illverk

Follow illverk
Share on
Copy link to clipboard

Ég heiti Inga Kristjáns og er þáttstjórnandi illverk.Ég hef alltaf haft áhuga á öllu sem tengist true crime, ég veit að það eru fleiri þarna úti sem gera það líka. illverk er glæpa podcast sem fjallar um illverk sem fólk hefur framið.

illverk


    • May 1, 2025 LATEST EPISODE
    • every other week NEW EPISODES
    • 42m AVG DURATION
    • 252 EPISODES
    • 2 SEASONS

    4.8 from 113 ratings Listeners of illverk that love the show mention: takk, aukahlj, ttir.



    Search for episodes from illverk with a specific topic:

    Latest episodes from illverk

    Gordon Cummins "The Blackout Ripper"

    Play Episode Listen Later May 1, 2025 10:00


    Gordon Frederick Cummins var breskur raðmorðingi þekktur sem "Blackout Killer" því hann gekk um götur London í leit af fórnarlömbum á meðan allt var dimmt. Stjórnvöld Bretlands ákváðu að hafa Black Outs eða Blitz til að forðast loftárásir frá Þýskalandi. Hann myrti fjórar konur og reyndi að myrða tvær aðrar á sex daga tímabili í London í febrúar 1942. Hann er einnig grunaður um að hafa framið tvö fyrri morð í október 1941. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    Morðið á Carol Morgan "Kaupmaðurinn á horninu"

    Play Episode Listen Later Apr 11, 2025 10:00


    Þann 13 ágúst árið 1981 fannst hin 36 ára gamla Carol Morgan látinn inná lager í litlu búðinni sem hún rak ásamt eiginmanni sínum Allan í bænum Linslide í Leighton Buzzard, Bedfordshire á Englandi. Það var ansi augljóst að Carol hafði verið myrt á meðan eiginmaður hennar og börnin hennar tvö úr fyrra hjónabandi voru í bíó. Viðamikil rannsókn fór af stað, en átti sannleikurinn ekki eftir að koma í ljós fyrr en 40 árum síðar, þegar vitni steig loksins fram. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    178 Þáttur: Emilia Kaldars │ Sænskt Sakamál

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2025 48:34


    Hin sænska Emilia Kaldars Sjöberg var aðeins 14 ára gömul þegar hún fór í fyrsta náttfatapartýið sitt en snéri aldrei heim. Ég fékk þann heiður að ræða við móður hennar Anna Sjöberg sem gaf mér ómetanlega innsýn inní mál dóttur sinnar. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    Renae Marsden | Besta vinkona mín eða kærastinn minn?

    Play Episode Listen Later Feb 28, 2025 10:00


    Renae Marsden var tvítug stelpa frá Sydney, Ástralíu. Hún bjó með foreldrum sínum og gekk vel í lífinu. Hún hafði átt nokkra kærasta en þegar besta vinkona hennar kynnti hana fyrir Brayden Spiteri var ekki aftur snúið. Þau voru yfir sig ástfangin og sögðu þau ítrekað við hvort annað að þau myndu fórna lífinu fyrir hvort annað ... eitthvað sem Renae átti eftir að standa við. En ástæðan fyrir því er langt frá því að vera sú sem þau lögðu upp með í byrjun. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    Joseph & Lauren DeWise "Vælandi Vídjó Morðinginn"

    Play Episode Listen Later Feb 27, 2025 10:00


    Lauren Walder og Jospeh Dewise kynntust þegar þau voru bæði að kenna í Bailey Middle School í Pensacola í Florida. Fyrir átti Joseph tvö börn og saman áttu þau eftir að eignast eina dóttur. Eftir að þau gifta sig setjast þau að í bænum Bozman í Montana og virtist framtíðin björt. Bakvið luktar dyr var hjónabandið þó allt annað en bjart. Jospeh var stjórnsamur, öfundsjúkur og óöruggur sem varð til þess að Lauren hætti að vera hrifinn af honum. Joseph ætlaði sér ekki að missa eiginkonu sína og gerði allt til að ná henni til baka, en þegar hann fékk ekki viðbrögðin sem hann vildi tók hann málin í eigin hendur. Ef hann gat ekki fengið Lauren, gat það engin. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    Return To Nature | Hrollvekju Útfararstofa Jon & Carie Hallford

    Play Episode Listen Later Feb 19, 2025 10:00


    Hjónin Jon & Carie Hallford stofnuðu útfararstofuna "Return To Nature" árið 2019. Þeim langaði að kynna á markað vistvænni aðferðir í útfarar þjónustu og var það markmið fyrirtækisins að "Go Green" Jon var þriðji ættliður útfararþjónustu bransa fjölskyldunnar en bæði afi hans og pabbi voru í þessu frá því þeir voru ungir menn. Vegna þess virti fólk Return To Nature og fengu hjónin inn mjög marga kúnna um leið og þau opnuðu árið 2019. Staðreyndin var þó sú að þau áttu greinilega ekki fyrir tækjum og tólum sem þurfti til að reka útfararstofu... þrátt fyrir það tóku þau við látnum einstaklingum og rukku fjölskyldu og ástvini fyrir þjónustu þeirra ... en í stað þess að gera það sem þau lofuðu að gera, stöfluðu þau hinum látnu inní herbergi útfararstofunnar og leifðu þeim að rotna þar. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    Evelyn Boswell | Loksins Réttlæti! Megan Boswell SEK

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2025 10:00


    Árið 2023 fórum við yfir mál hinnar 13 mánaða gömlu Evelyn Mae Boswell. Hún sást síðast á lífi þann 26 nóvember árið 2019 & í 2 og hálfan mánuð vissi engin hvar hún var. Mamma hennar Megan Boswell kom fram í fjölmiðlum & grátbað um að Evelyn væri skilað öruggri heim. Þegar við kvöddumst í þeim þætti voru upplýsingar í lausu lofti, en í þessum uppfærslu þætti förum við yfir réttarhöld Megan Boswell, öll sönnunargögnin og LOKSINS, þann 14 febrúar 2024 fékk Evelyn litla réttlætið sem hún átti skilið. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    Ben & Erika Sifrit "The Thrill Killers"

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2025 10:00


    Í maí árið 2002 skelltu þau Martha Cruchley og Joshua Ford sér til Ocean Beach í Maryland í smá frí. Þeim vantaði smá pásu frá skrifstofu störfunum sínum og sáu það í hillingum að komast aðeins í burtu og gera eitthvað allt annað en þau gerðu vanalega. Laugardagskvöldið 25 maí árið 2002 skella þau sér á skemmtistaðinn Seacrets, þar sem þau eyða kvöldinu með ungu hjónunum Erika og Benjamin Sifrit. Þau þáðu svo boð um að koma með þeim heim í heita pottinn. Boð sem átti eftir að verða þeirra síðasta, en ekki hafði þeim grunað að þau þau hefðu þarna komist í kynni við fólks, sem lifði eftir bíómyndinni "Natural Born Killers" og var til í að gera hvað sem er fyrir aukna spennu í lífið. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    177 Þáttur: Morðið á Sherri Rasmussen "Ég veit hvað hann vill"

    Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 65:49


    Fyrir næstum því fjórum áratugum, þann 24 febrúar árið 1986 átti sér stað dularfullt morð í úthverfi norður af Los Angeles borg. Morð númer 136 árið 1986 sem áttu því miður eftir að verða töluvert fleiri. Á þessum tíma gengu einnig mikið af alræmdustu rað morðingjum fyrr og síðar lausir sem átti eftir að trufla rannsókn málsins töluvert og það hjálpaði heldur ekki að DNA rannsóknartækni var á grunn stigi. Margir mismunandi þættir leiddu til þess að þetta dularfulla morðmál kólnaði ofan í skúffu lögreglunnar í Los Angeles í rúm 20 ár. Nokkrum sinnum yfir þessa tvo áratugi var málið tekið upp aftur og gögn þess skoðuð en alltaf kom eitthvað uppá sem varð til þess að því var hent aftur ofan í skúffu. Í ferlinu glötuðust mikilvæg sönnunargögn, lögregla fór á mis við einstaklinga sem hefðu getað varpað ljósi á málið og ég skil með öllu hjarta að fjölskylda og nánustu aðstandendur hafi misst alla von. Það er óréttlátt að vita til þess að morðinginn fái að halda áfram með líf sitt eftir að hafa tekið líf saklausrar manneskju sem átti framtíðina fyrir sér ... og það sem gerir þetta enn óréttlátara er að morðinginn hélt ekki bara áfram að lifa og ganga um frjáls, heldur byggði hann upp frábært líf sem mörgum gæti aðeins dreymt um. En óréttlætið lifði blessunarlega ekki að eilífu og átti karma eftir að banka uppá að lokum. Afhverju það tók svona langan tíma og hverjir áttu raunverulega í hlut er svo önnur saga, sem er alveg jafn mikilvæg að mínu mati ... og í dag ætlum við að skoða þessa sögu, kynnast öllum sem koma fyrir í henni og virkilega skoða hvað og afhverju hin 29 ára Sherri Rasmussen var myrt.   Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    176 Þáttur: The Murder Of Laken Riley (Áskrift)

    Play Episode Listen Later Nov 29, 2024 10:00


    Hin 22 ára gamla Laken Hope Riley var 22 ára gamall hjúkrunarfræðinemi á lokaári við háskólann í Augusta, Georgia í Bandaríkjunum. Þann 22 febrúar árið 2024 fór hún út að hlaupa, líkt og hún gerði alla aðra morgna. Laken átti aldrei eftir að koma aftur heim og átti Garmin úrið sem hún bar eftir að segja sögu þess sem kom fyrir hana í þessum örlakaríka hlaupatúr. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    175 Þáttur: Leilani Simon - The Landfill Murder

    Play Episode Listen Later Nov 23, 2024 61:17


    Leilani Maree Simon er bandarísk kona frá Savannah í Georgíu, sem var ákærð og fundin sek um morð á 20 mánaða syni sínum, Quinton Simon. Hún tilkynnti hann horfin 5. október 2022 og sagðist hafa séð hann kvöldið áður. Eftir umfangsmikla leit fundust líkamsleifar Quinton á ruslahaugum í nóvember.

    174 Þáttur: Carly Gregg │ "The Teen Killer"

    Play Episode Listen Later Nov 16, 2024 48:50


    Réttarhöld hinnar 15 ára gömlu Carly Madison Gregg er í gangi í þessum töluðu orðum. Hún er sek um að hafa orðið 40 ára móður sinni að bana þann 19 mars síðastliðinn, ásamt því að reyna að myrða stjúpföður sinn með sömu byssu. Þetta mál er einstaklega áhugavert á svo marga vegu og spurningin sem maður veltir fyrir sér aftur og aftur er, afhverju gerði hún þetta? Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    173 Þáttur: Mál Gisele & Dominique Pelicot

    Play Episode Listen Later Nov 11, 2024 54:23


    Hjónin Gisele & Dominique Pelicot voru sögð fullkomin saman. Þau voru búsett í Frakklandi, hamingjusamlega gift í 40 ár og áttu saman 3 börn. Þegar Gisele fór að veikjast stóð Dominique þétt við bakið á henni og studdi hana eins og hann hafði alltaf gert. Engum hefði grunað að það væri hann sem var að gera hana veika og hafði gert það í rúman áratug. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    172 Þáttur: The Hanson Family Murders

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2024 62:09


    Þann 28 september árið 2005 átti sér stað skelfileg morð sem þurrkaðu út meiri hluta Hanson fjölskyldunnar. Fyrir áttu þau allt til alls og lifðu þennan "Ameríska draum" sem svo margir óska sér. Því miður er það oft þannig að þegar vel gengur, verður til öfund og græðgi - tilfinningar sem áttu eftir að stíga meðlim fjölskyldunnar til höfuðs.  Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    171 Þáttur: The Black Swan Murder | Ashley & Doug Benefield

    Play Episode Listen Later Aug 17, 2024 64:02


    Ashley var aðeins 24 ára gömul þegar hún kynntist hinum 54 ára Doug Benefield. Ashley, fyrrverandi ballerína heillaðist strax af Doug sem varð níu mánuðum áður ekkill. Doug fannst Ashley fallegasta kona sem hann hafði augum litið og hún gaf henni von um að elska á ný. Þau giftu sig þrettán dögum eftir að þau kynntust fyrst. Ótrúleg ástarsaga endaði þannig að Ashley er nýbúin að fara í gegnum réttarhöld, talin sek um að skjóta Doug til bana. Hún segir morðið framið í sjálfsvörn á meðan margir halda að hún hafi einfaldlega þráð að losta við hann. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    170 Þáttur: Murder In Ålborg │ Mia Skadhauge Stevn

    Play Episode Listen Later Aug 10, 2024 40:42


    Það var loksins komið að því! Ekki nóg með það að öllum reglum var aflétt þegar kom að Covid 19, heldur var hin 22 ára gamla Mia Stevn að klára annað árið sitt í hjúkrunarfræði. Aðal partýgatan í Aalaborg í Danmörku var pökkuð af fólki á öllum aldri og var Mia ein af þeim sem hlakkaði til að skemmta sér. Engum hefði grunað að þetta ætti eftir að verða hennar síðasta djamm ... Mia sást aldrei framar á lífi eftir að hún settist uppí svartan bíl. Það leið ekki á löngu þar til hvarf hennar varð umtalað um allt land og situr enn sem fastast í minnum Dana. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    covid-19 murder skr ekki mia skadhauge stevn
    169 Þáttur: The Murder Of Timothy Ferguson │ Shanda VanderArk & Paul Ferguson

    Play Episode Listen Later Aug 3, 2024 68:17


    Shanda VanderArk 44 ára, fimm barna móðir, var dæmd til lífstíðar í fangelsi fyrir morð og barnaníð í tengslum við dauða 15 ára sonar hennar Timothy Ferguson. Timothy fannst látinn 6. júlí 2022 á heimili Vander Ark fjölskyldunnar í Norton Shores. Shanda var ekki ein að verki, heldur aðstoðaði 20 ára sonur hennar Paul Ferguson hana við að níðast á Timothy þar til hann lést. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ

    168 Þáttur: The Soham Murders │ Jessica Chapman & Holly Wells

    Play Episode Listen Later Jul 27, 2024 52:00


    Í þætti dagsins bregðum við okkur til Soham í Cambridgeshire á Englandi. Bærinn er rólegur og fjölskylduvænn með lága glæpatíðni, flokkaður sem „smábær“ en þar búa um 12.000 manns.   Soham er frægur fyrir sögulega kirkju sína St. Andrew‘s & Soham járnbrautarslysið sem átti sér stað í seinni heimstyrjöld. Kirkjan og lestarslysið eru þó ekki einu hörmungarnar sem bærinn er þekktur fyrir og alls ekki það fyrsta sem kemur upp þegar þú skrifar nafnið „Soham“ í leitarvél internetsins.   Það fyrsta sem kemur upp er saga þeirra Holly Wells og Jessicu Chapman, þær voru 10 ára vinkonur sem hurfu sporlaust þann 4 ágúst árið 2002 & hefur mál þeirra fengið viðurnefnið: „The Soham Murders“   Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

    167 Þáttur: Wade Wilson "The Deadpool Killer"

    Play Episode Listen Later Jul 20, 2024 54:46


    Réttarhöld hins þrítuga Wade Wilson hafa vakið mikla athygli um allan heim. Hann var á dögunum dæmdur fyrir að verða þeim Kristine Melton og Diane Ruiz að bana, konur sem hann þekkti lítið sem ekkert. Það verður ákveðið á komandi vikum hvort hann verði dæmdur til dauða eða eyði restinni af sínu náttúrulega lífi í fangelsi. Í þætti dagsins förum við yfir málið í heild sinni, æsku ár hans og athugum hvort við finnum upptök skrímslisins sem hann er orðinn.   Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

    166 Þáttur: Réttarhöld Karen Read │ Hvað Kom Fyrir John O'Keefe?

    Play Episode Listen Later Jul 13, 2024 71:01


    í þessum töluðu orðum bíður Karen Read örlaga sinna. Hún var dæmd fyrir morðið á kærastanum sínum John O'Keefe sem fannst látin úti í snjónum árið 2022 eftir að parið hafði verið úti að skemmta sér með vinum. Karen vill þó meina að spillt lögregla sé að klína morðinu yfir á hana. Gögn málsins eru það sláandi að dómari ákvað "mis-trial" smá Karen mun halda af stað í réttarhöld númer 2. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

    165 Þáttur: Ali Abulaban "The TikTok Star Killer"

    Play Episode Listen Later Jul 6, 2024 66:26


    ᴀʟɪ ᴀʙᴜʟᴀʙᴀɴ "ᴛɪᴋ ᴛᴏᴋ sᴛᴀʀ ᴋɪʟʟᴇʀ " ᴛʜᴇ ᴍᴜʀᴅᴇʀ ᴏғ ᴀɴᴀ ᴀʙᴜʟᴀʙᴀɴ Ali & Ana Abulaban voru upprennandi TikTok stjörnur sem áttu framtíðina fyrir sér. Engin vissi þó hvað átti sér stað bakvið luktar dyr & þann 21 október árið 2021 kom í ljós sönn hlið Ali, sem var að sturlast úr öfund. Ef að þið kannist við aðstæðurnar sem ég ræði í þættinum úr ykkar eigin lífi, hvet ég ykkur til að skoða úrræðin hér að neðan. Ég lofa að þú ert aldrei einn/ein/eitt og það er lausn til fyrir þig.   Kvennaathvarfið – Sími: 561-1205 Bjarkahlíð Reykjavík – Sími 553-3000 Bjarmahlíð Akureyri – Sími: 551-2520 Stígamót – sími 562-6868 Heimilisfridur.is 112 - Aldrei hika að hringja! Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

    The Horrorcore Killer │ Seinni Hluti

    Play Episode Listen Later Apr 30, 2024 41:13


    Hinn átján ára gamli Richard Alden lifði nær öllu sínu félagsslífi á Myspace og þegar hann kynntist þar "Horrorcore" samfélaginu, var ekki aftur snúið. Richard var heldur óheppinn þegar kom að stelpum og hafði átt það virkilega erfitt félagsslega síðan hann var ungur. Það breyttist þó á svipstundu þegar hann kynntist ástinni í lífi sínu, hinni sextán ára gömlu Emmu Kelley Niederbrock. Horrorcore sameinaði þau og varð á endanum ástæðan fyrir því að þau hittust í fyrsta sinn. Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að hrifing Emmu á Richard var ekki eldurgoldin og átti þessi saklausa Myspace ást eftir að leiða að hinu skelfilegasta morðmáli sem Virgina hefur séð í áratugi. Skráðu þig í illverk áskriftina HÉR Í BOÐI: - SIXT LANGTÍMALEIGA - K18 Á ÍSLANDI   Fylgdu Illverk á instagram til að sjá fleiri myndir frá málunum! Smelltu HÉR

    The Horrorcore Killer │Fyrsti Hluti

    Play Episode Listen Later Apr 15, 2024 42:32


    Hinn átján ára gamli Richard Alden lifði nær öllu sínu félagsslífi á Myspace og þegar hann kynntist þar "Horrorcore" samfélaginu, var ekki aftur snúið. Richard var heldur óheppinn þegar kom að stelpum og hafði átt það virkilega erfitt félagsslega síðan hann var ungur. Það breyttist þó á svipstundu þegar hann kynntist ástinni í lífi sínu, hinni sextán ára gömlu Emmu Kelley Niederbrock. Horrorcore sameinaði þau og varð á endanum ástæðan fyrir því að þau hittust í fyrsta sinn. Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að hrifing Emmu á Richard var ekki eldurgoldin og átti þessi saklausa Myspace ást eftir að leiða að hinu skelfilegasta morðmáli sem Virgina hefur séð í áratugi. Skráðu þig í illverk áskriftina HÉR Í BOÐI: - SIXT LANGTÍMALEIGA - K18 Á ÍSLANDI   Fylgdu Illverk á instagram til að sjá fleiri myndir frá málunum! Smelltu HÉR

    The Van Halen Killer │ Seinni Hluti

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2024 44:14


    Þann 1 maí árið 1990 kom hin 23 ára gamla Pamela Ann Smart heim eftir langan dag í vinnunni. Hún bjóst við að eiginmaður hennar Greggory Smart tæki á móti henni og sömuleiðis hundurinn þeirra Halen, sem var alltaf spenntur að fá hana heim. Í staðinn tók á móti henni alger hrollvekja sem átti eftir að koma af stað rannsókn sem hægt og rólega fletti ofan af lygum, svikum, kynlífi og peningum. Ekki er allt sem sýnist ... Þú finnur þáttinn í heild sinni í illverk áskriftinni. Hann var upprunalega gefin út: 31 janúar 2024. Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU K18 Á ÍSLANDI   WWW.ILLVERK.IS

    The Van Halen Killer │ Fyrsti Hluti

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2024 40:17


    Þann 1 maí árið 1990 kom hin 23 ára gamla Pamela Ann Smart heim eftir langan dag í vinnunni. Hún bjóst við að eiginmaður hennar Greggory Smart tæki á móti henni og sömuleiðis hundurinn þeirra Halen, sem var alltaf spenntur að fá hana heim. Í staðinn tók á móti henni alger hrollvekja sem átti eftir að koma af stað rannsókn sem hægt og rólega fletti ofan af lygum, svikum, kynlífi og peningum. Ekki er allt sem sýnist ...

    Dalia & Michael Dippolito │ Seinni Hluti

    Play Episode Listen Later Mar 17, 2024 67:18


    Michael Dippolito kynntist ástinni í lífinu sínu árið 2008. Eftir ansi erfitt líf, trúði hann varla hversu heppinn hann var að hafa fundið Daliu Mohammed. Hún er gullfalleg, skemmtileg, ótrúlega sjálfstæð og átti sitt eigið fyrirtæki sem að þénaði vel. Það eru þó ansi mörg rauð flögg sem Michael hunsaði í þessari ástarsögu, hlutir sem áttu eftir að leiða hann á stað sem hann hefði aldrei getað ýmindað sér að vera á. Þú finnur þáttinn í heild sinni í illverk áskriftinni. Hann var upprunalega gefin út: 31 janúar 2024. Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU K18 Á ÍSLANDI   WWW.ILLVERK.IS

    Dalia & Michael Dippolito │Fyrsti Hluti

    Play Episode Listen Later Mar 9, 2024 75:51


    Michael Dippolito kynntist ástinni í lífinu sínu árið 2008. Eftir ansi erfitt líf, trúði hann varla hversu heppinn hann var að hafa fundið Daliu Mohammed. Hún er gullfalleg, skemmtileg, ótrúlega sjálfstæð og átti sitt eigið fyrirtæki sem að þénaði vel. Það eru þó ansi mörg rauð flögg sem Michael hunsaði í þessari ástarsögu, hlutir sem áttu eftir að leiða hann á stað sem hann hefði aldrei getað ýmindað sér að vera á. Þú finnur þáttinn í heild sinni í illverk áskriftinni. Hann var upprunalega gefin út: 31 janúar 2024. Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU K18 Á ÍSLANDI   WWW.ILLVERK.IS

    Chandler Halderson │Seinni Hluti

    Play Episode Listen Later Dec 10, 2023 35:52


    Chandler Halderson │ Fyrsti Hluti

    Play Episode Listen Later Nov 25, 2023 35:18


    ʟᴜᴄʏ ʟᴇᴛʙʏ: ᴋɪʟʟᴇʀ ɴᴜʀsᴇ │ sᴇɪɴɴɪ ʜʟᴜᴛɪ

    Play Episode Listen Later Nov 15, 2023 61:20


    ʟᴜᴄʏ ʟᴇᴛʙʏ: ᴋɪʟʟᴇʀ ɴᴜʀsᴇ  │  sᴇɪɴɴɪ ʜʟᴜᴛɪ Þann 3 júlí árið 2018 var hin 33 ára gamla Lucy Letby handtekin, sökuð um að hafa framið skelfilega glæpi gegn þeim allra viðkvæmustu í samfélaginu. Lucy fór úr því að vera "Ljúfa Lucy" sem hafði ástríðu fyrir því að vinna á deild ungabarna á Countess of Chester hospital, yfir í að vera einn skæðasti raðmorðingi Bretlands. ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ʜᴇɪᴍᴀsᴋɪᴘᴜʟᴀɢ.ɪs • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

    Lucy Letby: Killer Nurse │ Fyrsti Hluti

    Play Episode Listen Later Nov 8, 2023 59:05


    ʟᴜᴄʏ ʟᴇᴛʙʏ: ᴋɪʟʟᴇʀ ɴᴜʀsᴇ │ ғʏʀsᴛɪ ʜʟᴜᴛɪ Þann 3 júlí árið 2018 var hin 33 ára gamla Lucy Letby handtekin, sökuð um að hafa framið skelfilega glæpi gegn þeim allra viðkvæmustu í samfélaginu. Lucy fór úr því að vera "Ljúfa Lucy" sem hafði ástríðu fyrir því að vinna á deild ungabarna á Countess of Chester hospital, yfir í að vera einn skæðasti raðmorðingi Bretlands. ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ʜᴇɪᴍᴀsᴋɪᴘᴜʟᴀɢ.ɪs • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

    Idaho Four: Frá Upphafi | Þriðji Hluti

    Play Episode Listen Later Oct 3, 2023 40:59


    ɪᴅᴀʜᴏ ғᴏᴜʀ ғʀᴀ ᴜᴘᴘʜᴀғɪ

    Idaho Four: Frá Upphafi | Annar hluti

    Play Episode Listen Later Sep 26, 2023 42:46


    ɪᴅᴀʜᴏ ғᴏᴜʀ ғʀᴀ ᴜᴘᴘʜᴀғɪ

    Idaho Four: Frá Upphafi | Fyrsti hluti

    Play Episode Listen Later Sep 19, 2023 55:14


    ɪᴅᴀʜᴏ ғᴏᴜʀ ғʀᴀ ᴜᴘᴘʜᴀғɪ

    The Chiropractor Murder | Mary Yoder

    Play Episode Listen Later Aug 19, 2023 53:39


    ᴍᴀʀʏ ʏᴏᴅᴇʀ:  Mary var fædd þann 18 mars árið 1955. Henni er lýst sem góðhjartaðri & skemmtilegri konu, sem hafði mikla ástríðu fyrir heilsusamlegu líferni & líf hennar sérist að miklu leiti um að fræða aðra. Hún var hæfileikaríkur Kírópraktor með 30 ára reynslu í faginu. Það kom öllum verulega á óvart þegar hún veiktist skindilega & lést mjög dularfullum dauðdaga. ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ʜᴇɪᴍᴀsᴋɪᴘᴜʟᴀɢ.ɪs • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

    The Summerfield Murder

    Play Episode Listen Later Jul 19, 2023 56:13


    Í dag langaði mig að gefa ykkur innsýn inn í illverk áskriftina. Þessi þáttur er einn af þeim eftirminnilegustu & kom út í nóvember árið 2022. The Summerfield Murder: Árið 2011 var hinn 15 ára gamli Seath Jackson myrtur á mjög hrottalegan hátt af fyrrverandi kærustu sinni Amber Wright, bróður hennar & öðrum góðum vinum.  Má bjóða þér að skrá þig í illverk áskriftina? Langar þig að skrá þig í illverk áskriftina & fá þannig aðgang að yfir 250 aukaþáttum & fimm nýja í hverjum mánuði? Kynntu þér endilega málið inná www.illverk.is Í BOÐI: • SIXT LANGTÍMALEIKA • K18 Á ÍSLANDI

    Mannshvarf & Morðmál: Evelyn Boswell

    Play Episode Listen Later Jun 19, 2023 37:53


    Evelyn Boswell var aðeins 15 mánaða gömul þegar hún hvarf sporlaust. Fjölskylda hennar sá hana síðast á þakkargjörðarhátíðinni 2019, en þegar febrúar mánuður leið & eftir endalaust af óljósum & loðnum svörum frá Megan, mömmu Evelyn var hringt á lögregluna. Amber Alert var tafarlaust sent út. Þá hafði barnið verið týnt í rúma tvo mánuði. Rannsókn málsins fletti ofan af mjög undarlegum fjölskyldutengslum & enn í dag er engin viss, hvað átti sér stað & hver það var nákvæmlega sem átti í hlut. ÞESSI ÞÁTTUR ER Í BOÐI: • K18 Á ÍSLANDI • SIXT LANGTÍMALEIGA • Má bjóða þér fleiri illverk þætti? • Skráðu þig í áskrift inná ILLVERK.IS - Við skráningu færð þú tafarlaust aðgang að yfir 200 aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. • Fyrir þá sem hafa gaman að hráum, spjallþáttum er nýja áskriftarleiðin einnig í boði: KENNINGAR,RANNSÓKNIR & RÉTTARHÖLD. Sú áskrift er ætluð málum sem eru í gangi núna. Þar er fjallað um kenningar, rannsóknir mála & réttarhöld - Nýjar upplýngar & glæný mál.

    Coleman Family ”Red Paint Killer”

    Play Episode Listen Later May 20, 2023 37:00


    Þessi þáttur er í boði: SIXT LANGTÍMALEIGA K18 Á ÍSLANDI

    Robert Hansen ”The Butcher Baker”

    Play Episode Listen Later May 12, 2023 5:33


    Bakari, veiðimaður ... & einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna. Þú getur hlustað á þennan þátt í heild sinni, auk þess að fá aðgang að yfir 200+ aukaþáttum með því að skrá þig í áskrift inná -> illverk.is Áskriftin kostar 950,-kr í mánuði & henni fylgir engin binding. Takk kærlega fyrir að hlusta á illverk podcast!

    THE ZODIAC KILLER

    Play Episode Listen Later May 7, 2023 5:33


      Á sjötta & áttunda áratugnum gekk raðmorðingi laus, kallaður "The Zodiac Killer" vegna undarlegra tákna sem að hann skildi eftir á morðstað & sendi á fjölmiðla. Hann myrti að minnsta kosti fimm mann, oftast ung pör á afskekktum stöðum á San Francisco svæðinu. Þú getur hlustað á þáttinn í heild sinni + yfir 200 aðra með því að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT - 950,-kr í mánuði & engin binding.  

    Mál Gannon Stauch - OPIN DAGSKRÁ

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2023 73:52


    Til þess að heyra fleiri þætti eins & þennan + yfir 200 til viðbótar - Getur þú skráð þig í illverk áskriftina, þú getur gert það HÉR

    Illverk x Murdaugh

    Play Episode Listen Later Apr 10, 2023 5:54


    Fimm þátta sería um ris og fall Murdaugh ættarveldisins, sérstaklega framleiddir fyrir áskrifendur Illverk.  - SKRÁ MIG -

    Mál Lindsay Clancy - Fæðingarsturlun & Magnaðar Reynslusögur

    Play Episode Listen Later Mar 19, 2023 148:01


    Í þessum þætti fékk ég að njóta nærveru stórmeistarans & þáttarstjórnanda Háski Podcast, Unnur Regína. Í sameiningu förum við yfir skelfilegt mál Lindsay Clancy, en fyrr á árinu var hún ákærð fyrir að verða börnunum sínum þrem að bana eftir erfiða baráttu við fæðingaþunglyndi/sturlun. Við förum sömuleiðis yfir hinn ýmsa fróðleik/upplýsingar þegar kemur að líðan kvenna eftir barnsburð, ásamt því að skoða magnaðar reynslusögur Íslenska kvenna sem voru góðar að deila með okkur sögunum sínum. Við erum mjög þakklátar þeim & þeirri innsýn sem frásagnir þeirra veittu okkur. www.illverk.is

    Susan Wright ”The blue eyed butcher”

    Play Episode Listen Later Feb 19, 2023 35:46


    Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU & GYÐJA.IS   www.illverk.is

    Karl Karlsen ”The biggest piece of shit in the world” (ÁSKRIFT)

    Play Episode Listen Later Feb 17, 2023 5:33


    Það er ótrúlegt hvað sumar fjölskyldur þurfa að ganga í gegnum. Karl Karlson missti eiginkonu sína í skelfilegum húsbruna og son sinn í skelfilegu slysi. Ekki nó með það, heldur kveiknaði líka í hesthúsinu hans og glænýja bílnum hans, sem hann eyddi öllum sínum pening í að kaupa. En ... 30 árum seinna, kom í ljós að þessi atvik voru ekki beint óheppni, heldur tækifæri sem sem að Karl Karlsen "nýtti sér" Það er ekki að ástæðulausu að gæinn hefur fengið viðurnefnið "The biggest piece of shit in the world" Þessi þáttur er í áskrift! Til að hlusta á hann í heild sinni þarft þú að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT - Við skráningu færð þú einnig aðngang að yfir 200+ aukaþáttum, fimm nýja þætti í hverjum mánuði og þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 950,-kr á mánuði og henni fylgir engin binding. www.illverk.is

    ”The Boy In The Box” Joseph Augustus Zarelli (ÁSKRIFT)

    Play Episode Listen Later Feb 7, 2023 5:33


    Saga stráksins í kassanum eða "The Boy In The Box" einnig þekkt sem málið um "Americas Unknown Child" Hefur legið eins og mara á Bandaríkjunum síðan ungi drengurinn fannst í pappakassa þann 25. febrúar árið 1957. Í fyrstu taldi lögregla mjög líklegt að niðurstaða fengist í málið en þegar hver áratugurinn á fætur öðrum leið og engin vildi kannast við barnið - fór vonin að dvína. Með ótrúlegri þróun í DNA tækni, átti sér stað mögnuð þróun í málinu árið 2019 og drengurinn, sem hafði verið sviftur bæði lífi sínu og nafni - Endurheimti loksins nafnið sitt aftur. Ekki nóg með það, heldur leiddi rannsókn í ljós nöfn foreldra hans og annara skyldmenna. Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT  Það kostar þig 950,- á mánuði að vera í áskrift og hún veitir þér aðgang að yfir 200 aukaþáttum, eða öllum þeim sem hafa komið út í áskriftinni síðan hún fór í loftið 2020.  www.illverk.is

    The Amazon Review Killer (ÁSKRIFT)

    Play Episode Listen Later Jan 24, 2023 5:33


    Todd Kohlepp þótti einstaklega sjarmerandi og áhugaverður maður. Vel menntaður, góður sölumaður, fasteignasali og flugmaður. En, það sem engum grunaði - er að í raun og veru var hann raðmorðingi sem sérstaklega keypti sér jörð til þess að geyma fórnarlömbin sín á. Þessi þáttur er í áskrift - Þú getur hlustað á hann í heild sinni með að skrá þig í áskrift HÉR - Við skráningu færð þú einnig aðgang að yfir 190+ aukaþáttum og fría þætti án auglýsinga. Áskriftin kostar 950,-kr á mánuði og henni fylgir engin binding. www.illverk.is #illverkpodcast

    Elliot Rodger - King Of Incels

    Play Episode Listen Later Jan 19, 2023 69:54


    Í BOÐI:  SIXT LANGTÍMALEIGA GYÐJA.IS  WWW.ILLVERK.IS SKRÁÐU ÞIG Í ÁSKRIFT ILLVERK ÁSKRIFT

    The Simmons Silent Night

    Play Episode Listen Later Dec 20, 2022 5:33


    Mál Ronald Gene Simmons. Sjö barna faðir, þriggja barna afi, heiðruð stríðshetja og eiginmaður ... Hljómar vel? Það sem átti sér stað á heimili Simmons fjölskyldunnar, jólin 1987 - hljómar alls ekki eins vel. Skráðu þig í illverk áskriftina HÉR

    The Trashbag Killer - Patrick Kearney

    Play Episode Listen Later Dec 10, 2022 5:33


    Raðmorðinginn Patrick Kearney gekk laus frá 1962-1977 í Suður Kaliforníu. Skelfilegar aðferðir hans til að drepa og síðan losa sig við fórnarlömbin, gaf honum með tímanum viðurnefnið "The Trashbag Killer" Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFTINA - Þú getur gert það með að smella HÉR Það kostar 950,-kr á mánuði og veitir þér aðgang að yfir 170+ aukaþáttum, þú færð fimm nýja í hverjum mánuði og fríu þættina án auglýsinga. Kynntu þér endilega málið á illverk.is

    THE 2022 IDAHO COLLEGE MURDERS

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2022 52:05


    Þann 13 nóvember síðastliðin fundust lík þeirra Kylee Goncalvez(21), Ethan Chapin (20), Xana Kernodle(20) og Madison Mogen(21) á heimili þeirra utan skólagarðana í Moscow, Idaho. Öll voru þau nemendur í háskólanum í Idaho. Rannsókn er enn í fullum gangi og í þessum þætti fer ég yfir staðreyndir málsins og það sem hefur komið upp síðustu daga. Í BOÐI: SIXT LANGTÍMALEIGU & SLEEPY Á ÍSLANDI

    Claim illverk

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel