POPULARITY
Jóna Hlíf Halldórsdóttir er forseti Bandalags íslenskra listamanna. Hún settist í morgunkaffi á degi íslenskrar tungu og sagði hlustendum af fimm mistökum sem hafa breytt lífi hennar. Það fyrsta var aldeilis dramatískt því sjálfur getnaður hennar og fæðing reyndist byggður á misskilningi! Við heyrum sögu Jónu Hlífar frá æskunni undir Eyjafjöllum til Akureyrar með viðkomu á Sirkus og í Skífunni Heiðar Ingi Svansson formaður félags íslenskra bókaútgefenda kom svo í heimsókn með brakandi fersk bókatíðindi lagalisti É dúdda mía - Múgison Fullkomið farartæki - Nýdönsk Í löngu máli - Una Torfa Vertu úlfur - Emilíana Torrini Þorparinn - Pálmi Gunnarsson Vegurinn heim - Marketa Irglova Strákarnir - Emmsjé Gauti Föst milli glerja - Bubbi og Elín Hall Á hnjánum - Hipsumhaps Dýrð í dauðaþögn - Ásgeir Trausti Með þig á heilanum - Ágúst Þú hittir - Hildur Vala 113 Vælubíllinn - Pollapönk Ein í nótt - Daði freyr og Lúpína ég er að tala um þig - Sniglabandið
Hlaðvarpsstjörnurnar, athafnakonurnar, fyrrum fjölmiðlakonurnar og vinkonurnar Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkelsdóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum.Nadine og Þórhildur byrjuðu báðar ungar í fjölmiðlum og urðu fljótt þekktar fyrir einstaklega vandaðann flutning á fréttaefni tengt mannlegu hliðinni og má sem dæmi nefna að þær hafa báðar unnið til verðlauna, Nadine fyrir rannsóknarblaðamennsku og Þórhildur blaðamannaverðlaunin sama árið. Ásamt fréttamennskunni létu þær einnig mikið af sér kveða í dagskrárgerð og stjórnaði Nadine meðal annars Kompás á stöð tvö og Þórhildur var einn af þremur stjórnendum þáttana Bresta sem sýndir voru einnig á stöð 2.Þær hafa þó báðar lagt blaðamennskuna á hilluna og starfar Nadine nú sem samskiptastjóri Play og Þórhildur sem kynningarfulltrúi Bandalags háskólamanna. Þær svala þó blaðamennsku þorstanum í einstaklega vönduðum og áhugaverðum hlaðvarpsþáttum, Eftirmál, sem hafa slegið í gegn á undanförnum misserum.Í þættinum ræddum við meðal annars um lífstílinn sem blaðamennskan er, ákvörðunina um að hætta, podcastið Eftirmál, vináttuna og margt fleira og svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:Smitten - https://smittendating.com/
Spegillinn, 16. desember 2022 Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Leigubílstjórar ætla að skerða þjónustu um helgina og ekki að keyra í tvo sólarhringa frá mánudagsmorgni til að mótmæla samþykkt leigubílafrumvarpsins. Daníel Einarsson, formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra segir að stjórnvöld hafi sett stéttina á útrýmingarlista. Oddur Þórðarson talaði við hann. Álfur Birkir Bjarnason, formaður Samtakanna 78 segir það hrollvekjandi að mennirnir sem ákærðir eru í hryðjuverkamálinu hafi rætt að fremja fjöldamorð í gleðigöngu hinsegin daga. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann. Vilji Samtaka atvinnulífsins stendur til að semja hratt og örugglega við Eflingu á sömu nótum og við Starfsgreinasambandið að sögn Halldórs Benjamíns Þorbergssonar framkvæmdastjóra SA. Sólveig Anna Jónsdóttir. formaður Eflingar segir það aldrei verða samþykkt. Kennitöluflakkarar geta lent í allt að tíu ára banni frá atvinnurekstri ef þeir brjóta ítrekað af sér, samkvæmt nýjum lögum frá Alþingi. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Umsátursástand myndaðist við dýragarðinn í Furuvik í Svíþjóð þar sem fimm simpansar sluppu af svæði sínu á miðvikudag. Þrír simpansanna voru skotnir til bana og einn liggur hreyfingarlaus eftir byssuskot. Róbert Jóhannsson sagði frá. ------------ Meðal þeirra breytinga á fjárlögum sem lagðar voru til af fjármálaráðherra milli umræðna, voru stóraukin framlög til lögreglu; um hálfur milljarður í aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og 900 milljónir sem í tilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að séu tilkomnar með hliðsjón af markmiðum um viðbragðstíma, málsmeðferðarhraða og öryggisstig. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri fagnar því að bæta eigi í fjárveitingar til lögreglunnar, hún hafi lengi verið undirfjármögnuð og undirmönnuð. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Um þessar mundir eru fimm ár frá því að #metoo-byltingin, eða -bylgjan, barst hingað til lands. Þá risu konur upp og sögðu frá kynferðislegri áreitni og -ofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir í lífinu. Kristján Sigurjónsson ræðir við Gyðu Margréti Pétursdóttur, prófessor í kynjafræði við HÍ um áhrif bylgjunnar og hvernig hún birtist hér.

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Marteinn Marteinsson Magnús Aron Magnússon, sem er ákærður fyrir að hafa myrt mann í Barðavogi í Reykjavík fyrr í sumar, neitar sök. Mál gegn honum var þingfest í dag. Mesti hiti ársins hér á landi mældist í dag. Hitinn fór í 25 stig á Mánarbakka á Tjörnesi síðdegis. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá og ræddi við Bjarna Sigurð Aðalgeirsson, eiganda tjaldsvæðisins að Mánárbakka, og Birgi Örn Höskuldsson veðurfræðing sem gerir ekki ráð fyrir að hitinn verði meiri það sem eftir er ársins. Forseti Úkraínu ætlar að sjá til þess að eftirlitssveit Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar komist að kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia. Hann hitti í dag forstjóra stofnunarinnar sem fer fyrir hópnum. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Tveir hafa látist það sem af er á ári á Grænlandi eftir tilraunir til að smygla fíkniefnum innvortis til landsins. Slíkt smygl hefur færst í aukana og hafa þrjátíu og þrír verið handteknir á árinu, fleiri en nokkru sinni áður þar í landi. Dagný Hulda Erlendsdóttir sagði frá. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að Úrvinnslusjóður sé lykilþáttur í að koma á almennilegu hringrásarhagkerfi hér á landi. Starfshópur ráðherra, sem skila á tillögum um breytingar á lögum um Úrvinnslusjóð, hefur þegar hafið störf. Oddur Þórðarson ræddi við ráðherra. Skýrslur hafa verið teknar af öllum fjórum sem hafa réttarstöðu sakborgninga vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs. Málið snýr að svonefndri skæruliðadeild útgerðarfélagsins Samherja. Í fyrravor voru birtar fréttir um samskipti fólks sem tengdist Samherja með einhverjum hætti og tilraunir þess til að hafa áhrif á umræðu um fyrirtækið í fjölmiðlum. Öll aðildarfélög Bandalags háskólamanna koma sameinuð að samningaborði við upphaf kjaraviðræðna í ár. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Friðrik Jónsson, formann BHM, um ástand og horfur í viðræðunum. Einnig heyrðist í Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um þátt ríkisstjórnarinnar í komandi viðræðum. Að minnsta kosti þrjátíu létust og á sjötta hundrað særðust í blóðugum óeirðum sem brutust út í Bagdad, höfuðborg Íraks. Það gerðist eftir að eldklerkurinn og stjórnmálamaðurinn Moqtada al-Sadr lýsti því yfir að hann væri hættur afskiptum af stjórnmálum. Reynt er að fá fólk til að hverfa frá samkynhneigð og fara aftur inn í skápinn í fjölda trúfélaga í Svíþjóð. Bælingarmeðferð, eins og hún hefur verið nefnd hér á Íslandi, er bönnuð með lögum í Þýskalandi og rætt hefur verið um að banna hana, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Kári Gylfason í G

Töðugjöld eru nú haldin í 27. skiptið en þau hafa verið haldin frá árinu 1994 að undanskildu 2020 og 2021 vegna faraldursins og eru því með elstu bæjarhátíðum landsins. Hnallþórukeppni, Fegurðar - og hæfileikakeppni dýra og söngvakeppni barna er meðal þess sem boðið er uppá. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson veit allt um Töðugjöldin og var á línunni. Norðurlandamót í hestaíþróttum á íslenskum hestum stendur nú sem hæst á Álandseyjum og Íslendingar taka að sjálfsögðu þátt með fjölskipað lið sem að mestu er skipað yngri knöpum. Hulda sló á þráðinn til Heklu Katharinu Kristinsdóttur landsliðsþjálfara undir 21 árs liðsins og heyrði af gengi íslenska liðsins. Mikið hefur gengið í innan verkalýðshreyfingarinnar í vikunni eftir að Drífa Snædal, forseti ASÍ, tilkynnti um afsögn sína. Formaður Bandalags háskólamanna sagði í kvöldfréttum í gær að ef átök haldi áfram innan ASÍ tefji það kjarasamningaviðræður á opinbera markaðnum. Við ræddum við Guðmund Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Fréttir vikunnar voru á sínum stað eftir átta fréttir. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Elísabet Inga Sigurðardóttir, fréttakona á stöð 2, Bylgjunni og Vísi, komu til okkar. Ritstjórn Fréttablaðsins hefur hafnað kröfu rússneska sendiráðsins um afsökunarbeiðni vegna myndbirtingar af fótum troðnum rússneskum fána. Þá hefur netárás sem gerð var á vef blaðsins í gær verið kærð til lögreglu. Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Fréttablaðsins, ræddi málið við okkur. Undanfarna föstudaga höfum við fengið til okkar lífskúnstnerinn, hárgreiðslumeistarann og Eyjamanninn Óla Bogga Heiðarsson til að fara aðeins yfir það sem er að gerast hjá landanum í mannlífi, menningu og mat. Óli Boggi kom í kaffi. Tónlist: KK - I got a woman Laufey - Everything I know about love Fleetwood Mac - Go your own way Mumford and sons - I will wait Bríet - Sólblóm Birgir Hansen - Poki Sigga, Beta og Elín - Með hækkandi sól

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Felix Bergsson Kaup franska fjárfestingasjóðsins Ardian á fjarskiptafyrirtækinu Mílu virðist vera í uppnámi eftir að Samkeppnisstofnun birti sín skilyrði fyrir kaupunum. Vilhjálmur Árnason formaður umhverfis og samgöngunefndar Alþingis gekk svo langt að segja að orðspor Íslands sé í hættu af þessum sökum og bendir á miklu rýmri samkeppnisreglur í Evrópu. En hvað þýðir þetta mál fyrir okkur neytendur og hver er afstaða Neytendasamtakanna til þess? Breki Karlsson formaður samtakanna kom til okkar og við ræddum málið vítt og breytt Heilbigðisráðuneytið hefur sett frumvarpsdrög í samráðsgátt stjórnvalda þar sem stefnt er að heilbrigðisstarfsmenn geti, ef þeir vilji, starfað fimm árum lengur en nú er leyfilegt eða til 75 ára aldurs. Og ?Er það ekki bara frábært að vinna eftir sjötugt? spyr Maríanna H. Helgadóttir, formaður og framkvæmdastjóri Félags íslenskra náttúrufræðinga sem er annað stærsta aðildarfélagið innan Bandalags háskólamanna í aðsendri grein á Vísi. Við hringdum í Maríönnu. Þó júlí sé gjarnan kenndur við gúrkur þegar kemur að fréttum er ótrúlega margt fréttnæmt að gerast um heim allan. Úkraína logar og almennir borgarar þjást en stríðsherrann Pútín ákvað að skutlast til Teheran þar sem hann hitti Erdógan Tyrklandsforseta, sem hótar enn Svíum og Finnum að standa gegn umsókn þeirra um aðild að Nató. Leiðtogakjör Íhaldsmanna í Bretlandi verður æ meira spennandi og á Ítalíu er enn skollin á stjórnarkreppa. Við ræddum heimsmálin við Odd Þórðarson veffréttamann. Nú fer Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fram í Oregon í Bandaríkjunum. Mótinu er lýst á RÚV frá miðnætti á hverri nóttu og það gerir Sigurbjörn Árni Arngrímsson af sinni alkunnu snilld. Mótið er stærsta frjálsíþróttamót sumarsins og þangað stefna vanalega allir sterkustu íþróttamenn heimsins. En miklar tafir hafa orðið á vegabréfsáritunum inn í Bandaríkin undanfarið sem hefur haft þau áhrif að ekki er hægt að segja að allt sterkasta frjálsíþróttafólk heimsins sé mætt til keppni. Við hringdum í Sigurbjörn Árna

Rúmlega vikulangt stríðið í Úkraínu tekur eðlilega yfir flestallar fréttir þessa dagana. Innrás Rússa og afleiðingar hennar koma einnig við sögu í þættinum í dag. Frá innrás rússneskra herliðsins í Úkraínu hafa ótal Úkraínumenn rifið sig upp með rótum og lagt á flótta. En leiðir margra fjölskyldna hafa skilið vegna þess að stríðið kallar á hermenn. Víða hafa ættingjar þurft að kveðja nákominn karlmann á herskyldualdri. Samkvæmt herlögum, sem nú eru í gildi í landinu, eru karlmenn á aldrinum 18-60 ára skyldaðir til að vera eftir í Úkraínu og verjast. Jóhannes Ólafsson fjallar um málið. Stríðið í Úkraínu hefur margvísleg önnur áhrif. Staðgöngumæðrun er óvíða jafn aðgengileg og í Úkraínu. Þúsundir úkraínskra kvenna ganga ár hvert með börn foreldra um allan heim. Ferlið er bæði flókið og því fylgja ýmsar siðferðisspurningar. Aðstæður staðgöngmæðra og foreldra barnanna sem þær ganga með verða síst einfaldari þegar stríð brýst út í landinu. Birta Björnsdóttir fjallar um þetta. Og síðast en ekki síst eru það danskir njósnaskandalar. Nokkur hneyklismál tengd dönsku leyniþjónustunni hafa komið upp á undanförnum árum. Bandalags- og eða vinaþjóðir urðu Dönum gramar er upp komst að þeir hefðu leyft bandarísku leyniþjónustufólki aðgang að dönskum fjarskiptaköplum í þeim tilgangi að hlera æðstu ráðamenn. Bogi Ágústsson segir okkur allt um þetta. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar og umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

Spegillinn 3. janúar 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Skólastjórnendur telja óráðlegt að bólusetja börn á skólatíma. Menntamálaráðherra segir að það verði áskorun að halda úti óröskuðu skólahaldi á næstunni og fyrirséð að skólar þurfi að loka. Þrátt fyrir það á að setja skólana að loknu jólafríi á morgun. Björgunarsveitarmenn á Austurlandi hafa frá því í gærkvöld staðið í ströngu við að forða tjóni og flytja heilbrigðisstarfsfólk til og frá vinnu. Norðvestanstormur gekk yfir austanvert landið í dag en nú er farið að lægja. Það er þó enn byljótt undir Vatnajökli. Fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir í Spítalabrekkunni á Akureyri valda deilum. Bæjaryfirvöld eru gagnrýnd fyrir að huga hvorki að aurskriðuhættu né menningargildi. Bandarískt tónlistarforlag hefur keypt réttinn að allri tónlist sem David Bowie lét eftir sig. Kaupverðið er talið nema yfir 32 milljörðum króna. Lengri umfjöllun: Starfsdagur var í grunnskólum víðast hvar í dag og skólastjórnendur reyna að ráða fram úr því hvernig skólastarfi verður háttað þegar það hefst á morgun. Fyrirsjáanlega verða erfiðar heimtur á starfsfólki vegna faraldursins; sums staðar er búist við að allt að fimmtungur starfsfólks forfallist vegna smits eða sóttkvíar og eins eru ekki allir foreldrar í rónni með að senda börn sín í skólann. Elínrós Benediktsdóttir skólastjóri Ölduselsskóla í Reykjavík segir þar lagt upp með eins hefðbundið skólastarf og hægt er. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Elínrósu og Arnar Ævarsson framkvæmdastjóra Heimilis og skóla. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, vill að aðilar vinnumarkaðarins nýti næsta ár til þess að hugsa kjaramálin upp á nýtt og setji sér sameiginleg langtímamarkmið um að gera samfélagið betra. Lífskjarasamningar í almennum vinnumarkaði renna út í byrjun nóvember, en á opinberum vinnumarkaði í flestum tilfellum í byrjun mars 2023. Sonja vill nýta tímann fram að því til að hugsa út fyrir boxið. Kristján Sigurjónsson talar við Sonju.

Spegillinn 30.nóvember 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Markús Hjaltason Ríkissjóður tekur á sig högg vegna lána til Vaðlaheiðarganga hf. Félagið gat ekki endurgreitt skuld á gjalddaga í maí. Rekstur ganganna stendur ekki undir þeim áætlunum sem lánveitingin byggði á, segir í fjárlagafrumvarpinu. Ímynd íslenska hestsins hefur skaðast vegna framferðis sumra sem stunda blóðmerarækt, segir hrossaræktandi. Sóttvarnarlæknir segir ekki síðri vörn gegn kórónuveirusmiti að fá örvunarskammt með öðru bóluefni en fólk hafi fengið í fyrsta eða öðrum skammti Finna þarf leiðir til að brúa tekjutap ríkissjóðs vegna minnkandi gjalda af jarðefnaeldsneyti sökum orkuskipta, segir fjármálaráðherra. Grikkir sem orðnir eru sextíu ára og eldri verða skyldaðir að mæta í bólusetningu gegn kórónuveirunni frá byrjun næsta árs. Að öðrum kostum verða þeir að greiða sekt. Hafin er smíði á fyrsta björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Finnlandi og gert er ráð fyrir að það verði afhent Vestmannaeyingum á Goslokahátíð á næsta ári. Skipið kostar 285 milljónir króna. Ríkið greiðir helminginn á móti Slysavarnafélaginu. Lengri umfjöllun: Formaður Bandalags íslenskra listamanna, Erling Jóhannesson, sér sóknarfæri í því að færa listir og menningu í nýtt ráðuneyti. Fyrst um sinn hafi hugmyndin um samkrull viðskipta, ferðaþjónustu og lista þó strokið mörgum listamönnum öfugt. Í stjórnarsáttmálanum er fjallað um menningu sem mikilvægt aðdráttarafl til að laða hingað ferðamenn. Áform um stefnumótun eru nokkuð áberandi í sáttmálanum, það á til dæmis að ráðast í heildarendurskoðun á tónlistargeiranum, vinna þarfagreiningu vegna óperustarfsemi með það að markmiði að setja á laggirnar Þjóðaróperu og hrinda í framkvæmd aðgerðaáætlun í menningarmálum til ársins 2030. Það er lítið um stór loforð en þó lofa stjórnvöld auknum stuðningi við kvikmyndagerð með hærri endurgreiðslum á skýrt afmörkuðum þáttum - þetta á að verða til þess að fleiri stór verkefni verði unnin alfarið hér. Erling fagnar því, þetta sé mikilvæg, alþjóðleg starfsemi sem skapi ekki bara störf og tekjur. Annað loforð er að finna Listaháskóla Íslands framtíðarhúsnæði en fyrir kosningar var kynnt að hann fengi athvarf í Tollhúsinu við Tryggvagötu. Erling bendir á að þessu hafi verið lofað áður. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Erling. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir 2022 í morgun. Þar kom fram að ríkissjóður yrði rekinn með 169 milljarða króna halla á næsta ári, sem er þó 120 milljörðum krónum minni

Sunnlendingar fundu vel fyrir jarðskjálfta af stærðinni 5,2 sem varð skammt suður af Heklu í dag. Ekki er vitað um tjón af völdum hans og ekki talið að skjálftinn sé undanfari eldsumbrota. Von er á hertum sóttvarnaaðgerðum eftir metfjölda Covid-smita þrjá daga í röð. Formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara segir hrikalegt að hugsa til þess að öllu verði skellt í lás. Landsmenn sækja í sólina sem aldrei fyrr eftir að smitum fór að fjölga. Sölustjóri hjá Vita segir sprengingu hafa orðið í sölu utanlandsferða í haust. Boeing flugvélasmiðjurnar axla ábyrgð á flugslysi sem varð í Eþíópíu árið 2019. Ættingjum þeirra sem fórust verða greiddar bætur. Lengri umfjallanir ( frá mínútu 10 ) Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Hólmfríði Dagnýju Friðjónsdóttur, fréttamann um árangur viðræðna á loftslagsráðstefnunni í Glasgow og stemmninguna á ráðstefnusvæðinu. Talsmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna segir að nú sé lögð aðaláhersla á að bjarga mannslífum á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Ekkert ríki megi nýta sér neyð örvæntingarfulls fólks í pólitískum tilgangi. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Elisabeth Arndorf Haslund. Breskir þingmenn mega sinna launuðum störfum auk þingmennskunnar en það er haft eftirlit með að þeir brjóti ekki reglur. Viðleitni Borisar Johnsons forsætisráðherra til að breyta reglunum þegar stjórnarþingmaður braut þær hefur opnað flóðgáttir spillingarumræðu, sem gæti skaðað stjórnina. Sigrún Davíðsdóttir setur umræðuna nú í sögulegt samhengi.

Íslenska fjölskyldumyndin Birta verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi á föstudaginn. Bragi Þór Hinriksson leikstýrir og Helga Arnardóttir kona hans skrifar handrit. Dóttir Helgu, Margrét Júlía Reynisdóttir, leikur í myndinni, þetta er því sannkallað fjölskylduverkefni. Við ræddum við Braga Þór og Margréti Júlíu. Reglugerð um COVID-takmarkanir á landamærunum rennur út í lok vikunnar. Við ræddum við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um takmarkanir og jólavertíðina í ferðaþjónustunni. Á miðvikudögum ætlum við að beina sjónunum út fyrir landsteinana og ræða erlendar fréttir. Í dag beindum við sjónum að ástandinu í Bosníu en landið virðist á barmi styrjaldar vegna hótana serbenskra aðskilnaðarsinna að slíta sig frá þjóðarhernum og stofna sinn eigin. Til okkar kom Davor Purusic, lögfræðingur, sem flutti hingað til lands í kjölfar Bosníustríðsins árið 1993. Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019 samkvæmt nýrri úttekt Bandalags háskólamanna. Við ræddum við Friðrik Jónsson, formann BHM, og Isabel Alejandra Díaz, forseta Stúdentaráðs Háskóla Íslands, um kjör ungs fólks og háskólamenntaðra. Leikarinn Þórir Sæmundsson steig fram í viðtali í Kveik í gær sem vakið hefur gríðarlega athygli. Til að ræða þessi mál kom til okkar Hulda Hrund Sigmundsdóttir, meðlimur í aðgerðahópnum Öfgar. Við ræddum einnig við Viktor Emil Sigtryggsson, sundþjálfara og sundlaugavörð, um landsátakið Syndum.

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Fréttastofa Stöðvar2 sagði frá þvi um helgina að viðgerð á bílskýli vegna sprungu og leka hafi kostað tugmilljóna króna vegna hönnunargalla og ónógs eftirlits að hálfu verkfræðistofu og viðgerðin er ekki fullkláruð. Stofan hafi fengið verktaka með brotaferil að baki, segir í fréttinni, til að vinna verkið sem hafi algjörlega mislukkast. Þegar hann fór í þrot í miðju verki var samið við hann á ný á nýrri kennitöliu. Við fengum formann Neytendasamtakanna, Breka Karlsson, til okkar til að fara almennt yfir þessi mál. Hvar stendur neytandinn í svona málum og eru þau algeng inná borð Neytendasamtakanna? Í nýrri skýrslu Perform Europe, þar sem styrkjakerfi sviðslista í 41 Evrópulandi er skoðað, kemur í ljós að Ísland raðar sér í neðstu sætin þegar kemur að styrkjum til sýningarferða og samstarfs íslensks sviðslistafólks utan landssteinanna. Við fengum til okkar Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Bandalags sjálfsstæðra leikhúsa, til að segja okkur nánar frá niðurstöðum skýrslunnar og fara almennt yfir styrkjaumhverfi íslenska sviðslista. Mikil úrkoma hefur verið á Norðurlandi eystra og hafa aurskriður fallið víða. Ástandið er sérstaklega slæmt í Þingeyjarsveit og í gær var sjötti bærinn rýmdur vegna mikillar úrkomu og skriðuhættu, bærinn Nípá í Útkinn. Við hringdum í Braga Kárason, bónda á Nípá, og athugum hvernig staðan er hjá þeim núna í morgunsárið. Og tókum svo stöðuna hjá Hermanni Karlssyni aðalvarðstjóra í aðgerðarstjórn hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra um sama mál. Á föstudaginn 1. október hófst árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan, undir slagorðinu ?VERUM TIL?. Í ár segir Lára okkur sína sögu í auglýsingunum. Saga hennar er persónuleg og einstök. Lára Guðrún Jóhönnudóttir og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, komu til okkar. Og svo við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Kristjönu Arnarsdóttur. Tónlist: Friðrik Dór - Segðu mér Kacey Musgraves - Justified Queen - You're my best friend Robbie Williams - Come undone Dikta - Just getting started Of monsters and men - Circles Paul Simon - Graceland Unnsteinn Manúel - Lúser Friðrik Ómar - Hvað ef ég get ekki elskað Jamiroquai - Alright Eddie Vedder - Long way

Víðsjá miðvikudaginn 1. sept 2021 Í Víðsjá í dag verður hugað að hljóðvappinu Flanerí en það eru hljóðgöngur um sögu og samtíma í hlaðvarpsformi sem Aðalbjörg Árnadóttir og Snorri Rafn Hallsson standa að, ásamt fleirum. Einnig verður Erling Jóhannesson forseti Bandalags íslenskra listamanna gestur þáttarins en bandalagið hefur á undanförnum dögum sett fram hugmyndir sínar um bætta og markvissari stjórnsýslu lista og menningar í íslensku stjórnkerfi. Þá verður Andrea Elín Vilhjálmsdóttir tekin tali um sviðslistahátíðina Plöntutíð sem fram fer núna um helgina en á henni er hægt að fara í hljóðgönguna BRUM í Heiðmörk þar sem þáttakendur hlusta sig inn í skóginn. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Guðni Tómasson

Gestir þáttarins í þetta sinn voru Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður og þingskáld, eins og hún titlar sig í símaskránni, Eyja Margrét Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og Friðrik Jónsson formaður Bandalags háskólamanna, BHM. Helstu umræðuefnin voru að skoða nýja stöðu í Covid málum eftir að haldinn var upplýsingafundur Almannavarna á fimmtudaginn, sá fyrsti í 49 daga, vegna aukinna smita. Svo var talað um nýjustu bylgju #metoo og til dæmis orða- og hugtakanotkun henni fylgjandi. Að lokum var rætt um afleðingar og árangur styttingu vinnuvikunnar. Umsjón Gunnar Hansson

Framlög til hjúkrunarheimila verða aukin um milljarð, samkvæmt fjáraukalagafrumvarpi sem lagt verður fram eftir helgi. Fjármálaráðherra segir að þetta sé tímabundin aðgerð. Lyfjstofnun Evrópu heimilar að ungmenni á aldrinum 12 til 15 ára verði bólusett við kórónuveirunni með bóluefni frá Pfizer-BioNTech. Jarðvegsfok síðustu daga hefur ekki verið meira síðan í Eyjafjallagosinu fyrir rúmum 10 árum. Mistrið er einna þéttast á Suðurlandi. Vonskuveður er víða á suðvestanverðu landinu. Fyrrverandi bankastjóri gamla Landsbankans var í dag dæmdur skaðabótaskyldur vegna láns til eins aðaleigenda bankans. Slitastjórn gamla bankans fær þó aðeins 50 milljónir upp í nærri ellefu milljarða kröfu. Mynd: Arnar Páll Hauksson / Arnar Páll Hauksson Friðrik Jónsson, nýr formaður Bandalags háskólamanna, vill hefjast handa strax við að bæta, breyta og byggja upp bandalagið þannig að það þjóni betur fjölbreyttum verkefnum sem eru fram undan. Hann vill líka bæta vinnubrögð á íslenskum vinnumarkaði og stefnir að því að nýr kjarasamningur verði tilbúinn áður en núverandi samningur rennur út. Arnar Páll Hauksson talaði við Friðrik. Norska lögreglan hefur kynnt nýjar vísbendingar um hverjir gætu hafað rænt Anne - Elizabeth Hagen fyrir nær þremur árum. Hún er enn ófundin. Nú telur lögregan að aðeins lítill hópur hámenntaðra tæknimanna, jafnvel úr fjármálaheiminum, hafi búið yfir nægri þekkingu til að skipuleggja svo torleystan glæp. Nú er þessara manna leitað. Gísli Kristjánsson sagði frá Ein megin forsenda fyrir úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, að mati þeirra sem studdu hana, var að Bretar gætu þar með samið um viðskipti við önnur ríki, óheftir af samflotinu við ESB. Deilur í Bretlandi um viðskiptasamning við Ástralíu sýna að það er ekki auðvelt að ákveða hvaða hagsmunir vegi þyngst. Sigún Davíðsdóttir sagi frá.

Spegillinn 10.mars 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Búist er við að allt starfsfólk Landspítala verði búið að fá fyrri skammt bóluefnis gegn COVID-19 nú í mánuðinum. 579 starfsmenn voru bólusettir í dag. Kvikugangurinn á Reykjanesskaga heldur áfram að stækka og virðist færast nær yfirborði með degi hverjum. Skjálftavirkni mælist áfram. Vinnumarkaðurinn færist nú í betra horf segir forstjóri Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi minnkaði í síðasta mánuði í fyrsta sinn síðan í maí. Forsætisráðherra Bretlands vísar á bug fullyrðingum um að stjórnvöld hafi bannað framleiðendum að flytja bóluefni gegn COVID-19 til annarra landa. Vonskuveður er um um norðan- og vestanvert landið. Ófært er á Holtavörðuheiði og Kjalarnesi. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag einn í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Rauðagerði í Reykjavík um miðjan febrúar. Tólf prósent landsmanna hafa miklar áhyggjur af jarðskjálftunum síðustu daga, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Lengri umfjöllun: Yfir 60 prósent félagsmanna Bandalags háskólamanna sem svöruðu könnun þess vilja að BHM beiti sér fyrir því að réttur til að vinna heima verði tryggður í næstu kjarasamningum. Fjarvinnukönnun BHM var kynnt í dag og þar kemur ýmislegt athyglisvert í ljós, til að mynda að vel yfir helmingur aðspurðra taldi að einbeiting við vinnu og afköst væri meiri heima, en á vinnustaðnum. Vilhjálmur Hilmarsson er hagfræðingur BHM. Kristján Sigurjónsson talar við hann. Atvinnuleysi dróst örlítið saman í febrúar sem er fyrsta sinn í mjög langan tíma. Drífa Snædal forseti ASÍ segir að stóra verkefnið framundan sé að fjölga störfum og koma fólki í virkni. Ásdís Kristjánsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA segir að efnahagsbati sé framundan en það muni taka tíma að vinna upp efnahagsslakann og endurheimta störf. Arnar Páll Hauksson talar við Ásdísi og Drífu.

Grímuskylda verður um allt land frá næsta þriðjudegi. Takmarkanir á sóttvarnaráðstöfunum verða hertar á landsbyggðinni en verða ekki eins strangar og á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt breytingum sem heilbrigðisráðherra hefur samþykkt. Þórdís Arnljótsdóttir sagði frá. Stjórnvöld kynntu í dag tíu aðgerðir til stuðnings listum og menningu. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segir þær með því besta sem gert hefur verið á Norðurlöndum. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir þetta mikilvægar aðgerðir til að koma til móts við listamenn sem hafi ekki getað skemmt þjóðinni með hefðubundnum hætti og auðgað líf og anda hennar. Ingvar Þór Björnsson tók saman. Loðnubrestur gæti orðið þriðja árið í röð. Stofnmæling Hafró gefur ekki tilefni til upphafskvóta. Rúnar Snær Reynisson segir frá. Ef Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær og Súðavík sameinast greiðir ríkið sameinuðu sveitarfélagi einn komma tvo milljarða króna. Daníel Jakobsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar segir að það sé skylda sveitarstjórna á Vestfjörðum að vinna betur saman. Umtalsverðir fjármunir séu í húfi. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann . Rúmlega tíu þúsund kórónuveirusmit greindust á Ítalíu síðastliðinn sólarhring og hafa aldrei verið fleiri. Ásgeir Tómasson segir frá. ----------- Afleiðingar sóttvarna vegna kórónuveirufarsóttarinnar hafa lagst þung á listamenn og í dag voru kynntar aðgerðir til að styðja listir og menningu á tímum COVID-19. . Erling Jóhannesson forseti Bandalags íslenskra listamanna segir þetta glæða vonir listamanna sem hafi ekki geta nýtt hefðbundin úrræði vinnumarkaðarins vegna þess hve tekjusamsetning þeirra sé flókin. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Erling. Vegna Covid 19 stefnir í að milljónum minka verði lógað í Danmörku. Smit dreifast nú hratt milli loðdýrabúa. Arnar Páll Hauksson, segir frá og ræðir við Einar E. Einarsson formann Sambands íslenskra loðdýrabænda. Bæði Boris Johnson forsætisráðherra Breta og Evrópusambandið telja að viðræður um viðskiptasamninga strandi á mótaðilanum, en hvorugur vill þó hætta viðræðum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá og heyrist í Charles Michel forseta ráðherraáðs ESB og Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Listamenn eru meðal þeirra sem hafa orðið fyrir hvað mestum búsifjum vegna kórónuveirunnar. Leikhús hafa verið lokuð í hálft ár, stórar hátíðir sumarsins urðu ekki og raunar hafa fæstir viðburðir, stórir eða smáir, verið haldnir með hefðbundnum hætti síðustu mánuði. Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, kom á Morgunvaktina til að ræða stöðu listamanna, og hvernig þeir líta á haustið. Í dag eru 40 ár síðan Víkurfréttir komu fyrst út. Það var sem sagt 14. ágúst 1980 sem þetta fréttablað Suðurnesjamanna hóf göngu sína og þar með eru Víkurfréttir með elstu starfandi fréttamiðlum landsins. Páll Ketilsson hefur ritstýrt blaðinu síðan 1983; hann stiklaði á stóru í sögu Víkurfrétta og ræddi um héraðs- eða bæjamiðla og fleira. Mikilvægur áfangi í fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair náðist í vikunni þegar samkomulag tókst milli félagsins og lánveitenda þess, og líka við Boeing flugvélaframleiðandann. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fór yfir málefni félagsins í ferðaspjalli eftir Morgunfréttirnar klukkan átta. Hann skoðar líka flugáætlun haustsins og farmiðaverð. Tónlist: Cardigan - Taylor Swift, Ég veit þú kemur - Elly Vilhjálms, Stolt siglir fleyið mitt - Áhöfnin á Halastjörnunni

Sjö vikur í röð hefur samdráttur í efnhagskerfum aukist, og ekki er enn ljóst hvænær fallinu lýkur og botninum verður náð. Ríki heimsins eru þó mörg hver búin að draga lærdóm af síðustu kreppu, og hafa brugðist mun meira við nú en árið 2008. Þetta var meðal þess sem Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í efnahagsmálum, sagði á Morgunvaktinni í morgun. Paolo Gentiloni, sem fer með efnahagsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, kynnti horfur í efnahagsmálum ESB og óhætt er að segja að þær séu dökkar. Þá hafa repúblikanar í Bandaríkjunum áhyggjur vegna stöðunnar í könnunum vestanhafs og frammistöðu Donalds Trump á blaðamannafundum undanfarið. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og sagði frá þessu, og einnig því að hátíðahöld eru nú víða í nágrannaríkjum okkar vegna þess að 75 ár eru frá uppgjöf Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni. Það varð uppnám meðal listafólks vegna frétta um að tveggja metra reglan svokallaða yrði viðvarandi út árið. Enn hafa listamenn ekki fengið mikil svör um það hvernig þeirra störfum getur verið háttað á næstunni. Þá gengur mörgum listamönnum illa að fá greiddar atvinnuleysisbætur þó algjört tekjufall hafi orðið hjá þeim, þeir passa illa inn í kerfin og mögulega verður ekki hægt að reikna út þeirra bætur fyrr en í haust. Þetta sagði Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna. Tónlist: Bréfið hennar Stínu - Diddú, Þórður sjóari - Alfreð Clausen, Rökkurró - Edda Heiðrún Bachman, Refavísur - Bessi Bjarnason, Piparkökusöngurinn - Örn Árnason

Magnús J. Magnússon skólastjóri við Barnaskólann á Eyrabakka og Stokkseyri ræðir við Guðna og Guðmund um leiklist í skólastarfi. Magnús hefur sett upp yfir 80 leikskýningar í skólum víða um land og hefur leikhús hugsjónina að leiðarljósi í öllu starfi. Til að hafa samband við Magnús er hægt að senda póst á magnus@barnaskolinn.is Hann bendir einnig á síðu Bandalags íslenskra leikfélaga sem má finna hér: https://leiklist.is/ Þar má finna fjöldann allan af leikritum sem hægt er að fá keypt. Meðal annars um 15 leikrit eftir Magnús. Njótið vel!
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Brynhildi Guðjónsdóttir en á laugardag verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Vanja frændi eftir rússneska rithöfundinn Anton Tsjekhov, í leikstjórn Brynhildar. Einnig verður hugað að Listþingi Bandalags íslenskra listamanna sem haldið verður í Hörpu á laugardag. Yfirskrift þingsins er Tungutak listarinnar og tungutakið um listina. Þar munu starfandi listamenn taka til máls og ræða stöðu listarinnar í íslensku samfélagi. Gestur Víðsjár í dag verður Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna. Á fimmtudögum í janúar ætlar Gunnar Þorri Pétursson að flytja pistla í Víðsjá þar sem hann fer aftur á bak í tíma og austur á bóginn. Gunnar Þorri er fræðimaður og þýðandi úr rússnesku, pistlaröðina kallar hann „Varsjá“ og í þessum fyrsta pistli er hann með hugann við áðurnefndan Anton Tsjekhov og vináttu hans við rússneska málarann Ísak Levítan. Og Gauti Kristmannsson, bókmenntagagnrýnandi Víðsjár, fjallar í dag um bókina Jakobínu: sögu skálds og konu, eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, en bókin fjallar um rithöfundinn Jakobínu Sigurðardóttur. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
Fimmtán mánuðir eru í næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum og baráttan um hver demókrata fær að etja kappi við Trump er hafin. Fjölmiðlar eru sammála um að kappræður síðustu daga hafi sýnt sundurleiti flokksins en málefnin í kosningunum eru víðtæk. Við heyrum oft af þeim; heilbrigðismál, kynþáttahatur, byssueign, loftslagsmál og utanríkisstefna Bandaríkjanna. Birna Anna Björnsdóttir og Friðjón Friðjónsson fóru yfir stöðuna á þessum tímapunkti fyrir kosningarnar. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Bandalags háskólamanna og fyrrum umhverfisráðherra, greindist upp úr þrítugu með sjúkdóminn endómetríósu sem um 10% kvenna greinist með. Hún missti góða vinkonu sína úr sjúkdómnum fyrr á árinu og ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni í minningu hennar og til að styðja Samtök um endómetríósu. Þórunn kíkti til okkar. Verslunarmannahelgin er tími fjölskyldunnar, í það minnsta í tilfelli þeirra sem sækja Sæluldaga í Vatnaskógi, árlega hátíð KFUM & KFUK um þessa annasömu skemmtanahelgi. Hátíðin í ár er sú 27. og er Ögmundur Ísak Guðmundsson verkefnastjóri hennar en hann var á línunni í þættinum. Einnig var Steinþór Helgi Arnsteinsson yfirpúki Innipúkans til viðtals og sagði okkur frá þeirri góðu hátíð sem haldin er í Reykjavík. Þá var málfarshornið að sjálfsögðu á sínum stað eins og alla fimmtudaga í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
Gestir Vikulokanna voru þau Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, Guðmundur Rúnar Svansson ráðgjafi og Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Bandalags háskólamanna. Rætt var um kjaraviðræður en 82 kjarasamningar urðu lausir um áramóti og fleiri losna á næstu mánuðum. Einnig var fjallað um vinnuumhverfi almennt, kulnun í starfi, opnun Vaðlaheiðarganga, uppsafnaðar vegaframkvæmdir og fjármögnun þeirra. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Davíð Berndsen

Í fyrri helmingi þáttarins rætt við Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis um störf þess og stjórnmálaástandið, verkdrjúgt haustþing og horfur fyrir komandi vorþing. Í seinni hlutann komu Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, kjara- og stéttamálin þar helst til umræðu. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir

Við setjumst niður á grjónapúða með kaffibolla í Nýlistasafninu, en í dag opnar Laumulistasamsteypan þar sýninguna Kaffipásu. Við ræðum við Ásgerði Birnu Björnsdóttur, einn af stofnendum Laumulistasamsteypunnar, og nokkra meðlimi samsteypunnar, yfir rjúkandi bolla og fáum að heyra af Kaffipásu sem stendur yfir í 6 daga. Sigríður Hagalín segir frá skáldsögu sinni Hið heilaga orð, en hún er bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni. Inga Björk Bjarnadóttir myndlistarrýnir Víðsjár segir frá upplifun sinni af sýningunni Sjálfvirk eftir Söru Riel og að endingu verður Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, gestur þáttarins. Við ræðum við hann um menningarpólitík og áherslur bandalagsins. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
Nú berast fréttir af skipum sem halda er til veiða á plasti. Plastútgerð. Togarar fara um höfin með dragnót og veiða plast til endurvinnslu. Plastmengun í hafinu er ein mesta ógn sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum plastframleiðenda í Evrópu eru framleidd árlega um 345 milljónir tonna af plasti. Aðeins um 9% af öllum plastúrgangi fer í endurvinnslu. Stór hluti plastsins fer út í náttúruna, stundum er miðað við 3% af árlegri heimsframleiðslu. Það gætu þá verið rúmar 10 milljónir tonna á ári. En nú á veiða eða hirða plastið í höfunum og nota til endurvinnslu. Freyr Eyjólfsson í New York hefur skoðað þetta mál og sagði frá. - . Þing BSRB, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hefst í dag og stendur til föstudags. Stóru málin eru til umfjöllunar; samfélagsgerðin, velferð, fjölskyldan, framtíðin já og auðvitað skattar, kaup og kjör. Nýr formaður verður kjörinn á þinginu en Elín Björg Jónsdóttir lætur af embætti eftir níu ár í starfi. Elín Björg ræddi um málefni opinberra starfsmanna. - Fyrrverandi forsætisráðherra Malasíu, Najib Razak, á yfir höfði sér að minnsta kosti tuttugu ára fangelsi fyrir að hafa dregið sér mörg hundruð milljónir af almannafé, í einhverju umfangsmesta fjársvikamáli sögunnar. Eiginkona forsætisráðherrans er líka sökuð um peningaþvætti og fjársvik en höfuðpaurinn í málinu er á flótta. Vera Illugadóttir sagði frá. - Fram undan eru miklar breytingar hjá mjólkurframleiðendum. Búvörusamningurinn er til endurskoðunar, fóður hefur hækkað í verði, það er skortur á mjólkurkvóta og til stendur að greiða atkvæði um kvótakerfið. Landssamband kúabænda hefur fundað með bændum um allt land að undanförnu. Ágúst Ólafsson ræddi við formanninn Arnar Árnason. - Tónlist: Billy Joel - She´s a woman to me; Louis Armstrong - Jeepers Creepers.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona og skáld úr bréfi Steinunnar Hjartardóttur til Halldóru Bjarnadóttur. Steinunn var stofnfélagi og fyrsti formaður Bandalags kvenna, stofnfélagi í Slysavarnardeild Reykjavíkur og virkur félagi í Lestrarfélagi kvenna en úr því félagi átti hugmyndin um byggingu Hallveigarstaða uppruna sinn. Hún skrifaði margar greinar um margvísleg efni og flutti 85 ára gömul útvarpserindi um Steinvöru frá Keldum. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Föstudagsgesturinn í þetta sinn var Kolbrún Halldórsdóttir. Hún hefur setið á Alþingi, verið ráðherra, leikið og leikstýrt í leikhúsum, verið dagskrárgerðarmaður í sjónvarpi og útvarpi, hún var forseti Bandalags íslenskra listamanna og margt fleira. Nýlega var hún ráðin verkefnisstjóri fyrir forsætisráðuneytið í tengslum við hátíðahöld 1. desember 2018 vegna 100 ára fullveldis Íslands. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, var í þættinum með sitt vikulega matarspjall. Í dag talaði hún um bollur úr fiskinum frá því í gær, ómótstæðilega uppskrift úr afgöngum frá Ítalíu og magahreinsun að rómverskum sið. Lögfræðingurinn Þóra Jónsdóttir lét gamlan draum rætast fyrir síðustu jól þegar hún gaf út sitt fyrsta lag. Þóra, sem er 43 ára gömul, hefur frá barnsaldri tengst tónlist með ýmsum hætti. Hún lærði á píanó sem unglingur, söng í hljómsveitum og sótti söngnám í tónlistarskóla FÍH. Þegar hún stofnaði fjölskyldu milli tvítugs og þrítugs vék tónlistin til hliðar. Hún sagði frá í þættinum í dag hvernig hún „kom útúr skápnum" og lét tónlistardrauminn rætast. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Björg Kristjana Sigurðardóttir stjórnmálafræðingur starfar sem þjónustufulltrúi í Reykjavík. Í þessum þætti les hún úr bréfi Ragnhildar Pétursdóttur til Halldóru Bjarnadóttur. Ragnhildur var þjóðkunn húsfreyja og kvenskörungur og hafði um áratugaskeið mikil afskipti af menningarmálum kvenna. Hún var meðal stofnenda Húsmæðraskóla Reykjavíkur og var í stjórn hans í mörg ár. Einnig var hún formaður Kvenfélagasambands Íslands og Hins íslenska kvenfélags sem og ein af stofnendum Bandalags kvenna í Reykjavík og varamaður í bæjarstjórn Reykjavíkur á árunum 1934-1942. Hún hélt einnig um árabil kúabú í Háteigi sem þá var fyrir utan bæinn. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.