POPULARITY
Á dögunum var nýjasta heimildarmynd Davids Attenborough – Hafið – frumsýnd á Íslandi og viðbrögðin hafa verið sterk og jákvæð. Að því tilefni ætla framleiðendur myndarinnar og hópur íslenskra félagssamtaka, í samvinnu við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Háskólann í Reykjavík, að halda fund um hafvernd á Íslandi á mánudaginn. Hér rétt á eftir fáum við til okkar Katrínu Oddsdóttur og Andrés Inga Jónsson, tvo af skipuleggjendum fundarins, til að segja okkur meira. Hlustendur í höfuðborginni hafa líklega tekið eftir því að sumarblóm eru byrjuð að birtast hér og þar í borgarlandinu. Þessi sumarblóm – sem og allmörg tré, runnar og annar gróður – eru langflest ræktuð í Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi. Við heimsóttum ræktunarstöðina í vikunni og fengum að heyra hvernig gengur á þessum miklu annatímum hjá stöðinni við byrjun sumars. Og í lok þáttar setjumst við niður með félögum í Bjórmenningafélagi Íslands.
Föstudagur 2. maí Vikuskammtur: Vika 18 Stór fréttavika að baki og margt að ræða. Ásamt Maríu Lilju mæta til borðs þau: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundu ofbeldi, Pétur Eggerz tæknistjóri og aðgerðasinni, Birkir Fjalar Viðarsson, metalhaus og þreyttur faðir og Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur. Saman fara þau yfir þetta helsta og áhugaverðasta eins og t.d. rasisma og falsfréttir, bænastað á Keflavíkurflugvelli og furðulega andstöðu við iðkun trúarbragða á meðal leigubílstjóra. Við ræðum um opinn fund Sjórnskipunar -og eftirlitsnefndar um meðferð mála tengdum Ásthildi Lóu. Kveikur afhjúpaði njósnir lögreglumanna fyrir auðmenn, írsku rapparana í Kneecap og tónleika þeirra á Coachella sem orðnir eru að utanríkismáli í Bretlandi og Bandaríkjunum. Förum yfir nýafstaðna kröfugöngu á 1. maí, rafmagnsleysi á Spáni og fregnir af því að Kári Stef hafi látið af störfum fyrir Erfðagreiningu. Nágrannar hafa fengið nóg af ólykt og öskufalli sem fylgir líkbrennslu í Fossvogi. Þá undirrituðu Bandaríkin og Úkraína milli sín auðlindasamning sem á sér fáar hliðstæður, Ísrael brennur og Palestína bauð fram aðstoð við að ná tökum á skógareldum. Það er ekkert lát á brottvísunum flóttafólks, ástandið á Gaza komst einhvernveginn á nýjan botn í hryllingi. Dómur yfir unglingsdreng sem varð Bryndísi Klöru að bana og undrun margra fjölmiðlaneytenda yfir skipun Heimis Más, fjölmiðlafulltrúa Flokks fólksins í stjórn RÚV. Allskonar að frétta sumt sorglegt annað vont, skrítið eða skemmtilegt.
Í neyðartilvikum getur hver mínúta skilið á milli lífs og dauða - sérstaklega þegar um hjartastopp er að ræða. Þegar hjartahnoð hefst strax aukast lífslíkur sjúklingsins verulega. Þrátt fyrir þetta treysta sumir sér ekki til að veita aðstoð á vettvangi á meðan sjúkrabíll er á leiðinni á vettvang. Í seinni hluta þáttarins ræðum við mikilvægi þess að kunna fyrstu hjálp og hvernig rétt viðbrögð allra á vettvangi geta bjargað mannslífum. Við höldum áfram ferð okkar um bráðamóttökuna og kynnumst fjölbreyttum verkefnum starfsfólksins.Við heyrum sögu fjölskyldu sem starfar saman á bráðamóttökunni og hjónum sem starfa bæði sem þyrlulæknar. Við fylgjumst með þyrlunni lenda með fárveikan sjúkling við bráðamóttökuna og þegar sjúklingur með blóðtappa þarf tafarlausa aðstoð. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Stundum þarf starfsfólk bráðamóttökunnar að fjarlægja sprittbrúsa af göngum bráðamóttökunnar svo sjúklingar komist ekki í alkóhólið. Oft eru vandamál við komu þessara sjúklinga - andleg vanlíðan. Í þættinum er kafað ofan í erfið tilfelli sem tengjast andlegri vanlíðan og alvarlegum afleiðingum áfengisdrykkju og vímuefnaneyslu. Þá koma fram ráð til fólks sem líður illa og hvað við sem samfélag getum gert til að hjálpa þeim. Í lok þáttarins fáum við fréttir um líðan móður þáttastjórnanda. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Öldrunarlæknir hvetur fjölskyldur til að ræða meðferðartakmarkanir og óskir aldraðra ástvina þegar kemur að endurlífgun og þáttastjórnandi fylgir aldraðri móður sinni eftir í alvarlegum veikindum. Í þættinum fjöllum við einnig um flæði eldra fólksins um ganga bráðamóttökunnar og hvað það getur verið hættulegt fyrir þennan hóp að dvelja lengi á bráðamóttökunni. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Nánast um leið og Jón Ragnar Jónsson bráðalæknir hefur orð á að það sé óvenju rólegt á næturvakt eina helgina dynja áföllin á. Hann hefur rétt komið manni til lífs þegar neyðarbjallan hringir á deildinni.... Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitin hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Í rúminu við gluggann liggur sjúklingur sem lenti í árekstri, var handtekinn og fluttur á bráðamóttökuna. Sjúklingurinn verður órólegur og nær að komast út af deildinni. Hann er fáklæddur og skólaus. Sérhfæfðir starfsmenn bráðamóttökunnar eru úti að leita að sjúklingnum og hjúkrunarfræðingur hringir á lögregluna. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
„Eigum við að skipta okkur niður í hlutverk. Soffía er á skráningu. Getur þú verið með tímann á taktgreiningum fyrir okkur? Hún er í “arreste” eins og er þannig að viið þurfum að fá hana bara yfir og við bara byrjum að hnoða,“ segir Þórir Bergsson sérfræðingur í bráðalækningum þegar hann undirbýr komu sjúklings í hjartastoppi á bráðamóttökuna. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.

Halldór Árnason gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum síðasta sunnudag eftir úrslitaleik gegn Víkingi í Fossvogi. Halldór var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Breiðabliks en hann hafði áður verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar með liðið. Halldór mætti í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir frábært tímabil Blika, sem og sína leið í þjálfun.
Tómas Kristjánsson er lektor við Háskóla Íslands og sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Í þessum þætti er fjallað um sjálfsvígshugsanir, þróun þeirra, áhættuþætti, ýmis verkfæri til að kljást við þær, hvert fólk á að leita og hvað aðstandendur geta gert. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is, Píeta símann s.552-2218, bráðamóttöku geðsviðs eða bráðamóttöku í Fossvogi utan opnunartíma geðsviðsins. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Doc, Serðir og Gaflarinn fara yfir allt sviðið!
Viðmælandi þáttarins er Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdarstýra Carbfix. Carbfix hefur allt frá árinu 2012 fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun og dælt því ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum ferlum. Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar kolefnisförgunar vakið heimsathygli og starfa nú yfir 30 manns hjá fyrirtækinu. Edda er fædd árið 1981 og er alin upp í Fossvogi, Kópavogi og Danmörku. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði B.S. og Master í efnafræði við Háskóla Íslands og Doktor í forða- og efnafræði frá sama skóla. Edda starfaði sem yfirmaður nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur samhliða því að vera verkefnastjóri Carbfix sem byrjaði sem nýsköpunarverkefni innan Orkuveitunnar, Háskóla Íslands og erlendra samstarfsaðila. Carbfix var formlega stofnað sem dótturfyrirtæki OR árið 2019 og tók hún þá við sem framkvæmdastýra fyrirtækisins. Edda hefur einnig setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, GEORG, Íslenskri NýOrku og danska orkufyrirtækinu Innargi. Þessi þáttur er í boði Icelandair og Krónunnar.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Alvarlegt bílslys varð á þjóðvegi 1 við Kúðafljót síðdegis. Einn var fluttur með þyrlu alvarlega slasaður á Landspítalanna í Fossvogi. Staðan er þung á Landspítalanum vegna kóvid segir Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar. Hann óttast að mannfagnaðir um þjóðhátíð og langa helgi verði til þess að smit breiðist út. Olof Schulz, Þýskalandskanslari heitir stuðningi við Úkraínumenn eins lengi og þörf krefur í stríðinu við Rússa. Þjóðverjar hafa verið gagnrýndir fyrir tafir á vopnasendingum. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Enginn dýralæknir, sem sinnir nautgripum, sauðfé, hrossum og svínum verður á bakvakt á suðvesturhorninu í tíu daga í sumar. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir segir það ekki ásættanlegt. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hana. Undirbúningur fyrir 17. júní hátíðarhöld er í fullum gangi. Pétur Magnússon fór í Hljómskálagarðinum ásamt einum skipuleggjenda hátíðarinnar í Reykjavík. Í kvöld verður fyrsti leikurinn á nýjum tímabundnum heimavelli Knattspyrnufélags Akureyrar, KA tekur á móti Fram í Bestu deild karla. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA ----------------- Landspítali hefur tekið upp grímuskyldu á ný og hert reglur um heimsóknir, Covid-19 smitum hefur fjölgað mjög síðustu daga. Már Kristjánsson er yfirlæknir á smitsjúkdómadeild spítalans. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann. Aðgerðir Seðlabankans til að koma böndum á hækkanir á fasteignamarkaði beinast að fyrstu kaupendum og geta orðið til þess að ungt fók hleypir heimdraganum síðar en ella. Hvaða áhrif hefur það á unga fólkið og fjölskyldur þess. Anna Kristín ræðir við Halldór S. Guðmundsson dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Um fimmtungur landsmanna er með einhvers konar frjókornaofnæmi og hefur af því mikil óþægindi og vanlíðan á sumrin. Unnur Steina Björnsdóttir astma- og ofnæmislæknir segir miklar framfarir hafa orðið í meðferð frjóofnæmis. Ólöf Rún Skúladóttir ræddi við hana.

Segja má að nánast öll alþjóðleg samskipti við Rússa hafi lagst af eftir innrás þeirra í Úkraínu og vegna þeirra hörðu refsiaðgerða sem vestræn ríki hafa gripið til. Þetta gildi einnig um Norðurskautsráðið. Bogi Ágústsson ræddi við dr. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum norðurslóða. Bertelsen er danskur, prófessor við háskólann í Tromsø í Norður-Noregi en ólst upp að hluta á Íslandi. Hann er nýútnefndur Nansen gestaprófessor við Háskólann á Akureyri. Hann var fyrst spurður um áhrif innrásarinnar á samstarf á norðurslóðum og starf Norðurskautsráðsins. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi. Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, tilkynnti í byrjun seinasta árs að hefja skyldi undirbúning þess að skilja Garðyrkjuskólann frá Landbúnaðarháskóla Íslands og færa til Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Námið færist milli stofnananna frá og með næsta hausti. Í byrjun vikunnar var fjórum kennurum við skólann sagt upp störfum. Enginn fastráðinn kennari er því við garðyrkjunámið á Reykjum. Í Garðyrkjuskólanum eru um 100 nemendur, bæði í staðnámi og fjarnámi. Þeir kalla eftir því að skólinn verði sjálfstæður. En í morgun dró til tíðinda í málinu. Að loknum ríkisstjórnarfundi greindi Ásmundur Einar Daðason, mennta og barnamálaráðherra, frá því að samkomulag væri í höfn á milli hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Garðyrkjuskólinn verður áfram að Reykjum. Bjarni Rúnarsson fjallaði um málið. Um hundrað lögreglumenn eru sárir eftir alvarlegar óeirðir í fjölda sænskra borga. Yfirvöld segja glæpagengi standa að baki óeirðunum sem urðu í kjölfar kosningafunda og bókabrenna hægriöfgamannsins Rasmus Paludans. Kári Gylfason segir talar frá Gautaborg. Helstu atriði frétta: Bretar og Hollendingar ætla að taka þátt í rannsókn Alþjóða sakamála dómstólsins á meintum stríðsglæpum Rússa í Úkraínu. Aðalsaksóknari dómstólsins segir að litið sé á allt landið sem glæpavettvang. Níðstöng blasti við íbúum á Kjalarnesi í morgunb þar sem afskorið hestshöfuð var fest á girðingastaur. Íbúi lítur á stöngina sem hótun. Leikskólinn Furuskógur í Fossvogi er óstarfhæfur vegna myglusveppa. Starfsemin flyst yfir í Safarmýrarskóla, en foreldrar hafa einnig kallað eftir myglumælingum í því húsi. Garðyrkjuskólinn á Reykjum verður áfram starfræktur þar. Kennari við skólann kallar eftir því að uppsagnir kennara verði dregnar til baka. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum norðursl

Urður Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur: Hellisheiði hefur verið lokað fjórtán sinnum það sem af er ári og í dag í ellefta sinn bara í febrúar. Hvaða áhrif hefur þetta á fólk sem getur ekki unnið heima þann daginn heldur verður að komast til vinnu? Eða frá vinnu? Við heyrum í hjúkrunarfræðingi sem er búsett á Selfossi en þarf einmitt að komast á kvöldvakt á Bráðamóttökunni í Fossvogi í dag. Þórdís Þórarinsdóttir, sérfræðingur í kynbótum hjá ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins: Kynbætur í dyrum, búgripum, eru fræði sem hefur fleygt fram - bændur sem framleiða afurðir úr skepnum stóla langflestir á kynbætur til að fá sem mest út úr dýrunum. En hvað þýðir það, hvernig er þetta gert, hvaða áhrif hefur þetta á dýrin og hver er nýjasta tæknin sem er verið að nota? Og er hægt að kynbæta út í hið óendanlega? Málfarsmínúta Halldóra Björk Norðdhal: Forvitnast um hjólakeppnina Áskorun Vestfjarðarleiðarinnar, eða Westfjords way Challenge, og hjólaleikinn Hjólað á Vestfjörðum. Skólaverkefni sem vatt upp á sig. Í júní er von á um hundrað manns sem ætla sér að hjóla í kringum Vestfirði 960 kílómetra leið á fimm dögum.

"Geðvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Að þessu sinni er Guðfinna Betty Hilmarsdóttir þáttarstjórnandi með Helgu Sif. Viðmælendur þeirra eru þær Rósa Björg Ómarsdóttir í transteymi BUGL, Magnea Herborg Magnúsardóttir á Laugarási meðferðargeðdeild og Ólöf Jóna Ævarsdóttir á móttökugeðdeild fíknimeðferðar. Umræðuefnið er geðhjúkrun í sinni víðustu mynd með starfsferil og reynslu þessara þriggja hjúkrunarfræðinga í brennidepli. Geðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Rósa Björg Ómarsdóttir útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2008. Starfaði fyrstu árin á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. Fór þaðan í heimahjúkrun og var oft í tímavinnu, til dæmis við öldrunarhjúkrun. Vann einnig á bráðamóttöku og á krabbameinsdeild í Danmörku. Hefur lengi haft sterkar taugar til geðhjúkrunar síðan hún hóf störf á BUGL sem ráðgjafi á legudeild árið 2002 og alltaf langað að vinna þar aftur. Haustið 2020 hóf hún diplómanám í fjölskyldumeðferð og útskrifast þar vorið 2022. Stefni svo á að klára diplómanám í kynfræði eftir það. Hóf aftur störf á göngudeild BUGL í desember 2020 sem hjúkrunarfræðingur og er í dag teymisstjóri yfir transteymi BUGL. Magnea Herborg Magnúsardóttir útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2020. Hóf störf á Laugarási meðferðargeðdeild sumarið 2020 og starfar þar sem hjúkrunarfræðingur og málastjóri. Heillaðist af starfseminni þegar hún var þar í verknámi á þriðja ári. Ólöf Jóna Ævarsdóttir útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2019. Hóf störf á móttökugeðdeild fíknimeðferðar í mars 2018 sem hjúkrunarnemi og hefur unnið þar síðan. Aðstoðardeildarstjóri á afeitrunardeild ólögráða ungmenna í afleysingu frá 2021-2022. Frá mars 2020 verið hjúkrunarfræðingur og þátttakandi í þróun þjónustu fyrir jaðarsetta einstaklinga sem dvelja í farsóttarhúsi. Sinnt kennslu á miðlægu starfsþróunarári spítalans, meðal annars um fráhvarfsmeðferð. Guðfinna Betty Hilmarsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri á bráðageðdeild 32C. Útskrifaðist úr hjúkrunarfræði við HÍ 2012 og kláraði diplóma í kynfræði 2014. Útskrifaðist sem leiðbeinandi í viðbrögðum og varnarleiðum við ofbeldi árið 2013, og tók þátt í kennslu og uppbyggingu á varnarteymi frá 2013-2019. Starfaði á fíknigeðdeild frá 2012-2017 og síðan á bráðageðdeild frá 2017 til dagsins í dag. Hefur starfað sem aðstoðardeildarstjóri frá árinu 2016, fyrst á fíknigeðdeild og svo á bráðageðdeild. Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur hjá geðþjónustu Landspítala. Hún lauk BSc.-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999 og meistaragráðu í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004 og hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007. Helga lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hefur tekið virkan þátt í fræðslu og þjálfun starfsfólks vítt og breytt á Landspítala. Hún hefur verið lektor við hjúkunarfræðideild Háskóla Íslands, stundakennari við læknadeild HÍ og einnig kennt á á heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri.
Spegillinn 29.september 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Skjálftavirkni eykst við Keili. Frá miðnætti hafa mælst þrír skjálftar yfir þremur að stærð og um 400 skjálftar í heildina. Bráðamóttaka Landsspítalans Fossvogi er yfirfull dag eftir dag, af sjúklingum sem þarf að leggja inn á aðrar deildir, en það er ekkert pláss. Í gær var svo fullt að sjúklingar lágu inni á kaffistofu starfsfólks. Deildarstjórinn segir þetta gera starfsfólki erfitt með að sinna bráðveikum og slösuðum sjúklingum og efast um skilning stjórnvalda. Forsvarsmenn Tryggingafélagsins Sjóvár segir rangt að iðgjöld hafi verið oftekin eins og framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda heldur fram. Síðustu átján mánuði hefur Sjóvá greitt rúma tuttugu milljarða króna til viðskiptavina sinna. Keir Starmer leiðtogi breska Verkamannaflokksins sleit flokksþinginu í dag með stormandi ræðu en óvíst hvort hún styrkir hann í sessi. Sósíalíski vinstriflokkurinn í Noregi er hættur við að mynda vinstristjórn með Verkamannaflokknum og Miðflokknum. Stjórnendur þeirra halda áfram viðræðum um myndun minnihlutastjórnar. Bréf í útgerðarfélögunum Brim og Síldarvinnslunni hafa hækkað verulega í kjölfar kosninganna um helgina. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að markaðurinn telji mögulega líklegra að við taki stjórn sem geri ekki miklar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Lengri umfjöllun: Jörð skelfur að nýju við Keili. Kvika hefur ekki komið úr jörðu í tvær vikur á Reykjanesskaga, en jarðskjálftahrina hófst þar um helgina. Kristján Sigurjónsson ræðir við Freystein Sigmundsson jarðeðlisfræðing um atburðarásina þar og stöðuna í Öskju. Eftirmáli alþingiskosninganna. Krafa um stöðugleika og sömu ríkisstjórn áfram, togast í einhverju á við óánægju fylgismanna Vinstri hreyfingarinnar grænt framboð í samtali ríkisstjórnarflokkanna nú segir Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Guðmundur ber saman kosningarnar á Íslandi og Þýskalandi og segir að flug popúliskra flokka hafi lækkað. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Guðmund. Sir Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins ávarpaði flokksþingið í dag. Honum þótti takast vel upp í að móta sannfærandi flokksstefnu. En ef ræðan og tíminn sætta ekki brátt stríðandi flokksfylkingar og virkja óánægjuna með stjórn Íhaldsflokksins er leiðtogatími Starmers brátt þrotinn. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Til stendur að endurvekja hið 87 ára gamla Bálfarafélag Íslands til að styðja við opnun óháðrar og umhverfisvænnar bálstofu sem fyrirhugað er að rísi í Garðabæ. Aðeins ein bálstofa er í landinu en Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastdæma reka hana í Fossvogi. Af þessu tilefni verður kynningarfundur í dag, en mikilvægt er að fá aðkomu almennings og stuðning við verkefnið segja aðstandendur. Við fengum Sigríði Bylgju Sigurjónsdóttur formann félagsins til okkar. Við ræðum íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunaut í vikulegu málfarsspjalli okkar og þar verða kosningar okkur hugleiknar. Íslenska kvikmyndin Dýrið verður frumsýnd á morgun hér á landi, en hún hefur þegar vakið mikla athygli og hlaut m.a. frumleikaverðlaunin svokölluðu á kvikmyndahátíðinn í Cannes. Myndin var forsýnd í fyrrakvöld og við fengum leikstjórann Valdimar Jóhannsson til okkar og heyrðum af viðtökunum og forvitnuðumst um þessa áhugaverðu kvikmynd sem ku vera einhvers konar blanda af sveitarómantík, hryllingi og þjóðsagnaminnum.... eða hvað? Alþingiskosningar eru fram undan um helgina og flokkarnir keppast við að bjóða kjósendur velkomna á kosningaskrifstofur sínar. Svo eru það kosningavökurnar, jafnt á vegum flokkanna sem annarra. Svo eru fjölmennir íþróttaviðburðir og fögnuðir á dagskrá líka. Við fengum Víði Reynisson yfirlögregluþjón hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra til að fara yfir núgildandi sóttvarnarreglur með okkur og gefa góð ráð um ábyrga hegðun í þessu samhengi. Hvað má og hvað má ekki í kosninga- og knattspyrnugleði helgarinnar? Fæstir fara í gegnum lífið án þess að upplifa sorg af einhverju tagi. Við missum fólk, söknum og syrgjum. Sjónvarpsþættirnir Missir hefjast í Sjónvarpi Símans í kvöld, en þar hittir Freyr Eyjólfsson fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum sorg og missi. Lært að lifa með sorginni, unnið sig í gegnum áfallið og eignast gott og hamingjusamt líf. Þær Eva Dís Þórðardóttir, hugmyndasmiður þáttanna, og Ína Lóa Sigurðardóttir frá Sorgarmiðstöðinni komu til okkar og sögðu okkur meira. Tónlist: Sváfnir Sig - Fer sem fer. Dire Straits - Ticket to heaven. Rakel, Ceasetone og JóiPé - Ég var að spá. The Weeknd - Take my breath. Grafík - Presley. Lana Del Ray - Tulsa Jesus Freak. Joe Jackson - Steppin out. Krummi - Frozen teardrops. Lizzo og Cardi B. - Rumors.

Sjötti þáttur VELFERÐIN, þættir um velferðar- og heilbrigðismál. Læknar þurfa að sóa dýrmætum tíma fyrir framan tölvuskjáinn Þorkell Sigurlaugsson, formaður velferðarnefndar ræðir við Davíð Þórisson, lækni á bráðamóttöku Landspítala og annan af höfundum hugbúnaðarins LEVIOSA. Í þættinum lýsir Davíð því hversu mikill tími, oft meira en 50%, er varið fyrir framan tölvuskjáinn, við skráningar á gögnum og sækja gögn, í stað þess að sinna sjúklingnum. Verulega skortir á fjárfestingu í innviðum á sviði upplýsingakerfa þar með talið stafrænna lausna á Landspítala. Gamaldags upplýsingakerfi og bútasaumur við fjölmörg önnur kerfi, er lýsandi dæmi um óhagkvæmni í rekstri spítalans. Davíð veit um hvað hann er að tala, því hann er sérfræðilæknir á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi. Hann stofnaði fyrirtæki ásamt frænda sínum Matthíasi Leifssyni hagfræðingi, sem er að þróa hugbúnaðinn LEVIOSA sem gæti umbylt allri skráningu hjá heilbrigðisstofnunum. Dæmi um nýsköpunarmöguleika innan heilbrigðiskerfisins. Davíð er mikill áhugamaður um forritun, en hann valdi frekar í læknisfræðina en forritun, því honum hugnaðist betur að vera í kringum fólk en tölvuskjái í vinnunni. Svo kom á daginn að hann ver oft meira en 50% fyrir framan tölvuskjái í vinnunni. Mjög áhugavert viðtal við Davíð sem opnar augu áhorfandans fyrir þeim tækifærum sem eru í hagræðingu innan Landspítala og einnig til útflutnings á hugbúnaði og þekkingu á sviði heilbrigðisvísinda.
Margir hafa haft orð á, vegna þéttingu byggðar á Höfuðborgarsvæðinu bæri að varast að ganga á grænu svæðin í borginni. Vissulega hafa nokkrir grænir grasbalar horfið undir hús, og nokkur tré hafa einnig verið felld, en þetta hefur ekki verið gert í stórum stíl að mínu viti. Nú hefur verið byggt í Fossvogi um langt skeið og enn er verið að byggja fjölbýlishús vestast í voginum, þar fyrir neðan er Skógrækt Reykjavíkur og verið þar óáreitt að ég held um langa hríð. Við ætlum að skoða okkur aðeins um á Skógarvegi í dag, og skoða þar nýtt fjölbýlishús, sem senn er tilbúið. En við skulum huga aðeins að sögu Skógræktar. Rætt við arkitektana Guðmund Gunnlaugsson og Ellert Hreinsson frá Archus. Í stúdíói sitja Auður Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Skógræktar Reykjavíkur og Karl Raymond Birgisson framkvæmdastjór Dverghamra sem byggir á Skógarveginum.

Alþjóðlega knattspyrnumótið Rey Cup stendur nú yfir í Laugardal og Fossvogi. Margt af okkar besta knattspyrnufólki hefur spilað sinn fyrsta leik gegn erlendum andstæðingum á Rey Cup í gegnum tíðina en mótið fagnar nú 20 ára afmæli. Að þessu sinni eru þó engir erlendir gestir, í ljósi heimsfaraldursins. 147 lið eru skráð til leiks og þátttakendur eru á aldrinum 13 - 16 ára. Í fyrra kom upp smit á mótinu og nú hefur það sama gerst aftur, en boltinn rúllar áfram engu að síður. Gunnhildur Ásmundsdóttir framkvæmdastýra mótsins kom til okkar. Gríðarlega mikill fjöldi fer um Leifsstöð þessa dagana og hafa langar raðir myndast í brottfararsalnum. Flugfélög hafa beðið fólk um að mæta fyrr en vanalega, enda fylgir bólusetningarvottorðum og fleiri eyðublöðum mikil og tímafrek vinna. Í byrjun mánaðar fóru meira en 10 þúsund manns um völlinn, í fyrsta skipti síðan í mars í fyrra. Nú er föstudagsmorgunn og viðbúið að mikið sé um að vera í Leifsstöð, bæði vegna komu og brottfara. Við hringdum í Arngrím Guðmundsson aðstoðaryfirlögregluþjón í flugstöðinni og spurðum frétta. Við fengum góða gesti til að líta yfir helstu fréttir vikunnar með okkur, en það voru að þessu sinni þau Margrét Erla Maack fjölmiðlakona, dansari og fleira, og Sóli Hólm uppistandari, rithöfundur og áhugasmiður. Við enduðum svo vikuna á spjalli við ungan listamann, Benedikt Gylfason, sem gefur í dag út sitt fyrsta lag, en hann hefur annars einbeitt sér að ballettdansi undanfarin ár. Meiðsl hafa hins vegar sett strik í dansreikninginn og því ákvað hann að beina orkunni að tónlistarsköpuninni á meðan og við fengum þennan fjölhæfa unga mann í heimsókn og spjall um listina og lífið. Tónlist: Sváfnir Sig - Stund milli stríða. Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams. U2 - The sweetest thing. Eurythmics - Here comes the rain again. Pink - What about us? The Vaccines - Back in Love city. Vök - Skin. Men at work - Down under. Benedikt Gylfason - Diamond. Coldplay - Higher power. Mammút - Salt.

Spegillinn 30.mars 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir forsendur fyrir því að taka upp litakóðunarkerfi á landamærunum ekki hafa breyst. Hann telur sóttvarnayfirvöld reyna að grafa undan ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Ríkið þarf að hlaupa undir bagga með Strandabyggð svo að það geti haldið úti rekstri og staðið við skuldbindingar sínar. Oddviti sveitarstjórnar Strandabyggðar segir það koma til vegna skerta framlaga úr Jöfnunarsjóði. Stuðningur við ríkisstjórnina hefur sjaldan mælst meiri samkvæmt nýrri Gallupkönnun, fylgi Samfylkingarinnar minnkar en stuðningur við Miðflokkinn eykst. Lengri umfjöllun: Í vinsælustu fjölskylduhverfum Reykjavíkur eru mörg dæmi um að börn fái ekki pláss á leikskóla fyrr en rúmlega tveggja ára. Staðan á biðlistum eftir leikskólaplássum í borginni er slæm í ár og Ingibjörg Brynjarsdóttir leikskólastjóri í Fossvogi minnist þess ekki að hafa þurft að neita jafn gömlum börnum um pláss. Heiða Aðalsteinsdóttir, sem býr í vesturbænum sér fram á að þurfa að keyra borgina þvera og endilanga á hverjum degi til að fara með son sinn til dagmömmu. Miðað við stöðuna nú, og svörin sem hún fær, býst hún ekki við að drengurinn komist inn á leikskóla fyrr en hann verður tveggja og hálfs árs. Þórhildur Þorkelsdóttir segir frá og talar við Ingibjörgu og Brynju. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir að eldgosið í Geldingadölum sé ákaflega lærdómsríkt til þess að skilja eðli og umfang jarðhræringanna sem hófust með jarðskjálftunum í desember 2019. Þeirri atburðarrás sé alls ekki lokið. Við undirleik fuglasöngs, sírenuvæls og flugvélagnýs settist Spegillinn í dag niður með Páli í veðurblíðunni í Vatnsmýrinni í Reykjavík og ræddi við hann um jarðeldana og jarðhræringarnar á Reykjanesskaga á ellefta degi goss. Kristján Sigurjónsson ræðir við Pál. Undanfarinn áratug eða svo hafa alþjóðastofnanir og samtök beint sjónum sínum að spillingu tengdri sjávarútvegi. Skýrslur og umfjöllun þeirra um þessi efni gefur Samherjamálinu samhengi. Tölurnar, sem oftast er vitnað í um nýtingu, öllu heldur ofnýtingu, komu fram 2018 í skýrslu FAO, Sjávarútvegs- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt skýrslunni var staðan sú 2015 að tæplega 60 prósent nytjastofna voru veiddir í topp og 33 prósent ofveiddir. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Doc, Kötturinn og Höfðinginn fóru yfir leikina sem fram fóru á Íslandi í vikunni.
Reykjavíkurnætur er heiti á þremur heimildaþáttum þar sem Sigyn Blöndal kynnir nokkra af nátthröfnum höfuðborgarinnar. Sumir vinna vaktavinnu, aðrir eyða nóttunum í að leita að Pokemon og enn aðrir upplifa rómantískar stundir um borð í hvalveiðibát. Margir halda fast í nóttina, aðrir fagna morgunbirtunni. Nú færist fjör í leikinn þegar við förum rúnt númer 2. Við byrjum á fimmtudagsnóttu og förum í föstudagsfjörið í verslun sem er opin allan sólarhringinn, bönkum upp á í heimahúsi þar sem vaknað er fyrir allar aldir á hverjum einasta morgni og förum í heimsókn á báðamóttökuna í Fossvogi. Viðmælendur: Helgi Bárðarson, Lilja Helgadóttir, Gunnar Pétursson og Hrólfur Smári Pétursson. Umsjón: Sigyn Blöndal.

Maðurinn, sem greindist með fyrsta staðfesta tilfellið af COVID-19 kórónaveirunni, kom til landsins 22. febrúar. Hann er nú í einangrun á smitsjúkdómadeild Landspítalans í Fossvogi. Alþjóðaheilbrigðsstofnunin segir að Covid-19 kórónaveiran geti borist til flestra, ef ekki allra landa. Stofnunin hefur lýst yfir hæsta viðbúnaðarstigi, en þó ekki heimsfaraldri. Ríkisstjórnin boðar að leyfisveitingar vegna lagningar jarðstrengja og raflína taki mun styttri tíma en nú. Vonskuveður er nú á austanverðu landinu og mikil ófærð.

Fannar Sveinsson fjölmiðlamaður og leikstjóri sagði frá uppvextinum í Fossvogi, skólagöngu, vinum feimni og ýmsu tengdu barna og unglingsárum. Hann sagði frá kvikmyndaáhuga, áhuga á leiklist og tækifærunum sem komu strax í grunnskóla varðandi kvikmyndagerð. Hann sagði frá verslóárunum, vinnu á mbl. is og hraðfréttum sem urðu til þar. Hann sagði frá fjölskyldunni og vinunum, og ýmsu fleiru áhugaverðu. Edda Hermannsdóttir markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka sagði frá uppvextinum á Akureyri, og í Danmörku, menntaskólaárunum í MA, Au Pair starfi á spáni og ýmsu tengdu unglingsárum. Hún sagði frá fjölskyldu og vinum, dýrmætrum systrum, börnunum áhugamálunum og ýmsu öðru.

Spegillinn föstudaginn 6. september 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Nýr dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, tók við embætti í dag. Áslaug er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og yngsti ráðherra í 75 ára sögu íslenska lýðveldisins. Bretar geti ekki farið úr Evrópusambandinu án samnings. Lávarðadeild breska þingsins samþykkti í dag lög þess efnis. Hækkun á tryggingum ökutækja lögreglu skýrir meðal annars hvers vegna leiguverð á tækjunum hefur hækkað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá embætti ríkislögreglustjóra. Rosknum karlmanni var bjargað út úr brennandi húsi á Hlíðarvegi í Reykjanesbæ síðdegis í dag. Hann er mikið slasaður að sögn sjukraflutningamanna. Eldurinn kom upp í eldhúsi og lagði mikinn reyk frá honum. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild í Fossvogi. Lögreglan rannsakar eldsupptök. Aukalandsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag að styðja þingsályktunartillögu sveitarstjórnarráðherra sem felur meðal annars í sér sameiningu og fækkun sveitarfélaga niður í 40 fyrir árið 2026. Þá mega sveitarfélög ekki vera með færri en 1000 íbúa. Stór hluti hins nýja WOW flugfélags verður hér á landi, segir stjórnarformaður US Aerospace Associates, sem keypt hefur eignir þrotabús flugfélagsins. Ákveðið hefur verið að banna innflutning á hundum frá Noregi. Ástæðan er sú að á síðustu dögum hafa borist fréttir af alvarlegum veikindum af óþekktum orsökum í hundum þar í landi. ViðvörunTalsverðar eða mikillar úrkomu er að vænta á morgun sunnan og vestantil á landinu, einkum við Mýrdalsjökul. Búast má við vatnavöxtum og auknum líkum á skriðuföllum á þessum svæðum og eru óbrúaðar ár mjög varasamar í slíkum aðstæðum. Lengri umfjöllun: Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti nýtt fjarlagafrumvarp í morgun. Helstu áherslur í fjárlagafrumvarpinu eru lægri tekjuskattur, nýr Landspítali, stuðningur við barnafjölskyldur, orkuskipti, rannsóknir - og samgöngur. Þá á að lengja fæðingarorlof í tíu mánuði úr níu um áramótin og auka framlög til barnabóta. Samkvæmt lífskjarasamningnum á að taka upp nýtt skattþrep, sem verður 31,44 prósent. Milliþrepið, - sem áður var lægra þrepið, hækkar um eitt prósentustig, í tæp 37 prósent. Þessar skattbreytingar taka að fullu gildi árið 2021. Þetta þýðir að ráðstöfunartekjur lægstu tekjuhópanna hækka um 10 þúsund krónur á mánuði. Kostnaður ríkissjóðs vegna þessara lækkana er 21 milljarður á næsta ári. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræðir við Bjarna Benediktsson og Oddnýju Harðardóttur fyrrverandi fjármálraðherra og þing
Jón Magnús Kristjánsson Yfirlæknir á bráðamóttöku Landsspítalans í Fossvogi og Guðrún Lísbet Níelsdóttir Hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri viðbragsáætlana flæðissviðs Landsspítalans, komu í Bráðavarpið og ræddum við um hópslys, bráðaflokkun og getu heilbrigðiskerfsins til þess að takast á við slíka atvik.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Elías Rúnar Elíasson málarameistari og fyrrverandi verkstjóri flutninga og vörumóttöku á Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi auglýsingar frá Tóbaksverslun R.P. Leví og Reykjavíkurapóteki sem birtust í Læknablaðinu í febrúar 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Biðlististi eftir innlögn á sjúkrahúsið Vog hefur aldrei verið lengri en nú þegar 580 manns bíða eftir að fá þjónustu. Á síðasta hálfa ári hefur þeim sem bíða fjölgað um 28% og er biðlistinn nú nær tvöfalt lengri en fyrir fimm árum. Í dag heldur SÁÁ opinn fund um biðlistann á Vogi. Við fáum Valgerði Rúnarsdóttur, forstjóra sjúkrahússins Vogs, til okkar. Fyrsta kattakaffihús landsins opnaði nú nýverið í miðborg Reykjavíkur. Þar búa kisur í heimilisleit, þau Fabio, Rósalind og Lilli. Við heyrum í öðrum stofnanda kaffihússins, Gígju Björnsson. Pistill Andreu Margeirsdóttur félagsráðgjafa hefur vakið mikla athygli en í honum lýsti hún upplifun sinni og reynslu af því að fara með nákominn ættingja á bráðamóttökuna í Fossvogi um helgina. Hún segir ungan dreng hafa legið á gólfinu á biðstofunni og sjúklingar um alla ganga. Þó svo að starfsfólkið hafi verið að gera sitt allra besta að sögn Andreu, hafi hún upplifað öryggisleysi. Margir hafa tekið undir þessa lýsingu Andreu á Facebook og lýst viðlíka upplifun. Við heyrum í Andreu og einnig Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra flæðisviðs Landspítalans. Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður kemur til okkar og segir okkur áhugaverðar fréttir utan úr heimi.
Innkastið er á sínum stað eftir allar umferðir í Pepsi-deild karla. Þeir Magnús Már Einarsson, Elvar Geir Magnússon og Gunnar Birgisson fóru yfir 14. umferðina. Íslandsmeistarar FH héldu lífi í toppbaráttu deildarinnar með því að vinna Val, Stjarnan var í stuði gegn Breiðabliki, Ólsarar unnu Grindvíkinga sem eru að hrapa niður töfluna, jafntefli í veðravíti á Skaganum, jafntefli var niðurstaðan í Grafarvogi og í Fossvogi.
Fjallað um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt öðru sinni, hann hefur hannað ýmislegt annað en hús, bæði stór og smá, svo sem innréttingar, stóla, leikföng og fl. Þekktar byggingar Manfreðs eru margar, má þar nefna Skálholtsskóla og Kröflu. Einnig hefur hann hannað þekkt einbýlishús í Mávanesi og Blikanesi í Garðabæ, en sjálfur býr hann í tilraunahúsi eftir sjálfan sig á Álftanesi. Manfreð hannaði einnig tengibyggingu milli húsa í safni Ásmundar Sveinssonar sem þykir afar vel heppnuð, og hann hannaði einnig ferðamannaðastöðu á tjaldstæðinu í Laugarda. Rætt við Mannfreð í þættinum. Pétur Ármannsson arkitekt fylgir okkur að Ásmundarsafni og að tjaldstæðinu í Laugardal Farið heimsókn til Karenar Vilhjálmsdóttur kennarar og systur Manfreðs og manns hennar Þorvaldar Óskarssonar fyrrverandi skólastjóra, en þau búa að Hellulandi 20 í Fossvogi, í húsi eftir Manfreð, en Fossvogurinn er eina skipulagsverkefni Manfreðs, sem menn eru sammála um að hafi lukkast afar vel.
Fjallað um nokkrar byggingar Manfreðs Vilhjálmssonar arkitekt í tveimur þáttum í fylgd Péturs Ámannssonar byggingalistfræðings. Í þessum fyrri þætti er fjallað um Þjóðarbókhlöðuna, Nesti bensínstöði í Fossvogi sem var hans fyrsta verk og nú er búið að rífa, og einbýlishús hans sjálfs á Álftanesi og einbýlishús Kristjáns Davíðssonar í Barðavogi. Farið í heimsókn til Manfreðs að Brekkuskógi 10 á Álftanesi, húsið heitir Smiðshús en faðir hans var smiður. Húsið er tilraunahús. Rætt við Manfreð um námsárin, og fl. Farið heimsókn í Barðavog 13 í hús Kristjáns Davíðssonar listmálara, en nú býr í húsinu sonur hans Björn Davíð Kristjánsson þverflautuleikari. Húsið hefur verið tekið í gegn og Birni er umhugað um varðveislu þess.