POPULARITY
Samgönguráðherra vill breyta lögum um leigubílaakstur en gerir það líklega í tveimur skrefum. Starfshópur um endurskoðun laganna átti að skila tillögum í byrjun þessa mánaðar en gerir það ekki heldur verður að störfum fram á haust. Einmanaleiki, tilgangsleysi og skömm ýta eldra fólki í að taka dýr skyndilán sem það á í erfiðleikum með að greiða til baka. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir fleiri í þessum hópi leita eftir aðstoð en áður. Vistrækt eða vistmenning er ákveðinn lífsstíll sem fjöldi fólks hér á landi hefur tileinkað sér - þótt mun fleiri viti eflaust ekkert hvað vistrækt er. Í stuttu máli felst vistrækt í að maðurinn geti lifað á jörðinni án þess að skaða náttúruna.
Í síðustu viku var sérstök umræða á þingi um alvarlega stöðu í orkumálum, flestir tóku undir að staðan væri það sannarlega og viku líka að rammaáætlun og viðruðu um hana efasemdir. Mikilvægt væri að sameinast um næstu skref en þau yrðu ekki tekin á grundvelli rammaáætlunar sagði málshefjandinn. Orkumálaráðherra sagði að núverandi stjórn ætlaði að rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefði. Rammaáætlun hefur oft verið þrætuepli og átök um virkjanir hverfast gjarnan um hana - en í raun er ekki hægt að búast við að rammaáætlun geri meira en að leggja grunn fyrir upplýsta umræðu og ákvörðun Alþings um virkjanakosti að dómi Jóns Geirs Péturssonar formanns verkefnisstjórnarinnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Aukin notkun á gervigreind, styrkir til að kaupa reiðhjól en fyrst og fremst sameining stofnana og einfaldara stjórnkerfi eru meðal þeirra hugmynda sem ráðuneytin leggja til um hagræðingu í ríkisrekstri. Starfshópur forsætisráðherra er kominn með drög og ætlar að skila fullgerðum tillögum á tilsettum tíma. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman og ræddi við Björn Inga Victorsson, forstjóra Steypustöðvarinnar, löggiltan endurskoðanda og formann starfsfhóps forsætisráðherra. Þjóðverjar ganga til kosninga sunnudaginn 23. febrúar, hálfu ári fyrr en ætlað var, þar sem stjórn Jafnaðarmanna, Frjálslyndra demókrata og Græningja liðaðist í sundur. Ævar Örn Jósepsson fer yfir stöðu flokkanna eins og hún er í skoðanakönnunum nokkrum dögum fyrir kosningar og líkleg stjórnarmynstur. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Ísraelar hafa gert fjölda loftárása á Líbanon síðustu daga og innrás Ísraelshers á jörðu niðri er hafin. Hátt í þúsund manns hafa fallið í Líbanon á síðustu dögum og hundruð þúsunda eru á flótta. Eins og fram kom í fréttum hefndu Íranir árásanna á Hezbollah og drápsins á leiðtoga samtakanna með eldflaugaárás síðdegis í dag. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson sérfræðing í málefnum Miðausturlanda skömmu áður en þær árásir hófust spurði hvernig hann mæti stöðu mála í Líbanon. Hvorki veður né náttúruvá útiloka að flugvöllur verði gerður í Hvassahrauni. Starfshópur sem hefur verið að störfum frá því sumarið 2020 kynnti í morgun niðurstöður sínar og þar er lagt til að frekari rannsóknir verði gerðar til að mynda á ókyrrð, unnið verði áhættumat vegna fjárfestingar og að tekið verði frá svæði upp af Hvassahrauni fyrir tvær allt að þriggja kílómetra langar flugbrautir og þá þriðju sem yrði einn og hálfur kílómetri. Hlutfall ungs fólks með íslenskt ríkisfang sem á fasteign er með mesta móti miðað við undanfarin 15 ár. Þetta kemur fram í nýlegu minnisblaði fjármálaráðuneytisins. Þetta segir þó aðeins hálfa söguna því meirihluti fyrstu kaupenda virðist njóta fjárhagslegrar aðstoðar og vísbendingar eru um að hún sé meiri en nokkru sinni áður.
Starfshópur um aðgerðir til að bregðast við auknu sýklalyfjaónæmi hefur lokið störfum og skilað tillögum sínum. Þær eru viðamiklar og taka til áranna 2025-2029. Þórólfur Guðnason fyrrverandi sóttvarnalæknir var formaður starfshópsins. Hann fer yfir tillögurnar með okkur á eftir. Við ætlum að fara hundrað ár aftur í tímann og rifja upp fyrsta hnattflugið, stórmerkilegan leiðangur sem hafði viðkomu á Íslandi og hreyfði aldeilis við þjóðinni. Ræðum þetta og sögu flugsins við Leif Reynisson, sagnfræðing. Í dag, 26. febrúar eru 35 ár síðan íslenska karlalandsliðið bar sigur úr býtum í B heimsmeistarakeppninni í handbolta í Frakklandi. Ísland vann Pólland í leiknum um gullið, 29-26. Alfreð Gíslason varð markahæstur Íslendinga í leiknum með 7 mörk og Kristján Arason skoraði 6. Við rifjum upp umfjöllun frá því rétt fyrir úrslitaleikinn í Dægurmálaútvarpinu. Stefán Jón Hafstein var í París þar sem leikurinn fór fram og tók stuðningsmenn tali. Tónlist: THE BEATLES - I'll Follow The Sun.
Spegillinn 23. Júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir Íslandsbanka viðurkenna lögbrot með samningi um sáttagreiðslu við fjármálaeftirlitið. Arndís Anna. K. Gunnarsdóttir, varamaður Pírata í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir að velta verði við hverjum steini vegna bankasölunnar. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við þau og Benedikt Sigurðsson ræddi við Birnu Einarsdóttur bankastjóra. Stjórn bankans kveðst bera fullt traust til bankastjóra. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir skýra og ótvíræða lagaheimild vera fyrir því að takmarka hvalveiðar við ákveðinn tíma. Stefán Vagn Stefánsson, formaður atvinnuveganefndar og þingmaður Framsóknar, telur mikilvægt að nefndin verði upplýst um stöðu mála. Rebekka Líf Ingadóttir tók saman. Að minnsta kosti 350 Pakistanar voru í fiskibátnum sem sökk úti fyrir Grikklandi í síðustu viku. Hugsanlegt er talið að allt að 750 manns hafi verið í bátnum. Tvær listakonur fengu 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að nota verk annars listamanns í sköpun sína. Þær voru sakfelldar fyrir hylmingu en sýknaðar af ákæru um brot gegn höfundarrétti. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Starfshópur matvælaráðherra um strokulaxa vill stofna sérstaka rannsóknarnefnd og veita Matvælastofnun heimild til að telja laxa upp úr kvíum, vakni grunur um strok. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá og talaði við Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins, og Sigurgeir Bárðarson, lögfræðing hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svonefnda voru mildaðir í Landsrétti í dag. Þeir sem þyngsta refsingu hlut fá tíu ára fangelsisdóm í stað tólf. Í uppgjöri Loftslagsráðs, sem birt var á dögunum, segir að við blasi, að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum hafi ekki skilað tilætluðum árangri, markviss loftslagsstefna með tímasettum og mælanlegum markmiðum liggi enn ekki fyrir og ljóst að Ísland muni ekki ná að uppfylla skuldbindingar sínar og fyrirheit um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030, að óbreyttu. Ævar Örn Jósepsson ræddi málið við Halldór Þorgeirsson, formann Loftslagsráðs.

Spegillinn 2. Júní 2013 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ríkislögreglustjóri keypti skotvopn og skotfæri fyrir 185 milljónir króna vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins. Annar búnaður kostaði 150 milljónir til viðbótar. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir jákvætt að færri noti reiðufé í viðskiptum sínum þó hann vilji ekki að notkun þess leggist alfarið af. Hins vegar eigi það eftir að gerast einn daginn og annað taka við. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við hann. Óttast er að tugir hafi látist í lestarslysi á Indlandi í dag. Minnst tvö hundruð slösuðust. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni vegna rannsóknar á andláti konu á Selfossi í apríl. Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra vill að skoðað verði hvort tilefni sé til þess að láta eltihrella og þá sem ítrekað hafa rofið nálgunarbann til að sæta rafrænu eftirliti. Starfshópurinn telur þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis ómarkvissa. Valur Grettisson sagði frá. Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir félaga Rafiðnaðarsambandsins sem starfa hjá Landsneti hefst í næstu viku. Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir verður í eldlínunni með þýska liðinu Wolfsburg sem mætir Barcelona í úrslitaleik meistaradeildarinnar í fótbolta á morgun. Sveindís segir að pressan sé öll á Barcelona og að hún ætli að njóta þess að spila á stærsta sviðinu. Björn Malmquist talaði við hana. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vonast til þess að afkoma ríkissjóðs á þessu ári verði betri en fram kom í fyrri efnahagsspám. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann. Atlantshafsbandlagið eykur þrýsting á Tyrki að hleypa Svíum í Evrópusambandið. Ásgeir Tómasson sagði frá. Þverfaglegur starfshópur starfar á vegum Umhverfisstofnunar með það að leiðarljósi að veita faglega ráðgjöf um áhrif umhverfis á heilsu fólks. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur, verkefnisstjóra hópsins.

Spegillinn 23. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Atkvæðagreiðsla um verkfall 300 félagsmanna í Eflingu sem vinna á Íslandshótelum byrjar á morgun. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar býst við að verkfallsboðun fyrir 7. febrúar verði samþykkt. Kristófer Oliversson formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir ótrúlegt að beina eigi verkfalli að nánast einni kennitölu. Bjarni Pétur Jónsson talaði við þau. Lögreglumönnum mega bera rafbyssur frá og með deginum í dag. Jón Gunnarsson, (D) dómsmálaráðherra segir að í nágrannalöndum hafi slysum á fækkað til muna við að lögregla beri rafvarnarvopn. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, (P) bar fyrirspurn um rafbyssurnar upp á Alþingi í dag. Starfshópur leggur til að almennur byggðakvóti verði afnuminn og einnig skel- og rækjubætur ásamt línuívilnun. Þessar heimildir yrðu frekar nýttar í sértækan byggðakvóta sem þykir skila betri árangri eða til að auka strandveiðar. Rúnar Snær Reynisson tók saman. Fimm skip á vegum Hafrannsóknastofnunnar héldu í dag út til mælinga á stærð loðnustofnsins. Niðurstöðurnar gætu haft talsverð áhrif á veiðar á þessari vertíð. Pétur Magnússon ræddi við Guðmund Óskarsson, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Þrjátíu og fimm kindur brunnu inni eftir að eldur kviknaði í útihúsum á Syðri-Hömrum í Ásahreppi í gær. Guðjón Björnsson bóndi segir skelfilegt að missa allan fjárstofn sinn. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hann. --------------- Í hverri viku koma þrjú til fjögur börn leita á bráðamóttöku vegna nikótíneitrunar. Nikótínpúðar eru algengasta orsökin; sala þeirra hefur margfaldast á örfáum árum. Bjarni Rúnarsson ræðir við Lilju Sigrúnu Jónsdóttur heimilislækni sem hefur lengi unnið að tóbaksvörnum. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík segir að huga þurfi vel að breytingum á 5,3% kerfinu sem rætt er um í tillögum starfshópa menntamálaráðherra um stefnumótun í sjávarútvegi. Hann er hlynntur breytingu en ekki byltingu, miklu skipti að ljóst sé hvað eigi að taka við og þá til langs tíma ráðist menn í breytingar. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkja ræða í Brussel um hvort senda eigi Úkraínumönnum árásarskriðdreka. En ekki er sátt um málið á alþjóðavettvangi. Ásgeir Tómasson tók saman. Mateusz Morawiecki forsætisráðherra Póllands, Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands og Adam East, fréttamaður breska ríkisútvarpsins BBC í

Miðvikudagurinn 18. janúar Við ræðum við Söndru B. Franks um heilbrigðiskerfið frá sjónarhóli sjúkraliða. Hvers vegna eru færri sjúkraliðar á landspítala nú en í Hruninu? Starfshópar Svandísar Svavarsdóttur um sjávarútveginn gera ekki tillögur um miklar breytingar. Hvað segir Arthúr Bogason, formaður Smábátaeigenda, um þá stöðu. Við förum yfir feminískar fréttir með Maríu Pétursdóttur, Margréti Pétursdóttur og Söru Stef. Og förum yfir fréttir dagsins.
Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Marteinn Marteinsson Magnús Aron Magnússon, sem er ákærður fyrir að hafa myrt mann í Barðavogi í Reykjavík fyrr í sumar, neitar sök. Mál gegn honum var þingfest í dag. Mesti hiti ársins hér á landi mældist í dag. Hitinn fór í 25 stig á Mánarbakka á Tjörnesi síðdegis. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá og ræddi við Bjarna Sigurð Aðalgeirsson, eiganda tjaldsvæðisins að Mánárbakka, og Birgi Örn Höskuldsson veðurfræðing sem gerir ekki ráð fyrir að hitinn verði meiri það sem eftir er ársins. Forseti Úkraínu ætlar að sjá til þess að eftirlitssveit Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar komist að kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia. Hann hitti í dag forstjóra stofnunarinnar sem fer fyrir hópnum. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Tveir hafa látist það sem af er á ári á Grænlandi eftir tilraunir til að smygla fíkniefnum innvortis til landsins. Slíkt smygl hefur færst í aukana og hafa þrjátíu og þrír verið handteknir á árinu, fleiri en nokkru sinni áður þar í landi. Dagný Hulda Erlendsdóttir sagði frá. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að Úrvinnslusjóður sé lykilþáttur í að koma á almennilegu hringrásarhagkerfi hér á landi. Starfshópur ráðherra, sem skila á tillögum um breytingar á lögum um Úrvinnslusjóð, hefur þegar hafið störf. Oddur Þórðarson ræddi við ráðherra. Skýrslur hafa verið teknar af öllum fjórum sem hafa réttarstöðu sakborgninga vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs. Málið snýr að svonefndri skæruliðadeild útgerðarfélagsins Samherja. Í fyrravor voru birtar fréttir um samskipti fólks sem tengdist Samherja með einhverjum hætti og tilraunir þess til að hafa áhrif á umræðu um fyrirtækið í fjölmiðlum. Öll aðildarfélög Bandalags háskólamanna koma sameinuð að samningaborði við upphaf kjaraviðræðna í ár. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Friðrik Jónsson, formann BHM, um ástand og horfur í viðræðunum. Einnig heyrðist í Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um þátt ríkisstjórnarinnar í komandi viðræðum. Að minnsta kosti þrjátíu létust og á sjötta hundrað særðust í blóðugum óeirðum sem brutust út í Bagdad, höfuðborg Íraks. Það gerðist eftir að eldklerkurinn og stjórnmálamaðurinn Moqtada al-Sadr lýsti því yfir að hann væri hættur afskiptum af stjórnmálum. Reynt er að fá fólk til að hverfa frá samkynhneigð og fara aftur inn í skápinn í fjölda trúfélaga í Svíþjóð. Bælingarmeðferð, eins og hún hefur verið nefnd hér á Íslandi, er bönnuð með lögum í Þýskalandi og rætt hefur verið um að banna hana, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Kári Gylfason í G

Nemendur á unglingastigi í Vogaskóla munu í haust mæta seinna í skólann á morgnana í von um bættan svefn, og hefst kennsla í áttunda til tíunda bekk ekki fyrr en klukkan tíu mínútur yfir níu. Við ræddum verkefnið við Snædísi Valsdóttur, skólastjóra Vogaskóla. Breytingar á áfengislöggjöfinni urðu á lokametrum þingsins þegar Alþingi gerði heimilt fyrir framleiðendur áfengis, þ.e. bjórframleiðendur, að selja vörur sínar í smásölu frá framleiðslustað. Þetta þykir þeim sem vilja aukið frjálsræði á áfengismarkaði aðeins áfangi á leið í átt að lokamarkinu. Einn þeirra er Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sem vill sjá örari breytingar á löggjöfinni og opna markaðinn frekar. Hann var gestur okkar upp úr hálf átta. Guðmundur Gunnarsson, ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins, skrifaði leiðara á þriðjudaginn þar sem hann benti á að vinnuhóparnir, fagráðin, þingmannanefndirnar, aðgerðahóparnir, viðbragsteymin, verkefnastjórnirnar og valnefndirnar sem sinna tímabundnum verkefnum fyrir ríkisstjórnina séu nú um tvö hundruð og níu talsins. Við ræddum fjölda starfshópa hér á landi við ÓIaf Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði. Að loknum átta fréttum á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar með góðum gestum, í þetta skiptið fréttakonunum Kristínu Ólafsdóttur á Vísi og Stöð 2 og Magdalenu A. Torfadóttur, á Markaðinum og Fréttablaðinu. Á morgun laugardag skella veitingamenn á Laugaveg upp langborði á miðri götunni. Charlotta Rós Sigmundsdóttir partystýra á Vínstúkunni tíu sopum kom til okkar og sagði okkur frá viðburðinum. Það styttist verulega í EM kvenna í knattspyrnu en þjóðin er að sjálfsögðu búin að skrúfa væntingarnar reglulega vel upp. Þorsteinn Halldórsson þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu kom til okkar í lok þáttar til að renna yfir leikskipulagið og hvaða dýrðir við megum vænta á Evrópumótinu. Tónlist: Nýdönsk - Horfðu til himins First Aid Kit - Emmylou The Beatles - Something Una Torfadóttir - En Hjálmar og GDRN - Upp á rönd Harry Styles - Watermelon sugar Tame Impala - No Choice NERD - She wants to move Scarlet Pleasure - What a life

Hallormsstaðaskóli lenti að sumu leyti á milli skips og bryggju þegar skipan nýrra ráðuneyta var ákveðin síðastliðið haust. Skólinn hefur metnað til þess að starfrækja námsbraut sem nýst gæti sem viðbótardiplóma á meistarastigi en að öðru leyti starfar skólinn á framhaldsskólastigi. Við forvitnuðumst frekar um þessa stöðu með símtali austur til skólameistarans, Bryndísar Fionu Ford. Skilin á milli vinnu og einkalífs eru mikilvæg en þau hafa óneitanlega orðið óskýr með ýmsum tækniframförum - og heimsfaraldurinn afmáði þau síðan með öllu fyrir mörg okkar. Steinar Þór Ólafsson, samskiptasérfræðingur, benti á það í pistli sínum í Viðskiptamogganum í gær að fyrirtæki reyni nú að leggja meiri áherslu á heilsu og vellíðan starfsfólks - því það blasi við að faraldur 21. aldarinnar verði faraldur ýmiskonar lífsstílssjúkdóma sem skilar sér í kostnaði fyrirtækja og framleiðnitapi. Lítil hrifning hefur verið meðal landsmanna með nýju landsliðstreyjuna sem Knattspyrnusambandið frumsýndi í byrjun vikunnar. Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður, kíkti til okkar og sagði okkur sína skoðun - og hver lykillinn er að því að hanna fallega fótboltatreyju. Á föstudag eru 100 dagar síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Þó Ísland sé að einhverju leyti peð á tafli alþjóðastjórnmálanna er óhætt að segja að það peð hafi verið iðið við kolann frá innrásinni. Íslenska ríkið hefur til að mynda greitt yfir 125 milljónir króna fyrir flutning á hergögnum til notkunar í Úkraínu - fyrst og fremst skotfæri. Við ræddum utanríkismálin í tengslum við innrásina við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Starfshópur matvælaráðherra skilaði í gær af sér skýrslu um starfsemi við blóðtöku hryssna. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að lagaumgjörðin um blóðtöku úr fylfullum hryssum sé afar óljós og ekki viðunandi. Við ræddum þessi mál við Sigríði Björnsdóttur, yfirdýralækni í hrossasjúkdómum hjá Matvælastofnun, en hún sat einnig í starfshópnum sem sá um úttektina. Tjáningarfrelsi presta hefur verið til umræðu síðan sr. Davíð Þór Jónsson geistist fram á ritvöllinn í síðustu viku og gagnrýndi ríkisstjórnarflokkana. Í grein eftir Dr. Hjalta Hugason, prófessor emeritus í guðfræði, fjallaði hann vítt og breitt um tjáningarfrelsi presta. Við fengum Hjalta til okkar í lok þáttar. Tónlist: Bette Davis Eyes - Kim Carnes Bleikur og Blár - Friðrik Dór Fallin' - Alicia Keys Supermodel - Måneskin Ástarsæla - Júníus Meyvant Flughoppið - Purrkur Pillnikk In The Dark - Purple Disco Machine Í hjarta þér - Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar

Húsnæðismál voru til umfjöllunar í spjalli um efnahag og samfélag. Bankarnir hafa allir hækkað vexti á lánum sínum, og nú er því spáð að stýrivextir fari yfir fimm prósent og verðbólgan í 8,4 prósent. Starfshópur stjórnvalda skilaði af sér skýrslu í síðustu viku um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði hér á landi. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir stöðuna. Miklar breytingar eru að verða á pólitísku landslagi Þýskalands, eins og Arthur Björgvin Bollason ræddi í Berlínarspjallinu að loknum morgunfréttum. Og þar í landi, eins og víðast hvar í löndunum í kringum okkur, er líka verið að velta því fyrir sér hvernig hægt er að takast á við verðbólguna. Þar hefur meðal annars verið gripið til þess að auðvelda almenningi að ferðast með almenningssamgöngum. Steinunn Sigurðardóttir skáld var í gær sæmd heiðursdoktorsnafnbót við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, við hátíðlega athöfn. Og í dag kemur út hennar nýjasta bók, sem mér telst svo til að sé um það bil sú þrítugasta sem hún skrifar. Steinunn var gestur Morgunvaktarinnar. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Man who loves women - Tom Petty Crawling back to you - Tom Petty

Enn má búast við olíuleka úr breska tankskipinu El Grillo sem Þjóðverjar grönduðu í Seyðisfirði í seinni heimsstyrjöldinni. Starfshópur hefur nú skilað af sér þremur tillögum til að fyrirbyggja frekari mengun frá skipinu en olía úr því hefur skaðað fuglalíf og drepið unga í firðinum. Við ræddum við Björn Ingimarsson, sveitarstjóra í Múlaþingi. Í þættinum í gærmorgun ræddum við við móður drengs sem glímir við gríðarlega vanlíðan og er í sjálfsvígshættu en er einn margra barna á löngum biðlista Barna- og unglingageðdeildar. Til okkar kom Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal, deildarstjóri hjúkrunar á BUGL til að ræða málin um biðlistana og mikla aukningu. Innbrotið á Mannlíf fyrir viku síðan hefur aldeilis undið upp á sig. Reynir Traustason ritstjóri miðilsins var hjá okkur á mánudag þar sem nafn Róberts Wessmann forstjóra Alvogen bar á góma en einhver fjöldi fyrirhugaðra frétta um Róbert er á meðal þess efnis sem eytt var út af vef Mannlífs í skjóli nætur. Í gærkvöldi sendi Róbert frá sér yfirlýsingu þar sem greint er frá því að hann hafi kært Mannlíf til Fjölmiðlanefndar og siðanefndar blaðamannafélagsins. Lára Ómarsdóttir, fyrrum fjölmiðlakona, starfar nú við fjölmiðlaráðgjöf fyrir Róbert Wessmann og kom til okkar fyrir hans hönd. Við renndum lauflétt yfir fréttir vikunnar með góðu fólki. Að þessu sinni komu til okkar, Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Róbert Marshall. Kynfræðsla ungmenna var mál málanna í gær en mjög deildar meiningar eru um það hversu ítarlega á að fara í að fræða ungt fólk um ýmiskonar blæti og kynferðislega hegðun. Hulda Tölgyes sálfræðingur hefur reynslu af því að ræða mörk og markaleysi við sína skjólstæðinga og var á línunni hjá okkur. Stórleikarinn Björn Stefánsson, sem jafnan er kallaður Bjössi í Mínus, frumsýnir í kvöld nýja skemmtiþætti á Stöð 2 sem nefnast Glaumbær. Þar verður gleðin við völd eins og nafnið gefur til kynna en þættirnir hverfast um eitt ákveðið orð sem verður svo allsráðandi í þættinum. Bjössi er auðvitað búinn að vekja stormandi lukku í Bubbasöngleiknum 9 líf undanfarið og er því með ansi mörg járn í eldinum. Tónlist: To be free - Emiliana Torrini Stay - The Kid Laroy Because the night - Patti Smith Ef ástin er hrein - Jón Jónsson Too late - Þórunn Antonía Djöfull er það gott - Páll Óskar Young hearts run free - Candi Station

Spegillinn 7. desember 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Markús Hjaltason Nefnd sem kannað hefur viðbrögð Knattspyrnusambands Íslands vegna kynferðisofbeldismála sem tengdust landsliðsmönnum gagnrýnir tvo fyrrverandi formenn sambandsins en telur viðbrögð annarra stjórnar- og starfsmanna ekki bera einkenni þöggunar. Aðkoma stjórnvalda í húsnæðismálum og að halda verðbólgu í skefjum eru brýnustu verkefnin í aðdraganda kjaraviðræðna á næsta ári. Þetta segir Drífa Snædal forseti Alþýðusambands Íslands. Starfshópur sem innanríkisráðherra hefur skipað á að greina eðli starfsemi vistheimilisins á Hjalteyri og hvernig eftirliti var háttað. Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar segir að menn verði að vera samstíga um framhaldið í raforkumálum með ólíka hagsmuni að leiðarljósi, það er náttúruverndina og þeirra sem þurfi á orkunni að halda. Það sé ekki hægt að eyða fleiri árum eða kjörtímabilum í að rífast um hlutina. Þingmenn Grænlendinga á danska þinginu hafa lýst ánægju með að gert er ráð fyrir auknum útgjöldum til félagsmála á Grænlandi í samkomulagi um fjárlög Danmerkur. Hlutur íslenskra jólatrjáa eykst jafnt og þétt í jólaversluninni Lengri umfjöllun. Tveir fyrrverandi formenn Knattspyrnusambands Íslands eru gagnrýndir í skýrslu sérstakrar nefndar um viðbrögð og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengdust landsliðsmönnum. Ekki er talið að aðstæður innan sambandsins hamli þátttöku kvenna í starfseminni en hvatt til þess að leitað verði leiða til að leiðrétta kynjahallann sem á henni er. Nefndin var skipuð af Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands í haust að beiðni KSÍ og kynnti hún niðurstöður sínar í dag. Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari og formaður nefndarinnar sagði að hún hefði fengið óheftan aðgang að skjalasafni sambandsins, skoðað hundruð skjala og tölvupósta og rætt við rúmlega 50 manns sem hafa starfað eða setið í stjórn KSÍ og tugi annarra sem tengjast atburðunum sem skoðaðir voru. Enginn hefði skorast undan að tala við nefndina eða veita henni gögn. Hann þakkaði sérstaklega þeim sem hefðu deilt með nefndinni frásögnum af kynferðislegu eða kynbundu ofbeldi, það hefði ekki verið þeim auðvelt og krafist hugrekkis. Kynferðisofbeldi lægi oft í þagnargildi því fólk treysti sér ekki til að segja frá af ótta við viðbrögðin. Flutt brot af kynningfundi nefndarinnar þar sem heyrist í Kjartani, Rán Ingvarsdóttur og Hafdísi Kristjánsdóttur nefndarmönnum. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Aðkoma stjórnvalda í húsnæðismálum og að halda verðbólgu í skefjum eru b

Starfshópur á vegum utanríkisráðuneytisins hefur lagt fram 30 tillögur um nánara samstarf Íslendinga og Færeyinga. Tillögurnar eru settar fram í skýrslu til utanríkisráðherra. Skýrslan var til umræðu á fundi Færeysk-íslenska viðskiptaráðsins. Meðal tillagna er að stofnað verði til samstarfsráðs milli Íslands og Færeyja, sem m.a. fái það hlutverk að vinna að framgangi tillagna hópsins. Bogi Ágústsson ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem skipaði starfshópinn, um skýrsluna, tillögurnar og samstarf og samvinnu þjóðanna. Um þetta var fjallað í Heimsglugga dagsins.

Hingað til hefur heimilisofbeldi ekki verið skráð sem komuástæða í sjúkraskrárkerfum og því ekki hægt að kalla fram tölfræðilegar upplýsingar á einfaldan máta. Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur til úrbóta á fyrirkomulagi móttöku þolenda heimilisofbeldis í heilbrigðisþjónustunni leggur til að þessu verði breytt sem og ýmsu öðru er lýtur að þjónustu og móttöku þolenda heimilisofbeldis. Drífa Jónasdóttir afbrotafræðingur fór yfir tillögur hópsins og það sem betur mætti fara í þættinum. Hún kom einnig inn á tilkynningar skóla til barnavernda ef grunur leikur á að barn búi við ofbeldi. Bogi Ágústsson fjallaði um stöðu forseta Brasilíu, Jair Bolsonaro, en hæstiréttur Brasilíu hefur fyrirskipað rannsókn á honum vegna órökstuddra fullyrðinga um kosningasvindl. Bogi fór einnig yfir nýlega niðurstöðu hæstaréttar Mexíkó um að lög sem banna þungunarrof brjóti gegn stjórnarskrá landsins. Fyrirhugaðar þingkosningar í Þýskalandi og Noregi voru einnig til umfjöllunar í Heimsglugga dagsins. Borgþór Arngrímsson rabbaði um stöðu varnarmálaráðherra Danmerkur sem er sakaður um að hafa misnotað aðstöðu sína með því að þiggja far með skipi sem tilheyrir varnarmálaráðuneytinu í þeim helsta tilgangi að ræða við kjósendur. Borgþór talaði einnig um merkan fornleifafund, vindmyllur og hesta í Danmörku. Tónlist: Ain't got no - I got life með Ninu Simone. Min dörr står öppen í flutningi Arja Saijonmaa og Costa del Sol í flutningi C.V. Jörgensen. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Í þessum fyrsta þætti haustins komu fulltrúar starfshóps á vegum Mennta-og menningarmálaráðuneytsins um styrkingu leikskólastigsins og kynntu tillögur hópsins. Hópurinn leggur fram fjölþættar tillögur um hvernig efla megi skólastarf á leikskólastigi, m.a. um endurskoðun á aðalnámskrá leikskóla, reglugerð um starfsumhverfi leikskóla og byggingarreglugerð. Tillögurnar eru nú til umfjöllunar í ráðuneytinu, m.a. í samhengi við fyrstu innleiðingaráætlun nýrrar menntastefnu sem kynnt verður í haust. Hér má nálgast skýrsluna í heild sinni: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/08/23/Breytingar-sem-efla-leikskolastarf/
Gengið verður lengra í tilslökunum á grímuskyldu en ríkisstjórnin tilkynnti eftir fund sinn í gær. Deild á Landspítala var lokað í dag eftir að sjúklingur greindist með COVID-19. Smit hafa greinst í nokkrum grunnskólum síðustu daga eftir að skólastarf hófst að nýju. Reglum um sóttkví í skólastarfi var nýlega breytt, svo færri þurfi að fara í sóttkví þegar smit koma upp. Maðurinn sem var skotinn og særður af lögreglu á Egilsstöðum í gær er á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem líðan hans er stöðug. Rannsókn málsins er á frumstigi. Rúta með þrjátíu manns festist í Krossá við Þórsmörk í dag. Björgunarsveitarmaður sem tók þátt í aðgerðum segir stöðuna hafa verið tvísýna um tíma. Framkvæmdir við útsýnispallinn á Bolafjalli við Bolungarvík hafa verið stöðvaðar þar sem byggingarleyfi hefur enn ekki verið gefið út fyrir framkvæmdinni. Bandaríkjaher er undirbúinn fyrir frekari árásir í Kabúl fyrir mánaðamót. Ríki heims eru nú á lokametrum brottflutnings fólks frá Afganistan Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Dana og framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gagnrýnir ákvörðun Bandaríkjamanna um að kalla her sinn frá Afganistan. Hann er einn margra málsmetandi á Vesturlöndum sem er reiður Joe Biden Bandaríkjaforseta. Bogi Ágústsson segir frá. Ekkert samræmt verklag er til á landsvísu um hvernig heilbrigðisstofnanir eigi að taka á móti þolendum heimilisofbeldis. Starfshópur leggur til einfalt áhættumat fyrir heilbrigðisstarfsfólk um hvenær eigi að kalla til lögreglu, til að mynda þegar þolandinn hefur verið tekinn kyrkingartaki eða er barnshafandi. Ragnhildur Thorlacius sagði frá og talað við Drífu Jónasdóttur. Ef verkfall flugumferðarstjóra á Keflavíkurflugvelli skellur á á þriðjudag gæti það haft áhrif á tæplega sex þúsund farþega Icelandair. Upplýsingafulltrúi félagsins segir að nú sé unnið að fyrirbyggjandi aðgerðum sem fela í sér að bjóða flugfarþegum að seinka eða flýta flugi um allt að tvo daga. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Ásdísi Ýr Pétursdóttur og Arnar Hjálmsson.

Spegillinn 19.08.2020 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Tæknimaður: Davíð Berndsen Tilkynningum um kynferðisbrotum hefur fækkað um helming það sem af er ári í samanburði við síðustu þrjú ár. Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar útilokar ekki að það tengist kórónuveirufaraldrinum. Rætt við Ævar Pálma Pálmason, nýjan yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglunnar Nýjar reglur tóku gildi á landamærunum í dag. Farþegar voru mishrifnir af þeim en létu þær engu að síður ekki stöðva sig í að heimsækja landið. Rætt við ferðamenn í Leifsstöð. Eftirlit með smitum á landamærum hér á landi er nú með því strangasta sem tíðkast í Evrópu. Rætt við Magnús Gottfreðsson, sérfræðingur í smitsjúkdómum sem segir skynsamlegt fyrir eyríki að gæta vel að landamæraeftirliti í heimsfaröldrum. Miklar breytingar verða á flugvélaflota Icelandair á næstu árum. Sex nýjar Boeing 737 MAX vélar bætast í flotann næstu tvö árin og 16 nýjum vélum við í flotann eftir fjögur ár . Sádí Arabísk yfirvöld segja friðarsamning við Palestínu eina möguleika þeirra á að koma á diplómatískum tengslum við Ísrael. Best væri fyrir Sáda að lausn Palestínudeilunnar væri byggð á friðaráætlun Arababandalagsins. Koma má í veg fyrir heimsfaraldra eins og Covid-19 ef þjóðir heims kæmu sér saman um að setja um tuttugu milljarða dollara á ári í að draga úr eyðingu regnskóga og viðskiptum með villt dýr. Þetta segir hópur alþjóðlegra vísindamanna sem birt hafa grein í vísindatímaritinu Science. Bergljót Baldursdóttir ræddi við dr. Aaron Bernstein, barnalækni sem stýrir miðstöð loftslags-, heilbrigðis- og umhverfismála við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Hann er einn af höfundum greinarinnar. Starfshópur leggur til að 7,7 milljörðum verði varið á næstu þremur árum til mennta og vinnumarkaðsaðgerða. Mögulegt verði að hefja nám á atvinnuleysisbótum. Arnar Páll Hauksson tólk saman Norðmenn vilja meira hvalkjöt. Það er óvænt aukaverkun af kórónaveirunni. Hvalkjöt er þó ekki talið búa yfir lækningamætti heldur hitt að Norðmenn hafa í sumar beint ferðum sínum norður í land á slóðir þeirra fáu hrefnuveiðimanna sem enn eru eftir. Gísli Kristjánsson í Noregi segir frá

Útlit er fyrir að baráttan um útnefningu Demókrataflokksins til forseta Bandaríkjanna standi milli Joe Biden og Bernei Sanders. Freyr Eyjólfsson fór yfir stöðu mála. Netanjahú forsætisráðherra lýsti sig sigurvegara í þingkosningunum í Ísrael á mánudag. Þetta voru þriðju kosningarnar í landinu á innan við ári. Netanjahú fer fyrir dóm síðar í mánuðinum, hann er sakaður um mútuþægni og fjársvik. Starfshópur á vegum sjávarútvegsráðherra leggur til nýjar leiðir við úthlutun aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir. Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri fór fyrir starfshópnum. Ágúst Ólafsson fréttamaður ræddi við Þórodd. Tónlist: Massachusetts - BeeGees.

Gestur þáttarins í dag er Helga Baldvins Bjargardóttir, mannréttindafrumuður, sjálfstætt starfandi lögmaður og formaður starfshóps um þvingunarúrræði lögræðislaga. Helga er sérlegur áhugamaður um mannréttindi og fer yfir það ásamt öðru ásamt Svövu Arnardóttur. Starfshópurinn um þvingunarúrræði lögræðislaga var skipaður af heilbrigðisráðherra og hefur nú tekið til starfa. Hópurinn hugar helst að því hvort þörf sé á því að settar séu frekari leiðbeiningar um útfærslur á þvingunarúrræðum. Það er sameiginlegur vilji allra fulltrúa starfshópsins að fá raddir sem flestra að borðinu við þessa vinnu. Í því skyni hefur starfshópurinn útbúið tölvupóstfangið thvingudmedferd@gmail.com og hvetur alla sem hafa reynslu eða ábendingar um hvað mætti betur fara að senda inn erindi.
Spegillinn 18.6.2019 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Samkomulag um afgreiðslu mála á Alþingi og þinglok er í höfn. Samið er um að fresta þriðja orkupakkanum þar til í lok ágúst og fresta gildistöku frumvarps um innflutning á fersku kjöti. Rætt við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins Ef kviknar í á Vesturlandi má búast við að eldurinn breiðist hratt út þar sem áfram er spáð þurrki og norðanstrekkingi. Þetta segir veðurfræðingur sem brýnir fyrir fólki að fara gætilega. Rætt við Pálma Þór Sævarsson svæðisstjóra Vegagerðarinnar Sérsveit ríkislögreglustjóra og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir út þegar vart varð við torkennilegan hlut við gegnumlýsingu í farangursleit á Keflavíkurflugvelli. Við nánari skoðun reyndist hann vera eftirlíking af Fabérge-eggi. Donald Trump Bandaríkjaforseti útilokar ekki stríð við Íran, einkum ef stjórnvöld þar hefja þróun kjarnavopna. Hann gerði lítið úr árásum á tvö olíuflutningaskip á Ómanflóa í síðustu viku í viðtali við tímaritið Time í dag. Mikil eftirvænting er fyrir komu tveggja mjaldra til Vestmannaeyja á morgun. Starfshópur um endurskoðun kosningalaga leggur til að komið verði á fót nýrri kosningastofnun til að hafa umsjón með framkvæmd kosninga og verkefnum í tengslum við þær. Boris Johnson fékk aftur flest atkvæði þingmanna Íhaldsflokksins, sem kjósa sér nýjan formann á næstunni. Frambjóðendum fækkaði um einn eftir atkvæðagreiðslu dagsins og þeir eru nú fimm. Sigrún Davíðsdóttir, segir frá Það þarf að stokka upp hlutverk fjallkonunnar og leyfa henni að velja sér ljóð. Þetta er mat kynjafræðings sem fagnar því að í gær hafi kona sem ekki er hvít farið með hlutverkið. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman og ræddi við Guðnýju Gústafsdóttur, kynjafræðing. Úrslitakeppni heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta stendur nú sem hæst yfir í Frakklandi og sennilega hefur keppninni aldrei áður verið sinnt jafn vel af fjölmiðlum á alþjóðavísu. Kvennaboltinn hér á landi og erlendis á þó enn langt í land með að njóta jafnréttis á við karlaboltann þegar kemur að aðstöðu, peningum og viðhorfi þeirra sem stjórna í knattspyrnuhreyfingunni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Eddu Garðarsdóttur, margreynd landsliðskona í fótbolta og þjálfari, og Kristján Guðmundsson knattspyrnuþjálfara. Kristján hefur um árabil þjálfað meistaraflokkslið karla í efstu deild víða um land, en þjálfar nú í fyrsta sinn kvennalið í efstu deild.
Borgarfulltrúar Miðflokksins og Flokks fólksins vilja að skýrslu um braggamálið verði vísað til héraðssaksóknara. Lögð verður fram tillaga frá þeim á næsta borgarstjórnarfundi. Félagið Vígdísarholt tekur að sér rekstur nýja hjúkrunarheimilisins á Seltjarnarnesi. Viljayfirlýsing um það var undirrituð í dag. Gert er ráð fyrir að tekið verði á móti fyrstu heimilismönnum í byrjun apríl. Nicolas Maduro sór í dag embættiseið sem forseti Venesúela til næstu sex ára. Bandaríkjastjórn ætlar ekki að viðurkenna hann sem leiðtoga þjóðarinnar. Starfshópur um kjör aldraðra leggur til að heimilt verði að veita viðbótarstuðning þeim einstaklingum sem ekki hafa búið nægilega lengi á Íslandi til að hafa öðlast full réttindi til ellilífeyris. Dæmi eru um að heildartekjur ellilífeyrisþega séu undir 80 þúsund krónum á mánuði. Arnar Páll Hauksson talar við Þorbjörn Guðmundsson og Þórunni Sveinbjörnsdóttur. Skuldabréfaeigendur í flugfélaginu Wow skoða sína stöðu núna og fá þar hjálp frá óvenjulegu bréfi frá forstjóranum. Flugfélagið hefur verið að fella niður flug en vill ekki upplýsa umfangið. Í viðbót við fleira ýtir þetta enn frekar undir vangaveltur um framtíð Wow. Á meðan skelfur krónan. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
http://skolathroun.is/ http://skolastofan.is/ http://skolathraedir.is/ https://www.facebook.com/groups/573718695999886/ Bókin Starfshættir í grunnskólum við upphaf 21. aldar aðgengileg á heimasíðu Menntavísindastofnunar https://notendur.hi.is/ingvars/starfis.html https://leikjavefurinn.is/
Spegillinn 03.12.2018 Umsjón: Pálmi Jónasson Forseti Alþingis bað þjóðina alla afsökunar á óráðshjali nokkurra þingmanna. Sérstök siðanefnd hefur verið virkjuð til að hefja rannsókn á þessu siðabrotamáli. Siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri segir að ekki þurfi tilvísun frá forsætisnefnd til að lögregla hefji rannsókn á Klausturmálinu. Sterkar vísbendingar séu um það í upptökunum að lög hafi verið brotin við skipan sendiherra. 74-91% landsmanna telja að þingmennirnir af Klaustri eigi að segja af sér þingmennsku, samkvæmt nýrri könnun. Nýtt frumvarp um launahækkanir kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna auðveldar ekki kjaraviðræður, segir forseti Alþýðusambandsins. Það hafi komið á óvart að ekki hefði verið undið ofan af ákvörðunum kjararáðs. Ákæruvaldið fer fram á átta til tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vegna peningaþvættis. Lengri umfjallanir: Sigurður Kristinsson siðfræðingur og prófessor við háskólann á Akureyri segir að ekki þurfi tilvísun frá forsætisnefnd til að lögregla hefji rannsókn á Klausturmálinu. Sterkar vísbendingar séu um það í frásögn Gunnars Braga Sveinssonar að lög hafi verið brotin við skipan sendiherra. Sigurður var í starfshópi Starfshópi um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu sem skilaði skýrslu til forsætisráðherra í september. Eins og kom fram í fréttum ákvað forsætisnefnd Alþingis að hefja skoðun á Klausturmálinu sem mögulegs siðabrotamáls. Steingrímur J Sigfússon, forseti Alþingis kynnti það við upphaf þingfundar í dag og bað þjóðina um leið afsökunar. Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Xi Jinping, forseti Kína sömdu um vopnahlé í viðskiptastríði landanna, á leiðtogafundi G20-ríkjanna, stærstu iðnvelda heims, í Buenos Aires í Argentínu um helgina. Gengi hlutabréfa í Asíu hefur snarhækkað en viðskikptastríði stórveldanna er langt því frá lokið. Samkvæmt heimildum Spegilsins er lausafjárþörf flugfélagsins Wow líklega vel á annað hundrað milljónir Bandaríkjadala. Ekkert varð úr kaupum Icelandair á Wow, meðal annars af því áreiðanleikakönnun á Wow leiddi í ljós að staðan var verri en haldið var. Indigo Partners, nýi fjárfestirinn í Wow, er nú á sama stað og Icelandair þegar fyrirhuguð kaup Icelandair á Wow voru tilkynnt. Ef Wow verður ekki lagt til verulegt fé virðast dagar Wow taldir.
Fréttir: Lögregla hefur rökstuddan grun um að eldsupptök í einbýlishúsinu við Kirkjuveg á Selfossi í gær, þar sem tvennt fórst, séu af mannavöldum. Farið hefur verið fram á viku gæsluvarðhald yfir karli og konu á miðjum aldri. Forseti Alþýðusambandsins, segir að það sé gríðarlega alvarlegt mál þegar fólk sé rekið úr stéttarfélagi. Sérstaklega þegar það blandist inn í kosningu á forystusveit. Starfshópur skipaður af umhverfisráðherra leggur til að notkun einnota burðarpoka úr plasti verði hætt, einnota plastáhöld bönnuð og endurvinnsla aukin. Gerð samnings um að Vegagerðin sinni Húsavíkurhöfðagöngum er á lokastigi, segir samgönguráðherra. Hann beitti sér fyrir því að ljósin í göngunum yrðu kveikt að nýju í dag. Saksóknarinn sem hefur síðustu ár sótt til saka marga af þekktustu stjórnmálamönnum Brasilíu samþykkti í dag boð um að verða dómsmálaráðherra í næstu ríkisstjórn landsins. Lengri umfjallanir: Hvað hindrar slökkviliðsmenn helst í að komast inn í brennandi hús? Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu. Starfshópur hefur lagt fram fjölbreyttar tillögur til að minnka plastmengun. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við formann hópsins, Laufeyju Helgu Guðmundsdóttur, lögfræðing. Þó að rafbílum muni fjölga nokkuð ört á næstu árum mun það ekki nægja til að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. Arnar Páll Hauksson fjallar um nýja skýrslu um rafbílavæðingu.
Stjórnvöld stefna að því að lækka tekjuskatt í neðra þrepi um eitt prósentustig. Fjármálaráðherra segir að þetta geti skilað skattgreiðendum fjórtán milljörðum á ári. Þingflokksformenn allra flokka hafa setið á fundi síðdegis til að freista þess að ná samkomulagi um afgreiðslu mála. Veiðigjaldafrumvarpið var sett á bið í dag á meðan formenn ráða ráðum sínum. Starfshópur um peningastefnu Íslands leggur til að fjármálastöðugleiki hafi forgang á verðstöðugleika, ef þær aðstæður koma upp að ógn skapist gagnvart hinum fyrrnefnda. Hópurinn hefur lagt fram ellefu tillögur til að endurbæta peningastefnu landsins. Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein lýsti í dag yfir sakleysi sínu, þegar ákæra gegn honum um nauðgun og kynferðisofbeldi var tekin fyrir dómsal í New York. Tvítugur maður var úrskurðaður í eins mánaðar gæsluvarðhald í dag fyrir að ræna mann og berja með hjóli í Teigahverfi í Reykjavík um miðjan dag í gær. Lungu eru nýjasta útflutningsvaran í hrossaafurðum til Japans. Þau eru notuð í alls kyns súpur, sem bragðast betur en verkefnisstjóri við útflutninginn hafði búist við. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn ætla að hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs. Formaður VR vill mynda bandalag með öðrum félögum og boðar herskáa kjarabaráttu þegar gerð kjarasamninga hefst í haust. Eins og staðan er innan verkalýðshreyfingarinnar hugnast honum ekki að félagið setjist að sameininlegu samningaborði ASÍ. Framtíð íslenskrar peningastefnu - Björn Friðrik. Viðmælendur: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásgeir Jónsson hagfræðingur. Undirbúa kröfur - Arnar Páll. Viðmælendur: Kristján Þórður Snæbjörnsson formaður Rafiðnaðarsambandsins og Ragnar Ingólfsson formaður VR Blágrænar regnvatnslausnir - Arnhildur. Viðmælandi: Íris Þórarinsdóttir, tæknistjóri Fráveitu hjá Veitum
Starfshópur á vegum heilbrigðisráðherra skilaði fyrir helgi skýrslu um aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem valdið geta ávana og fíkn. Birgir Jakobsson fyrrverandi landlæknir stýrði hópnum og hann fór yfir niðurstöðurnar með okkur í morgun. Arna V. Erlingsdóttir varði á dögunum meistaraverkefni sitt sem fjallar um sálfræðilega eiginleika, andlegan styrk og kvíða tengdan keppni hjá íslensku afreksíþróttafólki. Við slógum á þráðinn til Örnu og fengum að vita meira. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti sósíalistaflokksins og yngsti borgarfulltrúi sögunnar, er einn sigurvegara kosninganna um helgina. Hún er af blönduðum uppruna og hefur fundið fyrir fordómum vegna þess. Þá ólst hún uppí mikilli fátækt hjá einstæðri móður og þekkir því veruleika þess fólks sem hún talaði fyrir í kosningabaráttunni. Hún mætti til okkar og sagði okkur frá sjálfri sér. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður fór yfir íþróttaviðburði helgarinnar með okkur. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, ræddi íslenskt mál við okkur og beindi sjónum sínum að málvenjum er tengjast kosningum. Tónlist: The Police - Wrapped around your finger. Klassart - Bréf frá París. Jimmy Nail - Crocodile shoes. Árstíðir - Entangled. Moses Hightower - Trúnó. Ed Sheeran - Happier. R.E.M. - Shiny happy people. Björn Thoroddsen & Anna Þuríður Sigurðardóttir - Leave it all to you. Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varst' ekki kyrr?
Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í annað sinn í sumar með glæsilegri dagskrá og eftirsóttum norrænum tónlistarmönnum. Svíinn Mikael Lind sér um að skipuleggja þessa tónleikaröð en hann hefur búið á Íslandi í rúm 10 ár og fengist við ýmislegt. Hann segist vera orðin mikill Íslendingur en veðurfarið þetta vorið hafi virkilega reynt á þolrifin. Við ræddum við Mikael um tónleikaröðina og Íslandsdvölina í þættinum í dag. Starfshópur um brunavarnir í gróðri heldur blaðamannafund í dag kl. 14 í húsakynnum Skógræktarfélags Reykjavíkur að Elliðavatni. Þar verður formlega kynntur nýr bæklingur um brunavarnir í gróðri ásamt veggspjöldum og nýrri vefsíðu, grodureldar.is. Við fengum til okkar Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu, en hann er einnig framkvæmdastjóri Almannavarna Árnessýslu og formaður Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi, hann er sem sagt mjög hæfur til að segja okkur frekar frá þessu máli. Á laugardaginn opnar sýningin Free Play í bingósal Vinabæjar í Skipholti. verkið byggt á óperunni La Traviata eftir Giuseppe Verdi. Í verkinu er óperuformið brotið upp; í stað hljómsveitar skapar raftónlistarmaður hljóðheim verksins í samstarfi við sópransöngkonu. Þau Hrafnhildur Gissurardóttir, verkefnastjóri hjá Menningarhúsunum í Kópavogi, Hrafnhildur Árnadóttir, sópransöngkona og Sveinbjörn Thorarensen, einnig þekktur sem raftónlinstarmaðurinn Hermigervill, komu í þáttinn. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Íslensk erfðagreining opnar á hádegi í dag vefinn arfgerd.is, þar sem fólk getur nálgast upplýsingar um hvort það hefur stökkbreytingar í geni sem auka mjög hættu á brjóstakrabbameini. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sagði í fréttum RÚV í gærkvöldi að hann hafi barist árum saman fyrir því að að fólk geti komist að því hvort það sé með þessar stökkbreytingu eða ekki. Starfshópur á vegum heilbrigðisráðherra, sem falið var að gera tillögur um nýtingu erfðaupplýsinga í einstaklingsmiðuðum forvörnum, leggur til að erfðaupplýsingar verði ekki veittar einstaklingum í forvarnarskyni nema að frumkvæði og ósk þeirra sjálfra. Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi landlæknir, sem er formaður starfshópsins, kom til okkar. Bandaríska Hollywoodstjarnan, Sarah Jessica Parker, setti inn mynd á Instagram reikning sinn sem sýnir ísskáp fjölskyldunnar fullan af íslensku skyri. Hún segir í færslunni að uppáhald sitt sé kókosbragðið - og að fjölskyldan geti ekki verið sú eina sem elski íslenska skyrið. Færslan hefur fengið fjörutíu þúsund læk og hátt í þúsund athugasemdir þar sem íslenska skyrið er mært. Við heyrðum í Ara Edwald, forstjória MS, um velgengni þessarar vöru í Bandaríkjunum. Við héldum áfram að tala við oddvita framboðanna sem bjóða fram í Reykjavík og í dag mætti oddviti Frelsisflokksins, Gunnlaugur Ingvarsson. Óvænt vatnsgusa á könnunarfar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA hefur kveikt vonir vísindamanna um að líf gæti fundist á einu tungla Júpíters, Evrópu. Vatnið gaus upp úr íshellunni sem umlykur tunglið, og náði yfir 150 kílómetra hæð, mðað við gögn frá Galileo könnunarfari NASA. Sævar Helgi Bragason fjallaði um þetta og fleira í vikulegri heimsókn sinni. Tónlist: Nýdönsk - Hversdagsprins. Elvis Costello - Every day I write the book. Á móti sól - Ég verð að komast aftur heim. Jamiroquai - Cosmic girl. Madness - Never knew your name. Leon Bridges - Bad bad news. Foreigner - Cold as ice. Una Stef - The one.
Þeir sem hafa völdin þurfa að gera sitt til að bæta samskipti milli kynjanna, segir varaformaður Prestafélags Íslands. Tólf þúsund kjúklingar drápust þegar eldur kviknaði í kjúklingabúi að Oddsmýri í Hvalfirði í dag. Olíuflekkur fer ört stækkandi á Austur-Kínahafi þar sem íranskt olíuflutningaskip sökk í gær eftir að hafa brunnið í rúma viku. Óvissustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Vestfjörðum en búið er að opna vegi. Formaður Þjónustusamfélagsins á Héraði líkir miðbæ Egilsstaða við bilaðan löndunarkrana. Söngkona írsku hljómsveitarinnar the Cranberries, er látin, 46 ára að aldri. Starfshópar og fræðslufundir, viljayfirlýsingar, kannanir, uppsagnir og áætlanir. Þetta eru nokkur dæmi um ávexti og afleiðingar Me too byltingarinnar. Sögurnar eru orðnar hátt í þúsund talsins, konurnar sem skrifað hafa undir yfirlýsingar skipta þúsundum og sífellt bætist í hópinn, síðast í dag þegar konur í prestastétt stigu fram. En hvað hefur raunverulega breyst? Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Finnborgu Salome Steinþórsdóttur, nýdoktor í kynjafræði. Fastur liður í hegðan manna eins og kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinsteins og annarra auðugra áhrifamanna var að borga kvenfólki, sem þeir áreittu, svo þær þegðu um athæfið. Sögurnar eru margar og spanna allt frá kynferðislegu áreiti yfir í grófa nauðgun. Sigrún Davíðsdóttir ræddi við Reimar Pétursson formann Lögmannafélagsins um þessi mál í íslensku samhengi. Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, ætlar að að bæta einum flokki við ríkisstjórn sína. Unnið hefur verið að endurnýjun minnihlutastjórnar hennar frá eftir þingkosningarnar í september. Sátt er um skattalækkanir, málefni nýbúa og umhverfisvernd en stjórnarandstæðingar segja að áherslan hafi færst enn lengra til hægri en áður var. Gísli Kristjánsson. Spegillinn 15. janúar 2018 Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Gerður G. Óskarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarstofu um þróun skólastarfs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fyrrverandi Fræðslustjóri í Reykjavík settist niður með okkur og ræddi nýútkomna bók um Starfshætti í grunnskólum við upphaf 21.aldar. Við ræddum einnig um teymiskennslu, námsumhverfi og kennsluhætti svo eitthvað sé nefnt.