POPULARITY
Mannúðarvandi er hvergi meiri en á Gaza og í Súdan. Við förum þangað í Heimskviðum í dag. Helmingur þeirra rúmlega tveggja milljóna sem hafast við á Gaza eru börn. Fleiri en 50 þúsund hafa verið drepin á þeim átján mánuðum sem hafa liðið frá dagsetningunni örlagaríku, 7.október 2023. Greinendur og mannréttindasamtök telja reyndar að mun fleiri séu látin, líklega séu þúsundir líka undir rústunum sem finna má um alla Gaza-ströndina. Fleiri en 15 þúsund hinna látnu eru börn og Gaza er því líklega hættulegasti staður jarðar fyrir börn. Svo förum við til Kartúm, höfuðborgar Súdans, sem var um mánaðamótin frelsuð úr höndum hersveita RSF sem náðu þar yfirráðum 2023. Hershöfðinginn Abdel Fattah al-Burhan hefur síðustu daga farið sigri hrósandi um borgina og sagt að núna sé hún loksins frjáls. Og íbúum sem hafa síðustu mánuði og misseri búið við ofríki og umsátur RSF-sveitanna er létt. En það breytist líklega ekki mikið fyrr en valdasjúkir hershöfðingjar gefa eftir völdin og skref í átt að lýðræði verða tekin. Annars verður bara meira af einræði, ofbeldi og kúgun.
Gunnar Smári er blaðamaður, útgefandi og ritstjóri.Gunnar er núverandi stjórnarmaður og ábyrgðarmaður frétta hjá Samstöðinni - hann hefur stofnað og starfað í fjölmörgum miðlum, bæði á Íslandi og erlendis.Gunnar hefur einnig verið virkur í stjórnmálum og er einn af stofnendum Sósíalistaflokksins.

25. október 2023 Um 1.400 jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu sem hófst norðan við Grindavík í nótt. Ekki er að sjá merki um gosóróa en um margt minnir hrinan á aðdraganda fyrri gosa. Bæjarstjóri í Grindavík segir að bæjarbúar hafi fundið vel fyrir skjálfta upp á 4,5 í morgun en séu öllu vanir. Bændasamtök Íslands telja neyðarástand ríkja í íslenskum landbúnaði, afkomubrestur sé í flestum greinum og bændur geti ekki greitt sér lágmarkslaun. Stýrivaxtahækkanir ofan í aðrar hækkanir hafi aukið fjármagnskostnað svo mikið að á tveimur árum greiði þeir 8,6 milljarða með framleiðslunni úr eigin vasa. Formaður Starfsgreinsambandsins segir að ef semja á til langs tíma verði að vinna bug á verðbólgu og vöxtum; það geri verkalýðshreyfingin ekki ein. Sameinuðu þjóðirnar gætu þurft að gera hlé á mannúðaraðstoð sinni á Gaza-svæðinu í kvöld, vegna skorts á eldsneyti og rafmagnsleysis sem því fylgir. Læknir á Gaza segir spítala sinn verða að fjöldagröf án rafmagns. Opnað hefur verið fyrir umferð um brú yfir Þorskafjörð. Repúblikaninn Mike Johnson var síðdegis kosinn forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins. ------------- Fjárlaganefnd Alþingis þarf að tala afstöðu til krafna um ríflega hundrað milljarða króna útgjaldaaukningu á fjárlögum. Það er erfitt verk því fari útgjaldaaukningin úr böndunum er viðbúið að Seðlabankinn svari með vaxtahækkun. Eitt ár er frá því að Rishi Sunak tók við embætti forsætisráðherra Bretlands. Helmingur landsmanna telur að hann hafi staðið sig illa í starfi. Einungis ellefu prósent eru ánægð með hann. Í fyrra fæddust um 4.400 börn á Íslandi og hefur frjósemi í landinu aldrei verið minni. Lengi vel var frjósemi hér meiri en annars staðar á Norðurlöndum en dregið hefur saman segir Ólöf Garðarsdóttir, sagnfræðingur og forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Helmingur landsmanna telur að íslenskt samfélag þurfi að nýta sem flesta virkjunarkosti en ekki hvaða kosti sem er og ekki í hvaða tilgangi sem er. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar þar sem aðaláherslan var á vindorkuver og alveg skýrt að fólk vill fáa stóra vindorkugarða í stað margra lítilla - ef það vill virkja vindinn yfirleitt. Við ræðum við Kjartan Ólafsson, félagsfræðing hjá stofnuninni, um könnunina. Nýtt hafrannsóknaskip er nú í smíðum í Vigo á Spáni. Nýja skipið, sem mun heita Þórunn Þórðardóttir, tekur við af elsta skipi stofnunarinnar; Bjarna Sæmundssyni. Við heimsækjum Bjarna í Hafnarfjarðarhöfn í Samfélaginu í dag og ræðum við forstjóra Hafrannsóknastofnunar, Þorstein Sigurðsson um þau Þórunni og Bjarna. Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að velta fyrir sér ræktun á líffærum.

Skortur er á sjúkraliðum og útlit fyrir að svo verði áfram, verði ekki gripið til markvissra aðgerða, en fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands hefur krafist þess að stjórnvöld bregðist við mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi málefni sjúkraliðastéttarinnar. Ásgeir Brynjar Torfason, sérfrðingur í fjármálum, var með okkur frá Torino á Ítalíu að þessu sinni. Ásgeir ræddi skuldaþak Bandaríkjanna og fleira um skuldir og skatta, sem og ólífuolíuverð á Ítalíu. Borgþór Arngrímsson fjallaði um dönsk málefni. Stjórn Mette Frederiksen ætlar að auka framlög Dana til Úkraínu, en sagt er að hún vilji verða næsti framkvæmdastjóri NATO. Borgþór fjallaði líka um árlegan viðburð dönsku konungsfjölskyldunnar, Royal Run, sem ætlað er að vekja athygli á nauðsyn hollrar hreyfingar. Tónlist: Litfríð og ljóshærð - Guitar Islandico Sparring Partner - Paolo Conte Come di - Paolo Conte Den dejligste morgen - Gnags Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Daglega heyrum við fréttir af innrás Rússa í Úkraínu. Ef ekki af árásum og átökum og eyðileggingu þá af vopnasendingum, efnahagsþvingunum og öðru sem snertir eða tengist þessu stríði. En það eru fleiri stríð í heiminum. Guttormur Þorsteinsson, formaður Miðnefndar Samtaka hernaðarandstæðinga kom til okkar, við ræddum stríð og fjölluðum um störf friðarhreyfinga. Í Austurbæjarskóla í miðborg Reykjavíkur koma saman á hverjum degi börn af ólíkum þjóðernum, og sem tala fjöldann allan af ólíkum tungumálum. Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Austurbæjarskóla sagði okkur frá skólastarfinu. Svo rifjuðum við upp stórviðburð í Reykjavík fyrir fimmtíu árum. Hér hittust forsetar Bandaríkjanna og Frakklands; þeir höfðu um margt að ræða. Við fjöllum um fundinn sjálfan og forsetana í fyrramálið en heyrum í dag lýsingu frá komu þeirra til Keflavíkurflugvallar. Þar var mikill viðbúnaður. Öflug öryggisgæsla, sérinnfluttir bílar, einkaþotur - bara alveg eins í síðustu viku. Tónlist: Everly Brothers, The - All I have to do is dream. Turner, Tina - Private dancer. Arnar Ingi Ingason, Fannar Ingi Friðþjófsson, Hipsumhaps, Jökull Breki Arnarson, Magnús Jóhann Ragnarsson, Eiríkur Rafn Björnsson - LSMLÍ (Lífið sem mig langar í ).

Við fórum yfir klósettferðir í Hörpu. Dali Lama var bara að grínast með því að biðja barn að sjúga á sér tunguna. Yfir helmingur karlmanna halda framhjá. Við könnuðum aðeins hver er Sveddi Tönn og Bjarni Ben fékk þá flugu í hausinn að lækka skatta á bílaleigur til að flýta orkuskiptum. Lögrelgudagbókin og margt fleira í þætti vikunar. Góða skemmtun !
Spegillinn 31.janúar 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Fjármálaráðherra segist hafa áhyggjur af vaxandi verðbólgu, en ekki sé auðséð til hvaða ráða sé hægt að grípa. Staðan kalli hins vegar á viðbrögð. Bólusetning 5 til 11 ára gamalla barna nýtur stuðnings mikils meirihluta landsmanna. Herforingjastjórnin í Mjanmar ákærði í dag Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, fyrir kosningasvik. Búnaður í nýrri skólphreinsistöð á Akureyri kom í veg fyrir að tæplega 20 tonn af rusli sem sturtað var niður í klósettum á Akureyri endaði í Eyjafirði. Yfir 30 eftirlegukindur, sem leitað hefur verið að á Norður- og Austurlandi síðan í haust, skiluðu sér af fjalli í síðustu viku og um helgina. Helmingur ráðherra ríkisstjórnarinnar ber annað starfsheiti í lok dags heldur en þegar þeir vöknuðu í morgun. Ný nöfn ráðuneyta eftir uppskiptingu stjórnarráðsins voru staðfest með forsetaúrskurði í dag. Lengri umfjöllun: Skipulags- og húsnæðismál eru meðal stóru verkefna sveitarfélaganna og þar eru líka stórir snertifletir við ríkið. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir gott að þessi mál séu nú í einu og sama ráðuneytinu. Hann telur að sé ágreiningur milli sveitarfélaga um framkvæmdir á borð við byggðalínur eða veglagningu væri heppilegra að til væri svæðisskipulag sem þau yrðu þá að laga sig að. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurð Inga. Þess var minnst á Norður Írlandi í gær að 50 ár voru liðin frá Blóðuga sunnudeginum í borginni Derry eða Londonderry. Fjallað var ítarlega um blóðuga sunnudaginn í tveimur útvarpsþáttum Gunnars Hanssonar og Sólveigar Jónsdóttur á Rás 1 um helgina . Þau fóru til Derry fyrr í þessum mánuði og ræddu meðal annars við fólk sem tók þátt í göngunni og varð vitni að drápunum. Sólveig er stjórnmálafræðingur frá Edinborgarháskóla í Skotlandi og kynnti sér vel málefni Norður Írlands í námi sínu. Kristján Sigurjónsson talar við Sólveigu um ástandið á N-Írlandi í dag og framtíðarhorfur. Mark úr vítakasti eftir að venjulegur leiktími var liðinn tryggði Svíum eins marks sigur á Spánverjum, 27-26, í úrslitaleik Evrópumótsins í gær. En handbolti er langt frá því að vera einn um hituna þegar íþróttir eru annars vegar í Svíþjóð. Kári Gylfason segir frá.

Spegillinn 14.5.2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Nokkur dæmi eru um að smit hafi greinst hjá bólusettu fólki hérlendis, segir sóttvarnalæknir. Ekki sé komið að því að bólusettir geti verið grímulausir. Hann vonar að verði hægt að slaka á grímunotkun í júní, júlí þegar 60 eða 70 prósent hafa verið bólusett. Rætt er við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni Helmingur fullorðinna Íslendinga hefur fengið að minnsta kosti fyrri bólusetningu við COVID-19 og þar af eru 22 prósent fullbólusett, eða 65 þúsund manns. Rætt við Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að #metoo-bylgjan sem nú er í gangi sýni að þörf sé á frekari aðgerðum til að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Hún kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun samantekt um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur þegar gripið til á yfirstandandi kjörtímabili. Rætt við Katrínu Jakobsdóttur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hvetur ríkar þjóðir heimsins til að hætta að bólusetja börn gegn COVID-19 og gefa bóluefnið frekar þeim sem minna mega sín efnahagslega. Aflaheimildir sem ætlaðar eru til strandveiða í ár duga ekki til að ljúka tímabilinu segir talsmaður smábátaeigenda. Sjöhundruð smábátar verða við strandveiðar í sumar Rætt við Örn Pálsson. taldmann smábátaeigenda Lengra efni: Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að störfum rigni inn til stofnunarinnar vegna átaksins Hefjum störf. Tæplega 1700 manns hafa verið ráðnir frá því að það hóst í maprí. Nú erum um 6600 störf í boði. Arnar Páll Hauksson ræddi við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar Halla Hrund Logadóttir, einn af stofnendum og stjórnendum Miðstöðvar norðurslóða við Harvard-háskóla og verðandi orkumálastjóri, bindur vonir við fund Norðurskautsráðsins í næstu viku. Hún telur að ráðstefna háskóla norðurslóða gefi tóninn eftir COVID-19 og verði vonandi sá stökkpallur háskólasamfélagsins inn í aukna samvinnu sem mikil þörf sé fyrir. Bergljót Baldursdóttir ræðir við hana um hraðar loftslagsbreytingar á norðurslóðum og fund utanríkisráðherra Norðurskautsráðsins. Einu sinni reyndu stjórnmálamenn ákaft að komast í fjölmiðla. Nú er öldin önnur. Breskir stjórnmálamenn sneiða hjá ákveðnum fréttaþáttum og fréttamönnum vegna þess að þeir vilja sjálfir stýra hvernig boðskapnum er komið á framfæri. Það tekst þó ekki alltaf. Sigrún Davíðsdóttir segir frá
Enn er mikið vatnsveður fyrir austan og hættustig vegna skriðuhættu á Seyðisfirði. Lögreglan áréttar að engin óviðkomandi umferð verði til Seyðisfjarðar meðan hættustigið er í gildi. Heilsugæslan er í startholunum og getur byrjað að bólusetja strax og bóluefni berst til landsins. Þetta segir Óskar Reykdalsson, forstjóri heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir því að fyrstu 5000 skammtarnir berist um eða eftir jól. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hann. Ísland þarf að bæta verulega getu til að greina alþjóðleg mútubrot og merki þess að slík brot eigi sér stað hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu starfshóps Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um alþjóðleg mútubrot. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman. Svíar búast við að dauðsföllum vegna COVID-19 eigi eftir að fjölga áður en áhrifa bólusetningar fer að gæta . Nú hafa tæplega átta þúsund látið lífið í farsóttinni. Bogi Ágústsson sagði frá. Formenn sjómannafélaga gagnrýna þyrluleysi Landhelgisgæslunnar og segja það ólíðandi ástand. Beðið er eftir aukahlut í TF-GRO sem verður ekki útkallshæf fyrr en annað kvöld. Einar Hannes Harðarson formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur segir þyrlurnar björgunartæki sjómanna eins og sjúkrabíla á landi. Í nýju frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er lagt til að tekin verði upp aflamarksstjórn, eða kvóti, við veiðar á grásleppu, sandkola í allri fiskveiðilandhelginni og sæbjúgum. Markús Þór Þórhallsson sagði frá. ------------ Íslandi bjóðast sex bóluefni við COVID-19 með samningum Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur og búið er að semja um kaup á 700 þúsund skömmtum frá Astra Zeneca, Jansen og Pfizer-BioNTech. Það veltur á afgreiðslu Evrópsku lyfjastofnunarinnar sem er komin langleiðina með Pfizer og Moderna bóluefnin. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá því í morgun að stokka verði upp í forgangsröðun þeirra sem verða bólusettir, vegna tafa á afhendingu bóluefna. Rúna Hvannberg Hauksdóttir forstjóri Lyfjastofnunar vonar að hægt verði að gefa út leyfi og byrja að bólusetja fyrir jól. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Talsverður fjöldi Íslendinga virðist telja að hryðjuverkaógnin myndi aukast ef flóttamönnum frá múslimalöndum fjölgar Helmingur landsmanna er hins vegar hlynntur því að hingað komi fleiri flóttamenn. Arna Páll Hauksson talar við Margréti Valdemarsdóttur, lektor við HA Um rannsókn sem sýnir þetta. Tímamörkin á að Bretar geri fríverslunarsamning við Evrópusambandið koma og fara. Nú hefur Evrópuþingið gripið til sinna ráða. Sigrún Davíðsdó

Spegillinn 16, júní 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Sóttvarnalæknir segir að smit dagsins í dag sé bakslag miðað við þróun faraldursins hérlendis undanfarið. 860 eru væntanlegir til Íslands í gegnum Keflavíkurflugvöll í dag en mikilvægt sé að þau haldi sig í sóttkví þar til niðurstaða úr skimun er ljós. Dómarareynsla úr Landsrétti hafði áhrif á hæfnismat umsækjenda um stöðu landsréttardómara. Sú reynsla byggði á fyrri skipun umsækjendanna í Landsrétt sem Mannréttindadómstóll Evrópu taldi ekki standast mannréttindasáttmála Evrópu. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir að alltaf megi búast við sveiflum í nytjastofnum sjávar. Því sé það ekki áfall þó Hafrannsóknastofnun leggi til að dregið verði úr þorskveiðum. Aldrei í sögu Háskóla Íslands hafa borist fleiri umsóknir í hjúkrunar-, leikskólakennara- og tæknifræðinám. Skapandi greinar eins og tölvuleikir hafa skilað Finnum gríðarlegum verðmætum. Hnífsstunguárás í Reykjavík í gærmorgun er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Maðurinn sem réðist á konu með hnífi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til þrettánda júlí. Félag prófessora við ríkisháskóla mótmælir harðlega því sem það kallar pólitísk afskipti fjármála- og efnahagsráðuneytisins af ráðningu ritstjóra hagfræðitímaritsins Nordic Economic Policy Review sem norræna ráðherranefndin gefur út. Hafrannsóknarstofnun hefur hækkað ráðlagðan heildarafla grásleppu. Háskólinn á Akureyri kann að þurfa að hafna allt að helmingi þeirra sem sótt hafa um nám við skólann í haust komi ekki til aukin fjárveiting frá ríkinu. Lengri umfjöllun: Þetta er ekki áfall. Við eigum alltaf að búast við því að það geti orðið sveiflur í nytjastofnum sjávar. Þetta eru viðbrögð Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, við því að Hafrannsóknarstofnun leggur til að dregið verði úr þorskveiðum sem nemur 15 þúsund tonnum á næsta fiskveiðiári. Þetta er í fyrsta sinn í 11 ár sem stofnunin leggur til að dregið verði úr þorskveiðum. Guðmundur Þórðarson fiskifræðingur hjá Hafó segir að ástæðan fyrir sex prósenta skerðingu þorsveiða sé að vísitala milli árganga sé lélegri en talið var. 2016 árgangurinn var lélegur og gert var ráð fyrir því en ekki að fallið yrði svona mikið og raun ber vitni. Arnar Páll Hauksson talaði við Guðmund og Heiðrúnu. Helmingur ljósmæðra hættir á næstu tíu til fimmtán árum og það er farið að bera á skorti. Hugsanlega er nýliðunin þó aðeins að glæðast. Áslaug Valsdóttir formaður Ljósmæðrafélags Ísland

Í síðustu viku tilkynnti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að Ísland myndi leggja hálfan milljarð króna í það verkefni að finna bóluefni við Covid 19. Helmingur fer til sérstaks aðgerðabandalags fjölmargra ríkja, fyrirtækja og stofnana, og hinn helmingurinn fer til bólusetningarbandalagsins GAVI. Og þó að margir hafi líklega aldrei heyrt um GAVI fyrr þá er þar um að ræða tuttugu ára gamalt fyrirbæri eins og Geir Gunnlaugsson, prófessor í hnattrænni heilsu, sagði frá á Morgunvaktinni. Hann segir GAVI hafa skipt sköpum þessi tuttugu ár. Fylgst var með blaðamannafundi í Stokkhólmi á Morgunvaktinni, en verið var að kynna niðurstöður rannsóknar á morðinu á Olof Palme. Vera Illugadóttir fór yfir helstu niðurstöður fundarins, en lögregla hefur grun um að Stig Engström hafi framið morðið þann 28. febrúar 1986. Engström framdi sjálfsvíg fyrir tuttugu árum síðan svo ekki verður gefin út ákæra í málinu og því hefur verið lokað. Á dögunum var endurnýjaður þjónustusamningur við Háskólann á Akureyri þegar utanríkisráðuneytið veitti fimmtíu milljónum króna til háskólans, sem undirstrikar enn frekar mikilvægi Akureyrar sem miðstöð norðurslóðamála á Íslandi. Embla Eir Oddsdóttir er forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands, sem er samstarfsvettvangur stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka á Íslandi sem vinna að málefnum norðurslóða. Andri Yrkill Valsson, fréttamaður á Akureyri, ræddi við Emblu Eir. Tónlist: Can anyone ask for more - Ray Charles, I wonder who?s kissing her now - Ray Charles

Amman kemur úr felum með framtíðarplönin, tilvonandi foreldrar deila reynslu og upplifun af ólíkum bakgrunni og hvernig pabbinn upplifir sig öruggari á Íslandi en í lögregluríkinu USA. Loks velta hjónakornin því fyrir sér hvernig verður að eignast barn af blönduðum kynþætti.(Helmingur þáttarins er á ensku).
Spegillinn 11. febrúar 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gerir ekki ráð fyrir að bóluefni gegn kórónaveirunni verði tilbúið fyrr en eftir eitt og hálft ár. Veiran hlaut í dag nafnið Covid-19. Verkfall 1850 starfsmanna Reykjavíkurborgar, sem eru í Eflingu, hófst í hádeginu í dag, og stendur næstu tvo daga. Það hafði víða áhrif. Ekki hefur verið boðaður samningafundur í deilunni. Viðræður fulltrúa BSRB, BHM, Hjúkrunarfræðinga, ASÍ, ríkis og sveitarfélaga um styttingu vinnuvikunnar fyrir vaktavinnufólk hafa staðið yfir í allan dag og standa líklega yfir fram á kvöld. Þriðji hver Íslendingur óttast að kórónaveiran berist til landsins. Helmingur þjóðarinnar óttast ekki smit, en næstum fimmtungur óttast að veikjast af veirunni. Hilmar Elísson var útnefndur skyndihjálparmaður ársins í dag, en hann bjargaði manni frá drukknun í Lágafellslaug í Mosfellsbæ í janúar á síðasta ári. Hann gerir lítið úr eigin afreki, en segir mjög mikilivægt fyrir fólk að læra skyndihjálp. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sagði í dag þegar hann ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að heimsbyggðin öll ætti að hafna friðaráætlun Donalds Trumps. Sænsk-danska póstþjónustan PostNord er hætt að senda bréf og böggla til Kína. Ástæðan er sú að mörg flugfélög hafa aflýst ferðum til landsins vegna kórónaveirunnar, sem í dag fékk nafnið Covid-19 Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, leiðir fyrsta framboðslista sem kynntur er í hinu sameinaða sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Fljótsdalshéraðs, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Sjálfstæðisflokkurinn birti lista flokksins í þar í dag. Lengri umfjöllun: Rætt við Drífu Snædal forseta ASÍ í Spegilinn um ýmsar hliðar kjarabaráttu, hvað eigi að liggja að baki launakröfum, kröfum um vinnutíma, aðbúnað, hversu mikið á að meta menntun til móts við reynslu og svo framvegis. Það hefur ekki farið framhjá neinum að nú stendur yfir hörð kjaradeila milli félagsfólks Eflingar hjá Reykjavíkurborg og borgarinnar og lausn ekki í sjónmáli, tveggja og hálfs dags verkfall hófst á hádegi og margir óttast að ekki takist að semja fyrir næstkomkandi mánudag þegar ótímasett verkfall hefst. Svo virðist sem að helstu rök borgarinnar séu þau að ófaglærðir nálgist laun faglærðra svo mikið að, að þeir síðarnefndu sætti sig ekki við það og þar með hefjist eltingaleikur eða höfrungahlaup sem ekki sjái fyrir endann á - ára- og jafnvel áratugagamalt endurtekið efni. Kristján Sigurjónsson ræðir við Drífu um leiðir til að komast úr þessar

Engar reglur gilda um fegrunaraðgerðir, og ófaglært fólk gerir þær í bílskúrum og bakherbergjum. Þetta er eins og villta vestrið, segir Ómar Valdimarsson, lögmaður kvenna sem eru illa leiknar eftir misheppnaðar aðgerðir. Jenna Lind Eysteinsdóttir húðsjúkdómalæknir segir að herða þurfi reglur um fyllingaraðgerðir, eins og gert hefur verið um bótox. Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræddi við þau. María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands sakar sjúkraþjálfara um að beita sjúklingum fyrir sig í deilu við yfirvöld. Sjúklingar þurfa nú að greiða allt að átta þúsund krónur fyrir sjúkraþjálfun og sækja sjálfir endurgreiðslu til Sjúkratrygginga. Kristín Sigurðardóttir talaði við hana. Embætti landlæknis hefur safnað upplýsingum frá starfsfólki og sjúklingum á Reykjalundi í gær og í dag. Starfsfólk greinir aukna bjartsýni innanhúss. Andri Yrkill Valsson ræddi við Guðrúnu Karlsdóttir yfirlækni á taugasviði Reykjalundar og Kjartan Hrein Njálsson, aðstoðarmann Landlæknis. Stjórnarmyndunarviðræður eru að hefjast á Spáni. Leiðtogar flokka sem reyndu vikum saman að komast að samkomulagi fyrr á árinu ætla að gera aðra tilraun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Samkvæmt breytingatillögu við frumvarp til fjárlaga sem kynnt var á Alþingi í dag verður ríkinu heimilt að kaupa eða leigja húsnæði til að stækka flugstöðina á Akureyri. Ágúst Ólafsson talaði við Guðjón Helgason upplýsingafulltrúa ISAVIA. Helmingur 16 tonna af olíu sem rann úr oliutanki á Borgarfirði eystra fannst í rotþró sveitarfélagsins. Rúnar Snær Reynisson sagði frá. -------------- Samkvæmt nýrri samevrópskri rannsókn telur mikill meirihluti Íslendinga að lífskjör aldraðra hér á landi séu slæm. Arnar Páll Hauksson ræddi við Sigrúnu Ólafsdóttir prófessorí félagsfræði við Háskóla Íslands. Viðhorf fólks til vinnu eru að breytast, segir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, yngra fólk vilji ekki verða þrælar vinnunnar. Íslendingar hafi löngum skorið sig frá nágrannaþjóðum í því að setja samasemmerki milli þess að vinna mikið og vera duglegur. Guðbjörg varar við því að stytting vinnutíma geti aukið álag ef verkefnum er ekki fækkað. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Guðbjörgu Alþjóðlegur rannsóknarhópur fræðimanna með viðamikla þekkingu á fleygrúnum, efnafræði matvæla og matvælasögu, hefur unnið að endurgerð elstu mataruppskrifta veraldar. Matargerðarlistin hefur ekki breyst svo mikið í fjögur þúsund ár. Pálmi Jónasson sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Stjórn útsendingar í fréttahluta: Bj

Aðeins 3.200 laxar hafa veiðst það sem af er sumri. Allt árið í fyrra veiddust um 45 þúsund fiskar og því ljóst að það stefnir í afar slakt veiðisumar. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, var á línunni. Landsmenn hafa fært rúma 58,3 milljarða króna úr séreignasjóðum sínum inn á húsnæðislán á þeim fimm árum sem það hefur verið leyfilegt. Ríkið reiknar með að verða af þremur milljörðum króna á ári vegna framlengingar úrræðis sem leyfir landsmönnum að nýta sjóð sinn til niðurgreiðslu lánanna. Úrræðið hefur verið framlengt til ársins 2021. Við ræddum málið við Þóreyju S. Þórðardóttur framkvæmdastjóra Landssamtaka Lífeyrissjóða. Elísabet Margeirsdóttir víðavangshlaupari varð önnur kvenna í Laugavegshlaupi helgarinnar þrátt fyrir að hafa samdægurs hlaupið leiðina fyrir keppnina. Hún hljóp því 110 kílómetra þennan dag. Göngugarpar fara leiðina oft á fjórum dögum en hörðustu hlaupararnir á örfáum klukkustundum. Elísabet hljóp eins og þekkt er 400 kílómetra í Góbí-eyðimörkinni í október. Elísabet ofurhlaupari var á línunni. Helmingur Íslendinga er með yfir 632 þúsund krónur í mánaðalaun en hinn helmingurinn undir. Algengustu heildarlaunin hér á landi á bilinu 550 til 600 þúsund krónur á mánuði en launamenn hjá ríkinu fá hæst laun að meðaltali, rétt yfir 800 þúsund, hærri en eru greidd á almennum markaði. Þetta má sjá í nýjum tölum Hagstofunnar. Athyglisvert er að sjá að aðeins 20% heilbrigðisstarfsmanna hafa yfir milljón á mánuði og 40% starfsmanna heilbrigðis- og félagsþjónustu hafa undir sex hundruð þúsundum króna. Erna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri BHM og Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga komu til okkar og ræddu stöðuna. Við litum yfir íþróttir helgarinnar með Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafréttamanni. Tónlist: Sváfnir Sig - Fólk breytist. Elvis Presley - In the ghetto. ABBA - Lay all your love on me. Nýdönsk - Horfðu til himins. Jonathan Wilson - Love to love. KK og Björk - Borg mín borg. Travis - Side. Jón Jónsson - Komið þér sælar. Noel Gallaghers High Flying Birds - Black star dancing. Gossip - Heavy Cross.
Það er enginn gestur í Fuzz í kvöld - en þeim mun meira af músík - meiri músík -minna mas! Plata þáttarins er plata Neil Young sem kom út fyrir 40 árum síðan og heitir Rust never sleeps. Platan kom út 22. Júní 1979 á vegum Reprise útgáfunnar og þykir ein af hans bestu. Þetta er að mörgu leiti merkileg plata sem er að hluta tekin upp á tónleikum í Borading House í San Fransisco í tónleikaferð Neil og Crazy Horse síðla árs 1978 en svo er einu og öðru bætt inn eftirá. Helmingur plötunnar er órafmagnaður en hinn mjög rafmagnaður. Við ætlum bara að heyra lög af rafmögnuðu - B-hliðinni í Füzz í kvöld. Sama lagið opnar og lokar plötunni. My My, Hey Hey (out of the blue - órafmagnað) og Hey Hey, My My (into the black - rafmagnað). B-hliðin var tekin upp á ýmsum tónleikum haustið 1978. Neil notaði þennan frasa; „Rust never sleeps“ sem konsept fyrir tónleikaferðina sem hann fór ásamt Crazy Horse 1978 og var einskonar leikhúskryddaður túr með proppsi og stælum. Rust never sleeps kemur upphaflega frá Rust-Oleum málningu en Neil heyrði Mark Mothersbaugh úr hljómsveitini Devo nota þetta þegar Neil var að vinna með Devo nokkru fyrr. Neil gerði tónleikakvikmynd á þessum sama tíma sem hann leikstýrði sjálfur og heitir líka Rust Never Sleeps. Og síðla árs 1979 kom út tónleikaplatan Live Rust sem hefur að geyma upptökur af nýjum og eldri lögum Neil eins og hann spilaði þau með Crazy Horse 1978. Við heyrum nokkur lög af Rust Never Sleeps í kvöld og A+B með Steppenwolf. Þar fyrir utan heyrist Deep Purple, Gar Clarke Jr. Sólstafir, Dimma, Bootlegs, Rory Gallagher, Jack White, U2, Ramones, Dropkick Murphys, Brian Fallon, ZZ Top, Joyous Wolf, King Gizzard and the Lizard Wizard, Wolfmother, Jerry Lee Lewis, Robert Plant ofl.

Forsætisráðherra segist bjartsýn á að lagðar verði fram breytingatillögur á stjórnarskránni á Alþingi á þessu kjörtímabili og kosið um breytingar á henni eftir næstu kosningar. Formenn allra flokka samþykktu í dag að leggja fram drög að stjórnarskrárbreytingum um umhverfismál og auðlindir í náttúru Íslands. Lögmaður eins hinna sýknuðu í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu segir að bótafjárhæð sem þeim standi til boða sé of lág miðað við fordæmi í málinu. Hann segir að ríkisstjórnin hefði átt að leggja til veglegar bætur. Losun gróðurhúsalofttegunda dregst saman um 19% fram til ársins 2030 samkvæmt útreikningum Umhverfisstofnunar. Forstjórinn er samt bjartsýnn því enn eigi eftir að meta áhrif fjölmargra aðgerða sem boðaðar eru í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Arnar Páll Hauksson talar við Kristínu Lindu Árnadóttur. Helmingur landsmanna er andvígur þriðja orkupakkanum, Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. 98 prósent stuðningsmanna Miðflokksins eru á móti orkupakkanum Rafdreifikerfið á höfuðborgarsvæðinu getur annað vaxandi kröfum um rafmagn vegna orkuskipta, segir framkvæmdastjóri Veitna. Þó megi gera ráð fyrir flöskuhálsum og álagsstýringu á rafmagninu. Stjórnvöld þurfi þó að koma að málinu ef tengja á skemmtiferðaskip við rafmagn í höfnum. Viðskiptaveldi Donalds Trumps byggist á sýndarveruleika eða leiktjöldum. Hann var orðinn raunveruleikastjarna áður en sjónvarpið fór að snúast um slíkar persónur. Hann baðaði sig í sviðsljósinu sem farsæll viðskiptajöfur en skattaskýrslur sem The New York Times hefur birt sýna að hann tapaði meira en milljarði bandaríkjadala á einum áratug. Pálmi Jónasson segir frá.
Hvernig ber maður sig að ef mann langar að skrifa skáldsögu? Kristján Hreinsson skáld kennir fólki þessa dagna skáldleg skrif á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Kristján kom í þáttinn og sagði upp og ofan af því hvernig hann hjálpar fólki að taka fyrstu skrefin á ritvellinum. Internetið hefur breytt öllum mannlegum samskiptum á jörðinni. Helmingur mannkyns er tengdur og hinn helmingurinn vill tengjast. En hefur netið staðið undir væntinum sem lýðræðislegt tæki til að auka jöfnuð og skilning manna á meðal? Nei, segir Andrew Keene, höfundur bókar, sem heitir “The Internet Is Not The Answer“. Magnús R. Einarsson kíkti í bókina og sagði frá helstu niðurstöðum höfundarins í pistli í dag. Nemendur í leiklist í Borgarholtsskóla kynnast flestum hliðum leiklistar og þessa dagana eru þau að vinna útvarpsleikrit sem þau skrifuðu sjálf og leika öll hlutverkin í. Verkefnið er unnið í samvinnu við Krakka RÚV og verður flutt í útvarpinu, því hafa þau verið þessa vikuna við upptökur í hljóðveri númer 12 hér í Efstaleitinu, sem er einmitt heimili Útvarpsleikhússins hér á bæ. Við tókum tvo nemendur, Tinnu Björk og Kristófer Pál og kennara þeirra Guðnýju Maríu Jónsdóttur, tali. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Þrír bekkir úr Hagaskóla ætla að ganga í átta klukkutíma að gosstöðvum Eyjafjallajökuls frá Básum í Þórsmörk til að styrkja samtökin Eitt líf og Bjarta sýn. Með göngunni safna þau áheitum og við fengum til okkar tvo nemendur úr hópnum, þau Guðrúnu Þóru og Muhammed sem sögðu okkur meira. Við ræddum ójöfnuð og stéttaskipti í íslensku samfélagi sem Guðmundur Ævar Oddsson, félagsfræðingur og dósent við Háskólann á Akureyri, hefur rannsakað í mörg ár. Hann var á línunni og sagði mikla stéttaskiptingu hér á Íslandi og eignastöðu ójafna eins og kom fram á fundi um málið um helgina. Þegar Hulda var á ferð í Landréttum í síðustu viku hitti hún á Erlend Ingvarsson bónda í Skarði, sem er einn umsvifamesti sauðfjárbóndi á Suðurlandi. Þau ræddu m.a. stöðuna í sauðfjárræktinni og við heyrðum hvað fór þeim á milli. Helmingur landsmanna sækir helst fréttir af vefsíðum fréttamiðla. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 3. ágúst til 10. ágúst. Þá kváðust 18% helst sækja fréttir í sjónvarp og 9% í útvarp. Athygli vekur að einungis 4% kváðust helst sækja fréttir í dagblöð en 9% sækja helst fréttir af samfélagsmiðlum. Valgerður Anna Jóhannsdóttir, aðjúnkt í blaða- og fréttamennsku við Félagsvísindasvið settist hjá okkur til að ræða þetta frekar ásamt Kolbeini Tuma Daðasyni varafréttastjóra Vísis. Haukur Harðarson fór yfir helstu íþróttafréttir helgarinnar, m.a. endukomu Tiger Woods. Anna Sigríður Þráinsdóttir ræddi íslenskt mál eins og alltaf á mánudögum. Tónlist: GDNR - Hvað ef (ft. Auður). Stuðmenn - Ólína og ég. Elton John - Nikita. TLC - No scrubs. Paul McCartney - Fuh you. Amabadama - Hermenn. U2- Love is bigger than anything in its way. Hildur Vala - Sem og allt annað.
Upp komst um alvarlegan öryggisgalla í örgjörvum í fyrradag en gallinn getur haft áhrif á mörg þeirra tækja sem Íslendingar nota, þar á meðal farsíma og tölvur. Gallinn veitir tölvuþrjótum tækifæri til að sækja sér viðkvæmar persónuupplýsingar en svo virðist sem nokkuð sé síðan gallinn varð fyrirtækjum ljós og honum verði haldið leyndum þar til nú. Hingað kemur Smári McCarthy, þingmaður Pírata, og fræðir okkur um hvað þessi öryggisgalli þýðir fyrir almenning sem notar jafnvel mörg þeirra tækja sem búa yfir slíkum örgjörvum daglega. Helmingur allra tölvuleikja í heiminum er búinn til með hugbúnaði sem gerður er af fyrirtækinu Unity sem Davíð Helgason stofnaði ásamt tveimur vinum sínum í Kaupmannahöfn árið 2003. Það hefur vaxið gríðarlega og er nú leiðandi fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum. Alls spila 770 milljónir leiki sem gerðir eru með Unity-lausninni. Davíð hefur verið virkur fjárfestir í sprotafyrirtækjum í tækniheiminum og kemur og ræðir við okkur um þessa velgengni og það sem framundan er í tækniheiminum. Og tilkynnt var í gær að orðið Epalhommi hafi borið sigur úr bítum í kosningunni á orði ársins hér á RÚV. Orðið varð til þegar Hildur Lilliendahl lýsti vanþóknun sinni á fjölmiðlamanninum Sindra Sindrasyni eftir sjónvarpsviðtal sem hann tók og kallaði hann hvítan, kúgaðan, ófatlaðan Epalhomma. Í kjölfarið birti hönnunarverslunin Epal heilsíðuauglýsingu með þekktum hommum úr samfélaginu, sem vakti athygli og kátínu og sneri með því merkingu orðsins úr neikvæðri í jákvæða. Við sláum á þráðinn til Sindra. Eins og alltaf á föstudögum förum við yfir fréttir vikunnar. Til okkar koma Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins, og Sunna Karen Sigurþórsdóttir, nýr aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins. Freyr Gígja Gunnarsson kemur í sína vikulegu heimsókn og fer yfir það helsta úr heimi ríka og fræga fólksins.