POPULARITY
Hækkun veiðigjalds getur haft afdrifarík áhrif á einstaka byggðakjarna og breytingin gæti náð langt út fyrir útgerðina, snert samfélög í heild og umhverfi þeirra. Þetta kemur fram í drögum að umsögn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem þau kynntu fyrir þingmönnum á fundi í morgun. 141 fyrirtæki verður fyrir verulegum áhrifum af hækkun veiðigjaldsins, tuttugu og sex þeirra eru á Vestfjörðum. Húsnæðis og mannvirkjastofnun kynnti á mánudag tillögur að breytingum á eftirliti með byggingaframkvæmdum. Þar er meðal annars lagt til að tekin verði upp sérstökt byggingagallatrygging, til að auka vernd neytenda. Lögmaður, sem hefur sérhæft sig í gallamálum, segir ekkert tryggingafélag reiðubúið að veita slíka tryggingu fyrr en fúskurum hefur verið ýtt af byggingamarkaði. Ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins taldi nauðsynlegt að dómsmálaráðherra tæki ákvörðun um hvort rétt væri að auglýsa embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum laust til umsóknar í ljósi þeirra miklu breytinga sem gera ætti á embættinu. Úlfar Lúðvíksson sem þótti ákvörðun ráðherrans vera kaldar kveðjur til sín verður á launum í heilt ár.
María Pálsdóttir leikkona hefur svo sannarlega látið að sér kveða hér á Akureyri síðan hún flutti aftur þangað fyrir nokkrum árum. Hún opnaði Hælið, setur um sögu berklanna á Íslandi sem hefur hlotið mikla athygli enda fróðleg og áhrifarík sýning. Hún kom á fót Fiðringi, hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri í ætt við Skrekk fyrir sunnan og í gærkvöldi kepptu níu grunnskólar til úrslita í Hofi. Nú síðast hefur hún sett á stofn fargufu á Akureyri sem hún kalla Sánuvagn Mæju. María sagði okkur frá þessu öllu í þættinum í dag. Garðeigendur eru byrjaðir að huga að garðinum og víða er fólk að hreinsa til eftir veturinn. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom til okkar í dag og fór yfir vorverkin og sagði okkur líka frá 140 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands, en hún er einmitt formaður félagsins. Fyrir aldarfjórðungi, í júnímánuði árið 2000, riðu yfir Suðurland öflugir jarðfskjálftar sem skildu eftir sig djúp spor í minni þeirra sem upplifðu þá. Sveitarfélagið Rangárþing ytra stendur að verkefninu „Skjálftasögur“ með það að markmiði að safna saman persónulegum sögum af þessum stóra atburði og hvetja fólk sem upplifði skjálftana til að deila reynslu sinni, en sveitarfélagið vill nú tryggja að þessar mikilvægu frásagnir verði skrásettar. Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningafulltrúi Rangárþings ytra sagði okkur betur frá þessu verkefni, en hægt er að senda inn sögur á heimasíðu sveitarfélagsins: www.ry.is Tónlist í þættinum í dag: Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir) Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríkisson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson) Tíu dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlasons) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sunnudagurinn 9. mars Synir Egils: Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Eyrún Magnúsdóttir blaðakona, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og Sóley Tómasdóttir, fyrrum borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið hér heima og erlendis. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá svo til sín sveitarstjórnarfólk til að ræða stöðu sveitarfélaganna: Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar, Margrét Ólöf A. Sanders bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi og Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar Akraness greina vanda sveitarfélaganna,
Í þættinum verður fjallað um kosningar á Grænlandi, sem sjaldan hafa vakið jafnmikla athygli út fyrir landsteinana og nú, vegna fjölmargra frétta sem borist hafa um allan heim, um viðvarandi ásælni Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, í landið og auðlindir þess. Yfirlýsingar forsetans hafa hleypt illu blóði í ráðamenn á Grænlandi, í Danmörku og víðar á Vesturlöndum, en líka nýjum og auknum krafti í sjálfstæðisbaráttu Grænlands, þar sem stjórnvöld leggja áherslu á að Grænlendingar ráði sér sjálfir og landið sé ekki til sölu. En fyrst eru það nýsamþykktir kjarasamningar kennara og áhrif þeirra á fjárhag sveitarfélaganna Það er ljóst að kjarasamningarnir hafa veruleg áhrif á fjárhag þeirra, sum vilja bíða eftir einhvers konar útspili frá ríkinu en bæjarstjórinn í Kópavogi ætlar strax að taka í gikkinn og hagræða fyrir 470 milljónir í rekstri bæjarins á þessu ári.
Íslenskir og norskir embættismenn, sendiherrar og ráðherrar leggjast þessa dagana á eitt og minna Evrópusambandið á sérstöðu ríkjanna tveggja og að þau séu órjúfanlegur hluti af Evrópska efnahagssvæðinu. Óttinn er að Ísland og Noregur lendi á einhvern hátt í skotlínunni, þegar og ef til þess kemur að viðskiptastríð brjótist út fyrir alvöru milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Ljóst þykir að framkvæmdastjórn ESB lítur á Ísland og Noreg sem eina heild í þessu samhengi. Fjöldi sveitarfélaga stefnir að viðræðum um sameiningu á næstu árum en markmið stjórnvalda um að árið 2026 verði engin sveitarfélög með færri en þúsund íbúa, er enn langt undan. Enn eru fjögur sveitarfélög þar sem skráðir íbúar eru færri en hundrað. Á morgun hefst í Héraðsdómi Reykjaness aðalmeðferð í einu umfangsmesta skattrannsóknarmáli Íslandssögunnar þar sem fiskútflytjandi er sakaður um hundruð milljóna króna skatta undanskot. Kona sem vann fyrir hann og maður sem átti við hann viðskipti hafa þegar hlotið dóm en sjálfur telur hann rannsókn skattayfirvalda vera svo gallaða að það brjóti í bága við mannréttindasáttmála Evrópu.
Við ræðum áhrif loftslagsvárinnar á ýmsa innviði, einkum vatns- og fráveitur, við Hildigunni Thorsteinsson, veðurstofustjóra. Sveitarfélög þurfa á næstu árum að ráðast í ýmsar aðgerðir vegna aukinna öfga í veðurfari - en kröfur um slíkt eru í dag af skornum skammti. Hvað ef loftsteinn hefði ekki lent á jörðinni fyrir 65 milljónum ára? Hefði líf á jörðinni verið öðruvísi í dag? Væru enn risaeðlur á vappi? Hvað ef spurningar sem þessar eru vissulega skemmtilegar, en eru þær gagnlegar? Pétur Magnússon heimsótti Arnar Pálsson erfðafræðing í Háskóla Íslands og spurði hann út í hvað ef-fræði og risaeðlur. Við förum svo í tímavél aftur til ársins 1949 - þá urðu mörg stórtíðindi í Reykjavíkurborg - meðal annars komu fyrstu umferðarljósin - sem sumir vildu reyndar kalla götuvita. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, setur okkur inn í þetta og við heyrum brot úr safninu.
Í dag brugðum við okkur úr húsi og sendum út Mannlega þáttinn frá Skógarhlíð 14 þar sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er til húsa. Slökkvilið er byggðasamlag frá árinu 2000 stofnað af Reykjavíkurborg, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesbæ og Sveitarfélaginu Álftanesi. Verkefnin eru fjölbreytt eins og við komumst að í þættinum, útkallsþjónusta og forvarnir. Viðmælendur okkar voru Jón Viðar Matthíasson Slökkviliðsstjóri, Róbert Ægir Hrafnsson, bráðatæknir, en bráðatæknar eru þeir sem hafa mesta menntun í sjúkraflutningunum, og Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnarsviðs. Tónlist í þættinum í dag: Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson) Eldur / Heimilistónar (Heimilistónar) Never Ever Let You Go / Rollo and King (Sören Poppe, Stefan Nielsen, Thomas Brekling) Where do you go to my lovely / Petar Sarstedt (Peter Sarstedt) UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Spegillinn verður vestur á fjörðum og forvitnast um sveitastjórnarkosningar sem fara fram í nýsameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðar og Vesturbyggðar á morgun. Hann heldur líka vestur um hafi og heldur áfram umfjöllun um stúdentamótmælin í bandarískum háskólum. Þá verður rætt við Stíg Helgason, ritstjóra kosningaumfjöllunar RÚV um forsetakosningarnar, en fyrstu leiðtogaumræðurnar eru í kvöld.
ADHD er bæði ofgreint og ofmeðhöndlað hér á landi segir yfirlæknir ADHD-teymis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Landlæknir segir að á hverjum tíma séu nokkur mál vegna ávísana of stórra skammta ADHD-lyfja til meðferðar hjá embættinu og að misbrestur hafi verið á að næg eftirfylgni sé með slíkum lyfjameðferðum. Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar hafa í vikunni átt samráðsfundi með íbúum um möguleika á sameiningu sveitarfélaganna þriggja. Íbúafundir hafa verið haldnir í hverju sveitarfélagi fyrir sig undanfarin þrjú kvöld, þar sem íbúar hafa getað viðrað skoðanir sínar. Ragnhildur Thorlacius fréttamaður ræddi við Gunnar Axel Axelsson sveitarstjóri Voga, sem segir að þessar hugleiðingar séu ekki nýjar af nálinni. Bandaríska poppstjarnan Taylow Swift gaf í dag út sína elleftu breiðskífu, The Tortured Poets Departmant - aðdáendur Swift verða seint sagðir þurfa bíða lengi eftir nýrri tónlist frá átrúnargoði sínu, hún hefur ofdekrað þá með nýju efni síðustu árin Það er kannski ekki skrýtið að aðrir tónlistarmenn skyldi ranghvolfa augunum þegar hún tilkynnti á grammy í febrúar að von væri á plötunni, þá nýbúin að vinna verðlaun fyrir plötu ársins - þeir vissu að slagurinn væri tapaður og best væri að leyfa henni að eiga sviðið.
Alþjóðadómstóllinn í Haag féllst í dag á að rannsaka hvort Ísraelsmenn hafi framið þjóðarmorð á Gaza. Hann krafðist þess ekki að hernaðaraðgerðum yrði hætt, heldur að Ísraelsmenn gripu til allra ráðstafana til að koma í veg fyrir þjóðarmorð og tryggja að mannúðaraðstoð berist íbúunum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Hafrannsóknastofnun birti á dögunum skýrslu um niðurstöður viðamikillar langtímarannsóknar á næringu botnfiska við Íslandsstrendur. Í rannsókninni var skoðað í maga nær 600.000 fiska af 36 tegundum á ríflega aldarfjórðungstímabili, frá 1996 - 2023. Ævar Örn Jósepsson sagði frá og ræddi við Jónas Pál Jónasson, sviðsstjóra botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Bæjarstjórinn á Akureyri vill sjá ríkið veita meiri fjármunum til menningarmála í bænum en núverandi samningar segja til um. Sveitarfélagið standi fyrir öflugu menningarstarfi sem nýtist fólki víða um land. Sem dæmi fái Akureyri aðeins um fimm prósent af því menningarfé sem Reykjavík fái frá ríkinu. Ágúst Ólafsson sagði frá og talaði við Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra og Hlyn Hallsson, safnstjóra Listasafnsins á Akureyri
Við ræddum fjármálastöðugleika í spjalli við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Heimildarinnar. Fjármálakerfið stendur traustum fótum og á heildina litið virðist staða lántakenda vera góð. Það eru þó blikur á lofti, og gríðarlegar fjárhæðir húsnæðislána með föstum vöxtum sem losna á næstu misserum með tilheyrandi hækkunum. Við ræddum líka um fyrirtækið Amaroq Minerals, sem leitar að gulli á Grænlandi og var nýlega fært á svokallaðan aðallista Kauphallarinnar. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá umræðum um innflytjendamál í þýska þinginu og víðar í samfélaginu. Hann ræddi líka um Berlínarmaraþonið og nýja sýningu á verkum Edwards Munch. Í síðasta hluta þáttarins voru lýðræðið og sveitarfélögin til umfjöllunar. Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, er á því að sveitarfélögin séu hornsteinn lýðræðisins. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist Fontella Bass - Rescue me. Sting, Shankar, Anoushka - The book of my life. Jones, Norah - Sunrise.

Spegillinn 30. júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kári Guðmundsson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Fulltrúar Landsnets og Sveitarfélagsins Voga skrifuðu í dag undir samkomulag um lagningu Suðurnesjalínu 2, eftir rúmlega tíu ára harðvítugar deilur, sem margoft rötuðu fyrir dómstóla. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóra í Vogum og Guðmund Inga Ásmundsson, forstjóra Landsnets. Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að yfir 400 börn á flótta komi inn á leik- og grunnskóla á næsta skólaári. Borgin þarf meira fé frá ríkinu sem þarf að gera betur, segir Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í viðtali við Ólöfu Ragnarsdóttur. Landlæknisembættið leggur til að heilbrigðisráðuneytið breyti reglugerð um aðgengi að lyfjagátt í apótekum. Benedikt Sigurðsson ræddi málið við Ölmu Möller landlækni. Meirihluti lækna sem reka eigin starfsstofur samþykktu samning Sjúkratrygginga Íslands og Læknafélags Reykjavíkur sem var undirritaður í vikunni. Yfir 81 þúsund ferkílómetrar skóg- og gróðurlendis hafa orðið eldi að bráð í Kanada. Reykský frá eldunum valda gríðarlegri loftmengun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Fyrsta skrefið í átt að sögulegum sættum í stjórnmálum hefur verið stigið í Noregi. Gísli Kristjánsson sagði frá. Bíósýningum verður hætt í Háskólabíói í kvöld. Síðasta sýningin í 62 ára sögu kvikmyndahússins er þegar klukkuna vantar tíu mínútur í níu. Karitas M. Bjarkadóttir sagði frá. Réttarhöldum yfir kvikmyndaleikaranum Kevin Spacey var fram haldið í dag. Ástrós Signýardóttir sagði frá. Sextán prósent þeirra sem tóku afstöðu í Þjóðarpúlsi Gallup telja íslenskt samfélag hafa gengið of langt í samþykkja trans fólk. Karitas M. Bjarkadóttir tón saman.

Spegillinn 12.05.2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Þrír menn, sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á hvarfi Geirfinns Einarssonar á áttunda áratugnum, lýsa furðu sinni á að forsprakki þess að þeir voru ranglega bendlaðir við hvarf Geirfinns skuli fá sérstaka afsökunarbeiðni og tugmilljónir króna úr ríkissjóði. Benedikt Sigurðsson sagði frá. Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði dæmt flugvélaleiguna ALC og ríkið til að greiða Isavia samtals 2,3 milljarða króna. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Enginn árangur varð af samningafundi BSRB og sveitarfélaganna í dag. Benedikt Sigurðsson ræddi við Sonju Ýri Þorbergsdóttur, formann BSRB Vantrauststillaga minnihlutans gegn dómsmálaráðherra dregur dilk á eftir sér. Nýtt lögfræðiálit bendir til að vantrauststillagan hafi verið byggð á hæpnum grunni. Valur Grettisson ræddi við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um álitið. Yfir 20 vatnsból við Leyni í Landsveit eiga á hættu að skemmast ef fyrirhuguð uppbygging á ferðamannaþorpi gengur þar eftir segja landeigendur á svæðinu. Þeir gagnrýna Skipulagsstofnun fyrir aðgerðarleysi. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir sagði frá og talaði við Ásgeir Kr. Ólafsson sumarhúsaeiganda. Deilt er um hvort heimilt sé að taka blóð úr fylfullum hryssum hér á landi. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Björn M. Sigurjónsson, lektor við Dania háskóla í Danmörku, eru á öndverðum meiði. Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir að allar fregnir af dauða bókarinnar stórlega ýktar og stöðu hennar almennt góða. Ævar Örn Jóspesson tók saman. Tekjur af heimstónleikaferð söngkonunnar Beyoncé verða 2,4 milljarðar dollara, yfir 331 milljarð króna. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Hægja þarf á áformum um byggingu þjóðarhallar í Laugardal vegna ástandsins í efnahagsmálum. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra á Alþingi. Höskuldur Kári Schram tók saman. Samfylkingin mælist stærsti flokkur landsins í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup þriðja mánuðinn í röð, með 28 prósenta fylgi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs segir eignarhald borgarinnar í Ljósleiðaranum vekja spurningar í ljósi stærðar félagsins. Alexander Kristjánsson sagði frá. Engar sérstakar reglur gilda um uppflettingar í lyfjaávísanagátt þrátt fyrir að gögn þar teljist viðkvæmar persónuupplýsingar. Landlæknir íhugar breytingar. Benedikt Sigurðsson tók saman. Auka á stuðning við ungt fólk sem á erfitt með að vera á vinnumarkaði. Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK segir dæmin sanna að með réttum stuðningi geti fólk sinnt vinnu á ný. Alma Ómarsdóttir talaði við hana og Pál Ásgeir Guðmundsson forstöðumann hjá SA. ------------- Deilt var um það í borgarstjórn hvort skýra mætti fjárhagsvanda borgarinnar með kostnaði vegna þjónustu við fatlað fólk þegar fyrsta umræða um ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir 2022 fór fram. . Halli A- hlutans í fyrra var 15,6 milljarðar króna. Spilað var úr ræðum Dags B. Eggertssonar, Hildar Björnsdóttur og Einars Þorsteinssonar. Ragnhildur Thorlacius tók saman. KJjaraviðræður BSRB og sveitarfélaga annarra en Reykjavíkur eru í hnút. Helsti ásteytingarsteinninn er krafa BSRB um hækkanir sem gildi frá áramótum líkt og samið var um við SGS. Sveitarfélög segjast hafa staðið við samninga að fullu. Horfur eru á verkföllum BSRB félaga. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB. Evrópusambandið ætlar að krefja stærstu netfyrirtæki og samfélagsmiðla heims, um strangari reglur um persónuvernd og eftirlit með ólöglegu efni á miðlunum, þær verða að líkindum einnig teknar upp hér á landi. Björn Malmquist sagði frá. Spegillinn 5. maí Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir og Annalísa Hermannsdóttir.

Matvælaráðherra segir að engin önnur leið sé fær en að skera fé þar sem riða greinist Formaður deildar sauðfjárbænda hjá bændasamtökunum segir óásættanlegt ef bændum á Urriðaá verður gert að klára sauðburð áður en fé verður skorið. Nauðsynlegt sé að finna lausn á förgunarvanda á riðusýktum bæjum. Háskólanemendur hafa gerst uppvísir að því að láta gervigreind skrifa fyrir sig mastersverkefni. Sviðsforseti hjá Háskóla Íslands segir nýjan veruleika blasa við. Sveitarfélögin eru mjög misjafnlega sett þegar kemur að skuldum á hvern íbúa. Í Langanesbyggð er skuldin rúmar tvær milljónir, en hins vegar aðeins níu þúsund krónur í Tjörnesbyggð, sem er það sveitarfélag sem skuldar minnst miðað við íbúafjölda. Verkföll sem hófust í Noregi í morgun hafa meðal annars orðið til þess að bjór er víða á þrotum. Ekki hefur slitnað upp úr viðræðum verkafólks og vinnuveitenda með þessum hætti síðan í seinna stríði. ----- Það dynja áföll á sauðfjárbændum þessa dagana, rétt fyrir sauðburð. Riða hefur greinst á tveimur bæjum í Miðfirði og allt fé verður skorið á báðum bæjum, samtals um 1.400 fjár. En tíminn er við það að renna út fyrir sauðburð. Ef ekki næst að finna lausn á hvernig eigi að farga hræjum verður ekki ráðist í að skera fé fyrr en eftir sauðburð í sumar. Bændur eru ekki á eitt sáttir við að allt fé sé skorið þegar riða greinist. Á morgun verður haldinn íbúafundur í Húnaþingi vestra vegna riðunnar sem skekur samfélagið fyrir norðan. Ekkert lát er á bardögum stjórnarhersins í Súdan og RSF, herliðs uppreisnarmanna. Samkvæmt heimildum heilbrigðisyfirvalda hafa þeir kostað um hundrað almenna borgara lífið, en fullvíst er talið að þeir séu mun fleiri. Bjór er á þrotum í Noregi þegar á fyrsta degi verkfalls. Starfsfólk brugghúsa auk fjölda annara greina í iðnaði og þjónustu lagði niður vinnu í morgun. Verkfallið kom öllum á óvart enda ekki slitnað upp úr viðræðum verkafólks og vinnuveitenda með þessum hætti frá því að síðari heimsstyrjöld lauk. Gísli Kristjánsson í Noregi tekur við: Spegillinn 17. apríl 2023. Umsjón: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Nýjar tölur frá Byggðastofnun sýna að hlutfallslega flestir íbúar með erlent ríkisfang eiga heima í Mýrdalshreppi, eða 51,5%. Íbúar með erlent ríkisfang eru semsagt í meirihluta þar. Við hringjum austur og tölum við sveitarstjórann Einar Frey Elínarson. Samfélagið kynnir sér skyndihjálp í dag. Það styttist nefnilega í 112 daginn, sem fer fram á laugardaginn, 11.2. Á þeim degi er vakin athygli á skyndihjálp og því starfi sem fer fram hjá neyðarlínunni og fleiri viðbragðsaðilum og því sem almenningur getur gert. Þar gegnir skyndihjálp lykilhlutverki. Og þema dagsins er ?Hvað get ég gert?? Við ætlum að tala við Hildi Vattnes Kristjánsdóttur sérfræðing í skyndihjálp hjá Rauða krossinum á eftir. Við spjöllum við Auði Hrefnu Guðmundsdóttur nýráðinn svæðisstjóra Samtaka sameinuðu þjóðanna um ábyrga viðskiptahætti. Þetta er sáttmáli sem fyrirtæki og aðilar í atvinnulífinu geta gert við sameinuðu þjóðirnar og snýst um að tileinka sér sjálfbærni, berjast gegn spillingu, stunda og stuðla að umhverfisvernd, vanda mannauðsmál og fleira. Stefán Gíslason er svo með umhverfispistilinn í dag og hann ætlar í honum meðal annars að ræða um rafbíla
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, kom eins og stormsveipur inn íslensk stjórnmál fyrr á þessu ári. Hún ræðir hér um rekstur Kópavogsbæjar, um loforðalistann sem hún lagði fram fyrir kosningar, mikilvægi þess að halda sköttum og gjöldum í lágmarki, hvernig skattar eru að lækka í Kópavogi á meðan þeir eru að hækka í Reykjavík, hvort að sveitarfélögin séu að sinna óþarfa verkefnum, hvort það sé gott fyrir skattgreiðendur að mynduð sé pólitísk sátt um útgjöld hins opinbera og margt fleira.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tók í gær á móti Politician of the Year 2022 verðlaunum á One Young World ráðstefnunni sem fer fram í Manchester á Englandi - en ráðstefnan leiðir saman yfir tvö þúsund manns víðs vegar að úr heiminum sem öll eiga það sameiginlegt að vera leiðtogar á sínu sviði. Borgarfulltrúinn Hildur Björnsdóttir lét hafa eftir sér á dögunum að innviðir Reykjavíkurborgar væru að springa og skemmast þegar kaldavatnslögn í Hvassaleiti fór í sundur á samskeytunum svo gríðarlegur vatnselgur varð á svæðinu. Í gær var svo heitavatnslaust í Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum en miklar framkvæmdir hjá Veitum hafa einkennt svæðið undanfarna daga. Við fengum til okkar Sólrúnu Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra Veitna til að svara því hvort þetta sé rétt - þ.e., eru innviðir borgarinnar að springa og ef svo er, hvað er þá hægt að gera í því? Til stendur að þrjátíu Úkraínskir flóttamenn fái inni á Eiðum, gamla kjarnanum í kringum skólabygginguna um 10 kílómetra frá Egilsstöðum - en von er á fólkinu á næstu dögum. Við heyrðum í Birni Ingimarssyni sveitarstjóra Múlaþings, sem stendur að komu flóttafólksins, og spurðum meðal annars um innviði á Eiðum og framtíðarhorfur fólksins á svæðinu. Sveitarfélögin hringinn í kringum landið þurfa að undirbúa sig undir loftslagsbreytingar - en búast má við því að hlýnun jarðar geti haft afar ólík, en hamfarakennd áhrif vítt og breytt um landið - allt frá aurskriðum til flóða og svo framvegis. Anna Hulda Ólafsdóttir, yfirmaður skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands kom til okkar. Við ræddum við Höllu Ingólfsdóttur í Grímsey um skjálftana í nótt. Það hefur verið nokkuð líflegt í Kauphöllinni síðustu daga en í gær hækkaði úrvalsvísitalan um meira en eitt prósent, annan daginn í röð. Við ræddum við Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital, um horfur á mörkuðum hér heima og erlendis. Í gær var greint frá því að borgaryfirvöld í Haarlem í Hollandi hafa ákveðið að banna kjötauglýsingar á auglýsingaskiltum í eigu borgarinnar. Frá og með árinu 2024 má ekki auglýsa kjöt á strætisvögnum, biðskýlum og upplýsingaskjám sem borgin heldur úti. Bannið er sett af umhverfisástæðum en Græningjar eru í meirihluta í borgarstjórn Haarlem og talsmaður flokksins segir ekki forsvaranlegt að nýta borgarrými til að auglýsa vöru sem hefur neikvæð umhverfisáhrif. Við ætlum að ræða bannið við Valgerði Árnadóttur, formann Samtaka grænkera á Íslandi, og spyrja hvort að þau telji æskilegt að stjórnvöld hér ráðist í sambærilegar aðgerðir.

Útsýnispallurinn uppi á Bolafjalli verður loks tekinn í notkun í sumar eftir tafir en til stóð að opna fyrir umferð gangandi á hann í ágúst í fyrra. Við hringdum vestur í bæjarstjórann og ræddum framkvæmdina. Mikið er um að vera í golfinu þessa dagana. Í gangi er Evrópumót stúlkna og drengja og íslandsmeistaramótið framundan. Þá vinnur Golfsambandið markvisst að fjölgun kylfinga og aukinni þátttöku kvenna þannig að hlutfall kvenna verði um 40% fyrir árslok 2027 en í dag eru rúmlega 7 þúsund konur skráðar í golfklúbba. Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdarstjóri Golfsamband Íslands, kom til okkar í létt spjall. Fjörutíu og þrjú sveitarfélög eru of skuldsett og uppfylla ekki lágmarksviðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga um skuldahlutfall. Fjöldi sveitarfélaga í hallarekstri tvöfaldaðist í faraldrinum. Við ræddum fjárhagsstöðu sveitarfélaga og hvort bregðast þurfi við við Sigurð Inga Jóhansson, innviðaráðherra. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, sagði í pistli í Morginblaðinu í gær, afnám svæðaskiptinga í strandveiðum fullreynt. Hún hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi í haust um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiðimanna á nýjan leik - en smábátasjómenn á Norðausturlandi hafa lýst óánægju sinni með núverandi fyrirkomulag. Ráðherrann var gestur okkar eftir átta-fréttir. Á dögunum var staðfest að vettlingar sem hafa verið í vörslu Þjóðminjasafnsins síðan um 1960 séu meira en þúsund ára gamlir. Við ræddum við Önnu Leif Auðar-Elídóttur, verkefnastjóra hjá Þjóðminjasafninu, um vettlingana og aldursgreiningu þeirra. Í lok þáttar hringjum við á Selfoss og tölum við manninn á bakvið Kótelettuna, það er að segja bæjarhátíðina. Einar Björnsson sagði okkur frá hátíðinni sem hefst í dag og er haldin í 12. sinn. Tónlist: Hildur Vala - Betri tíð Todmobile - Lommér að sjá Coldplay - Higher power Laufey Lín - Everything I know about love Stuðmenn - Fljúgðu Mark Ronson x Amy Winehouse - Valerie Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum Love Guru - Heya Djamm

Landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri er framundan og við byrjuðum daginn á því að heyra í Ómari Braga Stefánssyni framkvæmdastjóri mótsins sem er að leggja lokahönd á undirbúning mótsins sem hefst í Borgarnesi á morgun. Félag reiðhjólabænda lagði í gær af stað í hjólandi hringferð um landið, til að vekja athygli á öryggi hjólreiðafólks í almennri umferð á Íslandi. Við ræddum við Birgi Birgisson, formann reiðhjólabænda, sem er nú staddur á hjólinu fyrir norðan, en það er nóg um að vera hjá félaginu þessa dagana, sem vinnur meðal annars að því að útvega flóttafólki og hælisleitendum hjól. Sveitarfélögin Múlaþing og Fljótsdalshreppur tóku höndum saman nýverið og fengu Hafþór Snjólf Helgason landfræðing og margmiðlunarhönnuð í lið með sér við að kortleggja sveitarfélögin í gegnum 5200 ljósmyndir sem nú er hægt að njóta í gegnum 360 gráðu sýndarferðalag. Hafþór Snjólfur var á línunni. Þjóðin fylgdist með umsátri í Hafnarfirði í gær en, þetta er ekki fyrsta skotárásin í vetur en fréttir af því að skotvopnum sé beitt gegn almennum borgurum verða sífellt algengari hér á landi. Runólfur Þórhallsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í greiningardeild Ríkislögreglustjóra, kom til okkar og ræddi aukna skotvopnabeitingu og störf samningamanna í svona umsátursástandi. Nýr banki hefur verið stofnaður hér á landi, og ber heitið Indó. Stofnendur bankans segjast bjóða upp á betri kjör en hinir viðskiptabankarnir en við spyrjum okkur; hvernig á þetta dæmi að ganga upp þegar ljóst er að fólk er líklegra til að skipta um maka en skipta um banka. Stofnendur bankans komu til okkar, þeir Tryggvi Björn Davíðsson og Haukur Skúlason, og sögðu okkur frá þessu stóra verkefni. Í vikunni hefur verið rætt um tryggingamál eftir að maður steig fram og sagðist hvergi geta líftryggt sig vegna þunglyndis og lyfjatöku sem því tengist. Það er svo sem vitað að fjöldi fólks á ekki kost á líftryggingum, eða býðst kjör sem eru varla ásættanleg, vegna ýmissa andlegra eða líkamlegra veikinda, eða hreinlega vegna holdafars og svo framvegis. Við fengum þær Sigrúnu Þorsteinsdóttur, sérfræðing í forvörnum, og Hrönn Steingrímsdóttur, sérfræðing hjá VÍS til að ræða þessi mál og hvort réttlætanlegt sé að setja slíkan verðmiða á líf og heilsu fólks. Tónlist: KK - Hafðu engar áhyggjur. Bastille - Shut off the lights. Pretenders - Hymn to her. Maneskin - Supermodel. Una Torfa - En. Coldplay - Yellow. Prins Póló - París norðursins. Lizzo - Juice

Þyrlustjóri hjá Landhelgisgæslunni er kominn í leyfi frá störfum vegna máls sem er til rannsóknar hjá lögreglu. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Sjálfkjörið verður í tveimur sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum á morgun, þar sem aðeins einn framboðslisti barst. Þetta er í Tjörneshreppi og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Ágúst Ólafsson talaði við Halldór Gunnar Ólafsson. Nýskipaður forsætisráðherra Sri Lanka segir að efnahagur landsins eigi enn eftir að versna áður en hann tekur að batna að nýju. Hann reynir að mynda þjóðstjórn til að taka á vandanum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Rafmyntir hafa verið í frjálsu falli í vikunni og ástandið á markaðnum er sagt líkjast hruninu 2008. Virði Bitcoin hefur minnkað um þriðjung. ------------------------ Meirihluti borgarstjórnar í Reykjavík er fallinn samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Framsókn sækir verulega í sig veðrið og bætir fjórum mönnum við sig en sjálfstæðisflokkur missir tæp níu prósentustig. Eva Heiða Önnudóttir stjórnmálafræðingur fór yfir niðurstöður. Við höldum áfram að velta fyrir okkur sveitarstjórnarkosningunum og kosningabaráttunni. Spennan magnast, ekki síst hjá þeim þúsundum sem eru í framboði og eiga mikið undir í því að fanga athygli og atkvæði kjósenda. Hvernig hefur það gengið þetta vorið? Jón Gunnar Ólafsson er doktor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Undirskrift sem fylgdi yfirlýsingu um að Birgitta Jónsdóttir tæki sæti á framboðslista Reykjavíkur; bestu borgarinnar er gjörólík undirritun Birgittu við drengskaparheit að stjórnarskrá þegar hún tók sæti á Alþingi. Brynjólfur Þór Guðmundsson ræddi við Inga Vífil um málið.

Í þætti dagsins gerum við aðra tilraun í að upplýsa hlustendur um fjármál sveitarfélaganna. Að þessu sinni var höfuðborgarsvæðið skoðað nánar en það eru Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes. Til að hrista aðeins upp í þessu fór Ingvi svo yfir veitingar flokanna á kosningardag en sjálfur kýs hann þann flokk sem býður upp á bestu veitingarnar hverju sinni.Ársreikningaþáttur Pyngjunnar er í boði Payday, Keldunnar og Dominos.Tengill á veflausn Brynjólfs Gauta: https://bggj.shinyapps.io/maelabord_arsreikninga_sveitarfelaga/?fbclid=IwAR0W77WNYVVa8nC5q2hvRVWYb-Oq09palf2X2Z1ZQuZyPih9INgv8RZHhUE
Í þætti dagsins drukknum við Pyngjubræður í grunnu lauginni. Við gerðum heiðarlega tilraun til þess að fara yfir 2021 ársreikninga sex stærstu sveitafélaga á landsbyggðinni (Þó aðeins fimm). Afraksturinn gæti orðið umdeildur en við reyndum okkar besta í að miðla þessum óspennandi upplýsingum.Tengill á veflausn Brynjólfs Gauta: https://bggj.shinyapps.io/maelabord_arsreikninga_sveitarfelaga/?fbclid=IwAR0W77WNYVVa8nC5q2hvRVWYb-Oq09palf2X2Z1ZQuZyPih9INgv8RZHhUE
Bændablaðið greindi frá því í gær að uppblástur í Norðurþingi væri mikill og að þrátt fyrir áratuga sáningu grasfræs og notkun á tilbúnum áburði sé árangurinn víða lítill í hlutfalli við vandamálið. Við heyrðum í Birni Halldórssyni, bónda á Valþjófsstöðum í Norðurþingi, sem segir að breyta þurfi stefnu Landgræðslunnar þegar kemur að notkun lúpínu. Listinn yfir þá fjárfesta sem keyptu hlut í Íslandsbanka á dögunum var birtur á miðvikudag en þar kennir ýmissa grasa. Eitt af því liggur í augum uppi þegar nöfn fjárfestana og stjórnenda þeirra félaga sem tóku þátt í útboðinu eru skoðuð er hversu fáar konur eru á meðal kaupenda. Þetta vekur upp stórar spurningar um stöðu íslenskra kvenna á fjármálamarkaði, aðgengi þeirra að fjármagni og hvar peningavöldin liggja í íslensku samfélagi. Katrín Ólafsdóttir dósent í hagfræði við Háskólann í Reykjavík kom til okkar til að fara yfir þessa stöðu. Útlit er fyrir verulegan taprekstur sveitarfélaga þriðja árið í röð. Við ræddum við Sigurð Snævarr, sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, um rekstrarhorfur sveitarfélaganna. Á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar með góðum gestum. Vikan sem nú er að líða bauð upp á stór mál sem nauðsynlegt er að kryfja. Til þess að fara yfir hlutina komu þau Guðmundur Gunnarsson, nýr fréttastjóri Markaðarins, og Þórhildur Þorkelsdóttir, kynningarfulltrúi BHM Íslenski geimfarinn Bjarni Tryggvason er látinn, 76 ára að aldri. Þessi eini íslenski geimfari á sér merkilega sögu en Örlygur Hnefill Örlygsson safnstjóri Könnunarsögusafnsins og stofnandi Iceland GeoSpace sem sérhæfir sig í þjálfun geimfara, hitti Bjarna og var á línunni hjá okkur frá Húsavík til að fara yfir ævi hans og afrek. Það eru ansi mörg á leið í fermingarveislur um helgina og þá þarf fólk að velta fyrir sér hvað eigi nú eiginlega að gefa fermingarbarninu. Venjan hefur verið lengi að gefa börnum á bilinu 5000 til 10.000 krónur í umslag en staðreyndin er sú að 5000 krónur árið 2005 eru ríflega 10.000 krónur í dag og 10.000 krónurnar árið 2005 eru ríflega 21.000 krónur í dag sé mið tekið af verðlagsþróun. Við ræddum þessa virðisskerðingu við Björn Berg Gunnarsson hjá Íslandsbanka og komast að því hvort og þá hvers vegna við erum að hlunnfara unglingana. Tónlist: Flott - Flott Crazy In Love - Beyoncé ft Jay Z You Stole the Sun from My Heart - Manic Street Preachers Superpower - Alicia Keys Little by little - Lay Low Niðrá strönd - Prins Póló Son of a Preacher Man - Dusty Springfield Stay (ft Justin Bieber) - The Kid Laroi

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í seinustu viku að meðal viðbragða Íslands vegna stríðsins í Úkraínu verði að efla netvarnir landsins. Seinustu misseri hafa þeir sem hafa eftirlit með netglæpum orðið varir við aukna skimun á kerfum hér á landi, en ekki árásir. Skönnun kerfa hefur sexfaldast á seinustu vikum sem gefur ástæðu til að hafa varann á. Netöryggi hefur verið mörgum hugleikið eftir að stór veikleiki uppgötvaðist í lok seinasta árs, þegar óvissustigi almannavarna var í fyrsta sinn lýst yfir vegna netógnar. Í dag var haldin ráðstefna á vegum Syndis, þar sem öryggismál net- og tölvukerfa voru í brennidepli. Tvö stríð eiga sér í rauninni stað, annars vegar það sem háð er á vígvellinum og hins vegar eru hópar hakkara að herja á kerfi Rússa. Spegillinn ræddi við Anton Má Egilsson aðstoðarforstjóra Syndis og Guðmund Arnar Sigmundsson, forstöðumann netöryggissveitarinnar CERT-IS. Skipulagsmálin eru meðal mikilvægustu verkefna sveitarstjórna; þau er alfa og omega sveitarstjórnarmanna því þar er samfélag mótað til lengri tíma, segir Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samráð við íbúa skiptir þar miklu og er lögboðið; en fólk þarf að vera vel vakandi og koma athugasemdum sínum við skipulag á framfæri í tíma. Það er erfitt að sveigja af leið þegar byrjað er að byggja. Það er því áskorun fyrir sveitarfélögin að halda vel utan um kynningarmálin. Aldís segir að skipulagsmál séu vissulega pólitísk en ekki endilega flokkspólitísk. Rútur sem flytja áttu fólk frá borginni Mariupol hafa verið stöðvaðar af rússneskum hermönnum. Forseti Rússlands hótar að stöðva gassölu til Evrópu strax nú um mánaðamótin nema að greitt sé í rúblum fyrir gasið. Móðir stúlku sem fæddist andvana telur að mögulega hefði verið hægt að bjarga barninu ef heilbrigðisstarfsfólk hefði tekið mark á áhyggjum hennar dagana á undan. Spennan fer vaxandi fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi. Ný könnun sýnir að Emmanuel Macron vinni Marine Le Pen aðeins með fimm prósentustiga mun í seinni umferð kosninganna. Tíu starfsmenn á skrifstofu Eflingar sögðu upp störfum í febrúar og mars. Aðalfundur er hjá félaginu 8. apríl þar sem Sólveig Anna Jónsdóttir tekur aftur við embætti formanns. Umboðsmaður barna segir stöðu á biðlistum eftir ýmsum greiningum barna vera óásættanlega. Móðir barns sem hefur beðið í 21 mánuð eftir einhverfugreiningu segir hræðilegt að þurfa að horfa upp á vanda barns síns aukast. Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júl

Fæðuöryggi, birgðahald, olíuverð og viðbrögð stjórnvalda vegna áhrifa stríðsins í Úkraínu voru þingmönnum hugleikin í óundirbúnum fyrirspurnum við upphaf þingfundar (líkt og í sérstöku umræðunni sem sagt var frá fyrr í fréttatímanum). Ráðherrar sögðu fyllstu ástæðu til að efla innlenda framleiðslu en hvorki væri ástæða til óttast fæðu né fóðurskort hér í ár. Tvær sameiningar sveitarfélaga voru samþykktar um helgina. Annars vegar fara Langanesbyggð og Svalbarðshreppur á Norðausturlandi í eina sæng og hins vegar Helgafellssveit og Stykkishólmsbær á Snæfellsnesi. Við sameiningu verður til nýtt 600 manna sveitarfélag á Norðurlandi eystra og 1250 manna fyrir vestan. Helgafellssveit og Svalbarðshreppur eru með fámennustu sveitarfélögum landsins, með innan við 100 íbúa hvort. Frá því í fyrrasumar hafa íbúar í 19 sveitarfélögum kosið um sameiningu; í Suður-Þingeyjarsýslu, tvisvar í Austur-Húnavatnssýslu, á Suðurlandi, Snæfellsnesi og í Skagafirði. Sumt var fellt, og annað samþykkt. Sigurður Ármann Snævarr er sviðstjóri hag og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögin sem samþykktu sameiningu um helgina höfðu áður ýmist kollfellt sameiningu, eða hún verið kærð og felld úr gildi. Hvað hefur breyst að mati Sigurðar? Bjarni Rúnarsson ræddi við Sigurð. Hópur alls óþekktra tónlistarmanna hefur náð mikilli spilun á streymisveitunni Spotify, með einfaldri, oft endurtekningasamri tónlist. Að baki tónlistarmönnunum er sænskt útgáfufyrirtæki sem hefur hagnast vel en forsvarsmenn þess vilja sem minnst segja um árangurinn. Kári Gylfason segir frá. Helstu atriði frétta: Fimm þúsund manns hið minnsta eru talin hafa beðið bana í hafnarborginni Mariupol í Úkraínu síðan Rússar hófu umsátur um borgina. Þar er enn mikil neyð og þúsundir innlyksa. Talið er að eitrað hafi verið fyrir erindrekum sem tóku þátt í friðarviðræðum Úkraínumanna og Rússa í byrjun mánaðarins. Þeirra á meðal er rússneski auðmaðurinn Roman Abramovich. Á tímabilinu 2010 til 2020 voru sex myrtir af maka sínum. Í fimm af þessum sex tilvikum voru karlar gerendur og konur þolendur. Miklir vatnavextir hafa verið síðustu daga víða um land. Bóndi í Ásahreppi segist ekki hafa séð jafnmikil flóð allan sinn tólf ára búskap í hreppnum. Kostnaður sveitarfélaga á hvern grunnskólanemanda er allt að fimmfalt meiri hjá minni sveitarfélögum en hjá þeim stóru. Sveitarfélögum fækkar um tvö eftir að sameining var samþykkt um helgina. Akureyrarbær hefur hafnað ósk ríkisins um að byggja bílakjallara undir fyrirhugaða heilsugæslustöð. Forsætisráðherra boðar

Rússar vörpuðu í dag sprengjum á barnaspítala í Mariupol. Yfirvöld segja borgina undir stöðugum árásum og að verið sé að reyna að jafna borgina við jörðu. Hallgrímur Indriðason sagði frá. Útlendingastofnun er skylt að afhenda Alþingi upplýsingar vegna umsókna um ríkisborgararétt innan viku, samkvæmt minnisblaði lagaskrifstofu Alþingis. Veiting ríkisborgararéttar með lögum hefur tafist vegna þess að stofnunin hefur ekki skilað umsögnum til þingsins með sama hætti og áður. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman af Alþingi. Heyrist í Jódísi Skúladóttur (V), Bryndísi Haraldsdóttur (D), Guðbrandi Einarssyni (C) og Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur (P). Heilbrigðisráðherra hvetur fólk til þess að gæta vel að sóttvörnum í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar og álags á heilbrigðiskerfið. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, f framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins telur að engu myndi skila að taka á ný upp sóttvarnaaðgerðir og takmarkanir. Kristín Sigurðardóttir talaði við hana. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur tekur þátt athöfn á Grænlandi í næstu viku, þar sem dönsk stjórnvöld biðjast afsökunar á samfélagstilraun Dana á grænlenskum börnum. Urður Örlygsdóttir sagði frá. Leikskóli hefur ekki verið starfræktur á Kópaskeri í vetur vegna þess að ekki tókst að ráða starfsmann. Sveitarfélagið hvetur foreldra engu að síður til að skrá börn sín í leikskólann fyrir næsta vetur. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við Jón Höskuldsson, fræðslufulttrúa í Norðurþingi. --------- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmálaráðherra segir mikilvægt að huga að fleiri þáttum en húsnæði við móttöku flóttamanna, Valgeir Örn Ragnarsson ræddi við hann. . Metfjöldi flóttamanna kom til landsins í gær frá Úkraínu. Talsverð óvissa er um hver endanlegur fjöldi verður. Bjarni Rúnarsson. ræddi við Regínu Ásvaldsdóttur sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborg um viðbúnað borgarinnar. Félagsþjónusta, lögregla og starfsmenn skóla í Svíþjóð vara við svokölluðum sykurpabba-vefsíðum, sem fjöldi ungmenna hefur skráð sig á undanfarin ár. Kári Gylfason segir frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir: Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Spegillinn 23. febrúar 2022. Umsjón: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Mark Eldred. Öllum samkomutakmörkunum vegna heimsfaraldursins verður aflétt annað kvöld. Starfandi forstjóri Landspítala segir óvissu fylgja afléttingum fyrir heilbrigðiskerfið. Sóttvarnalæknir talar um áfangasigur, en ekki lokasigur. Úkraínudeilan er mesta ógn við öryggi og frið í heiminum í áraraðir, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkjastjórn varaði Úkraínustjórn við því í morgun að frekari innrás Rússa væri líkleg á næstu tveimur sólarhringum. Formaður utanríkismálanefndar ítrekar að sýna pólitíska samstöðu með vestrænum ríkjum gegn Rússum og formaður Viðreisnar segir yfirgang Rússa vera mestu ógn vestrænna lýðræðisríkja í Evrópu í langan tíma. Mikil samstaða er á Alþingi. Hátt í 40 manns eru á biðlista eftir að komast í kynleiðréttingaraðgerð. Flestir þurfa að bíða í á annað ár eftir að komast í kynleiðréttingu. Ríkisendurskoðun telur tilefni til margs konar sameiningar ríkisstofnana. Þeim hefur fækkað um hátt í 40 prósent frá árinu 1998. Lengri umfjöllun: Viðbrögð leiðtoga margra ríkja, sem hafa fordæmt ákvörðun Vladimirs Pútins forseta Rússlands um að senda hersveitir inn á svæði í austurhluta Úkraínu - svæði sem Rússar hafa lýst yfir að séu nú sjálfstæð alþýðulýðveldi, hafa verið tal um að bæta í efnahagslegar þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi. Bandarísk og bresk stjórnvöld hafa til dæmis þegar kynnt aðgerðir sem eiga að torvelda rússneskum stjórnvöldum að afla lánsfjár til að fjármagna hernaðaraðgerðir og rétta skuldastöðu ríkisins. Refsiaðgerðirnar beinast bæði að bönkum og einstaklingum sem teljast til innsta hrings Pútíns. Utanríkisráðherra hefur þegar lýst því yfir að Ísland muni taka þátt í aðgerðum með sínum bandamönnum til að bregðast við ákvörðun Rússlandsforseta og á fundum utanríkismálanefndar Alþingis fyrr í dag var fjallað um viðbrögð Íslands. Voru þingmenn sammála um að ekki yrði unað við að Rússar brytu alþjóðalög og að staðan í Úkraínu væri grafalvarleg. Ísland framfylgir þegar þvingunaraðgerðum sem beinast að 28 ríkjum, hryðjuverkasamtökum og útbreiðslu efnavopna, eins og sjá má á yfirlit utanríkisráðuneytisins um slíka gjörninga. Þar á meðal eru aðgerðir sem beinast gegn Rússlandi og var komið á eftir innlimun Krímskaga árið 2014. Þær snúast um frystingu fjármuna, innflutningsbann á ákveðnum vörum frá Krím og Sevastopol svo nokkuð sé nefnt. Þeim var komið á með reglugerð ráðherra en eru í takt við það sem samþykkt hefur verið á alþjóðavettvangi eins og í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Viðbrögð Rússa