POPULARITY
Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Sonju B. Jónsdóttur sem sagði frá uppvextinum í Norðurmýrinni, óvæntri óléttu á menntaskólaárunum og dásamlegu dótturinni sem hún átti svo ung. Þær mæðgur voru nánar, en Harpa, dóttir Sonju, lést í bílslysi aðeins 19 ára gömul. Sonja sagði frá því hvernig óttinn heltók hana þegar hún eignaðist annað barn og í marga mánuði sleppti hún ekki takinu af litla drengnum. Smám saman lærði hún að taka lítil skref í rétta átt og sleppa takinu, en sorgin fylgir henni alltaf. Nú hefur Sonja skrifað ljóðabókina Í myrkrinu fór ég til Maríu til minningar um Hörpu þar sem hún rekur ævi hennar og þeirra saman, missinn og söknuðinn í einlægum og áhrifamiklum texta.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Ölmu Ýri Ingólfsdóttur formann ÖBÍ réttindasamtaka. Alma ólst upp í Ólafsvík en veiktist alvarlega 17 ára gömul sem leiddi til þess að hún missti báða fætur neðan við hné og framan af níu fingrum. Þá missti hún litla dóttur sína, en hefur tekist á við allar sínar stóru áskoranir af miklu æðruleysi og einstökum krafti. Hún hefur m.a. menntað sig í útlöndum og eignast kraftaverkabarn ein. Nú er hún nýkjörin formaður ÖBÍ og berst fyrir bættum réttindum öryrkja sem hún segir engan vegin ásættanleg.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastjóra hjá Bíó Paradís. Þær ræddu ævintýragirni, uppreisn og áskoranir á fjölbreyttri lífsins leið Hrannar sem fór frá því að vera uppreisnargjarn unglingur yfir í að verða blússuklæddur siðameistari í sendiráði. Hrönn sagði frá uppvextinum í Kópavogi og sveitadvöl frá unga aldri, ævintýrinu í kringum þátttöku hennar í Ungfrú Ísland.is og gerð myndarinnar Í skóm drekans, sem endaði í réttarsal. Þá ræddi hún námsárin í New York og fleiri viðkomustaði hennar í lífinu, en undanfarin ár hefur Hrönn leitt starfsemi Bíó Paradísar, tekist á við ótal áskoranir og lætur ekkert stoppa sig.

Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir. Hulda stýrði Popplandi dagsins og lék fjölbreytta tónlist fyrir hlustendur, sagði tónlistarfréttir og fylgdist með veðrinu á þessum mjög svo ó-vorlega degi. Alls konar fyrir alla. Lagalisti: Daði Freyr - Thank you. Blondie - Heart of glass. Tilbury - Madman. Kaarija - Cha Cha Cha. Hr. Hnetusmjör (ft. Þormóður) - Keyra. Rita Ora - Praise you. Travis - Sing. Janelle Monae og Fun - We are young. Ásgeir Trausti - Heimförin. Paolo Nutini - Through the echoes. Eee Gee - More than a woman. Kjass - Easy (af plötu vikunnar). Sister Sledge - He's the greatest dancer. Kul - Operator. Joe Jackson - Steppin' out. Mannakorn og Ellen - Elska þig. Biggi Maus - Ekki vera að eyða mínum tíma. Prince - Kiss. U2 - All along the watchtower. Bubbi Morthens - Sumar konur. KT Tunstall - Suddenly I see. George Ezra - Green green grass. Glowie - Cruel. Bebe Rexha og Dolly Parton - Seasons. Loreen - Tattoo. Eivör - Rain. FLOTT - Mér er drull. R.E.M. - Losing my religion. Hildur - I'll walk with you. Múgsefjun - Sendlingur og sandlóa. Foo Fighters - Under you. Holy Hrafn og Dr. Vigdís Vala. Caroline Polacheck - Smoke. Kjass - Running (af plötu vikunnar). Robert Plant - Big log. Aron Can - Bakka ekki út. Genesis - Follow you, follow me. Taylor Swift - Karma. Bruce Springsteen - Born to run.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Steinunni Árnadóttur organista og dýravin, en hún hefur barist ötullega fyrir bættri dýravelferð og vakið athygli á slæmum tilfellum vanrækslu. Hún hefur hlotið bæði lof og hvatningu fyrir, en líka verið hótað. Hún heldur þó ótrauð áfram.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Ólaf Teit Guðnason samskiptastjóra Carbfix og tónlistaráhugamann um uppvaxtarárin víða um heim, námsárin og fjörugt félagslífið í Versló og Hí og áskoranir fullorðinsáranna. Ólafur sagði m.a. frá óvæntri hjartaaðgerð sinni og ótímabæru fráfalli eiginkonu sinnar, sem hann ritaði um í bókinni Meyjarmissir. Þá ræddu þau Hulda nútíð og framtíð og það að finna ástina að nýju. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.

Hulda Geirsdóttir ræddi við Eyjamanninn Magnús Bragason íþróttafrömuð og fyrrum hótelhaldara. Þau rifjuðu upp gosið á Heimaey fyrir 50 árum, en fjölskylda Magnúsar var meðal þeirra fyrstu til að snúa heim, áður en gosi lauk. Magnús fór einnig ásamt hópi barna til Noregs í boði Rauða krossins og dvaldi þar í tvær vikur, aðeins sjö ára gamall. Þá ræddu þau íþróttastarfið, heimsókn Pelé til Eyja, ferðaþjónustuna og áskoranir þess að takast á við lífið með erfiðan sjúkdóm. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.

Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir Lagalisti: 12:45-14:00 Model - Lífið er lag. Guðmundur Pétursson - Stay the ride. Birgir Steinn - Hold on. Ultraflex - Relax. Ultravox - Reap the wild wind. Florence and the Machine - My love. Unun - Lög unga fólsins. Taylor Swift - Dear John. John Mayer - Paperdoll. Fred again ft. Romy - Lights out. Sigrid - Strangers. Sálin hans Jóns míns - Láttu mig vita. Rakel - Something (af plötu vikunnar). Janelle Monae - Make me feel. Hákon - Barcelona. 14-15: Sycamore Tree - One. Tears for fears - Break the man. Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varstu ekki kyrr? Noisettes - Never forget you. Jói P og Króli - Þriggja tíma brúðkaup. Harry Styles - As it was. Gosi - Ský. Albatross - Ég sé sólina. The Black Crowes - She talks to angels. U2 - Cedarwood road. Árný Margrét - Akureyri. Emilíana Torrini - Big jumps. 15-16: Daníel Óliver - First, pop. Faith no more - Easy. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Hildur Vala - Hard to be alone. Bríet - Flugdreki. Aldous Harding - Fever. Foals - 2am. Salóme Katrín - Elsewhere (af plötu vikunnar). Stuðmenn - Hringur og Bítlagæslumennirnir. 2Pac - California love. EYJAA - Ultraviolet. Jón Jónsson - Lengi lifum við.

Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir. Lagalisti: 12:40-14: Sigga, Beta og Elín - Með hækkandi sól. Birgir Steinn - Hold on. Foals - 2 am. Connells - 74-75. Florence and the Machine - My love. The Smiths - Panic. Hipsumhaps - Hringar. John Grant - Its easier. Macy Gray - Still. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttakona leit við og spáði í spilin fyrir landsleik Hvíta-Rússlands og Íslands í dag. Björk - Big time sensuality. Dido - White flag. Harry Styles - As it was. Elíza Newman - Maybe someday. 14-15: Hjálmar - Taktu þessa trommu. Flott - Flott. Supertramp - The logical song. Seabear - Talking in my sleep (af plötu vikunnar). Una Torfa - Ekkert að. Brek - Stúlka ein. Sia - Chandelier. Fred again ft. Romy - Lights out. Father John Misty - Q4. Valdimar - Yfir borgina (live af Aldrei fór ég suður). 15-16: Bríet - Flugdreki. Khruangbin og Leon Bridges - Texas sun. 200.000 Naglbítar - Brjótum það sem brotnar. Greta van Fleet - When the curtain falls. KK og Júníus Meyvant - Skýjaglópur. Seabear - Running into a wall (af plötu vikunnar). Toto - Hold the line. Journey - Any way you want it. Boney M - Sunny.

Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir. Lagalisti: 12:45-14: Gus Gus og Vök - Is it true. Dua Lipa og Elton John - Cold heart. Stefán Hilmarsson - Líf. Miley Cyrus - Wrecking ball. Salóme Katrín - The other side. R.E.M. - Orange chrush. Band of horses - Warning signs. Heiðrún Anna - Daydreamer. Daníel Óliver - First, pop. Ojba Rasta - Baldursbrá. Seabear - Weathergun (af plötu vikunnar). Tryggvi - Allra veðra von. Aldous Harding - Fever. Cavetown ft. Beabadoobee. Level 42 - Lessons in love. 14-15: Friðrik Dór - Bleikur og blár. Leaves - Catch. Queen - Somebody to love. Björgvin Þór Rúnarsson í spjalli um Marc Martel og Skunk Anansie tónleika framundan. Marc Martel - Love of my life (brot). Skunk Anansie - Brazen. Seabear - Oslo (af plötu vikunnar). Valdimar - Sýn. Sweet - Ballroom Blitz. Kylie Minogue - In your eyes. 15-16: Ásgeir Trausti - Nýfallið regn. Lenny Kravitz - Thinking of you. Janis Joplin - Piece of my heart. Johnny Marr - Night and day. GCD - Hamingjan er krítarkort. Foo Fighters - These days. EYJAA - Ultraviolet. Bryan Ferry - Kiss and tell. Sváfnir Sigurðsson - Fólk breytist. Adele - Make you feel my love. Tears for fears - Break the man.
Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Arnar Gauta Sverrisson fjölmiðlamann og útlitshönnuð. Þau ræddu uppvöxtinn í Keflavík og ástríkt uppeldi, eljuna sem ennþá keyrir Arnar Gauta í gegnum verkefnin sín og mikilvægi þakklætisins, sem er hans leiðarljós í lífinu. Lagalisti: Pálmi Gunnars og Ninna Pálma - Vinir vita það. Sting - Shape of my heart. Sycamore Tree - La Flamme. Nýdönsk - Hversdagsprins.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Jóhönnu Þorbjörgu Magnúsdóttur lögreglukonu og hundaþjálfara. Jóhanna ólst upp í Skagafirði og lítur á sig sem Skagfirðing en hefur þó verið búsett drjúgan hluta ævinnar í Holtunum á Suðurlandi. Hún sagði frá uppvexti sínum, krefjandi en skemmtilegu starfi sínu í lögreglunni og hundaþjálfun sem hún lærði í Texas í Bandaríkjunum. Hún fór líka yfir lífsins áskoranir sem hún hefur fengið sinn skammt af, m.a. var hún hætt komin við fæðingu fyrra barns síns og nýverið greindist hún með heilaæxli. En þessi kraftmikla unga kona lætur ekki bugast og horfir björtum augum fram veginn.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Dagnýju Maggýjar Gísladóttur um líf hennar og störf. Dagný deildi m.a. átakanlegri sögu móður sinnar sem veiktist alvarlega á geði eftir aðgerð á sjúkrahúsi og festist í svartnætti þunglyndis og kvíða sem svo dró hana til dauða. Dagný skrifaði sögu móður sinnar í bókinni Á heimsenda sem út kom árið 2018. Þá kom nýleg bók hennar, Lífið á vellinum, einnig við sögu, en þar skyggnist hún inn fyrir hliðið á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli sem var og hét.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Arnar Helga Lárusson formann SEM samtakanna sem lamaðist í mótorhjólaslysi 26 ára gamall, en lætur ekkert stoppa sig. Hann var afreksmaður í hjólastólakappi en stundar nú handhjólreiðar og stefnir á að hjóla 400km í sumar í þeim tilgangi að safna fyrir hjólum handa hreyfihömluðum enda segir hann hreyfingu og útivist gríðarlega mikilvæga fyrir hreyfihamlaða.

Átta liða úrslitin halda áfram í þætti dagsins. Það er jöfn, spennandi og skemmtileg viðureign framundan. Þau Snorri Helgason, tónlistarmaður og Sandra Barilli, grúskari mæta liði Rásar 2 sem mynda dagskrárgerðarfólkið Andri Freyr Viðarsson og Hulda G. Geirsdóttir.
Hulda G. Geirsdóttir ræddi við hjónin Erlu Reynisdóttur og Skúla Björgvin Sigurðsson sem þráðu að eignast fjölskyldu og reyndu árum saman að eignast barn. Eftir tíu tæknifrjógvanir og tilraun til ættleiðingar sem ekki varð, gripu örlögin inn í og að þremur árum liðnum áttu þau fjögur börn.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Ragnheiði Elínu Árnadóttur um lífshlaup hennar og fjölbreyttan feril. Hún ætlaði sér aldrei í pólitík en endaði sem ráðherra og segist stolt af því að hafa tekið þátt í mörgum mikilvægum verkefnum á þeim tíma. Nú sé hennar tími í pólitík hins vegar liðinn og hún ætli sér ekki aftur á þann vettvang. Ragnheiður sagði lífið hafa leitt sig áfram og vitnaði í John Lennon, Life is what happens to you while you are busy making other plans, en margar lífsákvarðanir hennar hafa verið drifnar áfram af tilviljunum. Fjölbreytt og skemmtilegt spjall um ferðalag boltastelpunnar sem fannst Keflavík of lítil fyrir sig, en rataði aftur heim.

Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Ragnheiði Davíðsdóttur, fyrrum lögreglukonu, blaðamann, forvarnarfulltrúa og framkvæmdastjóra sem nú hefur sest á skólabekk að nýju enda óhrædd við breytingar í gegnum tíðina. Þær fóru yfir fjölbreyttan feril Ragnheiðar sem hófst þegar hún réð sig 17 ára sem ráðskonu hjá Vigdísi Finnbogadóttur sem átti eftir að reynast henni mikil fyrirmynd og velgjörðarmaður. Tónlist: Jón Ólafsson - Sunnudagsmorgunn. Bruce Springsteen og E. Street Band - Letter to you. Mannakorn - Óralangt í burt. Stefanía Svavarsdóttir - Flying.

Smitum hefur fjölgað í Evrópu undanfarið líkt og fram hefur komið í fréttum. Við höfum heyrt í fólki víða undanfarið en við tókum stöðuna í Finnlandi í dag þar sem við heyrðum í Auðuni Atlasyni sendiherra Íslands í Helsinki. Kórónuveirusmitum hefur fjölgað mjög hratt nú síðsumars víðast hvar í Evrópu, eins og flestum er kunnugt. Spánn var eitt þeirra landa sem hvað verst fór út úr farsóttinni í vor, svo mjög að stjórnvöld settu á algert útgöngubann um nokkurra vikna skeið í vor. Landið var opnað að nýju fyrir ferðamönnum í byrjun júlí og síðan þá hefur smitum fjölgað hratt að nýju. Jóhann Hlíðar Harðarson hefur dvalið á Spáni frá því landið var opnað að nýju og fylgst vel með þróun mála. Við hringdum í hann. Þórhildur Ída Þórarinsdóttir er fyrsta konan í 83 ára sögu Svifflugfélags Íslands til að gegna stöðu formanns félagsins. Hún vill auka veg kvenna í svifflugi og hvetur þær til að kynna sér sportið. Hún segir ekki jafnast á við það að svífa frjáls eins og fuglinn um himininn. Þórhildur Ída kom til okkar í spjall. Elías Gíslason, forstöðumaður Ferðamálastofu, var á línunni hjá okkur en Ferðamálastofa auglýsir nú eftir gististöðum sem getur tekið á móti fólki sem þarf að fara í sóttkví. Allir sem koma til landsins að utan þurfa að fara í sóttkví frá og með miðvikudeginum og eru margskonar reglur sem gististaðirnir þurfa að uppfylla. Við töluðum við Atla Þór Fanndal hjá Geimvísinda- og tækniskrifstofunni en eldflaugaskot skoska fyrirtækisins Skyrora gekk með miklum ágætum í gær. Þetta er fyrsta eldflaugaskotið héðan frá Íslandi í hálfa öld. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fulltrúi íþróttadeildarinnar fór yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar með okkur, en fótboltinn rúllaði m.a. af stað að nýju hér á landi. Tónlist: Una Stef og The SP74 - Tunglið, tunglið taktu mig. Chris Cornell - The Keeper. KK - Þetta lag er um þig. Guðni Þór - Ive been waiting. Stefán Hilmarsson - Þú ferð mér svo ósköp vel. Arcade Fire - Everything now. Dua Lipa - Hallucinate. Á móti sól - Nýjar syndir. Madonna - Express yourself. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Sigmar Guðmundsson.
Páll Ásgeir Ásgeirsson kom til okkar og sagði okkur frá nýju verkefni á vegum Ferðafélags Íslands sem heitir hjól og fjall. Matvælasjóður varð til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi fyrr á þessu ári. Til stofnunar sjóðsins var varið 500 m.kr. sem verður úthlutað á þessu ári. Gréta María Grétarsdóttir var skipuð stjórnarformaður sjóðsins í júní og hún kom til okkar í spjall og sagði okkur frá tilgangi og verkefnum þessa nýja sjóðs, sem þó byggir á gömlum merg. Á mánudaginn kemur verður sýnd athyglisverð heimildamynd á RÚV sem ber heitið Börn hafsins. Myndin fjallar um hinn landlausa Moken-ættflokk við Andaman-haf í suðaustanverðri Asíu sem notar yfir þúsund ára gamlar veiðiaðferðir við að draga fram lífið, þar sem fólk m.a. kafar á allt að 30 m dýpi án hjálparbúnaðar, eingöngu með spjót að vopni. Íslenska kvikmyndafyrirtækið Profilm gerði þessa mynd sem hefur vakið athygli víða og við heyrðum í Jóhanni Sigfússyni leikstjóra um þetta magnaða verkefni. Friðjón Friðjónsson, áhugamaður um bandarísk stjórnmál, kom til okkar og sagði okkur frá nýju varaforsetaefni demókrataflokksins, Kamala Harris. Nú styttist í forsetakosningarnar vestra og spurning hvaða áhrif Kamala Harris hefur á baráttuna en Joe Biden er með mikið forskot á Donald Trump í skoðanakönnunum eins og er. Lukka Pálsdóttir, sjúkraþjálfari og eigandi Happ og Greenfit og Már Þórarinsson, GMB hreyfiflæðiþjálfari og eigandi Greenfit komu til okkar í smá heilsuspjall. Þau bjóða fólki að kanna hvernig ástand líkamans er og hvernig best sé að æfa með því að nota nýjustu tækni, blóðprufur og mælingar. Tónlist: Hildur Vala - Sem og allt annað. Eurythmics - I saved the world today. Rickie Lee Jones - Chuck E is in love. Friðrik Ómar og Jógvan - Sveitalíf. Auður - Enginn eins og þú. Bruce Springsteen - Hello sunshine. Taylor Swift - Cardigan. Einar Ágúst og Porterhouse - Mín von. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Sigmar Guðmundsson.
Gagnaþon fyrir umhverfið hefst í dag og er opið öllum. Tilgangur hakkaþonsins er að auka hagnýtingu og sýnileika opinna gagna í samræmi við Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Hvað þýðir þetta og hvernig fer það fram? Þau Íris Huld Christersdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Stefán Ö. Snæbjörnsson, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sögðu okkur það. Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri viðburða hjá Senu kom til okkar, en hann sagði í Morgunblaðinu í gær að Sena hefði aflýst 35 viðburðum vegna veirunnar. Jafnframt að sá veruleiki sem blasir við í vetur, að mögulega verði dregið úr aðgerðum og þær hertar á víxl, muni gera fyrirtækum í menningar- og skemmtanaiðnaðinum mjög erfitt fyrir. Þó gæti jólavertíðin bjargað einhverjum fyrir horn. Í lok mánaðarins opnar kvennaathvarf á Norðurlandi, en um er að ræða athvarf fyrir konur og börn þeirra sem ekki geta búið heima hjá sér vegna ofbeldis. Lengi hefur staðið til að færa þjónustuna út fyrir höfuðborgarsvæðið og langþráður draumur því að verða að veruleika með opnun kvennaathvarfs á landsbyggðinni. Gígja Hólmgeirsdóttir kíkti í heimsókn í verðandi kvennaathvarf Norðurlands og ræddi þar við þær Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru samtaka um kvennaathvarf og Guðrúnu Kristínu Blöndal, teymisstjóra Bjarmahlíðar miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis. Á að loka landinu með það að markmiði að útrýma veirunni hér svo lífið geti að einhverju leiti gengið sinn vanagang eða á að hafa það opið með einhverjum takmörkunum til að hleypa súrefni í efnahagslífið? Og hvernig eiga stjórnvöld að leggja línurnar fyrir veturinn? Þingmennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson og Ólafur Þór Gunnarsson ræddu þetta við okkur í þættinum. Guðmundur Jóhannsson mætti í tæknihorn vikunnar að loknu fríi og fór sitthvað forvitnilegt úr heimi tækninnar, m.a. hvernig NBA deildin í körfubolta nýtir tæknina nú á tímum Covid-19 og tiltekt hjá Facebook. Tónlist: Myrra Rós - Kveldúlfur. Van Morrison - Meet me in the Indian summer. Warmland - Superstar minimal. Beck - Loser. Aldís Fjóla - Wake up. Á móti sól - Nýjar syndir. Santana og Rob Thomas - Smooth. Birgir Steinn - Letting go. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Sigmar Guðmundsson.
Undirbúningur er hafinn á sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi í Hamrahverfi í Grafarvogi. Verkefnið er hluti af aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar um sérsöfnun á lífrænum eldhússúrgangi og endurvinnslu á honum. Slíkt verkefni hefur verið í gangi á Kjalarnesi frá því sl. haust og hefur gengið vel. Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða í Reykjavík kom til okkar og sagði okkur nánar af þessu og fleiri sorphirðu- og endurvinnslumálum. Jóhann Karl 1., fyrrverandi Spánarkonungur, hefur á örfáum árum farið úr því hlutverki að vera bjargvættur lýðræðis á Spáni og einn farsælasti konungur í sögu Spánar í að vera nánast fyrirlitinn kvennabósi og beinlínis lögbrjótur. Fyrir viku fór hann svo í útlegð og nú vita fáir hvar hann er niðurkominn. Jóhann Hlíðar Harðarson, okkar maður á Spáni þessi misserin, fór yfir það með okkur. Nú styttist í að eldflaug skoska fyrirtækisins Skyrora verði skotið á loft frá Langanesi en það mun að líkindum gerast á næstu dögum. Prófa á rafeinda- og samskiptabúnað eldflaugarinnar ásamt öðru. Atli Þór Fanndal frá Geimvísinda- og tækniskrifstofunni og Derek Harris frá Skyrora ræddu þetta við okkur. Niðurstöður nýrrar vísindagreinar sem birtist í European Heart Journal staðfesta að magn kólesteróls í fæðu hefur áhrif á kólesteról í blóði og eykur líkur á kransæðasjúkdómi, meðal annars hjartaáföllum. Þá geta viðbættir plöntusterólar stuðlað beint að æðakölkun, en plötusteróla er t.d. að finna í ýmsum hollustuvörum og fæðubótarefnum sem eiga að stuðla að hjartaheilsu. Hvað þýðir þetta og hvað er nýtt í þessum niðurstöðum? Vísindamenn Íslenskrar Erfðagreiningar unnu að rannsókninni ásamt samstarfsfólki og þau komu til okkar þau Hilma Hólm hjartalæknir og Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og fóru yfir þetta með okkur. Sævar Helgi Bragason snéri aftur eftir sumarleyfi og færði okkur fróðleik úr heimi vísindanna, m.a. um nýlegar geimferðir til Mars. Tónlist: Bogomil Font og Flís - Þvo sér hendur. Stevie Wonder - For once in my life. Baggalútur - Tíu dropar af sól. Paolo Nutini - Coming up easy. My Marianne og Will Ferrell - Húsavík (My hometown). Stjórnin - Sumar nætur. KK - Þetta lag er um þig. Norah Jones - Its gonna be. George Michael - Fast love. Tómas Welding - Lifeline (ft. Elva) Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Sigmar Guðmundsson.
Út er komin bókin Íslenskir matþörungar, sem eins og nafnið ber með sér, fjallar um þörunga sem nýta má til matargerðar og teljast til ofurfæðu úr fjörunni að mati höfunda. Fjórir höfundar koma að bókinni en aðalhöfundur er Eydís Mary Jónsdóttir og hún kíkti til okkar í morgunkaffi ásamt Hinriki Carli Ellertssyni matreiðslumanni og þau sögðu okkur meira af matþörungum og fjörumó Við ræddum við Auði Margréti Guðmundsdóttir sem er verkefnisstjóri í fangelsinu á Hólmsheiði. Hún hefur umsjón með verkefni sem nefnist Fangaverk og hefur reynst vel. Þar reynir á sköpunargleði fanganna sem búa meðal annars til kertastjaka úr því sem til fellur í fangelsinu og hugsa því um umhverfið í leiðinni. Þorsteinn Guðmundsson grínari og verkefnisstjóri hjá Bataskólanum býður upp á hálftíma af húmor á netinu þessa dagana, með það í huga að létta fólki lífið á þessum krefjandi tímum. Við slógum á þráðinn til Þorsteins og spurðum aðeins út í þetta. Nú eru aðeins fáir dagar þar til skólahald hefst að nýju. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að geta hafið hefðbundið skólastarf í leik- og grunnskólum, en óljósara er enn hvernig nám í framhaldsskólum verður útfært til að mæta reglum um fjöldatakmarkanir og 2m fjarlægð. Framhaldsskólanemendur urðu að læra í gegnum fjarnám vikum saman á sl. vorönn og reyndist það mörgum erfitt. Magnús Þorkelsson skólameistari Flensborgarskóla kom til okkar og ræddi skólastarfið framundan og hvaða áhrif ástandið hefur og getur haft á nemendur, t.d. með tilliti til brottfalls. Við fórum yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar og þar komu við sögu golf, knattspyrna og fleira. Tónlist: Ingó Veðurguð - Takk fyrir mig. A-ha - Hunting high and low. KT Tunstall - Suddenly I see. Eivör - Sleep on it. Simple Minds - Dont you forget about me. Daði Freyr - Where we wanna be. Moses Hightower - Stundum. The Magic Numbers - Love me like you. R.E.M. - The sidewinder sleeps tonite. Bubbi og Hjálmar - Þöggun. Gladys Knight and the Pips - Midnight train to Georgia. GDNR - Af og til. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Sigmar Guðmundsson.
Efnisveitan Ísflix opnar eftir mánuð en um er að ræða fyrstu efnisveituna á Íslandi sem er einungis ólínuleg. Markmið eigenda Ísflix eru að vera opinn vettvangur frjórrar lýðræðislegrar umræðu um íslensk þjóðfélags og menningarmál segir í tilkynningu frá aðstandendum og við heyrðum í einum þeirra, Jóni Kristni Snæhólm, sem var á línunni frá Bretlandi. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes er fyrsti og eini svæðisgarðurinn á Íslandi, stofnaður árið 2014. En hvað er svæðisgarður og hvað fer þar fram? Ragnhildur Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri garðsins og við hringdum í hana og fengum nánari upplýsingar. Heimildamyndahátíðin Skjaldborg á Patreksfirði hefur löngu fest sig í sessi en þar eru sýndar heimildamyndir af ýmsum gerðum. Vanalega fer hátíðin fram um hvítasunnuhelgina en sökum aðstæðna frestaðist hún í ár og verður hátíðin opnuð á föstudaginn kemur, þann 31. júlí nk. Kristín Arna Sigurðardóttir, Karna, sagði okkur meira af þessari skemmtilegu hátíð. Verslunarmannahelgin er framundan og hefðbundið útihátíðahald verður ekki í boði enda fjöldatakmarkanir í gildi. Einhverjir óttast þó að stórar hópar geti komið saman og svokallaðar sms hátíðir orðið til. Við heyrðum í Oddi Árnasyni yfirlögregluþjóni hjá Lögreglunni á Suðurlandi um viðbúnað vegna þessa. Við slógum í lokin á þráðinn til Vestmannaeyja og heyrðum af forvitnilegu hlaupi sem þar fer fram um helgina, svokölluðu Freyðivíns- og sumarkjólahlaupi. Tinna Tómasdóttir vissi allt um það mál og sagði okkur meira. Tónlist: Valdimar - Hverjum degi nægir sín þjáning. Amy Winehouse - Love is losing game. Leon Bridges - Bad Bad news. Friðrik Ómar og Jógvan - Sveitalíf. Aldís Fjóla - Wake up. Stjórnin - Sumarlag. The Police - Wrapped around your fingers. SSSól - Glugginn. The Cardigans - Youre the storm. Ingó veðurguð - Takk fyrir mig. Moses Hightower - Stundum. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson.
Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi ritaði á dögunum grein sem birtist í Kjarnanum um kærleiksríka fræðslu í forvarnarskyni. Hann segir tilkomu nýs barns auka álag og streitu og reyna verulega á sambönd. Aukin fræðsla geti haft mikið að segja. Ólafur kíkti til okkar í morgunkaffi og ræddi þetta frekar. Laugavegurinn hefur iðað af lífi og fjöri í sumar og boðið hefur verið upp á ýmis konar skemmtun. Nú stendur til að blása til fjöldasöngs á fimmtudaginn undir stjórn músíkalska parsins Siggu Eyrúnar og Kalla Olgeirs. Þau Sigga og Kalli eru alltaf hress og mættu til okkar í líflegt gleðispjall og spilerí. Brunavarnir Suðurnesja hafa verið í allt of litlu húsnæði í fjöldamörg ár en nú sér fyrir endann á því þegar glænýtt húsnæði verður tekið í notkun. Jón Guðlaugsson er Slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja og hann var í símanum hjá okkur. Óhefðbundnasta Verslunarmannahelgi í manna minnum er framundan. Davíð Rúnar Gunnarsson, Dabbi Rún, kemur að skipulagningu á hátíðarhöldum á Akureyri og segir þetta líklega verða Eina með frekar litlu frekar en Eina með öllu þetta árið. Við hringdum norður. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, sérfræðingur í sóttvörnum hjá embætti Landlæknis, kom til okkar og fór yfir stöðuna en nú eru yfir 20 virk kórónuveirusmit í landinu og hátt í 200 manns í sóttkví. Við veltum fyrir okkur hvaða áhrif þessi staða hefur á framhaldið og hvort reglur um fjölda verða hertar nú í aðdraganda Verslunarmannahelgarinnar? Við ræddum þetta og fleira er málið varðar við Kamillu. Tónlist: Emilíana Torrini - Elísabet. Coldplay - In my place. Nýdönsk - Örlagagarn. Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs - Fram í heiðanna ró (Lifandi flutningur). Baggalútur - Tíu dropar af sól. 200.000 Naglbítar - Núna og um framtíð alla. Jóhann G. Jóhannsson - Dont try to feel me. Lenny Kravitz - It aint over til its over. County line runner - Cold dawn. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson.
Það er mikið að gera hjá meindýraeyðum þessa dagana við að uppræta geitungabú. Í sumar var talið þeir ættu erfitt uppdráttar en svo virðist sem að geitungarnir séu bara seinna á ferðinni. Við heyrðum í Steinari Smára Guðbergssyni, meindýraeyði. Við ræddum um svokölluð DNA heimapróf í síðustu viku sem nú eru fáanleg hér á landi. Þar er hægt að leita upplýsinga um uppruna sinn sem og hugsanlegar líkur á arfgengum sjúkdómum. En er þetta svo einfalt þegar kemur að skimun og erfðaráðgjöf - að hægt sé að treysta á slík próf, eða þarf að huga að fleiru? Til okkar koma Ásdís Kristinsdóttir Frost, sameindalíffræðingur og Eirný Þöll Þórólfsdóttir, erfðaráðgjafi ræddu þessi mál við okkur. Bæjarhátíðir um allt land hafa ýmist fallið niður eða verið frestað í ljósi ástands og fjöldatakmarkana í ár. Ein þeirra stærri er Ljósanótt í Reykjanesbæ og nú hefur verið gefið út hvernig hátíðahöldum verður háttað þar í ár. Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi og verkefnisstjóri Ljósanætur var á línunni frá Reykjanesbæ og sagði okkur meira. Sólveig Sigurðardóttir hefur unnið mikið með fagsamtökum fólks með offitu í Evrópu. Hún fræðir okkur um sjúkdóminn offitu og ræðir hversu rangt henni þykir tekið á málum innan heilbrigðiskerfisins hérlendis sem og í samfélaginu. Sólveig kom til okkar. Við förum yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar með fulltrúa íþróttadeildarinnar. Moses Hightower - Stundum. Tracy Chapman - Fast car. Stevie Wonder - A place in the sun. Rúnar Júlíusson - Fraulein. Guðni Þór - Ive been waiting. Coney Island babies - Swirl. Oscar Leone - Superstar. Lay Low - Aukalagið. Travis - A ghost. Eivör - Sleep in it. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson.
Fótboltamótið REY Cup stendur nú sem hæst í Laugardalnum og hefur aldrei verið stærra. Hulda leit við í blíðunni í gær og hitti á framkvæmdastjóra mótsins Guðmund Breiðfjörð sem var kampakátur með góða stemmingu og viðtökur. Ólafía Hrönn Jónsdóttir söng- og leikkona var á línunni frá Hveravík en þar er hún á ferð með dularfullum tónlistarflokki sem kallar sig Gertrude and the flowers. Við fengum að vita meira og heyrðum lag. Eyþór Máni Steinarsson, rekstrarstjóri Hopp kom til okkar. Rafskúturnar eru um alla borg en hvernig gengur? Er mikið um skemmdir eða slys og hvernig gengur að tækla þær áskoranir sem upp hafa komið. Eyþór fór yfir þetta með okkur. Ólympíuleikunum í ár var frestað líkt og svo mörgum öðrum stórviðburðum, en það þýðir þó ekki að sjónvarpsáhorfendur fái ekki sinn skammt af olympíu stemmingunni þetta sumarið. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður leit við hjá okkur og sagði okkur frá nýjum sjónvarpsþáttum á RÚV þar sem einstakar Ólympíuminningar eru rifjaðar upp, en fyrsti þáttur er einmitt á dagskrá í kvöld. Tónlist: Bubbi og Hjálmar - Þöggun. Proclaimers - Im on my way. The Weeknd - In your eyes. Harry Nilsson - Everybodys talkin. Beggi Smári - Brostu. Gertrude and the flowers - Umbreyting. Ingó veðurguð - Í kvöld er gigg. Blondie - Call me. Sálin hans Jóns míns - Lestin er að fara. Spandau Ballet - Only when you leave. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson.
Hvað er glamping eiginlega? Bjarni Freyr Báruson hjá Volcano Huts í Þórsmörk sagði okkur frá því. Elfar Logi Hannesson leikari hefur brugðið sér í hlutverk margra kappa og hann er ekki óvanur að eiga sviðið einn. Nú leikur hann listamanninn með barnshjartað, Samúel Jónsson, í listasafni Samúels í Selárdal. Hulda var á ferð þar fyrir skemmstu og hitti einmitt á Elfar í kjölfar frumsýningar einleiks um Samúel. Gylfi Þór Þorsteinsson hefur í nógu að snúast í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg, Þar dvelja nú 25 manns og þar af 5 með staðfest smit. Gylfi Þór sagði okkur frá starfinu þar. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, ræddi við okkur um ábyrgð og þjónustu umboða gagnvart sjálfstætt innfluttum bílum. Misræmi sé þarna á milli og talað sé um gráan markað. Þá sagði hann okkur frá FÍB Aðstoðinni sem félagsmenn njóta um allt land. Hreindýraveiðar hófust í síðustu viku en á þessum tíma má einungis veiða tarfa. Strangar reglur gilda um hreindýraveiðar hér á landi og við slógum á þráðinn austur á hreindýraslóð og heyrðum í Jóhanni Guttormi Gunnarssyni hjá Umhverfisstofnun sem veit meira um málið. Tónlist: Ragnheiður Gröndal - Flowers in the morning. Foo Fighters - Walking after you. Kiriyama Family - Every time you go. Guðni Þór - Ive been waiting. Moses Hightower - Bílalest út úr bænum. Á móti sól - Nýjar syndir. Lenny Kravitz - Ride. Travis - Sing. U2 - Ordinary love. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson
Haraldur Gústafsson varð um helgina Íslandsmeistari í bogfimi með sveigboga. Hann sagði okkur frá sportinu. Hulda heimsótti Djúpavík á Ströndum á dögunum og ræddi þar við Héðin Birni Ásbjörnsson sem er einn þeirra er reka hótel Djúpavík. Hann hefur líka lagt mikla vinnu í að varðveita gömlu síldarvinnsluna á staðnum enda taugar hans til staðarins sterkar. Héðinn ver stórum hluta ársins á Djúpavík, en starfar líka sem fasteignasali í Kópavogi. Við heyrðum forvitnilegt spjall Huldu og Héðins. Unnið er að heimildarmynd um rokkömmuna svokölluðu, okkar einu sönnu Andreu Jónsdóttur útvarpskonu og skífuþeyti. Framleiðendur myndarinnar leita nú til Íslendinga eftir efni sem nýst gæti við gerð myndarinnar og kalla eftir m.a. gömlum kassettum með upptökum af Rás 2. Anna Hildur Hildibrandsdóttir framleiðandi var á línunni og sagði okkur meira af þessu. Oddný Harðardóttir ritaði grein í Dagskránna á Suðurlandi fyrir skömmu síðan þar sem hún mótmælti því að vegaframkvæmdir á Suðurlandi yrðu fjármagnaðar með veggjöldum og í einkaframkvæmd. Oddný var á línunni og ræddi þetta ásamt fleiri málum sem hafa verið í umræðunni sl. daga, s.s. málefni Icelandair og flugfreyja og atvinnuástand og fátækt á Suðurnesjum. Léttar þriðjudagsgöngur, sem eru hugsaðar sem fjölbreytt og stundum fróðleg afþreying, eru í boði í miðborg Reykjavíkur síðdegis á þriðjudögum og kostar ekkert fyrir þátttakendur. Guðmundur Ingi Þorvaldsson leiðir göngu um Reykjavík næstu tvo þriðjudaga, í kvöld er þemað arkitektúr í borginni og annan þriðjudag verður boðið upp á fimmauragöngu, hvað sem það nú er. Guðmundur Ingi var í símanum. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Þú átt mig ein. Baggalútur - Tíu dropar af sólskini. Sade - Still in love with you. Ezekiel Carl - Líður svo vel. Pat Benatar - We belong. Sigrún Stella - Sideways. GDRN ft. Flóni - Lætur mig. My Marianne og Will Ferrell - Húsavík. Billy Joel - Dont ask me why. Umsjón: Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir
Morgunútvarpið mán. 20.07.2020. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson Jörð hefur skolfið á Reykjanesskaga frá því í gær og gerir enn. Við heyrðum í Kristínu Maríu Birgisdóttur upplýsinga- og markaðsfulltrúa hjá Grindavíkurbæ sem sagði okkur hvernig nóttin var og hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar. Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjar.net, var á línunni og sagði okkur frá stöðunni sem er komin upp í Eyjum vegna aflýsingar Þjóðhátíðar. Mun fólk mæta þrátt fyrir allt enda margir búnir að festa gistingu til að mynda? Þá fengum við sýn ritstjórans á vekfall háseta, bátsmanna og þerna á Herjólfi en hann skrifaði eldfiman pistil á síðu eyja.net og talar um taktleysi. Efasemdir eru uppi í röðum bænda um gagnsemi þess að endurheimta votlendi og vísindarök sögð skorta. Þetta hefur meðal annars komið fram í Bændablaðinu og nú síðast í frétt á Stöð2. Einar Bárðarson er framkvæmdastjóri Votlendissjóðs sem sendi frá sér fréttatilkynningu um málið í gær. Einar kom til okkar. Við renndum yfir helstu fréttir af íþróttum helgarinnar. Sambíóin Kringlunni buðu uppá bíósýningu í gær þar sem smáhundar voru leyfðir með í salinn. Var þetta gert í tilefni þess að Kringlan leyfir hunda á sunnudögum. Hörður Fannar Clausen var vaktstjóri í bíóinu í gær og hann fór yfir þetta með okkur. Tónlist: Sváfnir Sig - Líttu aftur. Eagles - New kid in town. GÓSS - Sólarsamba. Albatross - Já það má. Sálin hans Jóns míns - Haltu fast í höndina á mér. Ásgeir Trausti - Hringsól. Emilíana Torrini - Big jumps. Sebastian Tellier - Divine. Elíza Newman - Vaknaðu. Peter Björn og John - Young folks. 2Pac - California love. John Mayer - Carry me away.