Podcast appearances and mentions of elly vilhj

  • 8PODCASTS
  • 61EPISODES
  • 1h 27mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Dec 11, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about elly vilhj

Latest podcast episodes about elly vilhj

Mannlegi þátturinn
Baujan sjálfshjálp, ykkar einlæg eftir Úlfar Bragason,Jurtaapótekið í 20 ár

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 52:02

Guðbjörg Thoroddsen leikkona hefur gefið út bókina Baujan sem býr yfir einfaldri sjálfsstyrkingaraðferð og byggir á meðvitaðri öndun í tengslum við tilfinningavinnu, úrvinnslu áfalla og áfallastreitu. Guðbjörg eða Bauja eins og hún er kölluð hefur starfað sem ráðgjafi innan skólakerfis og utan samhliða leiklistinni í fjöldamörg ár og miðar bók hennar að því að hafa stjórn á líðan sinni og tileinka sér núvitund. Guðbjörg kom til okkar í dag. Það eru 20 ár liðin frá því Kolbrún Björnsdóttir opnaði Jurtaapótekið en Kolbrún hefur starfað við grasalækningar frá því hún útskrifaðist úr grasalæknaskólanum í Bretlandi árið 1993.Hugmyndir Kolbrúnar með stofnun Jurtaapóteks var að fræða fólk um lækningamátt jurta og áhrif betri fæðu. Með þetta að leiðarljósi væri auðveldara fyrir hvern og einn að taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi heilsu sína og lífstíl. Við ræddum við Kolbrúnu í þættinum í dag. Ingunn Sigurjónsdóttir fæddist árið 1906 og smitaðist ung af berklum og dvaldist síðustu árin sem hún lifði á heilsustofnunum. Bréfin sem hún sendi þaðan foreldrum sínum og systkinum lýsa lífinu þar, lækningaaðferðum, andlegu ástandi berklasjúklinga, löngunum og þrám. Úlfar Bragason safnaði bréfunum saman og út er komin bók sem heitir Ykkar einlæg. Við ræddum við Úlfar. MANNLEGI ÞÁTTURINN - FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR Tónlistin í þættinum Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Jólin alls staðar. Þór Breiðfjörð - Allt er svo þögult (heilaga nótt). Erna Hrönn Ólafsdóttir, Pálmi J. Sigurhjartarson Tónlistarm. - Jól.

Mannlegi þátturinn
Saga björgunarskipsins Maríu Júlíu og fatlað fólk í tæknivæddri framtíð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 51:03

Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá sögu hins fornfræga björgunarskips Vestfirðinga, Maríu Júlía BA 36, sem kom var safnað fyrir og að lokum smiðað í Danmörku. Skipið kom til Íslands árið 1950 og nýttist á fjölbreyttan hátt næstu áratugina, til dæmis er talið að áhafnir skipsins hafi bjargað um tvö þúsund manns og í skipinu var sérútbúin rannsóknarstofa fyrir fiskifræðinga og fyrir sjómælingar. Skipið var því fyrsti vísir að hafrannsóknarskipi á Íslandi. Í dag er skipið komið til hafnar á Húsavík en ætlunin er að gera það upp enda er skipið nú friðað með lögum. Björn sagði okkur merkilega sögu Maríu Júlíu í þættinum. Á laugardaginn fer fram málþing um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð. Hugmyndafræði og ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem er nú í lögfestingarferli á Íslandi, nýtast sem grunnviðmið til að meta bæði áhættu og tækifæri sem skapast með aukinni notkun gervigreindar og starfrænnar tækni. Í grundvallaratriðum er samningnum ætlað að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og jafnræði á öllum sviðum. Heimsmarkmið SÞ eru sett fram með það að meginmarkmiði að skilja engan eftir og í þeim felst hugsjón um að búa til samfélag þar sem allir, þar á meðal fatlað fólk, njóti jafnra tækifæra og jafnréttis á öllum sviðum. Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi Mennskrar ráðgjafar komu í þáttinn og sögðu okkur frá því um hvað verður rætt á þinginu og hvað ber helst að hafa í huga í þessum málum svo að tæknivædd framtíð og gervigreind geti nýst öllum. Tónlist í þættinum: Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson) Farmaður hugsar heim / Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms (lagið eftir Þórunni Franz og textinn eftir séra Árelíus Níelsson) One of these things first / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Norðurhjálp, Snorri golfvallahönnuður og veðurspjallið með Einari Sveinbjörnss

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 15, 2024 52:49

Norðurhjálp tekur við og selur allskyns notaðar vörur; fatnað, heimilisbúnað, húsgögn, bækur, smádót, listaverk og margt fleira. Allur ágóði fer í að styrkja einstaklinga og fjölskyldur á svæðinu sem ekki hafa mikið á milli handanna. Fjórar konur sem hafa starfað lengi við sjálfboðavinnu tóku höndum saman og vinna nú 6 daga vikunnar við að taka á móti vörum og við afgreiðslu. Við heimsóttum Norðurhjálp í rúmlega 400 fm. skemmu sem þær leigja undir starfsemina rétt hjá Glerártorgi. Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir tók á móti okkur. Svo heyrðum við í Snorra Vilhjálmssyni í Austurríki, en hann starfar þar við golfvallahönnun hjá fyrirtæki sem kennt er við einn frægasta kylfing heims. Snorri lærði golfvallahönnun í Skotlandi og vinnur nú að hönnun og byggingu glæsilegra golfvalla um nánast allan heim. Það er ekki víst að margir viti hvað felst í starfi golfvallahönnuðar. Við fengum Snorra til að segja okkur í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn sagði hann okkur frá kaldri tungu sjávar undan Vestfjörðum og Húnaflóa um þessar mundir og hvernig hún mótar hitafarið. Svo talaði Einar um veðurstöðina Grímsstaði á Fjöllum. Þar er ríkir hálfgert meginlandsloftslag og hann ætlar að skoða kuldana undanfarna daga einmitt þar. Og að lokum veltum við því fyrir okkur hvort fellibyljatímanum á Atlantshafi sé lokið. Tónlist í þættinum í dag: Pínulítið lengur / Stefán Hilmarsson (D. Gates, texti Stefán Hilmarsson) Litli tónlistarmaðurinn / Elly Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson eða Tólfti September) Build Me Up Buttercup / The Foundation (A. G. Instone, M. D'Abo og T. Macaulay) Veðurglöggur / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Áhrif sumarhúsa á fugla, umhverfispistill, málfar og þernustörf um borð í Gullfossi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 15, 2024 58:33

Hvaða áhrif hefur það þegar fólk byggir sér sumarbústað úti í móa, í kjörlendi lóu, spóa og jaðrakans? Hvað þá þúsundir sumarbústaða? Á undanförnum tveimur áratugum hefur sumarbústöðum á Íslandi fjölgað úr um 10 þúsund í 15 þúsund og það eru 7000 til viðbótar á skipulagi. Aldís Erna Pálsdóttir nýdoktor í líffræði hefur árum saman rannsakað hvernig mófuglar bregðast við þegar búsvæðum þeirra er raskað með þessum hætti og er aðalhöfundur fræðigreinar sem birtist á dögunum í tímaritinu Animal Conservation. Við fáum pistil frá ungum umhverfissinna á eftir. Það er Stefán Örn Snæbjörnsson sem flytur okkur hann. Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur og í lok þáttar ætlum við að grúska aðeins í safni RÚV. Við rifjum upp brot úr viðtali sem Hanna G. Sigurðardóttir tók í þættinum Fyrr og nú í apríl árið 2012. Þá talaði Hanna við Rannveigu Ásgeirsdóttur sem var þerna á Gullfossi í rúman áratug, frá árinu 1962. Tónlist: Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). MUGISON - Murr Murr. HJÁLMAR - Áttu vinur augnablik. Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Sumarauki (Gullfoss með glæstum brag).

Morgunvaktin
Listin að sjóða málma

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 15, 2024 130:00

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og ræddi við Jón Óskar Sólnes sem býr í Washington í Bandaríkjunum og fylgist vel með gangi mála, ekki síst nú fyrir kosningarnar í haust. Bogi ræddi einnig um nýafstaðnar kosningar bæði í Indónesíu og Pakistan. Við heyrum af því reglulega að ein stærsta áskorun þjóðarinnar í heilbrigðismálum er hækkandi aldur og aukin sjúkdómsbyrði elstu hópa samfélagsins. Sífellt er að bætast í þekkingu á heilsusamlegri öldrun, og vöðvavernd er þar mikilvægur þáttur, eins og Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum ræddi við okkur. Í síðasta hluta þáttarins ræddum við um málmsuðu - það er kúnst að sjóða saman vatnsleiðslur eins og gert vart á mettíma í Svartsengi um síðustu helgi. Að ekki sé talað um í kulda og myrkri og í kappi við tímann. Þeir sem unnu verkið eru hetjur. Við spjöllum um þetta fag við Víglund Laxdal Sverrisson, skólastjóra véltækniskóla Tækniskólans. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Elly Vilhjálms, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Litli tónlistarmaðurinn. Stína Ágústsdóttir - Vorið og tómið. Gerry and The Pacemakers - Ferry cross the Mersey. Páll Rósinkranz - Suður um höfin.

Mannlegi þátturinn
Bridds á Íslandi, Gott að eldast og heilsuspjallið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 23, 2024 47:45

Sterkasta briddsmót sögunnar, sem fram hefur farið hér á landi, hófst í gær og það verður spilað í fjóra daga í Hörpu. Margar af skærustu stjörnum briddsheimsins taka þátt. Áhugi á bridds hefur tekið kipp undanfarið hérlendis en um tuttugu þúsund Íslendingar spila bridds reglulega. Við forvitnuðumst í dag um bridds og því kom forseti Bridgesambands Íslands, Brynjar Níelsson, í þáttinn til að fræða okkur, bæði um bridds og alþjóðlegu mótin tvö sem fara fram hér á landi, því þegar hinu fyrra lýkur þá er blásið nánast um leið til leiks í öðru alþjóðlegu móti í Hörpu. Í dag lifir fólk almennt lengur en áður og það er líka virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir kom í þáttinn í dag. Hann er einn yfirlækna á Reykjalundi, formaður verkefnastjórnar verkefnisins Gott að eldast og hann var nýlega ráðinn til að vera yfir öllum endurhæfingadeildum á Landakotsspítala. Á nýafstöðnum læknadögum flutti Ólafur erindið Endurhæfing eldra fólks, hvert stefnum við? Hann fræddi okkur um stöðuna í þessu mikilvæga málaflokki. Jóhanna Vilhjálmsdóttir kom svo í heilsuspjallið og við héldum áfram að tala um föstur og fleira í dag. Tónlist í þættinum í dag: Fyrir austan mána / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Loftur Guðmundsson) Ég veit þú kemur / Elly Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson og Ási í bæ) Heima / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Morgunvaktin
Litlu jólin á Morgunvaktinni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 22, 2023 130:00

Morgunvaktin hélt litlu jólin í þætti dagsins. Leikin voru fjölmörg jólalög, jólasögur voru lesnar og við rifjuðum upp jólastemmninguna á Þorláksmessu árið 1949. Rætt var við Jón Ármann Gíslason, sóknarprest í Langanes- og Skinnastaðaprestakalli og prófast í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastdæmi um jólin og trúarlífið. Þá slógum við á þráðinn til Valþórs Atla Birgissonar, formanns Björgunarfélags Ísafjarðar. Hann var við vinnu í snjómokstri og við ræddum um snjóinn og færðina, um störf björgunarsveitarinnar og um skötuveisluna sem haldin er ár hvert. Valþór á von á mörgum í skötuna í ár, en bragðar ekki á henni sjálfur. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Elly Vilhjálms, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Jólasnjór. Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Hvít jól. Laufey, Jones, Norah - Better Than Snow. Laufey, Jones, Norah - Have Yourself A Merry Little Christmas (bonus track wav). Young, David, Samuels, Dave, Fuller, Jerry, Lofsky, Lorne, Peterson, Oscar - White christmas. Wonder, Stevie - Someday at Christmas. Ragnhildur Gísladóttir - Þorláksmessukvöld. Ellen Kristjánsdóttir, Kristján Kristjánsson Tónlistarm. - Yfir fannhvíta jörð. Hilda Örvars - Vetrarsálmur.

Morgunvaktin
Litlu jólin á Morgunvaktinni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 22, 2023

Arnar Jónsson föstudagsgestur og matarspjall um Pálínuboð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 15, 2023

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Arnar Jónsson. Hann er fæddur á Akureyri, útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikshússins 1964 og hefur síðan fleytt rjómann af karlhlutverkum leikbókmenntanna, hlutverkin nálgast 200 á sviði og stór hluti þeirra aðalhlutverk auk sjónvarps- og kvikmyndahlutverka. Arnar er nú, einu sinni sem oftar, í miðri frumsýningatörn fyrir jólasýningu Þjóðleikhússins, Edda, í leikstjórn sonar hans Þorleifs. Eins og það sé ekki nóg þá er líka að koma út tvöföld vínilplata með ljóðalestri Arnars. Það var því um nóg að tala við Arnar í dag, við fórum aftur í æskuna fyrir norðan og á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum meira að segja ljóðalestur í beinni. Svo var það matarspjallið, við töluðum í þetta sinn um Pálínuboð sem sniðugt er að halda saman til dæmis með vinnufélögunum. Og svo töluðum við líka um hluta af brauðsneiðinni, eða brauðinu sem er umdeildur, skorpuna. Tónlist í þættinum í dag: Jólasveinninn minn / Elly Vilhjálms (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Þorláksmessukvöld / Ragnhildur Gísladóttir (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson) Bjart er yfir Betlehem / KK og Ellen Kristjáns (höf.lags óþekktur, texti Ingólfur Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Arnar Jónsson föstudagsgestur og matarspjall um Pálínuboð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 15, 2023 50:00

Styrktartónleikar fyrir Grindvík, Fyrir alla muni og Barbari Kvartett

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 13, 2023 51:44

Næsta sunnudag verður á dagskrá sjónvrapsins sérstakur jólaþáttur af þáttunum vinsælu, Fyrir alla muni, en ný þáttaröð hefur göngu sína í febrúar. Í jólaþættinum bregða Sigurður Helgi Pálmason og Viktoría Hermannsdóttir sér í ferðalag og skoða sögu íslenskra jóla. Þau velta fyrir sér jólahefðum og hvers vegna við höldum jólin eins og við gerum. Sigurður Helgi kom í þáttinn í dag. Við fengum svo að heyra af söfnunartónleikum fyrir fjölskyldur úr Grindavík sem fara fram í kvöld í Bústaðakirkju. Þar munu koma fram bæði Barnakór og kór Grindavíkurkirkju, gestasöngvarar úr Óháða kórnum og kór FÍH ásamt hljómsveit. Tónlistin er öll af jólaplötu Mariah Carey, Merry Christmas. Kristján Hrannar Pálsson, organisti Grindavíkurkirkju kom til okkar í dag ásamt Ninu Ricther, konu sinni, en hún átti hugmyndina að breyta jólatónleikum, sem höfðu verið í undirbúningi síðan í sumar, í söfnunartónleika vegna ástandsins í Grindavík. Þau sögðu okkur betur frá tónleikunum og aðdragandanum í þættinum í dag. Og við héldum áfram að vera jólaleg og fengum til okkar kvartettinn Barbara en sá kvartett kom einmitt til okkar fyrir ári síðan og flutti nokkur jólalög í beinni. Nú komu þeir aftur til okkar, við færðum okkur niður í studio 12 og sungu í forláta hljóðnema sem við vorum búin að láta setja upp fyrir þá. Þeir halda tónleika í Dómkirkjunni á mánudaginn nk. þar sem þeir eru að safna fyrir keppnisferð á norðurlandamót rakarakvarteta. Barbari samanstendur af Gunnari Thor Örnólfssyni, Karli Friðriki Hjaltasyni, Páli Sólmundi H. Eydal og Ragnari Pétri Jóhannssyni. Þeir sungu lögin Hippopotamus, White Christmas og Auld Lang Syne. Tónlist í þættinum í dag: Hvít jól / Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms (erl.lag, texti Stefán Jónsson) Jólaómur / Pálmi Gunnarsson og Sigurður Helgi Pálmason (Vincy Martinet & Kristján frá Djúpalæk) Hark! The Herald Angels Sing / Mariah Carey (Mariah Carey & Mariah Carey, Loris Holland, Traditional & Walter Afanasieff) Nounous et pioupious/ The Metropole Orkest í stjórn Jan Stulen (Roger Roger) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Styrktartónleikar fyrir Grindvík, Fyrir alla muni og Barbari Kvartett

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 13, 2023

Einmannaleiki, Covid í dag og börn sem eiga tvö heimili

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023 50:00

Það hefur komið fram í fjölmiðlum að einmanaleiki sé algengur meðal eldra fólks á Vesturlöndum og stundum er talað um faraldur. Ásgeir Rúnar Helgason sálfræðingur tekur undir að þetta sé faraldur og segir að skilgreining okkar á einsemd sé sú að hafa engan til að deilda með erfiðum tilfinningum. Á vefsíðunni www.lifdununa.is er að finna áhugavert viðtal við Ásgeir og hann kkom í þáttinn í dag. Allt í gegnum Covid faraldurinn fengum við gríðarlega mikið af fréttum honum tengdum, það voru upplýsingafundir á vegum Almannavarna nánast upp á hvern einasta dag þar sem við heyrðum um smittölur, lokanir, samkomutakmarkanir, tveggja metra regluna, grímunotkun, bólusetningar og fleira og fleira. En nú hefur ekki mikið heyrst í langan tíma, einstaka frétt um að fólk sé enn að fá Covid, sem virðist þó vera talsverður fjöldi, eða hvað? Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir kom í þáttinn í dag og við fengum hana til að segja okkur frá því hvernig staðan er í dag. Er Covid bara hægt og rólega að deyja út, eða erum við bara ekki lengur móttækileg fyrir fréttum? Er staðan ennþá slæm einhversstaðar í heiminum? Og hvernig er staðan framundan, eru blikur á lofti? Svo fræddumst við um námskeiðið Þarfir barna á tveimur heimilum sem eitt af námskeiðunum sem Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á. Á námskeiðinu verður fjallað um líðan barna sem búa á tveimur heimilum og álagið sem því fyrirkomulagi getur fylgt. Þau Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir, félagsráðgjafi og Davíð Alexander Östergaard, meistaranemi í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf, standa að námskeiðinu og komu í þáttinn í dag og fóru með okkur yfir það sem hafa ber í huga og hverjar hætturnar og hvar flækjustigin geta verið þegar börn búa á tveimur heimilum. Tónlist í þættinum í dag: Við eigum samleið / Elly Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) Green Green / The New Christy Minstrels (B. McGuire & R. Sparks) I have a dream / Abba (Benny Andersson & Björn Ulvaeus) Smooth Sailing / Ella Fitzgerald (Arnett Cobb) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Einmannaleiki, Covid í dag og börn sem eiga tvö heimili

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023

Björgunarsveitir, vinkill um epli og Þór Breiðfjörð lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 4, 2023 50:00

Umsjón Gígja Hólmgeirsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir. Eins og við vitum þá eru íslensku björgunarsveitirnar mikilvægur hlekkur í öllu viðbragði þegar slys eða erfiðar astæður skapast í samfélaginu okkar. Öflugar björgunarsveitir eru starfræktar um allt land og starfseminni er haldið uppi af þúsundum sjálfboðaliða sem eru viljugir til að stökkva af stað þegar þörf er á. En fyrir þau sem langar að vera hluti af starfsemi björgunarsveitanna, hver eru eiginlega fyrstu skrefin til að byrja í björgunarsveit? Og hvernig fer þjálfunin fram? Við fræddumst um þetta hér í Mannlega þættinum og fengum til okkar þau Elvu Dögg Pálsdóttir og Áskel Gíslason frá Björgunarsveitinni Súlum á Akureyri. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og í dag bar hann vinkilinn upp að eplum í einni eða annari mynd. Og lesandi vikunnar var söngleikarinn eins og hann kýs að kalla sig, Þór Breiðfjörð. Hann hefur komið víða við á söng og leiksviðinu hér heima og erlendis og hann er mikill lestrarhestur eins og við heyrðum. Elly Vilhjálms - Minningar. Cooke, Sam - A change is gonna come. Old union station-Thin Jim

Mannlegi þátturinn
Björgunarsveitir, vinkill um epli og Þór Breiðfjörð lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 4, 2023

50 ár frá gosi í Heimaey

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 23, 2023 130:00

Við vorum með hugann við Vestmannaeyjar en í dag eru 50 ár liðin frá því að gos hófst í Heimaey. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, í Vestmannaeyjum var rétt orðin eins árs þegar tók að gjósa; hún fór með fjölskyldu sinni ? eins og flestir Eyjamenn ? til lands. Í hina áttina, út til Eyja, fór hins vegar Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur - Ragnar skjálfti. Við töluðum við Írisi og Ragnar í þættinum í dag. Og með okkur var líka Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í fjármálum, og ræddi um alþjóðleg efnahagsmál. Tónlist: Kvöldsigling - Ólafur Þórarinsson Minning um mann ? Logar Ég veit þú kemur - Elly Vilhjálms

ragnar kv logar gosi vestmannaeyjum eyja vestmannaeyjar brynjar torfason eyjamenn elly vilhj
Morgunvaktin
50 ár frá gosi í Heimaey

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 23, 2023

Sjósund og köld böð, sveitaböll og Einar Kári lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 7, 2022

Við fjölluðum um köld böð og sjósund í þættinum í dag, en Náttúrlækningafélag Íslands heldur málþing um efnið á morgun og yfirskriftin er Köld böð og sjósund - Heilsuefling eða öfgar? Þar koma fram ýmsir fyrirlesarar og meðal þeirra er Björn Rúnar Lúðvíksson prófessor og yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítalans, hans erindi nefnist Sjórinn er skelfilega góður. Björn Rúnar spjallaði við okkur í dag. Við fengum svo nýjan pistil, eða vinkil eins og Guðjón Helgi Ólafsson kýs að kalla pistla sína. Í þetta sinn bar Guðjón vinkil sinn upp að sveitaböllum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Einar Kári Jóhannsson bókaútgefandi. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bækur sem Einar talaði um í dag voru: Allt sem rennur e. Bergþóra Snæbjörnsdóttir Staðurinn / Getting Lost e. Annie Ernaux The Dry Heart e. Natalia Ginzburg Elskhuginn e. Marguerite Duras What We Owe the Future e. William MacAskill Tónlist í þættinum í dag: Vegbúinn / Hera Hjartardóttir og KK (KK) Kveðju sendir blærinn / Elly Vilhjálms (Pugliese Vian og Pálmi Ólafsson) Tasko tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Sjósund og köld böð, sveitaböll og Einar Kári lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 7, 2022 50:00

Barnaheill, kynhlutlaust mál og Póstkort frá Magnúsi R Einars

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 12, 2022

Ellen Calmon hefur verið ráðin framkvæmdastýra Barnaheilla, Save the Children á Íslandi, en hún er nýkomin úr ferð til Jórdaníu og Ítalíu þar sem hún heimsótti verkefni Barnaheilla þar í landi. Hún heimsótti meðal annars Za?atari flóttamannabúðirnar sem liggja í norðurhluta Jórdaníu við landamæri Sýrlands. Þær eru stærstu flóttamannabúðir í heimi með 81.000 íbúa án ríkisfangs. Við ræddum við Ellen um ferðina og einnig um helstu verkefni Barnaheilla á Íslandi í dag. Bragi Valdimar Skúlason heldur fyrirlestur á eftir á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar á vegum FKA, félags kvenna í atvinnulífinu sem hann kallar Allskyns orð. Þar ætlar hann að velta fyrir sé hvernig við getum nálgast kynhlutleysi í tungumálinu okkar. Hverjir, eða hver, séu að streitast á móti því? Eru það við eða kannski bara málið sjálft? Bragi kom í þáttinn í dag og ræddi við okkur um kynhlutleysi og kynjað mál. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Magnús er nú snúinn til baka eftir nokkurra vikna ferðalag víða um Evrópu. Í póstkorti dagsins segir hann frá því hvað það þarf til að geta kallast Eyjamaður. Hann segir frá ættingjum sem hafa talist og teljast Eyjamenn, en til þess þurfa menn að sanna sig á ýmsan máta. Það er líka sagt frá konfektverksmiðju í Úkraínu og eiganda hennar en það var enginn annar en fyrrum forseti landsins sem nú er sakaður um landráð en samt leyft að taka þátt í baráttunni gegn Rússum. Tónlist í þættinum: Vegir liggja / Elly Vilhjálms (Sigfús Halldórsson og Indriði G. Þorsteinsson) Á skútunni minni / South River Band (Ólafur Þórðarson og Helgi Þór Ingason) Someone to watch over me / Ella Fitzgerald (Ira Gershwin og George Gershwin) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Play Episode Listen Later Oct 12, 2022 50:00

Lífshlaup urriðans í Þingvallavatni

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 12, 2022

Í byrjun þáttar var fjallað stuttlega um kvikmyndina 79 af stöðinni en sextíu ár eru í dag síðan hún var frumsýnd. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur var gestur klukkan hálf átta. Hann hefur um árabil rannsakað urriðann í Þingvallavatni. Urriðadansinn svokallaði verður á laugardaginn, þá segir Jóhannes gestum frá ævi og athæfi urriðans en hrygningatímabilið stendur nú. Sacheen Littlefeather lést í byrjun mánaðar. Hún var ötul baráttukona fyrir réttindum frumbyggja í Bandaríkjunum og var fræg þegar hún kom fram við Óskarsverðlaunahátíðina 1973 og afþakkaði verðlaunin fyrir hönd Marlon Brandos. Vera sagði frá Litlu fjöður. Karen Birna Þorvaldsdóttir varði gær doktorsritgerð við Háskólann á Akureyri og varð fyrst allra til að gera það. Skólinn hlaut réttindi til að útskrifa doktora fyrir fimm árum. Ritgerð hennar ber heitið "Að skilja og mæla hindranir þess að leita sér hjálpar eftir áfall." Karen Birna var gestur Ágústs Ólafssonar fréttamanns á Akureyri. Tónlist: If I had a hammer - Peter, Paul and Mary, Vegir liggja til allra átta - Elly Vilhjálms, Litli fugl - Elly Vilhjálms, Með þér - Ragnheiður Gröndal, If not you - Dr. Hook. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Play Episode Listen Later Oct 12, 2022 102:11

Peningamál, Berlínarspjall og nýr mannauður

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 4, 2022

Í spjalli um efnahag og samfélag fjallaði Þórður Snær Júlíusson meðal annars um verðlækkun íslenskra hlutabréfa, bólumyndun á húsnæðismarkaði og yfirvofandi vaxthækkanir á óverðtryggðum húsnæðislánum. Aukinn skattur á orkuframleiðslu og fiskeldi í Noregi var einnig til umræðu. Milljón flóttamenn hafa komið til Þýskalands það sem af er ári. Langflestir frá Úkraínu en einnig frá Afganistan, Pakistan og Sýrlandi. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði meðal annars um vaxandi áhyggjur þýskra yfirvalda af stöðinni en örðugt er að útvega öllum húsnæði og vinnu. Arthúr sagði líka frá rithöfundinum og rannsóknarblaðamanninum Gunter Wallraff sem varð áttræður á dögunum. Hann varð frægur á sínum tíma fyrir bók sem hann skrifaði og afhjúpaði ómannúðlega meðferð og framkomu gagnvart innflytjendum í Þýskalandi á árunum eftir síðari heimsstyrjöld. Við þurfum að taka miklu betur á móti fólki sem sest hér að en við gerum nú. Það segir Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi sendiherra, sem telur íslenskt samfélag fara á mis við mikið við að hvetja ekki og hjálpa nýjum Íslendingum að taka virkan þátt í lífinu og tilverunni í landinu. Það á að nýta mannauðinn, segir hún. Berglind hefur helgað sig málefninu að undanförnu og hélt um það erindi nýverið á fundi Hins íslenska þjóðvinafélags. Hún er bjartsýn á að hlutirnir færist til betri vegar. Tónlist: Þrek og tár - Haukur Morthens og Erla Þorsteinsdóttir, Ó hve glöð ég er - Elly Vilhjálms, Vagg og velta - Erla Þorsteinsdóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Play Episode Listen Later Oct 4, 2022 130:00

Íslensk og ítölsk stjórnmál og hjólabærinn Akureyri

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 23, 2022

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var gestur þáttarins og ræddi um áherslur sínar og sýn í stjórnmálunum. Hún var líka inn viðbragða við árásinni sem hugsanlega var yfirvofandi á Alþingi og lögreglu og jafnvel fleiri stofnanir en lögreglu tókst að afstýra með handtökum á þriðjudaginn. Kosið verður á Ítalíu á sunnudag. Kannanir benda til að flokkur Giorgiu Meloni fái mest fylgi og hún verði forsætisráðherra. Það er gott að hjóla og þeim fjölgar sem nota reiðhjól sem farartæki til að komast á milli staða. Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi Akureyrarbæjar, og Rögnvaldur Már Helgason, frá Hjólreiðafélagi Akureyrar, töluðu um ágæti hjólreiða og aðgerðir bæjarins til að auðvelda fólki að ferðast um á reiðfáki. Tónlist: Honky tonk blues - Hank Williams, Take this chains from my heart - Hank Williams, Non ho l'etá - Gigliola Cinquetti, Heyr mína bæn - Elly Vilhjálms. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.

Play Episode Listen Later Sep 23, 2022 130:00

Hvalrekaskattur, Háskólinn á Hólum og Sturla Þórðarson

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 8, 2022

Stóru olíufyrirtækin í heiminum hafa grætt á tá og fingri frá því að olíuverð rauk upp í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur kallað eftir að þessi umfragróði verði skattlagður sérstaklega. Már Wolfgang Mixa, lektor við Háskóla Íslands, ræddi um þá hugmyndafræði. Hólmfríður Sveinsdóttir er nýtekin við embætti rektors Háskólans á Hólum. Hún sagði frá skólastarfinu en kennsludeildirnar eru þrjár; ferðamálabraut, hestabraut og fiskeldis- og fiskalíffræðibraut. Sturluhátíð verður haldin í Dölunum um næstu helgi. Einar K. Guðfinnsson, formaður Sturlufélagsins, ræddi um Sturlu Þórðarson skáld og sagnaritara og sagði frá hátíðinni og félaginu sem Svavar Gestsson var forvígismaður að. Tónlist: Ég vil fara upp í sveit - Elly Vilhjálms, Mrs. Robinson - Simon og Garfunkel, Scarborough fair - Simon og Garfunkel, Í löngu máli - Una Torfa. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Play Episode Listen Later Aug 8, 2022 130:00

Forstjóralaun, Pútín sálgreindur og úkraínska

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 8, 2022 130:00

Laun forstjóra í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll hækkuðu umtalsvert á síðasta ári. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir mál í spjalli um efnahag og samfélag. Hann ræddi líka um lækkun hlutabréfaverðs og kaupaukakerfi sem innleidd hafa verið í íslenskum fyrirtækjum. Þýski sálgreinirinn Hans-Jurgen Wirth segir sjálfsupphafningu og innibyrgða reiði Pútíns Rússlandsforseta hafa firrt hann allri dómgreind. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá því og fleiru í Berlínarspjalli. Úkraínska og rússneska eru náskyld tungumál, um það fjallaði Þórhallur Eyþórsson, prófessor í málvísindum í pistli í Morgunblaðinu á dögunum. Hann kom á Morgunvaktina og ræddi þennan skyldleika og sagði frá ýmsu er varðar tungumálin tvö. Undir lok þáttar komu Ellen Kristjánsdóttir og Þorsteinn Einarsson í heimsókn og vöktu athygli á Friðartónleikum í Hallgrímskirkju kl. 18 í dag vegna hörmunganna í Úkraínu. Þau fluttu líka lagið We shall overcome. Tónlist: Turn! Turn! Turn! - Pete Seeger, Söknuður - Alfreð Clausen, Hvert er farið blómið blátt - Elly Vilhjálms og Ragnar Bjarnason, We shall overcome - Ellen Kristjánsdóttir og Þorsteinn Einarsson, lifandi flutningur.

Morgunvaktin
Forstjóralaun, Pútín sálgreindur og úkraínska

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 8, 2022

Tíu ár frá hryðjuverkunum í Noregi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 22, 2021 130:00

Í dag eru 10 ár frá hryðjuverkunum í Noregi, 22. júlí 2011. 77 létu þá lífið og tugir til viðbótar slösuðust í sprengjuárás og skothríð hægriöfgamanns í Osló og á Útey. Gísli Kristjánsson, fréttaritari Ríkisútvarpsins í Noregi, var á línunni frá Osló. Hann sagði frá minningarathöfnum dagsins og umræðunni um ódæðisverkin nú áratug síðar. Margt er óuppgert og margir sem lifðu af árásirnar telja sig ekki hafa fengið viðunandi stuðning. Reykjavíkurborg hefur í sumar, líkt og í fyrrasumar, boðið fullorðnu fólki upp á námskeið í tæknilæsi. Eldri borgurum er sumsé kennt á snjalltæki; tölvur og síma sem eru svo nauðsynleg í dag. Með þessu á að sporna við einangrun og einmanaleika og stuðla að auknu sjálfstæði og valdeflingu. Huginn Þór Jóhannsson og Gísli Felix Ragnarsson, verkefnastjóri eflingar félagsstarfs fullorðinna, og Huginn Þór Jóhannsson, sem leiðir tæknilæsisverkefnið, sögðu frá þessu., Selatalningin mikla fer fram á Vatnsnesi á sunnudag og Selasetur Íslands, Hvammstanga, óskar eftir sjálfboðaliðum. Sandra M. Granquist, verkefnastjóri hjá Selasetrinu, segir okkur frá selatalningunni, frá íslenska selastofninum og rannsóknum á honum. Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir. Tónlist: Hvað er að? - Elly Vilhjálms Ég vil fara upp í sveit - Elly Vilhjálms Some Die Young - Laleh Tanta till Beate - Lillebjörn Nilsen Selurinn - Snorri Helgason & Lay Low

Morgunvaktin
Tíu ár frá hryðjuverkunum í Noregi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 22, 2021

Allt flókið og viðkvæmt þegar kemur að bóluefnaflutningi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 14, 2021 130:00

Einhver verðmætasti, og mikilvægasti, farmur sem berst til landsins um þessar mundir eru bóluefni við Covid-19. Í hvert skipti sem skammtar koma hingað eru það Júlía Rós Atladóttir og hennar fólk hjá fyrirtækinu Distica sem sér um viðtökuna, geymsluna og dreifinguna. Þetta er flókið ferli þar sem ekkert má fara úrskeiðis - Júlía Rós kom til okkar og sagði frá þessu öllu saman. Geldingadalir og Meradalir, þetta eru þau örnefni sem við heyrum hvað oftast í fréttunum þessa dagana ásamt auðvitað Fagradalsfjalli. En hvers vegna ætli Meradalir heiti Meradalir? Við spurðum að því, meðal annars í ljósi þess að vitað er ábúendur á Hrauni, jörðinni sem Meradalir tilheyra, áttu í byrjun 18. aldar aðeins eina meri. Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur og sérfræðingur á Árnastofnun sagði frá örnefnum á gosstöðvunum. Ýmislegt bendir til þess að mygla og raki í húsnæði geti haft vond áhrif á röddina okkar. Talsvert hefur verið fjallað um myglu í skólum og nú er talin hætta á að raddir barna og kennara í skólahúsum þar sem mygla er, geti skaðast. Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, raddmeina- og talfræðingur, er raunar á því að hæsi og versnandi raddheilsa geti verið fyrsta merki um rakaskemmdir og myglu. Ágúst Ólafsson fréttamaður á Akureyri ræddi þessi mál við Valdísi. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: You're my world - Cilla Black Anyone who had a heart - Cilla Black Allt mitt líf - Elly Vilhjálms

Morgunvaktin
Allt flókið og viðkvæmt þegar kemur að bóluefnaflutningi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 14, 2021

Áhyggjur af ágangi og vanvirðingu við náttúruna við gosstöðvarnar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 31, 2021 130:00

Áhugafólki um íslenska kvikmyndagerð og þar með íslenska sögu og listir hefur aldeilis verið boðið upp á konfekt að undanförnu. Ísland:Bíóland, þættir Ásgríms Sverrissonar í Sjónvarpinu á sunnudagskvöldum, hafa mælst afskaplega vel fyrir og íslenskar myndir eru sýndar á kvöldin og reyndar daginn líka um þessar mundir. Við Hvaleyrarbrautina í Hafnarfirði er Kvikmyndasafn Íslands til húsa. Við forvitnumst um safnkostinn og starfsemina: Þóra Ingólfsdóttir forstöðumaður safnsins kom til okkar og spjallaði um íslenskt bíó yfir kaffibolla. Náttúran á Reykjanesskaganum er stórbrotin - þar eru mikil háhitasvæði, hraunbreiður og gígar svo eitthvað sé nefnt. Og enn bætist við - gosið í Geldingadölum býr til nýjar minjar og laðar auðvitað að þúsundir Íslendinga á degi hverjum. Nokkur ár eru síðan Reykjanesið hlaut alþjóðlega viðurkenningu Sameinuðu þjóðanna sem jarðvangur - Daníel Einarsson er framkvæmdastjóri Reykjanes jarðvangs og hann mætti á Morgunvaktina og útskýrði fyrir okkur hvað felst í því - og ræddi tækifærin í nýja eldgosinu. Græni hatturinn á Akureyri er líklega nafntogaðasti tónleikastaður landsins. Sá besti, segja sumir. Sá langbesti segja aðrir. Og er þá sama hvort tónlistamenn eða tónleikagestir eru spurðir. Tónleikahaldarinn, Haukur Tryggvason, er brattur þrátt fyrir vesen síðustu þrettán mánuði. Ágúst Ólafsson fréttamaður tók hús á Hauki. Tónlist: Svona eru menn - KK Án þín - Elly Vilhjálms og Raggi Bjarna

Morgunvaktin
Áhyggjur af ágangi og vanvirðingu við náttúruna við gosstöðvarnar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 31, 2021

Raggi Bjarna um Elly Vilhjálms og streita gæludýra

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2020 50:00

Það er 28.desember í dag og það er afmælisdagur Ellyjar Vilhjálms. Hún hefði orðið 85 ára í dag hefði hún lifað og við fengum í tilefni af því að heyra brot úr þætti Margrétar Blöndal, Stefnumót, sem var á dagskrá Rásar 1 árið 2017. Þar ræddi Margrét við Ragnar Bjarnason um Ellyju og gömlu hljómsveitarárin með KK. Það eru áramót framundan og þá hafa margir gæludýraeigendur áhyggjur af dýrunum sínum, enda geta flugeldar og hávaðinn sem þeim fylgir kallað fram talsverða hræðslu og streitu hjá gæludýrum. Undanfarið hafa verið fréttir af því að hundaeign hefur aukist mikið í faraldrinum, jafnvel svo mikið að það er meiri eftirspurn en framboð á ýmsum hundategundum. Því rifjuðum við upp viðtal við Hönnu Arnórsdóttur dýralækni hjá dýraspítalanum í Garðabæ. Hanna fræddi okkur um streitu vegna til dæmis aðskilnaðarkvíða gæludýra, hvað sé ráðlagt að gera við honum, sem getur verið mismunandi eftir því hvaða dýr eða tegund um ræðir. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

gar kk arn margr raggi bjarna elly vilhj
Mannlegi þátturinn
Raggi Bjarna um Elly Vilhjálms og streita gæludýra

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2020

Það er 28.desember í dag og það er afmælisdagur Ellyjar Vilhjálms. Hún hefði orðið 85 ára í dag hefði hún lifað og við fengum í tilefni af því að heyra brot úr þætti Margrétar Blöndal, Stefnumót, sem var á dagskrá Rásar 1 árið 2017. Þar ræddi Margrét við Ragnar Bjarnason um Ellyju og gömlu hljómsveitarárin með KK. Það eru áramót framundan og þá hafa margir gæludýraeigendur áhyggjur af dýrunum sínum, enda geta flugeldar og hávaðinn sem þeim fylgir kallað fram talsverða hræðslu og streitu hjá gæludýrum. Undanfarið hafa verið fréttir af því að hundaeign hefur aukist mikið í faraldrinum, jafnvel svo mikið að það er meiri eftirspurn en framboð á ýmsum hundategundum. Því rifjuðum við upp viðtal við Hönnu Arnórsdóttur dýralækni hjá dýraspítalanum í Garðabæ. Hanna fræddi okkur um streitu vegna til dæmis aðskilnaðarkvíða gæludýra, hvað sé ráðlagt að gera við honum, sem getur verið mismunandi eftir því hvaða dýr eða tegund um ræðir. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

gar kk arn margr raggi bjarna elly vilhj
Morgunútvarpið
24. des. - Heimilisiðnaður, Björn Valur, jólahald, kirkjugarðar, bíó

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020 130:00

Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur hefur ritað hundrað ára sögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands í bókinni Handa á milli. Hulda heimsótti hana og fræddist um íslenskan heimilisiðnað í fortíð og nútíð. Björn Valur Gíslason fyrrum alþingismaður og núverandi skipstjóri snéri nýlega heim til Akureyrar eftir fjögurra mánaða úthald á sjó. Hann stýrir skipinu Emeraude sem gert er út frá Frakklandi og upphaflega stóð til að túrinn yrði tveir mánuðir en alheimsfaraldur Covid-19 setti hressilegt strik í þann reikning. Við hringdum í Björn Val og heyrðum aðeins af ævintýrum hans á sjó. Við fórum líka í heimsókn á Hlíð, öldrunarheimili Akureyrar. Þar spjallaði Gígja Hólmgeirsdóttir við fólk í dagþjálfunardeild, forvitnaðist um starfsemina um jólin og heyrði dýrmætar jólaminningar. Á Íslandi er sterk hefð fyrir því að heimsækja kirkjugarða á aðfangadag og kveikja á kertum við leiði ættingja. Oft verður umferð mikil og við tókum stöðuna hjá Kára Aðalsteinssyni í Kirkjugörðum Reykjavíkur sem var á línunni hjá okkur. Við spáðum svo aðeins í jólabíómyndir og sjónvarpsþætti, núna þegar fólk verður að mestu leyti heima í huggulegheitum um jólin og svo opnuðum við símann og buðum fólki að taka þátt í kosningu á manneskju ársins. Tónlist: Baggalútur - Jólin eru okkar (ft. Valdimar Guðm. og Bríet). Sigurður Guðmundsson - Það snjóar. Paul McCartney - Wonderful Christmas time. KK og Ellen - Meiri snjó. Elín Ey - Jólaljósin. Elly Vilhjálms - Ég sá mömmu kyssa jólasvein. The Pouges and Kirsty McColl - Fairytale of New York. Ragnhildur Gísladóttir og Brunaliðið - Jóla-jólasveinn. David Bowie og Bing Crosby - Peace on Earth / Little drummer boy. Brenda Lee - Rockin around the Christmas tree.

Morgunútvarpið
24. des. - Heimilisiðnaður, Björn Valur, jólahald, kirkjugarðar, bíó

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Flugur
Raggi Bjarna og Elly Vilhjálms og jólalögijn

Flugur

Play Episode Listen Later Dec 21, 2020 43:50

Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms syngja nokkur jólalög frá ýmsum tímaskeiðumi. Þau byrja á að syngja lög sem voru gefin út 1964 og síðan lög frá seinni tíð. Meðal annars eru leikin lög af plötunni Jólafrí sem Elly sem gefin var út árið 1988 og af plötunni Gleðileg jól með Ragga Bjarna sem hann gerði árið 2008.

gle raggi bjarna elly vilhj
Flugur
Raggi Bjarna og Elly Vilhjálms og jólalögijn

Flugur

Play Episode Listen Later Dec 21, 2020

Þarf að rýmka um fyrir listamenn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 14, 2020 130:00

Listamenn eru meðal þeirra sem hafa orðið fyrir hvað mestum búsifjum vegna kórónuveirunnar. Leikhús hafa verið lokuð í hálft ár, stórar hátíðir sumarsins urðu ekki og raunar hafa fæstir viðburðir, stórir eða smáir, verið haldnir með hefðbundnum hætti síðustu mánuði. Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, kom á Morgunvaktina til að ræða stöðu listamanna, og hvernig þeir líta á haustið. Í dag eru 40 ár síðan Víkurfréttir komu fyrst út. Það var sem sagt 14. ágúst 1980 sem þetta fréttablað Suðurnesjamanna hóf göngu sína og þar með eru Víkurfréttir með elstu starfandi fréttamiðlum landsins. Páll Ketilsson hefur ritstýrt blaðinu síðan 1983; hann stiklaði á stóru í sögu Víkurfrétta og ræddi um héraðs- eða bæjamiðla og fleira. Mikilvægur áfangi í fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair náðist í vikunni þegar samkomulag tókst milli félagsins og lánveitenda þess, og líka við Boeing flugvélaframleiðandann. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fór yfir málefni félagsins í ferðaspjalli eftir Morgunfréttirnar klukkan átta. Hann skoðar líka flugáætlun haustsins og farmiðaverð. Tónlist: Cardigan - Taylor Swift, Ég veit þú kemur - Elly Vilhjálms, Stolt siglir fleyið mitt - Áhöfnin á Halastjörnunni

Morgunvaktin
Þarf að rýmka um fyrir listamenn

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Aug 14, 2020

Kórónuveiran í veldisvexti í Bandaríkjunum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 3, 2020 130:00

Litla kaffistofan varð sextug í júní síðastliðnum og haldið verður upp á tímamótin um helgina. Litla kaffistofan er líklega sá veitingastaður við þjóðveginn sem lifað hefur hvað lengst, og á sér fjölda fastagesta eins og Svanur Gunnarsson, sem rekur kaffistofuna með konu sinni, sagði frá á Morgunvaktinni. Hann var í óða önn að undirbúa kjötsúpu dagsins og baka pönnukökur, enda eru það hlutir sem alltaf verða að vera á boðstólum. Þrátt fyrir að búið sé að opna ytri landamæri ESB og Schengen ríkjanna þá er hverju ríki nokkurn veginn í sjálfsvald sett hvaða ríkjum þau opna fyrir. Þetta var meðal þess sem Kristján Sigurjónsson ritstjóri Túrista fór yfir í spjalli um ferðamál. Hann talaði líka um vandræði Icelandair og um deilur vestanhafs um það hvort selja eigi miðjusætin í flugvélum eða ekki. Nóg er um að vera í bandarískum stjórnmálum sem fyrr. Trump Bandaríkjaforseti hefur átt erfiðar vikur undanfarið og kannanir sýna nú forskot Joe Biden á landsvísu og líka í sveifluríkjum. Trump er í eldlínunni í kórónuveirufaraldrinum, sem er orðinn stjórnlaus víða í Bandaríkjunum, og á meðan lætur Biden ekkert sérstaklega mikið fyrir sér fara. Hann reynir að virka skynsamur og sýna meðlíðan, en leyfir Trump og repúblikönum að eiga sviðið svolítið í vandræðum sínum. Tónlist: Ég vil fara upp í sveit - Elly Vilhjálms, Bart Jan Hogenhuis - Coffee Break, Bo Kaspers Orkester - Sommaren,

Morgunvaktin
Kórónuveiran í veldisvexti í Bandaríkjunum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jul 3, 2020

The Raisin at the Hot Dog's End
#18 Beyond Björk

The Raisin at the Hot Dog's End

Play Episode Listen Later Feb 15, 2019 69:39

#Episode #18 #18 Beyond Björk Don't get us wrong, Björk, Sigur Rós, GusGus and Of Monsters and Men are great but there's a lot more to Icelandic music. In this episode, we'll begin our journey into the Icelandic music landscape and introduce you to some classics, what the kids are listening to and sprinkle in a touch of techno BDSM. We're hoping to make this a recurring topic of discussion so don't be dismayed if you're not into or are already hip to the music we talk about this go around––we'll circle back to this topic on the regular. A little of our musical taste/background to give our listeners a sense of the filter through which we're listening to and critiquing the music we'll be sharing on today's episode. Our first and/or favorite: 45/LP Lyd - I Want You Back by the Jackson 5 and Control by Janet Jackson J-Mo - Neil Young Harvest Cassette Lyd - Word Up by Cameo J-Mo - My friend Augusta's mix tapes which were mainly Magnetic Fields, Belle and Sebastian and Saint Etienne CD Lyd - Low End Theory by A Tribe Called Quest J-Mo - Vibeology by Paula Abdul Mp3 Lyd - Crazy in Love by Beyonce J-Mo - Song Against Sex by Neutral Milk Hotel What's on heavy rotation now Lyd - The Carters and 80s/90s R&B J-Mo - Van Morrison - Astral Weeks ###Our playlists of the songs featured on this episode: Spotify YouTube ###Songs mentioned in this episode: The Ballad of the Broken Birdie Records - Múm (Ruxpin Remix II) Heyr mína bæn - Elly Vilhjálms [aka Eurovision Song Contest 1964 - Winner: Non ho l'eta (I'm Not Old Enough) by Gigliola Cinquetti] Vegir liggja til allra átta - Elly Vilhjálms Ocean is Amber - Gróa Downward Dog - Gróa Into the Dark - Between Mountains Little Sunny Flowers - Between Mountains Just a Friend - Biz Markie b.o.b.a. - JóiPé, Króli Í átt að tunglinu - JóiPé, Króli Ég vil það - Chase Anthony, JóiPé Hatrið mun sigra - Hatari Glaðasti hundur í heimi - Friðrik Dór Particles - Island Songs VI - Ólafur Arnalds, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir THIS IS NOT SPONSORED CONTENT, Y'ALL. FER REAL. Just so you know, we are absolutely not getting paid for any of this. None of this is an advertisement or sponsored content or a "collaboration" (can you sense our collective eye roll?) with any companies or organizations or whatever other euphemism you have for getting paid to pretend something is your honest opinion. This is pure, unadulterated solid gold from our brainses. Enjoy. Wanna say thank you? Rate us and/or leave us a review. Go nuts with our Google Map (we made it just for you with ♥︎) FOLLOW US Subscribe on Apple Podcasts Subscribe on Stitcher Our Website Facebook Handy dandy Google Map Instagram Pinterest Twitter Email: raisinandhotdog@gmail.com Takk, takk and bless, bless y'all!

Journalistpodden (Journalistförbundet)
Journalistpodden #177: Sigridur Hagalin Björnsdottir

Journalistpodden (Journalistförbundet)

Play Episode Listen Later Sep 14, 2018 34:23

Nu handlar det om Island. Vi träffar Sigridur Hagalin Björnsdottir, vice nyhetschef på RUV, och snackar om det isländska medieklimatet där licensen avskaffades för länge sedan, telekombolagen redan äger tv-kanaler och medierna genomgått en stor förtroendekris. Hur har detta påverkat de isländska kollegerna? Lyssna och lär. Medverkande: Sigridur Hagalin Björnsdottir och Jonas Nordling. Vinjett: Hergé/M. Ashraf.Musik: "Ég vildi dansa í nótt" med Elly Vilhjálms.

island musik lyssna ashraf ruv jonas nordling elly vilhj
Flugur
Erlend lög með íslenskum textum

Flugur

Play Episode Listen Later Aug 13, 2018 43:00

Leikin eru nokkur erlend lög sem hafa verið sungin á íslensku. Meðal flytjenda eru Alfreð Clausen, Ingibjörg Smith, Helena Eyjólfsdóttir, Ragnar Bjarnason, Sigurdór Sigurdórsson, Ómar Rangarsson og Elly Vilhjálms.

Flugur
Erlend lög með íslenskum textum

Flugur

Play Episode Listen Later Aug 13, 2018

Norðfirðingur - Hlaðvarp

Í þessum þætti segir Kata frá hvernig hún varð Elly Vilhjálms, hvernig var að koma 10 ára á Norðfjörð, og mörgu fleira. Kata er dóttir Sigga prests og fylgdi mömmu sinni oft og tíðum í Þjóðleikhúsið í æsku.

sigga elly vilhj
Morgunvaktin
Lofar umbótum í geðheilbrigðismálum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 23, 2018 130:00

Jafnaðarmenn í Þýskalandi hafa ákveðið að ganga til viðræðna við Kristilega demókrata um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Aðrir möguleikar um myndun nýrrar ríkisstjórnar að loknum kosningum hafa ekki fundist. Ákvörðun Jafnaðarmanna, sem áður höfðu þverttekið fyrir að endurnýja stjórn með Kristilegum, vekur spurningar um það fyrir hvað flokkurinn stendur. Arthúr Björgvin Bollason ræddi stöðuna í stjórnmálum í Þýskalandi. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu misserum fengið meiri athygli en áður. Ætli megi ekki tala um nokkurs konar vakningu. Margt fólk hefur þar lagt lóð á vogarskálar, ekki síst sjúklingarnir sjálfir, aðstandendur og félagasamtök. Ný ríkisstjórn ætlar að hrinda í framkvæmd geðheilbrigðisáætlun til ársins 2020, efla geðheilbrigðisþjónustu á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Bráða- og barna- og unglingageðdeildum Landspítalans verður tryggt fjármagn til að standa undir rekstri þeirra. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, lýsti þessum áformum. Formaður Félags markþjálfa, Ásta Guðbrandsdóttir, ræddi þörfina fyrir því að hjálpa börnum og fullorðnum til að gera sitt besta, ná tengslum við tilfinningar sínar og virkja getuna. Þau sem kveiktu á Útvarpinu morguninn 23. janúar 1973, fyrir sléttum 45 árum, heyrðu þulinn og fréttamenn lýsa því að eldgos væri hafið á Heimaey. Nú er starfrækt þar glæsilegt gosminjasafn, Eldheimar, þar sem gestirganga aftur til fá tækifæri til að lifa sig inn í þessa mögnuðu atburði. Safnstjóri Eldheima, Kristín Jóhannsdóttir, rifjaði upp gosnóttina, lýsti safninu og samgöngum Eyjamanna. Elly Vilhjálms söng Ég veit þú kemur eftir Oddgeir Kristjánsson og Ása í Bæ.