POPULARITY
Um miðjan dag birtist í samráðsgátt stjórnvalda ósk frá ríkisstjórninni um tillögur frá almenningi um hvernig megi hagræða í ríkisrekstri. Tekið verður á móti ábendingum til 23. janúar og þá verður farið yfir þær allar af starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins. Og ekki stóð á viðbrögðum, á nokkrum klukkutímum voru komnar hátt í þrjúhundruð umsagnir. Rætt við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands Er hægt að svara því hvað varð til þess að hæglætismaður fæddur í Texas ók bíl inn í mannþröng í Louisiana og varð fjölda fólks að bana um áramótin. Bændur í Borgarfirði gagnrýna áform um Holtavörðuheiðarlínu 1 sem á að liggja þvert í gegnum uppsveitir Borgarfjarðar. Landsnet segir línuna vera af nýrri kynslóð byggðalína og vill að skipuð verði raflínunefnd til að tryggja að skipulagsferlið tefjist ekki.
Emilíana Torrini fór snemma að syngja og spinna upp sögur og segist drifin áfram af forvitni um fólk og fínni blæbrigði í lífinu. Hún ólst upp hjá iðnum foreldrum í Kópavoginum en dvaldi stóran hluta af barnæskunni hjá ömmu á Borgarfirði Eystri og frændfólki í Þýskalandi. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu sextán ára en síðan eru þær orðnar átta og verkefnin fjölmörg og fjölbreytt, meðal annars í samstarfi við nokkrar stórstjörnur tónlistariðnaðarins. Emilíana segir fullkomnunaráráttuna hafa minnkað með aldrinum, og að eftir fertugt hafi hún lært að njóta betur og að vera bara drullusama. Hún er nýkomin heim úr fimm vikna tónleikaferðalagi, þar sem hún fylgdi eftir nýjustu plötu sinni Miss Flower. Og hún er er gestur Svipmyndar í dag. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Ef tækin tala ekki íslensku þá erum við ekki með í stafrænu veröldinni. Tækin og íslenska verða til umfjöllunar hjá Eyrúnu Magnúsdóttur í dag. Hún ræðir um máltækni við Lilju Dögg Jónsdóttur framkvæmdastjóra Almannaróms, sem er miðstöð máltækni hér á landi. Og við ætlum líka að fjalla um það sem við vitum og það sem við vitum ekki um losun gróðurhúsalofttegunda frá votlendi. Endurheimt votlendis gæti verið góð leið til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda en það er ýmislegt í sambandi við votlendið sem kemur á óvart. Rannsakendur við Landbúnaðarháskólann rannsökuðu hversu mikið magn af hláturgasi verður til í votlendi í Borgarfirðinum og Gréta Sigríður kom við á Keldnaholti til að heyra meira. Í lok þáttar ætlum við að pæla aðeins í afleiðingum forsetakosninga í Bandaríkjunum; þó ekki þeirra sem eru nýafstaðnar, þegar Donald Trump sigraði Kamölu Harris – heldur þeirra sem fóru fram í nóvember 2016, þegar Donald Trump sigraði Hillary Clinton og varð forseti í fyrsta sinn. Þá komu niðurstöðurnar mörgum á óvart og margir voru jafnvel í smá uppnámi. Þá tók Þórhildur Ólafsdóttir, sem var umsjónarmaður Samfélagsins á þessum tíma, viðtal við Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing um kvíða og hræðslu sem börn fundu fyrir í kjölfar þessara kosninga.
Gestur Felix á ljúfum laugardagsmorgni var kennarinn og tónlistarmaðurinn Björn Kristjánsson sem gengur líka undir listamannsnafninu Borko. Björn talaði um fimm hátíðir sem hann hefur komið að því að halda og þar kenndi margra grasa. Hann talaði um Innipúkann, Listahátíðina Krútt, Sumarmölina, Hæglætishátíð og klykkti svo út með Pallanum 2013. Þá var ný ábreiða af laginu Útihátíð leikin en hún er nú flutt af hljómsveitinni sem Borko spilar og syngur með, FM Belfast. Þema dagsins í tónlistinni var hiti í tilefni af Bræðslunni sem haldin er í Borgarfirði eystri. tónlist: Sú ást er heit - Magnús og Jóhann Haustpeysan - Borko floating on a moment - Beth Gibbons Útihátíð - FM Belfast Funheitur - Pláhnetan Cooler than me - Mike Posner Hot hot hot - The Cure Bráðna - Frumburður og Daniil You sexy thing - Hot Chocolate Fullkominn dagur til að kveikja í sér - Emmsjé Gauti, Björn Jörundur og Fjallabræður Girl on fire - Alicia Keys Hot love - T REx Hoppum út í heita sól - Matti Matt Hot Milf Summer - Reykjavíkurdætur Fingur - Írafár Gemmér Gemmér - Iceguys
Hér segir frá skerjagarðinum á Mýrum í Borgarfirði, fyrst frá staðháttum og höfn, sem þar virðist hafa verið allt frá þjóðveldistíma, og langt fram á tíma einokunarkaupmanna, og m.a. greint frá skipakomum frá Grænlandi þar skömmu áður en byggð þar lagðist af. Einnig segir rá systur Sæmundar fróða, sem þar er sögð hafa búið, og loks hörmulegum sjóslysum sem orðið haa í serkjagarðinum. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Aukasendingin fékk fyrrum þjálfara Stjörnunnar Arnar Guðjónsson í spjall um tímann sinn hjá Stjörnunni, þar sem hann hafði verið frá árinu 2018 áður en hann ákvað að halda á önnur mið eftir yfirstandandi tímabil. Nú í sumar mun hann taka við sem afreksstjóri hjá KKÍ og því vera yfir landsliðsverkefnum Íslands. Ásamt því að ræða tíma sinn í Garðabænum fer Arnar vel yfir stöðu deildanna á Íslandi, úrslit Subway deildanna, meintan hrepparíg í Borgarfirðinum, ár sín með landsliðinu, framtíð Íslands og margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Tactica og Lengjunnar.
Forsætisráðherra íhugar að láta af embætti til að bjóða sig fram í komandi forsetakosningum. Stjórnarandstaðan telur hana þannig viðurkenna að stjórnarsamstarfið gangi ekki lengur upp - hún væri ekki að íhuga slíkt framboð ef veðrið væri gott á stjórnarheimilinu. Ólafur Þ. Harðarson rýnir í stöðuna í Speglinum. Trausti Valsson svarar líka þeirri spurningu af hverju það sé best að ný varaflugvöllur verði í Borgarfirði.
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Breyttu viðhorfinu þínu og breyttu lífinu þínu. Skoðanabræður halda áfram í sjálfs-þróun - takið eftir, ekki sjálfshjálp - sjálfsþróun. Hún hættir aldrei, við hættum aldrei. Hver veit hvernig þetta endar? Á snekkju með twerkandi gellum? Í Ölpunum? Á búgarði í Borgarfirði? Eitt er víst - þetta endar vel, þetta endar eins og við ákveðum, þetta endar eins og við viljum að þetta endi. Bob Proctor tekinn fyrir hér - við höldum áfram í næstu viku. Guð blessi ykkur.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fletti sögubókunum. Áttatíu ár eru um þessar mundir frá því að fjölda gyðinga í Danmörku tókst að sleppa undan Nasistum, yfir til Svíþjóðar. Við rifjuðum þetta upp og heyrðum brot úr dönskum þætti um flóttann og úr viðtali við mann sem var í hópnum. Konur sinna meirihluta heimilisverka samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Þar á meðal er ábyrgðin á því að kaupa í matinn, elda hann og ganga frá. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði kom til okkar með ráðlagðan dagskammt af jafnari skiptingu heimilisverka. Hjónin Auður Vala Gunnarsdóttir íþróttakennari og Helgi Sigurðsson tannlæknir hafa undanfarin ár tekið þátt í uppbyggingu á Borgarfirði eystri, og stofnað þar fyrirtæki. Þau tóku þátt í verkefninu Brothættar byggðir þar, og síðar í dag segja þau frá reynslu sinni á tíu ára afmælismálþingi þess verkefnis. Við heyrðum af uppbyggingu þeirra og reynslunni af Brothættum byggðum. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Parton, Dolly - Joleen. Hljómar - Bláu augun þín. Hljómar - Fyrsti kossinn. Þórir Úlfarsson, Hljómar - Mývatnssveitin er æði.

Spegillinn 5. september 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Alvarlegt slys varð í Borgarfirði í dag þegar tveir bílar rákust saman. Fjórir voru í þeim og slösuðust allir alvarlega. Garðar Axelsson varðstjóri hjá lögreglunni á Vesturlandi sagði mikinn viðbúnað á vettvangi. Rúmlega þrjátíu klukkutíma mótmælum tveggja kvenna gegn hvalveiðum lauk síðdegis þegar þær klifruðu niður úr möstrum hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn. Hvalur hf. ætlar að kæra þær fyrir húsbrot. Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri segir klárt að konurnar hafi gerst brotlegar. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman. Forseti Bharats býður gestum til kvöldverðar sem indverska forsetaembættið heldur á fundi G20 ríkjanna í Nýju Delí á laugardag. Bharat er heiti Indlands á sanskrít. Róbert Jóhannsson sagði frá. Gunnar M. Guðmundsson, framkvæmdastjóri SBA Norðurleiðar, segir að rútubílstjóri hafi brugðist kolrangt við, þegar hann hleypti úr dekki á bíl nemenda; en nemendur Menntaskólans á Akureyri hafi augljóslega ætlað að loka rútur inni á stæði skólans. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hann. Verndun úlfastofnsins innan Evrópusambandsins verður tekin til endurskoðunar vegna mótmæla bænda sem hafa horft á eftir búfé sínu í kjaft og klær dýranna. Formaður framkvæmdastjórnar ESB segir að dýrum og mönnum stafi hætta af vexti úlfastofnsins. Róbert Jóhannsson sagði frá. ----------------- Um miðjan ágúst fjölgaði nokkuð þeim sem þurftu að leggjast inn á spítala með COVID þó að það sé ekkert á við það sem var í faraldrinum. Það endurspeglar að töluvert er um COVID-smit í samfélaginu en erfitt er að henda reiður á hve margir hafa smitast segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Hulda Þórisdóttir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands sérhæfir sig í stjórnmálasálfræði, samspili tilfinninga og stjórnmálaskoðana Ragnhildur Thorlacius ræðir við hana um af hverju svo mikill hiti er í umræðum um hvalveiðar. Átta ára dómur, sem féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær, er þyngsti dómur fyrir ofbeldi í nánu sambandi frá árinu 2010. Halldóra Aðalsteinsdóttir, Réttargæslumaður segir að svo virðist sem dómstólar séu farnir að taka fastar á slíkum málum, það sýni bæði þyngd refsinga og fjárhæð bóta. Alma Ómarsdóttir talaði við hana.

J. Robert Oppenheimer eðlisfræðingur er jafnan kallaður faðir atómsprengjunnar. Hann stýrði Manhattan-verkefni Bandaríkjastjórnar en afrakstur þess voru sprengjurnar sem varpað var á Hirosima og Nagasaki í síðari heimsstyrjöldinni. Kvikmynd um Oppenheimer er nú sýnd í kvikmyndahúsum um alla heim og hefur hlotið mikla aðsókn og einróma lof. Tómas Jóhannesson jarðeðlisfræðingur er búinn að sjá myndina, hann ræddi um eðlisfræðina sem birtist á hvíta tjaldinu og líf og feril Oppenheimers. Arthúr Björgin Bollason í Berlín rakti mál ljónynjunnar sem leitað var að í úthverfi borgarinnar á dögunum en reyndist ekki vera ljónynja, og sagði einnig frá árlegri hátíð hinsegin fólks sem haldin var í Berlín um helgina. Fyrir tuttugu árum voru hér á landi aðeins tæplega 400 geitur. Nú eru þær nálega 1900 talsins samkvæmt tölum Hagstofunnar. Geitum fer fjölgandi ár frá ári og geitfjárbændum sömuleiðis. Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi á Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði er frumkvöðull í geitarækt á Íslandi. Hún spjallaði við okkur um sögu geitaræktar á Íslandi, um margvíslegar afurðir geitarinnar og gáfur dýrsins og hæfileika.

Að vanda fengum við til okkar föstudagsgest, sem að þessu sinni var Magni Ásgeirsson tónlistarmaður. Magni hefur fengist við tónlist frá unga aldri og hefur á ferli sínum spilað á ótal böllum og haldið tónleika um allt land, sérstaklega með hljómsveitinni Á móti sól. Hann öðlaðist síðan frægð utan landsteinanna þegar hann tók þátt í raunveruleikakeppninni Rock Star Supernova þar sem hann hafnaði í fjórða sæti. Magni er landsbyggðarmaður í húð og hár, alinn upp á Borgarfirði Eystri en er í dag búsettur á Akureyri með fjölskyldu sinni. Magni kom til okkar og við rýndum í fortíð, nútíð og framtíð. Og svo var Magni áfram með okkur í Matarspjalli dagsins. Heim/Magni Ásgeirsson (Magni Ásgeirsson-Ásgrímur Ingi Arngrímsson) - Barn m. Ragga Bjarna (Ragnar Bjarnason-Steinn Steinarr) - Stjörnublik : Á móti sól

Stefán Filippusson fæddist 1870 í Vestur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp. Hann var bóndi í Borgarfirð eystra og var m.a. fylgdarmaður erlendra ferðamanna sem komu til landsins. Árni Óla skráð æviminningar Stefáns Filippussonar, sem komu út í bókinni Fjöll og firnindi. Illugi Jökulsson les frásögn úr bókinni sem heitir Einkennilegur ferðalangur. Þar segir frá ferð sem Stefán fór í með erlendan ferðamann sem hét Stuart sem kom þrisvar til Íslands, en Stefán var fylgdarmaður hans í tvígang.

Spegillinn 19. Maí 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Framhaldsskólanemar og kennarar mótmæla hugmyndum stjórnvalda um að sameina Kvennaskólann og Menntaskólann við Sund. Alexander Kristjánsson ræddi við Andreu Jónsdóttur, forseta Sambands íslenskra framhaldsskólanema og Ásmund Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir allt kapp lagt á að leysa kjaradeilu sveitarfélaganna og BSRB. Alexander Kristjánsson ræddi við hana. Leiðtogar G7 ríkjanna áforma að herða refsiaðgerðir gegn Rússum með því að koma í veg fyrir viðskipti þeirra með jarðefni, þar á meðal demanta. Markús Þórhallsson sagði frá. Samtökin Trans Ísland hlutu í dag mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Anna María Björnsdóttir og ræddi við Ólöfu Bjarka Antons, formann samtakanna. Tap lyfjaĦyrĩrĴækĩsĩns AlĶotech á fyrsta ársĦjórðungi þessa árs nam samĴals 276 milljƓnĵm BandaIJíkjaĤala, eða sem nemĵr um 40 milljƖrðum ísĬenskra króna. Til samġnĢĵrðar var tap féĬagsĩns á sama tíma í fyrra 77 milljƓnĩr dala, eða um 11 milljġrðar króna. Í Speglinum var rætt við Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf, um nýja skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar fyrirtækisins. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við hann. Stjórnvöld í Rússlandi hafa sett samtök Grænfriðunga (Greenpeace) á lista yfir óæskileg samtök. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur boðið Ítölum aðstoð vegna hamfaranna í Emilia-Romagna héraði í mestu úrhellisrigningum sem þar hafa orðið í heila öld. Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur einnig boðið fram alla aðstoð sem Ítalir kunna að þarfnast. Ásgeir Tómasson fjallaði um flóðin. Á meðan íbúar á suður-og vesturhluta landsins þurfa að sætta sig við kulda og bleytu er einmuna veðurblíða á norður- og austurhluta landsins. Hiti skreið upp í tuttugu gráður á þremur stöðum; Egilsstöðum, Hallormsstað og Borgarfirði eystri. Gervigreindin Chat GPT ræddi um áhyggjur um að íslenska tungumálið kunni að líða undir lok. Bjarni Rúnarsson tók saman og Dagný Lind Erlendsdóttir las texta gervigreindarinnar.

Listalífið í Reykjavík á árum síðari heimsstyrjaldar og þau pólitísku og fagurfræðilegu átök sem mótuðu það, er umfjöllunarefni á sérstöku námskeiði sem Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur og prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands ætlar að standa fyrir. Einnig verður farið yfir sögu Unuhúss og hugmyndaheim lista- og menntafólksins sem hittist þar. Við heyrðum meira um þetta hjá Jóni Karli í þættinum í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn bar hann vinkilinn að Kantaraborg, tímanum og Borgarfirði-Eystra. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ingibjörg Iða Auðunardóttir meistaranemi í bókmenntafræði, bókagagnrýnandi og bóksali. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ingibjörg talaði um eftirfarandi bækur: Hættuleg sambönd e. Pierre Choderlos de Laclos Þögnin e. Vigdísi Grímsdóttir Skugga-Baldur e. Sjón Svo talaði hún um James Joyce og Ulysses (Ódysseif) Tónlist í þættinum í dag: Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson-Jóhannes úr Kötlum) Afmælisdiktur / Egill Ólafsson (Atli Heimir-Þórbergur Þórðarsson) Hægt en bítandi / Tómas R Einarsson (Tómas R Einarsson) Sigling (Blítt og létt) / Sextett (Oddgeir Kristjánsson og Árni Guðmundsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Viðmælandi þáttarins er Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid. Grid þróar hugbúnað sem auðveldar vinnu með tölur, myndrit og útreikninga og skákar þannig hefðbundnum töflureiknum á borð við Excel og Google Sheets. Hjálmar er fæddur árið 1976 og er alinn upp í Borgarfirðinum. Hann byrjaði að forrita 12 ára gamall og seldi sitt fyrsta hugbúnaðarleyfi aðeins 15 ára gamall. Hann gekk í Menntaskólann á Laugarvatni og þaðan lá leið hans í tölvunarfræði í Háskóla Íslands þar sem hann staldraði stutt við þar sem hann stofnaði ásamt félögum sínum tölvuleikjafyrirtækið Lon&Don. En síðar stofnaði hann farsímalausnafyrirtækið Maskínu og bókamerkja- og leitartæknifyrirtækið Spurl, sem hélt utan um bókamerki fólks á netinu (e. social bookmarking) og þróaði leitartækni sem var seld til Símans. Hjálmar vann síðan hjá Símanum í tvö ár sem yfirmaður viðskiptaþróunar. Árið 2008 stofnaði síðan Hjálmar, Datamarket, sem var fyrirtæki sem þróaði hugbúnað sem auðveldaði viðskiptavinum að finna og birta göng á myndrænan hátt. Datamarket var síðan selt fyrir 1,6 milljarð íslenskra króna ($15m) til bandaríska tæknifyrirtækisins til Qlik. Hjálmar starfaði sem framkvæmdastjóri gagna (VP of Data) hjá Qlik í um þrjú ár þangað til hann stofnaði nýtt fyrirtæki, hugbúnaðarfyrirtækið Grid, þar sem hann starfar sem framkvæmdastjóri í dag. Hjálmar hefur einnig verið að fjárfesta í sprotafyrirtækjum í gegnum fjárfestingafélagið, Investa, og setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og hjá fjölmiðlinum Kjarnanum, Trackwell og Tal. Þátturinn er í boði Icelandair.
Gestur þáttarins er Hildur Valdís Guðmundsdóttir. Hildur er fædd 31. október 1959 á Siglufirði en hefur auk þess búið í Húnavantssýslu, Borgarfirði, Reykjavík, Færeyjum, Frakklandi og Fílabeinsströndinni. Hún lauk BA prófi í mannfræði árið 2005 frá Háskóla Íslands og Meistaraprófi í mannfræði 2007 og Diplómanámi í þróunarfræðum 2009 frá sama skóla. Áhugasvið Hildar snúa að mannúðarmálum og að tilheyra. Hildur hefur unnið við sveitastörf, fiskvinnslu, skrifstofustörf, hjá Sameinuðu Þjóðunum, í Franska sendiráðinu á Íslandi og vinnur í dag í Kvennaathvarfinu.
Málefni MAST eru enn einu sinni í deiglunni vegna hrossa í Borgarfirðinum sem virðist alvarlega vanrækt og svelt - en íbúar á svæðinu hafa ítrekað biðlað til MAST að grípa til aðgerða vegna aðbúnaðar dýranna. Við heyrðum í Sveini Steinarssyni, formanni Félags Hrossabænda. Fossvogskirkjugarður er níræður um þessar mundir en hann hefur verið uppseldur í fjörutíu ár og á sér merkan stað í Íslandssögunni. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi stendur fyrir sögugöngu um garðinn en hann gaf okkur forskot á sæluna hér í upphafi þáttar og fara yfir sögu lifenda og dauðra. Kvennalandsliðið okkar í knattspyrnu mætir Hvíta-Rússlandi í dag klukkan hálf sex í afar mikilvægum leik í undankeppni HM 2023. Við heyrðum í landsliðskonunni Sif Atladóttur um undirbúninginn og leikinn í kvöld. Fréttablaðið fjallaði í gær um að sælgæti í Fríhöfninni væri í mörgum tilvikum mun dýrara en í lágvöruverðsverslunum höfuðborgarsvæðisins. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, sagði í samtali við blaðið álagningu hins opinbera gífurlega og algerlega út úr korti fyrir verslun sem ekki þarf að standa skil á virðisaukaskatti. Við ræddum þessi mál við Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur, framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar. Eftir átta fréttir fórum við yfir fréttir vikunnar - eins og alltaf á föstudögum. Atli Bollason og Margrét Erla Maack komu til okkar. UN Women fara af stað í dag með nýja Fokk Ofbeldi herferð - en að þessu sinni er safnað fyrir málefni sem hefur verið mikið í deiglunni undanfarið, þ.e. málefni hinseginfólks. Við fengum til okkar Stellu Samúelsdóttur framkvæmdastýru UN Women. Stöð 2 hóf í sumar leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Áheyrnarprufur hafa farið út um allt land en þættirnir sjálfir verða á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. Við ræddum við Birgittu Haukdal, sem er einn af Idol-dómurunum.

Svavar Viðarsson fékk blóðtappa í heila og greindist fyrir um ári með hjartagalla og voru honum ekki gefnar miklar líkur á bata. Þannig fór hins vegar að Svavar náði fullum bata og eltir nú ástríðu sína í tónlist því í kjölfarið gaf hann út plötu með tónlist eftir sig. Svavar sagði okkur sögu sína af hremmingum síðasta árs og hvernig hann tók það jákvæða í lífinu út úr þeim. Héðinn Sveinbjörnsson ber titilinn aðalhamingjustjóri og er meðlimur í samtökum sem kalla sig Chief Happiness Officers þar sem hann fór á námskeið árið 2019. Hann hefur verið að vinna í þessum málum síðan. Það er mikilvægt að starfsfólk upplifi hamingju á vinnustaðnum, finni tilgang og að það sé metið að verðleikum og samtökin vilja stuðla að þessu með sínu starfi og að svokallaður hamingjustjóri sé ávallt innan starfshópsins til að tryggja þetta. Núna er verið að safna gögnum um hamingju vinnandi fólks á alþjóðavísu og Héðinn vill að sem flestir Íslendingar taki þátt í henni til að hægt verði að bera saman niðurstöður annara þjóða. Við hringdum í Héðinn þar sem hann var í vinnunni á veitingastaðnum Bjargarsteini í Grundarfirði. Elsa Katrín Ólafsdóttir ljósmyndari hefur sýnt undanfarið myndaröð sína, Afkomendur Borgarfjarðar, í Hafnarhúsinu Borgarfirði Eystri. Myndaröðin er nokkurskonar skrásetning á andlitum Borgfirðinga, en allir sem eiga ættir að rekja, eru búsettir eða hafa sterkar taugar til staðarins voru boðnir velkomnir í portrett myndatöku. Þátttakendur verkefnisins urðu rétt tæplega 200 sem fór fram úr vonum. Hugmyndin kviknaði hjá Elsu út frá myndaröð Jóhannesar Kjarvals, Hausarnir hans Kjarvals. Kjarval teiknaði þá andlitsmyndir af fullorðnum Borgfirðingum á þriðja áratug síðustu aldar. Við fengum Elsu til að segja okkur frekar frá þessu verkefni í þætti dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Ástarkveðja (Frá Tjörninni að Öskjuhlíð) / Ingibjörg Þorbergs og Hljómsveit bandaríska flughersins (Ingibjörg Þorbergs og Þorsteinn Sveinsson) Gömul sár / Svavar H. Viðarsson (Svavar Hafþór Viðarsson) Hamingjan / Björgvin Halldórsson (Bob Merill og Þorsteinn Eggertsson) Litla lagið / Sigrún Harðardóttir (Ómar Ragnarsson, Bennet, Orion, Welch, Marvin, Rostill) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Umsjón: Rúnar Róbertsson og Felix Bergsson Innviðaráðherra hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda áform um að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða. Helsta hlutverk félagsins verður að innheimta notkunargjöld, bæði af vegum og jarðgöngum. Margir hafa gert athugasemdir við þá gjaldtöku sem fyrst var nefnd, að rukka fyrir notkun á jarðgöngum, eins og t.d. formaður umhverfis- og samgöngunefndar sem vill ganga lengra og rukka veggjöld við höfuðborgina. Svo virðist sem að hann hafi orðið að ósk sinni. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, skrifaði pistil í Morgunblaðið í gær þar sem hún mótmælir þessum áformum. Inga var á línunni hjá okkur. Fyrirhugað er að samþykkja fyrstu heildrænu lögin um landamæri og landamæraeftirlit á Íslandi í haust skv frétt Morgunblaðsins, en það tókst ekki á síðasta þingi. Í kjölfarið verða umfangsmiklar breytingar gerðar á Keflavíkurflugvelli. En hvað felst í þessu og hverjar verða þessar breytingar? Bryndís Haraldsdóttir formaður allsherjar og menntamálanefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins kom í morgunkaffi. Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað undanfarið en ekki sést það á bensíndælunni á Íslandi. Júlí er aðal orlofsmánuður Íslendinga og ferðalög um eyjuna fögru eru gjarnan hluti af sumarleyfi fjölskyldna en hátt eldsneytisverð hefur neikvæð áhrif á þau áform. Félag íslenskra bifreiðaeigenda bendir á vefsíðu sinni á að álagning olíufélaganna á hvern bensínlítra hafi hækkað um 40% á milli júní og júlí. ?Eldsneytisverð vegur þungt í vísitölu neysluverðs með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu. Há álagning og hátt bensínverð kemur ekki bara illa við budduna við dæluna. Aukin verðbólga dregur úr verðgildi peninga og eykur vexti og kostnað vegna verðtryggingar lána? segir á vef FÍB. Runólfur Ólafsson, framkvæmdarstjóri FÍB, kemur til okkar til að ræða þetta og hugmyndir um vegatolla og jargangnaskatta. Bæjahátíðir eru vinsælar á sumrin og er óhætt að segja að varla detti úr helgi yfir sumarið þar sem ekkert er í gangi. Vegna Covid takmarkana hafa margar þessara hátíða ekki verið haldnar í allt að tvö ár. En Mærudagar á Húsavík hefjast í dag. Við hringdum norður og töluðum við Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra Mærudaga og forvitnumst um dagskrána. Bræðslan stendur fyrir dyrum í Borgarfirði eystri og fjölskyldan knáa sem stendur fyrir viðburðinum er á fullu að undirbúa eða á leiðinni austur. Ein þeirra er Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir en hún hefur líka tjáð sig opinberlega í umræðu um konur og rokktónlist eftir að fyrstu auglýsingar

Halldór Stefánsson fæddist á Desjarmýri í Borgarfirði eystri 1877. Hann varð kennari og bóndi, síðan alþingismaður og forstjóri tryggingafélaga. En hann hafði líka gaman af að skrifa. Hann setti m.a. saman skemmtilega þætti með fróðleik af Austurlandi sem hann hafði sett saman. Hér segir af útileguþjófum, hrakningum ógurlegum og streði venjulegs fólks. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Við hittum Snorra Jóhannesson, ábúanda á Augastöðum, sem man vel jarðskjálftahrinu í Borgarfirði 1974. Þá hittum við Hríseyinginn Ásrúnu Ýr Gestsdóttur í kaupstaðarferð á Akureyri. Og í lok þáttar höldum við að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði. Þar er að finna farfuglaheimili en líka nyrstu skrifstofu fyrirtækisins Nox Medical þar sem Stefán Rósinkrans Pálsson starfar. Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Halla Ólafsdóttir. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Covid 19 faraldurinn hefur haft ansi víðtæk áhrif um allan heim og meðal annars teygt sig til Borgarfirði Eystri en þar þurfti að fresta uppbyggingu fyrirhugaðrar vatnsverksmiðju á svæðinu vegna faraldursins. Við heyrðum í Arngrími Viðari Ásgeirssyni, sem á fyrirtækið Vatnworks Iceland um þessa bið á uppbyggingunni, Það verður ágætis flugeldaveður víðast hvar á morgun en hætt er við nokkuð mikilli þoku í Eyjafirði. Við ræddum við Elínu Björk Jónsdóttur, veðurfræðing, um veðrið á gamlárskvöld, svifrykið og mengunina. Til eru þau sem ekki sofa á sínu græna eyra á nóttunni heldur fara út í öllum veðrum og vindum til að leita að týndum dýrum þegar svo ber við. Ein sem er alltaf á vaktinni í þessum efnum er Sandra Ósk Jóhannsdóttir sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu sem var meðal annars úti fram undir morgun í fyrrinótt í leit að hundi sem fælst hafði vegna flugelda. Nú er auðvitað sá tími ársins genginn í garð að búast má við því að flugeldar springi allan sólarhringinn og eins og allir vita geta gæludýr heimilisins og húsdýrin orðið ansi skelfd við hvellina. Ómar Ingi Magnússon, handboltamaður hjá Magdeburg í Þýskalandi, var í gær valinn íþróttamaður ársins 2021. Hann átti stórkostlegt ár, var markakóngur efstu deildar Þýskalands í vor, var valinn í lið ársins þar í landi og í haust hefur Ómar verið mikilvægur fyrir Magdeburg, sem trónir taplaust á toppi þýsku deildarinnar, enda meðal markahæstu og bestu leikmanna í deildinni. Það þekkja allir hvernig áramótin fara fram í New York en stóra kúlan "droppar" eins og það er kallað á miðnætti á Times Square. Við veltum fyrir okkur hvernig hátíðarhöldin fara fram í skugga Covid veirunnar ytra og heyrðum í Kára Emil Helgasyni sem hefur verið búsettur í borginni í 13 ár og fagnar áramótunum þar á morgun - fimm klukkustundum á eftir okkur Íslendingum. Á mörgum heimilum er aðfangadagskvöld haldið alfarið án áfengis en öðru máli gegnir um áramótin þar sem tíðkast að skála fyrir nýju ári. Margir eru að spá í hvaða vín er best að bjóða upp á með áramótamatnum og hvað er við hæfi að hafa í glösunum þegar klukkan slær tólf á miðnætti. Við heyrðum í Styrmi Bjarka Smárasyni vínþjóni á Fiskmarkaðnum og vínbarnum Uppi sem er að opna fyrir ofan veitingastaðinn og fræddumst um áramótavínin. Tónlist: Little Talks - Of Monsters and Men Spurningar - Birnir og Páll Óskar Beautiful Ones - Suede Running Wild - Vök Þó líði ár og öld - Björgvin Halldórsson Do you remember - Bong Empire State of mind - Jay Z og Alicia Keys Knowing me, Knowing You - ABBA
Í Rokklandi sem byrjar kl. 16.05 í dag (sunnudag) er boðið upp á bæði jólamúsík ? og heils-árs músík. Biggi Hilmars ? Biggi úr Ampop var að senda frá sér lagið Hurt eftir Trent Reznor sem Johnny Cash gerði að sínu fyrir nokkuð löngu. Hann segir okkur hvers vegna og við heyrum lagið. Steinar Berg sem er einn MESTI tónlistarútgefandi Íslands áratugum saman, en ferðaþjónustubóndi í Borgarfirði í dag í Fossatúni þar sem hann er með heilmikla útgerð kemur við sögu. Hann er nefnilega líka í hljómsveit sem heitir Grasasnar, og Grasasnarnir voru að senda frá sér plötu sem heitir Prine og inniheldur lög eftir bandaríska söngvaskáldið John Prine sem lést af völdum Covid í fyrra. Steinar heimsótti mig á Akranes í vikunni og við spjölluðum aðeins saman um lífið og tilveruna og plötuna og John Prine. Og svo er það Lennon ? það voru 41 ár á miðvikudaginn síðasta frá því hann var myrtur fyrir utan heimili sitt í New York. Við setjum fókusinn á John Lennon í dag og förum hingað og þangað með Yoko Ono og fleirum. Og svo er líka smá U2 horn, en U2 var að senda frá sér 5 ?jóla?-laga EP núna í gær.

Spegillinn 19. ágúst 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Ekki eru allir á einu máli um gagnsemi örvunarskammta bóluefna sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur gagnrýnt. Sóttvarnarlæknir telur réttlætanlegt að bjóða upp á þá hér á landi . Rætt við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni Magnús Gottfreðsson, prófessor í sóttvörnum við HÍ tekur undir orð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um að mikilvægara sé að bólusetja í fátækari löndum en gefa bólusettum örvunarskamta. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hann. Samtök atvinnulífsins telja núverandi reglur um sóttkví of strangar, tllögur sóttvarnaryfirvalda of stífar og muni hafa áhrif á gang efnahagslífsins. Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna segir að þetta hafi komið fram síðustu daga. Varadeildarforseti við alþjóðaháskólann í Kabúl aðstoðar nemendur og starfsfólk við að komast frá Afganistan. Hann segir mikið hugrekki þurfa til að yfirgefa fjölskyldu sína og heimaland enda hætti sumir við á síðustu stundu. Rætt við Árna Arnþórsson, varadeildarforseti við alþjóðaháskólann í Kabúl Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands segir að málningin á hettumáfinum, sem fannst á Borgarfirði eystra í vikunni, sé greinilega af mannavöldum. Ekkert réttlæti slíka meðferð á dýrum.
Flestir þekkja það að borða skötu á Þorláksmessu, en fæstir tengja skötuát við sumarið, nema kannski Ásmundur Friðriksson sem hefur undanfarin ár staðið fyrir skötumessu að sumri í þeim tilgangi að afla fjár til góðra málefna. Skötumessan í ár fer fram á morgun og við slógum á þráðinn til Ásmundar og forvitnuðumst aðeins um þessa óhefðbundnu skötuveislu. Hnúðlaxi hefur fjölgað í íslenskum ám undanfarin ár og þeir sem til þekkja segja að eiga megi von á enn meiri aukningu í ár. En hvað er hnúðlax og af hverju er hann ekki velkomin í árnar? Hjörleifur Finnsson ráðgjafi í umhverfisvernd hefur rannsakað stjórnun framandi tegunda á Íslandi út frá hnúðlaxinum og hann var á línunni hjá okkur að vestan og sagði okkur meira af stöðunni. Guðrún Bjarnadóttir hefur rekið jurtalitunar vinnustofuna Hespuhúsið um nokkurra ára skeið, fyrst í Borgarfirði og nú í Ölfusinu. Auk þess að lita garn og taka á móti gestum hefur hún fært út kvíarnar og gaf út jurtalitapúsl fyrir síðustu jól sem sló í gegn og nú hefur hún gefið út Flóruspilið. Við heyrum í Guðrúnu og forvitnumst um verkefni Hespuhússins. Í gær kom út grein í vefútgáfu vísindaritsins Nature Genetics þar sem vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar sýna hvernig 243 erfðabreytileikar, þar af 64 áður óþekktir, hafa áhrif á stærð barna við fæðingu, annars vegar í erfðamengi móður og hins vegar í gegnum erfðamengi fósturs. Tengsl fæðingarþyngdar við sjúkdóma hafa lengi verið þekkt en deilt hefur verið um hversu mikið þau tengjast erfðaþáttum einstaklingsins og að hversu miklu leyti þau tengjast aðstæðum fósturs á meðgöngu og þar með erfðaþáttum móður. Þau Kári Stefánsson og Valgerður Steinþórsdóttir frá Íslenskri erfðagreiningu komu til okkar og fræddu okkur um þetta mál. Íslenska sumarið hefur verið gott víða undanfarið, en því miður ekki alls staðar. Sigurður Þ. Ragnarsson, kallaður Siggi stormur frá því hann sinnti starfi veðurfréttamanns á Stöð2 fyrir nokkrum árum, var á línunni hjá okkur. Á Facebook síðu Sigga má sjá pælingar hans um ýmislegt sem tengist veðrinu. Við ræddum við hann þar sem hann er í Borgarfirðinum og spurðum hvort hann sér nokkuð í kortunum um að þau landssvæði sem hafi verið sumarsvelt hingað til fái líka að njóta? Tónlist: Hipsumhaps - Á hnjánum. Jet Black Joe og Sigríður Guðnadóttir - Freedom. E.L.O. - Dont bring me down. Unnsteinn Manuel - Lúser. Roxette - Sleeping in my car. Jón Jónsson - Gefðu allt sem þú átt. Stjórnin - Hleypum gleðinni inn. Sigurður Guðmundsson - Kartöflur. Police - Wrapped around your fingers.
Í þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Vesturlands og Vestfjarða. Þar er hægt að klifra í klettum, leika sér á löngum ströndum, fara í náttúrulaugar, skoða fossa og fylgjast með dýralífi. Heimamennirnir og sérfræðingarnir Saga frá Ísafirði, Marinó frá Borgarnesi og Sigurbjörg Heiða frá Akranesi segja okkur frá þessum fallegu náttúruperlum og hvaða staðir eru ómissandi fyrir krakka og fjölskyldur á ferð um Vesturland! Þjóðsögur þáttarins fjalla um stórhættulegan foss í Borgarfirði og dularfullt ljós á Hornströndum. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin!
Í þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Austurlands. Hvar finnast helstu gimsteinar og náttúruperlur landshlutans og hvernig kemst maður þangað? Heimamennirnir Hallgrímur Vopni frá Egilsstöðum og Iðunn Elísa frá Reyðarfirði segja frá sínum uppáhaldsstöðum. Þjóðsögur þáttarins fjalla um álfadrottingu Íslands sem á að búa á Borgarfirði eystra og völvuna sem vakir yfir Reyðarfirði og Eskifirði. Spennið beltin því að lok þáttar er æsispennandi spurningakeppni þar sem barist verður um titilinn "náttúruperlusérfræðingur Austurlands!"
Í Víðsjá í dag verður meðal annars hugað að sýningarhaldi sumarsins í Glettu, sýningarrými á Borgarfirði eystri þegar Guðrún Benónýsdóttur verður tekin tali. Bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er verkið Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú? eftir Hildi Hákonardóttur þar sem höfundur nýtir samtalsformið til að rekja sögu löngu horfinna biskupsfrúa og fyrirkvenna. Hlustendur heyra í höfundi bókarinnar í þætti dagsins. Og tveir ólíkir menn, skáldið Jónas Hallgrímsson og bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West koma við sögu að gefnu tilefni í Víðsjá í dag.
Náttúruhlaup njóta mikilla vinsælda og margir um hituna þegar kemur að skráningu. Eitt þessara hlaupa er Dyrfjallahlaupið austur á Borgarfirði, en það fer fram í fimmta sinn í júlí nk. sumar. Olgeir Pétursson veit allt um þetta hlaup og hann kíkti til okkar í spjall. Við tókum stöðuna á Þórólfi Guðnasyni sóttvarnarlækni. Nú hefur komið fram að eitt bólefni virðist veita takmarkaða vernd gegn ákveðinni stökkbreytingu veirunnar. Hefur hann áhyggjur af stöðunni eða vitum við ekki nógu mikið ennþá? Og telur hann að gangi að ná hjarðónæmi hérlendis með eða án sérstakrar rannsóknar á vegum Pfizer? Þórólfur kom til okkar. Við fengum Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Vestmannaeyjum í heimsókn til okkar en hún sagði okkur frá nýju þróunar- og rannsóknarverkefnis í Grunnskólanum í Vestmannaeyjum með það að markmiði að efla læsi og bæta líðan nemenda. Þá bar ýmislegt fleira á góma, t.d. loðnu, Herjólf og hversu hamingjusamir Eyjamenn eru, eins og heyra mátti af í niðurstöðum könnunar sem fjallað var um í gær. Við ræddum við dómsmálaráðherra í dag um stöðu frumvarps hennar um leyfi íslenskra brugghúsa til að selja vöru sína. Einnig um umsáturseinelti sem nú er komið í lög, úrbætur á stöðu barna í leit að alþjóðlegri vernd o.fl. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kom til okkar. Sævar Helgi Bragason kom til okkar í vísindaspjall og ræddi hljóðvist í hafinu, mikla umferð á Mars næstu daga og ungar vísindakonur. Tónlist: Emilíana Torrini - Vertu úlfur. Peter Gabriel - Solsbury Hill. Alicia Keys - Love looks better. Stuðmenn - Ólína og ég. Daði Freyr og Ásdís - Feel the love. David Bowie - Heroes. Prefab Sprout - Appetite. Friðrik Dór - Segðu mér. Beck - Dreams.
Illugi Jökulsson fjallar um Stefán Filippusson, sem fæddist 1870 í Fljótshverfi (austan við Kirkjubæjarklaustur) og ólst þar upp. Sjálfur varð hann bóndi í Borgarfirði eystra en var svo mörg sumur leiðsögumaður erlendra ferðamanna um hálendið. Fjöll og firnindi heitir ævisaga hans og í gluggar Illugi í hana í þættinum. Þar segir aðallega frá uppeldi og ættum hans, hræðilegum frostavetri 1880, fjárfelli ógurlegum og Gyðingi sem kom í sveitina að kaupa hár. Já, mannshár.