Podcasts about leikf

  • 20PODCASTS
  • 101EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Mar 7, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about leikf

Latest podcast episodes about leikf

Mannlegi þátturinn
Erla Skúladóttir föstudagsgestur og Parísarmatarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 7, 2025 52:40

Föstudagsgesturinn Mannleg þáttarins í dag var leikonan, kvikmyndaleikstjórinn og þýðandinn Erla Skúladóttir sem búsett er í New York og hefur búið í þeirri borg í næstum fjóra áratugi. Erla útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982 og lék hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Egg leikhúsinu, Svörtu og sykurlausu götuleikhúsinu og Frú Emilíu áður en hún flutti vestur um haf. Hún vann þar sem aðstoðarkvikmyndatökukona fór svo í mastersnám í kvikmyndaleikstjórn og kvikmyndatöku í New York University. Erla hefur leikstýrt, skrifað handrit, tekið og klippt stuttmyndir og fleira. Í dag vinnur Erla við þýðingar af ýmsu tagi og veit ekkert skemmtilegra en að þýða kvikmyndahandrit. Við slógum á þráðinn til Erlu til New York í dag. Í matarspjalli dagsins vorum við á frönskum nótum og töluðum því um franskan mat í tilefni af því að var nýkomin þaðan, úr kuldanum í París og þá kom franska lauksúpan sterk inn en hún er borin fram sjóðandi heit og kemur hita í kroppinn. Parísarmatur í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Vaglaskógi / Kaleo (Jónas Jónasson / Kristján frá Djúpalæk) Here there and everywhere / Beatles (Lennon & Mcartney) Wise Up / Aimee Mann (Aimee Mann) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Víðsjá
Glerþræðirnir, Dagurinn sem Ísland stöðvaðist, Litla hryllingsbúðin-rýni, Víkingur og Wang-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 52:15

Magnús Sigurðsson rithöfundur verður gestur okkar í dag en hann var að gefa út bókina Glerþræði, etnógrafísk brot. Í Glerþráðunum fléttar Magnús atvikum og persónum úr sögu landsins listilega saman og tengir við sögur úr nútímanum á einstakan hátt. Þetta er form sem Magnús hefur áður unnið með, en í þetta sinn vinnur hann einungis úr rammíslenskum heimildum. Heimildum sem margar hverjar komu úr bókahillunni á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi þar sem hægt er að nálgast gefins bækur. Í kvöld verður frumsýnd heimildarmyndin, Dagurinn sem Ísland stöðvaðist, en hún fjallar um aðdraganda Kvennaverkfallsins 1975. Hrafnhildur Gunnarsdóttir meðhöfundur og framleiðandi myndarinnar verður einn af gestum okkar í dag. Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í Sinfóníutónleikana sem fram fóru 17.október síðastliðinn og tónleika Yuja Wang og Víkings Heiðars og Katla Ársælsdóttir rýnir í Litlu hryllingsbúðina í uppsetningu Leikfélags Akureyrar.

Fram og til baka
Bergur Þór og örin

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 31, 2024 114:00

Það var nýráðinn leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, Bergur Þór Ingólfsson, sem var gestur dagsins í Fimmunni. Bergur Þór talaði um fimm ör á sál og líkama og þar kenndi margra grasa hjá sögumanninum Bergi Þór. Flestar sögurnar gerðust í Grindavík en leikurinn barst líka í höfuðborgina og á ýmsar heilbrigðisstofnanir Í síðari hlutanum var þemað í tónlistinni rigningin sem hefur glatt okkur landsmenn í sumar lagalisti Snögglega Baldur - Króli og Birta Söring Þórisdóttir Ya Ya - Beyonce Lommér að sjá - Todmobile Hlustaðu á regnið - Trúbrot Rainbow - Catch the elephant Ain't got nobody - Sísí Ey Utan þjónustusvæðis - GDRN Set Fire to the Rain - Adele Nýfallið regn - Ásgeir Trausti Gleðivíma - Rán og Páll Óskar Húsið og ég - Grafík Rain - Eivör Pálsdóttir Rigning og súld - KK Here comes the rain again - Eurythmics Aron - Snorri Helgason Steypiregn - Sigga Eyrún og Karl Orgeltríó

Mannlegi þátturinn
Aflið á Akureyri,Leiklistarskóli Akureyrar og Markaðsstofa Norðurlands

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023

Aflið eru samtök sem voru stofnuð á Akureyri árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta þar sem í ljós kom mikil þörf fyrir samtök af þessu tagi. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis. Frá upphafi hefur Aflið vaxið þó nokkuð, árið 2011 voru viðtöl 685 og árið 2018 náðu viðtöl ákveðnum toppi en þá voru þau 1460 talsins. Starfandi ráðgjafar hjá Aflinu í dag eru fimm talsins og hún kom til okkar Erla Hrönn Hörpu Unnsteinsdóttir verkefnisstýra Aflsins. Met var slegið í fjölda seldra gistinátta á Norðurlandi í júlí og ágúst skv. tölum frá Hagstofunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands og fjallað um á Akureyri.net. Það virðist sem sumartímabilið sé orðið lengra og Í júlí voru gistinætur til dæmis 60% fleiri en árið 2018 og í ágúst 145% fleiri en árið 2018. Halldór Óli Kjartansson verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands kom til okkar. Við skruppum svo í heimsókn í kennslurými Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Þar geta börn á grunnskólaaldri sótt sér þjálfun í grunnatriðum leiklistar. Við hittum Jenný Láru Arnórsdóttur skólastjóra leiklistarskólans sem sagði okkur nánar frá starfseminni Lögin í þættinum Það er svo skrýtið/Vilhjálmur Vilhjálmsson(Magnús Eiríksson-Vilhjálmur Vilhjálmsson) Upptaka 1977 Gone gone Gone/Alison Krauss og Robert Plant(lag eftirEverly bræður,þá Phil og Don) Von/Þorgrímur Jónsson og félagar(Þorgrímur Jónsson) Í fylgsnum hjartans/Stefán Hilmarsson(Ástvaldur Traustason-Stefán Hilmarsson)

Mannlegi þátturinn
Aflið á Akureyri,Leiklistarskóli Akureyrar og Markaðsstofa Norðurlands

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023 50:00

Leikfélag Akureyrar, matreiðslukennsla og Bréf úr sjálfskipaðri útlegð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023

Við höldum áfram okkar árlegu yfirferð um hvað verður á sviðum leikhúsanna í vetur og í dag er komið að því að forvitnast um hvað verður á fjölunum fyrir norðan. Hún kom til okkar Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og segir okkur frá því sem er framundan hjá þeim. Bréf úr sjálfskipaðri útlegð er heiti á bók sem var að koma út, þetta er safn esseyja og ljóða sem Gunnlaugur Magnússon, dósent við Uppsalaháskóla (búsettur í Svíþjóð) skrifaði og fjallar um lífið og tilveruna þegar maður velur að búa erlendis, en gleymir hjartanu að hluta heima á Íslandi. Gunnlaugur hefur búið erlendis í 20 ár, er virtur fræðimaður og fyrirlesari á sviði menntavísinda og Í bókinni fjallar Gunnlaugur Magnússon á persónulegan hátt um þemu eins og heimþrá og söknuð, gleði og fögnuð, náttúruna og vatnið, lífið og dauðann." Við ræddum við Gunnlaug. Aldrei hefur jafn viðamikið námsefni verið gefið út í matreiðslu á Íslandi og í nýrri vefbók sem var að koma út. Það eru nokkrir kennarar í Menntaskólanum í Kópavogi sem standa á bakvið útgáfuna en þetta er fyrsti partur af þremur og munu næstu þrep koma á næstu mánuðum og árum. Bókin er aðallega ætluð nemendum í matreiðslu en einnig getur almenningur nýtt sér bókina sem er tímalaus og farið vel yfir grunnþætti matreiðslu. Þeir komu hingað Ægir Friðriksson og Hermann Þór Marinósson matreiðslukennarar við Hótel og veitingaskólann. Tónlist í þætti dagsins: Dina Ögon - Mormor. Hundur í óskilum - Halló Akureyri. Memfismafían, Sigurður Guðmundsson Tónlistarm. - Orðin mín.

Mannlegi þátturinn
Leikfélag Akureyrar, matreiðslukennsla og Bréf úr sjálfskipaðri útlegð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 50:00

Björgvin Franz föstudagsgestur og áfram um samlokusalöt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 28, 2023 50:00

Björgvin Franz Gíslason leikari var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hann hefur komið víða við í skemmtanabransanum, hann sá um Stundina okkar í mörg ár, hann hefur auðvitað leikið í fjölda leiksýninga og í kvikmyndum og sjónvarpi, hann veislustýrir, syngur lögin hans Ragga Bjarna á öldrunarheimilum og nú síðustu ár hefur hann leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru hjá Leikfélagi Akureyrar. Í vetur hefur hann farið með stærsta karlhlutverkið í söngleiknum Chicago fyrir norðan og fékk frábæra dóma fyrir. Við ræddum við Björgvin Franz um lífið og tilveruna, ADHD, Jón Gnarr, Björn Hlyn, Ragga Bjarna og fleira og fleira. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað í þættinum. Í dag tókum við aftur upp þráðinn frá því í síðustu viku og héldum áfram að tala um samlokusalöt og einnig komu við sögu kartöflur og rauðmagi. Tónlist í þættinum í dag: Ég bið þig forláts / Raggi Bjarna (J.South og Iðunn Steinsdóttir) A ban I bin /Izhar, Cohen og Alpha Beta (Eurovision lag Ísraela 1978) OK / Langi Seli og Skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Skuggi og Erik Kvick) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

chicago south adhd bj franz fram hann gnarr akureyrar leikf franz g steinsd sigurlaugu margr
Mannlegi þátturinn
Björgvin Franz föstudagsgestur og áfram um samlokusalöt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 28, 2023

Lestin
Gunnur fer á Cannes, Beau is afraid, átök í húsfélaginu

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 27, 2023

Í gær var tilkynnt að stuttmyndin Fár verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í næsta mánuði, en það er fyrsta mynd leikstjórans og leiklistarnemans Gunnar Martinsdóttur Schlüter. Við fáum Gunni í heimsókn í Lest dagsins. Kolbeinn Rastrick rýnir í nýjustu mynd leikstjórans Ari Aster - sem hefur þótt einn sá framsæknasti og mest spennandi í bandaríkjunum undanfarin ár. Myndin nefnist Beau is afraid og skartar Joaquin Phoenix í titilhlutverkinu. Myndin þykir einstaklega skrítin og það er mjöög skiptar skoðanir á henni. Við heyrum hvað Kolbeinn segir um Beau. Um þessar mundir halda húsfélög aðalfundi sína með tilheyrandi átökum. Leikfélagið Hugleikur sem fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir gerir átök innan húsfélaga að viðfangsefni sínu í nýju gamanverki sem er sýnt í Kópavogi. Við forvitnumst um Húsfélagið og Hugleik síðar í þættinum.

Lestin
Gunnur fer á Cannes, Beau is afraid, átök í húsfélaginu

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 27, 2023 55:00

Í gær var tilkynnt að stuttmyndin Fár verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í næsta mánuði, en það er fyrsta mynd leikstjórans og leiklistarnemans Gunnar Martinsdóttur Schlüter. Við fáum Gunni í heimsókn í Lest dagsins. Kolbeinn Rastrick rýnir í nýjustu mynd leikstjórans Ari Aster - sem hefur þótt einn sá framsæknasti og mest spennandi í bandaríkjunum undanfarin ár. Myndin nefnist Beau is afraid og skartar Joaquin Phoenix í titilhlutverkinu. Myndin þykir einstaklega skrítin og það er mjöög skiptar skoðanir á henni. Við heyrum hvað Kolbeinn segir um Beau. Um þessar mundir halda húsfélög aðalfundi sína með tilheyrandi átökum. Leikfélagið Hugleikur sem fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir gerir átök innan húsfélaga að viðfangsefni sínu í nýju gamanverki sem er sýnt í Kópavogi. Við forvitnumst um Húsfélagið og Hugleik síðar í þættinum.

Víðsjá
Eldheit ástarbréf, Chicago og sjálfbærni í listum

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 9, 2023

Alvöru ástarbréf eru mögulega innilegustu textar sem fyrirfinnast og langflest þeirra hugsuð til lestrar í einrúmi. En ástarbréf á pappír eru þess eðlis að þau geymast, mörg hver í læstum kistlum innan um ryk og löngu gleymt dót í löngu gleymdum geymslum, allt þar til afkomendur ljúka kistlunum upp og þar með leyndarmálunum. FJöldi slíkra bréfa leynast í skjalasöfnum um allan heim, og það á einnig við um okkar eigið þjóðskjalasafn. Um helgina heldur félag um 18 aldar fræði málþing um ástarjátningar í bréfum og dagbókum. Meðal þeirra sem þar taka til máls er Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri Kvennasögusafns íslands, við heimsækjum hana í þætti dagsins, og fáum að kíkja í nokkur ástarbréf, meðal annars frá þjóðþekktum einstaklingum. Einnig segir Nína Hjálmarsdóttir okkur frá sinni upplifun af Chicago, sem Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mundir. En við byrjum á Hugarflugi, árlegri ráðstefnu Listaháskóla Íslands, sem hefst í dag og heldur áfram á morgun með stútfullri dagskrá af áhugaverðum málstofum og fyrirlestrum. Þema Hugarflugs í ár er: Margfeldi framtíða, þar sem hugleiddar verða þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og sem munu móta sameiginlega framtíð okkar. Steinunn Knúts-Önnudóttir segir okkur frá vídjóesseyju sem hún sýnir og fjallar um á ráðstefnunni, tengslum hennar við áherslur ráðstefnunnar og af pælingum sínum um sjálfbærni í listsköpun. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Eldheit ástarbréf, Chicago og sjálfbærni í listum

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 9, 2023 55:00

Eyþór Ingi föstudagsgestur og ristað brauð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 27, 2023 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, tónlistarmaður og skemmtikraftur. Hann er á 34 aldursári en hefur gert ótrúlega margt á sínum ferli. Hann var 15 ára gamall þegar hann fékk hlutverk í söngleiknum Oliver sem settur var upp hjá Leikfélagi Akureyrar og árið 2007 sigraði hann söngkeppni framhaldsskólanna. Árið 2008 vann hann í keppninni Bandið hans Bubba, sem var á Stöð 2 og eftir það var ekki aftur snúið, Eyþór Ingi var mættur í bransann. Hann söng fyrir Íslands hönd í Eurovision lagið Ég á líf árið 2013, hann lék eitt aðalhlutverkið í Rocky Horror og nú síðustu ár hefur hann einn og sér farið um landið fyrir jólin og fyllt félagsheimili og kirkjur með fallegum söng og eftirhermum í bland. Eyþór hefur frá barnæsku haldið mikið upp á Ladda og í rauninni hefur hann leikið og hermt á eftir grínkarakterum Ladda síðan í æsku. Laddi og Eyþór eru góðir vinir í dag og hafa komið talsvert fram saman og enn er tækifæri til að sjá þá í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Í matarspjallinu í dag töluðum við um ristað brauð. Og ristað brauð er ekki bara ristað brauð. Það voru ræddar ýmsar útfærslur og minningar tengdu því í matarspjallinu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Amorsvísa (Til Soffíu) / Eyþór Ingi og Atómskáldin (Eyþór Ingi Gunnlaugsson) Ég á líf / Eyþór Ingi Gunnlaugsson (Örlygur Smári og Pétur Örn Guðmundsson) Ristað brauð með smjöri / Hemmi Gunn og Rúnar Júlíusson (texti Rúnar Júlíusson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Eyþór Ingi föstudagsgestur og ristað brauð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 27, 2023

Allt sem rennur, Tól, Bókabíllinn, Hamingjudagar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 7, 2022 55:00

Nýverið bárust fregnir af því að bókabíllinn muni aka sína síðustu ferð undir lok þessa árs. Þegar bílnum verður lagt í hinsta sinn mun 53 ára sögu þessa menningarfyrirbærist ljúka, endalok sem lestrarhestar og nostalgískar sálir eflaust syrgja. Ástæðan er viðbragð við hárri niðurskurðarkröfu borgarinnar, en bókabíllinn er fyrir löngu komin til ára sinna og kostar skv borgarbókaverði hátt í 100 milljónir að endurnýja hann. Við lítum inn í bílinn í þætti dagsins. Fyrr í þessum mánuði kom ljóðsaga Bergþóru Snæbjörnsdóttur, Allt sem rennur, út hjá Benedikt forlagi. Á morgun er svo útgáfudagur nýrrar skáldsögu eftir Kristínu Eiríksdóttur, sem ber titilinn Tól. Þær Bergþóra og Kristín lásu yfir handritin hjá hvor annarri og settust niður til að ræða ritferlið, heimildavinnu og mörk skáldskapar og veruleika sín á milli. Við fáum að vera fluga á vegg í því samtali undir lok þáttar. Í Borgarleikhúsinu standa nú yfir sýningar á uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Hamingjudögum eftir Samuel Becketts. Það er Harpa Arnardóttir sem leikstýrir uppsetningu á verkinu sem talið er eitt höfuðverka Becketts. Eva Halldóra Guðmundsdóttir segir frá sinni upplifun. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Allt sem rennur, Tól, Bókabíllinn, Hamingjudagar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 7, 2022

Betri helmingurinn með Ása
#73 - Margrét Eir & Jökull

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Sep 14, 2022 104:54

Söng og leikkonan Margrét Eir Hönnudóttir og hennar betri helmingur, tónlistarmaðurinn Jökull Jörgensen eru gestir vikunnar í Betri helmingnum.Margrét Eir ætti að vera flestum kunnug fyrir sína einstaklega fallegu söngrödd og hefur Margrét komið víða við í tónlistinni og sungið við hin ýmsu tilefni í áraraðir. Margrét er mikið jólabarn og er því ekki að undra að það ber mikið á henni á þeim tíma árs og hefur hún spilað lykilhlutverk í Frostrósum. Margrét hefur einnig verið áberandi á leikferli sínum og ætti ekki að koma á óvart að hún sé eftirsótt leikkona í söngleikjum, og er hún þessa dagana að æfa sýninguna Chicago sem sýnd verður í Leikfélagi Akureyrar nú í vetur.Jökull hefur líka komið víða við í tónlistinni og hefur leikið á bassa með mörgum af helstu tónlistarmönnum landsins. Saman eru þau svo í hljómsveitinni Thin Jim and the Castaways sem átti lag sem tilnefnt var til íslensku tónlistarverðlaunanna á síðasta ári.Margrét og Jökull sáust fyrst á tónleikum hjá Fabúlu á Rósenberg þar sem Jökull var að leika á bassan og augu þeirra mættust þvert í gegnum salinn. Margrét var skeptísk á hann í fyrstu, þar sem henni fannst hann full náin henni Fabúlu. Hún lét þó ekki deigan síga, sendi honum skilaboð á Myspace and the rest is history og eru þau í dag hamingjusamlega gift og spennandi tímar framundan.Í þættinum ræddum við tónlistarlífið, drauminn sem varð að veruleika í Nashville, ferðalög, sameiningu fjölskyldunar ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Jökull kom Margréti í nánast sjálfheldu á Esjunni.Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

Mannlegi þátturinn
Hádegisfyrirlestur RIKK, þrítug stórsveit og leikárið fyrir norðan

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 13, 2022

Mamma, mamma, börn og bíll. Hinsegin fjölskyldur í fjölmiðlum 2010-2021 er nafnið á fyrirlestri sem fram fer á fimmtudaginn og er hluti af hádegisfyrirlestraröð RIKK, Rannsóknarstofnunar í jafnréttisfræðum við HÍ. Það er ekki nýtt að hinsegin fólk stofni fjölskyldu og ali upp börn en leið þess að fjölskyldumyndun hefur verið misgreið eftir tímabilum og samfélagsháttum. Í fyrirlestrinum er fjallað um rannsókn sem stendur yfir á birtingamyndum hinsegin fjölskyldna í prentmiðlum á Íslandi á árunum 2010-2021. Íris Ellenberger, sagnfræðingur og dósent við mennta- og vísindasvið Háskóla Íslands, flytur fyrirlesturinn ásamt Auði Magndís Auðardóttur, lektor í uppeldis- og menntunarfræði. Íris kom í þáttinn og sagði okkur meira frá þessu. Stórsveit Reykjavíkur fagnar 30 ára afmæli með stórtónleikum í Eldborg 18. september og í tilefni af afmælinu býður Stórsveitin landsmönnum á ókeypis á tónleikana. Á þriggja áratuga ferli hefur Stórsveit Reykjavíkur haldið vel á þriðja hundrað tónleika og gefið út 10 geisladiska. Sveitin hefur lagt sig eftir fjölbreyttu verkefnavali, frumflutt mikið af nýrri íslenskri tónlist, leikið sögulega mikilvæga stórsveitatónlist, leikið fyrir börn og átt samstarf við fjölmarga aðila af sviði íslenskrar popptónlistar. Sveitin hefur margsinnis hlotið íslensku tónlistarverðlaunin. Sigurður Flosason kom í þáttinn í dag. Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar kom svo til okkar og sagði frá því sem verður á fjölunum fyrir norðan í vetur og rifjaði upp skemmtilega sögu þegar hún stökk samdægurs inn í eitt af aðalhlutverkunum í söngleiknum Chicago í Borgarleikhúsinu árið 2004, en sá söngleikur er einmitt á dagskrá LA í vetur. Tónlist í þættinum í dag: Stella í orlofi / Diddú (Valgeir Guðjónsson) Down South Camp Meeting / Manhattan Transfer (Irving Mills) 23 In the mood / Stórsveit Reykjavíkur (Glenn Miller, Andy Razaf og Joe Garland) Razzle dazzle / Richard Gere (John Kander og Fred Ebb) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Hádegisfyrirlestur RIKK, þrítug stórsveit og leikárið fyrir norðan

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 13, 2022 50:00

Halldór Gylfason föstudagsgestur og hlaðborðsmatarspjall með honum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 22, 2022 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og tónlistarmaðurinn Halldór Gylfason. Hann á 25 ára útskriftarafmæli frá Leiklistarskóla Íslands nú í vor og hefur allar götur síðan verið að vinna í leikhúsunum. Lengst af hefur hann verið á samningi í Borgarleikhúsinu hjá Leikfélagi Reykjavíkur og þar hefur hann leikið í hátt í 100 uppsetningum. Hann frumsýndi fyrir skemmstu í leikritinu Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson og nýlega var einnig frumsýnd kvikmyndin Allra síðasta veiðiferðin þar sem hann fer með eitt af aðalhlutverkunum. Við ræddum við Halldór um æskuna og uppvöxtinn í Vogahverfinu, tónlistina, íþróttirnar, Þróttara og fórum með honum í ferðalag í gegnum lífið til dagsins í dag. Halldór sat svo áfram með okkur í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti, besta vini bragðlaukanna. Þar sagði Halldór frá sínum uppáhaldsmat, hvernig maður ber sig að við hlaðborð, hvað var í matinn á hans æskuheimili og hvað hann eldar helst. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Halldór Gylfason föstudagsgestur og hlaðborðsmatarspjall með honum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 22, 2022

Marga hildi háð, Hafnarborg, Skugga-Sveinn, Sviðslistamiðstöð

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 21, 2022

Í gallerí Port sýnir Hildur Ása Henrýsdóttir skúlptúr, olíuverk og vatnslitaverk á sýningu sem hún kallar Marga hildi háð. Á sýningunni er að finna sjálfsævisöguleg verk þar sem listakonan veltir fyrir sér áhrifum áfalla, vonlausra stefnumóta og pressu neyslusamfélagsins á sjálfmyndina. Líkamar togna og bogna og leysast upp í verkum Hildar, kannski sem viðbragð við kerfum sem gera lífið flóknara en það þyrfti að vera. Meira um verk Hildar hér undir lok þáttar. Við hittum líka í þættinum Friðrik Friðriksson sem er framkvæmdastjóri nýrrar Sviðslistamiðstöðvar Íslands sem stofnsett var í fyrra, en í um það bil áratug hefur verið kallað eftir stofnun hennar. Sviðslistamiðstöð er ætlað að starfa að vexti og viðgangi íslenskra sviðslista innanlands og utan, skapa tengsl, áhuga og umræðu um sviðslistir. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir lagði leið sína í Hafnarfjörðinn að skoða sýningu Hallgerðar Hallgrímsdóttur, ?Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun ? III. hluti?, sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands og býður áhorfendum upp í athyglisverðan könnunarleiðangur um ljósmyndamiðilinn. Og annar af tveimur leikhúsrýnum okkar hér í Víðsjá, Eva Halldóra Guðmundsdóttir, brá sér norður í Vetrarfríinu og skellti sér að sjálfsögðu á frumsýningu á uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Skugga-Sveini. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Víðsjá
Marga hildi háð, Hafnarborg, Skugga-Sveinn, Sviðslistamiðstöð

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 21, 2022 55:00

Leikfélag Akureyrar, Pólifónía, Jón Kalman, Hunden bakom mannen

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 29, 2021 55:00

Við erum til og við erum mörg. Það er eftirspurn eftir okkar skáldskap og hér er svarið. Þetta er einskonar fæðing innflytjendabókmennta á Íslandi. Svo segir í formála Pólifóníu af erlendum uppruna, en það er ljóðasafn eftir fimmtán skáld frá tólf löndum sem öll eru búsett hér á landi. Ritstjórinn, Natasha Stolyarova, segir okkur frá verkinu í þætti dagsins. Guðni heldur áfram að rölta á milli menningarstofnana í höfuðstað Norðurlands. Að þessi sinni bankar hann upp á hjá Mörtu Nordal, leikhússtjóra leikfélags Akureyrar. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna ljóðabók Jóns Kalmans, Djöflarnir taka á sig náðir og vakna sem guðir og Snæbjörn Brynjarsson fjallar um leikhúsverkið Hunden bakom mannen, eftir sviðslistahópinn Losta.

Sögur af landi
Sunna Borg og Eyrin á Ísafirði

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Nov 26, 2021

Við hefjum þáttinn á viðtali við leikkonuna Sunnu Borg. Sunna er nú við æfingar á nýrri uppsetningu á Skugga-Sveini sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir á nýju ári. Verkið er eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson og mun Sunna fara með hlutverk hinnar þekktu Grasa-Guddu. Að lokum er flakkað um Eyrina á Ísafirði, en Ísafjarðarbær óskaði á dögunum eftir athugasemdum vegna fyrirhugaðrar landfyllingar við norðanverða Eyrina á Ísafirði. Óskað er eftir athugasemdum við skipulagslýsingu sem er fyrsta skref nýs skipulags. Hugmyndin að landfyllingunni er til komin vegna hafnarframkvæmda sem standa nú yfir á Ísafirði því þar fellur til mikið efni. Markmiðið með landfyllingunni og skipulagsbreytingunni er því að nýta þetta efni til að auka byggingarland á Ísafirði. Landfyllingar á Eyrinni eru hins vegar ekki nýjar á nálinni, stór hluti Eyrarinnar á Ísafirði er landfylling og upprunalega Eyrin aðeins brotabrot af Eyrinni í dag. Halla Ólafsdóttir, dagskrárgerðarkona á Ísafirði, hitti Jónu Símoníu Bjarnadóttur, sagnfræðing og forstöðukonu Byggðasafns Vestfjarða, og forvitnaðist um sögu Eyrarinnar á Ísafirði. Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson og Halla Ólafsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Morgunvaktin
Trú og loftslagsmál, ferðalög og ljóð

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 29, 2021 130:00

Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í guðfræði- og trúarbragðafræðum við Háskóla Íslands, stýrir málþinginu Öll á sama báti - Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar, sem verður haldið í dag á vegum Stofnunar Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Hún segir að loftslagsváin sé eitthvað sem skipti alla máli, þar á meðal trúarhreyfingar, en líkt og fram hefur komið hefði sú sátt sem náðist í París fyrir sex árum sennilega ekki orðið að veruleika ef fulltrúa ríkja hefðu einir komið að verki. Þarna skipti miklu máli að trúarleiðtogar komu að samningaborðinu. Arnfríður segir að grípa verði til aðgerða fyrir komandi kynslóðir, ábyrgðin sé okkar enda hægt að rekja þessar hamfarir til gjörða mannsins. Þetta áhafi sennilega mest og um leið verst áhrif á þá sem minna mega sín. Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 í árlegu vali ferðabókaútgefandans Lonely Planet yfir staði til að heimsækja árið 2022 og fjallaði Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, meðal annars um valið í ferðapistli sínum. Jón Hjartarson, leikari og ljóðskáld kom á Morgunvaktina en hann hlaut nýverið Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar fyrir sína fyrstu ljóðabók, Troðninga. Jón Hjartarson var um árabil leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hefur leikið ótal hlutverk á sviði, í sjónvarpi, útvarpi og kvikmyndum. Jón er höfundur fjölmargra leikrita og leikgerða fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Hann hefur einnig skrifað samtalsbækur og samið fjölda skemmtiþátta, pistla og söngtexta. Jón las meðal annars tvö ljóð úr bókinni fyrir hlustendur Rásar 1. Tónlist: American pie og Vincent með Don McLean. Forsjá með Agnari Má Magnússyni. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Morgunútvarpið
22. okt. - Fyrsti kossinn, verkfræði, Guðríður, fréttir, Leynilögga

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 22, 2021 130:00

Í kvöld verður söngleikurinn Fyrsti kossinn frumsýndur í Frumleikhúsinu í Keflavík. Um er að ræða verk, eins og nafnið bendir til, þar sem tónlist Rúnars Júlíussonar heitins er í forgrunni, en höfundar verksins eru parið Brynja Ýr Júlíusdóttir, barnabarn Rúnars, og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Hulda heimsótti þau, ásamt Guðnýju Kristjánsdóttur móður Brynju og leikkonu, í hið sögufræga hljóðver Geimstein í Keflavík og fékk að vita meira um verkið og starfsemi Leikfélags Keflavíkur sem fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Í dag er dagur verkfræðinnar og af því tilefni blása verkfræðingar til samkomu þar sem boðið verður upp á ýmis konar fróðleik og verðlaunaafhendingar. Hörn Hrafnsdóttir vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís er á meðal fyrirlesara en hún ræðir innviði á Reykjanesskaga og verkfræðileg úrlausnarefni vegna eldgosa. Hörn kom til okkar. Drengurinn sem dó úr leiðindum er titillinn á nýrri barnabók eftir Guðríði Baldvinsdóttur, en Guðríður er ekki bara rithöfundur heldur er hún líka sauðfjárbóndi, frumkvöðull og skógfræðingur. Við slógum á þráðinn til Guðríðar sem býr á bænum Lóni II í Kelduhverfi. Fréttir vikunnar voru á sínum stað og gestir okkar að þessu sinni voru þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og leikstjóri. Kvikmyndin Leynilögga var frumsýnd í vikunni hér á landi og óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið góð. Fólk hefur streymt í bíó síðustu daga til að sjá myndina, ýmist í útgáfu fyrir 12 ára og eldri eða 16 ára og eldri, og stefnir í metaðsókn þessa fyrstu viku. Að auki hefur myndin vakið lukku á kvikmyndahátíðum erlendis og eru fleiri slíkar á dagskrá. Við fengum Auðunn Blöndal sem leikur aðalhlutverkið til okkar í spjall. Tónlist: Sigurður Guðmundsson - Kartöflur. Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig. Adele - Easy on me. Baggalútur - Ég á það skilið. Faith no more - Easy. Nýdönsk - Hjálpaðu mér upp. Ed Sheeran - Shivers.

Mannlegi þátturinn
Marta leikhússtjóri LA og Trausti Valsson og Plan B

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 23, 2021 50:00

Fimmtudagar í Mannlega þættinum í september eru helgaðir sviðslistum. Í dag tengdumst við hljóðveri RÚV á Akureyri, þar var Marta Nordal leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Við fengum að vita hvernig ástandið í kófinu hefur farið með leikhúslífið fyrir norðan og forvitnuðumst um dagskrá vetrarins sem er rétt nýhafinn. Svo fengum við Trausta Valsson, prófessor emiritus í skipulagi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, í þáttinn. Hann skrifaði bók fyrir 15 árum sem heitir How the World will Change... With Global Warming. Þessi bók var líklega fyrsta bókin í heiminum sem lýsir, með aðferðum skipulagsfræði, hvernig hnattræn mynstur byggða og kerfa mun breytast ef ekki tekst að stöðva hlýnunina. Og í bókinni dró hann upp það sem hann kallaði Plan B. Sem sagt hvað væri hægt að gera ef jarðarbúar myndu ekki ná markmiðum sínum í að halda hlýnun jarðar niðri. Nú 15 árum síðar ætlar hann að halda fyrirlestur um málið, kl. 12 á morgun, föstudag, í Þjóðminjasafninu, þar sem hann fer yfir stöðuna og skoðar þetta Plan B, miðað við stöðu mála í dag. Við fengum Trausta til að segja okkur betur frá þessu í þættinum. Þess má geta að fyrirlestrinum verður streymt á netinu, ef fólk leitar að Trausta Valssyni á facebook verður hægt að sjá hlekk sem hægt verður að smella á til að annað hvort horfa á í beinni útsendingu, eða að horfa á upptökuna. UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Morgunútvarpið
17. sep - Bláskelin, krakkakosning, leikhús, fréttir og hégómavísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 17, 2021 130:00

Í gær á degi náttúrunnar kom í ljós hver hlyti Bláskelina þetta árið, en Bláskelin er viðurkenning sem veitt er fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi. Í ár var það fyrirtækið Pure North Recycling sem hlaut viðurkenninguna. Börkur Smári Kristinsson, rannsóknar- og þróunarstjóri hjá Pure North Recycling, og Gró Einarsdóttir, sérfræðingur í teymi Hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun, komu og sögðu okkur nánar frá þessari viðurkenningu. Kosningafundur barna var haldinn í gær. Þar fengu börn tækifæri til að spyrja frambjóðendur um helstu áherslur flokkanna í málefnum barna auk þess að spyrja um þau málefni sem helst brenna á þeim. Í kjölfarið verður svo efnt til krakkakosninga í fjölmörgum grunnskólum landsins. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, kom og sagði okkur meira af þessu. Leikhúsin eru að komast á fullt og við hér í Morgunútvarpinu erum áhugasöm um hvað bíður áhorfenda á komandi leikári. Í dag ætlum við að forvitnast um hvað verður á boðstólnum hjá Leikfélagi Akureyrar. Marta Nordal leikhússtjóri kom til okkar. Í fréttir vikunnar að þessu sinni fengum við þau Silju Úlfarsdóttur upplýsinga- og kynningafulltrúa ÍBR og Elfar Loga Hannesson leikara sem fóru yfir það sem þeim fannst áhugaverðast í vikunni. Hégómavísindahornið er hjá okkur annan hvern föstudag og í dag þá kom Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður, til okkar og fór yfir fréttir af fræga fólkinu. Tónlist: Sycamore tree - Bright new day Fleetwood Mac - Everywhere Post Malone - Only wanna be with you Nýdönsk - Diskó Berlín Snorri Helgason - Haustið 97 Jet black Joe ásamt Sigríði Guðnadóttur - Freedom Abba - Don't shut me down

Morgunvaktin
Skýjað með köflum í alþjóðasamstarfi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later May 27, 2021 130:00

Gliðnun í alþjóðasamstarfi í heimsfaraldrinum hefur verið til umfjöllunar eftir nýja skýrslu sem sýndi fram á að norrænu ríkin fóru í mörgu eigin leiðir í aðgerðum gegn veirunni án samstarfs eða samráðs sem einkennt hefur sambúð Norðurlandanna í áratugi. Viðmælandi í dag um heimsmálin var Stefanía Óskarsdóttir, dósent við stjórnmáladeild HÍ. Spurð hvernig heimurinn blasi við henni svaraði hún "skýjað með köflum." Grasspretta hefur farið hægt af stað þetta vorið enda næturfrost víða um land langt fram eftir maí. Ljóst er að tún verða slegin seinna í ár en oft áður en erfitt að segja til um hvernig almennt heyjast í sumar. Bændur vilja rigningu. Eiríkur Loftsson ráðunautur í jarðrækt hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ræddi stöðu mála. Einhverju furðulegasta leikári í langri sögu Leikfélags Reykjavíkur er að ljúka. Starfsemi leikhússins hefur, eins og svo að segja allt í samfélaginu, markast af lokunum löngum tíðum vegna covid. Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússstjóri spjallaði um áskoranir leikhússins og nýtt leikár sem hefst í haust. Tónlist: Here comes the sun - Bítlarnir Sólin er komin - Mugison, Þykjustuleikur - Gréta Sigurjónsdóttir, Kisa mín - Helgi Hjörvar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhildur Þorkelsdóttir.

Sunnudagssögur
Birna Pétursdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Mar 21, 2021

Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við leikkonuna Birnu Pétursdóttur í hljóðveri á Akureyri. Birna er þessa dagana að leika í fjölskyldusöngleiknum Benedikt búálfi og gamanleiknum Fullorðin hjá Leikfélagi Akureyrar. Birna ræðir uppvöxtinn á Egilstöðum og hvernig hún hefur unnið ötullega að því í gegnum tíðina að geta starfað sem leikkona. Hún segir einnig frá listrænum tengingum aftur í ættir og frá ferðalagi sínu á slóðir íslenskra mormóna í Utah.

Sunnudagssögur
Birna Pétursdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Mar 21, 2021 75:00

Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við leikkonuna Birnu Pétursdóttur í hljóðveri á Akureyri. Birna er þessa dagana að leika í fjölskyldusöngleiknum Benedikt búálfi og gamanleiknum Fullorðin hjá Leikfélagi Akureyrar. Birna ræðir uppvöxtinn á Egilstöðum og hvernig hún hefur unnið ötullega að því í gegnum tíðina að geta starfað sem leikkona. Hún segir einnig frá listrænum tengingum aftur í ættir og frá ferðalagi sínu á slóðir íslenskra mormóna í Utah.

Lestin
Pólsk-íslenskt leikfélag, píkusleikingar, glæpir borga sig

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 26, 2021 55:00

Leikfélagið Pólis frumsýnir nýtt verk í Tjarnarbíóí byrjun febrúar - Co Za Poroniony Pomysl eða Úff, hvað þetta er slæm hugmynd! Tveir af leikurum verksins, Ólafur Ásgeirsson og Jakub Ziemann, setjast um borð í Lestina og ræða grín, tungumál og dualingo. Í pistli sínum rifjar Halldór Armand Ásgeirsson upp dularfullt atvik frá unglingsárum sínum, atvik sem sannfærði hann um að glæpir borgi sig. Og við veltum fyrir okkur ferðum suður á bóginn, förum norður og niður og gælum við þá hugmynd að mögulega fari munnmökum við píkur fjölgandi í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.

armand halld tveir borga tjarnarb leikf lestina
Morgunútvarpið
15. jan.- Leikhús, þorrablót, orð ársins, veitingarekstur, Lífsbiblían

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 15, 2021 130:00

Leikhúsin geta nú loks hafið sýningar að nýju og hjá Leikfélagi Akureyrar var nýlega frumsýndur gamanleikurinn Fullorðin. Gígja Hólmgeirsdóttir spjallaði við tvo af leikurum verksins, þau Birnu Pétursdóttur og Vilhjálm B. Bragason, og hvernig er að geta staðið aftur á sviðinu með áhorfendur í salnum. Við ræddum þorrablótin um daginn og hvernig fólk hyggst fara nýjar leiðir í þeim efnum. Einn þeirra sem ætlar að bjóða upp á rafrænt þorrablót um land allt er Guðjón Þór Guðmundsson veitingamaður og við heyrðum aðeins í honum með hvernig það verður útfært. Um 600 manns kusu orð ársins í Facebook hópnum Málfarslögreglan. Atli Týr Ægisson er maðurinn á bakvið síðuna og hann var á línunni hjá okkur og sagði okkur frá hópnum og hvaða orð var valið orð ársins. Samtök fyrirtækja í veitingarekstri hafa sent frá sér áskorun til stjórnvalda þar sem þau eru hvött til bregðast við erfiðri stöðu veitingageirans tafarlaust áður en fleiri veitingastaðir gefast upp og falla með tilheyrandi kostnað fyrir samfélagið. Emil Helgi Lárusson og Hrefna Björk Sverrisdóttir komu til okkar og ræddu þessa stöðu. Flestar bækur koma út fyrir jólin ár hvert en sú bók sem situr nú á toppi sölulistans núna kom út eftir áramót. Það er Lífsbiblían eftir þær Öldu Karen Hjaltalín og Silju Björk Björnsdóttur. Þær stöllur komu til okkar í morgunspjall. Tónlist: Buff - Enginn nema þú. Elvis Costello - Alison. Sigrún Stella - So cold. Greentea Peng - Hu Man. Big Country - Look away. Bubbi Morthens - Á horni hamingjunnar. Herra Hnetusmjör - Stjörnurnar. The Weeknd - Save your tears. Daði Freyr og Ásdís - Feel the love. Bee Gees - Nights on Broadway.

Víðsjá
Djass, Eyja, Sláturtíð, Viðvörunarmerki

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 7, 2020 55:00

Í Víðsjá í dag verður rætt við Agnar Má Magnússon djasspíanóleikara um nýja plötu hans sem að heitir Mór og þar sem Agnar vinnur með þjóðlegan tónlistararf Íslendinga og setur hann í nýjan búning. Sviðslistaverkið Eyja var fyrsta verkið sem frumsýnt var hjá Leikfélagi Akureyrar á nýju leikári. Þar var leikfélagið að prófa nýjar leiðir til þess að aðlaga sig að veiru-veruleikanum, en í verkinu ferðuðust áhorfendur í litlum hópum um Hrísey í fylgd með börnum sem þar búa. Verkið skapaði sviðslistamaðurinn Steinunn Knútsdóttir, og vann hún það í nánu samstarfi við Grétu Kristínu Ómarsdóttur, leikstjóra, en Gréta er fædd og uppalin í Hrísey og því öllum hnútum kunnug. Rætt verður við Steinunni í þætti dagsins. Bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er Sláturtíð eftir Gunnar Theodór Eggertsson frá 2019. Bókin er skáldsaga þar sem barátta dýraréttindasinna er í brennidepli, en Gunnar Theodór skrifaði á sínum tíma doktorsritgerð um bókmenntir og dýrasiðfræði. Hlustendur heyra í Gunnari í þættinum í dag. Og viðvörunarmerki koma við sögu að gefnu tilefni í Víðsjá í dag. Umsjón Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson.

Morgunútvarpið
21. ágúst - Tæring, snertilaust, sund, fréttaspjall og Spilakaffi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 21, 2020 130:00

Æfingar eru hafnar á sviðslistaverki sem nefnist Tæring, þar sem kafað verður ofan í sögur og minningarbrot sem borist hafa Hælinu, setri um sögu berklanna sem frumkvöðullinn María Pálsdóttir rekur á Kristnesi í Eyjafirði. Verkefnið hlaut styrk í aukaúthlutun Leiklistarráðs í vor og er samstarfsverkefni Hælisins og Leikfélags Akureyrar. Gígja Hólmgeirsdóttir heimsótti Hælið og spjallaði þar við Völu Ómarsdóttur, leikstjóra sýningarinnar, og leikkonuna Kolbrúnu Lilju Guðnadóttur á æfingu í vikunni. Ferðamenn munu gera kröfu um sem snertilausastan ferðamáta frá því að þeir yfirgefa heimili sitt í upprunalandinu og þar til þeir stíga inn á hótelherbergið sitt á áfangastað sem og í sem flestum upplifunum á meðan á ferðalaginu stendur segir Inga Rós Antoníusdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu í nýrri grein. Hún útskýrði fyrir okkur í þættinum hvernig snertilaus ferðaþjónusta gengur fyrir sig. Kristín Jórunn Hjartardóttir setti sér markmið fyrir rúmu ári síðan - að synda á 60 stöðum í sjó, ám og vötnum fyrir sextugsafmælið sitt sem var fyrr í þessum mánuði. Hún hafði heilmikið fyrir því, en markmiðinu náði hún. Kristín kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur af sundævintýrum sínum um landið. Fréttir vikunnar snéru aftur og gestir okkar að þessu sinni voru þau Áslaug Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ, og Hallgrímur Helgason, rithöfundur. Fyrsta spilakaffihúsið á Íslandi opnaði á dögunum en þar getur fólk komið, gætt sér á veitingum og spilað alls kyns spil í huggulegum spilastofum. Spilin sem eru í boði eru um tvö þúsund og er ýmist hægt að fá þau lánuð á meðan spilað er, eða keypt ef mann langar að halda áfram heima. Hulda gerði sér ferð á Spilakaffihúsið í Reykjavík og hitti þar fyrir tvö úr eigendahópnum, þau Þorlák Lúðvíksson, eða Þorra eins og hann er kallaður, og Svanhildi Evu Stefánsdóttur. Tónlist: Ellen Kristjánsdóttir - I miss you tonight. Aretha Franklin - (You make me feel like) A natural woman. Commodores - Easy. Hafdís Huld - Synchronized swimmers. Thin Jim and the castaways - Piltur og stúlka (ft. Björgvin Halldórsson). Bryan Adams - Run to you. Miley Cyrus - Midnight sky.

Morgunútvarpið
20. feb. - Sviðslistir, vinnustaðapartý, eldri borgarar, verkfall og m

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 20, 2020 130:00

Áhersla verður lögð á leiklist, dans, tónlist, tækni og hönnun á nýrri námsbraut í sviðslistum, sem verður bráðlega í boði fyrir nemendur í Menntaskólanum á Akureyri. Brautin er samstarfsverkefni milli MA og Leikfélags Akureyrar. Þær Alma Oddgeirsdóttir og Vala Fannell mættu í hljóðver á Akureyri og sögðu nánar frá þessari nýju námsbraut. Ragnheiður Björnsdóttir, fjölskylduráðgjafi, kom til okkar en hún segir að makalaus vinnustaðapartý geti valdið erfiðleikum í parasamböndum og vill að fyrirtæki marki sér stefnu og meti hvort þau henti vinnustaðnum eða ekki. Félagsráðgjafaþing fer fram á morgun og þar verður fjallað um fjölbreytta málaflokka er varða störf félagsráðgjafa. Halldór S. Guðmundsson er einn þeirra sem þar leiðir málstofu en hann kynnir nýsköpunar og þróunarverkefni í dagþjálfun fyrir aldraða og fjallar um nýjar aðferðir og áherslur í þjónustu við eldra fólk. Halldór kom til okkar. Það er útlit fyrir að verkfall Eflingar dragist á langinn eftir að samningafundi félagsins og Reykjavíkurborgar var slitið í gær. Í framhaldinu kom fram í yfirlýsingu frá Eflingu að félagið fordæmi hræsni Reykjavíkurbogar, þögn og ábyrgðarleysi og í Kastljósi í gærkvöldsins kom fram í máli borgarstjóra að hann væri ekki bjartsýnn á framhaldið. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, var hjá okkur í dag. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur heimsótti okkur og fjallaði um samhverfur. Tónlist: Bríet - Ómissandi fólk. Eurythmics - Here comes the rain again. Nýdönsk - Á plánetunni jörð. Cadem - Fyrir alla. Mezzoforte og Auður - Cadem. Vök - Spend the love. OMAM - Wild roses. Stuðmenn - Elsku vinur. Amabadama - Óráð. Keane - The way I feel. Prins Póló - Líf ertu að grínast.

Sögur af landi
Söngleikur í Samkomuhúsinu. Réttindi fatlaðs fólks. Pönkaður forstjóri

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Feb 7, 2020

Í þættinum verður farið í heimsókn í Samkomuhúsið á Akureyri þar sem rætt verður við leik- og söngkonuna Jónínu Björt Gunnarsdóttur, sem sýnir um þessar mundir söngleikinn Vorið vaknar hjá Leikfélagi Akureyrar. Einnig verður rætt við Ingu Margrétar- Bjarnadóttur baráttukonu, um hindranir sem mæta fötluðu fólki til dæmis innan menntakerfisins. Að lokum verður spjallað við Eydísi Líndal Finnbogadóttur forstjóra Landmælinga Íslands og meðlim í kvennapönkhljómsveitinni Hellidembu. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Morgunútvarpið
10. jan. - EM, Rúnar Kristinn, kýr á flandri, fréttaspjall og hégómi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 10, 2020 130:00

Okkar menn leika sinn fyrsta leik á EM karla í handbolta á morgun. Fulltrúar íþróttadeildarinnar fóru utan í gær og við slógum á þráðinn til Svíþjóðar og heyrðum í Einar Erni Jónssyni og fengum fréttir af aðstæðum og stemmingu hjá íslenska liðinu. Rúnar Kristinn Rúnarsson er einn þeirra sem mun stíga á svið hjá Leikfélagi Akureyrar þegar söngleikurinn Vorið vaknar verður frumsýndur í lok janúar. Rúnar er menntaður leikari frá London og hefur frá útskrift fengist við mörg ólík verkefni, m.a. að sigla um heimsins höf og sýna söngleiki um borð í skemmtiferðaskipum. Gígja Hólmgeirsdóttir fékk Rúnar í hljóðver á Akureyri og spjallaði við hann um söngleikjalífið. Frétt af næturbrölti borgfirskra kúa fór víða um vefmiðla í gær, en kýrnar á Hvanneyrarbúinu gerðu sér lítið fyrir og brutust út úr fjósinu í fyrrinótt. Hafþór Finnbogason fjósameistari á Hvanneyri kom að opnu fjósi og varð hressilega hverft við. Við heyrðum í Hafþóri. Eins og vanalega litum við yfir fréttir vikunnar á föstudögum og þar voru gestir okkar þau Bára Huld Beck blaðamaður og Sólmundur Hólm skemmtikraftur og fjölmiðlamaður. Við lokuðum svo vikunni með innliti í hégómavísindahorn Freys Gígju þar sem Megxit kom m.a. við sögu. Tónlist: Magni og Ágústa Eva - Þar til storminn hefur lægt. Alison - Elvis Costello. Maggie Rogers - Love you for a long time. John Mayer - I guess I just feel like. Mark Ronson og King Princess - Happy together. Vök - In the dark. Svavar Knútur og Markéta Irglová - Baby would you marry me. Kiriyama Family - Weekends.

Segðu mér
Sváfnir Sigurðarson kynningarfulltrúi og tónlistarmaður

Segðu mér

Play Episode Listen Later Nov 25, 2019 40:00

Sváfnir Sigurðarsson sagði frá uppvextinum í Kópavogi, hvernig hann eyddi mörgum stundum hjá Leikfélagi Kópavogs en foreldrar hans voru öflug í starfsemi leikfélagsins, hann segir brosandi að það hafi ekkert annað komið til greina en að vinn aí leikhúsinu en hann hafi fljótlega gert sér grein fyrir því að honum leið ekki vel á sviði. Hann hef yndi af því að starfa að markaðs- og kynningarmálum fyrir listastofnanir og var áður hjá Sinfóníunni og í Borgarleikhúsinu, og starfar hjá Þjóleikhúsinu í dag. Hann talar um tónlistina sína og lögin sem hafa hljómað víða og hafa slegið í gegn.

Vikulokin
Bjarni, Lára og María Rut

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 2, 2019 55:00

Gestir þáttarins voru Bjarni Karlsson prestur, Lára Magnúsdóttir sagnfræðingur og María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar. Rætt var um stöðu þjóðkirkjunnar og afsökunarbeiðni biskups til samfélags samkynhneigðra, úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur um að Leikfélag Reykjavíkur hafi brotið á Atla Rafni Sigurðarsyni þegar honum var sagt upp störfum, og dóm Hæstaréttar um að Barnaverndarstofu hafi verið óheimilt að leyfa Freyju Haraldsdóttur ekki að fara á námskeið til að meta hvort hún yrði hæf til að vera fósturforeldri. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Mark Eldred

Víðsjá
Gjörningar, Sigurhæðir, Jóhanna K. Yngvadóttir og Sequences

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 9, 2019 55:00

Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar segir frá gjörningalistahátíðinni A! sem hefst fyrir norðan á morgun og stendur fram á sunnudag. Fjölmargir listamenn koma fram á hátíðinni sem er samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og Menningarhússins Hofs. Ráðmenn á Akureyri hugleiða nú að selja Sigurhæðir, hús Matthíasar Jochumssonar skálds. Að því tilefni verður rætt við Pétur Ármannsson arkitekt um skáld og hús, norðan og sunnan heiða. Rætt verður við Ásdísi Ólafsdóttir listfræðing um myndlist Jóhönnu K. Yngvadóttur en yfirlitssýning á verkum hennar, Eintal, verður opnuð í Listasafni Íslands á laugardag. Nýjunda Sequences myndlistarhátíðin verður sett á föstudag í Marshall húsinu en hún fer fram þar og víðar í Reykjavík fram til 20. október. Sýningarstjórar hátíðarinnar, Hildigunnur Birgisdóttir og Ingólfur Arnarson, verða tekin tali í Víðsjá dagsins. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson.

Víðsjá
Híbýli fátæktar, Safnasanið, Mutter Courage og Arnfríður Jónatansdótti

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 22, 2019 55:00

Í Víðsjá í dag verður rætt við Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðing sem ásamt þeim Finni Jónassyni og Sigurði Gylfa Magnússyni hefur ritað efni ný útkominnar bókar sem heitir Híbýli fátæktar: Húsnæði og veraldleg gæði fátæks fólks á 19. og fram á 20. öld. Fjallað verður um endurútgáfu á ljóðum Arnfríðar Jónatansdóttur í bókinni Þröskuldur hússins er þjöl en það er Una útgáfuhús sem nú gefur út þessa bók sem fyrst kom út árið 1958. Tveir af forsprökkum forlagsins, Einar Kári Jónsson og Jóhannes Helgason, koma og ræða um þessa merkilegu bók. María Kristjánsdóttir leiklistarrýnir Víðsjár fjallar um sýninguna Mutter Courage eftir Berthold Brecht en hún er útskriftarverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands og sett upp í samstarfi við Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið. Og loks flytur Starkaður Sigurðarson myndlistarpistil um Safnasafnið á Svalbarðseyri í Eyjafirði.

Segðu mér
Ásdís Skúladóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 14, 2019 40:00

Gestur þáttarins er Ásdís Skúladóttir, leikstjóri og félagsfræðingur. Ásdís lauk námi sem leikkona og starfaði um árabil bæði sem leikkona og leikstjóri aðallega hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Einnig með ýmsum leikfélögum víða um land og í Færeyjum. En leiklistin var lengstum ótryggt starf, því lauk hún einnig námi í félagsfræði við Háskóla Íslands. Í þeim fræðum hefur hún aðallega unnið að málefnum eldra fólks í leik og starfi. Á allra síðustu árum hefur hún látið til sín taka í kjaramálum eldra fólks, en Ásdís er einn af stofnendum Gráa hersins - baráttuhóps eldri borgara. Umsjón: Viðar Eggertsson.

Segðu mér
Ólöf Þórðardóttir og Sigrún Harðardóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Apr 9, 2019 40:00

Ólöf og Sigríuðr segja frá Leikfélagi Mosfellsbæjar, en það starfrækir leikhús í bænum allt árið um kring og eru yfirleitt settar upp tvær veglegar leiksýningar á leikhúsárinu. Leikfélagið tekur þátt í fjölda uppákoma og menningarviðburða í Mosfellsbæ og þær segja frá því samstarfi .

Spegillinn
Spegillinn 10.janúar 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 10, 2018 30:00

Leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar var í gær gert að hætta tafarlaust störfum eftir að hann viðurkenndi kynferðisbrot þegar #metoo-umræðan komst í hámæli. Brotið framdi hann fyrir um áratug. Fimm bjóða sig fram í leiðtogakjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Kjörið fer fram 27. janúar. Formaður flokksins segir að sér lítist vel á hópinn. Héraðsdómur Austurlands dæmdi skipstjóra hjólabáts í dag til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Hann var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi vegna dauða kanadískrar konu við Jökulsárlón. Með því að leggja línur í jörð má rúmlega tífalda raforkuöryggi á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í skýrslu sem Landvernd hefur látið gera. Mosfellingar efndu í dag til söfnunar vegna fjölskyldunnar sem missti allt sitt í bruna í gær. Sveitarstjórnarkosningar nálgast. Arnar Páll Hauksson talar við Halldór Halldórsson, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og formann Sambands íslenskra sveitarfélaga og Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri. Það verður að skilgreina hverjir eiga rétt á þjónustunni. Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um NPA og talar við Elínu Oddnýju Sigurðardóttir, formann velferðarráðs Reykjavíkur. Umsjónarmaður Arnar Páll Hauksson Tæknimaður Gísli Kjaran Kristjánsson