Podcasts about samskipti

  • 30PODCASTS
  • 67EPISODES
  • 59mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • May 14, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about samskipti

Latest podcast episodes about samskipti

Mannlegi þátturinn
Vinnuvernd og útvarpsþáttaröðin Kaflaskil um menntamálin

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 14, 2025 51:51

Samskipti, streita, fjarvistir og félagsleg sjálfbærni á vinnustöðum er nokkuð sem fyrirtækið Auðnast vinnur með og leggur áherslu á gott umhverfi fyrir starfsfólk og vinnustaði. Ragnhildur Bjarkadóttir sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd kom í þáttinn í dag og við til dæmis veltum fyrir okkur hvað felst í orðinu vinnuvernd, en hér á árum áður þýddi það aðallega gulur hjálmur en í dag svo miklu meira. Svo skoðuðum við menntamálin, nánar tiltekið nýja þáttaröð sem heitir Kaflaskil. Í þeim er farið djúpt ofan í stöðuna í menntamálum, þar sem talað er við kennara, skólastjóra og nemendur. Er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Hvernig ná skólarnir að sinna nemendum með fötlun eða nemendum með erlendan bakgrunn? Guðrún Hálfdánardóttir, kollegi okkar hér á Rás 1 og umsjónarmanneskja þáttaraðarinnar, var hjá okkur í dag og fór betur með okkur yfir menntamálin og efni þáttaraðarinnar og við fengum að heyra tvö brot úr þáttunum, úr viðtali Guðrúnar við Sigrúnu Blöndal deildarstjóra í 6.- 10. bekkjar í Egilsstaðaskóla. Hægt er að hlusta á þættina á sunnudögum á Rás 1 og í spilara RÚV á ruv.is Tónlist í þættinum í dag: Nú liggur vel á mér / Lummurnar, útsetning Gunnar Þórðarson (Óðinn G. Þórarinsson, texti Númi Þorbergsson) Nútíminn / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Sigurður Bjóla Garðarsson) Gaggó Vest / Eiríkur Hauksson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Heilsuvarpid
#113 Berglind Sigmars sálfræðingur - Uppbyggileg samskipti og lausn ágreininga

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Jan 24, 2025 65:30

Gestur þáttarins er Berglind Sigmarsdóttir sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri og veitir einstaklingsmeðferð og heldur námskeiðið Tölum saman samskiptanámskeið. Svo hún er hokin af reynslu þegar kemur að heilbrigðum uppbyggilegum samskiptum. Við fórum um víðan völl í hvernig við setjum mörk hvað einkennir góð samskipti, og virka hlustun og hvernig við leysum deilur á uppbyggilegan hátt. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is

Spegillinn
Samskipti vegna bygginga grænu skemmunnar, ríkisstjórn Noregs riðar til falls og verkföll kennara

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 23, 2025 20:00

4. orkupakkinn er við það að sprengja norsku stjórnina og það hriktir í stjórnarsamstarfi Verkamannaflokksins og Miðflokksins; Verkföll kennara vofa yfir um mánaðamótin og ekkert miðar áfram í deilunni., Mikil samskipti voru milli þeirra sem byggðu græna, stóra vöruhúsið við Álfabakka og starfsmanna borgarinnar í aðdraganda framkvæmdarinnar. Þau samskipti snerust þó að mjög litlu leyti um útlit og stærð hússins eða hugsanleg áhrif þess á íbúa við Árskóga 7, heldur fyrst og fremst hvort stórfyrirtækið Hagar, sem ætlar að leigja húsið undir sína starfsemi, fengi nægilega mörg bílastæði.

Mannlegi þátturinn
Samskipti ungmenna, húfuvinkill og Tanja lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 2, 2024 50:00

Aukin harka er komin í samskipti barna í öllum árgöngum grunnskóla en þó sérstaklega á miðstigi og unglingastigi. Strákar þurfa að vera harðir og óhræddir og mega ekki klaga. Húmorinn er grimmur og stelpa eiga það til að lenda undir og láta lítið fyrir sér fara, en þar á bæ skiptir útlitið hvað mestu máli. Þetta segir Gunnlaugur Víðir Guðmundsson félagsmálafræðingur sem starfað hefur með ungu fólki í tvo áratugi bæði á Akureyri og í Reykjavík og er nú forstöðumaður Gleðibankans, félagsmiðstöðvar Hlíðaskóla. Við ræddum þetta við Gunnlaug í dag og leituðum skýringa og ræddum hvaða þættir hafa áhrif á þessa hegðun barna og hvernig við getum brugðist við henni. Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn var að þessu sinni borinn að höfðum okkar, nánar til tekið að húfum og höfuðfötum. Guðjón velti því fyrir sér hvernig húfan sem slík verður til í mannkynssögunni, hvers vegna og hvað það er sem gerist í mannslíkamanum við of mikinn kulda og of mikinn hita. Að lokum skoðaði hann örlítið hvers vegna sum okkar virðast alltaf þurfa að vera með húfu á meðan önnur setja þær helst ekki upp. Og svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Tanja Rasmussen frásagnafræðingur og bóksali. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tanja talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Limits to Growth e. Donellu Meadows o.fl. Mikilvægt rusl e. Halldór Armand Moldin heit e. Birgittu Björgu Guðmarsdóttur Eldri konur e. Evu Rún Snorradóttur Jólabókarleitin e. Jenny Colgan Twilight serían e. Stephenie Meyer Sjálfstætt fólk e. Halldór Laxness Tónlist í þættinum: Litli tónlistarmaðurinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson) Ást / Ragnheiður Gröndal (Magnús Þór Sigmundsson, texti Sigurður Nordal) Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Uppeldisspjallið
"Grunnvarpið" - 2. þáttur- Samskipti uppalenda og barna

Uppeldisspjallið

Play Episode Listen Later Oct 27, 2024 31:24

Í "Grunnkastinu" er farið yfir fyrirspurnir/ábendingar frá fylgjendum um áskoranir hjá börnum á aldrinum 6 til 12 ára. Í öðrum þætti af "Grunnkastinu" spjöllum við um samskipti uppalenda og barna.

Spegillinn
Öryggi ferðafólks, handhafar forsetavalds og samskipti Breta og ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 20:05

Í síðustu viku fórust tveir útlendingar sem voru hér á ferðalagi, annar í bílslysi á Skaga, hinn féll í Hlauptungufoss á Suðurlandi og í sumar dó maður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli. Þetta eru þrjú nærtæk dæmi um banaslys erlendra ferðamanna. Hingað koma í ár um tvær milljónir ferðamanna. Er nóg að gert til að tryggja öryggi þeirra gesta sem hingað koma? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. 23 fengu greitt fyrir að vera handhafi forsetavalds þau tvö kjörtímabil sem Guðni Th. Jóhannesson var forseti Íslands og námu greiðslurnar samtals 66 milljónum króna. Flestir virðast sammála um að gera þurfi breytingar á forsetakafla stjórnarskrárinnar, en það hefur gengið erfiðlega, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Leiðtogar Bretlands og Evrópusambandsins ætla sér að bæta samskiptin í kjölfar útgöngu Breta fyrir fjórum árum. Til stendur að halda leiðtogafundi með reglulegu millibili og auka samstarfið, til dæmis á sviði öryggismála. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands var í Brussel í gær, á fundi með helstu forkólfum Evrópusambandsins - Björn Malmquist fylgdist með. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Helgaspjallið
Þáttur 190 - Helgi & Pétur ræða samskipti í samböndum og hlaupaáhugamennskuna

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jul 31, 2024 69:33

Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Við fengum einstaklega falleg skilaboð eftir síðasta þátt okkar saman og var okkar mesta ánægja að taka upp annan þátt. Ef það er eitthvað sem við leggjum okkur fram í, í okkar sambandi þá eru það heilbrigð samskipti okkar á milli og er ferlið vissulega lærdómsríkt. Við förum á það ásamt því að við snertum smá á pólitík, hlaupaáhugamennskunni og okkar fyrsta utanvegarhlaup ásamt fleiru. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Ekkert að frétta
150 - Ingamariamusic kennir almenn samskipti

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later Mar 7, 2024 154:11

Við ætlum að hafa samskipti gegnum tungumál við Ingu.

Heilsuvarpid
#91 Valdimar Þór - Meðvirkni og samskipti

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Feb 23, 2024 79:43

Valdimar Þór Svavarsson er ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, með MS í stjórnun og stefnumótun, BA í félagsráðgjöf. áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody. Við tölum um meðvirkni og samskipti og áföll í æsku. Stútfullur þáttur af fróðleik og verkfærum fyrir góð samskipti og aukinn skilning á meðvirkni. www.fyrstaskrefid.is Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @netto.is @nowiceland

Uppeldisspjallið
"Frekjukastið"- Áskoranir í lífi leikskólabarna, 4. þáttur

Uppeldisspjallið

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023 72:38

Í þessum hluta af Uppeldisspjallinu er farið yfir fyrirspurnir frá fylgjendum um áskoranir hjá börnum á leikskólaaldri sem gjarnan er stimplað sem "frekja" en á sér aðrar skýringar. Í þessum þætti tókum við fyrir: Samskipti systkina, stoppa óæskilega hegðun, borðsiðir, aðskilnaðarkvíði og kveðja í lok leikskóladags

Ein Pæling
#234 Samskipti á tímum tæknibreytinga (með Ernu Mist)

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Jul 2, 2023 58:10

Rætt er um sannleikann, áhrif tækninnar á samskipti, samfélagsbreytingar og margt fleira.

Þú veist betur
Gervigreind 2.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Apr 30, 2023 55:00

Í síðasta þætti hófumst við handa við að reyna að læra meira um gervigreind, sögu hennar, sem nær aftur á sautjándu öld ef við hugsum til vélrænnar sjálfvirkni einhverskonar. Að taka aðferðir eða aðgerðir og setja yfir í sjálfvirkni. Á nítjándu öld byrjum við svo að ímynda okkur svona vél, þ.e. sem við getum útskýrt fyrir hvað eigi að gera, og hún framkvæmir. Þetta er að eiga sér stað löngu áður en við finnum upp tölvur eins og við þekkjum þær í dag. En samofið allri þessari umræðu um sögu og fram að nútímanum og þeirri gervigreind sem við þekkjum í dag er dýpri umræða. Því það er auðvelt að tala um gervigreind einfaldlega út frá tæknilegu sjónarhorni, hvað hún geti gert fyrir vinnumarkaðinn eða álíka bein hagfræðileg áhrif. Þá vill oft gleymast að kjarni gervigreindar er þverfaglegur. Mest af því efni sem þjálfað er á, er afrakstur hugvísinda. Samskipti við gervigreindina eru í skrifuðu máli eða í samræðum, sem mun verða meira og meira á forsendum manneskjunnar en ekki tækninnar. Þessvegna er mikilvægt að skilningurinn á því hvernig við högum okkur gríðarlega mikilvægur. Spurningin ætti kannski frekar að vera hvernig við getum sameinað hugvísindi, tækni og vísindi enn frekar. Sem leiðir í raun að byrjuninni á samtali mínu við Hannes Högna í þessum þætti, þar sem ég spyr út í hinar mismunandi tegundir greindar hjá okkur sjálfum. Tilfinningagreind til dæmis, hvernig útfærum við hana? Hugtök eins og gott og illt, sem geta oft verið byggð á trúarlegum grunni. Hvernig nálgumst við svona hugtök og kennum gervigreindinni hvað þau þýða? Umsjón: Atli Már Steinarsson

Þú veist betur
Gervigreind 2.hluti

Þú veist betur

Play Episode Listen Later Apr 30, 2023

Heimsendir
#80 Lífið í Tokyo - Samskipti Rússlands og Japans

Heimsendir

Play Episode Listen Later Apr 25, 2023 5:07

EKKI BÍÐA. KOMIÐ Á PATREON, RIGHT NOW. SJÁUMST ÞAR!Hvað eiga stærsta land í heimi og þriðja stærsta hagkerfi heims sameiginlegt? Landamæradeilur. Og fleira. Rússland og Japan eru í love/hate sambandi og hafa lengi verið. Í þessum þætti rekjum við söguna aftur til ársins 1855 og skoðum samskipti, deilur og stríð þessara tveggja grannríkja. 

Heilsuvarpid
#74 Jónas Tryggvi Betra Box sambönd + samskipti

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Apr 10, 2023 64:03

Jónas Tryggvi Stefánsson frá Betra Box, er áhugamaður um samskipti, sambönd, og meðvirkni. Hann vill ekki að við festum okkur í ákveðnu boxi. Í þættinum töluðum við um allskonar tengt samböndum, kynlífi, heilbrigð samskipti, tilfinningar og sjálfsbetrun. @betrabox Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is

Helgaspjallið
Þáttur 134 - Eva Dögg & Helgi ræða samskipti og samskipti í samböndum

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 31, 2023 52:50

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Mín besta kona og uppáhald meðal hlustenda, Eva Dögg Rúnars settist með mér að ræða samskipti og samskipti í samböndum. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar

Normið
198. Sambönd og samskipti - ADHD serían

Normið

Play Episode Listen Later Feb 17, 2023 88:10

Framhald á ADHD seríunni sem tröllríður öllu þessa dagana!! Sko... samskipti eru krefjandi yfir höfuð, hvað þá ef einstaklingar eru að eiga við athyglisbrest. Skoðum hvernig samskipti og sambönd geta verið með ADHD inni í jöfnunni og hvað er gott að hafa í huga! :)  Þetta var ágætlega hrátt og berskjaldað spjall hjá okkur Evu og Sylvíu. Við kunnum svo að meta ykkur elsku hlustendur. Takk fyrir að vera með okkur í þessu.. að tengja, hlægja, gráta og garga saman. 

Pepp Fundir
Pepp Fundur 9: Fyrir ykkur sem hafið lent eða eruð í 'sálarlegu stríði'

Pepp Fundir

Play Episode Play 30 sec Highlight Listen Later Feb 17, 2023 29:38

Sigrún: Þessi pepp fundur er sérstaklega hugsaður fyrir ykkur sem hafið lent í samskiptum við einstakling sem sýnir narcissistic eiginleika. Hann er ætlaður að hvetja þig að fara í gegnum þá reynslu gracefully og rise above. Hann getur einnig nýst þeim sem hafa lent í erfiðum samskiptum og/eða erfiðum aðstæðum sem hvatning að taka völdin á því eina sem þú hefur stjórn á sem ert þú sjálf/ur.

Kvíðakastið
42. Hvað eru góð samskipti?

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later Jan 24, 2023 71:45

Þátturinn er í boði World Class! Í þættinum förum við yfir hvað einkennir góð og slæm samskipti. Við förum yfir hvernig við biðjum um það sem við viljum á árangursríkan hátt, að viðhalda tengslum og byggja ný tengsl, að taka gagnrýni og biðjast afsökunar.

Helgaspjallið
Þáttur 124 - Sigga Dögg kynfræðingur um samskipti í lífi & samböndum

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 19, 2023 61:45

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Sigga Dögg er augnablikið. Ég er get ekki sagt ykkur hvað það mikil ÁNÆGJA að tala og hlusta á Siggu tala. Ég er svo glaður að gefa þennan þátt út. Sigga talar um samskipti í lífinu og samböndum. Við ræðum einnig hvernig við beitum okkur í hugsnum á okkur í lífi og leik. En almennt kemur Sigga með hverja sleggju á eftir annarri. Njótið vel! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar

Víðsjá
Hvíta tígrisdýrið, prentaraverkfallið 1923 og tónlist frumbyggja

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 5, 2023 51:02

Samskipti barna og fullorðinna, sem og feluleikurinn sem oft á sér stað í fjölskyldum er eitthvað sem hefur lengi verið sviðshöfundinum Bryndís Ósk Ingvarsdóttir hugleikið. Bryndís frumsýnir um helgina nýtt leikverk í Borgarleikhúsinu. Hvíta tígrísdýrið er fantasíuverk fyrir alla fjölskylduna, sem fjallar um þrjú börn sem búa uppi á háalofti undir ógnarstjórn Konunnar með kjólfaldinn. Þeim hefur verið talin trú um að veröldin fyrir utan sé hættuleg og ekki bætir úr skák að Hvíta tígrisdýrið fylgist með hverri hreyfingu úr skuggunum. Bryndís er gestur Víðsjár í dag. Hlustendur heyra tónlistarpistil frá Jelenu Chirich. Að þessu sinni segir hún okkur frá örfáum tónlistarmönnum af frumbyggjaættum sem starfa í Kanada. Þetta eru tónlistarmenn sem eru innblásnir af ólíkum tónlistarstefnum, allt frá kantrý til dubstep, sem þeir svo blanda við hljóðheim og málefni frumbyggjaþjóða til að skapa eitthvað alveg nýtt. En þátturinn hefst á því að rifjuð er um hundrað ára vinnudeilu sem hafði áhrif á fjölmiðlaneyslu íbúa Reykjavíkur. Við rifjum upp prentaraverkfallið árið 1923.

Víðsjá
Hvíta tígrisdýrið, prentaraverkfallið 1923 og tónlist frumbyggja

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 5, 2023

Samskipti barna og fullorðinna, sem og feluleikurinn sem oft á sér stað í fjölskyldum er eitthvað sem hefur lengi verið sviðshöfundinum Bryndís Ósk Ingvarsdóttir hugleikið. Bryndís frumsýnir um helgina nýtt leikverk í Borgarleikhúsinu. Hvíta tígrísdýrið er fantasíuverk fyrir alla fjölskylduna, sem fjallar um þrjú börn sem búa uppi á háalofti undir ógnarstjórn Konunnar með kjólfaldinn. Þeim hefur verið talin trú um að veröldin fyrir utan sé hættuleg og ekki bætir úr skák að Hvíta tígrisdýrið fylgist með hverri hreyfingu úr skuggunum. Bryndís er gestur Víðsjár í dag. Hlustendur heyra tónlistarpistil frá Jelenu Chirich. Að þessu sinni segir hún okkur frá örfáum tónlistarmönnum af frumbyggjaættum sem starfa í Kanada. Þetta eru tónlistarmenn sem eru innblásnir af ólíkum tónlistarstefnum, allt frá kantrý til dubstep, sem þeir svo blanda við hljóðheim og málefni frumbyggjaþjóða til að skapa eitthvað alveg nýtt. En þátturinn hefst á því að rifjuð er um hundrað ára vinnudeilu sem hafði áhrif á fjölmiðlaneyslu íbúa Reykjavíkur. Við rifjum upp prentaraverkfallið árið 1923.

Morgunvaktin
Samskipti stórvelda, árið á Spáni og Kópaskeri

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 30, 2022

Alþjóðamálin voru rædd áfram á Morgunvaktinni í dag, einkum samskipti og samkeppni stórvelda - Bandaríkjanna og Kína. Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum og Bogi Ágústsson fréttamaður voru gestir þáttarins. Jón Sigurður Eyjólfsson, kennari og rithöfundur, er búsettur í Andalúsíu á Spáni. Hann fór yfir helstu mál ársins þar í landi og sagði frá áramótahefð Spánverja - að borða 12 vínber rétt fyrir miðnætti. Halldóra Gunnarsdóttir hjá ferðaþjónustusamtökunum Norðurhjara er búsett á Kópaskeri. Hún fór yfir ferðasumarið á Norðausturlandi og horfur á komandi ári. Færðin er þokkaleg á Melrakkasléttunni og hið sama á við um veðrið þrátt fyrir óvissu um hvort það viðri fyrir áramótabrennu annað kvöld. Tónlist: Ray of sun - Anna Gréta Sigurðardóttir, Auld Lang Syne - Mairi Campbell og David Francis, Er of seint að fá sér kaffi núna? - Prins póló, Un jour ici un jour ailleurs - Linda de Suza. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Samskipti stórvelda, árið á Spáni og Kópaskeri

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 30, 2022 130:00

Samfélagið
Rauðvínsspjall í heilsuveru, jarðvegur og bakteríur, málfar og vísindi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 7, 2022

Samskipti milli lækna, sem og annars heilbrigðisstarfsfólks og almennings hafa aldrei verið eins auðveld, enda hafa þau aukist mjög. Sem er gott upp að vissu marki, en líka slæmt segja sumir heimilislæknar. Þau ergja sig mörg á því sem þau kalla rauðvínsskilaboð, sem birtast stundum til þeirra úr heilsuverunni á síðkvöldum. Það á ekki allt erindi við lækna. En hvort er heilsuveran bölvun eða blessun? Og hvernig er hægt að sía út skilaboð svo þau sem eiga raunverulegt erindi komist að. Rætt við Odd Steinarsson sérfræðing í heimilislækningum og varaformann Læknafélagsins. Við ætlum að kíkja ofan í jörðina og spjalla aðeins um það smáa í jarðveginum. Nú bendir allt til þess að ástæðu alvarlegrar sýkingar í hrossastóði fyrir nokkrum dögum megi rekja til eiturmyndandi jarðvegsbakteríu. Við ætlum að ræða um örverur í jarðvegi, slæmar og góðar, við Úlf Óskarsson skógvísindamann. Málfarsmínúta Og við ræðum líka um bakteríur í vísindaspjalli dagsins með Eddu Olgudóttur.

Samfélagið
Rauðvínsspjall í heilsuveru, jarðvegur og bakteríur, málfar og vísindi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 7, 2022 55:00

Samskipti milli lækna, sem og annars heilbrigðisstarfsfólks og almennings hafa aldrei verið eins auðveld, enda hafa þau aukist mjög. Sem er gott upp að vissu marki, en líka slæmt segja sumir heimilislæknar. Þau ergja sig mörg á því sem þau kalla rauðvínsskilaboð, sem birtast stundum til þeirra úr heilsuverunni á síðkvöldum. Það á ekki allt erindi við lækna. En hvort er heilsuveran bölvun eða blessun? Og hvernig er hægt að sía út skilaboð svo þau sem eiga raunverulegt erindi komist að. Rætt við Odd Steinarsson sérfræðing í heimilislækningum og varaformann Læknafélagsins. Við ætlum að kíkja ofan í jörðina og spjalla aðeins um það smáa í jarðveginum. Nú bendir allt til þess að ástæðu alvarlegrar sýkingar í hrossastóði fyrir nokkrum dögum megi rekja til eiturmyndandi jarðvegsbakteríu. Við ætlum að ræða um örverur í jarðvegi, slæmar og góðar, við Úlf Óskarsson skógvísindamann. Málfarsmínúta Og við ræðum líka um bakteríur í vísindaspjalli dagsins með Eddu Olgudóttur.

Spegillinn
Landsfundur Samfylkingarinnar, þungur dómur, heimilialausir, einelti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2022 30:00

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn Útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Það stefnir í að sjálfkjörið verði í tvö æðstu embætti Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins á Grand Hotel í Reykjavík. Höskuldur Kári Schram var í beinni útsendingu frá fundinum. Sýknudómi þriggja samverkamanna var snúið í 14 ára fangelsisdóm þegar Landsréttur kvað upp dóm í Rauðagerðismálinu í dag. Morðinginn fær tuttugu ára dóm. Alexander Kristjánsson tók saman og talaði við Geir Gestsson, lögmann eins sakborninganna sem segir að leitað verði áfrýjunarleyfis hjá Hæstarétti og telja verður líklegt að fallist verði á það. Unnur Þorsteinsdóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu. Unnur er áhrifamesta vísindakona Evrópu samkvæmt vefnum Research.com og sú fimmta áhrifamesta í heiminum. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hana. Neyðarskýlin í Reykjavík ráða ekki við þann mikla fjölda sem nýtir þjónustuna, segir Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, deildarstjóri málaflokks heimilislausra hjá borginni. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hana. Flest bendir til að Landgræðslan og Skógræktin gangi í eina sæng á næstunni. Árni Bragason Landgræðslustjóri og Þröstur Eysteinsson Skógræktarstjóri ræddu við Bjarna Rúnarsson. Samskipti barna og unglinga hafa breyst á undanförnum árum með tilkomu samfélagsmiðla og breytingarnar eru örar. Það er auðvelt að missa sjónar á samskiptamynstri unga fólksins ef foreldrar sofna á verðinum og fylgjast ekki með. Kristján Sigurjónsson ræddi samskiptamynstur ungmenna og foreldra við Katrínu Mjöll Halldórsdóttur og Sturlu Brynjólfsson, sálfræðinga hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni í Reykjavík og umsjónarmenn podcastsins Kvíðakastsins. Búist er við hryllilegri stemningu í Skautahöll Akureyrar í kvöld. þar sem verður boðið upp á hrekkjavöku-skautadiskó. Amanda Guðrún Bjarnadóttir sagði frá og talaði við Svölu Vigfúsdóttur. Ný og endurbætt útgáfa Bítlaplötunnar Revolver kom út í dag, Revolver (Super Deluxe). Í kassanum eru fjórar breiðskífur, EP plata og hundrað síðna bók um plötuna og tilurð hennar. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Spegillinn
Landsfundur Samfylkingarinnar, þungur dómur, heimilialausir, einelti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2022

Steve Dagskrá
Andlega vegferðin, SMS samskipti og sykraður Red Bull.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Oct 25, 2022 69:24

360° Heilsa
Meðvirkni, streita, kulnun, samskipti o.fl með Gyðu Dröfn og Kristínu Sigurðar

360° Heilsa

Play Episode Listen Later Sep 12, 2022 43:31

Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy) sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Kristín Sigurðardóttir er slysa- og bráðalæknir. Hún kennir við læknadeild Háskóla Íslands og er formaður Fræðslustofnunar Læknafélags Íslands. Til að kynnast betur því sem Gyða og Kristín eru að gera: https://www.facebook.com/aheildinalitid https://www.facebook.com/heillheimur  Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu: www.patreon.com/360heilsa

Morgunvaktin
Þingstörf, breytt samskipti á Norðurslóðum og vesen í flughöfnum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022

Þingstörfin eru á lokametrunum, eins og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður sagði okkur frá. Stór bunki óafgreiddra mála er enn á borðum þingmanna. Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir doktorsnemi hefur skoðað áhrif innrásar Rússa í Úkraínu út frá ýmsum alþjóðasamskiptum. Ekki síst á Norðurslóðum. Hún sagði frá breytingunum þar á. Það er vesen víða í flughöfnum þessa dagana, ekki hefur tekist að manna öll störf og flugferðir því úr skorðum. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði frá þessu og ýmsu öðru í ferðaspjalli dagsins. Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: If I Ruled the World - Tony Bennett Handbags and gladrags - Rod Stewart Thank you - Diana Ross Don't go breaking my heart - Elton John

Morgunvaktin
Þingstörf, breytt samskipti á Norðurslóðum og vesen í flughöfnum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022 130:00

Lífið með Lindu Pé
79. Sambönd og samskipti (hluti 2 af 2)

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later May 2, 2022 20:59

Við höldum áfram þar sem frá var horfið úr seinasta þætti að tala um sambönd og samskipti.  Ég ætla að segja þér frá nálgun lífsþjálfunar á sambönd og búðu þig undir að þetta er töluvert ný nálgun miðað við það sem þú hefur eflaust vanist fram til þessa. NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Einknámskeið: „Niður um 4 kg. í mai" Lífsþjálfun + mataræði. Þú munt fara niður um 4 kg. Linda verður einka-lífsþjálfinn þinn og þú lærir nýja aðferð til að losa þig við aukakílóin, til langframa. Láttu þig hlakka til að vera 4 kg. léttari í lok mai! EInkatímar með Lindu og eftirfylgni allan mánuðinn. Vertu snögg að panta því aðeins örfáar komast að á einkanámskeið. Smelltu hér Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Lífið með Lindu Pé
78. Sambönd og samskipti (hluti 1 af 2)

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Apr 25, 2022 26:44

Í þessum þætti ætla ég að tala um sambönd og samskipti. Þetta er reyndar það veigamikið efni að það verður í tveimur þáttum, þessum og þeim næsta. Ég ætla að segja þér frá nálgun lífsþjálfunar á sambönd og búðu þig undir að þetta er töluvert ný nálgun miðað við það sem þú hefur eflaust vanist fram til þessa. NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Einknámskeið: „Niður um 4 kg. í mai" Lífsþjálfun + mataræði. Þú munt fara niður um 4 kg. Linda verður einka-lífsþjálfinn þinn og þú lærir nýja aðferð til að losa þig við aukakílóin, til langframa. Láttu þig hlakka til að vera 4 kg. léttari í lok mai! EInkatímar með Lindu og eftirfylgni allan mánuðinn. Vertu snögg að panta því aðeins örfáar komast að á einkanámskeið. Smelltu hér Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Hlaðvarp Kjarnans
Í austurvegi – Samskipti Kína og Rússlands í gegnum söguna

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Mar 31, 2022 25:25

Vegna þessa hörmulegra stríðs sem nú geisar í Úkraínu hafa samskipti Kína og Rússlands verið til umræðu að undanförnu. Þegar Pútin Rússlandsforseti hitti Xi Jinping forseta Kína í Peking rétt fyrir vetrarólympíuleikana í febrúar síðastliðnum urðu forsetarnir sammála um að engin takmörk væru á tengslum landanna – hvað sem það svo sem þýðir. En hafa samskipti þessara miklu grannþjóða alltaf verið svona takmarkalaus eða alltaf á vinarlegum nótum? Við skulum skoða aðeins samskipti þeirra í sögulegu ljósi.

Spjallið
Sambönd & samskipti

Spjallið

Play Episode Listen Later Mar 30, 2022 77:16

Í þætti vikunnar ræðum við um sambönd, samskipti og veltum því fyrir okkur hvernig opin sambönd virka! 

Límónutréð
Samskipti tveggja ára barna - Bryndís Gunnarsdóttir

Límónutréð

Play Episode Listen Later Mar 22, 2022 30:53

Í þessum þætti kynnumst við Bryndísi Gunnarsdóttur, leikskólakennara frá Ísafirði og doktorsnema við Menntavísindasvið. Hún segir okkur frá dokotorsverkefninu sínu þar sem hún skoðar samskipti tveggja ára leikskólabarna.

Hlaðvarp Pírata
Rússland: Pútín lýgur og bann í Júróvisjón bjargar ekki Úkraínumönnum

Hlaðvarp Pírata

Play Episode Listen Later Mar 1, 2022 46:04

Þriðji og síðasti þátturinn í Rússlandshlaðvarpi Ölfu Eymarsdóttur þar sem hún spjallar við Guðmund Ólafssons um sögu Rússland. Í þessum þætti er spjallað um söguna sem er að gerast, stríðið í Ukraínu. Fyrri þættina má finna á hlaðvarpi Pírata undir titlunum Rússland í nútímaheimi: Samskipti og fjarskipti og Rússland: Stórbrotin saga og blóðugar byltingar

Helgaspjallið
Þáttur 82 - Dagný Bergling hjá Rvk Ritual um fyrstu skref sjálfsvinnu, manifest, mörk og samskipti

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 16, 2022 93:14

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Dominos - www.dominos.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Einn af mínum persónulegu mentorum Dagný Berglind er ein af tveimur eigendum Rvk Ritual, hugleiðslu og djúpöndunarkennari og lífs strategy coach. Við ákváðum að setjast niður og taka upp hinn fullkomna þátt til að kickstata þessu glænýja ári. Við tökum ótrúlega margt fyrir eins og hvernig hennar andlega vegferð byrjaði og hvað hún lærði og hvernig hlustendur geta tekið sín fyrstu skref að líta inná við. Við tölum um hvað það er að setja mörk og hvernig hægt er að beyta sér í þeim málum ásamt því að við brjótum niður námsskeið Rvk Ritual sem er fjórþætt, hvernig við lærum inná okkur, purify, markmið og manifest og hvernig við sköpum okkar nýjar og heilbrigðar venjur sem gera það að verkum að við getum haldið áfram að byggja eins heilbrigt líf fyrir okkur og sálina okkar. Hægt er að finna upplýsingar á www.rvkritual.is Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -

Heimsendir
#20 Samskipti og háskólanám með Önnu Guðrúnu og Júlíu Kolbrúnu

Heimsendir

Play Episode Listen Later Dec 14, 2021 87:35

Hver er munurinn á samskiptum og samfélagsmiðlum? Er verið að þróa nýtt tungumál á netinu? Þurfa allir að fara í háskóla? Í þessum þætti fæ ég til mín dansarana Önnu Guðrúnu Tómasdóttur og Júlíu Kolbrúnu Sigurðardóttur til að leita svara við ofangreindum spurningum og fleirum. Við ræðum meðal annars TikTok og dans, iðnnám og háskóla. Loks lítum við til framtíðar og skoðum hvaða hlut samskipti munu eiga þar. Kæri hlustandi, kíktu á Vísi.is þar sem finna má klippur úr nýjustu þáttunum. Síðan væri vel þegið ef þú gætir sagt EINNI manneskju frá Heimsendi - má vera hver sem er - þá færðu gott Karma í skóinn. Sjáumst hress!

Morgunvaktin
Samskipti Póllands og ESB, Danmörk og ferðamenn á Norðurlandi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 27, 2021 130:00

Dóra Sif Tynes lögfræðingur þekkir vel til málefna Evrópusambandsins og aðildarríkja þess. Hún fór yfir samskipti ESB og Póllands eftir að stjórnlagadómstóll landsins komst að því að hluti löggjafar ESB stangist á við pólsku stjórnarskrána. Hún á ekki von á því að Pólland gangi úr sambandinu enda er meirihluti pólsku þjóðarinnar fylgjandi áframhaldandi aðild. Borgþór Arngrímsson er staddur í Danmörku og segir að ýmislegt hafi breyst í höfuðborginni á þeim þremur árum sem liðin eru frá því hann flutti heim til Íslands að nýju eftir að hafa búið í Kaupmannahöfn um árabil. Mikið hefur verið byggt í borginni, einkum á hafnarsvæðum hennar, á undanförnu. Vegna kórónuveirunnar eru margir veitingastaðir í miðborginni enn lokaðir sem og verslanir. Næga vinnu er að fá í Kaupmannahöfn og nágrenni en íbúar hinum megin við Eyrarsundið hafa ekki haft áhuga á þeim störfum sem eru í boði. Anna Þorbjörg Jónasdóttir, fréttamaður RÚV á Akureyri, ræddi við Baldvin Esra Einarsson, forstjóra Saga travel, og Ragnheiði Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Ferðaskrifstofu Akureyrar, um ferðaþjónustu á Norðurlandi í kjölfar niðursveiflunnar vegna kórónuveirufaraldursins. Sala gengur vel á beinu flugi til og frá Akureyri til útlanda, bæði vilja Norðlendingar fara til Spánar og Hollendingar koma til Akureyrar. Tónlist: Where can I go without you og Maby It?s Because I Love You Too Much með Peggy Lee. Himmelhunden með Teddy Edelmann og Motherland með Natalie Merchant. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir

Morgunvaktin
Samskipti Póllands og ESB, Danmörk og ferðamenn á Norðurlandi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 27, 2021

Í austurvegi – Aukin samskipti Íslands við Kína: Skjól eða gildra?

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021 61:10

Í þætti vikunnar fengum við í viðtal til okkar þau Dr. Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og Snæfríði Grímsdóttur aðjúnkt í kínverskum fræðum. Baldur og Snæ­fríður unnu að ítar­legri rann­sókn um sam­skipti Íslands og Kína á árunum 1995-2021. Við ræddum rannsóknina við þau.

Lestin
Hjólabretti, #Metoo í fyrirbærafræðilegu ljósi og rúllukraginn

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 12, 2021

Þeir eru sígildur klæðnaður, þrunginn merkingu, rúllukragabolirnir.Svartur rúllukragabolur er allt í senn fáguð og afslöppuð flík og hefur verið einkennisbúningur ólíkustu hópa og einstaklinga. Við ræðum við Jóhannes Ólafsson rúllukragaunnanda Samskipti og samkennd: #MeToo á mörkum reynsluheima nefnist fyrirlestur sem fer fram á vegum RIKK - Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum á fimmtudag, en það er Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsnemi og stundakennari í heimspeki sem beitir greiningartækjum fyrirbærafræðinnar á samfélagsbyltinguna. Á Ólympíuleikunum í sumar var í fyrsta skipti í sögu leikanna keppt á hjólabrettum. Þar með eru hjólabrettaiðkun opinberlega orðin húsum hæf, orðin að ólympíuíþrótt, en listin að renna sér á hjólabretti á sér athyglisverða sögu. Steindór Grétar Jónsson sökkvir sér í sögu hjólbrettanna frá jaðarmenningu til redbull og mcdonalds auglýsinga.

Hlaðvarp Kjarnans
Völundarhús utanríkismála Íslands – Þáttur 5: Aukin samskipti Íslands við Kína: Skjól eða gildra?

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Sep 30, 2021 83:05

Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Snæfríður Grímsdóttir aðjúnkt í kínverskum fræðum unnu að ítarlegri rannsókn um samskipti Íslands og Kína á árunum 1995-2021. Baldur og Snæfríður ræddu við Geir Sigurðsson prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands í nýjasta þætti Völundarhússins, þáttum um utanríkisstefnu Íslands, um samskipi Íslands við Kína og niðurstöður skýrslunnar.

Normið
121. Djöfull stuðaru mig

Normið

Play Episode Listen Later Jul 16, 2021 63:53

Af hverju í veröldinni bregst maður stundum við eins og forhert skrattarassgat? Tja núveitjékki. En það væri gott að vita það. Lets talk about it baybay. 

Losti
Samskipti og Kynlíf Vol. 2

Losti

Play Episode Listen Later Jun 20, 2021 30:40

Saga og Birna halda áfram að ræða samskipti og mikilvægi þeirra þegar kemur að kynlífi. Þær svara spurningum gefa ráð, og ræða málin. Til að skoða vöruúrvalið bendum við á heimasíðuna okkar losti.is

Losti
Samskipti og Mikilvægi Þeirra Þegar Kemur að Kynlifi

Losti

Play Episode Listen Later Jun 14, 2021 46:58

Saga og Birna svara spurningum sem hafa borist til þeirra í gegnum samfélagsmiðla, gefa ráð og ræða málin. Til að skoða vöruúrvalið bendum við á heimasíðuna okkar losti.is

Landspítali hlaðvarp
GEÐVARPIÐ // Bráðafasinn: Guðfinna Betty Hilmarsdóttir, Ína Rós Jóhannesdóttir og Jóhanna G. Þórisdóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 20, 2021 40:56

"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Geðhjúkrunarfræðingar á Landspítala ræddu í fyrsta þætti Geðvarpsins samskipti í víðu samhengi, ásamt því að segja stuttlega frá bakgrunni sínum. Í þessum öðrum þætti er bráðafasi geðhjúkrunar hins vegar í aðalhlutverki. Í þættinum koma til liðs við Helgu Sif geðhjúkrunarfræðingarnir Ína Rós Jóhannesdóttir deildarstjóri móttökugeðdeildar, Jóhanna G. Þórisdóttir deildarstjóri bráðageðdeildar og og Guðfinna Betty Hilmarsdóttir aðstoðardeildarstjóri bráðageðdeildar. Það er Guðfinna Betty sem leiðir samtalið í þessum þætti.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-02

Landspítali hlaðvarp
GEÐVARPIÐ // Samskipti: Helga Sif Friðjónsdóttir, Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal og Halldóra Friðgerður Víðisdóttir

Landspítali hlaðvarp

Play Episode Listen Later Apr 15, 2021 34:38

Geðhjúkrunarfræðingar á Landspítala ræða í fyrsta þætti Geðvarpsins samskipti í víðu samhengi, ásamt því að segja stuttlega frá bakgrunni sínum. Gestastjórnandi er dr. Helga Sif Friðjónsdóttir, sem er deildarstjóri hjá geðþjónustu Landspítala. Í þessum fyrsta þætti eru gestir hennar Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal deildarstjóri á BUGL og Halldóra Friðgerður Víðisdóttir deildarstjóri á Laugarási sem leiðir samtalið áfram í þessum þætti."Geðvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-01

Fjölskyldan ehf.
,,Mig langaði mest að hvæsa á hann”

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Mar 14, 2021 31:04

Fæðingarorlof, vinnan heima, hlutverkaskipti og samvinna eru m.a. umræðuefni þáttarins að þessu sinni. Adeline Brynja er farin að una sér vel í pössun á meðan ömmgurnar spjalla og þær létu gamminn geysa í góðu og auðvitað mikilvægu spjalli. Móey Pála hefur áhyggjur af því að fara með Adeline Brynju í vistun hjá öðrum, hún er sjálf núna orðin mjög háð dóttur sinni. Alls konar tilfinningar spila þar inn í og í kjölfarið velta þær fyrir sér upplifun feðra á þessu tímabili. Einnig velta þær upp rétti barnsins til að láta hugsa um sig heima því að það eru ekki foreldrar einir heldur aðrir fjölskyldumeðlimir sem geta annast litla barnið. Barn sem býr með einu foreldri ætti kannski að hafa sama rétt til fæðingarorlofs og barn með tvo foreldra? Þátturinn endar með glaðlegum lokaorðum frá Kötlu.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Fjölskyldan ehf.
Ungbarnasund, dulbúin uppeldisfræði

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Feb 14, 2021 26:49

Adeline Brynja var nýkomin úr Skálatúnslaug þegar ömmgurnar tóku upp hlaðvarp vikunnar.Þær nýttu að sjálfsögðu tækifærið og ræddu ungbarnasund og hverslags töfrastund það getur verið. Þær ræddu þroskaþjálfunina sem fer fram í sundinu, foreldrafærnina, tengslamyndunina, uppeldisfærnina og fleira. Í ungbarnasundinu myndast mikilvægur vettvangur til að æfa samskipti, að bregðast við barninu sínu, að leika við það og að eiga dýrmætar stundir. Foreldrar æfa sig að vera í einlægni og leik með börnunum sem er svo dýrmætt.  Börn eru fljót að sjá í gegnum látalæti og gervimennsku og það er allra best að vera maður sjálfur, allir aðrir eru fráteknir í því sama.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Morgunvaktin
Samskipti hafa áhrif á allt líf okkar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 5, 2021 130:00

Forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um breytingar á stjórnarskránni á Alþingi í vikunni. Hún var ánægð með umræðurnar og sagðist fyllast bjartsýni. Víst er að ekki deila allir hinir flokksleiðtogarnir þeirri bjartsýni. Og svo voru sóttvarnalög samþykkt í þinginu í gær. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá þessu og fleiru úr pólitíkinni. Michelle Roosevelt Edvards stefnir enn ótrauð á að hefja flug milli Íslands og Bandaríkjanna undir merkjum Wow. Hún ítrekaði fyrri yfirlýsingar þar um í Kveik í gærkvöldi. Engin merki eru þó um að hún hafi færst nær flugtaki en hún var þegar hún keypti eignir úr þrotabúi Wow í september 2019. Við röbbuðum um þetta í ferðaspjallinu eftir Morgunfréttirnar. Kristján Sigurjónsson sagði líka frá því að innan ferðaskrifstofa úti í heimi gætir nokkurrar bjartsýni á að hægt verði að ferðast til Íslands innan fárra mánaða og svo fjallaði hann um áhrif ferðamannaleysisins á verslun í landinu. Við höfum rætt svolítið um samskipti, ekki síst í umræðum um stjórnmál undanfarna daga. En hvernig eigum við almennt í samskiptum hvert við annað? Erum við til fyrirmyndar eða er margt sem betur mætti fara? Hvernig getum við tamið okkur góða samskiptahætti? Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir er hjúkrunarfræðingur, rithöfundur og fræðikona sem er höfundur Samskiptaboðorðanna. Hún ræddi við okkur um góð samskipti. Tónlist: Smile - Bell, Quint og Aznavoorian Smile - Nat King Cole Aquarius - The Fifth Element

Fjölskyldan ehf.
Nútímafjölskyldur og lesbían sem missti forræðið

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Listen Later Nov 22, 2020 43:15

Brjóstagjöfin gengur vel hjá Móeyju Pálu en það var ekki raunin hjá Möggu Pálu sem gat einungis haft Brynju dóttur sína á brjósti í 3 vikur. Það reyndist ungu móðurinni mun erfiðara en hún vildi viðurkenna en hafði sáralítil áhrif á dótturina. Það reyndist þessari ungu móður líka erfitt að horfast í augu við það að hún varð ástfangin af konu en það erfiðasta af öllu var að missa forræði dóttur sinnar vegna samkynhneigðarinnar. Hversu sterk eru tengsl foreldra við börnin sín og hvernig lifa fjarbúandi fjölskyldur af aðskilnaðinn? Katla sér um kynningu og lokaorð að vanda af sinni alkunnu snilld.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

Samfélagið
Samskipti á tímum Covid 19. Yemen. Vera.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 30, 2020 55:00

Sigrún Ólafsdóttir prófessor HÍ: Ein málstofa á Þjóðarspegli í HÍ 2020 fjallaði um rannsóknir á hegðun fólks og samskipum á tímum COVID 19. Sigrún segir frá rannsókn á því hvort og hvernig samskiptin hafa breyst,. Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri Unicef: Rætt um ástandið í Jemen. Ný greining alþjóðlegra hjálparstofnana sýnir að almenningur þar í landi er að upplifa mestu mannúðarkrísu veraldar í dag. Vera Illugadóttir: Í dag koma við sögu rottuhvelfing í New York og árleg fuglakosning í Nýja Sjálandi.

Mannlegi þátturinn
Oleanna, heimur ostanna og Sveinn lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 14, 2020 55:00

Leikritið Oleanna, eftir David Mamet, verður frumsýnt á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu á föstudaginn. Við fórum á rennsli á sýningunni og töluðum svo við leikarana tvo, Völu Kristínu Eiríksdóttur og Hilmi Snæ Guðnason og leikstjórann Gunnar Gunnsteinsson. Verkið fjallar um samskipti kennara og nemanda, kynjamál, völd og valdajafnvægi, eða kannski frekar valdaójafnvægi. Samskipti þeirra ganga ekki vandræðalaust fyrir sig, vægast sagt. Leikritið er skrifað árið 1992 og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og það er ekki hægt að segja annað en að það eigi ennþá afskaplega vel við. Heimur ostanna eru skemmtileg smáþáttaröð í umsjá ostaáhugafólksins Svavars Halldórssonar og Eirnýar Sigurðardóttur. Þar leiða þau hlustendur um undraveröld ostanna. Í þessum fyrsta þætti fara þau Svavar og Eirný yfir upphaf ostagerðar, söguna og mismunandi aðferðir. Móngólskar hersveitir, gómsæt gerjun, skyr, osta-sæla og ávanabindandi eiginleikar er meðal þess sem þau drepa á í þessum fyrsta þætti. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sveinn H. Guðmarsson, fjölmiðlafulltrúi í utanríkisráðuneytinu. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá honum, hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. Umsjón: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fjölskyldan ehf.
Forsetar og fótamissir

Fjölskyldan ehf.

Play Episode Play 15 sec Highlight Listen Later May 31, 2020 29:17

Ungabörn eru svo ógn viðkvæm og bjargarlaus og viðkvæmnin fer ekkert frá þeim þótt árunum fjölgi. Þess vegna er erfitt að hafa marga forseta í skólanum og smáræðis áfall í samskiptum getur haft meiri áhrif en við fullorðna fólkið áttum okkur á.

Hlaðvarp Pírata
Rússland í nútímaheimi: Samskipti og fjarskipti

Hlaðvarp Pírata

Play Episode Listen Later Mar 28, 2020 56:20

Álfheiði Eymarsdóttur og Guðmundur Ólafsson halda áfram spjalli sínu um Rússland. Við tökum upp þráðinn þegar Sovétríkin eru að líða undir lok, 1991.

Dótakassinn
Dót dagsins: Jákvæðar fréttir og jákvæð samskipti.

Dótakassinn

Play Episode Listen Later Mar 16, 2020 21:52

Í 12. þætti kynnum við til dót dagsins og í dag verður fjallað um mikilvægi jákvæðra frétta og jákvæðra samskipta. Á næstunni verða gefnir út svona stuttir þættir þar sem áherslan verður á jákvæð og uppbyggileg atriði sem við getum nýtt okkur til að hafa góð áhrif á okkur sjálf og aðra í kringum okkur. Ef þú ert með hugmynd af efni þá væri gaman að heyra frá þér og aldrei að vita nema þín hugmynd verið efni í næsta þátt. ****Tenglar: https://www.positive.news/https://www.sunnyskyz.com/good-newshttps://www.goodnewsnetwork.org/https://www.optimistdaily.com/****Hér getur þú sent inn nafnlausa spurningu eða ábendingu að efni fyrir Dótakassann.Netfang þáttarinns er svo: dotakassinnhladvarp@gmail.com  ****

Samfélagið
Stafræn samskipti. Velferðartækni. Frumur og krabbamein

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 55:00

Andri Heiðar Kristinsson stafrænn leiðtogi í Stjórnarráðinu: Stafræn samskipti eiga að vera meginsamskiptaleið almennings við hið opinbera í lok þessa árs. Til þess þarf að byggja frekar upp stafræna innviði landsins og mun Andri leiða þá vinnu. Þórunn Sveinbjörnsdóttir form. LEB: Landssamband eldri borgara kynnir velferðartækni sem felst í tæknilausnum til að auka öryggi fólks í daglegu lífi, ýta undir sjálfstæði einstaklinga og bæta lífsgæði. Edda Olgudóttir: Segir frá rannsókn á ákveðinni tegund af frumu sem virðist geta ráðið niðurlögum krabbameinsfrumna

Orð um bækur
Orð um björgunaraðgerðir, samskipti, sorg og þrá

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Oct 19, 2019

Ragna Sigurðardóttir segir frá smásagnasafni sínu Vetrargulrætur auk þess sem sagt er frá tilnefningum Dana til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs en Danir tilnefna tvær mjög áhugaverðar bækur. Annars vegar smásagnasafnið Efter solen eftir hinn 28 ára gamla Jonas Eike og hins vegar nýja skáldsögu eftir eftir hina virtu skáldkonu Helle Helle og er það Halla Þórlaug Óskarsdóttir sem segir frá henni. Lesarar eru Gunnar Hansson og Eva Rún Þorgeirsdóttir

Orð um bækur
Orð um björgunaraðgerðir, samskipti, sorg og þrá

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Oct 19, 2019 54:52

Ragna Sigurðardóttir segir frá smásagnasafni sínu Vetrargulrætur auk þess sem sagt er frá tilnefningum Dana til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs en Danir tilnefna tvær mjög áhugaverðar bækur. Annars vegar smásagnasafnið Efter solen eftir hinn 28 ára gamla Jonas Eike og hins vegar nýja skáldsögu eftir eftir hina virtu skáldkonu Helle Helle og er það Halla Þórlaug Óskarsdóttir sem segir frá henni. Lesarar eru Gunnar Hansson og Eva Rún Þorgeirsdóttir

Morgunvaktin
Boris fer til Brussel

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 16, 2019 130:00

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, heldur til Brussel í dag þar sem hann snæðir hádegisverð með Jean-Claude Juncker, formanni framkvæmdastjórnar ESB. Johnson hefur á síðustu dögum haldið því fram að samningaviðræður Breta og ESB vegna útgöngu Breta úr ESB þokist í rétta átt, sem er nokkuð sem ráðamenn í Brussel vilja lítt kannast við. Hádegisverðarins er því beðið með nokkurri eftirvæntingu, en nú eru rúmar 6 vikur þar til Bretar yfirgefa Evrópusambandið. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir Brexit í Lundúnaspjalli dagsinx. Hvernig endursköpuðu Íslendingar hugmyndina um sjálfa sig eftir hrunið og hvernig markaðssettum við okkur sem þjóð? Þetta er á meðal þeirra spurninga sem Kristín Loftsdóttir mannfræðingur spyr sig í nýrri bók sem fjallar um mótun þjóðernissjálfsmynda á Íslandi frá upphafi 20. aldar; í gegnum útrás, hrun, kreppu og uppbyggingu. Já, og svo er það þessi eilífa spurning, hver er staða Íslands sem þjóð á meðal þjóða. Kristín kom á Morgunvaktina og ræddi þessar hugmyndir og fleiri sem hún fjallar um í bókinni, en hún ber titilinn „Crisis and Coloniality at Europe´s Margins“. Heimsins stærsta olíuhreinsistöð, í Sádi-Arabíu, stóð í ljósum logum um helgina eftir drónaáras sem deilt er um hver stóð að. Samskipti ríkja eru í uppnámi en óvíst er hvaða áhrif árásin hefur á olíuverð til langtíma. Vera Illugadóttir fjallaði um olíuframleiðslu Sádi-Araba á Morgunvaktinni. Tónlist: Baby, I´m a Fool - Melody Gardot Lapí, listamannakrá í Flórens - Jakob Hafstein Tónlist úr þáttaröðinn Chernobyl

Morgunútvarpið
Samskipti, jóla góðverk, loftlagsráðstefna, fréttaspjall og hégómi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 14, 2018 120:00

Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu og hjónaráðgjafi er útgefandi bókarinnar Það sem karlar vilja vita, en hún er skrifuð af körlum sem eru góðar fyrirmyndir og í anda tíma þar sem karlar leggja meira á sig en áður hvað velferð parasambanda og umönnun barna varðar. Ólafur segist í störfum sínum við ráðgjöf, og í eigin lífi, hafa notið þeirra forréttinda að sjá þessa þróun. Hann kíkti til okkar í morgunkaffi, ræddi heilbrigð parasambönd og sagði okkur frá bókinni. Eigendur Orange Café Espresso Bar í Ármúla ætla að bjóða þeim sem sjá fram á að vera einir um jólin og hafa jafnvel einnig lítil fjarráð, í mat á aðfangadagskvöld. Boðið verður upp á þriggja rétta hátíðarkvöldverð og ekki rukkuð króna fyrir á meðan húsrúm leyfir. Tómas Hilmar Ragnarz, einn eiganda staðarins, sagði okkur frá þessu. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfissráðherra, var á línunni hjá okkur en hann hefur undanfarna daga setið loftslagsráðstefnuna í Póllandi þar sem mikið hefur gengið á. Fréttir vikunnar voru á sínum stað. Stefán Pálsson, sagnfræðingur, og Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar, fóru yfir málin með okkur í líflegu fréttaspjalli. Freyr Gígja Gunnarsson var á sínum stað með sinn vikulega pistil af hégómavísindum. Tónlist: Geirfuglarnir - Nútímafjölskyldujól. Bogomil Font - Hinsegin jólatré. Friðrik Ómar - Desember. Madonna - Vogue. Johnny Marr - Spiral Cities.

Vikulokin
Brynjar Níelsson, Guðjón Brjánsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egi

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 8, 2018 55:00

Klausturmálið var meðal þess sem hæst bar í vikunni. Það er höfuðverkefni Alþingis að endurvinna traust almennings til þess og það verk þarf forsætisnefnd Alþingis að leiða. Í henni sitja gestir Vikulokanna að þessu sinni; þau Brynjar Níelsson (D), Guðjón Brjánsson (S), Þorsteinn Sæmundsson (M) og Þórunn Egilsdóttir (B). Rætt um áhrif Klausturmálsins og yfirlýsingu Ágústs Ólafs Ágústssonar um að hann fari í leyfi frá þingstörfum eftir að trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar áminnti hann. Samskipti kynjanna og þingstörfin eftir áramót. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Davíð Berndsen

Hlaðvarp Kjarnans
Þetta er merkilegt – Um samskipti og eitraða ást

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Mar 19, 2018 46:09

Ég verð bara að vita hvar þú ert - ALLTAF - ég elska þig svo ótrúlega mikið!“ Sakleysisleg setning… eða hvað? Stundum verða sambönd eitruð - samskipti í alls konar samböndum geta orðið ógagnleg, meiðandi og jafnvel geta þau orðið að ofbeldi. Þetta snýst nýlegt átak Stígamóta #sjúkást einmitt um. Þó svo að átakinu sé beint að 13-20 ára ungmennum er óhætt að segja að það eigi erindi við alla sem ekki ætla að eyða ævinni einangraðir í helli á hálendinu án samneytis við fólk. Ég fékk þær Heiðrúnu Fivelstad og Steinunni Ólínu Hafliðadóttur í þáttinn en þær eru báðar verkefnastýrur hjá þessu magnaða verkefni. Gjörið svo vel!