POPULARITY
Tónskáldið Gabríel Ólafsson sendi frá sér geimþemaplötuna Polar nú á dögunum en hljóðheimur plötunnar er ekki síður innblásinn af stærstu spendýrum jarðarinnar, hvölunum. Katrín Helga Ólafsdóttir ræðir við Gabríel um plötuna og sameiginlegt áhugamál þeirra, hvali. Hermann Stefánsson rifjar upp ljóðrænan misskilning gervigreindarinnar varðandi sorg. Hann pælir í tíma sorgarinnar, sjúkdómsvæðingu hennar, og sorg sem kyndir hús. Og við rennum við í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem nú stendur yfir undirbúningur fyrir Kvikmyndahátíð Framhaldsskólanna. Nemendur við skólann sjá um skipulagningu hátíðarinnar sem fer fram í ellefta sinn um helgina - 23 kvikmyndir eftir framhaldsskólanema verða sýndar í Bíó Paradís.
Tæplega 550 íslenskir tónlistarmenn hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem RÚV er hvatt til að sniðgganga Eurovion taki Ísrael þátt í keppninni. Í dag var fékkst það svo endanlega staðfest frá EBU að Ísrael yrði með í keppnni. Töluverð umræða hefur skapast um málið og við tókum stöðuna á mótmælendum fyrir utan Útvarpshúsið í dag. Anna Margrét Björnsson hjá Franska sendiráðinu á Íslandi fer yfir dagskrá Frönsku kvikmyndahátíðarinnar sem hefst í kvöld í Bíó Paradís. Brynja Hjálmsdóttir, skáld, fjallar um nýútkomna seríu Nathan Fielder og Benny Safdie, sem skartar þeim og Emmu Stone í aðalhlutverki. Lagalisti: Systur - Með hækkandi sól Celebs - Dómsdags dans Olga Guðrún, Lay Low - Myndin hennar Lísu Guided By Voices - As We Go Up We Go Down Sting - Shape Of My Heart
Saga Garðarsdóttir, leikkona og Þórdís Gísladóttir, rithöfundur, skrifuðu jóladagatalið, Randalín og Mundi: Dagar í desember, ásamt Ilmi Kristjánsdóttur. Silja Hauksdóttir leikstýrði þessu fyrsta íslenska jóladagatali síðan 2008. Saga og Þórdís komu í heimsókn í Lestina og ræddu muninn á því að skrifa fyrir fullorðna og börn, jólaboðskapinn og prakkarastrik. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir mun flytja pistla næstu vikurnar sem fjalla um tækni og fötlun. Að þessu sinni veltir hún fyrir sér gervigreind, Amazon fyrirtækinu, vinnumarkaði framtíðarinnar og stöðu fatlaðs fólks á honum. Kvikmyndahátíðin Tallinn Black Nights Film Festival, eða Pöff, í Eistlandi fór fram á dögunum og hlaut íslensk kvikmynd aðalverðlaunin, Á ferð með mömmu í leikstjórn Hilmars Oddssonar. Með kvikmyndinni Á ferð með mömmu snýr Hilmar Oddsson aftur í leikstjórastólinn eftir langt hlé en síðasta kvikmynd sem hann sendi frá sér var Desember sem kom út árið 2009. Á ferð með mömmu er svört kómedía sem fjallar um umskipti í lífi manns eftir að móðir hans fellur frá. Hilmar kíkti í Lestina ásamt aðalleikara myndarinnar, Þresti Leó Gunnarssyni.

Fyrir jól ár hvert rís háreist hálmgeit í Kauptúni í Garðabæ. Sænska húsgagnakeðjan Ikea stendur fyrir því en álíka hálmgeit prýðir torg í sænska bænum Gävle. Þar hefur skapast hefð fyrir því að kveikja í geitinni. Við ræðum við manneskju sem kveikti eitt árið í geitinni hér á Íslandi. Við hringjum vestur á Ísafjörð í Fjölni Baldursson sem er þessa stundina á harðahlaupum að klára að undirbúa nýja íslenska kvikmyndahátíð. Það er hátíðin PIFF sem er haldin í annað sinn á Ísafirði og kemur beint í kjölfarið á RIFF. Í október 1982 kom á markað í Japan tæki sem átti eftir að gjörbylta tónlistarútgáfu næstu áratugina, Þetta var fyrsti geislaspilarinn Sony CDP-101 sem notaðist við nýja tegund hljómplötu: geisladisk. Við gröfum gömlum blaðagreinum í tilefni að 40 ára afmæli geisladisksins. Guðrún Elsa Bragadóttir tekur saman það besta sem hún sá á RIFF, sem lauk um helgina. Hún var einstaklega ánægð með tvær myndir, heimildamyndina Doc of the Dead og spænsku hryllingsmyndina Cerdita, eða Svínka.
Í brekkunni rétt neðan við Akureyrarkirkju stendur fallegt gamalt hús, upprunalega byggt fyrir þjóðskáldið Matthías Jochumsson. Húsið ber heitið Sigurhæðir og þar er í dag aðsetur menningarhússins Flóru, sem heldur utan um viðburði og vinnustofur listamanna og skapandi fólks. Þaðan er Pastel ritröðin líka upprunnin, röð listaverka í smáritsformi eftir fjölbreytta flóru listamanna. Í dag koma út fimm ný smárit á vegum Pastel, sem þar með eru orðin 33 talsins. Útgáfunni verður fagnað í Mengi í Reykjavík kl 17 og á Ketilkaffi Akureyri á föstudaginn í næstu viku. Aðstandendur Flóru og Pastel, þau Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri og Kristín Þóra Kjartansdóttir, listrænn stjórnandi og staðarhaldari á Sigurhæðum eru gestir dagsins. Kvikmyndahátíðin RIFF hefst í kvöld. Einn flokkur heimildamynda sem sýndar verða á RIFF samanstendur af myndum um tónlist og tónlistarmenn. Við skoðum hvers kyns myndir það eru og heyrum hljóðbrot úr heimildamyndinni Play and rewind, sem fjallar um tónlistarmanninn Thelonious Monk. Marteinn Sindri Jónsson, doktorsnemi í listheimspeki flytur í dag sinn síðasta pistil í bili frá Kassel í Þýskalandi. Samtímalistahátíðinni Documenta lauk um liðna helgi og Marteinn Sindri tekur fyrir eitt listaverk, úr heilum hafsjó listaverka á Documenta, sem fangaði sérstaklega athygli hans. ?Ég lít á listina í miklu víðara samhengi en það að bara búa til myndlistarverk, gömul verkfæri geta í sjálfu sér verið listaverk, ef þú skoðar þau? svo sagði Gunnar Pálsson, stálsmiður og verkfræðingur, í samtali við Víðsjá morgun. Gunnar er einn þeirra sem rætt er við í þætti dagsins í tengslum við myndlistarsýningu sem verður opin í aðeins 4 klukkustundir næstkomandi laugardag, í vélarsal. Sýningin er á myndlistarsafni Markúsar Ívarssonar annars stofnanda Héðins, en hann var ástríðufullur safnari. Ættingjar Markúsar gáfu Listasafni Íslands verkin og er sýningin í vélarsal Héðins sett upp í samstarfi við safnið. Við heyrum meira af þessu undir lok þáttar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Steindór Grétar Jónsson er flytur pistil frá Cannes-kvikmyndahátíðinni þetta árið. Kvikmyndahátíðin hófst þann 17. maí og stendur yfir til 28. maí. Steindór hitti unga leikarann Magnús Maríuson sem fer með hlutverk í kvikmyndinni The Vagabonds eftir Doroteyu Dromevu, sem er frumsýnd á hátíðinni, Hin 75 ára gamla Margrét Sigfúsdóttir á aðeins örfáa daga eftir í starfi sínu sem skólameistari Hússtjórnarskólans í Reykjavík. Því hlutverki hefur hún gegnt í 24 ár. Það hefur margt breyst síðan Margrét fór sjálf í sitt nám, þegar hússtjórnarskólar voru starfræktir víðast hvar á landinu og konur skikkaðar af fjölskyldum sínum í slíka skóla. Með breyttum tímum og viðhorfum í samfélaginu hafa nánast allir slíkir skólar lokað dyrum sínum, fyrir utan þá tvo sem eru eftir, í Reykjavík og á Hallormsstað. Við ákváðum að setjast niður með Margréti og ræða við hana á þessum tímamótum, um skólann, kennsluna og lífshlaup hennar

Gestur Rokklands í dag er tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir - Lay Low. Hún sló hálfpartinn óvænt í gegn árið 2006 Þegar fyrsta platan hennar kom út, platan Please don?t hate me. Síðan hafa árin liðið, plöturnar hennar eru orðnar sjö talsins, með tveimur tónleikaplötum og einni leikhúsplötu, en í dag eru liðin 9 ár frá því Lay Low sendi síðast frá sér plötu. Hún vinnur ekki mjög hratt en alltaf þegar hún sendir eitthvað frá sér þá vitum við af því ? það vekur athygli, og oftar en ekki slær það í gegn. Hún gerði í fyrra lag mjög vinsælt með Eyþóri Inga, hún er stanslaust að syngja Þannig týnist tíminn sem var valið lag aldarinnar í samnefndum sjónvarpsþætti fyrir nokkrum árum, en hún söng þetta litla fallega lag eftir Bjartmar Guðlaugsson inn á plötu með Ragga Bjarna fyrir áratug. Það er eins og það sé einhver stemning í kringum Lay Low. Hún er einhvernveginn á réttum stað á réttum tíma og nú er nýjasta ævintýrið ? Júróvision lagið sem hún samdi. Lagið Með Hækkandi sól sem Systur - Sigga, Beta og Elin ætla að syngja í Torino í vor. Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival 2022 sem verður sett í Reykjavík eftir helgi og Sineád O?Connor koma líka við sögu.

Kvikmyndahátíðin í Berlín, Berlinale er ein stærsta og virtasta kvikmyndahátíð heims, en henni lauk nú um helgina. Nokkrar íslenskar myndir og þættir voru sýndar á hátíðinni og Lestin var með útsendara á svæðinu. Ásgeir H. Ingólfsson sendir okkur berlínarpistil meðal annars um íslensku myndirnar Hreiðrið, Against the Ice og Berdreymi. Rósa María Hjörvar flytur annan pistil sinn af þremur um tilfinninguna reiði, að þessu sinni veltir hún fyrir sér reiðifantasíum millistéttarinnar og markaðsvæðingu reiðinnar. Og við heyrum hvað er að frétta í hinum klikkaða heimi Kanye West. Það er ekki bara ný plata sem kemur út í dag og nýir heimildaþættir á Netflix heldur einnig drama í einkalífinu og alvarlega ásakanir um ógnandi hegðun gagnvart fyrrum eiginkonu og kærasta hennar. GIssur Ari Kristinsson er einn af fjölmargra íslenskra aðdáenda sem fylgist með hverri hreyfingu rapparans.

Ég efast um að nokkur bassaleikari hafi verið virkari undanfarinn áratug en Ingibjörg Elsa Turchi, hún hefur spilað með ótal hljómsveitum og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum, frá tilraunadjassi til indípopps, frá Bubba Morthens og Stuðmönnum til Sinfóníuhljómsveitar Íslands. En hún hefur einnig vakið mikla athygli og hlotið fjölda verðlauna fyrir sólótónlist sína. Ingibjörg Elsa Turchi sést um borð í Lestina, spjallar um eftirmiðdagstónleika í Mengi og nýja plötu sem hún ætlar að taka upp um helgina. Það er komið að uppáhaldsárstíma allra íslenskra frankófíla. Frönsk kvikmyndahátíð hefst um helgina í Bíó Paradís og Ása Baldursdóttir segir frá. Gunnar Ragnarsson sendir okkur pistil og rýnir í kvikmynd sem honum tókst að sjá áður en hann endaði í einangrun. Þrátt fyrir smit finnur Gunnar lyktina af lakkríspítsu, en bíómyndin Licorice Pizza eftir Paul Thomas Anderson lyktar reyndar aðallega af gráum fiðringi.

Nú á dögunum kom út þriðja breiðskífa Teits Magnússonar, plata sem nefnist 33. Okkar mótþróaþrjóskuraskaði tónlistargagnrýnandi Davíð Roach Gunnarsson rýnir í plötuna. Við hringjum þvert yfir landið, alla leið í Eskifjörð, þar sem fram fer Pólsk kvikmyndahátíð um helgina. Kvikmyndahátíðin er skipulögð af pólskri kvikmyndagerðar konu og spennandi viðbót í menningarlíf íbúa austfjarða, segir forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar. Við veltum einnig fyrir okkur nýlegum upphrópunum íslenskra karlmanna um lessulegar hárgreiðslur. Átta manns tróðust undir og létust á Astroworld-tónlistarhátíð rapparans Travis Scott í Houston fyrir helgi. Í kjölfarið hefur nokkuð verið rætt um ágenga stemninguna sem ríkir á tónleikum rapparans og mosh-pyttina sem þar myndast. En moshpytturinn er sögulega mun tengdari rokki en rapptónlist. Við sökkvum okkur ofan í sögu mosh-pyttsins í Lest dagsins. Og þar koma þessir meðal annars við sögu.

Á laugardag fögnuðu áhugamenn um hljóðgervilinn, synthesizerinn, alþjóðlegum degi hljóðfærisins. Dagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim á fæðingardegi Roberts Moog sem fann upp fyrsta hljóðgervilinn. Hér á landi var deginum fagnað með hljóðgervlamessu í borgarbókasafni Reykjavíkur. Lestin kíkti við, prófaði græjurnar og ræddi við syntha-áhugafólk. Kvikmyndahátíðin Stockfish fer fram þessa dagana í Bíó Paradís. Í þættinum í dag rýnir Ásgeir Ingólfsson í nýja íslenska heimildarmynd Apausalypse sem er frumsýnd á hátíðinni og segir frá myndum í stuttmyndahluta hátíðarinnar, Sprettfisknum svokallaða, sem fór fram um helgina. Indípoppsveitin BSÍ gaf út sína fyrstu breiðskífu á dögunum, plata sem skiptist í tvennt eftir takti og viðfangsefnum, Fyrri parturinn nefnist Stundum þunglynd... og sá síðari En Alltaf andfasískt. Við ræðum við tvíeykið BSÍ um pólitíska texta og hvað það þýðir að spila pönk.

Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days er haldin í sjöunda sinn þessa daganna og stendur til 30.maí í Bíó Paradís. Markmið Stockfish er að efla og auðga kvikmyndamenningu á Íslandi árið um kring og vera íslenskum kvikmyndaiðnaði lyftistöng bæði erlendis og innanlands. Á hátíðinni eru sýndar yfir 20 sérvaldar alþjóðlegar verðlaunamyndir. Marsibil Sæmundsdóttir er framkvæmdastjóri Stockfish og hún kom í þáttinn í dag. Arnhildur Anna Árnadóttir er 28 ára gömul og hefur bæði æft og keppt í kraftlyftingum frá því árið 2012. Hún er aðalþjálfari lyftingadeildar Stjörnunnar og við ræddum við hana í þættinum í dag um mikilvægi styrktarþjálfunar. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Hún er námssálfræðingur, fyrrverandi borgarfulltrúi og núverandi framkvæmdastjóri Köru Connect. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn 4.4.2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Landhelgisgæslan berjast nú við illviðráðanlegan sinubruna í Heiðmörk. Eldurinn kom upp suður af Vífilsstaðavatni á fjórða tímanum í dag. Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á vettvangi Þúsundir hafa haft samband við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og gert athugasemdir við að hafa ekki fengið boð í bólusetningu. Framkvæmdastjóri lækninga hvetur fólk til að sýna þolinmæði . Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Sigríði Dóru Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Skaðabótalög eiga að koma í veg fyrir að mál sé höfðað gegn einstaka embættismönnum stofnana, segir sérfræðingur í vinnurétti. Höskuldur Kári Schram talaði við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni Töluvert verður slakað á sóttvörnum í Danmörku síðar í þessari viku. Kvikmyndahús og líkamsræktarstöðvar taka til starfa á ný og grunnskólanemendur mæta í skólann. Lengra efni: Gífurleg misskipting á bóluefnum í heiminum verður til þess að veiran verður með okkur í áratugi. Þetta er mat Arnars Pálssonar, erfðafræðings og prófessor í lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands og sjötíu og sjö fremstu faraldsfræðinga í heiminum. Bergljót Baldurdsóttir ræddi við Arnar Pálsson. Með því að fjölga jöfnunarsætum þingmanna væri hægt að jafna vægi atkvæða milli flokkanna sem bjóða fram í næstu alþingiskosningum. Í síðustu þremur alþingiskosningum hefur vægið ekki verið jafnt og það virðist stefna í það sama í kosningunum í haust. Arnar Páll Hauksson, ræddi við Steingrím J Sigfússon, forseta Alþingis Þann 3. maí, fyrir hundrað árum varð skipting Írlands staðreynd. Þess er nú víða minnst, á Írlandi, Norður-Írlandi og í Bretlandi. Friðarsamningurinn 1998 lægði ófriðaröldurnar á Norður-Írlandi en ýmsir óttast neikvæð áhrif Brexit og afskiptaleysis bresku stjórnarinnar. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá

Síðastliðin þrjú ár hafa höfundum, umboðsmönnum og bókaútgefendum um allan heim borist undarlegir tölvupóstar. Við fyrstu sýn virðast skeytin koma frá kollegum þeirra í bransanum sem vilja ólmir fá að sjá hin ýmsu óútgefnu handrit, en þegar betur er að gáð eru tölvupóstföngin tómt fals. Íslenskir höfundar, meðal annars Björn Halldórsson sem í vikunni gefur út sína fyrstu skálfsögu, hafa ekki farið varhluta af þessum tilraunum til handritaþjófnaðs. Ástæða þeirra er á huldu. Stærsta spurningin er þannig ekki hver heldur af hverju? Áhugafólk um framúrstefnupopp er harmi slegið eftir helgina. Á laugardaginn lést skoski músíkantinn, upptökustjórinn og transíkonið SOPHIE 34 ára að aldri. Nafnið er kannski ekki á allra vitorði en áhrifin eru óumdeild, enda er tilraunakenndur rafrænn hljóðheimur SOPHIE algjörlega einstakur, framtíðarlegur og nánast áþreifanlegur. Ana Stanicevic sest um borð í Lestina og ræðir um tónlist og persónu SOPHIE. Einnig verður rætt um Franska kvikmyndahátíð sem hefst í vikunni í tuttugasta og fyrsta sinn.

Í þætti dagsins heyrum við um nýja japanska sjónvarpsþætti sem byggja á þekktri manga-myndasögu og vísa í klassískt ævintýri Lewis Carroll. Katrín Guðmundsdóttir rýnir í Alice in Borderland. Við hringjum til Beirut höfuðborgar Líbanon og fræðumst um stöðuna í listalífi þessarar annáluðu menningarborgar eftir að stór sprenging lagði stóran hluta hennar í rúst á síðasta ári. Hvernig hljómar Reykjavík? Julius Rothlander tónlistarmaður rannsakar hljóðmenningu heimaborgar sinnar, kirkjuklukkur, nagladekk og syngjandi stillansar koma meðal annars við sögu. Og við fræðumst um feminíska kvikmyndahátíð sem verður haldin í annað sinn í reykjavík um helgina. María Lea Ævarsdóttir, hátíðarstýra, heimsækir Lestina hér á eftir, en við ætlum að byrja á hljóðunum í borginni. Julius Rothlander tekur nú við.
Í þessum þætti af Já OK! fara Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto í enn eina gönguna í gegnum Reykjavík. Þeir standa fyrir framan Bíó Paradís og spurja sjálfa sig: “hvað ætli mörg kvikmyndahús hafi starfað á Íslandi?“ Úff yfir allt landið er það langur listi. En hvernig byrjaði kvikmyndamenningin hér á landi?
Kvikmyndahátíðin RIFF verður sett í dag en hátíðin stendur til 4. október nk. Hátíðin verður með öðru sniði en vanalega, í ljósi aðstæðna, og við heyrðum í Maríu Ólafsdóttur hjá RIFF og fengum að vita allt um hvernig við getum notið fjölbreyttra kvikmynda næstu daga. Anna Sigríður Þráinsdóttir leit við í sitt vikulega málfarsspjall og þar var haustið í forgrunni. Þeim fjölgar stöðugt sem hafa farið í magaminnkunaraðgerðir, ekki síst magaermina svokölluðu. Eftirfylgni eftir slíkar aðgerðir er mikilvæg en sumstaðar, ekki síst úti á landi, getur verið erfiðara að fá faglega aðstoð. Nú hefur þverfaglegt teymi ákveðið að ráðast í þetta mikilvæga verkefni á Norðurlandi og koma af stað úrræði sem hægt er að leita í eftir slíkar aðgerðir. Andrea Waage einkaþjálfari er ein þeirra sem að þessu standa og hún var á línunni að norðan. Þrjátíu og fimm býli taka þátt í tilraunaverkefni um heimaslátrun þar sem markmiðið er að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þannig að uppfyllt sé regluverk um matvælaöryggi og dýravelferð. Hólmfríður Sveinsdóttir doktor í lífvísindum og næringarfræðingur stýrir verkefninu fyrir Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og við heyrðum í henni. Kópavogskrónika eftir Kamillu Einarsdóttur kom út fyrir tveimur árum og vakti mikla athygli. Nú hefur þessi skemmtilega og krassandi bók verið sett upp í leikhúsbúningi og langþráð frumsýning verksins í leikstjórn Silju Hauksdóttur er á morgun. Ilmur Kristjánsdóttir fer með aðalhlutverkið og hún og höfundurinn Kamilla kíktu til okkar í morgunkaffi. Tónlist: Angurværð - Ferðalangur. Greentea Peng - Hu Man. Ingó veðurguð - Takk fyrir mig. Arlo Parks - Black dog. Svavar Knútur og Helgi Júlíus - Haustlauf. Stefán Hilmarsson - Súkkulaði og sykur. Van Morrison - Moondance. Gashi - Mama (ft. Sting). Emilíana Torrini - Me and Armini. Auður - 2020 (ft. Valdimar Guðmundsson og Clubdub).

Framtíð Bíó Paradísar er enn óljós. Kvikmyndahúsið er lokað en stjórnendur vonast enn til þess að ríki og borg bjargi bíóinu, en reksturinn getur ekki staðið undir hækkandi leigu. Fjölmargir hafa lýst yfir áhyggjum sínum á undanförnum mánuðum og nýlega hefur fjöldi fólks deilt persónulegum minningum sínum frá bíóinu. Við heyrum minnningar frá Bíó Paradís. Við heyrum um andlát einnar fyrstu Youtube-stjörnunnar, manns sem vakti athygli og aðdáun fyrir barnslega undrun sína og hrifnæmi. Kvikmyndin Seberg sem kom út á dögunum hefur vakið gríðarlega athygli en hún fjallar meðal annars um ofsóknir bandarísku alríkislögreglunnar á hendur kvikmyndaleikkonunni Jean Seberg. Hún framdi sjálfsmorð í kjölfar ofsókna FBI. Þórður Ingi Jónsson rýnir í sögu þessarar gleymdu stórleikkonu. Og Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í sjónvarpsþættina The Expanse, sem byggja á vísindaskáldsögum eftir James SA Corey. Þættirnar gerast á 24. Öldinni en geta þó varpað áhugaverðu ljósti á okkar eigið þjóðfélag og samfélagsskipulag.

Loksins megum við fara aftur í bíó.
Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days verður haldin í sjötta sinn dagana 12. til 22. mars 2020 í Bíó ParadíS. Hátíðin er kvikmynda- og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvikmyndabransanum og er haldin í Bíó Paradís í samvinnu við öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi og stendur yfir í 11 daga. Með hátíðinni var Kvikmyndahátíð Reykjavíkur endurvakin undir nýju nafni en hún var síðast haldin árið 2001 og var upphaflega sett á laggirnar árið 1978. Við töluðum við dagskrárstjórann Rósu Ásgeirsdóttur í þættinum í dag. Þann 15.mars fyrir 95 árum var langafi Ragnhildar Birgisdóttur, L.H.Muller ásamt þremur öðrum á leiðinni norður á Akureyri með gufuskipi. Framundan hjá þeim var ferð á skíðum suður Sprengisand. Ferð sem þeir kláruðu. Þeir lentu í misjöfnu veðri og voru oft í hættulegum aðstæðum en einnig upplifðu þeir hálendið í sínu fegursta skarti við mjög góð skilyrði. Ragnhildur sagði okkur frá þessu merkilega ferðalagi og hver tilgangurinn hafi verið. Ættfræðigrúsk - fjölskyldusaga þín á netinu heitir námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands undir stjórn Stefáns Halldórssonar, rekstrarhagfræðings og félagsfræðings. Á námskeiðinu verður þeim sem það sækja kennt hvernig hægt er að nýta sér gagnagrunna og skjalasöfn á netinu til að afla upplýsinga um sögu fjölskyldna þeirra allt að 200 ár aftur í tímann. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig tölvan er notuð við gagnaleitina og gefin eru hagnýt ráð til að bregðast við villum og veikleikum í gagnasöfnunum. Við heyrðum í Stefáni í þættinum í dag. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Eva Sigurðardóttir hefur framleitt fjölda stuttmynda, heimildamynda og komið að framleiðslu íslenskra kvikmynda. Eva Stofnaði framleiðslufyrirtækið Askja Films árið 2013 en áður bjó hún og starfaði við kvikmyndaframleiðslu í Bretlandi. Eva leikstýrði og framleiddi stuttmyndina “Regnbogapartý“ sem hlaut meðal annars stuttmyndaverðlaun Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík og Edduverðlaun fyrir bestu stuttmynd þessa árs. Umsjón: Vera Sölvadóttir. (Frá 2016)

Love is Blind nefnast raunveruleikaþættir sem njóta mikla vinsælda á Netflix um þessar mundir. Þættirnir bjóða upp á nýjan snúning á hefðbudna stefnumótaþætti, tilhugalíf þátttakenda fer fram án þess að þeir fái að hittast í eigin persónu. Nokkur hópur íslendinga hefur tekið ástfóstri við þáttunum, við ræðum við eina þeirra Evu Ruza í Lestinni í dag. Kvikmyndahátíðin í Berlín fór fram í sjötugasta skipi á dögunum. Það var íranska kvikmyndin There is no evil hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar í ár, en Ásgeir Ingólfsson tíðindamaður Lestarinnar í mið-Evrópu, fjallar um þrjár aðrar kvikmyndir sem sýndar for á hátíðinni: Shirley, Last and First men og svo myndina sem honum fannst bera höfuð og herðar yfir aðrar myndir á hátíðinni First Cow. Sjónleikar er tilraun til þýðingar á hugtakinu audio-visual performans, lifandi flutningur á myndefni og tónum. Tvíeykið Unfiled, sem er skipað þeim Atla Bollasyni og Guðmundi Úlfarssyni, hefur haldið úti hálfgerðri tilraunastofu um sjónleika undanfarna mánuði. En á föstudag opna þeir sýninguna Skjáskot í Ásmundarsal þar sem þeir leika sér með afrakstur vinnunnar.

Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í kvikmyndirnar Little Women og Portrait of a Lady on Fire. Í tilefni að sýningu nýjustu kvikmyndar Romans Polanski, J'accuse, eða Ég ákæri, sem sýnd er á franskri kvikmyndahátíð rifjum við upp eitt frægast dómsmál sögunnar, Dreyfus-málið, sem tvístraði frönsku samfélagi um aldamóin 1900. Liðsforingi í franska hernum, gyðingurinn Alfreð Dreyfus var dæmdur fyrir njósnir og landráð en reyndist saklaus. Og við kynnum okkur upplýsingar sem varpa nýju ljósi á sögu titrarans.

Halldór Armand Ásgeirsson flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um niðurskurð og hagræðingu. Meðal þess sem hann snertir á pistlinum er Jókerinn, Thomas Picketty og niðurskurður á stafrófinu. „Kvikmyndahús eru orðin að skemmtigörðum,“ sagði hinn virti bandaríski kvikmyndaleikstjóri Martin Scorcese á dögunum og gagnrýndi bíómyndir Marvel-myndasögurisans harkalega. Orð leikstjórans hafa kveikt heitar umræður á netinu um gildi og gæði ofurhetjukvikmynda sem hafa verið áberandi í kvikmyndahúsum undanfarinn áratug. Í Lestinni í dag verður spurt hvort Scorcese hafi eitthvað til síns máls, eða hvort þetta sé bara nöldur í gömlum karli? Ásgrímur Sverrisson og Gísli Einarsson takast á um gildi og gæði Marvel-kvikmyndanna - og þeim er heitt í hamsi. Og við höldum á söguslóðir. Hressingarskálinn við Austurstræti var reistur árið 1805 og var þá kallað „svenska húsið.“ Síðan þá hefur ýmisstarfssemi verið rekin í húsinu - það hefur verið embættisbústaður, kaffihús og McDonalds - en nú vonast nýjir eigendur til að það muni glæða íslenska tónleikamenningu lífi.

Kominn er til landsins Don nokkur Conreaux, 84 ára gongmeistari, en hann er meðal leiðbeinanda á námskeiði í gongfræðum sem lýkur með tónleikum á laugardag. Þar munu 20 gong hljóma saman. Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir var á línunni hjá okkur og fræddi okkur aðeins um þetta merkilega hljóðfæri. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, kíkti til okkar og ræddi lyfjaskort en Morgunblaðið greindi frá því í gær að upp hefðu komið 45 tilfelli um lyfjaskort fyrstu fjóra mánuði ársins. Við spurðum hvaða lyf eru þetta, hvaða ástand skapast þegar þau vantar og hvað er hægt að gera? Kvikmyndahátíðin í Cannes er farin af stað og þar er mikið um dýrðir að venju. Hrönn Marínósdóttir frá RIFF, Reykjavík International Film Festival er þar stödd og við slógum á þráðinn suður til Cannes og heyrðum hvað þar ber helst til tíðinda. Þyrí Steingrímsdóttir birti stöðufærslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hún gagnrýnir framgöngu Ólafs Jóhannssonar, sóknarprests í Grensáskirkju, og Einars Gauts Steingrímssonar, lögmanns Ólafs. Þyrí var lögmaður kvenna sem ásökuðu Ólaf um kynferðislega og kynbunda áreitni en hann hefur snúið aftur til starfa í óþökk biskups, eftir að hafa verið veitt tímabundin lausn frá störfum vegna málsins. Þyrí kom til okkar og fór yfir málið. Anna Sigríður Þráinsdóttir mætti til okkar með sinn vikulega pistil um íslenskt mál og fjallaði þ.á.m. um garðálfa, babb í bátinn o. fl. Tónlist: Jónas Sig - Milda hjartað. Mahmood - Soldi. Clocks -Coldplay. Charlotte Gainsburgh - Deadly Valentine. Bubbi - Velkominn. Hjálmar - Taktu þessa trommu. Wings - With a little luck. Peter Gabriel - Solsbury Hill. Albatross - Ég ætla að skemmta mér.
Efni Lestarinnar í dag: Kvikmyndahátíðin Stockfish hófst í Bíóparadís í gær, þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin en hátíðin leggur áherslu á metnaðarfulla dagskrá, og einungis sýndar sérvaldar alþjóðlegar verðlaunamyndir á hátíðinni. Heiða Jóhannsdóttir fjallar í Lestinni í dag um opnunarmynd hátíðarinnar, An Ordinary man, með þeim Heru Hilmarsdóttur og Ben Kingsley í aðalhlutverkum, en einnig um rússnesku kvikmyndina Loveless og A Fantastic woman, verðlaunamynd frá Chile. Gunnur Martinsdóttir Schlüter er sérfræðingur í hári eftir að hún skrifaði forvitnilega BA-ritgerð um táknmyndir hárs í þýsku leikhúsi og leikhúsheimi. Atli Bollason hringdi í Gunni og fékk að fræðast nánar um málið auk þess að lesa brot úr ókláruðu leikriti Gunnar sem byggir á rannsóknarefninu, meira um það í Lestinni í dag. Og Tinnabók dagsins er Dularfulla stjarnan, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Sævar Helgi Bragason. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days verður haldin í fjórða sinn dagana 1. til 11. mars 2018 í Bíó Paradís. Þarna er um að ræða kvikmynda- og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvikmyndabransanum og er haldin í samvinnu við Bíó Paradís og öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi. Við rýndum aðeins í dagskrá hátíðarinnar og heyrðum einnig af mömmu - og pabbabíói með þeim Ásu Baldursdóttur dagskrár - og kynningarstjóra, og Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastjóra Bíó Paradís. Ekki er komið nægilega á móts við foreldra ungra barna hér á landi, segir Valtýr Stefánsson, barnalæknir á Barnaspítala Hringsins. Foreldrar séu oft mjög þreyttir á álaginu sem fylgir veikindum barnanna fyrstu árin. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Valtý um álag á foreldra á Heilsuvaktinni í dag. Á dögunum var stofnaður hópur á facebook sem ber heitið Stelpó í Grundó. Þar er vettvangur fyrir kvenkyns Grundfirðinga til að hópa sig saman til hvers kyns dægrastyttingar og leik í skammdeginu. Markmiðið er að auðvelda konum að sameinast í skemmtilegum athöfnum „Nú þegar er búið að stofna prjónahóp og brennóhóp“ segir Elsa Fanney Grétarsdóttir sem stofnaði hópinn. Við hringdum vestur og heyrðum meira um þetta skemmtilega framtak í þættinum. Umsjón í dag Hrafnhildur Halldórsdóttir og Gunnar Hansson
Andrea Segre skrifaði handritið og leikstýrði myndinni Io Sono Li, sem var frumsýnd á Fenyjadögum (Venice Days) á 68. Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2011. Myndin... More The post Io Sono Li (2011) appeared first on Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast. Io Sono Li (2011) was first posted on May 8, 2015 at 8:49 pm.©2015 "Fred Icelandic Channel". Use of this feed is for personal non-commercial use only. If you are not reading this article in your feed reader, then the site is guilty of copyright infringement. Please contact me at radio@fred.fm
Kvikmynda er notið sem ,listviðburða’, og þar sem um sviðslist er að ræða eru viðburðirnir oftast kallaðir ,hátíðir’. The post 6 – Kvikmyndahátíðir #FilmLiteracy appeared first on Fred Icelandic Channel » FRED Iceland Podcast. 6 – Kvikmyndahátíðir #FilmLiteracy was first posted on February 7, 2015 at 5:46 pm.©2015 "Fred Icelandic Channel". Use of this feed is for personal non-commercial use only. If you are not reading this article in your feed reader, then the site is guilty of copyright infringement. Please contact me at radio@fred.fm