POPULARITY
Þriðjudagur 22.april Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir María Lilja fer með okkur á mótmæli við dómsmálaráðuneytið vegna brottvísunar Oscar Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs. Gunnar Smári ræðir við Pétur Pétursson guðfræðiprófessor um Frans páfa, sem Pétur hitti á sínum tíma og sem hafði mikil áhrif á hann eins og heiminn allan. Björn Ólafsson, útgerðartæknir og fyrrum sjómaður, gagnrýnir forstjóra Hafró og ósannindi sem tengjast loðnu, humar og þorski í samtali við Björn Þorláks. Böðvar Bjarki Pétursson stofnandi um Kvikmyndaskólann segir Gunnari Smára sögu skólans, sem hann segir að hafi verið drepinn af embættismönnum. Trans-fréttaritari Rauða borðsins, Arna Magnea Danks, mannréttinda-aktívisti, áhættuleikstjóri og leikkona, ræðir við Oddnýju Eir um myndina Ljósvíkingar. Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor við Háskólann og mannfræðingur, segir Birni Þorláks frá því þegar torfbæir voru víðast hvar jafnaðir við jörðu á öld steinsteypunnar.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Jón Kristjánsson fiskifræðingur um sjávarútveginn. Jón ræðir stöðuna í hafinu í kringum landið í kjölfar viðtals við Þorstein Sigurðsson forstjóra Hafró fyrir viku. Öfugt við Hafró telur Jón að fiskveiðistjórnunin og -ráðgjöfin hafi brugðist algjörlega og henni sé um að kenna hversu nytjastofnar minnka mikið. Þorgeir Þorgeirsson hagfræðingur og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um alþjóðamálin. Þeir ræða áhrif tollahækkana bandaríkjastjórnar á heimshagkerfið, á hag almennings, fyrirtækja og Íslands. Sigmar Guðmundsson og Bergþór Ólason alþingismenn um stjórnmálin. Þeir ræða tillögur ríkisstjórnar um hækkun/leiðréttingu veiðigjalda. Rothögg fyrir sjávarútveg eða eðlileg leiðrétting?? Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands um menningarmál og höfundarétt. Hún ræðir meintan skipulagðan stuld stórfyrirtækja á höfundarvörðu efni sem notað er til að fóðra gagnabanka gervigreindar í gegnum ólögmæt bókasöfn á netinu. Fjölmargir íslenskir höfundar eiga bækur/vísindagreinar sem nýttar eru með þessum hætti.
Miðvikudagur 19. febrúar Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í borgarstjórn og ríkisstjórn. Þórður Snær Júlíusson er gestur Björns Þorlákssonar í umræðu um íslenska spillingu. Þórður er sérfræðingur íslensku efnahagslífi og ræðir það sem hann nefnir strokuspillingu. Þórunn Guðmundsdóttir samdi óperuna Hliðarspor til að framlengja söguna sem hófst í Rakaranum frá Sevilla og hélt áfram með Brúðkaupi Fígarós. Hún segir frá Gunnar Smára frá sýningunni með söngfólki: Hafsteinn Þórólfsson, Þórunn Guðmundsdóttir og Guðrún Brjánsdóttir. Uppskeruhátíð. Listakonurnar Kolbrún Dögg Kjartansdóttir og Margrét M. Norðdahl ræða við Oddnýju Eir um mikilvægi uppskeruhátíða í baráttu fyrir betra lífi. Björn Ólafsson, gamall sjómaður með meiru, ræðir fiskveiðiráðgjöf Hafró við nafna sinn Þorláksson með gagnrýnum hætti.
Fimmtudagur 13. febrúar Breiðholt, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið Hermann Austmar, faðir stúlku í Breiðholtsskóla, segir frá ógnarástandi í skólanum, en margir nemendur treysta sér ekki til að mæta í skólann. Darina Andreys, Hanna Þráinsdóttir og Dzana Crnac spila körfubolta með Aþenu, íþróttafélagi sem Brynjar Karl Sigurðsson veitir forstöðu, þjálfari sem er gagnrýndur fyrir yfirgang og dónaskap gagnvart leikmönnum. Hvað segja stelpurnar? Sá þingmaður sem hefur verið einna mest á milli tanna fólksins í landinu, Sigurjón Þórðarson, mætir á Samstöðina í kvöld og ræðir sjávarútveg, Hafró og fleiri mál ásamt Grétari Mar Jónssyni. Skáldkonan Margrét Lóa kemur að Rauða borðinu í bókaspjall við Vigdísi Grímsdóttur og Oddnýju Eir. Þær fara yfir fjörutíu ára feril skáldkonunnar í ljóðum, hún segir frá nýjustu bók sinni, verðlaunaritinu Pólstjarnan leiðir okkur heim og sýnir okkur hinar ljóðabækurnar sem margar eru bókverk. Ævar Þór Benediktsson þýðandi og leikari og Hilmir Jensson leikstjóri koma og segja frá leikritinu Kapteini Frábærum, sem fjallar um karlmennsku og sorg. Í lokin kemur Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona og segir okkur frá því þegar hún veiktist, hvers vegna hún gat ekki sungið og hvernig hún fann röddina aftur.
Gestur minn þessa vikuna er Hafrún Kristjánsdóttir. Hafrún er sálfræðingur, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík og margt fleira. Hún er gjörsamlega frábær og mögnuð. Það var gott, gaman, yndislegt, áhugavert og fræðandi að spjalla við Hafrúnu. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Sjóvá - Pizza Popolare - Egils Kristall - KS Protect
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, undirritaði í vikunni vel á annað hundrað forsetatilskipanir. Það gæti átt eftir að reyna á einhverjar þeirra fyrir dómstólum. Og líka hvaða heimildir Trump hefur í embætti sem er alltaf að verða valdameira og valdameira. Í þættinum í dag ætlum við að bera saman síðasta kjörtímabil Trumps og það sem er fram undan núna með Ólafi Jóhanni Ólafssyni rithöfundi og Hilmari Þór Hilmarsyni, prófessor við háskólann á Akureyri, sem ræðir Úkraínustríðið og möguleikann á friðarviðræðum. Hilmar óttast að Úkraínumenn þurfi að gefa eftir land til Rússa, þeir hafi yfirhöndina á vígvellinum og ef það verði samið, þá verði það mikið til á forsendum Rússa. Svo fjallar Hallgrímur Indriðason um andlega heilsu íþróttafólks. Það er aukin vitund um álagið sem fylgir því að vera afreksíþróttamaður og hvaða áhrif það getur haft á íþróttafólk. Hallgrímur talar við Hafrúnu Kristjánsdóttir, sálfræðing og deildarforseta íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík.
Hulda Ragnheiður Árnadóttir forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands hefur lifað viðburðarríku lífi og segir okkur í fimmu dagsins af fimm óþægilegum aðstæðum sem upp komu en áttu eftir að breyta öllu. Sagan teygir sig víða um land, frá Húsavík til Reykjavíkur með viðkomu í Þingeyjarsveit og Blönduósi. Í síðari hlutanum heyrum við tvær skemmtilegar sögur úr heimi poppsins en báðar tengjast deginum, 26. október. lagalisti Fullkomið farartæki - Nýdönsk Lífið sem mig langar í - Hipsumhaps Ævilangt - Hafrún Kolbeinsdóttir og Guðrún Kristín Huldudóttir Ljósið - Elín Ey Hot to go - Chappell Roan Roam - B52's Yesterday - Bítlarnir Deeper and deeper - Madonna Tonight again - Guy Sebastian Bad Dreams - Teddy Swims Gráta smá - Supersport Fast Love - George Michael Miss you - Spilverkið Dreadlock Holiday - 10CC Hunter - Björk
Samfélagið sendir út frá alþjóðlegu Mývatnsráðstefnunni - Mývatn Conference 2024 - sem haldin er í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Lífríki Mývatns er einstakt og hefur verið rannsakað í þaula í hálfa öld og kannski má segja að þessi ráðstefna sé uppskeruhátíð. Hér er fjöldi vísindamanna saman kominn frá ýmsum löndum, Íslandi, Bretlandi, Finnlandi og eflaust fleirum - og í erindunum er farið vítt og breitt. Hornsíli koma meðal annars við sögu, fuglarnir, kúluskíturinn og að sjálfsögðu mýið. Við byrjum þáttinn á að ræða við Bjarna Kristófer Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Hólum og Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatns- og eldissviðs á Hafró. Næst fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, sem ætlar að fjalla um loftslagskvíða. Í lok þáttar færum við okkur svo inn á svið hugvísindanna, án þess að skilja náttúruvísindin alveg eftir. Við fáum til okkar Auði Aðalsteinsdóttur, forstöðumann Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, og Sigurlínu Tryggvadóttur, verkefnastjóra hjá náttúruhugvísindasetrinu Huldu, til að spjalla um náttúru- og umhverfishugvísindi. Tónlist úr þættinum: ARLO PARKS & PHOEBE BRIDGERS - Pegasus. Pálmi Gunnarsson - Á áfangastað. Dina Ögon - Oas.
Samfélagið sendi út frá Skúla Craftbar, öldurhúsi við Fógetagarðinn í miðborg Reykjavíkur og umræðuefni dagsins tengist einmitt miðborginni, því hvað hún stendur fyrir og þeirri þjónustu sem þar er í boði. Við ræðum ferðaþjónustu, veitingarekstur og stöðu íslenskrar þjóðmenningar almennt við Ólaf Örn Steinunnar- Ólafsson og Björn Árnason veitingamenn og Katrínu Önnu Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Um miðbik þáttar er farið í fjöruferð í innanverðan Breiðafjörðinn með Svanhildi Egilsdóttur, líffræðingi á Hafró. Hún fræðir okkur um sjávarkapers, sjávarspagettí og fleira ætt í fjörunni. Tónlist: Teitur Magnússon - Hverra manna. Mitchell, Joni - Little Green.
Í kvöld mætast þau Kamala Harris og Donald Trump, forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum, í sjónvarpskappræðum. Þetta verður í fyrsta og líklega eina skiptið sem þau mætast í aðdraganda forsetakosninganna í nóvember. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, ætlar að setjast hjá okkur og fara yfir stöðuna fyrir kappræðurnar. Áki Jarl Láruson, stofnerfðafræðingur á Hafró, fór í sumar í ógleymanlegan vísindaleiðangur upp að 80. breiddargráðu með þýska ísbrjótnum Pólstjörnunni, RV Polarstern. Skipið var hlaðið sérhæfðum búnaði til að rannsaka sjávarbotninn og alþjóðlegt teymi vísindamanna vann á vöktum allan sólarhringinn við að rannsaka sæköngulær og fleira forvitnilegt sem kafbátar og botnsleðar drógu úr kafinu. Samfélagið var í styttri kantinum vegna beinnar útsendingar frá þingsetningu.
Sævar Helgi Bragason kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá nýrri bók sinni sem heitir Kúkur, piss og prump. Eins og segir aftan á bókinni, „Allt í náttúrunni er hluti af hringrás. Þú líka! Þar leikur meltingin algjört lykilhlutverk. Heimurinn verður svo fallegur og forvitnilegur þegar við uppgötvum hvernig allt er tengt. Meira að segja kúkur, piss og prump verður bara... spennandi!“ Sævar Helgi fræddi okkur um þessa bók og þessa mikilvægu starfsemi líkama okkar í dag. Í gær hófst alþjóðleg listahátíð og vinnustofa á Eyrarbakka í þriðja sinn, Oceanus/ Hafsjór. Listsýningar, gjörningar og tónlistarflutningur munu fara fram í Kartöflugeymslunni, verksmiðjuhúsnæði ásamt fleiri óhefðbundnum sýningarrýmum víðs vegar um Eyrarbakka. Hafrót er yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni og listamenn erlendir og innlendir taka þátt í sköpuninni næstu vikur. Gestum og gangandi gefst kostur á að skoða ferlið á vinnustofunum meðan á hátíðinni stendur. Við skruppum á Eyrarbakka og tókum tali listakonuna Ástu Guðmundsdóttur sem stendur á bak við þetta. Við fræddumst svo að lokum um nýjan Leikhússkóla Þjóðleikhússins. Þar munu nemendur læra um allar hliðar á starfsemi leikhússins í þverfaglegu námi, til dæmis hönnun leikmynda, búninga, lýsingar og hljóðs, sýningarstjórn, leikritun og leiklist. Vala Fannell, skólastjóri skólans, kom í þáttinn og sagði frá. Tónlist í þættinum: Flottur jakki / Ragnar Bjarnason (J.K.Thomas, texti Kristján Hreinsson) Waterloo sunset / The Kinks (Ray Davies) For once in my life / Frank Sinatra (Ron Miller og Orlando Murden) Ameríka / Valdimar Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson (Bragi Valdimar Skúlason, texti Magnús Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Samfélagið verður áfram með hugann við kvennaverkfallið og áhrif þess á Samfélagið og lykilstarfsemi. Við ræðum við bæjarstjóra, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum, formann Flugfreyjufélagsins og mannauðsstjóra Ísavía. Hafró og Matís hafa undanfarið staðið í ströngu við að erfðagreina meinta strokulaxa, magnið er svona á við tvær þrjár meðalfrystikistur, og þau eru rúmlega hálfnuð með verkið. Þetta eru tímafrekar rannsóknir sem vonandi segja okkur ýmislegt. Við ræðum þessa vinnu, áhættu af fiskeldi og visst landnámseðli laxa við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatnssviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Málfarsmínúta. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV. Rifjar upp dagskrá fyrsta Kvennafrídagsins en dagskráin var metnaðarfull og henni var útvarpað á þessum degi fyrir 48 árum.

Flestir framhaldsskólar hafa útskrifað sitt fólk. Útskriftarárgangurinn í ár á að baki athyglisverð ár - covid setti tóninn í byrjun en hvernig endaði þetta allt saman og hvað ber framtíðin í skauti sér? VIð setjumst niður með tveimur nýútskrifuðum, það eru þau Erla Rúrí Sigurjónsdóttir úr Flensborg og Egill Breki Scheving úr Borgarholtsskóla. Sumarið er gjarnan tími fyrir ýmis konar leiki og sprell. Eitt af því sem býðst í Skemmtigarðinum í Grafarvogi er svokölluð Útrás þar sem fólk getur fengið brjóta og bramla alls kyns hluti, svo sem diska, glös og annað postulín, jólaskraut, sjónvörp, borð og bekki og svo mætti lengi telja. En hvaðan koma þessir hlutir og hvernig endurspegla þeir samfélag okkar og neysluhyggjuna sem oft virðist allsráðandi? Samfélagið bregður sér upp í Grafarvog hér á eftir og ræðir við Snorra Helgason framkvæmdastjóra Skemmtigarðsins. Málfarsmínúta er á sínum stað og svo er Dýraspjall, að þessu sinni er rætt við Hildi Pétursdóttur, sérfræðing hjá Hafró en hún er sérfróð um svokallað dýrasvif, sem eru smá en mikilvæg öllu lífríki hafs.

Halla B. Þorkelsson, formaður Heyrnarhjálpar, landsfélags heyrnarskertra á Íslandi, kom í þáttinn í dag. Félagið var stofnað árið 1937 af hugsjónarfólki sem leitaði úrbóta vegna heyrnarskerðingar og hóf innflutning á heyrnartækjum og tækjum til að mæla heyrn. Ein af mörgum afleiðingum ómeðhöndlaðar heyrnarskerðinga er félagsleg einangrun og skert lífsgæði vegna þessa. Halla fræddi okkur um starfsemi félagsins og félagsfólkið og til dæmis eyrnasuð, tinnitus og hljóðóþol. Fjöldi listamanna kemur fram á neyðartónleikum í Hörpu vegna ópíóðafaraldurs sem er að kosta mörg mannslíf, mánudagskvöldið 29. maí kl. 19.30. Um styrktartónleika er að ræða sem verða einnig sendir í út í beinni útsendingu á RÚV. Tilgangur söfnunarinnar er að safna fyrir Frú Ragnheiði og öðru skaðaminnkunarstarfi Rauða krossins. Ellen Kristjánsdóttir er ein þeirra sem koma fram á tónleikunum og ein af þeim sem er í forsvari fyrir þá, hún kom til okkar og svo heyrðum við í Hafrúnu Elísu Sigurðardóttur teymisstjóra skaðaminnkunar hjá Rauða Krossinum. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póstkort dagsins fjallaði um tvennt að þessu sinni. Í fyrsta lagi sagði Magnús af áhyggjum Eyjamanna vegna hugsanlegrar bilunar á einu vatnsleiðslunni sem liggur neðansjávar til Eyja. Hún er orðin fimmtán ára og spurningin er ekki hvort heldur hvenær hún mun bila eins og hinar tvær leiðslurnar sem hafa verið lagðar út til Eyja en eru nú ónýtar. Í öðru lagi velti hann fyrir sér hvað það er sem rekur menn til að stunda hættulegar íþróttir eða koma sér í lífshættulegar aðstæður eins og maðurinn sem ætlar að dvelja á pínulitlum kletti út í Atlanshafi í átta vikur. Tónlist í þættinum í dag: Refrain / Lys Assia (Geo Movard og Émilie Gardas) Vann fyrstu Eurovision 1956) Kiddi Kadilakk / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Góða nótt / Ellen Kristjánsdóttir (Ólafur Bjarki Bogason, Baldvin Snær Hlynsson) Ég veit þú kemur / Birgir Nielsen (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn 9. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður Kormákur Marðarson Tvær konur úr andhófshópnum Pussy Riot eru meðal þeirra 18 sem allsherjar og menntamálanefnd leggur til að fái íslenskan ríkisborgararétt. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Öryggismyndavélum í miðborg Reykjavíkur hefur verið fjölgað fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins í næstu viku. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir undirbúning löggæslu vegna fundarins afar viðamikinn. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við hana. Orkustofnun hefur verið beðin um að nýta sér strax heimildir til að upplýsa hvernig staðið hefur verið að sölu upprunavottorða raforku frá Íslandi. Benedikt Sigurðsson sagði frá. Skipstjórar á Hval 8 og 9 telja að myndatökur eftirlitsmanns Matvælastofnunar um borð hafi brotið gegn friðhelgi einkalífs þeirra og krefja hana um tvær milljónir hvor í miskabætur. Kristín Sigurðardóttir sagði frá. Qin Gang utanríkisráðherra Kína varaði Evrópusambandið við að beita kínversk fyrirtæki refsingum þegar hann hitti þýska utanríkisráðherrann í Berlín í dag. Á móti sagði Annalena Baerbock að hlutleysi Kínverja í innrásinni í Úkraínu væri stuðningur Rússa. Róbert Jóhannsson sagði frá. Byggðarráð Skagafjarðar skorar á stjórn KSÍ að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir mismunun milli karla og kvenna í knattspyrnu. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Einar Einarsson formann byggðaráðsins. --------------- Naloxon nefúðinn hefur bjargað lífi margra segir Hafrún Elísa Sigurðardóttir teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum, sem dreifir mótefninu gegn ópíóíðum til notenda og aðstandenda þeirra. Hún vill auka enn aðgengi að úðanum. Bandaríska matvæla og lyfjaseftirlitið heimilað á dögunum að svipaður nefúði yrði seldur í lausasölu. Þess er ekki að vænta að lyfið verði selt í lausasölu á Íslandi á næstunni. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og ræddi við Hafrúnu. Loftárásir Ísraelshers á Gazasvæðið í nótt voru þær mannskæðustu frá því fyrrasumar. Árásunum var beint gegn þremur yfirmönnum í íslömsku Jihad samtökunum. Þeir féllu allir sem og tíu almennir borgarar. Heyrist í Daniel Hagari talsmanni ísraelska hersins sem segir að árásirnar hafi farið eins og til var stofnað. . Abu Hamza, talsmaður Al-Quds herdeildanna, hins vopnaða arms íslamska Jihads, að það gagnaðist hernámsliðinu ekkert að ráða liðsmenn samtakanna af dögum. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Íslenskur maður var handtekinn í Brasilíu í morgun í umfangsmiklum aðgerðum. Hald var lagt á 65 kíló af kókaíni og 225 kíló af hassi. Íslensk lögregluyfirvöld komu að aðgerðunum í morgun. Kristín Sigurðardóttir tók saman og talaði við Karl Steinar Valsson. Einhverjir þeirra sem eiga hlut að Bankastræti Club-málinu tengjast vopnuðum átökum á Dubliner og í Bankastræti í mars. Þetta segir yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir segir frá. Svo vel hefur veiðst af bæði þorski og ýsu að allur kvótinn er að verða uppveiddur nú þegar fimm mánuðir eru eftir af kvótaárinu. Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeiganda vonar að HAFRÓ flýti endurskoðun og auki kvótann sem fyrst enda hafi sjómenn aldrei séð aðra eins fiskgengd. Rúnar Snær Reynisson ræðir við Örn Pálsson. Mörg sveitarfélög eiga í rekstrarerfiðleikum. Staða Árborgar er slæm, en þó ekki eins slæm og til að mynda Reykjanesbæjar á árunum eftir hrun. Mikið átak þurfti til að koma þeim rekstri í samt lag. Bjarni Rúnarsson ræðir við Kjartan Má Kjartansson bæjarstjóra í Reykjanesbæ. Talið er að yfir 120 hafi látið lífið í loftárás hersins í Mjanmar á þorp í landinu í gær. Tugir kvenna og barna eru meðal hinna látnu. Ásgeir Tómasson tók saman. Spegillinn 12. apríl 2023. Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

New York ríki í Bandaríkjunum hefur bæst í hóp nokkurra ríkja þar sem hafa leyft jarðgerð eða moltugerð líkamsleifa fólks. Þá er líkamanum komið fyrir á ákveðinn hátt þannig að náttúrulegt niðurbrot á sér stað tiltölulega hratt og eftir verður næringarrík molta sem aðstandendur fá afhenta í lok ferlisins. Við spyrjum: hvernig er þetta ferli og væri þetta hægt hér? Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir mannvistfræðingur er stofnandi Trés lífsins, sem hefur það markmið að setja á fót bálstofu og minningargarð þar sem gróðursett yrðu tré með ösku látinna. Hún ætlar að spjalla við okkur um þetta á eftir. Við ætlum svo að fræðast um þrettándahátíðir - sérstaklega þessa sem er í Vestmannaeyjum, því að öðrum uppákomum ólöstuðum annars staðar á landinu þá er sú sem er haldin í Eyjum, og er í kvöld, algerlega einstök, Í Eyjunni hafa skapast hefðir sem fyrirfinnast hvergi annars staðar og sjálfboðaliðar leggja mikið á sig til að skapa töfrandi stemmningu sem situr eftir í hugum og minningum allra sem það upplifa. Þjóðfræðingurinn Hrefna Díana Viðarsdóttir eyjakona og sérfræðingur og aðdáandi þrettándans kemur til okkar. Málfarsmínútan verður í þrettánda gír og við ræðum svo við Lísu Anne Libungen síldarsérfræðing frá Hafró um þessa skemmtilegu fisktegund í dýraspjallinu svokallaða.

Pétur Henry Petersen prófessor í taugavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands: Minnkar heilinn í nýbökuðum feðrum? Ný rannsókn sem gerð var á Spáni og í Bandaríkjunum bendir að minnsta kosti til þess að heilabörkurinn skreppi saman og starfsemi hans breytist. Vitað var að sambærilegar breytingar ættu sér stað í mæðrum en nú hefur komið í ljós að heili feðra sem taka þátt í frumuppeldinu breytist líka, þó ekki eins mikið. Þetta er allt til þess að tryggja tengslamyndun og auka getu foreldra að lesa í þarfir barnsins. Í Dýraspjalli dagsins verður rætt við Ingibjörgu G Jónsdóttur sjávarvistfræðing en hún sinnir meðal annars merkingu á þorski hjá Hafró til að kanna göngur og fleira - sérdeilis gott að afla þeirra upplýsinga til að þekkja þessa mikilvægustu nytjategund okkar Íslendinga. Málfarsmínúta Lýðræðið og traustið: Þorgeir Ólafsson ræðir við Jón Gunnar Ólafsson nýdoktor við Háskóla Íslands um hvaða áhrif samfélagsmiðlarnir hafa á traust almennings á stofnanir samfélagsins, fjölmiðla og samfélagsmiðla.

Hvernig hljómar heyrnarskerðing? Kristbjörg Gunnarsdóttir og Kristbjörg Pálsdóttir eru báðar heyrnarfræðingar og leiða okkur í gegnum nokkrar upptökur sem leyfa hlustendum að heyra hvernig mismunandi heyrnarskerðingar hljóma. Hvað er átt við þegar talað er um algóritma. Í innslaginu í dag um samfélagsmiðlana ræðir Þorgeir Ólafsson við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar um algóritmana, hvernig þeir virka, til dæmis til að selja okkur vörur og þjónustu og hins vegar til að beina til okkar efni sem forritið telur okkur hafa áhuga á, þar á meðal efni sem samfélaginu stafar hugsanlega hætta af. Þau ræða einnig hvaða áhrif svokölluð skautun getur hugsanlega haft á samfélagið og lýðræðisumræðu. Málfarsmínúta Dýraspjall: Sara Harðardóttir plöntusvifsfræðingur hjá Hafró. Sara rannsakar smáþörunga, og hefur sérstakan áhuga á þörungi sem býr á hafís og getur sagt okkur margt um ferðalag ísjaka árhundruðir aftur í tímann.

Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir: Málþing um sýklalyfjaónæmi og sýklalyf var haldin í höfuðstöðvum Landlæknisembættisins í morgun, Samfélagið var á staðnum. Dýraspjall, rætt við Guðjón Már Sigurðsson sjávarlíffræðing hjá Hafró. Guðjón segir okkur frá sínum helstu rannsóknarefnum en hann sinnir hvalarannsóknum fyrir Hafró, telur hvalina, rannsakar hegðun þeirra og fleira. Guðjón er líka sérfræðingur í marglyttum. Málfarsmínúta Finnur Ricart Andrason: Loftlagsráðstefna COP27 er að ljúka, sumir segja hana hafa verið gagnslausa, aðrir eru bjartsýnni. Finnur fer yfir það góða og slæma með okkur í þættinum

Það er margt sem bendir til þess að ýmsar pestir herji nú af meiri krafti á samfélög sem gripu til sóttvarnaraðgerða þegar covid faraldurinn var í hámæli. Undanfarin tvö ár fækkaði t.d. mjög tilfellum inflúensu og RS vírus svo dæmi séu tekin. En nú virðast hinar og þessar pestir vera á fleygiferð - kannski eðlilega. Og svo virðist covid vera mallandi í samfélaginu líka. Sigríður Dóra Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins. Hún fer yfir þessi mál með okkur. VIð ræðum svo við líffræðiljósmyndarann Svanhildi Egilsdóttur í dýraspjalli dagsins, hún starfar hjá Hafró og eitt hennar hlutverka er einmitt að mynda þær fjölbreyttu lífverur sem tengjast hafinu, ekki auðvelt verkefni enda þurfa lífverurnar helst að vera lifandi og ferskar - sem þýðir að Svanhildur þarf oft að vinna sín ljósmyndastörf út á rúmsjó. Svanhildur elskar líka fjörurferðir og segir fjöruferðir vera allra meina bót - og vill auka veg þeirra með aukinni fræðslu og þekkingarmiðlun. Hingað kemur líka Gunnar Dofri Ólafsson hjá Sorpu. Hann ætlar að segja okkur allt um stóru húsasorpsrannsóknina sem er í gangi núna. Þá er kafað djúpt í heimilissorpið og það greint í smæstu smáatriði. Svo verður málfarsmínútan á sínum stað.

Sorg er sammannleg tilfinning sem tekur á sig ýmsar myndir. Enginn kemst í gegnum lífið án þess að upplifa sorg. Sorgarmiðstöð er staður sem styður við syrgjendur. Þau Karólína Helga Símonardóttir stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar og Gísli Álfgeirsson stjórnarmeðlimur ræða sorgina og það starf sem fram fer í Sorgarmiðstöðinni. Hennar rödd eru félagasamtök sem starf með það að markmiði að auka vitund meðal almennings á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Samtökin hlutu í vikunni jafnréttisviðurkenningu á jafnréttisþingi. Þær Chanel Björk Sturludóttir og Elínborg Kolbeinsdóttir segja okkur meira frá Hennar rödd. Málfarsmínútan er svo á sínum stað. Í lok þáttar fáum við dýraspjallið svokallaða, dagskrárliður sem fjallar ekkert endilega alltaf um dýr, heldur eru vistkerfin öll jafnan undir og við fáum þá gjarnan til okkar náttúruvísindafólk og forvitnumst um þeirra störf og sérfræðiþekkingu - að þessu sinni er það Rakel Guðmundsdóttir líffræðingur hjá Hafró sem kom til okkar, hún sérhæfir sig meðal annars í útreikningum á burðarþoli íslenskra fjarða - getur þá reiknað út hvort og hversu mikið af sjókvíaeldi þeir þola - en eldisræktun er umdeilt hitamál á Íslandi og því eflaust fróðlegt að heyra af störfum Rakelar.

Anna Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur hjá Hafró: Í sumar var farinn umfangsmikill rannsóknarleiðangur þar sem magn uppsjávarfiska í norðaustur Atlantshafi var metið. Í leiðangrinum í sumar mældist útbreiðsla makríls mun meiri við Ísland samanborið við síðustu tvö ár. Arna Laufey Steinarsdóttir: Við heyrum um áhugaverða meistarannsókn í viðskiptafræði sem kannaði áhrif persónuleika fólks á skattasiðferði og áform um skattsvik. Hvað er það við persónueinkenni fólks sem hefur mótandi áhrif á skattasiðferði þeirra, það er hversu líkleg þau eru til að borga skattana sína með glöðu geði eða hvort þau reyna að skjóta undan skatti við hvert tækifæri. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur: Má kalla pizzu pissu? Og fleiri pælingar um framburð á til að mynda kaffidrykkjum, bakkelsi og réttum sem koma erlendis frá.

Brynjar Karl er stofnandi Keyhabits og Sideline sports, þjálfari og fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta. Í þættinum ræðir Brynjar íþróttafélagið Aþenu, mótspyrnuna sem það hafa mætt í íþróttahreyfingunni, átök akademíunar og Brynjars, svör við gagnrýni Hafrúnar Kristjáns í fyrrum þætti 24/7, hvað hann er að reyna ná fram með Aþenu, umgmenni í íþróttum, kvenfólk í íþróttum, valdeflingu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Your Super - https://tropic.is/voruflokkur/ofurfaedur/your-super/ Sumac - https://sumac.is/ Sportvörur - https://sportvorur.is/ Lavazza - https://www.lavazza.is/
Brynja Hrafnkelsdóttir skordýrafræðingur hjá Skógræktinni: náttúrulegir óvinir meindýra, hverjir eru þeir og hvað gera þeir. Á að eitra og úða í görðum? Hrönn Egilsdóttir sviðstjóri og sjávarvistfræðingur hjá Hafró: dýraspjallið í dag tekur okkur neðansjávar þar sem við veltum fyrir okkur ótrúlegum dýrum sem þar búa. Ruslarabbið fjallar um hvað eigi að gera við ónýt kort, eins og kreditkort. Málfarsmínúta Endurflutt: Það er mikil eftirspurn eftir trjám til gróðursetningar og útlit fyrir að það vanti mjög mikið af plöntum á næstunni í þau mörgu skógræktarverkefni sem liggur fyrir að ráðist verði í. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri.

Hvaða áhrif hefur það á tilkall ríkis til hafsvæðis þegar yfirborð sjávar hækkar og landsvæði færist á kaf? Dr. Snjólaug Árnadóttir lektor við Háskólann í Reykjavík. Veiðikortakerfið íslenska er 25 ára um þessar mundir - Áki Ármann Jónsson formaður Skotvís. Málfarsmínútan - Guðrún Línberg Guðjónsdóttir. Evrópska neytendaaðstoðin veitir hollráð á ferðalögum erlendis - Ívar Halldórss stjórnandi evrópsku neytendaaðstoðarinnar.

Í dag ætlum við að ræða einn kima af sálfræði sem hefur verið mér ofarlega í huga í frekar langan tíma. Fyrir þau ykkar sem fylgjast eitthvað með íþróttum hefur orðið íþróttasálfræðingur kannski komið ykkur oftar og oftar fyrir sjónir, þannig hefur það verið fyrir mig að minnsta kosti. Mig langaði þessvegna til að fræðast aðeins meira um þessa undirgrein af sálfræði og vita um hvað hún snérist, hvaðan hún kæmi og hvernig við sjáum framtíðina fyrir okkur með gleruaugum íþróttasálfræðinnar. Ég fékk til mín Hafrúnu Kristjánsdóttur til að fræða okkur um þetta allt saman. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Fréttir bárust af miklum fiskidauða á Reykjanesi í kjölfar óveðursins í síðustu viku. Þúsundir fiska lágu dauðir í fjörunni í Stóru Sandvík á vestanverðu Reykjanesi. Einnig fundust dauðir fiskar í minna mæli við Garðskaga og víðar. Hafrannsóknarstofnun sendi fólk á staðinn sem fór yfir stöðuna. Við hringdum í Jón Sólmundsson fiskifræðing hjá Hafró og heyrðum meira af þessu. Það hefur mikið verið rætt um aukinn kaupmátt almennings hér á landi en sumir telja þó ákveðna hópa sitja eftir. Í dag fer fram málstofa í Háskóla Íslands um fátækt sem beinir sérstaklega sjónum sínum að einstæðum foreldrum. Til okkar komu Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur og Ásta Þórdís Skjalddal, samhæfingarstjóri PEPP Ísland, til að ræða stöðu þessa viðkvæma hóps. Öllum lögfræðingum Rauða kross Íslands hefur verið sagt upp því dómsmálaráðuneytið hyggst endurskoða fyrirkomulag lögfræðiþjónustu hælisleitenda sem Rauði krossinn hefur um nokkurra ára skeið sinnt. Í gær lét Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafa eftir sér að hvaða lögfræðingur sem er gæti sinnt starfinu. Guðríður Lára Þrastardóttir lögfræðingur og teymisstjóri Rauða krossins í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd kom til okkar og ræddi hvernig málið snýr við þeim. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra kom svo til okkar upp úr klukkan átta og við ræddum stöðu hælisleitenda við hann sem og málefni lögreglunnar. Við hringdum svo í Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafréttamann í Kína, en hún hefur verið þar á ferð og flugi að fylgjast með okkar fólki á Vetrarólympíuleikunum. Íslenskir skíðamenn kepptu í gær og nú fer að sjá fyrir endann á ævintýrinu. Kvikmyndin Harmur verður frumsýnd í SAMbíóunum á morgun. Að henni standa ungir kvikmyndagerðarmenn sem víluðu ekki fyrir sér að fjármagna, framleiða, leikstýra og leika í kvikmynd í fullri lengd. Við fengum þá félaga Ásgeir Sigurðsson leikstjóra og aðalleikara og Halldór Ísak Ólafsson framleiðanda til okkar. Tónlist: Ásgeir Trausti - Leyndarmál. Laddi - Ertu memm. Sigrún Stella - Baby blue. Vök - Running wild. Moses Hightower - Stutt skref (live). Jón Jónsson og GDRN - Ef ástin er hrein. Eddie Vedder - Brother the cloud.

Dr. Hafrún Kristjáns er vísindakona, sálfræðingur og deildarforseti íþróttadeildar HR. Í þættinum ræðir Hafrún um íþróttasálfræði, Ólympíuleikana, heimildarmyndina hækkum ránna, hugræna atferlismeðferð, fúskara sem telja sig geta hjálpað fólki í gegnum áföll eftir að hafa lesið 10 sjálfshjálparbækur og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/
Flest þekkjum við internet vafra eins og Google Chrome, Firefox og Explorer svo einhverjir séu nefndir. Færri hafa kannski heyrt af Vivaldi vafranum, en nú í vikunni var nýjasta útgáfa hans sett í loftið og hann þar með orðinn alvöru valkostur við tæknirisana, að sögn þeirra sem standa að baki honum. Einn þeirra er Geir Gunnarsson og hann kom til okkar og sagði okkur meira. Gefðu fimmu er hreyfi- og fjáröflunarátak, þar sem þátttakendur geta gert sjálfum sér og öðrum gott, gefið til góðs málefnis og skorað á vini, fjölskyldu og samstarfsfélaga um að gera slíkt hið sama. Það er velgjörðarfélagið 1881 sem stendur að baki Gefðu fimmu - en meðal stofnenda er Svanhildur Vigfúsdóttir fjárfestir. Hún kom til okkar til að segja okkur hvernig við tökum þátt. Á sunnudaginn ætlar hópur kvenna að leggja af stað í sannkallaða kvennasiglingu og sigla á skútu umhverfis Ísland. Með því vilja þær beina athygli að hafinu og þeirri margþættu umhverfisvá sem að því steðjar. Siglingin verður á skútunni Esju en35 konur á öllum aldri taka þátt í siglingunni. Markmið verkefnisins er að virkja konur til siglinga við Ísland, vekja athygli á heilbrigði hafsins og hvetja alla til ábyrgrar umgengni við hafið og auðlindir þess. Ein þeirra sem fer með í fyrsta legg ferðarinnar, sem er Reykjavík - Ísafjörður, er Sigríður Kristinsdóttir hjá Umhverfisstofnun. Hún kom til okkar og sagði frá málþinginu ?Hafið er okkar? sem fer fram á Ísafirði. Í yfirlit yfir fréttir vikunnar fengum við þau Hafrúnu Kristjánsdóttur deildarforseta íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík og Björgvin Franz Gíslason leikara. Félag hljómplötuframleiðanda birti nýverið skýrslu um sölu á íslenskri tónlist fyrir árið 2020, þar sem heildarsala jókst um 6% í fyrsta sinn síðan 2011. Hlutdeild íslenskrar tónlsitar er rúm 20% af heildarsölu og samkvæmt þessari skýrslu er um 91% af þeim tekjum í gegnum streymisveitur. Til þess að ræða þessi mál betur heyrðum við í Framkvæmdarstjóra FHF, Eið Arnarssyni. Tónist: Sigurður Guðmundsson - Kartöflur Kings of convenience - Rocky trail Geiri Sæm - Froðan Tómas Welding - Here they come Fleetwood Mac - Gypsy