POPULARITY
„Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út. „Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þetta frelsi sem að þau veita okkur sem gerir þetta að verkum. Þau eru ofboðslega skapandi og án þess að vera beint að skapa listaverk, þá eru þau lausnamiðuð og gera hlutina sjálf.“ Fischer systur eru gestir Víðsjár í dag og við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur en líka allt milli himins og jarðar; æskuna í Mosfellssveti, landasala, húsanda, útiveru og skapandi leiki. Lyktina af náttúru Íslands, minningarnar sem hún kveikir og lífið sem hún hefur gefið fjölskyldunni í formi sköpunarverka en einnig samveru og nýrra minninga.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Stefanía Hulda Marteinsdóttir frá bidlisti.is og Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, settust niður með okkur. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi við okkur um launaþróun opinberra starfsmanna. Matthías Bjarnason, oddviti Framsóknar í Árborg er 26 ára og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í Reykjavík er 25 ára. Petra Sigurðardóttir, tannlæknir frá Tannlæknaþjónustunni, ræddi tannheilsu eldri borgara. Gunnar Dan, geimverusérfræðingur ræddi svakalegar vendingar í Bandaríkjunum. Sebastian Óli, samfélagsmiðlafréttamaður hjá RÚV, fór yfir hvernig flokkarnir í borgarstjórnarkosningum hafa staðið sig á samfélagsmiðlum. Enski Boltinn
Föstudagur 24. apríl Vikuskammtur: Vika 17 María Lilja tekur á móti gestum Vikuskammtsins á öðrum degi sumars, en að þessu sinni mæta að borðinu þau Katla Ásgeirsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Freyr Rögnvaldsson.
Þórarinn ræðir við Silju Sóley Birgisdóttur, oddvita Sósíalistaflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í maí.Farið er um víðan völl og rætt um stöðu vinstrisins, húsnæðismál, erjur Sósíalistaflokksins frá því að flokkurinn klofnaði fyrir skömmu, félagslegt húsnæði, skólamál, borgarlínu og óhagnaðardrifin úrræði.Sóley telur að borgin geti hagrætt í rekstri samhliða því að bæta þjónustu við íbúana með því að taka yfir fleiri verkefni og leggja í átak á framboðshlið húsnæðis með óhagnaðardrifnum úrræðum. Hún segir sósíalisma vera lausnina á ýmsum atriðum og að undir hennar leiðsögn sé hægt að skapa jákvætt samfélag byggt á sanngirni og mannréttindum.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Við munum heyra í Benedikti Hjartarsyni prófessor í almennri bókemenntafræði og meningarfærði við háskóla íslands, en hann gaf nýverið út bókina Gáttir, heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943. Í Gáttum hugar Benedikt að áhrifum heimsbókmenntanna á íslenskt menningarlíf á fullveldis árunum. Mikil áhersla var lögð á að byggja upp íslenska nútímamenningu og liður í því verkefni var að kynna nýjustu strauma alþjóðlegra bókmennta fyrir íslensku lesendum. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í ljóðabókina Söngur tímafuglsins og fleiri ljóð, eftir Ægi Þór Jähnke. En við hefjum þáttinn á því að hverfa aftur til 11.aldar með Hauki Þorgeirssyni.
Gestur minn þessa vikuna er Silja Sóley Birgisdóttir. Silja er oddviti Sósíalista í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, stuðningsfulltrúi og margt fleira. Hún er gjörsamlega frábær og mögnuð. Við spjölluðum meðal annars um jákvæðni, hugrekki, áskoranir, Sósíalistaflokkinn, stefnumál Silju, kosningarnar í vor og pólitík. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Egils Kristall - Pizza Popolare - 15% afsláttur með kóðanum JAKASTID - World Class
Mánudagur 9. mars VG, einhverfa, gervigreind og kosningar Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún var kjörin með rússneskri kosningu. Rósa hefur áður verið í VG, en sagði úr flokknum þegar Katrín Jakobsdóttir myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Eyrún Halla Kristjánsdóttir nemi, Guðlaug Svala Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari og einhverfufræðari, Halldóra Hafsteins, stuðningsfulltrúi og aktívisti, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir hönnuður og kynjafræðingur ræða málefni einhverfra á forsendum einhverfra. Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður er þegar farinn að nota gervigreind í sínum störfum. Hann gerir ráð fyrir að víða verði gervigreind notuð til að dæma í einföldum dómsmálum. Hann segir jafnframt að það vanti löggjöf um hvernig megi nota gervigreind í dómsmálum. Silja Sóley Birgisdóttir oddviti sósíalista, Kristín Kolbrún Waage miðflokki ræða sveitastjórnarkosningarnar.
„Ég kalla þessi stóru leirker stundum bara táraglös, þau minna á stundaglös, en telja tár og tengjast okkar innri sjó, okkar innri sjávarföllum,“ segir Á. Birna Björnsdóttir um einkasýninguna Þegar ég lít upp hefur tunglið breytt um lögun, sem opnaði nýverið í gallerí Berg við Klapparstíg. Við lítum við í Berg Contemporary í Víðsjá dagsins. Sölvi Kolbeinsson lítur einnig við í hljóðstofu og segir frá einu lagi af nýju plötunni, Collage. Við heyrum líka rýni Tuma Árnasonar í Myrka músíkdaga og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um Fröken Dúllu Kristínar Svövu Tómasdóttur.
Sagan um Galdrakarlinn í OZ byggir á samnefndri bók Frank Baums sem öðlaðist nýtt líf með frægri kvikmynd frá 1939 þar sem Judy Garland fór með hlutverk Dóróteu. Síðan þá hafa óteljandi útgáfur litið dagsins ljós, bæði á sviði og á hvíta tjaldinu og ekkert lát virðist vera á vinsældum söngleiksins. Þar spillir ekki fyrir tónlistin með ógleymanlegum lögum á borð við Somewhere Over the Rainbow. Sýningin Galdrakarlinn í Oz verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Hlutverk Dóróteu í þetta sinn er í höndum Þóreyjar Birgisdóttur. Þórey kom í þáttinn ásamt Björgvini Franz Gíslasyni, en hann leikur Tinkarlinn. Um helgina fer fram árleg talning á garðfuglum á vegum Fuglaverndar. Tilgangurinn er að safna langtímaupplýsingum til þess að m.a. að fylgjast með hugsanlegum breytingum í fjölda og tegundasamsetningu. Vala Friðriksdóttir líffræðingur og félagi í Fuglavernd kom til okkar í dag og sagði okkur frá því hvernig þetta fer fram og gaf góð ráð fyrir þau sem vilja taka þátt í talningunni og fyrir þau sem vilja fóðra fugla í sínum görðum. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa, í þetta sinn talaði hann um samskipti á vinnustað, en þau geta svo sannarlega verið flókin og ýmislegt sem hafa má í huga. Tónlist í þættinum: Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson) Somewhere Over the Rainbow / Judy Garland (Harold Arlen, texti E.Y. Harburg) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) You've Lost That Loving Feeling / Righteous Brothers (Barry Mann, Cynthia Weil & Phil Spector) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í dag opnar einkasýning myndlistarkonunnar Eirúnar Sigurðardóttur í Grafíksal Hafnarhússins. Sýninguna nefnir hún Heimahöfn, en hún samanstendur af fjórum viðamiklum útsaumsverkum, auk grafíkverks. Heimahöfn er í raun framhald af einkasýningu Eirúnar á Svavarssafni á Höfn í Hornafirði í fyrra, og báðar byggja á hugleiðingum um það að eiga einhvers staðar heima. Skáldin Fríða Ísberg og Brynja Hjálmsdóttir líta líka við í hljóðstofu til að segja okkur af stærsta ljóðskáldi Kóreu, Kim Hyesoon, sem kemur fram á ljóðaviðburði í Mengi á laugardagskvöld. Og Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í nýútkomna skáldsögu Einars Kárasonar, Sjá dagar koma.
Við erum flest hver meðvituð um að hugarfarið skiptir miklu máli þegar kemur að líðan en við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því, hversu mikið það hefur að segja um hvað gerist í lífi okkar. Niðurstöður rannsókna í þessum efnum hafa sýnt að það að virkja hugann betur í jákvæðri hugsun til þess að breyta lífinu og ná betri stjórn á hvaða skilaboð við sendum frá okkur. Við rædddum þetta við Hrefnu Guðmundsdóttur, en hún er menntuð í náms- og starfsráðgjöf, stjórnmálafræði og heimspeki og er auk þess jógakennari og markþjálfi. Katrín Björk Birgisdóttir vakti athygli á síðasta ári fyrir myndbönd þar sem hún sýndi hvernig henni tókst að komast af með nokkur þúsund krónur í vikumatseðil fyrir fjölskylduna. Einnig sagði hún frá markmiðum sínum fyrir árið 2025 en meðal þeirra var að greiða tíu milljónir inn á húsnæðislánið fyrir áramót. Við forvitnuðumst í dag um það hvernig hún fór að þessu og hvernig gekk. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Hann tók upp þráðinn frá því síðast og hélt áfram að tala um það sem fólk sér eftir því að hafa gert, eða ekki gert, þegar það lítur um öxl þegar komið er á lokastöð ævinnar. Það er áhugavert að heyra hverju fólk sér eftir því það getur gefið okkur vísbendingar um það sem skiptir mestu máli í lífinu. Tónlist í þættinum: Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Ósvikin ást/ Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Þú ert mín / Valdimar Guðmundsson og Helgi Júlíus (Helgi Júlíus Óskarsson) Moist / PPCX (Chiwon Lee, Jihan Jeon & Kiik) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Á sunnudag tekur svokallað Tónfölsunarverkstæði yfir Salinn í Kópavogi. Á verkstæðinu starfar hópur ungs tónlistarfólks sem hefur sérhæft sig í svokölluðum sögulegum spuna, en hópurinn býður áheyrendum upp á tónlist af fjölbreyttu tagi og stíl, en af óljósum uppruna. Við lítum inn á Tónfölsunarverkstæðið og forvitnumst nánar um málið. Við höldum líka áfram með bókarýnina, að þessu sinni rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í skáldsögu Fríðu Ísberg, Huldukonuna. Katla Ársælsdóttir fjallar um hina umtöluðu Óristeiu, í leikstjórn Benedicts Andrews, sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu um jólin og við förum á flakk í dag með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði Reykjavíkur. Að þessu sinni hittum við Henný framan við byggingu sem eitt sinn var mikil umferðamiðstöð og hálfgert móttökuhúsnæði borgarinnar fyrir ferðamenn. Þetta er að sjálfsögðu BSÍ, sem Gunnar Hansson hannaði um miðja síðustu öld.
Hreiðar Ingi Þorsteinsson er höfundur Jólalags Ríkisútvarpsins árið 2025. Lagið samdi hann við gamla þjóðvísu, Kerling heitir Grýla, sem birtist án tilgreinds höfundar í Stafrófskveri handa börnum, útgefnu á Akureyri, árið 1873. Hreiðar Ingi er jafnframt stjórnandi kammerkórsins Huldar, sem flytur lagið, en Huldur er óvenjulegur kór sem frumflutt hefur fjölda íslenskra kórverka á skammri ævi sinni. Hreiðar Ingi leit við í hljóðstofu fyrir frumflutninginn. Gauti Kristmannsson og Soffía Auður Birgisdóttir rýna síðustu tvær bækurnar fyrir jól, Ósmann Joachims Schmidt og Þyngsta frumefni Jóns Kalmans, en við eigum þó eftir að heyra fleiri umfjallanir um bækur eftir áramót, enda jólabókaflóðið langt í frá uppurið. En við byrjum á því að gera upp leikárið, með Trausta Ólafssyni.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Gyða Hjartardóttir og Stefanía Dögg Jóhannesdóttir, sérfræðingar á gæðasviði hjá Barna- og fjölskyldustofu, kíktu við. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, ræddi samgönguáætlun, markrílveiðar og jólin. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir stöðuna í pólitíkinni í borginni og ríki. Lilja Eivor Gunnarsdóttir Cederborg, höfundur bókarinnar Gunnar í Vinalandi og Indíana Björk Birgisdóttir, teiknarinn settust niður með okkur. Tónlistarkonan Klara Einarsdóttir ræddi við okkur um tónlistina.
Í jólabókaflóðinu þetta árið er að finna bók fyrir allra yngstu lesendurna sem er algjör perla. Bók sem kom fyrst út árið 1972 en hefur nú verið endurútgefin, Rauði fiskurinn eftir Rúnu. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Rúna er fædd í nóvember árið 1926 svo hún verður hundrað ára á næsta ári, en hún flutti nýverið á Hrafnistu í Hafnarfirði þangað sem Víðsjá heimsótti hana. Fyrir hver jól, frá því að hann tók við tónlistarstjórn í Breiðholtskirkju fyrir 14 árum, hefur Örn Magnússon útsett jólalög úr íslenskum tónlistararfi fyrir kór Breiðholtskirkju, hljóðfæraleikara og einsöngvara. Nú eru þessi jólalög komin út á plötu og við báðum Örn um að líta við í hljóðstofu og segja okkur nánar af tilkomu hennar. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Veg allrar veraldar eftir Sigríði Hagalín
Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræðingur, rithöfundur og skáld, sendi nýverið frá sér bókina Stúlka með fálka, sem hún skilgreinir sem Skáldævisögu - fullorðinsminningar til aðgreiningar frá fyrri ævibók. Þórunn á 40 ára höfundarafmæli á næsta ári en í þessu verki fer hún í gegnum störf sína og ævi en eins og hún segir sjálf í inngangi bókarinnar er „ævisaga afbragð til að skoða kjarna þess að vera maður.” Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns kemur í þáttinn og segir frá nýbökuðum Gerðarverðlaunahafa: Sólveigu Guðmundsdóttur. Og við heyrum einnig rýni í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í bók Kristínar Ómarsdóttur, Móðurást: Sólmánuður.
Nýlega lék jazzgoðsögnin Wadada Leo Smith á stappfullum tónleikum í Iðnó, í lok sinnar síðustu tónleikaferðar um Evrópu eftir 60 ára feril. Wadada hefur sótt Ísland heim í nígang og haft mikil áhrif á íslensku jazzsenuna og Tumi Árnason ætlar að segja okkur af því í þætti dagsins. Við hringjum líka norður í Eyjafjörð, því þar tekur myndlistarkonan Aðalheiður Eysteinsdóttir vel á móti fólki á aðventunni og eitthvað kemur jólakötturinn þar við sögu. Auk þess fjallar Soffía Auður Birgisdóttir um nýútkomna bók Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur, Þegar mamma mín dó, og Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir, sagnfræðingur, kemur í hljóðstofu, en hún sendi fyrir skömmu frá sér bókina Piparmeyjar, - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi.
Við höldum í Gallerý Þulu á sýninguna Í hringiðu alls, þar sem Helga Páley Friðþjófsdóttir sýnir ný málverk. Málverkið hefur lengi verið kjarninn í hennar listrænu nálgun, þar sem óhlutbundinn veruleiki verður til í gegnum marglaga ferli þar sem spuni, innsæi og endurtekning leika stóran þátt. En líka tíminn og auðvitað efinn. Sunna Gunnlaugsdóttir jazzpíanisti verður einnig gestur okkar í dag en Tríó hennar leikur nýtt efni í Múlanum á miðvikudag. Og Soffía Auður Birgisdóttir rýnir hún í skáldsögu Nínu Ólafsdóttur, Þú sem ert á jörðu.
Fimmtudagur 6. nóvember Jamaíka, reynsluboltar, kynlífsverkafólk, Birta og skotveiðimenn Claudia A. Wilson segir Laufeyju Líndal frá eftirleik fellibylsins Melissu sem reið yfir eyjarnar í Karabíska hafinu í síðustu viku. Claudia ólst upp á eynni Jamaíku og segir okkur frá samfélaginu þar sem nú bíða ýmsar áskoranir. Bogi Ágústsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Björg Eva Erlendsdóttir ræða fréttir og tíðaranda líðandi stundar, efnahagsmál, trúverðugleika opinberra stofnana, umhverfismál, nýjan borgarstjóra í New York og fleira. Björn Þorláks hefur umsjón með þættinum. Ari Logn frá Rauðu regnhlífinni samtökum kynlífsverkafólks mætir til Maríu Lilju og fer yfir nýlega ráðstefnu um málefni fólks í kynlífsvinnu. Halldóra Kristin Guðjónsdóttir og Linda Sólveig Birgisdóttir fjalla um skyndilegan dauða sona sinna. Einnig segja þær frá Birtu, landssamtökum, sem halda utan um fólk sem lendir í skyndilegu fráfalli barna sinna en það er Ragnheiður Davíðsdóttir sem ræðir við þær. Skotveiðimenn ætla ekki að una aðgerðalaust úrskurði sem hefur leitt til lokunar skotsvæðis þeirra í Álfsnesi. Áki Ármann Jónsson, formaður Skotvís og Róbert Reynisson formaður Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis ræða við Björn Þorláks.
Lóa Björk og Hanna Sigþrúður Birgisdóttir kryfja internetfyrirbærið performative male, sem er allt í senn brandari, steríótýpa og fatastíll. Við rýnum í heimildarmyndina Jörðin undir fótum okkar eftir Yrsu Roca Fannberg þar sem fylgst er með lífi og dauða á hjúkrunarheimilinu Grund. Kolbeinn Rastrick segir frá myndinni. Og við ræðum af hverju læknanemar ættu að lesa skáldsögur og ljóðlist til að verða betri í starfi sínu. Guðrún Steinþórsdóttir bókmenntafræðingur kemur og ræðir læknahugvísindi.
Á áttunda áratugnum komu fram kenningar um vitsmuni plantna og kosti þess að spila fyrir þær tónlist til að auka vöxt. Hljómplata Mort Garson, Plantasia frá 1976, er í takt við þessar pælingar, en hún verður flutt á tónleikum í Garðheimum á laugardag, á tónlistarhátíðinni State of the Art. Víðsjá hitti aðstandendur hátíðarinnar í Garðheimum, þá Bjarna Frímann, Berg, Magnús Jóhann og Sverri Pál. Einnig kynnum við okkur Forntónlistarhátíðina Kona sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk heldur nú í fjórða sinn, en þar er flutt tónlist eftir konur sem brutust út úr hefðbundnum kynhlutverkum síns tíma til þess að sinna listinni. Og Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Með minnið á heilanum eftir Þórhildi Ólafsdóttur.
Þórey segir frá verðlaunaverkinu Ífigeníu í Ásbrú en hún hlaut tilnefningu til Grímununnar sem leikkona ársins í aðalhlutverki.
Charlie Kirk var íhaldsmaður og aktivisti, stonfandi samtakanna Turning Point sem voru stofnuð í þeim tilgangi að breiða út íhaldsöm gildi í Bandarískum háskólum. Hann var myrtur í háskóla í Utah í Bandaríkjunum í gær og er morðingja hans enn leitað. Kirk var afar vinsæll og náinn bandamaður Trump bandaríkjaforseta. Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaði, hefur fylgst með Kirk undanfarin ár. Síðastliðinn föstudag kom út platan Blokkarbarn sem tónlistarkonunni Ástu. Platan er búin að bíða tilbúin í meira en tvö ár, en óttinn við berskjöldun varð til þess að hún beið tilbúin ofan í skúffu í allan þennan tíma. Hvað er heilafúi? Hvað er Gonster? Og er Gonster heilafúi? Hanna Sigþrúður Birgisdóttir er háskólanemi og hlaðvarpsstjórnandi Lof mér að tala. Hún hefur smakkað Gonster.
Rithöfundurinn Karítas Hrundar Pálsdóttir hefur gert árstíðir, dagatöl og vikudaga að útgangspunktum í örsagnassöfnum sínum, sem nú eru orðin þrjú. Það nýjasta ber titilinn Vikuspá, og geymir áttatíu og sex sögur á einföldu máli, sem líka eru aðgengilegar þeim sem eru að læra íslensku sem annað eða þriðja mál. Á vordögum kom út úrval úr ljóðum norksa ljóðskáldsins Knuts Ødegård, í þýðingu Gerðar Kristnýar, sem ber yfirskriftina Áður en hrafnarnir sækja okkur. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins. Sýningin Algjörar skvísur er sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar en að þessu sinni var tillaga þeirra Jösu Baka og Petru Hjartardóttur valin úr fjölda umsagna. Með sýningunni vilja þær kanna þemu sem tengjast mýkt, krafti og kvenlegri orku í samtímalist og við lítum við í Hafnarborg til að taka á þeim púlsinn.
Við fræddumst í dag um nýja uppgötvun vísindafólks Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra í Danmörku þar sem þau raðgreindu tæplega fimm hundruð sýni úr fósturlátum meðal danskra fjölskyldna og komust að því að ein af hverjum 136 þungunum endar með fósturláti vegna nýrra stökkbreytinga í fóstrinu. Þetta samsvarar því að slíkar stökkbreytingar valdi um milljón fósturlátum árlega á heimsvísu. Hákon Jónsson og Guðný A. Árnadóttir, vísindafólk hjá Íslenskri erfðagreiningu, komu í þáttinn í dag og útskýrðu fyrir okkur hvernig þessar rannsóknir komu til, hvernig þær voru framkvæmdar, niðurstöðurnar og hvað þær þýða. Þrátt fyrir jarðskjálfta, eldgos og viðvarandi óvissu í Grindavík hefur fyrrverandi kennari, og fyrrverandi upplýsinga- og markaðsfulltrúi bæjarins til 17 ára, Kristín María Birgisdóttir, fundið ný tækifæri til að halda sögu Grindavíkur á lofti. Hún hefur stofnað ferðaþjónustufyrirtækið DISCOVER GRINDAVÍK fyrir erlenda og innlenda ferðamenn þar sem hún ætlar að rekja sögu bæjarins og náttúruhamfaranna undanfarin ár. Kristín María sagði okkur frá þessu í þættinum. Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í dag með veðurspjallið, reyndar í beinni sambandi frá Lettlandi. Í þetta sinn talaði hann við okkur um hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa í Eystrasaltsríkjunum. Svo talaði hann um moskítóflugur og vangavelturnar sem koma upp aftur og aftur, þ.e. af hverju þær berast ekki til Íslands? Á meðan þær til dæmis grassera á Grænlandi. Tengist það veðurfarinu? Og að lokum endaði Einar á hugleiðingum um sjávarhitann, sem er nú óvenjulega hár fyrir norðan land, hvað veldur því? Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Ðe lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Hæ Mambó / Haukur Morthens og Kvintett Jörn Grauengaard (Merril, texti Loftur Guðmundsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Dansdagar hefjast í dag og standa yfir fram á laugardagskvöld. Hátíðin er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og Dansverkstæðisins og markmið hennar er að sögn aðstandenda að bjóða bæði atvinnudönsurum og áhugafólki upp á þjálfun og innsýn inn í ýmsa kima danslistarinnar og vekja þannig athygli á dansinum sem sameiningarafli. Danshöfundurinn og verkefnastjórinn Kara Hergils Valdimarsdóttir lítur við í hljóðstofu og segir okkur frá hátíðinni. Annars erum við að mestu með hugann við bókmenntir í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skrif á mörkum bókmenntagreina, og tekur þar sérstaklega fyrir verk sagnfræðingsins Vals Gunnarssonar og Anna María Björnsdóttir hugar að sjö binda skáldsögu Solvej Balle, Rúmmálsreikningi, með bókmenntafræðingnum Snædísi Björnsdóttur.
Eftir Auði Sveinsdóttur Laxness liggur fjöldi textílverka og greinaskrifa um hannyrðir og textíl, en mörg af verkum hennar eru varðveitt á Gljúfrasteini. Safnafræðingurinn Marta Guðrún Jóhannesdóttir segir okkur frá verkum hennar, en hún vann um þau sýningu og útvarpsþætti árið 2014. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um verðlaunabók Ingunnar Ásdísardóttur, Jötnar hundvísir, Norrænar goðsagnir í nýju ljósi, og við hugum að skáldskap Þóru Jónsdóttur, sem varð 100 ára fyrr á þessu ári. Dætur Þóru, þær Kirstín og Elín Flygenring, líta við í hljóðstofu til að lesa og fjalla um skáldskap móður sinnar, en á sunnudaginn verður haldin ljóðadagskrá Þóru til heiðurs í Gunnarshúsi.
Helena Margrét Jónsdóttir hlaut á dögunum Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir málverk sem, samkvæmt dómnefnd, þykja vönduð og kyrrlát en á sama tíma með nýstárlegan undirtón sem virkjar ímyndunaraflið og færir áhorfandann inn í draumkenndan hugarheim. Við hittum Helenu Margréti á vinnustofu hennar í þætti dagsins og ræðum við hana meðal annars um pensla, köngulær og afmarkaða vinnudaga. Í þættinum rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í skáldsöguna Speglahúsið eftir Benný Sif Ísleifsdóttur og Trausti Ólafsson segir frá upplifun sinni af óperunni Brím í Tjarnabíói.
Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitti þar framkvæmdastjóra SÍ, okkar góða Guðna Tómasson, Hildi Ploder Vigfúsdóttur, forvörð á Landsbókasafni og Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, til að forvitnast um verkið og tilefnið. Við lítum líka inn á bókamarkaðinn í Holtagörðum og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um sextíu kílóa þríleik Hallgríms Helgasonar. En Víðsjá hefst á tilnefningum til Myndlistarverðlaunanna fyrir árið 2024. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Fyrirgef mér námslánin mín kallast sýning Unu Gunnarsdóttur í gallerí Fyrirbæri við Ægisgötu. Þetta er yfirlitssýning verka sem Una hefur unnið eftir útskrift úr námi í Danmörku fyrir tæpum áratug, en hún lærði myndlist í Det Kongelige Danske Kunstakademi með áherslu á listmálun og heimspeki. Titill sýningarinnar vísar í námslánatímabilið. Tímabil mikillar jafnvægislistar milli náms, vinnu og barneigna. Marvaðatímabilið sem steypir okkur í skuldir. Una er á því að slíku skuldafeni fylgi einhverskonar hnignun. Hegðunin verði meira dekedent og minna pragmatísk. Siðferðisþröskuldurinn og virðingin gagnvart afborgunum verði lægri og ásókn í lúxus meiri. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Glerþræðina, etnógrafísk brot, eftir Magnús Sigurðsson. Og undir lok þáttar hugum við að bandaríska djasstónlistarmanninum Sun Ra og leggjum við hlustir á nýútkomna plötu stórsveitar hans, Lights on a Satellite.
Hildigunnur Birgisdóttir fór fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn í fyrra og er núna að sýna verkið í Listsafni Íslands.
Karlmaður á fertugsaldri skaut minnst níu til bana í skóla í Örebro í Svíþjóð í dag. Ódæðismaðurinn er sá tíundi sem dó, en það hefur ekki verið staðfest hvernig hann lést. Guðmundur Arnarsson hefur verið bústtur í borginni frá 2014 og er frændi Svanfríðar Birgisdóttur sem er einn skólastjóranna í Risbergska skólanum, sem er nokkurs konar símenntunarmiðstöð fyrir fullorðna. Spegillinn ræddi við Guðmund undir kvöld. Íslensk iðnfyrirtæki flytja langmest út til Evrópu en tollastríð milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins og allar hindranir í alþjóðaviðskiptum eru Sigurði Hannessyni framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins áhyggjuefni. Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur nauðsynlegt að halda dómsmáli um breytingar á búvörulögunum til streitu. Frumvarp atvinnuvegaráðherra breyti engu um það sem þegar hafi gerst en það geti dómur Hæstaréttar gert.
Snorri Sigfús Birgisson verður einn af gestum Víðsjár í dag. Við ræðum verkið Fantasy and Clockwork sem Snorri Sigfús samdi og tileinkaði vini sínum, Hreini Friðfinnssyni myndlistarmanni. Hreinn varð áttræður í febrúar 2023 og skipulögðu vinir hans óvænta veislu af því tilefni, þar sem Snorri Sigfús frumflutti verkið. Við heyrum af veislunni, tilurð verksins og innblæstri, en þeir Snorri Sigfús og Hreinn kynntust á námsárunum í Amsterdam. Við heyrum einnig rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í Dunu, sögu af kvikmyndagerðakonu, eftir þær Kristínu Svövu Tómasdóttur og Guðrúnu Elsu Bragadóttur, og við hittum Völu Sigþrúðar Jónsdóttur á sýningu hennar Pull, í sýningarsalnum Rýmd í Breiðholti.
Við hefjum þáttinn á því að hringja í nýbakaðan Grammy-verðlaunahafa, Víking Heiðar Ólafsson. Þær Kristín Sveinsdóttir söngkona og Þórunn Guðmundsdóttir verða einnig gestir okkar í dag. Kristín syngur í Hliðarspori, nýrri óperu Þórunnar sem fruflutt verður á fimmtudag, og í Brúðkaupi Fígarós, sem Kammeróperan sýnir nú í Borgarleikhúsinu. Báðar óperurnar, og reyndar Rakarinn í Sevilla sem Óður sýnir í Sjálfstæðishúsinu, eru byggðar á leikritum sama leikskálds og fjalla að miklu leyti um sömu persónurnar, en þó á ólíkum tímum. Við ræðum þessa óperuveislu í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Strá fyrir straumi, bók Erlu Huldar Halldórsdóttur um ævi Sigríðar Pálsdóttur. Trausti Ólafsson rýnir í Árið án sumars, sem Marmarabörnin frumsýndu í Borgarleikhúsinu um helgina.
Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í skáldsöguna Moldin heit, eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, en sú bók hefur verið tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. En við hefjum þáttinn á því að kynna okkur leikverkið Ifigenía í Ásbrú sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói í næstu viku. Verkið er einleikur og upprunalegur titill þess er Iphigenia in Splott en þær Anna María Tómasdòttir leikstjóri og Þórey Birgisdóttir leikkona þýddu og staðfærðu verkið fyrir íslenska sviðið.
Í lok Víðsjár verður jólalag ríkisútvarpsins árið 2024 frumflutt, ásamt kynningu höfundar á laginu. Frá því í október hafa umfjallanir um bækur raðast inn í vikurnar í Víðsjá, eins og jólaskraut á tré. Bókarýnarnir okkar þrír hafa tínt upp úr jólakistlinum fjölbreyttar gjafir flóðsins og fært í samhengi og í dag veljum við úr kistlinum dýrindis gripi. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skáldsögu Jóns Kalman, Himintungl yfir heimsins ystu brún og Sölvi Halldórsson fjallar um skáldsögu Dags Hjartarsonar, Sporðdreka. Þessa vikuna höfum við fjallað um ljóðabækur, sem eru eins og fíngerðasta og fallegasta skrautið, gripirnir sem raðast efst á tréð. Og í þessum síðasta þætti fyrir jól fær undurfögur og lítillát ljóðabók að bregða sér í hlutverk stjörnunnar á toppi trésins, það er ljóðabókin Kallfæri, eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Bókin er tíunda ljóðabók Guðrúnar, sem hélt upp á áttræðisafmæli sitt í sumar, en gaf út sína fyrstu ljóðabók árið 2007. Guðrún heimsótti hljóðstofu Víðsjár í morgun. Með frumflutningi jólalags ríkisútvarpsins 2024 í lok þáttar óskar Víðsjá hlustendum sínum bjartra og gleðilegra jóla og þakkar samfylgdina á árinu sem er að líða. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Bára Gísladóttir tónskáld og kontrabassaleikari er fædd í Reykjavík árið 1989. Fjölskyldan fluttist í nokkur ár til Noregs þegar Bára var fimm ára og það var þar sem hún hóf nám á fiðlu. Hún segist þó aldrei hafa náð tengingu við fiðluna og það var ekki fyrr en hún kynntist kontrabassanum 17 ára gömul í Nýja Sjálandi að hún upplifði djúpa og sterka tengingu við hljóðfæri. Bára nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands, Verdi Akademíuna í Mílanó og Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og hún hefur búið í Kaupmannahöfn síðastliðin 10 ár. Tónsmíðar Báru þykja einstakar, nýstárlegar og djarfar. Sjálf segir Bára sína tónlist byggja á hugmyndinni um hljóðið sem lífveru. Verk hennar eru margverðlaunuð og hafa verið flutt víða, bæði af stórum hljómsveitum sem og minni kammerhópum auk þess að vera flutt á tónlistarhátíðum víðsvegar um heiminn. Fjöldi tónlistarmanna, tónlistarhópa og hljómsveita hafa pantað hjá henni verk, en Bára sjálf er einnig virkur flytjandi. Meira um það í þætti dagsins. Og Soffía Auður Birgisdóttir um ljóðabókina Flaumgosa eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur.
Ásdís Óladóttir samdi sitt fyrsta ljóð níu ára gömul en sýndi það ekki nokkurri manneskju. Hún tók upp þráðinn á ný átján ára gömul og byrjaði þá markvisst að skrifa. Ásdís var greind með geðklofa rúmlega tvítug og síðan þá hefur skáldskapurinn verið haldreipi hennar í lífinu. Hún hefur gefið út níu ljóðabækur og í þeirri nýjustu sem kallast Rifsberjadalurinn fjallar Ásdís í fyrsta sinn um þá lífsreynslu að veikjast, leitina að skýringum og leiðina til betra lífs. Ásdís verður gestur okkar í dag og segir okkur frá Rifsberjadalnum, en bókin var tilnefnd til Fjöruverðlauna á dögunum. Þær Guðrún Brjánsdóttir, Herdís Ágústa Linnet og Kristín Ýr Jónsdóttir mynda saman Tríó Esju og leika á föstudagskvöldið franska tónlist frá upphafi tuttugustu aldar á tónleikum sem hafa yfirskriftina Speglar. Tónlistin sækir innblástur úr franskri ljóðlist og frumsamin ljóð Guðrúnar fléttast við tónlistina sem þær flytja. Meira um það í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Friðsemd eftir Brynju Hjálmsdóttur.
Í dag leggjum við leið okkar á rakarastofu í Reykjavík til þess að hitta þau Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, söngvara og forsprakka sviðslistahóspins Óðs, sem sem sýnir nú Rakarann frá Sevilla í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Við setjumst einnig niður við píanóið með Snorra Ásmundssyni, myndlistarmanni og besta píanóleikara heims og heyrum rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í Eldri konur eftir Evu Rún Snorradóttur.
Við förum út á Granda í þætti dagsins og heimsækjum fatahönnuðinn Helgu Lilju Magnúsdóttir. Helga Lilja hlaut hönnunarverðlaun Íslands í byrjun mánaðarins í flokknum vara ársins fyrir ullarpeysuna James Cook. Í umsögn dómnefndar er peysan sögð vera gott dæmi um framúrskarandi íslenska hönnunarvöru sem hafin er yfir síkvika strauma tíðarandans, hugsuð og framleidd fyrir íslenskan veruleika og veðurfar. Við heyrum af sköpunarferlinu, hægri tísku og umhverfi fatahönnuða hér á landi. Einnig heyrum við rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í nýja bók Þórdísar Þúfu Björnsdóttur, Þín eru sárin. Og Nína Hjálmarsdóttir fjallar um Reykjavík Dance Festival.
Steinunn Sigurðardóttir ætlaði sér aldrei að verða skáld. Kvenfyrirmyndir voru ekki margar og um tíma var hún spéhrædd við gáfumennin sem gerðu grín að kerlingabókmenntum. En svo tóku skrifin bara yfir og þegar bókunum fjölgaði, fengu viðurkenningu og fóru að ferðast til útlanda þá var hún orðin skáld, hvort sem henni líkaði betur eða verr. Við ræðum við Steinunni um Skálds sögu í þætti dagisns, en í þessu nýjasta verki hennar segir hún frá sjálfri sér, vinnuherbergjum, vinnuaðferðum og afstöðu sinni til skáldskaparins. Valdís Þorkelsdóttir, viðburðastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, verður gestur okkar í í þætti dagsins og segir frá sínu uppáhalds tónverki. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Ég færi þér fjöll eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.
Við fjöllum um hlutskipti barna á Gaza, nú þegar ísraelska þingið Knesset hefur sett lög sem gera Palestínu-flóttamannahjálpinni, stofnun á vegum Sameinuðu þjóðarinnar, ógerlegt að halda áfram mannúðaraðstoð sinni á svæðinu. Birna Þórarinsdóttir Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi kemur til okkar hér rétt á eftir. Í gærkvöldi var fjallað um dánaraðstoð í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þar heyrðum við sögu Jóns Grímssonar, íslendings sem var búsettur í Washington-ríki í Bandaríkjunum og sótti um dánaraðstoð eftir að hafa greinst með illvígt lungnakrabbamein. Dánaraðstoð er lögleg í Washington-ríki og á nokkrum öðrum stöðum í Bandaríkjunum og Evrópu – og nú kalla sumir eftir að dánaraðstoð verði gerð lögleg hér á landi. Við ræðum við Gunnhildi Kjerúlf Birgisdóttur, fréttamann Kveiks sem greindi frá sögu Jóns í gærkvöldi – og Katrínu Eddu Snjólaugsdóttur, sérfræðing í líknandi hjúkrun. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, heldur áfram að segja okkur frá ferðum sínum í Kólumbíu, þar sem hún er á mikilvægri ráðstefnu um lífræðilegan fjölbreytileika. Síðan kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, til okkar í lok þáttar og ræðir sykursýkislyf og heilahrörnunarsjúkdóma. Tónlist: COLDPLAY - Don't Panic. BAGGALÚTUR - Sólskinið í Dakota.
Gestir Vikulokanna eru Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Ellen Calmon, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík og framkvæmdastýra Píeta samtakanna, og Pawel Bartoszek, varaborgarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík. Þau ræddu meðal annars banatilræðið við Donald Trump, kosningabaráttuna í Bandaríkjunum, nýuppkveðinn dóm yfir Mohamad Kourani, útlendingamál og minnkandi frjósemi Íslendinga. Umsjónarmaður: Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.
Gestir Vikulokanna eru Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR og fyrrum formaður stefnumótunar hjá breska Kvennalistanum, Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, og Þorfinnur Ómarsson, upplýsingafulltrúi hjá OECD í París. Þau ræddu meðal annars úrslit bresku þingkosninganna, frönsku þingkosningarnar, fjöldauppsagnir á Akranesi og erfiðleika stjórnvalda við að ná böndum á fjárhættuspil og veðmálasíður. Umsjónarmaður: Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
Í þættinum kíkjum við inn á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þar var opnuð á dögunum sýning á pínupínu litlum vatnslitamyndum í stórum álrömmum. Og myndefnið á myndunum kemur allt úr einu og sama afmæliskortinu. Það er Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður sem nú sýnir líka verk sín fyrir Íslands hönd á tvíæringnum í Feneyjum, sem hefur sett þessar litlu dularfullu myndir upp á veggina á Mokka í sýningu sem hún kallar Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, heldur áfram umfjöllun sinni um félagsleg húsnæði hér á landi. Í dag er hún með hugan við þátt lækna í uppbyggingu Reykjavíkurborgar. Að lokum hugum við að söngkonunni og skemmtikraftinum Hallbjörgu Bjarnadóttur og kynnum okkur menningarólgu við landnám djasstónlistar á Íslandi.
„Íslendingar eru ekki alveg búnir að fatta hversu mikil auðlind aldan er, og hversu mikið aðdráttarafl býr í Þorlákshöfn.“ Þetta segir Elín Signý Ragnarsdóttir, dansari og einn af stórnarmeðlimum í Brimbrettafélagi Íslands, en nú stendur til að setja landfyllingu í höfnina og þar með eyðileggja öldu sem er sú besta á landinu og þó víðar væri leitað. Gegn þessum framkvæmdum berst Brimbrettafélag Íslands og á morgun halda þau viðburð í Bíó Paradís þar sem tvær heimildamyndir um brimbrettamenningu verða sýndar. Elín Signý verður gestur okkar í þætti dagsins. Einnig rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í ljóðbók Sonju B. Jónsdóttur, Í myrkrinu fór ég til Maríu, sem tilnefnd var á dögunum til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunar, Þorleifur Sigurlásson fjallar um anatólískt rokk og Tómas Ævar veltir fyrir sér hálflesnum. bókum.
8. apríl 2024 Hvað getur starfsstjórn gert? Forsætisráðherra hefur beðist lausnar fyrir ráðuneyti sitt til að bjóða sig fram til forseta, hvaða kostir blasa þá við og hver er staða forseteaembættisins. Norðmenn ætla að stækka her sinn og verja miklu fé til varnarmála á næstunni til að geta brugðist við mögulegri sókn Rússa. Skynúrlausnarvandi er tiltölulega algengur, bæði hjá fullorðnum og börnum en samt skortir nokkuð á skilning aðstandenda að mati Júlíu Margrétar Birgisdóttur stuðningsfulltrúa. sem segir afar mikilvægt að hjálpargögn séu ekki of áberandi.
You've built a product, but how do you take it to market? And who even wants it? To answer that, we've set up a unique call between an entrepreneur and an expert. Birna Dröfn Birgisdóttir built a brainstorming tool called Bulby, and is now ready to take it to market — but isn't sure who her ideal customer is. She gets advice from Brent Tworetzky, SVP of Product at Peloton, who has decades of experience building consumer and SaaS products.
The Frieze art fair has turned 20 this week, and is only growing in its ambitions, having acquired the Armory Show fair in New York and Expo Chicago. So what should we make of Frieze's continuing expansion and what's the mood at Frieze London and Frieze Masters this year? We talk to Tim Schneider, The Art Newspaper's acting art market editor, who is over from New York for the fairs. In Reykjavik in Iceland, the artist-run Sequences Biennial opens on Friday. A former curator of the event is Hildigunnur Birgisdóttir, who will represent Iceland at the Venice Biennale in 2024. Tom Seymour went to the Icelandic capital to talk to her about Venice, Sequences and the Icelandic scene. And this episode's Work of the Week is Open Window, Collioure (1905) by Henri Matisse. The painting is a highlight of the exhibition Vertigo of Colour: Matisse, Derain, and the Origins of Fauvism at the Metropolitan Museum of Art in New York. We speak to Dita Amory, co-curator of the show, about this landmark painting in Matisse's career.Frieze London and Frieze Masters, Regent's Park, London, until 15 October.The Sequences Biennial, entitled Can't See, begins on 13 October and continues until 22 October 2023.Vertigo of Color: Matisse, Derain, and the Origins of Fauvism, Metropolitan Museum of Art, New York, 13 October-21 January 2024; Museum of Fine Arts, Houston, 25 February-27 May 2024. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Viðmælandi þáttarins er Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu og markaðssviðs hjá Vodafone. Sesselía er fædd árið 1976 og alin upp á Egilsstöðum. Hún gekk í Menntaskólann á Egilsstöðum og kláraði BA próf í félagsfræði frá Háskóla Ísland. Hún er með tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, í alþjóða markaðsfræði og vörumerkjastjórnun og í stjórnun mannauðs með áherslu á þekkingar og breytingastjórnun. Sesselía bjó í Svíþjóð í yfir 10 ár þar sem að hún stofnaði og rak fyrirtækið Red Apple Apartments. Eftir að Sesselía flutti aftur heim til Íslands hefur hún starfað sem forstöðumaður stafrænna miðla og markaðsmála hjá Advania, framkvæmdastjóri Íslandspósts og sem forstöðumaður nýsköpunar og markaðsmála hjá Högum. Hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi og setið í hinum ýmsu stjórnum m.a. fyrir Samtök verslunar og þjónustu, hugbúnaðarfyrirtækið AGR og Sýn. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Krónunnar og Arion banka.