Podcasts about kjarasamningar

  • 11PODCASTS
  • 44EPISODES
  • 1h 11mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Mar 17, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about kjarasamningar

Latest podcast episodes about kjarasamningar

Rauða borðið
Synir Egils - Eldgos, velferðarríki, útlendingaandúð og kjarasamningar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 17, 2024 170:27

Sunnudagurinn 17 . mars Synir Egils: Eldgos, velferðarríki, útlendingaandúð og kjarasamningar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Margrét Marteinsdóttir blaðamaður, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hræringum ofan jarðar og neðan, lífsbaráttu almennings, stjórnmálaflokka og ríkisstjórnar, vaxandi útlendingaandúðar og vangaveltum um forsetaframboð. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni. Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar koma síðan og ræða stöðu verkalýðshreyfingarinnar eftir kjarasamninga aðildarfélaga Alþýðusambandsins.

Spegillinn
Kjarasamningar, verkbann og verkföll, skjálftavirkni færist vestar og stjórnarmyndun í Hollandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2024 20:00

Verkalýðsfélög virðast fljótari en áður að grípa í verkfallsvopnið og atvinnurekendur svara því með samhverfunni verkbanni segir vinnumarkaðsfræðingur. Jarðskjálftavirkni við Grindavík hefur færst dálítið til vesturs. Hvað telur Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur að það þýði. Frelsisflokkur þjóðernisöfgamannsins Geerts Wilders vann stórsigur, ríflega tvöfaldaði þingmannafjölda sinn í kosningum í fyrra en Wilders verður ekki forsætisráðherra þótt flokkur hans komist í sjtórn.

Morgunvaktin
Metafkoma Landsvirkjunar, kjarasamningar, árás á Teslu-verksmiðju í Þýskalandi og myndvinnsla Katrínar prinsessu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 12, 2024 130:00

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir kjarasamningsmál á Morgunvaktinni í dag. Búið er að semja fyrir hönd tugþúsunda, aðrir eru enn eftir, en ríkið hefur sýnt á sín spil. Hið opinbera leggur til 80 milljarða króna pakka, sem þó hefur ekki verið sagt hvernig nákvæmlega verður fjármagnaður. Ræddum einnig um Landsvirkjun og metafkomu fyrirtækisins. Árás var gerð á verksmiðju Tesla bílaframleiðandans fyrir utan Berlín í síðustu viku. Kveikt var í, og bæði verksmiðjan og stór hluti Brandenburgar-fylkis urðu rafmagnslaus með miklum afleiðingum. Arthur Björgvin Bollason sagði okkur frá málinu í Berlínarspjalli eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Hann sagði okkur líka frá skólamálum og kröfugöngu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Katrín prinsessa af Wales kom sér í klandur um helgina þegar hún birti það sem virtist vera sakleysisleg mynd af henni og börnum sínum þremur. Myndin var þó fljótlega tekin úr umferð af helstu fréttaveitum enda talið að átt hefði verið við hana með myndvinnsluforriti og Katrín þurfti síðan að biðjast afsökunar á birtingunni. Við ræddum myndbirtingar og hverju er hægt að treysta við þau Kjartan Þorbjörnsson, Golla, fréttaljósmyndara og Svanhildi Grétu Kristjánsdóttur ráðgjafa og ljósmyndara. Cilla Black - Anyone Who Had a Heart. When sunny gets blue - Kristjana Stefánsdóttir. Ich hab die Schnauze voll von rosa - Suli Puschban

heart tesla wales berl sn hann schnauze katr kristj kjartan myndin kristjana stef landsvirkjun bollason kjarasamningar
Rauða borðið
Kjarasamningar, hommasýning og ópíum

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 11, 2024 172:27

Mánudagurinn 11. mars Kjarasamningar, hommasýning og ópíum Við byrjum á að fá Stefán Ólafsson prófessor og starfsmann Eflingar til að skýra út kjarasamningana sem voru undirritaðir fyrir helgi. Þeir þykja sögulegir fyrir hversu mikið af kjarabótunum eiga að koma frá stjórnvöldum. Við ræðum síðan við þá Rúnar Guðbrandsson leikstjóra og leikarana Árna Pétur Guðjónsson og Sigurð Edgar Andersen um verkið …..og hvað með það? Þetta er verk um homma, ofbeldi og ást. Og við ræðum þetta allt við þá félaga. Það geisar ópíóðafaraldur á Íslandi og fólk deyr af hans völdum. Við ræðum við Valgerði Rúnarsdóttur, yfirlækni á Vogi, um hvað veldur og hvað beri að gera? Og spyrjum um sjúklinga Árna Tómasar Ragnarssonar læknis, sem fengu dagleg morfínskammt en fá hann ekki lengur.

Morgunvaktin
Kjarasamningar, útlendingamál, Happdrætti HHÍ og bandarísk stjórnmál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 8, 2024 130:00

Málefni útlendinga hafa verið fyrirferðarmikil á Alþingi undanfarnar vikur. Þingkonurnar Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir komu til okkar á Morgunvaktina klukkan hálfátta og við ræddum þau mál en auk þess kjarasamninga og umfangsmikið mansalsmál sem kom upp í vikunni og varðar tugi fórnarlamba. Joe Biden Bandaríkjaforseti hélt í gærkvöldi síðustu stefnuræðu sína á kjörtímabilinu frammi fyrir bandaríska þinginu. Hann fór um víðan völl í langri ræðu, sem sumir segja hafa verið meiri kosningaræðu en ræðu um stöðuna á bandarísku samfélagi. Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og sérfræðingur um bandarísk stjórnmál var með okkur eftir morgunfréttirnar klukkan átta og fór yfir það markverðasta í ræðunni og því hvernig hún endurspeglar stöðu mála. Happdrætti Háskóla Íslands verður nírætt á sunnudag. Happdrættið hefur fjármagnað nær allar byggingar Háskóla Íslands á þessum tíma og saga þess er merkileg. Happdrættið er þó ekki óumdeilt. Til okkar komu þau Bryndís Hrafnkelsdóttir forstjóri og Stefán Pálsson sagnfræðingur, en hann hefur skrifað sögu Happdrættis Háskóla Íslands. Bryndís og Stefán voru gestir okkar í síðasta hluta þáttarins. Just friends - Vaughan, Sarah, Count Basie and his Orchestra. Cirkeldans - Dickow, Tina.

Spegillinn
Samningar í augsýn en mikið veltur á þætti þess opinbera, þurrkar á Spáni og örorkulífeyriskerfið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2024 20:11

26. febrúar 2024 Kjarasamningar fyrir stóran hluta vinnumarkaðarins eru í augsýn, launaliðurinn er sagður í höfn og talað um að samið verði til fjögurra ára og tvisvar á þeim tíma verði hægt að segja upp eða endurskoða samninginn ef verðbólga fer fram úr ákveðnum viðmiðum, enn er óvíst hver verður þáttur þess opinbera sem skiptir æ meira máli. Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur telur jákvætt að ekki sé rætt um að tengja samninga við vaxtaákvarðanir. Neyðarástand vofir yfir á Spáni vegna þurrka, vatn er skammtað í Barselóna þar sem þegar hefur verið lýst yfir neyðarástandi og búist er við slíkum yfirlýsingum á Tenerife í lok vikunnar. Margt er jákvætt í boðuðum breytingum á örorkulífeyriskerfinu segir formaður Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands. Breytingarnar geti gagnast hópi sem áður hafi fallið á milli kerfa en grunnlífeyrinn þurfi að hækka.

Morgunvaktin
Kjarasamningar, tímamót í Danmörku og orð ársins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024

Stóra málið fram undan í þjóðlífinu eru kjarasamningarnir sem vonir standa til, að um náist þjóðarsátt og til verði þjóðarsáttarsamningarnir hinir seinni. Ágætt hljóð er í forystufólki atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar og ríkisstjórnin ætlar að leggja sitt af mörkum. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari fylgist grannt með gangi mála - hann hefur ekki þurft að beita sér að ráði og þarf vonandi ekki; en hann var gestur Morgunvaktarinnar í dag. Tímamót verða í Danmörku um miðjan mánuðinn - aldeilis - þegar 52 ára drottningartíð Margrétar Þórhildar lýkur. Um fátt annað hafa Danir rætt síðan á gamlársdag þegar drottning upplýsti að hún ætli að a sala sér krúnunni. Borgþór Arngrímsson fjallaði um Margréti Þórhildi og Friðrik son hennar, verðandi konung. Vera Illugadóttir vdr svo með okkur í síðasta hluta þáttarins og sagði okkur frá orði ársins hér og þar í heiminum. Þau gefa - eða geta gefið - einhverja hugmynd um hvað helst gekk á í viðkomandi ríki á nýliðnu ári. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Kom igen - Kim Larsen Seeger, Pete - Turn! turn! turn! (to everything there is a season). Franklin, Aretha - I say a little prayer. Kalde dem for du - Malte Ebert GDRN - Parísarhjól.

Morgunvaktin
Kjarasamningar, tímamót í Danmörku og orð ársins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024 130:00

Neyðarástand á Gaza, komandi kjarasamningar og sund

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 1, 2023

1. nóvember 2023 Tímamót urðu í dag í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs þegar Rafah landamærastöðin milli Egyptalands og Gaza var opnuð um tíma. Yfir eitt hundrað létu lífið þegar Ísraelsher gerði árás á Jabalia flóttamannabúðirnar í gær. Önnur árás var gerð í dag. Þegar skrifað var undir samninga í fyrra var mikið rætt um óvissu í efnahagsmálum, verðbólga og vextir voru á uppleið; samið til skamms tíma svo hægt væri að koma aftur að samningaborði þegar um hægðist. Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands segja stefnt að langtímasamningi en staðan í húsnæðismálum sé verri og efnahagsástandið ekki betra en í desember. Unnið er að því að fá sundlaugamenningu Íslendinga viðurkennda hjá UNESCO. Sögum sundunnenda hefur verið safnað þar sem þeir lýsa upplifun sinni af sundi. Sundhefðin er bæði mjög almenn en líka einstaklingsbundin. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

Spegillinn
Neyðarástand á Gaza, komandi kjarasamningar og sund

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 1, 2023 20:00

1. nóvember 2023 Tímamót urðu í dag í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs þegar Rafah landamærastöðin milli Egyptalands og Gaza var opnuð um tíma. Yfir eitt hundrað létu lífið þegar Ísraelsher gerði árás á Jabalia flóttamannabúðirnar í gær. Önnur árás var gerð í dag. Þegar skrifað var undir samninga í fyrra var mikið rætt um óvissu í efnahagsmálum, verðbólga og vextir voru á uppleið; samið til skamms tíma svo hægt væri að koma aftur að samningaborði þegar um hægðist. Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands segja stefnt að langtímasamningi en staðan í húsnæðismálum sé verri og efnahagsástandið ekki betra en í desember. Unnið er að því að fá sundlaugamenningu Íslendinga viðurkennda hjá UNESCO. Sögum sundunnenda hefur verið safnað þar sem þeir lýsa upplifun sinni af sundi. Sundhefðin er bæði mjög almenn en líka einstaklingsbundin. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.

Ein Pæling
#229 Þingslit, kjarasamningar og úkraínskar kjúklingabringur (með Þórarni Inga Péturssyni)

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Jun 10, 2023 18:14

www.pardus.is/einpaelingÞórarinn Ingi Pétursson er þingmaður Framsóknarflokksins. Í þessum þætti ræða hann og nafni hans um þinglok, kjarasamninga, landbúnað, úkraínskar kjúklingabringur og Brynjar Níelsson.

frams kjarasamningar
Spegillinn
Zelensky til Bandaríkjanna og kjarasamningar samþykktir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 21, 2022 30:00

Kjarasamningar verslunarfólks, iðn- og tæknimanna voru samþykktir með yfirburðum í öllum aðildarfélögum. Formaður VR er ánægður með mikla þátttöku í atkvæðagreiðslunni og afgerandi samþykkt hans. Lengra hafi ekki verið komist að sinni og ekki sé ástæða til að fara í átök um skammtímasamning. Innviðaráðherra vill að lokun Reykjanesbrautar um helgina verði skoðuð nánar og hvað hefði mátt betur fara. Forsætisráðherra var meðal þeirra sem ekki komst leiðar sinnar vegna lokunarinnar. Forseti Úkraínu kemur til Washington innan stundar. Hann hittir Bandaríkjaforseta og ávarpar Bandaríkjaþing síðar í kvöld. Allt árið í fyrra sóttu 872 um alþjóðlega vernd hér á landi en þegar tíu dagar eru eftir af árinu er fjöldinn kominn í tæplega fjögur þúsund og þrjú hundruð.. Það stefnir í skötuskort fyrir Þorláksmessu. Þrefalt minna var landað af skötu í ár en fyrir þremur árum vegna nýrrar reglugerðar. ------- Samningar þeir sem samflot VR, Landssambands verslunarmanna og félaga iðn og tæknifólks voru samþykktir í rafrænni atkvæðagreiðslu sem lauk í hádeginu. Þar var samið um 6,75% kauphækkun og samningurinn gildir út janúar 2024. Hlutfall þeirra sem samþykktu var misjafnt eftir félögum, allt frá 68% hjá sveinum innan Rafiðnaðarsambandsins upp í 100% - til dæmis hjá iðnaðarmannadeild Stéttarfélagsins Samstöðu á Blönduósi og svo var víðar. Kjörsóknin var líka nokkuð misjöfn - frá um 13% upp 85%. VR er fjölmennasta félagið sem á aðild að þessum samningum og þar samþykktu 82% samninginn við SA. Það er afgerandi niðurstaða segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR sem er líka sáttur við kjörsókn sinna félaga. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ragnar Þór. Heimsókn Volodymyrs Zelenskys, forseta Úkraínu, til Bandaríkjanna hefur staðið til um nokkurt skeið. Öllum áætlunum um hana hefur verið haldið vandlega leyndum af öryggisástæðum. Fjölmiðlar Vestanhafs hafa eftir heimildarmönnum í stjórnkerfinu í Washington að Zelensky og Joe Biden Bandaríkjaforseti hafi lengi stefnt að því að hittast augliti til auglitis. Ekki hafi þó getað orðið af því fyrr en nú vegna ástandsins í Úkraínu. Ásgeir Tómasson fjallar um málið. Spegillinn 21. desember 2022 Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Spegillinn
Zelensky til Bandaríkjanna og kjarasamningar samþykktir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 21, 2022

Viðbrögð við brottvísunum og loftslagsbreytingar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 3, 2022

Spegillinn 3. nóvember 2022 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur óskað eftir mati á hvort lög og réttindi fatlaðra hafi verið virt við brottvísun manns í hjólastól til Grikklands í nótt. Magnús Ingvarsson skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla segir starfsfbrottvísun tveggja stúlkna sem voru nemendur þar hafa haft mikil áhrif á starfsfólk. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman. Brottvísunum var mótmælt á Austurvelli, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði þar við Björgvin Ægi Elísson og Nönnu Hlíf Ingadóttur. Benjamin Netanyahu verður að líkindum aftur forsætisráðherra Ísraels, eftir fjórtán mánaða setu í stjórnarandstöðu. Likud flokkur hans og aðrir hægri flokkar náðu meirihluta í þingkosningum á þriðjudaginn. Björn Malmquist sagði frá. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri segir ekki hjá því komist að hækka gjaldskrá bæjarins. Skólamáltíðir, sorphirða og tónlistarnám barna er meðal þess sem verður dýrara. Óðinn Svan Óðinsson talaði við Heimi Örn Magnússon (D) og Hildu Jönu Gísladóttur (S). Ólöf Erlendsdóttir tók saman. Vansvefta íbúar í miðborg Reykjavíkur eru að gefast upp vegna hávaða næturlífsins og selja fasteignir sínar. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Sigrúnu Tryggvadóttur, formann íbúasamtaka miðborgarinnar. --------------------- Loftslag hlýnar hraðar í Evrópu en í öðrum heimsálfum. Meðalhitastig hefur hækkað um hálfa gráðu í álfunni á hverjum áratug frá 1991. Bjarni Rúnarsson ræddi um nýja skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar við Önna Huldu Ólafsdóttiu skrifstofustjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands og Theódóru Matthíasdóttur, sérfræðing á Veðurstofu Íslands Kjarasamningar á íslenskum vinnumarkaði skipta hundruðum og nær aldrei er búið að semja áður en samningur rennur út. Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari er bjartsýnn á viðræður sem framundan eru en við öllu búinn. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann um horfur framundan og gagnagrunn sem opnaður var í dag. Snerting, bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, verður að kvikmynd sem kemur út næsta haust. Við tökur myndarinnar í Gufunesi var meðal annars settur upp japanskur veitingastaður í New York-borg sjöunda áratugarins. Haukur Holm ræddi við Ólaf og Baltasar Kormák leikstjóra. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Útsending frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Spegillinn
Viðbrögð við brottvísunum og loftslagsbreytingar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 3, 2022 30:00

Kjarasamningar, Psoriasis og Vottar jehóva

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 26, 2022 130:00

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna senn. Einhverjar viðræður eru hafnar, en flestir eru sammála um að mikið beri í milli. Katrín Ólafsdóttir dósent í hagfræði við Háskólann í Reykjavík hefur ýmsar hugmyndir að mögulegum áhersluatriðum við kjarasamningsgerð - sem lúta að öðru heldur en beinum launahækkunum. Hún sagði okkur frá þessum hugmyndum. Í rúm 80 ár hefur Erna Arngrímsdóttir lifað með psoriasis-sjúkdómnum. Þegar hún var lítil stelpa vestur á fjörðum var lítið vitað um sjúkdóminn og auk þess að þjást af hans völdum mátti hún þola allskonar glósur og ónot frá fólki vegna hans. Hún einsetti sér að fræðast eins og hægt var um psoriasis og miðla þekkingu sinni svo annað fólk þyrfti ekki að ganga í gegnum það sama og hún. Við ræddum við Ernu Arngrímsdóttur. Vottum Jehóva er í nöp við samkynhneigð - svo það sé orðað pent. Á dögunum vakti athygli myndband sem trúfélagið notar í boðun sinni; inntak þess er að í hjónabandi geti aðeins verið einn karlmaður og ein kona. Jafnréttisstofa hefur brugðist við þessum boðskap og kynnt forsvarsmönnum Vottanna íslensk hjúskaparlög sem ekki gera greinarmun á gagn- eða samkynja hjónaböndum. Jón Fannar Kolbeinsson lögfræðingur Jafnréttisstofu ræddi við Ólöfu Rún Erlendsdóttur fréttamann á Akureyri. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Only you - The Platters The Nearness of you - Ella Fitzgerald og Louis Armstrong The Windmills of your mind - Barbara Streisand

Morgunvaktin
Kjarasamningar, Psoriasis og Vottar jehóva

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 26, 2022

Kjarasamningar framundan, Wagner-liðar og símenntun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 17, 2022

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna 1. nóvember; eftir tvo og hálfan mánuð. Flest bendir til að samningaviðræður verði strembnar; mikið ber í milli eins og sagt er, ef marka má yfirlýsingar talsmanna atvinnurekenda og launafólks. Hvernig líst ríkissáttasemjara á blikuna og yfir hvaða aðferðum býr hann til að miðla málum?Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari kom til okkar. Svokölluð Wagner-sveit rússneskra málaliða hefur ratað í fréttir eftir innrás Rússa í Úkraínu. Málaliðarnir hafa áður látið til sína taka í átökum á Krímskaga og í Afríku og þykja afar harðsvíraðir. Mikil leynd hefur hvílt yfir sveitinni þar til nýlega en ljóst að hún nýtur velþóknunar rússneskra stjórnvalda. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari hersveit og Wagner þessum sem hún er kennd við. Og við settumst á skólabekk, líkt og tugþúsundir gera þessa dagana. SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, býður upp á fjölbreytt nám og námskeið; meðal annars í íslensku fyrir útlendinga. Amanda Guðrún Bjarnadóttir fréttamaður tók hús á Valgeiri Blöndal Magnússyni framkvæmdastjóra SÍMEY. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Tears on my pillow ? Sha na na Vísur Vatnsenda-Rósu - Guitar Islancio Góða veislu gjöra skal ? Guitar Islancio Shelter from the storm - Bob Dylan

Play Episode Listen Later Aug 17, 2022 130:00

Þjóðmál
#84 – Kampavín og kjarasamningar – Skemmdarverk Samkeppniseftirlitsins – Hver ræður hverju innan Seðlabankans?

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Aug 10, 2022 80:00

Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson ræða um brotthvarf forseta ASÍ og átök innan verkalýðshreyfingarinnar, áhrif þess á komandi kjaraviðræður, áhrif byltingarinnar á liðsmenn hennar og fleira þessu tengt. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og þann skaða sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið í því máli. Loks er rætt um möguleika Seðlabankans til að takast á við verðbólgu og efnahagsaðstæður – en ekki síst um stöðu Ásgeirs Jónssonar innan Seðlabankans, þann mannskap sem hann hefur sér til aðstoðar og hvernig til hefur tekist með sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins

Rauða borðið
Gylfi Zoega um efnahagshorfur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 8, 2022 100:58

Gylfi Zoega prófessor í hagfræði kemur að Rauða borðinu og ræðir horfur í efnahagsmálum; vaxandi verðbólgu, ástæður hennar og möguleika á að berja hana niður; húsnæðismál, kjarasamninga og ójöfnuð. Auk þess ræðir Gylfi bólur og hrun, stríð og farsóttir, og áhrif þessa alls á hagfræðina á liðnum árum.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn

Morgunútvarpið
2. feb - Votlendi, neðansjávarrannsóknir, HIV, kjarasamningar og Hopp

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 2, 2022

Í dag er alþjóðlegi votlendisdagurinn en endurheimt votlendis er eitt af þeim málum sem lögð hefur verið hvað mest áhersla á í baráttunni við loftslagsbreytingar. Þórunn Wolfram, doktor í umhverfisfræðum og sviðsstjóri hjá Landgræðslunni, var á línunni hjá okkur í upphafi þáttar. Upp úr klukkan hálf átta heyrðum við í Ragnari Edvardssyni, fornleifafræðingi við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands í Bolungarvík, en hann hefur vakið mikla athygli fyrir rannsóknir neðansjávar við horfnar hvalstöðvar erlendra þjóða við strendur landsins. Lyfjaframleiðandinn Moderna, sem við Íslendingar þekkjum hvað best fyrir bóluefnið gegn Covid-19, hefur tilkynnt að það sé nú þegar búið að hefja fyrsta fasa í rannsóknum sínum á bóluefni gegn HIV veirunni með bólusetningu á hópi fólks. Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV samtakanna, kom til okkar til að spjalla um þessi tímamót. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði um helgina stöðu efnahagsmála á Íslandi grafalvarlega og að kjaraveturinn fram undan yrði þungur. Við ræddum við Guðmund Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Landsréttur í Danmörku hefur úrskurðað að lögreglunni í Færeyjum hafi ekki verið heimilt að leggja hald á fimmtíu rafskútur frá íslenska fyrirtækinu Hopp síðasta sumar. Við heyrðum í Ebenezer Þórarni Ásgeirssyni, framkvæmdastjóra Hopp í Færeyjum, um málið. Sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindrason frumsýnir brátt nýja sjónvarpsþætti á Stöð 2 sem fjalla um heimilisofbeldi. Sindri og Jenný Kristín Valberg frá Bjarkarhlíð komu til okkar upp úr klukkan hálf níu. Átakið Bindin fram í febrúar hófst í gær en því er ætlað að hvetja fólk til að nota bindi, ekki aðeins karlmenn heldur fólk af öllum kynjum. Við ræddum við skipuleggjanda átaksins, Óskar Þór Þráinsson, upplýsingafræðing og bindisáhugamann. Tónlist: Flott - Þegar ég verð 36 Lily Allen - Smile Cranberries - Just My Imagination Macy Gray - I Try Quarashi - Mr. Jinx Adele - Oh my God Silk Sonic - Smoking out the Window

Play Episode Listen Later Feb 2, 2022 130:00

Loftslagsmál, sjómenn, minkar, bókmenntir og skaðaminnkun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 4, 2021 130:00

Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri fór yfir breyttar áherslur Seðlabanka Íslands varðandi loftslagsmál en bankinn hefur gefið út sérstaka yfirlýsingu í loftlagsmálum og skuldbindur sig til tiltekinna aðgerða sem varða bæði bankann sjálfan og fjármálafyrirtækin í landinu. Gunnar segir að þessi breytta sýn bankans sé í samræmi við það sem margir aðrir seðlabankar eru að gera. Hér á landi skipti meðal annars máli áherslur og metnaðarfull markmið sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hafi sett og aðkoma ungs fólks sem vinnur í bankanum. Loftslagsmálin eru mál málanna og þar þurfi allir að koma að. Hlýnun sjávar geti haft mikil áhrif á íslenskan sjávarútveg og aurflóð eins og urðu á Seyðisfirði fyrir tæpu ári hafa mikil áhrif. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, fór yfir stöðuna í kjaramálum sjómanna en þing Sjómannasambandsins verður sett í dag. Kjarasamningar hafa verið lausir frá því í desember 2019 og upp úr viðræðum slitnaði í haust. Kjaramálin verða rædd á þinginu og ef það samþykkir að grípa til aðgerða gæti verkfall hafist snemma á næsta ári. Á sama tíma og loðnuvertíðin verður í fullum gangi. Öryggismál sjómanna og loftslagsmál verða einnig rædd á þinginu sem stendur í dag og á morgun. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann upp úr klukkan átta og minkamálið stóra í Danmörku var rætt. Mette Frederiksen forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í gærkvöldi til að ræða um horfin smáskilaboð. Þar upplýsti hún að Barbara Bertelsen, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, hefði ráðlagt sér í júní í fyrra, sem sé áður en minkamálið kom upp, að stilla síma sinn þannig að sms-skeytum væri eytt eftir 30 daga. Bogi ræddi einnig um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs en grænlenski rithöfundurinn Niviaq Korneliussen hlaut þau fyrir skáldsöguna Blómadalinn. Það er nafnið á kirkjugarðinum við Tasiilaq. Blómadalurinn fjallar um vanda ungs fólk á Grænlandi og ekki síst tíð sjálfsvíg. Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun og fyrrverandi verkefnastýra Frú Ragnheiðar og Konukots, sat norræna ráðstefnu í Ósló um síðustu helgi þar sem fjallað var um vímuefnamál með áherslu á gagnreyndar aðferðir á sviði stefnu, löggjafar og skaðaminnkunnar. Að sögn Svölu eru Norðmenn framarlega í skaðaminnkandi úrræðum og er verið að opna viðhaldsmeðferðir með heróíni- og amfetamín-skyldum lyfjum fyrir fólk sem er háð örvandi vímuefnum í æð. Á Íslandi og í Noregi er almennur stuðningur landsmanna við afglæpavæðingu á neysluskömmtun og sýnir rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands að 60% Íslendinga eru h

Morgunvaktin
Loftslagsmál, sjómenn, minkar, bókmenntir og skaðaminnkun

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 4, 2021

Spegillinn 7. september 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 7, 2020 30:00

Spegillinn mánudaginn 7. september 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Þremur af hverjum fjórum áætlunarferðum Icelandair hefur verið frestað það sem af er þessum mánuði. Erlend flugfélög hafa flogið 96 prósent sinna ferða. Icelandair ehf. fékk rúmlega þriðjung heildarstuðnings stjórnvalda til fyrirtækja vegna hluta launakostnaðar í uppsagnarfresti í maí, júní og júlí. Þýsk stjórnvöld hafa gefið í skyn að mögulega verði hætt við gasleiðsluna Nord Stream 2 (tvö) til að refsa Rússum fyrir að Alexei Navalny var byrlað eitur. Navalny er kominn til meðvitundar eftir að hafa verið haldið sofandi á sjúkrahúsi í Berlín. Það er aðgerðum innanlands og á landamærum að þakka að stjórnvöld hafa náð tökum á kórónuveirufaraldrinum, segir sóttvarnalæknir Áhersla var lögð á atvinnumál, félagsmál og námsúrræði á fundi sveitarstjórnarmanna í Reykjanesbæ með félags- og barnamálaráðherra í dag. Lengri umfjallanir: Ítrekað hefur komið fram á þessu ári að mörg hjúkrunarheimili sem rekin eru af sjálfseignarstofnunum og sveitarfélögum eigi í miklum rekstrarerfiðleikum og að dagjöld Sjúkratrygginga ríkisins dugi hvergi til að ná endum saman. Akueyrarbær hefur þegar sagt upp samningi sínum við ríkið um rekstur hjúkrunarheimila í bænum. Heilbrigðisstofnun Norðurlands, sem er ríkisstofnun, tekur við rekstrinum um áramót. Nokkur önnur sveitarfélög íhuga að gera slíkt hið sama verði ekki breyting á rekstrarforsendum. Til að ræða stöðu hjúkrunarheimilanna er hingað komin Eybjörg Hauksdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og í síma er Ásgerður Gylfadóttir formaður bæjarráðs Hornafjarðar. Hún situr í stjórn Sambands ísl. Sveitarfélaga og er fyrsti varaþingmaður Framsóknar á Suðurlandi. Þá vinnur Ásgerður sem hjúkrunarfræðingur á Skjólgarði sem er hjúkrunarheimili í Hornafirði. Kristján Sigurjónsson ræðir viið þær. Kjarasamningar eru lausir hjá starfsmönnum álveranna þriggja sem rekin eru hér á landi. Öll verkalýðsfélög álvers Norðuráls á Grundartanga hafa boðað verkföll frá 1. desember. Vilhjálmur Birgisson Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að deilan á Grundartanga sé stál í stál. Arnar Páll Hauksson talaði við hann

Spegillinn
Spegillinn 7. september 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 7, 2020

Hlaðvarp ASÍ
Nýir kjarasamningar SGS við sveitarfélögin - Flosi Eiríksson

Hlaðvarp ASÍ

Play Episode Listen Later Jan 17, 2020 16:18

Sautján aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands skrifuðu undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 16. janúar 2020. Hér fjallar Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS, um helstu atriði samninganna.

sgs samband flosi sveitarf kjarasamningar
Landspítali hlaðvarp
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands: Bakgrunnurinn, baráttan, þjóðmálin og áhyggjurnar af Arsenal

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Dec 6, 2019 35:00

Sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustunni. Á Landspítala starfa yfir 600 sjúkraliðar, en á landinu öllu eru um 4.000 manns með sjúkraliðamenntun og þar af eru 2.100 manns starfandi sem slíkir. Sjúkraliðar eru næststærsta heilbrigðisstétt landsins og starfa á öllum heilbrigðisstofnunum; sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, forvarnar- og endurhæfingarstofnunum, lækna- og rannsóknarstofum og í heimahjúkrun. Viðmælandi okkar að þessu sinni er Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Sandra hefur forvitnilegan bakgrunn, en hún sat á Alþingi um skeið, er heitur aðdáandi knattspyrnuliðsins Arsenal, Hafnfirðingur að uppruna og sótti sér mannsefni norður yfir heiðar.

forma arsenal sj franks lags landsp hafnfir kjarasamningar sandra b franks
Spegillinn
Ákærur í Namibíu, mannfall í Íran og loftslagsráðstefna SÞ

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 2, 2019 30:00

Sexmenningarnir sem grunaðir eru um stórfelld lögbrot í kvótabraski í Namibíu hafa allir verið ákærðir, og úrskurðaðir í varðhald fram í febrúar. Amnesty International segir að yfir tvö hundruð hafi fallið í óeirðum í Íran í síðasta mánuði. Öryggissveitir skutu flesta til bana. Bæði Miðflokkurinn og Píratar bæta við sig fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups á meðan saxast á fylgi Samfylkingarinnar. Hlýtt hefur verið miðað við árstíma víða um land, fór í tæp fimmtán stig á Stafá. Spáð er hvassviðri eða stormi á Norðurlandi eystra og gul viðvörun í gildi fram undir hádegi á morgun. Bátur sem var í eigu útgerðarfyrirtækis Guðmundar Gísla Geirdal, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem dæmdur var til að greiða þrotabúi útgerðarinnar 50 milljónir króna vegna gjafagjörnings, er nú skráður á son hans. Allir vextir af handbæru fé ofanflóðasjóðs renna í ríkissjóð. Tekjur sjóðins eru mun hærri en útgjöld sem Alþingi ákveður og hefur hlaðist uppbókærð eign upp á hátt í 14 milljarða. ------------ Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að þjóðir heims þurfi að sýna að þeim sé alvara í loftslagsmálum. Mannkynið standi á krossgötum og geti nú annaðhvort valið leið vonar eða uppgjafar. Tuttugasta og fimmta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í morgun. Kjarasamningar opinberra starfsmanna hafa nú verið lausir í átta mánuði. Óvíst er hvort samið verði fyrir áramót. Joseph Muscat, forsætisráðherra Möltu tilkynnti í gær um afsögn sína en um leið að hann hyrfi ekki úr embætti fyrr en í janúar. Það er ekki liklegt að sú tilkynning dugi til að draga úr óánægjubálinu sem logað hefur á eyjunni vegna ásakana um spillingu og yfirhylmingu á æðstu stöðum í tengslum við rannsókn á morði blaðakonunnar Daphnear Caruana Galizia að mati Dóru Blöndal Mizzi sem hefur búið áratugum saman á Möltu. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson. Útsendingu stjórnaði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Spegillinn
Ákærur í Namibíu, mannfall í Íran og loftslagsráðstefna SÞ

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 2, 2019

Spegillinn - Hlaðvarp
Kjarasamningar 5 BHM félaga og leiktæki við fjölbýlishús

Spegillinn - Hlaðvarp

Play Episode Listen Later Oct 22, 2019

Fimm BHM-félög sömdu á nótum lífskjarasamningsins. Mánaðarlaun hækka um tæp 70 þúsund á næstu fjórum árum. Samið var til fjögurra ára og um að vinnuvikan geti styst í allt að 36 klukkustundir á viku. Hvernig staðið verður að styttingu vinnuvikunnar ræðst á hverjum vinnustað fyrir sig. Arnar Páll Hauksson. Þetta hangir þarna af gömlum vana og enginn spáir í þetta. Þetta sagði formaður húsfélags fjölbýlishúss í Breiðholti þegar Spegillinn spurði hann um tvær rólur í bakgarðinum sem mega muna sinn fífil fegurri. Líklega séu rólurnar orðnar fjörutíu ára gamlar. Það er strangt eftirlit með leiktækjum á leikvöllum borgarinnar og á skólalóðum en öðru máli gegnir um leiktæki við fjölbýlishús sem víða eru að grotna niður. Spegillinn hitti Árný Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, á einum af fjölmörgum leikvöllum borgarinnar. Arnhildur Hálfdánardóttir tók pistilinn saman Anna Kristín Jónsdóttir segir frá Naruhito Japanskeirsara.

Spegillinn
Nethatur og ókláraðir kjarasamningar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019 30:00

Undanfarin þrjú ár hefur verið fjárfest í ferðaþjónustu fyrir rúma 243 milljarða. Fjárfestingar í hótelum hafa aldrei verið meiri en í ár, 38 milljarðar. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur boðað til neyðarfundar vegna útbreiðslu ebólu. Boris Johnson, frambjóðandi í leiðtogabaráttu í Íhaldsflokknum breska, ætlar ekki að standa að útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu án samnings, nema það sé síðasti valkosturinn sem býðst. Fjölmörgum kjarasamningum er ólokið. Svo gæti farið að kjaraviðræður færist fram á haustið. Sumarlokun verður hjá ríkissáttasemjara í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Stjórnmálafræðingur og aðjúnkt í siðfræði óttast að hamslaust hatur færist í vöxt í netheimum. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardótir Tæknimaður: Mark Eldred

Hlaðvarp ASÍ
Helstu atriði nýs kjarasamnings iðnaðarmanna

Hlaðvarp ASÍ

Play Episode Listen Later May 7, 2019 14:34

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, fer yfir helstu atriði kjarasamninga iðnaðarmanna sem undirritaðir voru 3. maí 2019.

Hlaðvarp ASÍ
Helstu atriði kjarasamninga verslunar- og verkafólks

Hlaðvarp ASÍ

Play Episode Listen Later Apr 9, 2019 11:55

Henný Hinz og Róbert Farestveit, hagfræðingar ASÍ, fara yfir helstu atriði kjarasamninganna sem undirritaðir voru 3. apríl 2019.

vr atri helstu kjarasamningar henn hinz
Hlaðvarp ASÍ
Drífa Snædal forseti ASÍ ræðir nýgerða kjarasamninga

Hlaðvarp ASÍ

Play Episode Listen Later Apr 4, 2019 12:53

Drífa Snædal, forseti ASÍ, fer yfir aðdraganda kjarasamninganna og helstu atriði í laufléttu spjalli við Snorra Má Skúlason.

sn forseti kjarasamningar
Morgunvaktin
Líklegt að vextir haldist óbreyttir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 19, 2019 130:00

Staða efnahagsmála á Íslandi er í öllum meginatriðum góð. Hér er hagvöxtur, lítið atvinnuleysi, afgangur af rekstri ríkissjóðs, ríkisskuldir fara minnkandi, skuldir heimilanna eru minni en oftast áður og svo mætti áfram telja. En blikur eru á lofti. Kjarasamningar eru í hnút, flugfélögin í vanda og engin er loðnan í ár. Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir á morgun vaxtaákvörðun. Hvað er líklegt að nefndin ákveði? Við veltum vöngum með Þórði Snæ Júlíussyni í spjalli um samfélagið og efnahaginn. Líklega verða vextir ekki lækkaðir - eða hækkaðir. Hann talaði líka um hvernig Íslendingar hefðu vanrækt að setja upp varnir gegn peningaþvætti. Beðið er úrbóta á því sviði. - Ár er liðið frá því núverandi ríkisstjórn Kristilegra og Jafnaðarmanna í Þýskalandi tók til starfa. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði um þýsk stjórnmál og sagði líka þeim hugmyndum sem nú eru uppi um að sameina tvær öflugustu fjármálastofnanir Þýskalands, Deutsche Bank og Commerzbank. - Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna sérfræðinga á Íslandi hefur byggt upp færni og þekkingu sérfræðinga í sjávarútvegi og fiskeldi í þróunarlöndum víða um heim í rúma tvo áratugi. Við fræddumst um þetta merkilega starf, þýðingu þess og framtíðarhorfur. Tumi Tómasson, forstöðumaður Sjávarútvegsskólans, sagði frá yfirvofandi breytingum, en samstarfi skólans við Háskóla Sameinuðu þjóðanna lýkur í árslok. - Tónlist: Sextett Charlie Parker - How deep is the ocean.

bj sj hva sta deutsche bank hann commerzbank arth snj sameinu kjarasamningar bollason jafna kristilegra
Vikulokin
Þingstörfin, kjarasamningar, borgarlína og sveitastjórnarmál

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jan 20, 2018 58:00

Gestir þáttarins eru þingmennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson, Bryndís Haraldsdóttir og Kolbeinn Óttarsson Proppé. Rætt er meðal annars um þingstörfin framundan, kjarasamninga, Borgarlínu og sveitarstjórnarmál.

Hlaðvarp Kjarnans
Kvikan - 1. mars 2017

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Mar 1, 2017 55:05

Kjarasamningar héldu þrátt fyrir forsendubrest. Raunar var þeim reddað fyrir horn á allra síðustu dögum með því að ríkið bætti 1,5 milljarði króna í stofnframlög til almennra íbúða svo að ein af þremur meginforsendum kjarasamninga myndi halda. Mikilvægasta forsendan, sú að launahækkanir allra haldist innan ákveðins ramma er hins vegar brostin, meðal annars vegna þess að laun þingmanna hækkuðu langt umfram þau viðmið sem sett voru. Áfengisfrumvarpið var afgreitt inn í allsherjar- og menntamálanefnd í gær þar sem sitja ansi margir flutningsmenn þess. Ansi góðar líkur eru því á að frumvarpið verði loks afgreitt til annarrar umræðu. En hvernig munu atkvæði falla? Lausleg hausatalning, án allrar ábyrgðar, gefur til kynna að Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra gæti ráðið úrslitum með atkvæði sínu um hvort áfengi verði selt í búðum og auglýsingar á áfengi verði heimilaðar á Íslandi. Þá fjallar Kvikan um fyrirhugaðar bankasölur, endalaust vesen Borgunar og loks viðurkennt neyðarástand á húsnæðismarkaði. Umsjónarmenn eru Þórunn Elísabet Bogadóttir og Þórður Snær Júlíusson.