Podcasts about gengi

  • 28PODCASTS
  • 142EPISODES
  • 1h 4mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 1, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about gengi

Latest podcast episodes about gengi

Mannlegi þátturinn
Þættir um Arnar og Bjarka, gengið til Rómar og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 49:32

Við forvitnuðumst í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð sem kallast A&B og er saga tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. Þeir vöktu fljótt mikla athygli fyrir mikla hæfileika á knattspyrnuvellinum á Skaganum. Þeir fóru ungir í atvinnumennskuna, léku með landsliðinu og saga þeirra þar er rakin í þáttunum. Þeim er svo fylgt eftir í gegnum viðskiptaævintýri eftir atvinnumennskuna og hvernig þeir fundu báðir aftur fótboltann og nú er til dæmis Arnar orðinn landsliðsþjálfari hjá karlalandsliðinu. Þetta er saga drengja sem upplifa drauma sína, en lenda líka í hremmingum innan sem utan vallar. Gunnlaugur Jónsson, umsjónarmaður, handritshöfundur og framleiðandi þáttanna, kom í þáttinn ásamt Arnari, öðrum bróðurnum. Steinunn Harðardóttir leiðsögukona hefur í 12 ár farið í pílagrímsgöngur áleiðis til Rómar en á miðöldum gengu fjölmargir íslenskir pílagrímar til Rómar. Einn þeirra var Nikulás ábóti á Munkaþverá í Eyjafirði en hann fór til Noregs og Danmerkur og gekk þaðan til Rómar og svo alla leið til Jerúsalem. Hann skrifaði leiðarvísi fyrir aðra pílagríma árið 1153-4, „Leiðarvísir og borgarskipan“ er sá eini sinnar tegundar frá þessum tíma sem hefur varðveist í Evrópu. Þegar Steinunn kom til Rómar síðasta haust stóðu yfir miklar viðgerðir á borginni vegna Heilags árs hátíðarhöldum sem hófust á jólum 2024 og standa út allt þetta ár. Heilög ár eru haldin af kaþólsku kirkjunni á 25 ára fresti. Steinunn kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það er hafið nýtt eldgos suðaustur af Þorbirni við Grindavík, því fór Einar aðeins yfir stöðuna, til dæmis hvað varðar gasdreifingu. Svo gerði hann aðeins upp veturinn, en með mars lauk veðurstofuvetrinum. Einar talaði svo að lokum um mikla hita sem nú geysa á fjarlægum slóðum, s.s. sunnarlega í Bandaríkjunum, í Kákasus og á Tælandi og merkilegt marsveður sem Madrídingar og Spánverjar hafa upplifað. Tónlist í þættinum í dag: Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson (Michel Legrande, texti Hjördís Morthens) April in Paris / Count Basie orchestra (Vernon Duke) Creepin' in / Dolly Parton og Norah Jones (Lee Alexander) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn
100 daga ríkisstjórn og eftirlitslaus ungmenni á netinu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 31, 2025 20:00

Gengið hefur á ýmsu fyrstu 100 daga ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins en engan bilbug var að finna á formönnunum þegar blásið var til fundar. Fjármálaráðherra kynnti í morgun 5 ára fjármálaáætlun og þar boðuð aukin útgjöld til öryggis- og varnarmála og framkvæmda í vegamálum tekjur á meðal annars að sækja með veiðigjaldi, kílómetragjaldi og gjaldtöku af ferðamönnum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir stjórninga þegar hafa gert margt og þannig verði haldið áfram. Sjónvarpsþættirnir Adolesence hafa vakið mikið umtal síðustu daga - Skúli Bragi Geirdal,sérfræðingur í miðlalæsi segir að þótt margt gott hafi gerst séu líka ýmsar blikur á lofti.

Mannlegi þátturinn
Gott aðgengi í ferðaþjónustu, Kvennaárið 2025 og efnaskipti á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 28, 2025 50:37

Mikill fjöldi, hvaðanæva að úr heiminum, hefur áhuga á því að ferðast, hefur bæði tíma og fjármuni til að gera það en heldur sig samt heima vegna þess að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða er víða ábótavant. Samkvæmt íslenskum lögum og reglugerðum á að gæta þess sérstaklega að aðgangur fólks með fötlun að manngerðu umhverfi sé til jafns við aðra. Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Landssambands Hreyfihamlaðra, kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir stöðuna í aðgengismálum í ferðaþjónustu. Það eru liðin 50 ár frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi. Metþátttaka var í Kvennaverkfallinu árið 2023 og valdefling, baráttugleði, og skýrt ákall um breytingar einkenndu þessa miklu samstöðu rétt eins og árið 1975. Næsta fimmtudag fer fram fyrsti viðburður kvennaársins í Iðnó og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Heilbrigð efnaskipti í líkamanum stuðla ekki eingöngu að góðri líkamlegri heilsu heldur hefur hún einnig veruleg áhrif á andlega heilsu. Rannsóknir sýna nú svo ekki verður um villst að viðvarandi efnaskiptavilla í líkamanum, sem á sér stað þegar viðkomandi neytir of mikils sykraðs og gjörunnins mataræðis til langs tíma, getur haft áhrif á myndun hvers kyns geðsjúkdóma, viðhaldið þeim og hreinlega komið í veg fyrir að fólk nái bata. Guðmundur Freyr Jóhannsson, lyf- og bráðalæknir, hélt erindi um andlega heilsu og efnaskipti á nýafstöðnum Læknadögum í Hörpunni hefur undanfarin ár reynt að vekja athygli almennings á skaðlegum áhrifum gjörunnins og sykraðs mataræðis og rætt um lausnir fyrir fólk til að leiðrétta efnaskiptin. Hann vill nú beina athygli okkar að áhrifum viðvarandi efnaskiptavillu á geðsjúkdóma. Helga Arnardóttir ræddi við Guðmund Frey á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum: Síðan eru liðin mörg ár / Brimkló (Brimkló, Chip Taylor, texti Þorsteinn Eggertsson) Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens) Engin önnur en ég er / Ellen Kristjánsdóttir (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Pyngjan
Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jan 17, 2025 53:16

Sendu okkur skilaboð!Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við óskum ykkur góðrar helgar og gleðilegs árs. Ef þú ert launþegi er ekkert nema launað frí í vændum svo ekki fara að stofna þinn eigin rekstur á þessu ári. Góðar stundir.

Well, I Laughed
61: Down to Business pt.1: Worth Fighting For

Well, I Laughed

Play Episode Listen Later Jul 10, 2024 129:40

Was Mulan real? Did Mulan exist? And, if so, how accurate is the movie Mulan? This week we get down to business to uncover the history behind our favorite female warrior. We meet other important women from East Asian history. Tamoe Gozen, a Japanese Samurai from the 12th century, whose bravery and romances were featured in Heike monogatari (The Tale of Heike), and Murasaki Shikibu, the author of what's thought of as the world's oldest novel, Genji monogatari (The Tale of Gengi). And, of course, we sing a couple of lines from that killer movie soundtrack (singing podcast?). Women in history had something worth fighting for!

Mannlegi þátturinn
Aðgengi hjólastóla, vinkill og Sólveig Auðar lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 8, 2024 50:04

Við huguðum að aðgengismálum í upphafi þáttar þegar Akureyringurinn Sigrún María Óskarsdóttir kom í spjall til okkar. Sigrún María notar hjólastól og hún lenti í óskemmtilegri reynslu á milli jóla og nýjars þegar hún ákvað að skella sér í bíó. Þegar þangað var komið var hjólastólalyftan í bíóinu biluð og þá tóku við ýmiskonar vandræði. Sigrún María sagði betur frá þessari upplifun sinni í þættinum og hún ræddi líka um hjólastólaaðgengi sérstaklega fyrir norðan. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Undir vinklinum í þetta skipti lenda nokkrar jólabækur, líka ævintýri frá Finnlandi auk þess sem umsjónarmaður stendur sig að því að vera örlítið farinn að hlakka til þess að komast á Þorrablót. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sólveig Auðar Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo auðvitað hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sólveig talaði um eftirafarandi bækur og höfunda: The Great Alone e. Kristin Hannah The Bee Sting e. Paul Murray North Woods e. Daniel Mason The Goblin Emperor e. Catherine Addison Neverwhere e. Neil Gaiman Ævintýrið e. Vigdísi Grímsdóttir Tónlist í þættinum í dag: Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) Come Down Easy / Carole King (Carole King og Toni Stern) Eldar minninganna / Ellý Vilhjálms, Svanhildur Jakobsdóttir og Einar Hólm (lag Mason & Carr, texti Benedikt Axelsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Pyngjan
Föstudagskaffið: Ár launþegans er gengið í garð

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jan 5, 2024 68:39

Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við hefjum árið á löngum þætti þar sem við tuðum samfleytt på gamle måden. Launþegar þessa lands dansa dátt  en árið 2024 verður ein stór fríhelgi. Að því sögðu óskum við ykkur góðrar helgar og gæfu á nýju ári.

gengi egans
Mannlegi þátturinn
Aðgengi í ferðaþjónustu, jól Kristínar Helgu og kuldaveðurspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 12, 2023 52:22

Við fræddumst í dag um verkefnið Gott aðgengi í ferðaþjónustu sem Ferðamálastofa stendur fyrir í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands, Sjálfsbjörgu og Mannvirkjastofnun. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni búa 15% mannkyns við einhvers konar fötlun. Og það er auðvitað alls ekki nógu gott ef stór hluti þess fólks getur ekki ferðast og skoðað það sem það vill vegna slæms aðgengis. Ásbjörn Björgvinsson ferðamálafrömuður kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá þessu verkefni. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur kom svo í heimsókn til okkar og við rifjuðum upp með henni jólaminningar frá æsku hennar í Garðahreppi, eins og við ætlum að gera nokkrum sinnum í aðdraganda jólanna. Kristín Helga reið á vaðið en hún er einmitt höfundur barnabókanna um Fíusól og í síðustu viku var leikritið Fíasól frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað í lok þáttar. Miklir kuldar hafa verið víðs vegar norðanlands það sem af er desember. Greinileg umskipti eru framundan í veðrinu og stóra spurningin var auðvitað borin fram: Fá landsmenn jólasnjó? Við töluðum svo að lokum um vonir og væntingar varðandi árangur á loftslagsráðstefnunni, COP28, sem er að ljúka. Tónlist í þættinum í dag: Jólin með mér / Góðu molarnir (Þorgrímur Þorsteinsson og Sæmundur Rögnvaldsson) I?ll Be Home For Christmas / Dean Martin & Scarlett Johansson (Buck Ram, Kim Gannon & Walter Kent) Rudolph, The Red-Nosed Reindeer / Ella Fitzgerald (Johnny Marks) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Aðgengi í ferðaþjónustu, jól Kristínar Helgu og kuldaveðurspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 12, 2023

Fotbolti.net
Enski boltinn - Gunnar í skýjunum með magnað gengi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 24, 2023

Gummi og Steinke halda utan um stjórnartaumana í Enski boltinn hlaðvarpinu að venju en með þeim í dag er sannkallaður heiðursgestur, Gunnar Sigurðarson. Rætt er aðallega við Gunnar, sem er gallharður Ipswich maður, um hans heittelskaða félag. Ipswich hefur verið að gera frábæra hluti í Championship-deildinni og er liðið sem stendur í öðru sæti með gott forskot á liðin fyrir neðan. Ipswich komst upp úr C-deildinni á síðasta tímabili en Kieran McKenna, fyrrum aðstoðarmaður Jose Mourinho og Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United, hefur verið að vinna frábært starf hjá félaginu.

FranceFineArt

“À la cour du Prince Genji” 1000 ans d'imaginaire japonaisau Musée national des arts asiatiques – Guimet, Parisdu 22 novembre 2023 au 25 mars 2024Interview de Aurélie Samuel, conservatrice du patrimoine et commissaire de l'exposition, et de Monsieur Akira Nonaka, fils de Itarô Yamaguchi (1901-2007) maître tisserand à Kyoto (en japonais avec traductrice),par Anne-Frédérique Fer, à Paris, le 20 novembre 2023, durée 26'08,© FranceFineArt.https://francefineart.com/2023/11/22/3498_a-la-cour-du-prince-genji_musee-national-des-arts-asiatiques-guimet/Communiqué de presseCommissariat de l'exposition :Aurélie Samuel, conservatrice du patrimoineCélèbre pour le raffinement extrême de son art de cour et son effervescence artistique, le Japon impérial de l'époque de Heian (794-1185) a notamment donné naissance à une oeuvre majeure de la littérature classique japonaise, le Dit du Genji. Écrit au 11e siècle par une femme, la poétesse Murasaki Shikibu, et considéré comme le premier roman psychologique de l'Histoire, le Genji est à l'origine, depuis sa création il y a mille ans, d'une iconographie extrêmement riche, influençant jusqu'aux mangakas contemporains. Il a ainsi inspiré de nombreux artistes et artisans du Japon à travers les siècles, parmi lesquels Itarô Yamaguchi (1901-2007), maître tisserand à Kyoto, dont quatre rouleaux tissés exceptionnels sont présentés pour la première fois dans leur intégralité.La première partie de l'exposition invite le visiteur à se plonger dans le Japon ancien, à travers l'évocation d'une architecture traditionnelle. Le visiteur y explore l'époque Heian (794-1185) et son art de cour. Cette période de liberté pour les femmes, et à la production artistique particulièrement riche, voit notamment l'émergence d'une littérature féminine, unique dans l'histoire du Japon. Si la poésie chinoise kanshi reste l'apanage des élites masculines gouvernantes, les femmes, elles, s'emparent des poèmes de style waka qu'elles rédigent à l'aide d'un système d'écriture cursive dérivé du chinois et adapté à la langue japonaise d'alors. Affranchies du modèle chinois, elles vont produire des oeuvres mêlant waka et prose, sous forme de journaux ou d'histoires racontées.Texte le plus célèbre, écrit au 11e siècle par la poétesse Murasaki Shikibu, le Dit du Genji (Genji monogatari) est aujourd'hui considéré comme l'oeuvre la plus représentative de la littérature classique du Japon. À travers une évocation subtile de tous les raffinements de la cour impériale, le Dit du Genji ouvre la voie à une exceptionnelle créativité picturale et suscite une iconographie extrêmement riche, qu'attestent laques, estampes, tissus, kimonos, sculptures, peintures et objets précieux, provenant du musée Guimet et de plusieurs collections françaises et japonaises. Marie-Antoinette elle-même collectionnait des boîtes en laque représentant des scènes du Genji… Ce roman fondateur pour la culture japonaise a inspiré de nombreux artistes et artisans jusqu'à nos jours, et jusqu'aux nouvelles formes d'art. Le manga notamment, qui réinterprète les codes picturaux, les thèmes et les scènes de l'histoire du Genji avec une époustouflante inventivité, dont le plus célèbre est sans doute Asaki yume mishi de Waki Yamato (né en 1948). Œuvre magistrale, le Dit du Gengi est encore adapté de nos jours, comme en témoigne la récente édition de Sean Michael Wilson, illustrée par Inko Ai Takita, qui tapissera les murs et le sol d'un espace de l'exposition.[...] Hébergé par Acast. Visitez acast.com/privacy pour plus d'informations.

Spegillinn
Kvennaverkfall og vanmat í samningi við Microsoft

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 23, 2023 9:49

23. október 2023 Fjármálaráðuneytið vanmat breytingar sem fylgdu heildarsamningi við Microsoft fyrir fimm árum, og væntingar um hátt í sex milljarða króna árlegan sparnað gengu ekki eftir. Þetta er meðal niðurstaðna í úttekt Ríkisendurskoðunar. Héraðsdómur verður að dómi Landsréttar að taka hryðjuverkamálið til efnislegrar umfjöllunar þó að ákæru hafi verið vísað frá í tvígang. Gengi bréfa í Marel hækkaði mjög þegar spurðist út að erlendir fjárfestar vildu taka það yfir. Von er á miklum fjölda í miðborg Reykjavík í tilefni kvennaverkfalls á morgun. Verkfallið hefur til dæmis mikil áhrif skólastarf og ríkisstjórnarfundi hefur verið frestað. Offramboð varð á ákveðnum tegundum af útiræktuðu grænmeti eftir sumarið. Formaður félags garðyrkjubænda segir erfitt að keppa við ódýrar vörur frá Evrópu. Bullandi síldveiði er fyrir vestan land; skipstjórinn á Beiti er á heimstími með rúmlega 1.400 tonn. ---------------- Í aðdraganda kvennafrísins 1975 vissu menn varla hvernig átti að taka því og á stundum var reynt að slá því upp í grín. Viðhorfið breyttist í ljósi þátttöku og heimsathygli, segir sagnfræðingur og einn skipuleggjenda kvennaverkfallsins á morgun segir að þó að áfram hafi miðað sé baráttunni ekki lokið, ekki síst gegn kynbundnu ofbeldi. Nýjustu vendingar í dönskum stjórnvöldum urðu í morgun, þegar formaður hægri flokksins, Venstre, Jakob Ellemann-Jensen, tilkynnti að hann væri hættur afskiptum af dönskum stjórnmálum Samviskubit líka kvíði og skömm hefur mikil áhrif á líf mjög magra mæðra en við sjáum ekki sama mynstur hjá feðrunum segir lektor í uppeldis og menntunarfræði á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir.

Spegillinn
Kvennaverkfall og vanmat í samningi við Microsoft

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 23, 2023

Aðgengi að heyrn, heimsmálin í Vinkli dagsins og lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 9, 2023 50:00

"Aðgengi að heyrn" er yfirskrift ráðstefnu á vegum Heyrnarhjálpar sem haldinn verður 10.október. Áætlað er að heyrnarskertir á Íslandi séu um 20% af þjóðinni eða um 74.000. Eitt af því sem ómeðhöndluð heyrnarskerðing getur valdið er snemmbúin elliglöp, þunglyndi og félagsleg einangrun. Þessu vill Heyrnarhjálp breyta og vilja að heyrnarskertum standi til boða heyrnartæki og þjónusta án tilits til stéttar né stöðu. Halla Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar og hún kom til okkar í dag. Við fengum sendingu frá Guðjóni Helga Ólafssyni sem í dag bar vinkilinn upp að heimsmálunum. Lesandi vikunnar var á sínum stað. Í dag kom til okkar Stefán Þór Sæmundsson íslenskukennari við Menntaskólann á Akureyri. Hann sagði okkur frá bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og bókum sem hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina.

Mannlegi þátturinn
Aðgengi að heyrn, heimsmálin í Vinkli dagsins og lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 9, 2023

"Aðgengi að heyrn" er yfirskrift ráðstefnu á vegum Heyrnarhjálpar sem haldinn verður 10.október. Áætlað er að heyrnarskertir á Íslandi séu um 20% af þjóðinni eða um 74.000. Eitt af því sem ómeðhöndluð heyrnarskerðing getur valdið er snemmbúin elliglöp, þunglyndi og félagsleg einangrun. Þessu vill Heyrnarhjálp breyta og vilja að heyrnarskertum standi til boða heyrnartæki og þjónusta án tilits til stéttar né stöðu. Halla Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar og hún kom til okkar í dag. Við fengum sendingu frá Guðjóni Helga Ólafssyni sem í dag bar vinkilinn upp að heimsmálunum. Lesandi vikunnar var á sínum stað. Í dag kom til okkar Stefán Þór Sæmundsson íslenskukennari við Menntaskólann á Akureyri. Hann sagði okkur frá bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og bókum sem hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina.

Mannlegi þátturinn
Þorvaldur og eldfjöllin og bætt aðgengi að gömlum viðtölum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 7, 2023 50:00

Við töluðum um eldgos í Mannlega þættinum í dag, en ekki er svo langt frá því að eldgosinu lauk við Litla-Hrút á Reykjanesskaga, þriðja gosið á sl.þremur árum. Þegar gaus í Geldingadölum 2021 hafði ekki gosið á þeim slóðum í 6 þúsund ár. Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjalla- og bergfræði kom í þáttinn í dag og hann sagði að sumt bendi til þess að möttulstrókurinn sé að eflast og eitt af því sem helst rennir stoðum undir þá kenningu er sú staðreynd að kvikan, sem brotist hefur upp á yfirborðið síðustu þrjú ár sé ólík þeirri kviku sem sést hefur áður á Reykjanesskaga. Kvikan sú eigi meira skylt við þá sem kemur úr td. Heklu, Kötlu, Torfajökli, Grímsvötnum og Bárðarbungu. Hvað þýðir þetta? Og nú er land byrjað að rísa á ný á Reykjanesinu. Þorvaldur reyndi sitt besta að svara spurningum okkar í þættinum í dag. Við fræddumst í dag um þjóðfræðisafn Árnastofnunar, sem geymir yfir 2000 klukkustundir af viðtölum, sem flest voru tekin á árunum 1960 til 1980. Þau innihalda ómetanlegar upplýsingar um lífið snemma á 20. öldinni á Íslandi. Trausti Dagsson, þjóðfræðingur og verkefnastjóri í upplýsingatækni hjá Árnastofnun, kom til okkar í dag og sagði okkur frá talgreini sem hefur gerbylt aðgengi að efni safnsins og að þessum dýrmætu heimildum sem það hefur að geyma. Trausti sagði okkur frá þessu í þættinum og við fengum að heyra nokkur brot úr safninu. Tónlist í þættinum: KRISTÍN SESSELJA - Earthquake. EARTH WIND & FIRE - September. Ásgeir Ásgeirsson Tónlistarm., Haukur Gröndal, Richard Gudmundur Andersson - Allt að gerast. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Þorvaldur og eldfjöllin og bætt aðgengi að gömlum viðtölum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 7, 2023

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Misjafnt gengi í Evrópu og Onana fékk kveðjumáltíð

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jul 14, 2023 56:10

Jói, Keli og Ponzan á föstudegi

Lestin
Skúlagata 002, stólar úr Unuhúsi, gengið frá orðum um bækur

Lestin

Play Episode Listen Later May 31, 2023 55:00

Á fyrri hluta síðustu aldar komu allir helstu listamenn þjóðarinnar, róttæklingar og jafnvel útigangsmenn saman í litlu rauðu viðarhúsi við Garðastræti og ræddu heimspeki, trúmál, listir og pólitík. Það var sannkölluð salon-stemning sem skapaðist þegar Þórbergur Þórðarson, Halldór Laxness, Nína Tryggvadóttir og fleiri komu saman, lásu upp úr nýútkomnum erlendum bókum, spiluðu plötur, rökræddu og dönsuðu. Og maðurinn á bak við þetta var Erlendur í Unuhúsi. Sunneva Kristín Sigurðardóttir hefur verið að sökkva sér ofan í ævi og áhrif Erlendar - sem fæddist einmitt á þessum degi fyrir 131 ári síðan. Við setjumst niður með Sunnevu í hægindastólum heima hjá mér, stólum sem voru líklega í Unuhúsi. Við ræðum við Jórunni Sigurðardóttur, sem vann sinn síðasta vinnudag sem fastur starfsmaður Ríkisútvarpsins í dag. Jórunn hefur verið viðloðandi útvarpsins frá 1979 þegar hún sá um umsjón unglingaþáttarins Gagns og gamans en frá árinu 1990 hefur hún verið fastráðinn dagskrárgerðarmaður á menningardeild, verið í Víðsjá, Skorningum og núna undanfarinn áratug séð um Orð um bækur. Jórunn hefur sankað að sér allskonar blöðum og bókum, og við fylgjumst með henni ganga frá bókaskápnum. Við kíkjum í heimsókn á vinnustofu tónlistarfólks sem stendur á bak við plötuútgáfuna Skúlagata. Á laugardaginn halda þau upp á útgáfu Skúlagata 002 í Kornhlöðunni á Bankastræti, sem er önnur safnplata þessarar tónlistarmannareknu plötuútgáfu. Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko og Arnljótur Sigurðsson helltu upp á kaffi og ræddu málin.

Lestin
Skúlagata 002, stólar úr Unuhúsi, gengið frá orðum um bækur

Lestin

Play Episode Listen Later May 31, 2023

Óli Björn - Alltaf til hægri
Gengið gegn félagafrelsi

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Sep 18, 2022 8:16

Í 74. grein stjórnarskrárinnar er öllum tryggt félagafrelsi. Allir eiga „rétt til að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi, þar með talin stjórnmálafélög og stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess“. Skýrt er tekið fram að engan megi „skylda til aðildar að félagi“ en þó megi með lögum „kveða á um slíka skyldu ef það er nauðsynlegt til að félag geti sinnt lögmætu hlutverki vegna almannahagsmuna eða réttinda annarra“. Þrátt fyrir þessi skýru ákvæði stjórnarskrárinnar er félagafrelsið í raun ekki virkt á íslenskum vinnumarkaði.

Morgunvaktin
Aðgengi, ferðamennska í Sádí-Arabíu og kosningar í Bandaríkjunum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 26, 2022

Á morgun verður í fyrsta sinn haldinn aðgengisdagur hér á landi. Það er Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra sem stendur að deginum, til að kortleggja aðgengi fatlaðs fólks að hinum ýmsu stöðum. Því er víða ábótavant, og það á ekki bara við um gömul hús. Margrét Lilja Arnheiðardóttir, formaður Sjálfsbjargar, ræddi þetta. Milljónir manna halda á hverju ári í pílagrímsferðir til Sádí-Arabíu, en það er ekki langt síðan landið var opnað fyrir öðrum ferðamönnum. Nú eru Sádar í herferð til að laða fólk til landsins. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, ræddi þetta við okkur, rétt eins og harðnandi samkeppni Icelandair og Play og sitthvað fleira. Birna Anna Björnsdóttir, sérfræðingur um bandarísk málefni, fór yfir stöðuna í stjórnmálum í Bandaríkjunum. Þar eru kosningar fram undan í nóvember og nóg um að vera í aðdragandanum. Umsjón með Morgunvaktinni hefur Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Á venjulegum degi - KK Stay alive - Jose Gonzalez Heartbeats - Jose Gonzalez Summer in the city - Lovin Spoonful Lovely day - Bill Withers

Play Episode Listen Later Aug 26, 2022 130:00

Apabólusmitum fjölgar hægt. Engin hátíðarhöld í Úkraínu. Evran fellur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 23, 2022 9:18

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson Tólf hafa smitast af apabólu hér á landi, þar af tveir í þessum mánuði, segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir. Allir sem hafa greinst með apabóluna hér á landi eru karlmenn á aldrinum þrjátíu til fimmtíu ára. Urður Örlygsdóttir ræddi við hana. Öllum hátíðahöldum hefur verið aflýst í Úkraínu í tilefni þjóðhátíðardagsins á morgun. Varað er við árásum rússneska innrásarliðsins á lífæðar samfélagsins og stjórnsýslubyggingar. Ásgeir Tómasson fer yfir helstu tíðindi frá Úkraínu. Þau tæpu 100 kíló af kókaíni sem fundust í vörusendingu í Hollandi voru á leið hingað til lands frá Brasilíu. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir þremur þeirra sem eru í haldi. Fóðurpramminn sem náðist upp af botni Reyðarfjarðar í gær er að öllum líkindum ónýtur. Ágúst Ólafsson ræddi við Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóra Laxa, fiskeldis. Gengi evru gagnvart bandaríkjadollar hefur lækkað um fimmtán prósent á einu ári og ekki verið lægra í tuttugu ár. Alexander Kristjánsson ræddi við hagfræðing Stefnis um ástæðurnar. Raforkuverð í Suður-Svíþjóð hækkar stöðugt og hefur aldrei verið hærra en nú. Verð á hverja kílóvattsstund hér á landi er um það bil einn tuttugasti hluti af því sem það kostar í Svíþjóð. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Kára Gylfasonar í Svíþjóð. Samkvæmt tillögum að nýrri Hamarshöll í Hveragerði á þar að rúmast knattspyrnuvöllur, fjölnota íþróttagólf, fimleikaaðstaða og áhorfendastúkur. Oddur Þórðarson sagði frá. Unnið er í samvinnu þriggja ráðuneyta að betrumbótum í málefnum fanga og geðheilbrigðisþjónustu, segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Dómsmálaráðuneytið vinni að því að efla lögreglu á landsbyggðinni með því að fela þeim fleiri verkefni. Þórdís Arnljótsdóttir ræddi við hann og Fjölni Sæmundsson, formann Landssambands lögreglumanna sem tekur undir með ráðherra að þörf sé á að efla lögregluembættin úti á landi.

Spegillinn
Apabólusmitum fjölgar hægt. Engin hátíðarhöld í Úkraínu. Evran fellur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 23, 2022

Ástríðan - 8. umferð - Luka rekinn eftir sigurleik, þrennur og misjafnt gengi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jun 28, 2022

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir áttundu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Reynir S. vinnur sinn fyrsta leik, sækja þrjá spánverja en reka svo þjálfarann. Njarðvík með gamla og góða pökkun. Þróttur R að koma bakdyramegin í baráttuna. Völsungur fékk sitt víti.ÍH með 3 í röð eftir að Arnar Sigþórs fór að brosa. Augnablik virðir stigið á Humarhátíðinni. Káramenn styttra komnir en búist var við. Dalvík tapað 3 af síðustu 4. Sverrir hefur hafið þá vegferð að jarðtengja sig aftur eftir að hafa spáð Kormáki/Hvöt falli mánuði fyrir mót.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Spegillinn
Spegillinn 7.júní 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 7, 2022

Spegillinn 7.júní 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Um tvö þúsund iðnaðarmenn vantar til starfa í byggingariðnaði hér á landi segir formaður Samiðnar. á sama tíma hefur 700 nemendum verið vísað frá iðnnámi í Tækniskólanum. Apabóla hefur ekki greinst hér á landi en aðeins er tímaspursmál hvenær það gerist segir sóttvarnalæknir. Gengið hefur verið frá kaupum á nokkrum tugum skammta af bóluefni. Nýr meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur var gagnrýndur á fyrsta fundi nýkjörinnar borgarstjórnar fyrir að leggja fram með hálftíma fyrirvara tilfærslur og breytingar á nefndum og ráðum borgarinnar. Alþingi samþykkti síðdegis tillögu utanríkisráðherra um að staðfesta viðbótarsamninga við Nató um aðild Finnlands og Svíþjóðar með 44 atkvæðum. Óli Björn Kárason þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir að ef takist að semja um afgreiðslu frumvarps dómsmálaráðherra um útlendinga þá verði tiltölulega auðvelt að semja um afgreiðslu annarra mála. Markmiðið sé að reyna að klára þinghaldið með sóma fyrir þjóðhátíðardaginn Sendifulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Norður-Kóreu segir norðurkóresk stjórnvöld hafa hundsað allar beiðnir Bandaríkjamanna um viðræður. Búist er við að einræðisríkið geri sína sjöundu kjarnorkutilraun í bráð. Lengri umfjöllun: Fyrsti fundur nýkjörinnar Borgarstjórnar Reykjavíkur var haldinn í Ráðhúsinu við Tjörnina í dag. Þar komu saman 23 borgarfulltrúar - 13 borgarfulltrunar nýmyndaðs meirihluta; það er fimm frá Samfylkingu, fjórir fulltrúar Framsóknar, þrír frá Pírötum og einn frá Viðreisn. Og svo 10 fulltrúar minnihlutans - sex frá Sjálfstæðisflokki, tveir frá Sósíalistum, einn frá Vinstri Grænum og einn frá Flokki fólksins. Tæplega helmingur hópsins hefur ekki starfað á vettvangi borgarstjórnar áður - þeirra á meðal þau Árelía Eydís Guðmundsdóttir - einn af fjórum borgarfulltrúum Framsóknarflokksins og Friðjón R Friðjónsson - einn af sex borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Kristján Sigurjónsson ræðir við þau í beinni útsendingu. Dómsmálaráðherra Svíþjóðar stóð af sér vantrauststillögu með minnsta mögulega mun í dag. Forsætisráðherra landsins hafði varað við stjórnarkreppu, mitt í umsóknarferli Svíþjóðar að NATO, og aðeins þremur mánuðum fyrir kosningar. Kristján Sigurjónsson talar við Kára Gylfason í Gautaborg. Mjög skiptar skoðanir hafa verið á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra og sá ágreiningur gæti jafnvel valdið því að þinglok dragist fram á sumarið en þau voru ráðgerð í lok næstu viku. Það tengist ekki því frumvarpi, en Alþingi hef

Play Episode Listen Later Jun 7, 2022 9:55

Karfan
Fókus: Vörutalning í Subway deild kvenna - Farið yfir öll lið og gengi síðustu vikna

Karfan

Play Episode Listen Later Feb 10, 2022 72:26

Fókus kom saman og fór yfir síðustu leiki Subway deildar kvenna og velti fyrir sér stöðu hvers liðs í deildinni og hvernig framhaldið verður. Þá er einnig spáð í spilin í fyrstu deild kvenna.Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag voru ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur Baldursson og þjálfari Hamars/Þórs í fyrstu deildinni Hallgrímur Brynjólfsson.Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

Segðu mér
Dúi Landmark

Segðu mér

Play Episode Listen Later Dec 13, 2021 40:00

Dúi segir frá bókinni Gengið til rjúpna. Bókin fjallar um rjúpnaveiði og við stöldruðum við sögu rjúpnaveiða á Íslandi og matarhefðir auðvitað komu við sögu.

Segðu mér
Dúi Landmark

Segðu mér

Play Episode Listen Later Dec 13, 2021

Dúi segir frá bókinni Gengið til rjúpna. Bókin fjallar um rjúpnaveiði og við stöldruðum við sögu rjúpnaveiða á Íslandi og matarhefðir auðvitað komu við sögu.

Morgunútvarpið
10. nóv. - Bitcoin, HOPP Færeyjar, rannsókn, menntamál, Akranes

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 10, 2021 130:00

Gengi rafmyntarinnar Bitcoin hefur aldrei verið hærra og stóð gengið í rúmlega 68.500 dollurum í gær. Virði myntarinnar hefur aukist um 342 prósent á árinu. Við ræddum við Kristján Inga Mikaelsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Rafmyntaráðs Íslands og einn eigenda GreenBlocks, sem tekur þátt í því að grafa fyrir myntinni hér á landi. Færeyska lögreglan lagði í sumar hald á fimmtíu rafskútur frá íslenska fyrirtækinu Hopp þar sem færeysk stjórnvöld hafa skilgreint rafskúturnar sem breytt vélhjól sem eru ekki leyfð í Færeyjum. Framkvæmdastjóri rafskútuleigunnar batt vonir við að hjólin yrði komin aftur á göturnar í Þórshöfn fyrir lok ágústmánaðar en svo fór ekki. Þau dúsa enn í kjallara lögreglustöðvarinnar í Þórshöfn. Við ræðum við Ebenezer Þórarinn Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Hopp í Færeyjum, um stöðuna á þessum málum og kórónuveirufaraldurinn þar í landi. Á forsíðu Fréttablaðsins í gær var greint frá því að lögreglumenn væru ósáttir við ummæli Þorbjargar Ingu Jónsdóttur lögmanns þess efnis að lögreglan færi í manngreinarálit við rannsókn kynferðisbrota. Í því skyni heyrðum við í Hildi Fjólu Antonsdóttur, doktor í réttarfélagsfræðum, sem sagði frá rannsókn sem hún gerði sem varpar einmitt ljósi á það hvort slík rörsýn geti einkennt rannsókn kynferðisbrota hjá lögreglunni. Foreldrar barna sem hafa verið beitt hvers konar þvingun í skólanum sínum hafa stigið fram í fjölmiðlum undanfarna daga. Börnin eiga það oftar en ekki sameiginlegt að hafa sérþarfir en þeir foreldrar sem stigið hafa fram vilja meina að starfsmenn skólanna hafi gengið of langt í valdbeitingum gagnvart börnunum. Við ætlum að skoða þessi mál í stóra samhenginu og ræddum við Sigrúnu Daníelsdóttur verkefnastjóra geðræktar hjá Embættis Landlæknis en embættið lagðist árið 2019 í heilmikla rannsóknarvinnu og gaf í kjölfarið út aðgerðaráætlun um innleiðingu geðræktarstarfs, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólastarfi. Upp eru komin ansi mörg Covid-19 smit hjá Skagamönnum en ríflega 130 þeirra má rekja til karíókíkvölds sem haldið var um helgina. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akranesbæjar, var á línunni hjá okkur. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla, hafði sigur í formannskjöri í Kennarasambandi Íslands í gær en formannsskipti verða á þingi sambandsins í apríl á næsta ári. Við ræddum við Magnús um málefni kennara og þær breytingar sem hann vill gera á Kennarasambandinu. Tónlist: Komdu til baka - Elín Hall Shivers - Ed Sheeran Lætur mig - GDRN, Flóni og Sinfó Disillusion - Badly Drawn Boy Barcelona - Hákon

Morgunútvarpið
1. nóv. - Rjúpan, Afganistan, Katrín J, grænmeti, eldgos, íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 1, 2021 130:00

Rjúpan hefur verið mikið til umfjöllunar síðustu daga og í dag hefst veiðitímabilið, að vísu ekki fyrr en á hádegi og stendur út mánuðinn. Dúi Landmark er einn reynslumesti rjúpnaveiðimaður landsins og í dag kemur út bókin Gengið til rjúpna eftir hann. Þar er ýmis konar fróðleik að finna varðandi veiðarnar. Við heyrðum í Dúa. Lítill hluti þeirra 120 Afgana sem stjórnvöld áætla að taka á móti í ljósi neyðarástands í Afganistan er kominn hingað til lands. Afganir sem búsettir eru hér á landi hafa sótt um að fjölskyldumeðlimir þeirra fái hér vernd, hluti þeirra hefur verið samþykktur, en óljóst er hvenær fólkið kemur til landsins. Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, ræddi við okkur um stöðuna í Afganistan. Tuttugasta og sjötta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í Glasgow í gær, en formlegar viðræður þjóðarleiðtoga- og sendinefnda hefjast í dag. Um 30 Íslendingar taka þátt í ráðstefnunni, þar á meðal Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Við ræddum við hana um ráðstefnuna og stjórnarmyndunarviðræður nú þegar rúmar fimm vikur eru liðnar frá Alþingiskosningum. Skortur varð á vissum tegundum grænmetis í verslunum í haust en innlend framleiðsla á spergilkáli og blómkáli kláraðist fljótt og háir innflutningstollar á þeim afurðum til gerðu það nánast óforsvaranlegt að flytja þær inn. Áður fyrr voru tollar sveigjanlegir og hægt var að bregðast við eftir framboði innanlands hverju sinni, en fyrir tveimur árum var lögunum breytt í þá veru að nú leggjast tollar á innflutt grænmeti á vissum dagsetningum. Þær Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar, ræddu málið hjá okkur. Spænska dagblaðið El País birti í gær viðamikla umfjöllun um eldgosið á Heimaey árið 1973 og uppbyggingu byggðarinnar þar á eftir, með vísan í eldgosið á La Palma sem nú stendur yfir. Þrír blaðamenn heimsóttu Eyjar og ræddu við heimafólk, m.a. Kristínu Jóhannsdóttur safnstjóra Eldheima, sem rakti sögu gossins í Eyjum og hvatti íbúa La Palma til að halda í vonina. Við hringdum í Kristínu. Sportið var svo á sínum stað hjá okkur, en Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður leit við sagði okkur allt um úrslit helgarinnar og eitt og annað áhugavert úr heimi íþróttanna. Tónlist: Hjálmar - Áttu vinur augnablik. Kacey Musgraves - Justified. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. Adele - Easy on me. Ásgeir Trausti - Leyndarmál. Emilíana Torrini - Tookah. Svavar Knútur ásamt Irish Mythen - Hope and fortune. Alicia Keys - Fallin. Bríet - Sólblóm. Eddie Vedder - Long way.

Spegillinn
27. október. Kortleggja búsetu í óskráðum íbúðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 27, 2021 10:02

Fyrir fjórum árum bjuggu rúmlega 1.000 manns í óskráðum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Á næstu mánuðum á að kortleggja hve margir búa nú í atvinnuhúsnæði og huga að brunavörnum. Sóttvarnalæknir segir ekki annað mögulegt en að herða sóttvarnaaðgerðir ef fram heldur sem horfir og ástandið á Landspítalanum heldur áfram að þyngjast. Flestir, eða tæp áttatíu prósent, vilja að Framsóknarflokkurinn verði í næstu ríkisstjórn, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Þar á eftir koma Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur. Tveggja daga réttarhöld standa yfir í Bretlandi þar sem bandarísk stjórnvöld reyna enn að fá Julian Assange framseldan. Vestra á hann ævilangt fangelsi yfir höfði sér. Bresku fjárlögin voru lögð fram í dag, í anda bjartsýni ríkisstjórnarinnar, en vaxandi verðbólga gæti sett strik í þjóðhagsreikninga næstu missera. Næstu mánuðina á að kortleggja hve margir búa og hvar í atvinnuhúsnæði í borginni. Gengið verður í hús í iðnaðarhverfum og rætt við íbúa um brunavarnir og félagslegar aðstæður þeirra. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu leiðir verkefnið í samstarfi við sveitarfélögin og Alþýðusamband Íslands. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Aleksöndru Leonardsdóttur og Jón Viðar Matthíasson. Að jafnaði hafa landsmenn skráð sig 430 þúsund sinnum á mánuði inn á Heilsuveru á þessu ári. Notendur í ár eru um 250 þúsund, mikill meirihluti landsmanna. Heilsuveru-vefurinn hefur komið í veg fyrir að símkerfi Heilsugæslunnar færi á hliðina í faraldrinum, segir Auður Harðardóttir verkefniastjóri rafrænna heilsbrigðislausna hjá Landlæknisembættinu. Stafræn heilbrigðisþjónusta sé framtíðin og að aukin þjónusta sé í bígerð í Heilsuveru. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Auði Harðardóttur. Bresku fjárlögin sem voru lögð fram í dag, lofa meiri útgjöldum í opinbera þjónustu sem á að fjármagna með skattahækkunum. Rishi Sunak fjármálaráðherra heldur þó fast í fyrri loforð um að minnka ríkisumsvif og lækka skatta síðar á kjörtímabilinu. En á tímum vaxandi verðbólgu og minni hagvaxtar á næstu árum gæti raunin þó orðið önnur en loforð fjármálaráðherra benda til. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Morgunútvarpið
14. sept. - Covid meðganga, NA kjördæmi, Noregur, giggarar og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 14, 2021 130:00

Covid faraldurinn hefur reynt á alla, en sumum hópum hefur hann reynst sérstaklega erfiður, t.d. barnshafandi konum. Lengi vel var aðgengi annarra takmarkað í mæðraskoðanir og fæðingu og margar konur einangruðu sig til að forðast smit. Barnshafandi konum bauðst síðar bólusetning sem margar þáðu og slakað hefur verið á takmörkunum þannig að aðstandendur mega fylgja konum í skoðanir og fæðingu. Anna Claessen er ein þeirra sem gengið hafa í gegnum þetta, en hún á von á sínu fyrsta barni í desember. Anna veiktist af Covid fyrir skemmstu og deildi þeirri reynslu með okkur. Við skiptum yfir á Akureyri til Gígju Hólmgeirsdóttur og beindum sjónum okkar að norðaustur kjördæmi. Gígja fékk til sín Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðing, til þess að líta yfir helstu mál flokkanna í kjördæminu og hita upp fyrir kjördæmafund á Rás2 sem fer fram klukkan 17:30 í dag. Gengið var til kosninga í Noregi í gær og vakti athygli að um 50% þeirra sem voru á kjörskrá kusu utan kjörfundar. En hverjar eru niðurstöður kosninganna og hverju breyta þær? Gísli Kristjánsson, fréttaritari RÚV í Osló, var á línunni. Þær miklu tæknilegu umbreytingar sem nú þegar eru farnar að hafa áhrif á daglegt líf okkar munu veita fólki á vinnumarkaði sem og atvinnurekendum ný og spennandi tækifæri. Hinum svokölluðu giggurum fer stöðugt fjölgandi ? fólki sem tekur að sér verkefni í takmarkaðan tíma en hverfur svo á vit nýrra viðfangsefna; fólki sem selur vinnu sína á markaðstorgi þekkingarinnar. Völundarhús tækifæranna er nafn á nýrri bók sem þær Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Háskóla Íslands og Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðsstjóri hjá Deloitte hafa skrifað. Þær komu til okkar. Guðmundur Jóhannsson var á sínum stað í tæknihorninu sívinsæla rétt upp úr kl. hálfníu og ræddi m.a. nýja Apple kynningu í dag. Tónlist: Jónas Sig - Milda hjartað. Friðrik Dór og Bríet - Hata að hafa þig ekki hér. Nýdönsk - Ég kýs. Stefán Hilmarsson - Súkkulaði og sykur. Ed Sheeran - Bad habits. Duran Duran - Anniversary. Gugusar - Röddin í klettunum. ABBA - Dont shut me down.

Spegillinn
Slakað á grímuskyldu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 27, 2021 30:00

Gengið verður lengra í tilslökunum á grímuskyldu en ríkisstjórnin tilkynnti eftir fund sinn í gær. Deild á Landspítala var lokað í dag eftir að sjúklingur greindist með COVID-19. Smit hafa greinst í nokkrum grunnskólum síðustu daga eftir að skólastarf hófst að nýju. Reglum um sóttkví í skólastarfi var nýlega breytt, svo færri þurfi að fara í sóttkví þegar smit koma upp. Maðurinn sem var skotinn og særður af lögreglu á Egilsstöðum í gær er á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem líðan hans er stöðug. Rannsókn málsins er á frumstigi. Rúta með þrjátíu manns festist í Krossá við Þórsmörk í dag. Björgunarsveitarmaður sem tók þátt í aðgerðum segir stöðuna hafa verið tvísýna um tíma. Framkvæmdir við útsýnispallinn á Bolafjalli við Bolungarvík hafa verið stöðvaðar þar sem byggingarleyfi hefur enn ekki verið gefið út fyrir framkvæmdinni. Bandaríkjaher er undirbúinn fyrir frekari árásir í Kabúl fyrir mánaðamót. Ríki heims eru nú á lokametrum brottflutnings fólks frá Afganistan Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Dana og framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gagnrýnir ákvörðun Bandaríkjamanna um að kalla her sinn frá Afganistan. Hann er einn margra málsmetandi á Vesturlöndum sem er reiður Joe Biden Bandaríkjaforseta. Bogi Ágústsson segir frá. Ekkert samræmt verklag er til á landsvísu um hvernig heilbrigðisstofnanir eigi að taka á móti þolendum heimilisofbeldis. Starfshópur leggur til einfalt áhættumat fyrir heilbrigðisstarfsfólk um hvenær eigi að kalla til lögreglu, til að mynda þegar þolandinn hefur verið tekinn kyrkingartaki eða er barnshafandi. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og talað við Drífu Jónasdóttur. Ef verkfall flugumferðarstjóra á Keflavíkurflugvelli skellur á á þriðjudag gæti það haft áhrif á tæplega sex þúsund farþega Icelandair. Upplýsingafulltrúi félagsins segir að nú sé unnið að fyrirbyggjandi aðgerðum sem fela í sér að bjóða flugfarþegum að seinka eða flýta flugi um allt að tvo daga. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Ásdísi Ýr Pétursdóttur og Arnar Hjálmsson.

Morgunútvarpið
23. ágúst -Hjálparstarf, bólusetningar, aðgengi, Landspítali, íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 23, 2021 130:00

Nú eru skólar að hefjast eða nýhafnir og margt sem skólabörn vanhagar um í upphafi skólaárs. Ekki eiga allir kost á því að kaupa skólavarning og föt eða skrá sig í íþróttir og frístundastarf. Hjálparstarf kirkjunnar býður þessum hópi aðstoð sína og þær Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi og Kristín Ólafsdóttir fræðslufulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar komu til okkar og sögðu okkur frá átakinu Ekkert barn útundan og þeirri aðstoð sem býðst. Bólusetningar barna á aldrinum 12 til 15 ára hefjast í dag og verða með aðeins öðru sniði en við fullorðna fólkið höfum hingað til vanist. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, kom til okkar og sagði okkur frá fyrirkomulaginu og við hverju megi búast fyrir foreldra og börn næstu daga. Kosningar eru framundan og þar stendur landsmönnum öllum til boða að nýta kosningarétt sinn - eða hvað? Landsamtökin Þroskahjálp vekja athygli á því um þessar mundir að ýmsar hindranir séu í veginum fyrir því að fatlaðir geti nýtt kosningarétt sinn alls staðar. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir hjá Þroskahjálp var gestur okkar og fór yfir þessi mál. Það fer ekki saman hljóð og mynd í málefnum Landspítalans, að mati Theódórs Skúla Sigurðssonar formanns sjúkrahúslækna. Í færslu á Facebook í gær taldi hann upp þó nokkrar niðurskurðaraðgerðir sem hann segir að ráðist hafi verið í undanfarið á spítalanum, en ráðamenn hafa sagt mönnun eina vanda gjörgæslu Landspítalans, ekki skorti fjármagn. Theódór kom til okkar og ræddi stöðu spítalans eins og hún blasir við læknum. Helga Margrét Höskuldsdóttir leit svo við og fór yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar með okkur. Tónlist: Draumfarir og Kristína Sesselja - Með þér. David Gray - Babylon. Vök - Skin. Retro Stefson - Glow. Sting - Desert Rose. Ed Sheeran - Bad habits. Cell 7 - Its complicated. Peter Gabriel - Solsbury hill. Birnir og Páll Óskar - Spurningar.

Morgunútvarpið
10. ágúst - Gönguhátíð, Ljósið, Dýrfinna, lífeyrir og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 10, 2021 130:00

Gönguhátíð í Reykjavík hefst á fimmtudaginn Um er að ræða lýðheilsuhátíð sem státar af fjölbreyttum göngum við allra hæfi. Gengið er í borgarlandinu og nágrenni, auk þess sem Suðurnesjabær er sérstakt gestasveitarfélag í verkefninu og býður upp á göngur líka. Einar Skúlason, forsvarsmaður Vesens og vergangs, var á línunni. Ljósið endurhæfingarmiðstöð og heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health undirrituðu fyrir helgi samning um rannsóknir og þróun hugbúnaðar fyrir aukinn stuðning við fólk sem hefur greinst með krabbamein og fjarheilbrigðisþjónustu. Þau Erna Magnúsdóttir forstöðukona Ljóssins og Haukur Guðmundsson sjúkraþjálfari og rannsakandi hjá Sidekick komu til mín og sögðu okkur meira af þessu. Gæludýrahald eykst jafnt og þétt og því fylgir því miður að stundum týnast dýr. Samfélagsmiðlar hafa komið sterkir inn í dýraleit, en nú er líka vona á smáforriti í þeim tilgangi sem frumkvöðlafyrirtækið Dýrfinna gefur út. Guðfinna Kristinsdóttir stofnandi Dýrfinnu leit við í spjall. Jöfnun lífeyrisréttinda hjóna hefur verið nokkuð til umræðu á samfélagsmiðlun undanfarið. En hvað þýðir það að jafna lífeyrisréttindi og hvernig gerir maður það? Og af hverju ætti maður að gera það? Þórey S. Þórðardóttir framkvæmdastjóri landsamtaka lífeyrissjóða var gestur Morgunútvarpsins og fór yfir þessi mál og fleiri er varða lífeyrisréttindi fólks. Við kíktum svo inn í Vísindahornið upp úr kl. hálfníu þegar Sævar Helgi Bragason heimsótti okkur. Hann ræddi líkamsgerð manna og loftslagsmálin. Tónlist: Lay Low - By and by. Lenny Kravitz - I belong to you. Hreimur, Magni og Embla - Göngum í takt. Albatross - Ég sé sólina. Dans á rósum - Sól í dag. Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams. Ed Sheeran - Bad habits. Elton John - Rocket man.

Spegillinn
Vonir um bóluefni, konungsfjölskylda í bobba

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 9, 2021 30:00

Spegillinn 9. mars Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Unnið er að smitrakningu vegna smita sem komið hafa upp á síðustu dögum. Gengið er út frá því að þeir sem smituðust séu með breska afbrigði kórónuveirunnar. Rætt við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni. Aðeins liggja fyrir loforð um afhendingu á rúmlega 40 þúsund skömmtum af bóluefni í næsta mánuði. Stjórnvöld telja víst að framboð á bóluefni eigi eftir aukast á öðrum ársfjórðungi. Arnar Páll Hauksson, ræðir við Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu Gos gæti hafist á Reykjanesskaga með skömmum fyrirvara, að mati jarðeðlisfræðings. Hann segir að kvikugangurinn sem myndast hefur milli Fagradalsfjalls og Keilis gæti lengst enn frekar. Anna Lilja Þórisdóttir ræðir við Freystein Sigmundsson, jarðeðlisfræðing Viðtal Opruh Winfrey við hertogann og hertogaynjuna af Sussex, Harrí og Meghan Markle setur bresku konungsfjölskylduna í verulegan bobba. Beðið er eftir viðbrögðum hennar við viðtalinu. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Alexander Elliott, dagskrárgerðarmanns og verkefnisstjóra RÚV English sem er frá Poole nálægt Bournemouth í suðvestur Englandi um stöðu bresku konungsfjölskyldunnar. Þörf er fyrir nýtt prófakerfi til að geta staðist kröfur og væntingar, segir forstjóri Menntamálastofnunar eftir að rafrænt kerfi fyrir samræmd próf bilaði í annað skiptið á fimm árum. Rætt við Arnór Guðmundsson, forstjóra Menntamálstofnunar og Lilji Alfreðsdóttur, mennta og menningamálaráðherra Tollverðir á Keflavíkurflugvelli óttast að kjör þeirra versni ef verður af styttingu vinnuvikunnar. Formaður BSRB segir að samtök launafólks muni fylgja markmiðum um styttingu vinnuviku vaktavinnufólks fast eftir. Rætt við Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formann BSRB

Fríhöfnin
Friðlandið Heiðmörk ofan Reykjavíkur 2/2

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Oct 2, 2020

Gengið um Heiðmörk á sjötugsafmæli útivistarsvæðisins. Á þeim sjötíu árum sem liðin eru frá því að Heiðmörk var friðuð og opnuð almenningi, hefur þar vaxið mikill og fjölbreyttur skógur. Svæðið býður upp á útivistarmöguleika og nyt sem ekki voru til staðar á Íslandi fyrir aðeins fáeinum áratugum. Enda er svæðið afar fjölsótt. Í Heiðmörk koma hundaeigendur, fjölskyldur í sveppaleit, ástfangið fólk á ástarfundi, gönguskíðafólk og seiðkonur. Í þættinum verður gengið um Heiðmörk og rætt við skógræktarfólk og gesti Heiðmerkur um Heiðmörk, náttúruna, skóginn og skógarlíf. Þátturinn er sá síðari af tveimur um Heiðmörk, í tilefni af 70 ára afmælis útivistarsvæðisins. Umsjón: Kári Gylfason.

Spegillinn
Landsmenn taki banninu ekki alvarlega

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 24, 2020 30:00

Yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að fjöldi undanþágubeiðna vegna samkomubanns bendi til þess að hluti landsmanna taki bannið ekki alvarlega. Það boði ekki gott. Sextíu og eitt nýsmit hefur greinst frá því í gær. Opnað verður fyrir umsóknir um bætur vegna hlutastarfa fyrir hádegi á morgun. Forstjóri Vinnumálstofnunar býst við að minnsta kosti 10 þúsund umsóknum og að þær geti jafnvel orðið allt að 20 þúsund. Gengi bréfa í Icelandair hækkaði um 5,5% í dag. Það hefur lækkað um rúmlega 60% á einum mánuði. Sveitarstjóri Norðurþings segir það hafa hrist upp í fólki þegar ástralskur ferðamaður lést á sjúkrahúsinu á Húsavík. Mikil samstaða sé um að verjast kórónuveirunni. Nokkuð ljóst er að kjaraviðræður Eflingar og sveitarfélaganna munu frestast þar til veirufaraldrinum lýkur. Nýju tilboði Eflingar var hafnað á stuttum sáttafundi í morgun. Verkfalli Eflingar hefur verið frestað en félagið segist reiðubúið að hefja verkfallsaðgerðir á nýjan leik þegar faraldurinn er genginn yfir. Arnar Páll Hauksson talar við Viðar Þorsteinsson og Unni Sverrisdóttur. Ráðrúm stjórnvalda til að bregðast við vá eins og COVID19 faraldrinum markast meðal annars af trausti. Ef traust almennings á stjórnvöldum er lítið er minni von að fólk fari eftir opinberum boðum og bönnum. Eitt af því sem skapar traust eru einhlít boð og bönn, tilmæli og upplýsingar. Ekki upplýsingar sem vísa í allar áttir. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Myllumerkið #Tradwives hefur átt vaxandi fylgi að fagna á samfélagsmiðlum. Í Bretlandi og Bandaríkjunum hefur sprottið upp hreyfing kvenna sem vill hverfa aftur til óræðs tíma þar sem konur voru heimavinnandi og karlar fyrirvinnur. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.

Lestin
Eltihrellir, kynlífsdúkka og handboltadraumurinn sem dó

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 22, 2020 55:00

Gengi íslenska karlalandsliðsins í handknattleik gegn Noregi í gær rímar ágætlega við innslag dagsins í örseríunni Þegar Ísland hélt stórmót. Í dag rifjum við upp sjálfan handboltann og skoðum hvernig lið sem stefndi á pall endaði nær botninum. Áslaug Torfadóttir rýnir í sjónvarpsþættina You. Þeir segja frá sætum en siðblindum eltihrelli og hafa vakið mikla athygli. Og við leggjum leið okkar með Gráum ketti í kynlífstækjaverslunina Adam og Evu og finnum fyrir forláta dúkku.

Óli Björn - Alltaf til hægri
Fábreytni og höft - frelsi og tækifæri

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Nov 2, 2019 9:21

Fyr­ir yngra fólk sem geng­ur að frels­inu sem vísu og tel­ur góð lífs­kjör sjálf­sögð er erfitt að skilja þjóðfé­lags­bar­átt­una sem oft var ill­víg, fyr­ir og eft­ir síðari heims­styrj­öld. Tek­ist var á um hug­mynda­fræði miðstýr­ing­ar og alræðis ann­ars veg­ar og at­hafna­frels­is ein­stak­ling­anna hins veg­ar. Þegar tveir ungir menn frá Sauðár­króki ákváðu að leggj­ast í víking til Kan­ada 1954 var flestu í íslensku efnahagslífi hand­stýrt af stjórn­völd­um. Atvinnulífið var fátæklegt og veikburða. Fjár­mála­markaður var ekki til og vext­ir voru ákveðnir af rík­is­stjórn. Gengi var mis­mun­andi eft­ir vör­um og svarta­markaður með gjald­eyri var í blóma. Flest var háð leyf­um og vöru­úr­val fá­tæk­legt.

Spegillinn
Spegillinn 28. október 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2019 30:00

Spegillinn 28. október 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Sjaldgæft er að ráðuneyti vísi málum til áfram til lögreglu eins og í Samherja- og Seðalabankamálinu, segir lögfræðilektor. Slökkviliðsmenn hafa stjórn á einungis fimm prósentum gróðureldanna sem brenna í Kaliforníu. 27 þúsund hektarar eru sviðin jörð. Yfir 180 þúsund íbúum Sonoma-sýslu hefur verið skipað að forða sér að heiman. Kjaradeila sveitarfélaganna og Starfsgreinasambandsins er komin í alvarlegan hnút, segir framkvæmdastjóri sambandsins. Fylgi stjórnarflokkanna hefur minnkað frá kosningum fyrir tveimur árum samkvæmt fylgiskönnun Gallups. Rúmlega helmingur landsmanna styður ríkisstjórnina þegar kjörtímabilið er hálfnað. Fullyrt er að lágmarks mánaðarlaun félagsmanna í 5 BHM félögum sem sömdu í síðustu viku verði 500 þúsund í lok samningstímans og að samningurinn tryggi kaupmáttaraukningu. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir góða reykskynjara brýnustu eldvörnina. Eldsvoðar hafa verið tíðir í heimahúsum að undanförnu. Gengi hlutabréfa í Icelandair hækkaði um rúm 11 prósent í liðlega hundrað milljón króna viðskiptum í kauphöllinni í dag. Tveir læknar til viðbótar hafa sagt upp störfum á Reykjalundi og hafa nú sjö læknar sagt upp störfum í mánuðinum í kjölfar uppsagnar forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga. Vegagerðin varar við því að færð geti orðið erfið í nótt og fyrramálið því búast megi við frostrigningu með glerhálku á Suðurlandi, á hringveginum milli Hveragerðis og Hellu og ekki síður í uppsveitum. Á Höfuðborgarsvæðinu rignir seint í kvöld og verður sums staðar ísing, en hlýnar í fyrramálið. Lengri umfjallanir: Það er óhætt að segja að heimildamyndaröðin Svona fólk sem sýnd var á RÚV síðastliðin fimm sunnudagskvöld hafi vakið verðskuldaða athygli. Svona fólk fjallar um mannréttindabaráttu homma og lesbía, hinsegin fólks, hér á landi síðastliðin rúm 40 ár, frá því að samtökin 78 voru stofnuð. Erfiðleikana og fordómana sem mættu þeim í upphafi, sigra og og ósigra, gjörbreytingu á viðhorfi þjóðarinnar um miðjan tíunda áratuginn, réttarbætur löggjafans, tregðu þjóðkirkjunnar til að viðurkenna fullan rétt samkynhneigðra og í lokin klofning og sárindi í samfélagi þeirra sem enn hafa ekki gróið. Höfundur myndarinnar er Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Hún vann að henni í 26 ár. Kristján Sigurjónsson talar við Hrafnhildi. Fullyrt er að lágmarks mánaðarlaun félagsmanna í 5 BHM félögum sem sömdu í síðustu viku verða 500 þúsund í lok samningstímans. Samningurinn á að tryggja kaupmáttaraukningu.

Spegillinn
Spegillinn 3. apríl 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 3, 2019 30:00

Spegillinn 3. apríl 2019 Umsjón: Bergljót Baldursdóttir Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson Dráttur hefur orðið á því í dag að kjarasamningar í viðræðum VR, Eflingar, Starfsgreinasambandsins og annarra stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins verði undirritaðir. Búist var við því að samningar yrðu undirritaðir um klukkan þrjú í dag en enn sem komið er hefur ekkert orðið af því. Arnar Páll Hauksson segir frá og talaði við Vilhjálm Birgissson, formann verkalýðsfélagsins á Akranesi Skúli Mogensen fjárfesti í WOW air fyrir um fjóra milljarða króna allt frá stofnun félagsins árið 2011. Hann segir ljóst að hann muni fá lítið sem ekkert af þessum fjórum milljörðum til baka. Jón Hákon Halldórsson segir frá Gengi bréfa í Icelandair Group hækkaði um rúm átta prósent í þrjú hundruð tuttugu og tveggja milljóna króna viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Panamaskjölin svonefndu hafa gert skattayfirvöldum í 22 löndum víðs vegar um heiminn kleift að innheimta á annað hundrað milljarða króna í sektir og vangoldna skatta vegna fjármuna sem komið hafði verið fyrir í skattaskjólum. Víðs vegar er enn verið að rannsaka undanskotin þannig að upphæðin á eftir að hækka. Ásgeir Tómasson segir frá Tvö tilvik hafa komið upp hér á landi að undanförnu þar sem kviknað hefur í rafbílum því að venjuleg framlengingarsnúra var notuð til að hlaða þá. Fagstjóri rafmagnsöryggissviðs hjá Mannvirkjastofnun segir ekki öruggt að stinga rafbílum í samband í venjulegar innstungur. Hann hvetur fólk eindregið til að nota frekar hleðslustöð. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman. Rætt var við Jón Ólafsson í Samfélaginu á Rás 1 í dag. Lengra efni: Sigrún Davíðsdóttir fjallar um Brexit Það er ekki aðeins við Brexit vandann að glíma heldur einnig Brexit angisina. Eftir viðvarandi Brexit-óvissu í Bretlandi undanfarin misseri eru læknar farnir að tala um Brexit-angist. Spurningin er hvernig eigi að taka á angistinn, á að gefa eitthvað við henni, eða kannski er þetta aðeins dæmi um ofgreiningu. En ef angist er dæmi um magnleysi þá er kannski pólitísk þátttaka til ráða til að fá útrás fyrir vanlíðanina. Lísabet Guðmundsdóttir, fornleifafræðingur segir að þúsundir minjastaða á Íslandi séu að fara í sjóinn mun hraðar en talið var vegna loftslagsbreytinga. Á Norðurlöndunum hafi verið settir upp sjóðir til að fjármagna eftirlit með fornminjastöðum vegna þessarar hættu en ekkert slíkt er til hér á landi. Bergljót Baldursdóttir ræðir við hana Alvarlegur vandi steðjar að í Marseille, annarri stærstu borg Frakklands. Fjölmargar byggingar eru að hruni komnar o

Spegillinn
Spegillinn 17. desember 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 17, 2018 30:00

Spegillinn mánudaginn 17. Des 2018 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Forsætisnefnd Alþingis, forseti og varaforsetar, hafa allir sagt sig frá Klausturmálinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu froseta Alþingis. Nefndarmenn hafi með ummælum sínum um málið gert sig vanhæfa til að vísa málinu til siðanefndar þingsins. Mennirnir tveir sem týndust í fjallgöngu á Kirkjufelli í Grundarfirði síðdegis í dag eru fundnir heilir á húfi. Tekist var á um vitnaleiðslumál þingmanna Miðflokksins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögmaður þingmannanna sagði þurfa að tryggja gögn. Lögmaður konu sem hleraði samtal þeirra sagði þá ganga of langt. Minnst tólf manns féllu í dag í hörðum bardögum í hafnarborginni Hodeida í Jemen. Vopnahlé á að taka gildi í borginni á morgun. Tugir hafa fallið síðustu daga. Fulltrúar uppreisnarmanna og stjórnvalda í Jemen samþykktu í síðustu viku að draga hermenn og vopn sín frá Hodeida, til að hægt verði að flytja þangað hjálpargögn og matvæli. Japanska lyfjafyrirtækið Fuji pharma hefur fjárfest fyrir 6,2 milljarða króna í íslenska lyfjafyrirtækinu Alvotech Að minnsta kosti einn er látinn og yfir áttatíu slasaðir eftir að stuðningsmenn forsetaframbjóðenda í Austur-Kongó tókust á um helgina. Gengið verður til atkvæða um eftirmann Josephs Kabila forseta á sunnudaginn kemur. Íbúar líta á byggðaþróun í Árneshreppi sem algjört neyðarástand segir verkefnistjóri brothættra byggða í hreppnum. Verkefnastjórn hefur sent ríkistjórnininni ákall um einangrun sveitarfélagsins sé rofin með bættum samgöngum. Lengri umfjallanir: Atvinnurekendur vilja stytta vinnuvikuna með því að fella niður kaffitíma. Dregið verði verulega úr yfirvinnu og dagvinnulaun hækkuð í hlutfalli við það. Einnig að dagvinnutímabilið verði frá sex á morgnana til sjö á kvöldin. Starfsgreinasambandið hafnar þessum tillögum. Arnar Páll Hauksson segir frá og ræðir við Björn Snæbjörnsson formann Einingar á Akureyri. Alvarlegar sýkingar af völdum numókokka hefur fækkað verulega frá því farið var að bólusetja börn við bakteríunni og í sumum tilfellum hefur henni nánast verið útrýmt Þetta kemur fram í niðurstöðum umfangsmikillar rannsóknar. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Samúel Sigurðsson lækni, sem varði doktorsritgerð sína í læknavísindum í vikunni. Doktorsrannsókn hans var hluti af mjög umfangsmiklum rannsóknum á áhrifum bólusetningar við pneumokokkum. Niðurstöðurnar sýna að alvarlegar sýkingar vegna pneumókokka eru nánast horfnar eftir að farið var að bólusetja börn við bakteríunni. Wow hefur mikið

Spegillinn
Spegillinn 03.12.2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 3, 2018 30:00

Spegillinn 03.12.2018 Umsjón: Pálmi Jónasson Forseti Alþingis bað þjóðina alla afsökunar á óráðshjali nokkurra þingmanna. Sérstök siðanefnd hefur verið virkjuð til að hefja rannsókn á þessu siðabrotamáli. Siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri segir að ekki þurfi tilvísun frá forsætisnefnd til að lögregla hefji rannsókn á Klausturmálinu. Sterkar vísbendingar séu um það í upptökunum að lög hafi verið brotin við skipan sendiherra. 74-91% landsmanna telja að þingmennirnir af Klaustri eigi að segja af sér þingmennsku, samkvæmt nýrri könnun. Nýtt frumvarp um launahækkanir kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna auðveldar ekki kjaraviðræður, segir forseti Alþýðusambandsins. Það hafi komið á óvart að ekki hefði verið undið ofan af ákvörðunum kjararáðs. Ákæruvaldið fer fram á átta til tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vegna peningaþvættis. Lengri umfjallanir: Sigurður Kristinsson siðfræðingur og prófessor við háskólann á Akureyri segir að ekki þurfi tilvísun frá forsætisnefnd til að lögregla hefji rannsókn á Klausturmálinu. Sterkar vísbendingar séu um það í frásögn Gunnars Braga Sveinssonar að lög hafi verið brotin við skipan sendiherra. Sigurður var í starfshópi Starfshópi um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu sem skilaði skýrslu til forsætisráðherra í september. Eins og kom fram í fréttum ákvað forsætisnefnd Alþingis að hefja skoðun á Klausturmálinu sem mögulegs siðabrotamáls. Steingrímur J Sigfússon, forseti Alþingis kynnti það við upphaf þingfundar í dag og bað þjóðina um leið afsökunar. Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Xi Jinping, forseti Kína sömdu um vopnahlé í viðskiptastríði landanna, á leiðtogafundi G20-ríkjanna, stærstu iðnvelda heims, í Buenos Aires í Argentínu um helgina. Gengi hlutabréfa í Asíu hefur snarhækkað en viðskikptastríði stórveldanna er langt því frá lokið. Samkvæmt heimildum Spegilsins er lausafjárþörf flugfélagsins Wow líklega vel á annað hundrað milljónir Bandaríkjadala. Ekkert varð úr kaupum Icelandair á Wow, meðal annars af því áreiðanleikakönnun á Wow leiddi í ljós að staðan var verri en haldið var. Indigo Partners, nýi fjárfestirinn í Wow, er nú á sama stað og Icelandair þegar fyrirhuguð kaup Icelandair á Wow voru tilkynnt. Ef Wow verður ekki lagt til verulegt fé virðast dagar Wow taldir.