POPULARITY
Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitti þar framkvæmdastjóra SÍ, okkar góða Guðna Tómasson, Hildi Ploder Vigfúsdóttur, forvörð á Landsbókasafni og Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, til að forvitnast um verkið og tilefnið. Við lítum líka inn á bókamarkaðinn í Holtagörðum og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um sextíu kílóa þríleik Hallgríms Helgasonar. En Víðsjá hefst á tilnefningum til Myndlistarverðlaunanna fyrir árið 2024. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Um helgina fór fram fundur á vegum Umboðsmanns barna í samvinnu við ungmennaráðin á höuðborgarsvæðinu og UNICEF þar sem málefni Strætó voru rædd. Markmið fundarins var að koma á formlegum umræðum milli barna og ungmenna, Strætó og sveitastjórnum um umbætur á strætókerfinu með hag barna að leiðarljósi. Þau Dagur Jónsson og Júlíanna Rós Skúladóttir voru tveir af fulltrúum ungmenna á fundinum, þau voru hjá okkar í dag og sögðu okkur frá því helsta sem ungmennin komu á framfæri á fundinum, til dæmis öryggismál og samskipti við vagnstjóra og hvernig var tekið í tillögurnar. 64 ára gamall húsasmiður og innanhúsarkitekt úr Hafnarfirði var að gefa út sína fyrstu bók, ljóðabók sem heitir Þú ert engill. Hans Unnþór Ólason heitir höfundurinn og hefur fengist við að raða saman orðum í rúmlega hálfa öld og yrkisefnið í þessari ljóðabók er konan hans Helena Mjöll en hann segir að hún sé engill í mannsmynd. Við töluðum við Hans í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í Veðurspjallið í dag. Hann talaði um ótíðina að undanförnu og djúpar lægðir á Atlantshafinu. Svo sagði hann okkur frá veðurspám sem verða sífellt nákvæmari og hvernig verkefni veðurfræðinga hefur því breyst frá því að spá í veðrið yfir í að túlka og vara við á réttum tíma og stöðum og þar mun gervigreindin, eða hermigreindin, gegna miklu hlutverki í túlkun veðurspárinnar. Svo ræddi hann um vetrarvertíð til forna sem hófst eftir Kyndilmessu (2.feb) og erfiða sjósókn um hávetur. Einar horfði svo til verstöðvarinnar í Dritvík og við enduðum á lestri Jóns Helgasonar á Áföngum, 3. erindi um Dritvík. Tónlist í þættinum í dag: Önnur sjónarmið / Edda Heiðrún Bachman (Hilmar Oddsson) Dagný / Eivör Pálsdóttir og Egill Ólafsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) Ást / Orri Harðarson (Orri Harðarson) Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Kristján Kristjánsson og Magnús Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Hlustaðu í fullri lengd (1 klst og 40 mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Hallgrímur Helgason var að klára 1600 blaðsíðna þríleik sem í stuttu máli fjallar um það hvernig nútíminn kom til Íslands. Hérna vorum við í 1000 ár án drauma og hugmynda - síðan breyttist allt. Í þessum þætti ræðum við listina, bókmenntirnar, söguna og náttúruna. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Uslavaldið er eina valdið sem listin hefur, segir Hallgrímur Helgason en yfirlitssýning á verkum hans opnaði um liðna helgi á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni, sem nefnist Usli, má sjá hvernig Hallgrímur þroskast sem listamaður í Reykjavík, Munchen, New York og París. Verk Hallgríms eru pólitísk, kaldhæðin og fyndin en líka leitandi og persónuleg, bæði hvað varðar viðfangsefni og stíl. Mörg hver eru úrvinnsla áfalla og sjálfur segist Hallgrímur greina umbreytingu á stílbrögðum eftir að hafa sagt opinberlega frá kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir sem ungur maður. Við hittum Hallgrím við verkin í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Límonaði frá Díafani eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Sigurður Bragason segir okkur frá hljómplötunni Blómljóð.
Fyrir helgi opnaði ný sýning í Nýlistasafninu, sem ber titilinn Af hverju er Ísland svona fátækt? Í sýningunni er nýjum verkum Sæmundar Þórs Helgasonar stillt upp í samtali við valin verk úr safneign safnsins og einlægum spurning um fátækt á Íslandi velt upp. Kanema Mashinkila er nýr pistlahöfundur í Lestinni og í dag flytur hún okkur sinn fyrsta pistil úr nýrri seríu, Sjáumst og heyrumst, þar sem hún veltir fyrir sér birtingarmyndum í sviðslistum. Og úr leikhúsinu færum við okkur yfir í bíó og bókmenntir. Á dögunum fór Poor Things í leikstjórn Yorgos Lanthimos í sýningu í íslenskum bíóhúsum. En að baki myndinni liggur frábær bók, frá árinu 1992, eftir skoska höfundinn Alisdair Gray. Ingibjörg Ágústsdóttir, dósent í breskum bókmenntum 19. og 20. aldarinnar hitti Gray út í Glasgow á sínum tíma. Við spjöllum við hana um muninn á bókinni og bíómyndinni.
Næstkomandi laugardag, 14 janúar, opnar á Kjarvalstöðum yfirlitssýning á verkum myndlistarkonunnar Hildar Hákonardóttur. Hildur hefur á löngum ferli fjallað um málefni samtíma síns, kynjapólitík, stéttapólitík, og utanríkispólitík en auk þess um náttúruna og gildi hennar fyrir manneskjuna. Hildur hefur lifað og fjallað um umbreytingartíma, samfélagslega og hugmyndafræðilega en einnig umbreytingartíma í myndlistinni og kennsluaðferðum hennar. Til sköpunar hefur Hildur nýtt sér ýmsa miðla en hennar helsti miðill hefur alltaf verið vefnaðurinn. Sýningin á Kjarvalsstöðum, sem kallast Rauður þráður, veitir innsýn í feril Hildar og starfsaðferðir hennar í gegnum tíðina, en hún er afrakstur rannsóknar sýningarstjórans, Sigrúnar Hrólfsdóttur. Við lítum inn á Kjarvalsstaði og ræðum við Sigrúnu Hrólfsdóttur í þætti dagsins. Og við hugum að manni sem hét Vincente Lusitano og fæddist fyrir fimmhundruð árum suður í Portúgal í litlum bæ, ekki svo langt frá Atlantshafinu. Hann varð tónskáld og hann var það sem kallað var pardo. Og Gauti Kristmannsson fjallar um Tugthúsið, skáldsögu Hauks Más Helgasonar sem kom út fyrir jólin. Þar varpar höfundur ljósi á lífið í Reykjavík á seinni hlusta átjándu aldar og þar er Tukthúsið, Stjórnarráðshús dagsins í dag, í miðpunkti. Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson

Í þessum þætti af Bókaklúbbnum fjöllum við um bækurnar hans Gunnars Helgasonar en þá sérstaklega Stellubækurnar. Við munum einnig lesa upp úr einni af fótboltabókunum hans Gunnars: Víti í Vestmannaeyjum.
Faðir Hallgríms Helgasonar rithöfundar lést fyrr á þessu ári eftir skjót veikindi. Fjölskyldan fékk dýrmætt tækifæri til að vera hjá honum undir það síðasta en það tók verulega á að kveðja. Hallgrímur hefur verið umdeildur og segir að stundum þurfi að velja á milli þess að vera miðlungs höfundur eða skrifa góða bók og stuða aðeins. Það var nokkuð rólegt á æskuheimili Hallgríms Helgasonar myndlistarmanns, með foreldrum hans og systur hans henni Nínu, þar til tvíburabræðurnir Gunnar og Ásgrímur Helgason bættust við. Þá gustaði um þá og gerir reyndar enn. „Það var mjög mikið fjör í kringum strákana. Þegar þeir komu í heiminn breyttist þetta allt og allt fór í gang,“ segir Hallgrímur . Hann sagði frá uppvextinum, fráfalli föður síns, óþægilegum fundi með Davíð Oddssyni, konunni sinni sem hann kynntist í miðju sáru skilnaðarferli og erfiðleikum sem þau glímdu við þegar þau vildu eignast barn saman.

Víðsjá fer niður í miðbæ Reykjavíkur, í heimsókn í Berg contemporary þar sem sýningin Gróður opnaði um liðna helgi. Rætt er við Lilju Birgisdóttur, Katrínu Elvarsdóttur og Ninu Zurier en þær sýna allar ný ljósmyndaverk á sýningunni. Jón Hallur Stefánsson verður tekin tali um skáldsöguna Tíkina eftir hina kolumbísku Pilar Quintana en þýðing Jóns Halls á sögunni kom nýverið út hjá forlaginu Angústúru. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir í sjónmenningu í pistli sínum og fjallar í dag um sýninguna Á sameiginlegri jörð sem nú er uppi á Korpúlfsstöðum. Hlustendur heyra brot úr ljóðlistarmyndbandi Hallgríms Helgasonar og tónlist af nýrri plötu Gyðu Valtýsdóttur. Umsjón: Guðni Tómasson

Höfundur Íslands… sem sagt Hallgrímur Helgason. Sem skrifaði einmitt bók sem heitir Höfundur Íslands, þar sem talað var illa um kommúnisma. Helstefna, segja hægrimenn, og voru ánægðir með bókina. Allt eðlilegt við það. Að vera skáld! Það er ágætur eiginleiki sem veitir innsýn. Eða þá að innsýnin valdi skáldskapnum. Hvernig sem það er hefur Hallgrímur frá ýmsu að segja og koma hans í þáttinn fellur vel að heimsmarkmiðum Skoðanabræðra, sem er að útvega hreinar skoðanir á færibandi. Hver er skoðun hans á 1) fornsögunum 2) Sjálfstæðisflokknum 3) bælingunni í íslensku samfélagi 4) Reykjavík 5) Siglufirði 6) hljóðbókum og 7) Instagram? Þetta er síðan síður en svo tæmandi listi,
Í þessum þætti af Sögum af landi verður farið í heimsókn á vinnustofu leirlistakonunnar Margrétar Jónsdóttur. Heyrum einnig af undirbúningi sýningarinnar Sköpun bernskunnar á Listasafninu á Akureyri. Kíkjum á framkvæmdir Eiríks Helgasonar sem vinnur núna hörðum höndum að því að koma upp innanhúsaðstöðu fyrir hjólabretti í heimabæ sínum Akureyri. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson. Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Ójafnræði ríkir á milli einkarekinna og ríkisrekinna heilsugæslna, segir Þórarinn Ingólfsson, einn eigenda og framkvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslunni Höfða. Hann segir yfirvöld hafa hunsað tilmæli Samkeppniseftirlitsins um breytingar þar á. Heilsugæslan Höfði er nú sú stærsta á landinu með yfir 19 þúsund skjólstæðinga. Þórarinn var gestur okkar. Freyja Kristinsdóttir, formaður félags ábyrgra hundaeigenda, kom til okkar en félagið hefur efasemdir um að innheimt hundaeftirlitsgjald sveitarfélaganna hafi runnið í rétt verkefni. Dans og kúltúr stendur fyrir danspartý á Hard Rock Café í kvöld. Þemað er The Roaring Twenties og gestir hvattir til að mæta í búningum og með góða skapið í farteskinu. Þau Friðrik Agni Árnason og Anna Claessen eru fólkið á bak við Dans og kúltúr og þau litu til okkar og ræddu dansmenninguna á Íslandi. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, mætti til okkar en hann segir óveðursský yfir landinu í efnahagsmálum og að ekki hafi bætt úr skák þegar fréttir bárust af því að álverið í Straumsvík muni hugsanlega loka. Við slógum svo á þráðinn til Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, en á Keflavíkurflugvelli búa menn sig undir þetta mikla óveður sem verður á morgun og mun að líkindum hafa talsverð áhrif á flugvellinum. Tónlist: Moses Hightower - Bílalest út úr bænum. Billy Joel - New York State of mind. Mezzoforte og Auður - Hún veit hvað ég vil. Jóhann Helgason - Take your time. Khruangbin - Texas sun (ft. Leon Bridges). Mammút - The Moon will never turn on me. Blondie - Call me. Tryggvi - Allra veðra von. Robbie Williams - Jesus in a Camper Van. Hera - Process.

Við heyrðum í Ásdísi Rán sem sögð er tengjast risa fjársvikamáli í Búlgaríu og tókum svo stöðuna á pólitíkinni. Enfremur leituðum við frétta af málaferlum Jóhanns Helgasonar vegna Söknuðar
Söknuður Jóhanns Helgasonar og Vilhjálms Vilhjálmssonar var í brennidepli en leikin var í þættinum önnur söngtaka lagsins en sú sem rataði á Hana-nú árið 1977. Meðal annarra tónlistarflytjenda má nefna Justin Hayward, Ragnar Bjarnason, Mac DeMarco, Klaus Wunderlich, Unun, Grím Gunnarsson og Kristjönu Arnarsdóttir, íþróttafréttakonu.

Í þættinum var velt vöngum yfir grein sænska rithöfundarins Jonasar Gardell í sænska blaðið Expressen og var deilt á samfélagsmiðlum á íslandi en greinin fjallaði um uppgang hljóðbókarinnar og möguleg áhrif. Var í þættinum rætt við Stefán Hjörleifsson framkvæmdastjóra Storytel á Íslandi um nýjustu áform þessarar stóru streymisveitu hljóðbóka. Einnig slegið á þráðinn til tithöfundanna Auðar Jónsdóttur og Hallgríms Helgasonar og þau spurð út í hljóðbókavæðinguna. Þá mátti heyra í þættinum brot úr upptöku sem gerð var í bókabúð Pennans Eymundsson þegar Þórarinn Eldjárn fagnaði þar 70 afmæli sínu og las upp úr nýrri ljóðabók Til í að vera til, líka var rætt við afmælisbarnið. Að lokum var gluggað í tilnefningu Grænlendingain til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs en þeir tilnefna bókina Hvítir Hlaupaskór eftir Pivinnguaq Mörch sem inniheldur bæði ljóð og smásögur. Lesin brot úr tveimur sögum, titilsögunni og sögunni Mýflugan. Lesarar Eva Rún Þorgeirsdóttir og Leifur Hauksson.

Í Víðsjá í dag hverfum við inn í Blómsturheima Sölva Helgasonar, Sólons Íslandus, en verk þessa heillandi flakkara, fræði- og listamanns eru sýnd á Kjarvalsstöðum um þessar mundir. Rætt verður við Hörpu Björnsdóttur, sýningarstjóra um Sölva. Einnig verður rætt við Línus Orra Gunnarsson Cederborg um Vöku þjóðlagahelgi sem verður haldin í Dósaverksmiðjunni í Reykjavík um næstu helgi. Bók vikunnar er Grasið syngur eftir breska rithöfundinn Doris Lessing. Að því tilefni fræðumst við um höfundinn og heyrum brot lesið úr bókinni. Inga Björg Margrétar og Bjarnadóttir fjallar um List án landamæra og utangarðslist í myndlistarpistli dagsins. Umsjón: Guðni Tómasson og Kristján Guðjónsson
Við heyrðum af höfundarréttarmáli Jóhanns Helgasonar og baráttu þingmanns fyrir bættri aðstöðu íþróttafólksins okkar. Við komumst að þvi að fall er gríðarlegt í bóklega ökunáminu og heyrðum af miklum heiðri sem Kára Stefánssyni hefur hlotnast.
Á sunnudaginn verður 10. og lokaþáttur Ófærðar sýndur í sjónvarpinu. Undanfarna 9 sunnudaga hafa farið fram líflegar umræður á facebook síðu rithöfundarins Gerðar Kristnýjar sem hún kallar Ófærðarstofuna. Þar hefur mikill fjöldi áhorfenda Ófærðar skipst á skemmtilegum athugasemdum og kenningum tengdum þáttunum en mörg hundruð athugasemdir hafa komið við hverja færslu þar sem jafnvel leikarar og höfundar þáttarins hafa blandað sér í umræðuna. Í tilefni af lokaþættinum fengum við Gerði Kristnýju ásamt Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur prest í Neskirkju, sem hefur tekið virkan þátt í Ófærðarstofunni, í þáttinn til þess að fara yfir stöðuna, skemmtilegar athugasemdir og kenningar. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna er stödd í Þýskalandi, en það stöðvaði hana ekki í að vera með matarspjall í þættinum í dag. Við hringdum í hana þar sem hún er stödd í Munchen og heyrðum af pylsum, sinnepi, súrkáli og heimsókn hennar á ítalska veitingastaðinn Eataly (eða Átalíu í þýðingu Hallgríms Helgasonar). UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði, er gestur Víðsjár í dag, en hún er einn höfunda nýútgefinnar Flóru Íslands. Þóra segir meðal annars frá sérstöðu íslenskrar flóru og hvaða áhrif loftslagsbreytinga gætu haft á hana. Við lítum til Vínarborgar í þætti dagsins, en Listasögusafnið þar í borg opnaði nýverið sýninguna „Snjáldurmúsamúmían og aðrar gersemar“ sem leikstjórinn Wes Anderson setti saman ásamt eiginkonu sinni, rithöfundinum Juman Malouf. Steinunn Inga Óttarsdóttir, bókmenntarýnir Víðsjár, segir frá sinni upplifun af nýjustu skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Sextíu kíló af sólskini. Og við heyrum í tveimur af tónskáldunum sem fram koma á Tónlistarhátíð Rásar 1 í Kaldalóni í Hörpu þann 23.nóvember; þeim Valgeiri Sigurðssyni og Halldóri Smárasyni. Þemað þar eins og í verkefninu öllu er, eins og hlustendur heyrðu af hér fyrr í vikunni, “Efnið og andinn“. En við byrjum á sendingu frá Nýlistasafninu, okkur hafa borist mánaðarlegir pistlar í tilefni af fertugasta afmælisári safnsins. Að þessu sinni er það myndlistarkonan Anna Líndal sem kveður sér hljóðs. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
Erdogan Tyrklandsforseti er á leið í opinbera heimsókn til Þýskalands. Stjórnvöld þar í landi ætla að taka vel á móti honum og finnst sumum of mikið í lagt. Hópur þingmanna hyggst ekki sækja hátíðarkvöldverð Erdogan til heiðurs. Arthúr Björgvin Bollason í Berlín ræddi samskipti Þýskalands og Tyrklands í dag. Hann talaði líka um spennuna í stjórnarsamstarfinu og sýningu á list sem nasistum þótti úrkynjuð. - „Á liðnum árum hefur það nokkrum sinnum gerst að löggjafarvaldið hefur samþykkt lög sem ekki hafa verið nægilega ígrunduð og vönduð. Sum hafa beinlínis farið í bága við ákvæði stjórnarskrár eða haft lagatæknilega ágalla.“ Svo segir í skýringum með frumvarpi um stofnun sérstaks lagaráðs er hafi það hlutverk að bæta lagasetningu. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, fyrsti flutningsmaður málsins, ræddi viðleitni til að bæta lagasetingu á Alþingi. Þá var líka rætt um staðsetningu þjóðarsjúkrahússins. - Nýverið féllu tvö heimsmet í frjálsum íþróttum; annars vegar í maraþoni karla og hins vegar í tugþraut karla. Eldra hlaupsmetið hafði staðið í fjögur ár og tugþrautarmetið í þrjú. Af þessu tilefni spyrjum við: Er sífellt hægt að bæta metin? Verður árangur íþróttafólks alltaf betri og betri? Kemst mannfólki sífellt hraðar, lengra, hærra? Sigurbjörn Árni Arngrímsson, íþróttafræðingur, svaraði því og lýsti breytingum á þjálfun búnaði og framrás nýrra þjóða í íþróttum. - Við fræddumst líka um niðurstöður áralangra rannsókna Þorsteins Helgasonar, sagnfræðings, á Tyrkjaráninu árið 1627. Út er komin ný bók hans hjá hjá alþjóðlega forlaginu Brill í Hollandi. Þorsteinn ætlar í framhaldinu að tengja saman fræðimenn frá Grænhöfðaeyjum, Kanaríeyjum, Madeira, Færeyjum og Marokkó, sem þekkja til og rannsakað hafa sögu korsara, eða þeirra sem stunduðu sjórán. - Tónlist: Tríó Sunnu Gunnlaugs - Wake me up before you go-go.
Strandabyggð er sameinað sveitarfélag fyrrum Bitruhrepps, Kirkjubóls og Fellshrepps, Hólmavíkurhrepps og Nauteyrarhrepps og nær yfir svæðið frá Bitrufirði í suðri að Selá við Steingrímsfjörð og í vestri frá Kaldalóni og Ísafjarðarbotni. Í Strandabyggð búa um 450 manns og nú er kosningum til sveitastjórnar þessa víðfeðma sveitarfélags nýlokið. Enginn listi kom fram fyrir kosningarnar þannig að kosið var með óhlutbundinni kosningu og hlaut oddviti fráfarandi sveitastjónar Jón Gísli Jónsson flest atkvæði. Kristín Einarsdóttir okkar kona á Ströndum hitti Jón Gísla og byrjaði á að forvitnast um kosningarnar. Skín við sólu Skagafjörður, segir í laginu góða og við fórum í heimsókn að Löngumýri í Skagafirði. Gunnar Rögnvaldsson, formaður fræðsluseturs Kirkjunnar þar segir okkur fá hversu margháttuð og mikilvæg starfsemi fer þar fram. Við fengum einni gítarspil og fagran söng undir berum himni í undurfallegu veðri frá syni Gunnars, Sigvalda. Svo fengum við að heyra enn einn gullmolann úr safni útvarpsins. Í dag var það bútur úr þættinum „Hellar og huldufólkstrú undir Eyjafjöllum" frá árinu 1975 í umsjón Gísla Helgasonar og Hjalta Jóns Sveinssonar. En á ýmsum stöðum á landinu hefur alþýðutrú verið mikil í gegnum tíðina, þar má ekki hrófla við nokkrum hlut án þess að fólk eigi það á hættu að verða fyrir skakkaföllum. En þeir Gísli og Hjalti gerðu sér ferð austur undir Eyjafjöll og hittu þar fyrir Sæmund Jónsson bónda frá Sólheimahjáleigu og Þórð Tómasson safnvörð á skógum, sem sögðu þeim frá hellum og huldufólki í sveitinni. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Sigurður Ingólfsson skáld og doktor í frönskum bókmenntum úr bréfi Guðmundar Helgasonar prests og síðar búnaðarmálastjóra í Reykjavík til bróður síns Ágústs Helgasonar, bónda, alþingismanns og hreppstjóra í Grímsnesi og Birtingaholti. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
- Í lok síðasta mánaðar staðfesti dómstóll í Bandaríkjunum að listamennirnir Robin Thicke og Pharrell Williams hafi með laginu Blurred Lines gerst sekir um "að stela stemningu" frá tónlistarmanninum Marvin Gaye og lagi hans Got to Give it Up. Málaferlin hafa staðið í nokkur ár vestanhafs og sitt sýnist hverjum um úrskurðinn. En hvenær er listamaður að stela, fá innblástur eða bara undir áhrifum? Við ræðum þetta og fyrirhuguð málaferli Jóhanns Helgasonar vegna lags hans Söknuðar, við Guðrúnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra Stefs. - Nú liggur fyrir að Ari Ólafsson, fulltrúi Íslands í Eurovision í Lissabon í vor, verður annar á svið á fyrra undanúrslitakvöldinu 8. maí. Jóhannes Þór Skúlason Eurovision sérfræðingur segir að þetta séu slæmar fréttir fyrir Ísland - og þýði raunar það að þjóðin geti kysst þann draum bless að komast alla leið á lokakvöldið. Þetta mál þarfnast að sjálfsögðu útskýringar. - Mikilvægi íslensku flugfélaganna er vanmetið er yfirskrift greinar á vefnum túristi.is. Þar er rakið að engan vegin sé öruggt að erlend flugfélög myndi fylla það skarð sem myndaðist ef íslensku flugfélöginn þyrftu að draga verulega saman seglin eða hreinlega fara á hausinn. Vinna er nú í gangi innan stjórnaráðsins við að undirbúa áætlun ef íslensku millilandaflugfélögin lenda í rekstarvanda. Við ræðum við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra vefsins túristi.is. - Guðmundur Jóhannesson kemur til okkar í tæknihornið og fjallar um deilurna sem nú er í gangi á milli Apple og Facebook. Lagalisti: Rúnar Júlíusson - Hamingjulagið. Bubbi Morthens - Brostin loforð. Spilverk Þjóðanna - Nei sko. Myrra Rós - Við og við tvö. -Jóhann Helgason - Söknuður. -Josh Groban - You raise me up. -Robin Thicke - Blurred lines ft. T.I. & Pharrell. Marvin Gaye - Got to give it up. Ari Ólafsson - Our choice. Grafík - Leyndarmál. Travis - Side. Sade - Smooth operator. E.L.O. - Sweet talkin' woman. Warmland - Overboard. Egill Ólafsson - Hósen Gósen.
Hildur kíkti við og sagði okkur frá fjölbreyttum verkefnum sínum í tónlist víða um heiminn. Plata vikunnar er með Beebee and the Bluebirds, við fórum yfir alls kyns lífstíls- og tónlistarfréttir og lékum lögin við vinnuna. Lagalisti: 12:45-14:00: Friðrik Dór - Fyrir fáeinum sumrum. The Vaccines - Your love is my favorite band. Sálin hans Jóns míns - Englar. Jón Jónsson - Lost. John Grant - Marz. Lana del Rey & The Weeknd - Lust for life. Manic Street Preachers - Distant Colours. Ingileif - At last. Beggi Dan - Fyrirgefðu. Green Day - Know your enemy. Nilufer Yanya - Thanks 4 nothing. Cranberries - Just my imagination. The Cure - Lullaby. HILDUR Í SPJALLI. Hildur - Water. Queen - Somebody to love. 14:03-15:00: Unnsteinn - Hjarta. Marius Ziska - Silvurlin. Hjálmar - Allt er eitt. Dream Wife - Hey heartbreaker. Simple Minds - Someone, somewhere in summertime. Beebee and the Bluebirds - Out of the dark (af plötu vikunnar). Santana & Rob Thomas - Smooth. Sverrir Bergmann & Jóhanna Guðrún - Viðhengi hjartans. Michael Bublé - Nobody but me. Niall Horan - On the loose. Nirvana - Come as you are. 15:03-16:00: Nýdönsk - Hei þú. Into the light (brot af enskri útgáfu af Söknuði Jóhanns Helgasonar). Bríet - In too deep. Nena - 99 Luftballons. 200.000 Naglbítar - Og ég man. Pashn - Warnings. Jack White - Over and over and over. Weezer - Buddy Holly. Made in sveitin - Lýstu leiðina. Beebee and the Bluebirds - In for the ride (af plötu vikunnar). Helgi Björns - Ég fer á Landrover frá Mývatni frá Kópasker. JAK - Flóttamaður. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
Þóra Jónsdóttir sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Laugalækjaskóla og Iðunni Steinsdóttur kennara sem hafði mikil áhrif á hana. Hætti í Versló og fór í fjölbraut í Breiðholti og kláraði stúdentspróf þaðan. Stofnaði heimili og var að vinna á ýmsum stöðum, söng með nokkrum hljómsveitum en ákvað að drífa sig í háskólanám árið 2007 og fór í lögfræði í HÍ. Starfar nú hjá Barnaheill og sem söngkona en hún ákvað loksins árið 2014 að koma út úr skápnum sem tónlistarmaður og fara að sinna þeirri list betur. Hefur hljóðritað tvö lög með Pálma Sigurhjartarsyni píanóleikara og er að undirbúa tónleikar sem verða á skírdag í Fríkirkjunni í Reykjavík. Sigurður K. Kolbeinsson sagði frá uppvextinum í Reykjavík og skólagöngu sem gekk vel alveg þar til hann kom í MS en þá voru það önnur verkefni sem tóku hug hans allan svo sem eins og félagslífið og veitingastaðurinn Hollywood. Sigurður starfar nú bæði á Íslandi og í Danmörku, bæði við ferðatengda þjónustu og á sjónvarpsstöðinni Hringbraut en ný þáttaröð hans og Friðþjólfs Helgasonar fer í sýningu eftir páska og er tileiknuð 65+ hópnum. Hann ræddi líka viðhorfin til lífsins, áhrifavalda og margt fleira.

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Teitur Atlason, fulltrúi hjá Neytendastofu, úr bréfi Jóns Helgasonar biskups til séra Ásmundar Guðmundssonar. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Einar Logi Einarsson úr bréfi Ágústs Flygenring skipstjóra, útgerðarmanns, alþingismanns og kaupmanns í Hafnarfirði til nafna nafna síns Ágústs Helgasonar bónda, alþingismanns og hreppstjóra í Grímsnesi og Birtingaholti. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Þröstur Helgason dagskrárstjóri Rásar 1 úr bréfi Einars Helgasonar garðyrkjufræðings í Reykjavík til Ágústs Helgasonar bónda, alþingismanns og hreppstjóra í Grímsnesi og Birtingaholti. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Jón Björnsson, verkefnastjóri í Reykjavík úr bréfi Jóns Helgasonar biskups til Jóns Halldórssonar, sóknarprests á Sauðanesi. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.