POPULARITY
Hér fer síðari hluti viðtals við Nínu Jónsson varformann stjórnar Icelandair Group um feril hennar hjá sumum af stærstu flugfélögum heims. Nína er ráðgjafi hjá Jetzero í Kaliforníu þar sem unnið er að byltingarkenndu þróunarverkefni um smíði nýrrar gerðar farþegaþotu sem kölluð er „blended wing-body aircraft“ eða vaffþotan. Nína segir að þarna gæti komið vélin sem Boeing ákvað á sínum tíma að smíða EKKI til að taka við af B757 og B767. Vonir eru bundnar við að vaffþotan sem er á stærð við B767 verði komin á almennan markað innan sjö ára og fyrsta slíka hönnunin á að fljúga innan tveggja ára á vegum bandaríska flughersins sem eldsneytisflutningavél (tanker). Nýstárleg hönnun vaffþotunnar á að stuðla að um 50% minni eldsneytiseyðslu miðað við hefðbundnar þotur af svipaðri stærð á markaðnum í dag.
Rætt er við Nínu Jónsson varaformann stjórnar Icelandair Group en hún á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Nína ólst upp í iðandi flugævintýri Íslendinga í Lúxemborg á áttunda áratugnum og fór í framhaldi af því til Bandaríkjanna að læra til atvinnuflugmanns. Fjöldagjaldþrot flugfélaga varð til þess að hún hélt áfram námi og lauk MBA gráðu frá Rensselaer Polytechnic Institute og B.Sc. gráðu í Air Transport Management. Nína hefur á síðustu árum unnið fyrir mörg stærstu flugfélög heims bæði austan hafs og vestan, einkum varðandi skipulagningu og samsetningu á flugflota félaganna. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem rætt er við Nínu. Seinni hluti viðtalsins verður birtur í næsta þætti.
Guðmundur Hafsteinsson stjórnarformaður Icelandair Group fer hér vítt og breitt yfir málefni Icelandair og áskoranir í rekstri félagsins. Aðalfundi Icelandair er nýlokið þar sem Guðmundur var endurkjörinn formaður stjórnar. Hann segir félagið mjög vel í stakk búið til að takast á við spennandi tíma framundan og grípa tækifærin sem gefast. Farið er yfir flotamálin, gengi félagsins á markaði og harða samkeppni á markaðnum og hvernig skiptistöðin í Keflavík nær ekki að anna umferðinni um völlinn. Guðmundur segir einni frá stórmerkilegum bakgrunni sínum m.a. í starfi hjá tæknirisunum Google og Apple.
In This Episode: With Icelandair's new nonstop service to the Land of Fire and Ice, RDU added back its first transatlantic flight in more than two years. Co-hosts Mary Griffith and Jake Potter go behind-the-scenes with Icelandair CEO Bogi Nils Bogason to learn about how the airline chose North Carolina for its newest destination. Later, Visit NC's Heidi Walters drops in to talk about how the tourism group is getting Icelanders excited to visit the Tar Heel State. Episode Guests: Bogi Nils Bogason was named President and CEO Icelandair Group in December 2018 after having served as the Chief Financial Officer since 2008. He was the CFO of Askar Capital from January 2007 until he joined Icelandair Group and the CFO of Icelandic Group from 2004-2006. Heidi Walters is the Senior Director of Partner & Industry Relations for Visit North Carolina, a Division of the Economic Development Partnership of NC, where she oversees the tourism marketing efforts for international visitation, group tour, sports and community development. Walters has more than 30 years' experience in both marketing and operations for the tourism industry. Send Us Airmail! We want to hear from you – drop us an email at communications@rdu.com to let us know what you'd like to hear on The Fly Angle. Be sure to include your name and other details about yourself and we might feature your Airmail in an upcoming episode. Music “Moment” — Amine Maxwell Music provided by Audio Library Plus
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair Group um stöðuna og sóknarfærin framundan. Icelandair er að koma starfseminni í gang aftur eftir erfiða tíma. Félagið er að fjölga flugferðum hratt og bæta við starfsfólki því eftirspurn eftir flugi er að aukast. Bogi ræðir hér um aukna möguleika með tilkoma Max vélanna, sem eru að nýtast enn betur en reiknað hafði verið með inn í leiðakerfi félagsins. Vélarnar opna einnig möguleika á áfangastöðum og tíðni sem ekki var arðbært með eldri vélum. Fjallað er um samkeppnina í fluginu, tækifærin með breiðþotum í fraktflugi, innanlandsflugið, Loftleiðir og margt fleira.
Björgólfur Jóhannsson var nýbyrjaður sem forstjóri Icelandair Group þegar efnhagshrunið varð haustið 2008. Hann sigldi félaginu í gegnum erfiða tíma í kjölfar hrunsins og í mörg ár þar á eftir stýrði hann Icelandair á mesta blómaskeiði þess frá upphafi. Björgólfur segir hér frá þessum merkilega tíma í flugsögunni, frá samkeppninni við WOW og fleiri flugfélög, samskiptum við stéttarfélögin, fjárfestingu í flugrekstri á Grænhöfðaeyjum sem hann hefur enn trú á og margt fleira.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Samtök atvinnulífsins hafa valdið óþarfa óöryggi og usla meðal fólks með því að draga gildi lífskjarasamninganna í efa, segir forseti Alþýðusambands Íslands. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar milda höggið sem fyrirtækin í landinu hafa orðið fyrir segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Ljóst er þó að mörg fyrirtæki verði áfram í miklum vanda. Formaður Samfylkingarinnar segir ýmislegt gott í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar, en ekki sé gengið nógu langt. Hann kallar sérstaklega eftir aðgerðum í þágu atvinnulausra. Armenar saka Tyrki um að hafa skotið niður flugvél armenska flughersins. Þeir segjast hvergi hafa komið nærri. Hátt í eitt hundrað hafa fallið í bardögum um Nagorno-Karabakh. Dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram frumvörp í byrjun þings sem skýra refsiákvæði gagnvart kynferðislegri friðhelgi og umsáturseinelti. Stærstu hluthafar í Icelandair Group fyrir hlutafjárútboð eru það ekki lengur. Lífeyrissjóður verslunarmanna var stærstur með tæp 12 prósent en á nú rúmlega tvö prósent. Fjárfestingasjóðurinn PAR Investment Partners átti tíu en á nú tæplega tvö prósent. Hvorugur sjóðurinn tók þátt í útboðinu. Samtals hafa átta starfsmenn hjá VÍS, Vátryggingafélagi Íslands, greinst með kórónuveirusmit. Flestir þeirra greindust fyrir tíu dögum og þá fóru 75 starfsmenn í sóttkví og unnu að heiman. Fyrstu kappræður bandarísku forsetaframjóðendanna Joes Bidens og Donalds Trumps verða í nótt. Chris Wallace, fréttamaður FOX News, stýrir umræðunum í Cleveland í Ohio. Sýnt verður beint frá kappræðunum í sjónvarpinu og á ruv.is og hefst útsending klukkan eitt í nótt. Lengri umfjallanir: Forsætisráðherra vonast til að þær aðgerðir sem kynntar voru í dag, létti undir hjá atvinnulífinu og auðveldi atvinnurekendum að taka afstöðu til þess að hvort segja eigi upp kjarasamningum. Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað í dag að hætta við atkvæðagreiðsluna meðal félagsmanna um hvort segja ætti upp samningum. ASÍ vill að stjórnvöld gefi vilyrði fyrir því að atvinnuleysisbætur verði hækkaðar. Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur tekur undir þessa körfu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti aðgerðir ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Arnar Páll Hauksson tekur saman og talar við Katrínu Ólafsdóttur. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga þurfa að búa sig undir jarðskjálfta af stærðinni sex til sex komma fimm í náinni framtíð. Það sama á við um Húsvík og nágrenni. Þetta er mat Freysteins Sigmundssonar jarðe

Velkomin að Speglinum. Umsjónarmaður er Arnar Páll Hauksson. Tugmilljarða hlutafjárútboð Icelandair Group fer fram í næstu viku eftir að hluthafar samþykktu hlutafjáraukningu einróma í dag. Forstjóri félagsins segir alla átta sig á tækifærum Icelandair og mikilvægi þess fyrir íslenskt hagkerfi. Mikill samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda þegar kórónuveirufaraldurinn reis hvað hæst breytir engu um horfur í loftslagsmálum samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Skipulagðra aðgerða sé þörf. Norskur þingmaður hefur tilnefnt Donald Trump til friðarverðlauna Nóbels fyrir þátt hans í að koma á sáttum milli stjórnvalda í Ísrael og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þróun bóluefnis við Covid-19 hefur gengið fádæma vel til þessa, segir Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómalækningum. Hann er enn bjartsýnn á að bóluefni verði tekið í notkun á fyrri hluta næsta árs. Það varð uppi fótur og fit þegar bresk-sænska lyfjafyrirtækið AstraZeneca, sem vinnur að framleiðslu bóluefnis við COVID nítján, sagðist hafa gert hlé á tilraunum vegna veikinda eins sjálfboðaliðans. Miklar vonir hafa verið bundnar við þróun þessa bóluefnis. Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómalækningum við Háskóla Íslands, segir að enn sé of lítið vitað um þessi veikindi sjálfboðaliðans, og hvort þau tengist bóluefninu, til að meta hvort þau setji raunverulegt strik í reikninginn. Sigríður Hagalín Björnsdóttir talaði við Magnús Gottferðsson. Sænska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að framlög til heilbrigðismála verði aukin um tugi milljarða, enda mikið álag á heilbrigðiskerfi landsins vegna heimsfaraldurs Covid. Faraldurinn virðist í rénun í Svíþjóð en heilbrigðisstarfsfólk er margt úrvinda og biðlistar eftir læknisþjónustu lengjast og lengjast. Kári Gylfason segir frá. Til að ná loftslagsmarkmiðum Parísarsamkomulagsins er áætlað að 2 af hverjum þremur fólksbílum verði rafknúnir 2030 . Til þess þarf um 300 megawött. Sérfræðingur segir ljóst að bæta verði við einhverju afli og styrkja flutningskerfið. Meðal eyðsla rafbíla er um 20 kílówött fyrir hverja ekna 100 kílómetra. Arnar Páll Hauksson talar við Kjartan Rolf Árnason.

Icelandair vill ekki þurfa að taka við 10 MAX vélum, PAR Capital Managment vill ekki fjárfesta í Icelandair Group og forstjóri Byko býst við erfiðum vetri. Allt að frétta í Viðskiptapúlsi dagsins.
Icelandair vill ekki þurfa að taka við 10 MAX vélum, PAR Capital Managment vill ekki fjárfesta í Icelandair Group og forstjóri Byko býst við erfiðum vetri. Allt að frétta í Viðskiptapúlsi dagsins.
Icelandair Group ætlar að grípa til yfirgripsmikilla uppsagna í aprílmánuði. Starfsemi verður haldið í lágmarki á næstunni. Fulltrúar fyrirtækja í ferðaþjónustu segjast hafa átt von á víðtækari aðgerðum af hálfu stjórnvalda. Fulltrúar stjórnarandstöðu segja aðgerðapakkann ein stór vonbrigði. Heimsóknir á dvalar- og hjúkrunarheimili verða leyfðar á ný frá fjórða maí. Tveggja metra reglan gildir í þessum heimsóknum. Á Ítalíu eru dauðsföll af völdum COVID-19 orðin 25 þúsund. Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segir langt í að séð verði fyrir endann á farsóttinni. Bóndi í Fljótum man vart eftir erfiðari vetri. Heyskapur kann að tefjast um meira en mánuð vegna snjóþyngsla. Íslendingar eru ekki bara menn, þeir bera líka erfðaefni Neanderdalsmanna. Þetta sýnir ný rannsókn. Stór hluti sjúkraflutningamanna sem starfa í framlínunni vegna COVID-19 á ekki rétt á álagsgreiðslum til heilbrigðisstarfsmanna vegna þess að þeir starfa hjá sveitarfélögunum. Sóttvarnagallarnir eru óþægilegir og erfitt að vera í þeim til lengdar en það að geta ekki brosað til sjúklinga reynir jafnvel meira á. Spegillinn safnaði hugleiðingum frá heilbrigðisstarfsfólki.

“Stjórnvöld í samstarfi við ferðaþjónustuna þurfa sérstaklega að horfa til sjálfbærni, arðsemi og dreifingu ferðamanna um allt land,” segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group. Hann var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4, þar sem rætt var um íslenska ferðaþjónustu, með áherslu á landsbyggðirnar. Bogi Nils segir að félagið hafi lagt til að Egilsstaðarflugvöllur verði fyrsti varaflugvöllurinn, ástæðan hafi fyrst og fremst verið landfræðileg.
Ríkislögmaður fellst ekki á að Guðjón Skarphéðinsson, einn þeirra sem voru sýknaðir í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, hafi sætt andlegri og líkamlegri raun í gæsluvarðhaldi. Guðjón stefnir ríkinu og krefst bóta upp á 1,3 milljarða króna. Þjóðverjar ætla að verja hundrað milljörðum evra í baráttuna gegn loftslagsbreytingum til ársins 2030. Aðgerða í loftslagsmálum var krafist á 575 stöðum í Þýskalandi í dag. Milljónir barna um allan heim flykktust út á götur borga í dag til að taka þátt í mótmælum vegna loftslagsbreytinga. Nú stendur yfir dagskrá á Austurvelli þar sem vakin er athygli á afleiðingum loftslagshlýnunar. Icelandair Group hefur gert bráðabirgðasamkomulag við Boeing um bætur fyrir hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrrsetningar Boeing 737-MAX vélanna. Stefnt er að því að skrifað verði undir samkomulag ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu samgöngumannvirkja á fimmtudaginn í næstu viku. Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva hafa ákveðið að sekta RÚV um fimm þúsund evrur fyrir framgöngu Hatara í Eurovision í vor. Hljómsveitin sýndi borða í fánalitum Palestínu meðan á stigagjöf stóð. Vegasamgöngur hafa raskast í dag vegna vatnavaxta á Vesturlandi. Gul viðvörun Veðurstofunnar gildir fyrir Faxaflóa og Vestfirði en appelsínugul fyrir Breiðafjörð. Milljónir barna um allan heim flykktust út á götur borga í dag til að taka þátt í mótmælum vegna loftslagsbreytinga. Um þrjú hundruð þúsund ungmenni tóku til dæmis þátt í Ástralíu. Fyrirmyndin eins og alþekkt er, skólaskróp Gretu Thunberg sem tók sér stöðu við sænska þinghúsið föstudag einn í ágúst í fyrra og nær alla föstudaga þaðan í frá. Anna Kristín ræddi við ung fólk á Austurvelli, Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur, Eyrúnu Dodziakos, Hálfdán Árna Jónsson og Rannveigu Guðmundsdóttir. Formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands hvetur forsætisráðherra að lýsa yfir auknum samdrætti í losun gróðurhúsaloftteguna á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna. Arnar Páll Hauksson tlar við Árna. Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að búast megi við áframhaldandi hagræðingu hjá ferðaþjónustufyrirtækjum á næstu misserum en starfsfólki innan greinarinnar hefur fækkað um 2.900 á síðastliðnu ári. Jóhannes segir að spár um samdrátt í komu erlendra ferðamanna hingað til lands hafi að mestu gengið eftir. Höskuldur Kári Schram talat við Jóhannes.
Gestur þáttarins er Eva Sóley Guðbjörnsdóttir. Eva er í dag fjármálastjóri Icelandair Group og var þar á undan fjármálastjóri Advania, eins stærsta upplýsingatæknifyrirtækis landsins. Hún hefur einnig verið varaformaður bankaráðs Landsbankans og í stjórn Skeljungs.Eva var ung komin á ábyrgðarstöður og aðeins 28 ára gömul var hún gerð að fjármálastjóra Kaupþings eftir hrun bankans. Þar þurfti hún að eiga við ágenga erlenda kröfuhafa sem svifust einskis til að hafa upp á henni og ná fram sínum hagsmunum.Eva starfaði einnig um tíma sem sjálfstæður ráðgjafi þar til einn fremsti „hausaveiðari“ landsins gaf henni eftirminnileg ráð sem olli því að hún skipti um stefnu á sínum starfsferli.Í fyrri part viðtalsins ræddum við um sameiginlega reynslu okkar af viðskiptanámi í Bandaríkjunum og árin sem við unnum hjá Kaupþing fyrir hrun. Í síðari hluta viðtalsins ræðir Eva vel heppnaða rekstrarumbreytingu Advania og þær áskoranir sem Icelandair stendur frammi fyrir. Loks gefur Eva frábær ráð fyrir fólk sem vill fóta framabrautina í viðskiptalífinu og þá einkum fyrir ungar metnaðarfullar konur.
Spegillinn 24.05.2019 Umsjón: Bergljót Baldursdóttir Fjörtíu millörðum króna munar á heildarafkomu ríkissjóðs til hins verra frá nýjustu hagspá til þeirrar sem fjármálaáætlun var byggð á. Fjármálaráðherra ætlar að leggja til við Alþingi að fjármálastefnu verði breytt. Rætt við Bjarna Benediktsson, forsætisráðherra Icelandair þarf að fella niður ríflega tvöhundruð brottfarir frá Keflavíkurflugvelli á tveimur mánuðum vegna MAX-8 þotanna sem fara líklega ekki í loftið fyrr en í haust. Rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair Group. Samtök kínverskra flugfélaga ætla að veita fyrirtækjunum aðstoð við að krefja Boeing-flugvélasmiðjurnar um bætur vegna 737 MAX 8-þotanna sem hafa verið kyrrsettar síðan um miðjan mars. Tapið nemur tugmilljörðum króna. Svartolía verður bönnuð í íslenskri landhelgi um næstu áramót. Umhverfisráðherra segir þetta stóran áfanga og að Ísland sé nú meðal þjóða sem ganga lengst í að draga úr notkun svartolíu. Arnar Páll Hauksson ræðir við Guðmund Inga Guðbrandsson Eliza Reid forsetafrú segir að hægt sé að kenna fólki bætt samskipti við þá sem eru með heilabilun. Hún var á ráðstefnu um alzheimers-sjúkdóminn í konungshöllinni í Stokkhólmi, ásamt drottningum, prinsessum og forsetafrúm. Við heyrum meira um ráðstefnuna og alzheimers-buffið hans Guðna síðar í Speglinum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Elízu Og Tommy á hálfrar aldar afmæli. Við segjum frá rokkóperunni Tommy í Speglinum - meistaraverki hljómsveitarinnar Who. Kristján Sigurjónsson sagði frá
Spegillinn 3. apríl 2019 Umsjón: Bergljót Baldursdóttir Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson Dráttur hefur orðið á því í dag að kjarasamningar í viðræðum VR, Eflingar, Starfsgreinasambandsins og annarra stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins verði undirritaðir. Búist var við því að samningar yrðu undirritaðir um klukkan þrjú í dag en enn sem komið er hefur ekkert orðið af því. Arnar Páll Hauksson segir frá og talaði við Vilhjálm Birgissson, formann verkalýðsfélagsins á Akranesi Skúli Mogensen fjárfesti í WOW air fyrir um fjóra milljarða króna allt frá stofnun félagsins árið 2011. Hann segir ljóst að hann muni fá lítið sem ekkert af þessum fjórum milljörðum til baka. Jón Hákon Halldórsson segir frá Gengi bréfa í Icelandair Group hækkaði um rúm átta prósent í þrjú hundruð tuttugu og tveggja milljóna króna viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Panamaskjölin svonefndu hafa gert skattayfirvöldum í 22 löndum víðs vegar um heiminn kleift að innheimta á annað hundrað milljarða króna í sektir og vangoldna skatta vegna fjármuna sem komið hafði verið fyrir í skattaskjólum. Víðs vegar er enn verið að rannsaka undanskotin þannig að upphæðin á eftir að hækka. Ásgeir Tómasson segir frá Tvö tilvik hafa komið upp hér á landi að undanförnu þar sem kviknað hefur í rafbílum því að venjuleg framlengingarsnúra var notuð til að hlaða þá. Fagstjóri rafmagnsöryggissviðs hjá Mannvirkjastofnun segir ekki öruggt að stinga rafbílum í samband í venjulegar innstungur. Hann hvetur fólk eindregið til að nota frekar hleðslustöð. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman. Rætt var við Jón Ólafsson í Samfélaginu á Rás 1 í dag. Lengra efni: Sigrún Davíðsdóttir fjallar um Brexit Það er ekki aðeins við Brexit vandann að glíma heldur einnig Brexit angisina. Eftir viðvarandi Brexit-óvissu í Bretlandi undanfarin misseri eru læknar farnir að tala um Brexit-angist. Spurningin er hvernig eigi að taka á angistinn, á að gefa eitthvað við henni, eða kannski er þetta aðeins dæmi um ofgreiningu. En ef angist er dæmi um magnleysi þá er kannski pólitísk þátttaka til ráða til að fá útrás fyrir vanlíðanina. Lísabet Guðmundsdóttir, fornleifafræðingur segir að þúsundir minjastaða á Íslandi séu að fara í sjóinn mun hraðar en talið var vegna loftslagsbreytinga. Á Norðurlöndunum hafi verið settir upp sjóðir til að fjármagna eftirlit með fornminjastöðum vegna þessarar hættu en ekkert slíkt er til hér á landi. Bergljót Baldursdóttir ræðir við hana Alvarlegur vandi steðjar að í Marseille, annarri stærstu borg Frakklands. Fjölmargar byggingar eru að hruni komnar o
Hestamannafélagið Fákur í Reykjavík er eitt elsta og fjölmennasta hestamannafélag landsins og þar er rekin fjölbreytt starfsemi fyrir hestamenn á öllum aldri. Á morgun stendur félagið fyrir árlegri stórsýningu sinni í TM höllinni í Víðidal, en hún verður með nýju sniði í ár. Þeir Sigurður Vignir Matthíasson, afreksknapi, og Einar Gíslason framkvæmdastjóri Fáks kíktu til okkar í morgunkaffi og sögðu okkur meira. Lögmennirnir Kristrún Elsa Harðardóttir og Saga Ýrr Jónsdóttir komu til okkar en þær fullyrða að talsverð óánægja sé meðal lögmannastéttarinnar vegna skipunar skiptastjóra yfir þrotabúi WOW air. Eftir kollsteypu WOW air velta margir því fyrir sér hvort Icelandair sjái sér leik á borði og hækki miðaverð upp úr öllu hófi. Einnig hefur verið ýjað að því að Icelandair hafi átt þátt í því að tala WOW niður í björgunaraðgerðum síðustu missera. Við spurðum Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair Group, spjörunum úr. Fréttir vikunnar voru á sínum stað og með okkur í þetta sinn voru þær Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Sigríður Dögg Auðunsdóttir fréttamaður. Freyr Gígja Gunnarsson mætti með glóðvolgar fréttir úr Hollywood hreppi í sínu vikulega hégómavísindahorni. Tónlist: Retro Stefson - Minning. Neneh Cherry og Youssu Ndour - 7 seconds. Stevie Wonder - Signed, sealed, delivered. Nýdönsk - Alelda. Blondie - House of glass. Justin Timberlake - Sexyback.
Blóðbankinn sendi út ákall í gær en nú vantar blóð í flokkunum B mínus og O mínus. Illa gekk að ná inn blóði frameftir degi í gær og við heyrðum í Þorbjörgu Eddu Björnsdóttur hjúkrunarfræðingi hjá Blóðbankanum og tókum stöðuna. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, kom til okkar og fór yfir hversu öruggt raforkukerfið er, t.d. ef eldgos, jarðskjálftar eða mikil snjóflóð verða, en hann ætlar að svara þessari spurningu á vorfundi Landsnets sem fram fer í dag. Fjölmargir sendu inn umsagnir um frumvarp sem heimilar innflutning á fersku kjöti, eggjum og ógerilsneyddum mjólkurvörum. Þar á meðal var Dýralæknafélag Íslands, en í þeirra umsögn kemur fram að þeir telja ekki meiri hættu af fersku kjöti en því frosna. Hins vegar séu fjölmargir þættir sem líta þurfi til. Charlotta Oddsdóttir formaður Dýralæknafélags Íslands var á línunni. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, kom til okkar en fyrirtækið hefur verið mikið í fréttum að undanförnu. Bæði vegna Boeing 737 Max 8 véla félagsins sem eru sams konar vélar og hafa farist að undanförnu í Eþíópíu og Indónesíu, og svo þarf fyrirtækið einnig að taka á sig högg vegna samdráttar í ferðaþjónustu. Við spurðum hann um þetta og hvort fyrirtækið verði vart við áhyggjur og jafnvel afbókanir vegna verkfalla sem framundan eru ef ekki semst. Sævar Helgi Bragason fjallaði um baðherbergisvísindi í stórskemmtilegu vísindaspjalli í dag. Tónlist: Nýdönsk - Þá kemur þú. John Mayer - I guess I just feel like. Kristina Bærendsen - Mama said. Wilco og Feist - You and I. Christine and the Queens - Tilted. Ásgeir Trausti - Nýfallið regn. Proclaimers - Im gonna be - 500 miles. Magni og Ólöf Jara - Eina nótt.
Spegillinn 26. Nóv 2018 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Úkraínska þingið fjallar nú um beiðni forseta landsins um að setja herlög, eftir að Rússar hertóku þrjú úkraínsk skip og sjóliða í gær. Vestrænar þjóðir hafa mótmælt framferði Rússa. Icelandair telur ólíklegt að hægt verði að uppfylla alla fyrirvara í kaupsamningi um WOW fyrir hlutahafafund sem hefur verið boðaður á föstudag. Hlutabréf í Icelandair Group féllu um tæp sex prósent í dag út af óvissunni. Öryggisrofar voru óvirkir eða búið að fjarlægja hlífar á flökunarvélum í tveimur fiskvinnslum í Hafnarfirði og Sandgerði í þessum mánuði. Vinnueftirlitið þurfti tvisvar að banna vinnu í vinnslunum. Beiðni Pírata um að senda mál Ásmundar Friðrikssonar til sjálfstæðrar siðanefndar var hafnað á fundi forsætisnefndar í morgun. Lengri umfjallanir: Ekki er minnst á hjúkrunarheimili í drögum að heilbrigðisstefnu og skorið er niður til þeirra í fjárlögum þrátt fyrir að í stjórnarsáttmála sé talað um að gera eigi átak í að fjölga þeim. Þetta segir Pétur Magnússon formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Bergljót Baldursdóttir ræðir við hann. Bretar hafa náð samningum við ESB um úrgöngu og framtíðarfyrirkomulag en við blasir Brexit-vandi heima og heiman. Breska stjórnin og Evrópusambandið hafa staðfest úrgöngusamning og yfirlýsingu um framtíðarsamband en við blasir þó tvíþættur vandi: að fá staðfestingu breska þingsins á þessum áfanga. Síðan, að semja í smáatriðum um framtíðarsambandið í lagalega bindandi samningi. Hið fyrra virðist ómögulegt, hið seinna gæti orðið mun tímafrekara en þetta rúmlega eitt og hálfa ár sem verður til stefnu. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Fyrsta sjálfstæða sýning Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í náttúru Íslands, verður opnuð í Perlunni í Reykjavík á laugardaginn kemur,1.desember, á 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Náttúruminjasafnið varð til árið 2007 þegar lög um safnið voru samþykkt, en á sér í raun mun lengri sögu sem rekja má allt aftur til ársins 1889 þegar Hið íslenska náttúrufræðifélag var stofnað. Illa hefur hins vegar gengið að koma upp Náttúruminjasafni og sýningu í eigu þjóðarinnar sem sómi er af, líkt og flestar nágrannaþjóðir leggja metnað sinn í að starfrækja. Vatnið í náttúru Íslands í Perlunni er einn fyrsti vísirinn að slíkri sýningu. Fyrir eru í Perlunni náttúrusýningar fyrirtækisins Perlu Norðursins og tengist Vatnasýningin þeim. Kristján Sigurjónsson talar við Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur hönnuð og sýningarstjóra Vatnsins í náttúru Íslands. Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór H
Here’s your Headstart on three business headlines you need to know for Tuesday, November 6th, 2018. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.