Safamýri í fyrradag fyrir foreldra barna í hverfum 104, 105 og 108 þar sem kallað var eftir því að opnunartími félagsmiðstöðva og sundlauga yrði rýmkaður og starf félagsmiðstöðva eflt ásamt foreldrarölti. Ljóst er að foreldrar eru að kalla eftir meiri viðbrögðum í skólakerfinu og víðar til að sporna gegn vaxandi unglingadrykkju og ofbeldi meðal barna. Til okkar komu Arna Hrönn Aradóttir verkefnastjóri í Norðurmiðstöð Reykjavíkurborgar sem sér einnig um forvarnir og lýðheilsumál í hverfinu og Unnar Þór Bjarnason samfélagslögreglumaður en mikið hefur verið rætt um að auka sýnileika þeirra í hverfum borgarinnar. Hvað er ónæmiskerfi, hvernig myndast það og hvernig ver það okkur gegn sýkingum? Í verslunum og apótekum má finna ótal tegundir bætiefna og vítamína sem eiga að bæta ónæmiskerfið, er virkar það? Lind félag fólks með ónæmisgalla / meðfæddan mótefnaskort, blæs til námstefnu um ónæmisgalla á mánudaginn en margt bendir til þess að ónæmisgallar séu vangreindir hér á landi sem annars staðar en rétt meðferð getur stuðlað að heilbrigði og fullri atvinnuþátttöku. Guðlaug María Bjarnadóttir leikkona og kennari formog Hrefna Jónsdóttir Hjúkrunarfræðungur á göngudeid ónæmisfræða, komu til okkar. Núna styttist í Ullarvikuna sem fram fer í þriðja sinn og er undirbúin af 30 konum á Suðurlandi í sjálfboðavinnu. Það má segja að þetta sé vaxandi viðburður og í ár eru um það bil 20 námskeið í boði og þar af 8 uppseld og örfá pláss laus á önnur. Það stefnir í metaðsókn,aðallega íslendingar en nokkrir hópar koma erlendis frá. Helga Thoroddsen var á línunni. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-26 Ríó - Landið fýkur burt. Franklin, Aretha - Solitude. Joel, Billy - Piano man.
Kompany, klovn eða kóngur?Premier League upphitunVU segir sögur af SelfossiKR aftur orðnir relevant?
Stänger du av telefonen varje onsdag? Storhandlar i en helt ny mataffär? Scrollar på toan eller en liten nattlig godisgömma som bara du vet om? Vi hör lyssnarnas oväntade, udda och konstiga unn. Lyssna på alla avsnitt i Sveriges Radio Play. Ett nyfiket och underhållande aktualitetsprogram med lyssnaren i fokus.Ulrika ringde in och berättade att hon unnat sig en ensamkonferens – med egen AW. Maria unnade sig en mintchoklad precis innan och ringde in, utan barnens vetskap.Och så hör vi om redaktionens små vardagsunn i form av sugrör och metall.
In this episode of Icelandic Art Center's Out there podcast we speak with artists Gunnhildur Hauksdóttir and Unnar Örn, who are board members at Safnasafnið, The Icelandic Folk and Outsider Art Museum. The Icelandic Folk and Outsider Art Museum was founded in 1995 by Níels Hafstein and Magnhildur Sigurðardóttir in Svalbardseyri, in north Iceland. For 30 years the founders and board of the museum have focused their attention on collecting work, and often extensive bodies of works, by artists whose contributions to art have existed outside the cultural mainstream and collections, and have been considered folk, naïve or outsider artworks. We discuss the role of the museum, some of the language around categorizing art and artists, and the summer exhibitions, including; Dark Deeds and the Light of Hope and Aesthetics of Senses and Delights curated by Níels Hafstein, Source by Nína Óskarsdóttir and Who Came Through by Jasa Baka curated by Gunnhildur Hauksdóttir, Sale by Arnar Herbertsson curated by Unnar Örn, Domestic Spirit by Svava Skúladóttir curated by Gunnhildur Hauksdóttir, Deities by Bimala Dutta curated by Gunnhildur Hauksdóttir and Assortments by Örn Karlsson curated by Níels Hafstein. There are over 13 exhibitions and hangs on display now so to read more about the variety visit the museum's website. The Icelandic Folk and Outsider Art Museum was founded in 1995 by Níels Hafstein and Magnhildur Sigurðardóttir. For over 30 years the museum's founders have been passionately committed to collecting artworks by artists who have hitherto been seen as outside the cultural mainstream, often also called naïve or outsider artists who have a real and direct connection to an original creative spirit; true, unspoiled and free. The museum is unique in Iceland, initially collecting artworks by all major contemporary folk artists and autodidacts in Iceland, forming the core of the collection, while also gradually acquiring an excellent collection of art by professional artists, whose works cohere with exhibition and collection policies. It is of importance that all the artworks presented are on an equal footing, in exhibitions as well as the collections. The core collection consists today of thousands of artworks and sketches by over 300 artists, dating from the mid19th century to the present. https://safnasafnid.is/exhibitions-2024/ @gunnitune @unnar.orn at @safnasafnid @ninaoskarsdottir @jasa.baka // Created and produced by the Icelandic Art Center, Out There brings co-hosts Becky Forsythe @beforsythe and Þórhildur Tinna Sigurðardóttir @tindilfaetta in conversation with artists, curators and art professionals at Borgarbókasafn. #OutTherePodcast #IcelandicArtCenter #IcelandicArt #IcelandicArtist #Iceland #VisualArt #ContemporaryArt #InspiredByIceland #IcelandicArt
Unnar er 33 ára, fjögurra barna faðir sem á stóra sögu. Hann hefur verið í bata frá vímuefnavanda í 8 ár og fer óhefðbundna leið í sínum bata. Hann byrjaði að fikta við neyslu 11 ára, var á sveitaheimilum þar sem var mikið ofbeldi sem mótaði hann og lenti nokkrum sinnum í fangelsum.
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Ég er einn af gríðarlega stórum hóp landsmanna sem elskar Morðcastið, og af stórri ástæðu vegna systrana Unnar og Bylgju Borgþórsdætra, sem ekki aðeins koma manni til að hlægja í grillaðari hlustun morða, heldur líka vegna öflugra skoðuna, réttlætiskennd og hversu ótrúlega autentískar þær eru sem persónur. Loksins mættu þær saman í borgina, og náði ég að setjast niður með þeim báðum og skyggnast á bakvið tjöldin í Morðcastinu, og jú lífinu þeirra. Algjörlega bestar, njótið vel! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar
Viktor Unnar Illugason var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Ísland en í dag er einn efnilegasti þjálfari landsins. Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár en var í vetur ráðinn til Vals. Þar stafar hann sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks, en er einnig með puttana í meistaraflokknum. Viktor Unnar settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir leik Vals gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær þar sem hann spjallaði um leikinn og sinn metnað í þjálfun.
Eggert Unnar kíkti til okkar í skemmtilegt viðtal. Við töluðum mikið um peninga, tiktok og bara life goals. Við förum yfir tímann þar sem hann bjó á Spáni og svörum spurningum frá hlustendum Þessi þáttur er í boði Reykjavík foto --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/tveirfellar/message
Gestur þáttarins er Viktor Unnar Illugason þjálfari og hlaðvarsstjóri.
Fatahönnuðurinn, frumkvöðullinn og verslunareigandinn Katla Hreiðarsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi alt muligt manninum Hauki Unnari Þorkelssyni.Katla hefur undanfarin ár verið að slá í gegn í fatahönnunnar heiminum en árið 2008 stofnaði hún vörulínuna Volcano design sem vatt upp á sig og er hún nú að sjá um rekstur á búðinni Systur og Makar, rekur sumarhúsaleigu og sér um rekstur á veislusal.Haukur hefur brallað ýmislegt í gegnum tíðina en starfar þessa stundina með Kötlu í öllum þessum rekstri ásamt því að reka verktakafyrirtæki með bróður Kötlu.Katla og Haukur hittust fyrst þegar Haukur mætti til hennar í búðina með blómvönd, kakó og hálsbrjóstsykur þar sem Katla hafði talað um að hún væri eitthvað slöpp. Katla var efins um að haukur væri mögulega aðeins of væminn fyrir sig. Það virtist þó ekki hafa áhrif og voru hlutirnir fljótir að gerast hjá þeim en eru þau í dag gift með fjögur börn en fylgdu tvö af þeim fylgdu Hauki úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um búðina þeirra og hvernig það ævintýri hófst allt saman, hvar áhugi Kötlu kviknaði á fatahönnun, hvernig það var að sameina fjölskylduna, brúðkaupið, rómantíkina húmorinn og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar það varð ansi óheppilegt slys á ferðalagi þeirra um England nú fyrir skemmstuÞátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
For centuries, Vikings have been eating skyr, a thick, creamy yogurt as a source of energy to defeat their opponents and survive in some of the harshest climates known to man. Skyr is full of protein, flavor, and tradition. This is why the world's strongest man, Hafthor Bjornsson, and Terry Crews both eat it to supplement their workout regiments. So Unnar Beck Danielsson partnered with Hafthor, Terry, and Dylan Sprouse to introduce Thor's Skyr to the rest of the world. While this may seem like a random collection of celebrities, they're all very much in touch with the Icelandic culture, and funny enough, Terry actually means Thor in the old Norse language. In today's episode we chat with the cofounder of Thor's Skyr, Unnar, about: why going into Walmart was a mistake The decision to make Terry Crews a founder instead of an ambassador How he honed his salesmanship by convincing diners in his restaurant to try fermented shark
Spegillinn 29. júní 2023. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Jón Guðni Ómarsson, nýr bankastjóri Íslandsbanka segist kominn til að vera og vill endurheimta traust. Hann hafi sjálfur ekki komið að sölunni á fimmtungshlut í bankanum, að öðru leyti en því að hafa kynnt bankann fyrir fjárfestum. Pétur Magnússon ræðir við Jón Guðna. Kvikubanki hefur slitið samrunaviðræðum við Íslandsbanka. Stjórn Kviku telur að ekki séu forsendur til að halda samningaviðræðum áfram í ljósi atburða síðustu daga. Í apríl seldist aðeins 531 íbúð á landinu öllu. Kári S. Friðriksson, hagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir að það gæti hreinlega verið betra að spara peninga á góðum innlánsvöxtum frekar en að kaupa fasteign. Benedikt Sigurðsson ræðir við Kára. Jens Stoltenberg verður áfram framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins næsta árið, samkvæmt samkomulagi sem fulltrúar aðildaríkja NATO hafa komist að. Það stefnir í illvíg átök á milli landeigenda og sauðfjárbænda vegna smölunar á ágangsfé og vilja bæði innviðaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga að lög verði endurskoðuð sem fyrst. Rúnar Snær Reynisson segir frá. Hestamennska er fjölbreytt og rúmar alla, segir Hekla Katharína Kristinsdóttir landsliðsþjálfari íþróttarinnar. Íslandsmót hestamanna fer nú fram á Brávöllum á Selfossi. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir talar við Heklu og Sigurbjörn Bárðason. ------ Forsvarsmenn Sorpu greindu frá því nýverið að stefnt sé að því að flytja allt að 43.000 tonn af brennanlegu sorpi til Svíþjóðar á ári hverju, nýr urðunarstaður fyrir sorp af höfuðuborgarsvæðinu er enn ófundinn, skortur hefur verið á metangasi á fólksbíla og Sorpa þarf að líkindum að borga tekjuskatt, sem byggðasamlög eru að öllu jöfnu undanþegin. Ævar Örn Jósepsson spurði Gunnar Dofra Ólafsson, samskipta- og viðskiptaþróunarstjóra Sorpu fyrst út í sorpflutningana. Það voru sagðar af því fréttir á dögunum að Barnavernd Reykjavíkur hefði aldrei fengið jafn margar tilkynningar og fyrstu þrjá mánuði ársins. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Agnesi Eide Kristínardóttur og Unnar Þór Bjarnason hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Og hælisleitendur í Bretlandi verða ekki sendir til Rúanda, samkvæmt breskum áfrýjunardómstól. Ásgeir Tómasson segir frá.

Christoffer Ekeroth kommer på besök och gör en djupdykning i funktionell programmering.På vägen blir det historier från utbildningens och Javas mörka dagar där man blev piskad till sömns varje kväll, och en enda flashfilm kunde ta ner hela datasalen. Christoffer berättar om vad funktionell programmering är, varifrån det kommer, och vad det egentligen innebär att ha ett starkt typsystem och varför det är trevligt. Plus en matig lista länktips.LänkarChristoffer EkerothChristoffer på TwitterQBasicASP - klassisk ASPPHPPaul GrahamPaul Grahams essäer om LispCommon LispPrologHaskellSmalltalkSun bladeXNADirectXErlangLars Wikman gästade avsnitt 57LodashFunktionell programmeringSidoeffekterF#MLParse, don't validateArxivLaTeXDTO - data transfer objectJohn McCarthyMcCarthys Lispartikel - Recursive Functions of Symbolic Expressions and Their Computation by Machine (Part I)Paul Grahams The Roots of LispLambdakalkylGottfried LiebnitzDavid HilbertMillennieprisproblemenAlan TuringTuringmaskinenHalting problemRule 110 är turingkomplettSnäckskal är turingkomplettaGame of lifeAlonzo ChurchHindley–Milner-typinferensFunctional SoftwareF# for fun and profitLearn you a HaskellDomain modeling made functionalStructure and interpretation of computer programsCitatHaskell och Prolog och esoteriska programmeringsspråkCasta upp detEtt sätt att tänkaStrikt med vad man kan och inte kan göraEtt väldigt starkt typsystemMer av dina affärsregler i själva typsystemet45 sidor LatexEnkelt att skapa en ny typBakom en klassbarriärMind blown-läsningDet ljuva 1600-taletOm du har ett logiskt uttryckFormalisera beskrivningen av algoritmenLambdakalkyl med typerDu är en kompilatorMycket mindre bokföring

Hvað myndir þú gera ef þú myndir fara allt í einu fram í tímann 30 mínútur og ekkert hafði breyst? Nema að 30 mínútur hefðu liðið? Kannski myndir þú halda áfram með daginn þinn, eða kannski voru það geimverur. Fólk á þessum tíma var að horfa á FRIENDS, fólk var að horfa á Harrison Ford og fólk voru líka að horfa á geimverur og geimskip.
I år får många ökade levnadskostnader som kan bli kännbara. Men livet går vidare och visst kan man trots det vilja unna sig lite vardagslyx, anpassad till den nu lite tunnare plånboken. Den här månaden är för många årets fattigaste månad. De gångna veckornas utgifter för god mat, julklappar och familjens jul- och nyårsaktiviteter har kanske blivit kännbara för många.Vilka goda erfarenheter har du av att känna lite vardagslyx i spartider? Är det att vinterbada i en sjö istället för ta in på ett spa? Läsa dina olästa böcker hemma och på biblioteket istället för att köpa nya? Är det att använda dina favoritrecept och byta ut några dyrare råvaror mot lite billigare? Kanske omvärderar du din garderob och ser en ny potential i dina gamla kläder och piffar upp blusar och skjortor med att exempelvis byta ut gamla knappar mot nya. Kommer du att välja att umgås med vänner genom att bjuda hem dem på en billigare eftermiddagsfika istället för att bjuda hem dem på en dyrare middag? Hur gör du för att skapa underbara stunder i vardagen? Dela med dig av dina bästa spar-tips på måndag!Ring på telefonnummer 020 – 22 10 30. Telefonslussen öppnar kl. 21.Skriv gärna till oss på våra sociala medier;Karlavagnen på Facebook.Karlavagnen på Instagram.eller på mailadressen karlavagnen@sverigesradio.seProgramledare: Pia HerreraProgrammet startar ca kl. 21:40 i P4 och i Sveriges Radio Finska.Producent: Maria RepitschAnsvarig utgivare: Anne Sseruwagi, Sveriges Radio Finska
Frida och Emma poddar från Smådalarö Gård där de haft en lugn heldag fylld med pampering och återhämtning. Men, inte behöver du åka iväg bara för att njuta av lite self-care. Emma och Frida bjuder den här veckan på nedvarvningstips som kan komma väl till pass inför julhelgen. Plocka fram några enkla gadgets och produkter som är till för att ge dig den omvårdnad som du är värd. En podd från Aller Media. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Doc. Keli og Viktor Unnar Illugason voru án landamæra.
Í dag er Hrekkjavaka, hátíð sem mörg okkar hafa litið á sem ameríska hátíð. En uppruni hrekkjavöku er í raun keltneskur, og rætur hennar ná langt aftur. Hátíðin, sem á írska tungu hét upphaflega Samhain, markaði mót sumars og veturs á tímum þegar árstíðirnar voru aðeins tvær. Þá voru færðar fram þakkir fyrir uppskeru og ýmsir andar, liðnir og leiknir, fóru á kreik. Fornleifafræðingurinn og fréttamaðurinn Þorvaldur Friðriksson gaf nýverið út bókina Keltar, áhrif á íslenska tungu og menningu. Hann kemur í hljóðstofu Víðsjár, segir okkur nánar af Hrekkjavöku og útskýrir mögulegan uppruna Grýlu og jólakattarins. Við fáum líka til okkar nýjan bókarýni, en það er bókmenntafræðingurinn Sölvi Halldórsson. Hann fjallar í dag um skáldsögu Dags Hjartarssonar, Ljósagang. Eva Halldóra Guðmundsdóttir fór á frumsýningu á leikverkinu Síðustu dagar Sæunnar, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi og segir okkur af sýningunni. Og við kynnum okkur norræna tónlist, því annað kvöld verður tilkynnt um handhafa Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2022. Tólf tónverk norrænna tónskálda eru tilnefnd og í ár spanna þau mjög vítt svið tónlistarstefna. Þar fer heimstónlist, konseptlist og klassík tónlist, óperu-, raftónlist og alþýðutónlist. Við kynnum okkur tilnefningarnar tólf í tveimur pistlum hér í Víðsjá, og heyrum þann fyrri í síðari hluta þáttar. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Í dag er ekki mánudagur en þáttur vikunnar er þrátt fyrir það áskriftarþáttur. Mál sem á sér stað í Chowchilla í Bandaríkjunum þegar menn ræna fullri rútu af skólakrökkum. Einn allra uppáhalds þáttur Unnar frá upphafi Morðcastsins! Í boði Ristorante, Orville, Sjóvá, Prentsmið og Ekils ökuskóla.
Á dögunum fékk ég til mín í spjall handboltamanninn knáa Bjarka Má Elísson og hans betri helming Unni Ósk Steinþórsdóttur. Bjarki hefur verið atvinnumaður í handbolta frá árinu 2013 en hann hefur spilað með þremur mismunandi liðum í Þýskalandi og getið að sér einstaklega gott orð í horninu en var hann einmitt áberandi á síðasta stórmóti landsliðsins fyrir frábæra frammistöðu.Unnur er menntuð í sálfræði og fötlunarfræði og hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur á þeim stöðum þar sem þau hafa búið hverju sinni enda mikið flakk sem felst í því að vera í sambúð með atvinnumanni í handbolta.Í dag eru þau einmitt á fullu að undirbúa flutning með fjölskylduna til Ungverjalands þar sem Bjarki ætlar að kasta boltum á næsta tímabili.Bjarki og Unnur kyntust fyrst aðeins 16 ára gömul í fjölbrautarskóla Suðurlands og urðu snemma skotin í hvert öðru. Bjarki komandu úr Árbænum átti heima á heimavistinni en fékk hann vikulega vasapeninga á sunnudögum sem hann kláraði alla jafna á þriðjudögum, og var þá ekki slæmt að geta kíkt í kaffi til Unnar. Þau prufuðu að vera par strax á fyrsta ári en vildu samt ekki binda sig of snemma svo eftir tveggja mánaða samband fóru þau í sitthvora áttina um stund. Bjarki segist þó alltaf hafa verið skotinn í Unni og var þolinmóður sem borgaði sig sannarlega því tveimur árum seinna byrja þau saman og hafa þau verið saman allar götur síðan en margt vatn hefur runnið til sjávar. Þau hafa eins og fyrr kom fram búið lengi í þýskalandi og eru í dag gift með eitt barn.Við fórum víða í þessu skemmtilega spjalli en ræddum við meðal annars tímann þeirra í þýskalandi og flutningana til Ungverjalands, Árin í FSU, landsliðið, rómantíkina ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar hitar færðust í leikinn í fellihýsi mömmu hans Bjarka.Blush.is - https://blush.is/Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/Dominos - https://www.dominos.is/Promennt - https://www.promennt.is/is
Ein bókanna sem streyma á markað þessa dagana kallast Ævintýri frá Kóreu og Japan, en hún er gefin út af nýstofnuðu forlagi sem kallast Bókaútgáfan Asía. Unnur Bjarnadóttir, japönsku-og menningarfærðingur ákvað að stofna forlagið stuttu eftir nám til að færa þennan menningarheim nær Íslendingum. Heyrum af ævintýrum Unnar hér undir lok þáttar. Snorri Rafn Hallsson, pistlahöfundur í Vín, sendir okkur í dag sinn síðasta pistil um möguleika og ómöguleika tækninnar. Að þessu sinni veltir Snorri Rafn því fyrir sér hvers konar mannsmynd blasir við okkur þegar við speglum okkur í tækninni. En við hefjum þáttinn í dag með því að huga að nýrri tónlistarútgáfu. Guðni fór í göngutúr og hitti Herdísi Önnu Jónasdóttur í Hólavallakirkjugarði í morgun, en Herdís Anna og Bjarni Frímann Bjarnason voru að gefa út plötu með íslensku sönglögum, Nýir vængir kallast hún. Og svo endum við þáttinn á að huga að jóladagskrá Rásar1.
Víðsjá - Til Moskvu, til Moskvu Til Moskvu! - sérstök útgáfa af Víðsjá Víðsjá er í dag send heim til Íslands frá Moskvu þar sem myndlistarmaðurinn Ragnar Kjatansson er að opna nýja sýningu sem heitir Til Moskvu, til Moskvu, til Moskvu! í glænýrri menningarmiðstöð sem hann fær að opna hér í borg og heitir GES-2. Byggingin, sem áður var orkuver og knúði stjórnarsetrið Kreml, hefur nú fengið nýjan tilgang og gengið í endurnýjun lífdaga en það er ítalski arkitektinn Renzo Piano sem stýrði endurhönnuninni. Í þættinum er rætt við Ragnar um þetta risavaxna verkefni hans og samstarfsmanna hans, en hjarta sýningarinnar er margra mánaða langur gjörningur eða innsetning þar sem rússneskir leikarar leika einn þátt á dag af bandarísku sápuóperunni Santa Barbara, en sýningar á henni hófust skömmu eftir fall Sovétríkjanna á sínum tíma. Yfirleikstjóri þess verkefnis er Ása Helga Hjörleifsdóttir. Umsjón með Víðsjá í dag hefur Guðni Tómasson sem er staddur í Moskvu en viðmælendur hans eru auk Ragnars Kjartanssonar þau Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Ragnar Helgi Ólafsson, Unnar Örn Jónsson Auðarson, Hildigunnur Brigisdóttir, Magnús Sigurðarson og Francesco Manacorda.
Verðbólga mælist nú meiri en hún hefur gert frá árinu 2013. Margir hafa lýst yfir áhyggjum sínum af þessu ástandi, ekki síst í tengslum við stöðuna á húsnæðismarkaði hér á landi. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir verðbólguna og húsnæðismálin í spjalli um efnahag og samfélag. Hann ræddi líka um nýjan efnahagspakka stjórnvalda, sem kynntur var á föstudag, og um uppgjör Reykjavíkurborgar. Bólusetningar gegn veirunni ganga nú vel í Þýskalandi og tekist hefur að bólusetja rúma milljón á einum degi. Hjarðónæmi er enn langt undan en Þjóðverjar ræða töluvert um það hvenær hin bólusettu endurheimti ýmis réttindi. Sumir vilja að allir bíði þar til hjarðónæmi er náð, en aðrir telja það hreinlega brot á stjórnarskrá að banna bólusettum að gera það sem þeir vilja. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá þessu og fleiru í Berlínarspjalli dagsins. Í dag, 4. maí, eru liðin nákvæmlega 10 ár frá opnunartónleikum Sinfóníuhjómsveitar Íslands í Hörpu. Tónleikarnir voru söguleg stund í íslensku tónlistarlífi enda höfðu margir beðið eftir nýju tónlistarhúsi svo áratugum skipti. Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og Sigurgeir Agnarsson, sellóleikari , komu á Morgunvaktina. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Street by street - Laufey
Í Víðsjá í dag verður meðal annars slegið á þráðinn norður á Akureyri þar sem Þórður Sævar Jónsson verður tekinn tali en hann sendi frá sér á dögunum nýja ljóðabók sem heitir Brunagaddur og innblásin er af snjóþyngslum í höfuðstað Norðurlands veturinn 2019-20. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fjallar í sjónlistapistli um sýninguna Skýjaborg í (lokuðu) Gerðarsafni þar sem fjórir íslenskir samtímalistamenn sýna verk sem tengjast Kópavogi. Listamennirnir eru Berglind Jóna Hlynsdóttir, Bjarki Bragason, Eirún Sigurðarsdóttir og Unnar Örn Auðarson, en sýningarstjórar eru þær Brynja Sveinsdóttir og Klara Þórhallsdóttir. Hallarekstur og gildismat koma við sögu að gefnu tilefni í Víðsjá í dag. Og hlustendur fá einnig að heyra brot úr fyrsta þætti þáttaraðarinnar Þó líði ár og öld sem verður á dagskrá Rásar 1 um páskana en þar segir söngvarinn Björgvin Halldórsson frá lífshlaupi sínu og tónlistarferli.
Sýningin Skýjaborgir opnar í Gerðasafni nú um helgina og inniheldurá verkum fjögurra samtímalistamanna sem spretta úr sameiginlegum grunni: Kópavogi. Listamennirnir eru þau Eirún Sigurðardóttir, Berglind Jóna Hlynsdóttir, Bjarki Bragason og Unnar Örn Auðarson. En áður en við höldum upp í skýjaborgirnar sökkvum við okkur ofan í jarðskorpuna, við byrjum á nötrandi jörð í goðsögum, bókmenntum, bíó og myndlist.
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir eiginmanni sínum, Birni Thors, í einleiknum Vertu úlfur sem frumsýndur verður bráðlega í Þjóðleikhúsinu. „Við vorum öll eins og skurnlaust egg. Af því að ég vildi að þessi sýning væri á hnífsblaði, á hættulegum stað,“ segir Unnur. Þjóðleikhúsið hefur sýningar á stóra sviðinu að nýju föstudaginn 22. janúar, eftir nær fjögurra mánaða samfellt hlé vegna samkomubanns, með frumsýningu á einleiknum Vertu úlfur. Verkið er eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, sem einnig leikstýrir, og er byggt á bók Héðins Unnsteinssonar. Fjallað er hispurslaust um baráttuna við geðsjúkdóma út frá sjónarhóli manns sem í senn glímir við geðraskanir og starfar innan stjórnsýslunnar á sviði geðheilbrigðismála. Þetta er einleikur með Birni Thors, eiginmanni Unnar, og hafa hjónin lært sitthvað nýtt í ferlinu. „Við höfum aldrei unnið í þessari kemistríu þar sem annað er að leikstýra hinu,“ segir Unnur. Mörk og markaleysi eru til umfjöllunar í verkinu og hefur samlífi þeirra tekið að spegla það í ferlinu. „Það er algert markaleysi í gangi núna því Bjössi fær nótur á koddanum á hverju kvöldi og þegar hann vaknar. Við erum að nálgast frumsýningu og þá verður takturinn örari og ég verð alveg heltekin af því viðfangsefni sem ég er að fást við hverju sinni.“ „Þetta er lífið okkar, það er bara svona,“ segir Björn. „Þú ert í kafi þegar þú ert að vinna að stóru verkefni. Núna blæðir vinnan alveg heim. Við erum að vinna allan sólarhringinn og stöðugt að.“
Í Heimskviðum í dag er fjallað um kjörsókn í Bandaríkjunum nú þegar forsetakosningar eru handan við hornið. Við segjum frá mótmælaöldu í Kirgistan eftir þingkosningar þar í landi. Þá veltum við upp þeirri spurningu hvort bókmenntaverðlaun Nóbels séu í raun ónýt, eftir að illa hefur gengið að gera upp fortíðina eftir MeToo bylgjuna. Nóbelsverðlaun í bókmenntum hafa staðið á krossgötum frá árinu 2017 eftir hneykslismál og spillingu. Félagi í sænsku akademíunni var sakaður um gróf kynferðisbrot í kjölfar metoo-byltingarinnar og einnig gert að hafa brotið ýmsar aðrar reglur akademíunnar. Upp frá þessu hefur verið pressa á því að reyna að lægja öldurnar og endurheimta traust. Það gekk ekki árið 2019 eftir að tveir höfundar voru valdir, annar með mjög umdeildar pólitískar skoðanir og söguskoðun. Í ár hafa jafnvel sumir kallað eftir því að Louise Glück, handhafi nóbelsverðlaunanna 2020, taki ekki við verðlaununum í desember. Það er sem sagt enn allt í hnút í akademíunni og það veltur á næstu skrefum hvort hann verði leystur. Eru bókmenntaverðlaun Nóbels ónýt? Jóhannes Ólafsson leitast við að svara þeirri spurningu. Úrslit þingkosninganna í Kirgistan sem fóru fram 4. október voru ógilt tveimur dögum síðar. Kosningarnar leiddu af sér mikla mótmælaöldu sem steypti af stóli ríkisstjórn og forseta. Þessir atburðir áttu sér nokkurn aðdraganda og reyndar var þetta alls ekki í fyrsta sinn sem mótmæli almennings leiddu til stjórnarskipta í þessu fyrrum Sovétlýðveldi. Hallgrímur Indriðason rýnir í ástæður þessara atburða, þar sem meðal annars kemur við sögu embættismaður sem stundaði ólöglega fjármagnsflutninga, skoðar hvað taki nú við hjá þessari þjóð. Þá ræðum við við Elizabeth Rosen, sem starfar fyrir samtökin Next Gen America í Bandaríkjunum. Meðal annars um þá staðreynd að yfir 40 milljónir Bandaríkjamanna hafa þegar kosið í kosningunum og hvaða áhrif það hefur á fylgi frambjóðenda. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Unnur Anna Valdimarsóttir prófessor HÍ: Rannsóknarhópur undir forystu Unnar Önnu Valdimarsdóttur, prófessors í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, hefur hlotið stóran styrk til rannsóknar sem tengist áhrifum kórónuveirufaraldursins á geðheilsu í fjórum norrænu ríkjanna og Eistlandi. Margrét Lilja Guðmundsdóttir kennari HR og Hrefna Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri hjá Heimili og skóla: Rætt um stöðu ungmenna á tímum covid, þar sem félagslíf, tómstundir og skóli hefur hætt eða dregist verulega saman, rætt verður um afleiðingar þessa fyrir aldurshópin og möguleg viðbrögð og viðspyrnu. Hafdís Hanna Ægisdóttir: Umhverfispistill um loftslagsmál.
Fjármálaráðherra segir að Þorvaldur Gylfason hafi ekki verið heppilegur samstarfsmaður ráðuneytisins sem ritstjóri hagfræðitímarits vegna gagnrýni hans á ríkisstjórnir Íslands síðustu ár. Launaliðurinn var ekki ræddur á samningafundi hjúkrunarfræðinga og ríkisins í dag. Viðræðurnar eru erfiðar og þungar, en boðað hefur verið til nýs fundar eftir helgi. Landlæknir segir líklegt að fyrirhugað verkfall hjúkrunarfræðinga muni hafa áhrif á sýnatöku vegna COVID-19 á landamærum. Sýnatakan sé á ábyrgð lækna og hjúkrunarfræðinga. Bandaríkjastjórn hótar að beita saksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins refsiaðgerðum ákveði þeir að ákæra bandaríska hermenn fyrir stríðsglæpi í Afganistan. Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við að vextir verði lagðir á hlutdeildarlán ríkisins ef tekjur lántakenda hækka á lánstímanum. Rúmum þremur milljörðum verður varið til að hvetja útlendinga að koma til Íslands og hvetja Íslendinga til að ferðast um landið. Loks á að fara í herferð til hvetja landsmenn til að velja íslenskt. Arnar Páll Hauksson talar við Sigurð Hannesson. Það hefur myndast gap á milli lögreglunnar og almennings og það ber meira á vantrausti og virðingarleysi. Þetta er mat tveggja varðstjóra í Kópavogi. Þeir sinna samfélagslöggæslu og starfið lýtur meðal annars að því að vinna traust innflytjenda. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Hrein Júlíus Ingvarsson og Unnar Þór Bjarnason.
Unnar Helgason er gestur minn að sinni en Unnar veit sitt hvað um þjálfun, heilsu og álag við líkamsrækt. Sjálfur er hann í hörkuformi og er einn af þessum sem byrjaði í CrossFit áður en allir byrjuðu í CrossFit. Hann hefur lagt sitt af mörkum við að efla CrossFit samfélagið á Íslandi og var til dæmis meðal þeirra sem komu CrossFit Akureyri á laggirnar en sömuleiðis hefur hann þjálfað CrossFit út um allan bæ. Ekki nóg með að vera fáranlega mikill CrossFit nagli heldur þá er hann líka búinn að vera að taka íþróttamenn eins og Gunnar Nelson í gegn og hjálpað til við að koma þeim í sitt besta form. Í þættinum töluðum við um muninn á ofþjálfun og of mikilli þjálfun, mikilvægi endurheimar og hvort öll þau tæki og tól sem fyrirtæki segja að hjálpi við endurheimt raunverulega skili árangur. Þátturinn er á vegum Útvarp 101.
Gleymdar perlur níunnar Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson Gestur Andrés Jónsson, almannatengill Andrés sagði frá ótrúlegri ást sinni á útvarpinu, Jackson eða Jordan voru ekki hans stjörnur heldur Stefán Jón Hafstein dagskrástjóri Dægurmálaútvarpsins og stjórnandi Þjóðarsálarinnar á Rás 2. Andrés stofnaði útvarpsstöðina Mono sem bjó til meðal annars tvíeikið, Simma og Jóa. Hjal, tónlist og tal úr níunni, gott í bæði eyru.
Gestur þáttarins er Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, poppfræðingur. Dr. Arnar Eggert mun verja ritgerð sína og ná sér í löglegt Dr. í haust. Arnar er þekktur fyrir opin huga þegar það kemur að tónlist, allt frá svartasta dauðarokki yfir í bjartasta gleðipopp og R og B. Á lista Arnars eru öll lögin frá sama ári, 1994. Árið þar sem hann og tveit félagar fóri til wales og unnu þar á sveitahóteli og horfðu á MTV í 5 tommu sjónvarpi.
Gestur þáttarins er Haukur Viðar Alferðsson, metalhaus Haukur tók saman lista af lögum úr níunni, úr öllum áttum. Hann segir frá árum sínum sem metalhaus í Garðabænum og hvernig það var að vera svolitið einn í liði og hvernig það var þegar grugg skall á landinu. Hann talar um nördin Hauk sem safnaði NBA myndum löngu áður en hann sá körfuboltaleik og að hann hafi lítið stundað félagsmiðstöðina í Garðabæ, hafði annað að gera.