POPULARITY
Miðvikudagur 27. Nóvember. Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza Í beinni bjóðum við til borðs þeim Margréti Pétursdóttur, verkakonu, Höllu Gunnarsdóttur, varaformanni VR, Sverri Björnssyni, hönnuði og eftirlaunamanni ásamt Páli Val Björnssyni fyrrverandi alþingismanni. Þau ræða pólitík dagsins við Sigurjón M. Egilsson: Kosningarnar, hverjir sigra og hverjur tapa. Gestir með reynslu og þekkingu. Fólkið á skrifstofu sósíalista svarar spurningu dagsins. Þá ræðast við bræðurnir Egilssynir en í þetta sinn fær Gunnar Smári að sitja fyrir svörum um framboðið. Af efnahagspólitíkinni segir Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur og ritstjóri okkur frá sárlegri vöntun á því sem hann kallar einfaldlega alvöru umræðu um hagstjórn og stefnumörkun fyrir kosningar. Hann útskýrir fyrir okkur strauma og stefnur og tengsl við djúpríki, Trump, Hrunið og framtíðina. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í mengunarmálum hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um vágest á höfuðborgarsvæðinu, loftmengun; útblástur og gosmóðu. Er þetta hættulegt heilsu og hvað er til ráða? Svo heimsækir Jón Kristjánsson fiskifræðingur Rauða borðið en Jón segir skaðlegt fyrir lífríki laxa og nytjar af þeim þegar veiðimenn í ám hérlendis sleppa þeim aftur í árnar. Við kíkjum svo að lokum til Gaza með fulltrúm no borders og solaris. Ræðum brott- og frávísanir af landamærum Íslands og fleira tengt.
Tillaga um vantraust á matvælaráðherra var felld í morgun. Aðeins eru nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin í heild stóð af sér síka tillögu. Ráðherra segir tíma þingsins betur varið í annað en stjórnarliði sem sat hjá efast um erindi VG á þingi og segir eðlilegt að ráðherra sem misbeitir valdi sínu víki. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttakonu um málið og við heyrum brot úr málflutningi Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur og Jóns Gunnarssonar. Flokkadrættir og átök á Evrópuþinginu eftir kosningarnar um síðustu mánaðarmót draga dilk á eftir sér - ekki síst í hinum hefðbundna stólaleik um mikilvægustu embættin hjá Evrópusambandinu. Björn Malmquist talar frá Brussel. Áfangastaðir ferðamanna, sérstaklega inni á hálendinu, eru viðkvæmir fyrir ágangi í byrjun sumars og svo getur veðrið sett babb í bátinn. Í síðustu viku þurfti að loka að Dettifossi vegna þess hve mikil bleyta og krapi var á göngustígum. Þeir gátu verið varasamir en það var líka hætt við að svæðið træðist niður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir viðIngu Dóru Hrólfsdóttur, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun, um friðlýsingar, ástand og heildarstefnu um friðlýsta ferðamannastaði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Í áttunda sinn á rúmlega þremur árum gýs á Reykjanesskaga og glóandi hrauninu fylgir mökkur, ýmis gös og mengunarefni sem stundum rata til byggðar, allt eftir því hvernig vindurinn blæs. Þegar mengun er mikil hefur hún áhrif, sérstaklega á þau sem eru viðkvæm fyrir. Við ætlum að ræða loftmengunina, fyrst við Andrjes Guðmundsson, formann Lungnasamtakanna, og svo við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun. Fyrir nokkrum árum var mikið talað um sjálfkeyrandi bíla í mjög svo nálægri framtíð. Svo var eins og umræðan minnkaði talsvert og jafnvel talað um að slíkir bílar væru ekkert sérstaklega líklegir til að líta dagsins ljós og væru ef til vill tálsýn. Eða fjarlægur draumur. En nú er umræðan aftur að taka við sér, enda bílar komnir á göturnar í þremur borgum í Bandaríkjunum. Við ætlum að velta fyrir okkur sjálfkeyrandi bílum og tala við Hjálmar Gíslason frumkvöðul og mikinn áhugamann um tækniþróun. Hann tók sér far með slíkum bíl vestur í San Francisco á dögunum. Svo fáum við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, í neytendaspjall um kínverska netverslunarrisann Temu - sem hefur sætt gagnrýni af mörgum ástæðum. Tónlist: KACEY MUSGRAVES - Space Cowboy. Bríet - Rólegur kúreki. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Markmið Loftslagsdagsins, sem er árlegur viðburður, er að fjalla um loftslagsmál á mannamáli og í ár er einblínt á aðgerðir. Hér er spurt: hverjir eru að gera hvað núna? Hvað aðgerðir eru í pípunum og hvað ættum við að vera gera? Við tölum við nokkur þeirra sem hafa haldið erindi og tekið þátt í umræðum hér í dag: Chanee Jónsdóttur Thianthong, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun sem kynnti glænýjar tölur um losun Íslands. Eyrúnu Gígju Káradóttur, verkefnastjóra Orkuseturs, sem spurði í sínu erindi hvort við værum hætt við orkuskiptin, Björn Helga Barkarson skrifstofustjóra hjá Matvælaráðuneytinu en yfirskrift erindis hans var Loft, land og líf - og svo er það Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins sem ræddi um loftslagsvegvísa atvinnulífsins. Tónlist: Young, Neil, Nash, Graham, Crosby, Stills, Nash & Young, Crosby, David - Heartland. KÁRI - Into The Blue. MANNAKORN - Göngum yfir brúna.
Útlit er fyrir að brennisteinsdíoxíðsmengun frá elgosinu á Reykjanesskaga nái til meginlands Evrópu, jafnvel Rússlands. Í fyrradag var starfsmaður Bláa lónsins fluttur á sjúkrahús vegna gaseitrunar og Vinnueftirlitið hefur beðið fyrirtæki á svæðinu að yfirfara áhættumat og tryggja öryggi starfsfólks, til dæmis með gasmælum. Það hefur verið töluverð mengun frá þessu gosi en þó ekki jafn mikil og bilaður mengunarmælir í Garði sýndi í fyrradag. Við ræðum mengunina frá gosinu við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun. Við tölum um nýjustu tækni og íþróttir og hvernig tæknin er að breyta þjálfun og keppni. Nú eru alls kyns tæki og tól hengd á íþróttafólk til að safna gögnum um ástand þess og frammistöðu. Myndavélar eru notaðar til að greina öll smáatriði og meira að segja boltarnir í boltaíþróttum eru snjallboltar. Harald Pétursson er sérfræðingur í þessum málum. Málfarsmínúta - aukafrumlagið það. Dýraspjall með Veru Illugadóttur - geimferðir dýra í tímans rás.
Þróun dragsenunnar á Íslandi, saga tvíkynhneigðra og áhrif HIV á kynslóðir homma, tví- og pankynhneigðra karla - þetta og margt fleira mátti fræðast um á Landsþingi Samtakanna 78 sem fór fram um helgina og á föstudegi var aðalfundur samtakanna þar sem kjörin var ný stjórn. Við ræðum við Bjarndísi Helgu Tómasdóttur nýjan formann um þingið og stöðu hinsegin samfélagsins almennt. Það færist í aukana að fólk treysti ekki fullyrðingum fyrirtækja um að hin eða þessi vara sé græn, kolefnishlutlaus eða umhverfisvæn. Talað er um grænþvott og græna þreytu. Þær Birgitta Stefánsdóttir og Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun, ætla að ræða við okkur um grænþreytumerki sem farið er að bera á hjá almenningi og hvað sé til ráða. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall um frjósemi. Tónlist: George Michael feat. Paul McCartney - Heal The Pain. LAUFEY - Street by street.
Nýlega fór í dreifingu fölsuð upptaka af borgarstjóra Lundúna sem olli talsverðu uppnámi. Þar heyrðist rödd hans tala um að göngur mótmælenda sem eru hliðhollir málstað Palestínu, sem fyrirhugaðar voru á minningardegi um lok fyrri heimsstyrjaldarinnar, ættu að njóta forgangs umfram aðra viðburði. Hann réði yfir lögreglunni í Lundúnum og hún gerði eins og hann skipaði. En borgarstjórinn sagði þetta aldrei og engin leynileg upptaka hafði verið gerð. Rödd borgarstjórans hafði verið fölsuð með gervigreind. Nokkuð sem er að verða æ algengara, auðveldara og raunverulegra. Það má telja líklegt að slíkar falsanir á hljóði, myndum og jafnvel myndskeiðum verði mjög áberandi nú þegar styttist í forsetakosningar í Bandaríkjunum. Við ætlum að ræða þetta við Hjálmar Gíslason framkvæmdastjóra Grid og áhugamann um þróun gervigreindar. Litlu plastöskjurnar utan um smjör eða sultu, pínulitlir hótelsjampóbrúsar, falskir botnar - innan skamms verður þetta allt bannað - það er þegar ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins - sem nú er langt komin - verður að veruleika. Við ætlum að ræða við Birgittu Stefánsdóttur, sérfræðing í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun um framtíð plastumbúða, hvort hér verði settar upp flöskuþvottastöðvar og um sykurreyrsboxin sem eiginlega bara hurfu.
Mánudagurinn 4. mars Dauði nýfrjálshyggju, hatur, Guantanamo, umhverfi og kjaraviðræður Þorvaldur Gylfason prófessor kemur að Rauða borðinu og segir okkar frá Joseph Stiglitz og erindi hans í Háskólanum, um dauða nýfrjálshyggjunnar og þörf fyrir nýtt stýrikerfi í samfélaginu. Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International ræðir hatur og rasisma. Ögmundur Jónasson segir okkur frá Máritínumanninn Mohamedou Ould Slahi sem heldur erindi á laugardaginn og bíómyndinni sem gerð var um hann. Auður H. Ingólfsdóttir sviðstjóri hjá Umhverfisstofnun kemur að Rauða borðinu og bregst meðal annars við spurningunni hvort heimurinn sé að óbreyttu að fara til helvítis. Og Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir kjaraviðræður og greinir átökin sem þar birtast.
5. febrúar 2024 Því er spáð að verðbólgan í Argentínu fari yfir 250 prósent í ár. Lífskjör landsmanna versna stöðugt. Meira en fjórir af hverjum tíu eru undir fátæktarmörkum. Verslun með notuð föt hefur aukist hér á landi undanfarin ár og verslunum með notaðan fatnað fjölgað mikið. Þetta er breyting í anda hringrásarhagkerfisins segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Hins vegar er engu minna hent af textíl. Flutt hafa verið út um 2500 tonn af textíl á ári undanfarin sjö ár og virðist það ekki vera að dragast saman. Finnar velja sér forseta 11. febrúar. Það er seinni umferð í kosningunum og valið stendur milli þeirra Alexanders Stubbs og Pekka Haavistos.
Eldgos hófst norður af Grindavík í gærkvöldi. Og það hófst með miklu meiri krafti en fyrri gos undanfarið á Reykjanesi. Mikið dró úr kraftinum þegar leið á nóttina og virknin afmarkast nú við 300 til 500 metra langa rein um miðbik upphaflegu gossprungunnar. Brennisteinslosun á tímaeiningu var sögð tífalt meiri en var í síðustu þremur gosum á Reykjanesi. Við ætlum að tala um gös, gufur og móðu við Þorstein Jóhannsson sérfræðing í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun og velta fyrir okkur hvort útlit sé fyrir loftmengun vegna gossins. En við tölum ekki bara um eldgos. Við fjöllum líka um DNA-rannsóknir á steingervðum svifþörungum. Sara Harðardóttir, doktor í þörungafræði hjá Hafrannsóknastofnun, ætlar að segja okkur frá rannsóknum sínum, en hún hefur rannsakað plöntu- og dýrasvif á norðurhveli jarðar í um áratug og rannsóknir hennar varpa meðal annars ljósi á áhrif loftslagsbreytinga sem koma hraðast fram á pólunum. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur pistil - sinn síðasta fyrir jól.

Við veltum fyrir okkur loftgæðum í höfuðborginni, vöktun á þeim og leiðum til að spá fyrir um loftgæði - jafnvel í einstökum hverfum. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir okkur frá aðferðum sem stofnunin beitir til þess. Þetta er árið sem farið var að tala um hnattræna stiknun, haustið hefur verið óvenjulegt og hitamet fallið. Ástandið í loftslagsmálum er alvarlegt. Markmið, lausnir og skortur á þeim verða rædd í þaula á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Dúbaí í lok nóvember. Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands fer yfir vísindin, stöðuna og væntingar til ráðstefnunnar. Málfarsmínúta. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV leyfir okkur að heyra upptöku úr safninu. Að þessu sinni viðtal við hugvitsmanninn Magnús K. Guðnason sem hannaði merkileg hljóðfæri á borð við strokhörpu.

Saman gegn sóun, Úrvinnslusjóður, Sorpa og Tækniskólinn stóðu um helgina fyrir svokölluðu tækjaþoni þar sem nokkur teymi öttu kappi og reyndu að finna leiðir til að nýta raftæki betur - en raftækjasóun hér á landi er með því mesta sem gerist. Við ræðum við Birgittu Steingrímsdóttur og Hildi Mist Friðjónsdóttur, sérfræðinga í teymi hringrásarhagkerfis á Umhverfisstofnun um tækjaþonið og verðlaunatillöguna. Samfélagið hefur undanfarið fjallað um ópíóíðafaraldurinn, og við höldum því áfram. Í dag heyrum við í Valgerði Rúnarsdóttur, yfirlækni á Vogi. Málfarsmínúta - víla og díla. Heimsókn á Þjóðskjalasafnið.

9. október 2023 Á annað þúsund hafa fallið frá því að stríð braust út á laugardag milli stjórnarhersins í Ísrael og palestínskra vígamanna Hamas frá Gaza-svæðinu. Ísraelsher skaut helmingi fleiri flugskeytum yfir til Gaza í dag en um helgina. Kona frá Palestínu sem búið hefur á Íslandi lengi segir að Hamas-samtökin séu frelsishreyfing. Ræðismaður Íslands í Ísrael segir hins vegar að þau þrífist á hatri. Vinna hófst í gær við höfnina í Þorlákshöfn án þess að búið væri að veita leyfi fyrir framkvæmdum, sem voru kynntar í sumar. Misskilningur segir bæjarstjórinn. Umhverfisstofnun segir að ekki megi breyta strandlengjunni án hennar leyfis. ----------- Heilbrigðiskerfið erof brotakennt því þjónusta þess hefir ekki þróast nægilega út frá þörfum notenda heldur hafa veitendur ráðið för segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans. Fjöldi þeirra sem þurfa umfangsmikla þjónustu hefur vaxið og þjónustan sem þeir þurfa getur verið flókin en ekki endilega mjög sérhæfð. Sérhæfingin haf gengið út yfir almenna þjónustu. Landlæknisembættið fylgist með ávísunum lækna á ópíóíða, segir Alma Möller landlæknir. Dregið hefur úr ávísunum lækna á þá undanfarin ár. Lögregla hefur aftur á móti lagt halda á margfallt meira af ópíóíðum undanfarin misseri. 17 létust af völdum ofneyslu ópíóíða á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Anna Lísa Hermannsdóttir

Við fjöllum um lyfjarannsóknir með aðstoð zebrafiska og hvernig Karl Ægir Karlsson prófessor við Háskólann í Reykjavík og félagar í 3Z ehf. eru að búa til nýja þekkingu á því sviði. Við höfum áður fjallað um rannsóknir þeirra á ADHD og lyfjum sem gagnast við því en nýverið var birt grein sem fjallar um hvernig stökkbreytingar í ákveðnu geni sem áður hefur verið sýnt fram á að leiða til ofvirkni í zebrafiskum leiði einnig til hvatvísi. Karl Ægir sest hér eftir smástund. Í menntavísindum er nú mikið fjallað um farsæld. Liður í því að auka farsæld barna er sérstök námsgrein, mannkostamenntun. Hvað felst í henni? Á skólakerfið markvisst að kenna börnum það að vera góðar manneskjur? Við ræðum við Önnu Halldórsdóttur um lokaverkefni hennar í listkennslufræðum sem ber yfirskriftina leitin að týnda tónskáldinu. Umhverfisstofnun hefur birt niðurstöður nýrra rannsókna á matarsóun á Íslandi. Þar kemur meðal annars fram að tæpur helmingur allrar matarsóunar á sér stað í frumframleiðslu matvæla en um 40% á heimilum. Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir okkur allt um þessar rannsóknir.

Spegillinn 21. september 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Stjórn fréttaútsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í uppnámi eftir yfirlýsingar fjármálaráðherra í morgun um að útilokað sé að fjármagna hann í núverandi mynd. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræðir við Heiðu Björg Hilmisdóttur. Fulltrúaráð launamanna Birtu lífeyrissjóðs skorar á Pálmar Óla Magnússon, fyrrverandi stjórnanda hjá Samskipum, að víkja sæti í stjórn sjóðsins meðan rannsókn um samráð Eimskips og Samskipa stendur yfir. Ólafur Margeirsson, doktor í hagfræði, segir það ekki vera hlutverk seðlabankastjóra að ráðleggja lántakendum um lánaskilmála. Frumvarp um bann við hvalveiðum var rætt á þingi í dag. Vísun til nefndar var hins vegar frestað því deilt er um til hvaða nefndar vísa á málinu. Magnús Geir Eyjólfsson ræðir við Andrés Inga Jónsson, þingmann Pírata. Sauðfé á Íslandi hefur fækkað stöðugt frá árinu 2017. Um 426.000 lömbum verður slátrað í haust en um 560.000 var slátrað 2017. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræðir við Trausta Hjálmarsson. Nokkrir af þekktustu rithöfundum heims ætla að höfða mál gegn gervigreindarfyrirtækinu OpenAI fyrir ?markvissan og umfangsmikinn þjófnað í massavís?. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræðir við Ragnheiði Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra RSÍ. --- Í vikunni gerðist það að stjórnvöld í Bretlandi og Svíþjóð, tveimur löndum sem síðustu ár hafa lagt mikla áherslu á aðgerðir gegn hlýnun Jarðar og yfirstandandi loftslagsbreytingum, bæði í orði og verki, ákváðu að draga úr aðgerðum í málaflokknum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Elvu Rakel Jónsdóttur, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun á sviði loftslagsmála og hringrásarhagkerfis, um þennan viðsnúning. Tímamót eru yfirvofandi í fjölmiðlasögu heimsins. Rupert Murdoch tilkynnti í dag að hann hygðist láta af störfum sem stjórnarformaður fyrirtækjanna Fox Corporation og News Corp eftir rúmlega sjötíu ára starfsferil við fjölmiðla af öllu tagi. Ásgeir Tómasson segir frá. Slóvakar ganga að kjörborðinu eftir um næstu mánaðarmót, í kosningum sem gætu grafið undan samstöðu Evrópuríkja gagnvart Úkraínu. Leiðtogi flokksins sem þykir sigurstranglegastur samkvæmt könnunum, vill hætta stuðningi og vopnasendingum til Úkraínu. Innan við helmingur íbúa landsins segir Rússa ábyrga fyrir innrásinni í Úkraínu, og stuðningur við aðild Slóvakíu að Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu er á niðurleið. Björn Malmquist segir frá.

Umhverfisstofnun er að fara af stað með átaksverkefni sem snýr að menguðum jarðvegi. Fólk sem veit af svæðum þar sem úrgangur var brenndur eða olíu hellt niður er beðið að láta stofnunina vita. Kristín Kröyer, sérfræðingur í teymi mengunareftirlits hjá Umhverfisstofnun ræðir þetta verkefni við okkur. Sigríður Dóra Magnúsdóttir var í gær skipuð nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Við ætlum að ræða við hana um hennar sýn á þróun heilsugæslunnar til framtíðar og hvernig hún sér fyrir sér að taka á manneklu og öðrum vandamálum sem hafa plagað stofnunina. Við hringjum í Sævar Helga Bragason, stjörnufræðikennara sem segir okkur frá vígahnetti sem hann sá við Raufarhöfn í vikunni. Stefán Gíslason flytur okkur umhverfispistil á lögfræðilegum nótum. Loftslagsmálaferli eru umfjöllunarefni dagsins og einkum væntanleg fyrirtaka Mannréttindadómstóls Evrópu á máli portúgalskra ungmenna sem hafa stefnt fjölda ríkja fyrir að standa ekki við loforð sín í loftslagsmálum.

Blóðbanki snýst um miklu meira en að taka fólki blóð. Blóðbanki Landspítalans á sjötíu ára afmæli og því er fagnað þessa dagana, meðal annars með ráðstefnuröð þar sem meðal annars er fjallað um vefjaverkfræði og stofnfrumur. Við ræðum við Ólaf E. Sigurjónsson en hann stýrir rannsóknum og nýsköpun hjá Blóðbankanum. Bráðabirgðatölur Umhverfisstofnunar um losun Íslands benda til þess að losunin hafi staðið í stað árið 2022, allt útlit er hins vegar fyrir að hún aukist í ár og heljarinnar átak framundan ætli stjórnvöld að standa við loftslagsloforð. Rafn Helgason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um þetta. Málfarsmínúta. Dýraspjall. Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalafræðingur, fræðir okkur um langreyðar - að gefnu tilefni.

Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi forseti Ferðafélags Íslands, hefur komið annað slagið á Morgunvaktina í sumar og sagt frá áhugaverðum stöðum og svæðum á hálendi Íslands. Að þessu sinni sagði hann frá Friðlandinu að Fjallabaki. Þar er fjölbreytt landslag og mikil náttúrufegurð. Ólafi finnst skjóta skökku við að á sama tíma og svæðið hefur tilnefnt á Heimsminjaskrá UNESCO séu þar áform um húsbyggingar. Enn er flóðahætta í Noregi eftir úrhellisrigningar í síðustu viku. Herdís Sigurgrímsdóttir sem býr í Stavanger sagði frá flóðunum og afleiðingum þeirra og þeim verkefnum sem Norðmenn standa nú frammi fyrir. Nokkuð hefur verið fjallað um losunarheimildir síðustu daga vegna innleiðingar kvótakerfis í skipaflutningum. Daníel Arnar Magnússon, lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sagði frá hugmyndafræðinni á bak við slík kerfi og virkni þeirra. Tónlist: Ain?t too proud to beg - The Temptations, Sittin? on the doc of the bay - Otis Redding, Reach out I?ll be there - Four tops. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Afhverju hlustar enginn á mig?, spyr Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður stjórnar Landverndar umhverfissamtaka, en spurningin er einnig yfirskrift fyrirlesturs sem hún heldur síðar í dag þar sem hún veltir fyrir sér afhverju við höldum endlaust áfram í sama farinu þó allar rannsóknir sýni fram á að við erum að ganga fram af plánetunni okkar, náttúrunni og verðmætum hennar. við erum að skerða rétt og lífsgæði komandi kynslóða. Þorgerður vill að félagsvísindin skoði þessi mál betur, og verði með sem ein mikilvægustu vísindi náttúruverndar. Við tölum um raftæki í þætti dagsins. Nánar tiltekið hvað við eigum að gera við öll þessi tæki sem fylla skápa og skúffur, vasa og töskur - þegar þau hætta að þjóna tilgangi sínum. Hvernig er hægt að gefa þessum tækjum öllum framhaldslíf og tryggja að þeim verðmætum sem felast í þeim sé ekki sóað? Við ræðum þessi mál við tvo sérfræðinga hjá Umhverfisstofnun sem eru þátttakendur í verkefninu Saman gegn sóun og ætla að funda um raftæki á morgun. Birgitta Steingrímsdóttir og Þorbjörg Sandra Bakke koma til okkar. Ruslarabb um spreybrúsa (e) Páll Líndal umhverfissálfræðingur verður svo með sinn pistill.

Byrjum á að ræða um afar aðkallandi mál við Pétur Henry Petersen prófessor í taugavísindum, nefnilega hvort heimsfaraldur af völdum sveppa sem breyta mannfólki í uppvakninga geti gerst í alvörunni. Í sjónvarpsþáttunum Last of us sem njóta gríðarlegra vinsælda geysar slíkur sveppafaraldur og hefur lagt heiminn í rúst - og þessir uppvakningasveppir: þeir eru til í alvörunni! Hafa hingað til bara lagst á skordýr - EN erum við næst?! Við verðum líka beint frá Geldinganesi en þar var Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra ásamt forstjóra Umhverfisstofnunar að opna nýja vefsíðu, strandhreinsun.is sem eins og nafnið bendir til snýst um hreinsun á strandlengjunni. Þarna verður t.d. hægt að taka frá svæði til að hreinsa, fyrir einstaklinga, stofnanir og félagasamtök. Og þetta er allt saman hluti af átaki sem umhverfisráðuneyti réðist í árið 2021. Rætt við Guðlaug og Katrínu Sóley Bjarnadóttur sérfræðing hjá Umhverfisstofnun. Málfarsmínúta. Svo er dýraspjallið á sínum stað, Halldór Pálmar Halldórsson er náttúruvísindamaðurinn sem fær að sitja fyrir svörum í dag. Halldór er sérfræðingur í kræklingi - sem flestir vita að er gómsætur, en það er svo margt fleira algerlega magnað við þessa lífveru - og Halldór segir okkur allt um það.

Spegillinn 13.04. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórnandi fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Slökkviliðið telur brýnt að fá auknar heimildir til að skoða íbúðarhúsnæði í útleigu. Dæmi eru um að leigjendur veigri sér við því að kvarta vegna ónógra brunavarna af ótta við að missa húsnæðið. Tveir starfshópar innviðaráðuneytisins hafa unnið að útfærslu á tillögum um úrbætur í þessum efnum síðan í apríl 2022. Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að á hverjum degi innritist tveir einstaklingar til meðferðar vegna ópíóíðafíknar og að fólkið sem ánetjist slíkum lyfjum sé yngra nú en áður hafi þekkst. Íslenskur læknir hefur verið sviptur réttindum til að ávísa ópíóíðalyfjum eftir að hann varð uppvís að því að ávísa morfíni og oxýkódini í kílóavís til eins sjúklings. Fimmtán starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Ósló verður vísað úr landi fyrir njósnir á næstunni. Umfjöllun norrænu ríkisfréttamiðlanna um njósnir Rússa á Norðurlöndum hefst í næstu viku. Flestar kóngulær eru einfarar - en þó ekki allar. Fundist hafa tegundir sem teljast til svokallaðra félagskóngulóa - og lifa margar saman í sátt og samlyndi. Óvenjuvænn þorskur hefur ratað í net færeyskra sjómanna undanfarið, eftir nokkur mögur ár. Dæmi eru um að allt að 23 kílógramma þorskar hafi veiðst. ---------- Nýverið birti Umhverfisstofnun skýrslu um mat sérfræðinga sinna á ástandi 146 áfangastaða ferðafólks innan friðlýstra svæða, þar á meðal í Vatnajökulsþjóðgarði og Þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hver staður fær heildareinkunn á bilinu 0 - 10 út frá niðurstöðum mats á fjölmörgum þáttum, og sú einkunn segir til um hvort og þá hve mikil hætta sé á að staðurinn missi verndargildi sitt. Kristín Ósk Jónasdóttir fer fyrir teymi náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun. Hún segir niðurstöðurnar bara giska jákvæðar. Náttúruvá eykst hér á landi og við því þarf að bregðast. Skortur á sérhæfðu starfsfólki verður mikil áskorun fyrir ríkisstofnanir sem sinna eftirliti og rannsóknum. Viðbótarkostnaður vegna náttúruvár nemur 8,1 milljarði frá árinu 2008.Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var 13.04., þar sem fjallað er um náttúruvá frá ýmsum sjónarhornum. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir margt skýra aukna náttúruvá. Íbúum í Sapporo og fleiri borgum á Hokkaídó-eyju í Japan brá mörgum hverjum í brún þegar loftvarnaflautur voru þeyttar laust fyrir klukkan hálf átta að morgni fimmtudags. Þegar flauturnar þögnuðu heyrðist rödd sem skipaði fólki að leita skjóls. Ástæðan

Um 700 kindur voru aflífaðar í Vestur-Húnavatnssýslu eftir að upp kom riðusmit. Aðgerðir vegna þessa dapurlega máls hafa verið afar umfangsmiklar - og framundan er enn meiri vinna. Það er ekki hlaupið að því að farga svona mörgum dýrahræum svo vel og rétt sé. VIð ætlum að tala við Höllu Einarsdóttur teymisstjóra hjá Umhverfisstofnun en þau eru ein af þeim stofnunum sem komu að málum, sérstaklega förguninni, og forvitnast um hvernig á að gera þetta - og hvernig ekki. Við tölum um umferðaröryggi í þætti dagsins. Sérstaklega þegar kemur að notkun farsíma í umferðinni - sem er auðvitað stórhættuleg. Það vitum við öll. En engu að síður er mjög algengt að fólk geti ekki látið símann í friði undir stýri. Og kannski er einhver hlustandi Samfélagsins einmitt að fikta við símann undir stýri núna og ætti þá að hætta því snarlega. En á sama tíma og tæknin er að stefna fólki í hættu undir stýri og á vegum landsins hefur öryggi í bílum aukist mjög mikið, t.d. með aukinni sjálfvirkni og þar kemur tæknin líka til skjalanna. Við tölum við sérfræðing í forvörnum um þessi mál. (Sigrún A. Þorsteinsdóttir) Málfarsmínúta verður á sínum stað og svo kemur Edda Olgudóttir í sitt reglubundna vísindaspjall.

Við ætlum við að fá að vita allt um stórmerkilegt verkfæri, sem kallast jöklastika. Í hvað var jöklastikan notuð? Við ræðum við mann sem er eiginlega óvart helsti sérfræðingur heimsins í þessum dularfulla og eldgamla hlut, Arngrímur Borgþórsson heitir hann. Við ætlum, eins og við höfum gert reglulega undanfarið, að kynnast starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands. Að þessu sinni ætlar Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður að fræða okkur um einkaskjalasöfn og skoða með okkur áhugaverð skjöl. Vorið er komið, að minnsta kosti á næsta leiti, og þá sér maður að sífellt fleiri fara að þvo bílana sína af miklum móð - en það er ekki sama hvernig það er gert - og hversu oft - Umhverfisstofnun hefur í það minnsta ákveðnar skoðanir á þessu og við ætlum að heyra í þeim í þættinum Svo fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi.

Spegillinn 24. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Davíð Torfi Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandshótela telur að starfsmenn þar samþykki ekki verkfallsboðun Eflingar.Bjarni Pétur Jónsson talaði við hann. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra harma bæði að verkfall þurfi til að lausnar kjaradeilu. Þau vona að deila Eflingar og SA leysist fljótt en eru ekki bjartsýnir á að svo verði. Kristín Sigurðardóttir ræddi við þau. Víða er snjó sem skafinn er af götum sturtað beint í hafnir. Í höfuðborginni er það bannað og Umhverfisstofnun telur að skerpa þurfi á verklagi um hvenær og hvar sé öruggt að fara með snjó útí sjó. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Andri Teitsson formann umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrar og Katrínu Sóleyju Bjarnadóttur frá Umhverfisstofnun. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur miklar áhyggjur af aukningu á notkun unglinga á nikótínpúðum, það hafi verið ákvörðun Alþingis að seinka gildistöku reglna sem draga úr sýnileika nikótínpúða á sölustöðum. Kristín Sigurðardóttir talaði við hann. Hafíss hefur orðið vart undan Vestfjörðum síðustu daga. Þó er nokkuð minna af honum en búist var við, að sögn Ásgríms L. Ásgrímssonar framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar. Stjórnarandstæðingar í Svíþjóð krefjast afsagnar nánasta samstarfsmanns Ulfs Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Ráðuneytisstjórinn í forsætisráðuneytinu er sakaður um ólöglegar álaveiðar. Pétur Magnúson sagði frá. Leikstjórinn Sara Gunnarsdóttir fékk í dag tilnefningu til Óskarsverðlauna. Þórdís Arnljótsdóttir talaði við hana. -------------- Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er umdeilt. Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar og menntamálanefndar segir frumvarpið til bóta, en Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata segir það fara gegn stjórnarskrárvörðum réttindum fólks. Bjarni Rúnarsson talaði við þær. Það bjátar sitthvað á í Bretlandi um þessar mundir. Efnahagsvandi, verkföll opinberra starfsmanna, róstusamt á stjórnarheimilinu, umhleypingar í veðri og öðru hvoru berast fregnir af hrakningum ólöglegra innflytjenda á Ermarsundi. Ásgeir Tómasson sagði frá, heyrist í Töru Pownall, húsmóður í Doncaster og Söruh Chambers sem báðar spara rafmagnið.

Landnámsskálinn á Stöð í Stöðvarfirði er fyrsti skálinn af því tagi sem rannsakaður hefur verið eins og glæpavettvangur. Tekin voru dna sýni á vettvangi sem mögulega eiga eftir draga upp nákvæma mynd af lífinu sem þar var í kringum landnámið. Við ræðum við Bjarna F Einarsson fornleifafræðing um rannsóknirnar og líka um bátinn í Þingvallavatni sem hann óttast að liggi nú undir skemmdum. Það á að hlýna á landinu í lok vikunnar og það heldur hressilega. Það má gera ráð fyrir meira en 20 gráðu hitasveiflu sumstaðar og rigningu eftir langan kuldakafla með brunagaddi víða. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku ætlar að fara betur yfir það sem er í vændum. Og svo ætlum við aðeins að tala um Svansvottun nýbygginga með tilliti til rakaskemmda og myglu. Bergþóra Kvaran er sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Við spjöllum við hana. Málfarsmínútan verður á sínum stað og svo kemur hingað Edda Olgudóttir eins og alltaf á miðvikudögum. Að þessu sinni ætlar hún að fjalla um D-vítamín.

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir viðvarandi álag í heilbrigðiskerfinu ýta undir hættu á alvarlegum atvikum. Hann hefur áhyggjur af brotthvarfi fagfólks úr heilbrigðisstéttum. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við hann. Meðalstyrkur brennisteinsvetnis mældist óvenjuhár á höfuðborgarsvæðinu í dag, á þrettánda degi jóla. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að mengunin sé ekki hættuleg fólki, en gæti haft áhrif á raftæki. Pétur Magnússon talaði við hann. Minnihlutafulltrúar Framsóknarflokksins í bæjarstjórn á Akureyri vilja ljúka viðræðum við Landsnet um þá ákvörðun að Blöndulína þrjú verði lögð sem loftlína til bæjarins. Jarðstrengur geti komið síðar. Störukeppni um málið verði að linna. Ágúst Ólafsson sagði frá og talaði við Sunnu Hlín Jóhannesdóttur bæjarfulltrúa. Héraðsdómur Reykjavíkur breytti í dag dómi sem hafði verið birtur um gróft líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi manns gagnvart konu. Harðlega var gagnrýnt að nafn afbrotamannsins hafði verið máð burtu og var nafnið því birt í dag. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur, segir vandvirkni starfsfólks dómstólsins hafa ráðið því að nafnið var upphaflega hulið. Kristín Sigurðardóttir talaði við Ingibjörgu. Dómsmálaráðuneytið hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Husseins Husseins, íraksks innflytjanda og fjölskyldu hans til Landsréttar. Þau voru flutt nauðug til Grikklands eftir að hafa dvalið á Íslandi í tæp tvö ár. Héraðsdómur taldi brottvísunina ólöglega. Fólkið sneri aftur til Íslands þegar sú niðurstaða lá fyrir. Landsvirkjun hætti um áramót að afhenda græn vottorð til smásala raforku á Íslandi án endurgjalds. Þess í stað verða þessi vottorð seld á evrópskum markaði. Þetta þýðir að íslensk smásölufyrirtæki ? Orka náttúrunnar, HS Orka eða Straumlind til dæmis ? mega ekki markaðssetja orkuna sem keypt er af Landsvirkjun sem græna. Nema að greiða fyrir það. Alexander Kristjánsson ræddi við Val Ægisson, forstöðumann viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun. Erfitt ástand var í heilbrigðiskerfinu á Englandi milli jóla og nýárs og dæmi um að sjúklingar þyrftu að bíða á aðra klukkustund í sjúkrabílum áður en hægt var að flytja þá inn á bráðamóttöku sjúkrahúsa. Inflúensufaraldri og fjölgun kovid-tilfella var um að kenna. Vaxtahækkarnir. Dýrari matur. Hærra raforkuverð. Hagur fólks fer versnandi í Svíþjóð líkt og víða annars staðar þessi misserin. Starfsfólk mötuneyta í sumum skólu

Á næstu dögum verður farið í að loka fyrir rafmagnið hjá fólki sem hefur dregið að velja sér raforkusala í langan tíma. Dreifiveitum er óheimilt samkvæmt lögum að dreifa raforku inn á heimili og fyrirtæki ef ekki er til staðar samningur við sölufyrirtæki raforku. Það er á ábyrgð einstaklinga að velja sér raforkusala, en fjölmargir virðast ekki vita af þessu. Við fengum Lovísu Árnadóttur hjá Samorku til að fara yfir hverja þetta varðar og hvernig þarf að bregðast við. Það er ekki endilega auðvelt fyrir hinar ýmsu ríkisstofnanir að ná að koma skilaboðum sínum áleiðis til unga fólksins - en Umhverfisstofnun er að takast það þessa dagana með vinsælum myndböndum á samfélagsmiðlinum Tiktok - sem fáar ef einhverjar aðrar stofnanir nota nú hér á landi. Við ræddum við Ástu Maack, sérfræðing í teymi hafs og vatns hjá Umhverfisstofnun, og Freyju Pétursdóttur, sérfræðing í Teymi lífríkis og veiðistjórnunar, um myndböndin. Tveir létu lífið og yfir tuttugu særðust í skotárás á fjölfarinni götu í miðborg Osló um helgina - en svo virðist sem árásarmaðurinn hafi vísvitandi ráðist að fólki sem var þar að skemmta sér í aðdraganda gleðigöngunnar Osló Pride - sem var síðan aflýst. Árásin hefur vitaskuld mikil áhrif á íbúa borgarinnar - þar á meðal á þá fjölmörgu Íslendinga sem þar búa. Við slógum á þráðinn til Jónínu Margrétar Arnórsdóttur, kennara í Osló. Um 5% af útgjöldum ríkisins til heilbrigðismála renna til geðheilbrigðis. Vakin er athygli á þessu í samantekt tryggingafélagsins William Russell sem setur Ísland í neðsta sæti 26 OECD ríkja þegar kemur að gengi í geðheilbrigðismálum. Við ræddum stöðu geðheilbrigðis hér á landi við Héðinn Unnsteinsson formann Geðhjálpar. Viðsnúningur Hæstaréttar Bandaríkjanna í Roe vs Wade málinu, sem snýr að því hvort rétturinn til þungunarrofs sé varinn á alríkisstiginu í flóknu stjórnkerfi Bandaríkjanna, hefur vakið upp hörð viðbrögð um allan heim. Til okkar kom Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur sem búsett er í Bandaríkjunum. Í lok þáttar fórum við yfir íþróttir helgarinnar með Gunnari Birgissyni, íþróttafréttamanni. Það var nóg um að vera í heimi íþróttanna um helgina - og margt sem hægt er að ræða nú þegar 13 dagar eru í EM kvenna. Tónlist: Í skýjunum - Stjórnin Gypsy - Fleetwood Mac You Make Me Feel (Like a Natural Woman - Aretha Franklin Everything I Know About Love - Laufey Lín Son of a Preacher Man - Dusty Springfield En - Una Torfadóttir Solsbury Hill - Peter Gabriel Úlfur Úlfur - Berndsen og Bubbi

Stríðið í Úkraínu hefur valdið verulegri hækkun á olíu og gasi.Norðmenn hafa áhyggjur. Óvæntir peningar velta inn í sjóði landsmanna, og enginn veit hvað á að gera við þá. . Tekjur ríkissjóðs af orkusölu gætu sexfaldast. Gísli Kristjánsson reifar hér hvað er til ráða. Íslenskir menn eru skráðir á síður sem á Norðurlöndum eru taldar sykurhúða grimman og ljótan heim vændis, og geta tælt ungt fólk, jafnvel börn inn í hann. Tilgangurinn sagður að koma á tengslum milli eldri og gjafmildra manna, sykurpabba við ungt fólk. Í speglinum í gær var fjallað um hve erfitt hefur reynst víða í nágrannalöndunum að láta eigendur síðnanna sæta ábyrgð. Hver er staðan hér og brjóta síðurnar í bága við íslensk lög? María Rún Bjarnadóttir verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá Ríkislögreglustjóra segir ekki einfalt að svara því afdráttarlaust hvort þetta sé vændi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Maríu. Fóstur í móðurkviði eru sérlega viðkvæm fyrir hormónaraskandi efnum sem finnast allt í kringum okkur. Rannsóknir í Danmörku sýna að launeistu aukast mjög, þar sem eistun ganga ekki alveg niður í punginn. Jafnframt virðist vera færast í vöxt að þvagrásin sé ekki alveg rétt mynduð og eistnakrabbamein í ungum mönnum eykst. Fjallað var um hormónaraskandi efni í Kveik á dögunum. Bjarni Rúnarsson ræddi þessi mál við Ragnheiði Bachman ljósmóður á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu sem starfar einnig við mæðravernd. Helstu atriði frétta: Matur, vatn og lyf eru nánast á þrotum í hafnarborginni Mariupol. Alþjóða Rauði krossinn segir dæmi um að fólk ráðist á hvert annað til að útvega sér mat. Stríðsátökin í Úkraínu valda hækkun á olíuverði. Það eykur hag Norska olíusjóðsins. Tekjur ríkissjóðs af orkusölu gætu sexfaldast. Það er orðið mjög erfitt að halda Landspítalanum gangandi í samræmi við þarfir sjúklinga, segir yfirlæknir bráðamóttöku Landspítalans. Vel gengur að hreinsa meira en níu þúsund lítra af díselolíu sem láku úr olíutanki Orkubús Vestfjarða út í tjörnina og höfnina á Suðureyri fyrir helgi. Teymisstjóri mengunarvarna hjá Umhverfisstofnun segir nokkurra daga og jafnvel vikna vinnu framundan. Það hefur mistekist að ná sátt um orkumálin að mati háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Auka þurfi orku og nýta hana betur til að orkuskipti geti orðið. Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Hefur þú velt fyrir þér tengslum textíl og kyns? Sú staðreynd að konur eru í miklum meirihluta þeirra sem framleiða, kaupa, nota, nýta, henda og þvo textíl krefst nánari skoðunar. Í þættinum fæ ég til mín Þorbjörgu Söndru frá Umhverfisstofnun sem teymir mig í gegnum virðiskeðju textíl, svo við getum betur áttað okkur á því hvernig þetta umhverfismál er í raun kynjað. Við fáum aðstoð við hvað við getum gert til að bæta heiminn og karlmenn fá góð ráð til að gera betur í þessum málaflokki. Eftirvinnsla: Unnur Gísladóttir Tónlist: Mr. Silla - Naruto (instrumental) Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Dominos, Veganbúðarinnar og The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja). Þessi þáttur var auk þess unninn í samstarfi við Umhverfisstofnun til þess að vekja athygli á samangegnsoun.is/textil.