POPULARITY
Skipulagsráð Akureyrar hefur hafnað ósk ríkisins þess efnis að ekki verði gert ráð fyrir bílakjallara undir heilsugæslustöð sem á að byggja við Þingvallastræti en bílastæðum ofanjarðar þess í stað fjölgað. Framkvæmdasýsla ríkisins segir í bréfi til Akureyrarbæjar að ekki hafi verið gert ráð fyrir bílakjallara í heildarkostnaði við bygginguna. Við ræddum við Þórhall Jónsson, formann skipulagsráðs. Ársverðbólgan er komin í 6,7 prósent og hefur ekki verið hærri síðan í maí árið 2010.Við töluðum um verðbólguna og efnahagshorfurnar við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka. Í dag efnir viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík til málþings þar sem skyggnst verður inn í framtíðina með sérstakri áherslu á atvinnu- og menntamál. Hallur Þór Sigurðarson, lektor við Háskólann í Reykjavík, stýrir fundinum og hann kíkti við hjá okkur og sagði okkur meira af þessu. Í Kveik í gærkvöldi var sögð saga Bergþóru Birnudóttur sem örkumlaðist við barnsburð eftir atvik sem hún telur að megi rekja til raða mistaka á síðustu vikum meðgöngunnar og í fæðingunni. Í hverri viku eru tilkynnt alvarleg atvik innan heilbrigiðskerfisins sem sum hver hafa leitt til örkumlunar eða dauða. Við fengum til okkar Steinunni Þórðardóttur, formann Læknafélags Íslands. Umfangsmiklar kvikmyndatökur á bandarískri hasarmynd fara nú fram víða á höfuðborgarsvæðinu og loka hefur þurft vegum vegna þeirra. Við hringdum Árna Friðleifsson, aðalvarðstjóra Umferðadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og heyrðum af undirbúningi og tilhögun slíkra lokana. Sænska dagblaðið Dagens Nyheder upplýsti á dögunum um fjölda allan af gervi tónlistarmönnum á Spotify. Blaðamennirnir keyrðu saman gögn frá Spotify með gögnum um eigendur höfundarréttar laga. Og komust að því að á Spotify eru hundruð tónlistarmanna sem eru bara uppspuni. Við fengum til okkar Guðrúnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra STEFs til fara aðeins yfir þetta mál með okkur. Tónlist: Myrra Rós - Kveldúlfur. Nýdönsk - Þá kemur þú. John Mayer - Carry me away. Friðrik Dór - Bleikur og blár. Lloyd Cole and the Commotions - Lost weekend. Sigga, Beta og Elín - Með hækkandi sól. Emmsjé Gauti - Malbik. Amarosis - Dont you know. Ásgeir Trausti - Heimförin.

Ísland: bíóland er heimildaþáttaröð í tíu hlutum um sögu íslenskra kvikmynda sem hefur göngu sína á RÚV á sunnudaginn kemur. Hver þáttur tekur ákveðið tímabil fyrir, fjallað er um kvikmyndir þess tíma og valdir kaflar sýndir úr þeim. Farið er yfir inntak þeirra, áherslur, nálgun og aðstæður við gerð myndanna. Ásgrímur Sverrisson leikstýrir þáttaröðinni, skrifar handrit og er þulur. Hann sagði okkur nánar af þáttunum. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar í sitt vikulega málfarsspjall. Þar ræddum við m.a. mál sem kom upp í þættinum í gær og varðar fingur og lófa sem klæjar í. Stjórn samtaka um kvennaathvarf hefur ákveðið að framlengja tilraunaverkefni um kvennaathvarf á Norðurlandi. Komið hefur í ljós að þörfin er til staðar og verkefnið hefur því verið framlengt um hálft ár í viðbót, eða út árið 2021. Gígja Hólmgeirsdóttir sló á þráðinn til Signýjar Valdimarsdóttur, verkefnastýru Kvennaathvarfsins á Norðurlandi, og forvitnaðist um stöðuna. Svo virðist sem Íslendingar séu orðnir ferðaþyrstir enda virðist vera uppselt í margar páskaferðir, t.d. til Spánar þetta árið, þrátt fyrir heimsfaraldur. En hverjir eru að ferðast og hvert er hægt að ferðast? Hvað með mánuðina framundan? Birna Ósk Einarsdóttir framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair kom til okkar og spáði í ferðaspilin. Foreldri tveggja framhaldsskólanema gagnrýnir þann aðstöðumun sem nemar af landsbyggðinni búa við. Hún segir að svo virðist sem að húsnæðisbætur séu aðeins fyrir útvalda. Á meðan nemar séu undir 17 ára fái þeir bætur frá sveitarfélagi sínu en um leið og viðkomandi er orðin 18 ára og sendir inn umsókn til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar komi annað hljóð í strokkinn og þá gildi önnur lög. Ágústa Ágústsdóttir, íbúi á Norðausturlandi, skrifaði grein um þetta í Vikublaðið á dögunum. Við heyrðum í henni. Tónlist: Magni og Ágústa Eva - Þar til að storminn hefur lægt. Myrra Rós - Kveldúlfur. Stereophonics - Have a nice a day. The Beatles - Eleanor Rigby. Whitney Houston - One moment in time. Ellen Kristjánsdóttir og John Grant - Veldu stjörnu. Linda Ronstadt - When will I be loved. Bríet - Fimm. Weezer - Buddy Holly.

Meðal tónlistarflytjenda: Björk, Myrra Rós, Megas, Kalli Tomm og Celebs.
Meðal tónlistarflytjenda: Björk, Myrra Rós, Megas, Kalli Tomm og Celebs.
Meðal tónlistarflytjenda: Björk, Myrra Rós, Megas, Kalli Tomm og Celebs.
Gagnaþon fyrir umhverfið hefst í dag og er opið öllum. Tilgangur hakkaþonsins er að auka hagnýtingu og sýnileika opinna gagna í samræmi við Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Hvað þýðir þetta og hvernig fer það fram? Þau Íris Huld Christersdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Stefán Ö. Snæbjörnsson, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sögðu okkur það. Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri viðburða hjá Senu kom til okkar, en hann sagði í Morgunblaðinu í gær að Sena hefði aflýst 35 viðburðum vegna veirunnar. Jafnframt að sá veruleiki sem blasir við í vetur, að mögulega verði dregið úr aðgerðum og þær hertar á víxl, muni gera fyrirtækum í menningar- og skemmtanaiðnaðinum mjög erfitt fyrir. Þó gæti jólavertíðin bjargað einhverjum fyrir horn. Í lok mánaðarins opnar kvennaathvarf á Norðurlandi, en um er að ræða athvarf fyrir konur og börn þeirra sem ekki geta búið heima hjá sér vegna ofbeldis. Lengi hefur staðið til að færa þjónustuna út fyrir höfuðborgarsvæðið og langþráður draumur því að verða að veruleika með opnun kvennaathvarfs á landsbyggðinni. Gígja Hólmgeirsdóttir kíkti í heimsókn í verðandi kvennaathvarf Norðurlands og ræddi þar við þær Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru samtaka um kvennaathvarf og Guðrúnu Kristínu Blöndal, teymisstjóra Bjarmahlíðar miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis. Á að loka landinu með það að markmiði að útrýma veirunni hér svo lífið geti að einhverju leiti gengið sinn vanagang eða á að hafa það opið með einhverjum takmörkunum til að hleypa súrefni í efnahagslífið? Og hvernig eiga stjórnvöld að leggja línurnar fyrir veturinn? Þingmennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson og Ólafur Þór Gunnarsson ræddu þetta við okkur í þættinum. Guðmundur Jóhannsson mætti í tæknihorn vikunnar að loknu fríi og fór sitthvað forvitnilegt úr heimi tækninnar, m.a. hvernig NBA deildin í körfubolta nýtir tæknina nú á tímum Covid-19 og tiltekt hjá Facebook. Tónlist: Myrra Rós - Kveldúlfur. Van Morrison - Meet me in the Indian summer. Warmland - Superstar minimal. Beck - Loser. Aldís Fjóla - Wake up. Á móti sól - Nýjar syndir. Santana og Rob Thomas - Smooth. Birgir Steinn - Letting go. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Sigmar Guðmundsson.

Gestur Matta er tónlistarkonan Myrra Rós
Meðal tónlistarflytjenda: Björk, Mrs. Mills, Between Mountains, Myrra Rós og Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar.

Myrra Rós Þrastardóttir er gjörsamlega uppfull af sköpunarkrafti sem hún hefur virkjað og þannig skapað sér atvinnu sem vængjasmiður og tónlistarkona svo eitthvað sé nefnt. Ég hitti hana í nýopnaðri vinnustofu á Stokkseyri, Brimrót, og hún sagði mér frá öllu því sem hún er að bardúsa.
Við byrjuðum aðeins að setja okkur í jólagírinn enda rétt rúmlega 40 dagar til jóla. Guðmundur Fr. Jóhannsson er formaður Ísfirðingafélagsins, en félagið, í samvinnu við Kómedíuleikhúsið, ætlar að frumsýna bráðfjörugt jólaleikrit um komandi helgi. Hann sagði okkur frá því og félagskapnum líka. Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra, gengdi stöðu framkvæmdastjóra Samvinnuþróunarstofnunnar frá árinu 2001, en Íslendingar veittu Namibíu mikla þróunaraðstoð áður en Samherji hóf veiðar við strendur landsins. Líkt og kom fram í Kveik í gærkvöldi hefur fyrirtækið greitt háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í Namibíu hundruði milljóna króna í þeim tilgangi að komast yfir kvóta. Sighvatur kom til okkar en hann segist í sjokki eftir þáttinn. Fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson ætlar að reyna að komast á topp fjallsins K2 í Pakistan að vetrarlagi en það hefur engum öðrum tekist áður. Fjallið þykir það allra erfiðasta fyrir fjallgöngumenn og John Snorri leggur í hann eftir áramót og reiknar með að vera þrjá mánuði í leiðangrinum. Hann sagði okkur frá. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, kom til okkar en Wikileaks birti í gærkvöldi 30.000 skjöl sem komu frá Jóhannesi Stefánssyni, fyrrverandi stjórnanda Samherja í Namibíu. Kristinn fór yfir málið með okkur. Guðmundur Jóhannsson mætti í tæknispjall að venju á miðvikudögum og ræddi m.a. nýja Disney streymisveitu og fordóma sem birtast í gegnum gervigreind. Tónlist: Myrra Rós - Kveldúlfur. OMAM - Wars. John Mayer - Carry me away. Dire Straits - Money for nothing. Jóna Alla Axelsdóttir - Svo birti aftur til. Elíza Newman - Star Wars bar. U2 - One tree hill.

Flestir tengja skötuát og samkomur því tengdu Þorláksmessu, en nú stendur fyrir dyrum Skötumessa um mitt sumar. Ásmundur Friðriksson þingmaður heldur utan um verkefnið sem er til styrktar góðu málefni. Við hringdum í Ásmund og fengum smjörþefinn af skötunni. Lögreglan hér á landi náði hátt í tólf þúsund steratöflum og 1.100 ampúlum í alþjóðlegri rassíu í samstarfi við Europol á fyrri hluta ársins. Ísland er eitt 33 landa sem rannsóknin teygir sig til. Europol segir ólögleg viðskipti með stera hafa aukist gríðarlega á síðustu tuttugu árum. Við eigum okkar mann hjá Europol, en Grímur Grímsson er þar tengslafulltrúi Íslands og starfar í Hollandi. Hann var á línunni. Sala Icelandair á 75 prósent hlut í hótelum sínum til malasíska félagsins Berjaya Land Berhad getur haft jákvæð áhrif á samkeppni milli hótela hér á landi. Þetta segir Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár. Samkvæmt skammtímahagvísi Hagstofunnar í ferðaþjónustu fækkar ferðamönnum í maí um 17 prósent en á sama tíma fækkar þeim sem gista á hótelum aðeins um 3 prósent milli ára. Við heyrðum í Friðriki. Amazon tilkynnti á dögunum að fyrirtækið ætli að verja 700 milljón dala á næstu sex árum í endurmenntun þriðjungs starfsmanna sinna í Bandaríkjunum. Þetta er gert til að bregðast við sífellt nýrri tækni og sjálfvirkni í þjónustu en með endurmenntun getið þeir þróast í takt við félagið. Við veltum fyrir okkur hvernig þessu er háttað hér heima og fengum til okkar þau Svölu Guðmundsdóttur, lektor í viðskiptafræði og kennara í mannauðs- og breytingastjórnun, og Sigurð Jóhannesson, mannauðsstjória Advania. Aðdáendur teiknimyndasagna geta glaðst þessa dagana því Marvel myndabækur koma nú út á íslensku í fyrsta sinn. Bjarni Gautur Eydal Tómasson náði samningum um útgáfuna við Marvel. Fyrstu bækurnar eru um Hulk og X-Men. Bjarni kíkti við og sagði okkur frá því af hverju hann réðst í þetta ævintýri. Tónlist: Ylja - Á rauðum sandi. Helgi Björnsson - Ég stoppa hnöttinn með puttanum. Júníus Meyvant - Aint gonna let you down. The Marcus King Band - Homesick. Lily Allen - Smile. Dalí - Joke. Eagles - Witchy woman. Blue Swede - Hooked on a feeling. Myrra Rós og Elín Ey - Savior. Lumineers - Gloria.
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hundruð einstaklinga leita til Ljóssins í hverjum mánuði og reksturinn kostar sitt. Nú leitar Ljósið að ljósavinum til að standa við bakið á rekstrinum og Sólveig Kolbrún Pálsdóttir frá Ljósinu settist niður með kaffibolla hjá okkur og sagði okkur meira frá starfseminni. Flestir kannast við starfsemi Mæðrastyrksnefndar, en ekki vita allir af menntunarstjóði þeirra. Sjóðurinn var stofnaður til að hjálpa konum sem leita til Mæðrastyrksnefndar að koma sér upp úr erfiðum aðstæðum sínum og efla þær með menntun og auka þannig atvinnutækifæri þeirra. Guðríður Sigurðardóttir kom til okkar og ræddi þetta. Guðrún Inga Torfadóttir kíkti til okkar og sagði okkur frá félagsskapnum Meðvitaðir foreldrar - virðing í uppeldinu en hann stendur m.a. að hlaðvarpi á Spotify um uppeldi barna. Í dag fer fram ráðstefna í Háskólanum í Reykjavík þar sem fjallað verður um réttarstöðu þolenda kynferðisofbeldis. Meðal þeirra sem munu flytja erindi eru Hildur Fjóla Antonsdóttir, doktorsnemi í réttarfélagsfræði, en hún hefur verið að skoða stöðu þolenda á Norðurlöndunum og mun einnig fjalla um tillögur um breytta réttarstöðu brotaþola á Íslandi. Hildur kom til okkar. Anna Sigríður Þráinsdóttir kom til okkar og ræddi íslenskt mál að venju. Tónlist: Myrra Rós - Kveldúlfur. Rumer - Aretha. Unperfect - Gots to give the girl. Lily Allen - Ldn. Jón Jónsson - Wanna get it. Lenny Kravitz - Low. Nýdönsk - Á plánetunni jörð. Queen - I want to break free.
Ný mathöll verður opnuð á föstudaginn og við heyrðum í Sólveigu Guðmundssdóttur um stemmingu fyrir mathöllum, stöðuna í veitingageiranum o.fl. Með háafkastaraðgreiningu er hægt að greina sjúkdóma fyrr en áður og bjarga mannslífum. Íslensk erfðagreining framkvæmir raðgreiningarnar fyrir Landspítalann og þeim fer fjölgandi. En hvað er háafkastaraðgreining og í hvaða tilfellum er hún notuð? Hans Tómas Björnsson, yfirlæknir á erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítalans, útskýrði málið. Almenna leigufélagið kynnir nýja þjónustu í dag sem á að bæta hag leigjenda með þvíð að bjóða lengri leigusamninga en hingað til hefur verið og verður leiguverðið fast til sjö ára og eingöngu tengt vísitölu neysluverðs. Við spurðum Maríu Björk Einarsdóttur, framkvæmdastjóra Almenna leigufélagsins, hvort það sé verið að bregðast við gagnrýni, meðal annars frá formanni VR, um starfshætti félagsins hingað til? Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra, kom til okkar. Við ræddum við hann um hryðjuverkin í Hollandi og á Nýja Sjálandi og samninginn sem Íslendingar og Bretar hafa gert vegna útgöngu Breta úr ESB. Sævar Helgi Bragason kom til okkar og flutti sinn vikulega vísindapistil þar sem jafndægur, rafsegulbylgjur og loftsteinar komu við sögu. Tónlist: Helgi Björns - Vængir. Father John Misty - Ballad of the dying man. Paul Weller - Wild wood. Stuðmenn - Hveitibjörn. Supergrass - Moving. Buff, Magni og Sigga Eyrún - Ég myndi aldrei setja þig í annað sæti. The Killers - The way it was. Myrra Rós og Elín Ey - Savior.
Dettifossvegur er illfær á þessum árstíma enda aðeins mokaður tvisvar á ári samkvæmt reglum. Þetta þýðir að þangað komast aðeins breyttir bílar og fjöldi ferðamanna verður frá að hverfa. Baldvin Esra Baldvinsson, formaður stjórnar Markaðsstofu Norðurlands og framkvæmdastjóri Saga Travel var á línunni að norðan og sagði okkur meira af þessu ástandi. Við ræddum við Regínu Ásvaldsdóttur, sviðsstjóra Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, um fátæk börn í Reykjavík. Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, var á línunni hjá okkur og upplýsti okkur um hvernig flatirnar eru að koma undan vetri og golfstemminguna framundan. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallar í kvöld um vændi á Íslandi. Lára Ómarsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá því sem við munum eiga von á og við heyrðum brot úr þættinum. Sævar Helgi Bragason mætti eins og alltaf á þriðjudagsmorgnum og fræddi okkur um heim vísindanna, m.a. svifryk. Tónlist: Valdimar - Hverjum degi nægir sín þjáning. Dísa - Reflections. Norah Jones - Ive got to see you again. Myrra Rós og Elín Ey - Savior. Pretenders - Dont get me wrong. Sam Smith og Normani - Dancing with a stranger. Alice Merton - Learn to live. George Michael - Fast love. John Grant - Pale Green Ghosts.
This week’s episode is a special live recording from our time at The Wild & Scenic Film Festival in January of 2019. We were delighted to join Ada Recinos of EcoViva in a conversation around the connections between ecosystem restoration, political and climate resilience, and food sovereignty in times of extreme instability. Music by Dirty Birds & Myrra Rós Þrastardóttir https://www.facebook.com/myrrarosmusic/ https://www.thedirtybirdband.com/
Við ræddum við Rósu Björk Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa Landbúnaðarháskóla Íslands, um nýjar áherslur í kennslu en eitt af markmiðunum með því er að undirbúa nemendur til að takast á við þær áskoranir sem blasa við vegna loftslagsbreytinga. Skólinn mun kynna námið á Háskóladögum 2. mars nk. og við ræddum tækifæri og áskoranir framtíðarinnar við Rósu. Eins og fram hefur komið í fréttum fengu skattatillögur ríkisstjórnarinnar ekki háa einkunn hjá verkalýðsforystunni í fyrradag. Ljóst er að það þarf mikið að gerast til að ekki komi til verkfalls í næsta mánuði og hafa formenn fjögurra félaga, meðal annars VR og Eflingar, fengið umboð til að slíta viðræðum við samtök atvinnulífsins sem getur hugsanlega gerst eftir fund í dag. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, fór yfir málið með okkur. Roman Polanski og Woody Allen eru meðal þeirra listamanna sem hafa um áraraðir verið í kastljósinu vegna misgjörða sinna, meintra í tilfelli Allen, en í kjölfar MeToo byltingarinnar hefur fjöldi annarra þekktra einstaklinga verið ásakaðir um kynferðisbrot. Sú spurning vaknar hvernig neytendur afþreyingarefnis, og þau fyrirtæki sem miðla því, eiga að bregðast við og hvar á að draga mörkin? Við ræddum við Henry Alexander Henrysson heimspeking og siðfræðing. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri settist hjá okkur, en óhætt er að segja að gustað hafi um ráðhúsið og kannski ekki síst borgarstjóra í kjölfar Braggamálsins og nú síðast úrskurð Persónuverndar vegna þáttar Borgarinnar í sérstöku átaki sem miðaði að því að auka kosningaþáttöku með bréfa og sms-sendingum. Að mati Persónuverndar fólust í þessu brot á lögum um persónuvernd, með gildishlöðnum skilaboðum, sem voru til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þeirra í kosningunum, eins og segir í úrskurðinum. Við ræddum við Maríu Helgu Guðmundsdóttur, formann Samtakanna 78, um drög að frumvarpi um kynrænt sjálfræði. Samráði um drögin lauk í vikunni en alls bárust um 30 umsagnir og ljóst af þeim að fyrirhuguð lagasetning nýtur mikils og víðtæks stuðnings. Samtökin 78 og fleiri hagsmunasamtök leggja þó til ákveðnar breytingar, t.d. að líkamleg friðhelgi barna undir 16 ára aldri verði tryggð. Tónlist: Mannakorn - Einhvers staðar einhvern tíma aftur. Múgsefjun - Dag eftir dag. The Housemartins - Me and the farmer. Ariana Grande - 7 rings. Kristina Bærendsen - Mama said. Suede - Everything will flow. Mark Ronson - Nothing breaks like a heart (ft. Miley Cyrus). Myrra Rós - Savior.
Meðal tónlistarflytjenda voru Whitney, Svavar Knútur, Clout, Sume, Myrra Rós og Johnny Wakelin.
Meðal tónlistarflytjenda voru Whitney, Svavar Knútur, Clout, Sume, Myrra Rós og Johnny Wakelin.
Hulda reimaði á sig dansskóna um helgina og leit við í Laugardalshöllinni þar sem hún hitti Önnu Claessen framkvæmdastjóra Dansíþróttasambands Íslands og tvo unga dansara, þau Eið og Þórdísi. Við heyrðum hressilegt dansspjall. Nýtt 5000 manna sveitarfélag gæti orðið til á Austurlandi von bráðar en nú standa yfir viðræður um mögulega sameiningu Djúpavogshrepps, Borgarfjarðarhrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Fljótsdalshéraðs. Fyrir þá sem teljast kunnugir staðháttum er ljóst að nýtt sveitarfélag yrði gríðarlega víðfeðmt og næði í raun að umfaðma tvö önnur sveitarfélög, Fjarðabyggð og Fljótsdalshrepp. Stefán Bogi Sveinsson forseti bæjarstjórnar á Egilsstöðum var á línunni hjá okkur. Hagvangur býður nú upp á nýja þjónustu fyrir fyrirtæki, svokallaða Siðferðisgátt, sem ætlað er að taka á ýmis konar viðkvæmum málum og opna leið fyrir fólk til að tilkynna slík mál án þess að þurfa að fara í gegnum yfirmenn eða aðra samstarfsmenn sína. Gyða Kristjánsdóttir frá Hagvangi kom til okkar og sagði okkur meira af þessu. Hrollvekjandi frásagnir af lélegum kjörum og illum aðbúnaði erlends verkafólks bárust okkur enn einu sinni í liðinni viku þegar rúmenskir iðnaðarmenn sem hingað komu á vegum starfsmannaleigu sendu frá sér neyðarkall í fjölmiðlum. Í nokkur ár hafa stéttarfélög landsins haldið úti svokölluðu vinnustaðaeftirliti og einn af reyndar eftirlitsmönnum landsins er Adam Kári Helgason. Adam kom til okkar og sagði okkur m.a. frá eftirlitsferð sem hann fór til Katar en þar hefur alþjóðasamfélagið gagnrýnt harkalega meðferð á verkafólki sem vinnur við uppbyggingu vegna næsta HM í fótbolta. Svo voru það íþrótttir helgarinnar, en Haukur Harðarson fór yfir það helsta, m.a. endalok keppnisferils skíðakonunnar Lindsay Vonn. Tónlist: Sálin hans Jóns míns - Ekkert breytir því. Bubbi Morthens - Rómeó og Júlía. Jónas Sig - Dansiði. Kacey Musgraves - Slow burn. Hildur - Ill walk with you. Bruce Springsteen - The river. Ellen og Raggi - Kenndu mér að kyssa rétt. Leon Bridges - Bad bad news. Myrra Rós - Savior.
Bolvíkingar áætla að nýr útsýnispallur á Bolafjalli muni laða til sín fjölda ferðamanna en vinningstillaga um útsýnispallinn var valinn úr 16 innsendum hugmyndum. Við ræddum við Jón Pál Hreinsson bæjarstjóra í Bolungarvík og veltum m.a. fyrir okkur hvort hægt verði að sjá vel til Grænlands af pallinum sem verður væntanlega síður fyrir lofthrædda í 60 metra hæð á Bolafjalli. Reykjanesbær er orðinn fjórða stærsta sveitarfélag landsins samkvæmt nýjustu íbúatölum Þjóðskrár Íslands. Þar hefur fólki fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár og stendur íbúafjöldi nú í tæpum 19 þúsundum. Við heyrðum í Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra í Reykjanesbæ og ræddum uppbyggingu og áskoranir. Sólveig Anna jónsdóttir, formaður Eflingar, kom til okkar og fór yfir kjaraviðræðurnar. Verkföll og miklar launahækkanir yrðu áfall fyrir efnahagslífið sagði seðlabankastjóri í gær og við fengum viðbrögð Sólveigar við þessum orðum og spurðum út í nýjar skattatillögur sem félagið ætlar að kynna fyrir hádegi. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldið að á sjötta hundrað lækna hér á landi ávísuðu ávanabindandi lyfjum á sjálfa sig í fyrra. Í fréttinni kom fram að fíknivandi sé þekktur sjúkdómur meðal heilbrigðisstarfsmanna og dæmi eru um lækna hérlendis sem hafa verið sviptir starfsleyfi vegna þessa. Andrés Magnússon, yfiræknir lyfjateymis embættis landlæknis, fór yfir þetta með okkur. Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent í gær. Þau féllu fjórum nemendur í tölvunar og verkfræði í skaut fyrir þróun á algrími til að finna örvökur í sofandi einstaklingum með því að skoða önnur lífsmerki en heilarit og sannprófun á aðferð til að greina orsakir kæfisvefns með stóru gagnasafni. Við fengum tvo verðlaunhafa, Hönnu Ragnarsdóttur og Heiðar Má Þráinsson til okkar, ekki síst til að útskýra þessa merkilegu uppgötvun. Tónlist: Þursaflokkurinn - Gegnum holt og hæðir. Suede - Shes in fashion. Rúnar Júlíusson - Fraulein Vök - Erase you. Bob Seger and the Silver Bullet Band - Against the wind. Friðrik Dór - Í síðasta skipti. Myrra Rós - Savior. Morrissey - The first of the gang to die. Justin Timberlake - Cant stop the feeling.
Guðni Már Harðarson prestur sagði frá uppvextinum í Reykjavík og starfinu í KFUMK, árunum á Akranesi, menntaskólaárunum í Kvennnó ársdvöl í Svíþjóð sem gerði það að verkum að hann ákvað að verða prestur. Hann ræddi trúarstarfið í kirkjunni, lífsgildin áhugamálin og ýmislegt fleira. Myrra Rós Þrastardóttir listakona ræddi uppvöxtinn í Hafnarfirði, erfiðri reynslu sem hún varð fyrir í Danmörku þegar hún fór þangað sem unglingur, myndlistinni og hvernig það kom til að hún fór að starfa við tónlist. Hún ræddi listsköpunina, hvernig það er að búa á Stokkseyri, áhugamál og ýmislegt fleira.

Lánshæfismat einstaklinga er reiknað út með ákveðnum aðgerðum í kerfi sem CreditInfo hannaði og mörg fyrirtæki í lánastarfsemi nota. En hvaða þættir skipta máli varðandi lánshæfismat og getur fólk haft áhrif á það með einhverjum hætti? Við fengum Brynju Baldursdóttur, forstjóra CreditInfo, til að útskýra þetta fyrir okkur. Anna Þóra Baldursdóttir flutti til Kenýa fyrir þremur árum og setti á stofn heimili fyrir ungar mæður og börn þeirra í þeim tilgangi að skapa þeim skjól og hjálpa þeim að mennta sig, en mjög algengt er að ungar mæður láti börn sín frá sér. Anna Þóra er stödd hér á landi og kíkti til okkar. Framundan er spennandi leikur hjá kvennalandsliðinu í knattspyrnu þegar það mætir firnasterku liði Þýskalands á laugardaginn kemur. Stefnt er að því að setja aðsóknarmet og hefur miðasalan farið mjög vel af stað. Við heyrðum í Klöru Bjartmarz framkvæmdastjóra KSÍ. Haustið er uppskerutími og margir bíða spenntir eftir nýmeti, m.a. kartöflum. En hvaða áhrif ætli rigningarsumarið mikla hafi haft á kartöflurækt og hverjar eru uppskeruhorfurnar? Bergvin Jóhannsson kartöflubóndi á Áshóli var á línunni. Sævar Helgi Bragason var á sínum stað með vikulegt vísindaspjall og ræddi ís og vatn á Mars m.a. Tónlist: Kate Bush - Wuthering heights. Myrra Rós - Kveldúlfur. Jóhann Helgason - Sail on. Michael Kiwanuka - One more night. Jason Mraz - Have it all. Hjálmar - Hættur að anda. Moses Hightower - Háa C. Florence and the Machine - You've got the love. Baggalútur - Sorrí með mig. Magnús Þór Sigmundsson - Jörðin sem ég ann.
- Í lok síðasta mánaðar staðfesti dómstóll í Bandaríkjunum að listamennirnir Robin Thicke og Pharrell Williams hafi með laginu Blurred Lines gerst sekir um "að stela stemningu" frá tónlistarmanninum Marvin Gaye og lagi hans Got to Give it Up. Málaferlin hafa staðið í nokkur ár vestanhafs og sitt sýnist hverjum um úrskurðinn. En hvenær er listamaður að stela, fá innblástur eða bara undir áhrifum? Við ræðum þetta og fyrirhuguð málaferli Jóhanns Helgasonar vegna lags hans Söknuðar, við Guðrúnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra Stefs. - Nú liggur fyrir að Ari Ólafsson, fulltrúi Íslands í Eurovision í Lissabon í vor, verður annar á svið á fyrra undanúrslitakvöldinu 8. maí. Jóhannes Þór Skúlason Eurovision sérfræðingur segir að þetta séu slæmar fréttir fyrir Ísland - og þýði raunar það að þjóðin geti kysst þann draum bless að komast alla leið á lokakvöldið. Þetta mál þarfnast að sjálfsögðu útskýringar. - Mikilvægi íslensku flugfélaganna er vanmetið er yfirskrift greinar á vefnum túristi.is. Þar er rakið að engan vegin sé öruggt að erlend flugfélög myndi fylla það skarð sem myndaðist ef íslensku flugfélöginn þyrftu að draga verulega saman seglin eða hreinlega fara á hausinn. Vinna er nú í gangi innan stjórnaráðsins við að undirbúa áætlun ef íslensku millilandaflugfélögin lenda í rekstarvanda. Við ræðum við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra vefsins túristi.is. - Guðmundur Jóhannesson kemur til okkar í tæknihornið og fjallar um deilurna sem nú er í gangi á milli Apple og Facebook. Lagalisti: Rúnar Júlíusson - Hamingjulagið. Bubbi Morthens - Brostin loforð. Spilverk Þjóðanna - Nei sko. Myrra Rós - Við og við tvö. -Jóhann Helgason - Söknuður. -Josh Groban - You raise me up. -Robin Thicke - Blurred lines ft. T.I. & Pharrell. Marvin Gaye - Got to give it up. Ari Ólafsson - Our choice. Grafík - Leyndarmál. Travis - Side. Sade - Smooth operator. E.L.O. - Sweet talkin' woman. Warmland - Overboard. Egill Ólafsson - Hósen Gósen.
Efni Lestarinnar í dag: Myrra Rós er ein þeirra tónlistarmanna sem spiluðu á Reykjavik Folk Festival um helgina. Tónlist hennar er sögð sniðin að dimmum haustkvöldum og ýmist líst sem draumkenndu, eða lágstemmdu þjóðlagapoppi. Lestin heimsækir hana á Stokkseyri í þætti dagsins, þar sem hún býr ásamt eiginmanni sínum. Þórður Ingi Jónsson ræðir við meðlimi pönkhljómsveitarinnar Show me the body á frumsýningu á nýrri vefþáttaröð hennar í New York. Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um sjónvarpsþættina Queer Eye for the straight guy. Og Tinnabækur dagsins eru að þessu sinni tvær, eitt ævintýri á tveimur bókum, Leyndardómur einhyrningsins og Fjársjóður Rögnvaldar rauða, sem komu fyrst út á árunum 1942 til 1944, og á íslensku á árunum 1976 og 1977. Viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson