Podcasts about freyr g

  • 16PODCASTS
  • 393EPISODES
  • 1h 13mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • Feb 19, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about freyr g

Latest podcast episodes about freyr g

Spegillinn
Samgönguáætlun, loftslagsmál, havarí í bresku hirðinni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2026 20:00


Varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur samgönguáætlun innviðaráðherra hafa verið afhjúpaða sem hreinræktað kjördæmapot. Þingmaður Samfylkingarinnar segir umfjöllun síðustu daga brýna þingmenn að vanda vel til verka. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Jens Garðar Helgason og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Loftslagsráð Evrópusambandsins hvetur ráðamenn þar til að búa sig undir allt að 3,3 gráðu hlýnun í álfunni á þessari öld - annars sé voðinn vís. En hvað er þetta ráð og í hverju felast ráðleggingar þess? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson, fagstjóra veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands. Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn í morgun og húsleit gerð á heimili hans í Norfolk segir í tilkynningu lögreglunnar í Thames-dalnum á Englandi, vegna rannsóknar á misferli í opinberu starfi. Brot sem getur varðað lífstíðarfangelsi. Maðurinn er í vörslu lögreglu, ekki er vitað hvar og hann er ekki nefndur í tilkynningunni. Maðurinn er Andrew Mountbatten Windsor, betur þekktur sem Andrés prins, sem þó er ekki lengur prins. Anna Kristín Jónsdóttir reifar málið og ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur í Lundúnum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

bj ve sj norfolk brot lund thames dav inni gunnarsson halld sigr helgason umsj samg englandi samfylkingarinnar anna krist freyr g karlma
Spegillinn
Loftslagsmál, byggðakvóti og umdeildur körfuboltaþjálfari

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 18, 2026 20:00


Veðurlag hefur um margt verið óvenjulegt í vetur. Hér voru hlýindi langt fram eftir hausti en miklar froststillur og þurrkur einkenna byrjun þessa árs. Óvenju hlýtt hefur verið á Grænlandi en óvenju kalt í Danmörku og Norður-, Mið- og Austurevrópu almennt - og líka óvenjuþurrt. Í sunnanverðri álfunni hefur hins vegar gengið á með úrhellisrigningu og miklum flóðum. Að hve miklu leyti má rekja þetta til loftslagsbreytinga og hvernig er það gert? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar allsherjarendurskoðun á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta. Þetta er gert með vísan í úttekt Ríkisendurskoðunar, þar sem kerfið er harðlega gagnrýnt. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Örn Pálsson, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu eru ósáttir við hversu langan tíma mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið sér í að afgreiða kvörtun vegna álits embættis samskiptaráðgjafa Íþrótta- og æskulýðsstarfs á þjálfunaraðferðum körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Þeir telja álitið hafa valdið Brynjari, félaginu og iðkendum óafturkræfum skaða. Freyr Gígja Gunnarsson reifar þetta mál. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Verðbólga og vextir slá ekki á neysluna, Grænland og sagan til sjálfstæðis

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 4, 2026 20:00


Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í morgun að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum. Þrátt fyrir að verðbólgan hafi verið þrálát og vextir mjög háir virðist það ekki bíta í budduna hjá stórum hópi fólks. Freyr Gígja Gunnarsson kannar hverju þetta sætir og ræðir við þau Ernu Björg Sverrisdóttur og Kolbein Hólmar Stefánsson. Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands segir Íslendinga þurfa að gangast við því að hér var litið niður á Grænlendinga fyrr á árum - en það hafi breyst sem betur fer. Nú eigum við að efla samskiptin og styðja Grænlendinga með ráðum og dáð, segir hann og virða rétt þeirra til að ákveða sjálfir sína framtíð og sjálfstæði. Ágúst Ólafsson ræðir við Guðna. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Bjarni Benediktsson tekur við SA, kosningar í Mjanmar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 26, 2026 20:00


Samtök atvinnulífsins tilkynntu í morgun að þau hefðu ráðið Bjarna Benediktsson sem nýjan framkvæmdastjóra. Bjarna þarf ekki að kynna til leiks; hann sat á Alþingi í 22 ár og var einn aðsópsmesti en um leið umdeildasti stjórnmálaforingi landsins. Sem fjármálaráðherra í áratug var hann áhrifamikill í íslensku efnahagslífi og hafði sterkar skoðanir á mikilvægi aðila vinnumarkaðarins fyrir stöðugleika. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Bjarna - og Hölku Gunnarsdóttur, formann VR, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar. Þriggja umferða kosningum lauk í Mjanmar í gær, sunnudag. Þetta voru fyrstu kosningarnar þar frá því að herinn steypti lýðræðislega kjörinni stjórn af stóli, enn einu sinni, eftir tíu ára lýðræðistilraun. Herforingjastjórnin segir kosningarnar leið til aukins lýðræðis og sátta, en gagnrýnendur segja þær skrípaleik, til þess gerðan að treysta enn völd hersins í landinu. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

vr sem samt gunnarsson gunnarsd umsj bjarna bjarni benediktsson eflingar freyr g
Spegillinn
Alþjóðamál á Alþingi og í Davos; Grænland, Bandaríkin, Úkraína, Gaza ...

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 22, 2026 20:15


Utanríkisráðherra flutti munnlega skýrslu um stöðu alþjóðamála á fimmtudag, þar sem hún lýsti gjörbreyttri stöðu í heimspólitíkinni, og þingmenn stjórnarandstöðu svöruðu málflutningi hennar. Samstaða var um óbilandi stuðning við Grænlendinga gegn ásælni Bandaríkjaforseta í land þeirra, en tekist var á um hvernig það yrði best gert. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman umræður dagsins. Í framhaldinu ræddi Ævar Örn Jósepsson við þær Svanhildi Þorvaldsdóttur dósent við Háskóla Íslands og Birtu Björnsdóttur fréttamann um stöðuna í alþjóðamálum og þróun síðustu daga og vikna. Málefni Grænlands, Úkraína, Gaza og fleira kemur þar við sögu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Breytt viðhorf til kynferðisbrota, mönnun heilbrigðisstétta og leiðir til að letja Trump frá yfirtöku Grænlands

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2026 20:00


Kynferðisbrot gegn börnum eru einn viðkvæmasti brotaflokkurinn og það er regla frekar en undantekning að fjölmiðlar fái fyrst veður af þeim þegar ákæra er gefin út eða dómur fallinn. Fátítt er að sakborningar séu nafngreindir. Þetta virðist vera að breytast. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing. Mannekla í heilbrigðiskerfinu hefur verið rædd um árabil. Í nýjum Talnabrunni landlæknis er farið yfir mannaflaþróun nokkurra heilbrigðisstétta undanfarin ár og segir þar að fjöldi starfsfólks með gilt starfsleyfi fylgi mannfjöldaþróun ágætlega og hjá sumum stéttum hafi starfsleyfum fjölgað umfram mannfjölda. Það á við um hjúkrunarfræðinga, lækna og sálfræðinga. En hjá flestum stéttunum er töluverður munur á fjölda starfsleyfa og fjölda starfandi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta við Unni Berglindi Friðriksdóttur, formann Ljósmæðrafélags Íslands. Undanfarna viku eða svo hefur vart liðið sá dagur að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi ekki ítrekað beinar og óbeinar hótanir sínar um yfirtöku Grænlands með hervaldi, verði Grænlendingar og Danir ekki við kröfu hans um að afhenda Bandaríkjunum full yfirráð yfir þessum næsta nágranna okkar Íslendinga. En hvað er til ráða? Hvernig geta bandamenn Grænlendinga og Dana gert til að letja Trump frá fjandsamlegri yfirtöku Grænlands? Ævar Örn Jósepsson reifar málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

donald trump lj isst bandar gunnarsson hvernig margr umsj danir heilbrig valdimarsd anna krist freyr g undanfarna donald trump bandar
Spegillinn
Kókaín flutt inn í stórum stíl, minnkandi neyðaraðstoð á tímum vaxandi neyðar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 17, 2025 20:00


Eftirspurn eftir kókaíni á Íslandi virðist óþrjótandi og efnið berst til landsins úr öllum áttum. Áhersla Bandaríkjastjórnar á fentanyl-faraldurinn er talin ein helsta ástæða þess að kókaínsmygl þrífst betur en áður. Lögregla og tollgæsla hafa haldlagt á annað hundrað kílóa af kókaíni það sem af er þessu ári. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið. Neyðarlistinn - The Emergency Watchlist - er skýrsla sem alþjóðlegu hjálparsamtökin International Rescue Committee, IRC, gefur út árlega, um þau tuttugu lönd þar sem neyð almennings er stærst og þykir líklegust til að aukast mest á ári komanda. Súdan, Palestína og Suður-Súdan eru efst á á listanum í ár, í þessari röð, þriðja árið í röð. Upplausn í alþjóðastjórnmálum leiðir til aukinnar neyðar - en minni framlaga til neyðaraðstoðar. Ævar Örn Jósepsson skoðar þetta og ræðir við Bjarna Gíslason, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Ísland sniðgengur Eurovision, HS Orka um kostnaðarþátttöku í varnargörðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 10, 2025 20:00


Ríkisútvarpið tekur ekki þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á næsta ári. Af tilkynningu útvarpsstjóra má ráða að þetta sé ekki síst gert vegna þeirrar miklu andstöðu jafnt listamanna sem almennings hér á landi við það, að Ísraelar taki þátt. Deilur um þessa annars ástsælu keppni eru ekkert nýtt og sniðganga hennar - meðal annars og ekki síst vegna þátttöku Ísraela - ekki heldur, eins og Anna Kristín Jónsdóttir rekur, áður en Ævar Örn Jósepsson talar við Stefán Eiríksson útvarpsstjóra um þessa ákvörðun hans og framkvæmdastjórnar RÚV. HS Orka telur varnargarðana í Grindavík fyrst og fremst hafa verið reista til að verja almannahagsmuni en ekki hagsmuni orkufyrirtækisins. Kostnaður félagsins frá upphafi jarðhræringanna við Grindavík er umtalsverður og ekki sér fyrir endann á honum. Freyr Gígja Gunnarsson kannaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Samgönguáætlun og viðbrögð við henni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 3, 2025 20:00


Ræsum vélarnar er yfirskrift nýrrar samgönguáætlunar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynntu í morgun, ásamt stofnun innviðafélags. Áætlunin er fyrir árin 2026 til 2040 og innviðafélagið er stofnað um stærri samgönguframkvæmdir. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman það helsta úr kynningu þeirra. Seyðfirðingar sem Ágúst Ólafsson ræddi við á förnum vegi í dag voru ekki par ánægðir með tíðindi dagsins og það var Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings ekki heldur þegar Ágúst talaði við hana í beinni útsendingu. Siglfirðinga og Fljótafólk var að vonum ánægt með niðurstöðuna, enda Fljótagöng - milli Siglufjarðar og Fljóta - sett í forgang í nýrri samgönguáætlun. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Guðjón M. Ólafsson, formann bæjarráðs Fjallabyggðar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

gu stef gunnarsson og vi sey henni umsj eyj samg flj frostad kristr anna krist freyr g
Spegillinn
Valdatafl í Valhöll, Þróun afbrota á Íslandi, staða efnahagsmála í ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 26, 2025 20:00


Útlit er fyrir að slagur um oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík geti orðið býsna harður. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, íhugar alvarlega að gefa kost á sér í leiðtogakjöri flokksins í lok janúar, leiðtogasæti sem Hildur Björnsdóttir, núverandi oddviti, ætlar ekki að gefa svo glatt eftir. Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir mögulegan leiðtogaslag sjálfstæðismanna í Borginni. Mikið hefur verið rætt um ofbeldi á Íslandi undanfarin misseri - og ekki síst hafa verið áberandi áhyggjur af hnífaburði ungmenna og hann talinn vaxandi. Alvarlegustu ofbeldismálin, sérstaklega þegar börn eiga í hlut, vekja mikinn ugg og þau hafa verið óvenjutíð undanfarið. Helgi Gunnlaugsson prófessor hefur rannsakað afbrot á Íslandi um áratugaskeið og skrifar í grein í nýjasta hefti Skírnis að brýnt sé að greina þróunina og vandann sem við er að etja - en bendir á að auknar áhyggjur af afbrotum og ofbeldi séu ekki nýtilkomnar og í opinberum gögnum sé ekki að sjá að brotum fari fjölgandi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Helga. Þjóðarframleiðsla Evrópusambandsríkjanna vex um tæplega eitt og hálft prósent á næsta ári, og búist er við að verðbólga verði rétt ríflega tvö prósent. Þetta kemur fram í nýrri efnahagsspá sem kynnt var í Brussel fyrir nokkrum dögum. Meðaltalið felur hins vegar talsverðan mun milli ríkjanna og þýskur efnahagur verður áfram í kröggum. Björn Malmquist talar frá Brussel.

bj gu sj miki brussel reykjav gunnarsson evr malmquist anna krist valh hildur bj freyr g
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - föstudagur 21. nóvember 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 21, 2025 52:56


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar og fararstjóri íslenska hópsins í Eurovision Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri Símatími Salvör Nordal umboðsmaður barna um Barnaþing Kristján Berg Ásgeirsson Fiskikóngurinn býst við miklum skorti á tindaskötu fyrir þessi jól Arnar Eggert Thoroddsen doktor í tónlistarfræðum og blaðamaður á Morgunblaðinu um Björk sem fagnar sextíu ára afmæli sínu í dag

bj berg ey reykjav morgunbla nordal freyr g
Spegillinn
Tollar ESB á málmblendi frá EES, stýrivaxtalækkun og mál ríkislögreglustjóra

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 19, 2025 20:00


Utanríkisráðherrar EES ríkjanna verða á morgun í Brussel á fundi ráðherraráðs Evrópska efnahagssvæðisins. Fundurinn er haldinn í skugga þeirrar ákvörðunar um verndarráðstafanir sem Evrópusambandið ákvað á þriðjudaginn. Björn Malmquist fréttamaður ræddi þessi mál við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem kom til Brussel í dag. Seðlabanki Íslands lækkaði í dagstýrivexti um 0,25 prósentustig. Anna Kristín Jónsdóttir leitaði álits Katrínar Ólafsdóttur deildarforseta viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík, á þessari ákvörðun og mögulegum afleiðingum hennar. Ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu fundaði með Sigríði Björk Guðjónsdóttur þáverandi ríkislögreglustjóra undir fjögur augu nokkrum dögum áður en hún sagði af sér embætti. Fundurinn var haldinn á heimili ráðuneytisstjórans að loknum vinnudegi. Forsætisráðherra segir ráðuneytisstjórann ekki hafa farið með nein skilaboð frá henni inn á fundinn. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Ofbeldi barna og glæpagengi, Lesturinn, æskan og íslenskan

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 17, 2025 20:00


Það hefur komið á óvart hversu hratt aðferðafræðin hjá skipulögðum brotahópum í löndum eins og Svíþjóð, að nota börn og ungmenni til að fremja glæpi, hefur náð til Íslands. Það sem gerist á öðrum Norðurlöndum er að gerast hér, segir Katrín Sif Oddgeirsdóttir, sérfræðingur hjá ríkislögreglustjóra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Af fáu hafa Íslendingar meiri áhyggjur en íslenskri tungu. Sama hvert litið er, ógnirnar eru alstaðar, hnignunarmerkin líka og spurningin er ekki hvort, heldur hvenær dánarvottorðið verði gefið út. Í gær, á degi íslenskrar tungu, hlaut Dröfn Vilhjálmsdóttir, safnstjóri skólasafns Seljaskóla verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Hún segir ekkert vanta upp a lestraráhuga barna og ungmenna - hins vegar vanti meira lesefni. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Dröfn. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Ríkislögreglustjóri hættir og afsagnir hjá breska ríkisútvarpinu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 10, 2025 20:00


Sigríður Björk Guðjónsdóttir gekk á fund dómsmálaráðherra í ráðuneytinu við Skúlagötu 4 klukkan eitt í gær. Niðurstaða fundarins var að hún myndi hætta sem ríkislögreglustjóri en yrði í staðinn sérfræðingur í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi hjá ráðuneytinu. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra. Mikill styr stendur um breska ríkisútvarpið BBC, en um helgina hættu bæði útvarpsstjórinn Tim Davie og fréttastjórinn Deborah Turness og vísuðu til umfjöllunar um fréttaskýringarþáttinn Panorama sem væri farinn að skaða BBC. Stjórnarformaðurinn baðst afsökunar á vinnubrögðunum. Ingibjörg Þórðardóttir fyrrverandi ritstjóri hjá BBC trúir ekki á að þar ríki kerfislæg hlutdrægni en oft sé brugðist seint og illa við þegar mistök eru gerð.

Spegillinn
Viðskipti ríkislögreglustjóra við Intru ráðgjöf og forsetakosningarnar í Argentínu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 29, 2025 20:00


Spegillinn hefur síðustu daga fjallað um umfangsmikil viðskipti ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtækið Intru ráðgjöf. Þau hafa verið gagnrýnd og dómsmálaráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í gær að áferð málsins væri ekki góð. Hún ítrekaði þau skilaboð eftir fund sinn með ríkislögreglustjóra í dag. En hvað segir ríkislögreglustjóri? Freyr Gígja Gunnarsson ræddi ítarlega við Sigríði Björk Guðjónsdóttur. Niðurstöður forsetakosninga í Argentínu um helgina þar sem flokkur forsetans, hægri pópúlistans Javiers Milei, Frelsið fremst fékk 40% atkvæða, komu mörgum greinendanum á óvart að sögn Hólmfríðar Garðarsdóttur prófessors í spænsku. Hún er í Buenos Aires og Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana um úrslit kosninganna. Kosið var um hluta þingmanna og bætti Frelsið fremst verulega við sig, en er þó ekki stærstur flokka á þingi. Hólmfríður telur að óttinn við að Bandaríkjastjórn myndi hætta við björgunarpakka, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna var búinn að lofa, gæti hafa haft mikil áhrif.

Spegillinn
Launadeila Innheimtustofnunar og fyrrverandi forstjóra, raforkukerfi á Norðausturlandi og stríð fjölmiðla við bandaríska stríðsráðuneytið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 15, 2025 19:50


Fyrrverandi forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaganna krefst þess að stofnunin greiði honum rúmar níutíu milljónir. Hann er með réttarstöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara sem er á lokastigi. Innheimtustofnun hafnar öllum kröfum og telur forstjórann fyrrverandi hafa valdið henni miklu tjóni með ákvörðunum sínum. Freyr Gígja Gunnarsson reifar málið. Talið er kosta allt að sjö og hálfum milljarði að ráðast í nauðsynlegar endurbætur á raforkukerfinu á Norðausturlandi svo hægt verði að flytja nægt rafmagn til allra byggðarlaga. Núverandi afhendingargeta rafmagns er að mestu uppurin með tilheyrandi áhrifum á orkuskipti, búsetuþróun og atvinnumál, segir Kristín Soffía Jónsdóttir í viðtali við Ágúst Ólafsson. Frétta- og tökumenn bandarísku sjónvarpsstöðvanna ABC, CBS, NBC og CNN og Fox News eru í óða önn að tæma skrifstofur sínar í Pentagon, höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins, sem nú heitir reyndar stríðsráðuneyti. Sama á við um nánast alla aðra fjölmiðla, bandaríska og alþjóðlega, sem voru með aðstöðu í ráðuneytinu. Ástæðan er nýjar reglur ráðuneytisins sem fjölmiðlar telja stjórnarskrárbrot sem heftir getu þeirra til að fylgja grunngildum blaðamennsku og sinna skyldum sínum við almenning. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson. Tæknimaður: Mark Eldred.

Spegillinn
Lögmæti hafnbanns og handtaka á Miðjarðarhafi, bútasaumur og biluð tæki á Landspítala og gullverð í hæstu hæðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 8, 2025 20:00


Ísraelar hafa hindrað för skipa sem sigla með vistir til Gaza - handtekið fólk um borð og sent svo úr landi. Í morgun fóru ísraelskir hermenn um borð í skipið Conscience sem er hluti af friðarflotanum og handtóku meðal annarra tónlistarkonuna Möggu Stínu. Eru þær handtökur löglegar? Snjólaug Árnadóttir dósent við HR og sérfræðingur í Hafrétti svarar því. Bútasaumur er orð sem Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítalans finnst lýsandi um rekstur spítalans á meðan beðið er eftir nýjum. Hann hefur áhyggjur af því að tæki spítalans séu að verða úrelt, fjármagn vanti til að fara í nauðsynlegt viðhald og að Ísland sé smám saman að dragast aftur úr nágrannalöndunum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hann. Verð á gulli hefur hækkað hratt og mikið undanfarna mánuði og fór í dag í 4.031 Bandaríkjadal á únsuna, sem er hin staðlaða eining í gullviðskiptum. Þetta er í fyrsta skipti sem verð á gulli fer upp fyrir 4.000 dollara á únsuna, en það hefur hækkað um 50 prósent á hálfu ári. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og ræðir við Eld Ólafsson, framkvæmdastjóra gullnámufyrirtækisins Amaroq. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 9. september 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 9, 2025 84:36


Öll viðtölin úr þætti dagsins: Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Andri Snær Magnason og vindmylluver Kristinn Már  Gunnarsson framkvæmdastjóri og stofnandi Baridi í Tansaníu um vinnslu á kopar grafit og liþíum Gummi Ben um leik Frakka og Íslendinga Anna Margrét Bjarnadóttir verkefnastjóri Guls september hjá embætti Landlæknis

Spegillinn
Málefni Kvikmyndaskóla Íslands

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 22, 2025 10:00


Háskólaráðherra finnst hann ekki skulda fyrrverandi stjórnarformanni Kvikmyndaskólans frekari svör og segir niðurstöðu um að veita skólanum ekki háskólaviðurkenningu á sínum tíma hafa verið rétta. Fyrrverandi stjórnarformaður skólans telur skólann hafa staðist úttekt um háskólaviðurkenningu; annað séu rangfærslur um starfsemina. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta og ræðir við Loga Einarsson háskólaráðherra. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

gu gunnarsson umsj fyrrverandi freyr g
Spegillinn
Kvikmyndaskóli Íslands

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 9, 2025 10:00


Þegar Kvikmyndaskóli Íslands var að verða gjaldþrota á vormánuðum vaknaði spurning hjá embættismanni í menntamálaráðuneytinu um hvað ætti að gera við nemendurna? Væri endilega gott að þeir héldu áfram námi sínu undir merkjum Kvikmyndaskóla Íslands? Hvers konar prófgráðu væru þeir að útskrifast með? Hvers virði væri hún og hvað stæði á námskírteininu? Freyr Gígja Gunnarsson kannaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Spegillinn
Erlendir glæpahópar nýta sér gloppur í íslenskum lögum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 4, 2025 10:00


Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur lögreglustjórans á Suðurnesjum sendi á síðasta ári dómsmálaráðuneytinu nokkur minnisblöð þar sem bent var á gloppur í kerfinu og varað við því að skipulagðir brotahópar hér á landi misnotuðu kerfi landsins, sérstaklega þau kerfi sem fengust við málefni útlendinga. Spegillinn fékk þessi minnisblöð afhent nýverið og Freyr Gígja Gunnarsson ræddi innihald þeirra við Öldu Hrönn. Hún segir erlenda brotahópa nýta sér gloppurnar með ýmsum hætti, enda virðist sumir þessara hópa jafnvel þekkja íslenkt lagaumhverfi betur en þeir sem hér búa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

gunnarsson helgason umsj freyr g erlendir
Spegillinn
315 milljónir í öryggisgæslu fyrir erlend fyrirmenni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 1, 2025 10:00


Kostnaður embættis ríkislögreglustjóra við öryggisgæslu í tengslum við erlend fyrirmenni sem hingað koma nemur 315 milljónum króna frá árinu 2023. Kröfurnar eru sífellt að verða meiri sem meðal annars má rekja til aukinnar óvissu í heimsmálum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, ríkislögreglustjóra.

RTÉ - Morning Ireland
French woman arrested after Irish residents killed in Iceland

RTÉ - Morning Ireland

Play Episode Listen Later Jun 17, 2025 3:03


Freyr Gígja Gunnarsson, News Reporter at Iceland's national broadcaster, RÚV, details the incident in which an Irish resident was arrested after her husband and daughter were stabbed to death in Iceland.

Mannlegi þátturinn
VÆB á leið til Basel, Léttsveit Reykjavíkur og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 29, 2025 50:00


VÆB bræður, Matthías og Hálfdán, stíga á svið í Basel fyrir Íslands hönd á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision 13.maí. Hópurinn fer til Sviss síðar í vikunni og það er skiljanlega mikil spenna fyrir því sem koma skal. Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins og VÆB var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það sem er framundan og stemninguna í hópnum. Léttsveit Reykjavíkur er stærsti kvennakór landsins, en hann samanstendur af 100 konum á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn. Léttsveitin á þrjátíu ára afmæli í ár og verður því með ýmsa viðburði tengda afmælinu víða um landið. Við fengum þær Ingibjörgu Margréti Gunnlaugsdóttur, formann kórsins og Helgu Björk Jónsdóttur, kórfélaga, til að segja okkur frá kórnum, starfseminni og afmælisárinu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ræddi hann við okkur um rafmagnsleysið á Spáni og í Portúgal undanfarinn sólarhring og tengsl þess við veður. Hann talaði svo um þessa góðu tíð sem hefur verið undanfarið og bar hana saman við sama tíma í fyrra og svo skoðuðum við aðeins horfurnar framundan. Kemur hret? Einar fór með okkur yfir það í veðurspjallinu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Vorið kemur / Diddú (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) Róa / VÆB (Ingi Bauer, Gunnar Björn Gunnarsson, Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir, enskur texti Peter Fenner) Langferð (Aften) / Léttsveit Reykjavíkur (Matti Borg, texti Eygló Eyjólfsdóttir) Þá mun vorið vaxa / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 22. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 22, 2025 67:37


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Siggi Stormur / Sigurður Þ Ragnarsson ræddi við okkur um veðurblíðuna sem hefur verið á landinu undanfarið og framhaldið í veðrinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri íslenska Eurovision hópsins um að banna þáttöku Ísraela í keppninni Símatími - við heyrðum í hlustendum Þórunn Sigurðardóttir framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs húsnæðis og mannvirkjastofnunnar ræddi við okkur um galla í nýbygginum á Íslandi Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB um bensínverð á landinu Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og stjórnandi meðvirknihlaðvarpsins um riflindi í samböndum Jokka G Birnudóttir í vara formaður Sniglanna um akstur mótorhjóla og gaf góð ráð

Spegillinn
Dómsmálaráðherra um skipulagða brotastarfsemi og garðyrkjubóndi og himinhátt rafmagnsverð

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 16, 2025 20:03


Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir stjórnvöld getað gripið til margra aðgerða í baráttu sinni gegn skipulagðri brotastarfsemi; fjölga lögreglumönnum, efla fræðslu og auka heimildir lögreglu. Hún viðurkennir að staðan í fangelsismálum sé mjög slæm og það séu eins röng skilaboð og hugsast getur þegar maður hlýtur dóm en þarf aldrei að sitja hann af sér. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Ef ekki verður gripið inn í sífelldar hækkanir á rafmagni er viðbúið að margir garðyrkjubændur gefist upp fyrr en seinna. Þetta segir Páll Ólafsson garðyrkjubóndi norður í Þingeyjarsýslu sem borgaði 90 milljónir í rafmagn í fyrra. Hann býst við 125 milljóna króna rafmagnsreikningi í ár. Ágúst Ólafsson ræðir við Pál. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Samkeppnislagabrot sem fyrnast, gagnrýni á strandveiðar og umdeildir gestir á ísraelskri ráðstefnu um gyðingahatur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 27, 2025 20:00


Rannsókn héraðssaksóknara á samkeppnislagabrotum fjögurra starfsmanna Samskipa og Eimskips var hætt í desember þar sem of langt hlé hafði verið gert á rannsókninni og hún taldist því fyrnd. Fjórir voru með réttarstöðu sakbornings í nærri sjö ár. Héraðssaksóknari og Samkeppniseftirlitið ætla að ræða stöðuna við dómsmálaráðherra. Formaður Neytendasamtakana segir samkeppnislagabrot hafa lítinn fælingarmátt ef engin sætir ábyrgð. Freyr Gígja Gunnarsson rýndi í málið og ræddi við Ólaf Þór Hauksson og Breka Karlsson. Sveitarstjórnir víða um land hafa lýst efasemdum um þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað á strandveiðum svo tryggja megi 48 daga samfellda vertíð. Ekki hafi verið sýnt fram á hvert eigi að sækja veiðiheimildir fyrir aukna strandveiði. Það megi ekki skerða kvóta til annarra útgerða. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Gylfa Ólafsson og Jón Björn Hákonarson. Í dag lýkur alþjóðlegri, tveggja daga ráðstefnu í Jerúsalem, um gyðingahatur og hvernig skuli takast á við það. Ráðstefnan er haldin á vegum ráðuneytis um málefni gyðinga utan Ísraels og baráttu gegn gyðingahatri, undir yfirskriftinni: Hver eru helstu öflin á bak við gyðingahatur nútímans? Umræðuefnið er aðkallandi, því andúð og hatur í garð gyðinga hefur sannarlega farið vaxandi í hinum vestræna heimi undanfarin misseri. Þátttaka fjölda evrópskra öfga-hægrimanna hefur hins vegar vakið mikla gagnrýni og margir hættu við þátttöku. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Spegillinn
Málefni barna í vanda, Ísraelar rjúfa vopnahlé og grásleppukvóti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 19:52


Spegillinn fjallaði í gær ítarlega um meðferðarheimili fyrir börn sem til stóð að reisa í Garðabæ. Þar kom meðal annars fram að Barna- og fjölskyldustofa hefði gefist upp á biðinni og viljað að húsið yrði reist í Mosfellsbæ. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, sem hefur mikla reynslu af þessum málum, segir umfjöllunina í gær hafa eiginlega staðfest tilfinningu sem hún hafi haft lengi. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. „Stríðið 'um frið fyrir Netanyahu' er byrjað,“ sagði Tamir Pardo, fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad á fjölmennum mótmælafundi í Tel Aviv í gær. Með þessu vísar Pardo í útbreidda skoðun pólitískra andstæðinga forsætisráðherrans Benjamíns Netanyahus, sem saka hann um að skeyta í engu um líf þeirra gísla sem enn eru í haldi Hamas, heldur hugsa bara um eigin pólitísku framtíð með því að rjúfa vopnahléið og hefja aftur mannskæðar loftárásir á Gaza. Pardo er ekki einn um þessa skoðun, eins og Ævar Örn Jósepsson fjallar um. Í upphafi árs var gefinn út grásleppukvóti í fyrsta sinn. Lögin sem samþykkt voru í fyrra áttu að auka hagræði í greininni og tryggja öryggi sjómanna, en líka að koma í veg fyrir samþjöppun aflaheimilda á fárra hendur. Sjávarútvegurinn hefur enn ýmsar spurningar um framkvæmdina og hver hagnast á nýja kvótanum. Gréta Sigríður Einarsdóttir kannaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Vegakerfi Íslands og vígbúnaður Evrópu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 10, 2025 20:00


Þetta er langhlaup, segir Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, um ástandið í vegakerfinu. Komið sé að krossgötum en vandinn verði ekki leystur með einu pennastriki heldur þurfi fimm til tíu ára átak. Samgönguráðherra hefur bent ríkisstjórninni á að núverandi ástand feli í sér alvarlegan veikleika fyrir íslenskt samfélag. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Bergþóru. Ráðamenn í Evrópu standa frammi fyrir gjörbreyttum veruleika í ljósi stefnubreytingar Bandaríkjastjórnar í Úkraínustríðinu og gagnvart hvorutveggja NATO-samstarfinu og stjórnvöldum í Rússlandi. Þetta hefur meðal annars leitt til þess að Evrópusambandið boðar á annað hundrað þúsunda milljarða króna útjöld til varnarmála - eða, með öðrum orðum, til þess að vígbúast. Þetta er mesti vígbúnaður í álfunni í 80 ár - og hann leggst ekki vel í alla. Ævar Örn Jósepsson rýnir í stöðuna og ræðir hana við sagnfræðinginn og hernaðarandstæðinginn Stefán Pálsson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Ólga í alþjóðastjórnmálum og stjórnarandstæðingar um hagræðingartillögur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 5, 2025 20:00


Donald Trump fór mikinn í stefnuræðu sinni á Bandaríkjaþingi í gær, þar sem hann talaði lengur en nokkur annar Bandaríkjaforseti hefur gert við slíkt tækifæri, hartnær 100 mínútur. Um alþjóðamál talaði forsetinn tiltölulega lítið. Hann minntist þó á mikilvægi þess að Bandaríkin fengju full yfirráð yfir Grænlandi og Úkraínustríðið nefndi hann nánast í framhjáhlaupi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fyrrverandi utanríkisráðherra og starfsmann Sameinuðu þjóðanna um ólgu á alþjóðasviðinu eftir embættistöku Donalds Trump. Hagræðingarhópur forsætisráðherra skilaði sextíu tillögum til forsætisráðherra í gær. Komist þær til framkvæmda gæti ríkið sparað sér 71 milljarð næstu árin. Það á að sameina stofnanir, hætta að borga handhöfum forsetavalds og breyta regluverki en ekki var snert á þeim atriðum sem talin voru hápólítísk, eins og RÚV og ÁTVR. Freyr Gígja Gunnarsson leitaði álits formanna tveggja stjórnarandstöðuflokka á tillögunum, þeirra Guðrúnar Hafsteinsdóttur og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Rammaáætlun, sparnaðarhugmyndir ráðuneyta, kosningar í Þýskalandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2025 20:00


Í síðustu viku var sérstök umræða á þingi um alvarlega stöðu í orkumálum, flestir tóku undir að staðan væri það sannarlega og viku líka að rammaáætlun og viðruðu um hana efasemdir. Mikilvægt væri að sameinast um næstu skref en þau yrðu ekki tekin á grundvelli rammaáætlunar sagði málshefjandinn. Orkumálaráðherra sagði að núverandi stjórn ætlaði að rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefði. Rammaáætlun hefur oft verið þrætuepli og átök um virkjanir hverfast gjarnan um hana - en í raun er ekki hægt að búast við að rammaáætlun geri meira en að leggja grunn fyrir upplýsta umræðu og ákvörðun Alþings um virkjanakosti að dómi Jóns Geirs Péturssonar formanns verkefnisstjórnarinnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Aukin notkun á gervigreind, styrkir til að kaupa reiðhjól en fyrst og fremst sameining stofnana og einfaldara stjórnkerfi eru meðal þeirra hugmynda sem ráðuneytin leggja til um hagræðingu í ríkisrekstri. Starfshópur forsætisráðherra er kominn með drög og ætlar að skila fullgerðum tillögum á tilsettum tíma. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman og ræddi við Björn Inga Victorsson, forstjóra Steypustöðvarinnar, löggiltan endurskoðanda og formann starfsfhóps forsætisráðherra. Þjóðverjar ganga til kosninga sunnudaginn 23. febrúar, hálfu ári fyrr en ætlað var, þar sem stjórn Jafnaðarmanna, Frjálslyndra demókrata og Græningja liðaðist í sundur. Ævar Örn Jósepsson fer yfir stöðu flokkanna eins og hún er í skoðanakönnunum nokkrum dögum fyrir kosningar og líkleg stjórnarmynstur. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

bj gunnarsson umsj mikilv frj anna krist freyr g jafna starfsh
Spegillinn
Trump, Úkraína, Evrópa og Nató, mögulegar hagræðingaraðgerðir á Landspítalanum og í heilbrigðiskerfinu öllu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 13, 2025 20:00


„Við áttum gott símtal, yfir klukkutíma langt, og ég átti líka gott símtal við Zelensky eftir það,“ sagði Donald Trump á fréttafundi í gær, aðspurður um símtal þeirra Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þetta símtal og yfirlýsingar Trumps og varnarmálaráðherra hans um friðarviðræður við Rússa, útlokun á NATO-aðild Úkraínu og fleira, vöktu mikil viðbrögð meðal bandamanna Bandaríkjanna í NATO. Ævar Örn Jósepsson fer yfir helstu ágreiningsmál og Björn Malmquist ræðir við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, sem sótti hvorutveggja fund varnarmálaráðherra NATO í dag og stuðningsríkja Úkraínu í Brussel í gær. Landspítalinn er stærsta stofnun ríkisins - þar vinna sex þúsund og þrjú hundruð manns og árlega renna þangað hundrað milljarðar, sirka sjö prósent af heildarútgjöldum. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, sendi forsætisráðherra og fjármálaráðherra hagræðingartillögur í lok janúar, að beiðni ráðherranna. Hann segir Landspítalann alltaf þurfa meira fé því verkefnin séu alltaf að aukast og það sé ekkert sér-íslenskt vandamál heldur þekkist líka í nágrannalöndunum. Stöðugt sé verið að reyna hagræða innan spítalans til að geta aukið þjónustu. Freyr Gígja Gunnarsson talaði við Runólf. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Spegillinn
Meirhlutaviðræður í Reykjavík, óvissa um vopnahlé á Gaza, sérstök umræða á Alþingi um orkumál

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 20:00


Fimm flokkar hafa ákveðið að hefja viðræður um nýjan meirihluta í Reykjavík. Þetta er líklega eini meirihlutinn sem kemur til greina en það er ekkert í sveitastjórnarlögunum sem kveður á um það þurfi að vera meiri- og minnihluti. Og tíminn er naumur fyrir nýjan meirihluta, því kjósa þarf til borgarstjórnar innan fimmtán mánaða. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir þessa stöðu við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði. Vopnahlé Ísraels og Hamas hangir á bláþræði og almenningur á Gaza óttast að allt fari þar í bál og brand að nýju á næstu dögum. Leiðtogar Hamas saka Ísraela um margvísleg brot á vopnahléssamkomulaginu og segjast ekki munu sleppa þremur gíslum úr haldi á laugardag, eins og samið var um, fyrr en Ísraelar standa við sitt. Stjórnvöld í Ísrael hóta því að hefja árásir á Gaza af fullum þunga, verði gíslarnir þrír ekki látnir lausir á laugardag. Ævar Örn Jósepsson fer yfir stöðu mála. Þingfundur hófst í dag á umræðu um störf þess þar sem nýbakaðir þingmenn voru í miklum meirihluta, nær allir sem skráðu sig á mælendaskrá voru kosnir á þing í nóvember. Ýmislegt brann á þingmönnum við upphaf þingfundar, þar má nefna líðan ungmenna í skólum, meðferð við fíknisjúkdómi, sjúkraflug og flugvöllurinn, þess hvernig komandi kjörtímabil þróast og umpólun flokka sem fara í stjórn miðað við afstöðu þeirra í stjórnarandstöðu. Þegar því var lokið tók við sérstök umræða um alvarlega stöðu í orkumálum. Málshefjandi var Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Samfylkingu var til andsvara. Anna Kristín Jónsdóttir fer yfir þingstörf dagsins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Spegillinn
Ferðalög forseta, norska stjórnin springur, aftökur í Bandaríkjunum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 30, 2025 20:00


Forsetaskrifstofan veitti óskýr svör við fyrirspurnum um hvar Halla Tómasdóttir, forseti íslands, hefði verið þegar minningarathöfn um helförina í Auschwitz fór fram á mánudag. Freyr Gígja Gunnarsson fann svarið í Stjórnartíðindum. „Þetta er ekki niðurstaðan sem ég hefði óskað mér,“ sagði Jónas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, á fréttafundi eftir að ljóst var að stjórn hans var sprungin. Hann sagði samvinnu og vináttu flokkanna sem að henni stóðu - og þeirra Trygve Slagsvold Vedum, formanns Miðflokksins - hafa verið traust og honum mikils virði - og væri það enn. Það breytti því þó ekki að stjórnin sprakk eins og spáð hafði verið. Støre situr þó áfram á stóli forsætisráðherra. Við tekur líf í minnihlutastjórn Verkamannaflokksins og löng kosningabarátta því ekki má rjúfa þing. Kosið verður til nýs Stórþings 8. september í haust. Gísli Kristjánsson segir frá. Aftökur dauðadæmdra fanga voru teknar upp að nýju í Bandaríkjunum 1976, eftir nokkurra ára hlé vegna réttaróvissu. Frá þeim tíma hafa um 8.500 manns verið dæmdir til dauða þar í landi og rúmlega 1.600 þeirra verið teknir af lífi. Rannsóknir hafa sýnt að fælingarmáttur dauðarefsingar er enginn. Vitað er að kostnaðurinn er svimandi hár. Og það sem líka er vitað er, að um það bil einn af hverjum átta föngum sem dæmdir hafa verið til dauða í Bandaríkjunum frá 1973 hafa verið hreinsaðir af sök. Ekkert af þessu kom þó í veg fyrir það, að Donald Trump, nýskipaður Bandaríkjaforseti, gerði það að einu sínu fyrsta embættisverki að skipa fyrir um að auka skuli áherslu á að dæma fólk til dauða hvenær sem lög leyfa - og að fullnusta skuli þá dóma, svikalaust. Ævar Örn Jósepsson ræddi þetta við Evu Einarsdóttur, formann Íslandsdeildar Amnesty International. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Spegillinn
Deilt um rafmagnslínur, gervigreind og ritskoðun, grisjun sjóða og sjálfseignarstofnana

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 29, 2025 20:00


Síðan 2024 hefur verið heimild í lögum til að skipa raflínunefndir sem eiga að einfalda skipulagsmál í tengslum við flutningskerfi rafmagns. Nú vill Landsnet að fyrsta nefndin af þessu tagi verði skipuð um Holtavörðuheiðarlínu eitt. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan á að liggja um leggjast gegn skipun nefndarinnar. Gréta Sigríður Einarsdóttir kynnti sér málið. Þær fréttir bárust á dögunum að nýtt gervigreindarforrit, DeepSeek, frá Kína, væri að setja gervigreindarheiminn á annan endann. Því er haldið fram að þessi nýja gervigreind standist þeirri fullkomnustu sem fyrir var, hinni bandarísku ChatGPT 4, fyllilega snúning, þrátt fyrir að hafa verið hönnuð, þróuð og sett út í sýndarheiminn með aðeins brotabroti af þeim ógnarmiklu fjármunum sem fóru í þróun bandarísku fyrirmyndarinnar. Hún er þó ekki gallalaus. Einn galli - og sá sem hér er til umfjöllunar - er ritskoðunin sem DeepSeek stundar. Ævar Örn Jósepsson fékk Árna Matthíasson til að ræða við sig um þetta. Sjálfseignarstofnanir og sjóðir sem eru með skipulagsskrá verða sektaðar um sex hundruð þúsund skili forsvarsmenn þeirra ekki ársreikningi á tilsettum tíma. Sjóður sem Halldór Laxness stofnaði til að mótmæla launalækkun er meðal þeirra sem brátt gætu heyrt sögunni til. Freyr Gígja Gunnarsson fékk Jónas B. Guðmundsson sýslumann til viðtals um málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason.

Spegillinn
Borað eftir olíu, mataræði Íslendinga, Snerting mögulega tilnefnd til Óskarsverðlauna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 22, 2025 20:04


Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar eftir stóraukinni framleiðslu og útflutningi á bandarísku jarðefnaeldsneyti. Með þessu ætlar hann að lækka verð á eldsneyti, draga úr verðbólgu og gera Bandaríkin að auðugri þjóð að nýju. Umdeilt er hversu líklegt er að þessi stefna skili tilætluðum árangri. Ævar Örn Jósepsson rýnir í þetta. Alls kyns kúrar og kenningar um æskilega næringu skjóta reglulega upp kollinum hér á landi sem annars staðar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Landlækni, varar við þeirri tísku að borða mjög mikið af einhverjum einum fæðuflokki á kostnað annarra - heillavænlegast sé að borða sem fjölbreyttasta fæðu. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Jóhönnu. Það skýrist í fyrramálið hvort Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks eftir bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, hljóti tilnefningu til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ólaf um myndina, kapphlaupið um Óskarinn og „kosningabaráttu“ kvikmyndaframleiðenda í skugga eldanna miklu í Los Angeles. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

los angeles bora matar alls bandar gunnarsson eftir umsj landl eyr anna krist torfad freyr g donald trump bandar
Spegillinn
Trump byrjar með látum. Hvernig stóðu viðræður Íslands og ESB?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 21, 2025 20:00


Hvernig stóðu aðildarviðræður við Evrópusambandið, þegar þær voru settar á ís margt fyrir löngu. Freyr Gígja kannaði það. Ævar Örn kynnti sér forsetatilskipanir sem Trump forseti undirritaði á fyrsta degi í embætti á sínu seinna kjörtímabili. Tilskipanirnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og áhrif þeirra og afleiðingar mismiklar fyrir Bandaríkjamenn, Bandaríkin, og heimsbyggðina alla. Og það er misauðvelt að koma þeim í framkvæmd.

Spegillinn
Birta Líf um skógareldana í Los Angeles, raforkuverð til garðyrkjubænda og strandveiðar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 10, 2025 20:00


Í Los Angeles eru heilu hverfin rjúkandi rústir og önnur standa enn í björtu báli í ógnarmiklum skógar- og gróðureldum sem færast enn í aukana. Minnst tíu hafa látið lífið í eldunum, tugir þúsunda hafa misst heimili sín, hátt í tvö hundruð þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín og hundruð þúsunda hafa fengið tilmæli um að búa sig undir að þurfa að flýja með litlum fyrirvara. Ævar Örn Jósepsson tekur við og ræðir við Birtu Líf Kristinsdóttur veðurfræðing. Talsvert hefur verið fjallað um raforkuverð til garðyrkjubænda, það hækkaði um fjórðung um áramótin og Axel Sæland, formaður þeirra , spáði því í nóvember að verð á íslensku grænmeti gæti hækkað um 12 prósent í framhaldinu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við sveitarstjóra Bláskógabyggðar og framkvæmdastjóra Friðheima. Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda telur að í ljósi reynslunnar gæti þurft um 14.000 tonn til að uppfylla þörfina í 48 daga strandveiðivertíð. Þau ár sem sá dagafjöldi var leyfður hafi sjósóknin verið um 26 dagar að meðaltali. Líta ætti á breytt strandveiðkerfi sem tilraun til næstu fimm ára og meta að því loknu áhrif þess á þorskstofninn.

los angeles gunnarsson framkv birta kristinsd freyr g landssambands
Spegillinn
Andlát ungrar konu á Skeggjagötu, nýr orkumálaráðherra um orkumál, öfgahægristjórn í kortunum í Austurríki

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 20:00


Tveir dómkvaddir matsmenn telja að læknisfræðileg rannsókn vegna andláts ungrar konu eftir handtöku lögreglu hafi verið ófullkomin. Lögmaður fjölskyldu hennar segir ríkið verða að bera hallann af því. Andlát hennar megi að líkindum rekja til samspils tveggja þátta; ástands ungu konunnar og aðgerða lögreglu - en ómögulegt sé að segja til um umfang áhrifa hvors orsakaþáttar fyrir sig. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Orkuframleiðsla og orkunýting standa á krossgötum. Orkuframleiðendur anna ekki eftirspurn eftir orku og hart er deilt um nýja orkukosti. Í upphafi ráðherratíðar sinnar leggur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áherslu á þrjú atriði: Forgang almennings og minni fyrirtækja að raforku án samkeppni við stórnotendur; liðka fyrir aukinni orkuöflun með einfölduðu leyfisveitingakerfi, og að rjúfa kyrrstöðuna í tengslum við rammaáætlun. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman og ræddi við Jóhann Pál. Austurríski Frelsisflokkurinn eygir nú í fyrsta sinn möguleikann á að leiða ríkisstjórn í landinu. Flokkurinn er lengst til hægri í stjórnmálum í Austurríki og vann stóran sigur í kosningunum þar í september. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

bj konu gunnarsson sigr herra umsj einarsd tveir malmquist austurr andl freyr g flokkurinn
Spegillinn
Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 8, 2025 20:00


Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um að það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi Bandaríkjanna og frið í heiminum að Grænland tilheyrði Bandaríkjunum. Slíkar hugmyndir hafði Trump viðrað áður 2019 og ekki voru undirtektir jákvæðar í Danmörku þá frekar en nú. Hinn verðandi forseti sagðist í gær tilbúinn að beita afli gegn Dönum ef þeir mögluðu, og útilokaði reyndar ekki þegar blaðamaður spurði hvort til greina kæmi að beita hervaldi. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðastjórnmálum, sem segir að þótt ekki beri að taka orð Trumps bókstaflega, þá sé fyllsta ástæða til að taka þau alvarlega. Í raforkuspá fyrir næstu 25 ár gerir Landsnet ráð fyrir stóraukinni þörf á orku til framleiðslu rafeldsneytis. Tvö stór verkefni eru í undirbúningi ár sem ætlunin er að nota vindorku til að framleiða vetni og ammoníak. Gnýr Guðmundsson, forstjóri kerfisþróunar hjá Landsneti, segir þróun rafeldsneytis ganga hægt, eftirspurnina vera óvissa og mörgum spurningum enn ósvarað. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman. Það vakti nokkra athygli í haust þegar starfandi fangelsismálastjóri boðaði nokkuð umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir hjá stofnuninni. Ástæðan var 8 milljóna króna gat í fjármögnun á rekstri stofnunarinnar. Í greinargerð sem sviðsstjóri reksturs og fjármála hjá Fangelsismálastofnun sendi dómsmálaráðuneytinu kemur fram að rekstraráætlunin sem skilað var hafi sýnt ágæta niðurstöðu innan fjárveitingaramma - en að . þegar fjárlagafrumvarpið hafði verið samþykkt hafi komið í ljós, „talsverður misskilningur“. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Réttarhöld í kynferðismálum, stríðsglæpir Ísraela og jólaleg jólalög

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 19, 2024 20:00


Meginregla er að réttarhöld eru opin en venjan hér í kynferðisbrotamálum er að þau séu lokuð til að verja persónulega hagsmuni. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari segir sterk rök fyrir því að opna slík réttarhöld, vilji brotaþoli senda þau skilaboð að hann hafi ekkert til að skammast sín fyrir, líkt og hin franska Giselle Pélicot gerði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kolbrúnu. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human rights watch, eða Mannréttindavaktin, sem eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, bættust í dag í stækkandi hóp þeirra sem saka Ísraelsmenn um stórfelld mannréttindabrot, brot á alþjóðalögum og sáttmálum og alvarlega glæpi sem stappa nærri þjóðarmorði. Mannúðar- og mannréttindasamtökin Læknar án Landamæra komast að svipaðri niðurstöðu í sinni skýrslu, sem líka kom út í dag. Ísraelar svara samtökunum eins og öllum öðrum sem saka þá um stríðsglæpi og þjóðarmorð, með ásökunum um lygar og gyðingahatur. Hvað gerir jólalag að jólalagi? Er það textinn sem er sunginn eða er til ákveðinn jólahljómur? Freyr Gígja Gunnarsson leitar svara við þeirri áleitnu spurningu hjá tónlistarmanninum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

er human hva magn bandar gunnarsson umsj kolbr benediktsd mannr anna krist freyr g
Spegillinn
Búseti og skemman stóra, Ísland og Úkraína, svakalega sveiflukennt rafmagnsverð á Norðurlöndum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2024 20:00


Búseti fór þess á leit við byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um miðjan nóvember að framkvæmdir við vöruhúsið sem nú rís við Álfabakka yrðu stöðvaðar. Þetta kemur fram í gögnum sem Spegillinn fékk afhent í dag. Vöruhúsið byrgir íbúum fjölbýlishúss við Árskóga sjö sýn, blokk sem Búseti byggði. Í bréfi Búseta frá í nóvember kom meðal annars fram að á lóðinni væri verið að reisa fjögurra hæða hús, tólf metra háa byggingu, sem ætti sér enga stoð í útgefnu byggingarleyfi eða svörum skipulagsfulltrúa við fyrirspurn frá áhyggjufullum hjónum sem óttuðust að birtan yrði tekin frá þeim ef svona hátt hús myndi rísa á reitnum. Verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa sefaði áhyggjur hjónanna og taldi sig nánast geta fullyrt að slíkt myndi ekki gerast. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta og ræðir við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn. Staðan í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hugmyndir um friðargæslulið verða líklega á dagskrá fundar í Brussel kvöld, þar sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hittir leiðtoga Evrópusambandsins og nokkurra Evrópuríkja, þar á meðal Íslands. Zelensky fundaði með leiðtogum tíu Evrópuríkja í gær, þeirra á meðal Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlads, sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, starfandi utanríkisráðherra, segir hafa fengið afgerandi skilaboð í veganesti. Björn Malmquist ræðir við Þórdísi Kolbrúnu. Þetta er galið raforkukerfi og Svíþjóð getur ekki búið við kerfi sem er svona háð duttlungum veðráttunnar, sagði Ebba Busch, orkumálaráðherra Svíþjóðar þegar rafmagnsverð þar rauk upp úr öllu valdi í síðustu viku. Danir supu líka hveljur þegar þeim varð litið á rafveitu-öppin sín, sem birta rafmagnsverð í rauntíma – en á fimmtudaginn var, klukkan fjögur síðdegis, kostaði kílóvattstundin ellefu danskar krónur – rúmar tvö hundruð íslenskar, sem þýðir að passlega heit fimm mínútna sturta kostaði þúsundkall. Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Ofbeldi gegn konum, veldi Assad-feðga, gervistéttarfélög

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 20:00


Síðustu daga og vikur hafa birst óhugnanlega fréttir um ofbeldi karla gegn konum. Kynbundið ofbeldi gegn konum er ekkert nýtt en stundum verða frásagnirnar yfirþyrmandi, eins og þessar fréttir bera vitni um. Samkvæmt embætti ríkislögreglustjóra var í fyrra óskað eftir 97 nálgunarbönnum, í langflestum tilvikum eru þetta konur að verja sig gegn körlum sem hóta þeim líkamlegu og andlegu ofbeldi. Það þarf ekki annað en að fletta upp á vef Landsréttar og slá upp orðinu nálgunarbann til að sjá hversu langt karlar eru reiðubúnir að ganga gagnvart konum, - því kynbundið ofbeldi gegn konum er jú fyrst og fremst vandamál karla, segir María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Bashar al-Assad, sem á dögunum var hrakinn frá völdum í Sýrlandi á örfáum dögum eftir nær aldarfjórðung á forsetastóli, er kominn til Rússlands, þar sem stjórnvöld veittu honum og fjölskyldu hans hæli af mannúðarástæðum, eins og það var orðað af ónafngreindum heimildarmanni Interfax-fréttastofunnar rússnesku. Bashar al-Assad, sem er augnlæknir að mennt, tók við forsetaembættinu af föður sínum, Hafez al-Assad, sem lést árið 2000, eftir nær þrjátíu ár á valdastóli. Samtals fóru þeir feðgar því með alræðisvald í Sýrlandi – og beittu því af hörku - í hartnær 55 ár, eða frá árinu 1971, þegar Hafez tókst að hrifsa til sín öll völd eftir röð valdarána áratuginn á undan. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í valdatíð al-Assads eldri. Seint í október skrifuðu fulltrúar samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT og Virðingar stéttarfélags undir kjarasamning sem felur í sér lakari kjör og minni rétt en samningur milli Samtaka atvinnulífsins og Eflingar/Starfsgreinasambandsins. Efling hefur reiknað út að þar muni um rúmlega fimmtíu þúsund krónum í meðalmánuði. Virðing varð til eftir að Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að Eflingarsamningurinn skyldi gilda. Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands segir að Virðingu megi kalla gervistéttarfélag vegna þess hvernig sambandi atvinnurekendanna og þeirra sem gera samninginn er háttað. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Finnbjörn. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

assad bashar vir gunnarsson hafez assads umsj seint bjarnad interfax samtals hermannsson samtaka samkv landsr efling anna krist freyr g
Spegillinn
Þingmenn B, D og M um viðræður C, S og F, skammlíf herlög í Suður-Kóreu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 4, 2024 20:00


Þrjár þingkonur stjórnarandstöðunnar segja það ekki hafa komið á óvart að Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins skyldu hefja samtal um myndun ríkisstjórnar. Þingkona Framsóknarflokksins vonar að þeim takist ætlunarverkið en þingkonur Miðflokks og Sjálfstæðisflokks telja aðra möguleika í stöðunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ingibjörgu Isaksen, Diljá Mist Einarsdóttur og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Yoon Suk-yeol, forseti Suður-Kóreu, lýsti yfir herlögum í landinu seint á þriðjudagskvöld - en neyddist til að afnema þau sex klukkustundum síðar, þegar í ljós kom að hann hafði lítinn sem engan stuðning á þinginu, ekki einu sinni í sínum eigin flokki. Þúsundir kalla nú eftir afsögn forsetans og stjórnarandstaðan hyggst kæra hann og fleiri til embættismissis - og fyrir tilraun til uppreisnar. Ævar Örn Jósepsson kannaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Mangússon

Spegillinn
Kjörseðillinn á laugardag, barnsrán Rússa í Úkraínu og spenna vegna forsetakjörs í Rúmeníu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 28, 2024 20:00


Hvað þarf kjósandi að hafa með sér á kjörstað í Alþingiskosningum og hvað ber að forðast ef ekki á að ógilda kjörseðilinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ástríði Jóhannesdóttur framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar. Víst þykir að Rússar hafi numið tæplega 20.000 úkraínsk börn á brott síðan þeir réðust inn í Úkraínu og rökstuddur grunur er um að þau séu mun fleiri. Tetiana Fedosiuk er úkraínskur sérfræðingur hjá rannsóknarsetri í utanríkis- öryggis- og varnarmálum í Tallin í Eistlandi segir að fjölmörg þeirra séu vistuð á stofnunum í Rússlandi, Belarús eða hernumdum svæðum Úkraínu, en önnur ættleidd af rússneskum fjölskyldum. Stjórnvöld í Rúmeníu vilja rannsaka hvort samfélagsmiðillinn TikTok hafi farið eftir reglum Evrópusambandsins um auglýsingar í aðdraganda forsetakosninganna þar á sunnudaginn. Óháður frambjóðandi, Călin Georgescu, sigraði óvænt í fyrri umferð kosninganna, á meðan leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks Rúmeníu datt út. Björn Malmquist ræðir við Radu Magdin, stjórnmálaskýranda frá Rúmeníu.

Spegillinn
Kosningamálin á Íslandi, umdeilt vindorkuver á Austurlandi og tölfræðin á bak við sigur Trumps

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2024 20:00


Flestir settu heilbrigðismál í efsta sæti þegar Félagsvísindastofnun kannaði í síðustu viku hvað skipti fólk mestu fyrir kosningarnar á laugardaginn - og er það svo í öllum sex kjördæmum. Áherslur fólks í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi, það er höfuðborgarsvæðinu eru nánast alveg eins, en samgöngur eru kjósendum í Norðvesturkjördæmi hugstæðar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Rúnar Vilhjálmsson prófessor. Alcoa Fjarðaál setur spurningarmerki við stórt vindorkuorkuver sem Fjarðarorka ehf vill reisa í Fljótsdalshreppi og segist ekki geta samþykkt áformin eins og þau séu kynnt í matsáætlun félagsins. Frestur til að skila umsögn um matsáætlunina rann út í síðustu viku. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið. Hinn 20. janúar sver Repúblikaninn Donald John Trump embættiseið vestur í Washington, sem fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna. Hann bar, sem kunnugt er, sigurorð af Kamölu Harris, frambjóðanda Demókrata, í forsetakosningunum sem haldnar voru 5. nóvember. Demókratar, sem eyddu meira fé í kosningabaráttuna en nokkru sinni fyrr, klóra sér í hausnum og spyrja, hvað klikkaði? Þeirri spurningu er enn ósvarað, en tölurnar liggja fyrir og spænska blaðið El País rýndi í þær til að reyna að átta sig á sveiflum í kosningahegðun nokkurra mikilvægra kjósendahópa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Kosningaveður, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, fordómar gegn grænlenskum foreldrum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 25, 2024 20:00


Fimm dagar eru þar til kjörstaðir verða opnaðir um allt land. Þótt einhverjir kjósi utan kjörfundar eru langflestir sem fara í sína kjördeild til að greiða atkvæði - þær loka klukkan tíu um kvöldið og þá fyrst má byrja að telja. Allt bendir til að kosninganóttin verði spennandi en fólk ætti líka að vera undir það búið að hún dragist langt fram á sunnudagsmorgun - sérstaklega ef verstu spár um veður ganga eftir. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta. Framkvæmd loftslagsaðgerða er afar veik hér á landi og viðsnúningur stjórnvalda í hvatakerfum hreinorkubíla á síðasta ári voru mjög alvarleg mistök - sem senda kolröng skilaboð, segir formaður Loftslagsráðs. Hann segir tilbúnar og fjármagnaðar loftslagsaðgerðir skila innan við helmingi þess samdráttar á losun sem að er stefnt og gildandi aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ekki til þess fallna að bæta úr því. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Þorgeirsson. Nýlega safnaðist fólk saman í Kaupmannahöfn og Nuuk til að mótmæla því að börn væru tekin af foreldrum sínum og sett í fóstur, meðal annars á grundvelli prófa þar sem mat er lagt á hæfni foreldranna til að sinna börnunum. Þessi próf eru notuð í fjölmörgum sveitarfélögum í Danmörku en hafa lengi verið umdeild og um árabil hefur verið rætt um að breyta þeim. Þau byggist á viðmiðum og venjum vestrænna samfélaga og ali á fordómum í garð grænlenskra foreldra. Fimm sinnum algengara er í Danmörku að börn séu tekin af grænlenskum foreldrum en dönskum. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

allt hann nuuk gunnarsson halld danm umsj fimm kaupmannah framkv hjaltason anna krist freyr g loftslagsr
Spegillinn
Jón Gunnarson og dularfulli tengingurinn, íslensk æska á uppleið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 12, 2024 19:22


Freyr Gígja reifar reifarakennda málið sem hverfist um Jón Gunnarsson, hvalveiðar og ísraelska einkaspæjarafyrirtækið Black Cube. Ragný Þóra Guðjohnssen segir Ragnhildi Thorlacius frá niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Þær benda til þess að líðan grunnskólabarna fari batnandi, þó að ýmislegt megi bæta. Nýsjálenski forsætisráðherrann hefur beðist afsökunar á illri meðferð á fólki á vistheimilum, sjúkra- og meðferðarstofnunum frá því um miðja síðustu öld. Ævar Örn segir frá því.

gu gunnarsson black cube gunnarson freyr g
Spegillinn
Kosningar í Bandaríkjunum og á Íslandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 4, 2024 20:00


Það fer ekki framhjá neinum að á morgun verða haldnar forsetakosningar vestur í Bandaríkjunum. Þar takast þau á, Kamala Harris, frambjóðandi Demókrata, og Donald Trump, frambjóðandi Repúblikana. Nú er innan við sólarhringur þar til fyrstu kjörstaðir verða opnaðir og enn er allt í járnum, varla tölfræðilega marktækur munur á frambjóðendunum, hvorki á landsvísu né í hinum svokölluð sveifluríkjum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Björn Malmquist fréttamann, sem er í einu þessara ríkja, Pennsylvaníu. Kynjamunur er ekkert nýtt í bandarískum stjórnmálum, þar sem konur hafa verið hallari undir Demókrata og karlarnir snoknari fyrir Repúblikana síðustu fjóra áratugi hið minnsta. En munurinn hefur aldrei verið jafnmikill og afgerandi og nú, og hefur raunar tvöfaldast á síðustu tuttugu og fimm árum ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem birt fyrir tveimur vikum eða svo. Samkvæmt henni munar heilum þrjátíu prósentustigum á fylgi Harris og Trumps meðal kvenna sem hyggjast nýta atkvæðisrétt sinn, Harris í vil, en hjá körlum er munurinn 12 prósentustig, Trump í hag. Þetta er talið geta ráðið úrslitum í hnífjöfnum kosningum. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Stjórnmálaflokkarnir geta ekki hagað sér eins og þeir vilja þegar þeir reyna að ná til kjósenda á samfélagsmiðlum. Samfélagsmiðlarnir sjálfir hafa sett ákveðnar reglur sem flokkarnir verða að virða og áhrifavaldar sem þiggja greiðslu frá stjórnmálaafli geta átt á hættu að vera úthýst frá Tiktok. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.

Spegillinn
Dánaraðstoð og vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 20:00


Umræðu um dánaraðstoð skýtur reglulega upp kollinum hér á landi, þingsályktunartillögur, frumvörp og skýrslur hafa litið dagsins ljós og í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld var fjallað um Jón Grímsson sem sótti um dánaraðstoð í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Steinunn Þórðardóttir, formaður læknafélagsins, segir að það verði ekki aftur snúið verði þetta skref tekið. Reynsla frá þeim löndum þar sem þetta hefur verið leyft sýni líka að mörkin verði sífellt óljósari. Þá megi ekki gleyma því að þetta sé eðlisbreyting á hlutverki lækna. Freyr Gígja Gunnarsson talar við Steinunni. Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar kemur fram, að þrátt fyrir mikinn þrýsting og fögur fyrirheit um að draga hratt og mikið úr losun helstu gróðurhúsalofttegunda hefur styrkur þeirra þvert á móti aukist og hefur aldrei mælst meiri en í fyrra. Reyndar hefur ekki verið jafnmikill koltvísýringur í lofthjúp Jarðar síðan fyrir þremur til fimm milljónum ára, þegar meðalhitinn var tveimur til þremur gráðum hærri en nú og yfirborð sjávar tuttugu til þrjátíu metrum hærra. Styrkur gróðurhúsalofttegunda eykst líka hraðar það sem af er þessari öld en dæmi eru um. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og nýja skýrslu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, þar sem fram kemur að gildandi aðgerðaáætlanir ríkja heims séu óravegu frá því að tryggja að hlýnun Jarðar fari ekki umfram 1,5 gráður. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred