Podcasts about anna gu

  • 23PODCASTS
  • 48EPISODES
  • 49mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Apr 3, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about anna gu

Latest podcast episodes about anna gu

Rauða borðið
Rauða borðið 3. apríl: Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 3, 2025 237:54

Rauða borðið 3. apríl Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Fida Abu Libdeh varaþingmaður Framsóknarflokksins, Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi Garðarbæjarlistans og verkefnisstjóri S78 og Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum ASÍ fóru yfir málefni flóttafólks og kerfislegar hindranir með Maríu Lilju í mjög heitum umræðum við borðið. Björn Þorláks fær góða gesti til sín til að ræða bridge, eitthvað sem Bjössi hyggst bjóða uppá reglulega næstu vikur. Þetta eru þau Matthías Imsland, Sigurpáll Ingibergsson, María Haraldsdóttir Bender, Anna Guðlaug Nielsen og Hallveig Karlsdóttur. Finnur G Olguson, leikmyndasmiður mætir til Oddnýjar með harðorða gagnrýni i garð fréttastofu RÚV í tengslum við þjóðarmorðið á Gaza. Reykjadoom er nýleg tónlistar og menningarhátíð af harðari gerðinni sem fer fram núna um helgina. Hörður Jónsson, einn skipuleggjenda leiðir okkur í allan sannleikann um Doom metal og fara yfir dagskránna með Maríu Lilju. Frosti Sigurjónsson, fyrrum alþingismaður ræðir um efasemdir sínar um loftslagsbreytingar af mannavöldum.

Samfélagið
Bómullarkynslóðin rakin upp, niðurtröppunarmóttaka, Svansmerkið

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 59:19

Barnasprengjukynslóð eftirstríðsáranna, Kynslóðin sem var með húslykil um hálsinn og horfði á MTV, Þúsaldarkynslóðin eða þumalputtakynslóðin og Zeta-kynslóðin - um tíma hefur það tíðkast að gefa kynslóðum nafn. Í dag ætlum við að ræða kynslóðirnar og einblína sérstaklega á hugtakið bómullarkynslóð - hvað felst í því? Í pallborði um þetta verða: Steinunn Anna Sigurjónsdóttir, sálfræðingur sem lengi vann með börnum, þekkir vel til kvíða og geðrænna vandamála meðal ungmenna en hefur nú beint sjónum sínum að eldra fólki og kannski ekki síst samskiptum kynslóðanna. Anna Guðrún Steinsen, markþjálfi og tómstunda- og félagsmálafræðingur sem hefur mikið kynnt sér Z-kynslóðina svokölluðu og þjálfað ungt fólk í aldarfjórðung. Einar Lövdahl, rithöfundur af þúsaldarkynslóð sem hefur meðal annars fengist við kvíða og vanlíðan ungs fólks í verkum sínum. Við heyrum af nýjung í íslenskum heilbrigðismálum; af móttöku sem var opnuð í morgun, þar sem sérstaklega er tekið á niðurtröppun ópíóíða og annarra sterkra verkjalyfja, svefn- og róandi lyfja og fleira. Svanurinn er ekki bara umhverfismerki og það eru til fleiri svansmerktar vörur en klósettpappír og þvottaefni. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, fræðir okkur um Svaninn í umhverfispistli dagsins, Tónlist: THE WHO - My Generation. BJARTMAR GUÐLAUGSSON - Týnda Kynslóðin.

Monologato Podcast
Anna, Guè - Bikini (VERA BADDIE)

Monologato Podcast

Play Episode Listen Later Jun 25, 2024 4:50

#Anna #Bikini #VeraBaddie Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices

History Detective
Poppy Ladies: Moina Michael and Anna Guérin

History Detective

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023 9:14

Have you ever wondered how the poppy became the international symbol of remembrance? It was the work of 2 women: Moina Michael and Anna Guérin. Learn their fascinating story in this episode.History, Her Story, Our Story: But the book on Amazon!Click to join my mailing listTeacher Pay Teacher StoreIf you would like to support the podcast, you and Buy Me a CoffeeWrite a review on Podchaser, Apple or Spotify.The History Detective Season 1 & 2 Album is  now available on Spotify and all of your music streaming services.Accompanying teaching resources for season 1-4 episodes can be found on my Amped Up Learning Store or on my Teachers Pay Teachers store.Contact: Twitter @HistoryDetect, Instagram @HistoryDetective9, email  historydetective9@gmail.comHistory Detective WebsiteAll  music written and performed by Kelly Chase.

Lestin
Eðlisfræði í klípu og Boob Sweat Gang

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 19, 2023 55:00

Í Lestinni þessa vikuna ætlum við að beina sjónum okkar að íslenskum stelpupönkhljómsveitum, við ræðum við meðlimi hljómsveitanna Sóðaskapur og Gróa, en við Byrjum á Boob Sweat Gang. Hljómsveitin var stofnuð árið 2019 á workshoppi hjá dansaranum og listakonunni Gígju Jónsdóttur, Wikihow to start a punk-band. Árið 2022 gáfu þær út sína fyrstu plötu, The Boob Sweat Gang The Album. Urður, Anna Guðrún og Eyrún komu í Lestina og sögðu sögur af Boob Sweat Gang. Er eðlisfræðin stöðnuð og á villigötum? Of upptekin af fallegum formúlum og furðulegum kenningum um fjölheima og fleiri víddir til að leggja eitthvað nýtt af mörkum? Þetta eru aðeins nokkrar af þeim spurningum sem þýski eðlisfræðingurinn Sabine Hossenfelder veltir upp í bók sem var að koma út í íslenskri þýðingu: Rammvillt í reikningskúnstum: hvernig fegurðin villir um fyrir eðlisfræðinni.

Lestin
Eðlisfræði í klípu og Boob Sweat Gang

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 19, 2023

Sameining MA og VMA, Litla saumastofan og bóluefni við malaríu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023

Í gær boðaði Ásmundur Einar Daðason, skóla- og barnamálaráðherra til fundar með framhaldsskólunum á Akureyri í menningarhúsinu Hofi, nær fyrirvaralaust, þar sem hann kynnti þá ákvörðun sína að sameina skólana. Ákvörðunin hefur vakið mikil viðbrögð, sérstaklega meðal nemenda MA sem hafa boðað til mótmæla á Ráðhústorginu nú á eftir. Við ræðum við skólameistara skólanna tveggja, Sigríði Huld Jónsdóttur, skólameistara VMA og Karl Frímannsson, skólameistara MA. Að vísu í tvennu lagi því Sigríður var á leið til útlanda. Við höldum okkur á Akureyri því við kíkjum í heimsókn á Litlu saumastofuna þar í bæ, þar sem endurnýting er í hávegum höfð. Svava Daðadóttir og Anna Guðný Helgadóttir reka stofuna. Málfarsmínúta. Mikil þróun hefur verið í þróun bóluefnis við Malaríu sem er landlæg víða í Afríku sunnan Sahara. Edda Olgudóttir fer yfir þetta í vísindaspjalli dagsins.

Samfélagið
Sameining MA og VMA, Litla saumastofan og bóluefni við malaríu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 55:00

Í gær boðaði Ásmundur Einar Daðason, skóla- og barnamálaráðherra til fundar með framhaldsskólunum á Akureyri í menningarhúsinu Hofi, nær fyrirvaralaust, þar sem hann kynnti þá ákvörðun sína að sameina skólana. Ákvörðunin hefur vakið mikil viðbrögð, sérstaklega meðal nemenda MA sem hafa boðað til mótmæla á Ráðhústorginu nú á eftir. Við ræðum við skólameistara skólanna tveggja, Sigríði Huld Jónsdóttur, skólameistara VMA og Karl Frímannsson, skólameistara MA. Að vísu í tvennu lagi því Sigríður var á leið til útlanda. Við höldum okkur á Akureyri því við kíkjum í heimsókn á Litlu saumastofuna þar í bæ, þar sem endurnýting er í hávegum höfð. Svava Daðadóttir og Anna Guðný Helgadóttir reka stofuna. Málfarsmínúta. Mikil þróun hefur verið í þróun bóluefnis við Malaríu sem er landlæg víða í Afríku sunnan Sahara. Edda Olgudóttir fer yfir þetta í vísindaspjalli dagsins.

Morgunvaktin
Húsnæðisþing, bólusetningar, dönsk og úkraínsk málefni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 30, 2023 130:00

Húsnæðisþing fer fram í dag. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnuna, kom til okkar í byrjun þáttar og ræddi um þingið og stöðu húsnæðismála. Við byggjum ekki nógu mikið. Ásgeir Haraldsson prófessor og yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins ræddi við okkur um bólusetningar barna. Hann segir eitt af mestu afrekum mannkyns að hafa tekist að útrýma bólusótt, og það sýni að hægt sé að útrýma fleiri sjúkdómum með bólusetningum. Borgþór Arngrímsson fór yfir ýmsar fréttir frá Danmörku með okkur, meðal annars um stjórnmál og dýr. Í lok þáttar var Björn Malmquist fréttamaður með okkur í beinni útsendingu frá Zaphorizia, en hann hefur verið í Úkraínu undanfarið. Hann fór yfir nýjustu vendingar í stríðinu auk þess að segja okkur frá daglegu lífi og því sem hann hefur kynnst á ferð sinni. Pétur Grétarsson, Gunnar Gunnarsson Píanóleikari, Gunnar Hrafnsson, Anna Pálína Árnadóttir - Einu sinni á ágústkvöldi. Vuffeli-vov - Shubidua Crew Cuts - Sh boom sh boom. Slagarasveitin - Hjartarós.

Morgunvaktin
Húsnæðisþing, bólusetningar, dönsk og úkraínsk málefni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 30, 2023

Húsnæðisþing fer fram í dag. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnuna, kom til okkar í byrjun þáttar og ræddi um þingið og stöðu húsnæðismála. Við byggjum ekki nógu mikið. Ásgeir Haraldsson prófessor og yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins ræddi við okkur um bólusetningar barna. Hann segir eitt af mestu afrekum mannkyns að hafa tekist að útrýma bólusótt, og það sýni að hægt sé að útrýma fleiri sjúkdómum með bólusetningum. Borgþór Arngrímsson fór yfir ýmsar fréttir frá Danmörku með okkur, meðal annars um stjórnmál og dýr. Í lok þáttar var Björn Malmquist fréttamaður með okkur í beinni útsendingu frá Zaphorizia, en hann hefur verið í Úkraínu undanfarið. Hann fór yfir nýjustu vendingar í stríðinu auk þess að segja okkur frá daglegu lífi og því sem hann hefur kynnst á ferð sinni. Pétur Grétarsson, Gunnar Gunnarsson Píanóleikari, Gunnar Hrafnsson, Anna Pálína Árnadóttir - Einu sinni á ágústkvöldi. Vuffeli-vov - Shubidua Crew Cuts - Sh boom sh boom. Slagarasveitin - Hjartarós.

Spegillinn
Samdráttur í byggingum, BSRB og félagsdómur og launahækkanir ráðamanna

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 30, 2023 9:35

Spegillinn 30. maí 2023. Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM furðar sig á launahækkun ráðamanna, einungis tveimur mánuðum eftir samið var við ríkið og BHM félagar þurftu að sætta sig við krónutöluhámark. Matvælastofnun rannsakar hvort fuglaflensa varð fjölda lunda á Faxaflóa að aldurtila. Bandarísk stjórnvöld segjast ekki styðja árásir innan Rússlands. Tvö íbúðarhús í Moskvu urðu fyrir drónaárás í morgun. Rússlandsforseti kennir Úkraínu um árásirnar en Úkraínumenn neita sök. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir skynsamlegt að leyfa áfram tollfrjálsan innflutning landbúnaðarvara frá Úkraínu. Tímabundin tollaundanþága fellur að óbreyttu niður um mánaðamótin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar sakar ríkisstjórnina um seinagang Íslenskir framleiðendur niðursoðinnar þorsklifrar anna ekki eftirspurn vegna vinsælda á erlendum markaði segir Dagur Arnarsson, rekstrarstjóri hjá Iðunni Seafood. Sigrún Þuríður Runólfsson ræddi við hann. ------------------- Blikur eru á lofti á húsnæðismarkaði, segir Anna Guðmunda Ingvarsdóttir aðstoðarforstjóri Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Hún hefur áhyggjur af samdrætti í íbúðabyggingum - það auki enn á húsnæðisvanda fólks eftir tvö til þrjú ár. Hún hvetur til þess að staðið sé við áætlun um byggingu 4000 þúsund íbúða á ári næstu árin. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Önnu Guðmundu. Ekkert miðar í samningsátt í deilu BSRB og sveitarfélaga. Helst steytir á kröfu BSRB um hækkanir sem miðist við ársbyrjun en ekki 1. apríl þegar fyrri samningur rann út. Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður og sérfræðingur í vinnurétti segir að hægt sé að fara með ýmis mál til Félagsdóms en þau verði þá annað hvort að varða brot á kjarasamningi eða á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Krafa um leiðréttingu á launum sem var löngu gerður og er runninn út á ekki undir Félagsdóm. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Láru. Von er á öllum utanríkisráðherrum NATO til Oslóar á morgun ? öllum nema utanríkisráðherra Tyrklands. Sjálfgefið er að rætt verður um möguleg stríðslok í Úkraínu og stefnuna eftir það. Mörg sömu ríki senda sína ráðherra og komu á Evrópuráðsfundinn í Hörpu. Gísli Kristjánsson fréttaritari í Noregi sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Þorbjörn Gísla Kolbrúnarson. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Spegillinn
Samdráttur í byggingum, BSRB og félagsdómur og launahækkanir ráðamanna

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 30, 2023

Ástarkraftur, Balenciaga, Ungfrú Ísland

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 1, 2022 53:18

Við heyrum fyrstu tvær jóla-örsögur ritlistarnema, sem verða fluttar í Lestinni fram að jólum. Assa Borg Þórðardóttir kynnti sér samsæriskenningarnar sem hafa sprottið upp í sambandi við tískurisann Balenciaga. Þar sem koma fyrir börn, BDSM og bangsar. Þann 2. desember verður doktor Anna Guðrún Jónasdóttir áttræð. Af því tilefni flytur Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands pistil og les úr doktorsritgerð þessarar merku konu, sem fjallar um ástarkraftinn. Davíð Roach hlustaði á Ungfrú Ísland, nýju plötu hljómsveitarinnar Kvikindi.

Lestin
Ástarkraftur, Balenciaga, Ungfrú Ísland

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 1, 2022

Við heyrum fyrstu tvær jóla-örsögur ritlistarnema, sem verða fluttar í Lestinni fram að jólum. Assa Borg Þórðardóttir kynnti sér samsæriskenningarnar sem hafa sprottið upp í sambandi við tískurisann Balenciaga. Þar sem koma fyrir börn, BDSM og bangsar. Þann 2. desember verður doktor Anna Guðrún Jónasdóttir áttræð. Af því tilefni flytur Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands pistil og les úr doktorsritgerð þessarar merku konu, sem fjallar um ástarkraftinn. Davíð Roach hlustaði á Ungfrú Ísland, nýju plötu hljómsveitarinnar Kvikindi.

Samfélagið
Heimilisverk og lífsánægja, Grænlandsfréttir, COP27 og votlendi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 10, 2022 55:00

Flest hafa þrætt við maka sinn um hver á að ganga frá þvottinum, ryksuga, kaupa og elda matinn, hver er að vinna of mikið eða gera annað utan heimilisins meðan hitt situr eftir með börn og húsverk. Hvaða áhrif hefur þessi núningur um verkaskiptingu á lífsánægjuna? Tengsl heimilisverka og lífsánægju er einmitt viðfangsefni rannsóknar sem hagfræðidoktorsneminn Anna Guðrún Ragnarsdóttir fer fyrir og við ræðum við hana. Við símum til Grænlands og tölum þar við Ingu Dóru Guðmundsdóttur í Nuuk. Tölum aðeins um nýafstaðnar kosningar og nýjan alþjóðaflugvöll. Við tengjum okkur líka við Loftlagsráðstefnuna í Egyptalandi í þættinum og fáum af henni helsti tíðindi. Svo fáum við umhverfispistilinn eins og alltaf á fimmtudögum, það er plöntuvistfræðingurinn Bryndís Marteinsdóttir sem flytur okkur hann og fjallar um votlendi og endurheimt þess.

gu hva nuuk svo flest brynd ragnarsd anna gu marteinsd egyptalandi
Samfélagið
Heimilisverk og lífsánægja, Grænlandsfréttir, COP27 og votlendi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 10, 2022

Flest hafa þrætt við maka sinn um hver á að ganga frá þvottinum, ryksuga, kaupa og elda matinn, hver er að vinna of mikið eða gera annað utan heimilisins meðan hitt situr eftir með börn og húsverk. Hvaða áhrif hefur þessi núningur um verkaskiptingu á lífsánægjuna? Tengsl heimilisverka og lífsánægju er einmitt viðfangsefni rannsóknar sem hagfræðidoktorsneminn Anna Guðrún Ragnarsdóttir fer fyrir og við ræðum við hana. Við símum til Grænlands og tölum þar við Ingu Dóru Guðmundsdóttur í Nuuk. Tölum aðeins um nýafstaðnar kosningar og nýjan alþjóðaflugvöll. Við tengjum okkur líka við Loftlagsráðstefnuna í Egyptalandi í þættinum og fáum af henni helsti tíðindi. Svo fáum við umhverfispistilinn eins og alltaf á fimmtudögum, það er plöntuvistfræðingurinn Bryndís Marteinsdóttir sem flytur okkur hann og fjallar um votlendi og endurheimt þess.

gu hva nuuk svo flest brynd ragnarsd anna gu marteinsd egyptalandi
Heimildavarp RÚV

Svipmynd af handhafa heiðursverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna 2022.

anna gu
Heimildavarp RÚV

Svipmynd af handhafa heiðursverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna 2022.

anna gu
Reportage Afrique
Un bébé à tout prix [2/5] «Yaay.2.0», la série TV qui s'attaque au tabou de l'infertilité

Reportage Afrique

Play Episode Listen Later Aug 15, 2022 2:23

Suite de notre série de reportages « Un enfant à tout prix »... Au Sénégal, une série télévisée s'attaque au tabou de l'infertilité, et plus globalement aux problématiques liées à la maternité. Yaay 2.0, qui signifie « mère » en wolof, est diffusé depuis fin mai. Un projet lancé par Kalista Sy, scénariste et productrice de la série à succès Maîtresse d'un homme marié. Avec le même objectif : donner la parole aux femmes. De notre envoyée spéciale permanente à Dakar  Kala et Sandiéry forment un couple presque parfait. Beaux, brillants, amoureux, mais après 3 ans de mariage, ils n'arrivent pas à avoir d'enfant. Un sujet délicat dont s'est emparé Kalista Sy : « Au Sénégal ou en Afrique, quand un enfant n'arrive pas dans un couple, pour beaucoup, c'est à cause de la femme. Cet enfant, c'est l'enfant de la société, c'est un enfant qui atteste de la fertilité de l'homme, et que la femme est dans son rôle de reproductrice ».  C'est l'acteur Roger Sallah qui joue le personnage de Sandiéry. Durant plusieurs épisodes, il refuse d'aller consulter. « Sandiéry, je dirai que c'est un homme qui a peur de découvrir qu'il est infertile. Cette peur le ronge, sa virilité est mise en cause, alors que non, il y a virilité et fertilité. C'est typique de l'homme sénégalais. Je m'adresse aux hommes sénégalais en incarnant le personnage de Sandiéry. Je leur dis : "eh les gars, réveillez-vous, et prenez soin de vos femmes !" », explique le comédien.  Dans la série, les mères et belles-mères sont omniprésentes : avec des rendez-vous chez les marabouts, breuvages et autres amulettes. Une pression permanente. Une réalité, souligne Kalista Sy, « les mariages, quoi que l'on dise, sont tenus par les mères. Elles ne se rendent pas compte de ce que c'est pour un couple d'avoir cette intrusion dans leur vie intime ».  Autour du couple principal, d'autres femmes et d'autres parcours : Dibor, belle carrière et toujours célibataire, Mouna, mère de famille nombreuse et sans ressources, ou encore Réla, jouée par la comédienne Anna Guèye, rejetée par son mari. « Son enfant est atteint de trisomie 21. Pour sa famille, elle est responsable du handicap de son fils, parce que selon sa belle-mère, elle s'habillait n'importe comment, elle mangeait n'importe quoi. Il y a des femmes sénégalaises qui vivent réellement ce que vit Réla dans la série. La série, qui va parler de leur situation, qui leur donne une voix, c'est très intéressant. On reçoit beaucoup de témoignages, il y a beaucoup de commentaires sur YouTube. On espère pouvoir éveiller les consciences encore plus », explique Anna Guèye.  Une série engagée et audacieuse. Avec 32 épisodes au total, Yaay 2.0 sera diffusée jusqu'en septembre. On peut notamment retrouver la série sur YouTube, en wolof, sous-titrée en français.

Au cœur de l'histoire
Les héroïnes oubliées de la guerre de 14-18 (partie 2)

Au cœur de l'histoire

Play Episode Listen Later Jun 9, 2022 14:21

Leur histoire est peu connue. Pourtant, ces femmes ont joué un rôle déterminant pendant la Première Guerre mondiale. Dans ce nouvel épisode du podcast Europe 1 Studio “Au cœur de l'Histoire”, Clémentine Portier-Kaltenbach dresse le portrait de trois héroïnes oubliées de la Guerre de 14-18 : Emilienne Moreau, qui participera aux combats, ainsi que Anna Guérin et Charlotte Malterre, militantes pour la cause des victimes de guerre.

Losti
Anna Guðný- Heilsa og Vellíðan

Losti

Play Episode Listen Later May 23, 2022 47:41

Til að skóða vöruúrvalið- losti.is Önnu Guðnýju finnur þú á instagram: https://instagram.com/heilsaogvellidan en einnig er hún með heilsubloggið: https://heilsaogvellidan.com/Anna Guðný býður upp á eftirfarandi þjónustu:Þerapíuna Lærðu að elska þig;12 tímar í heildina, hver tími er 90 mínútur og fer fram á 3 vikna fresti. Þerapían er fyrir alla þá sem vilja fara alla leið í að vinna í andlegu heilsunni með persónulegum stuðningi og hvatningu. Nánari upplýsingar:https://heilsaogvellidan.com/therapia/Netnámskeiðið Endurnærðu þig:6 mánaða lífsstílsnetnámskeið á myndbandaformi með vikulegum stuðningi. Nánari upplýsingar:https://heilsaogvellidan.com/thjonusta/netnamskeidid-endurnaerdu-thig/Netnámskeiðið Ræktaðu samband þitt við þig:Netnámskeið á myndbandaformi fyrir alla þá sem vilja vera öruggari í sér og tengjast sjálfum sér betur. Nánari upplýsingar:https://heilsaogvellidan.com/vefverslun/Netn%C3%A1mskei%C3%B0i%C3%B0-R%C3%A6kta%C3%B0u-samband-%C3%BEitt-vi%C3%B0-%C3%BEig-p458879783Endurnærandi Vellíðunarstund:2,5 klst af töfrum með aðstoð tarot spila, kakó, hugleiðslu og spjalls. Allt til að aðstoða þig við að stíga sterkar í kraftinn þinn og að upplifa meiri skýrleika. https://heilsaogvellidan.com/vefverslun/Endurn%C3%A6randi-Vell%C3%AD%C3%B0unarstund-p416639068

Spegillinn
Sex ára dómur fyrir kynferðisbrot, úrbætur í húsnæðismálum og hnúðlax

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 19, 2022 10:33

Maður sem í dag var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkum á grunnskólaaldri, var handtekinn eftir tálbeituaðgerð í nóvember. Bjarni Pétur Jónsson sagði frá. Land hefur risið á Reykjanesskaga um fjóra sentimetra síðan í lok apríl. Þetta sýna nýjar gervihnattamyndir. Byggja þarf 4.000 íbúðir á ári næstu fimm árin til að mæta húsnæðisskorti að mati starfshóps ráðherra sem kynnti tillögur sínar í dag. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, formaður hópsins segir svo hraða uppbyggingu vel mögulega. Ný met í lykiláhættuþáttum loftslagsbreytinga voru slegin á síðasta ári, að því er fram kemur í skýrslu Alþjóðaveðurstofnunarinnar sem birt var í dag. Þórdís Arnljótsdóttir sagði frá og talaði við Elínu Björk Jónasdóttur, veðurfræðing. Kórónuveiran getur enn reynst skæð, sérstaklega í eldri aldurshópunum, segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir. Daglega greinast um 150 tilfelli. Sigurður Kaiser talaði við Þórólf. ------ Klak hnúðlaxa hefur verið staðfest hér í fyrsta sinn. Vísindamenn hafa fengið hnúðlaxseiði sem eru á leið til sjávar í gildrur í Hvalfirði. Ólöf Rún Skúladóttir ræddi við Guðna Guðbergsson sviðsstjóra á Hafrannsóknastofnun við Botnsá. Aðgengi að húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort heldur sem er til eignar eða leigu, er grundvöllur húsnæðisöryggis og jafnréttis í húsnæðismálum, þetta segir í inngangi skýrslu þar sem niðurstöður og 28 tillögur um úrbætur og aðgerðir voru kynntar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Drífu Snædal forseta Alþýðusambands Íslands um húsnæðismálin og horfur fyrir kjarasamninga. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

land bj gu sn stj sigur fyrir umsj valger ingvarsd anna gu anna krist bjarni p hafranns botns
Spegillinn
Sex ára dómur fyrir kynferðisbrot, úrbætur í húsnæðismálum og hnúðlax

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 19, 2022

Play Episode Listen Later Dec 14, 2021 14:23

Leur histoire est peu connue. Pourtant, ces femmes ont joué un rôle déterminant pendant la Première Guerre mondiale. Dans ce nouvel épisode du podcast Europe 1 Studio “Au cœur de l'Histoire”, Clémentine Portier-Kaltenbach dresse le portrait de trois héroïnes oubliées de la Guerre de 14-18 : Emilienne Moreau, qui participera aux combats, ainsi que Anna Guérin et Charlotte Malterre, militantes pour la cause des victimes de guerre.

Sunnudagssögur
Anna Guðbjörg Cowden

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Nov 14, 2021

Gestur þáttarins er Anna Guðbjörg Cowden, pródúsent hjá CCP Games. Umsjón: Alex Elliott. Lög þáttarins eru: Don't You Worry Bout a Thing - Stevie Wonder Satisfied - Hamilton (Original Broadway Cast Recording) Make Me Feel - Janelle Monáe I Will Follow You Into the Dark - Death Cab for Cutie I - Kendrick Lamar Í Síðasti Skipti - Friðrik Dór

Sunnudagssögur
Anna Guðbjörg Cowden

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Nov 14, 2021 75:00

Akureyringar
FÉLAK - Sigga Dögg

Akureyringar

Play Episode Listen Later Nov 12, 2021 36:24

Anna Guðlaug ræðir við Siggu Dögg kynfræðing um kynfræðslu, foreldra samtalið og svarar spurningum unglinga á Akureyri.

Hlaðan - Hlaðvarp Bændablaðsins
Köngull #3 - Anna Guðmundsdóttir - Skógrækt í Reykhúsaskógi

Hlaðan - Hlaðvarp Bændablaðsins

Play Episode Listen Later Nov 1, 2021 9:08

Bændaskógrækt hófst í Reykhúsum árið 1983 og rann svo inn í Norðurlandsskóga. Plantað var samkvæmt áætlun skógarráðgjafa, langmest lerki fyrst og svo furu eftir ástandi og gæðum jarðvegs og gróðurs. Engu birki var plantað þar sem nokkuð var um sjálfsáið birki sem fór að verða áberandi eftir að landið var friðað fyrir sauðfjárbeit.

planta sask anna gu
Akureyringar
FÉLAK - Foreldrahlutverkið

Akureyringar

Play Episode Listen Later Apr 13, 2021 41:24

Anna Guðlaug Gísladóttir og Vilborg Hjörný Ívarsdóttir ræða styrkjandi þætti í uppeldi barna, íslenska módelið og utanumhald foreldra.

anna gu
Samfélagið
Kvosin, hjólauppboð, umhverfismál og býflugur

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 24, 2020

Edda Ívarsdóttir og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir: tillaga um Kvosina Reynir Þór Guðmundsson, framkv.stj. Vöku: Hjólauppboð fyrir lögreglunnar. Stefán Gíslason í umhverfisspjalli Anna Guðmundsdóttir í Reykhúsum, býflugnabóndi: endunýting óvenjulegra hluta í býflugnarækt og undirbúningur fyrir veturinn

Tónlist frá a til ö
Anna Guðný Guðmundsdóttir.

Tónlist frá a til ö

Play Episode Listen Later Apr 18, 2020

Í þættinum er rætt við Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara, sem hefur verið einn eftirsóttasti meðleikari landsins í áratugi. Hún ræðir ferilinn og listina að leika með öðrum. Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Reynslunni ríkari
Anna Guðrún Steinsen. 2

Reynslunni ríkari

Play Episode Listen Later Dec 18, 2019 35:44

Þetta hjlóðvarp er tekið við Ingibjörg Valgeirsdóttir sem er með mikla reynslu að starfa með börnum og ungmennum. Hún er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum/fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og bæði Yoga- og Yoga Nidra kennararéttindi. Ingibjörg hefur víðtæka reynslu og starfaði m.a. sem forstöðumaður í stuðningsúrræði fyrir börn og ungmenni. Hér í viðtalinu fer hún með okkur í gegnum sinn feril í starfi og þá aðallega þegar hún starfaði með Hálendishópnum og að það hafi verið hennar stærsti skóli. Hún hefur ástríðu fyrir ígrundun og við spjöllum um mismunandi leiðir og hvað er mikilvægt þegar kemur að því að ígrunda. Frábært spjall við einstaka konu!

Reynslunni ríkari
Anna Guðrún Steinsen. 1

Reynslunni ríkari

Play Episode Listen Later Dec 18, 2019 41:26

Í þessu hljóðvarpi verður tekið viðtal við Harald Sigurðsson sem er framkvæmdarstjóri Frístundamiðstöðvarinnar í Kringlumýri. Hann hefur starfað með börnum og ungmennum í áratugi og hefur gífurlega reynslu. Hann hefur sérstakan áhuga á að starfa með unglingum í vanda og segir okkur frá því í viðtalinu hvernig hann og hans félagar störfuðu í Hálendishópnum, hvað virkaði vel og hvað hefði mátt gera betur þegar til baka er litið. Haraldur hefur mikla reynslu og ástríðu fyrir því að nota ígrundun í starfi og segir okkur frá því í þessu viðtali. Einlægt spjall við góðan mann.

Grandi101
#3: Anna Guðný - Íþrótta- og þjálfaraferillinn; Þjálfun á Granda101

Grandi101

Play Episode Listen Later Nov 24, 2019 36:45

Anna Guðný Sigurðardóttir er þjálfari hjá Granda101. Í þættinum fer Anna yfir íþróttaferilinn, þjálfaraferilinn og hvernig hún nálgast þjálfun í dag. Þáttastjórnandi: Eyþór Ingi Einarsson Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðarson

Landsbyggðir
#41 Anna Guðrún Edvardsdóttir

Landsbyggðir

Play Episode Listen Later Aug 28, 2019 27:15

Anna Guðrún Edvardsdóttir er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.

anna gu
Hamingjurásin
Þorlákshafnardætur - Anna Guðný Torfadóttir

Hamingjurásin

Play Episode Listen Later Aug 12, 2019 54:21

Ása Berglind Hjálmarsdóttir ræðir við Önnu Guðnýju Torfadóttur. Framleitt í tilefni Hamingjunnar við hafið 6.-11. ágúst 2019. Flutt á Hamingjurásinni.

gu anna gu torfad
Hátalarinn
Við verkalok. Atli Heimir.

Hátalarinn

Play Episode Listen Later Apr 29, 2019

Gestir þáttarins eru þau Anna Guðný Guðmundsdóttir, Sigurður Ingvi Snorrason og Snorri Sigfús Birgisson, sem öll koma að tónlistinni sem var að koma út á plötunni ,,Við verkalok", en hún geymir tónlist Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Stephans G Stephanssonar, sem samin var 2012 og er með því síðasta sem Atli Heimir samdi á ferli sínum. Rætt er um tónsmíðar Atla og persónuna sem eru og voru bæði litríkar og stormasamar. Einnig er komið inná þjóðlagaútsetningar Snorra Sigfúsar, sem heldur afmælistónleika sína í Fríkirkjunni í kvöld ásamt Hönnu Dóru Sturludóttur söngkonu.

Morgunútvarpið
Sólarkaffi, loðna, Siglufjörður og Ófærð, húsnæðismál og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 23, 2019 130:00

Í 74 ár hafa brottfluttir Ísfirðingar haldið Sólarkaffi til að fagna því þegar sólin skín aftur á Eyrina á Ísafirði eftir að hafa falið sig bak við fjöllin. Sólarkaffið í ár er framundan og við heyrðum í Guðmundi Fr. Jóhannssyni um gleðina. Undanfarin ár hafa miklar breytingar orðið í hafinu við Ísland. Tegundir sem áður sáust ekki hér við land, hafa fundist hér í miklu magni og aðrar fært sig um set. Ein þessara tegunda er loðnan sem við Íslendingar höfum veitt í gríðarlegu magni frá því um miðjan sjöunda áratuginn, mest um eina og hálfa milljón tonna á ári. Mælingar þennan veturinn benda til þess að hrygningarstofninn nái ekki 300 þúsund tonnum og því ekki lágmarkinu sem þarf til að veiðar fái að hefjast. Við ræddum við einn reyndasta loðnuskipstjóra flotans, Grétar Rögnvarsson, skipstjóra á Jóni Kjartanssyni SU, og heyrðum hans upplifun af þessu öllu saman. Það gengur talsvert á í lífi Siglfirðinga - og gott ef ekki Ólafsfirðinga líka - á hverju sunnudagskvöldi, nánar til tekið í sjónvarpsþáttunum Ófærð. En hversu vel eða illa tekst þáttunum að fanga raunveruleikann á Siglufirði, ef eitthvað? Hafa þættirnir haft áhrif á ferðamannastraum nyrðra og hvað segja þeir sem eru kunnugir staðháttum á staðnum, hversu vel fylgja ferðir Andra lögreglumanns og félaga raunverulegum vegum og áttum á staðnum? Bæjarstjórinn, það er að segja alvöru bæjarstjórinn Gunnar Birgisson, ekki þessi í haldi mannræningjanna, var á línunni hjá okkur. Átakshópur ríkisstjórnarinnar skilaði af sér í gær 40 tillögum til að bæta ástandið á húsnæðismarkaði og er meðal annars vonast til að tilögurnar liðki til fyrir lausn kjarasamninga. Áhersla er þar lögð á að draga úr byggingakostnaði, leigufélög að norrænni fyrirmynd og ýmsar úrbætur á leigumarkaði svo fátt eitt sé nefnt. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, annar höfunda skýrslunnar og aðstoðarforstjóri Íbúðarlánasjóðs, fór yfir tillögurnar með okkur. Guðmundur Jóhannsson kom í sitt vikulega tæknispjall og ræddi m.a. persónuvernd og fleiri fyndin tæki. Tónlist: Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar - Án þín, með þér. Sade - Smooth operator. The Beatles - Here comes the sun. Sting - Brand new day. Vök - Spend the love. Jón Jónsson - Gefðu allt sem þú átt. Leon Bridges - Coming home. Moses Hightower - Trúnó. Richard Ashcroft - Thats when I feel it.

gef gu hei sigr hafa ingvarsd thorlacius siglufir undanfarin anna gu beatles here gunnar birgisson
Spegillinn
Spegillinn 22. janúar 2019. 40 tillögur í húsnæðismálum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 22, 2019 30:00

Þó að áformað sé að byggja 10 þúsund íbúðir á næstu þremur árum dugir það ekki fyrir þá sem hafa minnstar tekjur. Fjölmargar tillögur voru kynntar í dag sem miða að því að byggja ódýrari íbúðir. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vonar að tillögurnar greiði fyrir kjarasamningum. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir annar formaður átakshópsins sem vann tillögurnar telur að segir útliti fyrir það þær íbúðir sem búið er að byggja eða eru ráðgerðar leysi ekki vanda þeirra tekjulægstu. Meirihluti sveitarstjórnar Reykhólahrepps telur sig engan annan kost hafa en samþykkja þá leið um Teigsskóg sem Vegagerðin helst kýs. var Árný Huld Haraldsdóttir sveitarstjórnarmaður í Reykhólahreppi lagði fram tillögu um samþykkt sem þrír greiddu atkvæði sitt en tveir voru á móti. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það grundvallarsjónarmið sitt að vera talsmaður listræns frelsis. Það sé úrlausnarefni Seðlabankans að tryggja að listaverk séu ekki þar sem þau eru óþægileg fyrir starfsmenn. Gat fannst á nótarpoka sjókvíar Arnarlax í Arnarfirði í morgun. Ekki er ljóst hvort eða hve margir laxar sluppu þar út. Loðnuleit er hafin að nýju. Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq hélt frá Neskaupstað í dag og hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson fer á föstudaginn. Júlía Týmósjenkó, sem var forsætisráðherra Úkraínu fyrir meira en áratug, lýsti yfir forsetaframboði sínu í dag. Kosningarnar eiga að fara fram í lok mars og Týmósjenkó virðist hafa mun meira fylgi en Petró Porosjenkó, sem nú er forseti. Björn Malmquist sagði frá. RARIK vinnur nú að því að losa sig við ljósastaura í þéttbýli og koma verkefninu yfir til sveitarfélaga. Þannig eru Fjarðabyggð og RARIK langt komin með samning um að sveitarfélagið taki við staurunum. ------- Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðgerðir til að bæta stöðuna á húsnæðismarkaði leggur til að sveitarfélög og ríkið auki fjárveitingar til stofnframlaga vegna uppbyggingar í almenna húsnæðiskerfinu og að tekjumörk verði hækkuð. Einnig er lagt til að óhagnaðardrifin húsnæðisfélög verði efld og skýrari reglur settar á leigumarkaði. Arnar Páll Hauksson ræddi við formenn hópsins, Gísla Gíslason og Önnu Guðmundu Ingvarsdóttir. TIllögurnar móta stefnu okkar í húsnæðismálum til lengri tíma segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra þær hafi verið unnar af fjölbreyttum hópi og um þær samstaða .Hún vonar að þær geti líka greitt fyrir kjaraviðræðum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Katrínu Jakobsdóttur. Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins segir að tillögurnar séu innspil í kjaraviðræðurnar. Anna Kris

Mannlegi þátturinn
Ragna Fossberg, tónlistarsjóður Rótarý og grænar baunir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 4, 2019 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ragna Fossberg gervahönnuður. Ragna hóf störf hjá Ríkisútvarpinu árið 1972 og á þeirri tæpu hálfu öld sem hefur liðið síðan á hún heiðurinn af mörgum af eftirminnilegustu gervum íslenskrar sjónvarpssögu, meðal annars með Spaugstofunni og í áramótaskaupum Ríkissjónvarpsins, auk þess sem hún hefur unnið í yfir þrjátíu kvikmyndum. Við forvitnuðumst um æsku hennar, skólagöngu og starfsferilinn í þættinum í dag. Á hverju ári veitir tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi styrki til efnilegra tónlistarnema sem stunda framhaldsnám við erlenda tónlistarháskóla. Styrkirnir eru afhentir á stórtónleikum Rótarý, sem í ár eru á sunnudaginn í Hörpu. Styrkþegarnir í ár eru Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, sellóleikari sem stundar meistaranám við Juliard tónlistarháskólann og Óskar Magnússon, gítarleikari sem er í meistaranámi í San Fransisco, þau komu í þáttinn. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, var með sitt vikulega matarspjall í þættinum í dag. Við hringdum í Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamann, en hann stofnaði nýverið félagið Vinir Ora-grænna bauna. Hann fræddi okkur um grænu baunirnar og dálæti sitt á þeim. Að því loknu ræddum við um afganga við Sigurlaugu Margréti og skiptar skoðanir þáttastjórnenda á tartalettum. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

san francisco gu magn hann geir ragna gunnarsd umsj styrk juliard anna gu gunnar hansson sigurlaug margr sigurlaugu margr
Huldufólk fullveldisins
Anna Þórarinsdóttir

Huldufólk fullveldisins

Play Episode Listen Later Nov 10, 2018

Anna Þórarinsdóttir sjúkraþjálfari er huldukona þessa þáttar. Anna var fyrst Íslendinga til að starfa með börnum, bæði greindarskertum og hreyfihömluðum og hafði djúp áhrif á þá sem henni kynntust. Viðmælendur í þættinum eru: Dr. Dóra S. Bjarnason móðir Benedikts sem var einn þeirra sem Anna þjálfaði með einstökum árangri. Sigurður Valgeirsson tengdasonur Önnu Ástríður Stefánsdóttir dóttir Önnu Friðrik Sigurðsson fv. framkvæmdastjóri Þroskahjálpar -Auk þess er spilaður smá bútur úr skólaverkefni sem Hrefna Sigurðardóttir barnabarn Önnu vann ásamt Söru Hjördísi skólasystur sinni en þær fóru og tóku viðtal við Önnu upp á gamalt kasettutæki. Tónlist: Í dag skein sól - flytjendur Brjánn Ingason og Anna Guðný Guðmundsdóttir Venus as a boy - Björk Ást - Ragnheiður Gröndal ( en Ragnheiður var ein af þeim ungu tónlistarkonunum sem Anna hafði miklar mætur á)

Húsnæðismarkaðir. Nike. Japanir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 25, 2018 55:00

Anna Guðmunda Ingvarsdóttir aðst.forstjóri Íbúðalánasjóðs: Í samanburði Íbúðalánasjóðs kemur í ljós aðjLeiguverð er hæst í Reykjavík af höfðuborgunum en fermetraverð lægst þegar keypt er. Rætt um samanburðinn og hvaða nýju viðmið Íbúðalánasjóður vill sjá í nýrri húsnæðisstefnu. Grétar Theódórsson almannatengill: Auglýsingaherferð Nike hefur vakið mikla athygli en þar er farið inná pólitískar brautir. En er þetta feigðarflan fyrir fyrirtæki eða græða þau á þessu? Friðrik Páll: Japan er eins og tilraunastofa fyrir heiminn. Þar er öldrun þjóðarinnar meiri en annars staðar, fæðingartalan undir endurnýjunarmörkum og lítill áhugi á því að fá innflytjendur til þess að fylla í skörðin. Ef ekkert breytist fækkar Japönum um 30 prósent á næstu fimmtíu árum, og kostnaður vegna mannfjöldaþróunarinnar eykst stöðugt

Hátalarinn
Vornætur, Neuwirth, næturgalar og slagverk

Hátalarinn

Play Episode Listen Later Jul 9, 2018

Í þættinum hljóma tveir þættir úr Að vornóttum eftir Þorkel Sigurbjörnsson, en þau sem flytja- Sigurbjörn Bernharðsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir voru að senda frá sér plötu með verkum Þorkels fyrir fiðlu. Einnig heyrast nokkur sýnishorn af verkum austurrísku tónskáldkonunnar Olgu Neuwirth. Umræða um hlut slagverksins i einleikskonsertum hin klassíska sviðs gefur tilefni til að deila með hlustendum tveimur ásláttarperlum og svo má ekki gleyma hinum alþýðlega hluta dagskrárinnar sem er frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Brasilíu norðanverðri. Sam Lee, Kamasi Washington og Marlui Miranda koma þar við sögu.