POPULARITY
Sunnudagurinn 4. maí Synir Egils: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Svandís Svavarsdóttir formaður Vg, Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður og væntanlegur þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og ræða fréttir vikunnar, átök og umræðu í samfélaginu. Síðan koma þrír af frambjóðendum til formanns Íþrótta- og ólympíusambands Íslands: Valdimar Leó Friðriksson, Magnús Ragnarsson og Brynjar Karl Sigurðsson og ræða íþróttahreyfinguna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Jónas Sverrisson, formaður Fisfélags Reykjavíkur, ræddi við okkur um fisið. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, ræddi við okkur um réttarkerfið. Gunna Dís Emilsdóttir, útvarps- og sjónvarpsstjarna, og Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV og skákmeistari, fóru yfir fréttir vikunnar. Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, stofnandi Lífsbókarinnar og Trés lífsins, ræddi við okkur um áhugavert frumkvöðlaverkefni þar sem fólk skráir sitt lífshlaup. Jón Karl, forseti Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi, ræddi við okkur um Stóra Plokkdaginn á sunnudaginn. Lagakeppni
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti, ræðir við Lindu um konur, heilsu og bætiefni. Þu lærir hvaða fimm bætiefni allir ættu að taka – og hvaða hreyfing hentar konum á miðjum aldri. Stútfullur þáttur af fræðandi efni um heilsu og bætiefni. Hér að neðan eru upplýsingar um Omega-3 olíuna sem talað er um í þættinum: Omega - 3 er nauðsynleg fyrir heilsuna og hefur áhrif á m.a. heila og minni, augu og sjón, hjartaheilsu og blóðþrýsting og blóðfitu, húðina og húðvandamál og verki í liðum. Omega -3 fyrirbyggir og vinnur á bólgum í öllum líkamanum, stuðlar að jafnvægi á blóðsykri, insúlin næmi og fitubrennslu og hormóna heilsu. Olíuna er hægt að panta í 6. mánaða áskrift. Þú færð olíuna senda mánðalega með pósti. Það tekur sex mánuði að fá jafnvægi á milli bólguvaldandi omega - 6 fitusýra og omega-3 í heilanum og í líkamanum. Hér er hlekkur beint á sölusíðuna Smelltu á hlekkinn: https://eqology.com/pAbjcs Skráðu þig sem nýjan kúnna. Greiða vöruna. Hafa samband við Þorbjörgu thorbjorg@thorbjorg.dk Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍFSÞJÁLFASKÓLINN ✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ ✔️ NÁMSKEIÐ ✔️ VÖRUR ✔️ MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis) P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræddi í dag við forystu Evrópusambandsins um tollamál og hvernig Ísland gæti komist hjá því að lenda á milli í tollastríði Evrópu og Bandaríkjanna. Hún segir að sín skilaboð hafi komist skýrt og milliliðalaust til skila. Kristrún hefur áhyggjur af áhrifum þess á íslenskan útflutning ef ESB bregst hart við því ef vörur sem ekki eigi greiða leið inn á Bandaríkjamarkað flæði inn á þann Evrópska. Skipulögð glæpastarfsemi hefur náð að festa hér rætur og birtist með ýmsum hætti. Þingmennirnir Guðrún Hafsteinsdóttir og Grímur Grímsson ræddu um hvernig bregðast megi við. Þau telja bæði að styrkja þurfi heimildir lögreglu til afbrotavarna.
Guðrún Hafsteinsdóttir, nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þrátt fyrir að hún sjái ekki fyrir sér að vera í embætti formanns í jafn langan tíma og Bjarni Benediktsson sé hún ekki þarna sem millistykki áður en nýr formaður tekur við. Í þessum þætti ræðir hún í hvaða átt hún vilji leiða Sjálfstæðisflokkinn, hvort hún myndi vilja mynda ríkisstjórn með Flokki fólksins, ríkisstjórnarsambandið, útlendingamál og margt fleira. - Er búið að vængstífa Ingu Sæland? - Myndi Guðrún vera tilbúin að hoppa inn í stjórn með Viðreisn og Samfylkingu í stað Flokk fólksins? - Væri Guðrún til í að starfa með Flokki fólksins? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á : www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Guðrún Hafsteinsdóttir nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins um stjórnmál. Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunnar og Jóna Bjarnadóttir framkvæmdastjóri um virkjanamál. Valgerður Rúnarsdóttir yfirlæknir á Vogi og Helga Þórarinsdóttir læknir á geðdeild Landspítalans um hugvíkkandi efni. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands um trúmál.
Donald Trump fór mikinn í stefnuræðu sinni á Bandaríkjaþingi í gær, þar sem hann talaði lengur en nokkur annar Bandaríkjaforseti hefur gert við slíkt tækifæri, hartnær 100 mínútur. Um alþjóðamál talaði forsetinn tiltölulega lítið. Hann minntist þó á mikilvægi þess að Bandaríkin fengju full yfirráð yfir Grænlandi og Úkraínustríðið nefndi hann nánast í framhjáhlaupi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fyrrverandi utanríkisráðherra og starfsmann Sameinuðu þjóðanna um ólgu á alþjóðasviðinu eftir embættistöku Donalds Trump. Hagræðingarhópur forsætisráðherra skilaði sextíu tillögum til forsætisráðherra í gær. Komist þær til framkvæmda gæti ríkið sparað sér 71 milljarð næstu árin. Það á að sameina stofnanir, hætta að borga handhöfum forsetavalds og breyta regluverki en ekki var snert á þeim atriðum sem talin voru hápólítísk, eins og RÚV og ÁTVR. Freyr Gígja Gunnarsson leitaði álits formanna tveggja stjórnarandstöðuflokka á tillögunum, þeirra Guðrúnar Hafsteinsdóttur og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Lóa Björk var alla helgina á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn var sögulegur fyrir tvennar sakir. Formannstíð Bjarna Benediktssonar lauk, en hann hefur gegnt embætti formanns Sjálfstæðisflokksins síðan 2009. Og í fyrsta sinn í sögu flokksins var kona kjörin formaður. Guðrún Hafsteinsdóttir vann Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur með naumindum um helgina. Spenna meðal fundargesta var áþreifanleg. Rætt er við fundargesti og atburðarrás helgarinnar þrædd.
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: ✨ Bad weather during last weekend. Roofs blown off, Reykjavík seaside hit with big waves.✨ The Independence Party elects a new chairman; Guðrún Hafsteinsdóttir. What does this mean for the future of the party?✨ A Samovar gifted to then mayor of Reykjavík Davíð Oddsson by Mikhail Gorbachev during the 1986 summit meeting in Reykjavík finds its way to an auction, raising questions about its ownership.✨The fallout of the Trump Zelenskyy meeting on Friday reaches Iceland.✨ And yes, the teacher's strike is over.This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
Bítið með Heimi, Lilju og Ómari. Konráð Guðjónsson, hagfræðingur ræddi við okkur um fjárfestingar lífeyrissjóðanna og hvort þeir geti komið meira að innviðauppbyggingu.. Þorvaldur Flemming var í beinni frá Danmörku og ræddi uppákomuna í Hvíta húsinu og Eurovision. Guðrún Hafsteinsdóttir, nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi við okkur um nýjan veruleika eftir landsfund. Flosi Eiríksson býður sig fram sem formaður VR. Hann ræddi við okkur um kosningabaráttuna og hlutverk VR. Hlustendur hringdu inn Sylvía Haukdal og Auður Ögn hjá 17 sortum kíktu til okkar með bollur.
Gestur í kvöld er Guðrún Hafsteinsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrum Dómsmálaráðherra en hún býður sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi sem fer fram um næstu helgi.Umræðuefni í þættinum:FormannsslagurinnTíminn sem DómsmálaráðherraÚtlendingamálAðdragandinn að framboðinuNýja RíkisstjórninSjálfstæðisflokkurinnReykjavíkurborgRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:AutocenterSerrano - 20 % afsláttur með kóðanum "burritoafterdark"Orka NáttúrunnarDokobitTMSJÖSTRANDLengjanKontakt fyrirtækjaráðgjöfBúllanBudvarSubwayDave&JonsFrumherjiKEMIBónusNjótið vel kæru hlustendur.
Guðrún Hafsteinsdóttir ræðir um formannsframboð sitt í Sjálfstæðisflokknum, um endalok síðustu ríkisstjórnar, um erindi Sjálfstæðisflokksins, um meintar fylkingar innan flokksins, hvernig stjórnmálamenn líta á atvinnulífið og margt fleira.
Við fjölluðum um gigt og mataræði í þættinum í dag. Talið er að einn af hverjum fimm fái gigtarsjúkdóm einhvern tíma á lífsleiðinni og allir geta fengið gigt, óháð aldri. Einkennin geta verið misjafnlega alvarleg, það fer eftir uppruna, en það sem flestar gigtar tegundir eiga sameiginlegt eru bólgur, stirðleiki og verkir. Vísindalegar rannsóknir sýna að bólgustemmandi mataræði dregur ekki bara verulega úr einkennum heldur eykur einnig lífsgæði og vellíðan. Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringarþerapisti kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um gigt og mataræði. Við fræddumst svo um bækur sem eru fyrst og fremst fyrir fólk af erlendum uppruna sem er að læra íslensku. Þetta eru skáldsögur, smásögur, þar sem erfið orð og orðasambönd eru útskýrð með tilvísunum sem þá hjálpa nemendum, sem er búin með grunnnám í íslensku, til að komast lengra í málskilningi og málnotkun í gegnum áhugaverðar sögur. Bækurnar henta líka til að efla orðaforða íslenskra barna og unglinga. Kristín Guðmundsdóttir er matartæknir að mennt og höfundur bókarinnar kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá þessum bókum, hvernig þær komu til og hvernig og hverjum þær hafa nýst. Svo var það veðurspjallið, Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom til okkar í dag og í þetta sinn staldraði Einar aðeins við óveðrið í síðustu viku, 5. og 6. febrúar. Þó veðrið hafið orðið hart og þó nokkuð afbrigðilegt gekk mjög vel að spá fyrir um það. Svo eru það vetrarblæðingar á vegum sem hafa eðlilega verið mjög í fréttum undanfarið. Hvað þarf til, veðurfarslega, til að framkalla þennan ófögnuð? Og þessar vetrarblæðingar eru ekki bara bundnar við Ísland. Svo í lokin veltum við fyrir okkur spurningunni, er að koma vor? Tónlist í þætti dagsins: Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson o g Mannakorn (Magnús Eiríksson) Our House / Crosby, Stills, Nash & Young (Graham Nash) Jeg har så travlt / Tina Dickow og Helgi Hrafn Jónsson (Tina Dickow) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kom í Spegilinn þegar hún tilkynnti um sitt formannsframboð og í þættinum verður rætt við hinn formannsframbjóðandann, Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Sjálfstæðisflokkurinn er á stað sem hann er ekki vanur að vera á og það hefur verið talað um átök milli fylkinga. Við spyrjum Guðrúnu út í það. Við byrjum á öryggisráðstefnunni í München þar sem margir helstu ráðamenn eru samankomnir til að fjalla um ástand heimsmála, í þeim hópi er Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hana.
Föstudagur 14. febrúar Vikuskammtur: Vika 7 Efnistök að þessu sinni verða, á meðal annars, sviptingar í borginni, ofbeldi í barnaskóla, brim við Þorlákshöfn, Guðrún Hafsteinsdóttir, Trump, Pútín, Úkraína, vopnahlé á Gaza, Kendrick Lamar og Superbowl ofl. Til leiks mæta þau Daníel Thor Bjarnason þroskaþjálfi, Anita DaSilva, úr ungliðahreyfingu sósíalista, Laufey Líndal, tæknimaður og Valgerður Árnadóttir, fyrrverandi varaþingmaður Pírata og dýravinur
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Einar Þorsteinsson borgarstjóri í Reykjavík um borgarmál. Guðrún Hafsteinsdóttir alþingismaður um stjórnmál. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og Pawel Bartoszek alþingismaður um alþjóðamál. Einar Stefánsson prófessor Emeritus og Jón Atli Benediktsson rektor HÍ um vísindi og fræði.
Lífið er núna dagurinn er haldin í dag, en þessi vitundarvakning Krafts er árleg og er ein stærsta fjáröflun félagsins og stendur til 12.febrúar. Kraftur hvetur vinnustaði til að brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. að bjóða upp á appelsínugular veitingar og jafnvel að klæðast í appelsínugul föt og einhverjar byggingar eru lýstar upp með appelsínugulri lýsingu sem er litur Krafts. Við ræddum við þær Ragnhildi Þóru Hafsteinsdóttur og Katrínu Petersen í dag. Ragnhildur sagði okkur frá þeirri lífsreynslu að greinast með bráðahvítblæði þegar hún var í mastersnámi og á 30. viku í meðgöngu af þriðja barni. Ragnhildur var greind á fimmtudegi og var líf hennar og ófædda drengsins hennar í húfi. Lyfjameðferð hófst strax tveimur dögum eftir greiningu og að auki kom í ljós hjartabilun sem gerði það að verkum að það yrði ekki öruggt fyrir hana að fara inn í fæðingu. Kraftur selur húfur til styrktar í tilefni vitundarvakningarinnar og ágóðinn af sölunni fer allur í styrktarsjóð Krafts. Hvernig er talað á þínum vinnustað? Er mikið slúðrað þar? Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, doktor í félagsfræði, sem kallar sig líka Doktor slúður, fer á vinnustaði, hittir hópa, félagasamtök og jafnvel bæjarfélög þar sem hún talar um slúður sem valdatæki og stjórnun, en í doktorsrannsókn sinni rannsakaði hún slúður í minni samfélögum um allt land. Gréta Bergrún útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag. Tónlist í þættinum: Heima er hjá þér / Magni Ásgeirsson (Vignir Snær og Magni Ásgeirsson) Hér á ég heima / Fjallabræður og Sverrir Bergmann (Tómas Jónsson og Magnús Þór Sigmundsson) Heima / Haukur Morthens og hljómsveit Jörns Grauengaards (Oddgeir Kristjáns, texti Ási í Bæ) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Nærri fjögur þúsund tillögur bárust um hvernig hægt væri að hagræða í ríkisrekstrinum. Gylfi Ólafsson, sem á sæti í hagræðingarhópnum, fer yfir vinnu hópsins og í hljóðver ræða þau Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ólafur Stephensen, formaður FA, um þetta útspil forsætisráðherra og hvaða vonir sé hægt að gera sér um það. Síðar í Speglinum verður fjallað um sérstakt skilnaðarmál sem kom til kasta Mannréttindadómstóls Evrópu en eiginmaðurinn hélt því fram að kynlífsleysi væri skilnaðarsök.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Guðrún er dómsmálaráðherra Íslands. Guðrún varð ung forstjóri yfir Kjörís, eftir að faðir hennar varð bráðkvaddur. Hún segir þá reynslu hafa mótað sig og breytt viðhorfum sínum til lífsins. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um samfélagið, stjórnmálin, feril Guðrúnar og margt fleira Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/
- Gekk #MeToo of langt?- Skjátlast héraðsdómi um búvörulögin?- Er fiskeldi nauðsynleg forsenda fyrir blómlegt líf á Vestfjörðum?Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum er svarað í þessu viðtali við frambjóðanda Framsóknar í Reykjavík Norður, Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.
Næstkomandi laugardag heldur Félag um átjándu aldar fræði málþing undir yfirskriftinni Rannsóknir ungra sagnfræðinga á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld. Þór Martinsson, sagnfræðingur og kynningarfulltrúi Reykjavíkur Akademíunnar, er fundarstjóri á málþinginu, hann kom í þáttinn í dag ásamt Kolbeini Sturlu G. Heiðusyni sagnfræðingi, en hann heldur erindi á málþinginu um eigur vinnuhjúa í Skagafirði um miðja nítjándu öld. Í ár er 25 ára afmæli Bleiku slaufunnar fagnað. Slagorðið í ár er „Þú breytir öllu“ og er sjónum beint að aðstandendum og þeim þakkað, þeim sem hvorki búast við né ætlast til að fá þakkir, fólkinu sem er svo mikilvægt en á það til það að gleymast. Athyglinni er beint að aðstæðum þeirra, því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna í alvarlegum veikindum en líka þeim áhrifum sem veikindi ástvinar hafa óhjákvæmilega á líf þeirra. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu kom til okkar. Breytingaskeiðið er miklu meira en „bara“ hitakóf. Þetta tímabíl í lífi okkar kvenna, er langt og margar konur eru með margþætt og óþægileg einkenni eins og svefntruflanir, streitu, heilaþoku, minnisleysi, blæðingatruflanir, liðverki, þurrk í slímhúð og þrálátar blöðrubólgur. Fleiri hundruð konur hafa sótt námskeið Þorbjargar Hafsteinsdóttur Konur, hormónar og hollusta. Þorbjörg hefur skrifað margar bækur um samspil mataræðis og heilsu og haldið ótal mörg námskeið hér heima og erlendis. Þorbjörg kom til okkar í dag sagði okkur líka frá mataræði sem gagnast við gigt og bólgum. Tónlist í þættinum: Í minni skel – Bogomil Font og Salsakommúnan (Sölvi Rögnvaldsson, texti Sæmundur Rögnvaldsson ásamt Sölva) Bíldudals grænar baunir / Jolli og Kóla (Valgeir Guðjónsson) Í gegnum hollt og hæðir / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Þórarinn Eldjárn) (If paradise is) Half as Nice / Amen Corner (Battisti, Fishman & Mogol) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sunnudagur 29. september Synir Egils: Byrlun, vinnumansal, pólitísk átök og skuldir ríkissjóðs Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill, Jón Gnarr listamaður og pólitíkus og Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður munu taka púlsinn á pólitíkinni og síðan koma þrír þingmenn til að ræða stöðu ríkisfjármála, skuldasöfnun og vaxtabyrði: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar, Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata, Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingar.
Guðrún Hafsteinsdóttir alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi og núverandi Dómsmálaráðherra.
Umræða um aukin hnífaburð hefur verið hávær síðustu daga eftir lífshættulega árás sextán ára drengs á jafnaldra sína við Skúlagötu eftir menningarnótt. Við ræðum við yfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lækni á bráðamóttöku Landspítalans. Banaslysið á Breiðamerkurjökli hefur vakið upp mikla umræðu um ferðaþjónustuna, hvort græðgisvæðing hafi þar náð yfirhöndinni og hvort farið hafi verið of geyst þegar landið opnaðist eftir COVID og hingað komu skyndilega tvær milljónir ferðamanna, nánast á einu bretti. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, ræða málið.
Þórarinn ræðir við Guðrúnu Hafsteinsdóttur um stöðu útlendinga- og lögreglumála. Meginþorri hlaðvarpsins fer í að ræða hluti sem snúa að útlendingamálum og fjallað er um lokuð búsetuúrræði, pólitíkina, landamærin, menningu og gildi, erlenda þróun og það sem að Guðrún kallar séríslensk lög. Einnig er fjallað um skólamál, velferðarkerfið, stjórnmálin á Íslandi og fleira.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Víðir Smári Petersen dósent við HÍ um dómsmál. Björn Leví Gunnarsson alþingismaður um stjórnmál. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir alþimgismaður og Drífa Snædal talskona Stígamóta um mansalsmál. Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Pawel Bartoszek vara-borgarfulltrúi um forsetakosbningar.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Stefán Vagn Stefánsson alþingismenn um kjara- og efnahagsmál. Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri um nýjan Landspítala. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra um innflytjendamál. Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins (SGS) um kjaramál.
Við fáum að heyra allt um nýstofnað fagfélag um mengun á Íslandi - FUMÍS. Félagið einbeitir sér að mengun í jarðvegi og vatni og vill stuðla að aukinni þekkingu á góðum og vönduðum vinnubrögðum í þeim málum. Formaður félagsins Erla Guðrún Hafsteinsdóttir ætlar að ræða við okkur á eftir. Nikótínpúðar hafa á örfáum árum náð mikilli útbreiðslu og nú er svo komið að stór hluti ungs fólks notar þá að staðaldri - hafa gömlu tóbaksrisarnir aftur náð traustataki á almenningi? Við ræðum við Auði Hermannsdóttur, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um markaðssigur nikótínpúðanna. Svo kemur Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur RÚV til okkar í málfarsspjall.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Trausti Valsson, prófessor emeritus við HÍ um skipulag og náttúruvá. Gréta Gunnarsdóttir, yfirmaður UNRWA í New York um mannúð á Gaza. Sigmar Guðmundsson, Orri Páll Jóhannsson og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmenn um afstöðu Íslendinga til UNRWA. Einar Þorsteinsson borgarstjóri um borgarmál. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um púðurtunnuna fyrir botni Miðjarðarhafs.
Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öllu sem snýr að heilsu. Bækur hennar hafa vakið athygli víða um heim og Þorbjörg var vel á undan sinni samtíð í mörgu sem hún fjallar um í bókunum. Í þættinum ræða Sölvi og Þorbjörg um lífshlaup Þorbjargar, heilsu, samfélagsmál og fleira. Brotið er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Biobú - https://www.biobu.is/
Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öllu sem snýr að heilsu. Bækur hennar hafa vakið athygli víða um heim og Þorbjörg var vel á undan sinni samtíð í mörgu sem hún fjallar um í bókunum. Í þættinum ræða Sölvi og Þorbjörg um lífshlaup Þorbjargar, heilsu, samfélagsmál og fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Biobú - https://www.biobu.is/
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Helgi Pétursson formaður LEB um kjaramál eldri borgara. Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, Víðir Reynisson Víðir Reynisson sviðstjóri Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra um gosið við Grindavík.
Íbúar á Gaza nærast aðallega á vatni og brauði, segir Gréta Gunnarsdóttir yfirmaður sendiskrifstofu Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna - UNWRA í New York. Horfur eru á UNWRA geti héðan í frá aðeins dreift einum lítra af vatni til hvers flóttamanns á Gaza. 80 prósent íbúanna eru á vergangi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar um Fangelsismálastofnun voru gerðar alvarlegar athugasemdir við illa farinn og heilsuspillandi húsakost á Litla-Hrauni, ónóga mönnun til að tryggja öryggi fanga og fangavarða og fulla nýtingu afplánunarrýma, sem meðal annars hefur leitt til þess að refsingar hátt í þrjú hundruð dæmdra brotamanna féllu niður. Alvarlegustu athugasemdirnar lúta flestar að málum á könnu dómsmálaráðuneytisins. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra. Bretar hafa enn ekki gefist upp á að losa sig við hælisleitendur með því að senda þá til Rúanda, þrátt fyrir að hæstiréttur landsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að lögum samkvæmt megi ekki senda þá þangað. Á föstudaginn var Repúblikaninn George Santos rekinn af Bandaríkjaþingi í skugga fjölda ásakana um lygar, fjármálamisferli og fleira. Hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Hljóðmaður var Kári Guðmundsson.

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þorvaldur Friðriksson rithöfundur um skrímslafræði. Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri og Konráð Guðjónsson hagfræðingur um ástandið í Grindavík annars vegar og fjárhagsleg áhrif þess hins vegar. Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmálaráðherra, Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ um ástandið í Grindavík.
27. október 2023 Landsvirkjun stefnir enn að því að byggja Hvammsvirkjun þótt framkvæmdaleyfi fyrir henni hafi verið ógilt, segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað til sín alla hlutaðeigandi til að fara yfir verklag vegna lögregluaðgerðar í Grafarvogi í fyrrakvöld í tengslum við forsjármál. Nánast allt netsamband hefur verið rofið á Gazasvæðinu. Af þrjátíu og sjö dómum sem kveðnir voru upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra í fyrra, voru aðeins fimm birtir opinberlega. Birgir Guðmundsson, prófessor í fjölmiðlafræði, segir gagnsæi skorta í störfum dómstólanna. Kristín Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar, segir almennu regluna þá að dómar séu birtir á vefnum. Danska stjórnin hefur gert breytingar á frumvarpi um bann við að brenna Kóraninn og önnur helgirit. Þjóðaröryggi er í húfi að hennar sögn. Heimsbikarkeppnin á skíðum hefst á ný um helgina. Snjóleysi vegna hækkandi hitastigs gerir það að verkum að sífellt flóknara verður að hefja skíðavertíðina svona snemma þótt gífurlegir efnahagshagsmunir séu í húfi. Dómari á Ítalíu hefur gert tveimur bræðrum á fimmtugsaldri að flytja að heiman. Móðir þeirra á áttræðisaldri var búin að fá nóg af þeim. Flugfreyjufélag Íslands segir fullyrðingar forstjóra PLAY í Silfrinu á mánudaginn hafa verið rangar. Hann hafi gefið í skyn að félagið væri gult stéttarfélag; sem gengur frekar erinda atvinnurekenda heldur en starfsmanna. Heyrðist í Birgi Jónssyni, forstjóra Playt, og Berglindi Kristófersdóttur, formann Flugfreyjufélagsins. Heimsbikarkeppnin á skíðum hefst á ný um helgina. En snjóleysi vegna hækkandi hitastigs gerir það að verkum að sífellt flóknara verður að hefja skíðavertíðina svona snemma þótt gífurlegir efnahagshagsmunir séu í húfi. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar um efnahagsmál. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra um innflytjendamál. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Björn Leví Gunnarsson alþingismaður um stjórnmál. Fida Abu Libdeh framkvæmdastjóri GeoSilica um konur í atvinnurekstri.
Spegillinn 11. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Svandís Svavarsdóttir segir ákvörðun um framhald hvalveiða liggja fyrir síðar í þessum mánuði. Haukur Holm ræddi við hana. Landhelgisgæslan ætlar að hafa bakvakt þyrlusveitarinnar víðar en í Reykjavík um helgar þegar ferðamannastraumurinn er sem mestur. Ari Páll Karlsson ræddi málið við Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúa stofnunarinnar. Drífa Snædal, talskona Stígamóta, telur líkur á að fólk sem vísa á úr landi og svipt er öllum stuðningi fari í felur og grípi til örþrifaráða. Þrjár konur af nígerískum uppruna voru fluttar á sjúkrahús um miðjan dag eftir að þær voru sviptar félagslegum stuðningi og húsnæði. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Drífu Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segist enga vankanta sjá á nýju útlendingalögunum. Karitas M. Bjarkadóttir talaði við hana. Ekki liggur fyrir hversu mörg börn hér á landi eiga foreldri í fangelsi, þótt alþjóðsamþykktir kveði á um að halda skuli utan um slíkar upplýsingar. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir brýnt að huga betur að börnum í þessum aðstæðum. Ævar Örn Jósepsson talaði við hana. Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla í Danmörku eru orðnar tvöfalt fleiri en þær voru fyrir ári. Líkur minnka dag frá degi á að valdaræningjum í Afríkuríkinu Níger verði komið frá. Ásgeir Tómasson sagði frá. Íslandsbankahúsið á Kirkjusandi verður rifið í haust að sögn Kjartans Smára Höskuldssonar, framkvæmdastjóra eigandans, Íslandssjóða. Kærunefnd jafnréttismála hefur úrskurðað að Rauði krossinn á Íslandi hafi brotið lög um jafna stöðu kynjanna við launaákvörðun kvenkyns lögfræðings. Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastýra Rauða krossins, segir í viðtali við Ástrós Signýjardóttur að svona mál séu óheppileg.

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um aðdraganda, áhrif og afleiðingar ráðherraskipta í ríkisstjórn, þau áhrif sem Jón Gunnarsson hefur haft og hvaða áhrif Guðrún Hafsteinsdóttir kann að hafa, það hvort að umræða um málefni útlendinga hafi breyst og þá hvernig, hvernig þingheimur tekst á við breytingar á áfengismálum, það hvort að stjórnmálin séu eftirsóttur starfsvettvangur og hvaða atvinnumöguleika fyrrverandi stjórnmálamenn eiga og margt, margt annað í stútfullum þætti.
16.000 Evrópubúar létust vegna mikils hita í fyrra. Íbúar álfunnar þurfa búa sig undir fleiri hættulegar hitabylgjur. Þetta kemur fram í nýrri loftslagsskýrslu. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, segir stjórnvöld víða um heim ekki gera nóg. Karitas M. Bjarkadóttir sagði frá og ræddi við Önnu Huldu. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku og loftslagsráðherra segir ekki hafa komið til tals að hann skipti um ráðuneyti. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Guðlaug. Guðrún Hafsteinsdóttir varð í dag níunda manneskjan til að taka við embætti dómsmálaráðherra eftir hrun. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Formaður Félags heyrnarlausa á Íslandi segir að heyrnarskert börn fái ekki þá þjónustu sem þau þurfi vegna þess ástands sem nú ríki hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni. Benedikt Sigurðsson ræddi við Heiðdísi Dögg Eiríksdóttur, í gegnum túlk. Lítill kafbátur sem notaður er til þess að skoða flak skemmtiferðaskipsins Titanic finnst hvergi. Stúlka sem fann 14 ára gamalt flöskuskeyti í Sprite-plastflösku í Breiðafirði í gærkvöld, leitar sendandans. Þeir sem reiknuðu með snöggum viðsnúningi í Úkraínustríðinu þegar úkraínski herinn hóf gagnsókn sína hafa þurft að draga töluvert úr björtustu væntingum sínum. Rússneski andstæðingurinn var greinilega vel undirbúinn. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV er í Zaporizhzhia þar sem hörðusta bardagarnir geisa. Jón ræddi við Yuriy Malashko héraðsstjóra, Maxim herlækni og hermennina Volodymyr og Vitali. Kvenréttindadagurinn er í dag og þess minnst að konur eldri en fertugar fengu flestar kosningarétt þann 19. júní 1915. Á aðalfundur European Womens Lobby, regnhlífasamtökum kvennréttindasamtaka í Evrópu var tekist á um réttindi trans kvenna. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, ráðgjafi Kvenréttindafélagsins á fundinum. Hún segir fámennan en háværan hóp afvegaleiða umræðuna og draga athyglina frá öðrum mikilvægum málum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Brynhildi. Það er eins og heyrnarskertir á Íslandi séu afgangsstærð - þetta sé ekki nógu mikil fötlun til að veita þjónustu, segir Kristján Sverrisson forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Fleiri en eitt þúsund bíða eftir að komast að í heyrnarmælingu, ráðgjöf og val á heyrnartækjum. Biðin gæti tekið um tvö ár ef ekkert verður að gert. Benedikt Sigurðsson fréttamaður talaði við Kristján. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius, tæknimaður Jón Þór Helgasson, Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Spegillinn 16. júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Eggert Valur Guðmundsson, oddviti í Rangárþingi ytra, segir að framkvæmdaleyfi verði ekki veitt fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fyrr en gilt virkjanaleyfi liggur fyrir. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi við hann og Harald Þór Jónsson, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Stígamót hafa lagt fram tvær kærur síðustu daga vegna ofbeldis sem beinist gegn starfsfólki. Karitas M. Bjarkadóttir ræddi málið við Drífu Snædal, talskonu Stígamóta. Bjartmar Leósson, sem hefur lagt sig fram um að hafa upp á stolnum reiðhjólum segist langþreyttur á að lögreglan sinni málaflokknum ekki betur. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglan reyni sitt besta. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman. Kerfislæg vandamál innan lögreglunnar í Minneapolis gerðu dauðsfall George Floyd mögulegt. Þetta er niðurstaða rannsóknar bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Rebekka Líf Ingadóttir sagði frá. Hitamet sumarsins féll á Hallormsstað í dag þegar hitinn fór í 27,8 stig. Sólstrandarstemning er á Egilsstöðum sagði Sólveig Edda Bjarnadóttir veitingamaður. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við hana og Óla Þór Árnason veðurfræðing. Hljómskálagarðurinn verður í smærra hlutverki í þjóðhátíðarhöldunum í Reykjavík en alla jafna vegna framkvæmda. Kristín Sigurðardóttir talaði við Guðmund Birgi Halldórsson viðburðastjóra. Umræða um ráðherraskipti í ríkisstjórninni hefur verið óvenjuleg segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði; bæði vegna þess hve augljóst hefur verið að Jón Gunnarsson vill sitja áfram og eins vegna óþols Guðrúnar Hafsteinsdóttur sem tekur við. Í útlendingamálum hafi núningur milli stjórnarflokkanna kristallast. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Heildarneysla ferðamanna í fyrra var hátt í 650 milljarðar króna og er því í sögulegum hæðum að því segir í frétt Hagstofu Íslands um hlut ferðaþjónustunnar í landsframleiðslu. Benedikt Sigurðsson talaði við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðuna í greinininni. The Searchers, ein elsta bítlahljómsveit heimsins, heldur sína síðustu tónleika á morgun eftir 67 ára feril. Ásgeir Tómasson rifjaði upp feril hennar.

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öllu sem snýr að heilsu. Bækur hennar hafa vakið athygli víða um heim og Þorbjörg var vel á undan sinni samtíð í mörgu sem hún fjallar um í bókunum. Í þættinum ræða Sölvi og Þorbjörg um lífshlaup Þorbjargar, heilsu, samfélagsmál og fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/
Sunna Valgerðardóttir ræðir við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokks og verðandi ráðherra, Jóhann Pál Jóhannsson, þingmann Samfylkingar, og Sigmar Guðmundsson, varaformann þingflokks Viðreisnar. Ráðherraskipti í dómsmálaráðuneytinu, Evrópumálin, vaxtahækkanir, hvalveiðar og veðrið eru á dagskrá. Tæknimaður þáttarins er Kári Guðmundsson.

Gestir þáttarins eru: Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknarflokks og Börkur Gunnarsson rektor Kvikmyndaskóla Íslands og fyrrverandi blaðamaður. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kormákur Marðarson