POPULARITY
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu stöðu alþjóðamála í upphafi nýs árs. Bogi sagði að ekki yrði sagt að 2024 hafi verið gott ár á alþjóðavettvangi: í kosningum fengu popúlskir flokkar víða byr í seglin, umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna skilaði engu og stór hluti heimsins virðist kæra sig kollóttan um sífellt hættulegri hamfarahlýnun. 2024 er heitasta ár sem hefur mælst og það berast æ oftar tíðindi af ýmsum öfgafyrirbærum í veðri, illviðrum, flóðum og þurrkum. Þau ræddu horfur fram undan, óvissu um stefnu Donalds Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, bæði í innanríkis- og utanríkismálum sem hefði mikil áhrif á þróun mála í heiminum öllum. Undir lokin ræddu Þórunn og Bogi stöðu Íslands og mat breska tímaritsins The Economist á þróun efnahagsmála. Blaðið birti um áramót töflu þar sem ritstjórn þess metur hvaða lönd stóðu sig best á síðasta ári. Spánn, Írland, Danmörk, Grikkland og Ítalía eru í efstu sætunum á lista blaðsins. Metnir voru þættir á borð við breytingar á þjóðarframleiðslu, hlutabréfaverði, verðbólgu og þróun atvinnuleysis. Samkvæmt þessum mælikvörðum tímaritsins er Ísland í 14. sæti, milli Svíþjóðar og Lúxemborgar. Bandaríkin eru í 20. sæti en Bretland í 31. sæti. Þetta er ekki yfirlit um ástandið heldur breytingar, þegar auðlegð þjóða er metin er Ísland í sjöunda sæti yfir ríkustu þjóðir heims.
Spekingar eins og aðrir eru að vinna í sjálfum sér um þessar mundir. En örvæntið ei, þáttur þessa vikuna fer með okkur á gamlar og góðar slóðir. Eva Ruza (Júní 2019) - Tvíburar og konungborið fólk Heiðar Logi (Apríl 2019) - Lífsháski og föðurmissir Siggi Gunnars (Ágúst 2019) - Skápurinn, Bretland og Spánn/Tenerife Logi Bergmann (Nóvember 2018) - Stjórnmálafræði og handbók hrekkjalómsins Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar og eru í boði GULL LITE
ADVANIA - DURACELL - SONAX - DOMINOS - BOLI - DORITOS - EKILL - ASKJA - ARENA - VERKFÆRASALAN Kristján Einar og Bragi halda áfram að fjalla um bestu íþrótt í heimi, hvar ætlar þetta að enda? Þvílík helgi á Silverstone!
Hvaða verkefni bíða hins nýja forsætisráðherra Bretlands og nýrrar ríkisstjórnar hans? Halla Gunnarsdóttir hefur lengi fylgst vel með breskum stjórnmálum og starfaði um tíma innan þeirra. Hún bendir á að auka þurfi hagvöxt í landinu og lagfæra mikilvæga innviði, Bretland sé að mörgu leyti illa statt. Ævar Örn Jósepsson fjallar um fortíð Keirs Starmers, lögfræðings sem var öflugur verjandi og baráttumaður í mannréttindum sem varð grjótharður saksóknari. Hann þykir ekki sérlega litríkur og sjarmerandi, en á móti eldklár og rökfastur.
Fimmtudagurinn 20. júní Bretland, mannúð, sagnaskemmtun og Gaza Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR og Sveinn Máni Jóhannesson nýdoktor er hjón og áhugafólk um pólitík, ekki síst bresk stjórnmál. Þau ræða við okkur um komandi kosningar. Sigrún Steinarsdóttir sálfræðingur hlaut nýverið fálkaorðuna fyrir framlag til mannúðarmála. Hún berst gegn fátækt sem hún segir vaxandi vanda. Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur safnaði textum almennings í bók sem hún kallar Bragðaref, syrpu af kræsingum til að hafa sem húslestur. Í lok þáttar kemur Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði og ræðir ástandið í Palestínu og Ísrael.
Hundblautur í hellirigningu fyrir utan Downing-stræti 10 boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra til nýrra þingkosninga í Bretlandi 4. júlí. Fram að tilkynningu Sunaks höfðu breskir miðlar verið undirlagðir af vitnisburði Paulu Vennells, fyrrverandi forstjóra póstsins. Rannsóknarnefnd kannar það sem kallað hefur verið stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins þegar tæplega eitt þúsund útibússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus. Sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. Ný gögn benda til þess að Vennells hafi vitað um gallana í bókhaldskerfinu og að málsóknir væru vafasamar þegar hún fullyrti í þingnefnd 2015 að ekkert væri athugavert við tölvukerfið eða málareksturinn gegn útibússtjórunum.
Í Heimsglugga dagsins fjallaði Bogi Ágústsson um hneykslismál í Bretlandi, svo nefnt Póstþjónustuhneykslið. Frá 1999 og nokkuð fram á þessa öld voru yfir 700 póstafgreiðslumeistarar vítt og breitt um Bretland saksóttir og dæmdir fyrir fjárdrátt og þjófnað. Síðar kom í ljós að um var að ræða galla í bókhaldskerfi. Margir fóru mjög illa út úr aðförinni. Yfirvöld hafa reynt að vinda ofan af málinu en bætur sem boðnar hafa verið eru fjarri því að bæta skaða og miska fólks. Golfklúbbur Sandgerðis berst gegn verðbólgunni. Klúbburinn dró til baka áður boðaða átta prósenta hækkun félagsgjalda og hækkar um þrjú prósent og skorar á aðra í þjóðfélaginu að gera slíkt hið sama. Lárus Óskarsson, formaður klúbbsins, spjallaði um þessa ákvörðun. Ísland leikur fyrsta leikinn á EM í handbolta á morgun. Guðjón Guðmundsson, Gaupi, hefur fylgst með mörgum stórmótum í gegnum áratugina, hann var aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk á sínum tíma, íþróttafréttamaður árum saman og nú faðir þjálfarans. Gaupi spjallaði um mótið og fyrri mót. Hann er bjartsýnn á gott gengi. Tónlist: On the evening train - Johnny Cash, Vorið og tómið - Stína Ágústsdóttir, Para mukuyenda - Katawa Singers, All of me - Lester Young, Please mister Postman - The Beatles, Bræðralag - Björgvin Halldórsson og Diddú.
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um átök popúlista og lýðræðissinna víða um heim. Þau ræddu um Argentínu, Venesúela, Bandaríkjaþing, Slóvakíu, Ítalíu, Pólland og Bretland. Í Argentínu má segja að tveir popúlistar takist á um forsetaembættið. Annar er hagfræðingurinn Javier Milei, sem hefur verið lýst sem pólitískum utangarðsmanni, jafnvel hægrisinnuðum anarkista. Hinn er Sergio Massa efnahagsráðherra úr Perónistaflokknum Union por la Patria. Öllum á óvart fékk Massa fleiri atkvæði en Milei í fyrri umferð kosninganna. Þeir tveir verða í framboði í seinni umferð forsetakosninganna 19. nóvember. Argentínumenn glíma við mikinn efnahagsvanda, verðbólga er 140 prósent, skuldir ríkisins gríðarlegar og lífskjör fara versnandi. Milei segir að Argentína geti að nýju komist í hóp ríkustu landa heims eins og var á 19. öld með stórkostlegum niðurskurði ríkisútgjalda, taka upp dollar og afnema reglur og höft. Í Venesúla er efnahagsástandið enn verra, þar er verðbólga 700 prósent. Tæplega átta milljónir manna hafa flúið Venesúela frá 2014 og er talið að eftir séu í landinu um 28 milljónir manna. Stjórn og stjórnarandstaða gerðu samkomulag í síðustu viku um lýðræðislegar forsetakosningar á næsta ári og var hluti samkomulagsins að stjórnarandstæðingar fengju að velja sér forsetaframbjóðanda í forvali. Þrátt fyrir samkomulagið gerðu stjórnvöld stjórnarandstæðingum erfitt fyrir er efnt var til forvals um helgina. Fjölmiðlum var bannað að fjalla um það, ekki var leyft að kjósa í opinberum byggingum eins og skólum, vefsíður með upplýsingum um kjörstaði og forvalið voru teknar niður. Engu að síður tókst að halda forvalið og María Corina Machado vann afgerandi sigur. Hún hefur lengi verið stjórnvöldum erfiður andstæðingur, bæði Hugo Chavez og Nicolás Maduro núverandi forseta. Í Evrópu hefur Giorgia Melone verið forsætisráðherra Ítalíu í eitt ár, vikuritið Stern í Þýskalandi sagði Meloni hættulegustu konu Evrópu, Economist segir Marine Le Pen miklu hættulegri. Við valdatöku hægristjórnar Melones veltu margir fyrir sér hvaða stefnu hún tæki í utanríkismálum. Það hefur komið á óvart að stjórn hennar hefur ekki gert neinar stórar breytingar, hvorki gagnvart NATO eða ESB. Francesco Battistini, blaðamaður Corriere della Sera, sagði í viðtali við SVT að Melone hefði verið mjög gagnrýnin á ESB í stjórnarandstöðu en tekið allt aðra afstöðu sem forsætisráðherra, hún hafi náð góðu sambandi við Joe Biden og farið að ráðum Bandaríkjanna að minnka samstarf við Kínverja og hætt við að leyf

Bresk stjórnmál voru rædd á Morgunvaktinni í dag. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá flokksþingum stjórnmálaflokka, helstu málefnum og því hvað skoðanakannanir hafa að segja um stöðuna. Líklega verður kosið í Bretlandi á næsta ári. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel fór yfir kosningarnar í Slóvakíu um liðna helgi og afleiðingar þeirra á landið og Evrópusamstarfið. Flokkurinn sem best gekk hefur talað gegn hernaðaraðstoð í Úkraínu. Björn sagði líka frá tveimur leiðtogafundum sem fara fram á Spáni síðar í vikunni. Í síðasta hluta þáttarins ræddum við um Jónas Kristjánsson lækni, sem braust seint til mennta og varð vinsæll héraðslæknir á fyrri hluta síðustu aldar. Hann var svo einn stofnenda Náttúrulækningafélags Íslands og hvatamaður að stofnun Heilsuhælisins í Hveragerði. Saga Jónasar er merkileg og gerist á umbrotatímum í íslenskri sögu, Pálmi Jónasson sagnfræðingur og fréttamaður hefur ritað sögu Jónasar og sagði okkur frá. Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Edwards, Tommy - It's all in the game. Steingrímur Karl Teague, Silva Þórðardóttir - More Than You Know.

Bretar hafa haft fimm forsætisráðherra frá því að þeir kusu að ganga út úr Evrópusambandinu fyrir sjö árum. Ný þriggja þátta sería Breska ríkisútvarpsins um þetta tímabil fer á bak við tjöldin og birtir viðtöl og frásagnir fjölda fólks sem aldrei hefur tjáð sig áður. Bresk stjórnmál voru á dagskránni þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Haustið var viðfangsefnið í ráðlögðum dagskammti vikunnar. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði ræddi um haustmataræði, uppskeru og d-vítamín. Í vor var komið á laggirnar Rannsóknarsetri skapandi greina. Það á að efla rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina á Íslandi. Í vikunni var tilkynnt að Erla Rún Guðmundsdóttir kemur til með að leiða þetta rannsóknarsetur, eftir að hafa í nokkurn tíma unnið við það sem kallað er menningartölfræði. Erla Rún var gestur í síðasta hluta þáttarins. Umsjón hafði Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Árný Margrét - They only talk about the weather. King, Ben E. - Stand by me. Árný Margrét - Cold aired breeze. Laufey - Lovesick.

Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess orðs. Þessi deila er merkileg að mörgu leyti. Nú gátu stórveldi ekki lengur vaðið yfir þau smáu í krafti herstyrks. Ísland og Bretland voru saman í hernaðarbandalagi og vera Íslands þar var afar mikilvæg hvað öryggi Bretlands varðaði. Breytingar og umbætur á hafréttarlögum spiluðu einnig stórt hlutverk og nýttu Íslendingar sér það óspart, með góðum árangri. Deilan varð þó svo hörð að ýmsir óttuðust að Ísland myndi jafnvel senda bandaríska herinn úr landi. Ekkert varnarmálaráðuneyti á Vesturlöndum vildi sjá það gerast. Deilan er því ansi áhugaverð hvað alþjóðasamskipti og sögu kalda stríðsins varðar. Allir fjórir þættir septembermánaðar verða um þorskastríðin. Við mælum með því að rifja upp kynni við þátt númer 79 sem heitir "Togaraskelfirinn" og fjallar um landhelgisgæslu Dana við Ísland í upphafi 20. aldar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!Í þessum þætti tökum við fyrir árin 1940-1942 sem marka upphaf Kyrrahafsstríðsins og mestu útþenslu japanska keisaradæmisins. Við skoðum árásina á Perluhöfn, ræðuna hans Roosevelt, olíuleit Japana og ástæður þess að Japan fór í stríð við Holland, Bretland og Bandaríkin.
VERKFÆRASALAN - KALDI - ARENA -DOMINOS - OLÍS - SONAX - ASKJA Kristján Einar og Bragi fjalla um frábæra helgi á Silverstone þar sem áhorfendamet var slegið! Eru McLaren mætt í toppslaginn? Norris bestur í heimi? Hvenær fær Perez stígvélið? Ricciardo í AlphaTauri?
Jens Stoltenberg verður áfram framkvæmdastjóri NATO í ár í viðbót og ljóst að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tekur ekki við því embætti fyrr en í fyrsta lagi eftir rúmt ár. Raunar herma fréttir að Bandaríkjastjórn vilji að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, verði þá eftirmaður Stoltenbergs. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir ræddu þetta við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu einnig stöðu mála í Skotlandi. Karl konungur III tók í gær formlega við skosku krúnudjásnunum við hátíðlega athöfn í St. Giles-dómkirkjunni í Edinborg. Talsverður hópur lýðveldissinna mótmælti í grennd við kirkjuna. Kannanir benda til þess að um þriðjungur Skota sé andvígur konungdæminu en tæpur helmingur styður það. Þá vill um helmingur Skota að landið verði sjálfstætt ríki og það hefur ekki breyst þó að Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, eigi í margvíslegum vandræðum um þessar mundir. Nýjasta áfallið er að Mhairi Black, ein helsta vonarstjarna flokksins, tilkynnti í gær að hún ætlaði að hætta þingmennsku, hún hefði fengið sig fullsadda af stjórnmálum. Black lenti í orðaskaki við Oliver Dowden varaforsætisráðherra í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í neðri málstofu breska þingsins. Dowden minnti á að þau hefðu bæði verið kjörin á þing 2015 og hann væri viss um að hún tæki undir árnaðaróskir til konungs. Dowden vildi með þessu stríða Black sem er lýðveldissinni. Hún svaraði með því að þakka Dowden fyrir að minnast þess að þau hefðu komið á þing á sama tíma og hún væri þess fullviss að þau hættu á sama tíma. Þingheimur hló hátt og lengi. Undir lok Heimsgluggans var rætt um óskir Orkneyinga um aukið sjálfræði og breytingar á tengslum þeirra við Bretland. Ýmsir hafa rætt um möguleika á að endurvekja tengsl eyjanna við Noreg og Norðurlönd.

Árið sem er að líða var erfitt fyrir Bretland og marga Breta. Lífskjarakrísan svokallaða hefur lagst þungt á samfélagið, stjórnvöld voru líka í krísu - þrír forsætisráðherrar á árinu segja sína sögu - og svo dó drottningin. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir það helsta. Lífskjarakrísan hefur bitið víðar en í Bretlandi. Við fórum yfir efnahagsmál í heiminum á árinu sem er að líða með Ásgeiri Brynjari Torfasyni. Fjölmiðlar víða um heim keppast við að útnefna manneskjur ársins, og sums staðar eru valin orð ársins. Vera Illugadóttir fór yfir orð ársins víða í löndunum í kringum okkur. Tónlist: Here, there and everywhere - Paul McCartney Time of the season - The Zombies The Boxer - Simon and Garfunkel

Nýtt fólk hefur tekið við stjórn í Bretlandi og Svíþjóð, Rishi Sunak kom í stað Liz Truss sem forsætisráðherra Bretlands, í Svíþjóð hefur hægri stjórn tekið við af ríkisstjórn Jafnaðarmanna. Nýir leiðtogar voru í eldlínunni í þingumræðum. Í Bretlandi þótti Sunak standa sig vel í fyrsta fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Þingmenn Íhaldsflokksins studdu vel við bakið á honum. Í sænska þinginu var meiri ró yfir umræðum. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu þessi mál í Heimsglugganum, minntust einnig á kosningar í Brasilíu á sunnudag og í Danmörku næsta þriðjudag þar sem margt bendir til þess að gamli pólitíski refurinn Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra, geti verið í lykilstöðu og ráðið hvort hægri- eða vinstristjórn taki við.

Málefni og móttaka flóttamanna eru ofarlega á baugi hér og annars staðar nú um stundir. Ástæðan er ekki síst sá stóri hópur fólks frá Úkraínu sem leitað hefur skjóls undan hernaði Rússa en einnig sú staðreynd að fyrir Alþingi liggur tillaga dómsmálaráðherra að breytingum á lögum um flóttamenn. En hvernig ber ríkjum að taka á málum samkvæmt alþjóðasamningum og uppfyllum við skuldbindingar í þeim efnum? Er líklegt að fólk sem hingað flýr vegna stríðs í heimalandinu setjist hér að til frambúðar? Eru Íslendingar almennt fúsir til að veita fólki á flótta hæli? Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins, var með okkur. Á næstu klukkustundum kemur í ljós hvort Rishi Sunak verður sjálfkjörinn næsti leiðtogi breska Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands, eða hvort Penny Mordount verður líka í baráttunni. Boris Johnson, sem var leiðtogi flokksins þangað til í síðasta mánuði, tilkynnti í gærkvöldi að hann myndi ekki reyna við forsætisráðherrastólinn á ný í bili. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir stöðuna í breskum stjórnmálum. Svo er það sagan. Upp úr 1850 var mikil gerjun í íslensku þjóðlífi og er varðaði stöðu landsins í samfélagi þjóðanna. Árni Snævarr, fjölmiðlamaður og sagnfræðingur, hefur skrifað bók sem varpar nýju ljósi á söguna. Hún er um Dýrafjarðarmálið sem svo er nefnt en undir liggur skipan Íslands í ríkjaskipulagi Evrópu. Árni kom til okkar og sagði frá. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Vínarvalsar - Reynir Jónasson Penny Lane - Bítlarnir

Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari spjallar við okkur um skandalinn sem skekur skákheiminn en Magnus Carlsen heimsmeistari hefur gefið í skyn að mótherji hans hafi svindlað í móti í Bandaríkjunum. Laufey nærþjónusta er teymi í þróun á Landspítalanum sem ætlað er að þjónusta fólk með alvarlegan geð- og fíknivanda á vettvangi. Við ræddum við Birnu Óskarsdóttur, hjúkrunarfræðing og teymisstjóra, og Sunnu Siggeirsdóttur, verkefnastýru Laufeyjar, um þessa þjónustu og helstu verkefni. Íbúðaverð á Akureyri er í hæstu hæðum og nálgast nú fermetraverðið í Hafnarfirði - en húsnæðisverð fyrir norðan hefur hækkað meira en víða annarsstaðar á þessu ári. Hluti af sökinni er rakinn til þess að fólk sem ekki er búsett í bænum eigi fjölda eigna þar og því sé eftirspurn eftir húsnæði mun meiri en íbúafjöldinn segi til um. Við heyrðum í Ásthildi Sturludóttur bæjarstýru um ástandið. Í gær tókum við viðtal við Sigrúnu Sævarsdóttur Griffith, sem búsett er í Bretlandi, og hún sagði okkur upp og ofan af viðbrögðum Breta við nýjum forsætisráðherra Liz Truss en einnig því hversu mikil ólga sé almennt í samfélaginu eftir erfið Covid ár og áhrif Brexit sem nú eru að fullu að koma fram. Það er með öðrum orðum hart í ári og fólk er víst búið að fá sig fullsatt. Við spáðum í spilin með þeim Jóni Bjarka Bentssyni aðalhagfræðingi Íslandsbanka og Eiríki Bergmann stjórnmálafræðiprófessor og skoðuðum hvaða áhrif það kynni að hafa hér á landi ef allt fer á versta veg í Bretlandi. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, skrifaði í gær grein um evrusvæðið, sem að hans mati hefur ekki fengið mikla umræðu undanfarið. Hann segir að evrusvæðið sé í alvarlegri skuldakreppu og ljóst að endurhugsa þurfi reglurnar um bæði hámarks halla á ríkissjóði og hámarks skuldir hins opinbera. Það komi að skuldadögum og aðgerðum sem verða ekki auðveldar. Við ræddum við Hilmar um stöðu evruna, skuldir og aðgerðir á evrusvæðinu. Upphæðirnar sem ensk knattspyrnufélög settu í að kaupa nokkra tugi leikmanna í sumar slá öll fyrri met - en heildareyðsla félaganna í úrvalsdeildinni var til að mynda meiri en árleg útgjöld íslenska ríkisins til heilbrigðismála. Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Kjarnanum, fjallaði á dögunum um félagaskiptagluggann í enska boltanum og setti hann í efnahagslegt samhengi - við ræddum við Arnar í lok þáttar.

ARENA - VERKFÆRASALAN - OLÍS - BOÐLEIÐ - VIAPLAY Kristján Einar og Bragi fara yfir skemmtilegasta kappakstur tímabilsins! Skitu Ferrari í deigið? Hvað gerðist hjá Max? Bjargaði geislaboginn Zhou?
Á mánudag ræddum við við innviðaráðherra um stöðu samgöngumála á Vestfjörðum en hann sagði meðal annars að vegir á sunnanverðum kjálkanum yrðu orðnir býsna góðir innan fáeinna ára. Þessu eru sumir á svæðinu hjartanlega ósammála og meðal annars Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri á Tálknafirði. Hann var á línunni hjá okkur í upphafi þáttar. Íslenska krónan hefur styrkst gagnvart erlendum gjaldmiðlum undanfarið. Öll veikingin sem kom í kjölfar faraldursins er nú gengin til baka - en styrkinguna má meðal annars rekja til meiri aðsóknar ferðamanna til landsins. Við ræddum gengi krónunnar við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka. Tveir af þremur íslenskum lögfræðingum sem sóttust eftir starfi dómara við Mannréttindadómstól Evrópu drógu umsókn sína til baka þegar ljóst varð að dómstóllinn myndi fresta ákvörðun sinni um ráðningu. Samdóma álit spekinga er að hæfni þremenninganna hafi hreinlega ekki verið nógu mikil. Við ræddum þetta mál við Davíð Þór Björgvinsson fyrrverandi dómara við Mannréttindadómstólinn. Það liggur ljóst fyrir að hræringar verða á sviði stjórnmálanna í haust þegar Logi Einarsson stígur til hliðar sem formaður Samfylkingarinnar. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur jafnframt verið boðaður í haust en lengi hafa verið uppi háværar raddir um að Bjarni Benediktsson fari að kalla það gott sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Við spáðum í spilin í pólitíkinni með Andrési Jónssyni almannatengli. Fjöldi veitingahúsa á spænsku eyjunni Mallorca hefur tekið upp strangar reglur um klæðaburð viðskiptavina, til þess reyna að draga úr drykkjulátum ferðamanna. Í frétt The Guardian um málið er rætt við veitingamann sem segir ferðafólk mæta á hótelin klukkan tíu að morgni og að það eigi orðið erfitt með gang vegna ölvunar fyrir klukkan tvö að degi til. Við ræddum þessar nýju reglur við Andreu Jónsdóttur, fararstjóra, sem hefur búið þar í um 34 ár. Í þættinum í gær ræddum við raskanir sem hafa orðið á starfsemi flugvalla og flugfélaga undanfarið en verkföll og skortur á starfsfólki plaga flugfélögin. Þá hófst stærsta verkfall lestarstarfsmanna í Bretlandi í um 30 ár í gær - og fyrir vikið eru lestarsamgöngur í lamasessi um allt land. Við ræddum stöðuna við Hafstein Hauksson, greinanda hjá Kvikubanka í Lundúnum. Tónlist: To Be Free - Emiliana Torrini Cosmic Love - Florence and the Machine Á nýjum stað - Írafár Bleikur og blár - Friðrik Dór Virtual Insanity - Jamiroquai Like The Movies - Laufey Lín Late Night Talking - Harry Styles Alligator - Of Monsters and Men

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu erlend málefni í Heimsglugganum við Boga Ágústsson. Umræðuefni dagsins voru deilur um viðauka við Brexit-samning um Norður-Írland, tilraunir skosku stjórnarinnar til að efna til nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu um Skotland og friðarsamningar Dana og Grænlendinga við Kanadamenn um Hans-eyju, sem liggur milli Grænlands og Kanada. Breska stjórnin kynnti á mánudaginn frumvarp um einhliða breytingar á Norður-Írlandsákvæði útgöngusamnings Breta úr Evrópusambandinu. Ráðamenn ESB segja ákvæði frumvarpsins brot á samningnum og þar með alþjóðalögum. Sambandið hefur því ákveðið að draga Breta fyrir dóm. Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, hefur hrundið af stað nýrri tilraun til að efna til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands. Skotar samþykktu með 55-45 atkvæðum árið 2014 að vera áfram hluti af Stóra-Bretlandi, United Kingdom. Verulegur meirihluti Skota var andvígur Brexit og Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, segir að með útgöngunni úr ESB hafi forsendur breyst og því sé réttlætanlegt að kjósa að nýju um sjálfstæði. Ian Blackford, leiðtogi SNP í breska þinginu, tók þetta mál upp í gær og sagði: ?Ef þið horfið á lönd eins og Ísland, Írland, Noreg og Danmörku sjáið þið að þau standa sig mun betur en Bretland, þar er meiri jöfnuður, minni fátækt, meiri framleiðni, félagsleg tækifæri, meiri fjárfesting. Listinn er miklu lengri, það er óyggjandi að Bretland heldur aftur af Skotlandi, þessi lönd geta í krafti sjálfstæðis búið til ríkari, jafnari og grænni samfélög, af hverju mega Skotar það ekki líka?? Í vikunni var skrifað undir samning á milli Kanada og Dana og Grænlendinga um landamæri en áratugadeilur höfðu verið um hvar þau eiga að liggja um Hans-eyju, sem heitir Tartupaluk á máli ínúíta. Eyjan er óbyggð og óbyggileg, aðeins 1,2 ferkílómetrar að flatarmáli. Deilurnar, sem sumir nefndu kumpánlegt stríð, höfðu staðið áratugum saman, eins og segir í frétt sem Ævar Örn Jósepsson skrifaði á vef RÚV: ?Það byrjaði þegar þáverandi Grænlandsmálaráðherra Dana gaf fyrirmæli um að reisa danska fánann á eyjunni árið 1984, ellefu árum eftir að deila ríkjanna hófst og ?bardagarnir? sem fylgdu voru alltaf eins: Kanadískir dátar stigu á land, fjarlægðu danska fánann, reistu þann kanadíska í staðinn og skildu eftir flösku af kanadísku viskíi. Nokkru síðar stigu danskir dátar á land, fjarlægðu kanadíska fánann, reistu þann danska, og skildu eftir flösku af dönsku ákavíti. Og svo koll af kolli.?

Hver perla hefur sína sögu er yfirskrift fjáröflunar- og árvekniátaks Krafts, styrktarfélags ungra krabbameinsgreindra, sem stendur nú yfir og lýkur eftir helgi. Armbandið er skreytt með slagorðum Krafts Lífið er núna og rennur allur ágóði af sölu þess til starfsemi Krafts. Þau Guðbjartur Stefánsson, sem er ein af perlunum í átakinu og Elín Skúladóttur, formaður Krafts, komu til okkar og ræddu starfsemi Krafts og mikilvægi þess stuðnings sem fæst með átaki sem þessu. Í dag eru hundrað dagar frá innrás Rússa í Úkraínu. Enn sér ekki fyrir endann á stríðinu. Um fimmtán þúsund tilkynningar um meinta stríðsglæpi hafa borist úkraínskum yfirvöldum frá því að innrásin hófst, að sögn ríkissaksóknara Úkraínu, og þrátt fyrir að Úkraínumönnum hafi tekist að hrekja rússneska herinn frá höfuðborginni Kænugarði eru átökin í Austur-Úkraínu mikil og blóðug. Við ræddum stöðuna við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði. Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufjelagsins, felags einyrkja, lítilla og meðalstórra fyrirtækja, sagði á dögunum óréttlátt að hlutastarfsmenn fái hærri laun fyrir kvöld- og helgarvinnu og færði fyrir því rök að lögleitt yrði jafnaðarkaup. Við töluðum við Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, um þessar hugmyndir en einnig um stöðuna almennt á vinnumarkaði og atvinnuleysi, en t.d. hefur verið erfitt að manna störf í ferðaþjónustu eftir faraldurinn. Við krufðum svo fréttir vikunnar með góðum gestum, að þessu sinni fengum við til okkar þá Höskuld Kára Schram fréttamann og Ómar R. Valdimarsson lögmann. Elísabet Bretlandsdrottning fagnar um þessar mundir 70 ára valdaafmæli og Bretland er undirlagt þessum hátíðarhöldum. Elísabet er sá þjóðhöfðingi, á lífi, sem lengst hefur ríkt. Hún þarf ekki að tóra nema í níu daga til að vera komin upp í 2. sæti listans yfir þá sem hafa ríkt lengst frá upphafi mannkynssögunnar en tæp tvö ár í að skjóta öllum öðrum þjóðhöfðingjum frá upphafi vega ref fyrir rass. Sigríður Pétursdóttir, fyrrverandi Lundúnabúi og áhugakona um konungsfjölskylduna, kíkti til okkar og spjallaði um valdatíð drottningar. Í vikunni lauk margra vikna löngum réttarhöldum í meiðyrðalögsókn leikarans Johhny Depp gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, Amber Heard. Dómur féll Depp í vil sem kom kannski ekki endilega á óvart fyrir þau sem fylgst höfðu með af hliðarlínu samfélagsmiðla en sætir þó nokkrum tíðindum þegar horft er til annarra meiðyrðalögsókna í réttarkerfinu í Bandaríkjunum - en dómafordæmi er fyrir því að ekki þurfi einungis að sanna að verknaðurinn sem meiðyrðin snerust um sé uppspuni heldur einnig að fullyrð

Kosið er til þings Norður-Íra í dag og í fyrsta sinn í meir en aldargamalli sögu landshlutans eru möguleikar á því að lýðveldissinnar, sem vilja sameinast Írska lýðveldinu, verði stærsti flokkur á þingi. Hingað til hafa þeir flokkar sem vilja viðhalda sambandinu við Bretland verið í meirihluta á norður-írska þinginu. Sinn Fein, stærsta flokki lýðveldissinna, er spáð góðu gengi. Flokkurinn hefur þó ekki lagt neina sérstaka áherslu á stöðu Norður-Írlands, kosningabaráttan hefur meira fjallað um daglegt líf, slæmt heilbrigðiskerfi og verðbólgu. Sambandssinnar í Lýðræðislega sambandsflokknum, DUP, hafa lagt mesta áherslu á að losna verði við svokallaða Norður-Írlandsbók í Brexit-samningnum. Í henni er gert ráð fyrir að Norður-Írland verði hluti innri markaðar Evrópusambandsins en jafnframt hluti breska ríkisins, United Kingdom. Forsætisráðherrar Norðurlanda hittust í Kaupmannahöfn þar sem þeir áttu sameiginlegan fund með Narenda Modi, forsætisráðherra Indlands. Blaðamannafundur þeirra snerist þó mest um mögulega inngöngu Finna og Svía í NATO. Forsætisráðherrar NATO-ríkjanna Danmerkur, Íslands og Noregs lofuðu að styðja hraða afgreiðslu ákveði Finnar og Svíar að sækja um aðild.

Skorski raðmorðinginn Robert Black átti aldrei möguleika í lífinu. Frá blautu barnsbeini var hann útskúfaður og honum strítt, en ungur fékk hann uppnefnið Smelly Bobby Tulip. Á eldri árum urðu hugsanir hans um börn ljótar og þrálátar, uns hann lét undan. Á nokkrum árum varð hann einn aldræmdasti fjöldamorðingi sem að Bretland hafði nokkurntíman augum litið. * VARÚÐ: ILL MEÐFERÐ Á BÖRNUM * Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig HÉR - Við skráningu í áskrift færðu einnig aðgang að yfir 120+ aukaþáttum, 5 nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga.
Klárum yfirferðina á lögunum í ár. Ræðum og hlustum á Kýpur, Belgíu, Grikkland, Bretland, Austurríki, Möltu, Ísland, Svíþjóð, Portúgal, Armenía og Azerbaijan
Nýverið fundust ljósmyndir Jóns Kaldals af verkum Muggs á háalofti í borginni. Muggur lést árið 1924 og nokkrum árum síðar, hóf góðvinur hans í Kaupmannahöfn, Poul Uttenreitter að gera bók um Mugg og var Jón Kaldal fenginn til að að taka ljósmyndir af verkunum. Bókin kom út árið 1930 og hafði að geyma æviágrip Muggs og myndir af flestum verka hans. Ljósmyndirnar sjálfar rötuðu svo til frænda Muggs, þar sem þær virðast hafa farið ofan í kassa, og nú, tæpri öld síðar fundust þær í dánarbúi frændans, og þaðan rötuðu þær til Sveins Þórhallssonar listaverkasala sem ætlar að sýna myndirnar um næstu helgi. Snorri Rafn Hallsson, dagskrárgerðarmaður og textasmiður í Vín heldur áfram pistlaröð sinni um möguleika og ómöguleika tækninnar. Í pistli dagsins beinir Snorri sjónum sínum að Sérstöðupunktinum, því augnabliki þegar tæknin tekur fram úr okkur og við missum stjórnina. Við heyrum í tónlistarkonunni Sóleyju Stefáns hér á eftir en hún er nýkomin heim af tónleikaferðalagi um Bretland og meginland Evrópu og kynnti nýjustu plötuna sína. Mother Melancholia er fjórða breiðskífa Sóleyjar en innblástur hennar er fjöldasjálfsmorð mannkynsins og tortíming lífs af völdum kapítalisma og eitraðrar karlmennskuSóley leitar jafnframt á nýjar slóðir í hljóðheimi plötunnar þar sem hún leikur sér að bjöguðu og ópitchuðu hljóði sem skapa fagurfræðileg óþægindi en theremin, analog synthar og mellotron eru meðal þeirra hljóðfæra sem koma við sögu.
Spegillinn 4. október 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Ríkislögreglustóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum. Níu hús verða rýmd á Seyðisfirði að minnsta kosti fram yfir helgi og fjöldahjálparmiðstöð opnuð. Nú stendur yfir fundur Almannavarna um stöðu mála í Suður-Þingeyjarsýslu eftir aurskriðurnar þar. Þar er rætt um hvenær hægt verði að hleypa íbúum inn á svæðið Ástæða er til þess að óttast að öfgar í veðri, líkt og rigningarnar fyrir norðan um helgina, verði algengari í framtíðinni vegna loftslagsbreytinga og hlýrra veðurfars á jörðinni. Þetta segir Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur, Stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyni hafa verið framdir í Líbíu árið frá árinu 2016 að sögn rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Fjórir af þeim fimm jöfnunarþingmönnum sem duttu út af þingi eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi hafa kært niðurstöðuna; Leiðsögumenn með hreindýraveiðum gagnrýna það sem þeir kalla misskilda manngæsku sem felist í veiðibanni í griðlandi sunnan Snæfells. Í sumar hafi mörg dýr haldið sig þar og það hafi aukið mjög veiðiálag á aðrar hjarðir. Lengri umfjöllun: Vísindamenn sem rannsaka áhrif hlýnunar á loftslag eru varkárir í svörum þegar spurt er hvort einstaka hamfaraatburðir séu afleiðing loftslagsbreytinga. Óvenjulegt veðurfar hefur hins vegar orðið tíðara síðastliðin 10 til 20 ár og hamafarir því samhliða. Þurrkarnir og hlýindin á Norðaustur- og austurlandi í sumar, úrkoman og skriðuföllin í Seyðisfirði í desember og svo núna úrhellið á Tröllaskaga og Kinnarfjöllum fyrir norðan - er þetta afleiðing loftslagsbreytinga á jörðinni? Kristján Sigurjónsson ræðir við Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing um þetta efni, en einning eru rifjuð upp orð Halldórs Björnssonar loftslagsfræðings í samtali við Ragnhildi Thorlacius í Speglinum í síðustu viku. Pandóruskjölin eru stærsti gagnaleki úr fjármálaheiminum hingað til, koma frá fjórtán aflandsþjónustufyrirtækjum. Alþjóðleg samtök rannsóknarblaðamanna, International Consortium of Investigative Journalists, stýra og skipuleggja úrvinnsluna, líkt og áður með Panamaskjölin. Í fyrstu fréttahrinunni virðist ekkert tengjast Íslandi, annað með Bretland. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Seðlabanki Íslands setti nýlega reglur um hámark greiðslubyrðar af fasteignalánum miðað við tekjur lántaka. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur sagt það gert til að tryggja jarðsamband fasteignamarkaða
Viðskipti við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki drógust saman um 307 milljarða króna í fyrra miðað við árið áður. Samdrátturinn nam 58 prósentum. Lokun Suðurstrandarvegar vegna eldgossins á Reykjanesskaga reynir fyrst og fremst á samgönguyfirvöld í landinu, segir bæjarstjórinn í Ölfusi. Huga þarf að uppbyggingu Þrengslavegar til að tryggja þungaflutninga. Tíu læknanemar, sem starfa í sumarafleysingum á bráðamóttöku Landspítala, lýsa þungum áhyggjum af undirmönnun sérfræðinga á bráðadeildinni. Flugfreyjufélag Íslands krefst þess að flugfélagið Play gangi til viðræðna um kjarasamning flugfreyja og flugþjóna. Flugfélaginu hefur verið sent erindi þess efnis. Stjórnvöld í Bretlandi hafa ákveðið að leyfa 60 þúsund áhorfendum að fylgjast með undanúrslita- og úrslitaleikjum í Evrópukeppninni í fótbolta. Samhefji biðst afsökunar á því að gerð hafi verið mistök vegna kvótaviðskipta í Namibíu. Engin refsiverð brot hafi verið framin í Namibíu af hálfu fyrirtækja á vegum Samherja. Sá eini sem brotið hafi af sér sé Jóhannes Stefánsson fyrrverandi framkvæmdastjóri. Hann var aðaluppljóstrarinn í Samherjamálinu. Arnar Páll Hauksson segir frá. Ólympíuleikarnir 2020 hefjast eftir mánuð í Tokyo í Japan, eftir COVID-frestunina í fyrra. Nú verða þeir haldnir hvað sem tautar og raular. Það er enda ótrúlega flókið og dýrt að fresta risa viðburði eins og Ólympíuleikum, þó ekkert annað hafi verið í stöðunni í fyrra. Ragnhildur Thorlacius segir frá og talar við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson. Delta afbrigði Covid er á góðri leið með að orsaka þriðju Covid-bylgjuna í Bretlandi. Það er þakkað bólusetningu að dauðsföllum þar af völdum Covid hefur ekki fjölgað að sama marki, alla vega ekki enn sem komið er. Bretland er ekki eina Evrópulandið þar sem delta afbrigðið hefur farið á flug, en ekki einhlítt að eina ástæðan fyrir fjölgun tilfella í Bretlandi sé delta afbrigðinu að kenna. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Eru íþróttir barna orðnar að keppni fullorðinna spyr Sveinn Þorgeirsson sérfræðingur við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík í fyrirlestri sem hann flytur á netinu í hádeginu í dag. Við heyrðum í Sveini og fengum að vita meira um þetta málefni. Í gær voru gerðar miklar tilslakanir í Bretlandi þegar krár, hárgreiðslustofur og margs konar verslanir opnuðu eftir þriggja mánaða lokun. Vel hefur gengið að bólusetja í Bretlandi og þarlendir telja sig farna að sjá út úr kófinu. Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths býr í London og við slógum á þráðinn til hennar og heyrðum af stemmingunni þar ytra. Nú stendur Fuglavernd fyrir kosningu um fugl ársins og ljóst að baráttan verður hörð því hinar ýmsu fuglategundir eru komnar með kosningastjóra sem sumir hafa boðið stuðningsmönnum í vöfflukaffi og aðrir eru með heimasíður um sína umbjóðendur. Eyþór Ingi Jónsson er kosningastjóri Himbrimans, sem vafalítið er einn tignarlegasti fugl landsins. Hann var á línunni hjá okkur. Slegist er um fasteignir á markaði þessi dægrin, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Dæmi eru um að fólk hafi ekki tíma til þess að skoða eignirnar nægilega vel því margir séu um hituna og bregðast þurfi snöggt við þegar eignir koma á markað. Dæmi eru um yfirverð, staðgreiðslu og talað er um að nú ríki svokallaður seljendamarkaður. Þá hefur Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna líka bent á að hérlendis vanti aðila til að gæta hagsmuna kaupenda, en fasteignasalar séu gjarnan beggja vegna borðsins. Við fengum Ingibjörgu Þórðardóttur fasteignasala og fyrrverandi formann Félags fasteignasala til okkar til að fara yfir stöðuna. Guðmundur Jóhannsson kom svo til okkar í tæknihornið og fræddi okkur um gervigreind og uppþvottavélar fyrir heyrnartól. Tónlist: Stebbi og Eyfi - Þín innsta þrá. Biig Piig - Feels right. Aretha Franklin - (You make me feel like) A natural woman. Zara Larsson - Talk about love. Maise Peters - John Hughes movie. Bjartmar Guðlaugsson - Týnda kynslóðin. Pálmi Gunnarsson - Komst ekki aftur. Supergrass - Alright. Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar - Baráttusöngur uppreisnarklansins á skítadreifurum (Bræðslan 2009).
Allt svæðið í kringum Fagradalsfjall er nú undir sem líklegt gossvæði. Skjálftavirkni hefur færst norðar frá því sem verið hefur síðustu daga. Þetta segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur. Stjórn Arion banka dró til baka tillögu sína um að laun erlendra stjórnarmanna yrðu hækkuð. Lífeyrissjóðir sem eiga stóran hlut í bankanum mótmæltu hækkuninni og lögðu fram tillögu um óbreytt stjórnarlaun Ákvörðun stjórnvalda um að taka upp litakóðunarkerfi á landamærunum 1. maí er ekki tekin í samráði við sóttvarnalækni. Ferðamenn frá löndum utan Schengensvæðisins geta nú komið til Íslands ef þeir eru með gild bólusetningarvottorð. Forstjóri Icelandair segir mun minni líkur á að félagið þurfi að draga á lánalínur með ríkisábyrgð ef ferðaþjónustan tekur við sér í sumar. Hann segir ákvörðun um að taka gild bólusetningarvottorð komufarþega utan Schengen svæðsins hafa mjög jákvæð áhrif. Mikil óvissa er um niðurstöðu söluferlis kísilverksmiðjunnar í Helguvík. Arion banki hefur fært niður bókfært virði verksmiðjunnar en til greina kemur að rífa hana. Vísindamenn rýndu í nýjar gervitunglamyndir og GPS mælingar á vísindaráðsfundi Almannavarna sem lauk nú síðdegis. Gögnin sýna að kvikugangurinn milli Nátthaga og Keilis á Reykjanesskaga sé að víkka en skjálftavirkni að færast norðar. Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur segir að þetta bendi til þess að eldgos geti brotist út á öllu svæðinu í kringum Fagradalsfjall, en ekki aðeins sunnan við það eins og talið hefur verið til þessa. Kristján Sigurjónsson talaði við Freystein. Nú geta ferðamenn frá löndum utan Schengensvæðisins komið til Íslands ef þeir eru með bólusetningarvottorð. Ákveðið hefur verið að koma á innra eftirliti á landamærunum og til stendur að opna sóttvarnahús á Keflavíkurflugvelli. Arnar Páll Hauksson talaði við Sigurgeir Sigmundsson. Boris Johnson forsætisráðherra Breta kynnti í dag heildarstefnu í öryggis-, varnar- og utanríkismálum, sem hafði dregist að kynna. Johnson hefur talað um ,,hnattrænt Bretland? sem utan Evrópusambandsins horfði meir til annarra heimshluta. Eins átti ræðan nú að vera ein sú mikilvægasta frá lokum kalda stríðsins. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Spegillinn 25.janúar 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Ísland fær 13.800 skammta af bóluefni AstraZeneca í febrúar, gangi það eftir að Lyfjastofnun Evrópu afgreiði umsókn fyrirtækisins um skilyrt markaðsleyfi á föstudag. Nokkur snjóflóð hafa fallið ofan við Eskifjörð og Reyðarfjörð í dag og óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu. Litlar líkur eru þó taldar á að flóð falli í byggð. Rudy Giuliani, lögmaður fyrrverandi Bandaríkjaforseta er krafinn um einn komma þrjá milljarða dollara í skaðabætur fyrir að hafa haldið því fram að kosningavélar hefðu verið notaðar til að tryggja Joe Biden forsetaembættið. Tveir laugarverðir voru að störfum í Sundhöll Reykjavíkur þegar karlmaður lést þar á fimmtudaginn. Lögreglan rannsakar málið og er með upptökur úr öryggismyndavélum Sundhallarinnar. Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, varar við hættunni á því að sameinaða konungsríkið Bretland leysist upp haldi stjórnin í Lundúnum áfram að hundsa vilja Skota, Norður-Íra og íbúa Wales Allt er á kafi í snjó á Akureyri og sorphirða þar féll niður í dag. Lengri umfjöllun: Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hvetur Íslendinga til að ferðast ekki erlendis að nauðsynjalausu. Hann segir að talsverður fjöldi farþega greinist með smit á landamærunum. Farþegum hafi fækkað að undanförnu en hlutfall smita á meðal þeirra sé í kringum eitt prósent, en var langt undir núll komma núll einu prósenti síðastliðið haust. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræðir við Þórólf um hvað er framundan í bólusetningu, dreifingu bóluefnis og útlitið í ferðaþjónustunni. Bjarnheiði Hallsdóttur formaður Samtaka ferðaþjónustunnar bregst við orðum Þórólfs og segir frá hvernig ferðaþjónustuferðatækin standa að undirbúningi sumarsins, hvort erlendir ferðamenn séu væntanlegir og áherslu á íslenska ferðamenn. Kristján Sigurjónsson talar við Bjarnheiði. Fyrirkomulag og úthlutun þingsæta miðað við gildandi kosningalög dugir ekki til að tryggja jöfnuð milli þingflokka. Jöfnunarsætin eru of fá, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar prófessors í stjórnmálafræði. Hann telur að breytingar á kosningalögum sem lagðar voru til í vetur séu til bóta í mörgu en þar sé ekki tekið á þessum vanda. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Ólaf.
Í Heimskviðum í dag erfjallað um næsta kafla í sögunni endalausu, úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, Julian Assange og #MeToo í Danmörku. Brexit-sagan endalausa tók á sig nýja mynd í síðustu viku þegar Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands lagði fram nýtt frumvarp, sem brýtur í bága við alþjóðalög og útgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Margir hafa brugðist ókvæða við, þar á meðal Evrópusambandið, sem er einmitt í viðræðum við Bretland um fríverslunarsamning. Hallgrímur Indriðason skoðar þessa nýju stöðu og möguleg áhrif hennar á útgöngu Breta. Önnur MeToo bylgja ríður nú yfir í Danmörku. Á annað þúsund konur í fjölmiðlum þar í landi lýsa yfir stuningi við nýlega frásögn Sofie Linde af áreitni og misrétti í starfi sínu. Allir virðast sammála um að kynbundið misrétti og áreitni eigi ekki að viðgangast í Danmörku, en það virðist hægara sagt en gert að uppræta það. Birta Björnsdóttir fjallar um málið. Málsmeðferð Julian Assange, stofnanda Wikileaks, hófst að nýju í Lundúnum í síðustu viku. Bandaríkjastjórn hefur farið fram á að Assange verði framseldur til Bandaríkjanna vegna birtingar á gögnum sem sína fram á stríðsglæpi Bandaríkjanna í Afganistan og Írak. Nýir ákæruliðir hafa litið dagsins ljós en málið er á lægsta dómstigi í Bretlandi. Guðmundur Björn ræðir við Kristinn Hrafnsson, ristjóra Wikileaks og nánasta eins nánasta samstarfsmanns Assange. Kristinn segir ljóst að ef Assange verður framseldur til Bandaríkjanna, breyti dómurinn blaðamennsku til framtíðar, þar sem þeir sem fjalli um málefni Bandaríkjastjórnar geti hvergi um frjálst höfuð strokið. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.